Heimilispósturinn - mars 2022

Page 1

HEIMILISPÓSTUR

Grundarheimilanna

58. árgangur
tölublað Maí
1.
2022
2 Heimilispósturinn Efnisyfirlit Pistill forstjóra 3 Flaggað á Grundarheimilunum 7 Guðjón Jónsson gaf heimilinu bekk 9 Tvær úr hópnum með tengingu við Grund.................................................... 11 Sumardagurinn fyrsti 15 Syngjandi 6 heimsóttu Ás 16 Ljúfur morgun í heilsulind Markar 18 Gestaíbúð Grundarheimilanna 20 Samstarf Listaháskólans og Grundar 22 Gleði með púttvöllinn .................................................................................... 25 Nýtt hjúkrunarheimili í Ási ............................................................................ 26 Þegar sólin fer að skína ................................................................................ 28 Júróvisíon plötur og spurningaleikur ............................................................. 30 Halda tónleika á Grund á hverju ári .............................................................. 32 Páskabingó Grundarheimilanna ................................................................... 33 Árleg heimsókn frá Kvennaskólanum á Grund ............................................. 36 Sumarlegt samvinnuverkefni í Mörk ............................................................. 40 Gaman á Grund ............................................................................................ 42 Óvæntar uppákomur..................................................................................... 43 Vinsælt par ................................................................................................... 45 Qi gong ......................................................................................................... 46 Grundarheimilin ............................................................................................ 48 Forsíðumyndina prýðir heimiliskonan Guðríður Júlíusdóttir sem heldur á rafkisu en nokkrar slíkar búa á Grund. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir Prentun: Litróf Upplag: 1600

Covid og framkvæmdir

Kæri lesandi

Mikið afskaplega er nú gott að covid faraldrinum er lokið. Meira að segja Þórólfur sóttvarnalæknir hefur gefið það formlega út að honum sé lokið. Og þá er nú mikið sagt, þessi framúrskarandi góði embættismaður, sem hefur haldið okkur á tánum undanfarin tvö ár. Gert það vel þó að sjálfsögðu megi gagnrýna og rökræða það sem hann hefur lagt til í aðgerðum gegn þessari stórhættulegu veiru.

Við á Grundarheimilunum þurftum í upphafi faraldursins í mars 2020 að taka afdrifaríkar og verulega lífsgæðaskerðandi ákvarðanir til að koma í veg fyrir mikil veikindi og andlát meðal heimilismanna fyrst og fremst en einnig mikil veikindi starfsmanna. Okkar mjög svo góðu starfsmenn settu sig lang flestir í sjálfskipaða sóttkví utan vinnunnar til að minnka líkur á því að smit bærist inn á Grundarheimilin. Þetta gerðu þeir án atbeina okkar sem stjórnum heimilunum þremur og þó ég hafi þakkað fyrir þetta áður, þá nota ég tækifærið og þakka þeim enn og aftur fyrir þeirra fórnfýsi í þágu heimilismannanna okkar. Einnig vil ég þakka heimilismönnum og aðstandendum þeirra fyrir þá miklu þrautseigju sem þau sýndu þessi síðustu tvö ár. Eðlilega voru ekki allir sáttir við þær ráðstafanir sem við gripum til en við litum svo á að við værum að fórna minni hagsmunum fyrir meiri. Það er líka afar eðlilegt að aðgerðir þær sem gripið var til, og ber þar fyrst og fremst að nefna heimsóknarbann og takmarkanir, séu umdeildar. Mér finnst gott þegar allir eru ekki sammála, þá er tilefni til rökræðna og skoðanaskipta, sem yfirleitt skila einhverju góðu.

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 3 Pistill forstjóra
Gísli Páll Pálsson forstjóri Grundarheimilanna.

Covid farið í minningabankann

Framundan er fallegt og gott sumar. Gott veður meira og minna, sól og hiti. Einstaka skúr kannski á milli. Sumarið er tíminn, söng Bubbi, og undir það get ég tekið. Þó að minn tími sé reyndar haust og vetrarbyrjun. Á Grundarheimilunum þremur eru margir garðar, gangstéttar og bekkir. Tilvalið að heimsækja ættingja og vini, fara með þeim út í garð, í göngutúr í góða veðrinu, jafnvel ísbíltúr og njóta lífsins saman. Þó að covid tímabilið hafi tekið á og komið í veg fyrir gæðastundir sem þessar finnst mér einhvern veginn að það séu mörg ár frá því að covid lauk. Ég hef greinilega sett þetta covid vesen allt saman langt aftur í minningarbankann og ætla mér að halda því þar.

