HEIMILISPÓSTUR
Grundarheimilanna
árgangur
tölublað
59.
2.
September 2023
Forsíðumyndin: Forsíðumyndina prýðir Guðrún Hallgrímsdóttir þar sem hún virðir fyrir sér eigið handverk og annarra á Blómstrandi dögum í Ási. Ljósmyndari Fanney Björg Karlsdóttir.
Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
Prentun: Litróf
Upplag: 800
2 Heimilispósturinn Efnisyfirlit Pistill forstjóra . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3 Þegar gleðin tekur völd . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6 Heimsókn á Kastalakaffi . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8 Á fimmta tonn af gúrkum . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .10 Gáfu Grund fimm loftdýnur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .13 Litríkar og skemmtilegar skreytingar í Ási . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .14 Guðrún B. Gísladóttir sæmd fálkaorðunni . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .16 Eindæma veðurblíða og dásemdar söngur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .18 Svo að segja fæddur í Austurbæjarskóla 21 Miðbær hlaut gullverðlaun fyrir sínar svalir 25 Aðstoðar við stólaleikfimi 30 Bökuðu 1.200 pönnukökur með kaffinu 31 Smurbrauð getur verið lítið listaverk 32 Nýtt kaffihús í vesturbænum í vor 36 Vikulega mæta sjálfboðaliðar 37 Reykjanesið heimsótt 38 Fetaði í fótspor langafa síns 41 Markmiðið að safna milljón fyrir heimilið mitt í Mörk 42 KK, fiskisúpa og vináttubönd. 46 Skelltu sér á listsýningu 48
Það kemur enginn í staðinn fyrir aðstandendur
Aðstandendur hvers heimilismanns eru dýrmætir. Við þekkjum á eigin skinni að það að hafa fólkið okkar nálægt skiptir gríðarlegu máli . Það kemur enginn starfsmaður, sama hversu elskulegur hann er, í staðinn fyrir nána ættingja eða ástvini.
Það er því mikilvægt að aðstandendur upplifi sig velkomna til að taka þátt í lífi heimilismanna. Þetta skiptir alltaf máli en ekki síst í byrjun, eftir að á nýtt heimili er komið, bæði í tímabundna dvöl sem og ótímabundna. Þá er það sérstakt öryggi fyrir heimilisfólkið að skynja að aðstandendur komi ekki að lokuðum dyrum .
Heimilismenn stýra sínum
heimsóknum
Það eykur einnig vellíðan heimilisfólks að upplifa það að fólkið þess sé velkomið í heimsókn. Á Grundarheimilunum eru ekki skilgreindir heimsóknartímar, ekki frekar en á heimilum almennt, heldur stýrir hver heimilismaður sínum heimsóknum sjálfur.
Við viljum eindregið hvetja alla aðstandendur til þess að halda áfram að skapa góðar minningar með sínum nánustu innan veggja heimilanna sem og að nota tækifæri til útiveru og samveru úti í bæ, allt eftir getu hvers og eins.
Viltu lesa upp eða bjóða upp á ís?
Stundum hafa aðstandendur boðist til að vera með upplestur á heimili þar sem þeirra fólk býr nú eða spurt hvort það megi bjóða upp á veitingar eins og ísveislu, skyr og nýtínd ber eða nýbakaðar
Heimilispósturinn 3 Pistill forstjóra
Karl Óttar Einarsson, forstjóri Grundarheimilanna
pönnukökur. Svarið er alltaf jákvætt. Það gleður þá sem búa með ástvini aðstandandans og skapar bæði tilbreytingu og notalega stund í hans nánasta umhverfi. Aðstandendur hafa jafnvel fengið kórinn sinn með sér á heimilið til að halda tónleika og það þarf vart að taka fram að það er miklu meira en velkomið að gera slíkt .
Við höfum þörf fyrir tilbreytingu
Við höfum öll þörf fyrir tilbreytingu og aðstandendur fá vonandi andrými, nú þegar aðrir sinna umönnun að miklu leyti, til að brydda upp á slíkum stundum. Nýtt hlutverk aðstandenda gefur þeim og heimilisfólki vonandi tækifæri til að búa til stundir og njóta saman, gera skemmtilega hluti og halda siðum og venjum áfram sem skipta máli.
Karl Óttar Einarsson
4 Heimilispósturinn JólahugvekJa 2019 Pistill forstjóra
Heimilispósturinn 5 Pistill forstjóra
Allir hafa gott af tilbreytingu.
Þegar gleðin tekur völd
Starfsfólkið okkar finnur upp á ýmsu sem gleður og veitir tilbreytingu.
Eva Dögg bauð til dæmis upp á hláturjóga í samverustund í
Bæjarási nýverið.
Það var ekki að sökum að spyrja, fólk veltist um af hlátri og gleðihormónarnir flæddu fram.
Dásemdar stund.
6 Heimilispósturinn Hláturjóga
Fríða, Halla og Anna Sigga kátar að venju.
Heimilispósturinn 7 Hláturjóga
Fríða átti ekki erfitt með hláturinn.
Guðrún kunni svo sannarlega að meta þessa stund.
Heimsókn á Kastalakaffi
Nokkrir heimilismenn og starfsfólk, sem búa og starfa á 2. hæð í Mörk, ákváðu að bregða undir sig betri fætinum einn fallegan dag í sumar. Þau skelltu sér á Kastalakaffihúsið hjá Hjálpræðishernum sem er rétt við hliðina á Mörk og fengu sér marengstertu og heitt súkkulaði. Allir voru sælir með þessa tilbreytingu og frábært að fá sér ferskt loft þó göngutúrinn væri ekki langur. Það þarf oft ekki mikið til og aðstandendur leggja sig líka fram um að bjóða fólkinu sínu í göngutúra um næsta nágrenni Grundarheimilanna. Það eru kaffihús í göngufæri frá þeim öllum þremur og auðsótt mál að fá lánaða hjólastóla, teppi og annað sem þarf til að gera gönguferðina mögulega .
x 8 Heimilispósturinn Tilbreyting í Mörk
Heimilisfólk var á því að kökurnar væru frábærar.
