Jólablað Gróttu 2020

Page 1


EY óskar Gróttu og íbúum Seltjarnarness, gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.

Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík s. 595-2500, ey@ey.is

Ávarp formanns

Birgir Tjörvi Pétursson, formaður knattspyrnudeildar Gróttu.

Ég settist niður fyrir réttu ári til að skrifa virðulegt ávarp formanns í jólablað knattspyrnudeildar og var augljós vandi á höndum. Grótta sat í efsta þrepi tilveru sinnar eftir sögulegt ár. Handan áramótanna biðu algjörlega framandi verkefni. Strákarnir efstu deild og stelpurnar í þeirri næstefstu. Allt í fyrsta sinn. Hvernig skyldi maður draga þetta saman? Líta til baka; hrósa, þakka og kveðja. Horfa samt áfram, nefna verkefnin og drífa alla með. Gæta þess samt að úr yrði ekki einhver jólafroða formanns. Samantekt sem enginn nennti að lesa. Var nokkuð ósagt, sem var þess virði að segja? Nesið var búið að reima á sig takkaskóna. Orð voru í sjálfu sér óþörf.

Svo rann upp nýtt ár. Við vorum spennt og jafnvel aðeins kvíðin. Treystum á okkar stefnu þegar við fetuðum okkur í átt að óvissunni. Andinn var frábær á Vivaldivellinum. Það var þétt setið á þorrablóti Gróttu 1. febrúar. Stemmningin aldrei meiri. Eftirvænting skein úr andlitum félagsmanna hvar sem komið var, þótt verkefnin væru óvenjuleg og krefjandi. Við lifðum á fordæmalausum tímum í sögu félagsins. Ferðalagið var búið að vera svo ótrúlegt, að fátt gat komið okkur á óvart. En þá gerðist nokkuð óvænt.

Hvernig ætli sé best að koma orðum að því sem varð? Eða því sem ekki varð. Samheldni kemur fyrst upp í hugann. Fótbolti er liðsíþrótt. Mest reynir á liðið í mótlæti. Þegar ég lít yfir árið er það einmitt samtakamátturinn í Gróttusamfélaginu sem gnæfir yfir. Sterk liðsheild þrífst andspænis áskorunum og nýtur þess að takast á við breytingar. Gróttuliðið sýndi sannarlega styrk sinn. Listinn er langur: Stórátak á Vivaldivellinum, stuðningur bakhjarla í stórum verkefnum, almenn þátttaka Seltirninga, metsala á heimaleikjakortum og varningi, vinna sjálfboðaliða og starfsfólks í flókinni umgjörð um heimaleiki, stuðningurinn í stúkunni meðan leyfilegt var, varðstaða foreldra um hverfisfélagið þegar virkilega þurfti á að halda, hugrekki leikmanna á vellinum, þrautseigja á æfingasvæðinu, dugnaður barnanna, ósérhlífni okkar einstöku þjálfara. Stjórn knattspyrnudeildar þakkar ykkur af öllu hjarta fyrir ómetanlegt framlag á árinu.

Reynslan af starfinu í félaginu á liðnu ári auðveldar mér að setja þessi orð á blað. Staða knattspyrnudeildar er sterk, hvernig sem á er litið. Undirstöðurnar hafa verið treystar, þrátt fyrir allt sem gengið hefur á. Samkeppnin, breytingarnar, hólfin og hindranirnar hafa eflt okkur en ekki veikt. Efniviðurinn er góður, fólkið jákvætt, metnaðarfullt og hugurinn stefnir hátt sem fyrr. Fleiri orð þarf ekki að hafa um það.

Fyrir hönd stjórnar knattspyrnudeildar óska ég ykkur öllum gleðlilegra jóla. Við hlökkum til samstarfsins nýju ári.

Fótboltasumarið 2020

Meistaraflokkur karla

Á stóra sviðinu

Stóra stundin var runnin upp. Eftir ævintýri sumarsins 2019 var komið að því að Gróttumenn tækjust á við sterkustu lið landsins í Pepsi Max deildinni. Það var mögnuð stund á Kópavogsvelli sunnudagskvöldið 14. júní þegar frumraunin var þreytt við öflugt lið Breiðabliks. Gróttufólk troðfyllti austur-stúkuna og hvatti sína menn áfram í leik sem sýndi með sanni að það væri krefjandi verkefni fyrir höndum.

Eftir að hafa tapað fyrir Blikum í fyrsta leik og fyrir tilvonandi Íslandsmeisturum

Vals í annarri umferð fór aðeins að birta til á Nesinu. Strákarnir voru óheppnir að fá ekkert út úr leik á móti Fylki í Árbænum og í 4. umferð komu HKingar í heimsókn. Pétur Theodór skoraði þá fyrsta mark Gróttu í efstu deild eftir aðeins tvær mínútur og Axel Sig bætti öðru við skömmu síðar. Patrik

Orri fékk rautt og HK jafnaði en einum færri skoruðu Ástbjörn og Kalli eftir horn og allt gjörsamlega að sturlast á Vivaldivellinum. HK náði því miður að jafna í lokin og hefði dómari leiksins átt að dæma hendi í síðara markinu. Magnað 4-4 jafntefli staðreynd og stemningin á vellinum var frábær. Haft var á orði að umgjörð fyrstu heimaleikja Gróttu hefi verið glæsileg og eiga þeir fjölmörgu sjálfboðaliðar sem lögðu hönd á plóg heiður skilinn.

Í næstu umferð héldu okkar menn upp í Grafarvog og þar vannst fyrsti sigur Gróttu í úrvalsdeild og það sannfærandi – 3-0 með mörkum frá Kalla, Halldóri Kristjáni og Pétri. Gárungarnir sem höfðu spáð því að Gróttuliðið yrði nánast stiga- og markalaust allt sumarið sáu þarna að meira var spunnið í strákana en margir héldu. Gróttumönnum var þó rækilega kippt niður á jörðina í næstu tveimur leikjum með stórtapi á móti ÍA og dramatísku tapi á lokamínútunni á móti KA á Akureyri. Þar vöktu stuðningsmenn Gróttu þó verðskuldaða athygli en góður hópur gerði sér ferð norður til að styðja við bakið á liðinu.

Eftir þessa skelli komst Gróttuliðið aftur á ról. Baráttujafntefli náðist við bikarmeistara Víkings og í raun var það klaufaskapur hjá Gróttu að ná ekki

í allavega stig gegn FH í Kaplakrika. Liðið átti flotta kafla og lék FH oft grátt með beittum skyndisóknum. Grótta náði jafntefli við Stjörnuna í fyrsta leik eftir Covid-hléið en því miður var eins og allur vindur væri úr Gróttumönnum

í næstu leikjum í ágúst og september.

Hvert tapið rak annað og ljóst að allt stefndi í fall niður í Lengjudeildina.

Gróttufólk mun þó ekki gleyma 24. september þegar „stóri bróðir” í KR var sóttur heim í Frostaskjólið. Enn á ný fékk Grótta rautt snemma leiks – nú enginn annar en Sigurvin fyrirliði á 38. mínútu. Strákarnir komu gríðarlega samstilltir út í síðari hálfleikinn og tóku forystuna á 55. mínútu þegar Kalli kom boltanum í netið. KR jafnaði þegar 20 mínútur lifðu leiks en fleiri urðu mörkin ekki og sögulegt jafntefli staðreynd.

Þegar Íslandsmótin voru blásin af í lok október vegna Covid var loks orðið ljóst að Grótta myndi leika í Lengjudeildinni árið 2021. Bjartsýnismenn sögðu þó að vegna þessa óvanalega endis mótsins væri ljóst að Grótta væri eitt af fáum liðum sem hefði spilað í efstu deild og aldrei fallið! En niðurstaðan var skýr og okkar menn taka slaginn í næst efstu deild næsta sumar með ómetanlega reynslu í farteskinu.

Þjálfarateymi meistaraflokks karla 2019/2020

Þjálfari: Ágúst Gylfason Aðstoðarþjálfari: Guðmundur Steinarsson Markmannsþjálfari: Þorleifur Óskarsson

Styrktarþjálfari: Þór Sigurðsson

Sjúkraþjálfari: Jón Birgir Kristjánsson

Fótboltasumarið 2020

7. flokkur kvenna
6. flokkur kvenna
5. flokkur kvenna
7. flokkur karla
5. flokkur karla
4. flokkur kvenna
4. flokkur karla
6. flokkur karla

Úrslitaleikur sem seint mun gleymast

3. flokkur kvenna

keppti um Íslandsmeistaratitil

Til allrar hamingju voru hvorki Víðir né Þórólfur sjáanlegir á Vivaldivellinum mánudagskvöldið 28. september þegar Grótta/KR og FH léku úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í 3. flokki kvenna. Áhorfendur hreinlega streymdu á völlinn í fallegu haustveðri og fylgdust með einhverjum eftirminnilegasta yngri flokka leik síðustu ára.

Grótta/KR og FH léku bæði í B-deild Íslandsmótsins þetta sumarið og sigruðu sína riðla örugglega. Þegar í undanúrslitin var komið spiluðu FHstelpur við Breiðablik og Grótta/KR flaug norður og lék við Þór/KA en norðanstelpur höfðu sigrað A-deildina með Blika rétt á eftir. Hið óvænta gerðist – FH lagði Breiðablik og Grótta/ KR átti frábæran leik og sigraði lið Þór/ KA. Lilja Lív Margrétardóttir skoraði fyrsta markið og svo gerði Emelía Óskarsdóttir sér lítið fyrir og skoraði þrennu sem tryggði 4-2 sigur.

Eftir að hlutkesti hafði verið varpað í höfuðstöðvum KSÍ var ákveðið að úrslitaleikurinn yrði spilaður á Vivaldivellinum. Búist var við ágætri mætingu en á endanum fylltist stúkan og stuðningurinn sem Gróttu/KR stelpur fengu var algjörlega frábær. Leikmenn meistaraflokka og yngri flokka

fjölmenntu ásamt öðru áhugasömu Gróttufólki. FH leiddi 1-0 í hálfleik og þegar 6 mínútur voru eftir komust þær í 2-0. Flestir héldu að ekki yrði aftur snúið en „stelpurnar okkar” voru á öðru máli. Ísabella Sara Tryggvadóttir skoraði fjórum mínútum fyrir leikslok og á lokamínútunni brunaði Emelía inn í teig FH og krækti í víti. Hin 14 ára gamla Emelía ró sinni, skoraði örugglega og framlenging staðreynd.

Aftur komust FH-stelpur yfir og enn á ný jafnaði Grótta/KR! Í þetta sinn var

að verki Díana Mist Heiðarsdóttir eftir hornspyrnu. Mörkin urðu ekki fleiri svo grípa þurfti til vítaspyrnukeppni. Eins og flestir sem fylgjast með knattspyrnu vita að þá er vítaspyrnukeppni líklega dramatískasti þáttur íþróttarinnar. Hvað þá þegar titill er í húfi. En bæði lið sýndu gríðarlegan styrk og skoruðu úr fyrstu fimm vítunum. Því miður hafði FH sigur í bráðabana og stóðu uppi sem Íslandsmeistarar. Vonbrigðin voru eðlilega mikil hjá okkar stelpum en ljóst er að reynslan af því að hafa spilað þennan leik mun fylgja þeim

inn í fullorðinsárin. Gleymum ekki að þetta var í fyrsta sinn í sögunni sem lið frá Gróttu spilar úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil í 11-manna bolta. Þetta var leikur sem seint mun gleymast.

