Jólablað Gróttu 2018

Page 1


BL HEFUR VERIÐ LEIÐANDI

Í

SÖLU RAFBÍLA SÍÐAN 2013

VIÐ HÖFUM AFHENT EITT ÞÚSUND RAFBÍLA!

Hjá BL er að finna mesta úrval landsins af 100% rafdrifnum fólks- og sendibílum af ýmsum tegundum, stærðum og drægni sem er stöðugt að aukast. Verður næsti bíllinn þinn rafbíll?

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og þökkum rafmagnaðar viðtökur á liðnum árum!

Ávarp formanns

Þá er 8. jólablað Gróttu komið út, sneysafullt af frásögnum frá ævintýrum ársins 2018.

Já, 2018 var hrikalega skemmtilegt ár þar sem Knattspyrnudeild Gróttu uppskar ríkulega af þeirri stefnu sem mörkuð var með innleiðingu Gróttuleiðarinnar fyrir nokkrum árum. Stefnu sem nær frá yngstu iðkendunum og upp í meistaraflokka. Yngri flokkar Gróttu blómstra sem aldrei fyrr og er stórt hlutfall barna á Seltjarnarnesi að æfa hjá deildinni, Stjórn knattspyrnudeildar hefur metnað fyrir því að ráða færa og vel menntaða þjálfara til starfa enda eru þeir grundvöllurinn fyrir góðu starfi.

Iðkendur er rúmlega 300 hundruð og það er okkur mikið gleðiefni að sjá þær framfarir sem hafa átt sér stað sem endurspeglast í því t.d hversu mörg ungmenni hafa verið valin í hæfileikamótun KSÍ, úrtaksæfingar og í landsliðsverkefni.

Bjarki Már Ólafsson stýrði yngri flokka starfi Gróttu sem yfirþjálfari en lét af störfum í lok tímabils. Við keflinu tók Halldór Árnason og við búumst við miklu af honum enda þrautreyndur þjálfari með góða reynslu af starfi yfirþjálfara.

Meistaraflokkur kvenna kláraði sitt þriðja tímabil með miklum sóma og lauk keppni í 4.sæti í 2. deild. Stelpurnar voru í toppbaráttu framan af sumri og framfarir liðsins milli ára eru greinilegar.

Það er óhætt að segja að Guðjón Kristinsson hafi verið algjör lykilaðili í uppbyggingu meistaraflokks kvenna. Hann tók við liðinu í upphafi árs 2016 og mótaði starf flokksins í þrjú tímabil. Frá stofnun flokksins hefur ýmislegt gengið á og óvíst er hvort allt hefði gengið eins smurt ef ekki hefði verið fyrir Gauja. Guðjón lét af störfum störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna að loknu keppnistímabili og við liðinu tók Magnús Örn Helgason. Við óskum honum velfarnaðar í starfi og þökkum um leið Guðjóni fyrir ómetanlegt starf.

Meistaraflokkur karla fór í gegnum miklar breytingar fyrir keppnistímabilið 2017/2018. Óskar Hrafn Þorvaldsson tók við liðinu með þá Halldór Árnason og Bjarka Má Ólafsson sér til aðstoðar og innleidd var algjörlega ný hugmyndafræði. Ungir og uppaldir Gróttumenn voru í aðalhlutverkum og þeir sem komu til félagsins voru leikmenn yngri en 20 ára og pössuðu við þá hugmyndafræði leikið var eftir. Engin leikmaður meistaraflokks Gróttu fær greitt fyrir sitt framlag en fær þó að launum góðan möguleika á að verða besta útgáfa af þeim leikmanni sem í honum býr. Það er það sem við höfum, bestu mögulegu umgjörð sem í boði er á Íslandi og það er eftirsóknarvert að æfa við slíkar aðstæður. Meistaraflokkur karla spilaði skemmtilegan sóknarbolta og

þorði að sækja til sigurs. Þorði að spila á ungum mannskap (yngsti markaskorari okkar í sumar var 13 ára þegar hann skoraði 2 mörk í einum leik) og það skilaði Gróttu 2.sæti í 2. deild með yngsta hópinn í íslenskum karlafótbolta og jafnframt einn sterkasta heimavöllinn. Við ætlum okkar að mæta til leiks í Inkasso-deildina 2019 með sömu gildi að leiðaljós og sækja til sigurs.

En það er ljóst meistaraflokkarnir þurfa mikinn stuðning næsta tímabil og vil ég hvetja sem flesta til að láta sjá sig á leikjunum og vil einnig hvetja alla sem hafa gaman af knattspyrnu og félagsstörfum að koma í heimaleikjaráð og leggja hönd á plóg.

Ég vil að lokum þakka öllum iðkendum, þjálfurum, stjórnarfólki og síðast en ekki síst bæjarstjórninni kærlega fyrir samstarfið á árinu.

Að því sögðu óska ég öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Sölvi Snær Magnússon Formaður Knattspyrnudeildar Gróttu.

Fótboltasumarið 2018

Meistaraflokkur karla

Ungir eldhugar sem stóðust prófið

Þetta hófst allt 22. október á fyrsta liðsfundi meistaraflokks karla hjá Gróttu undir stjórn Óskar Hrafns, Halldórs og Bjarka Más . Leikmenn og þjálfarar settust niður og sammæltust um að breyta íslenskum fótbolta. Það er sannarlega háleitt markmið og ljóst að menn þyrftu að leggja mikið á sig.

Stífar æfingar hófust og fengu strákarnir fljótt að kynnast því að þjálfarateymið var ekkert að grínast. Í 10 stiga frosti og 15 m/s hentust menn út og hlupu í 4x4 mínútur og þá fór liðið í fjölbreyttar mælingar til að fá góða yfirsýn yfir framfarir í líkamlegu atgervi. Fyrstu æfingaleikirnir töpuðust en í Fótbolta. net mótinu var liðið komið af stað og endaði Grótta sem sigurvegari í B-deild mótsins. Í Lengjubikarnum hélt liðið uppteknum hætti og endaði riðlakeppnina með fullt hús. Gróttuliðið var svo slegið út í undanúrslitum á móti Völsungi eftir hörkuleik í Boganum á Akureyri.

Þann 25. mars hélt Grótta í æfingaferð til Pinatar á Spáni. Aðbúnaður var fyrsta flokks en ásamt Gróttu var karlalið ÍBV og kvennalið Selfoss við æfingar á svæðinu. Í ferðinni var breytt út af vananum – engin hlaup heldur var einblínt á tækni, spil og að sjálfsögðu var gleðin við völd í frábæru veðri. Æft var tvisvar á dag nema síðasta daginn þegar

innbyrðis leikur milli ungra og gamalla fór fram. Í stuttu máli var leikurinn ansi skrautlegur og væri í raun hægt að skrifa heila opnu um það sem þar fór fram.

Á lokadegi ferðarinnar settist hópurinn niður og komandi tímabil var rætt á markmiðafundi. Unnið var í litlum hópum og eftir góðar umræður voru markmið liðsins alveg skýr: Að breyta íslenskum fótbolta og að sigra 2. deild. Nú gat ballið byrjað.

Hægt er að segja að þann 20. apríl, eftir rúma sex mánuði af alvöru íslensku undirbúningstímabili, væri alvaran að bresta á. Gróttuliðið var mætt á Selfoss til að takast á við heimamenn í Mjólkurbikarnum. Eftir æsispennandi leik var niðurstaðan 1-1 eftir 90 mínútur og grípa þurfti til framlengingar. Að henni lokinni var staðan enn jöfn, 2-2, og vítaspyrnukeppni staðreynd. Frekar svekkjandi þar sem Grótta var sterkari aðilinn lungað úr leiknum. Kempan Stefán Logi Magnússon reyndist seigur í marki Selfyssinga og varði nógu mörg víti til að tryggja sínum mönnum sigur. Stutt stopp í Mjólkurbikarnum 2018 en hver veit hvað gerist á næsta ári?

Íslandsmótið hófst með látum þann 5. maí, og með látum er átt við hávaðarok og haglél í tvo klukkutíma. Niðurstaðan í storminum 5-2 sigur og fjörið farið

af stað. Í kjölfarið fékk Grótta átta stig í næstu sjö leikjum og liðið í 7. sæti eftir átta umferðir. Alls ekki það sem stefnt var að og voru spekingarnir úti í bæ farnir að tala um að hið unga lið á Seltjarnarnesi væri sprungið og „alls ekki tilbúið í fullorðins fótbolta.” En Gróttumenn héldu sínu striki, unnu fimm leiki af næstu sex og voru í toppsætinu þegar landsmenn héldu inn í verslunarmannahelgina. Já, svona eru hlutirnir fljótir að breytast í boltanum.

Tveir eftirminnilegir heimaleikir voru spilaðir í ágúst. Fyrst komu Hattarmenn í heimsókn á sólríkum sumardegi þar sem Gróttumenn léku við hvurn sinn fingur. Aðaltíðindin voru reyndar þau að tveir leikmenn úr 3. flokki stigu sín fyrstu skref í meistaraflokki, þeir Grímur Ingi Jakobsson og Orri Steinn Óskarsson. Eftir aðeins nokkrar mínútur var Orri búinn að skora eftir stoðsendingu frá Grími og skömmu síðar var Orri búinn að skora annað mark! Lokatölur 5-0 og stuðningsmenn Gróttu í skýjunum.

Aðeins þremur dögum síðar mættu leikmenn Vestra á Vivaldivöllinn í leik sem átti eftir að verða hápunktur sumarsins. Vestramenn voru jú feykilega vel mannaðir og höfðu slátrað okkar mönnum, 6-0, í fyrri leiknum sem fór fram á Ísafirði. Stúkan var full og stemningin góð. Staðan var 2-1 fyrir

Vestra í hálfleik en Pétur Theodór Árnason jafnaði metin fyrir Gróttu á 57. mínútu. Allt virtist stefna í jafntefli þegar Pétur Theodór stangaði boltann í netið á síðustu mínútu leiksins og áhorfendur gjörsamlega sturluðust af gleði. Gróttuliðið var komið í bílstjórasætið fyrir síðustu fjórar umferðirnar.

Næstu leikir voru allir háspennuleikir og úrslitin réðust yfirleitt ekki fyrr en

í blálokin. Fyrir síðustu umferðina var Grótta með pálmann í höndunum enda ljóst að sigur á Huginn myndi tryggja sæti í Inkasso-deildinni. Enn einu sinni var stúkan full og veðrið lék við vallargesti þann 22. september. Grótta var 1-0 yfir í leikhléi en kláraði svo dæmið í seinni og sigraði 4-0. Mikil gleði braust út þegar lokaflautið gall –flugeldar voru sprengdir og gleðin sem skein úr augum leikmanna, þjálfara og

annars Gróttufólks var ósvikin. Það hafði tekist að treysta ungum leikmönnum fyrir því að spila fyrir meistaraflokk Gróttu. Það hafði tekist að spila áhættusaman sóknarfótbolta og það hafði tekist að vekja áhuga Seltirninga á liðinu. Frábært sumar að baki og spennandi tímar framundan.

Lokaorð frá strákunum:

Liðið vill þakka þeim sem komu að starfinu með einhverjum hætti og öllum sem lögðu leið sína á leiki liðsins fyrir ómetanlegan stuðning. Án ykkar hefði þessi góða uppskera ekki verið möguleg. Fyrir okkur er það heiður að fá að spila fyrir framan ykkur.

Við vonum að mætingin verði eins góð á næsta ári í sterkari deild en við lofum

því að fara með sama hugarfar í alla leiki eins og í ár. Takk fyrir okkur og sjáumst hress á vellinum næsta sumar. Áfram Grótta!

Óskar Hrafn, þjálfari liðsins, á síðasta orðið: „Við ætlum að spila á ungum leikmönnum sem elska að spila saman og sanna að það sé hægt að ná árangri með því að þora að sækja það sem við eigum ekki í stað þess að verja það sem við eigum.“

Fótboltasumarið 2018

8. flokkur karla og kvenna

Björn Breiðfjörð Valdimarsson, Axel Ingi Tynes og Kamilla Brynjarsdóttir

Í 8. flokki æfa krakkar sem enn eru í leikskóla. Mikil ánægja hefur verið síðustu ár með samstarf knattspyrnudeildarinnar og leikskólans en veturinn 2017/2018 var boðið upp á fótboltaæfingar fyrir leikskólakrakka. Sem fyrr var mikil þátttaka og greinilegt að fótboltaæðið á Íslandi nær alveg niður í leikskólann. Krakkarnir tóku þátt í nokkrum mótum á tímabilinu. Markmiðið með því er að gefa iðkendum tækifæri til að klæðast Gróttubúningnum og læra að spila „alvöru fótboltaleik”. Gleðin var auðvitað í hávegum höfð og voru foreldrar oft undandi yfir ótrúlegum töktum

hjá bæði strákunum og stelpunum. Þetta eru fyrstu skrefin af vonandi mörgum innan knattspyrnudeildar Gróttu.

7. flokkur

karla

Björn Breiðfjörð Valdimarsson og Axel Ingi Tynes

7. flokkur kvenna

Bjarki Már Ólafsson og Arnar Þór Axelsson

Við fórum af stað með heldur fámennan hóp en í upphafi tímabils náðum við aldrei

7. flokkur karla var fjölmennur og metnaðarfullur flokkur og það sýndi sig í fjölmennum æfingum, mikilli bætingu, frábærum aga og leikgleði hjá öllum leikmönnum. Farið var á fjölmörg mót og margir æfingaleikir spilaðir þar sem bætingin og spilamennskan jókst með hverri keppni. Hápunktur sumarsins var svo Sauðarkróksmótið þar sem við sendum 6 lið til leiks og stóðu öll lið sig frábærlega. Krakkarnir þroskuðust og lærðu mikið á mótinu, hvernig maður fagnar sigrum, hvernig takast skal á við grátleg töp, svekkelsi og hamingju! Ótrúlega gott ár hjá öllum iðkendum 7. flokks og þjálfararnir gætu ekki verið stoltari af öllum leikmönnunum sem að voru með okkur

í ár. Foreldrarnir fá einnig hrós skilið fyrir gífurlega jákvæðni og stuðnings til krakkanna!

fleiri en 10 stelpum á æfingar. Við réðumst því í það verkefni að fjölga fótboltastelpum í 1. og 2. bekk. Við þjálfararnir heimsóttum stelpurnar í skólann og buðum þeim á sérstaka “vinkonu æfingu” þar sem stelpurnar máttu taka með sér gest úr skólanum. Það tókst heldur betur vel og mættu hvorki fleiri né færri en 27 stelpur á þá fótboltaæfingu. Með frekari aðgerðum, t.a.m. 12:00 tónleikum, gistingu í íþróttahúsinu og heimsókn frá stórsveitinni Áttan, tókst okkur verkefnið og flokkurinn taldi 20 stelpur yfir sumartímann. Við fórum á þó nokkur mót, en Akreyrarmotið, Gróttumótið að sjálfsögðu og Símamótið stóðu þó upp úr. Stelpurnar tóku heilmiklum framförum með hverri æfingu og hverju móti og má þá helst þakka foreldrunum fyrir góðan stuðning og mikinn áhuga á fótboltaiðkun dætra sinna. Það verður ótrúlega gaman að fylgjast áfram með stelpunum taka næstu skrefin á vellinum og foreldrahópnum að halda áfram að styðja svona vel við bakið á þessum skemmtilegu stelpum.