Heimilispósturinn 9 Tilbreyting í Mörk
Það er stutt að ganga á Kastalakaffi.
Á fimmta tonn af gúrkum
„Við höfum verið að prófa nýjungar í sumar, gert tilraunir m.a. með eggaldin, kúrbíta, gula tómata, sætar paprikur, chili og hnúðkál svo dæmi séu tekin,“ segir Jónas Þór Sigurbjörnsson garðyrkjustjóri í Ási, þegar hann er spurður hvernig sumarið hafi gengið í gróðurhúsum Grundarheimilanna í Ási í Hveragerði.
Auk þess hefur uppskeran verið góð af agúrkum, bæði litlum og þessum venjulegu, og tómataræktunin gengið vel. „Við erum með hefðbundna tómata, kirsuberjatómata, bæði gula og rauða og síðan konfekttómata líka. Hefðbundnar paprikur hafa gengið vel, líka þessar sætu sem við vorum að prófa, og svo erum við alltaf með salat og gulrætur, púrrulauk og vorlauk. Jarðarberin gengu ekki vel að þessu sinni og næsta sumar ætlum við svo að bæta við kartöflum. Við erum með góðan skika til að prófa að rækta úti kartöflur,“ segir Jónas. „Í fyrra voru það um fjögur tonn af gúrkum, sem fóru frá gróðurhúsunum, þrjú tonn af gulrótum og 2,2 tonn af tómötum . Í ár verður magnið meira. Við náum alveg að sinna framleiðslu á þessum tegundum fyrir heimilin og starfsfólk hefur einnig fengið að kaupa frá okkur grænmeti þegar uppskeran er í hámarki. Stundum höfum við meira að segja náð að selja eitthvað aukalega og Almar bakari kaupir t.d. af okkur salat.“
10 Heimilispósturinn
Gróðurhús Grundarheimilanna í
Ási
Jónas Þór Sigurbjörnsson.
Jónas býst við að hann nái að sinna ræktun á tómötum, gúrkum, salati og paprikum fram að jólum og svo verði gert hlé eftir áramót í um tvo mánuði. „Við tökum okkur smá hlé eftir áramót til að sinna viðhaldi á gróðurhúsunum, mála og gera klárt fyrir næsta tímabil. Janúar á þessu ári var erfiður. Það kom upp óværa hjá okkur og allt gekk á afturfótunum.“ En Jónas segir að eftir að hitalögnum var breytt og ýmsar aðrar breytingar gerðar hafi ræktunin farið upp á við og hafi einnig gengið vel í allt sumar.
Færðu púttvöllinn í Ási
En starf Jónasar er ekki bara fólgið í að sjá um gróðurhús heimilanna heldur sinnir hann líka öllu útisvæði Áss í Hveragerði þ.e. görðum og opnum svæðum.
Heimilispósturinn 11 Gróðurhús Grundarheimilanna í Ási
Grænmetið hefur dafnað vel í sumar.
„Þetta gekk rosalega vel í sumar. Veðrið hjálpaði til. Við færðum líka púttvöllinn á betri stað og klárum hann svo næsta sumar. Þegar hann verður tilbúinn verður þetta frábær púttvöllur. En garðsláttur og umhirða svæða gekk framar vonum þetta árið.“
10.700 sumarblóm Auk þess sem grænmeti er ræktað í gróðurhúsum heimilanna þá eru sumarblómin allsráðandi snemma vors. Þau prýða svo svalir, garða og ýmis blómaker á Grundarheimilunum. „Við ræktuðum heilmikið af sumarblómum í ár, um 10.700 plöntur og jukum framleiðsluna frá því í fyrra. Blómin fóru á öll heimilin og voru einnig gróðursett hjá Íbúðum 60+ í Mörkinni. Starfsfólkið fékk svo að njóta góðs af og kaupa blóm þegar búið var að úthluta blómum á heimilin.“
12 Heimilispósturinn
Gróðurhús Grundarheimilanna í Ási
Gáfu Grund fimm loftdýnur
Thorvaldsenskonur komu fyrir nokkru færandi hendi hingað á Grund með fimm loftdýnur. Sigrún Faulk framkvæmdastjóri hjúkrunar á heimilinu tók á móti dýnunum frá fulltrúum Thorvaldsenskvenna.
Alveg frábær gjöf og mikil þörf í húsinu fyrir slíkan búnað. Dýnurnar henta vel til að fyrirbyggja sár og meðhöndla þrýstingssár. Mjúkt innra lag veitir þægindi og hentar vel til að verkjastilla.
Thorvaldsenskonum er innilega þakkað fyrir þessa höfðinglegu gjöf.
Heimilispósturinn 13 Rausnarleg gjöf
dagar
Litríkar og skemmtilegar
skreytingar í Ási
Eins og mörg undanfarin ár tók Ás þátt í Blómstrandi dögum í
Hveragerði með því að setja upp líflegar og litríkar skreytingar í görðum heimilisins.
Það ríkir alltaf mikil stemning á Blómstrandi dögum eins og annarsstaðar í bænum. Heimilismenn og starfsfólk sameinast í að hafa umhverfið sem litríkast og skemmtilegast. Að þessu sinni var einnig haldinn húsgagnamarkaður í Ási á Blómstrandi dögum þar sem gestum og gangandi gafst kostur á að kaupa húsgögn sem leyndust í geymslum í Ási .
14 Heimilispósturinn Blómstrandi
Heimilispósturinn 15 Blómstrandi dagar
Guðrún B. Gísladóttir sæmd fálkaorðunni
Önnur orðuveiting ársins fór fram á Bessastöðum 17. júní síðastliðinn. Fjórtán einstaklingar voru sæmdir fálkaorðunni að þessu sinni.
Guðrún Birna Gísladóttir, fyrrverandi forstjóri Grundar, var ein þeirra. Hún hlaut riddarakrossinn fyrir umönnun og þjónustu við aldraða .
Við óskum henni hjartanlega til hamingju, þetta átti hún svo sannarlega skilið.
16 Heimilispósturinn Bessastaðir
Heimilispósturinn 17 Bessastaðir
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, veitti Guðrúnu Birnu Gísladóttur riddarakrossinn við hátíðlega athöfn.