Díana jafnar metin í framlengingu
Brotið á Emelíu á lokamínútu leiksins

Alltaf trúa á sjálfan sig

„Þetta eina klikk var eiginlega óvart. Fór í klofið á markmanninum en svo upp í slánna,” segir Viggó þegar blaðamaður minnist á frábæra skotnýtingu hans í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í vetur. Hann er markahæstur í deildinni og hefur skorað úr 25 af 26 vítum. Gróttublaðið heyrði hljóðið í Seltirningnum sem dreymdi um að verða fyrsti atvinnumaður Gróttu í fótbolta.

Viðtal við Viggó Kristjánsson landsliðsmann í handbolta

Leyfðu mér að dreyma

Viggó Kristjánsson er fæddur árið 1993 og ól manninn í Bollagörðunum. Hann er yngstur þriggja systkina og varð fljótt áhugasamur um íþróttir. „Bróðir minn spilaði handbolta með Gróttu svo ég byrjaði pínulítill að fara á leiki hjá honum. Ég var svo ekki mikið eldri en 5 ára þegar ég fór með Alberti (Guðmundssyni)

vini mínum sem er tveimur árum eldri á fótboltaæfingu á Valhúsahæð. Ég og

mamma spiluðum líka oft einn á móti einum í kjallaranum heima svo ég

var frekar fljótur að ná tökum á boltanum. Mér fannst þetta gaman og gekk vel og þá var ekki aftur snúið,” segir Viggó sem ætlaði sér að ná langt í fótbolta. „Mér gekk mjög vel í báðum greinum en draumurinn var alltaf að verða atvinnumaður í fótbolta. Ég hélt með Liverpool og Michael Owen var uppáhaldsleikmaðurinn minn. Þetta var barnsleg trú sem ég tapaði í rauninni aldrei. Fjölskyldan mín setti aldrei neina pressu á mig en mamma og pabbi leyfðu mér að eiga mína drauma.

Úr Gróttu í Breiðablik Á unglingsaldri skaraði Viggó fram í bæði handbolta og fótbolta og fann fyrir pressu að velja aðra hvora greinina. „Þetta var orðið frekar flókið þegar ég var kominn í 10. bekk. Ég spilaði með nokkrum flokkum í báðum greinum og mætti á landsliðsæfingar. Luka Kostic, sem þjálfaði U17 í fótbolta á þessum tíma, sagði við mig og nokkra aðra sem voru enn í tveimur greinum að þetta væri algjört rugl. Það kom svo sem alveg fyrir að ég mætti á landsliðsæfingu í hádeginu á sunnudegi og spilaði svo handboltaleik um kvöldið. Þetta var klárlega mikið álag en ég var heppinn að sleppa við meiðsli. Siggi Helga sem þjálfaði mig í fótboltanum hafði líka áhyggjur af þessu og lét mig hvíla inn á milli sem var vafalaust skynsamlegt. Þegar upp var staðið fannst mér ekkert erfitt að velja – ég ætlaði alltaf að taka fótboltann en ég saknaði þess mikið að spila handboltaleikina.”

Viggó lék 44 leiki með meistaraflokki Gróttu áður en hann skipti 18 ára gamall yfir í Breiðablik. Hann kom við sögu í þremur leikjum þegar Grótta sigraði 2. deild árið 2009 og var svo í stærra hlutverki næstu tvö ár. Viggó segir að í Kópavoginum hafi hann verið eftirá í líkamlegu atgervi til að byrja með. „Ég fékk smá sjokk. Var með frekar háa fituprósentu og var með þeim neðstu í hlaupaprófunum. Það voru markvissar lyftingar hjá Blikunum og á seinna tímabilinu mínu tók ég mataræðið í gegn. Þá fyrst fór ég að skila almennilegum hlaupatölum og kom mér nær byrjunarliðinu.”

Ánægður með Orra

Viggó spilaði 16 leiki með Breiðablik sumarið 2013. Hann var ekki fastamaður í liðinu og ákvað eftir tímabilið að gefa fótboltadrauminn upp á bátinn.

„Ég ætlaði mér að komast út í atvinnumennsku og verða sá fyrsti úr Gróttu til að gera það. Eftir þetta tímabil hefði ég geta farið í önnur Pepsideildarlið og var einnig með tilboð frá bandarískum háskólum. Það breytti þó ekki þeirri staðreynd að mér fannst draumurinn of langt undan og ákvað því að snúa mér aftur af handboltanum. Ég vissi að ég hefði ákveðna hæfileika

og svo er kostur að vera örvhentur. Ég ætlaði allavega að láta á þetta reyna,” segir Viggó og bætir við. „Það er algjörlega frábært að Orri Steinn (Óskarsson) sé búinn að brjóta ísinn og sé kominn út í atvinnumennsku.

Stundum er talað um að það vanti hefð í fótboltann í Gróttu en árangurinn síðustu ár hefur breytt því. Þjálfunin er orðin mikið betri og félagið hefur eignast flotta leikmenn bæði karla- og kvennamegin. Ég verð að viðurkenna að hafði ekki trú á því að Grótta myndi nokkurn tímann spila í efstu deild í fótbolta en strákarnir hafa sýnt að það er allt hægt.”

Trúin á eigin getu

Viggó lék eitt tímabil með Gróttu í 2. deild áður en hann sneri sér alfarið að handboltanum. Hann skoraði 11 mörk í 20 leikjum þegar Grótta tryggði sér sæti í 1. deild undir stjórn Ólafs Brynjólfssonar eftir þriggja ára veru í 2. deildinni. „Það hentaði mér ágætlega að Grótta væri ekki í úrvalsdeild þegar ég byrjaði aftur í handbolta. Ég var allt of léttur til að spila handbolta í meistaraflokki og reyndi markvisst að þyngja mig. Borðaði hreinlega frá morgni til kvölds, hvort sem ég var svangur eða ekki. Þetta gekk vel. Við komumst upp og enduðum svo í 5. sæti í Olísdeildinni veturinn 2015/2016.”

Það tímabil skoraði Viggó 117 mörk og gekk þá um sumarið til liðs við danska liðið Randers. Það má segja að leiðin hafi legið uppá við síðan. Frá Randers fór Viggó til West Wien í Austurríki og þaðan til Leipzig og Wetzlar í Þýskalandi. Í vor skipti Viggó yfir til Stuttgart þar sem hann hefur farið á kostum og er þegar

þetta er ritað markahæsti leikmaður deildarinnar. „Já mér hefur gengið vel og hef verið heppinn með þau lið sem ég hef farið í. Hef haft ólíka þjálfara sem hafa kennt mér mikið.” Viggó spilaði með landsliðinu á EM í janúar síðastliðnum og er nú fastamaður í hópnum. „Það er meiriháttar að fá tækifæri til að spila með íslenska landsliðinu. Ég var eðlilega í aukahlutverki til að byrja með en held að ég geti stimplað mig enn betur inn á næstu mánuðum,” segir Viggó sem er ánægður hjá Stuttgart en dreymir um að spila með einhverju stórliðanna í Þýskalandi.

Viggó er þekktur fyrir afslappað fas og hefur alla tíð spilað handbolta og fótbolta af yfirvegun fremur en krafti. Við spyrjum hvernig hann hafi þróað þetta sterka hugarfar sem færði hann upp metorðastigann í handboltanum á ótrúlegum hraða: „Úff, þetta er erfið spurning. Ætli það sé ekki bara að hafa alltaf trú á sjálfum sér og láta ekki eitthvað draga úr henni. Eins og til dæmis að klikka á sendingu eða skoti. Bara halda áfram að vera þú sjálfur og

gera þitt. Mér líður alltaf best þegar ég er ekki of spenntur fyrir leiki heldur bara einbeittur á að gera það sem ég er góður í.”

Við þökkum Viggó kærlega fyrir spjallið og hlökkum til að fylgjast með honum áfram. Hann kemur jú sífellt á óvart og hefur ekki gefið upp á bátinn að snúa aftur í fótbolta einn daginn: „Fótboltaskórnir eru uppi á hillu en þeir munu einhvern tímann verða teknir niður. Kría hefur oft reynt að fá mig en ég hef ekki enn látið segjast þrátt fyrir að formaður félagsins sé besti vinur minn. Ég trúi því enn að ég geti spilað ofar en í 4. deild,” segir Viggó og hlær. „Ég á 86 leiki í deild og bikar svo ef ég ætla að komast í 100 þarf ég að taka eitt almennilegt tímabil. Hvort og hvenær það mun takast er ómögulegt að segja.”

Viggó í bikarleik við KR sumarið 2009, þá tæplega 16 ára gamall
Viggó var valinn leikmaður nóvembermánaðar í þýsku úrvalsdeildinni

Meistaraflokkur kvenna

Mikið skin og einhverjar skúrir

Gróttukonur voru mættar í Lengjudeildina. Deild með rótgrónum og metnaðarfullum fótboltaliðum sem sum hver hafa framúrskarandi leikmenn innan sinna raða. Stelpurnar þurftu að undirbúa sig undir harða baráttu, sjónvarpsleiki og dramatík. Gróttu var spáð rétt ofan við fallbaráttu svo margir ráku upp stór augu þegar nýliðarnir af Nesinu voru í toppbaráttu framan af móti.

Eftir ágætt Faxaflóamót og góða byrjun í Lengjubikarnum bankaði Covid á dyrnar. Íþróttum var hætt og æfðu stelpurnar hver í sínu horni vikum saman. Dugnaður og elja Gróttukvenna var til fyrirmyndar og hjálpaði nýr GPS-búnaður til við að skipuleggja æfingarnar og halda öllum við efnið. Æfingaferð til Akureyrar í maí gerði mikið fyrir liðsandann en í ferðinni var m.a. spilað við Þór/KA í Boganum og farið á hestbak.

Fótboltasumarið hófst svo með látum í framlengdum leik á móti Víking í bikarnum sem því miður tapaðist.

Fjölniskonur voru lagðar að velli í fyrsta leik í annarri umferð sóttu Gróttukonur stig á Skagann á móti ÍA. Það er sterkt að ná stigi á erfiðum útivelli, ekki satt? Gegn einu sögufrægasta liði íslenskrar knattspyrnusögu. Það var þó eitthvað að gerjast í Gróttuhópnum sem gaf til kynna að stelpurnar ætluðu sér stærri hluti. Stigið var tekið með heim í gegnum Hvalfjarðargöngin og baráttan hélt áfram.

Til að gera langa sögu stutta þá var Gróttuliðið í 3. sæti deildarinnar þegar mótið var hálfnað með fimm sigra, þrjú jafntefli og aðeins eitt tap

í farteskinu. Eftirminnilegur er 1-0 sigur á heimavelli á móti Haukum sem var af mörgum spáð góðu gengi og 3-1 sigur á Víkingum í Fossvoginum í frábærum leik hjá Gróttukonum. Þá gerði Grótta góða ferð á Húsavík og lagði heimakonur í Völsungi á rennandi blautum grasvelli Húsvíkinga.

Kannski fundu leikmenn og þjálfarar fyrir óbærilegri pressu við þessa óvæntu stöðu, eða kannski var reynsluleysi hópsins um að kenna – en í síðari hluta

mótsins átti Gróttuliðið undir högg að sækja. Þrátt fyrir góða spilkafla í flestum leikjum rak hvert tapið annað og hægt og rólega seig Grótta niður stigatöfluna. Í heimaleik á móti Keflavík þurfti svo að glíma við annars konar mótlæti þegar flóðljósin á Vivaldivellinum harðneituðu að virka á ögurstundu og þurfti að færa leikinn á Kópavogsvöll. Sem betur fer standa ljósamál til bóta. Þegar upp var staðið endaði Grótta í 6. sæti Lengjudeildarinnar í fyrsta tímabili liðsins ofar en í neðstu deild.

