


Birgir
Tjörvi Pétursson, formaður knattspyrnudeildar Gróttu.
Í frétt á vef Seltjarnesbæjar frá 30. apríl 2009 segir frá vígslu á „glæsilegu og björtu vallarhúsi“ og aðskilinni 300 manna stúku við gervigrasvöll Gróttu við Suðurströnd. „Tilkoma mannvirkjanna markar tímamót í sögu knattspyrnunnar á Seltjarnarnesi,“ segir jafnframt í gömlu fréttinni.
Hjartað slær í vallarhúsinu
Straumhvörf hafa orðið í starfi knattspyrnudeildar Gróttu á þeim áratug sem liðinn er frá því starfið var klætt í ný og glæsileg föt. Frá vígslu mannvirkjanna hefur fjöldi barna og ungmenna sem æfir og keppir fyrir félagið nærri tvöfaldast. Vivaldivöllurinn bókstaflega iðar af lífi allan ársins hring. Í vallarhúsinu slær hjartað í starfinu, en um þrjú hundruð börn og ungmenni fara þar um í hverri viku. Húsið er ekki bara félagsmiðstöð fyrir krakkana heldur vinnustaður starfsfólks, athvarf okkar öfluga afreksfólks og þjálfaraliðs, vettvangur þróttmikils sjálfboðaliðastarfs og móttaka fyrir gesti og þeirra fylgdarlið. Það þarf útsjónarsemi, þolinmæði og góðan vilja í örtröðinni sem skapast á álagstímum í húsinu góða. Fötin eru hreinlega að verða of lítil.
Blómlegt forvarnarstarf - Gróttuleiðin Meginverkefni knattspyrnudeildar á hverjum tíma snýst þó ekki um mannvirkin í sjálfu sér, heldur að standa vörð um blómlegt forvarnarstarf á grundvelli Gróttuleiðarinnar; lifandi stefnu deildarinnar, vegvísi stjórnar, þjálfara og annarra sjálfboðaliða. Þótt stefnt sé að sigri mælum við ekki heildarárangur í starfinu í skoruðum mörkum, stigum í keppni eða verðlaunapeningum. Aðalmarkmiðið er að hafa varanleg jákvæð áhrif á þá sem taka sér far með okkur á þessari leið. Straumhvörf í starfi deildarinnar En það má ekki gleyma því að gleðjast og njóta þess þegar afreksfólk
deildarinnar nær árangri. Í því eru töfrar íþróttanna fólgnir, þær lyfta öllu samfélaginu þegar vel gengur. Árið 2019 var ekkert minna en stórkostlegt að þessu leyti fyrir knattspyrnudeild Gróttu. Félagið átti fleiri fulltrúa í æfinga- og keppnishópum yngri knattspyrnulandsliða Íslands en nokkru sinni fyrr, þrjár stelpur og fjóra stráka. Þá gerði félagið í fyrsta sinn samning við evrópskt atvinnumannalið, þegar samið var um félagaskipti Orra Steins Óskarssonar til danska stórliðsins FC Kaupmannahöfn. Í lok sumars tryggðu stelpurnar okkar sér í fyrsta sinn sæti í næstefstu deild Íslandsmótsins, Inkasso deildinni, á sínu fjórða starfsári. Þá vann meistaraflokkur karla þrekvirki með sigri í Inkasso-deild karla, þvert á allar spár, og tryggði félaginu í fyrsta sinn sæti í efstu deild Íslandsmótsins, Pepsi Max deildinni. Það ánægjulegasta er að allur þessi árangur náðist á réttum forsendum. Dugnaður, ósérhlífni, leikgleði og liðsheild einkenndu lið Gróttu sumarið 2019, en þau voru að miklu leyti skipuð heimafólki í bland við unga og efnilega einstaklinga sem gengu til liðs við félagið til að fá tækifæri til að láta ljós sitt skína.
Mannabreytingar Á árinu héldu Óskar Hrafn Þorvaldsson og Halldór Árnason á ný mið á sínum þjálfaraferli. Þeir unnu báðir frábært starf á Seltjarnarnesi, bæði fyrir meistaraflokk karla og í barna- og unglingastarfi. Félagið stendur í þakkarskuld við þá. Við þjálfun meistaraflokks karla tók Ágúst Gylfason, sem er í hópi farsælustu meistaraflokksþjálfara landsins, og honum til aðstoðar er Guðmundur Steinarsson, en saman hafa Ágúst og Guðmundur myndað öflugt þjálfarateymi á undanförnum árum. Í haust tók Englendingurinn Chris Brazell við yfirþjálfun yngri flokka, en hann hefur síðustu ár starfað við þjálfun yngri flokka
enska úrvalsdeildarliðsins Norwich City.
Um leið og við kveðjum gott fólk með hlýhug bjóðum við nýtt fólk velkomið til starfa og væntum mikils af störfum þeirra.
Nýjar áskoranir
Aukin umsvif vegna fjölgunar iðkenda og landvinninga meistaraflokka hefur kallað á endurskoðun á allri umgjörð um starf deildarinnar. Þátttaka í Pepsi Max deild karla kallar ein og sér á verulegar umbætur á vallarsvæðinu og í allri umgjörð heimaleikja. Þannig þarf að byggja við stúkuna við Vivaldivöllinn, sem var vígð fyrir tíu árum, svo keppnisleyfi fáist frá Knattspyrnusambandi Íslands.
Stjórn deildarinnar, aðalstjórn Gróttu og bæjaryfirvöld hafa undanfarið unnið markvisst að þessu verkefni. Knattspyrnudeild Gróttu hefur jafnframt unnið markvisst að því að lyfta öllu starfinu til að mæta nýjum áskorunum. Við hyggjumst takast á við þær af ábyrgð, ekki að fórna okkar grunngildum og horfa sem fyrr til framtíðar í uppbyggingarstarfinu en ekki einblína á árangur til skemmri tíma.
Samfélagsátak á Seltjarnarnesi Við köllum eftir þátttöku og stuðningi alls bæjarfélagsins í þeim verkefnum sem bíða úrlausnar á árinu 2020. Í okkar huga snýst þetta um miklu meira en fótbolta. Með góðri samstöðu Seltirninga og öflugri liðsheild getum við auðgað mannlífið á Nesinu á komandi ári og gert samfélagið okkar betra fyrir vikið.
Fyrir hönd stjórnar knattspyrnudeildar
Gróttu vil ég þakka iðkendum, þjálfurum og öðru starfsfólki félagsins, stjórnarfólki, bæjaryfirvöldum og öllum stuðningsmönnum Gróttu kærlega fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Það er erfitt að ákveða hvar skal byrja, hvað er vert að ræða og hvað má kyrrt liggja. Það væri hægt að skrifa töluvert meira en opnu um sumarið sem leið hjá meistaraflokki karla. Þetta tímabil var raunar ótrúlegt og því viðeigandi að hafa heimildir sem þessar í lagi.
Vegferðin hófst í október þegar menn settust niður og ræddu tímabilið framundan. Það voru allir sammála þeirri hugmynd að Grótta skyldi ekki taka þátt í Inkasso deildinni til þess eins að vera með. Sæti í deildinni var ekki nóg og menn höfðu trú. Það var eitthvað einstakt í uppsiglingu og mórallinn hafði aldrei verið betri. Langar og strangar æfingar hófust í öllu mögulegu veðri og Þór lét menn heldur betur finna fyrir því í styrktarsalnum, enda vildi hann sjá til þess að það gæti ekki nokkurt lið yfirbugað Gróttu í styrk.
Liðið spilaði æfingaleiki og svo í .Net mótinu, þar sem Grótta bar sigur úr bítum annað árið í röð eftir fjörugan úrslitaleik við Njarðvík. Þegar Lengjubikarinn hófst fengu menn smjörþef af því sem beið þeirra næsta sumar. Liðið spilaði í A-deild bikarsins
ásamt FH, Breiðablik, Víking Reykjavík, Haukum og Keflavík. Fjögur stig voru sótt úr fimm leikjum . Það var ljóst að það þyrfti að gefa rækilega í.
Æfingaferðin
Þann 28. mars hélt liðið af stað í æfingaferð til Montecastillo á Spáni. Montecastillo skartar æfingaaðstöðu í heimsklassa og það var kærkomið að komast af gervigrasinu og kuldanum í Spánarsæluna. Æft var tvisvar á dag og þess á milli gátu leikmenn sleikt sólina á bakkanum eða skellt sér í golf enda býður Montecastillo upp á stórkostlegan golfvöll. Menn á meiðslalista fengu ekkert breik til að sóla sig heldur tók Þór þá í lyftingasalinn og lét menn finna fyrir því. Í ár var ekki spilað ungir gegn gömlum, eins og venjan er, enda hafði það farið ansi illa árið áður. Í staðin var æfingaleikur spilaður við Vestramenn í skemmtilegum leik þar sem sauð heldur betur upp úr. Spennan fyrir sumrinu er á þessum tíma í algjöru hámarki og hver einasti leikmaður er með ástríðuna á lás.
Hinn árlegi markmiðafundur var haldinn í lok ferðarinnar þar sem liðið og þjálfarar settust niður og ákváðu markmið liðsins fyrir komandi tímabil. Flestir voru sammála um markmið liðsins, enda Inkasso-deildin allt annar raunveruleiki en 2. deild. Einhverjir vildi setja markið á að komast beint upp annað árið í röð. Það hlógu flestir að því en eins og skáldið sagði þá hlær sá best sem síðast hlær.
Mjólkurbikarinn hófst á tveimur leikjum við Áltanes og KFR. Það má segja að Gróttuliðið hafi sett upp flugeldasýningu fyrir áhorfendur sem lögðu leið sína á völlinn. Markatalan úr leikjunum 18-2 og liðið komið áfram í 32. liða úrslit. Þar mætti liðið Fylkismönnum í Lautinni. Hörkuleikur þar sem Gróttumenn lutu lægra haldi 1-2 eftir að hafa vaðið í færum seinustu mínúturnar og voru óheppnir að ná ekki að koma leiknum í framlengingu. Þess má til gamans geta eftir að Pétur Theódór skoraði 9 mörk í bikarnum og varð markahæsti leikmaður keppninnar. Pétur var heldur betur búinn að setja tóninn fyrir það sem koma skildi.
Eftir 7 mánuði af alvöru klassísku íslensku undirbuningstímabili var loksins komið að fyrsta leik sumarsins. Strákarnir keyrðu til Ólafsvíkur til að mæta Víkingum. Það má segja að liðinu hafi heldur betur verið kippt niður á jörðina af lærisveinum Ejubs Purisevic. 2-0 tap niðurstaðan og ekki óskabyrjunin sem vonast var eftir. Í fyrsta heimaleik komu Þrótturar í heimsókn á Vivaldivöllinn. Það var ljóst að bærinn ætlaði heldur betur að taka þátt í ævintýrinu með Gróttumönnum þegar það var troðfull stúka sem lét heyra í sér allan leikinn.
Þrátt fyrir að hafa vaðið í færum í fyrri hálfleik var liðið 1-0 undir og manni færri. Gróttumenn sýndu í fyrsta sinn
karakterinn og dugnaðinn sem liðið átti
eftir að einkenna tímabilið og þrátt fyrir að vera manni færri kom jöfnunarmark í uppbótartíma og fyrsta stig sumarsins sett í pokann.
Að slípa brúnirnar
Eftir að hafa byrjað tímabilið brösulega með einungis 4 stig í jafn mörgum leikjum fór af stað rosaleg hrina leikja sem ekki margir sáu fyrir. Grótta virtist ekki geta tapað. Fyrsti leikurinn var gegn sprækum Keflvíkingum þar sem liðið gerði það sem það virðist gera best og skoraði sigurmark í lok leiks sem hrinti domino-kubbunum af stað. 5 sigrar í 6 leikjum og Grótta komið í toppbaráttuna. Eftir 3-0 sigur í Mosfellsbæ heyrðist sungið úr stúkunni ,,We are going up!“ Eftir 10 umferðir var Gróttuliðið komið í efsta sæti deildarinnar.
Eftir stutta pásu í kringum verslunarmannahelgina mættu Keflvíkingar á Vivaldi. Enn og aftur var stúkan troðfull og stuðningurinn í hæsta gæðaflokki.
Eftir rússíbanareið voru 90 mínútur komnar á klukkuna, þrjú mörk skoruð úr hornspyrnum og staðan 3-3 og allt í járnum. Þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma var varnarmaðurinn stæðilegi Arnar Þór Helgason skyndilega kominn inn í vítateig gestanna. Boltinn datt fyrir fætur Arnars sem þrumaði upp í skeytin og allt ætlaði um koll að keyra.
Þó að hápunktar sumarsins hafi verið margir mun ferðin til Grenivíkur þar sem Magnamenn voru heimsóttir lifa lengi í manna minnum. Þrátt fyrir 6 tíma akstur var stúkan troðfull af Gróttufólki sem var mætt klukkutíma fyrir leik til að syngja og tralla. Leikurinn hófst með látum og þegar einungis 10 mínutur voru liðnar var staðan orðin 2-0 Gróttu í vil. Mörkin urðu ekki fleiri og sigur Gróttu staðreynd. Á sama tíma tapaði Þór Akureyri sínum leik og ljóst var orðið að þegar þrjár umferðir voru eftir sat Gróttuliðið í 2. sæti deildarinnar með 4 stiga forystu á næsta lið. Grótta hafði ekki tapað í 15 leikjum í röð!
21. september 2019
Þessi dagur reyndist vera sögulegur. Ljóst var að með jafntefli í lokaleik gegn Haukum kæmist Grótta í efstu deild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Ef liðið myndi sigra og Fjölnir misstíga sig væri sigur í Inkasso-deildinni. Sjaldan hefur önnur eins mannamergð sést á Vivaldivellinum. Eftir erfiða byrjun braut Orri ísinn með fyrsta markinu og í seinni hálfleik bættu Gróttumenn þremur mörkkum við! Þegar fjórða markið söng í netinu og sigurinn orðinn vís hrópaði vallarþulurinn í hljóðnemann að Fjölnir hefði tapað var ljóst að Grótta væri Inkassomeistari 2019! Flautað var af og sæti í PepsiMax deildinni orðið (staðfest). Tár, bros og eintóm gleði tóku völdin. Það rann upp fyrir öllum að þegar trúin er til staðar eru allir vegir færir. Ef litið er aftur um nokkra mánuði var liðinu spáð 9 sæti. Það segir okkur að þó Seltjarnarnesið sé sannarlega lítið og lágt þá er hjartað á réttum stað og gildi klúbbsins sannarlega til staðr Trú, Vilji og síðast en ekki síst Hugrekki.
