Jólablað Gróttu 2017

Page 1


GRÓTTUBLAÐIÐ 2017

Jólarit knattspyrnudeildar

„Skreytum hús með greinum grænum“

Ávarp formanns

Jólablað Gróttu er komið út sjöunda árið í röð og erum við mjög stolt af útgáfunni nú sem endranær. Enn eitt viðburðaríkt ár er senn að baki en á síðum blaðsins verður stiklað á því helsta í starfi knattspyrnudeildar Gróttu. Af nógu er að taka.

Íþróttafélagið Grótta stóð á merkilegum tímamótum árið 2017 og fagnaði 50 ára afmæli. Vegleg afmælisveisla var haldin í íþróttahúsinu og var afar góð mæting Gróttufólks og annarra góðra gesta. Seltjarnarnes, UMSK, KSÍ og fleiri færðu félaginu góðar gjafir og Páll Óskar sló í gegn eins og honum einum er lagið.

Um svipað leyti hætti Hilmar S. Sigurðsson sem formaður knattspyrnudeildar Gróttu eftir 16 ára farsælt starf. Sem betur fer er Hilmar þó ekki hættur afskiptum af fótboltanum á Nesinu en hann vinnur nú ómetanlegt starf í meistaraflokksráði kvenna.

Meistaraflokkur kvenna, undir stjórn Guðjóns Kristinssonar, stóð sig afar vel í sumar og tók miklum framförum frá fyrra tímabili. Stelpurnar eru svo sannarlega búnar að sýna og sanna að þær ber að taka alvarlega rétt eins aðra meistaraflokka Gróttu. Meistaraflokkur karla lék í Inkasso-deildinni í sumar, næst efstu deild Íslandsmótsins. Tímabilið var erfitt og voru okkar menn oft grátlega nærri því að landa sigri eða jafntefli í fyrri hluta mótsins. Þegar leið

á sumarið voru skörð höggvin í liðið. Meðal annars meiddist Guðmundur Marteinn fyrirliði alvarlega og þrír ungir leikmenn fluttu til Bandaríkjanna til að leika í háskólaboltanum þar í landi. Þórhallur Dan Jóhannsson og Sigurður Brynjólfsson stýrðu liðinu í sumar og misstu þeir félagar aldrei móðinn þrátt fyrir mótlæti. Fall í 2. deild varð þó niðurstaðan og uppbyggingarstarf framundan.

Við þau tímamót var ákveðið að skipta um þjálfarateymi og ráða þá Óskar Hrafn Þorvaldsson og Halldór Árnason til starfa. Báðir hafa sterkar tengingar við Nesið en Óskar hefur þjálfað hjá yngri flokkum Gróttu í rúm tvö ár. Það verður gaman að fylgjast með starfi þeirra Óskars og Halldórs á næstu mánuðum og þeim nýjungum sem þeir ætla að innleiða í þjálfunina.

Árið var líka viðburðaríkt í starfi yngri flokkanna. Rúmlega 300 iðkendur voru skráðir í knattspyrnudeildina en aldrei hafa fleiri stelpur æft fótbolta hjá Gróttu. Magnús Örn Helgason lét af störfum sem yfirþjálfari eftir þrjú góð

ár í starfi og við keflinu tók annar ungur Gróttumaður – Bjarki Már Ólafsson. Bjarka bíður ærið verkefni að halda áfram innleiðingu Gróttuleiðarinnar og viðhalda þeim metnaði sem ríkt hefur í knattspyrnudeildinni síðustu misseri. Á árinu eignaðist Grótta þrjá nýja landsliðsmenn eins og sagt er frá síðar í blaðinu.

Fyrir hönd stjórnarinnar þakka ég þjálfurum, foreldrum og auðvitað iðkendunum öllum kærlega fyrir þeirra framlag í þágu deildarinnar. Þá færum við Seltjarnarnesbæ sérstakar þakkir fyrir ánægjuríkt samstarf í gegnum árin og vonum að svo verði áfram. Að lokum þökkum við öllum þeim fyrirtækjum sem auglýsa í blaðinu kælega fyrir stuðninginn og hvetjum Seltirninga til að hafa þessi fyrirtæki í huga við jólainnkaupin.

Með ósk um gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Sölvi Snær Magnússon

Fótboltasumarið 2017

Meistaraflokkur karla

Gróttumenn sneru aftur í 1. deildina í þriðja sinn frá árinu 2010. Fyrir tímabilið tóku Þórhallur Dan Jóhannsson og Sigurður Brynjólfsson við liðinu sem var að miklu leyti skipað uppöldum Gróttumönnum. Gróttuliðið byrjaði af krafti og sýndi flotta takta í undirbúningsmótunum. Farið var í vel heppnaða æfingaferð til Króatíu í apríl ásamt meistaraflokki kvenna þar sem mannskapurinn æfði við bestu aðstæður og naut lífsins þess á milli. Fyrir mót var Gróttu spáð 12. og neðsta sæti deildarinnar. Þórhallur þjálfari sagði í viðtali að Gróttumenn mættu til leiks sem litla liðið og bætti við að auki: „Við erum ekki að mæta í deildina til að vera fallbyssufóður, við viljum hrekkja stóru strákana.”

Grótta gerði jafntefli við Leikni F í fyrsta leik og spilaði svo glimrandi vel á móti Fylki á Vivaldivellinum fyrir framan troðfulla stúku. Því miður tókst Árbæingum að landa sigri á lokaandartökum leiksins og vonbrigðin leyndu sér ekki hjá Gróttumönnum.

Menn létu þó ekki deigan síga, héldu austur á Selfoss í þriðju umferð og unnu óvæntan 1-0 sigur.

Einn af hápunktum sumarsins var svo 30. maí þegar Grótta sótti úrvalsdeildarlið ÍA heim á Akranesvöll í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar. Þar voru okkar menn síst lakari aðilinn og á 63. mínútu tók Grótta forystuna með marki Ingólfs Sigurðssonar. Skömmu síðar munaði engu að Grótta kæmist í 2-0 en í staðinn náðu Skagamenn að jafna 1-1 og framlengja þurfti leikinn. Þar tókst ÍA að skora aftur og tryggði sér farmiðann í 8-liða úrslitin. Já, Gróttumenn voru að stríða stóru strákunum.

Eftir jafntefli við Hauka hinn 2. júní fór verulega að halla undan fæti hjá Gróttu. Sex tapleikir í röð voru staðreynd og í ofanálag sleit Guðmundur Marteinn fyrirliði krossband í júní og var því frá út tímabilið.

Skemmst er frá því að segja að lokaniðurstaðan var neðsta sæti

Óskar Hrafn hefur síðasta orðið: „Þetta er spennandi verkefni. Markmiðið er að búa til stöðugleika með kjarna af uppöldum Gróttumönnum. Við leggjum mikið í að búa til umhverfi þannig að leikmennirnir vaxi og dafni. Umhverfi sem er komið til að vera á Seltjarnarnesi.“

deildarinnar. Grótta varð alls ekkert fallbyssufóður fyrir stærri liðin en of oft byrjuðu strákarnir vel en misstu svo leikina niður í lokin. Sem dæmi má nefna að ef leikir hefðu verið flautaðir af eftir 45 mínútur hefði Grótta fengið 16 stig en ekki 9. Nýtt tímabil í 2. deild blasir við en Gróttufólk getur glaðst yfir því að margir ungir leikmenn fengu sína eldskírn í sumar og verður spennandi að fylgjast með þeim á komandi keppnistímabili.

Í haust ákvað Grótta að skipta um þjálfarateymi. Til starfa voru ráðnir þeir Óskar Hrafn Þorvaldsson og Halldór Árnason en báðir hafa getið sér gott orð sem yngri flokka þjálfarar síðustu ár. Óskar hefur þjálfað hjá Gróttu frá haustinu 2015 við góðan orðstír en hann hefur búið á Nesinu um langt skeið. Halldór kemur til Gróttu frá Stjörnunni en hann mun einnig stýra 2. og 5. flokki karla.

Markmiðin eru nú er skýr – að skapa okkar mönnum bestu mögulegu aðstæður til eflast og bæta sig.

Verð frá: 1.790.000 kr.

Nýr Hyundai i10 hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir glæsilega hönnun og frágang. Hyundai i10 er án efa einn skemmtilegasti smábíllinn á markaðnum. Blaðamenn sem prófuðu nýjan Hyundai i10 voru á einu máli um að hér væri á ferðinni einstakur smábíll í hæsta gæðaflokki. Hyundai i10 - verð frá 1.790.000 kr.

Fótboltasumarið 2017

8. flokkur karla

Björn Breiðfjörð Valdimarsson, Axel Ingi Tynes og Kamilla Brynjarsdóttir

Sem fyrr var starfið í 8. flokki karla og kvenna blómlegt hjá Gróttu. Flokkana skipa krakkar sem enn eru í leikskóla en yfir vetrartímann var boðið upp á eina æfingu í viku á leikskólatíma hjá hvorum flokki fyrir sig og svo sameiginlega morgunæfingu á laugardögum. Þátttakan var góð og var sérstaklega ánægjulegt að sjá fjölgun í hópi stelpnanna þegar leið á tímabilið. Farið var á tvö mót yfir sumarið þar sem aðaláherslan er á að krakkarnir tileinki sér leikreglurnar og fái upplifunina af því að klæða sig í Gróttubúninginn. Gleðin var sannarlega við völd hjá Gróttukrökkunum, ótal mörk voru skoruð og fyrstu fótboltaminningarnar urðu til. Starfið í 8. flokki er fyrsta skrefið af mörgum hjá knattspyrnudeild Gróttu en að okkar mati eitt það skemmtilegasta og mikilvægasta.

7. flokkur karla

takast skal á við grátleg töp, svekkelsi og hamingju! Gróttuliðin spiluðu flottan fótbolta og gerðu sér lítið fyrir og komu heim með 3 bikara. Ótrúlega gott ár hjá öllum iðkendum 7.flokks og gætu þjálfararnir ekki verið stoltari af öllum leikmönnunum sem að voru með okkur í ár. Foreldrarnir eiga einnig hrós skilið fyrir gífurlega jákvæðni og stuðning til krakkanna!

7. flokkur kvenna

Eydís Lilja Eysteinsdóttir og Pétur Már Harðarson

Tæplega 20 stelpur æfðu af kappi í 7. flokki á liðnu tímabili. Eldra árið var mjög fjölmennt en þjálfararnir hefðu gjarnan vilja sjá fleiri iðkendur af yngra árinu. Æft var bæði úti á velli og inni í íþróttahúsi og leikið á æfingamótum yfir veturinn. Sumarið rann loks upp og þar með hápunktar tímabilsins – Íslandsbankamót KA á

Björn Breiðfjörð Valdimarsson og Axel Ingi Tynes

7.flokk karla skipaði fjölmennur og metnaðarfullur hópur drengja. Áhuginn var mikill og létu framfarirnir því skiljanlega ekki á sér standa. Leikgleðin var ávallt við völd og sýndi hópurinn flottan aga og var til fyrirmyndar. Farið var á fjölmörg mót og spilaðir æfingaleikir þar sem spilamennskan styrktist með hverri keppni. Hápunktur sumarsins var svo Sauðárkróksmótið þar sem við sendum 6 lið til leiks og stóðu öll lið sig frábærlega. Krakkarnir þroskuðust og lærðu mikið á mótinu, hvernig maður fagnar sigrum, hvernig

Akureyri og Símamótið í Kópavogi. Grótta tefldi fram þremur liðum fyrir norðan og skiptust á skin og skúrir eins og gengur í boltanum. Nokkrar í hópnum voru að fara á sitt fyrsta „gistimót” og er sú reynsla ekki síður dýrmæt en sjálfur fótboltinn. Á Símamótinu voru Gróttuliðin tvö en bæði lið stóðu sig frábærlega. Stelpurnar höfðu tekið miklum framförum frá Akureyrarmótinu og komu þjálfurum og foreldrum skemmtilega á óvart með glimrandi spilamennsku. Skemmtilegt tímabil á enda og næstu ár verða sannarlega spennandi hjá þessum flotta hópi.

6. flokkur karla

Fyrsta mót tímabilsins var árlegt mót í Hveragerði þar sem strákarnir stóðu sig ótrúlega vel og gáfu tóninn fyrir framhaldið. Ég held að það sé óhætt að segja að allir leikmenn 6. flokks hafi þroskast mikið sem knattspyrnumenn og fóru fram úr björtustu vonum þjálfaranna í þeim efnum. Grótta sendi tvö lið á Orkumótið sem var án efa hápunktur sumarsins hjá eldra árinu en því móti verða gerð frekari skil síðar í blaðinu. Yngra árið fór á Set-mótið á Selfossi sem var einnig vel heppnað og fótboltinn sem Gróttuliðin spiluðu jafnaðist á við gott konfekt. Það var umtalað hjá öðrum þjálfurum og foreldrum hvað Gróttustrákarnir voru hugrakkir í uppspili og samvinnan þeirra á milli eftirtektarverð. Sumarið endaði svo á reglulega skemmtilegu og vel heppnuðu móti á Króknum, þar sem má segja að frábært tímabil 6. flokks hafi verið fullkomnað. Spilamennska allra liða Gróttu á mótinu var til fyrirmyndar og fyllti okkur þjálfarana miklu stolti. Ótrúlegt tímabil að baki og geta allir sem komu að 6. flokki Gróttu verið ánægðir en við þjálfararnir þökkum kærlega fyrir samstarfið. Takk.