Frábært sumar að baki, því þó að skipst hafi á skin og skúrir að þá er reynsla stelpnanna ómetanleg. Þrjár 14 og 15 ára Gróttustelpur stigu sín fyrstu skref í meistaraflokki og aðrar tólf stelpur á aldrinum 16-19 ára komu við sögu hjá Gróttu! Efniviðurinn er svo sannarlega til staðar og spennandi verður að sjá hvernig Gróttuhópurinn heldur á spilunum ár tvö í Lengjudeildinni. Möguleikarnir eru miklir.

Þjálfarateymi meistaraflokks kvenna 2020

Þjálfari: Magnús Örn Helgason

Aðstoðarþjálfari: Pétur Rögnvaldsson

Markmannsþjálfari: Gísli Þór Einarsson

Styrktarþjálfari: Þór Sigurðsson Sjúkraþjálfari: Garðar Guðnason

Næstu ár mikilvæg fyrir Gróttu

Um tvö ár eru síðan Gróttumaðurinn Bjarki Már Ólafsson réði sig til katarska félagsins AlArabi þar sem hann starfar undir stjórn Heimis Hallgrímssonar fyrrum landsliðsþjálfara.

Gróttublaðið sló á þráðinn til Bjarka og spurði um lífið í eyðimörkinni og hans sýn á framtíð fótboltans í Gróttu.

„Þetta hefur í raun verið frekar taktlaust hjá okkur eftir að deildin fór aftur af stað eftir Covid,” segir Bjarki aðspurður um gengi Al-Arabi upp á síðkastið. „Liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu sjö deildarleikjum og er í neðri hluta deildarinnar. Margir lykilmenn hafa glímt við erfið meiðsli og tímabilið hefur litast af því. Okkur hefur hins vegar gengið vel í bikarkeppnunum tveimur. Við spiluðum úrslitaleik deildarbikarsins í október og svo spilum við til úrslita í Emir-bikarnum í desember og það væri auðvitað mikill áfangi að sigra hann,” segir Bjarki.

Mótherji Al-Arabi í úrslitaleiknum er lið Al Sadd sem er á toppi deildarinnar. Xavi fyrrverandi leikmaður Barcelona er einmitt þjálfari Al Sadd og Santi Cazorla, sem gerði garðinn frægan hjá Arsenal, er lykilmaður á miðju liðsins.

Aron Einar

Íslendingunum hjá Al Arabi hefur fjölgað eftir að Bjarki og Heimir mættu á svæðið fyrir tveimur árum. Landsliðsfyrirliðinn

Aron Einar Gunnarsson gekk til liðs

við félagið á vordögum 2019 og þá spilaði Birkir Bjarnason í nokkra mánuði með liðinu undir lok síðasta árs. Þjálfarinn Freyr Alexandersson gerði svo nýverið samning við Al Arabi og er að koma sér fyrir í Doha þessa dagana. Bjarki segir að það sé mikill styrkur að hafa Íslendingana á svæðinu og ber Aroni Einari sérstaklega vel söguna. „Tilkoma Arons gerði ótrúlega mikið fyrir leikmannahópinn og okkur í þjálfarateyminu. Hann er mikill leiðtogi og stýrir mönnum í kringum sig inni á vellinum af stakri snilld. Alveg eins og í landsliðinu þá fúnkerar liðið einfaldlega betur þegar hann er á sínum stað á miðjunni. Svo er Aron líka frábær utan vallar og er yngri leikmönnum fyrirmynd á því sviði. Hann spilaði lengi í krefjandi umhverfi á Englandi þar sem leikjaálagið er mikið. Aron hefur lent í erfiðum meiðslum á sínum ferli, svo hann gerir allt til að hugsa vel um líkamann. Fyrir utan þessa eiginleika er Aron Einar líka algjör toppmaður sem gaman er að vinna með.”

Þúsundþjalasmiðir – gott eða slæmt?

Við spyrjum Bjarka hver helsti munurinn sé að vinna við fótbolta á Íslandi og í Katar, og þá ef til vill fyrir utan þá miklu fjármuni sem Katarar hafa úr að spila. „Þetta er mjög góð spurning. Í íslenskum fótbolta þá ganga þjálfarar í öll störf. Þeir þurfa einfaldlega að vera fjölhæfir og vilja það líka til að hjálpa félögunum sem þeir starfa fyrir að láta hjólin snúast. Ég tel að þessi aðlögunarhæfni og sjálfboðaliðamenning í íslenskum fótbolta geri það að verkum að það sé oftast mikil ástríða í því sem fólk er að gera,” segir Bjarki og heldur áfram: „Að sama skapi kemur þetta umhverfi kannski í veg fyrir að fólk sérhæfi sig. Það er einfaldlega enginn tími til að sökkva sér ofan í greiningar eða njósna um leikmenn á markvissan hátt, svo dæmi séu tekin. Hjá Al-Arabi er mitt starf mjög afmarkað og það hefur verið þroskandi fyrir mig að prófa að vinna í umhverfi þar sem verkaskipting innan teymis er mjög skýr.”

Nú þarf að stíga á bensínið

Eins og kunnugt er var liðið ár sögulegt hjá knattspyrnudeild Gróttu og spyrjum við Bjarka hvernig tilfinningar hafi bærst í brjósti hans þegar hann fylgdist með Gróttuliðunum úr fjarlægð í sumar: „Ég var nú svo heppinn að vera á Íslandi í júní og var í stúkunni þegar strákarnir mættu Blikum á Kópavogsvelli og einnig þegar stelpurnar spiluðu sinn fyrsta leik á móti Fjölni á Vivaldi. Maður fylltist auðvitað miklu stolti þegar maður horfði á Gróttuliðin ganga inn á völlinn á nýjum og erfiðari vettvangi. Ég hef þjálfað mikið af þessum krökkum, bæði í yngri flokkunum og knattspyrnuskólanum, sem gerði upplifunina enn sterkari. Eftir að hafa mætt á leikina áttaði ég mig líka enn betur á því hve mikilvæg stefna Gróttu hefur verið síðustu árin – að gefa ungu heimafólki tækifæri. Það er bara öðruvísi orka í kringum liðið, ef við tölum nú um strákana, en fyrir kannski 5 árum þegar stundum vantaði hjarta í liðið. Nú þekkir fóllkið í stúkunni leikmennina í Gróttutreyjunum!”

Hvað fannst Bjarka um árangurinn í sumar? Bjarki hugsar sig lengi um. „Það er auðvitað mikið búið að tala um hve glæsilegt það var að vinna Inkassodeildina og fólki fannst alveg meiriháttar að sjá Gróttu spila í Pepsi-Max í sumar. Þau viðhorf eru auðvitað alveg eðlileg, enda afrekið í fyrra magnað og tímabilið í ár sögulegt. En ég saknaði þess að sjá strákana kjarkmeiri inni á vellinum en raun bar vitni. Það hefur ekkert að gera með hvernig leikplan eða uppstilling liðsins var – mér fannst menn einfaldlega ekki hafa trú á því að þeir væru nógu góðir. Það var of oft eins og við værum einhverjir gestir frekar en fullgildir þátttakendur í efstu deild. Ég hefði

viljað sjá fleiri stíga upp sem leiðtoga og færri vera langt frá sínu besta,” segir Bjarki og bætir við: „Ég held að næstu ár verði ofboðslega mikilvæg fyrir Gróttu. Stelpurnar þurfa að sanna að frábær fyrri umferð í Lengjudeildinni hafi ekki bara verið byrjendaheppni og strákarnir verða að vinna úr reynslu sumarsins. Menn eru búnir að prófa að spila í efstu deild og það er í raun um tvennt að velja: Velta sér áfram upp úr þeirri upplifun eða stíga á bensínið og ákveða að við séum rétt að byrja.”

Bjarki Már fer yfir málin með leikmönnum Al-Arabi

Bjarki, Heimir Hallgrímsson og Freyr Alexandersson

Þjálfarar knattspyrnudeildar Gróttu 2020/2021

Ágúst Gylfason

Mfl.kk

Björn Breiðfjörð Valdimarsson

Aðst. yfirþjálfari, 3.fl.kvk, 4.fl. kvk og 5.fl.kk

Axel Ingi Tynes

5.fl.kvk, 8.fl.kk og kvk

Chris Brazell Mfl.kk, 2.fl.kk, 4.fl.kk, yfirþjálfari

Arnar Þór Axelsson 2. og 3.fl.kk og 6.fl.kvk

Gabríel Hrannar Eyjólfsson 6.fl.kk og 7.fl.kk

Jórunn María Þorsteinsdóttir Verkefnastjóri knattspyrnudeildarinnar og 7.fl.kvk

Pétur Már Harðarson 3.fl.kk, 5.fl.kvk og 7.fl.kk

Oliver Dagur Thorlacius 5.fl.kk

Magnús Örn Helgason Mfl.kvk og 6.fl.kk

Pétur Rögnvaldsson Mfl.kvk, 4.fl.kk

Þór Sigurðsson Styrktarþjálfari

Aðstoðarþjálfarar

Rán Rúnarsdóttir 7.fl.kvk

Emelía Óskarsdóttir 6.fl.kvk

Æfingatafla yngri flokka knattspyrnudeildar

8. flokkur karla 2014-2015

8. flokkur kvenna 2014-2015

7. flokkur karla 2012-2013

7. flokkur kvenna 2012-2013

6. flokkur karla 2010-2011

6. flokkur kvenna 2010-2011

5. flokkur karla 2008-2009

5. flokkur kvenna 2008-2009

4. flokkur karla 2006-2007

4. flokkur kvenna 2006-2007

3. flokkur karla 2004-2005

3. flokkur kvenna 2004-2005 7:50 14:30

Lovísa Davíðsdóttir Scheving 7.fl.kvk Magnús Birnir Þórisson 7.fl.kk
Ragnar Björn Bragason 6.fl.kk og 7.fl.kk
Lilja Lív Margrétardóttir 6.fl.kvk
Rakel Lóa Brynjarsdóttir 7.fl.kvk
Sindri Freyr Jóhannsson 8.fl.kk
Edda Steingrímsdóttir 8.fl.kvk
Margrét

Eðvald Þór

Hér eru þau spurð spjörunum úr! &

Elín Helga

eru framtíðarleikmenn Gróttu.

„Vakna

og þykist læra“

Nafn? Eðvald Þór Stefánsson

Takkaskór? Adidas Nemeziz

Staða á vellinum? Hér og þar, allt frá varnarmanni í framherja.

Skemmtilegast að gera á æfingum? Reitur, án nokkurs einasta vafa

Leiðinlegast að gera á æfingum?

