Jólablað Gróttu 2024

Page 1


GRÓTTUBLAÐIÐ 2024

Jólarit knattspyrnudeildar

75.000 króna tómstundastyrkur

Foreldrar og forráðamenn fimm til átján ára barna með lögheimili á Seltjarnarnesi fá 75.000 króna tómstundastyrk á ári vegna þátttöku í skipulögðu frístundastarfi 2025.

Hægt er að sækja um tómstundastyrkinn hvenær sem er innan almanaksársins en athugið að hann flyst ekki á milli ára. Umsóknir og ráðstöfun tómstundastyrkja er rafræn og fer fram í gegnum Mínar síður

Nánari upplýsingar á www.seltjarnarnes.is sjá Mínar síður.

Ávarp formanns

Kæra Gróttufólk,

Jólablað knattspyrnudeildar kemur nú út í fjórtánda sinn og er lestur blaðsins fyrir löngu orðinn að föstum lið á mörgum heimilum á Seltjarnarnesi í aðdraganda jólanna. Það eru mörg handtök sem fara í gerð þessa veglega blaðs, eins og sjáanlegt er við lesturinn. Fyrir hönd deildarinnar færi ég þeim sem hafa haft veg og vanda að þessari glæsilegu útgáfu okkar bestu þakkir. Til þess að útgáfan standi undir sér voru seldar auglýsingar og fólki gefinn kostur á að senda jólakveðju í blaðið og voru viðbrögðin við hvoru tveggja frábær. Útgáfa blaðsins er grasrótarstarf og því sérlega mikilvægt að nærsamfélagið standi þétt við bakið á útgáfunni svo hún leggist ekki af.

Þegar litið er yfir farinn veg og starfsemi deildarinnar á árinu sem er að líða er tekin saman má segja að umhleypingatíð hafi verið. Deildin tók stór skref í átt að betra innra skipulagi og auknum faglegum áherslum með ráðningu Magnúsar Helgasonar í starf yfirmanns knattspyrnumála á vormánuðum. Magga þekkjum við Gróttufólk auðvitað vel og hefur hann komið af miklum krafti inn í starfið. Á árinu kvöddum við báða aðalþjálfara beggja meistaraflokka félagsins. Matthíasi Guðmundssyni bauðst eftir lok keppnistímabilsins að taka við sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Val og Chris Brazell lét af störfum undir lok síðasta sumars hjá meistaraflokki karla. Báða þjálfara kveðjum við með virktum og færum þeim þakkir fyrir vinnu þeirra og framlag í þágu félagsins, bæði á árinu sem er að líða og fyrr. Við meistaraflokkunum hafa tekið Dominic Ankers og Rúnar Páll Sigmundsson. Dom hefur starfað lengi hjá félaginu við góðan orðstír og Rúnar Páll hefur stýrt liðum á hæsta stigi íslenskrar knattspyrnu, meðal annars til Íslandsmeistaratitils. Það verður spennandi að fylgjast með þeim stýra liðum sínum í komandi verkefnum. Á árinu kvöddum við einnig Gabríel Hrannar sem yfirþjálfara yngri flokka, en hann hélt til KR. Paul Westren heldur áfram í starfi sínu sem yfirþjálfari, með breyttum áherslum, og hefur fengið til liðs við sig Hansínu Þóru Gunnarsdóttur sem deilir með honum ábyrgðinni á starfi yngra flokka. Það hafa því vægast sagt verið miklar breytingar á árinu og mikil tilhlökkun að

Eftir nokkuð stöðuga fjölgun í barna- og unglingastarfinu á undanförnum árum virðist sem ákveðnu jafnvægi sé náð, Þorsteinn Ingason, formaður knattspyrnudeildar Gróttu.

fylgjast með þessum öfluga hópi þjálfara og starfsmanna leiða starf deildarinnar á komandi misserum.

Nú á haustmánuðum var okkur tilkynnt að KR-ingar hefðu ákveðið að slíta samstarfi milli félaganna um rekstur 4., 3. og 2. flokks kvenna. Er það samdóma álit okkar sem að starfinu koma að það sé miður að nágrannar okkar í KR hafi ákveðið að halda ekki áfram samstarfinu og að eftirsjá verði af því. Hefur samstarfið borið ríkulegan ávöxt í gegnum tíðina sem felst fyrst og fremst í því að hafa getað haldið úti æfingum og keppnisliðum í öllum yngri flokkum kvenna þar sem eins mörgum iðkendum og hægt er stóðu til boða verkefni við hæfi. Flokkarnir héldust fjölmennir og ekki unnt að skilja annað en að mikil ánægja væri hjá iðkendum sjálfum með samstarfið. Ljóst er að slit á samstarfi félaganna er þungt högg fyrir ungar knattspyrnukonur á Seltjarnarnesi og í Vesturbæ. Við í Gróttu höfum fulla trú á að okkur takist að klára endurskipulagningu á yngri flokka starfi kvenna, en stærsta áskorunin í því er hreinlega að halda úti metnaðarfullum æfingum, ná í keppnislið og að sporna við brottfalli á þessum viðkvæma aldri knattspyrnukvenna.

Segja má að hlutskipti meistaraflokka félagsins hafi verið ólíkt í ár. Fór á endanum svo að kvennaliðið endaði í þriðja sæti eftir æsispennandi lokakafla í baráttunni um sæti í efstu deild. Liðið er annað árið í röð að gera atlögu að því að fara upp um deild og verður spennandi fylgjast með liðinu á komandi ári. Karlaliðið lauk aftur á móti leik í 11. sæti deildarinnar og niðurstaðan því fall niður í 2. deild. Það eru mikil vonbrigði að horfa á eftir liðinu niður um deild, eftir 6 ára samfellda veru í efstu tveimur deildunum. Leikmenn og þjálfarar sem tekið hafa þátt í verkefninu á undanförnum árum geta verið stoltir af árangri liðsins, en um er að ræða langlengstu samfellda veru í efri deildum í sögu félagsins. Með nýjan mann í brúnni er stefnan sett á að komast aftur upp um deild, ásamt því að huga að uppbyggingu leikmannahópsins með langtímamarkmið í huga.

að minnsta kosti í bili. Á þessum vettvangi hefur því áður verið haldið fram að á vegum knattspyrnudeildar sé rekið umfangsmesta og mikilvægasta forvarnar- og æskulýðsstarf á Seltjarnarnesi. Það byggir ekki á nákvæmum vísindalegum rannsóknum, en hverjum má þykja sinn fugl fagur. Það er í það minnsta ekki mjög fjarri lagi. Á sama tíma blasir við að kostnaður við þátttöku í starfinu er sífellt að aukast. Helgast það bæði af hækkun æfingagjalda, sem helst í hendur við hækkun þjálfaralauna, en ekki síður af auknum kostnaði tengdum mótum og leikjum. Hjá félaginu hafa lengi gilt reglur um þátttöku félagsins í ferðakostnaði, sem eru fyrir löngu orðnar úr sér gengnar og viðmiðunarmörk ekki fylgt almennri verðlagsþróun og enn síður þeirri hækkun sem orðið hefur á til dæmis rútukostnaði. Höfum við orðnar töluverðar áhyggjur af þessari þróun, enda er markmiðið að öllum standi til boða tækifæri til að taka þátt í starfi knattspyrnudeildar og kostnaður sé þar ekki of stór þröskuldur. Annars var venju samkvæmt ánægjulegt að fylgjast með starfi yngri flokkanna með þeim mikla fjölda æfinga, leikja og félagslegra viðburða sem á dagskrá voru.

Það komu stórar fréttir erlendis frá á árinu. Bæði Hákon Rafn og Orri Steinn höfðu vistaskipti og fluttu sig milli landa. Hákon Rafn fór til Brentford sem spilar í ensku úrvalsdeildinni og Orri Steinn til Real Sociedad sem spilar í spænsku úrvalsdeildinni. Báðir eru þeir vel að vistaskiptunum komnir, og er metnaður þeirra, áræðni og þrotlaus vinna að skila sér í því að þeir eru farnir að leika á stærstu sviðum knattspyrnunnar. Þeir héldu áfram að stimpla sig inn sem landsliðsmenn, og léku flesta landsleiki ársins í byrjunarliði. Báðir eru þeir frábærar fyrirmyndir yngri kynslóðarinnar og var afar ánægjulegt að verða vitni að heimsókn Orra Steins á Vivaldivöllinn í

sumar, þar sem krakkarnir stóðu í löngum röðum eftir að fá eiginhandaráritanir og mynd. Báðum færi ég fyrir hönd deildarinnar hamingjuóskir með árangurinn og vistaskiptin. Emelía Óskarsdóttir hafði flutt sig til dönsku meistaranna í HB Köge í lok síðasta árs, þar sem hún fór vel af stað, en varð fyrir því óláni að slíta krossband í sumar. Emelíu sendum við bataog baráttukveðjur í endurhæfingunni. Tómas Johannessen er svo að ljúki sínu fyrsta ári hjá AZ Alkmaar í Hollandi og hlökkum við til að fylgjast með þróuninni á hans ferli þar. Þann 17. september var stórt skarð hoggið í starf félagsins, en þá lést Valdimar Ólafsson eftir nokkra baráttu við erfið veikindi. Valdi tengdist félaginu allt frá stofnun þess og hafði frá árinu 2016 verið vallarstjóri á Vivaldivelli. Við minnumst Valda með hlýhug og af söknuði en minningarorð um þann mæta mann má finna aftar í blaðinu.

Að lokum vil ég fyrir hönd stjórnar knattspyrnudeildar þakka öllu því frábæra fólki sem lagði lóð sitt á vogarskálarnar á árinu sem er að líða. Félag eins og Grótta er ekkert nema fólkið sem við kemur starfinu á einn eða annan hátt, hvort sem það eru iðkendur og leikmenn, þjálfarar, stuðningsmenn, foreldrar, styrktaraðilar eða aðrir sjálfboðaliðar. Félagið verður að reyna að hlúa að öllu þessu góða fólki þannig að hér verði áfram rekið blómlegt starf í knattspyrnudeild.

Fyrir hönd stjórnar knattspyrnudeildar óska ég ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Þorsteinn Ingason, Formaður knattspyrnudeildar

„BESTA SPENNUSAGAN Í ÁR!”

- Ingibjörg Iða Auðunardóttir, Kiljan

„Bráðsnjöll, spennandi og skemmtileg sakamálasaga.

... Yrsa sannar hér enn og aftur að hún er fljúgandi fær og hér nýtur sín vel kímni hennar og gott auga fyrir því sem er kómískt í fari manna. Hún kann líka öðrum betur að nýta sér skrýtnar tilviljanir og það hvernig tilviljanirnar geta stundum raðast saman á stórmerkilegan hátt. Henni tekst að gera þetta allt trúverðugt og sagan gengur fyllilega upp.“

-Steingerður Steinarsdóttir, Lifðu núna

–Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðinu

Fótboltasumarið 2024

Meistaraflokkur karla

Langt frá sínu besta

Meistaraflokkur karla lék í Lengjudeildinni í ár og var kjarni Gróttuliðsins hinn sami og síðustu ár. Liðið fékk einnig góðan liðsstyrk fyrir tímabilið. Þeir Valdimar Daði og Eirik Brennhaugen gengu til liðs við Gróttu snemma síðasta vetur og síðar bættist við hinn ungi og efnilegi

Kristján Oddur og Hollendingurinn Damian Timan. Þá kom Tómas Orri á láni til Gróttu frá Breiðablik og Alex Bergmann gekk til liðs við félagið frá Njarðvík. Í félagaskiptaglugganum í júlí fékk Grótta svo mikinn liðsstyrk þegar hinn reynslumikli Rasmus Christiansen bættist í hópinn.

Grótta hóf tímabilið í Lengjudeildinni vel og voru strákarnir taplausir þar til í sjöundu umferð. Þá fór að halla verulega undir fæti hjá liðinu sem tapaði sjö leikjum í röð! Sigur á Grindavík í 14. umferð gaf von um nýtt upphaf en því miður fóru hlutirnir í sama farið á ný. Í byrjun ágúst var Chris Brazell þjálfara liðsins sagt upp störfum og lauk þar með tæplega fimm ára starfi Chris hjá félaginu. Sannarlega leiðinleg endalok en upp úr stendur frábært og mikilvægt framlag Chris til Gróttu. Igor Bjarni Kostic tók við stjórnartaumunum og stýrði síðustu

fimm leikjum tímabilsins en stigasöfnun batnaði ekki og niðurstaða sumarsins gífurleg vonbriðgi:Næst neðsta sæti deildarinnar og fall niður í 2. deild en þar hefur Grótta ekki spilað síðan árið 2018. Gróttumenn, þjálfarar, leikmenn og stjórn, eru ekki af baki dottnir og ætla að snúa hratt við blaðinu og komast rakleiðis aftur upp í Lengjudeildina næsta sumar. Það var þó ýmislegt jákvætt við sumarið hjá Gróttumönnum, m.a. að þeir Kristófer Orri Pétursson og Arnar Þór Helgason spiluðu sinn 150. leik fyrir Gróttu og eru þar með fjórði og fimmti leikjahæstu leikmenn félagsins.

Hinir ungu Birgir Davíðsson Scheving og Kristján Oddur Kristjánsson spiluðu sína fyrstu meistaraflokksleiki og hinn tvítugi Ragnar Björn Bragason stimplaði sig á skemmtilegan hátt inn í hópinn eftir að hafa glímt við þrálát meiðsli í 2. flokki.