6. flokkur karla

Arnar Þór Axelsson, Kristján Daði og

Pétur Rögnvaldsson

Tímabilið 17/18 hjá strákunum í 6. flokki var gríðarlega viðburðaríkt og skemmtilegt. Um 30 strákar æfðu statt og stöðugt allt árið og sýndu verkefninu mikinn áhuga. Óhætt er að segja að allir hafi bætt sig mikið sem knattspyrnumenn·. Strákarnir tókust á við fjölda verkefna allt árið og stóðu sig iðulega mjög vel. 6.flokkur

tefldi fram 6 liðum í hvert skipti sem allur flokkurinn fór saman á mót eða æfingaleiki. Léttleikandi fótbolti með áherslu á samspil ásamt gleði einkenndi strákana í öllum liðum og styrkleikum og þjálfarateymið gæti ekki verið ánægðari með þessa flottu fulltrúa Gróttu. Hápunktur sumarsins var auðvitað Orkumótið og svo Króksmótið. Á Orkumótið fór eldra árið og Grótta mætti með 2 glæsileg lið. Eftir þrjá langa en frábæra daga komu allir sáttir heim og Grótta með 1 bikar í farteskinu. Flokkurinn endaði svo frábært tímabil allir saman á Króknum þar sem spilamennska flokksins í heild sinni var til fyrirmyndar og þá var sannarlega flottur endir á sterku tímabili fullkomnaður. Arnar Þór, Kristján Daði og Pétur þakka kærlega fyrir sig.

6. flokkur kvenna

Magnús Örn og Eydís Lilja

Hópurinn sem æfði í 6. flokki á liðnu tímabili var fjörugur, fjölmennur en fyrst og fremst algjörlega frábær!

Tækniþjálfun var í hávegum höfð og þá þurftu sumir að læra betur hvernig maður á að haga sér á æfingum og bera sig að í fótboltanum. Fyrstu mótin gengu brösuglega en upp úr áramótum fór að bera á góðum framförum hjá stærstum hluta hópsins. Þegar komið var að fyrra stórmóti sumarsins, Landsbankamótinu á Sauðárkróki, voru stelpurnar algjörlega klárar í slaginn og mætti Grótta með 29 stelpur á mótið - nýtt met hjá félaginu. Öll liðin áttu frábæra spretti en Grótta1 tapaði aðeins einum leik alla helgina og vann til bronsverðlauna. Símamótið í Kópavogi var ekki síðra hjá Gróttustelpum. Þar vakti spilamennska okkar stelpna verðskuldaða athygli og réðum við þjálfararnir okkur oft ekki fyrir kæti þegar magnaðir hlutir gerðust inni á vellinum. Að lokum léku öll Gróttuliðin til úrslita í sínum flokkum og Grótta3 og Gróttu5 fóru heim með bikar. Fjögur af fimm liðum Gróttu komist í úrslitakeppni Hnátumóts KSÍ en þeirra lengst náði

Magnús Örn

AxelIngi
Kamilla
Björn
Pétur
ArnarÞór

A-liðið sem fékk silfur. En þegar horft er um öxl er þó stærsti sigurinn fólginn í því stelpum í fótbolta hjá Gróttu hefur fjölgað verulega á síðustu árum. Nú er það hluti af menningu barnanna á Nesinu að stelpurnar séu í fótbolta eins og strákar. Það er líka hrikalega töff að vera fótboltastelpa!

5. flokkur karla

Halldór Árnason og Björn Valdimarsson

Rúmlega 30 strákar æfðu með 5. flokki karla á tímabilinu undir handleiðslu

Halldórs Árnasonar og

Björns Valdimarssonar. Strákarnir æfðu gríðarlega vel og var frábærlega mætt á hverja einustu æfingu. Í kjölfarið urðu framfarirnar miklar hjá hópnum sem auk þess að æfa vel spiluðu gríðarlega marga leiki yfir tímabilið. Æfingaleikir, Booztmót, Faxaflóamót, Íslandsmót, N1-mót og Olísmót voru verkefni flokksins þar sem N1-mótið stóð uppúr eins og áður sem stærsta mót tímabilsins. Grótta sendi fjögur lið til leiks á N1-mótið þetta árið. Í leikjum tímabilsins unnust og töpuðust leikir og mót, liðið skoruðu mörk og fengu á sig mörk. En árangur tímabilsins mælist í því að strákarnir tóku framförum í gegnum tímabilið, brotfall var lítið sem ekkert og það fjölgaði hægt og rólega í hópnum þegar leið á tímabilið. Við þjálfararnir nutum hverrar mínútu á vellinum og viljum þakka þessum flotta hópi fyrir eftirminnilegt tímabil.

5. flokkur kvenna

Þóra, Bjargey og Kamilla

5.flokkur kvenna pössuðu upp á að tímabilið 2017/2018 væri skemmtilegt, lærdómsríkt og eftirminnilegt. Flokkurinn stóð saman af 25 frábærum stelpum sem eiga allar bjarta framtíð fyrir sér sem einstaklingar og fótboltakonur. Stelpurnar tóku þátt í Faxaflóamótinu og Íslandsmótinu en toppur sumarsins voru ferð til Vestmanneyjar á TM mótið og

Símamótið. Þær sýndu hvað í þeim býr og voru félaginu til sóma. Með þakklæti í hjarta, þökkum við stelpunum, foreldrunum og félaginu fyrir

árið sem er að líða og óskum öllu

Gróttufólki gleðileg jól.

4. flokkur karla

Guðjón Þór og Arnar Þór Axelsson

Tímabilið 2017/2018 hjá 4.flokki karla var skemmtilegt og lærdómsríkt. 20 sprækir strákar æfðu af krafti í allskonar veðrum en létu það ekki stoppa sig í að mæta á æfingar og leiki. Þjálfarar flokksins voru þeir Guðjón Þór Ólafsson og Arnar Axelsson. Helstu verkefni flokksins

voru Faxaflóamótið, Íslandsmótið og

Vildbjerg Cup í Danmörku. Í

Faxaflóamótinu gerði

7-manna lið flokksins

lítið fyrir og sigraði mótið með glæsibrag. Strákarnir stóðu sig einnig með ágætum í Íslandsmótinu þar sem þeir fengu marga jafna og góða leiki sem strákarnir lærðu mikið af. Toppurinn á tímabilinu var ferð flokksins til Danmerkur á Vildbjerg Cup þar sem Grótta sendi inn tvö lið. Strákarnir stóðu sig mjög vel innan sem utan vallar og voru félaginu svo sannarlega til sóma og með smá heppni hefði bæði liðin getað komist lengra í mótinu.

4. flokkur kvenna

Björn Valdimarsson og Íunn Eir

32 stelpur voru í 4.flokki Grótta/ KR tímabilið 2017/18. Hópurinn var þéttur og skemmtilegur en góð mæting var á allar æfingar stelpnanna og voru þær samviskusamar og metnaðarfullar fyrir því að bæta sig sem fótboltakonur og sem einstaklingar. Tekið var þátt í Reykjavíkurmótinu á undirbúningstímabilinu og voru þeir leikir notaðir til þess að bæta

spilamennsku liðsins og læra að spila sem lið. Íslandsmótið var svo yfir sumarið og voru stelpurnar tilbúnar að sýna sig og sanna og voru ákveðnar í því að spila besta fótboltann af liðunum í riðlinum. Góðir sigrar unnust og grátleg töp einnig en stelpurnar trúðu alltaf á sig sjálfar og voru nógu hugrakkar til þess að spila fótboltann sem búið var að æfa allan veturinn. Hápunktur sumarsins var þó Dana Cup mótið en út fóru allar 32 stelpurnar og voru þær í tveimur liðum. Yngra árs liðið lenti í basli í riðlinum en mikill hiti í Danmörku í bland við meiðsli hjá leikmönnunum í liðinu gerði verkefnið erfitt. Stelpurnar létu það þó ekki stoppa sig í að hafa gaman og voru glaðar og jákvæðar alla ferðina! Eldra árinu gekk vel í riðlinum og gerði meðal annars jafntefli við Viking sem að endaði á því að vinna mótið í þeirra aldursflokki. Í 16-liða úrslitum duttu stelpurnar út eftir grátlega vítaspyrnukeppni en þær voru fljótar að jafna sig á því og kláruðu ferðina léttar,ljúfar og kátar! Þessi hópur var félagi til sóma í ár og hvetjum við þær allar til þess að halda áfram í fótbolta og halda vinskapnun sem að myndaðist hjá þeim í ár! Takk fyrir árið stelpur, þið voruð frábærar.

3. flokkur karla

Óskar Hrafn og Magnús Örn

Þjálfarar geta vart beðið um meira en jafn góðan og samheldinn hóp og skipaði 3. flokk karla á liðnu tímabili.

Æfingar gengu vel yfir veturinn en við þjálfararnir þurftum að hafa okkur alla við til að gera æfingarnar nógu krefjanda fyrir strákana. Íslandsmótið hófst í maí en í byrjun júní var farið í skemmtilega keppnisferð til Akureyrar þar sem okkar mönnum tókst reyndar ekki að sækja gull í greipar Þórsara og KA-manna. B-liðið endaði sumarið með 4 sigra í 10 leikjum en hápunkturinn var þó klárlega

Þóra
Guðjón Þór
ÍunnEir
Halldór ÓskarHrafn
Björn

Fótboltasumarið 2018

að komast í úrslit á USA Cup en sagt er frá því síðar í blaðinu. A-liðið fór í 8-liða úrslit í bikarkeppninni og endaði í 2. sæti í sínum riðli í Íslandsmótinu. Það þýddi að leikinn var umspilsleikur við ÍR um sæti í B-deild en síðar í blaðinu má lesa um þann leik og ævintýrin sem fylgdu í kjölfarið. Til að undirstrika kraftinn í 3. flokki voru fimm leikmenn frá Gróttu

valdir í hóp hjá U16 ára landsliðinu í október sem verður að teljast til tíðinda fyrir ekki stærra félag. En frábært tímabil að baki sem verður lengi í minnum haft hjá bæði strákunum og okkur þjálfurunum.

3. flokkur kvenna

Pétur og Alex

Sumarið hjá 3. flokki kvenna var ótrúlega viðburðaríkt og skemmtilegt. Óhætt er að segja að hápunkturinn hafi verið Bandaríkjaferðin, en henni verður gerð frekari skil annarsstaðar í blaðinu.

Íslandsmótinu hjá liðunum, A og B, var því eiginlega skipt í tvennt, fyrir USACUP og eftir USA-CUP. Óhætt er að segja að spilamennska liðanna tveggja hafi verið með eindæmum góð fyrri hluta sumars, en bæði lið voru taplaus í Íslandsmótinu og flokkurinn kominn í gegnum fyrstu umferðina í bikarnum þegar stelpurnar lögðu land undir fót. Þrátt fyrir að spilamennskan hafi verið góð eftir Bandaríkjaferðina, voru úrslitin oft ekki í takt við það. Flokkurinn datt hrikalega klaufalega útúr bikarnum gegn Víking 2-1 og tapaði nokkrum leikjum í Íslandsmótinu sem orsökuðu að A-liðið komst ekki í úrslitakeppnina og B-liðið endaði um miðja deild. Við þjálfararnir erum gífurlega stoltir af stelpunum og þeirra spilamennsku í sumar. Þær spiluðu hugaðan og

skemmtilegan sóknarbolta undir öllum kringumstæðum. Liðið lagði alltaf upp með að vera meira með boltann en andstæðingurinn og stjórna leiknum frá upphafi til enda. 52 mörk í 10 leikjum hjá A-liðinu gerir þær að markahæsta liði landsins í heildina og að langmarkahæsta liði landsins ef skoðuð eru mörk skoruð að meðaltali í leik.

Takk fyrir tímabilið stelpur, það var geggjað!

2. flokkur karla

Halldór Árnason og Guðjón Þór

Það má með sanni segja að tímabilið hjá 2. flokki karla hafi verið allt í senn krefjandi, lærdómsríkt og árangursríkt. Halldór Árnason og Guðjón Þór Ólafsson tóku við þjálfun flokksins af Bjarka

Má og Arnari Axels sem höfðu unnið ótrúlega faglegt starf með flokkinn árið áður.

Stór hluti flokksins gekk upp að hausti og það var lítill hópur sem fór af stað inn í tímabilið. Einhverjir heltust úr lestinni og eftir alvarleg meiðsli lykilmanna í byrjun tímabils var orðið tvísýnt hvort hópurinn myndi ná að manna keppnislið í Íslandsmóti. En það var að lokum lítill hópur frábæra drengja sem óð eld og brennistein, mætti á allir æfingar, á öllum tímum dagsins og vikunnar. Mætti á styrktaræfingar og tók hlaupatest. Þessum hópi erum við þjálfararnir ævinlega þakklátir og þó það hafi ekki allir spilað hverja einustu mínútu þá gerðu þessir drengir okkur kleift að halda úti góðu liði sem uppskar að lokum eins og sáð var. Lokaniðurstaða tímabilsins var sigur í C-deild Íslandsmóts og þar með sæti í B-deild tryggt. Sigurinn í deildinni var nokkuð sannfærandi með fjórum stigum meira en ÍBV sem endaði í öðru sæti. Gróttuliðið sigraði flesta leiki allra og tapaði fæstum. Voru

jafnframt með bestu markatöluna og Róbert Darri varð markakóngur C-deildar með 15 mörk. Nú taka við ný og krefjandi verkefni hjá leikmönnum flokksins á ýmsum vígstöðum. Hjá 2. flokki í B-deild, hjá meistaraflokki í Inkassodeildinni og hjá Kríu í 4.deild. Það er von okkar þjálfarana að sjá ykkur alla spila áfram fótbolta á Seltjarnarnesi næsta sumar.