Hlaup

Fyrirmynd í fótbolta? Messi

Leyndur hæfileiki ? Ég tel mig vera góðan í að leika sel Sturluð staðreynd um sjálfan þig? Ég var í unglingalandsliði í handbolta

Uppáhalds sjónvarpsefni? Núna er það Jól í Snædal

Bestu augnablik með Gróttu árið 2020 ? Ekki beint með Gróttu en skallamark með Kríu var sennilega besta augnablikið

Lið í ensku ? Liverpool

Hvað borðar þú fyrir leiki ? Kjúkling og svo banana og Nocco rétt fyrir leik

Seinasta sem þú gerir fyrir svefninn ? Verð að segja TikTok, annað væri lygi

Hvað myndiru velja sem síðustu máltíð ? Hamborgarhrygg Ef þú fengir 10 milljónir og yfirþjálfarastöðuna í 1 mánuð, hvað myndir þú gera? Ef ég fengi 10 milljónir og yfirþjálfarastöðuna myndi ég bara eyða peningnum í ferðir erlendis með yngri flokkunum, þær eru alltaf bullandi stuð. Hvaða þrjá leikmenn úr Gróttu tækir þú með þér á eyðieyju: Guðmund Inga, Val Inga og Inga Hrafn.

Hvað gerir þig hamingjusaman ? KFC

Addi Bomba eða Sigurvin vinur minn ? Addi Bomba

Framtíðardraumur í boltanum ?

Enda ferilinn í Kríunni

Hvernig tónlist hllustar þú á ?

Rap m.a.

Besta bók sem þú hefur lesið ? kill a mockingbird

Hvað færðu þér í bragðarefinn þinn ? Ísbúð Vesturbæjar

Nú er tími Covid-19 hvernig er “venjulegur” dagur?: Vakna, fæ mér morgunmat, þykist læra, borða hádegismat, þykist læra, snæði kvöldmat, horfi á Jól í Snædal, kíki á kvikmynd, fer á TikTok og svo fer maður að sofa

„Myndi byggja innanhúsvöll á Valhúsahæð“

Nafn? Elín Helga Guðmundsdóttir

Takkaskór? Nike Mercurial Vapor

Staða á vellinum ? Miðvörður

Skemmtilegast að gera á æfingum? Reitur, 3 vs.2 og spil

Leiðinlegast að gera á æfingum? Hlaup

Fyrirmynd í fótbolta? Sara Björk

Sturluð staðreynd um sjálfan þig?

Ég hef aldrei brotið bein

Uppáhalds sjónvarpsefni? Friends og Gossip Girl

Bestu augnablik með Gróttu árið 2020? Úrslitaleikur Íslandsmótsins með 3. flokki

Lið í ensku? Manchester United Hvað borðar þú fyrir leiki?

Oftast Pasta

Seinasta sem þú gerir fyrir svefninn? Stilla vekjaraklukku

Hvað myndiru velja sem síðustu máltíð? Öruglega Thanksgiving hlaðborð

Ef þú fengir 10 milljónir og yfirþjálfarastöðuna í 1 mánuð, hvað myndir þú gera?

Ég myndi byggja innanhúsvöll á

Valhúsarhæðina

Hvaða þrjá leikmenn úr Gróttu tækir þú með þér á eyðieyju?

Lilju Lív, Lilju Scheving og Helgu Dögg

Hvað gerir þig hamingjusama?

Að vera með vinum og fjöldskyldu

Addi Bomba eða Sigurvin vinur minn? Addi Bomba

Framtíðardraumur í boltanum?

Að fara til Bandaríkjanna og spila háskólabolta

Hvernig tónlist hlustar þú á?

Er búin að hlusta mikið á Rihönnu og Kanye West síðustu daga

Besta bók sem þú hefur lesið?

Hef gaman af því að lesa bækur um þekkta íþróttamenn

Hvað færðu þér í bragðarefinn þinn? Daim kurl, smartís kurl og lúxusdýfa

Nú er tími Covid-19 hvernig er “venjulegur” dagur? Ég vakna, fer í skólann í 3 tíma, fer heim að læra og geri mig svo til fyrir æfingu. Þegar ég kem heim að æfingu fer aftur að læra og fer svo að sofa

GENGIÐ ÁGÆTLEGA

AÐ VERA ÉG SJÁLF

Viðtal við Sveindísi Jane Jónsdóttur landsliðskonu

Árið 2020 skaust ný stjarna fram á sjónarsviðið í íslenskri knattspyrnu

– Keflvíkingurinn Sveindís Jane Jónsdóttir. Hin 19 ára gamla Sveindís varð Íslandsmeistari með Breiðabliki, skoraði 14 mörk í deildinni og var kjörin leikmaður ársins af þjálfurum og fyrirliðum. Til að kóróna

glæsilegt tímabil var hún valin í A-landsliðið í haust og var ekki lengi að vinna sér sæti í byrjunarliðinu. Gróttublaðið settist niður með þessari öflugu knattspyrnukonu sem heitir í höfuðið á ömmu sinni frá Gana.

„Já, það voru alveg fiðrildi í maganum.
Ekki bara í leiknum heldur á fyrstu æfingunum. “

Við byrjum á því að spyrja Sveindísi hvort hún hafi átt von á þessari miklu velgengni þegar hún skipti yfir í Breiðablik fyrir ári? „Nei, ég átti bara alls ekki von á þessu. Ég var meira að segja að spá í að fara í minna lið til að vera nokkuð örugg um að fá spiltíma en Gunni (Gunnar Magnús Jónsson) þjálfarinn minn í Keflavík sagði að það kæmi ekkert annað til greina en að fara í Val eða Breiðablik. Ég væri alveg nógu góð”, segir Sveindís og hlær. „Ég hafði líklega ekki alveg nógu miklu trú á sjálfri mér en sem betur fer vissi Gunni hvað væri rétta skrefið.”

Á hjólabretti í Keflavík

Við förum aftur í tímann og spyrjum Sveindísi um fyrstu árin í fótboltanum. „Ég byrjaði frekar seint að æfa eða á eldra ári í 6. flokki þegar ég var 9 eða 10 ára. Fram að því hafði ég bara verið

úti að leika mér og æfði aldrei aðrar íþróttir. Ég prófaði körfubolta en fannst það frekar leiðinlegt og gafst upp eftir nokkrar æfingar.”

Hvenær kviknaði alvöru áhugi og metnaður fyrir fótboltanum?

„Það gerðist nokkuð fljótt. Mér gekk vel þó ég hafi byrjað seint og eignaðist góðar vinkonur í liðinu. Sérstaklega tvíburana Írisi og Kötlu (Þórðardætur) sem spila núna með Fylki. Við urðum fljótt óaðskiljanlegar og eyddum miklum tíma í rútunni milli Keflavíkur og Sandgerðis þar sem þær búa. Við vorum alltaf mættar löngu fyrir æfingar og lékum okkur þá í fótbolta. Við litum ekki svo á að við værum á einhverri aukaæfingu heldur vorum við bara að gera það sem okkur fannst skemmtilegt. Um 14 ára aldur urðum við reyndar mjög áhugasamar um hjólabretti og byrjuðum að „skeita” út um allan bæ. Við vorum mest með strákunum og nenntum lítið

að hanga með öðrum stelpum. Ætli við höfum ekki verið frekar leiðinlegar á þessum árum – allt of miklir töffarar,” segir Sveindís og hlær þegar hún rifjar upp unglingsárin á Suðurnesjunum.

En hvaðan kemur nafnið Jane? „Mamma mín er frá Afríkulandinu Gana og skírði mig í höfuðið á ömmu sem hét Janet. Hún kynntist pabba mínum árið 2000 og ég kom í heiminn ári síðar. Ég hef samt alltaf búið á Íslandi og bara heimsótt Gana einu sinni þegar ég var fimm ára. Ég ætlaði að fara með mömmu til Gana núna í haust en það var auðvitað ekki hægt út af Covid og reyndar landsliðinu líka. Við stefnum að því að fara til Accra, höfuðborgarinnar, eftir ár og heimsækja fjölskyldu og vini.

Prjónaklúbbur í landsliðinu

Sveindís lék sinn fyrsta A-landsleik í 9-0 sigri á Lettlandi á Laugardalsvellinum í september. Hún skoraði í leiknum og hélt svo sæti sínu í byrjunarliðinu og spilaði í mögnuðu 1-1 jafntefli Íslands og Svíþjóðar. Lið Svíþjóðar náði í bronsverðlaun á HM í Frakklandi í fyrra. Sveindís segist hafa verið frekar stressuð fyrir fyrstu landsleikjunum. „Já, það voru alveg fiðrildi í maganum. Ekki bara fyrir leiknum heldur á fyrstu æfingunum.

Það var alveg stressandi að labba inn á æfingavöllinn með leikmönnum eins og Söru Björk en svo tóku mér allir mjög vel svo það var fljótt að fara. Það eru líka margir ungir leikmenn í hópnum núna sem hjálpar auðvitað til.”

„Þetta hljómar kannski eins og algjör klisja en það sem virkar fyrir mig er bara að minna mig á að þetta er bara fótbolti. “

Sveindís er nýliði í A-landsliðinu en hún hefur leikið 41 leik fyrir yngri landsliðin. Flesta leikina hefur hún leikið erlendis þar sem hver keppnisferð er oft á tíðum 10 dagar. Sveindís útskrifaðist með stúndentspróf frá Fjölbrautarskóla Suðurnesja í vor, svo við spyrjum að sjálfsögðu hvernig hafi gengið að samræma námið og allar þessar landsliðsferðir. Það gekk bara ágætlega. Við stelpurnar höfum alltaf reynt að læra í ferðunum og kennararnir í FS sýndu mér flestir mikinn skilning. Ég var reyndar oft með nógu góðar einkunnir til að sleppa við lokapróf en fékk það yfirleitt ekki vegna of margra fjarvista. Það var frekar pirrandi,” segir Sveindís og brosir.

En er tíminn aldrei lengi að líða í svona ferðum, þar sem dagurinn snýst um að sofa, borða og æfa eða keppa? „Þetta er reyndar mjög erfitt núna í Covid þar sem við megum bókstaflega ekki

fara út af hótelinu. En annars er tíminn yfirleitt fljótur að líða. Ég hef eignast ótrúlega traustar og góðar vinkonur í yngri landsliðunum og við látum okkur yfirleitt ekki leiðast. Í fyrsta lagi er álagið yfirleitt mikið svo maður reynir að hvíla sig og sofa nóg. Svo reyndi ég auðvitað að sinna náminu í ferðunum en annars vorum við mikið að spila eða bara spjalla saman. Ég er nýbúin að læra að prjóna og var strax tekin inn í prjónaklúbbinn í A-landsliðinu! Er einmitt að leggja lokahönd á vettlinga,” segir Sveindís sem er greinilega margt til lista lagt.

Þetta er bara fótbolti

Við spyrjum hvernig Sveindís takist á við stressið sem fylgi því að spila með landsliði eða taka þátt í toppslag í Pepsi Max deildinni? „Ég er yfirleitt frekar afslöppuð en það kemur alveg fyrir að ég verði mjög stressuð fyrir mikilvæga leiki. Þetta hljómar kannski eins og algjör klisja en það sem virkar fyrir mig er bara að minna mig á að þetta er bara fótbolti.

Chris og félagar

Fótboltinn er alltaf eins þó að maður spili á móti ótrúlega góðum leikmönnum. Mér gengur best þegar mér tekst að vera ég sjálf. Það hefur gengið ágætlega hingað til svo ætli maður verði ekki bara að halda því áfram,” segir Sveindís sem hélt sæti sínu í landsliðinu sem vann Slóvakíu og Ungverjaland í nóvember og desember og er komið á EM sem fer fram í Englandi árið 2022.