Kristófer Orri Pétursson á síðasta orðið:, „Hópurinn vill þakka öllum þeim sem komu nálægt liðinu með einhverjum hætti. Öllum sem mættu á völlin, út um allt land að styðja okkur innilega fyrir. Án ykkar hefði þessi fjarlægi draumur aldrei orðið að veruleika. Hins vegar viljum við líka láta ykkur vita að ballið er rétt að byrja. Þessi hópur, þetta félag og þetta bæjarfélag er engan veginn komið á einhverja endastöð sama hvað hver segir. Sama hver mótherjirnn er verður sama markmiðið alltaf í forgangi, að sækja til sigurs. Takk fyrir okkur og sjáumst jafn hress og kát að ári.“
Axel Ingi
Í 8 flokki karla og kvenna eru krakkar að æfa sem eru enn á leikskólaldri.
Flokkarnir voru báðir ágætlega fjölmennir og greinilega mikið sport að mæta á æfingar, bæði á veturna á sumrin, þrátt fyrir ungan aldur. Krakkarnir fjölmenntu einnig í knattspyrnuskólann yfir sumarið sem er gríðarlega jákvætt. Þau fóru á nokkur mót yfir tímabilið, m.a. VÍS-mótið og Arion banka mótið, sem er oft hápunktur fyrir fótboltakrakka á öllum aldri. Gleðin er aldrei langt undan hjá 8. flokki.
Axel Ingi
7. kvenna fór á 2 stórmót síðasta sumar stelpurnar byrjuðu á því á að fara til Akureyrar á mót. Þar spiluðum við 5 liðum og eitt af okkar liðum komst í úrslit. Seinna á árinu fengu stelpurnar að fara á Símamótið sem er stærsta fótboltamót sem haldið er hér á landi. Það var einnig gaman að sjá stelpurnar spreyta sig í fótboltaskólanum sem var seinasta sumar. Margar stelpur voru að taka sitt fyrsta skref í fótbolta og voru framfarirnar góðar.
7. flokkur karla
Gabríel Hrannar
og Axel Ingi
Strákarnir í 7. flokki fóru á sitt fyrsta stórmót síðasta sumar, nánar tiltekið Norðurálsmótið á
Akranesi. Margir strákar voru að gista í sitt fyrsta skipti án þess að vera með mömmu og pabba. Fyrsta nóttin var erfið en það var gaman að sjá hve fljótir strákarnir voru að aðlagast. Gróttumenn spiluðu glimrandi góðan fótbolta á mótinu og var frábært að sjá hve miklum framförum þeir höfðu tekið frá því æfingar hófust haustið áður. Við þökkum drengjunum og foreldrum fyrir skemmtilegan tíma saman.
Bjössi og Arnar Ax 6 flokkur kvenna skartaði um 20 stúlkum yfir allt tímabilið. Margar voru að stíga sín fyrstu skref í boltanum en sumar orðnar reynsluboltar. Flokkurinn tók þátt í ótal mótum og alltaf var flokkurinn Gróttu til fyrirmyndar í framkomu og spilamennsku. Léttleikandi knattspyrna með leikgleði einkenndi stelpurnar allt árið. Hápunkturinn var Símamótið þar sem flokkurinn tefldi fram þremur liðum. Öll stóðu þau sig frábærlega , sumar spiluðu sína fyrstu sjónvarpsleiki fyrir alþjóð á meðan aðrar fóru alla leið í úrslitaleikinn sjálfan. Arnar Þór og Björn Valdimarsson þjálfarar flokksins þakka kærlega fyrir sig.
Bjössi og Arnar Ax
kröftugu stelpum aldrei verið meiri. Það er þó sérlega gaman að segja frá framgöngu eldra ársins en framfarirnar í bæði getu og áhuga hjá stelpunum voru stórstígar. Eftir því sem leið á tímabilið fór stelpurnar að mæta betur og betur á æfingar og verja miklum tíma á gervigrasinu utan æfinga. Það er alvöru árangur! A-lið Gróttu sigraði Faxaflóamótið og var flokkurinn því færður upp í A-deild á Íslandsmótinu. Þar var leikið við sterkustu lið landsins og var reynslan ómetanlega þó að brekkan hafi stundum verið brött. Pæjumótið og Símamótið voru auðvitað hápunktar sumarsins en í Eyjum tefldi Grótta fram fjórum liðum í fyrsta sinn í sögunni. Stemningin á mótunum var engu lík þar sem stelpur, þjálfarar og foreldrar söfnuðu til sín dýrmætum minningum.
Tímabilið 18/19 hjá strákunum í 6. flokki var gríðarlega viðburðaríkt og skemmtilegt. Um 50 strákar mynduðu einn fjölmennasta flokk í sögu knattspyrnudeildarinn. Alltaf var mæting og framlag drengjanna til fyrirmyndar á öllum æfingum og mótum.
Hápunktur sumarsins var auðvitað Orkumótið og svo Króksmótið. Eldra árið tefldi fram tveimur liðum á Orkumótinu sem bæði stóðu sig frábærlega og var framkoma drengjanna til fyrirmyndar. Á Króksmótið fór allur flokkurinn með 6 lið. Í gríðarlega krefjandi aðstæðum fyrir norðan stóðu allir sig með prýði og á endanum tókst Gróttu 1 að bera sigur úr bítum.
Arnar Þór, Birkir Rafnsson, Björn Valdimarsson Kamilla Brá og Óskar
Hrafn þjálfarar flokksins þakka kærlega fyrir sig.
5. flokkur kvenna
Maggi og Eydís
Tímabilið hjá 5. flokki kvenna var sannarlega viðburðaríkt. Yngra árið var afar fjölmennt og áhuginn hjá þeim
Dóri Árna og Gabríel Í 5. flokki karla voru u.þ.b. 25 gallvaskir guttar sem æfðu og spiluðu í sumar. Mæting var góð og öll frammistaða til fyrirmyndar. Eins og oft gerist þegar fólk leggur sig fram urðu miklar framfarir í flokknum. Strákarnir spiluðu fjöldan allan af leikjum í Faxaflóamótinu, Íslandsmótinu og auðvitað N1 mótinu, sem er alltaf hápunktur tilverunnar fyrir leikmenn 5. flokks. Þangað sendi Grótta 3 lið, jafnmörg og spiluðu í Íslandsmótinu. Það fóru fram virkilega skemmtilegir leikirá tímabilinu og stemningin í hópnum mjög jákvæð. Töp, sigrar, jafntefli. Allt fer þetta beint í reynslubankann hjá strákunum alveg eins og hjá okkur þjálfurunum. Við nutum hverrar mínútu með strákunum og þökkum þeim og foreldrum fyrir gott samstarf á liðnu tímabili.
4. flokkur kvenna
Íunn og Bjössi
Hátt í 40 stelpur æfðu hjá Grótta/ KR og tefldi flokkurinn fram þremur liðum. Undirbúningstímabilið
gekk vel og æfðu stelpurnar mjög vel og mættu vel á æfingar. Farið var á Stefnumótið á Akureyri og heppnaðist ferðin einstaklega vel og þétti hópinn vel saman. Íslandsmótið byrjaði og metnaðurinn og æfingaaðsókn yfir veturinn skilaði sér í frábærum frammistöðum yfir Íslandsmótið. Úrslitin hjá stelpunum voru í takt við vinnuna sem þær höfðu lagt á sig yfir veturinn. A og B lið flokksins komust í úrslitakeppnina og er það lýsandi fyrir hvað þessar duglegu og metnaðarfullu stelpur lögðu hart að sér til þess að ná svo langt. Allar saman sem eitt lið! Takk kærlega fyrir tímabilið stelpur!
nokkuð vel í vetrarmótunum ásamt því að lenda svo í 2. sæti á sjálfu Íslandsmótinu í sumar þar sem þær urðu undir í vítaspyrnukeppni gegn
Stjörnunni í úrslitaleik. Stelpurnar duttu út í 8-liða úrslitum í bikarkeppninni eftir spennandi leik við Hauka 3-4. Í sumar spiluðu einnig 6 stelpur úr 3. flokki samtals 60 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu og stóðu sig mjög vel.
Það má því með sanni segja að tímabilið hafi verið ótrúlega vel heppnað og það verður heldur betur spennandi að fylgjast með þessum stelpum á komandi misserum.
4. flokkur karla
Bjössi og Gabríel
4.flokkur karla var þéttur og ákveðinn flokkur þar sem 26 strákar voru skráðir. Undirbúningstímabilið gekk vel og mættu drengirnir vel til æfinga.
Þeir tóku þàtt í Faxaflóamótinu og tefldu fram tveimur liðum yfir veturinn. Svo tók skemmtilegasti tími ársins við og voru drengirnir tilbúnir í Íslandsmótið. Spiluðu þeir leiki víðsvegar um landið og spiluðu ávallt fallegan og skemmtilegan fótbolta. Tap, sigrar og jafntefli litu öll dagsins ljós en voru strákarnir alltaf jákvæðir, samheldnir og tilbúnir að gera hlutina saman! Takk kærlega fyrir tímabilið drengir.
3. flokkur kvenna
Pétur R og Gummi
Guðmundur
Maggi, Einar Bjarni og Pétur Már
Það var vaskur hópur sem æfði í 3. flokki karla á liðnu tímabili. Margir fengu tækifæri til að spila stórt hlutverk
Tímabilið hjá 3. flokki kvenna í Gróttu/ KR var hrikalega skemmtilegt og árangursríkt. Liðið telfdi fram tveimur liðum í öllum mótum og voru stelpurnar félögum sínum til sóma.
A lið 3. flokks fór hrikalega vel af stað á undirbúningstímabilinu og vann vetrarmótið nokkuð örugglega ásamt því var farið á Stefnumótið á Akureyri, en stelpurnar sigruðu einnig það mót. B-liðið gerði
í 2. flokki og Orri Steinn fór alla leið upp í meistaraflokk og tók þátt í Inkasso-ævintýrinu. Orri, ásamt þeim Grími og Kjartani, var svo hluti af íslenska drengjalandsliðinu sem spilaði í nokkrum keppnum á árinu. Bikarkeppnin var skemmtileg þar sem liðs ÍBV var sigrað í fjörugum leik í Eyjum og Stjarnan, eitt sterkasta lið landsins, var lagt að velli í einhverjum mest spennandi leik sumarsins á Vivaldivellinun. Gróttumenn komust þó ekki í gegnum sterka Selfyssinga og duttu út í 8-liða úrslitum. Í Íslandsmótinu var Gróttuliðið ótrúlega þrautseigt. Leik eftir leik skoruðu strákarnir á síðustu 10 mínútunum og unnu ævintýralega sigra. B-liðið byrjaði sumarið vel en fataðist svo flugið eftir því sem á leið. Það var þó afskaplega gaman að sjá framfarir þeirra drengja sem sinntu æfingum af krafti og munu þær án vafa skila sér inn í næsta tímabil. En fyrst og fremst var gaman að fylgjast með strákunum vaxa og þroskast sem einstaklingar en þessi þétti kjarni hefur æft fótbolta saman og haldið hópinn frá því í 7. flokki.
Á liðnu tímabili tók 2. flokkur Gróttu/ KR þátt í Faxaflóa-/Reykjavíkurmóti um veturinn og auðvitað sjálfu Íslandsmótinu um sumarið. Stelpurnar áttu marga góða spretti og þegar upp var staðið enduðu þær í 4. sæti B-deildar með jafnmörg stig og liðin í 2. og 3. sæti, en með lakari markatölu. Grótta/ KR vann 10 leiki og tapaði fjórum en hápunktur sumarsins var vafalaust sterkur 2-0 sigur á góðu liði FH í Kaplakrika. Að lokum fór FH upp úr deildinni ásamt Fylki en okkar konur sátu eftir ásamt ÍA. Útlit er fyrir að flokkurinn verði enn sterkari á næsta ári og heldur áfram að þjóna mikilvægu hlutverki sínu sem vettvangur fyrir Gróttu- og KR-stelpur sem ekki eru fastamenn í meistaraflokki.
Óskar Hrafn, Einar Bjarni og Arnar Ax 2. flokku karla var frábær hópur leikmanna sem hófu æfingar undir stjórn Óskar Hrafns og Arnar Þórs um miðju október 2018. Eins og alltaf var verkefnið það að gera menn tilbúna fyrir næsta skref í meistaraflokks fótbolta. Grótta tefldi fram einu liði sem spilaði í Faxaflóamóti, Bikarkeppni og B deild Íslandsmótsins. Það var ljóst að það að spila 18 leiki í B-deild yrði mjög krefjandi verkefni en sömuleiðis frábært tækifæri til að spila gegn sumum af stærstu liðum landsins. Til að byrja með fór tímabilið hægt af stað en eftir að stjörnuþjálfarinn Einar Bjarni kom inn í þjálfarateymi liðsins snérust gengu til hins betra. Mikið af leikmönnum 3. flokks tóku þátt í æfingum og leikjum og stóðu sig virkilega vel að spila á háu stigi. Þó liðið hafi endað sumrið á falli má með sanni segja að frammistaða strákana hafi verið til fyrirmyndar og þjálfarateymið er virkilega stolt af framförunum sem voru sýnilegar í gegnum tímabilið.
Rafvirkjar sf
óska Gróttufólki gleðilegra jóla og þakka fyrir samstarfið
á liðnum árum
Þú sækir pizzu og stóran skammt af brauðstöngum og færð aðra pizzu sömu stærðar að auki.
Viðtal við fyrstu landsliðskonu Gróttu
Um 15 ár eru liðin frá því að fyrstu kvennaflokkar
Gróttu í fótbolta tóku til starfa. Til að byrja með var alvaran yfirleitt ekki mikil en í dag er komin upp kynslóð stelpna sem hefur æft fótbolta af krafti frá sex eða sjö ára aldri. Einn fulltrúi þessarar kynslóðar varð á dögunum fyrsta landsliðskona Gróttu. Engin önnur en hin 15 ára gamla Tinna Brá Magnúsdóttir sem lék með U15 ára landsliði Íslands á æfingamóti í Víetnam.
Um 15 ár eru liðin frá því að fyrstu kvennaflokkar Gróttu í fótbolta tóku til starfa. Til að byrja með var alvaran yfirleitt ekki mikil en í dag er komin upp kynslóð stelpna sem hefur æft fótbolta af krafti frá sex eða sjö ára aldri. Einn fulltrúi þessarar kynslóðar varð á dögunum fyrsta landsliðskona Gróttu. Engin önnur en hin 15 ára gamla Tinna Brá Magnúsdóttir sem lék með U15 ára landsliði Íslands á æfingamóti í Víetnam.