6. flokkur kvenna

Jórunn María Þorsteinsdóttir og Pétur Már Harðarson

Kristján Daði Finnbjörnsson, Pétur Már Harðarson og Pétur Rögnvaldsson

Tímabilið 2016-2017 var hrikalega viðburðaríkt og skemmtilegt í 6. flokki karla. Flokkurinn samanstóð af miklum meisturum sem voru gífurlega áhugasamir og einstaklega skemmtilegir.

Ég hef haft þau forréttindi að þjálfa þessar stelpur í 3 ár og koma þær mér sífellt á óvart. Ég vildi óska þess að ég hefði verið með jafn mikinn áhuga og metnað fyrir fótbolta og þær þegar ég var á þeirra aldri. Það er ótrúlega gaman að fylgjast með því hvað kvennastarfið í Gróttu vaxið síðustu ár og 6. flokkur kvenna er engin undantekning. Eins klisjukennt og það er að segja það, þá eru virkilega spennandi tímar framundan. Burtséð frá fótboltahæfileikum stelpnanna þá eru þær alveg rosalega skemmtilegir karakterar. Ég ætla að fá að birta nokkrar vel valdar línur frá þeim í gegnum tíðina svo að fleiri fái að njóta góðs af þessum gullmolum.

AlexIngi
Björn
Kamilla
EydísLilja
PéturMár
Pétur

J: Iðunn! Iðunn! Iðunn! Úr vestinu! Iðunn: Ég er ekki fullorðin!! Ég heyri ekki illa!!!

Jórunn: Jæja stelpur ég er að fara að keppa í kvöld, ætliði ekki að óska mér góðs gengis?

Allar í kór: Góðs gengis!!

Lilja Louve var nýkomin útaf í æfingamóti á KR velli og grátbað um að fá að komast aftur inná sem fyrst: Ég bara held að þær geti ekki bjargað sér án mín.

Stelpurnar upplifa oft á tíðum að við séum á sama aldri.

Fyrir Sauðárkróksmótið 2015: Ég: Þetta verður ekkert smá gaman, við Pétur verðum þarna og foreldrar ykkar…

Stelpurnar: Verða ekki mamma þín og pabbi líka, með þér?

Ég við Auði Freyju: Ekkert smá flott flétta sem þú ert með, hver gerði þetta í þig? AF: Mamma!

J: Ég verð að biðja hana um að kenna mér að gera þetta.

AF: Já, eða hún getur líka bara kennt mömmu þinni að gera svona.

Auður Freyja: Búið þið Bjarni saman?

Jórunn: Nei AF: Af hverju ekki?

Mamma mín og pabbi búa saman

J: Já við bara búum hjá mömmu og pabba okkar

AF: En gistiði?

J: Já AF: Líka á virkum dögum?

J: Já AF: En það er sko bannað, maður má bara gista um helgar.

5. flokkur karla

Kristján Daði Finnbjörnsson og Óskar Hrafn Þorvaldsson

Um 25 strákar æfðu í 5. flokki karla undir stjórn Kristjáns Daða Finnbjörnssonar. Honum til aðstoðar var fyrst Bjarki Már Ólafsson og síðan eftir áramót Óskar Hrafn Þorvaldsson. Æfingasókn drengjanna var mjög góð og létu þeir misjafnt veður ekki á sig fá heldur sinntu æfingum af miklum krafti. Eftir

vel heppnaða æfingaleiki fyrir áramót byrjaði Faxaflóamótið í febrúar. Þar stillti flokkurinn upp fjórum liðum og þurfti á köflum að fá góðan liðsauka úr 6. flokki karla og 5. flokki kvenna til að þétta raðirnar. Úrslit voru upp og ofan en spilamennskan varð betri og betri eftir því sem leið á. Byrjunin á Íslandsmótinu var erfið fyrir öll liðin en eftir því sem leið á sumarið spiluðu þau betur og vann

erum við þjálfararnir ekki í nokkrum vafa um að allar stelpurnar í flokknum höfðu bætt sig mikið.

Það var frábært að starfa með stelpunum þetta tímabilið. Ljóst er að framtíðin er björt hjá mörgum stúlknanna ef þær halda áfram að vera jafn duglegar að æfa og á síðasta tímabili. Takk fyrir okkur! Bjössi og Óskar

4. flokkur karla

A-liðið til að mynda fjóra af síðustu fimm leikjum sínum. Hápunktur sumarsins var N1-mótið á Akureyri þar sem Grótta tefldi fram þremur liðum. Öllum liðum gekk vel, gleðin var mikil og hópurinn þjappaði sér vel saman. Þegar allt kemur til alls var tímabilið mjög skemmtilegt. Nú eru sumir strákanna farnir í 4. flokk á stóran völl en þeir sem eftir eru taka við kyndlinum á næsta ári. Haldið áfram að æfa og leggja ykkur fram og takk fyrir sumarið! Kristján Daði, Bjarki og Óskar

5. flokkur kvenna

Björn Valdimarsson og Óskar Hrafn Þorvaldsson

Magnús Örn Helgason og Óskar Hrafn Þorvaldsson

18 stelpur æfðu af krafti allt tímabilið undir stjórn Óskars Hrafn Þorvaldssonar og Björns Valdimarssonar. Óhætt er að segja að áhuginn hafi verið mikill því frábær mæting var á æfingar hjá stelpunum. Flokkurinn stillti upp þremur liðum í Faxaflóamótinu í A-riðli þar sem stelpurnar mættu flestum af bestu liðum landsins. Leikir unnust og leikir töpuðust en jafnt og þétt bættu stelpurnar sig í því að spila fótbolta og vera góður liðsfélagi. Átta stelpur úr 6. flokki lögðu sitt á vogarskálarnar og spiluðu í öllum mótunum. Hápunktur sumarsins var Pæjumótið í Vestmannaeyjum þar sem öll liðin þrjú áttu frábæra daga, bæði innan vallar og utan. Íslandsmótið gekk vel og þegar flautað var til leiksloka í haust

Það var öflugur hópur sem skipaði 4. flokk karla á tímabilinu. Æfingasókn var með eindæmum góð hjá stærstum hópi drengjanna og voru menn tilbúnir til að leggja reglulega hart að sér. Æfingar voru oft á tíðum langar og erfiðar og veðrið misjafnt en áfram héldu strákarnir, staðráðnir í að verða betri fótboltamenn. Farið var í æfingaferð í janúar til að styrkja tengslin innan hópsins og Faxaflóamótið gekk vel. Íslandsmótið reyndist kaflaskipt. A-liðið var um tíma skugginn af sjálfu sér en um mitt sumar small allt saman og voru sem dæmi tvö af efstu liðum deildarinnar tekin í bakaríið í júlí. B-liðið efldist með hverjum leik og var stórkostlegt að sjá hve mikið leikskilningur strákanna jókst mánuð frá mánuði. Hápunktur sumarsins var vel heppnuð keppnisferð til Akureyrar í ágúst þar sem bæði lið spiluðu glimrandi fótbolta í góðum sigrum á Þórsurum. Andinn innan hópsins var frábær í ferðinni og gladdi það okkur þjálfarana mikið að finna hve góðir liðsmenn og traustir félagar skipuðu 4. flokk Gróttu. Takk fyrir tímabilið strákar!

4. flokkur kvenna

Bojana Besic og Pétur Rögnvaldsson

Tæplega 30 stelpur æfðu í 4. flokki Gróttu/KR á liðnu tímabili. Þetta var fjórða árið sem nágrannafélögin tvö voru í samstarfi sem er farið að ganga eins og vel smurð vél. Undirbúningstímabilið gekk vel og

JórunnMaría
Björn
KristjánDaði
ÓskarHrafn
MagnúsÖrn

Fótboltasumarið 2017

var mikill spenningur fyrir fyrstu leikjum Íslandsmótsins sem hófst í maí. Þar byrjuðu bæði A- og B-liðin af miklum krafti og flestum leikjum lauk með góðum sigrum Gróttu/KR. Í lok júní hófst ævintýralega langt leikjahlé en stelpurnar spiluðu ekki einn einasta leik frá 22. júní og fram í byrjun ágúst. EM kvenna í Hollandi hafði þar sín áhrif, skiljanlega. Því miður fundu stelpurnar ekki taktinn aftur eftir fríið langa og misstu bæði lið af sæti í úrslitakeppninni. Virkilega svekkjandi en fer allt í reynslubankann góða. Margar stelpur í flokknum fengu tækifæri til að spila með öflugum 3. flokki á árinu og tvær léku nokkra leiki með strákunum í 4. flokki Gróttu. Þá voru níu stelpur valdar á úrtaksæfingar KSÍ í september sem er vísbending um þá hæfileika sem búa í hópnum.

Lærdómsríku tímabili er lokið og halda fótboltaminningarnar áfram að safnast upp hjá stelpunum sem geta komist nákvæmlega eins langt og þær vilja í boltanum hafi þær viljann að vopni.

3. flokkur kvenna

Magnús Örn Helgason og Íunn Eir Gunnarsdóttir

Það voru 27 stelpur sem æfðu að staðaldri í 3. flokki Gróttu/KR í sumar en eldra árið var eitt það fjölmennasta á öllu landinu. Æfingar yfir vetrartímann gengu vel og spiluðu bæði lið í Reykjavíkurmóti. Í febrúar var farið í skemmtilega ferð til Akureyrar þar sem leikið var á Stefnumóti KA í Boganum. B-lið Gróttu/KR gerði sér lítið fyrir og vann mótið en úrslitaleikurinn var útkljáður í vítaspyrnukeppni. Sumarið rann loksins upp og var tekin ákvörðin

um að A-liðið myndi spila meðal þeirra bestu í A-deild.

Stelpurnar voru klárar og þjálfararnir ekki síður. Úr varð ævintýralegt sumar þar sem sannarlega skiptust á skin og skúrir. Frábærir sigrar unnust á Breiðablik, Stjörnunni og ÍA og lokaleik sumarsins lauk með 1-1 jafntefli við Val – liðið sem var með fullt hús fram í september.

Töpin voru þó ansi mörg. Hvorki fleiri né færri en 10 og sex af þessum leikjum töpuðust aðeins með einu marki! En upp úr stendur

frábær reynsla sem hópurinn tekur með sér inn í framtíðina.

Ekki má heldur gleyma að minnast á B-liðið sem átti í miklum erfiðleikum árið 2016 en tók stórstígum framförum milli ára. Góðir sigrar unnust og aðeins einu sinni voru stelpurnar teknar í bakaríið. Okkur tókst í öllum tilvikum að stríða bestu liðunum og margir eftirminnilegir leikir lifa í minningunni þar sem spilamennskan og samstaðan í liðinu var fyrsta flokks.

2. flokkur karla

Bjarki Már Ólafsson

og Arnar Þór Axelsson

Gróttuliðsins í þessu undirbúningsferli batnaði þó með hverjum leiknum og það fór að bera á nýjum áherslum í leik liðsins þegar sumarið nálgaðist. Keppnistímabilið var frábært þó uppskeran hafi verið vonbrigði. B-lið flokksins lék 16 leiki í Íslandsmótinu þar sem 39 leikmenn komu við sögu. Margir af yngri leikmönnum félagsins spiluðu sína fyrstu leiki með 2.flokki og sóttu sér dýrmæta reynslu. Liðið vann ekki marga leiki en margir leikmanna tóku stórstígum framförum. A-lið 2.flokks var nálægt því að vinna sig upp úr C-deild Íslandsmótsins.

Það er óhætt að segja að tímabilið í 2.flokki karla hafi verið mjög eftirminnilegt. Flokkurinn tefldi fram tveimur liðum, A- og B liði, í bæði Faxaflóa- og Íslandsmóti en yfirleitt voru rúmlega 20 leikmenn sem mættu á æfingar. Jákvæðni og metnaður einkenndu þennan stóra hóp frá fyrsta degi en á tímabilinu skiptust á skin og skúrir eins og gengur í boltanum. Undirbúningstímabilið var krefjandi og reyndu erfið úrslit í Faxaflóamótinu á þrautseigju leikmanna. Frammistaða

Eftir frábæra frammistöðu og hetjulega baráttu voru það að lokum lið Völsungs og Grindavíkur sem höfðu betur í kapphlaupinu um sætin tvö. Hápunktur sumarsins var þó 16-liða úrslit bikarsins þar sem Grótta og KR mættust á Vivaldivellinum. Nágrannaslagur af bestu gerð í góðu fótboltaveðri og fjölmargir áhorfendur í stúkunni. Leikurinn var hnífjafn allt til enda en KR-ingar höfðu betur á lokasprettinum og unnu 3-2 sigur. Uppskeran var mikil vonbrigði en framfarirnar bæði innan vallar og utan feikimiklar. Það var gífurlega gaman að þjálfa þennan skemmtilega hóp og við þjálfararnir erum þakklátir strákunum fyrir metnaðinn og áhugann sem þeir sýndu þessu verkefni. Það býr ótrúlega jákvæður kraftur í hópnum og það verður gaman að fylgjast með strákunum næstu ár. Minningar sumarsins 2017 munu lifa um ókomna tíð og reynslan hjálpa okkur í öllum þeim verkefnum sem framundan eru.