Haustið 2019 fór Sveindís á reynslu ásamt Áslaugu Mundu Gunnlaugsdóttur til franska stórliðsins PSG í París. Í dag, rúmu ári síðar hefur áhugi erlendra liða á Sveindísi ekki minnkað og langar Sveindísi að láta drauminn rætast og spila fótbolta í útlöndum. Hvar og hvenær er enn óráðið. „Þetta var frábær ferð og mikil reynsla. Þarna sá maður hvað þessar allra bestu leggja mikið í fótboltann, enda eru þær á góðum launum og geta einbeitt sér að þessu og engu öðru. Það voru allir mættir löngu fyrir æfingar og gerðu sitt eigið teygjuog styrktarprógramm inni í sal. Svo var alvöru fótboltaæfing og eftir hana voru lyftingar. Við Áslaug fengum sem betur fer að sleppa þeim. Veit ekki hvort við hefðum annars enst út vikuna! Það hafa komið margar fyrirspurnir núna í haust og ég er að skoða málin. Þetta er allt saman mjög stressandi og ég veit satt best að segja ekki alveg hvað ég á að

Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðsfyrirliði fagnar Sveindísi eftir hennar fyrst landsliðsmark í september .

gera. Kannski verð ég annað tímabil á Íslandi eða stekk á eitthvað spennandi tækifæri í Evrópu.”

Skoraði fimm á Valhúsahæðinni

Sveindís fylgdist vel með sínum gömlum félögum í sumar sem enduðu í öðru sæti Lengjudeildarinnar og spila því í Pepsi

Max á næsta ári. Keflavík mætti einmitt Gróttu í sumar í jöfnum leikjum, en þegar Grótta tefldi fyrst fram meistarflokki kvenna var Sveindís 15 ára að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Skemmst er frá því að segja að Sveindís skoraði fimm mörk í báðum innbyrðis leikjum félaganna sumarið 2016. „Þetta er búnar að vera magnaðar framfarir hjá Gróttu.

Það er vel gert að hafa haldið áfram eftir svona erfitt fyrsta tímabil. Mér fannst liðið í sumar vera öflugt. Ég kom einmitt í heimsókn til stelpnanna í 5. flokki Gróttu í ágúst og ég trúði eiginlega ekki hvað sumar þeirra voru góðar. Stór hópur og mikill áhugi. Það eru greinilega bjartir tímar framundan í Gróttu.”

„Við unnum ekki mikið í yngri flokkunum í Keflavík en við sem vorum góðar höfðum mikla ábyrgð í liðinu. Þú þurftir bara að taka af skarið sama við hverja við spiluðum. “

Er kannski styrkleiki að alast upp hjá litlu félagi? „Það fylgja því ákveðnir kostir. Við unnum ekki mikið í yngri flokkunum í Keflavík en við sem vorum góðar höfðum mikla ábyrgð í liðinu. Þú þurftir bara að taka af skarið sama við hverja við spiluðum. Það var bara búist við því að ég sem framherji myndi skora allavega tvö mörk í hverjum leik,” segir Sveindís og bætir við: „Ég fékk líka ung tækifæri til að spila með meistaraflokki og er komin með 80 leiki áður en ég skipti yfir í Breiðablik. Það þroskar mann mjög mikið að spila á móti fullorðnum og oft

sterkari leikmönnum en manni sjálfum. Við getum allavega sagt sem svo að ég hefði hvergi viljað vera annars staðar en í Keflavík sem barn og unglingur.”

Við kveðjum þessa frábæru fyrirmynd og höldum út í vetrarkuldann. Það er sannarlega óhætt að fylgjast vel með Sveindísi Jane Jónsdóttur í framtíðinni.

Myndir: Eyjólfur Garðarsson og Hafliði Breiðfjörð

Við þökkum viðskiptavinum og starfsfólki ánægjulega samferð um árið sem er að líða og sendum landsmönnum okkar bestu óskir um farsæld og frið á nýju ári.

Það hefur verið erfitt að stoppa okkur

Orri Steinn Óskarsson í Kaupmannahöfn

Gróttumaðurinn Orri Steinn Óskarsson gekk til liðs við danska stórliðið FC Kaupmannahöfn fyrir rúmu ári síðan, þá 15 ára gamall. Gróttublaðið hringdi til Danmerkur og tók stöðuna á Orra sem er kominn með gott vald á dönskunni og hefur raðað inn mörkum fyrir U17 ára lið FCK upp á síðkastið.

Við ræddum við Orra Stein daginn eftir að liðið hafði ferðast til Árósa til að spila við AGF. „Þetta var flottur leikur. Unnum 4-2 og ég setti tvö”, segir Orri rólegur í tíðinni en hann er nú kominn með 15 mörk í níu leikjum fyrir U17 ára lið FCK. Kaupmannahafnarstrákunum hefur gengið vel á tímabilinu, hafa gert eitt jafntefli og unnið rest. „Við spilum yfirleitt 4-4-2 þar sem ég er

annar af tveimur framherjum. Við erum sóknarsinnaðir og liðin hafa átt erfitt með að stoppa okkur.” Það má með sanni segja því U17 lið FCK hefur skorað 59 mörk í 12 leikjum!

Alvöru hnébeygjur

Orri Steinn æfir oftast með U19 ára liðinu en fer yfir til U17 þegar stutt er í leik. Orri æfir sex daga vikunnar og er einnig í

skóla sem er í samstarfi við félagið. „Við spilum yfirleitt á laugardögum og erum í fríi á sunnudögum. Þrjá daga í viku fer ég á æfingar beint eftir skóla. Fyrst er fótbolti og svo lyftingar á eftir. Tvo daga er svo morgunæfing og fundur með hugarþjálfaranum okkar í kjölfarið. Það finnst mér vera mjög góð viðbót við þjálfunina. Hann hjálpar okkur að leita leiða til að takast á við mótlæti og svo vinnur hann með hópnum í að byggja upp góðan liðsanda.” Við spyrjum Orra hvort það sé fleira en hugarþjálfunin sem er ólíkt því sem hann þekkti á Íslandi. „Það kom mér á óvart hvað við lyftum þungt hérna. Heima fannst mér áherslan meira vera á meiðslafyrirbyggjandi æfingar og léttar lyftingar með mörgum endurtekningum. Nú er maður bara að setja vel á stöngina og taka þunga hnébeygju. Það tók alveg smá tíma að venjast því en það er fljótt að koma. Svo á félagið sýndarveruleikagleraugu (e. Virtual reality) sem meiddir leikmenn geta nýtt til að æfa skynjun og ákvarðanir. Ég hef aðeins prófað þetta og tæknin er mögnuð.”

Orri Steinn fagnar marki með félögum sínum í FCK
Orri Steinn

Gengur vel með dönskuna

Við spyrjum Orra hvernig honum gangi með dönskuna og hvernig honum líði eftir tæpt ár í nýju landi: „Ég var heppinn því mamma og systur mínar fluttu með mér út. Það hjálpaði mér mikið en aftur á móti var erfitt þegar mamma og

Emelía fóru heim í vor. En ég komst í gegnum það og bý nú með Magneu stóru systur minni, sem er einmitt frábær kokkur sem er algjör lúxus,” segir Orri og hlær. „Mér hefur gengið vel að ná dönskunni og byrjaður að skilja nánast allt og reyni að tjá mig eins og ég get á dönsku.” Hvernig kallar maður á boltann á dönsku? „Spil!” segir Orri og glottir. „Maður þarf að nota það mikið.”

En hvert stefnir Orri á næstu árum: „Hlutirnir geta verið mjög fljótir að breytast í fótbolta og ég reyni að vera meðvitaður um það. Menn geta lent í meiðslum og svo koma stundum risa tækifæri. En ég einbeiti mér bara að FCK og langar að komast í aðalliðið hér á næstu tveimur árum. Fyrst þarf maður

auðvitað að sanna sig með U19 og ég vona að ég fái tækifæri í leikjum með þeim fljótlega,” segir Orri sem þurfti ekki að bíða lengi. Nokkrum dögum eftir að viðtalið var tekið var hann kallaður inn í byrjunarlið U19 í leik á móti SønderjyskE. Þar gerði okkar maður sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk í 3-1 sigri. Sannarlega vel af sér vikið!

Fylgdist með úr fjarlægð Orri spilaði 12 leiki í Inkasso-deildinni með Gróttu sumarið 2019 og hjálpaði liðinu að vinna deildina. Hann fylgdist því með úr fjarlægð í sumar þegar hans gömlu félagar stigu inn á stóra sviðið í Pepsi Max deildinni í fyrsta sinn. Þá voru augu Orra einnig á liði Breiðabliks sem faðir hans og fyrrverandi þjálfari Gróttu, Óskar Hrafn Þorvaldsson, stýrir. „Það var geggjað að fylgjast með þessu. Ég kom einmitt í sumarfrí í júlí og var á útileiknum við Fjölni sem við unnum 3-0 og heimaleiknum við ÍA sem gekk reyndar ekki vel. Svo hlýnaði mér í hjartanu að sjá Kjartan Kára

(Halldórsson) æskuvin minn spila sína fyrstu leiki í meistaraflokki. Grímur (Ingi Jakobsson) spilaði auðvitað líka en hann hefur verið lengur með liðinu,” segir Orri og bætir við: „Ég horfði á þá Blikaleiki sem ég gat og var alltaf mjög stressaður. Fótboltinn sem pabbi lætur menn spila var heldur ekki að hjálpa stressinu! En mér fannst þetta flott tímabil og er mjög stoltur af pabba. Spái því Breiðablik komist nær titlinum á næsta ári.”

Að lokum spyrjum við Orra hvernig hann sjái næsta tímabil hjá Gróttu fyrir sér: „Auðvitað var þetta erfitt tímabil fyrir Gróttu en ég er viss um að mínir menn komi sterkir til baka á næsta ári. Þetta er alvöru hópur sem getur haldið áfram að gera góða hluti.”

Blaðamaður Gróttublaðsins kveður Seltirninginn unga sem ætlar sér stóra hluti hjá danska stórliðinu. Þvílík gæfa fyrir unga Gróttukrakka að eiga svona flotta fyrirmynd.

Æfingasvæði FCK

Unga kynslóðin

Árelía Dröfn Daðadóttir

11 ára í 5. flokki

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: Ég byrjaði að æfa fótbolta þegar ég var 5 ára.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Mér finnst skemmtilegast að spila.

En leiðinlegast: Mér finnst ekkert beint leiðinlegt en ef ég þyrfti að velja myndi ég segja sprettir.

Hvaða stöðu spilar þú: Það er mismunandi en oftast vinstri kanti eða miðju.

Góð minning úr fótboltanum: Ég á margar góðar minningar úr fótboltanum en ég man sérstaklega vel eftir því þegar ég fór í fyrsta skipti á Pæjumótið í Vestmannaeyjum. Það var rosalega gaman og skemmtileg minning.

Með hvaða liðum heldurðu: Gróttu og Liverpool.

Uppáhalds leikmaður í Gróttu (karla eða kvenna):

Gamli þjálfarinn minn, Eydís Lilja.

Uppáhalds jólamatur: Hamborgarhryggurinn sem mamma eldar á aðfangadag.

Birkir Steinn Ásgeirsson

11 ára í 5. flokki

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: Fyrir tveimur árum, 2018.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Skotæfingar eru skemmtilegastar og þegar ég er í marki, þá gengur mér geggjað vel.

En leiðinlegast: Það er ekkert leiðinlegt.

Hvaða stöðu spilar þú: Mark en stundum er ég frammi.