Eftir því sem ég best veit þá höfum við Alda eiginkona mín ekki smitast af covid. Við gættum okkur afskaplega vel allt fram í byrjun þessa árs en eftir það slökuðum við á varðandi samskipti við annað fólk, kossa og knúsa. Gárungar á alnetinu sögðu þá sem ekki höfðu enn smitast ekki eiga neina vini. Það gildir ekki um okkur hjónakornin, við eigum stóra fjölskyldu og enn stærri vinahóp. Við höfum sennilega bara verið heppin hingað til.

Veitingaskáli í suðurgarð Grundar

Að lokum að framkvæmdum ársins en í ár sækja Grundarheimilin í Framkvæmdasjóð aldraðra um framlag upp á 152 milljónir vegna framkvæmda upp á 380 milljónir. Sjóðurinn styrkir framkvæmdir sem bæta aðstöðu heimilismanna á hjúkrunarheimilum um 40%. Stærsta einstaka framkvæmdin er suðurgarður Grundar. Þar er fyrirhugað að opna leið úr núverandi starfsmannaborðstofu á jarðhæð út í garðinn og reisa þar rúmlega 100 fermetra veitingaskála. Þar verður hægt að kaupa veitingar og njóta skálans og garðsins sem verður útbúinn fallegum bekkjum, leiktækjum og gróðri. Einnig verður rýmið þannig úr garði gert að það verður „mannhelt“

4 Heimilispósturinn JólahugvekJa 2019 Pistill forstjóra
JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 5 Pistill forstjóra

þeim sem eru með minnisglöp og eru ekki alveg með á nótunum. Áætlaður kostnaður við breytingarnar á garðinum er um það bil 150 milljónir.

Einbýli og ný lyfta

Næst stærsta framkvæmdin er breyting á svokölluðum stubbi frá þeim breytingum sem síðast voru í gangi frá A2 á Grund til vesturs að borðstofunni á annarri hæð. Þar að auki verður norðurhluta borðstofunnar breytt í tvö einsmanns herbergi, hvort með sínu baðherbergi. Þetta kostar 106 milljónir. Með þessu bætist enn í einsmanns herbergin á Grund með sér baðherbergi. Þriðja í röðinni er endurnýjun á lyftu á Minni Grund sem er komin til ára sinna. 33 millur þar. Árlega er síðan skipt um nokkra tugi glugga á Hringbraut 50 og í ár er gert ráð fyrir 27 milljónum í þá framkvæmd. Níu aðrar framkvæmdir eru ráðgerðar á Grund, Mörk og Ási.

Framkvæmdir sem þessar eru allar til þess fallnar að bæta aðstöðu heimilismanna Grundarheimilanna. Í gegnum árin hafa þessar framkvæmdir numið mörg hundruð milljónum króna og hverri krónu er vel varið. Með þessu erum við reyndar að fækka rýmum á Grund þar sem hvert herbergi fær sér baðherbergi, og slíkt kostar pláss.

Vonandi sér stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra þessi mál í sama ljósi og stjórn Grundar og veitir öllum þessum brýnu framkvæmdum styrk og þar með brautargengi. Við þurfum svo sannarlega á því að halda.

Njótið sumarsins, Gísli Páll Pálsson

Forstjóri Grundarheimilanna

JólahugvekJa 2019 6 Heimilispósturinn Pistill forstjóra

Hundrað ára afmæli

Grundar og Garðars

Það var hátíðlegt á fjórðu hæðinni í Mörk í lok febrúar þegar Garðar Sigurðsson heimilismaður fagnaði 100 ára afmæli. Svo skemmtilega vill til að hann á aldarafmæli sama ár og Grund sem fagnar 100 ára afmæli þann 29. október næstkomandi. Boðið var upp á heitt súkkulaði og rjómatertu á öllum Grundarheimilunum af þessu tilefni. Aðstandendur Garðars og heimilismenn á fjórðu hæðinni fögnuðu með honum, Gísli Páll Pálsson forstjóri Grundarheimilanna mætti í afmælisboðið, blaðamaður Morgunblaðsins tók við afmælispiltinn viðtal og síðan var spilað á gítar og sungið.

Heimilispósturinn 7 Flaggað á Grundarheimilunum
Afmælisdrengurinn Garðar Sigurðsson fagnaði aldarafmæli eins og Grund. Mbl / Óttar.
8 Heimilispósturinn Flaggað á Grundarheimilunum
Gestir í afmælinu tóku lagið. Gísli Páll Pálsson forstjóri Grundarheimilanna heimsótti Garðar og ræddi um daginn og veginn.

Ætlar að fagna aldarafmælinu á diskóteki

Þegar bankað var hjá Guðjóni Jónssyni snemma morguns sat hann og spilaði á harmonikku og söng sem er lýsandi fyrir gleðigjafann, hress og kátur og alltaf í stuði. Vera Sigurðardóttir iðjuþjálfi mætti í heimsókn.