Á lokahófi meistaraflokkana var kosið um ýmis verðlaun. Gabríel Hrannar Eyjólfsson var valinn besti leikmaðurinn og Kristján Oddur Bergm. Haagensen sá efnilegasti. Rasmus Steenberg Christiansen var kosinn mesti naglinn, Kristófer Orri Pétursson mikilvægasti

leikmaðurinn, Kristófer Melsted leikmaður leikmannanna og Damian

Timan hrökkbrauð ársins. Gabríel

Hrannar Eyjólfsson og Pétur Theodór Árnason voru markahæstu leikmenn liðsins með fimm mörk hvor.

Um miðjan nóvember skrifaði

Rúnar Páll Sigmundsson undir þriggja ára samning um að þjálfa meistaraflokk karla hjá Gróttu. Rúnar Páll er knattspyrnuáhugafólki að góðu kunnur en hann þjálfaði lið

Stjörnunnar í rúmlega sjö ár og Fylki í þrjú. Stjarnan varð Íslandsmeistari

undir stjórn Rúnars sumarið 2014, bikarmeistari 2018 og lék fjölda Evrópuleikja. Rúnar Páll er fimmtugur, fæddur og uppalinn Garðbæingur. Hann er íþróttafræðingur að mennt og lauk UEFA Pro þjálfaragráðu hjá sænska knattspyrnusambandinu árið 2018. Þorsteinn Ingason, formaður stjórnar, fagnar komu Rúnars í Gróttu: „Það er óhætt að segja að við séum himinlifandi með komu Rúnars Páls á Nesið. Við reyndum eftir fremsta megni að vanda til verka við ráðningu á nýjum þjálfara enda eru mikilvægir

tímar framundan hjá karlaliði Gróttu - við ætlum okkur aftur upp í Lengjudeildina en um leið byggja upp lið sem getur gert sig gildandi þar á næstu árum. Með Rúnari kemur mikil orka og drifkraftur og við hlökkum til að fylgjast með honum aðlagast og setja sinn svip á Gróttusamfélagið.”

Meistaraflokkur karla þakkar fyrir stuðninginn í sumar og hlakkar til að sjá sem flesta á vellinum í 2. deildinni á næsta ári.

Þjálfarateymi meistaraflokks karla 2023-2024

Þjálfarar: Christopher Brazell / Igor Bjarni Kostic

Aðstoðarþjálfari: Dominic Ankers

Markmannsþjálfari: Simon Toftegaard Hansen

Styrktarþjálfari: Hilmar Andrew McShane

Markmannsþjálfari: Simon Toftegaard Hansen

Styrktarþjálfari: Hilmar Andrew McShane

Sjúkraþjálfari: Viktor Bonometti

Sjúkraþjálfari: Viktor Bonometti

með kreditkorti

Símans Pay

Nánar á siminnpay.is

Fasteignamiðlun

Eiðistorgi

Hafið samband við

Önnu Friðrikku lgf.

Gsm 892 8778

Afsláttur af ráðgjöf í stílistun innanhús

Sala og leiga á fasteignum

Frítt verðmat

Unga kynslóðin

Tómas Kristjánsson

4. flokkur karla - fæddur 2011

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta?

Ég byrjaði að æfa fótbolta þegar ég var fimm ára

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum? Skotæfingar og spil

En leiðinlegast? Það er ekkert leiðinlegt sem ég man eftir

Góð minning úr fótboltanum?

Þegar við unnun N1

Uppáhalds fótboltakona/maður? Christiano Ronaldo

Með hvaða liðum heldur þú? Gróttu og Liverpool

Uppáhalds jólamatur? Hamborgarhryggur

Ísabella Hjaltadóttir

4. flokkur kvenna - fædd 2011

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta?

Ég byrjaði að æfa fótbolta þegar ég var sjö ára

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum? Mér finnst skemmtilegast að spila, gera skotæfingar og tækniæfingar

En leiðinlegast? Mér finnst ekkert leiðinlegt

Góð minning úr fótboltanum?

Þegar við fórum á Barcelona Cup seinasta sumar og fengum tvo bikara

Uppáhalds fótboltakona/maður? Uppáhalds fótboltakonan mín er Sveindís og uppáhalds fótboltamennirnir eru Messi, Neymar og Trent Alexander Arnold Með hvaða liðum heldur þú? Ég held með Liverpool og Barcelona Uppáhalds jólamatur? Hamborgarhryggur

Hrafnkell Kristmundsson

5. flokkur karla - fæddur 2013

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta?

Ég byrjaði fjögurra ára

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum?

Mér finnst skemmtilegast að spila og fara í killer

En leiðinlegast? Mér finnst leiðinlegt að bíða á línunni eftir að æfingin byrji

Góð minning úr fótboltanum?

Í sumar á N1 mótinu var eitt liðið að spila leik sem var sýndur í sjónvarpinu.

Þegar Kolli skoraði úrslitamark reif hann sig úr að ofan.

Það var mjög fyndið

Uppáhalds fótboltakona/maður? Það eru nokkrir eins og

Lamine Yamal, Orri Steinn Óskarsson og Mohamed Salah. Þeir eru allir flottir

Með hvaða liðum heldur þú? Ég held með Liverpool, Barcelona, Gróttu og Íslandi

Uppáhalds jólamatur? Ekkert betra en hamborgarhryggur

Arney Día Eldjárn

5. flokkur kvenna - fædd 2013

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta? Ég byrjaði sex ára Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum?

Spila eða 1v1

En leiðinlegast? Að skokka

Góð minning úr fótboltanum?

Að vinna Símamótið

Uppáhalds fótboltakona/ maður? Ronaldo

Með hvaða liðum heldur

þú? Manchester United og Gróttu

Uppáhalds jólamatur? Hamborgarhryggur

Móey Karvelsdóttir

6. flokkur kvenna - fædd 2015

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta? Í leikskóla

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum?

Spila

En leiðinlegast?

Halda á lofti

Góð minning úr fótboltanum? Þegar við unnum Símamótsbikar

með Keflavík

Uppáhalds fótboltakona/maður? Sveindís Jane og Ronaldo

Með hvaða liðum heldur þú? Liverpool og Gróttu Uppáhalds jólamatur? Möndlugrautur

Arnar Steinn Guðmundsson

6. flokkur karla - fæddur 2015

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta? Þriggja ára

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum?

Að vera í marki á skotæfingum

En leiðinlegast? Spila allan tímann

Góð minning úr fótboltanum? Þegar ég varði víti á móti

Uppáhalds fótboltakona/ maður? Messi, Hákon og Orri

Með hvaða liðum heldur þú? Manchester United og Gróttu Uppáhalds jólamatur? Kalkúnn

Kári Hrafn Árnason

7. flokkur karla - fæddur 2017

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta? Fimm ára

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum? Gera gabbhreyfingar

En leiðinlegast? Boðhlaup

Góð minning úr fótboltanum?

Þegar liðið mitt varð vetrarfrísmeistari 2024

Uppáhalds fótboltakona/ maður? Orri Steinn Óskarsson og Alexia Putellas

Með hvaða liðum heldur þú? Gróttu, Liverpool og Real Sociedad

Uppáhalds jólamatur? Kalkúnn og smá hamborgarhryggur

Edda Brynjarsdóttir

7. flokkur kvenna - fædd 2017

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta? Fimm ára

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum? Killer

En leiðinlegast? Ég veit ekki, ekkert

Góð minning úr fótboltanum?

Símamótið þegar ég vann bikar

Uppáhalds fótboltakona/ maður? Sveindís Jane Með hvaða liðum heldur þú? Gróttu

Uppáhalds jólamatur? Rjúpa

Meistaraflokkur kvenna

Besti árangur frá upphafi

Meistaraflokkur kvenna lék í Lengjudeildinni í sumar eftir glæsilegan árangur í deildinni árinu áður, þar sem liðið var hársbreidd frá því að komast upp í Bestu deildina. Markadrottningarnar Ariela Lewis og Hannah Abraham yfirgáfu Nesið en að öðru leyti urðu litlar breytingar á hópnum. Það hefur einmitt verið talinn einn af styrkleikum liðsins að sterkur kjarni þess hefur spilað lengi saman. Gróttukonur fengu góðan liðsstyrk úr ýmsum áttum en markmaðurinn Margrét Rún Stefánsdóttir gekk til liðs við Gróttu frá Tindastól, Díana Ásta Guðmundsdóttir kom frá Augnabliki, Elvý Rut Búadóttir frá Fjölni og Hildur Björk Búadóttir frá Val. Þá fengu þær einnig liðsstyrk að utan frá hinni kanadísku Emily og brasilísku Franciele, en þær urðu báðar fyrir því óláni að slíta krossband á Vivaldivellinum um mitt sumar. Þá bættust við í hópinn Kolbrá Una Kristinsdóttir á láni frá Val, Madelyn Robbins frá Kanada og Tara Jónsdóttir á láni frá Víking. Gróttuliðið fór í vel heppnaða æfingaferð til Spánar í mars og fóru stelpurnar vel stemmdar inn í sumarið.

Gróttukonur byrjuðu Lengjudeildina vel og þegar Íslandsmótið var hálfnað var liðið í þriðja sæti. Þrír sigurleikir í röð í lok júlí og byrjun ágúst gerðu það að verkum að Grótta gat með sigri á Framkonum í 16. umferð stigið með annan fótinn upp í úrvalsdeild. Því miður virðist taugaspennan hafa verið of mikil, Fram vann öruggan sigur og komst því í bílstjórasætið fyrir síðustu tvo leikina. Grótta sýndi mikinn styrk, vann báða sína leiki í lokaumferðunum

en þurfti að treysta á að Fram myndi tapa stigum. Það varð ekki rauninFram og Grótta enduðu jöfn að stigum en Framkonur með betri markatölur og fylgdu því FHL upp í Bestu deildina.

Gróttukonur geta þó verið stoltar af árangrinum sem var sá besti í sögu kvennaliðs Gróttu. Liðið hefur aldrei endað jafn ofarlega í Lengjudeildinni og fengið jafn mörg stig og í ár. Á lokahófi meistaraflokkanna voru veittar ýmsar viðurkenningar. Kolbrá Una Kristinsdóttir var valin besti leikmaðurinn og Rebekka Sif Brynjarsdóttir sú efnilegasta. Mikilvægasti leikmaðurinn var Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir, leikmaður leikmannanna Jórunn María Bachmann Þorsteinsdóttir, Kolbrá Una mesti naglinn og að lokum hreppti Vivaldivöllurinn titilinn hrökkbrauð ársins. Arnfríður Auður Arnarsdóttir var

markahæsti leikmaður Gróttu með níu mörk.

Að tímabilinu loknu urðu breytingar á þjálfarateymi meistaraflokks kvenna en í lok október gerði Valur samkomulag við Gróttu um að Matthías Guðmundsson myndi taka kvennaliði þeirra. Við munum sakna Matta en fögnum því um leið að Grótta haldi áfram að bjóða leikmönnum og þjálfurum upp á vettvang þar sem fólk getur vaxið og eflst og tekið skref upp á næstu stig knattspyrnuunnar. Knattspyrnudeild Gróttu óskar Matta velfarnaðar í nýju starfi.

Dominic Ankers hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna. Dom, sem er 29 ára gamall Englendingur, kom til Gróttu sumarið 2021 og hefur síðan þá verið aðstoðarþjálfari í báðum meistaraflokkunum og þjálfað 2. og 5. flokk karla. Dom er með B.Sc gráðu í íþróttavísindum frá Loughborough háskóla og þjálfaði m.a. í akademíu Norwich City og þróunarhópa hjá Derby County og Cambridge United.

Melkorka Katrín Flygenring Pétursdóttir heldur áfram sem aðstoðarþjálfari og hefur jafnframt tekið yfir sem styrktarþjálfari meistaraflokks kvenna.

Melkorka kláraði nýverið meistaranám í sjúkraþjálfun og hefur lokið UEFA B þjálfararéttindum.

Meistaraflokkur kvenna þakkar fyrir stuðninginn í sumar og hlakkar til að sjá sem flesta á vellinum í Lengjudeildinni á næsta ári.

Þjálfarateymi meistaraflokks kvenna

2023-2024

Þjálfari: Matthías Guðmundsson

Aðstoðarþjálfarar: Melkorka Katrín Flygenring

Pétursdóttir og Dominic Ankers

Markmannsþjálfari: Simon Toftegaard Hansen

Styrktarþjálfari: Bjarki Þór Valdimarsson

Sjúkraþjálfari: Alex Mar Bjarkason

Fótboltasumarið 2024

Til hamingju strákar!

Orri Steinn Óskarsson

Knattspyrnufélagið Kría

Í janúar árið 2014 stofnuðu Gróttumennirnir

Atli Freyr Sveinsson, Garðar Guðnason, Gunnar Þorbergur Gylfason, Orri Axelsson og Magnús Örn Helgason knattspyrnufélagið Kríu. Þeim fannst vanta vettvang fyrir uppalda leikmenn félagsins - bæði þá sem voru hættir að spila með meistaraflokki og unga leikmenn sem vantaði reynslu til að geta gert atlögu að sæti í meistaraflokki Gróttu. Félagið fagnaði tíu ára afmæli í ár, en eins og flestir vita er Kría svokallað venslalið Gróttu og leikur í 4. deild karla. Í dag eru flest knattspyrnulið með venslalið og var svo sannarlega efni til þess á Seltjarnarnesi, eins og sagan sýnir. Á fyrsta tímabili Kríu, sumarið 2014, fór árangurinn fram úr vonum þeirra sem stóðu að baki liðinu, en liðið endaði í 3. sæti af sjö liðum í sínum riðli í 4. deild og var framan af móti í harðri baráttu um að komast í umspilssæti um sæti í 3. deild.