Góð minning úr fótboltanum: Þegar ég var að keppa í Búbblunni í Hveragerði. Þá skoraði ég fullt af mörkum og það var rosa gaman.

Með hvaða liðum heldurðu: Gróttu auðvitað og Arsenal í ensku deildinni.

Uppáhalds leikmaður í Gróttu (karla eða kvenna): Kristófer Melsted og Gabríel Hrannar.

Uppáhalds jólamatur: Hangikjötið hennar ömmu Siggu og kartöflur með hvítri sósu.

Emilía Halldórsdóttir

12 ára í 4. flokki

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: Ég byrjaði að æfa fótbolta fyrir rúmlega tveimur árum.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Mér finnst skemmtilegast að spila.

En leiðinlegast: Að gera styrktaræfingar.

Hvaða stöðu spilar þú: Mér finnst skemmtilegast að vera á kantinum en ég er mjög oft í vörninni.

Góð minning úr fótboltanum: Mér fannst mjög gaman þegar við fórum á TM mótið í Eyjum og við unnum spennandi leiki.

Með hvaða liðum heldurðu: Gróttu, Þrótti þegar systir mín spilar og Stjörnunni en pabbi er sjúkraþjálfari liðsins. Í enska boltanum held ég með Manchester United.

Uppáhalds leikmaður í Gróttu (karla eða kvenna): Ég held mest með bróður mínum Sigga í 5.flokki.

Uppáhalds jólamatur: Hamborgarhryggur og rjúpa eru í uppáhaldi.

Fannar Hrafn Hjartarson

12 ára í 4. flokki

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: Ég byrjaði 6 ára að æfa fótbolta.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Mér finnst skemmtilegast að spila og gera skotæfingar.

En leiðinlegast: Mér finnst bara allt skemmtilegt á æfingum.

Hvaða stöðu spilar þú: Frammi.

Góð minning úr fótboltanum: Þegar við lentum í 2. sæti á Orkumótinu 2017.

Með hvaða liðum heldurðu: Gróttu og Wolves.

Uppáhalds leikmaður í Gróttu (karla eða kvenna):

Kristófer Melsted.

Uppáhalds jólamatur: Kalkúnn.

Kristján Tómas Björnsson

10 ára í 5. flokki

Hvenær byrjaðir þú að æfa

fótbolta: Þegar ég var 5 ára en var samt stundum að æfa mig með Jóhannesi (bróður mínum) þegar ég var yngri.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Mér finnst allt skemmtilegt en samt sérstaklega að spila.

En leiðinlegast: Kannski sprettir og þegar það er styrkur þá er það leiðinlegast.

Hvaða stöðu spilar þú: Ég er varnarmaður en ég get líka verið miðjumaður og er það stundum.

Góð minning úr fótboltanum: Þegar ég skoraði skallamark í Eyjum á móti Breiðablik 1.

GRÓTTUFÓLK

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR

Með hvaða liðum heldurðu: Man United auðvitað. Uppáhalds leikmaður í Gróttu (karla eða kvenna): Gabríel.

Uppáhalds jólamatur: Nautalund!

Ragnheiður Ingibjörg

Guðjónsdóttir

9 ára í 6. flokki

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: 4 ára held ég.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum:

Að spila.

En leiðinlegast: Ekkert.

Hvaða stöðu spilar þú: Er oftast sem framherji.

Góð minning úr fótboltanum: Ég á margar góðar minningar frá fótboltamótum með vinkonum mínum, en það var gaman að skora beint úr aukaspyrnu í sjónvarpsleik á Símamótinu í sumar.

Með hvaða liðum heldurðu: Gróttu, KR, Val, Manchester United og Leicester.

Uppáhalds leikmaður í Gróttu (karla eða kvenna):

Agnar, Dagur og Diljá.

Uppáhalds jólamatur: Hamborgarhryggur, kalkúnn, möndlugrautur og Toblerone ís

GRÓTTUFÓLK

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL

OG FARSÆLT KOMANDI ÁR

Agnes og Jóhann Valberg, Eiðismýri 15

Agnes Sólbjört, Viðar Sigurjón og fjölskyldan Bollagörðum 93

Alexander, Ester og fjölskylda

Arna og Helgi Ásgeir, Agga og Nanna

Bakkavör 32

Baldur og Tinna

Birgir Tjörvi, Erla Kristín, Kristín Klara og Árni Pétur. Bjarni og Jórunn

Borghildur, Viðar og fjölskyldan Valhúsabraut 25

Dofri og Didda

Egill Stefánsson og fjölskyldan Vallarbraut 12

Eiðismýri 13

Fjölskyldan á Barðarströnd 6

Fjölskyldan á Barðaströnd 11

Fjölskyldan á Einimel 11

Fjölskyldan á Hofgörðum 26

Fjölskyldan á Melabraut 17

Fjölskyldan á Nesbala 100

Fjölskyldan á Nesbala 30

Fjölskyldan á Vesturströnd 16

Fjölskyldan Bakkavör 18

Fjölskyldan Bakkavör 28

Fjölskyldan Bakkavör 42

Fjölskyldan Barðaströnd 49

Fjölskyldan Eiðismýri 14

Fjölskyldan grænumýri 18

Fjölskyldan Kirkjubraut 21

Fjölskyldan Miðbraut 22

Fjölskyldan Nesbala 122

Fjölskyldan Nesbala 29

Fjölskyldan Sævargörðum

Fjölskyldan Selbraut 70

50.000

króna tómstundastyrkur

Foreldrar og forráðamenn fimm til átján ára barna með lögheimili á Seltjarnarnesi fá

50.000 króna tómstundastyrk á ári vegna þátttöku í skipulögðu frístundastarfi 2020.

Hægt er að sækja um tómstundastyrkinn hvenær sem er innan almanaksársins en athugið að hann flyst ekki á milli ára. Umsóknir og ráðstöfun tómstundastyrkja er rafræn og fer fram í gegnum Mínar síður

Nánari upplýsingar á www.seltjarnarnes.is sjá Mínar síður.

www.seltjarnarnes.is

Gróttuhjartað orðið stórt

Diljá Mjöll Aronsdóttir er 23 ára Árbæingur. 19 ára gömul ákvað hún að prófa æfingu

hjá nýstofnuðum meistaraflokki Gróttu, ári seinna lagði hún handboltaskóna á hilluna og er í dag leikjahæsta knattspyrnukona Gróttu kornung að árum. En hver er Diljá, hvaðan kom hún og hvert ætlar hún? Við tókum þessa snjöllu knattspyrnukonu tali fyrir Jólablað Gróttu.

Á fullu með Fylki

„Ég bjó fyrstu árin í Kópavogi en flutti svo í Árbæinn þegar ég var 5 ára og hef búið þar síðan,” segir Diljá Mjöll Aronsdóttir leikmaður meistaraflokks kvenna hjá Gróttu. „Ég byrjaði snemma í handbolta en fór ekki í fótboltann fyrr en í 5. flokki. Það var „vinkonuvika” í fótboltanum svo ég var dregin með á æfingu. Mér gekk vel og fannst þetta strax skemmtilegt,” segir Diljá sem stundaði bæði handbolta og fótbolta af krafti með Fylki fram á unglingsárin. Eins og oft vill verða var sett pressa á Diljá að velja aðra hvora íþróttina: „Ég var einu sinni boðuð á úrtaksæfingar í fótbolta sem voru haldnar stuttu eftir að ég átti að spila á handboltamóti. Fótboltaþjálfarinn minn pressaði á mig að sleppa handboltamótinu til að vera betur undirbúin undir fótboltaæfingarnar og það hafði ekki góð áhrif á mig. Kannski hefði það verið skynsamlegast en þegar maður er unglingur getur

stundum virkað öfugt að vera settur undir pressu. Það var allavega þannig í mínu tilviki og ég var hundfúl út í fótboltaþjálfarann,” segir Diljá og brosir þegar hún rifjar upp unglingsárin í Fylki. „Ég reyndi að sinna hvoru tveggja eins vel og ég gat og vandist því eiginlega að æfa tvisvar sinnum á dag. Kannski hefði ég komist eitthvað lengra ef ég hefði einbeitt mér að annarri hvorri greininni, en mér leið einfaldlega eins og ég yrði ekki sátt með með að velja.”

Fótboltinn skemmtilegri

Við spyrjum Diljá hvernig það atvikaðist að hún hafi gengið til liðs við nýstofnaðan meistaraflokk Gróttu vorið 2016: „Ég spilaði engan fótbolta árið 2015. Það komu upp veikindi í fjölskyldunni svo ég ákvað að einbeita mér bara að handboltanum. Mig langaði að byrja aftur í fótbolta vorið 2016 og hefði bara getað farið í 2. flokkinn hjá Fylki. En Guðjón Kristinsson,

tengdafaðir minn til margra ára, var að þjálfa nýstofnað lið Gróttu og hvatti mig til að kíkja á æfingu. Ég var hikandi fyrst en ákvað að prófa og fannst bara spennandi að fara í nýtt félag og spila í meistaraflokki.”

Diljá hefur spilað með Gróttu síðan og er nú leikjahæst, ásamt Tinnu Bjarkar Jónsdóttur, með 75 leiki. Fyrsta tímabilið hjá Gróttu var erfitt og eftir það var Diljá óviss um framhaldið: „Fyrsta árið var 2. deildin ekki komin svo við byrjuðum bara í 1. deild og spiluðum við fullt af mjög sterkum liðum. Fengum ekki stig og töpuðum oft stórt. Ég fór aftur í handbolta veturinn 2016/2017 en fann einfaldlega að mér fannst fótboltinn skemmtilegri. Ég ákvað því að taka annað tímabil með Gróttu og sé sannarlega ekki eftir því. Þetta gekk mikið betur hjá okkur. Leikmenn eins og Eydís Lilja (Eysteinsdóttir), Hrafnhildur (Fannarsdóttir) og Bjargey (Sigurborg

Diljá í leik með Gróttu í sumar

Ólafsdóttir) höfðu bæst í hópinn og við stóðum okkur ágætlega í 2. deildinni. Það var mjög mikilvægt skref fyrir

íslenskan kvennafótbolta að stofna 2. deild því þá fækkaði ójöfnum leikjum sem enginn græðir á. Ég veit ekki hvort að Grótta hefði lifað af annað tímabil í 1. deild. Í staðinn byggðum við okkur upp í 2. deildinni, enduðum í 6. sæti fyrsta árið, í 4. sæti árið 2018 og svo komumst við upp í fyrra,” segir Diljá Mjöll.

Getum gert betur næsta sumar

Kvennalið Gróttu komst upp úr neðstu deild í fyrsta sinn haustið 2019 og lék því í Lengjudeildinni í sumar. Liðið byrjaði frábærlega og var í 3. sæti þegar mótið var hálfnað en fataðist svo flugið og endaði í 6. sæti. Við spyrjum Diljá hver séu markmið næsta sumars:

„Ég er mjög spennt fyrir næsta tímabili. Við eigum að geta gert betur en í sumar og verðum að nota síðasta ár til að læra af því. Það er mikil munur á því að spila í 1. og 2. deild. Það er til dæmis talsverð umfjöllun um deildina sem er nýtt fyrir okkur í Gróttu en er auðvitað mjög

skemmtilegt. Deildin er jöfn og öll liðin eru með metnaðarfullar stelpur í góðu formi. En við erum við flottan hóp og getum gert góða hluti ef við undirbúum okkur vel í vetur.”