Bojana
Magnús Örn
ÍunnEir
Pétur
BirkirMár
ArnarÞór

Enter PIN

FYRIRFRAM GREITT ER FLJÓTLEGRA

Það er orðið enn þægilegra að panta hjá Domino’s, því nú er hægt að greiða fyrirfram um leið og pantað er á netinu eða með appinu. Þannig getur þú t.d. gengið frá heilli máltíð fyrir fjölskylduna án þess að vera á staðnum sem getur komið sér vel. Semsagt: Pikka, panta og borga. Verði þér að góðu!

-og málið er dautt

Gróttutríó í Ameríku

Það snjóar á Fróni þegar blaðamaður Gróttublaðsins sest niður með þeim Bjarna og Pétri Steini í vallarhúsi Gróttu á nöprum nóvemberdegi. Vetur konungur er mættur til leiks en það stoppar þó ekki yngstu iðkendur Gróttu sem æfa af fullu kappi úti á velli. Þeir Bjarni og Pétur skelltu sér báðir í stutta heimsókn til Íslands þar sem frí er í skólanum þá viku sem Bandaríkjamenn fagna þakkargjörðarhátíðinni. Hringt var í Arnar sem var staddur hjá ömmu og afa liðsfélaga síns í Tennessee þar sem hann fagnaði „Thanksgiving” í góðum félagsskap þarlendra.

Það er ekki úr vegi að byrja viðtalið á að spyrja strákana af hverju þeir hafi ákveðið að stökkva á tækifærið til að spila fótbolta og læra í Bandaríkjunum.

BR: Mér fannst þetta einfaldlega mjög spennandi. Þarna fær maður tækifæri til að vera öðruvísi en flestir sem fara í HÍ eða HR og auðvitað spilar inní að fá að spila fótbolta líka.

PS: Ég bjó í Bandaríkjunum þegar ég var lítill. Mig hefur alltaf langað til að búa þar einhvern tímann aftur og fannst þetta því spennandi.

AÞ: Það er margt í Bandaríkjunum sem heillar. Mér fannst vera tími til kominn að breyta aðeins til í lífinu og skoðaði því þennan möguleika. Mér leist vel á einn skólanna sem sýndi mér áhuga, Dayton University, og ákvað að slá til. Svo var maður líka kominn með smá leið á Serrano og XO.

Oft er talað um hve góður aðbúnaður íþróttafólks í bandarískum háskólum sé. Það séu miklir peningar í íþróttastarfinu og vel hugsað um íþróttafólkið. Hafa strákarnir fundið fyrir þessu?

BR: Ég myndi segja að sjúkraþjálfunin sé stærsti munurinn. Ef maður er eitthvað meiddur eða stífur þarf maður ekki að panta tíma og jafnvel bíða í nokkra daga til að hitta sjúkraþjálfara. Það er alltaf einhver á staðnum sem hefur nægan tíma til að sinna manni.

Síðasta haust lögðu þrír ungir Gróttumenn land undir fót og fluttust búferlum til Bandaríkjanna – í land hinna frjálsu og huguðu. Allir fengu þeir fullan skólastyrk í háskóla og stunda nú nám og leika fótbolta með skólaliðunum. Gróttublaðið ræddi við þá Arnar Þór, Bjarna og Pétur Stein um fótboltalífið vestanhafs.

PS: Tek undir með síðasta ræðumanni. Leikmenn eru mikið fljótari að ná sér af meiðslum því það er mikill metnaður lagður í sjúkraþjálfunina og hvernig hugsað er um íþróttamennina utan æfinga. Æfingaaðstaðan hjá okkur er líka mögnuð. Fjórir æfingavellir sem eru bara fyrir okkur og kvennaliðið. Einnig frábær lyftingasalur.

AÞ: Það er auðvitað mikill lúxus að geta komist til sjúkraþjálfara fyrir og eftir æfingar og svo kemur sjúkraþjálfari með okkur í alla leiki. Ég verð líka að nefna ferðalögin. Við ferðumst í ótrúlega þægilegri rútu sem er t.d. með rúmum og gistum á góðum hótelum til að fá næga hvíld fyrir leiki. Það er allt fyrsta flokks í kringum liðið.

BR: Við ferðumst eiginlega aldrei á leikdag. Þó það sé bara 2 tíma akstur förum við deginum fyrr og sofum á hóteli. Allt til að fá eins góða hvíld og hægt er.

Það er greinilegt að hugsað er vel um strákana hjá liðunum og mikill

Arnar Þór
Bjarni

Pétur Steinn

metnaður lagður í að íþróttafólkinu líði vel. En hvað er það sem þeir sakna helst frá Íslandi?

BR: Fótboltaþjálfunin í Bandaríkjunum er frekar skrýtin. Allavega í skólanum hjá mér. Það er mikið verið að pæla í andstæðingnum og æfingarnar eru ekki fjölbreyttar. Ég sakna því eiginlega dálítið að fara á skemmtilegar fótboltaæfingar.

AÞ: Þetta er svipað hjá mér. Líkamlega þjálfunin er mjög góð en fótboltapælingarnar eru komnar mikið lengra á Íslandi.

PS: Mér finnst hins vegar álagið vera mjög mikið og á erfitt með að venjast því. Maður er eiginlega dálítið lemstraður eftir að hafa spilað svona marga leiki á stuttum tíma.

Mæla strákarnir með því að ungir fótboltakrakkar skoði möguleikann á að fara til Bandaríkjanna á háskólastyrk?

PS: Já, klárlega! Það er svo margt jákvætt við þetta – maður fer langt út fyrir íslenska þægindarammann, námið er í hæsta gæðaflokki og svo kynnist maður fólki frá öllum heimshornum og stækkar tengslanetið.

Nafn: Arnar Þór Helgason

Aldur: 21 árs

Skóli: University of Dayton, Ohio

Gælunafn liðs: Flyers

Nafn: Bjarni Rögnvaldsson

Aldur: 21 árs

Skóli: St. John’s University, New York

Gælunafn liðs: Red Storm

Nafn: Pétur Steinn Þorsteinsson

Aldur: 20 ára

Skóli: James Madison University, Virginia

Gælunafn liðs: Dukes

AÞ: Sammála því, þetta er mikil tilbreyting frá íslenska lífinu. Það þarf samt að vanda valið vel, bæði hvað varðar skólann og liðið.

BR: Einmitt. Ég held að fyrir íslenska krakka sem eru vanir góðri þjálfun sé kannski ekki það besta að fara til eldri þjálfara sem er búinn að vera með sama liðið í meira en 20 ár.

PS: Ég hvet allavega alla til að skoða málið vel.

AÞ: Algjörlega. Ef þú ert ekki að fara í atvinnumennsku eða landsliðið er þetta tækifæri sem ætti að skoða vel. Styrkirnir eru þannig úr garði gerðir að skólagjöld eru felld niður og allt húsnæði og uppihald er greitt. Betra getur það varla verið.

Að lokum biðjum við strákana um að segja góða sögu frá þessum fyrstu mánuðum þeirra í háskólaboltanum.

BR: Ég bý í Queens, nánar tiltekið í Jamaica hverfinu. Það er mikið líf og fjör í nágrenninu og ég held stundum að ég sé eini hvíti maðurinn í hverfinu. Átti t.d. hjól í 27 daga en svo var því stolið. Maður þarf líka að fara í gegnum vopnaleit áður en farið er í bíóið í hverfinu.

En innan vallar var hápunkturinn klárlega þegar við unnum Georgetown skólann 1-0 á heimavelli. Þeir eru taldir vera með eitt besta lið landsins svo þetta var mikill sigur.

PS: Þetta byrjaði skrautlega hjá mér en ég þurfti að dansa í 30 sekúndur fyrir framan allt liðið á vígsluathöfninni. Það gekk reyndar ljómandi vel og endaði ég í “dance-off” við besta dansara liðsins! Þetta var erfitt en eftirá fannst mér ég vera kominn inn í fjölskyldu.

AÞ: Fyrsta heimaleikinn á tímabilinu byrjaði ég frammi! Hef ekki spilað sem framherji síðan í 5. flokki en þjálfarinn vildi fá stóran og sterkan mann í framlínuna með hinum léttleikandi Alvaro frá Spáni. Mér gekk ágætlega en við lentum 1-0 undir í fyrri hálfleik. Rétt fyrir lok leiksins fæ ég boltann, fer fram hjá einum varnarmanni og þruma honum í markið með vinstri. Það voru 1000 manns á vellinum, allt trylltist og ég endaði á að hlaupa inn í áhorfendahópinn til að fagna. Augnablik sem ég mun aldrei gleyma.

Gróttublaðið þakkar strákunum kærlega fyrir spjallið og óskar þeim góðs gengis í baráttunni í bandaríska boltanum.

GÓÐ RÁÐ

Gróttublaðið hafði samband við tvo frábæra leikmenn og fyrirmyndir úr landsliðinu sem voru til í að gefa áhugasömum Gróttukrökkum góð ráð.

Hallbera Guðný Gísladóttir

NÆRING

Ég er ekki beint týpan sem spái allt of mikið í næringu en lifi þó eftir þeirri reglu að borða hollan og góðan mat úr almennilegu hráefni dags daglega. Ég er hinsvegar ekkert hrædd við að fá mér pizzu eða franskar en passa mig að gæta hófs. Á leikdegi er auðvitað mikilvægt að næra sig vel og þá finnst mér gott að borða mjög vel kvöldið áður og í hádeginu ef t.d leikurinn er um kvöldið. 3 tímum fyrir leik fæ ég mér svo eitthvað létt eins og t.d ristað brauð og banana.

SVEFN

Eftir því sem maður verður eldri og reyndari finnur maður hvað góður svefn ásamt góðri næringu getur gert mikið fyrir mann. Það er algjört lykilatriði að hvílast vel og mæli ég sérstaklega með því að reyna að sleppa því að vera í símanum/tölvunni rétt áður en farið er að sofa. Einnig ætti síminn helst ekki að vera

Hörður Björgvin Magnússon

NÆRING

Það er mjög mikilvægt að borða hollan og trefjaríkan mat. Leyfa sér bara allskonar gotterí um helgar (laugardögum) og borða reglulega. Það er mjög mikilvægt til þess að styrkja sig og ef maður borðar rétt og vel þá líður manni vel í líkamanum.

SVEFN

Það er alltaf mikilvægt að sofa vel. Farið snemma að sofa til að hafa nægu orku daginn eftir.

AUKAÆFINGAR

Eftir æfingar er yfirleitt lengur á vellinum. Þegar ég var í yngri flokkum Fram þá var ég oft í marga klukkutíma eftir æfingar að æfa aukaspyrnur, löng skot og sendingar. Það er mjög mikilvægt til að ná enn frekari framförum í íþróttum, að leggja þetta auka á sig.

inni í svefnherberginu yfir nóttina en í mínu tilfelli nota ég hann sem vekjaraklukku en passa þá að hann sé alltaf á silent og að skjárinn snúi niður svo maður verði ekki var við að ljós kvikni á skjánum.

AUKAÆFINGAR

Ef þú ert með ákveðinn eiginleika sem er augljóslega betri en hjá öðrum liðsfélögum t.d góð/ur í að skalla eða taka aukaspyrnur, ekki láta þar við sitja. Æfðu þig á þessum tiltekna hæfileika aftur og aftur og aftur. Það sama á við ef þú ert ekki nógu góður í einhverjum atriðum. Endirtekningar og aukaæfingar eru það sem getur gert þig að framúrskarandi leikmanni.

STRESS

Stundum getur verið gott að finna fyrir smá fiðrildum í maganum áður en maður fer að spila, en um leið og maður missir tökin á stressinu og verður hræddur við að gera mistök er voðinn vís. Lykilatriði er að leyfa stressinu ekki að ná tökum á þér og aldrei efast um eigin hæfileika inni á vellinum. Það gerir engum gott.

STRESS

Það kemur stundum fyrir að maður fái fiðring og það er bara jákvætt. Það er spenna að fara út á völlinn og spila og það er gott að reyna að breyta stressinu yfir í jákvæða orku og þá skilar það vonandi sér á vellinum.

MISTÖK

Það munu ALLIR gera mistök inni á vellinum en munurinn liggur svo í því hvernig þú tekst á við mistökin. Sjálf hef ég margoft gert mistök í leikjum og það hefur verið mis erfitt að vinna sig út úr þeim. Það sem mér finnst best að gera er að einbeita mér að litlu atriðunum eftir að hafa gert mistök, t.d að hugsa um að klára einfalda sendingu á næsta mann í staðin fyrir að hugsa að ég verði að eiga úrslitasendingu til að bæta upp fyrir mistökin. Þannig vinnur maður sig aftur inn í leikinn og útilokar mistökin.

MISTÖK

Maður lærir af mistökum. Aldrei vera hrædd/ur við að gera mistök, það gera allir mistök og mikilvægasta er að læra af þeim. Besti körfuboltamaður allra tíma, Michael Jordan, á einhver bestu ummæli allra tíma í auglýsingu fyrir Nike að mig minnir. Hann sagðist hafa gert ótal mistök á ferlinum en þau væru einmitt ástæðan fyrir því að hann hefði náð árangri. Mjög mikilvægt að hafa það á bak við eyrað.