Guðjón flutti í Ás í Hveragerði ásamt Ásu konu sinni heitinni árið 2008 og hefur búið þar í í tæp 14 ár. Nýlega færði hann heimilinu bekk og þessvegna vorum við mætt í heimsókn, til að forvitnast um tilefnið.

„Bekkurinn er gjöf til Áss sem þakklæti fyrir allt það sem þessi staður hefur fært okkur konu minni Ásu heitinni. Okkur Ásu langaði að gera eitthvað fyrir Ás. Það er búið að fara svo vel með okkur hérna, við erum búin að hafa það svo gott. Það er hvergi hægt að hafa það betra. Fólkið er allt svo elskulegt og almennilegt og tilbúið að gera allt fyrir mann og maturinn er góður. Hérna eru skemmtanir stundum og allt bara gott. Ég hef náttúrlega ekki verið annarsstaðar en í Ási en ég held að þetta sé alveg satt“.

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 9 a Guðjón Jónsson gaf heimilinu bekk
Guðjón Jónsson við bekkinn góða.

Guðjón Jónsson gaf heimilinu bekk

Viðhaldsfrír bekkur úr Hafnarfirði

„Bekkurinn er smíðaður í Hafnarfirði, hjá Málm steypunni Hellu“, segir

Guðjón. „Hann kom daginn fyrir sumardaginn fyrsta. Sá sem smíðaði hann kom með hann austur og við hittumst úti í úrhellis rigningu, en sum ardagurinn fyrsti var svo skárri. Þetta er bekkur sem getur verið úti allt árið og á að vera alveg viðhaldsfrír. Ég fékk að ráða staðsetningju bekkjarins og vildi hafa hann við matsalinn svo fólk gæti notað bekkinn.“

Fórum að lifa lífinu sextug

Guðjón er fæddur þann 7.maí 1925 og er því 97 ára. Hann vann um tíma á Grund hjá Gísla Sigurbjörnssyni vini sínum svo hann hefur lengi tengst Grundarheimilunum.

Guðjóni finnst ekkert merkilegt hversu háum aldri hann hefur náð. „Ég ætla reyna komast í hundraðið, heldurðu að ég nái því?“ Næst ætlar hann að fagna stórafmæli á diskóteki á Spáni, eins og hann og kona hans gerðu þegar þau voru áttræð. „Krakkarnir í kringum okkur voru að furða sig á því hvaða gamlingjar voru að flækjast þarna. Ég bara fæddist svo snemma, þess vegna er ég svona gamall. Við Ása byrjuðum að lifa lífinu þegar við urðum sextug og fórum ekki að finna fyrir neinni elli fyrr en við vorum orðin níræð.“

10 Heimilispósturinn
Guðjón ánægður með bekkinn.

Tvær úr hópnum með tengingu við Grund

a

Heimsóttu Miu

sjósundskonu til Færeyja

Í maí skelltu fóru rúmlega þrjátíu konur frá Íslandi til Færeyja til að hitta sjósunds fyrirmynd sína, Maríu frá Heygum sem er kölluð Mia. Hún hefur alla tíð búið í Vestmanna í Færeyjum og býr nú á hjúkrunarheimili þar sem heitir „Heimið á Grönanesi“ en þar búa 24 heimilismenn. Svo skemmtilega vill til að tvær konur að minnsta kosti í þessum hópi tengjast Grund. Sigrún Faulk er framkvæmdastjóri hjúkrunar á heimilinu og hin er Gróa Kristjánsdóttir. Mamma hennar Edda Bergmann Guðmundsdóttir er heimiliskona

„Mamma, Edda Bergmann Guðmundsdóttir, er fædd 13. janúar 1936. Hún var aðeins sjö ára þegar hún fékk lömunarveikina og

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 11

Mia er orðin 98 ára og býr á hjúkrunarheimilinu en lætur aldurinn ekki stoppa sig.

var mestan tímann í sóttkví og eini vinur hennar var ljósastaurinn sem var fyrir utan gluggann og talaði hún löngum við hann.

Hún sagði honum frá því að hún vildi verða skautadrottning eins og fyrirmynd hennar Sonia Heine en hún hafði séð hana í bíómyndum. En hlutirnir fara oft öðruvísi en ætlað er svo að þegar mamma fór aftur heim í Skerjafjörðinn fór hún að stunda sjóböð. Sjóböðin hjálpuðu örugglega mikið með endurhæfingu sem var af skornum skammti á þessum árum eða í kringum 1944.