2. flokkur kvenna

Magnús Örn

Markmiðin voru einföld: Að Grótta/ KR starfrækti 2. flokk frá upphafi tímabils til enda þess, að félagið væri með lið í öllum keppnum og að brottfall úr hópnum yrði sem minnst. Í stuttu máli náðust þessi markmið með glæsibrag í fyrsta sinn í mörg ár. Undirbúningstímabilið gekk ágætlega þó að ákveðin niðursveifla hafi verið í starfi flokksins í janúar og febrúar. En í mars einsettu sér allir að skipta upp um gír, æfingasókn batnaði verulega og þar með fór liðið að taka framförum. Íslandsmótið hófst í maí og skiptust þar á skin og skúrir. Eftirminnilegur er útileikurinn við Tindastól í mígandi rigningu og logni (með öðrum orðum: geggjað fótboltaveður) á Sauðárkróki. Sá leikur tapaðist því miður en einnig var frammistaðan frábær í sigri á Aftureldingu/Fram á Tungubökkum. Frá sjónarhorni þjálfarans var síðasti leikur tímabilsins, útileikur við sterkt lið Keflavíkur/ÍBV, sá besti en þar lék Gróttu/KR liðið algjörlega sem ein heild í bæði vörn og sókn og gátu í kjölfarið litið mjög björtum augun inn í næstu mánuði. Hápunktur sumarsins var þó vafalaust eftirminnileg keppnisferð til Spánar sem sagt verður frá síðar í blaðinu.

Magnús Örn
Pétur
Alex
Halldór

Enter PIN

FYRIRFRAM GREITT ER FLJÓTLEGRA

Það er orðið enn þægilegra að panta hjá Domino’s, því nú er hægt að greiða fyrirfram um leið og pantað er á netinu eða með appinu. Þannig getur þú t.d. gengið frá heilli máltíð fyrir fjölskylduna án þess að vera á staðnum sem getur komið sér vel. Semsagt: Pikka, panta og borga. Verði þér að góðu!

-og málið er dautt

2. flokkur á Donosti Cup

Eftir langan og strangan vetur, lotuhlaup, lyftingar og æfingar í snjó var loksins komið að því: Donosti Cup á Spáni! Haldið var af stað laugardaginn 30. júní. Hópurinn átti að millilenda í París og fljúga svo til Biarritz sem er stutt frá San Sebastian þar sem mótið var haldið. En þegar Grótta/KR lenti í París kom í ljós að næsta flugi var aflýst vegna verkfalls flugumferðarstjóra. Ævintýrið var byrjað!

2. flokkur á Donosti Cup

Eftir langan og strangan vetur, lotuhlaup, lyftingar og æfingar í snjó var loksins komið að því: Donosti Cup á Spáni! Haldið var af stað laugardaginn 30. júní. Hópurinn átti að millilenda í París og fljúga svo til Biarritz sem er stutt frá San Sebastian þar sem mótið var haldið. En þegar Grótta/KR lenti í París kom í ljós að næsta flugi var aflýst vegna verkfalls flugumferðarstjóra. Ævintýrið var byrjað!

Strandaglópar í París

Að sjálfsögðu létu stelpurnar þessa óvæntu uppákomu ekki á sig fá.

Fararstjórnin fór strax í að græja lestarferð og hópurinn eyddi deginum í París, borg ástarinnar. Um sama leyti og við komum inn í miðborgina var Frakkland að tryggja sér sigur á Argentínu í 16-liða úrslitum HM. Stemningin skilaði sér út á götu - bílar flautuðu og borgarbúar réðu sér ekki fyrir kæti. Gróttu/KR hópurinn gekk frá Notre Dame kirkjunni og alla leið að Eiffel turninum fræga og það var sannarlega margt sem fyrir augu bar á leiðinni.

Daginn eftir var haldið með lest til Bordeaux þar sem liðið var sótt í rútu. Þegar komið var til San Sebastian var farið rakleiðis niður á hina tilkomumiklu strönd borgarinnar sem var rétt hjá gistiheimilinu. Markmiðið var þó ekki að sóla sig heldur að gera léttar æfingar (sem vöktu mikla athygli strandgesta) enda fyrsti leikur morguninn eftir.

Englar Gabríels

Fyrstu andstæðingar ferðarinnar voru stelpurnar í Sant Gabriel (englar Gabríels) sem er eitt sterkasta kvennaliðið í Barcelona. Þær spænsku komust 1-0 yfir en Sigga jafnaði með flottu

marki. Í seinni hálfleik tók Sant Gabriel öll völd, okkar stelpur voru líklega enn að venjast hitanum og lokatölur 4-1 tap. Um kvöldið var svo opnunarhátíð Donosti Cup haldin en Gróttu/KR stelpur fengu þann heiður að ganga inn á leikvanginn sem fulltrúar Íslands á mótinu. Að sjálfsögðu var víkingaklappið fræga tekið við mikinn fögnuð viðstaddra undir styrkri stjórn Önnu Kristínar.

Spennan magnast

Eftir jafntefli við kanadískt lið og tap í þrumuveðri á móti sterku liði frá Spáni var ljóst að Grótta/KR myndi enda í 3. sæti riðilsins og fara í B-úrslit sem hófust á fimmtudeginum. Leikið var síðdegis svo morguninn var nýttur í æsispennandi keppni á milli herbergja sem teygði sig um allan miðbæ San Sebastian. Meðal annars var bolta haldið á lofti á fjölförnu torgi og þá fengu stelpurnar stig fyrir að syngja fyrir gangandi vegfarendur. Sóley sló svo rækilega í gegn með flutningi á lagi með One Direction að einn áhorfenda færði henni rós og elti um bæinn í nokkra stund.

Stelpurnar skelltu sér á brimbrettanámskeið.
Létt æfing í miðbænum.

Mikill kraftur var í Gróttu/KR stelpum á fyrstu mínútum útsláttarkeppninnar enda nennti enginn að ljúka keppni strax. Helga skoraði í fyrri hálfleik og Dagbjört bætti um betur í þeim síðar. Staðan 2-0 fyrir okkar konur. En undir lokin minnkuðu andstæðingarnir muninn og var taugaspennan síðustu sekúndurnar gríðarleg. Lokatölur urðu þó 2-1 fyrir Gróttu/KR og sæti í 8-liða úrslitum tryggt. Mikill gleði fylgdi í kjölfarið og þegar komið var á mótsvæðið til að borða kvöldmat endaði liðið á því að byrja hópdans með plötusnúð sem þeytti skífum við matsalinn. Rosaleg stemning!

Dramadrottningar frá Madríd Í 8-liða úrslitum öttu Gróttu/KR stelpur við lið Escuela frá höfuðborginni Madríd. Lagt var upp með sterkum varnarleik og hröðum sóknum en þær spænsku náðu því miður að skora fyrsta markið. Gróttu/

KR óx ásmegin eftir því sem leið á leikinn og átti líklega sína bestu frammistöðu á mótinu. Liðsmenn og þjálfarar Escuela beittu öllum brögðum til að tefja leikinn - stelpurnar þóttust ítrekað vera meiddar og þjálfari þeirra kallaði stanslaust á dómarann á spænsku. Hápunktinum var svo náð þegar móðir eins leikmanns Escuela hljóp inn á völlinn þegar dóttir hennar lá eftir tæklingu! Okkar konur sóttu stíft síðustu mínúturnar og spennan var rafmögnuð en að lokum fóru dramadrottningarnar frá Madríd með sigur af hólmi. Virkilega svekkjandi niðurstaða en liðið sýndi þó mikinn karakter sem hafði klárlega vantað framan af tímabilinu á Íslandi.

Síðdegis skráðu stelpurnar sig á brimbrettanámskeið og sýndu margir leikmenn virkilega góða takta á brettunum. Þó að úrslit dagsins hafi verið súr voru allir staðráðnir í að klára

ferðina í góðum gír. Lokadeginum var eytt á ströndinni í D-vítamín söfnun og með heimsókn til menningarborgarinnar Bilbao.

Dýrmætar minningar

Gaman er að segja frá því að 2. flokkur Gróttu/KR var fyrsta íslenska liðið sem tók þátt í Donosti Cup í mörg ár. Mótið var vel skipulagt og ekki spillti fyrir frábært umhverfi San Sebastian og nágrennis en leikið var í mörgum litlum bæjum á svæðinu. Eftir svona ferð standa eftir dýrmætar minningar sem bæði stelpurnar og fararstjórnin (Maggi, Íunn og Kristján) munu taka með sér inn í framtíðina. 2. flokkur kvenna er vafalaust flóknasti flokkurinn í íslenskum fótbolta og því sómi af því fyrir Gróttu og KR að hafa teflt fram svona flottum hópi á liðnu tímabili.

Hopurinn.
Fyrsti leikurinn.

Sjálfstraustið gerði gæfumuninn

Viðtal við Pétur Stein Þorsteinsson

Það var þægilegt fyrir ritstjóra Gróttublaðsins að komast í samband við Pétur Stein

Þorsteinsson í ljósi þess að hann var eini viðmælandi blaðsins sem var á sama tímabelti og undirritaður. Pétur býr í móðurfylkinu svokallaða, Virginiu, þar sem saga enskumælandi byggðar í Norður-Ameríku hófst. Pétur er á sínu öðru ári í James Madison

Háskólanum og spilar með knattspyrnuliði skólans JMU Dukes. Liðið er eitt af 10 bestu liðum landsins og Pétur hefur að öllu jöfnu verið fastamaður í liðinu. Ég ræddi við Pétur um fótboltakúlturinn, liðið sjálft og velgengni þess á liðnu tímabili.

Þið komust langt í fyrra en í ár tókst ykkur að fara alla leið í 8 liða úrslit NCAA-bikarsins. Hvernig hefur þetta tímabil verið frábrugðið því síðasta? Það hefur í raun ekki mikið breyst fyrir utan það að heppnin var með okkur í ár en ekki í fyrra. Við unnum deildina á seinasta ári en vorum óheppnir að tapa í undanúrslitum í championship keppninni. (Þú þarft semsagt að vinna hana til að komast í NCAA keppnina og

vera hátt rankaður). Það hjálpar klárlega að liðsheildin í ár er svipuð eins og hún er heima í Gróttu, þ.e. upp á tíu! Það eru eintómir fagmenn í þessu liði og hver og einn er tilbúinn að leggja allt á sig til þess að komast sem lengst.

Hver var lykillinn að velgengni liðsins?

Lykillinn að velgengninni okkar á þessu ári hlýtur að vera trúin okkar á eigin getu. Við vissum alltaf að við værum

með framúrskarandi lið sem getur unnið hvern sem er á góðum degi. Við þurftum bara að passa að halda fast í sjálftraustið og sýna hversu góðir við erum.

Þú hefur verið að kljást við ýmiskonar meiðsli á síðustu árum, hefurðu náð að halda þér heilum og spila eftir þinn besta leik?

Persónulega hefur mér gengið mjög vel. Ég var með fast byrjunaliðssæti í

upphafi tímabilsins og leið mjög vel. Því miður á ég það til að togna aftan í læri og það gerðist í lok eins leiksins. Það varð til þess að ég missti af nokkrum leikjum við miðbik tímabilsins, en ég kom fljótlega tilbaka enn sterkari! Ég spilaði í hægri bakverðinum og átti minn þátt í einni af þremur bestu varnalínum í Bandaríkjunum. Ég spilaði allar mínútur í championship-leikjunum og skilaði góðu assisti í úrslitaleiknum í CAA keppninni. Ég myndi því segja að þetta tímabil hafi verið frábært og ótrúlega reynsluríkt.

Nú var þjálfari JMU, Paul Zazenski nýverið útnefndur þjálfari ársins af The CCA. Er hann einstaklega góður og eigið þið gott samband?

Já, þjálfarinn okkar frá seinasta ári Tom Foley hætti viku fyrir tímabilið og aðstoðarþjálfari hans Paul Zazenski tók við. Paul hefur staðið sig mjög vel og ég tel að þjálfaraskiptin hafi styrkt okkur. Við erum góðir félagar en Paul er ekki eins og flestir bandarískir þjálfarar sem

Nafn: Pétur Steinn Þorsteinsson

Aldur: 21 árs

Gælunafn liðs: Dukes

elskar “kick and run” fótbolta. Hann vill að við tökum fáar snertinga og spilum með jörðinni. Gamli þjálfarinn okkar elskaði að láta okkur hlaupa en Paul er meira fyrir að láta okkur gera fitness með bolta sem ég kann mikið betur við. Paul elskar tölfræði eins og flestir Ameríkanar. Við erum með tvo fundi fyrir hvern leik þar sem við ræðum um hvern einasta leikmann í hinu liðinu og hvernig það nálgast leikinn. Paul er mjög þjálfari fínn og vel gert hjá honum að ná svona langt á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari JMU.

Við sem þekkjum ameríska kúltúrinn vitum að knattspyrna er ekki það fyrsta sem fyrsta sem hinn almenni bandaríkjamaður hugsar þegar hann heyrir „football.“ Er knattspyrnan vinsæl meðal samnemenda í skólanum? Það er svo sannarlega rétt að ameríski fótboltinn ræður ríkjum hérna. Þeir eru vinsælasta greinin í skólanum og völlurinn þeirra tekur um 25.000 manns.

Skóli: James Madison University, Virginia

„Við þurftum bara að passa að halda fast í sjálftraustið og sýna hversu góðir við erum.“

Knattspyrnan hefur ekki verið mikið í umræðunni síðustu ár en eftir þetta tímabil verðum við pottþétt meira í sviðsljósinu. Ameríski fótboltinn verður alltaf langstærstur innan skólans en við getum vonandi náð meiri athygli.

Segðu okkur frá síðasta leik ykkar á tímabilinu á móti Michigan State. Af því sem maður las var þetta þvílík dramatík, var það raunin?

Seinasti leikurinn sem við spiluðum var gegn Michigan State sem er talinn vera einn stærsti og besti skóli í Bandaríkjunum hvað íþróttir varðar. Þetta var „Elite 8“ leikur sem er 8-liða úrslitaleikur í NCAA keppninni. Ég byrjaði leikinn í hægri bakverðinum og var í toppstandi. Við komumst yfir snemma í leiknum en þegar um 20 mínútur voru eftir þá jöfnuðu þeir og bættu svo við öðru marki stuttu seinna. Við stóðum okkur mjög vel í leiknum en það dugði ekki í þetta sinn. Þetta var gríðarlega skemmtilegur leikur og það var ekki verra að hafa um 3000 manns í stúkunni að keppast við að gera grín að mér fyrir síða hárið!

Hvernig líst þér á komandi tímabil með Gróttu í Inkasso?

Komandi tímabil Gróttu í Inkasso verður mjög krefjandi. Í þetta sinn höldum við okkur í Inkasso og með glæsibrag. Vonandi verð ég klár í slaginn og meiðslafrír þegar ég kem heim skömmu fyrir mót!

Með hugrekkið að vopni

3. flokkur karla í undanúrslitum Íslandsmótsins

Það var rafmagnað andrúmsloft í Breiðholtinu föstudaginn 7. september þegar ÍR og Gróttu léku umspilsleik um að komast upp í B-deild Íslandsmótsins. Staðan var 2-2 eftir venjulegan leiktíma og því framlengt.