Að lokum spyrjum við Diljá hvernig henni líki lífið í Gróttu. „Ég elska að vera í Gróttu. Það er yfirleitt mjög góð stemning úti á velli og manni líður eins og allir hjá félaginu standi saman. Á mörgum stöðum er lítill samgangur á milli meistaraflokka karla og kvenna og svo yngri flokkanna en mér finnst eins og ég geti talað við hvern sem er og leitað ráða hjá mörgum. Það er skemmtilegt að vera með leikjahæstu konum og ég stefni klárlega að því að brjóta 100 leikja múrinn sem fyrst.”

Það verður fróðlegt að fylgjast áfram með þessum geðþekka leikmanni á næstu árum í Gróttu. Sumarið 2021 verður sannarlega áhugavert hjá Diljá og liðsfélögum hennar í meistaraflokki kvenna.

Diljá í fyrsta keppnisleik meistaraflokks kvenna árið 2016

Mættir á hliðarlínuna

svipaða sögu að segja: „Barnæskan litaðist mjög af fótbolta. Við vorum margir að æfa í KR og maður var með fótbolta á heilanum,” segir Sölvi sem flutti á Nesið 10 ára gamall en hélt

spyrjum hvort að dansinn hafi hjálpað honum í fótboltanum. Það stendur ekki á svari: „Dansinn hjálpaði mikið. Sem dansari þarf maður að hafa góða samhæfingu og snerpu sem nýtist vel

Það reyndist góð ákvörðun. Við áttum fínt tímabil undir stjórn Gauja Kristins í 2. flokknum og svo spilaði ég mína fyrstu meistaraflokksleiki með Gróttu, þá 18 ára gamall,” segir Ali.

Sölvi var hins vegar snemma byrjaður að spila með meistaraflokki KR og æfði reglulega með yngri landsliðunum.

Hann hafði stórt hlutverk hjá KR í Landsbankadeildinni árin 2004 og 2005 en haustið 2006 íhugaði Sölvi hins vegar að leggja skóna á hilluna, aðeins 22 ára gamall: „Ég var að byrja í meistaranámi í lagadeild HÍ og var orðinn eitthvað þreyttur á boltanum.

Tímabilið 2006 glímdi ég við meiðsli og spilaði lítið. Svo var ekkert grin að æfa 10 sinnum í viku hjá Teiti Þórðar,” segir Sölvi og glottir. Teitur Þórðarson var þá á sínu fyrsta ári sem þjálfari KR og var þekktur fyrir láta liðið æfa eins og atvinnumenn. Sölvi heldur áfram: „Ég rekst svo á Ása Haralds á förnum vegi í mars 2007 og hann spyr hvort ég vilji ekki koma á æfingu hjá Gróttu. Ég sló til og endaði á að gera félagaskipti og spila með Gróttu í 3. deildinni um sumarið. Á þeim tíma datt mér þó ekki í hug að ég myndi enda á að spila yfir 100 leiki með félaginu.“

Árið 2007 lauk þrautagöngu Gróttu sem hafði verið í neðstu deild frá endurreisn meistaraflokksins árið 2002. Ali var fyrirliði á þessum tíma og segir það hafa verið ógleymanlegt að tryggja loksins sæti í 2. deild: „Við höfðum klúðrað úrslitakeppninni haustin 2005 og 2006 svo það var sætt að klára þetta loksins árið 2007. Ég man að brekkan við gervigrasið var troðin kvöldið sem við tryggðum okkur upp á móti BÍ. Við komumst svo alla leið í úrslitaleik 3. deildarinnar sem var spilaður í Njarðvík. Gróttufólk fjölmennti og maður fann að áhuginn á liðinu fór vaxandi. Við töpuðum leiknum og maður fann á

stemningunni í klefanum eftir leik að menn ætluðu sér stærri hluti með Gróttu.”

Sögulegur áfangi

Uppgangurinn hélt áfram hjá meistaraflokki Gróttu. Liðið endaði í 7. sæti í 2. deildinni árið 2008 og ári seinna kom „draumasumarið“ eins og það hefur stundum verið kallað. Þá sigraði Grótta B-deild Lengjubikarsins, spilaði við KR í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar á heimavelli og sigraði 2. deild Íslandsmótsins. Þar með var Grótta komið upp í 1. deild í fyrsta sinn í sögunni. Sölvi segir að þetta hafi líklega verið eftirminnilegasta tímabil ferilsins: „Vallarhúsið var vígt þarna um vorið og það að hafa okkar eigin klefa gerði mikið fyrir móralinn í hópnum. Það var líka gert mjög vel við okkur miðað við að liðið var í 2. deild. Æfingafötin voru þvegin, liðinu boðið í grill og fleira sem stjórnin stóð fyrir,“ segir Sölvi og heldur áfram: „Það skipti auðvitað miklu máli að fá Stjána (Kristján Finnbogason) í markið og Venni (Sigurvin Ólafsson) var þarna kominn á fullt með Gróttu. Þetta var góð blanda af kempum, leikmönnum sem voru á besta aldri og svo ungum Gróttustrákum eins og Pétri Má Harðarsyni, Braga Árnasyni, Viggó Kristjánssyni og Arnari Frey Gunnsteinssyni. Ási var svo frábær í að fá menn til að vinna að sama takmarki og skapa góða stemningu,” segir Sölvi. Í Gróttublaði síðasta árs var einmitt viðtal við Ása í tilefni að 10 ár voru liðin frá áfanganum og þar koma eftirfarandi fram: Við náðum að búa til liðsheild, leikmenn urðu góðir vinir og það var mikil samstaða í hópnum, og aldursbilið varð að engu þegar leið á; þjálfarateymi

og stjórn meðtalin. Það var gaman á æfingum, það var gaman að spila leikina og það var gaman utan æfinga.

Ali missti hins vegar af draumasumrinu. „Ég fer í Víking fyrir tímabilið 2009. Þeir höfðu heyrt í mér um mitt sumar 2008 en þá vorum við enn í smá fallhættu svo ég vildi alls ekki fara. Ákvað svo að slá til þarna um haustið og spila með Víkingum í 1. deild. Það var auðvitað góð reynsla en það var fjandi sárt að hafa misst af þessu magnaða tímabili hjá Gróttu. Mér fannst því ekkert annað koma til greina en að fara aftur „heim” og taka slaginn í 1. deildinni.”

Gekk út af æfingu

Grótta endaði í 10. sæti á fyrsta árinu í 1. deild og féll úr deildinni ári síðar. Sölvi segir að andinn í liðinu hafi verið góður þrátt fyrir að fáir leikir hafi unnist í nýrri deild: „Ég man ekki til þess að mórallinn hafi verið slæmur. Það breytti því samt ekki að í liðinu voru miklir keppnismenn og það var alltaf hart barist á æfingum. Menn vildu vinna,” segir Sölvi og Ali bætir við: „Ég labbaði einu sinni heim af æfingu eftir að Sölvi tæklaði mig. Liðið mitt var örugglega að skíttapa og ég bara snappaði,” segir Ali og skellir upp úr.

Þeir Ali og Sölvi njóta þess greinilega að rifja upp gamla tíma í boltanum en báðir lögðu skóna á hilluna um þrítugt. „Við spiluðum báðir með Gróttu í 2. deildinni

Ali og Sölvi í leik árið 2012

árið 2012 sem var frekar slakt tímabil hjá okkur. Það var komin smá þreyta í þetta enda urðu miklar breytingar á liðinu tímabilið á eftir ef ég man rétt,” segir Sölvi. Ali kom hins vegar við sögu í tveimur leikjum með Gróttu árið 2014: „Ég var að spila með Kríunni sem var þarna á sínu fyrsta tímabili. Það fóru einhverjir leikmenn í Gróttu út í nám í ágúst og Óli (Ólafur Brynjólfsson) sem var þjálfari þá spurði hvort ég væri til að hjálpa liðinu í lokin. Ég skipti yfir og kom inná í tveimur leikjum. Svo það má segja að ég hafi endað ferilinn á að koma Gróttu aftur upp í 1. deild,” segir Ali og brosir.

Lífið eftir fótboltann

Ali og Sölvi búa á Seltjarnarnesi og eiga þeir báðir tvo stráka sem eru byrjaðir í íþróttum hjá Gróttu. Ali og kona hans, Jakobína Jónsdóttir, eiga von á sínu þriðja barni í febrúar. „Ég hef sterk tengsl við Nesið og konan mín er fædd og uppalin hér, svo það kom eiginlega ekki annað til greina en að setjast að hér,” segir Ali sem rekur æfingastöðina Granda 101. Sölvi, sem starfar sem lögmaður, býr einnig á Seltjarnarnesi með sinni fjölskyldu:

„Hildur (Einarsdóttir) konan mín er alin upp á Nesinu og ég í Vesturbænum svo okkur langaði að flytja í 107 eða 170,” segir Sölvi. „Aðstæður fyrir krakka að alast upp hérna eru frábærar. Skólinn,

leikskólinn og tómstundastarfið allt á sama blettinum og hverfið er öruggt. Það verður gaman að fylgjast með strákunum feta sig upp yngri flokkana í Gróttu. Sá eldri fór einmitt á Skagamótið síðasta sumar sem var fyrsta gistimótið hjá mörgum strákanna. Það var mikil upplifun bæði fyrir strákana og foreldrahópinn.”

Ali og Sölvi segjast báðir hafa fylgst með Gróttu eftir að þeir hættu í boltanum. „Dóri vinur okkar (Halldór Árnason)

þjálfaði hjá Gróttu í tvö ár og tók þátt í ævintýrinu þegar meistaraflokkur karla fór upp um tvær deildir á tveimur árum. Svo hélt maður auðvitað áfram að fylgjast með strákunum í sumar þó að Covid hafi sett strik í reikninginn,” segir Sölvi. Ali bætir við: „Þjálfunin í Gróttu er góð og manni líður vel að vita af börnunum sínum hjá félaginu. Eldri strákarnir okkar Sölva eru báðir í 7. flokki

og þar er ekki slæmt að hafa Pétur Má (Harðarson) fyrrverandi liðsfélaga okkar við stjórnvölinn. Ég segi Kristófer syni mínum sögur af Pétri sem var frábær liðsfélagi á sínum tíma.” Sölvi segir að í dag séu strákarnir í meistaraflokki fyrirmyndir fyrir yngri iðkendur: „Þegar Pétur sonur minn er í marki þá segist hann alltaf vera Hákon.” Ali tekur undir þessa upplifun: „Strákarnir í Gróttuliðinu eru mjög flottir. Kristófer sonur minn á tvo nafna í meistaraflokki (Kristófer Orra Pétursson og Kristófer Melsteð) og heldur mikið upp á þá báða.”

Það er ekki slæmt að þessir tveir frábæru liðsmenn séu nú á hliðarlínunni í yngri flokkunum, hvetjandi sína drengi áfram og taka þannig áfram þátt í ævintýrum með Gróttu.

Ali var fyrirliði Gróttu árið 2007 Sölvi var kjörinn leikmaður ársins 2010 hjá Gróttu

Prenttækni auglýsing kemur hér

undir öru ri handleiðslu þjálfara.

Fyrir konur sem meta árangur út frá líkamlegri getu, auknum afköstum á æfingum og meiri almennri vellíðan og heilsu.

Fyrir konur sem vilja gera hreyfingu að daglegri athöfn og einhverju sem þær hlakka til að gera.