Kría er fyrir Gróttu og Grótta er fyrir Kríu

Tengingin milli 2. flokks og Kríu hefur alltaf verið sterk Ófáir ungir og efnilegir leikmenn sem leika með 2. flokki hafa fengið sín fyrstu tækifæri í meistaraflokksfótbolta með Kríu. Kría er einnig til staðar til að skapa umhverfi fyrir unga knattspyrnumenn til að halda áfram að iðka fótbolta, auk þess að vera vettvangur til að þróa leikmenn fyrir Gróttu. Sem dæmi

hafa leikmenn eins og Arnar Þór Helgason, Pétur Theodór Árnason, Gabríel Hrannar Eyjólfsson, Gunnar Jónas Hauksson og Jón Ívan Rivine leikið með Kríu og farið þaðan yfir í Gróttu. Þessi tenging við 2. flokk og Gróttu er félaginu allt.

Upp um deild í fyrsta sinn

Kría hefur alla tíð leikið í 4. deild karla að tímabilinu 2023 undanskildu, þar sem 5. deild var stofnuð en Kríumenn voru ekki lengi að koma sér upp úr henni. Árið 2020 og 2021 unnu Kríumenn sinn riðil og komust í úrslit í 4. deildinni en náðu ekki að koma sér upp í 3. deild. Árið 2023 trónaði Kría einnig á toppi síns riðils í 5. deild og við tók æsispennandi úrslitakeppni þar sem Kría hafði betur gegn Úlfunum eftir tvo leiki og tryggðu sér sæti í 4. deild á ný. Kríumönnum tókst að halda sínu sæti í 4. deildinni í ár og hlökkum við til að fylgjast með þeim næsta sumar!

3. og 4. flokkur karla og kvenna á ferð og flugi í sumar

3. flokkur kvenna í Bretlandi

Þann 8. ágúst héldu 16 stelpur úr 3. flokki Gróttu/KR til Bretlands á atvinnumannamót í Hartfordshire. Með í för voru þrír fararstjórar og svo þjálfararnir Júlli og Steini. Ferðinni var heitið til Hatfield í Hartfordshire sem er í um 50 mínútna akstursfjarlægð frá London. Hópurinn gisti á University of Hartfordshire þar sem mótið fór fram og æfingar stundaðar. Þar er stórt íþróttasvæði og var allt til alls fyrir hópinn til að njóta vel þessa daga sem dvalið var þar. Á föstudeginum byrjuðu stelpurnar á æfingasvæðinu þar sem tekin var góð endurheimt eftir ferðalagið og undirbúið aðeins fyrir mótið sem var daginn eftir.

Rúta kom svo og sótti hópinn á háskólasvæðið og var förinni heitið á Emirates Stadium, leikvang Arsenal, þar sem stelpurnar upplifðu algjöran fótboltadraum. Þær fengu að skoða hvern krók og kima leikvangsins og vakti hópurinn athygli fyrir spjall við heimamenn og kurteisi sína. Hópurinn fékk svo miða á leik Hákons okkar Valdimarssonar, fyrrverandi leikmanns Gróttu og núverandi leikmanns Brentford á leik Brentford - Wolfsburg á Gtech leikvanginum. Það var engin smá upplifun fyrir þessari flottu fótboltastelpur og áttu þær svo sannarlega viðburðaríkan föstudag! Á laugardeginum hófst mótið og mættu stelpurnar hinum ýmsu liðum, t.d. Crystal Palace, PSA, Oxford City og Avely FC. Þær mættu sterkar til leiks á mótinu og gáfu ekkert eftir og unnu til að mynda 1-0 sigur á stórliði Crystal Palace. Stelpurnar stóðu sig gríðarlega vel á mótinu, unnu fjóra leiki, gerðu tvö jafntefli og töpuðu einum leik og enduðu í 2. sæti mótsins. Á sunnudeginum skoðuðu stelpurnar sig um í stórborginni London og fóru t.d. í bátsferð niður Thames river

og kíktu í búðir. Á mánudeginum var síðan flogið heim eftir frábæra daga í Bretlandi þar sem dýrmætar minningar voru skapaðar hjá þessum flottu stelpum sem eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér!

3. flokkur karla í Stokkhólmi

Strákarnir í 3. flokki héldu í lok júní til Stokkhólms til að taka þátt í alþjóðlega knattspyrnumótinu Stockholm Cup. Grótta tefldi fram tveimur liðum, einu í flokki U15 og hinu í U16/17 en nokkrir leikmenn léku með báðum liðum. Skemmst er frá því að segja að eldra liðið náði sér aldrei almennilega á strik og lauk leik í 11-12. sæti af 16 liðum eftir einn sigur, eitt jafntefli og þrjú töp. Yngra liðið spilaði sig alla leið inn í undanúrslit þar sem Gróttumenn töpuðu sannfærandi fyrir heimamönnum í Enskede IK. Þá var komið að bronsleiknum við finnska liðið Grankulla IFK en það voru Finnarnir sem

3. flokkur kvenna í Bretlandi
3. flokkur karla í Stokkhólmi

byrjuðu mun betur og komumst í 3-0 í fyrri hálfleik. Hrafn Darri Benediktsson minnkaði muninn rétt fyrir hálfleik en þegar líða tók á seinni hálfleikinn leitt fátt út fyrir annað en að bronsið færi til Finnlands. Birgir Scheving minnkaði muninn í 3-2 og á lokamínútu leiksins átti Birgir góðan sprett fram völlinn og gaf fyrir markið þar sem Tómas Þór Þrastarson var mættur á fjær og kom boltanum yfir línuna - VÍTÓ! Eftir mikla spennu fór vítakeppnin í þrefaldan bráðabana en að lokum hafði Grótta betur og fagnaði bronsinu innilega. Fyrir utan fótboltann könnuðu strákarnir búðirnar í Stokkhólmi og heimsóttu skemmtigarðinn Gröna Lund. Þrátt fyrir misjafnt gengi komu allir heim með góðar minningar í farteskinu og tvíefldir í seinni hluta fótboltasumarsins á Íslandi.

4. flokkur kvenna á Barcelona Cup

4. flokkur kvenna ferðaðist til Salou í byrjun júní og keppti á Barcelona Girls Cup. Á mótinu voru 60 lið frá 10 löndum sem tóku þátt í mismunandi aldursflokkum. Grótta/KR fór með fjögur lið á mótið og spiluðu tvö þeirra í G10 keppni fyrir stelpur fæddar árið 2010 og tvö lið spiluðu í G11 keppni fyrir stelpur fæddar árið 2011. Ferðast var á fimmtudegi og tóku þær eina æfingu á föstudeginum við frábærar aðstæður áður en spilað var á mótinu laugardag og sunnudag. A-lið eldra árs vann fimm fyrstu leiki sína og töpuðu svo 1-3 í úrslitaleik mótsins gegn Allerod FK. Kara Guðmundsdóttir var þá valin besti leikmaður mótsins af mótsnefnd annað árið í röð. B-lið eldra árs keppti um 9-12 sæti. Þar töpuðu þær undanúrslitum í vítaspyrnukeppni gegn franska liðinu Arcade Foot áður en þær spiluðu svo við MaPS frá Finnlandi og töpuðu naumlega 0-1. Lokastaða B-liðsins var því 12.sæti. A-lið yngra árs var einum sigri frá sæti í undanúrslitum en höfnuðu í 5. sæti eftir sigur á Leixlip United frá Írlandi. Markahæsti leikmaður liðsins var Salka Ólafsdóttir með 7 mörk í 6 leikjum. B-lið yngra árs endaði þá mótið í 7.sæti eftir sigur á Fjölni í síðasta leik. Þar voru Freyja Ólafsdóttir og Birta Tómasdóttir markahæstar með 3 mörk. Ferðin gekk mjög vel og skemmtu stelpurnar sér vel og sköpuðu góðar minningar. Öll lið stóðu sig frábærlega og voru félögum sínum svo sannarlega til sóma í ferðinni!

4. flokkur karla á Barcelona Cup

Tæplega þrjátíu drengir úr 4. flokki karla skelltu sér til Spánar í október á Barcelona Cup ásamt þjálfurunum Paul og Halla og fararstjórunum Kristjáni Guðmundssyni og Ólafi Erni Svanssyni. Gist var á Cambrils Park Resort í Salou við fyrsta flokks aðstæður og stutt frá vallarsvæðinu þar sem drengirnir æfðu saman og mótið var haldið. Hópurinn kom til Spánar mánudaginn 21. október og æfðu í fjóra daga áður en þeir tóku þátt í mótinu sem fór fram helgina 26.-27. október.

Grótta fór með tvö lið á mótið. Eldra árs liðið hóf mótið á öruggum 5-1 sigri gegn skosku liði og unnu sinn riðil. Þeir mættu síðan norsku liði í undanúrslitum þar sem farið var í vítaspyrnukeppni eftir 1-1 jafntefli eftir venjulegan leiktíma. Þeir höfðu verið taplausir á mótinu sem er glæsilegur árangur en töpuðu síðan í vítaspyrnukeppninni. Jón Bjarni var markahæstur í Gróttuliðinu með fimm mörk á mótinu. Blandaða liðið átti erfiða byrjun á mótinu en náðu að koma sér á strik og unnu írskt lið og náðu 3. sæti í sínum riðli. Þeir unnu síðan annað írskt lið í lokaleik mótsins og var Óskar Gunnar markahæstur í liðinu með þrjú mörk.

Strákarnir höfðu einnig ýmislegt annað fyrir stafni en fótbolta en þar sem þeir gistu var í boði líkamsrækt, spa, sundlaug, minigolf, tennis, blakvöllur, körfuboltavöllur og lítill fótboltavöllur. Gaman var að sjá lið frá ýmsum löndum blandast saman í hinum ýmsu afþreyingum á svæðinu. Hellingur af foreldrum og fjölskyldum drengjanna fjölmenntu til Spánar og studdu drengina á mótinu, ásamt því að fylgja þeim í ýmis ævintýri á Spáni s.s. hjólaferð um Salou, skoðunarferð á ströndina, skemmtigarð og svo var kíkt í nokkrar búðir. Drengirnir voru félagi sínu til sóma og var ferðin ótrúlega vel heppnuð.

4. flokkur kvenna á Barcelona Cup
4. flokkur karla á Barcelona Cup
4. flokkur karla á Barcelona Cup

Þjálfarar knattspyrnudeildar

Gróttu 2024/2025

Rúnar Páll Sigmundsson

Meistaraflokkur karla

Dominic Ankers Meistaraflokkur kvenna og 5. fl. kk.

Magnús Örn Helgason Yfirmaður knattspyrnumála og 4. fl. kvk.

Ægir Steinarsson Styrktarþjálfari yngri flokka

Hansína Þóra Gunnarsdóttir Yfirþjálfari 5.-8. flokks

Mekorka Katrín Flygenring Pétursdóttir

Aðstoðarþjálfari mfl. kvenna og 4. fl. kvk.

Þorsteinn Halldórsson

2. og 3. fl. kvk., 5. og 7. fl. kk. og 8. fl.

Ingi Jakobsson 4. flokkur karla

Paul Benjamin Westren Yfirþjálfari 4.-2. flokks og 3. og 6. fl. kk.

Arnar Þór Axelsson 2. flokkur karla

Jóhann Egill Jóhannsson 5. flokkur kvenna og aðst.þjálfari 4. fl. kk.

Sól Valdimarsdóttir 6. og 7. flokkur kvenna

Grímur
Alma

Aðstoðarþjálfarar

Agnar Guðjónsson

Arnfríður Auður Arnarsdóttir

Árelía Dröfn Daðadóttir

Björn Andri Hilmarsson

Daníel Þór Þórsson

Gísli Ólafsson

Hafþór Bjarki Guðmundsson

Haraldur Ingi Ólafsson

Helga Sif Bragadóttir

Jóhanna Elísabet Guðmundsdóttir

Kristján Tómas Björnsson

Kristjón Þórðarson

Rakel Lóa Brynjarsdóttir

Rebekka Sif Brynjarsdóttir

Saga Daníelsdóttir

Sigurgeir Andri Ágústsson

Tómas Þór Þrastarson

Viktor Orri Guðmundsson

Stjórn knattspyrnudeildar Gróttu

2024/2025

Þorsteinn Ingason Formaður

Ingvi Arnar Sigurjónsson Gjaldkeri

Harpa Frímannsdóttir Varaformaður

Kristín Huld Þorvaldsdóttir Meðstjórnandi

Magnús Örn Helgason Yfirmaður knattspyrnumála

Jórunn María Bachmann Þorsteinsdóttir

Samfélagsmiðlastjóri

Helgi Héðinsson Meðstjórnandi

Hildur Ólafsdóttir Meðstjórnandi

Stefán Bjarnason Meðstjórnandi

Aufí á reynslu hjá HB Køge

Hin 16 ára gamla Arnfríður Auður Arnarsdóttir fór í nóvember á reynslu hjá danska félaginu HB Køge. Um er að ræða öflugt lið í danska kvennaboltanum sem hefur á síðustu árum orðið meistari þrisvar sinnum og leggur mikið upp úr þjálfun og þróun ungra leikmanna. Aufí dvaldi hjá félaginu í tæpa viku og æfði bæði með U19 ára liðinu og aðalliðinu. Þá spilaði hún einn æfingaleik þar sem hún skoraði glæsilegt mark.