Mamma bjó hjá einstæðri móður sinni sem átti á þessum tíma sex börn þar af eitt nýfætt. Lífið var erfitt en mamma bjargaði sér eins og hún hefur alla tíð gert og hún nýtti sér óspart sjóinn til að læra að synda og hreyfa sig því hún hefur alla tíð síðan verið fötluð og er nú bundin í hjólastól.“

Synti til Bessastaða

Margar sögur fóru af þessari stúlku sem skellti sér í sjóinn og synti bara. Edda fór í sjóinn við bryggjuna hjá Shell og synti oft yfir til Bessastaða. „Tvær sögur hefur hún sagt mér af þessum sundferðum. Önnur þeirra var þannig að vinkona hennar ætlaði að

12 Heimilispósturinn Tvær úr hópnum með tengingu við Grund

Tvær úr hópnum með tengingu við Grund

synda með henni yfir á Bessastaði en gafst upp á miðri leið og mamma tók sig þá bara til og synti með hana. Mamma er gædd þeim eiginleika að fljóta bara svo að það var auðvelt fyrir hana að synda með vinkonu sína.“

Gróa segist hafa erft þennan eiginleika frá henni, að geta flotið endalaust.

„Hin sagan af mömmu í sjósundinu er að mamma þurfti að færa björg í bú svo mamma hennar, amma mín, réði hana í vist. Þar passaði hún tvö systkin en þá gekk hún við hækjur, það reyndist ekki mikið mál því börnin voru með beisli og drógu mömmu örugglega áfram í ýmis ævintýri. Einn daginn fór mamma með systkinin í fjöruna en langaði að dýfa sér í sjóinn svo hún batt börnin við bryggjupollann og dýfði sér í sjóinn smá stund. Við höfum nú oft rætt þessa sögu og í dag hefði hún örugglega misst vinnuna á staðnum.“

Fertug sunddrottning

Sjósund Eddu varð til þess að hún varð sunddrottning um fertugt og synti þá fyrir Íþróttafélag fatlaðra og sópaði til sín verðlaunum bæði á Íslandi sem og erlendis. Hún vann m.a. til gullverðlauna á Stoke Mandeville leikunum sem voru forveri Ólympíuleikanna sem

ólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 13
a
Gróa færði Miu handprjóaða vettlinga.Mæðgurnar Edda og Gróa.

Mia fer daglega í sjóinn.

allir þekkja í dag. Þegar hún hætti að keppa þá stofnaði hún Trimmklúbb Eddu þar sem hún bauð upp á sund, göngu og jóga fyrir fatlaða, blinda og eldra fólk sem hvergi fékk inni fyrir sína hreyfiþörf. Hún fékk svo fálkaorðuna fyrir þetta framtak sitt og störf sín í þágu íþrótta fatlaðra árið 2004. Gróa segir að mamma sín hafi glaðst yfir því að hún stundi nú sjósund af kappi eins og hún gerði. „Minn sundstaður er nú ekki á sama stað og hennar en alls ekki langt frá því að ég hef aðallega synt í Nauthólsvík þó að ég sé að kanna aðra staði. Ferðin til Færeyja var svo einstök þar sem við hittum Miu frá Heygum.“

98 ára og fer enn í sjóinn

Íslensku konurnar, sem fóru til að hitta Miu, höfðu kynnt sér sögu hennar. Mia hefur nefnilega synt í áratugi í sjónum við Vestmanna. Hún stríddi við heilsubrest eftir barnsfæðingu og maðurinn hennar hvatti hana til að fara í sjóböð, hafði heyrt að það væri gott fyrir líkama og sál. Mia fékk bata og hefur farið daglega í sjóinn í öll þessi ár en hún er nú 98 ára gömul. Hún skellir sér enn í sjóinn þó hún búi nú á hjúkrunarheimili. Færeyingar kalla það að fara í sjóbað „að dyppa“ og eru margir sem sem stunda það eins og hér á Íslandi. Við vonum að hjúkrunarheimili framtíðarinnar hafi góðan aðgang að sjónum fyrir dyppara.

Linkur á myndina um Maríu kölluð Mia

https://www.youtube.com/watch?v=Skew7cgkW9w

14 Heimilispósturinn
Tvær úr hópnum með tengingu við Grund

Góðir grannar í næsta húsi

Hjálpræðisherinn opnaði fyrir nokkru í næsta húsi við Mörk og þar er oft eitthvað skemmtilegt um að vera. Á sumardaginn fyrsta var þar mikið húllumhæ. Barbara Ösp Ómarsdóttir sem vinnur í Mörk kom við í vinnunni með dóttur sína og vinkonur en þær voru allar á leið á hátíðina hjá hernum. Þær ákváðu að bjóða með vini sínum og heimilismanninum Torfa Lútherssyni sem skemmti sér vel með stelpunum. Það var farið í reipitog, boðið upp á andlitsmálum og kaffi.

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 15 a Sumardagurinn fyrsti
Torfi tók þátt í reipitogi. Smá skegg er bara nauðsynlegt.