Eindæma veðurblíða og dásemdar söngur
Það var ákveðið að fagna sumri á Grundarheimilunum þann 22. ágúst á Grund, 23. ágúst í Ási og 24. ágúst í Mörk. Alla dagana var eindæma veðurblíða og margir sem komu í heimsókn til að fagna með heimilisfólki og starfsfólki.
Börn voru sérstaklega boðin velkomin og þeim boðið upp á andlitsmálun, blöðrur og hoppukastala þar sem því var komið við. Sönghópurinn Tónafljóð gladdi okkur alla dagana með hreint dásamlegu lagavali og söngskemmtun og svo töfraði eldhús Grundarheimilanna fram frábærar veitingar. Dásamlegir sumardagar og öllum er kærlega þakkað fyrir þátttökuna. Svona dagar skapa góðar minningar hjá heimilisfólki, starfsfólki og aðstandendum .
18 Heimilispósturinn Sumarhátíðahöld Grundarheimilanna
Heimilispósturinn 19 Sumarhátíðahöld Grundarheimilanna
20 Heimilispósturinn Sumarhátíðahöld Grundarheimilanna
Svo að segja fæddur
í Austurbæjarskóla
Kristján Thorlacius.
Hann þekkti vel til þegar hann flutti á Grund, enda bjuggu Áslaug, móðir hans, Örnólfur, bróðir hans, og Ingileif, dóttir hans á, heimilinu á undan honum.
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir heimsótti Kristján Thorlacius sem býr nú ásamt eiginkonu sinni, Ásdísi Kristinsdóttur, á LitluGrund.
Það er kannski merki um nýja tíma að Kristján er með snjallsíma og tölvu og ekkert mál fyrir hann að fletta upp í símanum og skoða myndir með mér þegar við leitum að mynd til að hafa með spjallinu í Heimilispóstinn. Fyrir fimmtán árum, þegar undirrituð var að byrja að taka viðtöl fyrir blaðið, heyrði það til undantekninga ef heimilismaður var með tölvu og nettengingu, hvað þá heldur snjallsíma. En Kristján fylgist vel með fréttum og aðstandendum sínum í gegnum þessa miðla .
Kenndi í Gagnfræðaskóla Austurbæjar
Kristján er kennari af lífi og sál og hann er svo að segja fæddur í Austurbæjarskóla. Þar var faðir hans, Sigurður Thorlacius, skólastjóri þegar Kristján fæddist og þá var til siðs að skólastjórinn hefði íbúð í skólanum. Faðir hans lést hinsvegar þegar Kristján var nokkurra ára og þá flutti hann með Áslaugu, mömmu sinni, á Skeggjagötu .
Heimilispósturinn 21 Margir úr fjölskyldunni búið á Grund
Hann hélt tengslum við Austurbæjarskóla því þar gekk hann í skóla þangað til hann fór í landsprófsbekk í Vonarstræti og svo þaðan í MR. Hann valdi sér sagnfræði og dönsku þegar í Háskóla Íslands var komið og kenndi með náminu í Gagnfræðaskóla Austurbæjar, eins og skólinn var þá kallaður. Þar líkaði honum vel og skólastjórinn þar sagði að ef hann kæmist í gegnum skólaárið með bekkinn sem hann úthlutaði honum þá yrði hann góður kennari. Þetta var F-bekkur en á þeim tíma var nemendum raðað eftir getu og þeir sem áttu auðveldast með nám lentu í A-bekk og svo koll af kolli . Það er skemmst frá því að segja að Kristján réð vel við bekkinn, fannst lítið mál að kenna krökkunum og þarmeð var ævistarfið ákveðið.
Áfangastjóri í Fjölbraut Ármúla
Hann kenndi einnig við skólann eftir að námi lauk uns honum bauðst að verða áfangastjóri við Fjölbrautarskólann við Ármúla og því starfi sinnti hann til sjötugs. „Það var gott að vera í Fjölbraut í Ármúla og fyrstu árin kenndi ég líka með starfi mínu sem áfangastjóri. En allt hefur sinn tíma og þegar ég varð sjötugur kvaddi ég kennsluna.“
Kennarafjölskylda
Í spjalli okkar kemur fram að hann er ekki eini kennarinn í fjölskyldunni . Fyrir utan það að faðir hans var skólastjóri þá er eiginkona hans Ásdís Kristinsdóttir kennari og kenndi m .a . í áratugi í Ísaksskóla. Sum systkina hans hafa verið kennarar líka, Örnólfur Thorlacius var kennari, Hjónin Kristján og Ásdís.
22 Heimilispósturinn Margir úr fjölskyldunni búið á Grund
Kristín, systir hans, að hluta sem og Hallveig, systir hans. Dóttir Kristjáns, Áslaug, er skólastjóri Myndlistarskólans og Sigrún, dóttir hans, líffræðingur sem starfar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og tekur oft á móti börnum þar og fræðir. Svo kennslan er í blóðinu. Dóttir hans, sem ekki hefur lagt fyrir sig kennslu, er Sigríður sem starfar sem söngkona. Kristján og Ásdís áttu tvær aðrar dætur, Solveigu og Ingileifu, sem báðar eru látnar, fengu heilaæxli og dóu langt fyrir aldur fram. Önnur þeirra, Ingileif, bjó á Grund eftir að hún veiktist.
Að gera gagn
En hvað er svona gefandi við það að vera kennari?
Hann hugsar sig um dágóða stund en bendir á að hann hafi kennt fjölda barna og ungmenna um árin. „Þegar þeim gekk vel í námi þá var tilfinningin góð. Líklega af því að ég skynjaði að ég var að gera eitthvert gagn.“
Nú eruð þið hjónin búsett á Grund. Fer bærilega um ykkur?
„Það fer vel um okkur en auðvitað eru það viðbrigði að búa á hjúkrunarheimili. Samt voru mestu viðbrigðin fyrir mig að geta ekki keyrt lengur og það eru nokkur ár síðan ég ákvað að nú væri komið nóg og hætti að keyra. Þá verður maður upp á aðra kominn og ég átti erfitt með að sætta mig við það.