Við heyrðum hljóðið í Aufí sem var kát með heimsóknina: „Það var tekið mjög vel á móti mér hjá HB Køge, bæði af leikmönnum og þjálfurum. Það var mikil fagmennska í kringum liðið og stórt starfsteymi. Það var mikið lagt í að leikmönnum liði vel og séu hluti af hópnum.“

Aðspurð hvort það væri mikill munur á því að æfa með HB Køge og Gróttu svarar Aufí játandi. „Það var mikill munur á æfingunum, í aðalliði Køge eru margar landsliðskonur og það var bæði mjög skemmtilegt og erfitt að spila á móti þeim. Það var allt miklu hraðara en maður er vanur heima og meiri ákveðni, en það var virkilega gaman að máta sig við þær. Það var mjög gaman að fara út og fá að upplifa að spila í atvinnumannaliði, finna æfingaálagið og hvað ég þarf að bæta til að geta lagt að mörkum á þessu leveli. Ég lærði mjög mikið af þessari reynslu og þetta væri klárlega eitthvað sem ég sé fyrir mér að gera í framtíðinni.“

GRÓTTUFÓLK

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL

OG FARSÆLT KOMANDI ÁR

Andrea Eva og Magnea Eva

Arna og Helgi

Álfþór Jóhannsson og fjölskylda

Árni Bergur, Kjartan Kári og Magnea

Ásta, Eva, Embla, Hlín og Kiddi

Bella og börnin á V12

Bestu óskir um gleðileg jól Viktoría, Kristján Daníel og Nökkvi Leó

Birgir Tjörvi, Erla Kristín, Kristín Klara og Árni Pétur

Bjarni og Jórunn María

Boddí, Viddi og börnin á Valhúsabraut 25

Bragi, Ragna, Ragnar Björn, Helga Sif

Dagbjört, Knútur, Oddur, Unnur og Auður

Didda og Dofri

Edda Regína, Katrín Ronja & Hildur Ríkey

Egill Stefánsson og fjölskylda Vallarbraut 12

Elín, Mangi, Elín Eir, Nonni og Jökull

Elsa, Bergþór, Bryndís, Hrafnhildur og foreldrar

Elsa, Palli, Kjartan, Anna Linda og Sara

Emma Björg og Birta Sigrún

Emma, Tómas, Arney og Daði

Fjölskyldan á Hofgörðum 26

Fjölskyldan Bakkavör 10

Fjölskyldan Bakkavör 26

Fjölskyldan Bakkavör 28

Fjölskyldan Bakkavör 5

Fjölskyldan Barðaströnd 49

Fjölskyldan Barðaströnd 7

Fjölskyldan Bollagörðum 53

Fjölskyldan Eiðismýri 12

Fjölskyldan Lindarbraut 14

Hrafn & Jóhanna

eru framtíðarleikmenn Gróttu. Hér eru þau spurð spjörunum úr!

Myndi láta byggja innifótboltahús

Nafn: Jóhanna Elísabet

Guðmundsdóttir

Gælunafn: Litla systir mín kallar mig alltaf Systa

Aldur: 15 ára

Staða á vellinum: Kantur

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og af hverju? Fjögurra ára.

Byrjaði um leið og leikskólinn bauð upp á fótbolta. Pabbi líka mikið í boltanum.

Áttu þér fyrirmynd í fótbolta?

Alex Morgan

Með hvaða liði heldurðu í ensku? Liverpool

Uppáhalds sjónvarpsþáttur?

Grey’s Anatomy

Sætasti sigurinn?

Bikarúslitarleikurinn á móti KA í fyrra

Uppáhalds jólahefð? Að fá að opna einn pakka fyrir mat

Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndir þú breyta? Láta byggja innifótboltahús

Besta augnablik í ár með Gróttu? Vinna Crystal Palace úti í Englandi Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta? Göngutúr fyrir leiki

Hvað er skemmtilegast að gera á æfingu? Spil eða skot

En það leiðinlegasta? Sprettir

Eftirminnilegt augnablik úr boltanum? Taka fyrsta sætið á Barcelona Cup

Markmiðið að spila fyrir Arsenal

Nafn: Hrafn Sverrisson

Gælunafn: Hrafn

Aldur: 15 ára

Staða á vellinum: Markmaður

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og af hverju? Ég byrjaði að æfa þegar ég var sex ára út af því að pabbi minn æfði fótbolta Áttu þér fyrirmynd í fótbolta?

Aaron Ramsdale

Með hvaða liði heldurðu í ensku?

Arsenal

Uppáhalds sjónvarpsþáttur?

Dexter

Sætasti sigurinn? Síðasti sigur er alltaf sá sætasti

Uppáhalds jólahefð? Að jólin eru alltaf haldin heima hjá ömmu minni og afa

Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndir þú breyta? Fá nýtt gervigras á Vivaldivöllinn, við þurfum á því að halda

Besta augnablik í ár með Gróttu?

Að fá tækifærið til að æfa með meistaraflokk

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta? Ég kýli tvisvar sinnum í hverja stöng fyrir leiki

Hvað er skemmtilegast að gera á æfingu? Skotæfingar eru langskemmtilegastar á æfingum

En það leiðinlegasta? Það eru sprettir, ekki skemmtilegt fyrir mig

Eftirminnilegt augnablik úr boltanum? Þegar ég varði þrjú víti í þremur leikjum í röð

Framtíðardraumur í fótboltanum?

Að komast í ensku úrvalsdeildina og

Framtíðardraumur í fótboltanum? Komast á skólastyrk erlendis

Hvað færðu þér í bragðaref? Oreo, nutella og kökudeig

Ef þú værir föst á eyðieyju og gætir tekið þrjá leikmenn úr liðinu þínu með þér, hverja myndirðu taka og af hverju? Árelíu, Úlfhildi og Dúnu. Ég, Árelía og Úlfhildur komum okkur öllum einhvern vegin af eyjunni. Dúna hvetur okkur áfram.

Besti jólamaturinn?

Hamborgarhryggurinn hennar ömmu

spila fyrir Arsenal

Hvað færðu þér í bragðaref?

Ég fæ mér jarðaber, þrist og oreo

Ef þú værir fastur á eyðieyju og gætir tekið þrjá leikmenn úr liðinu þínu með þér, hverja myndirðu taka og af hverju? Ég myndi taka með mér Bigga Scheving því hann væri líklegastur að halda okkur á lífi. Haraldur Kárason hann hefur alltaf eitthvað fyndið að segja og síðan Ágúst Kristjánsson því hann bara fyndinn gæi.

Besti jólamaturinn? Besti jólamaturinn er kalkúnn 100%

Gróttuhjartað er nautsterkt

Lag sem keyrir þig í gang á leikdegi. Type Shit með Future og Playboy Carti Hver er svindlmáltíðin þín? Góður hamborgari

Hvað tekurðu í bekk? Úff 70……

Hraðasti sprettur? 35,2 km

Hvaða íþrótt værir þú í, annarri en fótbolta? Líklegast frjálsar

Uppáhalds fatamerki? Balenciaga

Uppáhalds tónlistarmaður? 21 Savage

Uppáhalds bíómynd? Grown Ups

Ef þú gætir tekið einn leikmann úr Gróttu í FH - bæði karla og kvenna? Myndi taka

Grím Inga og Aufí

Í hvaða skóm spilarðu í? Nike Mercurial Hver er besti leikmaður í heimi í dag - karla og kvenna? Vinicíus Jr. og Alexia Putellas

Hvaða þátt ertu að horfa á þessa dagana?

Prison break

Kjartan Kári Halldórsson hefur náð langt á skömmum tíma. Hann skaust fram á sjónarsviðið tímabilið 2022 þar sem hann var markahæstur og efnilegastur í Lengjudeildinni. Næst hélt hann út í víking til norska liðsins Haugesund. Nú er hann orðinn lykilmaður hjá FH þar hann geysist upp og niður vænginn í Bestu deildinni.

Kjartan Kári settist niður með Gróttublaðinu og ræddi um sitt besta tímabil hingað til, Noregsförina og hvort hann snúi aftur á Nesið einn daginn.

Hvernig er lífið í FH? Það er bara frábært, mjög flottur klúbbur og mér líður mjög vel þar.

Hvernig fannst þér tímabilið í ár ganga? Mér fannst tímabilið í sumar í heild sinni ágætt. Við byrjuðum rosa vel en enduðum neðar en við ætluðum okkur, en annars bara fínasta tímabil. Þú kemur að 15 mörkum. Var þetta þitt besta tímabil hingað til? Já, ég myndi segja það. Þetta er sterk deild með góðum leikmönnum þannig það er gott að geta hjálpað liðinu með því að standa mig vel.

Finnst þér þú hafa verið að taka framförum? Ertu að vinna í einhverjum ákveðnum hlutum? Já, klárlega. Hlutirnir sem ég er oftast að æfa mig í eru að taka menn á og svo auðvitað föstu leikatriðin.

Hverjir eru þínir helstu styrkleikar?

Ætli það sé ekki bara snerpan, sendingar og skot.

Hvernig metur þú tímann í Haugesund - svona eftir á? Ég tel hann hafa verið mjög góðan fyrir mig. Ég vissi að þetta yrði erfitt en ég lærði helling af þessu.

Ertu enn þá mikill Gróttumaður?

Ég mun alltaf vera mikill Gróttumaður og með Gróttuhjarta. Gróttuhjartað er nautsterkt.

Sérðu þig koma aftur á Nesið einn daginn? Já, auðvitað. Ætli maður endi ekki ferilinn á Nesinu fallega.

Hvernig metur þú síðasta tímabil hjá karlaliði Gróttu? Þetta fór eins og það fór en mér fannst þeir flottir í sumar. Þeir voru bara óheppnir með úrslitin en ég hef engar áhyggjur af þeim.

Sérðu karlaliðið fara beint upp aftur? Klárlega, ég held að þeir ætli sér að setja sér markmið og koma sér upp um deild þar sem þeir eiga heima. Ertu með einhver ráð til yngri iðkenda? Horfðu á hverja æfingu og hvern leik sem nýtt tækifæri og mundu að mæta alltaf til þess að verða betri. Muna svo bara að vera þú sjálf(ur), hafa gaman og ekki láta neitt stoppa þig. Mótlæti er bara eitt skref aftur á bak til að taka tvö skref áfram.

Hvað er besta augnablikið á ferlinum hingað til? Ég myndi segja að vera einn af markahæstu í FH.

Við þökkum Kjartani Kára fyrir spjallið og vonumst til að sjá hann aftur á Nesinu einn daginn. En fyrst er það á dagskrá að rífa sofandi risa FH aftur upp í fyrri hæðir.

Kjartan Kári Halldórsson

Ungt fólk getur sótt innblástur í bókina

Magnús Örn Helgason, yfirmaður

knattspyrnumála hjá Gróttu, hefur sent frá sér sína aðra bók. Árið 2019 ritaði hann sögu Söru Bjarkar Gunnarsdóttur sem þá var fyrirliði kvennalandsliðsins en nú er komin út bókin Hannes – handritið mitt sem fjallar um magnaðan feril markvarðarins Hannesar Þórs Halldórssonar.

„Mig langaði að endurtaka leikinn og skrifa sögu einstaks íþróttamanns og Hannes kom strax upp í hugann. Lykilmaður í landsliðinu sigursæla sem allir fylgdust með, en þó með allt annan bakgrunn og öðruvísi líf en aðrir í liðinu,” segir Magnús aðspurður um tilurð bókarinnar. Og við spyrjum sömuleiðis hvernig hann hafði tíma í skrifin meðfram öðrum verkefnum? „Þetta var langt ferli. Við tókum okkar fyrstu fundi árið 2021 en mesta vinnan var svo árið 2022. Þá starfaði ég hjá KSÍ og hafði meiri frítíma. Útgáfan tafðist en við Hannes erum báðir mjög ánægðir með útkomuna. Ég trúi því að fótboltaáhugamenn muni njóta lestursins enda er ferill Hannesar samofinn íslenskri fótboltasögu frá Shellmótinu 1994 og fram til haustsins 2021. Ennfremur veit ég að ungt íþróttafólk geti sótt innblástur í bókina enda sýndi Hannes að það er mögulegt að komast á toppinn eftir krókaleiðum. Þrautseigja Hannesar og vinnusemi er sannarlega til eftirbreytni,” segir Magnús en það má gera ráð fyrir því að bókin verði í mörgum jólapökkum fótboltastráka- og stelpna fyrir þessi jól.

GRÓTTUFÓLK

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR

Viðtal við Dom Ankers þjálfara meistaraflokks kvenna

Pressa þarf ekki að vera slæm

Gróttublaðið hitti nýjan þjálfara meistaraflokks kvenna, Dominic Ankers, á köldu síðdegi í byrjun desember. Dom, eins og hann er oftast kallaður, er búinn að venjast skammdeginu og vetrarhörkunni hér á landi enda hefur hann nú starfað hjá Gróttu í þrjú og hálft ár. Englendingurinn verður þrítugur á næsta ári og er því með yngstu aðalþjálfurum meistaraflokks á Íslandi í dag. Við förum um víðan völl með Dom og forvitnumst um við hverju megi búast frá Gróttukonum næsta sumar.