Syngjandi 6 heimsóttu Ás

Vinkonur sem gleðja

„Syngjandi 6“ er hópur vinkvenna sem hafa í nokkur ár komið saman og sungið. Einhverjar eru hættar að vinna en sumar enn á vinnumarkaði. Þær hafa undanfarin ár farið í heimsókn á hjúkrunarheimili á Suðurlandi og skemmt íbúum með söng sínum. Þær komu stormandi í Ás um miðjan maí og hrifu heimilisfólkið með sér í söng og gleði. Takk fyrir frábæra heimsókn. Komið fagnandi aftur.

16 Heimilispósturinn
Sönghópurinn Syngjandi 6 vakti mikla lukku.
JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 17 a Syngjandi 6 heimsóttu Ás
Nýr matsalur nýtist vel í allskonar samkomuhald. Það voru margir sem komu til að hlýða á og taka undir með Syngjandi 6.

Flot, friður og fjör

Á morgnana ríkir einstök stemning í heilsulind Markar. Íbúarnir hjá Íbúðum 60+ mæta sumir um leið og opnar og margir koma bara beint niður á náttsloppnum til að næra líkama og sál. Það er nefnilega hægt að hafa þetta alveg eins og maður vill, fljóta í friði og ró eða fyllast orku í líkamsræktinni og taka þátt í fjörinu í heita pottinum. Allt eins og hverjum og einum hentar. Sumir skella sér svo í gufu eða infra rauðan klefa til að mýkja upp líkamann áður en þeir fara að takast á við hversdaginn. Mörgum finnst ómissandi að tylla sér eftir stundina og fá sér vatnssopa eða kaffi og spjalla um daginn og veginn. Yndisleg samvera og nærandi.

18 Heimilispósturinn Ljúfur morgun í heilsulind Markar
Mætir snemma í líkamsræktina.

Heilsulindin er vinsæl meðal íbúa hjá Íbúðum 60+.

JólahugvekJa 2019 19 a Ljúfur morgun í heilsulind Markar

Leigð aðstandendum sem búa ekki í bænum

Ein af íbúðunum við Suðurlandsbraut 60 er falleg tveggja herbergja íbúð sem leigð er á sanngjörnu verði til aðstandenda sem búa úti á landi eða í útlöndum. Íbúðin stendur þeim til boða sem eiga fólkið sitt á Grundarheimilunum þremur og aðstandendum þeirra er búa í Íbúðum 60+. Íbúðin er búin öllum þægindum fyrir fjóra, fullbúnu eldhúsi og huggulegri stofu. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 5601901 eða með því að senda tölvupóst á morkin@morkin.is

Íbúðin er búin öllum þægindum.

20 Heimilispósturinn Gestaíbúð Grundarheimilanna
JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 21 a Gestaíbúð Grundarheimilanna
Alls geta fjórir gist í gestaíbúðinni. Nettenging stendur einnig til boða.

Samstarf Listaháskólans og Grundar

Tónlistin farvegur samskipta

Á vordögum var boðið upp á dásamlegt námskeið sem átta heimilismenn Grundar tóku þátt í sem og starfsfólk á heimilinu. Það er tónlistardeild Listháskólans sem bauð upp á námskeiðið sem bar heitið Tónlist og heilabilun. Stuðst var við verkefnið Music for Life sem hefur verið starfrækt í London í rúmlega tuttugu ár. Kjarni verkefnisins eru tónlistarsmiðjur þar sem allir þátttakendur mætast á jafningjagrundvelli í tónlistarsköpun. Tónlistin er farvegur samskipta og þátttaka og virkni allra þátttakenda leiðir til sameiginlegs þroska hópsins sem eykur lífsgæði.

22 Heimilispósturinn
Leiðbeinendur kynntu ýmis hljóðfæri fyrir heimilisfólki.
JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 23 a Samstarf Listaháskólans og Grundar
Það var gaman að sjá hvað tólistin tengdi vel saman fólk. Heimilisfólk naut þess virkilega að taka þátt.

Heimilismenn leiddir í tónlistarspuna

Magnea Tómasdóttir söngkona, sem hefur sérhæft sig í tónlistariðkun með fólki með heilabilunarsjúkdóma, var kennari námskeiðsins, en ásamt henni tóku þátt sex nemar frá Listaháskólanum og tveir hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Heimilismennirnir voru leiddir í tónlistarspuna en það hefur sýnt sig að tónlistarþátttaka léttir lund, eykur lífsgæði og færni til samskipta.

Þetta er sjötta árið sem þetta frumkvöðlaverkefni hefur verið gert hér á Íslandi og við svo heppin á Grund að fá að njóta þetta árið. Takk innilega fyrir okkur. Þetta var algjörlega frábært fyrir fólkið okkar.