„Ég byrjaði að æfa fótbolta þegar ég var lítil en fór ekki í mark fyrr en á eldra ári í 5. flokki. Eiginlega bara af því það vantaði markmann. Mér gekk strax vel í markinu og ákvað því að einbeita mér að þeirri stöðu,“ segir Tinna aðspurð um hvernig fótboltaferillinn hafi byrjað.
Tinna spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki sumarið 2018, þá aðeins 14 ára gömul þegar Gróttuliðið var í markmannsvandræðum. Hún byrjaði svo að æfa með liðinu um haustið og spilaði allt undirbúningstímabilið með meistaraflokki. Tinna varði mark 3. flokks Gróttu/KR í sumar en kom óvænt inn í byrjunarlið meistaraflokks í lok tímabilsins.
Í lok sumars var Tinna valin í U15 ára landslið Íslands sem lék á æfingamóti í Víetnam Tinna segir ferðina hafa verið eftirminnilega en aðstæður mjög krefjandi: „Ég ældi næstum því á fyrstu æfingunni! Það var mjög heitt og rakt
og ferðalagið tók 24 klukkutíma. Það var erfitt að venjast því að spila fótbolta í þessum aðstæðum en það þýddi ekkert að væla yfir því,“ segir Tinna og heldur áfram: „Við spiluðum við Hong Kong, Myanmar og Víetnam, fengum 7 stig og unnum mótið. Við áttum bæði góða og slæma kafla en fyrst og fremst var þetta góð reynsla og gaman að kynnast stelpunum í liðinu. Það er mikill heiður að fá að spila fyrir Ísland og eitt af mínum markmiðum er að spila fleiri landsleiki á næsta ári“
Sólarhring eftir að Tinna kom heim frá Víetnam spilaði meistaraflokkur Gróttu úrslitaleik um að komast upp í Inkassodeildina. Hin brasilíska Dida varði mark Gróttu í sumar en um miðjan ágúst fékk hún félagaskipti yfir í portúgalska stórliðið Benfica. Það kom því í hlut Tinnu að verja mark Gróttu í síðustu tveimur leikjum sumarsins: „Það var geggjað að fá tækifæri í þessum mikilvægu leikjum en ég viðurkenni alveg að ég var mjög stressuð fyrir lokaumferðina Var nýkomin heim frá Víetnam og vissi að við urðum að vinna. En þetta gekk allt saman vel og það var frábært að fá að taka þátt í þessu.“
Það verður gaman að fylgjast með Tinnu á næstunni – hún er gangandi dæmi um að það er „kúl“ að vera í marki og vonandi eru ungir krakkar í Gróttu sem biðja um markmannshanska í jólagjöf og vilja verða eins og Tinna Brá.
Hvað varð til þess að þú byrjaðir að æfa mark?
Það er eitthvað sem ég sá aldrei beinlínis fyrir mér fyrir nokkrum árum, hvað þá velgengnin sem ég hef upplifað síðan ég byrjaði í marki. Bjarki Már Ólafsson hafði mikil áhrif á þá ákvörðun að hætta í handbolta, sem ég hafði ekki síður gaman af á þeim tíma. Það má alveg segja að hann hafi togað mig til sín, sem ég er að sjálfsögðu þakklátur fyrir í dag.
Hver er fyrirmynd þín í fótbolta? Ég veit ekki hvort ég sé með neina eiginlega fyrirmynd í fótbolta en Ederson, markmaður Manchester City er klárlega leikmaður sem ég lít upp til. Hann er óhræddur við að mistakast og getur bæði spilað stutt og sett Agüero í gegn frá markteig. Maður vill vera fjölhæfur. Ég myndi samt segja að í fótbolta er það stjúpfaðir minn sem hefur ein mest áhrif á mig. Við ræðum saman eftir leiki hvað hefði mátt fara betur og hvað fór einkum vel. Ég held að þó ég myndi eiga stjörnuleik myndi hann samt finna einhverja leið til að gagnrýna mig, á uppbyggilegan hátt. Mér finnst það skipta máli til að halda mér einbeittum.
Hver er þín besta minning úr leik með Gróttu?
Það var ótrúlega sætt að verja í fyrsta skipti vítaspyrnu í deildarleik á móti Keflavík að heiman. Sú varsla hafði áþreifanleg áhrif á leikinn og það gladdi mig að geta hjálpað liðinu að safna stigum
Hverjir eru þínir helstu styrkleikar og veikleikar?
Síðan ég byrjaði að spila mark hef ég einungis spilað fótbolta sem krefst mikillar þátttöku í uppspili frá marki og þessvegna held ég að það sé einn minn helsti styrkleiki sem markmaður að geta spilað út og haldið ró í krefjandi aðstæðum. Ég læt svo mistök sjaldnast hafa áhrif á leik minn, sem ég held að sé mikilvægur eiginleiki að hafa. Það sem hefur reynst mér þolraun er að aðlagast öðrum tegundum af fótbolta þegar ég fer t.a.m. í landsliðsverkefni.
Hvernig hefur verið að taka þátt í landsliðsverkefnum og hvað finnst þér þú læra annað en með félagsliðinu? Það er alltaf mikill heiður að fara í verkefni með landsliði og allt önnur reynsla en það sem maður fær hjá félagsliði. Fyrst og fremst er það lærdómsríkt að hitta aðra þjálfara og aðra leikmenn og heyra hvað aðrir eru að gera og hugsa. Að spila eftir módeli íslenska landsliðsins er auðvitað mjög frábrugðið því sem ég er vanur úr Gróttu og það hefur verið frábært að fá að smakka á hvoru tveggja.
Hvernig hefur gengið að halda uppi velgengni í skóla samhliða því að spila fótbolta?
Hjörvar Hafliða orðaði þetta býsna vel þegar hann sagði: „Heimavinna, heimavinna, heimavinna.“ Hvort sem það er í fótbolta eða í náminu snýst þetta allt saman um að sinna sínu og hafa skipulag á hlutum. Þetta verður krefjandi þegar álagspunktar skerast á, en með
hugafarið á réttum stað hafa hlutirnir gengið upp hingað til.
Hver eru markmið þín fyrir næstkomandi tímabil?
Sem markmaður viltu hafa sem mest áhrif þegar þú færð tækifæri til þess og það er með því að bjarga stigum fyrir liðið þitt. Það er það sem ég horfi mest á, að vera sterk stoð í liðinu næsta sumar og halda lakinu hreinu eins oft og hægt er.
Hver eru langtímamarkmiðin þín í fótbolta?
Það er draumurinn að spila fótbolta á háu stigi og geta framfleytt sér og lifað á fótboltanum einum. Ég stefni þangað og þegar að því er komið getur maður stefnt ennþá lengra.
Hvað borðarðu fyrir leiki?
Mínir menn hjá Ginger voru lykilatriði hjá mér í sumar. Að borða þar 3-4 klukkutímum fyrir leik og svo banana og skyr klukkutíma fyrir leik var mín sigurformúla síðastliðið tímabil.
Hvað hafa síðustu 2 ár kennt þér sem þú getur tekið með þér í næsta tímabil?
Það er helst hversu langt maður getur komist með hjartað á réttum stað og að maður uppskerir sannarlega því sem maður sáir. Að mistök séu í lagi og hluta af leiknum. Ég er að koma sjálfum mér í besta form sem ég get verið í til þess að það verði engar afsakanir þegar að líður að sumrinu. Þá mætum við tilbúnir til leiks og munum ekki gefa neitt eftir.
Ritstjóri settist niður með manninum sem tók nýverið við meistaraflokki Gróttu, Ágústi Þór Gylfasyni og spurði hann spjörunum úr um knattspyrnuuppeldi, feril og hans einkenni sem þjálfara. Það var sönn ánægja að sitja með Gústa, enda er hann viðkunnalegur maður sem er þekktur fyrir almennilegheit og jákvæða orku. Hann segist virkilega ánægður með nýja stöðu sína hjá Gróttu og að það sé sannur heiður að verða fyrsti þjálfari Gróttu í efstu deild.
Til að byrja á byrjuninni, geturðu sagt stuttlega frá fótboltaferli þínum?
„Hversu mikinn tíma hefur þú? Viltu frekar fá þetta sent í Word-skjali?“
Ég sagðist geta setið með Gústa allt kvöldið en honum þótti það vera óþarft, hann gæti gefið mér stuttu útgáfuna.
„Ég er uppalinn Framari og fyrir utan eitt ár í Leikni spilaði ég þar í gegnum yngri flokkana. Á síðast árinu í öðrum flokki skipti ég yfir í Val og fékk frekar fljótlega tækifæri með aðalliðinu. Ég spilaði þar í fjögur ár og varð þrisvar sinnum bikarmeistari áður en ég var lánaður til FC Solothurn í Sviss“
Ágúst spilaði í Sviss í eitt tímabil en var svo seldur til SK Brann í Noregi þar sem hann spilaði eftirminnilega leiki á móti stórliðum á borð við Liverpool, Werder Bremen og Manchester United. Ágúst flutti heim árið 1999 og spilaði hjá Fram í fjögur ár og þau næstu fjögur hjá KR. Það var svo hjá Fjölni sem skiptingin úr leikmanni í þjálfara varð til þegar hann sinnti starfi spilandi aðstoðarþjálfara í Grafarvoginum sumarið 2009. Gústi, eins og hann er oftast kallaður, tók svo við aðalþjálfarastöðu 2011 og starfaði sem slíkur næstu 6 árin áður en hann tók við Breiðabliki haustið 2017.
En var planið alltaf að snúa sér að þjálfun?
„Ég er ennþá að vinna í þeirri vinnu sem ég fékk 1999 hjá Nýherja sem er auðvitað Origo í dag. Fyrst sem sölumaður en núna sem vörustjóri hljóð- og myndabúnaðar.“ Aðspurður hvort það hafi alltaf gengið vel að tvinna saman þessar tvær atvinnugreinar kvað Gústi samflotið hafa gengið vel. „Ég bjóst ekki við því að verða þjálfari en ákvað engu að síður að taka gráðurnar. Þegar ég var aðstoðarþjálfari Fjölnis og fékk tilboð um að taka við liðinu lá þetta einhvernveginn beint við og ég sló til.
En er einhver leikstíll eða skipulag sem einkennir þig sem þjálfara?
„Nei, ég get ekki sagt það. Þegar ég tek við liði met ég hópinn sem ég hef og reyni að vinna taktík út frá styrkleikum hans og ná því besta úr hverjum og einum. Það sem heillaði mig hvað mest við starfið hjá Gróttu var hversu sterk gildi væru til staðar innan klúbbsins. Jákvæðni einkennir félagið og árangur síðustu tveggja ára er einstakur. Það sýnir hversu gott starf hefur verið unnið og það er gaman að fá að taka þátt í svoleiðis verkefni.“
Gústi talaði einkar vel um leikmannahópinn sinn og sagðist ganga vel að kynnast strákunum. Það tæki tíma að læra inn á hvern og einn en að fyrsti mánuðurinn lofi mjög góðu. Eitt af því sem Gústa þykir mikilvægast við þjálfun er að mynda sterk sambönd við leikmenn: „Ef þú ætlar að fá það besta úr þínum leikmönnum er mikilvægt að það sé traust og virðing milli manna. Það eitt og sér getur komið liði mjög langt.“
Eru þetta gildi sem þú hefur tekið til þín frá einhverjum fyrirmyndum í þjálfun?
„Heldur betur. Nálgun á verkefni og orðaval ásamt almennu viðhorfi er að einhverju leyti dregið frá tíma mínum með Ásgeiri Elíassyni heitnum. Hann var stórkostlegur leikmaður, þjálfari og karakter. Hann þjálfaði mig hjá Fram og valdi mig í landsliðshópinn á sínum tíma og það var sannur heiður að starfa með honum.
Að lokum vildi ég heyra frá Gústa hverju spenntir Seltirningar mættu búast við þegar gjörvöll bæjarbyggðin mætir á fyrstu leiki Gróttu í Pepsí-Max deildinni næsta sumar. Stuðningssveit Gróttu, betur þekkt sem „Vivaldi Hooligans“, leggur jú nótt við dag við að semja lag fyrir Gústa.
Hversu miklu máli skiptir það þig að skemmta stuðningsmönnum félagsins? „Hver einasti leikur á að vera skemmtilegur og það verður barist fyrir hverju einasta stigi sem er í boði. Við erum öll í því sem ég kalla “Team Grótta,“ leikmenn, þjálfarar, aðrir starfsmenn og stuðningsmenn. Allir sem koma að klúbbnum eru með og skipta máli. Við þurfum að vinna vel með stuðningamönnum til að ná árangri. Ég fékk smjörþefinn af stuðningsliðinu hjá
Gróttu þegar ég var nýráðinn til félagsins og mætti á herrakvöldið. Þar var aðeins sungið fyrir mig og ég hlakka mikið til að heyra meira frá þeim. Ég ber mikla virðingu fyrir stuðningsmönnum og ég hlakka til að njóta komandi tímabils með þeim.“
Ég átti tvær spurningar eftir og hef aldrei upplifað eins skjót svör.
„Erfiðasti leikmaður sem ég hef spilað á móti? Gummi Steinars. Besti leikmaður sem ég hef spilað með? Það verður að vera Gummi Steinars.“
Ótrúlegar mætur sem Gústi hefur á hægri hönd sinni, Guðmundi Steinarssyni aðstoðarþjálfara! Þeir félagar verða væntanlega frábært teymi á hliðarlínunni þegar gamanið byrjar í vor.