„Þegar ég tók ákvörðun um að flytja til Íslands sá ég alveg fyrir mér að vera hér í einhvern tíma. Chris (Brazell) vinur minn var þá á sínu öðru ári í Gróttu og ég var spenntur fyrir því að starfa með honum. Það er líka staðreynd að enskir þjálfarar þurfa oftar en ekki að leita út fyrir landsteinana til að fá góð tækifæri í þjálfun. Fá launuð störf eru í boði á Englandi miðað við fjölda þjálfara sem vilja starfa í bransanum – ég hefði ekki neins staðar fengið sambærileg tækifæri

og ég hef fengið í Gróttu,“ segir Dom þegar við spyrjum hvort hann hefði getað ímyndað sér að setjast að á Íslandi. Og hann heldur áfram: „Ég hef notið þess mikið að starfa fyrir Gróttu. Mér var tekið vel frá fyrsta degi, hér hef ég eignast góða vini og er þakklátur fyrir tækifærin sem ég hef fengið hjá félaginu.“

Í október samdi Valur við Gróttu um að fá Matthías Guðmundsson þjálfara

kvennaliðsins til starfa á Hlíðarenda. Matti var aðeins búinn með eitt ár af samningi sínum í Gróttu svo skyndilega þurfti að finna nýjan aðalþjálfara. Dom fékk kallið en hann hafði að mestu leyti starfað í karlaboltanum í Gróttu. „Mál þróuðust bara þannig að ég var meira með strákunum en ég hef verið talsvert í kringum kvennaliðið og ég trúi því að ég mæti vel undirbúinn til leiks. Ég hikaði ekki við að stökkva á starfið, hér áður fyrr þá var ekki mikið um það að þjálfara

færu á milli kvenna- og karlafótbolta en ég tel það vera að breytast í dag. Kvennaknattspyrna er í sókn um allan heim og ég held að Ísland hafi að mörgu leyti verið á undan þróuninni í heiminum.“

Eins og kunnugt er hefur Gróttuliðið verið í toppbaráttu í Lengjudeildinni síðustu tvö tímabil. Við spyrjum Dom hvort þeirri staðreynd fylgi mikil pressa og hvernig áhrif það gæti haft á liðið:

„Þetta verður örugglega öðruvísi fyrir liðið því fyrir 2023 og 2024 tímabilin bjuggust fáir við því að það yrði í toppbaráttu. Fyrra árið var Grótta auðvitað nýliði í deildinni og fyrir síðasta tímabil fóru markaskorar liðsins í burtu. Nú mun fólk búast við Gróttu í toppbaráttu og það má alveg kalla það pressu. En pressa þarf ekki að vera slæm – það er merki um að þú sért að standa því vel og vinna að einhverju spennandi og ég vona að stelpurnar taki því þannig.“

Og trúir Dom því að Gróttuliðið verði í toppbaráttu?

„Auðvitað, annars hefði ég líklega ekki tekið starfið að mér. Það verða sterk lið í deildinni með öfluga leikmenn svo það þarf margt að ganga til að við komumt upp í Bestu deildina. En við munum að sjálfsögðu reyna að vera í efri hlutanum, nálægt efstu tveimur sætunum í það minnsta, og sjá svo hvað við getum gert þegar líður á sumarið.

Má búast við mjög breyttu Gróttuliðu miðað við það sem

Matthías þjálfaði?

„Ég myndi ekki segja það. Gróttulið hafa verið þekkt fyrir þora að spila boltanum og pressa andstæðinginn og það munum við gera áfram. Við þurfum að finna okkar einkenni í sóknarleik og vera markviss þegar við komumst nálægt vítateig andstæðinganna. Við munum leggja áherslu á þetta í vetur en megum þó ekki fórna varnarleiknum sem var frábær hjá liðinu í sumar.“

Er Dom ánægður með hópinn eða má búast við að leikmenn bætist við?

„Samkeppni er alltaf af hinu góða og við reynum klárlega að styrkja liðið. Sérstaklega horfum við til fremstu manna á vellinum. Ef við horfum rúmt ár aftur í tímann þá hafa Ariela og Hannah horfið á braut og Tinna (Jónsdóttir) lagt skóna á hilluna. Í staðinn hefur Díana (Ásta Guðmundsdóttir) verið sú eina sem hefur komið ný inn í hópinn á samning svo við erum klárlega áhugasöm um að að styrkja liðið í þeim leikstöðum.“

Áður en við kveðjum Dom spyrjum við hverju megi búast af Gróttukonum næsta sumar? Af hverju ætti fólk að mæta á völlinn?

„Ég vona að það verði skemmtilegt að horfa á okkur spila. Bæði mun fólk sjá góðan fótbolta og vonandi fleiri sigra en töp. Þessar stelpur leggja ótrúlega hart að sér og það er góð tilfinning fyrir alla leikmenn að finna fyrir stuðningi á sínum eigin heimavelli. Það getur í raun haft mikið að segja í jöfnum leikjum. Svo má alveg minnast á að einhverjar af stelpunum okkar munu vonandi

komast langt, vonandi á svipaðar slóðir og nokkrir Gróttustrákar og auðvitað Emelía Óskars hafa gert undanfarin ár, svo það er gaman fyrir Seltirninga að mæta á völlinn og fylgjast með framtíðarleikmönnum.“

Við þökkum Dom kærlega fyrir spjallið og höldum út í kvöldið. Það verður sannarlega gaman að fylgjast með Gróttuliðinu næsta sumar undir stjórn Dom. Enn einum ungum þjálfaranum hefur verið treyst fyrir ábyrgðarhlutverki hjá Gróttu og því ber að fagna. Við trúum því að Dom muni endurgjalda traustið og meira en það.

Dominic Ankers að störfum

Knattspyrnuskóli Gróttu

Knattspyrnuskóli Gróttu var hrikalega skemmtilegur í allt sumar. Við tókum á móti mörgum skemmtilegum krökkum í sumar á aldrinum 4-10 ára. Sumarið einkenndist af gleði og hamingju á Vivaldivellinum í góðu og slæmu veðri. Krakkarnir fengu að spreyta sig á skemmtilegum fótboltaæfingum sem þjálfarar settu upp fyrir þau til að efla áhuga, getu og ástríðu fyrir fótbolta. Þetta var mjög góður lærdómur fyrir alla en einnig krefjandi.

Vikurnar í skólanum voru þannig skipulagðar að allir fengu jákvæða reynslu úr öllum deginum. Krakkarnir mættu mánudag til föstudags. Þau mættu snemma á morgnana þar sem þjálfarar taka á móti krökkunum, fara með þau í hópaupphitun þar sem krakkarnir geta leikið sér. Svo byrja æfingar sem hafa verið skipulagðar fyrir þann dag, þar voru alls kyns æfingar sem höfðu skemmtanagildi í forgrunni. Svo slær klukkan nesti og þá fara krakkarnir inn og borða hollt nesti áður en farið er út að spila, þar fá krakkarnir allt það frjálsræði sem þau vilja til að skemmta sér og prófa nýja hluti inni á vellinum sem þau höfðu lært þann dag. Svo á föstudögum er mikil spenna og eftirvænting meðal allra þar sem er haldið EM Gróttu. Þá er skipt í lið undir nöfnum þjóða og krakkarnir spila alveg frá morgni til loka dags. Á mótinu er sama fyrirkomulag og á stórmótum sem endar svo með úrslitaleik þar sem er hart barist um EM titilinn. Svo endar vikan með að allir grilla og borða pylsur saman sveitt, svekkt og glöð.

Ég sem skólastjóri skólans er gríðarlega ánægður með sumarið. Þetta var áskorun fyrir alla sem var tækluð vel. Þjálfararnir stóðu sig allir gríðarlega vel í þeim áskorunum sem þau fengu og voru algjörar fyrirmyndir fyrir alla sem komu. Ég er gríðarlega ánægður með alla sem mættu í skólann til okkar í sumar hvort sem það var inni á vellinum eða utan hans. Allir stóðu sig með prýði og voru Gróttu til sóma. Fyrir mér er skólinn staður þar sem krakkarnir gátu komið og fundið strax fyrir öryggi í því hlýja umhverfi sem er í skólanum. Í skólanum er ekki bara reynt að skapa áhuga fyrir fótbolta hjá öllum heldur einnig að skapa nýja vináttu og skemmta sér með bros á vör sem getur verið dýrmætt í framtíðinni.

Að lokum vil ég segja að Knattspyrnuskólinn er fyrir alla, byrjendur eða ekki, það eru allir velkomnir og metnir sem jafningjar. Ég hlakka til að kynnast og sjá alla sem vilja koma að skemmta sér með okkur í fótbolta næsta sumar með bros á vör.

Grímur Ingi Jakobsson

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL

OG FARSÆLT KOMANDI ÁR GRÓTTUFÓLK

Fjölskyldan Melabraut 48

Fjölskyldan Miðbraut 22

Fjölskyldan Nesbala 108

Fjölskyldan Nesbala 12

Fjölskyldan Nesbala 50

Fjölskyldan Selbraut 12

Fjölskyldan Selbraut 74

Fjölskyldan Valhúsabraut 4

Fjölskyldan Vesturströnd 1

Fjölskyldan Vesturströnd 16

Fjölskyldan Vesturströnd 23

Fjölskyldan Vesturströnd 5

Franz Ploder

Guðmundur Ari og Nanna Kaaber

Gunnar Egill, Anna María og Benni

Halla og Þorsteinn

Halli, Daníel, Tómas og Eva

Halli, Gummi og Lalli Hofgörðum 8

Hó hó hó - gleðileg jól frá Atla Hrafni og Pétri Kára

Jóhannes, Jóhanna og Hrafnkatla

Jólakveðja fjölskyldan Bollagörðum 1

Jólakveðja frá Emilíu, Stefáni og Hildi Maríu

Jólakveðja frá Kristjáni, Darra og Hörpu

Jólakveðja frá Nínu Völu, Bjarka Rúnari og Kára Daníel

Jólakveðja frá Rúrik, Emil og Mána

Jólakveðja frá Salon Nes. Austurströnd 12

Kári Hrafn, Sólveig Katla, Auður Freyja, Sigga Dögg og Árni

Katrín Birna og Þorsteinn Darri

Kristinn, Fríður, Þuríður Katrín og Gunnar Helgi

Kristján Ólafur, Ásdís Lilja og Brynjar Helgi

Raunhæfar kröfur

Höfundur: Helgi Héðinsson íþróttasálfræðingur

Draumur íþróttafólks er að ná fullkominni frammistöðu í keppni, þar sem allt gengur upp og árangurinn í samræmi við það. Því miður er algengt að iðkendur falli í þá gryfju að gera þær kröfur til sjálfs sín að allt eigi að ganga upp. Slæmu fréttirnar eru þær að það að reyna að vera fullkominn er oft það versta sem hægt er að hugsa um fyrir og í keppni. Þegar iðkanda finnst hann þurfa að standa sig fullkomlega þá er í raun ekkert svigrúm fyrir mistök eða undantekningar.

Hugur hans verður í kjölfarið heltekinn af því að forðast að gera mistök. Einkennandi hugsanir þarna eru „ég verð..“ og „ég má ekki..“. Til dæmis: „ég verð að vinna“, „ég verð að skora“, „ég má ekki vera lélegur í dag“ og „ég má ekki missa boltann“. Svona kröfuharðar og ósveigjanlegar hugsanir geta haft mikil áhrif á iðkandann. Í fyrsta lagi eykur þetta andlegt álag sem birtist í kvíða og stressi.

Í öðru lagi getur þetta hæglega leitt til breytinga í hegðun ef ekki er gripið inn í. Þessar hugsanir vekja upp sterka tilhneigingu til að forðast að gera mistök sem leiðir til þess að iðkandinn passar sig of mikið í keppni og jafnvel á æfingum. Til að nefna dæmi um þetta þá

sendir iðkandi í boltaíþróttum bara einfaldar sendingar til hliðar eða til baka, reynir ekki krefjandi sendingar, tekur engar áhættur og skýtur ekki á markið. Í tennis, badminton og blaki byrjar hann að hugsa meira um að verjast frekar en að sækja og sendir boltann eða fluguna nær miðjusvæði andstæðingsins í stað þess að senda til hliðanna og gera andstæðingnum erfiðara fyrir. Einnig er sterk tilhneiging til að gefast fyrr upp þegar illa gengur því honum finnst hann vera búinn að klúðra og hefur litla trú á því að hægt sé að bjarga málunum. Í þriðja lagi hefur þetta veruleg áhrif á einbeitingu því þessar hugsanir taka til sín athyglina. Það gefur auga leið að á sama tíma er minni athygli á þeim afmörkuðu verkefnum sem krefjast einbeitingar svo hægt sé að ná góðri frammistöðu.

Þjálfarar eiga að vera vakandi fyrir því ef iðkandi, sér í lagi ungur iðkandi, er með ósveigjanlegar kröfur um fullkomna frammistöðu og of miklar áhyggjur af mistökum. Það er í góðu lagi að vera meðvitaður um mistök svo hægt sé að vinna í þeim og halda áfram að verða betri. En þegar hugur iðkandans er orðinn heltekinn af þessu mun það grafa undan bæði frammistöðu hans og sjálfstrausti. Þjálfarar þurfa að

Hjálpa

séu ekki mistök.

vera vakandi fyrir vísbendingum um þetta. Til dæmis þegar iðkandi forðast krefjandi aðstæður eins og að taka vítaskot þrátt fyrir góða færni eða virðist gefast upp eða verða vonlaus í kjölfar mistaka eða mótlætis. Ofþjálfun getur einnig gefið vísbendingu um þetta. Þjálfarar eru einnig í kjörstöðu til að ræða einslega við iðkandann og spyrja út í hverjar hugsanir hans eru við krefjandi aðstæður og gefa honum leiðbeiningar um hvernig má nálgast krefjandi verkefni með uppbyggilegra hugarfari.

Raunveruleikinn er sá að í íþróttum skiptir frammistaðan að sjálfsögðu máli og mistök geta verið dýrkeypt. Meðvitaðir um þetta þá finnst iðkendum oft þörf á „fullkominni“ frammistöðu til að eiga möguleika á árangri eða sigri. Koma þarf iðkendum í skilning um að þessi krafa um engin mistök er mjög óhjálpleg og leiðir yfirleitt til lakari frammistöðu. Hjálpa þarf þessum iðkendum að endurskilgreina mistök. Til dæmis að sleppa því endurtekið að skjóta á markið séu mistök en það að skjóta á markið þrátt fyrir að skora ekki

séu ekki mistök. Þjálfarinn þarf að vera vakandi fyrir því að hrósa fyrir skottilraunina og gefa uppbyggilegar leiðbeiningar. Því miður geta þjálfarar lent í þeirri gildru að ýta undir kröfur um fullkomnun með því að hrósa einungis fyrir stig og mörk og það sem verra er að gagnrýna allar misheppnaðar tilraunir. Þetta eykur hræðslu við mistök hjá iðkandanum með fyrrnefndum afleiðingum.