Gróttumenn brugðu ekki frá sínum leikstíl - boltinn var látinn ganga hratt manna á milli og vörnin stóð framarlega. Hugrekkið sannarlega til staðar. Um miðja framlengingu þrumaði Arnþór Páll Hafsteinsson boltanum í netið og lokatölur urðu 3-2 fyrir Gróttu. En ævintýrið var rétt að byrja. Tveimur dögum síðar var haldið með langferðabíl (ekki rútu) norður á Blönduós þar sem leikið var við Þórsara um sigurinn í C-deild og þar með farmiða í undanúrslit Íslandsmótsins. „Maggi, þetta og eins og Nou Camp!”, kallaði Óskar þjálfari á Magnús kollega sinn þegar iðagrænn Blönduósvöllur var skoðaður fyrir leikinn og ekki spillti fyrir stemningunni að glampandi sól lék um Húnavatnssýsluna. Þórsarar voru harðir í horn að taka eins og Gróttumenn höfðu fengið að kynnast fyrr um sumarið. Krummi varði eins og berserkur í markinu og nokkrum sinnum komu Ragnar og samstarfsmenn hans í vörninni glæsilega til bjargar. Staðan í leikhléi markalaus. Í seinni hálfleik efldust Gróttumenn og Orri Steinn skoraði fyrsta markið á 51. mínútu. Gunnar Hrafn bætti við öðru marki skömmu síðar og þar

með var allur vindur úr norðanmönnum. Lokatölur 3-0 og gleðin ósvikin hjá Gróttudrengjum - þeir bara nenntu ekki í frí!

Undanúrslitaleikurinn var fjórum dögum síðar í Kaplakrika á móti FH sem hafði sigrað A-deild Íslandsmótsins með stæl. Því miður var leikmönnum beggja liða ekki sýnd meiri virðing en svo að þessi mikilvægi leikur var settur á lélegan æfingavöll, en allir staðráðnir í að láta það ekki á sig fá. Heimamenn byrjuðu vel og komust 2-0 yfir snemma leiks. Kjartan Kári minnkaði muninn með glæsilegu aukaspyrnumarki sem var vel fagnað af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylgdu Gróttu í Hafnarfjörðinn. Í seinni hálfleik lögðu Gróttumenn allt í sölurnar til að jafna. Boltinn var þræddur á milli nautsterkra FH-inganna sem á endanum fjölguðu í vörninni. Orri skoraði flott mark sem var dæmt af vegna rangstöðu en sjónarvottum ber ekki saman um hvort að um réttan dóm hafi verið að ræða. En allt kom fyrir ekki - lokatölur 2-1 fyrir FH en Gróttumenn fengu mikið hrós fyrir flotta frammistöðu. Skal engan undra enda sóttu Seltirningar til sigurs með hugrekkið að vopni gegn sterkasta liði landsins. Enginn úrslitaleikur þetta árið en hinir ungu Gróttumenn eru rétt að byrja.

Orri Steinn og Ragnar Björn fagna marki.
Að loknum sigri var kátt í klefanum.

Enginn leikur mikilvægari en heilsan sjálf

Viðtal við Kristófer Melsted

Kristófer Melsted, fæddur 1999, er einn efnilegasti leikmaður í herbúðum Gróttu og er þekktur fyrir einstakan dugnað, ástríðu fyrir leiknum og samvisku. Hann spilar sem miðjumaður og bakvörður og hefur staðið vaktir sínar með prýði. Það er ekki einungis innan fótboltavallarins sem Kristófer hefur verið til fyrirmyndar, en hann hefur þurft að sýna mikla þrautsegju og þolinmæði á þessu ári vegna meiðsla sem hafa verið að hrjá hann. Gróttublaðið fékk Kristófer til að segja frá því hvernig hann heldur haus þegar á móti blæs.

Lærdómsríkur heilahristingur

Frá því að ég byrjaði að spila fótbolta hef ég verið heppinn og ekki átt í miklum meiðslavandræðum. Það hefur því verið virkilega krefjandi en jafnframt lærdómsríkt að eyða stórum hluta ársins á hliðarlínunni. Eftir gott undirbúningstímabil lenti ég í því að fá þungt höfuðhögg í bikarleik á móti Selfossi. Í leiknum sjálfum gerði ég mér ekki grein fyrir því að ég hafði fengið heilahristing og kláraði leikinn. Þegar ég kom heim úr sveitinni urðu einkennin sterkari og ég brotnaði niður. Læknarnir á bráðamóttökunni hundskömmuðu mig að sjálfsögðu fyrir að hafa klárað leikinn hálfrænulaus.

Það tók mig sex vikur að jafna mig á höfuðmeiðslunum og svo tók endurhæfingin við. Flestir gera sér ekki grein fyrir alvarleika þess að fá heilahristing en þessi reynsla kenndi mér ýmislegt. Þegar þú færð svoleiðis högg og finnur fyrir svima við átök, verður þú að stoppa strax og hlusta á þjálfarana þína. Enginn leikur er mikilvægari en heilsan sjálf og allir vita að alvarleg höfuðmeiðsli í íþróttum geta haft stór áhrif á daglegt líf og haft varanlegan skaða.

Þegar ég var loksins kominn á fullt aftur lenti ég í því að fótbrotna í leik fyrir austan í ágústbyrjun. Læknarnir sögðu að það tæki brotið 6-8 vikur að gróa

sem þýddi að ég gat ekki spilað meira með liðinu í sumar. Það var virkilega erfitt að sætta sig við það í ljósi þess hve spennandi toppbaráttan var.

Sex vikum seinna fór ég í endurmat og fékk þær fréttir að ég þyrfti að vera í gifsi í aðrar sex vikur þar sem að beinið var ekki að gróa sem skildi. Til að gera langa sögu stutta hefur fóturinn loksins náð fullum bata 4 mánuðum síðar. Ég er nýbyrjaður að stíga í fótinn og nú hefst endurhæfingarferli þar sem ég er staðráðinn í því að vera þolinmóður og fara ekki of geyst af stað.

Lærði að meta frítímann

Ég kom heim í gifsinu, meðvitaður um að ég hafði val um það hvernig ég ætlaði

„Pétur Theodór stangaði boltann í netið

á síðustu mínútu leiksins og áhorfendur gjörsamlega sturluðust af gleði.”

snúa sterkari til baka eða láta meiðslin draga allan kraft úr mér?

Ég var harðákveðinn í því að nýta tímann vel og styrkja mig líkamlega – en leggja þó lykiláherslu á andlega þáttinn. Í stað þess að velta mér upp úr óréttlæti heimsins, ófær um að spila fótbolta með liðinu mínu, tók ég hlutunum með ákveðnu æðruleysi og einbeitti mér einungis að hlutum sem ég hafði stjórn á.

Ég lagði áherslu á að verja tímanum í hluti sem veittu mér ánægju, umgangast fólkið sem mér þykir vænst um. Jafnframt nýtti ég tímann í að gera hluti

GRÓTTUFÓLK

sem ég taldi mig ekki hafa tíma í áður eins og að lesa uppbyggjandi bækur, mennta mig í hinu og þessu og rækta önnur áhugamál en fótbolta.

Það allra mikilvægasta í ferlinu er að hafa fólk í kringum þig sem veitir þér jákvæða orku í stað þess að ýta endalaust undir eigin sjálfsvorkunn. Mamma hefur reynst mér sem klettur í þessu öllu saman, staðið við bakið á mér og verið dugleg við að hvetja mig áfram alla daga.

Trúin ræður ferðinni

Síðustu fjórir mánuðir hafa verið mjög krefjandi en á sama tíma lærdómsríkir. Í mótlætinu lærirðu að þú hefur alltaf val um hvernig þú bregst við hlutum sem þú hefur ekki fulla stjórn á og hvernig það eru í raun bara tvær leiðir í boði: Að gefast upp eða að einbeita sér af fullum krafti að því að mæta hlutunum af æðruleysi og koma sterkari til baka. Ég er staðráðinn í því að seinni kosturinn verði mín leið.

Á síðasta tímabili tileinkuðum við í Gróttuliðinu okkur hugarfar sem fleytti okkur ansi langt. Við vorum hugrakkir og munum taka sama hugarfar með okkur

upp í Inkasso-deildina næsta sumar. Það er alveg sama á móti hverjum við spilum, ef þetta hugafar er til staðar getum við unnið öll lið. Við erum ennþá staðráðnir í að breyta íslenskum fótbolta og ekki síður kúltúrnum í bænum með því að búa til fótboltalið sem bæjarbúar geta verið stoltir af. Við sjáumst hress á vellinum næsta sumar.

Áfram Grótta!

Meistaraflokkur kvenna

Guðjón Kristinsson og hans konur í meistaraflokki mættu til leiks þriðja tímabilið í röð. Árið 2017 endaði Grótta í 6. sæti í 2. deild og nú var stefnan sett á að gera enn betur. Undirbúningstímabilið gekk ágætlega en þrátt fyrir að fáir leikir hafi endað með sigri Gróttu var greinilegt að liðið hafði bætt sig mikið frá árinu áður.

Í febrúar kom í ljós að markvörðurinn og aðstoðarþjálfarinn Íris Dögg Gunnarsdóttir ætti von á barni en hún var einn besti leikmaður liðsins árið 2017. Gleðifréttir fyrir Írisi en ljóst að stórt skarð þyrfti að fylla. Hin unga Friðrika Arnardóttir var fengin að láni frá Þrótti til að verja markið og einnig bættust sterkir leikmenn á borð við Akureyringinn Sigrúnu Ösp Aðalgeirsdóttur og hina brasilísku Taciönu da Silva við hópinn.

Gróttuliðið fékk sannarlega fljúgandi start í deildinni. Eftir fimm umferðir var Grótta á toppnum með 13 stig af 15 mögulegum eftir jafntefli við Álftanes og sigra á Fjarðabyggð/Hetti, Einherja, Hvíta Riddaranum og Augnabliki. Leikurinn við Augnablik, sem leikinn var á Kópavogsvelli, er án vafa besti leikur sem meistaraflokkur kvenna hjá Gróttu hefur spilað. Frábær frammistaða í alla staði og verðskuldaður 4-2 sigur staðreynd en í liði Augnabliks voru fyrrverandi landsliðskonur og margir efnilegir leikmenn úr yngri landsliðum Íslands. Var Grótta á leið upp um deild?

Júlímánuður reyndist ekki góður fyrir Gróttukonur. Aðeins eitt stig úr fimm

leikjum staðreynd og draumurinn um Inkasso-deildina orðinn ansi fjarlægur. Tindastóll og Augnablik misstigu sig varla og luku að lokum keppni með 11 sigra í 14 leikjum. Það verður þó ekki annað sagt en að Grótta hafi endað sumarið vel en stelpurnar unnu þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum og luku keppni í 4. sæti - í raun hársbreidd frá þriðja sætinu. Taciana fékk bronsskóinn eftir að hafa skorað 18 mörk í deildinni og var auk þess valin í lið ársins ásamt Bjargeyju Ólafsdóttur. Þess ber einnig að geta að þær Margrét Rán Rúnarsdóttir (15 ára), Tinna Brá Magnúsdóttir (14 ára) og Anja Ísis Brown (16 ára) stigu sín fyrstu skref í meistaraflokki í sumar en sú síðastnefna var fastamaður í liðinu.

Að loknu tímabil var Magnús Örn

Helgason ráðinn þjálfari Gróttuliðsins til næstu tveggja ára en hann hefur þjálfað yngri flokka Gróttu við góðan orðstír í yfir áratug. Maggi fær nú það stóra verkefni að fylgja á eftir því mikilvæga starfi sem Guðjón Kristínsson hefur unnið með liðið frá stofnun þess í tæp þrjú ár.

Við gefum Magga síðasta orðið: „Það er mikil áskorun að taka við meistaraflokki og ég er spenntur fyrir verkefninu. Æfingar hafa gengið vel það sem af er vetri og stelpurnar hafa tekið nýjum áherslum með opnum huga. En fyrst og fremst tek ég við góðu búi af Gauja og byggi ofan á uppbyggingu síðustu ára. Við ætlum okkur stóra hluti næsta sumar og vonum að fólk muni fjölmenna á völlinn og styðja við bakið á liðinu.“

Ar n a ís- og k affibar

Verið velkomin til okkar á Eiðistorgið

Við bjóðum upp á kaffi og ótal bragðtegundir af dásamlegum Örnu ís í notalegu umhverfi.

Svo erum við með skemmtilegt barnahorn fyrir börnin.

OPNUNARTÍMI

9-21 virka daga

10-18 UM HELGAR

Eiðistorg 15 170 Seltjarnarnes

Suðurströnd

Nesvegur

Þjálfarar knattspyrnudeildar Gróttu 2018/2019

Arnar Þór Axelsson

2.fl.kk, 6.fl.kk og kvk

Axel Ingi Tynes 7.fl. kk og kvk, 8.fl. kk og kvk

Björn Valdimarsson 4.fl.kk og kvk og 6.fl. kvk

Einar Bjarni Ómarsson 3.fl.kk

8. flokkur karla 2013-2014

8. flokkur kvenna 2013-2014

7. flokkur karla 2011-2012

7. flokkur kvenna 2011-2012

6. flokkur karla 2009-2010

6. flokkur kvenna 2009-2010

5. flokkur karla 2007-2008

5. flokkur kvenna 2007-2008

4. flokkur karla 2005-2006

4. flokkur kvenna 2005-2006

3. flokkur karla 2003-2004

3. flokkur kvenna 2003-2004

yngri flokka knattspyrnudeildar

Eydís Lilja Eysteinsdóttir

5. fl. kvk

Íunn Eir Gunnarsdóttir

4.fl.kvk

Óskar Hrafn Þorvaldsson

Mfl. kk og 2.fl.kk

Gabríel Hrannar Eyjólfsson 5.fl.kk

Kamilla Brá Brynjarsdóttir 8.fl.kk og kvk

Pétur Rögnvaldsson 3.fl.kvk

Guðmundur Guðjónsson 2.og 3.fl.kvk

Kristófer Melsted 4.fl.kk

Róbert Darri Jónsson 7.fl.kk og kvk

Halldór Árnason 5.fl.kk og mfl.kk

Magnús Örn Helgason

3.fl.kk, 5.fl.kvk og mfl.kvk

Þór Sigurðsson Styrktarþjálfun

Rafvirkjar sf

óska Gróttufólki gleðilegra jóla

og þakka fyrir samstarfið

á liðnum árum

KEMST EKKI, ER AÐ FARA Á ÆFINGU

Viðtal við Glódísi Perlu Viggósdóttir landsliðskonu Í knattspyrnu beinist kastljósið oftar en ekki að fótboltamönnum- og konum sem leika í fremstu víglínu og skora mörkin. Nú eða teknískum miðjumönnum sem heilla áhorfendum með gabbhreyfingum og tilþrifum með boltann. En skærasta stjarna íslenska kvennalandsliðsins um þessar mundir er varnarmaðurinn Glódís Perla Viggósdóttir sem leikur með sænska stórliðinu Rosengård. Glódís hefur spilað 70 landsleiki þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára gömul og hefur leikstíll hennar heillað knattspyrnuáhugafólk – frábærar sendingar og boltameðferð í bland við öflugan varnarleik. Gróttublaðið fékk þann heiður að setjast niður með þessari miklu afrekskonu og fyrirmynd og ræða um ferilinn og stöðu kvennaboltans.