Alexander og fjölskylda
Andrés, Eva, Andrea, Benni og Bjöggi
Ari Eldjárn, Linda Guðrún Karlsdóttir, Arney Día Eldjárn og Saga Eldjárn
Arna, Fjalar og börn
Arna og Helgi
Arnar, Dagmar og fjölskyldan á Vallarbraut 20
Arndís, Eiríkur og Úlfhildur á Unnarbraut
Ásgeir, Agga og Nanna
Auður Freyja, Sólveit Katla, Kári, Árni og Sigga Dögg
Birgir Tjörvi, Erla Kristín, Kristín Klara og Árni Pétur
Bjarni og Jórunn
Borghildur, Viðar og fjölskyldunni á Valhúsabraut 25
Davíð, Harpa, Lovísa, Lilja og Birgir
Dísæt jólakveðja frá fjölskyldunni Steinnesi
Dofri og Didda
Fjölskyldan Bakkavör 10
Fjölskyldan Bakkavör 18
Fjölskyldan á Barðarströnd 6
Fjölskyldan Barðaströnd 49
Fjölskyldan Bollagörðum 19
Fjölskyldan Bollagörðum 33
Fjölskyldan á Bollagörðum 55
Fjölskyldan Eiðismýri 1
Fjölskyldan á Einimel 11
Fjölskyldan Grænumýri 18
Fjölskyldan Grænumýri 24
Fjölskyldan á Hamarsgerði 2
Fjölskyldan Hofgörðum 3
Fjölskyldan á Hrísrima 3
Fjölskyldan Kolbeinsmýri 3
Fjölskyldan í Lálandi 5
Fjölskyldan Látraströnd 13
Fjölskyldan á Lindarbraut 28
Fjölskyldan Miðbraut 22
Fjölskyldan Miðbraut 25a
Fjölskyldan Miðbraut 28
EY óskar Gróttu og
íbúum Seltjarnarness, gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105
Reykjavík s. 595-2500, ey@ey.is
Að sjá uppeldisfélagið komast á stað sem var
Árið 2019 var sögulegt hjá knattspyrnudeild Gróttu enda tryggði meistaraflokkur karla sér sæti í efstu deild í fyrsta sinn og meistaraflokkur kvenna fór upp úr neðstu deild, einnig í fyrsta sinn. En í sumar voru 10 ár liðin frá því að meistaraflokkur karla í Gróttu komst upp í næst efstu deild Íslandsmótsins í fyrsta skipti í sögu félagsins. Gróttublaðið settist niður með Ásmundi Haraldssyni, þjálfara Gróttu á árunum 2005-2010, sem rifjaði upp þetta eftirminnilega sumar.
Ef við byrjum á að rifja upp innkomu þína á Seltjarnarnes, geturðu sagt mér aðeins frá því hvernig landslagið var innan félagsins þegar þú byrjaðir. Ég flutti heim til Íslands vorið 2004 eftir nám í Bandaríkjunum. Ég hafði þá verið fjarri heimahögunum í 8 ár með einhverjum styttri og lengri dvölum heima. Hóf að æfa með meistaraflokki Gróttu þá um vorið og spilaði einhverja leiki undir stjórn Júlíusar Júlíussonar. Hann hætti svo um haustið og þá buðu þeir Magnús Örn Guðmundsson (Mangi) og Haraldur Eyvinds Þrastarson mér að taka við þjálfun flokksins. Ég fór svo í fullt starf hjá Gróttu tveimur árum síðar og tók þá einnig við sem yfirþjálfari yngri flokka og sem þjálfari yngstu flokkanna ásamt því að þjálfa meistaraflokk karla.
Landslagið innan Gróttu var sérstakt. Þá hafði meistaraflokkurinn verið tiltölulega nýkominn á ról aftur eftir að hafa verið lagður niður í einhver ár. Það var starfandi stjórn innan
deildarinnar en hún sá eingöngu um yngri flokkana. Þeir Mangi og Haraldur sáu svo um rekstur meistaraflokksins. Við höfðum enga aðstöðu, einhverjar 2-3 innanhússæfingar og svo hálfan gervigrasvöll hér og þar seint á kvöldin. Það var mikið um „skoðunarferðir“ um Seltjarnarnes og nærumhverfi á þessum tíma. Liðið var ungt og reynslulítið. Þarna hófst leikmannaveltan sem á endanum taldi einhverja 90 leikmenn sem höfðu á einhverjum tímapunkti spilað deildarleiki fyrir Gróttu fram til 2009 eða þegar liðið var komið upp í næstefstu deild í fyrsta skipti. Við vorum grátlega nálægt því að komast upp úr 3. deildinni árin 2005 og 2006 en misstum ekki móðinn og komumst loksins upp haustið 2007.
Hver er þín besta minning frá því að starfa fyrir klúbbinn?
Þær eru margar frábærar minningarnar frá þessum árum og erfitt að nefna eitthvað eitt augnablik. Öll mótin og starfið með yngri flokkunum, skóflustunga gervigrasvallarins, heimferðirnar úr útileikjunum, tveggja
hæða rútan eftir lokaumferðina 2009 og fleiri góðar en kannski er sú sterkasta þegar við unnum Víði í Garðinum sama sumar og tryggðum sæti í 1.deildinni. Það var stóra mómentið. Þá einhvern small þetta allt saman og langþráður draumur allra Gróttara að rætast. Að sjá uppeldisfélagið komast á stað sem var svo sannarlega ekki á kortinu einhverjum árum áður. Ekkert ósvipuð upplifun þeirra sem komu Gróttu í Pepsímaxdeildina nú í sumar. Að Grótta sé komið í efstu deild er nátturulega bara algjörlega ótrúlegt. Sér í lagi fyrir okkur sem að ólumst upp hjá Gróttu þegar Grótta var ekki neitt neitt.
Í viðtali við .net eftir 4-0 sigur á Víði Garði árið 2009 lést þú eftirfarandi orð falla: „Þetta hefur verið margra ára vinna. Það hefur margt breyst síðan ég mætti út á Nesið í eitthvað malar-rugl með enga bolta og ekki nokkurn skapaðan hlut.
Það er klárlega uppgangur á Nesinu,“
Af hverju einkenndist þessi mikla vinna og myndir þú segja að henni hafi verið framfylgt eftir að þú kvaddir Gróttu? Hefðir þú trúað því að meistaraflokkur karla myndi spila í efstu deild árið 2020? Meistaraflokkur og yngri flokkar æfðu innanhúss og á malarvellinum. Áttum lélegan grasvöll á Valhúsahæðinni. Engin vetraraðstaða, engin félagsaðstaða. Jú, það var herbergi. Gróttuherbergið. Þeir elstu muna eftir því. Á þessum tíma var ég yfirþjálfari yngri flokka og þjálfaði þrjá flokka að jafnaði auk meistaraflokks. Það voru margir klukkutímar í deginum sem fóru í vinnu fyrir félagið. Það fór ákveðin uppbygging af stað með tilkomu gervigrasvallarins og aðstöðunnar. Þá stækkuðu flokkarnir og við lögðum fyrstu drög að kvennaflokkunum. Samstarf við skólana, leikskólana og aðrar deildir innan félagsins jókst.
Foreldrastarfið styrktist og fleira fólk kom að starfinu. Það stjórnarfólk sem ég vann með á þessum tíma vann óeigingjarnt starf í þágu félags. Það lagði gríðarlega vinnu framkvæmdirnar á svæðinu, vallarhúsið og lögðu til vinnu og fé til þess að iðkendur og þjálfarar hefðu eins gott umhverfi og hugsast gæti.
Þeir óku liðinu í leiki og lögðu grunn að félaginu eins og það er í dag. Ég held að þessi grunngildi séu svipuð í dag, mögulega með breyttum áherslum, betri og fleiri iðkendum, reyndari og betri þjálfurum og reyndara
stjórnarfólki. Þegar að liðið var komið í næstefstu deild þá var það að sjálfsögðu langtímamarkmið að koma liðinu á þann stað að það gæti keppt við hin liðin í deildinni um sæti í efstu deild. En á þeim tíma var ekki einhugur um það og við tókum nokkur stefnulaus ár. En ég vona að félagið sé í dag orðið það stöðugt að það geti í framtíðinni barist stöðugt um sæti í efstu deildinni.
Gróttuliðinu sem sigraði 2. deild árið 2009 var blanda af sigursælum kempum eins og Kristjáni Finnbogasyni og Sigurvin Ólafssyni í bland við yngri uppalda Gróttumenn eins og Pétur Má Harðarson, Hrafn Jónsson, Braga Árnason, Arnar Frey Gunnsteinsson og Bjarna Jakob Gunnarsson. Hver var galdurinn af því að búa til sterka liðsheild og fá menn til að vinna saman?
Liðið náði að sameinast í „konseptinu“ okkar, Draumasumrinu. Við erum held ég enn sameinaðir í þessu konsepti. Það þurfti að koma hópnum á þann stað að liðið myndi trúa því að við gætum gert einhverja merkilega hluti þetta árið. Gera þetta að draumasumrinu okkar. Koma Gróttu á einhvern stað sem það hafði aldrei verið. Við náðum að búa til liðsheild, leikmenn urðu góðir vinir og það varð mikil samstaða í hópnum, og aldursbilið varð að engu þegar leið á; þjálfarateymi og stjórn meðtaldir. Það var gaman á æfingum, það var gaman
að spila leikina og það var gaman utan æfinga. Þar voru stjórnarmennirnir okkar lykilmenn í því hlutverki. Þetta var orðið svo solid að það þurfti bara að henda Bruce Springsteen á fóninn og þá voru allir komnir í stríðsgallann.
Hvernig hefur þér litist á þá þróun sem hefur átt sér stað á síðustu árum innan knattspyrnudeildarinnar? Ég er að sjálfsögðu hæstánægður með stöðu Gróttu þessi misserin, náttúrulega ótrúlegt að félagið verði í Pepsí Max og Inkasso næsta sumar. Það er ekki langt síðan fyrstu kvennaflokkarnir fóru af stað og það er ótrúlega gaman að sjá hvernig kvennastarfið hefur þróast og þroskast með góðu fólki síðastliðin ár. Þar myndi ég segja að Magnús Örn Helgason færi fremstur meðal jafningja. Með alveg ótrúlega stórt og traust Gróttuhjarta.
Þú hefur verið í efstu deild tvö ár í röð sem aðstoðarþjálfari FH. Nú verður Grótta andstæðingur ykkar næsta sumar...hvernig er tilfinningin að snúa aftur á Nesið sem þjálfari og hversu verðugan andstæðing telurðu Gróttu vera í Pepsí Max deildinni næsta sumar?
Það verður alveg ótrúlega gaman að fá Gróttu í heimsókn í Krikann og sömuleiðis að koma með FH á Nesið. Það að sjá Gróttu á sama stað og KR, Val, FH og önnur stórlið er stórkostlegt. Ég er ótrúlega spenntur að sjá hvernig félagið tekst á við þetta verkefni og hvernig liðið kemur inn í mótið. Grótta er félag með stjórt hjarta og á mikinn sess í mínu hjarta. Grótta verður alltaf verðugur andstæðingur í mínum huga.
Guðjón Kristinsson og hans konur í meistaraflokki mættu til leiks þriðja tímabilið í röð. Árið 2017 endaði Nú var komið að því. Stelpurnar í meistaraflokki
Gróttu einsettu sér, ásamt þjálfurum sínum, að sigra 2. deild kvenna og tryggja sér sæti í Inkasso-deildinni. Þetta var fjórða tímabilið frá því að kvennaliðið var sett á laggirnar og var landslagið í neðstu deildinni kunnuglegt: Mörg ferðalög, sterkir erlendir leikmenn og afar fáir leikir svo rými til að misstíga sig var lítið.
Æfingaferð í Svíþjóð
Undirbúningstímabilið gekk vel. Stelpurnar æfðu af krafti og komu mörgum á óvart í Lengjubikarnum. Unnu tvo leiki og töpuðu tveimur en gerðu liðum í deild ofar erfitt fyrir. Leiknir var sleginn út í fyrstu umferð bikarkeppninnar en sprækar Augnabliks-stelpur unnu öruggan 4-1 sigur á Gróttukonum í 32liða úrslitum.
Eftir þrjár umferðir var Grótta með sjö stig af níu mögulegum sem var ágætis veganesti fyrir æfingaferð til Svíþjóðar sem farin var í byrjun júní. Þar var æft við bestu aðstæður í Bosön í úthverfi
Stokkhólms í frábæru veðri og fallegu umhverfi. Hópurinn skellti sér einnig á leik hjá sænska karlalandsliðinu og búðirnar í Stokkhólmi voru rannsakaðar. Ferðin var vel heppnuð í alla staði og þjappaði liðinu vel saman.
Spennan magnast Þegar mótið var hálfnað var Grótta í 2. sæti með 13 stig, þremur stigum á eftir Völsungi. Í júlí fóru stelpurnar austur og léku tvo leiki. Þann fyrri við Fjarðabyggð/ Hött á Egilsstöðum þar sem Grótta lenti
2-0 undir en náði að jafna metin á síðustu mínútum leiksins og lokatölur urðu 2-2. Hópurinn gisti á bóndabæ í Breiðdal um nóttina og hélt morguninn eftir á Höfn þar sem leikið var við lið Sindra í roki og rigningu. Aftur lenti Grótta 2-0 undir en náði ekki að jafna, lokatölur urðu 2-1 og liðin að austan áttu enn von á að komast upp um deild á lokasprettinum.
Staðan fyrir síðustu tvo leiki sumarsins var þannig að Grótta varð að vinna báða og treysta á að Sindri myndi misstíga sig á móti Völsungsstelpum sem voru reyndar ósigraðar. Dida markvörður fékk félagaskipti til portúgalska stórliðsins Benfica svo ljóst var að hin 15 ára Tinna Brá Magnúsdóttir myndi verja mark Gróttu í lokaleikjunum. Jafnaldra hennar, Rakel Lóa Brynjarsdóttir, kom einnig inn í byrjunarliðið í næst síðasta leiknum á móti Hömrunum þann 24. ágúst. Taciana kom Gróttu yfir en norðankonur jöfnuðu fyrir hálfleik. Gróttu gekk illa að brjóta niður varnarmúr Hamranna en á 65. mínútu skrúfaði Taciana boltann í markhornið og staðan orðin 2-1. Diljá skoraði svo þriðja markið í lokin úr víti sem Patricia fiskaði og sigur í höfn. Úrslitin í leik Sindra og Völsungs voru Gróttu í hag svo staðan á þessu laugardagssíðdegi var einföld: Ef Grótta
myndi vinna Álftanes í lokaleiknum tveimur vikum síðar var sæti í Inkassodeildinni í höfn.
Sögulegur dagur
Það var fallegt veður en spenna í loftinu þegar Álftanes kom í heimsókn á Vivaldivöllinn þann 8. september. Aldrei hafa fleiri áhorfendur verið á knattspyrnuleik kvenna á Seltjarnarnesi og greinilegt að áhuginn á liðinu var að aukast. Grótta fékk draumabyrjun á fjórðu mínútu þegar Taciana fékk frábæra sendingu frá Bjargeyju og afgreiddi boltann í netið. Rétt fyrir hálfleik skoraði svo Tinna glæsilegt skallamark eftir fyrirgjöf frá Rakel og Grótta með pálmann í höndunum. Tinna bætti við öðru marki í seinni hálfleik og allt ætlaði um koll að keyra á vellinum þegar flautað var til leiksloka. Markmiðið var í höfn –Grótta var komið upp úr neðstu deild í fyrsta sinn í sögunni. Fagnaðarlætin voru mikil og gleðin skein úr hverju andliti.
Á lokahófi neðri deildanna var Taciana Da Silva kjörin leikmaður ársins í 2. deild og hún ásamt Sigrúnu og Didu voru valdar í lið ársins. Þess ber einnig að geta að sex stelpur úr yngri flokkum Gróttu spiluðu sína fyrstu meistaraflokksleiki á árinu en leikir hjá stelpum fæddum 2003 og 2004 í sumar voru yfir 50 talsins.