Iðkandinn þarf í fyrsta lagi að átta sig á að þó tilgangurinn sé góður þá eru þessar kröfuhörðu hugsanir ekki hjálplegar. Draga þarf úr þeim og reyna að innleiða hugsanir eins og „ég ætla að ná árangri“ í stað „ég þarf...“. Í öðru lagi getur verið mjög öflugt að búa til einbeitingarplan sem felur í sér að iðkandi skilgreinir hlutverk sitt eingöngu út frá því hvað hann ætlar að framkvæma og hvaða hluti hann vill hafa í huga. Eftir því sem iðkandinn verður færari í að halda athyglinni á þessum atriðum því minna hugsar hann um mistök og afleiðingar þeirra.

Æfingatafla knattspyrnudeildar Gróttu

2. flokkur

2.

Leikjahæsta kona Gróttu leggur skóna á hilluna – TAKK TINNA!

Viðtal við Tinnu Bjarkar Jónsdóttur

„Þegar

maður hugsar til baka er hálf ótrúlegt að við héldum áfram og vorum með svona jákvætt hugarfar.“

Tinna Bjarkar Jónsdóttir, leikjahæsta kona Gróttu, ákvað eftir tímabilið í haust að leggja takkaskóna á hilluna í bili eftir glæsilegan feril. Tinna er uppalin í Gróttu og hefur alla tíð spilað með uppeldisfélaginu. Hún er 28 ára gömul, á að baki 133 leiki fyrir Gróttu og hefur skorað í þeim 48 mörk. Tinna var ein af stofnendum meistaraflokks kvenna sem settur var á laggirnar árið 2016 og var fyrirliði liðsins á árunum 2021-2023. Hún var lykilleikmaður hjá Gróttu allan sinn meistaraflokksferil en var í minna hlutverki í ár þar sem hún var að koma til baka eftir barnsburð en hún eignaðist son í mars sl., hann Jökul Ara með Jón Birgi Kristjánssyni. Tinna hefur alla tíð verið góður liðsfélagi og fyrirmynd fyrir iðkendur í félaginu. Við vildum aðeins líta um öxl og ræða ferilinn hjá þessari mögnuðu knattspyrnukonu og fengum hana til að svara nokkrum spurningum um árin sín hjá knattspyrnudeildinni.

Hvenær hófst ferilinn hjá leikjahæstu konu félagsins?

„Ég byrjaði fyrst þegar ég var í kringum sex ára en þá var enginn stelpuflokkur, svo við vorum nokkrar stelpur að æfa með strákunum. Við fórum t.d. með þeim á Lottómótið á Akranesi eins og það hét þá, en svo hætti ég og var bara í fimleikum í Gróttu. Ég byrjaði ekki aftur í fótbolta fyrr en ég var 12 ára, þá var ég bæði í fimleikum og fótbolta og hætti svo í fimleikunum þegar ég var 16 ára og einbeitti mér þá alfarið að fótboltanum.“

Það er ljóst að mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og sem betur fer er erfitt að ímynda sér að það væri ekki starfandi kvennaflokkur hjá knattspyrnudeildinni fyrir sex ára stelpur á Seltjarnarnesi. En hvað varð til þess að þú byrjaðir aftur þegar þú varst 12 ára? „Atli Freyr Sveinsson labbaði á milli bekkja þegar við vorum að klára 6. bekk í Mýró, vorið 2008, og sagði okkur frá því að hann væri að byrja með flokk fyrir stelpur og hvatti okkur til að koma að prufa.

Við vinkonurnar tókum okkur saman og ákváðum að mæta og eftir það var ekki aftur snúið.“ Lovísa systir Atla var í 1996 árgangnum og ljóst að þessi ákvörðun Atla að bjóða systur sinni upp á það að æfa fótbolta vatt heldur betur upp á sig og hafði mikil áhrif á framtíð kvennaknattspyrnu hjá Gróttu. Sumarið 2008 keppti hópurinn í Íslandsmótinu í 5. flokki kvenna en svo var farið beint í djúpu laugina nokkrum mánuðum síðar, enda þá komnar í 11-manna bolta í 4. flokki, undir stjórn Orra Axelssonar. Það var stórt stökk fyrir 12 ára stelpur sem voru nýbyrjaðar að æfa fótbolta en þær létu það ekki á sig fá. Stelpurnar kepptu í Faxaflóamótinu um veturinn og í Íslandsmótinu um sumarið og þrátt fyrir að takast ekki að vinna einn einasta leik þá var leikgleðin alltaf til staðar. Það var bara upp og áfram! Ári síðar tefldu stelpurnar meira að segja fram tveimur 11-manna liðum í 4. flokki, sem samanstóð af stelpum fæddum 1996 og 1997. Þegar 1996 árgangurinn var

kominn í 3. flokk fækkaði í hópnum og voru þær skráðar til leiks í Íslandsmótinu í sjö manna bolta. Þá snerist gengið við og unnu stelpurnar riðilinn sinn og var Tinna einmitt markahæst með 12 mörk í átta leikjum. Stelpurnar náðu þó að tefla fram 11-manna liði á eldra ári í 3. flokki undir stjórn Ásgeirs Ólafssonar. Ljóst er að stelpurnar urðu fyrir miklu mótlæti á byrjunarstigum knattspyrnuferilsins og í raun ótrúlegt að þær hafi haldið áfram að æfa öll þessi ár - margir hefðu hætt að nenna þessu eftir sífelld töp og erfiðleika. Tók þetta ekkert á? „Við vorum ekki mikið að spá í úrslitunum, það var

Markaskorarinn Tinna á yngri árum.
Tinna á sínum fyrstu fótboltaárum.

auðvitað leiðinlegt að tapa en svo mætti maður bara á æfingu daginn eftir og hitti vinkonur sínar og hafði gaman. Við mættum alltaf í leiki og höfðum trú á því að við gætum unnið, sem var þó sjaldan raunin, en við misstum aldrei trúna. Þegar maður hugsar til baka er hálf ótrúlegt að við héldum áfram og vorum með svona jákvætt hugarfar.“

Haustið 2012 gengu 1996 stelpurnar upp í 2. flokk og var það í fyrsta sinn sem Grótta starfrækti 2. flokk kvenna. Eftir eitt ár í 2. flokki byrjuðu Grótta og KR í samstarfi í 2.-4. flokki kvenna sem auðveldaði að ná í 11-manna lið en á þessum tíma var stundum erfitt að ná í góðan hóp á æfingar og í leiki: „Við þurftum bara að vinna með það sem við höfðum og gerðum gott úr því.“

Aðspurð um eftirminnileg augnablik úr yngri flokkunum nefnir Tinna öll skemmtilegu fótboltamótin sem farið var á: „Pæjumótið á Siglufirði, Rey Cup og svo fórum við til Spánar þar sem við kepptum á Costa Blanca Cup sem var mjög skemmtileg og eftirminnileg ferð.“

Haustið 2015 útskrifuðust Tinna og félagar úr 2. flokki kvenna. Kom ekkert til greina að hætta bara í fótbolta þá? „Það fjaraði vissulega svolítið úr hópnum eftir að við kláruðum 2. flokk en hjá mér kom ekki til greina að hætta.“ Næst á dagskrá var að stofna fyrsta meistaraflokk kvenna. Þrenningin Jórunn María Bachmann Þorsteinsdóttir, Karen Sif Magnúsdóttir og Tinna voru þar fremst í flokki og sannfærðu stjórn knattspyrnudeildar Gróttu og bæjarstjórn Seltjarnarness um að aðstoða þær við að stofna meistaraflokk Gróttu. „Við vorum alveg ákveðnar í því að þetta væri næsta skref, okkur langaði að halda áfram í fótbolta og Gróttuhjartað var svo stórt svo við vildum ekki skipta um lið. Við ákváðum því að láta reyna á þetta en það voru vissulega skiptar skoðanir á því hvort þetta væri rétt skref á þessum tímapunkti. Okkur tókst þó sem betur fer að sannfæra réttu aðilana.“ Í janúar 2016 var meistaraflokkur kvenna formlega stofnaður og stýrði Gaui Kristins flokknum fyrstu þrjú tímabilin. Hvað hefur breyst á þessum árum? „Það hefur mikið breyst í meistaraflokknum síðan við byrjuðum 2016. Fyrstu árin keyptum við sjálfar æfingafötin okkar til að við gætum verið allar eins á æfingum og fyrir leiki. Umgjörðin hefur mikið breyst á síðustu árum og það hefur verið mikið lagt upp úr því að standardinn sé sá sami karla og kvenna megin sem er frábært. Það er einnig mikilvægur hluti af þeim árangri sem kvennaliðið hefur náð síðustu ár. Núna vona ég bara að bærinn stígi upp og skipti um gras á vellinum og komi upp vökvunarkerfi fyrir

næsta tímabil. Svo er ljóst að eitthvað þarf að gera í vallarhúsinu sem er löngu sprungið.“

Ljóst er að Gróttuhjartað er stórt, en kom aldrei til greina að fara í annað félag?

„Það höfðu alveg einhverjir þjálfarar samband við mig en mér fannst það annaðhvort ekki nógu spennandi eða að tímasetningin hentaði ekki, t.d. þegar við féllum aftur niður í 2. deild árið 2021 þá langaði mig ekki að fara frá liðinu í þeirri stöðu. Þá var ég bara frekar ákveðin í að koma Gróttu aftur upp heldur en að fara eitthvað annað.“

Aðspurð um eftirminnilegt augnablik úr meistaraflokki nefnir Tinna þegar Grótta komst upp í 1. deildina í fyrsta skiptið, eða Inkasso-deildina eins og hún hélt þá (nú Lengjudeildin). Stelpurnar þurftu á sigri að halda til að tryggja sér upp um deild og unnu Álftanes 3-0, og Tinna skoraði tvennu í leiknum: „Það var eitthvað extra sætt að komast upp um deild í fyrsta skipti í síðasta leik tímabilsins þegar við spiluðum við Álftanes á Vivaldivellinum og með fulla stúku af fólki. Þegar dómarinn flautaði leikinn af og stelpurnar hlupu inn á völlinn með Inkasso fána. Það er mjög eftirminnilegt augnablik.“

Jón ásamt Gróttubörnum sínum Jóni Tryggva og Mjöll.
4, flokkur kvenna árið 2009.
Pæjumótið á Siglufirði.
Tinna fagnar marki á Costa Blanca Cup 2012
„Fyrst

og fremst er ég bara mjög þakklát fyrir öll þessi skemmtilegu ár sem ég hef átt í Gróttu og fyrir allt fólkið sem maður hefur kynnst. Þetta hefur verið frábær tími - svo veit maður aldrei hvað gerist í framtíðinni.“

Eins og áður kom fram átti Tinna sitt fyrsta barn í mars sl. og var því ólétt seinni hluta sumarsins 2023. Var ekkert erfitt að fylgjast með á hliðarlínunni, verandi vön því að vera inni á vellinum? „Það var alveg skrítið fyrst, ég komst allavegana fljótt að því að það er miklu meira stressandi að fylgjast með á hliðarlínunni heldur en að vera inni á vellinum sjálfur. Það var samt mjög gaman að fylgjast með stelpunum og árangrinum. Ótrúlegt að vera að spila um sæti í Bestu deildinni í lokaleik tímabilsins tvö ár í röð!“ Tinna sneri aftur á völlinn í sumar, en hvernig var að koma til baka eftir barnsburð? „Það gekk bara mun betur en ég þorði að vona. Það var mjög gaman að ná að spila aðeins með stelpunum í sumar. Það er vissulega aðeins meira krefjandi að láta þetta púsl ganga með lítið barn, ég verð að henda í shoutout á allar mömmur sem eru að æfa keppnisíþrótt með lítið barn,

þvílíkar drottningar!“ Tinna ákvað eftir tímabilið að leggja skóna á hilluna eftir viðburðaríkan feril hjá Gróttu. Hvernig er tilfinningin? „Hún er bara mjög góð. Ég er mjög glöð að ég náði að koma til baka í sumar og spila nokkra leiki með stelpunum og það hefði verið sætt að enda þetta á að komast upp í Bestu deildina en helvítis markatalan er okkur aftur til vandræða. En ég hef fulla trú á að stelpurnar klári þetta markmið næsta sumar og er spennt að fylgjast með þeim. Fyrst og fremst er ég bara mjög þakklát fyrir öll þessi skemmtilegu ár sem ég hef átt í Gróttu og fyrir allt fólkið sem maður hefur kynnst. Þetta hefur verið frábær tími - svo veit maður aldrei hvað gerist í framtíðinni.“

En hvað er það sem stendur upp úr eftir öll þessi ár í Gróttu?

„Ég myndi segja að það væri að hafa verið hluti af þessari uppbyggingu á

kvennaliðinu sem hefur átt sér stað síðustu ár. Að sjá ungar uppaldar stelpur vera komnar í lykilhlutverk í meistaraflokksliðinu er bara geggjað. Það er ekki síður ótrúlega mikilvægt fyrir stelpur í yngri flokkunum að hafa einhverjar fyrirmyndir til að fylgjast með í sínu liði og sjá þær ná árangri, sem er eitthvað sem ég hafði til dæmis ekki. Þegar við stofnuðum meistaraflokkinn höfðu kannski ekki margir trú á okkur en ég er mjög stolt af okkur fyrir að hafa haldið áfram með þetta verkefni, þó það hafi verið erfitt á köflum. Það var svo sannarlega þess virði, enda ótrúlega gaman að sjá hvert liðið er komið í dag.“

Að lokum biðjum við Tinnu um að koma með lokaskilaboð til stuðningsmanna: „Ég hlakka til að sjá ykkur sem flest í stúkunni næsta sumar að styðja stelpurnar áfram því þær eiga það svo sannarlega skilið!“

Meiri fótbolti 2024

Sjálfboðaliðar Gróttu

Margrét Kristín Jónsdóttir

Ég heiti Margrét Kristín Jónsdóttir, er 60 ára og vinn sem kennari. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á íþróttum og mér finnst mikilvægt að leggja mitt af mörkum til þess að efla íþróttir og samstöðu á Seltjarnarnesi.