„Þar

upplifði ég hvað fyrirmyndir í fótbolta skipta miklu máli og hvaða áhrif og hvatningu það getur haft þegar þær eru sýnilegar.“

Á mölinni í Fossvogsdalnum

„Lengst af bjó ég í Kópavoginum við Fossvogsdalinn fagra og er í raun uppalin í Fagralundi hjá HK. Ég bjó í Danmörku frá 5 til 10 ára aldurs og það var þar sem ég steig mín fyrstu skref í fótbolta hjá Egebjerg IF” segir

Glódís Perla aðspurð hvar og hvenær knattspyrnuferillinn hófst. En hvernig var aðstaða og utanumhald í yngri flokkunum á á þessum tíma? „Aðstaðan var mjög fín, í minningunni allavega. Yfir vetrartímann æfðum við inni í Fífunni og einnig á mölinni í Fagralundi. Já, ég er bara 23 ára en ég æfði samt og spilaði á möl! Það kom svo gervigras í staðinn fyrir mölina árið 2007 en í Fagralundi er líka stórt grassvæði. Utanumhaldið var til fyrirmyndar og við vorum með virkilega góða og metnaðarfulla þjálfara sem sáu til þess.”

En var Glódís alltaf ein af þeim bestu? Ég byrjaði ekki í fótbolta fyrr en ég var 8 eða 9 ára gömul og hafði lítið snert bolta fyrir það. Ég náði taktinum mjög fljótlega eftir ég byrjaði. Ég var ári á undan í skóla og fylgdi sama árgangi í fótbolta sem gerði það að verkum að ég æfði með stelpum sem voru tveimur og jafnvel

þremur árum eldri en ég. Það hjálpaði mér mjög að bæta mig hratt og ég var líklega farin að skara fram úr í 4. flokki” segir Glódís sem æfði einnig handbolta fram á unglingsárin en valdi að lokum að leggja fótboltann fyrir sig.

Fótboltastelpa frá fyrsta degi Í skemmtilegu viðtali við Vísi í sumar sagði Glódís að hún hafi alltaf verið mikil fótboltastelpa og til dæmis ætlað að fermast í HK-gallanum. Það hafi þó ekki gengið eftir. Gróttublaðinu leikur forvitni á að vita hvort að Glódís hafi æft og spilað með strákunum í HK eins og tíðkast í Gróttu? „ Ég spilaði aldrei leiki eða æfði með strákum en lék mér í fótbolta í flestum frímínútum og flest kvöld í Fagralundi með vinum mínum eða öðrum strákum sem voru á vellinum.”

Við biðjum Glódísi um að rifja upp augnablik úr yngri flokkunum sem hafði mikil áhrif á hana. Það stendur ekki á

svari: „Ég mun aldrei gleyma hvað mér fannst magnað þegar Katrín Jónsdóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, tók sér tíma til að koma og horfa á leik hjá í Fagralundi. Það var stór stund enda hún ein af mínum helstu fyrirmyndum. Þar upplifði ég hvað fyrirmyndir í fótbolta skipta miklu máli og hvaða áhrif og hvatningu það getur haft þegar þær eru sýnilegar.

Mikilvægt að standa með sjálfum sér

Glódís Perla spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik aðeins 14 ára gömul og orðið ljóst að hún ætti góða möguleika á að ná langt í íþróttinni. Tveimur árum seinna skoraði Glódís 14 mörk í 13 leikjum með HK/Víkingi í 1. deildinni.

Um svipað leyti setti hún stefnuna á atvinnumennsku í fótbolta: „Ég hugsa að draumurinn um atvinnumennsku hafi byrjað að mótast þegar ég var valin á Laugarvatn í mitt fyrsta landsliðsverkefni með U15. Ég varð svo alveg ákveðin í að þetta væri málið þegar ég spilaði með U17 liðinu í úrslitakeppni EM í Sviss. Þar upplifði ég allt aðra umgjörð og metnað en ég hafði áður kynnst og sá hvað fótboltinn úti í heimi er í raun stór. Þetta var eitthvað sem mig langaði að gera í framtíðinni.”

„Ég var að gera það sem mér þótti skemmtilegast.“
Glódís í leik með Rosengård.
Glódís hefur spilað 70 landsleiki fyrir Íslands hönd.
Mynd: Hafliði
Breiðfjörð

Til að taka næsta skref á sínum ferli skipti Glódís yfir í Stjörnuna árið 2012. Hún var lykilleikmaður hjá félaginu sem varð Íslandsmeistari tvisvar og bikarmeistari tvisvar á þremur árum og stemningin mikil í Garðabænum: „Mér fannst æðislegt að fá að vera hluti af toppliði með frábæran þjálfara. Umhverfið var þannig að maður átti góða möguleika á að taka framförum ef maður lagði sig fram og tíminn í Stjörnunni var góður undirbúningur fyrir framhaldið” segir Glódís sem stundaði nám í Kvennó á sama tíma og hún spilaði með Stjörnunni. Við spyrjum hvort að nýtt umhverfi og félagsskapur í framhaldsskóla hafi haft einhvern áhrif á fótboltann: „Ég var í skólanum á daginn og sinnti svo fótboltanum þess á milli. Mér gekk ágætlega í náminu – gerði mitt besta en setti engar óraunhæfar kröfur á sjálfa mig. Hvað varðar félagslífið að þá komst ég kannski aldrei almennilega inn í það þar sem það var mikið í gera í fótboltanum. Ég sé þó alls ekki eftir því þar sem ég var að gera það sem mér þótti skemmtilegast.” Var mikil pressa frá vinum og skólafélögum að taka meiri þátt djamminu og drekka áfengi? „Það hafði aldrei sérstök áhrif á mig þegar

Glódís fagnar bikarameistaratitli með Rosengård á nýliðnu tímabili.

vinir mínir byrjuðu að drekka og djamma. Ég stóð með sjálfri mér og var bara ég sjálf. Mig langaði ekki að drekka en tók þátt í öllu sem var í gangi þegar ég gat. Ég lét drykkjuna bara í friði og fór þá fyrr heim en aðrir og var fersk næsta dag. Ég hafði mjög gaman að því þegar ég fékk skopmyndina mína við útskriftina úr Kvennó og bekknum mínum fannst þurfa að standa á henni: „Ég kemst ekki, er að fara á æfingu.“ Það lýsir mínum menntaskólaárum ágætlega.

Skrefið út

Glódís skrifað undir hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Eskilstuna í lok árs 2014. Hún segir að viðbrigðin við að fara í atvinnumannalið hafi verið mikil: „ Það var talsvert mikið stökk, en ég þurfti á því að halda. Í Svíþjóð færðu nánast 22 toppleiki á hverju tímabili í jafnri deild þar sem flestir geta unnið flesta. Deildin er mjög jöfn og leikmenn eru undir mikilli pressu að standa sig í hvert sinn sem þeir stíga á völlinn.”

Glódís lék 53 leiki fyrir Eskilstuna og var svo keypt til stórliðsins Rosengård í Malmö sumarið 2017. Í vor varð Glódís bikarmeistari með Rosengåerd en liðið varð sænskur meistari árin 2013-2015 með landsliðsfyrirliðanmn Söru Björk Gunnarsdóttir í sínum röðum.

Þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára hefur Glódís Perla leikið 70 A-landsleiki. Hún er lykilmaður í liðinu svo okkur finnst ekki úr vegi að spyrja hvort hún sjái fyrir sér að taka við fyrirliðabandinu af Söru Björk Gunnarsdóttur þegar hún hættir? „Ég held og vona fyrst og fremst að Sara Björk muni spila til fertugs! Hún er íþróttamaður í fremstu röð, frábær fyrirliði og á nóg inni. Ég hef lítið pælt í þessu en ég tæki hverju því hlutverki sem ég fengi í hendurnar með landsliðinu eins og hverju öðru. Í dag reyni ég bara að gera mitt allra besta í hvert skipti sem ég hlýt þann heiður að spila fyrir landsliðið,” segir Glódís sem er greinilega með báða fætur á jörðinni.

En þrátt fyrir góðan árangur íslenska liðsins síðustu ár vita flestir að nokkrar þjóðir eru nánast í sérflokki. Okkur leikur því forvitni á að vita hvað Glódís telji að það sé helst sem skilji Ísland frá bestu liðunum. „ Helsti munurinn er líklega knattspyrnuleg gæði. Mörg þeirra liða sem við mætum eru með marga tæknilega góða leikmenn og/ eða leikmenn sem geta sprengt upp og breytt leikjum. Ég held almennt að gæðin í kvennaknattspyrnuninni séu að verða meiri sem er auðvitað jákvætt. Íslensk knattspyrna þarf að halda í við þessa þróun – á sama tíma og við eigum að halda í okkar gildi verðum við að búa til umhverfi til að eignast algjöra gæðaleikmenn sem geta gert gæfumuninn.” Sannarlega umhugsunarefni og má af þessu tilefni rifja upp viðtal Gróttublaðsins árið 2016 við landsliðsþjálfarana fyrrverandi Frey Alexandersson og Ásmund Haraldsson. Þar sögðu þeir félagar einmitt að þeir hefðu áhyggjur af þróuninni.

„Á sama tíma og við eigum að halda í okkar gildi verðum við að búa til umhverfi til að eignast algjöra gæðaleikmenn sem geta gert gæfumuninn. “

Hugsar ekki um fyrirliðabandið

Rosengård er eitt sterkasta kvennaliðið í Svíþjóð
Glódís hefur leikið á tveimur stórmótum með A-landsliðinu.

Fáir bráðefnilegir leikmenn væru að koma upp og að stúlkur fengju ekki jafn færa og áhugasama þjálfara og drengir.

Ískaldur raunveruleiki

íþróttakvenna

Talið berst að ótrúlegu atviki sem átti sér stað um daginn þegar Gullknötturinn (Ballon d’Or) var afhentur besta knattspyrnufólki í heimi. Hin norska Ada Hegerberg var valin besta knattspyrnukonan og flutti áhrifamikla ræðu á athöfninni. Að henni lokinni greip kynnir kvöldsins orðið. Ekki var það til að óska framherjanum til hamingju með verðlaunin heldur spurði hann Hegerberg blákalt hvort hún væri til í að dansa Twerk-dansinn fyrir viðstadda!

Glódís Perla var í hópi þeirra sem lýsti undrun sinni á samskiptamiðlum – Við spyrjum, er þetta raunveruleikinn sem íþróttakonur búa við? Að aðaláherslan sé að kynþokka og útlit?

„Þetta er mikið vandamál og raunveruleiki sem íþróttakonur búa við þó svo að ég sjálf hafi ekki upplifað vanvirðingu á þessu stigi, hvað þá á opinberum vettvangi. Fótboltaheimurinn er karllægur og það er stanslaust verið að berjast fyrir því að bæði kvenkyns leikmenn og leikurinn sjálfur fái sömu virðingu og viðurkenningu sem karlkyns leikmenn fá. Kvennaknattspyrnan er á hraðri uppleið og margt jákvætt hefur gerst á stuttum tíma. Við eigum samt

Anna Björk Kristjánsdóttir fyrrverandi þjálfari hjá Gróttu og samherji Glódísar í landsliðinu:

Glódís Perla er frábær fyrirmynd og sterkur karakter innan sem utan vallar. Alltaf brosandi og hress. Hún er ung að árum en hefur afrekað mikið þrátt fyrir það. Glódís er góð á öllum sviðum knattspyrnunnar. Hún hefur yfirburðar spyrnutækni og er gífurlega sterk og ákveðin. Ég held að hún geti á næstu árum orðið ein af bestu varnarmönnum Evrópu. Glódís hefur reyndar einn stóran galla - það er varla ekki hægt að fara með henni á veitingastaði! Hún pantar af matseðlinum en breytir svo ÖLLU.

GRÓTTUFÓLK

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR

enn ansi langt í land og þetta er klárlega barátta sem mun halda áfram í mörg ár til viðbótar.”

Njóta hverrar mínútu

Það hefur verið afar ánægjulegt að ræða við þessa frábæru knattspyrnukonu sem er einstaklega jákvæð fyrirmynd fyrir ungar fótboltastelpur. Við spyrjum því Glódísi að lokum hvaða ráð hún myndi gefa 14 ára sjálfri sér. „Ég myndi ráðleggja 14 ára Glódísi að njóta hverrar einustu mínutu inni á vellinum. Og að leyfa ekki neinum að sannfæra mig um að ég gæti ekki eitthvað heldur nota allt mótlæti sem hvatningu til að sýna heiminum að ég geti allt sem ég ætla mér.”

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari 2013-2018:

Glódís er framúrskarandi leikmaður sem hefur ávallt vaxið í takt við verkefnin sem hún fæst við. Ég er ekki í nokkrum vafa um það að Glódís Perla getur spilað með bestu liðum heims. Hún hefur alla þá eiginleika sem til þess þarf. Ég vona að hún haldi áfram að búa sér til tækifæri til þess að vaxa, því að þrátt fyrir mikla reynslu með landsliðinu þá á hún sín bestu ár eftir, það er ég viss um.

USA Cup

Dönsuðu inn í úrslitin

3. flokkar karla og kvenna á USA Cup í Minnesota

Eftir frægðarför 3. flokks kvenna á USA Cup sumarið 2016 kom ekkert annað til greina en að Gróttu/KR stelpur endurtækju leikinn í sumar. Ekki nóg með það heldur slógust strákarnir í 3. flokki Gróttu í hópinn og var það því glæsilegur 58 manna hópur sem hélt af stað á vit ævintýranna laugardaginn 14. júlí 2018. Áfangastaður: Minneapolis, Minnesota.

Klassísk, gul, amerísk skólarúta sótti hópinn á flugvöllinn og keyrði á hostelið sem hýsti krakkana fyrstu tvær næturnar. Um var að ræða gamalt „mansion”, innréttað sem gistiheimili en þar fór vel um íslenska hópinn. Reyndar vorkenndum við örlítið hinum 3 gestunum á hostelinu en þeir höfðu líklega bara gaman af hamagangingum í okkar fólki. Fyrstu dagarnir voru nýttir til að venjast breyttu loftslagi og kynnast menningu heimamanna. Það gerðum við meðal annars með því að heimsækja Valley Fair skemmtigarðinn og Mall of America, Smáralind þeirra í Minneapolis. Einnig bauð Íslendingafélagið í Minnesota hópnum í grillveislu en í félaginu er fólk sem á rætur sínar að rekja til Íslands og vill halda tengslum við land og þjóð.

Allt lagt í sölurnar

Eftir skemmtilega tvo daga færði hópurinn sig á heimavistina í University of Minnesota þar sem keppendur USA Cup gista. Skemmtileg stemning var á skólasvæðinu og matsalnum enda samankomnir fótboltakrakkar frá öllum heimshornum og ólíkum menningarheimum.