Ásdís, konan mín, er komin með elliglöp og ég á orðið erfitt með gang svo þetta var óumflýjanlegt, að flytja á hjúkrunarheimili. Og hér er hugsað vel um okkur. Stór hluti af þeim sem starfar hér við umönnun eru erlendir starfsmenn og upp til hópa er þetta sómafólk. Ég man að mamma mín átti í alveg sérstöku sambandi við rússneska konu sem starfaði hér þá og þær áttu einstakt og kærleiksríkt samband.“
Heimilispósturinn 23 Margir úr fjölskyldunni búið á Grund
Gríp í Fávitann ef mér leiðist
Hvernig líða dagarnir?
„Ég á ekkert erfitt með að viðurkenna að mér leiðist oft en þá gríp ég í bók og leiðinn líður hjá. Nú er það Fávitinn eftir Dostojevsky sem er á borðinu mínu. Það tekur mig óratíma að lesa það verk.
Við erum líka heppin hjónin að geta verið saman hér á Grund. Ég fer í sjúkraþjálfun nokkrum sinnum í viku en hef ekkert verið duglegur að sækja hinar ýmsu skemmtanir. Maturinn er bara fínn, það var t.d. fiskur í matinn í dag og hann er alltaf glænýr hérna. Svo það væsir ekkert um okkur.
Svo eigum við þrjár dætur á lífi, tíu barnabörn og fjögur barnabarnabörn og fólkið okkar er duglegt að kíkja í heimsókn til okkar. Það eru góðar stundir.“
x 24 Heimilispósturinn
Margir úr fjölskyldunni búið á Grund
Yngsta dóttir Kristjáns og Ásdísar, Sigríður, að koma heim af fæðingardeildinni. Stoltur faðir sýnir hana eldri systrum. Móðir tók mynd.
Miðbær hlaut gullverðlaun
fyrir sínar svalir
Það er hefð fyrir því í Mörk að velja fallegustu svalirnar á sumrin og yfirleitt mikil stemning í húsinu fyrir þessum viðburði.
Það var svo sannarlega sumarlegur blær yfir Mörk þegar dómnefndin gekk um húsið og gaf svölum hússins stig einn góðviðrisdag í sumar. Öllu var til tjaldað og reynt að múta dómnefndinni með ýmsum „trakteringum“, púrtvíni, sætindum, ís og konunglegu kaffiboði. Eitt heimilið var meira að segja komið með hænur á svalirnar til að heilla dómnefndina.
Dómnefndina skipuðu starfsmennirnir Magnús Ólafsson, Guðrún Birna Gísladóttir og Matas Skibickas en auk þeirra var Ágústa Erla
Heimilispósturinn 25 Svalasamkeppni í Mörk
Katrín Sigvaldsdóttir og Helga Þórðardóttir í Miðbæ tóku við viðurkenningu frá Ágústu.
Ólafsdóttir fengin til að skoða svalirnar með augum barnsins. Þá var ákveðið að fá þekktan fagurkera í málið, sem reyndist vera Hjalti Úrsus Árnason kraftajötunn .
Það munaði einu stigi á gull- og silfur vinningshöfum en allir vinningshafarnir skoruðu mjög hátt í gróðri, litasamsetningu og grósku blóma ásamt aðgengi heimilisfólks að svölum.
Svalirnar sem hrepptu gullið, Miðbæjarsvalirnar, voru fallega skreyttar, mjög snyrtilegar og mikil stemning á heimilinu ásamt góðum veitingum. Einnig komu skemmtilegir leynigestir í heimsókn.
Hugheimar voru með snyrtilegar svalir ásamt skemmtilegu skrauti og aukahlutum, eins og teppi og bókum, til að bæta hlýleika. Álfholt tók vel á móti dómnefndinni en þau voru með snyrtilegar svalir og skemmtilega skrautmuni .
26 Heimilispósturinn JólahugvekJa 2019 Svalasamkeppni í Mörk
Vera Einarsdóttir tók við viðurkenningu fyrir Ljósheima.
Heimilispósturinn 27 Svalasamkeppni í Mörk
Anna Einarsdóttir í Álfholti tók við viðurkenningunni.
Gullverðlaun fékk heimilið Miðbær sem er á annarri hæð í miðju.
Silfurverðlaun fékk heimilið Ljósheimar sem er á þriðju hæð í miðju .
Bronsverðlaun fékk heimilið Álfholt sem er á fjórðu hæð í miðju.
Við óskum vinningshöfum hjartanlega til hamingju. Vinningshafar fengu peningaverðlaun og geta nú gert eitthvað skemmtilegt á heimilunum og sem veitir tilbreytingu í daglegt líf.
28 Heimilispósturinn Svalasamkeppni í Mörk
Heimilispósturinn 29 JólahugvekJa 2019 Svalasamkeppni í Mörk
Aðstoðar við stólaleikfimi
Nánast undantekningarlaust hefur heimilisfólk gaman af því að fá börn í heimsókn. Stundum kemur starfsfólk með börnin sín til vinnu og aðstandendur eru líka duglegir að koma með barnabörn og barnabarnabörn í heimsókn.
Það vakti mikla kátínu þegar Aþena mætti í vinnuna með mömmu sinni, Evu Dögg, til að aðstoða við stólaleikfimina í Ási.
30 Heimilispósturinn Skemmtileg heimsókn
Bökuðu 1.200 pönnukökur með kaffinu
Hvað er betra en nýbakaðar pönnukökur? Starfsfólk eldhúss Grundarheimilanna ákvað að bjóða upp á rjómapönnukökur með kaffinu á 17. júní. Til að allir gætu nú gætt sér á þessum þjóðlegu kræsingum þurfti að baka 1.200 pönnukökur. Þá var ekki um annað að ræða en að bretta upp ermar og byrja að baka. Og það var ekkert verið að baka á einni pönnu, hún Elín Brynja lét sig ekkert muna um að baka á fjórum pönnum í einu. Þess má svo til gamans geta að á þjóðhátíðardaginn var boðið upp á hangikjöt með tilheyrandi í matinn .