Við gefum Magga síðasta orðið: „Síðasta sumar var skemmtilegt og við Pétur erum stoltir af stelpunum. Það var mikilvægt að ná þessu markmiði og nú eru spennandi tímar í vændum hjá félaginu. Áskorunin að spila í Inkasso-deildinni er stór og við þurfum að vinna vel í vetur til að verða klár í slaginn. Fótboltasumarið 2020 verður rosalegt hjá Gróttu!“
Ágúst Gylfason Mfl.kk Magnús Örn Helgason Mfl.kvk og 5.fl.kvk
8. flokkur karla 2013-2014
8. flokkur kvenna 2013-2014
7. flokkur karla 2011-2012
7. flokkur kvenna 2011-2012
6. flokkur karla 2009-2010
6. flokkur kvenna 2009-2010
5. flokkur karla 2007-2008
5. flokkur kvenna 2007-2008 4. flokkur karla 2005-2006 4. flokkur kvenna 2005-2006 3. flokkur karla 2003-2004
3. flokkur kvenna 2003-2004
Chris Brazell Yfirþjálfari yngri flokka
Jórunn María Þorsteinsdóttir Bachmann Verkefnastjóri knattspyrnudeildarinnar og 7.fl.kvk
Guðmundur Steinarsson
Mfl.kk - aðstoðarþjálfari
Aníta Lísa Svansdóttir
2. og 3.fl.kvk
Katrín Ómarsdóttir
5. og 6.fl.kvk - 7.fl.kk
Lovísa Davíðsdóttir Scheving
Aðstoðarþjálfari 7.fl.kvk
Pétur Rögnvaldsson
Mfl.kvk - aðstoðarþjálfari
Pétur Már Harðarson
3.fl.kk og aðstoðar 4.fl.kk
Axel Ingi Tynes 7. og 8.fl.kk og kvk
Edda Steingrímsdóttir
Aðstoðarþjálfari 8.fl.kk og kvk
Arnar Þór Axelsson 2. og 3.fl.kk
Björn Breiðfjörð Valdimarsson 3.og 4.fl.kvk , 6. og 8.fl.kk
Arnþór Páll Hafsteinsson
Aðstoðarþjálfari 7.fl.kk og 8.fl.
María Lovísa Jónasdóttir
Aðstoðarþjálfari 8.fl.kk og kvk
Einar Bjarni Ómarsson 2.fl.kk
Kristján Daði Finnbjörnsson 4., 5. og 6.fl.kk
Margrét Rán Rúnarsdóttir
Aðstoðarþjálfari 7.fl.kvk
Þór Sigurðsson Styrktarþjálfun
Viðtal við nýjan yfirþjálfara yngri flokka
Síðustu ár hefur Gróttublaðið leitast við að taka viðtöl við nafntogaða einstaklinga úr fótboltaheiminum. Glódís Perla Viggósdóttir, Guðni Bergsson og Freyr Alexandersson hafa til dæmis setið fyrir svörum, en þetta árið var ákveðið að beygja frá hefðinni. Við kynnum til leiks nýjan yfirþjálfari yngri flokka hjá knattspyrnudeild Gróttu, Englendinginn Chris Brazell.
„Ég var hálf týndur og óviss
á þessum tíma en varð eiginlega ástfanginn af samfélaginu og Gróttu. “
Chris er 27 ára gamall og er alinn upp í Northington, skammt frá Sheffield. Hann spilaði fótbolta á sínum yngri árum og segir fjölskyldu sína vera knattspyrnuóða. Chris, sem er með UEFA-A þjálfaragráðu, starfaði í nokkur ár í akademíu enska úrvalsdeilarliðsins Norwich City en hann hefur jafnframt ferðast víða og kynnst knattspyrnumenningu margra landa. Við spyrjum hvort að knattspyrna hafi alltaf verið leiðin?
„Já, ég ákvað snemma að ég ætlaði mér að vinna innan knattspyrnunnar og hafði lokið fyrstu tveimur þjálfaragráðunum þegar ég var 21 árs. Ég vissi ekki endilega hvernig hlutverki ég vildi gegna, en ég held að í byrjun dreymi flesta þjálfara um að verða knattspyrnustjóra (e. manager). Svo þróast skoðanir og stíll fólks. Í dag er mín eina áhersla að grípa þau tækifæri
sem ég fæ og reyna að hafa jákvæð áhrif á fólkið í kringum mig. Maður veit aldrei hvert lífið fer með mann og þess vegna skiptir það mig svo miklu máli að leggja mig allan fram í hverju verkefni og reyna að láta reynslu og þekkingu mína nýtast til góðs.“
En hvernig kemur það til að fótboltaþjálfari frá Northington sé ráðinn til íslenskt knattspyrnufélags?
„Haustið 2017, þegar ég var að vinna hjá Norwich, bað yfirmaður minn mig að sýna áhugasömum íslenskum þjálfara akademíuna okkar og sinna honum í nokkra daga á meðan hann var í heimsókn. Þetta var Bjarki Már Ólafsson, sem var eins og týndur Íslendingur í útlöndum þegar hann mætti,“ sagði Chris og hló. Við eyddum nokkrum dögum saman og urðum virkilega góðir félagar enda Bjarki yndislegur náungi. Þegar ég lauk störfum hjá Norwich sumarið 2018 var hann fyrsti
maðurinn sem ég hef samband við. Ég sagði honum að mig langaði í frí og að upplifa eitthvað nýtt og skemmtilegt. Hann hvatti mig til að koma til Íslands yfir sumarið og heimsækja Gróttu sem ég og gerði og sé sannarlega ekki eftir því. Ég held að fólk sem ég kynntist í félaginu gruni ekki hvað ég er þakklátur fyrir þetta sumar. Ég var hálf týndur og óviss á þessum tíma en varð eiginlega ástfanginn af samfélaginu og Gróttu. Ég bjóst ekki endilega við því að snúa aftur til að starfa fyrir félagið en þegar yfirþjálfarastarfið bauðst þurfti ég ekki að hugsa mig tvisvar um.“
Chris segir starf sitt sem yfirþjálfari vera tvíþætt. Annars vegar hlúir hann að öllu yngri flokka starfinu og vinnur að því markmiði að hver einasti iðkandi njóti þess að spila fótbolta fyrir félagið og að allir fái tækifæri til að blómstra, jafnt sem íþróttafólk og einstaklingar. Ásamt þessu sinnir Chris einnig þeim sérstaklega sem eru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokkunum og gætir þess að aðstæður og skilyrði séu til staðar svo efnilegir leikmenn geti náð sínum markmiðum.
Þú ert greinilega hokinn af reynslu, en hvaða eiginleikar gera þig tilvalinn í þetta tiltekna starf?
„Fyrir mér er maður er eingöngu eins sterkur og fólkið sem maður starfar með á hverjum degi. Ég held að það verðmætasta við Gróttu sé að hver einasti starfsmaður er tilbúinn að læra, viðurkenna mistök og vaxa. Ég verð fyrstur til að viðurkenna þegar ég geri mistök sem ég tel mikilvægt í hvaða starfi sem er. Klúbburinn er
„Ég er ekki að segja að ég sé neinn sérfræðingur í mannlegum samskiptum, en það er fátt sem skiptir mig meira máli en að eiga góð samskipti og að láta fólkinu í kringum mig líða vel. “
virkilega heppinn með aðstöðuna og mannauðinn sem við búum yfir og mitt markmið er að nýta þessar auðlindir til fulls. Sjálfur tel ég mig geta nýtt sérþekkingu, leiðtogahæfileika og þjálfunarhæfni til að ná því besta úr leikmönnum og þjálfurum félagsins.“
Aðspurður hversu mikilvægt það sé fyrir Gróttu að meistaraflokkar karla og kvenna spili í bestu deildunum sagði Chris það skipta einhverju, en ekki öllu máli. „Það er fylgifiskur þess að vera með skýra stefnu og vinna markvisst að henni að upplifa velgengni. Mikilvægast af öllu er þó að velgengnin nái yfir allt félagið. Að klúbburinn sé sífellt að byggja ofan á velgengni með endurskipulagi og vaxa og dafna sem heild. Það er frábært að það gangi vel núna en við verðum að tryggja að næstu 10-15 ár verði áframhaldandi
uppbygging en ekki bara að njóta núna. Það verðmætasta sem íþróttafélag hefur er stolt stuðningsmanna og þeirra sem starfa fyrir félagið og stoltið verður til þegar markmið eru háleit og metnaður til staðar.“
Chris talaði jafnframt um mikilvægi þess að bjóða upp á aðlaðandi yngri flokka starf þegar lýðheilsa og íþróttir eru í samkeppni við tækni nútímans. „Íþróttafélög bera gríðarlega mikla samfélagslega ábyrgð og það getur verið verðmætt fyrir samfélag að eiga íþróttafélag sem er aðlaðandi fyrir börn og unglinga.“
Hvernig finnst þér íslensk knattspyrna borið saman við þá ensku?
„Það sem mér finnst stórkostlegt að sjá er að aðstæður sem yngri iðkendur æfa við eru almennt mjög góðar og að hvaða barn sem er hefur tækifæri
til þess að byrja að æfa og njóta sín í fótbolta. Ég hef ferðast víða og kannað knattspyrnuumhverfi yngri flokka og get með sanni sagt að það er hvergi sambærilegt við aðstæðurnar sem eru til staðar á Íslandi. Mér finnst magnað að það séu hundruðir barna að æfa hjá Gróttu við framúrskarandi aðstæður í eins litlu samfélagi og Seltjarnarnes er. Ekki bara í fótbolta heldur líka í handbolta og fimleikum. Það er mjög mikið af hæfileikaríkum iðkendum í klúbbnum og það er okkar starf að sjá til þess að þau njóti þess að spila og fái tækifæri til að blómstra og þroskast sem einstaklingar.“
Ég spurði Chris hvernig honum þætti hugmyndin um að koma upp elítuakademíum á Íslandi og safna þeim bestu á hverju svæði saman í eitt lið, eins og er venjan í Englandi. Þrátt fyrir að hafa starfað fyrir slíka akademíu í fjögur ár sá ég fljótlega að Chris hefði ekki miklar mætur á þeirri hugmynd. „Mér þætti það fáránleg hugmynd. Ég er ekki hrifinn af því að flokka barn í einskonar elítuhóp. Barn sem er í U12 í úrvalsdeildarliði á Englandi skríður í fangið til móður sinnar á kvöldin, rétt eins og önnur börn. Það er ómögulegt að segja til um hvernig 13 ára leikmaður verður orðinn 18 ára. Ég get giskað á það og gæti vel haft rétt fyrir mér, en ef ég ætla að taka 13 ára barn og útiloka það vegna þess að það hefur ekki sýnt fram á nógu mikla getu, finnst mér það ósanngjarnt. Fólk blómstrar á svo ólíkum tímum.
Í dag eru margar akademíur á
Norðurlöndunum að leggja sífellt meiri áherslu á það að leyfa börnum að vera börn og svo smám saman setja auknar kröfur á leikmenn eftir því sem þeir eldast. Til að svara spurningunni: Nei, ég væri ekki hrifinn af þessari hugmynd,“
Hver er helsti lærdómurinn sem þú dregur frá tíman þínum innan herbúða Norwich?
„Ég starfaði hjá Norwich í fjögur ár og þegar ég kom þangað var ég ungur og átti eftir að þroskast og fullorðnast mikið. Í akademíu getur raunveruleikinn verið kaldur og ég held að það helsta sem ég tók úr tíma mínum þar var að koma fram við hverja einustu manneskju af virðingu og samkennd. Ég er ekki að segja að ég sé neinn sérfræðingur í mannlegum samskiptum, en það er fátt sem skiptir mig meira máli en að eiga góð samskipti og að láta fólkinu í kringum mig líða vel. Það hafa allir eitthvað fram á að færa og ég vil hjálpa fólkinu í kringum mig að komast að því hvað það er.“
Chris segist hafa myndað sterkustu samböndin við leikmennina sem hann vann með á hverjum daglega. Strákar sem voru 16-18 ára en sumir hafa í dag skrifað undir atvinnumannasamning,
„„Það er ástæða fyrir því að meistaraflokkarnir hafa náð svona miklum árangri. Stelpurnar, strákarnir, þjálfarar og aðrir innan félagsins hafa lagt allt í sölurnar til að taka framförum og þjappa hópunum saman.”. “
aðrir eru að finna sinn stað í fótboltaheiminum og nokkrir hættir að spila. Chris bætti við: „Að fá að vinna með þessum strákum, fylgjast með þeim þroskast og geta haft jákvæð áhrif á þá er líklega það mest gefandi við þjálfarastarfið.“
Megum við þá búast við því að sjá leikmann úr herbúðum Norwich í klefanum í meistaraflokki karla á næstunni?
Chris hló og sagðist ekki vera búinn að skoða það sérstaklega. „Ég tel hópinn okkar vera nægilega sterkan í dag og vil einblína á að styrkja leikmennina sem ég hef milli
handanna. Það er ástæða fyrir því að meistaraflokkarnir hafa náð svona miklum árangri. Stelpurnar, strákarnir, þjálfarar og aðrir innan félagsins hafa lagt allt í sölurnar til að taka framförum og þjappa hópunum saman. Það mun bara halda áfram og framtíðin er björt í öllum hornum félagsins.“
Það var sönn ánægja að sitja með Chris og við ræddum saman lengi eftir að viðtalinu lauk. Hann er klár og metnaðarfullur einstaklingur sem ég tel að muni blása fersku vindum í knattspyrnudeild Gróttu. Ég býð hann hjartanlega velkominn til starfa fyrir hönd Seltirninga og treysti því að honum verði tekið fagnandi af öllu Gróttusamfélaginu.
eru leikmenn í meistaraflokki karla og kvenna. Hér eru þau spurð spjörunum úr! &
Nafn:
Krummi Kaldal Jóhannsson
Staða á vellinum:
Markmaður. Fæddur í hlutverkið.
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta?
Ég byrjaði 5 ára og hef ekki séð eftir því fram til þessa.
Fyrirmynd í fótbolta?
Manuel Neuer og Tim Wiese. Leyndur hæfileiki?
Er frekar góður sundmaður, var kallaður höfrungurinn í Való. Finnst geitin eiga betur við mig en hvers vegna að takmarka sig við eitt dýr?
Uppáhalds sjónvarpsefni?
All or nothin: Manchester City. Besta moment í ár með Gróttu?
Grótta í Pepsi Max. Lið í ensku? Liverpool.