Það var ljóst að krakkarnir voru búnir að skipta um gír og einbeitingin öll á leikjum næsta daga - Grótta og Grótta/ KR ætluðu að gera meira en að taka þátt. Bæði 3. flokkur karla og kvenna tefldu fram tveimur liðum, einu í keppni U15 ára og öðru í U16 ára. Skemmst er frá því að segja að öll fjögur liðin komust í 8-liða úrslit sem verður að teljast frábær árangur á alþjóðlegu móti. U15 ára liðin flugu upp úr sínum undanriðlum en U16 liðin lentu í meiri torfærum. Strákarnir þurftu að vinna síðasta leikinn í riðlinum

til að komast áfram gegn heimaliði sem þjálfað var af atvinnumanninum fyrrverandi Geison Moura. Það gerðu Gróttumenn með glæsibrag og var markið sem Hannes skoraði í seinni hálfleik líklega eitt af þeim flottari á mótinu! Stelpurnar töpuðu sínum fyrsta leik og mættu liði Chicago United daginn eftir. Gróttu/KR-stelpur komust 2-0 og gjörsamlega yfirspiluðu þær amerísku. Þjálfara Chicago var heitt í hamsi, kvartaði sáran yfir leik okkar stelpna og gerði heiðarlega tilraun til að stofna til slagsmála við þjálfarateymi Gróttu/KR. Fyrr en varði höfðu öryggisverðir á golfbílum umkringt varamannaskýlin og dómari leiksins stöðvað leikinn. Stelpurnar létu þessa leiksýningu ekki trufla sig, unnu frábæran 5-1 sigur og tryggðu sér svo áfram í 8-liða úrslit með öðrum sigri daginn eftir.

Hópurinn fyrir utan heimavistina.

Bæði 16-ára liðin duttu þó út í 8-liða úrslitum gegn öflugum andstæðingum. Strákarnir voru 2-1 yfir í sínum leik þegar Krummi markmaður var keyrður í jörðina og þurfti að yfirgefa völlinn með heilahristing. Grímur fór í markið, fautarnir frá Chicago gengu á lagið og sigruðu Gróttumenn að lokum. Stelpurnar byrjuðu illa gegn úrvalsliði Minnesota ODP og þegar seinni hálfleikur var rétt hafinn var staðan 4-1 fyrir heimakonur. Þá setti Gróttu/KR í fluggírinn og hóf stórsókn að marki andstæðinganna. Eftir þrjú sláarskot kom loksins fyrsta markið - og í kjölfarið annað mark! Staðan orðin 4-3 og allt lagt í sölurnar síðustu mínúturnar. Því miður reyndist tíminn of naumur og stelpurnar féllu úr keppni eftir hetjulega baráttu líkt og strákarnir.

Áður en lengra er haldið verður að minnast á skemmtilega uppákomu. Yfirfararstjórinn Davíð Gíslason var eitt kvöldið með Zumba-tíma fyrir leikmenn, þjálfara og fararstjóra á skólalóðinni. Davíð, sem er menntaður Zumbakennari, stóð uppi á blómabeði og kenndi sporin undir dúndrandi tónlist úr hátalara á hjólum sem keyptur var í upphafi ferðar. Óhætt er að segja að dansæfingar Íslendinganna hafi vakið mikla athygli nærstaddra, sem sumir hverjir bættust í hópinn, enda stuðið mikið og mesta furða hve vel allir héldu takti.

Magnús í klandri

U15 lið beggja flokka voru í miklu stuði og léku bæði í 8-liða úrslitum á föstudeginum - degi fyrir heimför. Strákarnir unnu þar dramatískan sigur en Benoný Breki kom Gróttu

yfir með þrumufleyg og Guðmundur Ingi skoraði svo sigurmarkið með hælspyrnu! Stelpurnar léku við lið Metro Flash og fóru með 2-1 sigur af hólmi. Í undanúrslitunum mætti Grótta/KR kanadíska liðinu í Red Deer Renegates og er óhætt að segja að þreytan hafi verið farin að segja til sín. Þetta var fjórði leikurinn á um 40 klukkustundum og ekki margir varamenn frekar en hjá hinum Gróttu og Gróttu/KR liðunum. Okkar stelpur byrjuðu þó leikinn af krafti og voru 3-0 yfir í hálfleik. Þá var sem liðið hefði hlaupið á vegg - meiðsli fóru að hrúgast upp og orkan nánast á þrotum. Á ögurstundu kom „Special-K”, lánsmarkvörður liðsins til bjargar og varði víti og lokatölur 3-2. Þvílík seigla hjá stelpunum en á mótinu var það skipulagður varnarleikur, dugnaður og hættulegar skyndisóknir sem einkenndu leik liðsins - í raun algjörlega ólíkur leikstíll og spilaður var heima á Íslandsmótinu.

Þreytan var ekki síður farin að banka á dyrnar hjá strákunum sem spiluðu ótrúlega dramatískan undanúrslitaleik. Eftir að hafa lent 2-0 undir sýndu Gróttumenn gríðarlega þrautseigju með því að koma til baka og jafna metin. Já, og það með stíl sem nánast er óþekktur hjá Gróttu - sterk vörn, langur bolti og góð afgreiðsla hjá Halldóri. Ekki nóg með það heldur fékk hinn dagfarsprúði þjálfari Gróttu, Magnús Örn Helgason, að líta rauða spjaldið fyrir munnsöfnuð en í kjölfarið fengu liðsstjórar og fararstjóra langþráð tækifæri til að láta ljós sitt skína á hliðarlínunni. Vítaspyrnukeppni var staðreynd en þar skiptust markvörður WBSC Bears og Ethan, markvörður Gróttu á mótinu, á að

verja! En að lokum var það sultuslakur Valur Ingi sem steig á punktinn, smellti boltanum í hornið og fögnuður Gróttumanna ósvikinn.

50 unglingar og ekkert vesen Í úrslitaleikjunum máttu bæði liðin sætta sig við tap og þar sem silfurverðlaun. Allir gátu þó borið höfuðið hátt eftir frábært mót þar sem liðssamvinna og barátta einkenndu liðin. Í flugvélinni á leiðinni heim tókum við í fararstjórninni tal saman og hreinlega trúðum ekki hve vel ferðin hafi gengið. Það er nefnilega langt frá því að vera sjálfgefið að fara með 50 unglinga í ferð vestur um haf án þess að nokkurt alvarlegt vandamál komi upp. Stemningin í hópnum var frábær frá upphafi til enda og áberandi hve mikla virðingu krakkarnir báru hvert fyrir öðru. Það er ljóst að hér fer hópur sem á framtíðina fyrir sér í boltanum og lífinu sjálfu. Við sem fylgdum krökkunum í ferðina erum full þakklætis fyrir frábæran tíma í landi hinna frjálsu og huguðu.

U15 liðið með silfurverðlaunin.
U15 strákarnir í 8 liða úrslitum.
Davíð með Zumba-tíma fyrir leikmenn, þjálfara og fararstjóra.

Gróttumaður í Danmörku

Viðtal við Gísla Má Atlason

Við þekkjum það flest hvernig það er að koma inn í nýtt umhverfi og hversu krefjandi ferli flutningar geta verið. Ný vinna, nýr skólabekkur eða nýtt fótboltalið. Allt krefst þetta samblöndu þolinmæðis og karakters. Þó eru fáar lífsreynslur sem kenna manni eins mikið og að aðlagast í nýju umhverfi.

Ritstjóri fékk fyrrverandi Gróttuleikmann 6. flokks karla, Gísla Má, sem flutti með fjölskyldu sinni til Danmerkur sumarið 2017, til að segja frá því hvernig honum hefur gengið að komast inn í menningarheim frændfólks okkar Íslendinga og ævintýrunum sem hann hefur lent í í leiðinni. Gísli var valinn af þjálfurum Virum Sorgenfri Boldklub, hverfisliðinu sem hann spilar með í úrtakshóp 200 leikmanna frá Norður-Sjálandi sem hluti af samstarfi Danska knattspyrnusambandsins og FC Nordsjælland. Gísli var svo áfram hluti hópsins eftir að hann hafði verið skorinn niður í 40 leikmenn. Í dag æfir Gísli og spilar með Virum en mætir einu sinni í viku á æfingu með hópnum hjá Nordsjælland.

Hvernig kanntu við þig í Danmörku?

Bara ágætlega. Það var svolítið erfitt fyrst eftir að við fluttum, ég kunni ekki dönsku og samskiptin voru erfið, en eftir ég byrjaði í skólanum og að æfa fótbolta og körfubolta eignaðist ég góða vini.

Ertu farinn að snakke flydende dansk?

Ja det gør jeg faktiskt! Það tók mig bara þrjá mánuði og þá var þetta komið.

Var vel tekið á móti þér þegar þú byrjaðir að æfa í nýju liði?

Heldur betur! Á meðan ég var að læra dönsku þá töluðu strákarnir við mig á ensku og svo hægt og rólega fluttist það yfir á dönsku. Það eru 35 strákar að æfa með mér í Virum og við erum með 4 lið. Á síðasta ári unnu A og B liðið fjóra bikara í allt. Það var sérstaklega gaman að vinna Pinse-Cup, þá jöfnuðum við úr aukaspyrnu á síðustu sekúndu og unnum svo í vítaspyrnukeppni.

Hvernig var tilfinningin að vera valinn í úrtakshóp?

Hún var góð. Það var gaman að vera boðið á prufuæfingarnar og að æfa á heimavelli FC Nordsjælland. Pabbi og mamma fengu send skilaboð um að ég hefði verið valinn þegar við vorum í haustfríi og við vorum öll ótrúlega glöð með fréttirnar.

Finnst þér mikill munur á æfingunum úti og í Gróttu?

Æfingarnar hjá Gróttu eru betri en hjá Virum en æfingarnar hjá FCN eru bestar. Hér eru þjálfaranir hjá flestum liðum foreldrar leikmanna upp í 13 ára aldur og þessvegna eru þjálfarar Gróttu miklu betri. Hjá FCN eru þjálfararnir virkilega „professional,“ en þess má geta að

yfirþjálfari akademíunnar, Marc Cebrián var áður hjá Barcelona. Hann er því vanur hámarksgæðum og gefur engan afslátt.

Saknar þú einhvers frá Gróttu?

Ég sakna auðvitað vina minna, þjálfaranna, æfinganna og einstaka sinnum íslenska veðursins.

Hvernig hefur þér gengið á æfingunum hingað til?

Það hefur gengið vel. Ég er búinn að læra frekar mikið, sérstaklega í einum á móti einum, staðsetningu í hornspyrnum og álíka.

Það var ótrúlega gaman að spjalla við Gísla, sem sagði undirrituðum að hann hefði miklar mætur á Rúnari Alex, landsliðsmarkmanni og David De Gea, markmanni Manchester United.

Prenttækniauglýsing

Veislan veitingaeldhús óskar Gróttu til hamingju

með glæsilegt jólablað

Veislan tekur að sér veitingaþjónustu í afmælum, brúðkaupum, er drykkjum og hvers konar mannamótum. Erum með glæsilegan veislusal í Félagsheimili Seltjarnarness til útleigu. Getum einnig komið í heimahús eða fyrirtæki.

Arnar Axelsson Íunn Eir Gunnarsdóttir

eru bæði þjálfarar yngri flokkum Gróttu. Hér eru þau spurð spjörunum úr! &

„Pizzan sem mútta gerir er best“

Nafn: Arnar Þór Axelsson.

Aldur: 24 ára.

Skemmtilegt viðurnefni:

Addi Hax, úr smiðju EBÓ.

Ertu jólabarn: Auðvitað!

Hvað gerirðu utan þjálfunar: Hitti skemmtilegu vini mína og lyfti lóðum.

Uppáhalds tónlist:

Íslensk tónlist og Hip-Hop.

Hvaða þætti ertu að horfa á þessa dagana: Horfði á Suður Ameríska drauminn með Bjarka síðast.

Skemmtileg fótboltaminning frá árinu:

Grótta í Inkasso.

Maggi Póló eða Prins Pólo: Has to be Prins.

Skemmtilegasta við að þjálfa hjá

Gróttu: Gríðarlega skemmtilegur

þjálfarkapall sem maður hittir daglega í baráttunni.

Byrja daginn snemma eða sofa út: Sofa út…

Áttu gæludýr: Neibb.

Uppáhalds drykkur: Fjörmjólk, fyrir D vitamin og fjörið. Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana: Skoða símann.

Hvað myndirðu gefa Bjössa Vald í jólagjöf? En Pétri Rögg: Bjössi má fá % af sigurhlutfalli mínu sem þjálfari og Pétur hacky sack. Uppáhalds Íþróttamaður: Martin Hermansson. Uppáhalds deild og lið: Premier League, Liverpool. Fyndnasti þjálfari Gróttu:

Óskar.

Þrír hlutir sem þú tækir með þér á eyðieyju:

Jóa Hilmars, Bjarka Má og FM19. Mjög pirrandi örlög fyrir þá að vera teknir með en frekar decent fyrir mig.

Uppáhalds matur:

Pizzan sem mútta gerir. Ef þú fengið 10 milljónir og yfirþjálfarastöðuna í einn mánuð, hvað myndirðu gera:

Gera nokkrum mönnum tilboð sem þeir geta ekki hafnað. Endurnýja bolta, vesti og keilur fyrir rest.

Framtíðardraumur:

Grótta í Europe.

Þjálfari sem veitir þér innblástur: Big Brother Bjarki Már.

„Ég á skjaldböku sem er í fóstri hjá systur minni“

Nafn: Íunn Eir Gunnarsdóttir.

Aldur: 27 ára.

Skemmtilegt viðurnefni:

Þau er of mörg en það sem mér dettur helst í hug er Skarpi, Strúna og Kúskí.

Ertu jólabarn:

Já mjög mikið, ekkert betra en að fara norður um jólin og eyða þeim með fjölskyldu og vinum.

Hvað gerirðu utan þjálfunar:

Ég er í mastersnámi, stunda mína líkamsrækt og hitti vinina.

Uppáhalds tónlist:

Myndi segja rapp af gamla skólanum og íslensks sveitaballa tónlist.

Hvaða þætti ertu að horfa á þessa dagana: Var að byrja á þáttunum The Rain og þeir lofa góðu.

Skemmtileg fótboltaminning frá árinu:

Þetta ár í heild sinni var mjög skemmtilegt, en það sem stendur upp úr er Donosti – cup með 2. Flokki kvenna og Dana-Cup með 4. Flokki kvenna.

Maggi Póló eða Prins Póló:

Maggi Póló.

Skemmtilegasta við að þjálfa hjá

Gróttu: Þjálfararnir eru allir fagmenn fram í fingurgóma og hægt að læra mikið af þeim. Stelpurnar sem ég þjálfa

eru frábærir karakterar sem leggja mikinn metnað í æfingarnar og gera þær því starfið skemmtilegt.