Heimilispósturinn 31 JólahugvekJa 2019Grundarheimilin
Smurbrauð getur verið lítið listaverk
Hún mætir hálftíu á morgnana á Kaffi Mörk og fer að undirbúa daginn. Lára Magnea Jónsdóttir er fjölhæf kona og á milli þess sem hún sést skjótast fram og til baka á kaffihúsinu vinnur hún við sitthvað annað. Oftast er það menningararfurinn sem á hug hennar og þá helst íslenskur útsaumur og gömul íslensk mynstur. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir fékk sér cappucino með Láru og forvitnaðist um þessa orkumiklu konu sem tekur á móti gestum kaffihússins í Mörk.
„Ég byrjaði að vinna hérna í apríl. Mig langaði að breyta til og hafði rýmri tíma en áður. Þetta lá einhvern veginn beinast við því öll fjölskyldan hefur meira og minna unnið í þessum geira . Ég er frá Akureyri og pabbi minn var kokkur á sjó, annar bróðir minn líka og hinn bróðir minn hefur í áratugi rekið mötuneyti. Frænka mín er snilldar bakari og ég gæti áfram talið. Ég hef reglulega unnið sjálf með mat, rétt fólkinu mínu hjálparhönd, eldað fyrir ferðamenn á fjöllum og svo smurði ég smurbrauð með skólanum í gamla daga. Ég hef alltaf haft áhuga á matargerð og lít svo á að það sé nátengt að vinna með mat og vinna við listsköpun. Hver brauðsneið getur verið lítið listaverk út af fyrir sig og margir sem fara í nám í matreiðslu eða bakstri eru listhneigðir.“
32 Heimilispósturinn Kaffi Mörk
Smyr allt brauðið sjálf
Lára segir að það sé mikið að gera á Kaffi Mörk og nú sé hún komin með starfsmann með sér af og til. „Ég man þegar ég byrjaði þá féllust mér næstum hendur. Ég var ein og mjög mikið að gera. Það lá við að ég hætti bara við. En núna er þetta allt að koma og mér finnst mjög gaman í vinnunni. Hingað koma margir daglega og mér finnst svo dásamlegt að kaffihúsið er nokkurskonar samfélagsmiðstöð íbúanna.“
Það tala margir um að veitingarnar hafi tekið breytingum, sérstaklega smurða brauðið og kökurnar.
„Takk fyrir það. Ég legg metnað í að hafa fjölbreytt bakkelsi og við Benni, sem er hinn frábæri bakari Grundarheimilanna í Ási, höfum í samvinnu verið að finna út hvað er vinsælt. Allt brauðmeti smyr ég svo sjálf, smurbrauðið og eins heilhveitihornin og annað sem ég býð uppá. Mér finnst skipta máli að hafa sem mest unnið frá grunni og vil gjarnan gera sem mest sjálf.“
Reyktur silungur og lax vinsælast
Hvert er vinsælasta smurbrauðið? „Reyktur lax og silungur er mjög vinsælt álegg. Margir vilja líka roastbeef. Annars er sennilega flatbrauð með hangikjöti vinsælast svona heilt yfir. Svo hef ég verið að bjóða upp á smurð heilhveitihorn líka. Íbúar kaupa stundum smurbrauð eða heilhveitihornin til að hafa sem kvöldmat og þá hef ég lánað þeim diska undir brauðið. Getur þú ekki komið því að í þessu viðtali að mig vantar þessa lánsdiska,“ segir hún og hlær þessum dillandi hlátri sem einkennir þessa lífsglöðu konu . „Ég smyr stundum aðeins of mikið og þá fer afgangurinn samdægurs upp á eitt þeirra
Heimilispósturinn 33 Kaffi Mörk
ellefu heimila sem eru hér á hjúkrunarheimilinu. Þann daginn er boðið upp á smurbrauð með kvöldmatnum.“
Byrjaði fimm ára að sauma
Lára Magnea hefur alltaf verið fyrir handverk. „Ég var líklega fimm eða sex ára þegar ég byrjaði að sauma fötin á barbídúkkurnar mínar. Ég hef bara alltaf verið með eitthvað milli handanna“. Mesta unun hefur hún haft af því að vinna með menningararfinn. „Ég er textílhönnuður og vinn með gömul mynstur, litset þau á ný og endurhanna. Eitt af nýjustu verkefnunum gerði ég í samvinnu við Borgarsögusafnið og Heimilisiðnaðarfélag Íslands í tengslum við sýninguna um Karólínu vefara sem er í Árbæjarsafni. Karólína rak um áratugaskeið vefstofu í vesturbænum. Hún kenndi hannyrðir og bjó yfir mikilli þekkingu á þeim. Ég var fengin til að taka mynstrin hennar og endurhannaði þau í takt við tímann. Svo hannaði ég krosssaumspakkningar undir heitinu Krosssaumur Karólínu. Þessar útsaumspakkningar hafa notið mikilla vinsælda og verið fáanlegar í verslun HFÍ og hjá mér.“ Lára Magnea rekur litla vefverslun sem heitir Saumakassinn og er með vefsíðuna www.saumakassinn.is. Þar er meðal annars hægt að skoða verkin hennar og kaupa útsaumspakkningar.
Núvitund og krosssaumur
Hvers vegna hefur þú einbeitt þér að útsaumi frekar en öðru handverki?
„Ég held að það sé núvitundin í bland við sköpun. Ég gleymi mér alveg þegar ég er að sauma og næ að einbeita mér að útsaumi. Hvað snertir listsköpunina þá getur hún komið fram t.d. þegar ég er að smyrja smurbrauð eða
34 Heimilispósturinn Kaffi Mörk
vinna eitthvað annað með höndunum. Líklega er það þessi ró sem færist yfir þegar ég er að sauma út sem dregur mig alltaf að útsaumi.“
Lára Magnea hefur verið formaður Heimilisiðnaðarfélagsins og einnig kennt þar. Hún hefur setið í ritnefnd tímarits félagsins, Hugur og hönd, tekið þátt í Hönnunarmars, Ráðhússmarkaðnum, kennt í smiðjum og á námskeiðum á ýmsum söfnum. Þessi upptalning er bara brot af þeim fjölbreyttu verkefnum sem hún hefur komið nálægt.