Síðasta sem þú gerir fyrir svefninn?
Hlusta á gamlan FM95Blö þátt. Hvað borðarðu fyrir leik?
Yfirleitt pasta eða hafragraut.
Hvað er það besta við jólin?
Ætla ekki að koma með neina frasa, það besta við jólin eru pakkarnir.
Hvað myndirðu velja sem síðustu máltíð?
Ég myndi velja humar og svo snickers í eftirrétt. Einfalt, ekki flókið. Hvað gerir þig hamingjusaman?
Að vera með fjölskyldu og vinum, svo auðvitað fótbolti.
Ef þú fengið 10 milljónir og yfirþjálfarastöðuna í einn mánuð, hvað myndirðu gera?
Ég myndi byrja á því að gefa Gústa
Gylfa 5 millj. til að sækja undirskrift frá Einari Bjarna Ómarssyni enda
augljóslega ungur og efnilegur leikmaður þar á ferð. Restina má dreifast um félagið. Ekki í laun samt. Framtíðardraumur?
Að verða atvinnumaður og spila erlendis.
Hvernig takkaskó notarðu?
Ég nota bara svarta leður Adidas
Copa „iðnaðar“ skó, annað er dúllerí. Besta bók sem þú hefur lesið?
Aukaspyrna á Akureyri, vegna þess að ég er í henni.
Hvað færðu þér í bragðaref?
Borða ekki bragðaref. Finnst gott að borða
Hvernig tónlist hlustarðu á?
Ég er grjótharður teknóhaus.
Áttu gæludýr?
Nei, því miður. Læt dýrið innra með mér duga.
„Tiktok
Nafn:
Lovísa Scheving
Staða á vellinum:
Miðjumaður. Sjáðu mig dreifa þessu spili.
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta?
Um leið og ég gat labbað.
Fyrirmynd í fótbolta?
Messi, Van De Donk og Hrafnhildur
Hekla. Það gleymist að hún skoraði fyrsta mark ferilsins á tímabilinu.
Leyndur hæfileiki?
Sýni mínar sterkustu hliðar á TikTok @lolly.scheving.
Uppáhalds sjónvarpsefni?
Gossip girl og 90210. Sue me...
Besta moment í ár með Gróttu?
INKASSO og að komast í 8 liða úrslit með 3.flokknum.
Lið í ensku?
Arsenal4Ever
Síðasta sem þú gerir fyrir svefninn?
Horfi á góðan þátt og hugsa um það jákvæða við daginn sem leið.
Hvað borðarðu fyrir leik?
Pasta, egg og svo nóg af avöxtum.
Það er sigurformúla.
Hvað er það besta við jólin?
Jólafríið og nóg af mat.
Hvað myndirðu velja sem síðustu máltíð?
Sushi og Nocco. Hið fullkomna jafnvægi.
Ertu A eða B manneskja?
A-manneskja.
Hvað gerir þig hamingjusama?
Að ganga almennt vel í þvi sem ég tek mér fyrir hendur.
Ef þú fengið 10 milljónir og yfirþjálfarastöðuna í einn mánuð, hvað myndirðu gera?
Fá fullkomið knattspyrnuhús uppi á Valhusahæðina og byggja klefa undir. Ekki flókið.
Framtíðardraumur?
Klára menntaskólann, fara svo að horfa lengra og ná eins langt og ég get og vil í fótboltanum.
Hvernig takkaskó notarðu?
Nike Mercurial.
Besta bók sem þú hefur lesið?
Mýrin.
Hvað færðu þér í bragðaref?
Kökudeig, Tromp og Hockey Pulver. Hvernig tónlist hlustarðu á?
Mjöög misjafnt. Algjör alæta á tónlist.
Það er liðið rúmt ár síðan undirritaður ritstjóri Gróttublaðsins fékk neyðarsímtal frá Magnúsi Erni Helgasyni:
„Hæ Benni, er hægt að búa til lausa síðu í blaðinu?“
„Jú Maggi, það er fátt sem ég myndi ekki fyrir þig gera. En hvað er málið, ertu að gefa út bók eða eitthvað?“
„Nei, hvaða rugl er þetta. Ég er með skúbb fyrir blaðið! Var að fá fréttir af því að Bjarki Már sé í flugvél á leið til Katar til að semja við Al-Arabi um þjálfarastöðu.“
Ég skellti á. Mátti engan tíma missa. Það voru einungis fáeinir dagar í prent en þetta mátti ekki renna mér úr greipum. Sem ritstjóri fann ég til ábyrgðar. Mér tókst að ná í kauða og taka við hann ágætis viðtal. Nú hafa mörg vötn runnið til sjávar og tímabært að heyra hvernig fyrsta ár Bjarka í herbúðum Al-Arabi hefur reynst honum.
„Til að byrja með fékk ég það hlutverk að kynnast fótboltanum í Katar. Það var mikilvægt ferli fyrir okkur Heimi að afla ítarlegrar þekkingar á liðunum, þjálfurunum og leikmönnunum sem hér spila sem allra fyrst til að auka skilning okkar á fótboltanum hérna. Ég hef haft yfirumsjón með leikgreiningu á mótherjum okkar ásamt Heimi og Jordi, aðstoðarþjálfaranum. Þeir nýta mína rannsóknarvinnu við að undirbúa liðið fyrir leiki. Með aukinni þekkingu á deildinni getum við einnig séð hvaða leikmenn úr öðrum liðum gætu hentað okkur vel. Upp á síðkastið hefur hlutverk mitt færst að nokkru leyti inn í milliliðastarf milli aðalliðsins og U-23 liðsins hjá okkur þar sem við höfum lagt aukna áherslu á að nýta efniviðinn sem býr í félaginu. Við höfum mikið verið að leita út á við síðasta árið en nú þegar við þekkjum allt mjög vel í Katar og erum meðvitaðri um kröfurnar í deildinni er tímabært að líta inn á við og efla það sem við eigum,” segir Bjarki um starf sitt hjá Al-Arabi.
40°hiti
En hvernig hefur verið að búa í Doha?
Hefur gengur að aðlagast borginni og menningu þessa ríkasta lands í heimi?
„Lífið í Doha hefur verið að mestu leyti mjög ljúft, en auðvitað er menningin ótrúlega ólík og margt sem er krefjandi við að búa hérna. Í fyrsta lagi voru það viðbrigði að búa einn í fjarlægu landi en
sem betur fer náði ég að mynda gott samband við marga vinnufélaga mína sem eru góðir vinir mínir í dag. Heimir hefur líka alltaf verið til staðar og hjálpað mér mikið og verð ég honum ævinlega þakklátur fyrir það.
Sumarið var mjög strembið vegna þess að það var í raun ólíft í borginni þegar hitastigið var að meðaltali 40 gráður. Æfingaferð til Spánar yfir sumartímann var því kærkomin og eiginlega bráðnauðsynleg.“ Aðspurður hvort arabískan væri að síast inn sagði Bjarki að hann gæti hvatt strákana á æfingu og í leik en það næði ekki lengra en það.
Hvað hefur komið mest á óvart á síðastliðnu ári? „Það er svo margt við upplifunina að starfa í atvinnumannaumhverfi sem er mjög nýtt. Það kom mér reyndar mjög á óvart hvað reynslan úr vinnunni í Gróttu hefur nýst mér mikið. Ég er svo ríkur að búa yfir góðri reynslu úr yngri flokka þjálfun úr Gróttu - að vinna með ólíku fólki á öllum aldri. Á sama tíma þarf maður að hafa mikin sveigjanleika fyrir alls konar óvæntum uppákomum. Þá er þolinmæði og jákvætt hugafar dýrmætustu dygðirnar.
Stefna á Meistaradeildina Aðspurður hvernig væntingar klúbbstjórar hefðu haft við innkomu Bjarka og Heimis og hvernig það hafi gengið að fylgja því eftir sagði Bjarki:
„Al Arabi er eitt sögufrægasta og sigursælasta félag Katar, með stærsta og háværasta stuðningsmannahóp landsins. Félagið hefur hins vegar ekki unnið titil í yfir 20 ár og verið í mikilli lægð sem hefur orsakað að fólk hefur misst áhugann og fáir mætt á völlinn. Mikill óstöðugleiki og stjórnleysi hafa einkennt félagið og gengið hefur verið í takt við það. Okkar verkefni var fyrst og fremst að koma á stöðugleika og endurskilgreina ímynd félagsins. Þá viljum við festa félagið í sessi sem eitt það sterkasta í deildinni og fá stuðningsmennina aftur á völlinn, sem hefur gengið ágætlega. Við erum í 5. sæti sem stendur en efstu fjögur sætin gefa þátttökurétt í Meistaradeild Asíu og þangað stefnum við klárlega. En það sem dýrmætara er er að síðasta árið hefur Al Arabi eignast fjóra A-landsliðsmenn til viðbótar við þann eina sem við áttum fyrir og ungir og efnilegir heimamenn hafa fengið tækifæri til að spila með aðalliðinu við mikla hrifningu stuðningsmanna,“ segir Bjarki og segir jafnframt að hann og Heimir geti verið sáttir við fyrsta árið.
Tveir íslenskir landsliðsmenn leika nú með Al-Arabi, þeir Aron Einar Gunnarsson og Birkir Bjarnason. Við spyrjum hvernig þeirra innkoma hafi verið í haust?
„Ég held að það sé óhætt að segja að þeir hafi haft mjög jákvæð áhrif á liðið og allt umhverfið. Aron og Birkir standa báðir fyrir mikinn dugnað og vinnusemi sem eru gildi sem eru ekki alltaf ofarlega á baugi á þessum slóðum. Þeir eru líka leiðtogar og smita góðum anda til liðsfélaga sinna og stuðningsfólksins.
Magnaður dagur á Vivaldi
Við spyrjum Bjarka hvert hafi verið stærsta augnablik hans í boltanum á árinu sem nú er senn á enda. Bjarki vill fara lengra aftur í tímann og rifja upp ævintýralega 18 mánuði: „Ég verð að minnast á tækifærið sem ég fékk að fara með Heimi og íslenska landsliðinu á HM í Rússlandi sumarið 2018. Það var stórkostlegt. Um haustið var svo magnað augnablik að vera hluti af þjálfarateymi Gróttuliðsins sem fór upp í Inkasso-deildina og fylgja því svo eftir með heimsókn til Kólumbíu. Þar hitti ég krakka sem ég kynntist árið 2015 og þjálfaði í skamman tíma og var ánægjulegt að sjá hvernig mörg þeirra
hafa vaxið úr grasi. Katar-ævintýrið hófst svo fyrir ári og síðasta árið hefur verið fullt af eftirminnilegum augnablikum. En ekkert var þó eins magnað og að vera á Vivaldivellinum þegar Gróttumenn sigruðu Inkasso-deildina þann 21. september og komust upp í efstu deild í fyrsta sinn í sögunni. Að vinna þetta afrek með þeirri stefnu sem Óskar og Dóri innleiddu tæpum tveimur árum áður var magnað. Ég þakka þeim góðu vinum mínum ásamt strákunum auðvitað og fólkinu í kringum liðið fyrir að færa Gróttufólki og bæjarbúum þessar dýrmætu minningar. Það er spennandi ár framundan hjá bæði karlaog kvennaliðunum og ég hvet alla til að njóta og taka þátt í þessu ævintýri.“
Að lokum spyrjum við Bjarka hvernig hann sjái næsta ár fyrir sér. Verður hann enn í Katar um næstu jól? „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér í fótboltanum. En mér líður mjög vel hjá Al-Arabi og er jákvæður fyrir framhaldinu hér.“
Það verður svo sannarlega spennandi að fylgjast áfram með ævintýrum Bjarka i Arabíuskaganum.
21. september 2019. 15:48. Vivaldivöllurinn.
Ívar Orri Kristjánsson dómari lítur á úrið sitt, dregur andann og flautar þrisvar í flautuna. Þeir tæplega þúsund áhorfendur sem eru mættir á völlinn fagna ógurlega. Grótta hefur sigrað Inkasso-deildina! Flugeldar eru sprengdir og leikmenn og stuðningsmenn, sem hafa rokið inn á gervigrasið, fallast í faðma. Sumir fella meira að segja gleðitár. Seltirningar eru yfir sig stoltir af liðinu sínu en þó enginn eins og mennirnir í brúnni: Þeir Óskar Hrafn Þorvaldsson og Halldór Árnason sem hafa stýrt lærisveinum sínum upp um tvær deildir á tveimur árum.
Ég hef verið svo heppinn að fá að kynnast Óskari og Dóra frá ólíkum áttum. Sem leikmaður, stuðningsmaður, ljósmyndari, ritstjóri og félagi. Ég kom inn á það í síðasta jólablaði að ég var aldrei leikmaðurinn sem gat endað í liði ársins í Inkasso eða skorað sigurmark í Pepsí Max deildinni. Stundum skildi ég ekki hvers vegna þeir leyfðu mér að æfa með liðinu, nema kannski til að stríða strákunum í hlaupaprófi. Mér fannst ég samt vera lykilmaður. Hluti af hópnum. Þeir töluðu eins og það væri meira varið í fótboltann en snerpa og tækni. Það sem gerist á vellinum sé bara hluti af sögunni.
Mér finnst Grótta vera félag þar sem hver einasti maður skiptir máli vegna þess hlutverks sem hann gegnir. Þjálfarar, leikmenn, vallarstarfsmenn, sjálfboðaliðar og stuðningsmennn eru allt púsl sem eru nauðsynleg til að móta heildarmyndina. Þannig finnur fólk fyrir stolti í sínu starfi og sú hugmyndafræði hjálpaði Gróttu að komast í Pepsí Max og Inkasso deildina í haust. Óskar og Halldór áttu stóran þátt í að skapa þessa stefnu.
Síðustu tvö ár hafa Seltirningar upplifað mikla velgengni í krafti gilda og hugmyndafræði sem hefur vakið athygli innan knattspyrnuhreyfingarinnar. Gilda eins og hugrekkis sem hefur einkennt meistaraflokk karla með sinn áhættusama leikstíl og trausti til ungra leikmanna. Grótta hefur náð nýjum hæðum sem félag en ótrúleg vinna og tíma hefur farið í uppbyggingu
klúbbsins. Óskar stóð í framlínu þeirrar uppbyggingar í mörg ár með öfluga þjálfara eins og Magga Helga, Bjarka Má og síðar Halldór sér við hlið.
Til eru einstaklingar sem vinna vinnuna sína af skyldurækni og svo eru aðrir sem sinna henni af ástríðu. Metnaðurinn og ástríðan í starfi þeirra Óskars og Halldórs var áþreifanleg ogýtti öllum lengra heldur en við hefðum getað þorað að vona. Þeir voru meira en bara þjálfarar.