Byrja daginn snemma eða sofa út: Bæði í bland.

Áttu gæludýr:

Ég á skjaldböku en hún er í fóstri hjá systur minni.

Uppáhalds drykkur: Vatn og kók.

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana: Fæ mér vatnsglas og bý mér til hafragraut.

Hvað myndirðu gefa Bjössa Vald í jólagjöf? En Pétri Rögg: Ég gæfi honum risa stórann bangsa sem hann gæti kúrt með á nóttunni – en Pétri gæfi ég sykurhjúpaða trítla. Uppáhalds Íþróttamaður: Jordan.

Uppáhalds deild og lið: Premier league og Arsenal.

Fyndnasti þjálfari Gróttu: Mjög erfið spurning þar sem margir koma til greina. Hins vegar er ArnarAx eitthvað annað fyndinn svo hann fær titilinn.

Þrír hlutir sem þú tækir með þér á eyðieyju: Sólgleraugu, sólarvörn og

eldspýtur.

Uppáhalds matur: Humar og fylltur veislukjúklingur. Ef þú fengið 10 milljónir og yfirþjálfarastöðuna í einn mánuð, hvað myndirðu gera: Kaupa ný mörk á völlinn þar sem þau eru úr sér gengin. Ég myndi bjóða upp á fræðslu fyrir þjálfara, iðkendur og foreldra í meðal annars jákvæðri leiðtoga þjálfun, um svefnvenjur og matarræði. Ég væri svo til að fá einhvern erlendan þjálfara inn í starfið sem gæti bæði miðlar nýrri þekkingu til okkar þjálfarana og sinnt auka æfingunum með iðknndum. Framtíðardraumur:

Sjá að maður átt þátt í því að ala upp góða einstaklinga sem og leikmenn. Að leikmenn líti til baka og hugsa að maður hefur hjálpað þeim hvort sem það er innan vallar eða utan. Einnig dreymir mig um það að þjálfa meistaraflokk í framtíðinni.

Þjálfari sem veitir þér innblástur:

Það eru margir en sá sem trónir á toppnum er Hulda Frímannsdóttir. Hún var minn helsti innblástur bæði það að byrja að æfa fótbolta og byrja að þjálfa.

Eltir drauminn í Doha

Viðtal við Bjarka Má Ólafsson þjálfara hjá Al-Arabi

Biðin var á enda. Þjóðhetjan og landsliðsþjálfarinn fyrrverandi Heimir Hallgrímsson var kominn með nýtt starf og það sem þjálfari Al-Arabi í Katar. Í fréttatilkynningum kom fram að ungur íslenskur þjálfari myndi vera í þjálfarateymi Heimis – einmitt Gróttumaðurinn

Bjarki Már Ólafsson sem er Seltirningurm að góðu kunnur. Gróttublaðið var fyrsti fjöl-

miðillinn sem fékk viðtal við Bjarka sem hefur þegar tekið til starfa á Arabíuskaganum.

Nýr draumur

Bjarki Már var 19 ára í október 2013 þegar hann byrjaði að þjálfa hjá Gróttu. Hann hafði spilað upp alla yngri flokka félagsins og var að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki þegar hann þurfti að leggja skóna á hilluna vegna hjartagalla. „Þjálfunin tók náttúrulega við og nýir draumar urðu til. Ég hafði tamið mér ákveðið vinnuhætti og hafði metnað til að læra,“ sagði Bjarki og bætti því við að hann hafi byrjað á algjörum grunni sem aðstoðarþjálfari 6. og 8. Flokks. Síðan þá hefur Bjarki komið að þjálfun allra aldurshópa hjá Gróttu og meðal annars verið yfirþjálfari yngri flokka. Með þjálfuninni hefur hann tekið öll þjálfarastigin hjá KSÍ og lauk einmitt UEFA-A prófi í vor.

Al-Arabi

„Al-Arabi er sá klúbbur í Katar sem

hefur stærsta áhorfendafylgi í landinu, en kúltúrinn hérna er þannig að fólkið mætir þegar vel gengur. Heimavöllur liðsins, Grand Hamad Stadium, tekur 13.000 manns í sæti en undanfarið hafa einungis um 700 áhorfendur mætt á leiki Al-Arabi. Klúbburinn á sér ríka sögu og átti sitt gullaldarskeið fyrir um 20 árum þegar liðið sópaði til sín titlum,“ segir Bjarki. Það má segja að félagið sé núna í þeirri vegferð að endurvekja sigurhefð sína en sem stendur er AlArabi í 7. sæti úrvalsdeildarinnar. Þess má til gamans geta að argentínska goðsögnin Gabríel Batistuta spilaði fyrir liðið milli 2003-2005 og skoraði 21 mark í 25 leikjum. Ekki lélegt það.

Tímabært að fara út

Aðspurður um atburðarás ráðningunnar byrjaði Bjarki á byrjuninni: „Ég hef alltaf haft það markmið að fara út

að þjálfa. Þegar ég fór til Danmerkur haustið 2017 til að klára UEFA-A gráðuna varði ég tíma með Heimi Hallgrímssyni og Frey Alexandersyni sem veittu mér góða leiðsögn. Í kjölfarið bauð Heimir mér að aðstoða sig yfir sumarið með leikgreiningu fyrir landsliðið á HM. Ég fór til Rússlands um sumarið og átti gott samstarf með Frey sem kenndi mér ótrúlega margt í leikgreiningarfræðunum.“ Bjarki myndaði sterkt samband með landsliðsþjálfurunum og sagðist hafa gert sér vonir um að fá starf hjá Heimi þegar hann ákvað að hætta með landsliðinu til að taka við félagsliði. „Freyr kom mér í samband við félög í Danmörku og ég fór í atvinnuviðtal þar. Það mál fór ekkert lengra en svo fékk ég símtal frá Heimi þar sem hann bað mig um að koma með sér til Vancouver og verða aðstoðarmaður sinn hjá

Vancouver Whitecaps í MLS-deildinni.“

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum varð ekkert úr Ameríkuför Heimis þar sem Whitecaps réðu að lokum annan þjálfara.

Eftir þessi tíðindi ákvað Bjarki að fara til Kólumbíu í frí og endurnýja kynnin við fólk sem hann kynntist þegar hann dvaldi sem sjálfboðaliði í landinu árið 2015. Bjarki snéri svo stuttu seinna til Íslands og var tekinn inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla hjá Gróttu á nýjan leik. Það var þá sem kallið kom.

Sjö daga fyrirvari

Síminn hringir og Bjarki tekur upp tólið. Heimir Hallgrímsson er á línunni og spyr Bjarka hvar hann sé staddur í heiminum og hvað hann sé að gera. Bjarki kvaðst vera kominn til Íslands og til starfa hjá Gróttu.

„Viltu koma með mér til Katar?“ Spurði Heimir. „Ég þurfti ekki að hugsa mig lengi um áður en ég samþykkti boðið og sjö dögum seinna var ég í flugvél á leiðinni til Doha,“ sagði Bjarki og bætti því við að Heimir hafði þá verið kominn lengra í viðræðum heldur en fyrr um haustið við Vancouver. Þetta gat ekki klikkað.

Hvernig hafa móttökurnar verið?

„Þær hafa verið ólýsanlegar. Virðingin sem maður finnur fyrir frá leikmönnum, starfsliði og stjórn félagsins er frábær og hefur gert fyrstu vikurnar virkilega jákvæðar. Fjölmiðlar fylgjast grannt með manni og stuðningsmenn virðast spenntir fyrir framhaldinu.“

Lið í Katar eru einkum þekkt fyrir mikla yfirburði í umgjörð og aðstöðu enda olípeningarnir miklir á Arabíuskaganum. Hvernig líst þér á umhverfið sem þú ert að fara að starfa í?

„Ég hef fylgst mikið með hvernig bestu lið heims eru að æfa og hvernig aðstöðu þau búa yfir og ég get sagt þér að þetta er í allt öðrum klassa. Þetta er einfaldlega flottasta knattspyrnuaðstaða í heiminum. Hér er verið að þróa knattspyrnu og allur búnaður og öll tækni eru til þess gerð.“

Aðspurður hvert hans starfheiti væri lýsti Bjarki því sem þjálfari/leikgreinandi aðalliðs: „Starf mitt verður mjög fjölþætt, en til að byrja með mun það ganga út á að greina leikmennina okkar í æfingum og leikjum til að sjá hvernig við getum bætt okkur.“

Þú gafst út Gróttuleiðina ásamt Magnúsi Erni Helgasyni árið 2016, sem lagði línurnar fyrir starfsemi félagsins og hefur svo sannarlega vakið athygli. Ertu byrjaður á „Al-Arabi leiðinni,“ eða er þegar búið að leggja skýrar línur fyrir ykkar vinnu?

„Jú, ég er byrjaður á henni. Þetta verður gæluverkefni sem ég mun fást við í frítíma mínum,“ segir Bjarki hlæjandi en bætti svo við: „Við erum að skoða hvernig samstarf okkar við akademíuna verður en eins og staðan er núna erum við að einbeita okkur að því að koma aðalliðinu af stað og hefja uppbygginguna þar.“

Að lokum, hversu stór viðurkenning er þetta fyrir Gróttu, að senda þjálfara innan sinna herbúða í atvinnumennsku?

“Ég myndi segja að þetta væri mikil viðurkenning fyrir Gróttu. Í Gróttu ertu með umhverfi þar sem þú getur bætt þig ótrúlega mikið sem leikmaður eða þjálfari. Það eru einungis fagmenn í hæsta gæðaflokki sem starfa hjá klúbbnum og lærdómurinn sem maður fær við að þjálfa undir og með þessum aðilum er gífurlegur. Ég var að hugsa að nefna einhvern nöfn en myndi þá líklega enda á að telja upp allt þjálfaraliðið!„ segir Bjarki og heldur áfram: „Í Gróttu ríkir sú hugmyndafræði að færni skipti mestu máli, óháð aldri og reynslu, og að þú fáir tækifæri eftir framlagi og getu. Ef þú býrð yfir færninni til að sinna starfinu, færðu tækifærið. Tækifærin sem ég og aðrir þjálfarar hafa fengið innan félagsins eru ótrúlega mikilvægt fyrir þroskaferli leikmanna og þjálfara, og þetta er eitthvað sem önnur félög mættu taka sér til fyrirmyndar,“ sagði Bjarki en ítrekaði í leiðinni hversu mikilvægt það er að höfuðmáli skiptir að eldmóðurinn komi að innan og að maður sé staðráðinn á hverjum degi að færa sig nær markmiðum sínum.

Ritstjórn Gróttublaðsins þakkar Bjarka kærlega fyrir að gefa sér tíma í að sitja fyrir svörum. Við óskum honum alls hins besta í nýju starfi og hlökkum til að fylgjast með ævintýrum Gróttumannsins í Katar.

Heimir, Frederic De Bover, Jordi Condom og Bjarki Már.
Al-Arabi æfir við fyrsta flokks aðstæður.

Kann best við mig í stúkunni

Viðtal við Geir Zoega

Það er tvímælalaust gaman að spyrja leikmenn og starfsmenn Gróttu spjörunum úr? En hvað með þá sem fylgjast með af hliðarlínunni? Stuðningsmenn sem gera sér ferð á Vivaldivöllinn og jafnvel út fyrir landhelgi Seltjarnarnesbæjar sjá hlutina oft með öðrum augum og eru feykilega mikilvægur hluti af Gróttufjölskyldunni. Það eru þeir sem hafa upplifað leiktíð eftir leiktíð frá áhorfendapallinum og staðið við bakið í gegnum klúbbinn í gegnum súrt og sætt. Hér verður rætt við einn þeirra. Rótgróinn Seltirning sem hefur alist upp með útsýni yfir sjálfan völlinn. Við erum að tala um Geir Zoëga, ástríðufullan aðdáanda Gróttu og æskuvinur ritstjóra Gróttublaðsins 2018.

Nú ert þú alinn upp á Kirkjubrautinni og æfðir með Gróttu sem barn eins og flest börn sem alast upp á Seltjarnarnesi. Viltu segja okkur aðeins frá því? Já, ég átti glæsilegan feril. Ég byrjaði í fótbolta í 5. bekk og var þekktur sem markaskorarinn, með greini. Á N1 mótinu 2010 var ég markahæstur í E-liði Gróttu og fagnaði alltaf innilega. Markaskorunin hélt svo áfram á Olís mótinu en það gerðist eitthvað þegar ég byrjaði í 4. flokki. Völlurinn var miklu stærri og það hentaði mér ekki, enda ekki mikill hlaupari. Þrátt fyrir markanefið var ég alltaf settur í bakvörðinn í 4. og 3. flokki. Eftir það fannst mér viðeigandi að leita á önnur mið.

Hvenær byrjaðirðu svo að mæta á völlinn?

Það var bara um það leyti sem ég byrjaði að æfa eða árið 2009. Það var stórkostlegt sumar, Grótta komst upp í 1. deild í fyrsta skipti með mikið af uppöldum leikmönnum í bland við miklar kempur eins og Kristján Finnbogason og Sigurvin Ólafsson.

Svo hefur maður alltaf verið að mæta á handboltaleikina, sérstaklega tímabilið 2014-15 þegar meistaraflokkur kvenna vann alla titla sem í boði voru og meistaraflokkur karla vann 1. deildina.

Þú hefur unnið svolítið fyrir klúbbinn sem vallarþulur á heimaleikjum í handboltanum. Gætirðu séð fyrir þér að sinna svipuðu hlutverki fyrir fótboltann?

Það er kannski aðeins öðruvísi að vera þulur í handbolta og fótbolta. Í handbolta er maður að allan tímann, eftir hvert einasta mark og markvörslu og peppar leikmenn eins mikið og hægt er. Í fótbolta koma fá tækifæri til að tala og því er þetta lítilfenglegra starf. Ég kann betur við mig í stúkunni.

Hvernig fannst þér stemningin á vellinum síðasta sumar í samanburði við fyrri ár?

Stemningin var geggjuð! Það var allt öðruvísi tilfinning yfir Gróttu en önnur ár. Það er náttúrulega einhver stefna í fyrsta skipti og fótboltinn sem liðið spilaði líflegur og skemmtilegur. Það er svo

gaman að þekkja flesta í liðinu, það færir leikinn nær manni.

Áttu einhverja eftirlætis minningu úr leik með Gróttu?

Það eftirminnilegasta úr leik sem ég spilaði er líklega þegar ég tapaði 15-0 á móti Keflavík í 4. flokki sumarið 2011. Það eftirminnilegasta frá leik þar sem ég var áhorfandi var þegar Hafsteinn Bjarnason jafnaði á seinustu mínútu gegn Leikni R sumarið 2011 og gaf Gróttu von um að halda sér uppi í 1. deild. Grótta tapaði reyndar næsta leik þannig þetta skipti engu máli en gleðin var samt rosaleg.