Brennur fyrir réttindum fatlaðs fólks
Það sem hefur þó átt hug hennar lengi og tekið mikið af tíma hennar eru málefni fólks með Downs heilkenni. „Ég á fjögur börn og það þriðja í röðinni, Glódís Erla, er með Downs-heilkenni. Það hefur mótað líf mitt í rúm tuttugu ár. Það er mikil vinna að vera foreldri barns með fötlun og ekki auðvelt að stunda venjulega vinnu með uppeldinu. En nú er hún flutt í sjálfstæða búsetu, í fallega íbúð í nýlegum íbúðakjarna og lifir sínu sjálfstæða lífi. Þess vegna hef ég rýmri tíma og valdi að taka að mér þetta frábæra kaffihús hér í Mörkinni. Glódís er með aðstoð við allar athafnir daglegs lífs og ég get sinnt mínu áhyggjulaus.“
Kannski flyt ég í sveitina
Oft situr Lára Magnea í sveitakyrrðinni og saumar. „Við erum með skika fyrir austan fjall og fengum fyrir nokkrum árum gamlar vinnubúðaeiningar frá Kárahnjúkum sem við settum þar niður. Maðurinn minn, Ólafur Guðmundsson, nýtur þess að smíða og þessar vinnubúðaeiningar líta ekki út sem slíkar lengur. Við erum komin með okkar sælureit í Grafningnum og þessa dagana er hann að smíða verkfærageymslu fyrir austan. Ætli við flytjum ekki þangað einn daginn.“
Heimilispósturinn 35 Kaffi Mörk
Nýtt kaffihús í vesturbænum í vor
Það er mikið um að vera í miðjum suðurgarði Grundar. Í garðinum er verið að reisa að reisa um hundrað fermetra kaffihús með skemmtilegu útisvæði, leiktækjum, göngustígum og fallegum gróðri .
Hlynur Rúnarsson sviðsstjóri fasteigna Grundarheimilanna segir að búið sé að slá upp innra byrði á veggjum og rafvirki sé að leggja rafmagn í veggina. „Þá stendur til að saga gat úr stóra húsinu til að hægt verði að ganga þaðan inn á kaffihúsið. Við vonumst svo til að geta lokað nýja húsinu áður en vetur skellur á.“
Verið er að fjarlægja steinvegginn meðfram Hringbraut sem og trjágróðurinn og er því mikið um að vera Hringbrautarmeginn þessar vikurnar. Nýr veggur kemur í staðinn að sögn Hlyns .
Vonir standa til þess að með hækkandi sól á nýju ári verði hægt að opna þetta huggulega kaffihús í vesturbænum.
36 Heimilispósturinn
gangur í garði Grundar
Góður
Vikulega mæta sjálfboðaliðar
Alla miðvikudaga er haldin morgunstund á Grund. Þá kemur heimilisfólkið saman í hátíðarsal heimilisins og þar er boðið upp á léttar leikfimiæfingar, upplestur, söng og ávallt koma sjálfboðaliðar sem gefa vinnu sína við að fræða eða skemmta heimilisfólki.
Sr. Pétur Þorsteinsson heldur utan um morgunstundina og fær til liðs við sig alls konar gesti. Stundum mæta börn af Vesturborg og gleðja heimilisfólk með nærveru sinni.
Heimilispósturinn 37
Gestir í morgunstund Grundar
Reykjanesið heimsótt
Fimmtudaginn 17. ágúst 2023, fórum við íbúar Markarinnar í okkar árlegu dagsferð og var að þessu sinni farinn góður hringur um Reykjanesið. Það var rigningarsuddi, kl. 09.30 um morguninn, þegar ferðalangarnir 36 lögðu upp frá Mörkinni og hélst þannig megnið af deginum.
Haldið var til Hafnarfjarðar og síðan farinn Krýsuvíkurvegurinn að Kleifarvatni og að hverunum sem Hafnarfjarðarbær ætlaði að virkja, en hætti við. Síðan fram hjá Krýsuvíkurkirkju og gamla bæjarstæðinu og þaðan niður á Suðurstrandarveg. Nokkrum sinnum var stansað og fararstjórinn, Hörður Gíslason, fræddi okkur um viðkomandi staði og hafði frá mörgu að segja, en lítið var farið út úr rútunni vegna rigningar. Stefnan var síðan tekin til Grindavíkur og ekið fram hjá Ísólfsskála og sáum við þar hvar hraunið, úr næst síðasta gosi, hafði stöðvast rétt ofan við húsin. Í Grindavík var haldið að veitingastaðnum Bryggjunni. Þar bættist framkvæmdastjórinn okkar, hún Alda Pálsdóttir, við.
Kirkjugarðar tengdir með torgi
Eftir að snædd hafði verið þar súpa, brauð og kaffi, allt vel útilátið og gott, var haldið áfram og ekinn Nesvegurinn, hjá Húsatóftagolfvellinum og að kirkjugarðinum að Stað. Þar eru reyndar kirkjugarðarnir tveir, sá gamli og sá nýi, tengdir saman með torgi og eru þar tvær styttur. Önnur af sr. Oddi V. Gíslasyni, miklum sveitarhöfðingja á sínum tíma, en hin er minnisvarði um horfna menn. Eftir smá stopp þar, var haldið að Reykjanesvita, sem hefur staðið þarna síðan 1908, ekið fram hjá Gunnuhver, þar sem er stórt hverasvæði og að Reykjanesvirkjuninni, en hún er um 100MWe jarðvarmavirkjun. Síðan var farið að brúnni, sem er á flekaskilum milli Evrópu og Ameríku, og þaðan haldið í Hafnirnar.
38 Heimilispósturinn Hafliði Hjartarson, íbúi hjá Íbúðum 60+, skrifar
Þarna var stefnan síðan tekin eftir Hafnarvegi. Eftir smá spotta þar, var ákveðið að skjótast aðeins upp á Miðnesheiðina og á Keflavíkurflugvöllinn.