GRÓTTUFÓLK

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR

Mynd: Ernir Eyjólfsson, visir.is
Myndasafn KSÍ

og Jóhannesi sem bæði spila með meistaraflokki

Sé ekki eftir einni mínútu

Viðtal við Hilmar Sigurðsson fyrrverandi formann knattspyrnudeildar

Ekki er langt síðan að knattspyrnudeild Gróttu var eftirbátur flestra fótboltaliða á höfuðborgarsvæðinu.

Fyrir 15 árum var enginn kvennaflokkur við störf hjá deildinni og meistaraflokkur karla hafði nýlega verið endurreistur eftir nokkurra ára fjarveru frá deildarkeppni. Aðstaðan var heldur ekki merkileg og á Nesinu snerist einfaldlega allt um handbolta.

Pabbaæfingar á laugardögum

Um þetta leyti, upp úr aldamótum, fóru nokkrir feður drengja sem æfðu fótbolta hjá Gróttu að verða áhugasamir um að efla starfið hjá félaginu. Næg voru verkefnin. Hilmar Sigurðsson var einn þeirra og tók hann við formensku hjá knattspyrnudeild Gróttu árið 2002. Það var byrjunin að sannarlega löngum og viðburðaríkum ferli en Hilmar lét af formennsku í apríl á þessu ári. Í tilefni af því ræddi Gróttublaðið við Hilmar og fór ofan í saumana á þeim miklu breytingum sem hafa orðið síðustu ár.

„Við fluttum á Nesið árið 1996 og tveimur árum síðar fór Jóhannes sonur minn að mæta á æfingar hjá Gróttu. Það voru margir strákar að

æfa en við vorum nokkrir áhugasamir pabbar sem fannst þurfa að gera betur. Nokkrum sinnum mætti þjálfarinn ekki á laugardagsæfingar og urðum við þá að bregða okkur í hlutverk þjálfara. Það gekk reyndar ágætlega og voru strákarnir ánægðir með þessar pabbaæfingar,“ segir Hilmar brosleitur og heldur áfram.

„Skagamótið hefur alltaf verið vinsælasta mótið hjá 7. flokki. Þegar Jóhannes og félagar komu upp í 7. flokk var ekki á dagskrá að fara á mótið. Raunar hafði Grótta skráð sig til leiks árið á undan en ekki mætt og var félagið því á svörtum lista Skagamanna! Nokkrir foreldrar mynduðu foreldraráð og sáu til þess að Grótta yrði með og strákarnir fengju að

upplifa stórt sumarmót eins og tíðkaðist hjá öðrum félögum.“

Aukinn metnaður Eftir nokkur ár í foreldrastarfinu bauðst Hilmari að koma inn í stjórn knattspyrnudeildarinnar. Þátttaka í knattspyrnu var að aukast á Nesinu með fjölmennum árgöngum og sáu menn framtíðartækifæri blasa við.

„Ég man ekki nákvæmlega hvenær það var en um 2002 var mér boðið að koma inn í stjórn knattspyrnudeildar Gróttu og verða formaður. Helsta verkefnið var að fá í gegn að gervigras yrði lagt á Ísbjarnarlóðinni gömlu strax ári síðar. Það gekk reyndar ekki eftir – sennilega sem betur fer því í dag hefur Grótta ótrúlega

Hilmar með Hildi Sif
Gróttu.
Hilmar og Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, skrifa undir samstarfssamning Gróttu og KR í kvennaboltanum haustið 2013.

það að lokum bæjarbúar sem ákváðu að hann skyldi leggja við Suðurströnd en ekki við hlið íþróttahússins.

„Gaui Kristins (Guðjón Kristinsson) var yfirþjálfari á þessum tíma og réði hann Björgvin Finnsson til starfa hjá Gróttu. Ég tel að þar hafi afar mikilvægt skref verið stigið því með Bjögga kom eldmóður og metnaður inn í deildina sem hafði sárlega vantað. Ekki löngu síðar sneri Júlli (Júlíus Ármann Júlíusson) aftur á Nesið og smám saman fór að verða allt annar bragur á starfinu,“ segir Hilmar.

Já boltinn var sannarlega byrjaður að rúlla.

Meistaraflokksævintýrið

„Fyrstu árin í stjórninni snerust eingöngu um yngri flokka starfið. Fyrst um sinn aðeins hjá strákunum en um 2005 fór kvennaboltinn af stað.“ Ásmundur Haraldsson tók við þjálfun meistaraflokks Gróttu árið 2005 en þá var meistaraflokkur rekinn utan stjórnarinnar. Hilmar og félagar töldu að til að félagið yrði tekið alvarlega yrði að leggja aukinn metnað í starf meistaraflokksins.

„Það var mikill kraftur í stjórninni og frábærir menn sem völdust í starfið. Okkur fannst mikilvægt að félagið tæki almennilega ábyrgð á meistaraflokknum og hófst gott samstarf við Ása í upphafi ársins 2007. Við reyndum að hafa umgjörðina góða og markmiðið var að leikmönnum liði vel í Gróttu. Þá voru stjórnarmenn á borð við Árna Péturs, Bigga Hákonar, Jón Sig og Sigga Hilmars betri en enginn og fundu

Hilmar og Birgir Hákonarson handsala samning við goðsognina

leikmenn liðsins sterkt fyrir því hve vel var hugsað um þá þrátt fyrir að liðið væri bara í 3. deild. Við fórum upp þarna um haustið, spiluðum í 2. deild í tvö ár áður en Grótta komst upp í 1. deild í fyrsta sinn haustið 2009.“

Fullorðið félag

Eins og áður sagði var gervigras lagt árið 2006 og árið 2009 var félagsaðstaða knattspyrnudeildarinnar vígð við hlið vallarins. Hilmar segir að samstarfið við Seltjarnarnesbæ hafi alltaf verið gott og hrósar hann Ásgerði Halldórsdóttur bæjarstjóra í hástert:

„Í allri minni formannstíð var samstarfið við bæinn mjög gott og er sómi af því hve vel hæstráðendur hafa stutt við íþróttastarfið hér í bænum. Ég verð að nefna Ásgerði bæjarstjóra sérstaklega í því samhengi en hún á stóran þátt í því hvert við erum komin í dag.“

En hvert erum við komin í dag? Hilmar steig til hliðar sem formaður fyrr á árinu og því er ekki úr vegi að spyrja hvað hann er ánægðastur með þegar litið er um öxl.

„Það hefur verið frábært að sjá félagið vaxa og dafna síðustu ár. Það má eiginlega segja að Grótta sé orðið fullorðið félag eftir að hafa verið hálfgerður unglingur með frekar lélegt sjálfsmat fyrir ekki svo löngu síðan. Í gamla daga hlökkuðu allir til að mæta Gróttu og vinna stórt en í dag erum við tekin alvarlega. Yngri flokka starfið tók miklum framförum þegar ég var að fylgjast með Jóhannesi á sínum tíma en síðan þá hafa framfarirnar bara haldið áfram,“ segir Hilmar og bætir við:

„Hildur dóttir mín byrjaði að æfa fótbolta 10 ára gömul og er nú í 2.

flokki og meistaraflokki. Í dag eru fleiri en 100 stelpur í fótbolta hjá Gróttu og meistaraflokkur tekinn til starfa. Það er virkilega ánægjulegt en að sama skapi ótrúlegt að það hafi tekið heilt íþróttafélag 40 ár að bjóða upp á fótbolta fyrir stelpur“.

Vinskapur og dýrmætar minningar

„Það hefur verið frábært fyrir mig að fylgjast með börnunum mínum fara upp yngri flokkana í Gróttu og fá að vera virkur þátttakandi í starfinu á sama tíma.

Þó ég sé ekki formaður lengur er ég í meistaraflokksráði kvenna og reyni þar að hjálpa til við að bæta umgjörðina hjá stelpunum svo þær geti haldið áfram að bæta sig. Ég sé ekki eftir einni mínútu sem ég hef eytt í sjálfboðaliðastarfi í Gróttu og þakka frekar fyrir góðan vinskap og dýrmætar minningar.“

Að lokum spyrjum við formanninn fyrrverandi hvernig hann sjái fyrir sér næstu 15 ár hjá Gróttu?

„Það er stór áskorun að halda metnaðinum áfram og vilja alltaf gera betur þó að félagið sé í fínum málum í dag. Peningar spila auðvitað inní og ég tel að það þurfi að fara í markvissa vinnu við að styrkja fjárhag deildarinnar. Mikilvægt er að gera langtímaáætlanir og jafnvel ráða starfsmann til að halda utan um þessi mál – það gæti skilað sér til frambúðar.“

Gróttublaðið notar tækifærið og þakkar Hilmari kærlega fyrir vel unnin störf í þágu knattspyrnudeildarinnar síðustu ár. Hann og samverkamenn hans ruddu brautina fyrir komandi kynslóðir knattspyrnufólks á Nesinu.

Hilmar færir Pétri Má Harðarsyni viðurkenningu fyrir 100 leiki fyrir hönd Gróttu.
Kristján Finnbogason sem lék með Gróttu á árunum 2009-2011.

Meistaraflokkur kvenna

Stórt skref var stigið í sögu kvennaboltans í Gróttu árið 2016 þegar meistaraflokkur kvenna tók til starfa. Of snemma sögðu sumar úrtöluraddir en stelpurnar voru klárar í slaginn með þjálfarann þrautreynda Guðjón Kristinsson við stjórnvölin Fyrsta árið var sannarlega erfitt og endaði Gróttuliðið langneðst í 1. deild með ekkert stig.

Í stað þess að leggja árar í bát tvíefldust Gróttustelpurnar og mættu klárar í bátana í nýstofnaða 2. deild kvenna vorið 2017. Ekki aðeins voru upphaflegir liðsmenn búnir að stilla betur saman strengi heldur höfðu öflugir leikmenn á borð við Hrafnhildi Fannarsdóttur, Írisi Dögg Gunnarsdóttir og Stígheiði Sól Einarsdóttur bæst í hópinn.

Undirbúningstímabilið gekk vel og fór liðið í vel heppnaða æfingaferð til Króatíu með meistaraflokki karla um páskana. Þar var æft tvisvar á dag við bestu aðstæður og flatmagað í sólinni þess á milli. Reyndar var hótelgarðurinn lokaður vegna kulda þegar Gróttuhópurinn mætti á svæðið en fljótlega komust starfsmenn hótelsins að því að 17°C er ljómandi fínn hiti á íslenskan mælikvarða.

Snemma sumars duttu stelpurnar út úr bikarnum í fyrstu umferð eftir æsispennandi leik á móti 1.deildarliði ÍR. Raunar munaði aðeins hársbreidd að Tinna, sem skoraði mark Gróttu í leiknum, næði að jafna rétt fyrir leikslok

og tryggja framlengingu. En svo fór sem fór.

Íslandsmótið byrjaði á stórtöpum á móti Augnabliki og Fjölni en hinn 27. maí héldu stelpurnar til Austurlands og léku tvo leiki á tveimur dögum við Einherja og sameinað lið Hattar/Fjarðabyggðar/ Leiknis F. Þar gerðu okkar konur sér lítið fyrir og unnu báða leikina og boltinn var byrjaður að rúlla fyrir alvöru. Tveir sigrar til viðbótar fylgdu í kjölfarið og voru Gróttustelpur að festa sig í sessi í efri hluta deildarinnar. Stemningin var mikil og gleðin skein út úr hverju andliti.

Þegar upp var staðið endaði Gróttuliðið í 6. sæti deildarinnar með 25 stig. Gaman er að segja frá því að Grótta var með næstbestan árangur allra liða á heimavelli en á Vivaldivellinum unnu stelpurnar fimm leiki, gerðu eitt jafntefli og töpuðu tveimur. Nú hafa Gróttukonur lagt línurnar og undirstrikað að þær ber að taka alvarlega. Á sama tíma hafa þær sett pressu á sjálfan sig um að halda áfram að taka framförum og það verður óneitanlega mjög spennandi að fylgjast með Gróttuliðinu næsta sumar.

Gaui Kristins á síðasta orðið: „Þetta var frábært ár og ég er mjög stoltur af stelpunum. Þetta er langtímaverkefni sem hófst í fyrra og nú erum við komin eitt skref áfram. Næsta skref tökum við árið 2018 og verðum öll að leggja enn meira á okkur til að það takistþjálfarar, leikmenn og stjórn. Ég vona sannarlega að

Gróttufólk taki þátt í þessu með okkur og verði duglegt að mæta á völlinn í sumar og styðja við bakið á liðinu!“

Ar n a ís- og k affibar

Verið velkomin til okkar á Eiðistorgið

Við bjóðum upp á kaffi og ótal bragðtegundir af dásamlegum Örnu ís í notalegu umhverfi.

Svo erum við með skemmtilegt barnahorn fyrir börnin.