24 Heimilispósturinn JólahugvekJa 2019 Samstarf Listaháskólans og Grundar
Tónlistarþátttaka léttir lund og eykur lífsgæði.

Gleði með púttvöllinn

Það ríkir alltaf tilhlökkun hjá pútthópi íbúa hjá Íbúðum 60+ þegar vorar því þá er hægt að gera völlinn kláran fyrir æfingar. Á þriðjudögum hittast áhugasamir púttarar og fara svo saman á Kaffi Mörk þegar þeir eru búnir að slá nægju sína í púttinu. Þess utan koma íbúar gjarnan á góðviðrisdögum og slá kúlu líka, á kvöldin og stundum um helgar eru barnabörn með og æfa sig.

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 25 Íbúar Íbúða
60+
Eftir tímana á þriðjudögum fara þáttakendur saman á Kaffi Mörk.

Nýtt hjúkrunarheimili í Ási

Gert er ráð fyrir

22 heimilismönnum

Í byrjun árs 2018 hafði Gísli Páll Pálsson forstjóri Grundarheimilanna samband við arkitektastofuna Glámu/Kím með beiðni um að koma með frumdrög að stækkun hjúkrunarheimilis í Hveragerði. Í raun yrði um að ræða nýja byggingu norðan Hverahlíðar, gegnt núverandi hjúkrunarheimili. Í desember sama ár voru fyrstu drög tilbúin.

Verklok árið 2025

Í febrúar 2019 fer bréf til bæjarstjórnar Hveragerðis um málið og Gísli Páll átti fund með heilbrigðisráðherra um svipað leyti þar sem fyrirætlanir voru kynntar ráðherra. Ferli sem þetta tekur all nokkur ár og það var í mars síðasliðnum að Framkvæmdasýslan­Ríkiseignir, Heilbrigðisráðuneytið og Hveragerðisbær auglýstu eftir umsóknum byggingaraðila (aðalverktökum) um þátttökurétt í lokuðu alútboði á fullnaðarhönnun og og byggingu 22 rýma hjúkrunarheimilis við Hverahlíð 19 í Hveragerði.

Fyrstu drög að byggingunum Hér er um að ræða forval, þar sem aðilar verða valdir með tilliti til hæfi og reynslu. Áætluð húsrýmisþörf er 1.430 m2.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næsta ári og ljúki í lok árs 2024 eða byrjun árs 2025. Meðfylgjandi mynd sýnir frumdrög Glámu/Kím sem eiga án nokkurs efa eftir að breytast í ferlinu sem framundan er.

26 Heimilispósturinn

ÁS - DVALARHEIMILI

STÆKKUN NORÐAN HVERAHLÍÐAR

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 27 Nýtt hjúkrunarheimili í Ási

Þegar sólin fer að skína

Lífið er nú bara dálítið ljúft

Það lifnar allt við þegar blessuð sólin fer að skína. Þessar myndir voru teknar á svoleiðis degi nýverið og auðvitað gæddi fólk sér á ís. Svo er því við að bæta að veðrið er oft svo dásamlegt hér í portinu á bakvið Grund. Logn og blíða.

Jón Ólafur mætir oft með nikkuna og þá er stundum sungið líka.

28 Heimilispósturinn
Heimilispósturinn 29
Gaman í porti Grundar þegar veðrið er gott. Hér er svo sannarlega verið að njóta.

Heimilismenn vel að sér um Júróvisíon

Það var rífandi Júrovisíon stemning í iðjuþjálfuninni í Vesturási í Ási nokkrum dögum fyrir aðalkeppni á Ítalíu. Sigurgeir Snorri kom með plötuspilarann sinn og skemmtilega plötusafnið sitt sem hefur að geyma m.a. safnplötur frá Júróvisíon liðinna ára.

Aðalumræðuefnið snerist um Júróvisíón og síðan var farið í magnaðan spurningaleik þar sem viðstaddir kepptust um að láta í ljós þekkingu sína um sögu Júróvisíon. Og það var sko ekki komið að tómum kofa þegar spurningarnar dundu á heimilismönnum.

30 Heimilispósturinn Júróvisíon plötur og spurningaleikur
Það var auðvitað boðið upp á kaffi og bakkelsi.
JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 31
Júróvisíon plötur og spurningaleikur
Lilja og Sigurgeir skoða plötusafnið.

Halda tónleika á Grund á hverju ári

Það ómar allt húsið af söng

Í áraraðir hafa Fóstbræður komið á Grund og haldið tónleika sama kvöld og halda árshátíð. Tugir herra streyma í hátíðasalinn í kjólfötum og þegar þeir byrja að syngja ómar allt húsið. Heimilisfólk fyllir hátíðasalinn og það starfsfólk sem hefur tök á lætur sig ekki heldur vanta í salinn. Einstök stemning sem þeir bera með sér í hús og tónleikarnir dásamlegir. Árni Harðarson er kórstjóri Fóstbræðra.