Uppbygging á Miðnesheiði
Það er að segja það svæði hans sem hætt er að nota sem flugvallarsvæði og er opið almenningi. Er það óhemju stórt svæði og gaman að sjá þetta allt saman, enda stór hluti þess að lifna við aftur, bæði íbúðarhúsin og ekki síður verslanir og fyrirtæki. Eftir góðan hring þarna og ekki síður mikinn fróðleik og skemmtan frá fararstjóranum, sem var öllum hnútum kunnugur, síðan herinn var með svæðið, var haldið að Garðskagavegi og eftir honum að Hvalsneskirkju, sem var vígð 1887 og Hallgrímur Pétursson þjónaði í nokkur ár . Haldið var síðan til Sandgerðis, og þaðan í Garð .
Sjólyst til minningar um Unu í Garði
Þar var fyrst haldið að litlu húsi, sem nefnist Sjólyst og er nýuppgert, til minningar um Unu í Garði og var það skoðað, enda var Hörður með húslyklana, því hann er oft að sýna húsið.
Heimilispósturinn 39 JólahugvekJa 2019 Hafliði Hjartarson, íbúi hjá Íbúðum 60+, skrifar
Rigning einkenndi ferðina sem var engu að síður fróðleg og skemmtileg.
Síðan var haldið að Byggðarsafninu og það skoðað, líka undir leiðsögn Harðar, sem þekkti þetta allt mjög vel, enda hafði hann unnið mikið með sum tækin, áður en þau komust á safnið. Þarna uppi á efri hæðinni er veitingastaður sem heitir Röstin og borðuðum við þar hinn besta kvöldmat, ásamt eftirrétti. Ekki var að sjá eða heyra annað en að allir væru hinir ánægðustu. Eftir þetta var stefnan tekin að Reykjanesbrautinni og ekið ofan við Keflavík, Innri-Njarðvík og Voga og beint í bæinn.
Leiðsögumaðurinn meiriháttar
Þá var komið hið besta veður og ekki að heyra að neitt væri kvartað yfir rigningu dagsins, því ferðin var hin ánægjulegasta og Kiddi bílstjóri, sem reyndar er starfsmaður Grundar, skilaði öllum heilum í höfn fyrir kl. 20.00. Stjórnun ferðarinnar, sem var í höndum Sjafnar Ingólfsdóttur, Haraldar Finnssonar og Öldu Pálsdóttur, var frábær og leiðsögumaðurinn meiriháttar. Hann vissi óhemju margt og talaði mikið, en var samt aldrei þreytandi. Þetta er ekki öllum gefið.
Við Jónína þökkum ferðafélögunum og öllum sem að þessu komu kærlega fyrir okkur og bíðum næstu ferðar.
Hafliði á nr. 62.
40 Heimilispósturinn
60+, skrifar
Hafliði Hjartarson, íbúi hjá Íbúðum
Fetaði í fótspor langafa síns
Nú stendur yfir all sérstök ljósmyndasýning á fyrstu hæð Grundar. Um er að ræða ljósmyndapör. Kjartan Örn Júlíusson, sviðsstjóri öryggis- og upplýsingatæknisviðs Grundar, tók nýju myndirnar en langafi hans, Björn M. Arnórsson, þær gömlu. Árið 2016 hélt Kjartan sýningu á myndunum og hluti ljósmyndaparanna er nú til sýnis á Grund.
Kjartan hafði í nokkur ár dundað sér við að feta í fótspor langafa síns, sem hafði tekið ljósmyndir á ýmsum stöðum á landinu. Björn tók myndirnar á árunum milli 1930 og 1940 en Kjartan á árunum 2012 til 2015 .
„Ég reyndi að fara í nákvæmlega sömu fótspor og langafi og standa á sama stað og hann þegar ég smellti af. En hann þurfti að leggja meira á sig en ég til að komast á suma staðina, því ekki var búið að leggja vegi að þeim öllum þegar hann var þar á ferð. Hann þurfti stundum að fara á hestum yfir ófærur þar sem ég gat ekið á bíl, til dæmis til að komast að Slæðufossi...“
Sjón er sögu ríkari.
Heimilispósturinn 41 JólahugvekJa 2019 Ljósmyndasýning á Grund
Markmiðið að safna milljón
fyrir heimilið mitt í Mörk
„Erfiðust var einveran því ég er svo mikil félagsvera,“ segir Sigfríður Birna Sigmarsdóttir, félags og sjúkraliði í Mörk sem í vor hjólaði á rafhjóli 744 kílómetra á ellefu dögum, frá Roncesvalles til Santiago de Compostela á Spáni. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir spjallaði við hana.
„Við ætluðum upphaflega þrjú saman en hin hættu við. Það runnu á mig tvær grímur en ég varð að halda áfram því ég var búin að heita á heimilisfólkið mitt í Mörk og gat ekki farið að svíkja það,“ segir hún.
Byrjaði sex á morgnana
Sigfríður, sem alltaf er kölluð Siffa, fékk þriggja mánaða frí frá vinnu, bæði í Mörk og á Vogi þar sem hún starfar líka, og svo hélt hún af stað í ferðalag. „Ég hafði stefnt að því að fara í svona langt ferðalag. Ég heimsótti vini og ættingja, bæði fyrir og eftir hjólaferðina, en ég æfði mig ekkert svo orð sé á gerandi fyrir sjálfa hjólaferðina. Það geta allir hjólað þessa leið þó hún sé svolítið hæðótt, sérstaklega ef þeir eru á rafhjóli og fá þannig aðstoð þegar þreytan er farin að segja til sín.“ Siffa segist hafa hjólað af stað klukkan sex á morgnana og verið að fram að hádegi. Þá tók hún sér hvíld og svo síðdegis hjólaði hún áfram.