Þegar ég hugsa um tímann sem ég vann með Óskari og Halldóri er ég fyrst og fremst þakklátur að hafa kynnst þeim og áhrifin sem þeir höfðu á minn karakter mun lifa. Ég hlakka til að kynnast þeim tveimur enn á ný, í þetta skiptið sem andstæðingum.
Fjölskyldan Nesbala 28
Fjölskyldan á Nesbala 30
Fjölskyldan á Nesbala 100
Fjölskyldan Nesvegur 123
Fjölskyldan á Selbraut 5
Fjölskyldan á Sólbraut 6
Fjölskyldan Sæbraut 11
Fjölskyldan Sæbraut 14
Fjölskyldan Sævargörðum 12
Fjölskyldan Sævargörðum 8
Fjölskyldan Selbraut 70
Fjölskyldan Selbraut 74
Fjölskyldan Selbraut 8
Fjölskyldan Skerjabraut 3A
Fjölskyldan Suðurmýri 22
Fjölskyldan Unnarbraut 10
Fjölskyldan Valhúsabraut 13
Fjölskyldan Valhúsabraut 17
Fjölskyldan Vallarbraut 12
Fjölskyldan Vesturströnd 16
Fjölskyldan Vesturströnd 24
Fjölskyldan Ægisíðu 78
Franz Ploder, Hrólfskálamel 8 Gangi ykku vel næsta sumar!
Gleðileg jól frá Rafmiðlun hf. Haraldur Líndal og Ólöf Thorlacius
Helgi og Auður, Tjarnarmýri 19
Helgi, Sunna, Sara Björt og Theodór Leví
Hildur Guðmundsdóttir
Hildur, Þórhallur, Halldór Kári, Sólveig og Eyrún
Jólakveðja á alla frábæru strákana í 4. fl kveðja Þórir Snær og fjölskylda
Jólakveðja Arnór Alex og Alexander Aron
Jólakveðja frá Bílanes
Jólakveðja frá Charlottu Björk Steinþórsdóttur, Kötlu, Mosa og Davíð
50.000 króna
Foreldrar og forráðamenn fimm til átján ára barna með lögheimili á Seltjarnarnesi fá
50.000 króna tómstundastyrk á ári vegna þátttöku í skipulögðu frístundastarfi 2019.
Tómstundastyrkurinn flyst ekki á milli ára.
Athugið að ráðstöfun tómstundastyrkja er nú rafræn.
Ekki er nú lengur tekið á móti kvittunum í þjónustuveri bæjarins.
Nánari upplýsingar á www.seltjarnarnes.is sjá Mínar síður.
Stjórn knattspyrnudeildar Gróttu. Frá vinstri er Birgir Tjörvi Pétursson - Þorsteinn Ingason - Pétur Ívarsson - Sölvi Snær Magnússon - Harpa Frímannsdóttir - Dofri Pétursson - Arnar Rafn Birgisson.
Með gjafakorti Landsbankans er ekkert mál að velja réttu jólagjöfina. Þú ákveður upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina.
Þú færð gjafakortið í næsta útibúi.
Það má segja að goðsögn í íslenskri knattspyrnu hafi rekið á fjörur Gróttu í haust. Skagamaðurinn
Gunnlaugur Jónsson er tekinn við sem íþrótta- og verkefnastjóri félagsins og tók þar með við keflinu af
Kára Garðarssyni sem er orðinn framkvæmdastjóri.
Gulli sagði mér frá leikmanna- og þjálfaraferli sínum ásamt verkefnum í þáttargerð. En hvernig kom það til að hann hóf störf hjá Gróttu?
„Eftir að ég lauk störfum sem meistaraflokksþjálfari Þróttar fór ég alfarið í framleiðslu á sjónvarpsseríu og vann að öðrum verkefnum hjá RÚV sem nú eru á lokastigum. Planið var í raun að olnboga mig inn í fjölmiðlana en tækifærin voru ekki eins mörg og ég hefði vonað. Þá þurfti maður að stokka spilin og ég rakst á auglýsingu frá Gróttu sem greip mig. Ég undirbjó umsókn, fór í gegnum ráðningarferli og endaði á að fá starfið og er þakklátur fyrir það. Ég tel að reynslan mín innan knattspyrnuhreyfingarinnar og í almennu utanumhaldi í íþróttum geri mig færan til að annast umsjón á hinum ýmsu verkefnum innan þessa áhugaverða félags.
Aðspurður um hver fyrstu verkefni hans fyrir klúbbinn væru og fyrstu kynni við starfsfélaga sína hefðu gengið svaraði Gulli að fjölbreytileiki verkefna vera mikill, og að hann hrífist af því.
„Það getur verið þorrablót næsta árs fyrir hádegi, ný vefsíða eftir hádegi og svo allt þar á milli. Svo mun mikil vinna vera lögð í undirbúning Gróttu fyrir Pepsi Max deildina á næsta ári.
Allar móttökur sem ég hef fengið hafa verið til fyrirmyndar. Ég er að starfa með bænum, foreldrum, þjálfurum og öðru starfsfólki Gróttu og það er gríðarlega mikilvægt að þetta samstarf gangi vel. Það hefur farið frábærlega af stað og ég er þakklátur fyrir hversu góðar móttökur ég hef fengið.
Gunnlaugur var kunnur knattspyrnukappi. Hann spilaði fyrst og fremst með ÍA og KR í meistaraflokki og varð fjórum sinnum Íslandsmeistari og fjórum sinnum bikarmeistari. Þá lék Gunnlaugur 12 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og hefur þjálfað meistaraflokk karla í nokkrum félögum. En hefur hann tengingu inn í aðrar íþróttagreinar?
Það liggur augum uppi að knattspyrna hefur alltaf verið mitt svið. Ég hef þó verið að vinna í framleiðslu á sjónvarpsseríu sem heitir Áskorun sem fjallar í raun um fimm íþróttasögur. Ein þeirra er um hópfimleika í Gerplu og
önnur um Guðmund Guðmundsson handknattleiksþjálfara. Ég hef því þurft að kafa ofan í báðar íþróttagreinar og það hefur gefið mér nokkuð góða innsýn í hvora íþrótt fyrir sig. Ég spilaði aðeins handbolta og körfubolta á Akranesi, en ég hef ekki enn komið mér á fimleikaæfingu… það er aldrei að vita. Ég er spenntur fyrir því að starfa í öllum sviðum félagsins og takast á við þær áskoranir sem hver íþrótt hefur upp á að bjóða.
Fyrir hönd Seltirninga vil ég bjóða Gulla hjartanlega velkominn á Nesið. Ég hef það á tilfinningunni að hans störf muni reynast Gróttu dýrmæt og að framtíðin sé björt með Gulla sem íþrótta- og verkefnastjóra.
Sara Björk Gunnarsdóttir, leikmaður Wolfsburg og fyrirliði landsliðsins, segir sína sögu í bókinni Óstöðvandi sem kemur út nú fyrir jólin. Sara var valin Íþróttamaður ársins á Íslandi í fyrra og er af mörgum talin ein fremsta knattspyrnukona heims. Það er einmitt Magnús Örn Helgason, þjálfari meistaraflokks kvenna, sem skráir sögu Söru Bjarkar en Gróttublaðið tók púlsinn á þeim Söru og Magnúsi og forvitnaðist um tilurð þessa skemmtilega verkefnis.
„Fyrirmyndir skipta miklu máli fyrir krakka í íþróttum. Ég hef þjálfað stelpur í langan tíma og fannst vera tækifæri til að koma okkar sterkustu fyrirmyndum í kvennaboltanum betur á framfæri. Það hefur engin íslenskt fótboltakona náð eins langt og Sara svo það var spennandi að athuga hvort hún hefði áhuga á að vinna bók með mér um ferilinn sinn, innan og utan vallarins. Sara var klár í slaginn og tæpu ári síðar erum við með flotta bók í höndunum“, segir Magnús aðspurður um hvernig samstarf þeirra Söru Bjarkar hófst. Við spyrjum Söru hvort það hafi ekki verið erfitt að kafa inná við og deila góðum og slæmum minningum með alþjóð?
„Jú, það var stundum mjög erfitt og ég pældi nokkrum sinnum í því að hætta bara við þetta allt. En mig langaði til að deila minni reynslu úr boltanum og vonast til að sagan hjálpi einhverjum. Mögulega einhverri stelpu þarna úti
sem dreymir um að verða atvinnukona í fótbolta. Það eru forréttindi að vinna við að spila fótbolta en þetta er harður heimur og ýmislegt sem maður hefur þurft að takast á við,“ segir Sara sem lék með Haukum og Breiðabliki á Íslandi áður en hún hóf atvinnumannaferilinn í Svíþjóð.
En hver er markhópurinn? Magnús hefur lokaorðið: „Auðvitað krakkar í íþróttum, bæði stelpur og strákar. Svo held ég að foreldrar íþróttakrakka hefðu gaman af því að lesa bókina enda segir Sara mikið frá sinni samheldnu fjölskyldu. Loks held ég að bókin geti höfðað til allra sem eiga sér drauma og langar til að vinna að því láta þá rætast“.
Ritstjóri veltir því fyrir sér hvort hann geti einn daginn fetað i fótspor forvera síns og verði mögulega of önnum kafinn við bókasölu til að ritstýra jólablaðinu að ári liðni. Við bíðum og sjáum.
Viðtal við Pétur Theodór Árnason leikmann ársins hjá meistaraflokki karla
Það var hvergi eins viðeigandi að setjast niður með einni stærstu stjörnu meistaraflokks karla þessa árs og á heimavelli hamingjunnar, Vivaldi-víginu. Pétur Theódór er einkum rólegur að eðlisfari og hógværð er honum blóðborin. Við ræddum um knattspyrnuuppeldi Péturs, tveggja ára fjarveru vegna meiðsla og velgengi síðustu tímabila.
Ef við förum lauslega yfir ferilinn fram til þessa, hvernig leikmaður varstu í yngri flokkum og hvað hefur helst breyst við leikstíl þinn?
„Síðan ég var ungur hef ég alltaf verið stór og það hefur að miklu leyti mótað boltann sem ég spila. Ég hugsa að hvernig ég beiti mér í fótbolta hafi ekki endilega breyst mikið, en á yngri árum notaði ég skrokkinn mest í varnarvinnu.
Eftir að hafa verið settur í sóknarhlutverk í þriðja flokki fann ég mig mjög vel og hef ekki litið um öxl síðan.“
Einungis 16 ára gamall var Pétur byrjaður að spila með meistaraflokki í 1. deild og vakti athygli fyrir góða takti. Þá um haustið var honum boðið að fara á reynslu til Reading, en hvernig kom það til?
„Það kom þannig til að eftir að hafa staðið mig prýðilega á Norðulandamóti með U-16 landsliðinu sem haldið var á Akureyri og nágrenni. Þá hafði umboðsmaður samband við mig og Bjarka Má (Ólafsson) og áður en ég vissi af vorum við mættir heim til breskrar konu sem hýsti okkur í Reading í tæpar tvær vikur. Það var virkilega góð og skemmtileg reynsla að æfa á svona flottu æfingasvæði með öflugum strákum. Við spiluðum leik við MK Dons og æfðum svo tvisvar með varaliði Reading. Þar fann maður fyrir getumun, enda var maður einungis 16 ára á þeim tíma. “ Ekkert meira kom úr tíma félaganna hjá
Reading en Pétur sagðist vera þakklátur fyrir þessa skemmtilegu reynslu.
Ferill Péturs varð kaflaskiptur á árunum sem fylgdu erfiðum meiðslum. Geturðu sagt mér hvernig meiðsli voru að hrjá þig og hvernig áhrif það hafði á þig?
„Það fóru tvö ár í það að koma mér af stað eftir tvö krossbandsslit árin 2012 og 2013. Það gekk ágætlega að ná bata eftir bæði slit en ég viðurkenni þó að þegar ég kom til baka eftir 8 mánaða endurheimt eftir fyrsta krossbandsslit og slitnaði við fyrstu gabbhreyfingu þurfti ég að taka þolinmæðisstökk til að halda mér rólegum. Það var svekkjandi. Ég vissi ekki nákvæmlega hvernig framvindan yrði og hvort ég myndi halda áfram að leggja metnað í fótbolta. Sú endurheimt gekk mjög vel og ég snéri tvíelfdur aftur. Ég varði miklum tíma í líkamsrækt og Crossfit og svo þegar ég fór að æfa og spila með Kríu fann ég að ég gat haldið boltanum betur og stokkið hærra. Í fyrra fannst mér ég vera klár í að reyna mig aftur með Gróttu og það hefur gengið svona ljómandi vel.
Pétur segist vera í góðu formi í dag og meiðsli hafa ekki hrjáð hann mikið eftir krossbandsslitin.
Pétur var valinn leikmaður fyrri hluta Inkasso-deildarinnar, var í liði ársins ársins hjá Fótbolta.net og var auk þess markakóngur deildarinnar. Því fylgdi mikið umtal í
fótboltaheiminum en Pétur lætur umræðuna ekki stíga sér til höfuðs. Hann hefur góða tilfinningu fyrir komandi tímabili:
„Þetta hefur farið skemmtilega af stað. Úrslitin í Bose-mótinu voru ekki góð og margir lykilmenn hafa verið frá. En stemningin er góð, Gústi og Gummi hafa komið skemmtilega inn og hópurinn er augljóslega mjög þéttur. Allir eru tilbúinir til að deyja fyrir félagann, enda er kjarni hópsins sá sami og hann hefur verið síðustu tvö tímabil. Við erum í góðu líkamlegu formi og erum allir spenntir að standa saman í þessu spennandi verkefni. Það vilja allir upplifa fleiri móment eins og þegar við komumst upp og það er enginn í hópnum sem er ekki 100% klár í slaginn.“
Að lokum spurði ég Pétur hvort hann hefði einhverja hæfileika aðra en þá sem hann sýnir á vellinum. Hógværð hans hélt aftur af honum og það var ekki fyrr er Halldór Kristján, leikmaður meistaraflokks karla, kallaði yfir glersalinn: „Hann er allt of góður í pílu,“ að Pétur féllst á það að hann hefði þokkaleg tök á þeirri kúnst.
Það er í raun magnað til þess að hugsa að á rúmu ári hafi ungur knattspyrnumaður farið frá því að spila í 4. deild yfir í að vera markakóngur í sigurliði 1. deildar. Saga Péturs Theodórs sýnir að þó að á móti blási og staðan sé slæm að þá sé nánast allt hægt ef viljinn er fyrir hendi.
Við þökkum viðskiptavinum og starfsfólki ánægjulega samferð um árið sem er að líða og sendum landsmönnum okkar bestu óskir um farsæld og frið á nýju ári.