Að lokum, hvernig líst þér á framtíð klúbbsins? Sérðu fyrir þér að halda áfram að mæta?

Ég held að flestum Gróttumönnum lítist vel á framtíð klúbbsins. Það er eitthvað meira og stærra í gangi en bara að reyna að kreista fram úrslit. Stefna Gróttu er eitthvað sem öll lið á Íslandi eiga að taka sér til fyrirmyndar, og ég held þau muni gera það að lokum. Og já, ég mun halda áfram að mæta, annað væri heimskulegt.

9.492

GRÓTTUFÓLK

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR

Andrés, Eva, Andrea, Benóný og Björgvin

Birgir Tjörvi, Erla Kristín og börn

Daníel, Erna, Saga, Dagur og Blær

Dofri og Sigríður Björk

Fjölskyldan á Ægisíðu 78

Fjölskyldan á Hamarsgerði 2

Fjölskyldan á Hofgörðum 13

Fjölskyldan á Nesbala 86

Fjölskyldan á Sævargörðum 8

Fjölskyldan Lindabraut 17.

Franz Ploder

Hallur, Oddný, Matthildur og Þóhallur

Holtamönnum

Jóhann Gísli og Guðrún

Jólakveðja frá Bollagörðum 85

Katrín Sigríður, Kristín Fríða, Harpa og Arnar Landslagnir

Leó Árnason og fjölskylda

Mueller fjölskyldan

Pálmi, Thelma, Alexander og Christian Peta og Kiddi

Pétur, Eydís, Bjarni og Jórunn

Sigga, Dommi og börn

Sölvi, Krístin, Daði , Bessi, Friðrik og Elísabet.

Suðurmýri 22

Tobba og Sveinbjörn

Valdi og Steina

Vallarbraut 6

Viðar, Borghildur og fjölskyldan á Grænumýri 3

Spennandi tímar í vændum

Viðtal við nýjan yfirþjálfara

þessum tíu árum. Lítið félag með risastórt hjarta sem horft er til víða úr knattspyrnuhreyfingunni. Ég hafði fylgst með þessari þróun úr fjarlægð og er það ekki síst vegna þess sem ég ákvað að ganga til liðs við Gróttu haustið 2017.

Hvernig hefur þér gengið að koma þér inn í nýja starfið?

Árið 2016 var Gróttuleiðin gefin út. Knattspyrnudeildin hefur starfað eftir henni síðustu tvö ár og hefur leiðin hlotið mikla athygli innan íslensku knattspyrnuhreyfingarinnar. Hvenær sérðu fram á að púlsinn verði tekinn og Gróttuleiðin 2.0 verði gefin út?

Nú ert þú búinn að vera viðofinn félagið í rúmt ár, hefur eitthvað við umgjörð og almenna stemningu klúbbsins komið þér á óvart?

Ég gekk til liðs við Gróttu á nýjan leik tíu árum eftir síðasta leik minn með meistaraflokki félagsins sumarið 2007. Ferill minn með Gróttu hófst þegar ég lék með 2. flokki og meistaraflokki sumarið 2002 og svo aftur árin 20042007. Það er í raun ótrúlegt hversu mikið umhverfið hefur breyst á þessum tíma. Árið 2007 vorum við nýkomnir á gervigrasið eftir að hafa æft mest innanhúss, á mölinni, úti á Diddó og svo á heldur illa farinni Valhúsahæð yfir hásumarið. Meistaraflokkur karla lék í neðstu deild og leikmenn greiddu æfingagjöld, það var enginn meistaraflokkur kvenna og enginn kvennafótbolti í félaginu yfir höfuð. Það er merkilegt að það sé ekki lengra en rúm tíu ár síðan. Það var samt einhver lykt í loftinu á þessum tíma sem sagði manni að góðir hlutir væru á leiðinni. Aðstaðan batnaði gríðarlega með gervigrasinu og vallarhúsið var í byggingu. Mikill kraftur var í uppbyggingu yngri flokkanna og innviðin að styrkjast. Með ótrúlegum krafti og dugnaði hefum mönnum tekist að gera Gróttu að eftirtektarverðu félagi í íslenskri knattspyrnu á

Á fyrsta árinu mínu sem þjálfari Gróttu naut ég þess vel að einblína á þjálfun í flokkunum mínum þremur. Meistaraflokki karla, 2. flokki karla og 5. flokki karla. Það var kærkomin tilbreyting að vera mikið úti á velli að þjálfa og virkilega lærdómsríkt og skemmtilegt tímabil. Í haust tók ég svo við sem yfirþjálfari og minnkaði aftur við mig flokkaþjálfun úti á velli. Þannig er ég kominn í svipuð verkefni og ég hef verið í síðastliðin ár, á nýjum og spennandi stað. Stjórnarfólk, starfsfólk og þjálfarateymið hjá Gróttu samanstendur af frábæru fólki og algjört draumaumhverfi að koma inní. Það er þeim að þakka hvað það hefur gengið ótrúlega vel að komast inn í hlutina og í raun og veru virtist þetta smella alveg frá fyrsta degi.

Er eitthvað sem þú ert ákveðinn í að innleiða inn í starfsemi klúbbsins á komandi árum?

Knattspyrnudeild Gróttu er á frábærum stað í þróun sinni og eins og áður hefur komið fram er félagið leiðandi að mörgu leyti í knattspyrnuþjálfun á Íslandi. Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ), önnur félög og þjálfarar hika ekki við að leita í þekkingu félagsins. Því er gríðarlega mikilvægt að ætla sér ekki að umbylta því sem hefur verið gert síðastliðin ár heldur halda áfram á sömu braut og bæta enn frekar í. Um leið er nauðsynlegt að minna sig reglulega á að framfarir verða ekki til í með því að standa í stað og því verðum við sífellt að vera að hugsa út fyrir boxið og leita leiða til að bæta starfið.

Hluti af því er að uppfæra Gróttuleiðina sem gefin var út árið 2016. Hina frábæru og umtöluðu handbók knattspyrnudeildar Gróttu, skrifaða af Bjarka Má Ólafssyni og Magnúsi Erni Helgasyni. Gróttuleiðin hefur ekki einungis reynst vel í starfinu á nesinu heldur er hún t.d. kynnt á þjálfaranámskeiðum KSÍ og hefur verið frá því að hún kom út.

Ég tel mikilvægt að til að viðhalda ferskleika og gildi Gróttuleiðarinnar þurfi hún að vera uppfærð reglulega. T.d. höfum við tekið inn ýmsar nýjungar inn í þjálfunina á síðastliðnu ári, ekki síst hluti varðandi líkamlega þjálfun. Knattspyrnudeildin er komin með litla styrktaraðstöðu á svæðinu, öflugan styrktarþjálfara og meistaraflokkur karla tók í gagnið GPS mæla til að mæla og stýra æfingaálagi leikmanna. Á sama tíma hefur áhersla á leikgreiningu í myndbandsformi aukist til muna sem og á fleiri tækninýjungar í knattspyrnuþjálfun.

Á næstu misserum munum við í knattspyrnudeildinni setjast niður og hefja vinnu við uppfærsluna, 2. útgáfu Gróttuleiðarinnar sem stefnt er á að komi út vorið 2019.

Það eru því afar spennandi tímar framundan hjá knattspyrnudeild Gróttu og mín bíður það verkefni að viðhalda og bæta í það frábæra starf sem unnið hefur verið síðastliðin ár.

Fótboltasumarið 2017

Ritstjórapistill

Undirritaður situr á ströndinni á South Beach í Miami þegar þessi orð eru skrifuð.

Handklæðið sem ég ligg á er rakt og umlukið sandi. Allt í kringum mig eru mæður og feður að drösla krökkunum sínum, út úr rennihurðabílum og niður að sjó þar sem þau byggja sandkastala og hlaupa berrössuð um allt án nokkurrar eftirsjár eða umhugsunar. Ég sötra á kókinu mínu annað slagið og sný mér reglulega við svo tanið jafnist vel út að framan og aftan.

Ég vildi óska þess að ég gæti gert það sama og hinn mikli Magnús Örn Helgason, ritstjóri blaðsins í fyrra, gerði og skírt ritstjórapistilinn minn: „10 ár í bransanum.“ Ég myndi svo kasta fram stórum nöfnum á borð við Ásmund Haralds og Orra Axels en ég hugsa þó að líklegri titill míns pistils verði: „Annar dagur á bakkanum.“ Þetta er jú í fyrsta sinn sem Gróttublaðinu er ritstýrt frá annarri heimsálfu.

Ég á það sameiginlegt með flestum í meistaraflokki karla í Gróttu að vera í yngri kantinum. Flestum lesendum þykir ég sjálfsagt vera blautur á bakvið eyrun. Hvítur og tvítugur eins og tónlistarmaðurinn Auður syngur, það er ég. Það er þó ekki þar með sagt að ég geti ekki sagt skemmtilegar sögur frá því í gamla daga. Endilega legðu við hlustir. Ég byrjaði að æfa fótbolta með Gróttu árið 2003, fimm ára gamall og ein elsta

minning sem ég á frá Gróttuvellinum hljómar nokkurn veginn svona:

Ég hafði stolist í „draslskúffuna,“ sem er að finna á öllum heimilum, og stolið 50 krónum í þeim tilgangi að skottast í Skara fyrir fótboltaæfingu til að kaupa nammi. Sagan gerist nefnilega 2005 og fimmtíukallinn gaf þá allt það nammi sem þú gast hugsað þér, að minnsta kosti fyrir 7 ára strákling sem mætti alsæll á æfingu á malarvöllinn góða með blandípoka í vasanum. Það sem svo gerðist var að eigandi Tröllavídjó og fyrsti þjálfari sem ég man eftir, „Júlli,“ var einkum ósáttur með mig og þó hann hafi líklegast verið blíðari en mild sumargola þegar hann tók mig á tal, var ég staðráðinn í að þetta væri í síðasta skipti sem ég myndi borða nammi á æfingu.

Samband mitt við Gróttu hefur verið jákvætt frá fyrsta degi og sér í lagi

á síðustu árum. Knattspyrna hefur aldrei verið í efsta forgangi hjá mér, fyrir utan þegar Úlfi Blandon tókst tímabundið að selja mér hugmyndina um atvinnumennsku í fjórða flokki. Ég hef aðallega haft áhuga á félagsstörfum samhliða námi og fótboltinn því stundum þurft að víkja fyrir því.

Undir lok tímabilsins með 2. flokki árið 2016 var ég eiginlega staðráðinn í því að leggja skóna á hilluna og skoða aðrar íþróttir. Í búningsklefanum á Floridanavellinum eftir 11-1 tap á móti Fylki í lok fyrrnefnds tímabils var svo nýtt þjálfarateymi kynnt til leiks: Þeir Bjarki Már Ólafsson og Arnari Axelsson. Þeir komu eiginlega eins og einhverskonar bjargvættir. Seldu okkur strákunum nýja hugmyndafræði og kynntu mig fyrir nýjum hæðum í metnaði. Eftir á að hyggja var tímabilið undir stjórn þeirra Bjarka og Arnars það lærdómsríkasta

sem ég hef upplifað og gerði mig ekki einungis að betri knattspyrnumanni heldur einnig fókuseraðri og jákvæðari einstakling. Arnar og Bjarki sýndu skilning ef ég þurfti að sinna einhverskonar félagsstörfum, og í staðinn gaf ég 100% á hverri einustu æfingu og í leikjum.

Að því tímabili loknu kynntist ég nýráðnum þjálfurum meistaraflokks, Óskari Hrafni og Halldóri Árna, sem voru spenntir að hafa mig sem hluta af meistaraflokkshópnum sem var að hefja undirbúningstímabil. Það var frábært að fá tækifæri til að sýna hvert hlutverk manns væri innan hópsins, þó það væri ekki að vera leikmaðurinn sem smyr boltanum í vinkilinn á lokamínútu leiksins. Öllu heldur sá sem heldur uppi uppbyggilegri og

jákvæðri hvatningu á æfingum og setur fordæmi í metnaði. Þegar ég svo ákvað á miðju tímabili að venda kvæði mínu í kross og hlaupa heilmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu átti ég jafnvel von á að krafta minna yrði ekki lengur óskað í meistaraflokkshópnum. En viðmót Óskars þjálfara var þó alls ekki á þá leið – hann óskaði mér góðs gengis í æfingaferlinu, hvatti mig til dáða og fann mér ný hlutverk innan hópsins. Hjá Gróttu finnst mér ég vera hluti af skemmtilegu verkefni, metnaðarfullu andrúmslofti og fyrst og fremst fjölskyldu. Vegna þessa og allra þeirra góðu stunda sem ég hef upplifað með félaginu er ég öllum fyrrnefndum einstaklingum ótrúlega þakklátur. Já og auðvitað Júlla.

Ég vil þakka stjórn Gróttu fyrir að treysta mér fyrir því að ritstýra mínu fyrsta blaði og gott samstarf í alla staði. Þá þakka ég hönnuðinum Elsu Nielsen og ljósmyndaranum Eyjólfi Garðarssyni fyrir samstarfið en fyrir óreyndan ritstjóra er mikil gæfa að fá að vinna með slíku fagfólki.

Sérstaklega vil ég þakka ritstjóra síðasta árs, Magnúsi Erni, fyrir að leiðbeina mér í ferlinu og aðstoða mig með prófarkalestur. Ég hef lært ótrúlega mikið af þessari reynslu og vona að ég geti nýtt þennan lærdóm í áframhaldandi ritstjóraverkefni í næstkomandi Jólaritum knattspyrnudeildar Gróttu.

Gleðilega hátið kæra Gróttufólk. Sjáumst á vellinum.

Prenttækni

Ekki gefa bara eitthvað, gefðu frekar hvað sem er.

Með gjafakorti Landsbankans er ekkert mál að velja réttu jólagjöfina. Þú ákveður upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina. Þú færð gjafakortið í næsta útibúi.

Ristjórn: Benedikt Bjarnason Hönnun og umbrot: Elsa Nielsen Myndir: Eyjólfur Garðarsson og fl. Prófarkalestur: Magnús Örn Helgason Prentun:

Þegar vetur kallar á þig. Hilux Invincible

Invincible 33 " breytingapakki að verðmæti 780.000 kr. fylgir* Hilux er ódrepandi harðjaxl og með 33" breytingu eruð þið ósigrandi saman. Hilux Invincible kemur þér þangað sem þig langar, hvort sem það er leiðangur upp til fjalla, næsti veiðitúr eða bara að komast aðeins út fyrir borgina til að ná andanum. Hilux Invincible aukahlutapakki: 33 " breyting, hlíf undir framstuðara, gluggavindhlífar, króm á afturljós og Invincible-merki.

Kynntu þér Toyota FLEX, nýja leið til að eignast Toyota bifreið, á www.toyota.is

Vildarpunktar Icelandair með öllum nýjum Toyotum

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.