42 Heimilispósturinn JólahugvekJa 2019 Hjólaði ein Jakobsveginn, 744 km
Núllstilling
„Það reyndist mér erfitt að vera ein allan sólarhringinn eins og mig grunaði,“ segir Siffa en bætir svo við „Ég hafði hins vegar rosalega gott af því að vera svona ein með sjálfri mér. Ég núllstillti mig sem var frábært. Og ég var ein allan þennan tíma fyrir utan það að ég fór út að borða með ungum reiðhjólaköppum sem fannst frekar kúl að hitta þessa ömmu sem var ein að hjóla. Já, þetta var þannig, ég kveið mest fyrir einverunni en svo þegar upp var staðið var það í raun það besta sem gat gerst og ég þurfti á að halda.“
Eins og ein stór fjölskylda
Dyggustu stuðningsmenn Siffu eru og hafa verið heimilismennirnir í Glaumbæ í Mörk. Þar hefur Siffa unnið síðastliðin níu ár og heimilið Glaumbær er hennar annað heimili eins og hún orðar það svo fallega sjálf. „Það er svo stórkostlegt að vinna á annarri hæðinni í Mörk. Andrúmsloftið er svo einstakt og hvetjandi. Ef það væri ekki fyrir Mörk væri ég ekki búin að afkasta því sem ég
Heimilispósturinn 43 JólahugvekJa 2019 Hjólaði ein Jakobsveginn, 744 km
Siffa með heimilisfólki í Glaumbæ.
hef verið að gera undanfarin ár. Ég dreif með mig fleirum hér á hæðinni í félagsliðanám og svo ákvað ég í framhaldinu að fara í sjúkraliðanám eftir ómældan stuðning frá fólkinu hér í Mörk. Núna var ég ein af fjórtán sem komst inn í nám í nudd í Fjölbraut í Ármúla. Við erum eins og ein stór fjölskylda hér á hæðinni og fólkið mitt í Glaumbæ er mér kært.“
Nota peninga til að fara úr húsi
„Mig langaði því að safna áheitum fyrir þetta litla heimili þar sem búa tíu manns, sumir á mínum aldri. Peningana ætlum við svo að nota til að fara með heimilisfólkið út úr húsi. Sumum finnst gaman að fara á tónleika og öðrum í leikhús eða bíó. Við finnum út hvað hver og einn vill gera og svo er alltaf stemning fyrir því að panta mat á föstudagskvöldum. Nú getum við gert það. Starfsfólkið getur svo farið með viðkomandi, það fær miða á viðburðinn en gefur vinnu sína. Við erum öll til í það. “
Langar að ná markmiðinu
„Ég geri mér grein fyrir því að rúmar átta hundruð þúsund krónur eru fljótar að fara,“ segir Siffa en það má samt gera heilmargt fyrir þá upphæð. Og mig dreymir um að ná markmiðinu. Safna milljón. Það söfnuðust 865.000 kr. og drjúgum hluta af því eiga aðstandendur heimilismanna heiðurinn af, sem persónulega lögðu í söfnunina og fengu aðra í lið með sér að styrkja. Til dæmis fékk einn aðstandandinn Ölgerðina til að styrkja mig en það er eina fyrirtækið sem hét á mig. Heimilisfólkið fylgdist svo vel með og við spjölluðum á „Facetime“. Mér var vel tekið eftir þriggja mánaða fríið og ég var farin að sakna fólksins míns svo mikið.“
Mömmu dreymir um að ganga Jakobsveginn
Þegar Siffa er spurð hvaðan hugmyndin sé komin að fara og hjóla Jakobsveginn segir hún: „Mömmu hefur lengi dreymt um þetta.
44 Heimilispósturinn Hjólaði ein Jakobsveginn, 744 km
Hún er 78 ára en í góðu formi og við tölum stundum um að fara saman. Hún þarf að komast 100 kílómetrana til að fá syndaaflausnina. Kannski förum við á næsta ári. Svo er stefnan að ganga þessa leið aftur með vinkonum 2024 og þá með fararstjórn . Svo þetta var bara fyrsta ferðin og í þeirri næstu þá safna ég örugglega áheitum aftur fyrir Glaumbæ.“
Viljir þú styrkja Siffu og hennar markmið fyrir Glaumbæ, og fólkið hennar þar, þá eru reikningsupplýsingar hér: Taktu auka skrefið með okkur 0123-15-071992 Kt. 060972-5679.
Heimilispósturinn 45 JólahugvekJa 2019 Hjólaði ein Jakobsveginn, 744 km
KK, fiskisúpa og vináttubönd.
Í mörg ár ár hefur Fiskidagurinn litli verið haldinn með pompi og prakt í Mörk með stuðningi frá forsvarsfólki Fiskidagsins mikla á Dalvík. Þaðan koma diskar með upptökum af tónleikum hvers árs, merki, fiskidagsblöðrur og blað hátíðahaldanna. Samherji hefur síðan sent fiskborgara og hráefni í fiskisúpu.
Það kom ríflegt magn í ár sem dugði handa öllum á Grundarheimilunum þremur og fyrir íbúa hjá Íbúðum 60+. Í ár voru hátíðahöldin í lok ágúst.
Karl Óttar Einarsson, forstjóri Grundarheimilanna, setti hátíðina í Mörk. Júlíus Júlíusson, framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla á Dalvík, flutti vinarkveðju, Friðrik V, yfirkokkur matseðils
Fiskidagsins mikla á Dalvík, gékk úr skugga um að hráefnið væri matreitt samkvæmt ströngustu kröfum og tónlistarmaðurinn
KK söng nokkur vel valin lög. Dalvíkingar, nærsveitungar og velunnarar bjúggu til vináttubönd til að dreifa á hátíðinni í ár og auðvitað fengu íbúar í Mörkinni líka slík armbönd til að undirstrika vináttuna við Mörkina .
46 Heimilispósturinn Fiskidagurinn litli 2023
Heimilispósturinn 47 JólahugvekJa 2019 Fiskidagurinn litli 2023
Bæjarás
Skelltu sér á listsýningu
Á bæjarhátíðinni Blómstrandi dögum í Hveragerði, ákváðu starfsmennirnir Unnur Kristín og Elísa Björk að bjóða nokkrum heimilismönnum og fólki í dagdvöl í Bæjarási á sextíu ára afmælissýningu
Listasafns Árnesinga, Hornstein. Allir höfðu gaman af og skemmtu sér konunglega. Það er svo gott að bregða sér af bæ og gera eitthvað sem nærir sál og líkama.
48 Heimilispósturinn
í Hveragerði
Spjallað um það sem fyrir augu bar.
Elísa Björk og Anna Sigga eru góðar vinkonur.