32 Heimilispósturinn
Það er alltaf troðfullt þegar Fóstbræður mæta og hér kynnir Guðrún Gísladóttir fyrrum forstjóri þessa góðu gesti.

Páskaeggin vinsælir vinningar

Þó langt sé liðið frá páskum er ekki annað hægt en birta nokkrar myndir frá páskabingói á Grundarheimilunum þremur. Það var svo skemmtileg stemning og einbeitingin með eindæmum enda var hægt að vinna stór egg sem smá. Heimilismenn eru alltaf glaðir með páskaeggin sín og sumir gefa þau áfram til ungviðis sem kemur í heimsókn til langömmu eða langafa. Myndirnar eru teknar í Ási, á Grund og í Mörk.

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 33 a Páskabingó Grundarheimilanna
Valdís bingóstjóri á Grund.
34 Heimilispósturinn
Það mátti heyra saumnál detta milli þess sem tölur voru lesnar. Lilja var bingóstjórinn í Mörk.
JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 35 a Páskabingó Grundarheimilanna
Heimiliskonan Helga vann stórt egg. Bingóstjórarnir í Ási Guðrún Lilja og Fanney Björg.

Árleg heimsókn frá Kvennaskólanum á Grund

Gaman að sjá íslensku búningana

Í mörg ár hafa nemendur Kvennaskólans mætt á Grund þegar þeir halda sinn peysufatadag. Þá streyma á heimilið nemendur klæddir íslenskum þjóðbúningum. Stundum hefur hluti nemenda farið um húsið en alltaf er síðan dansað í portinu við harmonikkuleik og svo sungin nokkur lög. Heimilisfólkið kann svo sannarlega vel að meta þessar heimsóknir, nýtur þess að horfa á ungmennin klædd í íslenska búninga. Það er líka notalegt að sjá hvað nemendur eru duglegir að heilsa upp á þá heimilismenn sem koma út og fylgjast með. Það er ekki bara að þessi hópur sé prúðbúinn heldur er framkoman líka falleg og til mikils sóma. Kvennaskólanemendum er þakkað kærlega fyrir komuna.

36 Heimilispósturinn
Þessar stúlkur tóku sig vel út í búningum.
JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 37 Árleg heimsókn frá Kvennaskólanum á Grund
Tugir nemenda mættu með bros á vör. Heimilisfólk kom út til að fylgjast með unga fólkinu.

Grænmetið streymir á

Grundarheimilin

Það er gaman að koma í gróðurhúsin í Ási þessa dagana enda ræktunin komin á fullt og þeir sem búa eða starfa á Grundarheimilunum farnir að njóta góðs af uppskerunni.

Sigurður Birgisson og Jónas Þór Sigurbjörnsson.

Jónas Þór Sigurbjörnsson er tekinn við sem yfirmaður gróðurhúsanna og er einnig verkstjóri yfir allri garðvinnu utanhúss í Ási. Sér reyndar um klippingar líka í Mörk. Hann lætur vel af sér og er að gera ýmsar tilraunir með nýjungar í ræktun. „Við erum að rækta konfekttómata, kirsuberjatómata, venjulega tómata og svo salat, paprikur, agúrkur og litlar agúrkur. Þá erum við að prófa okkur áfram með jarðarberjaræktun og allskyns kryddjurtir og svo þetta hefðbundna eins og blaðlauk og gulrætur.

Gúrkur og tómatar í öll mál

Þegar uppskeran er góð og Grundarheimilin ná ekki að nýta hana alla býðst starfsfólki og íbúum hjá Íbúðum 60+ að kaupa grænmeti í verslunum heimilanna. Annars er grænmetið nýtt í allar máltíðir á meðan það býðst og almenn ánægja með að hafa það á boðstólum frá því snemma á vorin og langt fram á haust.

38 Heimilispósturinn Ræktum 7500 sumarblóm í ár

Starfsfólki býðst að kaupa sumarblóm

En hvernig verður með ræktun sumarblóma í ár? „Jú blessuð vertu við erum alveg á fullu þessa dagana og erum með um 7500 sumarblóm sem eru að verða tilbúin til útplöntunar. Það eru allar þessar hefðbundnu tegundir, stjúpur, tóbakshorn, fjólur og svo mætti áfram telja. Blómunum er skipt niður á Grundarheimilin og prýða lóðir Íbúða 60+ og svo bjóðum við starfsfólki líka að kaupa blóm á hagstæðu verði.“

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 39 a Ræktum 7500 sumarblóm í ár
Það er gróska í gróðurhúsunum í Ási.