Fyrir konur sem vilja vera í samfélagi annarra sterkra kvenna sem hvetja hvor aðra áfram í þeim verkefnum sem þær taka sér fyrir hendur.

nanna@allirflottir.is

Tinna og Sigrún á Ítalíu

Spiluðu einn leik áður en Covid skall á

Gróttukonurnar Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir og Tinna Bjarkar Jónsdóttir gerðu í október láns-samning við ítalska félagið Apulia Trani og fluttu með stuttum fyrirvara til hafnarborgarinnar Trani í Puglia héraðinu. Eftir að hafa leikið sinn fyrsta leik skall Covid-bylgja á þar í landi af miklum þunga svo öllum leikjum í deildinni var frestað. Stelpurnar komu heim um síðustu mánaðamót og framhaldið er óljóst.

„Það er ómetanlegt tækifæri að fá að spila fótbolta í öðru landi, svo ég þurfti eiginlega ekki að hugsa mig lengi um þegar haft var samband í byrjun október,” segir Sigrún í samtali við Gróttublaðið. „Á þessum stutta tíma upplifði ég hve ólíkur ítalski fótboltinn er frá því sem við eigum að venjast á Íslandi. Flestar stelpurnar eru tæknilega góðar og svo hef ég aldrei séð eins mikinn leikaraskap. Ég fékk til dæmis dæmt á mig víti í leiknum sem við

spiluðum í Palermo þar sem framherjinn henti sér bara niður og öskraði. Ég trúði ekki að þetta væri að gerast!,” sagði Sigrún.

Tinna tekur í sama streng: „Það er leiðinlegt að hafa ekki spilað fleiri leiki en samt mikil upplifun að æfa fótbolta í öðru landi. Eftir þetta mun ég í það minnsta meta betur æfingarnar hjá okkur í Gróttu sem eru klárlega á háum gæðaflokki miðað við neðri deildirnar á Ítalíu,” segir Tinna og bætir við: „Fyrir

mig persónulega var líka gaman að búa í öðru landi sem er eitthvað sem ég hef ekki prófað áður. Trani er mjög fallegur og rólegur bær þar sem gott er að vera.”

Stefnt er að því að hefja keppni aftur í Serie C deildinni í janúar þar sem Apulia Trani spilar. Þær Sigrún og Tinna segja að margt sé í lausu lofti og það komi í ljós þegar líður á desembermánuð hvort þær fari aftur út eða hefji undirbúning fyrir sumarið með Gróttu.

„DREPFYNDIN!“

Herra Bóbó, Amelía og ættbrókin eftir Yrsu Sigurðardóttur er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Teikningar Kristínar Sólar Ólafsdóttur auka enn á gildi þessarar skrautlegu og stórskemmtilegu sögu um gildi vináttunnar. Til hamingju Yrsa og Kristín Sól!

„Heilsteypt og drepfyndin bók þar sem einstakt hugmyndaflug fær að blómstra. Óhefðbundinn sögumaður nýtur sín afar vel í bráðsniðugum lýsingum höfundar á tilfinningalífi hans og sýn á heiminn. Skemmtileg ærslasaga með klassískan boðskap um gildi sannrar vináttu. Einfaldar en stórskemmtilegar myndir falla vel að textanum og gera söguna enn betri.“

UMSÖGN DÓMNEFNDAR UM ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐLAUNIN.

KATRÍN LILJA, LESTRARKLEFINN.IS

„SKEMMTILEG

Yngri flokkar Gróttu 2020

2. flokkur karla
3. flokkur karla
3. flokkur kvenna
2. flokkur kvenna

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR GRÓTTUFÓLK

Fjölskyldan Selbraut 74

Fjölskyldan Selbraut 75

Fjölskyldan Selbraut 76

Fjölskyldan Selbraut 77

Fjölskyldan Selbraut 78

Fjölskyldan Selbraut 79

Fjölskyldan Selbraut 8

Fjölskyldan Selbraut 80

Fjölskyldan Selbraut 81

Fjölskyldan Selbraut 82

Fjölskyldan Selbraut 83

Fjölskyldan Selbraut 84

Fjölskyldan Skerjabraut 3A

Fjölskyldan Sólbraut 6

Fjölskyldan Suðurmýri 22

Fjölskyldan Unnarbraut 10

Fjölskyldan Valhúsabraut 17

Fjölskyldan Vallarbraut 20

Fjölskyldan Víkurströnd 11

Franz Ploder, Hrólfskálamel 8

Geðveik fokking jól

Gróttukveðja frá Ólafi og Jóhönnu

Heimir og fjölskylda

Helgi og Auður, Tjarnarmýri 19

Ingi og fjölskylda, Bakkavör 11

Jólakveðja Arnór Alex og Alexander Aron

Jólakveðja Eva, Halli, Daníel, Tómas, Saga og Matti

Jólakveðja frá Arndísi, Davíð, Gunnari Agli og Önnu Maríu

Jólakveðja frá Arnóri og Bjössa, áfram Kría

Jólakveðja frá Bílanesi

Jólakveðja frá Gróttu Gagga

Jólakveðja frá Gumma fyrirliða

Jólakveðja frá Hrafni og Sölva Sverrissonum

Endurbætur á vallarsvæðinu

Síðastliðið vor var stúkan við Vivaldivöllinn stækkuð og sætum fjölgað upp í rúmlega 500. Eins og kunnugt er lék meistaraflokkur karla í efstu deild og voru því gerðar auknar kröfur um aðstöðu fyrir áhorfendur og fjölmiðla. Framkvæmdir þóttu takast vel og mun Grótta búa að bættri aðstöðu í framtíðinni. Þá var ráðist í gagngerar endurbætur í vallarhúsinu. Gangurinn var veggfóðraður með glæsilegum myndum, búningsklefar meistaraflokka voru endurgerðir og vinnuaðstaða þjálfara var stórbætt. Sjálfboðaliðar báru hitann og þungann af verkefninu sem var að miklu leyti unnið í apríl þegar æfingabann var í gildi vegna Covid. Samstaða var mikil og sýndi í raun hve stórt hjartað er í okkar litla félagi. Þjálfarar, leikmenn, stjórnarmenn og annað Gróttufólk lögðu hönd á plóg til að láta þetta

verða að veruleika. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum tókst vel til og eru búningsklefarnir eins glæsilegir og þeir verða á Íslandi. Seltjarnarnes á þakkir skildar fyrir stuðning við verkefnið og var framlag Gróttumanna eins og Axels, Árna Péturs, Jóa Geirs, Valda, Steina, Hannesar og annarra ómetanlegt.

Veldu rafmagn. Veldu stíl.

RAFMAGNAÐUR

Framúrskarandi drægi

í rafmagnsakstri – 449 km*.

Nýr 100% rafdrifinn Hyundai KONA er fyrsti rafdrifni jepplingurinn á markaðnum. *Hann hefur eitt mesta drægi bíla í þessum stærðarflokki eða 449 km samkvæmt nýjum WLTP mælingum. Meðal búnaðar í nýjum Hyundai KONA er skynvæddur hraðastillir, sjálfvirk neyðarhemlun, sjónlínuskjár sem varpar upplýsingum um hraða og leiðsögn í framrúðu, Krell hljóðkerfi og margt fleira. Hyundai KONA er fáanlegur með 39kW rafhlöðu eða 64 kW rafhlöðu.

Hyundai KONA 100% rafbíll.

Drægi 449 km (WLTP), hestöfl 204.

Heimsending á reynsluakstri

Pantaðu tíma hjá okkur í síma 575 1200, við komum með bílinn, sótthreinan og fínan, og sækjum hann svo aftur til þín.

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR GRÓTTUFÓLK

Jólakveðja frá Júlla þjálfara

Jólakveðja frá Naglanum, Enoki Eiðssyni

Jólakveðja frá nítjánda manninum, Jóhannesi Hilmarssyni

Jólakveðja frá Orra og Emelíu

Jólakveðja frá Reitaboltasambandi Íslands

Jólakveðja frá Úlfi Blandon

Jólakveðja frá Valda og Steinu

Jólakveðja frá Valhúsabraut 33

Jólakveðja frá Þórhalli Dan og Matthildi Dan

Jólakveðja, Davíð, Harpa, Lovísa, Lilja og Birgir

Katrín Sigríður, Kristín Fríða, Harpa og Arnar

Kveðja frá Auði og Brynhildi

Kveðja frá Hrólfskálamel 2

Magga og Kjartan

Mangi, Elín, Elín Eir, Nonni og Jökull

Margrét Lind og Jóhann Pétur

Markahrókinum Ása Gunn

Miðbraut 25a

Óli og Laufey, Nesbala 94

Össi og Oddný

Pétur Blöndal, Anna og fjölskylda

Pétur Steinn og fjölskylda, Bakkavör 8

Pétur, Birkir og fjölskylda

Pétur, Eydís og Ástrós Arna

Sjöfn, Lárus og fjölskyldan á Sævargörðum 11

Stilltustu jólabörnin Atli Hrafn og Pétur Kári Tinna ehf. Hannyrðaverslun

Tómas Þór og Bjarki Þór skila jólakveðju

Valur og Ingigerður í Trönuhólum 4

Fótboltasumarið 2020

Gróttublaðið í 10 ár

Í nóvember 2011 tóku Sigurður Helgason þáverandi þjálfari meistaraflokks Gróttu og Magnús Örn Helgason tal saman í vallarhúsinu. Siggi stakk upp á því að knattspyrnudeildin gæfi út blað sem yrði framtíðarheimild um atburði ársins hjá deildinni og í slíku verkefni fælist einnig fjáröflunartækifæri. Siggi benti á að Valur hefði um árabil gefið út blað um áramót með slíku uppleggi sem hefði tekist vel. Magnús beið ekki boðanna og fékk Hilmar Sigurðsson og Birgi Hákonarson, þáverandi formann og gjaldkera, með sér í lið og fyrir jólin 2011 kom út fyrsta Gróttublaðið. Þá var blaðið 28 blaðsíður en í ár er það 52. Síðan þá hefur blaðið

Aðalviðtöl:

2011 – Kristján Finnbogason

2012 – Indriði Sigurðsso

2013 – Katrín Ómarsdóttir

2014 – Axel Friðriksson og Bjarni Torfi Álfþórsson

2015 – Árni Pétursson

2016 – Ásmundur Haraldsson og Freyr Alexandersson

2017 – Guðni Bergsson

2018 – Glódís Perla Viggósdóttir

2019 – Chris Brazell

2020 – Sveindís Jane Jónsdóttir

komið út fyrir hver einustu jól og er borið í öll hús á Seltjarnarnesi. Myndir hafa alla tíð skipað stóran sess í blaðinu og framúrskarandi fagfólk hefur tekið að sér umbrot og hönnun. Við vonum að tíunda blaðið gleðji Gróttufólk og að þessari hefð verði viðhaldið næstu 10 árin í það minnsta!

Hafið það gott um jólin!

Magnús Örn Helgason

Eyjólfur Garðarsson

Jórunn María Þorsteinsdóttir

Pétur Már Harðarson

Ritstjórar Gróttublaðsins:

2011 – Magnús Örn Helgason

2012 – Guðmundur Ari Sigurjónsson

2013 – Magnús Örn Helgason

2014 – Arnar Þór Axelsson og Bjarki Már Ólafsson

2015 – Eyjólfur Garðarsson

2016 – Eyjólfur Garðarsson

2017 – Magnús Örn Helgason

2018 – Benedikt Bjarnason

2019 – Benedikt Bjarnason

Gleðilega hátíð

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.