Orri Steinn Óskarsson var í miðjum FIFAleik eins og honum einum er lagið þegar ritstjóri Gróttublaðsins hringdi í hann til Kaupmannahafnar. Orri er ekki mikið fyrir að flækja hlutina – afslappaður, kurteis og metnaðarfullur ungur maður með skýr markmið. Það kom því ekki á óvart að aðlögunin hjá danska stórveldinu FC Kaupmannahöfn gengi með mikilli prýði.
Þau eru nokkur stórliðin sem hafa rennt hýru auga til Gróttumannsins unga síðustu misserin. Orri Steinn fór fyrst á reynslu til FCK í fyrra en í haust skrifaði hann undir hjá danska félaginu og verður gjaldgengur hjá því sumarið 2020. Orri Steinn verður því fyrsti leikmaður Gróttu sem erlent atvinnumannalið fær til sín frá félaginu.
Orri spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Gróttu sumarið 2018 gegn Hetti og skoraði um leið sín fyrstu mörk fyrir Gróttu. Hann spilaði svo 12 leiki í Inkasso-deildinni í sumar og skoraði fyrsta markið í lokaleik sumarsins á móti Haukum sem tryggði Gróttu upp um deild.
Orra líkar lífið vel í Köben og hefur það „meget godt!“ Hann kvað dönskukunnáttuna þó vera takmarkaða en að Danirnir væru mjög umburðarlyndir í hans garð. „Lífið er gott og framtíðin er spennandi.“
Við spyrjum Orra út í síðasta sumar: „Sumarið var alveg geggjað. Besta sumar ævi minnar hingað til, enda ekki af mörgum að taka. Að spila með þessu liði voru algjör forréttindi og að komast upp
í Pepsí Max súrrealískt. Ég náði mínum persónulegu markmiðum að mestu leyti en það hefði ekki sakað að breyta fleiri tækifærum í mörk.“
Orri hafði æft og spilað með liðinu að mestu leyti frá sumrinu 2018 og segist vera ótrúlega þakklátur fyrir tíma sinn í Gróttuliðinu: „Þetta er einstakur hópur og það verður ótrúlega gaman hjá þeim í efstu deild á næsta ári. Ég hef trú á að þeir geti náð langt og að þetta verði ógleymanlegt sumar fyrir allt bæjarfélagið.“
Í 13 landsleikjum með U-16 og U-17 landsliði Íslands hefur Orri skorað hvorki meira né minna en 16 mörk: „Markaóður í landsliðstreyjunni,“ sagði Orri léttur á bragði.
„Það er mikill heiður að spila fyrir hönd Íslands og strákarnir í hópnum eru margir orðið góðir vinir mínir, sem er
„Það er mikill heiður að spila fyrir hönd Íslands og strákarnir í hópnum eru margir orðið góðir vinir mínir, sem er mikill bónus.“
mikill bónus. Þar hefur markaskorun gengið vel og það er aldrei verra að hafa hana í lagi.
Að lokum, hvernig hljóma plön næstu ára? „Ég er samningsbuninn FCK til 2023 og fyrir þann tíma vil ég hafa spilað fyrir aðalliðið. Þaðan er stefnan sett á að fara í stærri deild. Ég er mjög ánægður á þeim stað sem ég er á í dag og ætla að nýta mér þetta tækifæri til fulls. Maður veit aldrei hvernig næsta vika verður í fótboltanum.“
Við kveðjum Orra Stein sem þurfti að koma sér á æfingu. Það verður sannarlega gaman að fylgjast með ævintýrum þessa efnilega markaskorara sem er sterk fyrirmynd fyrir unga Gróttukrakka með háleit markmið.
BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Sæll Björgvin, og takk fyrir gestrisnina. Ég vil byrja á að spyrja þig hvernig það kom til að þú byrjaðir að vinna hjá Adidas?
„Það er svolítið fyndin saga. Ég labbaði inn í Adidas-búðina á fyrsta deginum mínum í London og spjallaði aðeins við verslunarstjórann. Hann sagði mér að koma í atvinnuviðtal næsta dag. Síðar komst ég að því að hann hafði ákveðið að ráða mig áður en ég kom í viðtalið, vildi bara sýna samstarfsmanni sínum hvernig ég væri. Þeir enduðu svo á því að verða bestu vinir mínir. Ég tók svo við starfinu af öðrum stráknum sem retail trainer fjórum mánuðum seinna.“
Hvernig finnst þér að vinna við íþróttatísku?
„Ég gjörsamlega elska það,“ segir Björgvin og bætir við: „Það skemmtilega við að vinna hjá Adidas er að mottó þeirra er: „Through sports we have the power to change lives,“ og mitt starf felst í því að kenna Adidas starfsmönnum á tæknina okkar, fyrir hvaða gildi við stöndum og hvaða þýðingu merkið hefur fyrir okkur. Mér finnst mjög gefandi að vera manneskja sem kennir hverjum einasta starfsmanni Adidas í London hvað Adidas gerir og hvernig íþróttaföt og skór geta virkilega hjálpað fólki. Það er frábært að fá að taka þátt í
Björgvin Koustav Hreinsson er 21 árs Gróttumaður sem lét drauminn sinn rætast fyrir rúmu ári og flutti til London til að starfa fyrir Adidas. Síðan þá hafa hlutirnir gerst hratt og hefur Björgvin unnið í risavöxnum verkefnum hjá fyrirtækinu. Við flugum til London þar sem Björgvin, eða B eins og vinir hans hérna úti kalla hann, tók á móti okkur í íbúð sinni í Hammersmith hverfinu.
að þróa starfsmenn sem aðstoða fólk í að bæta heilsu sína og ná betri árangri.“
Hvenær ætlarðu að koma Gróttu í Adidas?
„Fyrst og fremst ætla ég að koma Adidas til Íslands. Það er eitt af markmiðum mínum, mig langar að opna Adidas í Skandinavíu sem er mjög stór markaður. Það hefur verið rætt um að opna búð á Íslandi og þegar það gerist þá fer Grótta beinustu leið í Adidas!
Saknarðu þess að spila fótbolta á Vivaldivellinum?
„Ég sakna þess að spila en í raun meira að þjálfa á Vivaldivellinum. Mér finnst mjög gaman að sjá hversu vel markmennirnir „mínir“ eru að standa sig og ég er rosalega stoltur af þeim og Gróttu sömuleiðis. Að sjá markmenn eins og Hákon og Tinnu blómstra í yngri landsliðunum og meistaraflokki gefur mér mikið og ég er mjög stoltur af þeim.“
Hver eru framtíðarmarkmið þín?
„Þau eru að klifra eins hátt upp metorðastigann hjá Adidas og ég get. Mig langar að komast til Þýskalands sem fyrst þar sem höfuðstöðvar fyrirtækisins eru. Þar væri draumur að starfa fyrir Global Sales Academy sem sér um vörur og starfsmannaþjálfun um allan
heim. Einnig heillar fótboltadeildin en ég hef fengið tækifæri til að vinna með stjórnendum þar í ýmsum verkefnum. Við bíðum og sjáum hvað framtíðin ber í skauti sér. Eric Liedtke, sem er stjórnarmeðlimur hjá Adidas og maðurinn sem fékk Kanye West og Beyoncé til Adidas sagði við mig að hann væri alltaf með fimm ára sýn. Fimm ára planið mitt er að fara til Þýskalands og komast í góða stöðu þar. Hver sú staða verður veit ég ekki, ég ætla bara að leyfa tímanum að sjá um það.“
Það verður svo sannarlega skemmtilegt að fylgjast með Björgvin innan herbúða Adidas. Eitt er víst að hugarfarið er í lagi, sem kemur mönnum oft býsna langt!
Jólakveðja frá félagi atvinnurekanda
Jólakveðja frá Sölva, Kristínu, Bessa, Daða, Elísabetu og Friðriki
Jólakveðja frá Söru Björk
Jólakveðja frá Viktori Orra, Aþenu og Kristínu Sif
Jólakveðja Halli, Daníel, Tómas, Eva, Saga og Matti
Jólakveðja Skuggaholtið
Jólakveðjur frá fjölskyldunni á Bollagörðum 49
Jólakveðjur frá fjölskyldunni í Logalandi 18
Katrín Sigríður, Kristín Fríða, Harpa og Arnar
Kveðja fjölskyldan Bollagarðar 85
Kveðja frá King of Pre-season!
Kveðja frá Nesbala 108
Kveðja frá Sigrúnu og haffa
Kveðja frá Steinu, Valda og Bjössa
Kveðja úr Vesturbænum
Kveðja úr Þverholti 19
Lilja, Jóndi og Bryndís
Magga og Kjartan
Magga og Lolli
Mangi, Elín, Elín Eir, Nonni og Jökull
Nanna Kaaber og Guðmundur Ari Nesbali 14
Óli og Laufey, Nesbala 94 Oreo ehf.
Össi og Oddný
Peta og Kiddi
Pétur Blöndal, Anna og fjölskylda
Pétur Steinn og fjölskylda Bakkavör 8
Pétur, Eydís og Ástrós Arna
„Stilltustu strákarnir“ Atli Hraf og Pétur Kári
Tinna ehf. hannyrðaverslun
Valur og Ingigerður
Viðar Sigurjón og fjölskyldan Bollagörðum 93
Þór & María - Sara & Arna - Marta, Daníel og Vaskur
Ægir og Þóra
Til að byrja með langar mig að óska öllu Gróttufólki gleðilegrar hátíðar. Jafnframt vil ég þakka öllum lesendum fyrir að gefa sér tíma til að lesa 9. árgang blaðsins. Á hverju ári er lagður mikill metnaður og umtalsverð vinna í að skrifa jólablaðið og í mínum augum er þetta verðmæt heimild um starf og árangur félagsins. Þá vil ég þakka fyrir að vera treyst fyrir Gróttublaðinu annað árið í röð. Takk fyrir mig, Birgir!
Fyrir ári síðan skrifaði ég ritstjórnarpistil á sólarströnd á Floridaskaganum. Það er í raun magnað að hugsa til þess hve vel tókst til miðað við að allan tímann var ég 6 tímum á eftir þeim sem ég vann blaðið með. Þetta hefði þó aldrei orðið að veruleika ef ekki væri fyrir Elsu Nielsen uppsetjara og Eyjó Garðars ljósmyndara sem eru bæði algjörir snillingar og framúrskarandi fagfólk. Svo er það maðurinn sem keyrði Gróttublaðið af stað fyrir átta árum. Það er engin tilviljun að hann var að skrifa sína fyrstu bók enda frábær penni, dugnaðarforkur og síðast en ekki síst traustur vinur. Ég er auðvitað að tala um Magnús Örn Helgason. Mér finnst vert að þakka fyrir samstarfið síðustu tvö árin og auðvitað vil ég einnig þakka styrktaraðilum blaðsins fyrir stuðning þeirra til Gróttu.
Á næsta ári ætla ég til Tókýó í nóvember svo ég hafi örugglega ritstýrt blaðinu í að minnsta kosti þremur heimsálfum.
Allavega.
Þessi pistill fjallar um stolt. Hvernig verðum við stolt og af hverju erum við stolt af því að vera Gróttufólk? Það er ekki sjálfsagt að vera stoltur af liðinu sínu, sér í lagi þegar saga félagsins er ekki böðuð í neinum sigurljóma. Það hefur oft komið fram í blaðinu hversu langt félagið hefur komist frá því að æft var á malarvellinum 2005, enda mörg tilefni til. Velgengni liðsins teygir sig karla- og kvennamegin og í gegnum gjörvallt yngri flokka starfið.
Fyrir mér er ein skýrasta mynd velgengni Gróttu mælt í stolti stuðningsmanna og öllum þeim sem koma að starfsemi
klúbbsins. Ég get auðvitað bara talað fyrir mig, en þegar ég mætti á N1 mótið árið 2010 upplifði ég sjálfan mig spila fyrir „litla liðið.“ Það er mér minnisstætt þegar Úlfur Blandon tók við fjórða flokki, með ‘98 og ‘99 árganginn innanborðs, að það fyrsta sem hann tók fram var að við þyrftum að hætta að vera með minnimáttarkennd gagnvart „stóru liðunum,“ en það var einmitt það sem var að trufla okkur. Þessi reynsla fylgdi mér öll árin sem leikmaður yngri flokka. Þegar andstæðingurinn var KR eða FH fór ég inn í skelina og varð lítill í mér.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan. Stærsta hugarfarsbreytingin átti sér stað í elsta ári í öðrum flokki, árið 2017, þegar Bjarki Már Ólafsson og Arnar Axelsson tóku við þjálfun flokksins. Markmiðasetningarfundur liðsins fór
fram í höfuðstöðvum KSÍ og skyndilega leið mér eins og ég væri atvinnumaður. Við æfðum eins og meistaraflokkslið og Bjarki sætti sig ekki við neitt minna en 120% vinnuframlag. Við spiluðum nýstárlegan fótbolta sem vakti athygli þegar leið á sumarið, þó við værum að spila í C-deild.
Stemningin var ekki ósvipuð í meistaraflokki Gróttu sem spilaði í 2. deild árið 2018. Menn voru „all-in“, þorðu að gera nýja hluti og trúðu á óvanalegt upplegg þjálfaranna.
Skyndilega var liðið okkar orðið einstakt og hafði sterk gildi og einstaka stefnu. Þróunin hefur haldið áfram síðan þá og í dag er Grótta þekkt á landsvísu sem félag með skýra stefnu og gildi; Trú, vilja og hugrekki. Þaðan er stolt Seltirninga uppsprottið, úr þessum gildum. Ég hef aldrei upplifað annað eins stolt og síðastliðið sumar þegar stelpurnar fóru upp í fyrsta sinn og strákarnir sigruðu Inkasso-deildina sem nýliðar sem spáð var 9. sæti! Ég treysti á að stoltið haldi áfram að vera í algjöru hámarki næsta sumar.
Þú veist að búið er að skapa einhverskonar stolt þegar tveir leikmenn meistaraflokks karla og einn stjórnarmeðlimur eru komnir með Gróttu-tattú.
Ég er stoltur af því að vera stuðningsmaður Gróttu og ennþá stoltari að vera treyst til að taka að mér að vinna verkefni í þágu þess. Við sjáum til með tattúið.
Gleðilega hátið kæra Gróttufólk. Sjáumst á vellinum.
Láttu Gróttumenn sjá um þín mál á Nesinu.
Ólafur Finnbogason lögg. fasteignasali
olafur@miklaborg.is
sími: 822 2307
Páll Þórólfsson lögg. fasteignasali
pall@miklaborg.is
sími: 893 9929