Hvað hvetur þig til að vera sjálfboðaliði hjá Knattspyrnudeild Gróttu?

Það sem hvetur mig mest er dóttir mín, að sjá gleðina og samheldnina sem fótbolti færir bæði börnum og fullorðnum. Ég hef einnig mikinn áhuga á að vera hluti af samfélagi þar sem ég get hjálpað til við að skapa jákvæða reynslu fyrir aðra. Að sjá áhrif sjálfboðastarfsins á ungmenni, bæði innan vallar og utan, veitir mér mikla ánægju.

Hvað ertu búin að vinna lengi í kringum Gróttu?

Hvaða verkefni hefur þú tekið að þér sem sjálfboðaliði fyrir Gróttu?

Ég hef verið í kringum fótboltann í Gróttu í um 12 ár, þar sem ég hef sinnt ýmsum hlutverkum. Ég hef hjálpað til við aðstoða og fylgja liðum yngri flokka á mótum heima og erlendis. Einnig hef ég sinnt störfum á heimaleikjum meistaraflokks kvenna, tekið myndir og verið til staðar þegar þarf að leysa óvænt verkefni.

Hvaða fyrri reynslu hefur þú af fótbolta, æfðir þú sjálf eða eru börnin að æfa fótbolta?

Ég æfði sjálf fótbolta þegar ég var yngri og hef alltaf fylgst vel með íþróttinni. Dóttir mín hefur alist upp í Gróttu og spilar nú með meistaraflokki kvenna og það hefur gert tengslin við deildina enn sterkari. Ég hef því tekið þátt í foreldrahlutverki innan fótboltans, bæði sem stuðningsmaður og sjálfboðaliði.

Hvernig sérðu hlutverk sjálfboðaliða í að styðja við þróun og vöxt fótbolta í samfélaginu á Seltjarnarnesi?

Sjálfboðaliðar eru burðarásinn í öllum íþróttafélögum. Þeir tryggja að samfélagið geti staðið að öflugu starfi og veita börnum og unglingum tækifæri til að þróa hæfileika sína í jákvæðu umhverfi. Á Seltjarnarnesi tel ég að sjálfboðaliðar séu lykillinn að því að skapa sterkan félagslegan grunn, þar sem fótbolti getur sameinað fólk úr öllum áttum og stutt við heilsu og vellíðan samfélagsins.

Halla Bachmann Ólafsdóttir

Ég heiti Halla Bachmann Ólafsdóttir og er 67 ára gömul. Ég er lögfræðingur, en er sest í helgan stein. Fjölskyldan flutti á Seltjarnarnes haustið 1995 og við hjónin bjuggum þar til ársins 2020. Dætur mínar voru í fótbolta, handbolta og fimleikum í Gróttu.

Mér þykir sérstaklega vænt um knattspyrnudeildina og hef frá stofnun meistaraflokks kvenna stutt við stelpurnar.

Hvað hvetur þig til að vera sjálfboðaliði hjá

Knattspyrnudeild Gróttu?

Það er bara svo gaman að leggja félaginu lið og vera í þeim skemmtilega félagsskap.

Hvað ertu búin að vinna lengi í kringum Gróttu?

Hvaða verkefni hefur þú tekið að þér sem sjálfboðaliði fyrir Gróttu?

Hvaða verkefni hefur þú tekið að þér sem sjálfboðaliði fyrir Gróttu? Síðan meistaraflokkur kvenna var stofnaður, árið 2016. Hef sinnt vöfflubakstri og vinnu í sjoppunni.

Hvaða fyrri reynslu hefur þú af fótbolta, æfðir þú sjálf eða eru börnin að æfa fótbolta?

Ég æfði ekki fótbolta, var í körfubolta. Jórunn María dóttir mín er í meistaraflokki kvenna og ástæðan fyrir því af hverju ég byrjaði að hjálpa til.

Hvernig sérðu hlutverk sjálfboðaliða í að styðja við þróun og vöxt fótbolta í samfélaginu á Seltjarnarnesi?

Sjálfboðaliðar eru nauðsynlegir og Grótta er lánsamt að eiga öfluga sjálfboðaliða sem sinna mikilvægu starfi af mikilli gleði.

Margrét Kristín. Halla Bachmann.

Sjálfboðaliðar Gróttu

Lilja Nótt Þórarinsdóttir

Ég heiti Lilja Nótt Þórarinsdóttir og er 45 ára leikkona, handritshöfundur og framleiðandi. Ég flutti á Nesið 2019.

Hvað hvetur þig til að vera sjálfboðaliði hjá Knattspyrnudeild Gróttu?

Ég á núna tvær boltastelpur hjá félaginu og er sjálf alin upp í keppnisíþróttum. Í gegnum tíðina hefur það verið þannig að strákaboltinn hefur fengið meiri ást, athygli og peninga. Þess vegna fannst mér mikilvægt frá upphafi að leggja mitt af mörkum sérstaklega í kvennaboltanum svo stelpurnar mínar og bara allar Gróttustelpur finni að þær og þeirra árangur er jafn mikils metinn og virði.

Hvað ertu búin að vinna lengi í kringum Gróttu?

Hvaða verkefni hefur þú tekið að þér sem sjálfboðaliði fyrir Gróttu?

Við fluttum á Nesið í lok júlí 2019 og Emma Björg byrjaði í fótboltaskólanum þá um sumarið og fór svo líklega að æfa það haust. Hef verið í þessu klassíska, í foreldraráðum og fjáröflunum. Aðstoð við skipulagningu á kvennakvöldum og minni viðburðum. Svo var mér boðið í bakland meistaraflokks kvenna sem er búið að vera mjög gaman enda stelpurnar okkar að gera magnaða hluti og standa sig frábærlega. (Veit við förum upp næst!) Þar hafa það verið

almenn störf í kringum heimaleiki. En svo fór ég líka að skipuleggja umgjörð í kringum sérstaka leiki og fá fólk til að koma á völlinn og horfa á stelpurnar okkar spila. Stærst kannski í sumar þegar við spiluðum styrktarleik fyrir Kraft sem tókst vel og við gerum vonandi svona styrktarleiki að árlegum viðburði. En eins og ég sagði þá liggur minn metnaður líka í að kveikja á hjá fólki að koma á kvennaleiki og við finnum áhugann aukast hér líkt og annars staðar í heiminum. Þó það gerist hægt og rólega. Það væri gaman ef Nesið myndi ríða á vaðið hér á Íslandi að jafna áhorfendafjöldann óháð kyni. Skora bara hér með á okkur öll!! Koma svo!!

Hvaða fyrri reynslu hefur þú af fótbolta, æfðir þú sjálf eða eru börnin að æfa fótbolta?

Já ég er alin upp úti í sveit og elskaði fótbolta en er nógu öldruð til að hafa upplifað að það voru engir möguleikar fyrir mig að æfa. Það voru æfingar einu sinni í viku þar sem allir æfðu saman, breiður aldur og ég oftast eina stelpan og fékk aldrei boltann. En ég var alger Íþróttaálfur, æfði mikið og margar íþróttir og var í afreksíþróttum frá því ég var stubbur. Spilaði samt mikið fótbolta þegar ég gat og við spiluðum líka í leiklistarskólanum. Ég fékk samt ekki að æfa fótbolta almennilega fyrr en ég æfði upp úr þrítugu með FC Ógn sem er Drottningalið. En ég horfði aldrei á fótbolta fyrr en ég varð boltamamma! Nú er allt breytt og ekki aftur snúið. Mér finnst þetta geggjað skemmtilegt! Við eigum tvær grjótharðar Gróttustelpur sem æfa báðar fótog handbolta með vinkonum sínum hjá Gróttu og erum sjúklega stolt af þeim og ánægð með klúbbinn.

Hvernig sérðu hlutverk sjálfboðaliða í að styðja við þróun og vöxt fótbolta í samfélaginu á Seltjarnarnesi?

Mér finnst það falleg skilaboð til barnanna og unga fólksins okkar að við gefum okkur tíma til að sinna og deila þessu með þeim. Hreyfing, samvera og að vera saman í liði er svo mikilvægt félagslegt tæki og forvörn. Sjálfboðaliðar eru nauðsynlegir fyrir svona félag eins og Gróttu svo við getum boðið íþróttafólkinu okkar upp á aðstæður þar sem því líður vel og getur blómstrað. Ef við leggjum okkur fram, hvetjum við íþróttaálfana okkar líka til að leggja sig fram. Þetta er afar gefandi og það er skemmtilegur félagsskapur og stemning á leikjum. Svo býr það til góðan bæjaranda að við eigum eitthvað sameiginlegt sem við getum verið stolt af. Mig langar að hvetja sem flesta til að melda sig og taka til hendinni og hvet alla Seltirninga til að mæta í höllina og á völlinn og hvetja liðin okkar. Það er sannað að ef við mætum mörg er það eins og auka manneskja inni á vellinum. Gerum Nesið að erfiðasta heimavellinum að heimsækja. Það er markmiðið.

Gísli Ólafsson

Ég heiti Gísli Ólafsson og er 42 ára tölvunarfræðingur hjá LS Retail. Ég er giftur Karin Kristjánsdóttur og saman eigum við Kristján Ólaf, Ásdísi Lilju og Brynjar Helga.

Hvað hvetur þig til að vera sjálfboðaliði hjá Knattspyrnudeild Gróttu?

Ég er aðallega í þessu til þess að styðja allt þetta frábæra fólk sem vinnur hjá Gróttu, hvort sem það eru leikmenn, þjálfarar eða aðrir starfsmenn. Svo er líka ótrúlega gaman að vinna með öðrum sjálfboðaliðum og fá tækifæri til að kynnast fólkinu í félaginu.

Hvað ertu búin að vinna lengi í kringum Gróttu?

Hvaða verkefni hefur þú tekið að þér sem sjálfboðaliði fyrir Gróttu?

Ég man ekki nákvæmlega hvenær ég byrjaði, líklega sumarið 2020. Ég byrjaði a.m.k. á því að aðstoða á kvennaleikjunum, Ásdís vildi mæta á alla leiki að styðja Jórunni og vinna í sjoppunni. Ég hef prófað flest öll störf sem tengjast heimaleikjum Gróttu t.d. vökva völlinn, manna sjúkrabörurnar, grilla hamborgara og vera í miðasölunni.

Hvaða fyrri reynslu hefur þú af fótbolta, æfðir þú sjálf eða eru börnin að æfa fótbolta?

Ég hef aldrei spilað né æft fótbolta af neinu viti, bara einhver bumbubolti með vinum og kunningjum. Ég þjálfaði yngri flokka og dæmdi fyrir KFR í kring um aldamótin en hætti því þegar ég flutti til Reykjavíkur 2005.

Hvernig sérðu hlutverk sjálfboðaliða í að styðja við þróun og vöxt fótbolta í samfélaginu á Seltjarnarnesi?

Mér finnst mjög mikilvægt að við sem eigum krakka í Gróttu séum dugleg að styðja við meistaraflokka félagsins. Einn af stærstu kostum Gróttu er hvað það er mikil samvinna og samgangur á milli yngri flokka og meistaraflokks. Leikmenn meistaraflokka eru mikilvægar fyrirmyndir fyrir krakkana og við höfum verið einstaklega heppin með þau eins og t.d. Jórunni, Grím, Rakel, Aufí og fleiri.

Takk fyrir stuðninginn 2024

Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari meistaraflokks karla.

„Ætlum ekki að stoppa lengi í 2. deild“

Viðtal við Rúnar Pál Sigmundsson þjálfara meistaraflokks karla

Nóvembermánuður gekk í garð og karlalið Gróttu var þjálfaralaust. Í heita pottinum og í Hagkaup var mikið skrafað. Hver tekur við? Fara menn ekki að ganga frá þessu? Við þurfum alvöru þjálfara til að hefja nýja vegferð! Þann 14. nóvember, þegar æfingar voru þegar hafnar,

fyrstu titla og spilaði fjölda Evrópuleikja. Síðustu þrjú tímabil stýrði hann Fylkismönnum en er nú tekinn við stjórnartaumunum á Nesinu. Við settumst niður með Rúnar og heyrðum meðal annars söguna af því þegar hann var nánast tekinn við Gróttu haustið 2012.

Velkominn í Gróttu Rúnar –hvernig hafa fyrstu vikurnar í starfi verið?