Suðurströnd

OPIð 9-21

Þjálfarar knattspyrnudeildar

Alexandre Fernandez Massot 3.fl.kvk Axel Ingi Tynes 7.fl. kk og 8.fl. kk og kvk

Bjarki Már Ólafsson 7.fl. kvk

Björgvin Koustav Hreinsson markmannsþjálfun

8. flokkur karla 2012-2013

8. flokkur kvenna 2012-2013

7. flokkur karla 2010-2011

7. flokkur kvenna 2010-2011

6. flokkur karla 2008-2009

6. flokkur kvenna 2008-2009

5. flokkur karla 2006-2007

5. flokkur kvenna 2006-2007

4. flokkur karla 2004-2005

4. flokkur kvenna 2004-2005

3. flokkur karla 2002-2003

3. flokkur kvenna 2002-2003

Valdimarsson 4.fl.kvk, 5.fl.kk og 7.fl. kk

Bjargey Ólafsdóttir 6. fl. kvk og 7.fl. kvk

Arnar Þór Axelsson 4. fl. kk
Björn
Bojana Besic 4. fl.kvk

Gróttu 2017/2018

Eydís Lilja Eysteinsdóttir 6. fl. kvk

Íris Dögg Gunnarsdóttir meistaraflokkur kvenna

Magnús Örn Helgason 2.fl.kvk, 3.fl.kk og 6.fl.kvk

Guðjón Kristinsson meistaraflokkur kvenna

Íunn Eir Gunnarsdóttir 2.fl.kvk

Óskar Hrafn Þorvaldsson 3.fl.kk og meistarafl. karla

Guðjón Þór Ólafsson 2.fl.kk og 4.fl.kk

Kamilla Brá Brynjarsdóttir 5. fl.kvk

Pétur Rögnvaldsson 3.fl.kvk og 6.fl.kk

Halldór Árnason 2.fl.kk, 5.fl.kk og meistarafl. karla

Kristján Daði Finnbjörnsson 6.fl.kk

Þóra Kristín Jónsdóttir 5.fl.kvk

Rafvirkjar sf

óska Gróttufólki gleðilegra jóla og þakka fyrir samstarfið á liðnum árum

Í TAKKASKÓNA Á NÝ

Viðtal við Guðna Bergsson formann KSÍ

Spennan var rafmögnuð í Höllinni í Vestmannaeyjum hinn 11. febrúar 2017. Fulltrúar á ársþingi KSÍ voru að kjósa nýjan formann sambandsins og voru tveir í framboði, þeir Björn Einarsson og Guðni Bergsson. Báðir

ólmir í að komast í lykilstöðu til að auka veg íslensku knattspyrnunnar.

Landsliðsfyrirliðinn fyrrverandi hafði betur og hafa fyrstu mánuðir

Guðna í starfi verið viðburðaríkir. Í sumar fylgdi hann stelpunum okkar

á EM í Hollandi og í haust tryggðu strákarnir sér sæti á HM í fyrsta sinn í sögu íslenskrar knattspyrnu.

Guðni, sem er nýkominn heim frá Rússlandi þar sem HM verður haldið næsta sumar, kom í heimsókn á Vivaldivöllinn, ræddi við Gróttublaðið og fylgdist með öðru auganum með annasömum degi á gervigrasinu.

„Það sem stóð samt upp úr var hve jákvæða athygli Ísland er að fá í fótboltaheiminum.“

Með Lineker í Moskvu

„Þetta var stórt í sniðum og mikil upplifun,“ segir Guðni aðspurður um HM-dráttinn í Moskvu þar Ísland var í pottinum í fyrsta sinn. En hvernig líst formanninum á riðil Íslands? „Það er auðvitað stórkostlegt að Ísland sé að fara að mæta Argentínu með Messi innanborðs. Ég hefði sennilegið kosið annan mótherja en Króatíu og svo verður spennandi að mæta Nígeríu.“ Eins og kunnugt er er Guðni fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu og hitti marga fyrrum félaga og andstæðinga í Moskvu: „Það var gaman að hitta gamla félaga úr boltanum. Jay-Jay Okocha fyrrum samherji minn hjá Bolton var feikilega ánægður með að Ísland og Nígería myndu mætast. Ég heilsaði uppá Gary Lineker sem ég lék með hjá Tottenham og svo voru fleiri góðir þarna sem maður kannaðist við. Það sem stóð samt upp úr var hve jákvæða athygli Ísland er að fá í fótboltaheiminum.

Fólk er hrifið af þeim frábæra árangri sem íslensku landsliðin hafa náð og spyr mikið um starfið á Íslandi. Fyrir okkur sem erum í forystu er gríðarlega mikilvægt að taka öllu þessu hrósi af auðmýkt, halda sér á jörðinni og einbeita

sér að því að undirbúa næsta sumar. Miðamálin eru nú í deiglunni – okkur er úthlutað 3.200 miðum á leik sem er auðvitað allt of lítið. Íslendingar munu fjölmenna til Rússlands,“ segir Guðni sem er í óeiginlegri merkingu búinn að reima á sig takkaskóna á ný þó að stríðin séu nú háð utan vallarins.

Goðsögn hjá

Bolton

Guðni er fæddur og uppalinn Valsari en hann gekk til liðs við Tottenham árið 1988, þá 23 ára gamall. „Það er í raun alveg galið að ég hafi verið keyptur beint til Tottenham frá Val á Íslandi. Þetta myndi aldrei gerast í dag. Samt sem áður var ég hundfúll að spila ekki hvern einasta leik á fyrsta tímabilinu mínu með Tottenham,“ segir Guðni og hlær. Guðni gekk svo til liðs við Bolton árið 1995 en þar átti hann sín bestu ár í boltanum. Var fyrirliði liðsins, spilaði 318 leiki og er enn sannkölluð goðsögn hjá félaginu. Guðni var einnig lykilmaður í landsliðinu

og fyrirliði þess frá 1993 til 1997. Nú, 20 árum síðar, hefur ýmislegt breyst hjá íslenska landsliðinu að sögn Guðna: „Fyrst og fremst hefur öll fagmennska og aðbúnaðar landsliðsins aukist. Í dag fylgja þrír sjúkraþjálfarar og einn læknir liðinu en í minni tíð höfðum við einn nuddara og lækni. Breiddin er líka mikið meiri í dag og sjálfstraustið hefur aukist. Það er meðal annars afleiðing góðs árangurs Þegar ég var að spila lék hellingur af hæfileikaríkum leikmönnum með íslenska landsliðinu en þá áttum við færri atvinnumenn og því breiddin í leikmannahópnum minni.“

Áfram veginn

Það er óhætt að segja að síðustu ár hafi verið draumi líkust fyrir íslenskan fótbolta. Kvennalandsliðið hefur í þrígang leikið á EM, karlaliðið sló í gegn á EM í fyrra og er nú á leið á sjálft heimsmeistaramótið á næsta ári. Fótbolti er vinsælasta íþrótt á íslandi, menntunarstig þjálfara er hvergi hærra en hér á landi og KSÍ er það sérsamband sem hefur úr langmestum peningum að spila í íslenskum íþróttum.

„Það er í raun alveg galið að ég hafi verið keyptur beint til Tottenham frá Val á Íslandi. Þetta myndi aldrei gerast í dag.“

Guðni í leik með landsliðinu á móti Rúmeníu árið 1996. (Mynd: DV - Brynjar Gauti)
Guðni með goðsögninni Marco van Basten og Klöru Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ.

Við spyrjum Guðna hvernig hann sjái næstu ár fyrir sér og hvaða leiða KSÍ muni leita til að viðhalda þessum frábæra árangri.

„Þetta er vissulega mikil áskorun. Að horfa fram á veginn á sama tíma og við sinnum verkefnum líðandi stundar eins vel og kostur er. Ég tel að frábært starf hafi verið unnið í A-landsliðunum síðustu ár og nú er lag að reyna að koma þeirri þekkingu sem þar hefur skapast og þeim aðferðum sem hefur verið beitt niður í yngri landsliðin. Þar eigum við inni sóknartækifæri en ég tel að gott skref hafi verið stigið þegar yngri landsliðsþjálfarar voru ráðnir í fullt starf í fyrra. Ég vil að við köllum okkar efnilegustu leikmenn oftar saman til æfinga, þá sérstaklega yfir vetrartímann þegar leikjaálag er ekki mikið. Þá verður KSÍ að styðja vel við aðildarfélögin og ég sé fyrir mér meira samstarf við yfirþjálfara félaganna á næstu árum. Svo megum við heldur ekki gleyma að íslenskur fótbolti er blanda af uppeldis- og afreksstefnu og til að við getum viðhaldið árangri þarf að huga vel að báðum þáttum. Annars staðar í heiminum er þetta yfirleitt aðskilið þar sem foreldrar þjálfa krakkana upp að vissum aldri þegar stóru félögin handvelja þá bestu inn. Þessi blöndun er okkar sérstaða og ákveðinn sjarmi sem henni fylgir en við verðum þó alltaf að halda vel á spöðunum þegar okkar efnilegustu leikmenn eru annars vegar.“

Yfirmaður knattspyrnumála Í framboði sínu til formanns lagði Guðni mikla áherslu á að KSÍ myndi ráða yfirmann knattspyrnumála til starfa. Hann gerir ráð fyrir að hugmyndini verði hrint í framkvæmd á næsta ári: „Já það er stefnan að ráða hæfan aðila sem yfirmann knattspyrnumála á næsta ári. Flest knattspyrnusambönd í Evrópu hafa slíkan starfsmann svo það er ekki eins og ég sé að finna upp hjólið. Kostnaður KSÍ við landsliðin er um 700 milljónir á ári og ég tel mjög eðlilegt að það sé sérstakur yfirmaður við störf á því sviði til að nýta fjármunina sem best og styrkja faglega hlutann. Aðildarfélögin eru mörg með yfirþjálfara en ekki KSÍ.“ En er þá verið að leita að erlendum aðila þar sem að ekki er hefð fyrir þessari stöðu á Íslandi? „Nei ég tel æskilegt að það verði ráðinn Íslendingur. Það mun taka tíma að móta starfið og því væri best að fá einhvern sem þekkir íslensku fótboltamenninguna vel.“

Lengi býr að fyrstu gerð

Guðni fylgdi stelpunum okkar til Hollands í sumar þar sem þær léku í lokakeppni EM. Umfjöllun um liðið hefur aldrei verið meiri og stuðningur áhorfenda var frábær: „Þetta var

skemmtilegur tími og ómetanlegt fyrir mig sem nýjan formann að fá að taka þátt í stórmóti. Stuðningurinn sem stelpurnar fengu var magnaður og var umtalað að ekkert lið fyrir utan heimaliðið Holland hefði öflugri áhorfendur. Vissulega náðum við ekki í þau úrslit sem við hefðum viljað og fórum heim án stiga. Fyrsti leikurinn við Frakkland var þó reglulega góður en sýnir hvað það er stutt á milli í þessu.“ Eftir mótið kepptust sparkspekingar við að greina lakan árangur íslenska liðsins.

Margir töldu að Ísland væri að verða eftirbátur annarra þjóða hvað varðaði tæknilega getu leikmanna. Þá nefndi Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari í frægu viðtali við Gróttublaðið í fyrra að hann hefði áhyggjur af því hve fáar efnilegar stelpur hafi komið fram á sjónarsviðið á síðustu árum. Guðni telur mikilvægt að sýna stillingu þó að alltaf sé mikilvægt að rýna til gagns. „Í þessu samhengi langar mig að nefna glæsilegan sigur stelpnanna á Þjóðverjum í október. Ég held að hann hafi verið vísbending um að við séum ennþá í flokki þeirra þjóða sem standa framarlega í kvennaboltanum þó að mikilvægt sé að vera á tánum. Við rýndum vel í EM þegar heim var komið en ég tel að sjálfsskoðun sé alltaf holl. Við þurfum að skoða vel hvernig þjálfun er háttað hjá allra yngstu iðkendunum. Okkur finnst allt of mikill munur vera í getu mjög ungra krakka en líkamlega er ekki mikill munur á stelpum og strákum í 7. flokki. Samt virðast strákarnir í langflestum tilvikum vera mikið lengra komnir en stelpurnar og við erum að tala um 8 ára börn! Ef við viljum auka

Guðni og Ryan Giggs.
Guðni og Jay-Jay Okocha.
„Kostnaður KSÍ við landsliðin er um 700 miljónum á ári og ég tel mjög eðlilegt að það sé sérstakur yfirmaður við störf á því sviði til að nýta

fjármunina sem best og styrkja faglega hlutann.“

líkurnar á að eignast afgerandi og hvetja félögin til að sýna metnað í þeim efnum,“ segir Guðni.

Finnur kraftinn í Gróttu

Eftir tvo góða kaffibolla og mikið spjall labbar Guðni með ritstjóra Gróttublaðsins um Vivaldivöllinn og fylgist með því sem fyrir augu ber. Það kalt í veðri en algjört logn, dæmigert blíðskaparveður á Nesinu. „Grótta er með ótrúlega góða aðstöðu hérna og

GRÓTTUFÓLK

vallarstæðið er virkilega fallegt,“ segir Guðni og heldur áfram að tala um sína upplifun af félaginu: „Maður finnur greinilega að hér er mikill metnaður í gangi og ég hef heyrt vel talað um þjálfarateymið sem starfar við yngri flokkana. Það er kraftur í Gróttu.“ En hver er skoðun Guðna á muninum á litlum og stórum félögum? Hvernig getur lítið félag eins og Grótta haft áhrif í íslenskum fótbolta? „Það eru ýmis tækifæri fyrir lítil félög. Gleymum ekki

að miklum fjölda iðkenda fylgja oft ýmis vandamál á meðan minni félögin geta ef til vill gefið hverjum og einum leikmanni meiri athygli þar sem hóparnir eru ekki stórir. Þrátt fyrir að stóru félögin nái oft langt í krafti fjöldans geta minni félög unnið gríðarlega gott starf í að þróa sína leikmenn og hjálpað þeim að ná langt. Ég tel að Grótta sé einmitt dæmi um félag sem er að gera vel í þeim efnum.“

Guðni lék yfir 300 leiki með Bolton Wanderers.