Blómakrans úr kaffihylkjum

Í vinnustofu Markar er alltaf líf og fjör. Þessa dagana er vinsælt samvinnuverkefni í gangi, heimilisfólkið er að búa til blómakrans úr kaffihylkjum. Hylkin eru tæmd, þrifin og kramin. Síðan eru þau máluð og lituð laufblöð í þeim lit sem vekur áhuga. Allt er þetta svo límt saman og úr verður dásamlegur sumarkrans.

40 Heimilispósturinn Sumarlegt samvinnuverkefni í Mörk
Sumarlegir kransar sem eru búnir til í Mörk.
Heimilispósturinn 41 Sumarlegt samvinnuverkefni í Mörk
Laufblöð lituð eftir smekk. Kaffihylkin eru tæmd.

Gaman á Grund

Með söng og gleði að vopni

Í vetur mætti Gleðismiðjan reglulega á Grund og létti heimilisfólki lund og veitti tilbreytingu. Það er Reykjavíkurborg sem réði þau Kríu Mekkin, Bjarna Hall og Guðna Þorsteinsson til að fara á heimili með söng og gleði að vopni. Þegar samningur þeirra var útrunninn hjá borginni ákvað Grund að kanna hvort Bjarni væri ekki til í að koma með gítarinn áfram og leyfa heimilismönnum að njóta krafta hans það varð úr og hér eru þeir Bjarni og Jón Ólafur á Litlu Grund að syngja og sprella.

42 Heimilispósturinn
Þeir eru skemmtilegir saman Bjarni og Jón Ólafur.

Það þarf ekki mikið til að laða fram bros

Stundum er nauðsynlegt að sleppa fram af sér beislinu eða þannig, gera eitthvað sem laðar fram bros eða blik í auga. Það er nokkuð sem þau á annarri hæðinni í Mörk eru dugleg að gera, bæði heimilisfólk og starfsfólk. Stundum er nóg að setja upp skondin höfuðföt, baka góða köku eða taka nokkur spor við skemmtilega tónlist.

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 43 a Óvæntar uppákomur
Það er ekki annað hægt en að brosa út að eyrum.
44 Heimilispósturinn
Hversu gaman? Steingerður í góðum félagsskap.

Gárapar í hvíld á Grund

Það er algengt að fólk komi í hvíld á Grund í nokkrar vikur en það heyrir til undantekninga að dýr komi í hvíld á heimilið. Gárapar þurfti á hvíld að halda og því var tekið opnum örmum.

Gárarnir láta vel af dvölinni og fagna heimsóknum. Búrið þeirra er í anddyrinu hjá versluninni á Grund. Endilega kíkið við með ykkar aðstandendur og heilsið upp á þetta skemmtilega par.

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn a Vinsælt par

Lífsorkuæfingar njóta vinsælda

Það eru margir sem leggja leið sína í Kaffi Mörk á miðvikudagsmorgnum en þá eru qi gong æfingar þar fyrir íbúa í Íbúðum 60+.

Boðið hefur verið upp á slíkar æfingar frá 2021 í Mörk með smá hléum vegna Covid en allt að 40 manns hafa mætt í tímana.

Qi gong eru aldagamlar kínverskar lífsorkuæfingar.

46 Heimilispósturinn
Margir vilja taka þátt í lífsorkuæfingum.
Qi gong

Gunnarsæfingar

Fjórir félagar í Aflinu sem er félag qi gong iðkenda, skiptast á að leiða hópinn, Ástbjörn Egilsson, Björn Bjarnason, Jón Böðvarsson og Viðar H. Eiríksson. Æfingakerfi Aflsins er kennt við Gunnar heitinn Eyjólfsson leikara og nefnist Gunnarsæfingarnar. Samnefnd bók hefur verið til sölu í Boggubúð í Mörk.

Síðasta æfing fyrir sumarleyfi er miðvikudaginn 15. júní. Stefnt er að því að taka þráðinn upp að nýju í september.

Lífsorkuæfingar alhliða heilsubót

Í Qigong er fyrst og fremst verið að nota öndun, hreyfingu, líkamsstöðu og hugleiðslu. Í æfingunum er stefnt að því að opna orkurásir líkamans. Orkurásir líkamans eru stundum stíflaðar og valda þá bólgum og bólgur valda sjúkdómum.

Qi gong

Þegar kominn er tími á smá dekur

Stundum er bara gott að slaka á og láta dekra pínulítið við sig. Og það gerum við svo sannarlega á Grundarheimilunum. Stundum nuddar starfsfólkið lúna fætur en það er líka bara algengt að heimilisfólkið strjúki þreyttar hendur starfsfólksins. Líklega eru lykilorðin hér bara hlýja og umhyggja á báða bóga.

JólahugvekJa 2019 48 Heimilispósturinn Grundarheimilin
Þessar myndir eru teknar á ljúfum og notalegum morgnum í Mörk og í Bæjarási.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.