„Já takk fyrir það. Þetta hefur byrjað

hvorki leikmenn né þjálfara, svo þetta er ný og góð reynsla fyrir mig. Það er gaman að kynnast nýjum klúbbi og þetta er í raun svipað og þegar ég tók við Levanger í Noregi. Þar þekkti ég engan og þurfti að aðlaga mig að félaginu á sama tíma og ég reyndi að koma breytingum í gegn,“ segir Rúnar Páll sem þjálfaði Levanger á árunum 2010 til 2012. Það var einmitt haustið 2012 sem Rúnar sneri aftur heim í uppeldisfélag sitt Stjörnuna en því hefur stundum verið haldið fram að hann hafi

verið nálægt því að taka við Gróttu þetta sama haust. Heyrum hvað Rúnar segir

„Þetta var bara nákvæmlega þannig að ég kom heim frá Noregi og var að stíga upp í bíl til að keyra út á Nes til að skrifa undir þegar Stjarnan hringir. Mér stóð til boða að verða þjálfari meistaraflokks Gróttu og íþróttafulltrúi félagsins. Hafði verið í sambandi við góða menn í stjórninni, til dæmis Jón Sig sem ég vann með hjá Nýherja, og Óskar Hrafn (Þorvaldsson) sem þá sat í aðalstjórn Gróttu. Þetta var bara klappað og klárt en svo kom símtalið

frá uppeldisklúbbnum og ég gat ekki sagt nei. Gerðist aðstoðarþjálfari Loga Ólafssonar í meistaraflokki og þjálfari 2. flokks karla.“

Framhaldið þekkja flestir. Ári síðar hætti Logi með Stjörnuna, Rúnar Páll tók við og Stjarnan varð Íslandsmeistari eftir einn eftirminnilegasta knattspyrnuleik síðari ára í Kaplakrika. Ekki nóg með það heldur komst Stjörnuliðið langt í Evrópukeppni – sló út lið Bangor frá Írlandi, Motherwell frá Skotlandi og Lech Poznan frá Póllandi áður það mætti stórliði Inter Milan, fyrst á Laugardalsvelli og síðar á San Siro leikvanginum í Mílanó. „Það var fyrst og fremst stórkostlegt afrek hjá Stjörnunni að takast að verða Íslandsmeistari í knattspyrnu karla. Og að fá að taka þátt í því, uppalinn Garðbæingur og Stjörnumaður var auðvitað stórkostlegt,“ segir Rúnar sem stýrði Stjörnunni fram til ársins 2021 en tímabilin 2022-2024 þjálfaði hann Fylki.

Snúum okkur aftur að Gróttu.

Hvernig sér Rúnar Páll næsta tímabil fyrir sér?

„Þetta verður drulluerfið deild. Við munum mæta liðum með sterka útlendinga og mörg liðin eiga erfiða heimavelli. Ég hlakka samt til að ferðast út á land og spila. Við munum mæta jákvæðir í öll ferðalög og notum þau til að efla liðsheildina.“

En hvernig nær Gróttuliðið árangri næsta sumar? Er stefnan sett á að komast strax upp?

„Já við ætlum ekki að stoppa lengi í 2. deild en á meðan við erum þar þá njótum við þess. Það verður alls ekki auðvelt að ná þessu markmiðið en til

Svo má aldrei gleyma því að allir fóru í fótbolta því þeim fannst það skemmtilegt – svo ég legg mikið upp úr því að það sé gaman að mæta á æfingar og að mönnum líði vel.

að það verði að veruleiki þurfum við að vera í betra formi en andstæðingarnir og agaðari en andstæðingarnir. Þetta eru hlutir sem við stjórnum sjálfir og gefum því engan afslátt af því. Við erum með góða leikmenn í hópnum, marga uppalda hjá félaginu, svo ég held að fólk geti búist við duglegu og skemmtilegu Gróttuliði næsta sumar,“ segir Rúnar en við spyrjum hvort að hópurinn verði styrktur á næstu vikum og mánuðum?

„Já, en við reynum að styrkja liðið með réttum mönnum sem hafa áhuga á því að vera í Gróttu og því umhverfi sem við ætlum okkur að skapa. Ég hef engan áhuga á að sanka að mér leikmönnum heldur fá til okkar leikmenn sem eru tilbúnir til að leggja hart að sér og koma með eitthvað að borðinu.“

Við biðjum Rúnar Pál um að lýsa sér sem þjálfara. Er einhver sérstakur fótboltastíll sem hann aðhyllist frekar en annan?

„Ég held og vona að ég sé kröfuharður en um leið sanngjarn þjálfari. Ég er með hrjúfa rödd en ljúflingur inn við beinið,“ segir Rúnar og brosir. „Auðvitað er eitthvað í taktík sem manni finnst skemmtilegra en annað. Ég vil helst spila með 4-manna vörn og finnst gaman ef liðið mitt hefur orku í að pressa andstæðinginn. En fyrst og fremst reyni ég að vinna með styrkleika leikmanna og legg mig fram um að búa til hlutverk innan liðsins þar sem menn fá að njóta sín. Það tek ég fram yfir fyrirfram mótaða taktík. Svo má aldrei gleyma því að allir fóru í fótbolta því þeim fannst það skemmtilegt – svo ég legg mikið upp úr því að það sé gaman að mæta á æfingar og að mönnum líði vel. “

Rúnar Páll er uppalinn

Garðbæingur en þar á bæ hafa menn haft orð á sér fyrir að styðja einstaklega vel við íþróttastarf. Við spyrjum að lokum hvort að áherslur á Nesinu geti verið sambærilegar þeim í Garðabænum?

„Seltjarnarnes er vissulega lítið sveitarfélag en mér finnst það ekki skipta máli. Það getur bara hjálpað til við að gera spennandi hluti. Mér finnst að bæjarbúar og fólkið sem stýrir bænum ætti að gera kröfur um að það sé boðið upp á framúrskarandi knattspyrnustarf í Gróttu, bæði hjá krökkum og meistaraflokki karla og kvenna. Það skipti nefnilega máli að það séu leikmenn hlaupandi um Vivaldivöllinn sem ungviðið lítur upp til. En til að það geti orðið að veruleika þarf sveitarfélagið að standa betur við bakið á félaginu og fleiri einstaklingar að styrkja það, því það eru ekki mörg fyrirtæki hérna á svæðinu sem hægt er að leita til. Tökum vallarhúsið sem dæmi sem er vinnusvæði okkar þjálfaranna. Það var bara hlegið þegar ég spurði hvar skrifstofan mín væri –það eru einfaldlega engin skrifstofa á svæðinu! Það er fjórhjól geymt við upphitunarsvæði leikmannanna og fleira sem ég gæti nefnt sem mér finnst að ætti klárlega að laga. Ég einfaldlega skora á bæjaryfirvöld að herða sig við uppbyggingu á svæðinu okkar!“ segir Rúnar að lokum, stendur upp með baráttuglampa í augum, þakkar fyrir spjallið og arkar út á völl enda stutt í æfingu hjá meistaraflokki.

Við þökkum Rúnari sömuleiðis kærlega fyrir og hlökkum til að fylgjast með liðinu mótast undir hans stjórn.

Söfnuðu 470.000 kr. til styrktar Krafts

Laugardaginn 17. ágúst tók Grótta á móti FHL í Lengjudeildinni á Vivaldivellinum og var leikurinn styrktarleikur til styrktar Krafts - stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur. Craft skaffaði appelsínugula búninga á liðið með Krafts lógó-inu og voru eins treyjur einnig til sölu á leiknum og rann allur ágóði til Krafts. Öllu var tjaldað til á vellinum og var mikil stemning á leiknum og fyrir leik. Þar var hoppukastali, andlitsmálning, djasstríó, búbblur, hamborgarar - algjör veisla. Á leiknum söfnuðust 350.000 kr. til styrktar Krafts og þökkum við stuðningsfólki kærlega fyrir komuna og fyrir að leggja sitt af mörkum til þessa mikilvæga málefnis sem Kraftur stendur fyrir. Einnig seldu Gróttukonur áritaðar treyjur sínar eftir leikinn og söfnuðust þar með 120.000 kr. aukalega. Samtals safnaði knattspyrnudeild Gróttu því 470.000 kr. til styrktar Krafts.

Harpa Frímanns og Lilja Nótt ásamt starfsmanni Krafts.

Verið velkomin í Olís Ánanaust!

Rafvirkjar sf

óska Gróttufólki gleðilegra jóla

og þakka fyrir samstarfið á liðnum árum

Minning Valdimar Ólafsson

Valdimar Ólafsson, betur þekktur sem Valdi, lést þriðjudaginn 17. september sl. Valdi hóf störf sem vallarstjóri á Vivaldivellinum hjá íþróttafélaginu Gróttu í september 2016 og var frá fyrsta degi einstakur starfsmaður sem gaf allt fyrir félagið sitt.

Valdi var sannur Gróttumaður, uppalinn á Seltjarnarnesi og tengdist félaginu allt frá stofnun þess árið 1967. Á yngri

árum stundaði hann bæði fótbolta og handbolta hjá félaginu og prófaði einnig körfubolta einn vetur þegar sú íþrótt var stunduð hjá Gróttu.

Í vallarhúsinu réði Valdi ríkjum og sinnti hann störfum sínum af mikilli samviskusemi og vandvirkni. Valdi var einstaklega vel liðinn af starfsfólki og foreldrum, en sérstaklega af iðkendum félagsins. Hann var ávallt til staðar hvort sem um var að ræða stór verkefni eða smá. Valdi lagði mikla áherslu á að vallarhúsið væri opið fyrir alla iðkendur félagsins, unga sem aldna, sem og aðra gesti, og þangað væri fólk velkomið.

„Ég spyr bara Valda“ er setning sem Gróttufólk þekkir velenda alltaf hægt að leita til Valda með hin og þessi verkefnin og pælingarnar. Hann var ótrúlega bóngóður maður og lét alltaf eins og hlutirnir væru sjálfsagðir - það var alltaf ekkert mál, við græjum það bara, og sagt með bros á vör.

Það sem lýsir Valda sérstaklega vel er setning sem hann lét falla í starfsmannakynningu árið 2021: „Skilaboð til foreldra: Krakkarnir eru ekkert til vandræða, þau eru kurteis upp til hópa.“

Þetta lýsir Valda vel - hann tók alltaf vel á móti þeim sem mættu á Vivaldi. Eitt sinn spurði ung knattspyrnukona í

Gróttu Valda hvort hann hefði verið skírður í höfuðið á ViValdivellinum. Henni fannst ekkert eðlilegra, enda er erfitt að ímynda sér Vivaldivöllinn án Valda.

Það var ómetanlegt fyrir félag eins og Gróttu að hafa mann eins og Valda innan sinna raða. Gróttufólk átti erfitt með að venjast því að Valdi væri farinn í veikindaleyfi enda var Valdi svo mikilvægur fyrir félagið. Eftir að hann fór í veikindaleyfi kom hann oft út á völl að taka stöðuna, hjálpa til með hitt og þetta og fá sér kaffibolla. Alltaf var hann með bros á vör. Aðspurður um heilsuna var hann einlægur og hreinskilinn en jákvæður og bjartsýnn. Það er erfitt að finna meira gæðablóð en Valda og erfið tilhugsun að hann muni ekki framar sitja í horninu sínu á Vivaldi eða vera keyrandi um á fjórhjólinu í allskonar stússi. Hans verður sárt saknað en minningin um einstakan mann lifir áfram.

Arna Ís og Kaffibar

Verið velkomin

Við bjóðum upp á kaffi og ótal

braðtegundir af dásamlegum

laktósafríum Örnu ís

Laktósafrír Örnu Ís

Opnunartími 9-18 Virka daga 10-17:30 Laugardaga 11-17:30 SUnnudaga

Lovísa, Lilja og Birgir Scheving

Máni og Saga

Pétur, Una og strákarnir

Ragnhildur Lilja, Magnús Ingi og Bjarki Leví

Sara Björt, Theodór Leví og Matthías Leó

Sölvi og Frikki

Sölvi, Pálína, Sólveig Þóra og Kristín Sara Sölvi, Sara, Viktor, Soffía og Sylvía

Steina, Bjössi og Týra

Pistill frá Paul

As another year in the youth football department draws to a close, it is always useful to reflect back on what has been a busy year on and off the pitch! As ever, there have been challenges to overcome, but participation numbers continue to grow in many groups, particularly in younger ages, which reflects the good work happening there. This also bodes well for the future of Grótta, as the football club grows together with the expanding community.

Many games have been played, and tournaments attendedboth in Iceland and abroad - with much enjoyment along the way. Of course, this wouldn’t be possible without the support of the parents (and parent committees), and from the whole coaching team, we thank you for your efforts and for continuing to show up in all weathers to support the players. Besides the events and practices, a lot of administration occurs behind the scenes, often late into the evenings and weekends, so now is also an opportune moment to show appreciation for all our coaching staff.

Talking of coaching staff, there have been some changes this year. Gabríel, who was joint Head of Youth, received an attractive offer to return to his home club. We wish him well in his new ventures, and I know he leaves with fond memories and certainly considers Grótta his second home!

This departure allowed for a slight re-structure in the youth department, and I would like to welcome Hansína Þóra Gunnarsdóttir to the team. Hansína joins as joint Head of Youth, with a remit to focus on 5-8fl groups. In addition to Hansína, we have strengthened the coaching staff with a number of new faces, who have already added energy, enthusiasm, and expertise to the delivery.

I think it’s fair to say there were mixed fortunes for our MFL teams last summer. Aufí and Rebekka, cemented their positions as key members of the squad, and both represented Iceland

at youth level on a number of occasions. Many girls also made the step up to make 2fl debuts, and some also gained valuable experience training with MFL.

On the men’s side, Birgir Davíðsson Scheving, made his first competitive senior appearance, and impressive displays for 2fl and 3fl resulted in him signing his first contract with us. As per the women’s team, other boys also stepped up to train with the men’s squad on occasions, with hopefully more to follow in 2025.

Whilst this pathway from youth to first team isn’t for everyone, it is important for a club such as ours, that these opportunities exist. No doubt you will have been watching the remarkable journeys of Orri Steinn Óskarsson and Hakon Valdimarsson, who now play in La Liga with Real Sociedad, and Brentford in the English Premier League, respectively. Both are also firmly established in the Iceland national team. We are extremely proud of their achievements and it is remarkable to have two such players who grew up at Grótta. Orri and Hákon frequently return to Vivaldi to watch games when their schedules allow, and make time to meet the kids and sign autographs. Super role-models and inspirational for the next generation. Who knows, maybe others can follow their footsteps in the future!

Happy Holidays to all, Paul Westren

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.