U15

Spiluðu sína

fyrstu

landsleiki

Í haust var U15 ára landslið drengja í knattspyrnu valið í fyrsta sinn í áraraðir. Liðið lék þá tvo

leiki við frændur okkar frá Færeyjum, annan í Egilshöllinni og hinn á Akranesi.

Skemmst er frá því að segja að þrír Gróttumenn tryggðu sér sæti í 22 manna hópi Íslands, þeir

Grímur Ingi Jakobsson, Krummi Kaldal og Orri Steinn Óskarsson. Allir voru þeir lykilmenn

í 4. flokki Gróttu í sumar og stóðu sig vel á Hæfileikamóti KSÍ sem haldið var í september.

Grímur leikur sem miðjumaður en hann var í byrjunarliði Íslands í fyrri leiknum við Færeyjar sem lauk með 5-1 sigri okkar manna. Krummi er markvörður og spilaði seinni leikinn á móti Færeyjum. Þar gerði Krummi sér lítið fyrir og varði víti í fyrri hálfleik og hélt íslenska markinu hreinu í öruggum 7-0 sigri. Orri Steinn kom inná sem varamaður í báðum leikjunum en hann lagði upp eitt og var nálægt því að skora í seinni leiknum. Orri spilar sem framherji og var markahæsti leikmaður B-deildar Íslandsmótsins í sumar með 23 mörk í 10 leikjum.

Frábærlega gert hjá drengjunum þremur og vonandi munu fleiri Gróttumenn- og konur feta í þeirra fótspor á næstu misserum.

GLEÐILEG JÓL Í SVEIT OG BORG

Toyota á Íslandi óskar þér og fjölskyldu þinni gleðilegra jóla. Það var gaman að fá að vera með í för á árinu sem er að líða og við hlökkum til að eiga enn fleiri samverustundir með þér og þínum nánustu á nýju ári.

Toyota Kauptúni Kauptúni 6

Garðabæ

Sími: 570-5070

Toyota Akureyri Baldursnesi 1

Akureyri Sími: 460-4300

Toyota Reykjanesbæ

Njarðarbraut 19

Reykjanesbæ Sími: 420-6600

Toyota Selfossi Fossnesi 14

Selfossi

Sími: 480-8000

2. flokkur í Bosön

Síðastliðið vor héldu strákarnir í 2. flokki í æfingaferð til Svíþjóðar, nánar tiltekið til Bosön sem er einn af mörgum hólmum sem lúra fyrir utan höfuðstaðinn Stokkhólm.

Tveir leikmenn flokksins, þeir Jón Friðrik og Þór Guðjónssynir segja nú frá:

Eins og allar góðar fótboltaferðir hófst þessi á bílastæðinu góða fyrir ofan vallarhúsið. Lagt var í hann klukkan þrjú aðfaranótt miðvikudagsins 31. maí og náðu undirritaðir ekki að festa svefn áður en lagt var af stað. Spennan var jú gríðarlega en tíminn ókristilegur. Allir mættu þó galvaskir á hárréttum tíma... eða svona flestir (nefnum engin nöfn en hann byrjar á D og endar á aði Már P. Jóhannsson)... og ferðin til Bosön var hafin.

Við lentum á Arlanda flugvellinum og vorum sóttir á tveggja hæða rútu. Ferðamátinn vakti kátínu hjá þeim sem voru óreyndari í rútuferðum en aðrir reyndari í þeim efnum kipptu sér lítið upp við það. Við vorum mættir til Bosön um hádegisbil, komum okkur fyrir í fínum herbergjum, fórum í hádegismat og sáum strax að þarna var aðstaðan

fyrsta flokks. Á svæðinu æfa nefnilega sænskir afreksíþróttamenn allt árið en fyrsta daginn hittum við sænska fótboltalandsliðið sem var að undirbúa sig fyrir mikilvæga leiki.

Þessi ferð var fyrst og fremst æfingaferð og æfðum við einu sinni til tvisvar á dag. Sáu þeir Bjarki Már Ólafsson (head coach) og Arnar Axelsson (hax coach) um æfingar ferðarinnar og hafði Magnús Örn Helgason (Póló) yfirumsjón með hópnum. Þjálfararnir héldu einnig einstaklingsfundi með öllum leikmönnum og var Maggi með góðan fyrirlestur fyrir hópinn eins og honum einum er lagið. Þó var ferðin ekki einvörðungu harðsvífin æfingaferð (HNEFI!) heldur mátti líka gera sér glaðan dag, í hófi. Farið var í hópeflandi ferðir um glæsilegan miðbæ Stokkhólms og nokkrar ýktar myndir

teknar fyrir grammið (@bjarkiolafs). Þeir sem vildu verzla sér tískuföt fengu eitthvað fyrir sinn snúð og auðvitað var farið á McDonald’s og þar með tilgangi ferðarinnar náð hjá einhverjum.

Strákarnir í miðborg Stokkhólms.

Margt skemmtilegt dreif á daga okkar

Gróttumanna í ferðinni. Til dæmis var gaman að fylgjast með sænska landsliðinu við æfingar þrátt fyrir að Zlatan hafi vantað í hópinn. En ef við ættum að velja eitthvað eitt sem stóð upp úr væri það klárlega leikurinn á milli Íslendingaliðsins Hammarby og Djurgården á Tele2 Arena sem við fórum á síðasta daginn. Á milli stanganna hjá Hammarby stóð Ögmundur Kristinsson og í hægri bakverði var enginn annar en landsliðshetjan Birkir Már Sævarsson.

Vörn Hammarby því í góðum málum og reyndist leikurinn hin besta skemmtun. Oft er heitt í hamsi á milli aðdáenda þessara tveggja félaga og eru þungvopnaðir lögreglumenn á hverju strái ef til handalögmála á milli aðdáenda liðanna kæmi. Það er fastur liður að fýra upp í blysum í stúkunni en í þetta skiptið leiddu blysin til hálftíma seinkunnar á leiknum þar sem að gríðarlegan reyk lagði yfir völlinn. Að lokum hófst með eindæmum fjörugur leikur. Fjögur mörk voru skoruð og urðu lokatölur 3-1 fyrir

Hammarby, hið besta mál enda héldum við með okkar mönnum.

Ferðin til Svíþjóðar var í alla staði frábær og hefði ekki getað heppnast betur. Við viljum nýta tækifærið og þakka öllum fyrir ferðina og ekki síður fyrir það ferðalag sem við áttum í rúm 13 ár í yngri flokkum Gróttu. Þvílíkt og annað eins ævintýri.

Góðar stundir.

Jón Friðrik og Þór Guðjónssynir

50.000 króna

tómstundastyrkur

Foreldrar og forráðamenn sex til átján ára barna með lögheimili á Seltjarnarnesi fá 50.000 króna tómstundastyrk á ári vegna þátttöku í skipulögðu frístundastarfi 2017.

Tómstundastyrkurinn flyst ekki á milli ára. Athugið að ráðstöfun tómstundastyrkja er nú rafræn. Ekki er nú lengur tekið á móti kvittunum í þjónustuveri bæjarins. Nánari upplýsingar á www.seltjarnarnes.is sjá Mínar síður.

www.seltjarnarnes.is

Silfur á Orkumóti

Í júní hélt glæsilegur hópur drengja úr 6. flokki á Orkumótið í Eyjum. Mótið er fyrir löngu orðið sögufrægt en áður var það þekkt sem Tommamótið og síðar Shellmótið. Grótta tefldi fram tveimur liðum og náði Grótta1 þeim glæsilega árangri að komast alla leið í úrslitaleik mótsins! Þar gerðu okkar strákar

markalaust jafntefli við Stjörnuna og þurfti að útkljá leikinn í vítaspyrnukeppni. Í henni höfðu Garðbæingar betur en árangur strákanna engu að síður eftirtektarverður. Grótta2 gerði sér svo lítið fyrir og vann Eldfellsbikarinn svokallaða eftir æsispennandi úrslitaleik við lið Vestra2. Ennfremur þóttu

Það er gott að vera í viðskiptum við Samskip

Gróttuliðin bæði spila virkilega flottan fótbolta og stemningin í foreldrahópnum var með eindæmum góð. Á lokahófi mótsins voru þeir Björgvin Brimi Andrésson og Tómas Johannessen valdir í úrvalslið mótsins en Viktor Orri Guðmundsson var fulltrúi Gróttu í landsleiknum.

> Við hjá Samskipum leggjum okkur fram um að kynnast viðskiptavinum okkar og þekkja þarfir þeirra

Samskip bjóða upp á heildarlausnir á sviði flutninga og við leggjum stolt okkar í að uppfylla væntingar kröfuharðra viðskiptavina. Persónuleg og traust þjónusta um allan heim.

Unga kynslóðin

Katrín Scheving Thorsteinsson

4. flokki kvenna

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: 8 ára

Hvaða stöðu spilar þú: Miðju

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Spila, „Killer”, skotæfingar og einn á einn æfingar

En leiðinlegast: Eiginlega ekkert en hlaupaæfingar eru ekkert sérstakar

Eftirminnilegast síðasta sumar: Þegar ég skoraði 4 mörk í leik á Íslandsmótinu, þegar við komumst í úrslit Huginsbikarsins í Eyjum og auðvitað síðasta Símamótið okkar

Uppáhalds fótboltakona/maður: Zlatan Ibrahimovic og Sara Björk

Uppáhalds jólamatur: Rjúpurnar hans pabba

Orri Steinn Sverrisson

6. flokki karla

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: 4 ára

Hvaða stöðu spilar þú: Ég spila vörn en er líka góður í að hlaupa fram og skora

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Mér finnst eiginlega allt skemmtilegt. Til dæmis að spila og gera sendingaæfingar og tækniæfingar

En leiðinlegast: Að halda á lofti

Eftirminnilegast síðasta sumar: Klárlega Króksmótið

Uppáhalds fótboltakona/maður: Margrét Lára Viðarsdóttir, Hannes Þór Halldórsson og Lionel Messi Uppáhalds jólamatur: Kalkúnn

GRÓTTUFÓLK

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR

Viktor Orri Sölvason

5. flokki karla

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: Þegar ég var 4 ára í KR

Hvaða stöðu spilar þú: Framherji

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Örugglega spila og skotæfingar

En leiðinlegast: Sprettir

Eftirminnilegast síðasta sumar: 7 mörk í síðustu fjórum leikjunum í Íslandsmótinu í sumar

Uppáhalds fótboltakona/maður: Ronaldo og Neymar Uppáhalds jólamatur: Hamborgarhryggur

Hafey Margrét Reykdal Höskuldsdóttir

5. flokki kvenna

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: Ég fór á námskeið með Ísól um sumarið þegar við vorum 8 ára og byrjaði að æfa strax á eftir

Hvaða stöðu spilar þú: Ég spila oftast frammi eða á kantinum

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Að fara í „Killer“

En leiðinlegast: Mér finnst eiginlega ekkert leiðinlegt í fótbolta

Eftirminnilegast síðasta sumar: Pæjumótið í Vestmannaeyjum. Fékk að fara með 5. flokki þar sem ég var líka að æfa með þeim Uppáhalds fótboltakona/maður: Margrét Lára og

Gylfi Sigurðsson

Uppáhalds jólamatur: Rjúpa

Bjargey Ólafsdóttir

&

Kristófer Melsted

eru þjálfarar hjá knattspyrnudeild og leika bæði með meistaraflokkum félagsins.

Hér eru þau spurð spjörunum úr!

„Stofnuðum okkar eigin lið og unnum deildina“

Nafn: Bjargey Sigurborg Ólafsdóttir

Aldur: 23

Hvaða íþróttir aðrar en fótbolta

hefurðu stundað: Körfubolta og frjálsar

Hvað viltu fá í jólagjöf: Mig langar mjög

mikið í Edin Hazard takkaskóna

Uppáhalds sjónvarpsefni: Friends.

Verður aldrei þreytt

Uppáhalds tónlist: Ég hlusta eiginlega á allt en 80’s tónlist er uppáhalds

Besta bók sem þú hefur lesið: The Glass Castle. Hef örugglega lesið hana fjórum sinnum

Hvaða 3 hluti myndirðu taka með þér á eyðieyju: Mat, bækur og svo bát til að komast í burtu

Hvaða lag syngurðu í sturtunni: Núna eru jólalögin að koma sterk inn Í hvernig takkaskóm spilarðu: Nike

Hypervenom Phantom

Hvað eldaðir þú síðast: Ristabrauð

með avocado…ef það telst með sem eldamennska

Uppáhaldsstaður í heiminum: Annað hvort Ísland eða Michigan þar sem ég

ólst upp. Erfitt að velja!

Lið í enska boltanum: Chelsea

Hver er þín helsta fyrirmynd: Bróðir minn, bæði í fótbolta og lífinu

Uppáhalds íþróttamaður: Edin Hazard og Didier Drogba

Fallegasti knattspyrnumaðurinn: Jóhannes Hilmarsson

Hver yrði fyrir valinu ef þú mættir ráða einn þjálfara í teymið hjá Gróttu: Ég

held að félagið sé í toppmálum með þjálfara. En ef ég yrði að velja einhvern myndi ég ráða Sir Alex Ferguson

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Að klobba einhvern og auðvitað að skora

Hver er fyndnasti þjálfarinn hjá Gróttu: Pétur Rögg eða Bjössi

Hvað myndirðu gera ef þú værir yfirþjálfari í einn mánuð og hefðir 10 milljónir til umráða: Myndi sennilega fara til útlanda með yngri flokkana og æfa við bestu aðstæður í smá tíma.

Góð saga úr boltanum: Þegar ég var 15 ára stofnuðum ég og vinkonur mínar fótboltalið í borginni þar sem við bjuggum. Þetta var geggjað tímabil og við enduðum á að vinna deildina!

Fótboltaminning sem stendur upp

úr: Þegar ég var að spila umspilsleik með Kalamazoo College í bandaríska háskólaboltanum. Skoraði þá úrslitamark á lokamínútunni með skoti upp í skeytin. Klikkað augnablik

Framtíðardraumur: Að vinna deildina með Gróttu í sumar

Það besta við að þjálfa hjá Gróttu:

Samstilltur þjálfarahópur og allir þessir ótrúlega duglegu krakkar sem eru að æfa hjá félaginu

„Ef ég er svangur kemur mamma oftast til bjargar“

Nafn: Kristófer Melsted

Aldur: 18 ára

Hvaða íþróttir aðrar en fótbolta hefurðu stundað: Ég stundaði handbolta í mörg ár, frá 6 til 15 ára. Einnig hef ég prófað ýmsar íþróttir eins og körfubolta, borðtennis, fimleika og frjálsar en á endanum áttaði ég mig á að fótbolti er mín íþrótt

Hvað viltu fá í jólagjöf: Takkaskó

Uppáhalds sjónvarpsefni: Enski boltinn

Uppáhalds tónlist: Martin Garrix og

Travis Scott

Besta bók sem þú hefur lesið: Ég er Zlatan

Hvaða 3 hluti myndirðu taka með þér á eyðieyju: Arnar Ax, Bjarka Má og

Kristófer Orra. Þeir Bjarki og Arnar eru góðir í að skipuleggja leikplan og ég og

Kristófer erum frábærir í að fylgja þeim svo við værum frábært teymi í að koma okkur af eyjunni og heim

Hvaða lag syngurðu í sturtunni: Ægisíða eftir Sylviu Erlu

Í hvernig takkaskóm spilarðu: Nike

Hypervenom

Hvað eldaðir þú síðast: Ég eldaði mér hafragraut og egg. Það er eiginlega

það eina sem ég kann að elda. Ef ég er svangur þá kemur mamma oftast til bjargar

Uppáhaldsstaður í heiminum: Vivaldi stadium

Lið í enska boltanum: Manchester City

Hver er þín helsta fyrirmynd: Zlatan Ibrahimovic

Uppáhalds íþróttamaður: Zlatan Ibrahimovic

Fallegasta knattspyrnukonan: Elín Metta Jensen

Hver yrði fyrir valinu ef þú mættir ráða einn þjálfara í teymið hjá Gróttu: Það væri fínt að fá Diego Simeone í 8. flokk til að hjálpa til.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Það er margt sem kemur til greina en það sem stendur uppúr eru upphitunaræfingarnar hans Bjarka Más, Fifa 11+

Hver er fyndnasti þjálfarinn hjá Gróttu: Arnar Ax

Hvað myndirðu gera ef þú værir yfirþjálfari í einn mánuð og hefðir 10 milljónir til umráða: Úff þetta er erfið spurning! En stúkan okkar er allt of langt frá vellinum svo ég myndi klárlega

ráðast í einhverjar aðgerðir til að færa áhorfendur nær leiknum. Svo myndi ég örugglega hefja eitthvað átak til að fá fleira fólk á völlinn á sumrin – góður stuðningur er mikilvægur til að byggja upp öflugt fótboltafélag!

Góð saga úr boltanum: Ég var á yngra ári í 5 flokki og við vorum á N1-mótinu á Akureyri. Eitt kvöldið mætti pabbi eins úr liðinu inn í stofu og ákvað að gleðja okkur með ferð í Brynjuís. Frekar sérstakt þar sem menn voru komnir í náttfötin og að fara að sofa en við strákarnir fögnuðum þessu auðvitað ákaft þó að fararstjórarnir hefðu ekki verið hrifnir

Fótboltaminning sem stendur upp

úr: Klárlega þegar ég og Kristófer Orri fengum að æfa með Brommapojkarna í Stokkhólmi í nokkra daga fyrir tveimur árum. Frábær lífreynsla og geggjuð ferð en þjálfararnir Bjarki og Maggi fóru með Framtíðardraumur: Að ná langt í fótbolta

Það besta við að þjálfa hjá Gróttu: Það eru algjör forréttindi að fá að þjálfa krakkanna af Nesinu, þau eru gullmolar. Einnig er gaman að geta gefið til baka því ég ólst upp í þessu umhverfi hjá Gróttu og hef alltaf notið þess að vera Gróttumaður

Gjafakort Bónus

FYRIR OKKUR ÖLL

VERÐA AÐ LEGGJA HART AÐ SÉR

Blaðamaður Gróttublaðsins sest við tölvu sína og hringir í gegnum internetið til Flórída. Nánar tiltekið til strandborgarinnar Daytona Beach til að ná sambandi við Samönthu Baggett Bohon sem er þjálfari fótboltaliðs Embry-Riddle háskólans. Samantha svarar – í vefmyndavélinni sést að hún er stödd úti á verönd með yngsta syni sínum. Þau eru bæði klædd í stuttbuxur og bol en í bakgrunninum glittir í jólaskraut. Já svona er desember í „Sólskinsfylkinu“.

Ánægð með þær íslensku Samantha var að ljúka sínu 11. tímabili sem aðalþjálfari kvennaliðs EmbryRiddle. Það verður að teljast merkilegt fyrir þær sakir að hún er einungis 41 árs gömul. Samantha ólst upp í Flórída en gekk í hinn fræga Duke háskóla í Norður-Karolínu þar sem hún lék með fótboltaliði skólans og stundaði sitt nám. Samantha gerði það gott og endaði á að vera fyrirliði U21 árs landsliðs Bandaríkjanna ásamt því að spila tvo landsleiki fyrir aðalliðið. „Ég hef þjálfað í 17 ár. Var aðstoðarþjálfari í Duke og einnig í University of Tennessee og svo hef ég verið hér frá 2007.“

Samantha hefur myndað góð tengsl við Ísland en frá árinu 2010 hefur alltaf verið að minsta kosti einn íslenskur leikmaður í liðinu hjá henni. „Björk Ólafsdóttir var sú fyrsta sem kom og síðan þá hef ég alltaf verið með Íslendinga í hópnum hjá mér. Í dag spilar Ragnheiður Garðarsdóttir með okkur en Guðrún María Johnson frá KR var hér í fjögur ár og útskrifaðist í vor. Allt frábærir liðsmenn.“

En af hverju velur hún að bjóða íslenskum stelpum skólastyrk? „Það eru ýmsar ástæður. Í fyrsta lagi er yfirleitt um að ræða mjög góða leikmenn sem styrkja liðið en eins og allir vita stendur kvennaboltinn á Íslandi framarlega. Svo

finnst mér stelpur frá Norðurlöndunum almennt bera virðingu fyrir náminu og sinna því vel. Krakkirnir koma jú ekki bara hingað út af fótboltanum heldur einnig til að stunda nám,“ segir Samantha sem kom hingað til lands í febrúar til að fylgjast með íslenskum leikmönnum.

Vandar valið

Okkur leikur forvitni á að vita eftir hverju Samantha er að slægjast þegar hún setur saman lið fyrir hvert skólaár. Hvað skiptir mestu máli?

„Við vinnum mikla undirbúningsvinnu þegar við erum að deila út skólastyrkjunum. Það er líka eins gott að vanda sig því margir leikmenn fá styrk að verðmæti 47.000 dollara (4,9 milljónir isk). Hjá Embry-Riddle vinnum við eftir námsmaður – einstaklingur – leikmaður hugmyndafræðinni (e. student – person – player) og því þarf margt að haldast í hendur. Við tökum til dæmis alltaf langan Skype-fund með þeim stelpum sem við erum að skoða til að reyna að lesa í persónuleikann. Grunnforsendan er að krakkarnir sem koma hingað séu til í að leggja hart að sér til að bæta sig í íþróttinni og standa sig í skólanum. Við viljum ekki fólk sem ætlar bara að koma fyrir upplifunina. Auðvitað þekkjum við fólk ekki eftir tölvupóstsamskipti og Skype-fundi en við reynum okkar besta.

Liðið í Grand Canyon í Arizona.

Guðrún María Johnson útskrifaðist frá Embry-Riddle háskólanum í vor. Hér er hún ásamt systkinum sínum: Sigríði, Ólafi sem er fyrrverandi leikmaður Gróttu og Kristínu sem leikur með 3. flokki Gróttu/KR.

Bæði til að sjá hvort að leikmennirnir passi fyrir okkur og auðvitað hvort að við pössum fyrir leikmanninn. Erlendu leikmönnunum okkar hefur allavega gengið vel og af 32 sem hafa verið hérna síðustu ár hafa 29 útskrifast sem er gríðarlega hátt og ánægjulegt hlutfall,“ segir Samantha sem leggur mikla áherslu á að hjálpa stelpunum sem hún þjálfar að styrkjast sem einstaklingar ekki síður en knattspyrnukonur. „Liðið eyðir miklum tíma saman og því er mikilvægt að stelpurnar hafi góða færni í að vinna í hóp og eigi góð samskipti sín á milli.“

Fara héðan sem betri leikmenn Íslenskir fótboltakrakkar hafa í auknum

Við vinnum mikla undirbúningsvinnu þegar við erum að deila út skóla-styrkjunum. Það er líka eins gott að vanda sig því margir leikmenn fá styrk að verðmæti 47.000 dollara.

mæli farið í bandaríska háskóla á síðustu árum og eflaust margir sem hugsa það sem framtíðarmöguleika. Það er heillandi að geta fléttað saman nám og íþróttaiðkun og á sama tíma kynnst ólíkum menningarheimi. En að hverju þarf helst að huga?

„Ef kostur er myndi ég fara út og skoða skólann og hitta þjálfarann sem er spenntur fyrir því að fá þig. Ef ekki að þá tala saman í gegnum netið. Svo má fólk heldur ekki festa sig of mikið í hvaða deild skólinn er. Embry-Riddle er til dæmis í annarri deild en er samt með betra lið og flottari aðbúnað en mörg lið í fyrstu deildinni. Það er til dæmis stærð skólans og fjöldi íþróttagreina sem

ræður því í hvaða deild skólinn spilar svo það er ekki endilega mælikvarði á gæði þjálfunarinnar. Átta stelpur sem hafa útskrifast héðan eru atvinnumenn í dag svo það er vonandi vísbending um að þú farið héðan sem betri leikmaður en þegar þú komst“ segir Samantha að lokum, skiljanlega hreykin af flottum árangri fyrrum lærimeyja sinna.

Gróttublaðið þakkar Samönthu kærlega fyrir að veita okkur innsýn inn í þann magnaða heim sem íþróttaiðkun er við bandaríska háskóla þar sem fjölmörg íslensk ungmenni hafa notið bæði náms og íþrótta á undanförnum áratugum.

GRÓTTUFÓLK

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL

OG FARSÆLT KOMANDI ÁR

Agnes, Jóhann, Thelma og Sindri í Eiðismýri 15

Alexander og Christian Rafn

Andrés, Eva, Andrea, Benoný og Björgvin

Arna og Helgi

Arnar, Hervör, Aufí og Vigdís

Árni, Halldóra, Erna Katrín og Pétur Theódór

Árni, Sigríður, Auður Freyja, Sólveig Katla og Kári Hrafn

Atli Hrafn og Pétur Kári

Birgir Tjörvi, Erla Kristín og börn

Bjarni Torfi Álfþórsson og fjölskylda

Borghildur, Viðar og börn

Davíð, Harpa, Lovísa, Lilja og Birgir

Elín, Hjalti og krakkarnir

Elvis Guðjónsson

Fjölskyldan Barðaströnd 49

Fjölskyldan Bollagörðum 121

Fjölskyldan Bollagörðum 53

Fjölskyldan Bollagörðum 55

Fjölskyldan Bollagörðum 87

Fjölskyldan Bollagörðum 95

Fjölskyldan Eiðismýri 14

Fjölskyldan Nesbala 108

Fjölskyldan Nesbala 110

Fjölskyldan Nesbala 72

Meira sælkera

Karfa 1

Stonewall kex, franskur Camembert, rjómaostur, piparostur, Öðlingur, Ibérico paté, Stonewall chili sulta og bláberjasulta.

3.799 kr

Karfa 3

Stonewall kex, franskur Camembert, rjómaostur, piparostur, Öðlingur, Snowdonia Black Bomber, Picandou geitaostur, Prima donna, Ibérico paté, Stonewall chili sulta og bláberjasulta.

5.999 kr

Karfa 2

Stonewall kex, franskur Camembert, rjómaostur, piparostur, Öðlingur, Snowdonia Black Bomber, Ibérico paté, Stonewall chili sulta og bláberjasulta.

4.599 kr

Karfa 4

Stonewall kex, Melba Toast, franskur Camembert, rjómaostur, piparostur, Öðlingur, Snowdonia Black Bomber, Picandou geitaostur, Prima donna, Höfðingi, Iberico paté, Stonewall chili sulta og bláberjasulta, Raffaello konfekt.

7.499 kr

Bjarki Már nýr yfirþjálfari

„Það er virkilega jákvæður andi í knattspyrnudeildinni og starfsumhverfið er gott.“

Í sumar urðu tímamót hjá knattspyrnudeild Gróttu þegar Magnús Örn Helgason lét af starfi yfirþjálfara eftir þrjú farsæl ár í starfi. Það er þó enginn aukvisi sem tekur við af Magnús heldur annar uppalinn Gróttumaður – Bjarki Már Ólafsson sem hefur starfað

sem þjálfari hjá félaginu um langt skeið þrátt fyrir að vera aðeins nýorðinn 23 ára.

Gróttublaðið settist niður með Bjarka Má sem er spenntur fyrir komandi tímum:

„Fyrstu mánuðir í starfi hafa gengið vel en það hefur verið í nógu að snúast. Mitt fyrsta verkefni í sumar var að púsla saman sterku þjálfarateymi en félagið hefur verið ótrúlega lánsamt með þjálfara síðustu ár. Ég tel að það hafi tekist og nú er ærið verkefni að byggja ofan á það góða starf sem Maggi vann síðustu ár. Við kynntum Gróttuleiðina til leiks í júní fyrra og það má í raun segja að innleiðing á því sem þar stendur sé nú í fullum gangi“ segir Bjarki.

En hver er sérstaða Gróttu? Er félagið með forskot á einhverjum sviðum?

„Í fyrsta lagi er virkilega jákvæður andi í knattspyrnudeildinni og starfsumhverfið er gott. Það er gott fólk sem vinnur fyrir félagið, jafnt þjálfarar, aðrir starfsmenn

og svo allir sjálfboðaliðarnir sem gjarnan koma úr röðum foreldra. Í öðru lagi held ég að okkur sé að takast að nýta smæðina sem styrkleika fremur en að hún sé að trufla okkur. Maggi lagði mikla áherslu á þetta frá byrjun og ég held að það sé að skila sér. Maður þekkir eiginlega öll andlitin á svæðinu með nafni. Flestir þjálfaranna hafa komið við sögu í mismunandi flokkum og þekkja því marga iðkendur og foreldra þeirra. Það að vera með frekar litla æfingahópa gefur okkur líka færi á að fara ótroðnar slóðir og fara okkar eigin leiðir í öllu starfi félagsins. Við erum til dæmis ófeimin við að láta stelpur æfa með strákum og yngri leikmenn æfa með eldri. Kynbundnar flokkaskiptingar eru ekki aðalatriðið hjá okkur heldur að iðkendurnir fái hæfilegar áskoranir og að þeim sé hjálpað að ná markmiðum sínum hve stór þau kunna að vera,“ segir Bjarki og heldur áfram að láta gamminn geysa:

„Við erum líka með nægt vallarpláss og nóg af þjálfurum. Góð þjónusta í litlu félagi, það er lykilatriði. Ekki umferðarstjórnun á pínulitlu svæði þar sem orkan fer í allt aðra hluti en að kenna fótboltann.“

Það verður sannarlega spennandi að fylgjast með störfum Bjarka á næstunni en samhliða starfinu hjá Gróttu er hann að klára UEFA-A þjáfaragráðu hjá KSÍ. Annað stórt skref fyrir ungan þjálfara.

„Ég er þakklátur fyrir að fá að starfa sem yfirþjálfari hjá uppeldisfélaginu ekki eldri en ég er. Ég er mjög heppinn með samstarfsfólk og hlakka til verkefnanna sem framundan eru,“ segir Bjarki að lokum áður en hann heldur út í dimmt vetrarkvöldið eftir góðan dag á Vivaldivellinum.

Bjarki og stelpurnar í 7. flokki í stuði.

FÁÐU RÁÐGJÖF SEM BYGGIR Á REYNSLU

KJARTAN Lögg. fasteignasali kjartan@eignamidlun.is

5464

GUÐLAUGUR Lögg. fasteignasali gudlaugur@eignamidlun.is

ÞÓRARINN Lögg. fasteignasali thorarinn@eignamidlun.is

SVERRIR Lögg. fasteignasali sverrir@eignamidlun.is

DAÐI Aðstoðarm. fast.s. dadi@eignamidlun.is

Afhending

áætluð í febrúar 2018

HREIÐAR LEVY Nemi til lögg. fasteignasala hreidar@eignamidlun.is

MAGNEA Lögg. fasteignasali, MBA magnea@eignamidlun.is

HILMAR Lögg. fasteignasali hilmar@eignamidlun.is

Frakkastígsreitur | Frakkastígur 8E , Hverfisgata 58 A og B

NÝJAR ÍBÚÐIR Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR

Á Frakkastígsreit eru í byggingu 67 litlar og meðalstórar íbúðir sem munu tengjast skjólgóðum, lokuðum garði.

Á götuhæðum bygginganna sem snúa að Laugavegi, Frakkastíg og Hverfisgötu verða verslanir, veitingahús og fjölbreytt þjónusta.

BRYNJAR Lögg. fasteignasali, BSc. brynjar@eignamidlun.is

Lögg. fasteignasali, lögfr. andri@eignamidlun.is

OKKAR

Um er að ræða 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir. Auk þess eru tvær stórar penthouse íbúðir. Stæði í bílageymslu fylgir með hluta af íbúðunum. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna.

Stærð frá 56,5 fm - 178 fm. Verð frá 40,9 millj.

Sala fasteigna frá

ANDRI

Fótboltasumarið 2017

GRÓTTUFÓLK

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL

OG FARSÆLT KOMANDI ÁR

Fjölskyldan Sævargörðum 8

Fjölskyldan Valhúsabraut

Fjölskyldan Valhúsabraut 13

Fjölskyldan Vallarbraut 20

Fjölskyldan Vesturströnd 16

Fjölskyldan Vesturströnd 5

Franz Ploder

Halli, Daníel, Tómas, Eva, Saga og Matti

Hansína, Þorsteinn, Gunnar, Patti og Magnea

HárSaga

Helgi Þórðarson og Auður Atladóttir

Hótel Hvolsvöllur

Ingibjörg Jónsdóttir Nesbala 24

Kamilla, Rakel og Rebekka

Kristján, Þór og Jón Friðrik

Mangi, Elín, Elín Eir, Nonni og Jökull

Margrét Lind, Jóhann Pétur, Tómas Gauti og Daði Már

Ólafur Garðarsson og fjölskylda

Orri, Silja, Sölvi og Orradóttir

Rögnvaldur Dofri og Sigríður Björk

Rúrý, Guðrún, Sigga, Jódís, Rebekka

Sigrún Edda, Egill og börn

Svava Kristín, Tómas, Kristín og Sveinn

Viðar Sigurjón og fjölskyldan Bollagörðum 93

Yrsa, Óli og Kristín Sól

RITSTJÓRAPISTILL

10 ár í bransanum

Ágúst 2007. Nokia samlokusíminn hringir og á línunni er Ásmundur Haraldsson. meistaraflokksþjálfari og yfirþjálfari yngri flokka. Ási spyr hvort ég hafi áhuga á að

verða aðstoðarþjálfari hjá sér í 5. flokki karla á komandi tímabili ásamt Orra Axelssyni. Ég sló til.

Áratug síðar er ég enn í íþróttagallanum

úti á velli að þjálfa fótbolta. Það hefur margt breyst en í grunninn eru áskoranirnar þær sömu: Að leiðbeina ungu fólki í íþróttinni sem þau elska og um leið hjálpa þeim að tileinka sér gildi sem munu nýtast ævina á enda. Það að fá að vinna þetta skemmtilega starf hjá sínu góða uppeldisfélagi er svo sérstaklega ánægjulegt.

Mitt fyrsta tímabil í þjálfun gekk vel og naut ég mín vel á vellinum. Hélt reyndar að ég kynni þetta allt saman og brást nokkrum sinna illa við þegar Ási var að reyna að leiðbeina mér. Ég hafði jú spilað Football Manager með góðum árangri og horft á ótal leiki með Manchester United í sjónvarpinu.

En árin liðu og verkefnin urðu mörg og fjölbreytt. Ég fékk tækifæri til að vinna með færum þjálfurum sem ég lærði af og sótti mér einnig menntun

á þjálfaranámskeiðum KSÍ og lærði íþróttafræði í HR. Árið 2014 snerist dæmið við þegar ég tók við sem yfirþjálfari yngri flokka og var þá kominn í hlutverk þess sem réði þjálfara til starfa og leiðbeindi þegar við átti. Ábyrgðin sem því fylgir er mikil en ég tel mig hafa verið mjög heppinn með starfsfólk og gat því glaður skilað yfirþjálfarastarfinu í lok sumars í hendur annars manns sem ég hef mikla trú á og treysti til að gera enn betur en ég. Það er Bjarki Már Ólafsson Gróttumaður með meiru.

Á 10 ára „þjálfaraafmæli“ er margs að minnast. Ógleymanlegar keppnisferðir, sætir sigrar og erfið töp, frábær vinskapur og í raun hefur allt uppbyggingarstarfið í Gróttu gefið mér margar ánægjustundir. En það er þó ein staðreynd sem gleður sérstaklega á þessum tímamótum.

Á mínu fyrsta tímabili voru 42 strákar, fæddir 1996 og 1997, sem æfðu í 5. flokki Gróttu hjá okkur Ása og Orra. Við fórum með 6 lið á N1-mótið á Akureyri en áhuginn hjá strákunum og foreldrum þeirra var mikill. En hvar eru þeir í dag?

Í meistaraflokki Gróttu:

Agnar Guðjónsson

Arnar Þór Helgason

Axel Fannar Sveinsson

Bessi Jóhannsson

Bjarni Rögnvaldsson

Dagur Guðjónsson

Davíð Fannar Ragnarsson

Jón Ivan Rivine

Pétur Steinn Þorsteinsson

Þjálfari hjá Gróttu:

Axel Ingi Tynes

Í öðrum meistaraflokksliðum

Bjarni Kristinn Bjarnason – Kría

Sigurður Egilsson – Kría

Sigurður Finnbogi Sæmundsson – Kría

Arnór Guðjónsson – Tindastóll

Fannar Freyr Ómarsson - KV

Í handbolta

Aron Dagur Pálsson – Stjörnunni og U21 árs landsliðinu

Hjalti Már Hjaltason – Víkingi

Þorgeir Bjarki Davíðsson – Fram

Ísak Arnar Kolbeins - GróttaU

Þorsteinn Sæmundsson – GróttaU

Í körfubolta

Friðrik Þjálfi Stefánsson – Val

Á

Af þeim 42 drengjum sem skipuðu 5. flokk Gróttu fyrir 10 árum er helmingur ennþá virkur í skipulögðu íþróttastarfi. Þetta er staðfesting á að við höfum gengið til góðs síðasta áratuginn –leikmenn eru ekki að heltast úr lestinni eða skipta um félög í 2. eða 3. flokki heldur líta þeir á meistaraflokk Gróttu eða annað starf innan deildarinnar sem eftirsóknarverðan valkost. Þessi staðreynd gleður sannarlega hjartað.

En nú er komið að verkefnum næstu 10 ára. Grótta þarf að viðhalda þeirri menningu sem skapast hefur í deildini

og í kjölfarið taka næstu skref. Við þurfum að hjálpa okkar fólki að komast í hæstu hæðir – lengra en í meistaraflokk Gróttu. Alla leið til tunglsins ef það er markmiðið. Við erum lítið félag með trú, vilja og hugrekki að vopni á fullri ferð fram veginn.

Njótið Gróttublaðsins kæru Seltirningar. Takk fyrir samstarfið Elsa og Eyjólfur. Góðar stundir og gleðileg jól.

Magnús Örn Helgason

Magús Örn Helgason Hönnun og umbrot: Elsa Nielsen Myndir: Eyjólfur Garðarsson og fl. Prófarkalestur: Sigurður Gylfi Magnússon Prentun: Prenttækni

Veislan tekur að sér veitingaþjónustu í afmælum, brúðkaupum, er drykkjum og hvers konar mannamótum. Erum með glæsilegan veislusal í Félagsheimili Seltjarnarness til útleigu. Getum einnig komið í heimahús eða fyrirtæki.

N1-mótinu 2008.
Olísmótið 2009.
Ristjórn:

Áfram Grótta!

Orkan óskar iðkendum og stuðningsmönnum

Gróttu gleðilegra jóla og þakkar fyrir samstarfið

á árinu sem er að líða.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.