Jólablað Gróttu 2016

Page 1


Gróttublaðið 2016

Jólarit knattspyrnudeildar

Kæra Gróttufólk

Jólarit knattspyrnudeildar er komið út sjötta árið í röð. Stjórnin er mjög stolt af blaðinu þar sem fjallað er í máli og myndum um hið metnaðarfulla starf sem unnið er hjá deildinni allt árið um kring. Ekki má heldur gleyma mikilvægi blaðsins sem fjáröflunar og eru þeim fyrirtækjum sem styrktu útgáfuna færðar bestu þakkir.

Á árinu tók meistaraflokkur kvenna til starfa í fyrsta skipti og tefldi fram liði á Íslandsmótinu. Þetta var stór stund í sögu félagsins og mikil stemning var hjá stelpunum allt árið. Í sumar var á brattan að sækja og margir erfiðir leikir voru spilaðir en þrátt fyrir það þá börðust stelpurnar okkar ávallt til þrautar. Í síðustu umferðum mótsins gekk betur og sýndu stelpurnar þá hvað í þeim býr undir styrkri stjórn Guðjóns Kristinssonar sem verður áfram með liðið á næsta ári. Það er spennandi ár framundan. Í meistaraflokki karla verður áfram byggt á ungum og efnilegum leikmönnum sem eru uppaldir í Gróttu. Síðasta sumar tryggðu strákarnir sér sæti í 1. deild á glæsilegan hátt eftir að hafa skotist upp fyrir Aftureldingu í baráttunni um 2. sæti 2. deildarinnar. Þeir Úlfur Blandon og Ásgeir Aron Ásgeirsson stýrðu liðinu í sumar en báðir hafa róið á önnur mið. Þeim eru

þökkuð vel unnin störf í þágu Gróttu. Við liðinu eru teknir Þórhallur Dan Jóhannsson

og Sigurður Brynjólfsson og bindur stjórn knattspyrnudeildarinnar miklar vonir við þeirra störf.

Yngri flokkar Gróttu blómstra áfram og eru iðkendur nú orðnir fleiri en 300! Magnús Örn Helgason er á sínu þriðja ári sem yfirþjálfari en í haust var hinn þaulreyndi Óskar Hrafn Þorvaldsson ráðinn við hlið Magnúsar til að styrkja yfirstjórn deildarinnar enn frekar. Það eru mikilvæg verkefni framundan og það stærsta er innleiðing Gróttuleiðarinnar sem er handbók sem gefin var út í vor en í henni eru markmið og gildi deildarinnar kynnt ásamt öllu skipulagi og framtíðarsýn. Það er von stjórnarinnar að það mikla stefnumótunarstarf sem unnið var við útgáfu Gróttuleiðarinnar muni efla starfið og auka gæði þess á öllum vígstöðvum. Bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi hafa verið gríðarlega öflug í að styðja við íþróttastarf ungs fólks með styrkjum og fjárfestingum í betri aðstöðu. Í sumar var skipt um gervigras á Vivaldivellinum sem var mikið

fagnarefni fyrir okkur í knattspyrnunni. ÍTS og bærinn fjárfestu í hágæða gervigrasi og undirlagi en nýi völlurinn hefur mælst afar vel fyrir hjá iðkendum Gróttu. Breytingin hefur ekki einungis á áhrif á gæði knattspyrnuiðkunar á Seltjarnarnesi heldur líka á heilsufar allra iðkenda. Stjórnin þakkar þjálfurum og foreldrum fyrir ómetanlegt starf í þágu deildarinnar á þessu ári. Einnig þakkar stjórnin Seltjarnarnesbæ og ÍTS fyrir samstarf og stuðning við starf deildarinnar á árinu og ekki síst okkar farsæla bæjarstjóra ,Ásgerði Halldórsdóttur.

Að lokum vill stjórnin þakka þeim fyrirtækjum sem auglýsa í blaðinu og hvetjum við alla Seltirninga til að beina viðskiptum sínum fyrir jólin til þessara glæsilegu og velviljuðu fyrirtækja.

Stjórnin óskar öllum Seltirningum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Með Gróttu jólakveðju, Stjórn knattspyrnudeildar

Stelpurnar riðu á vaðið

Fyrsta prófraun liðsins var í bikarleik gegn Tindastóli þann 8. maí í hörkuleik sem lauk með 2-3 sigri gestanna skagfirsku. Þrátt fyrir ágætisbyrjun gekk fyrri umferð Íslandsmótsins ekki eins og í sögu hjá nýliðunum en Gróttustelpurnar lentu í sterkum riðli og þrátt fyrir góða baráttu lutu þær í lægra haldi gegn sér reyndari mótherjum. Þrátt fyrir erfið úrslit gáfust stelpurnar aldrei upp og liðsheildin varð gríðarlega sterk. Þegar leið á síðari umferð Íslandsmótsins sáust greinilegar framfarir hjá Gróttuliðinu, bæði í spilamennsku og úrslitum leikja. Síðasti leikur stelpnanna í 1. deild var

Þann 15. janúar 2016 var fyrsta æfing meistaraflokks kvenna haldin undir stjórn Gaua Kristins. Langþráður draumur ungra kvenna um að stofna fyrsta meistaraflokk kvenna í knattspyrnu hjá Gróttu hafði þar með ræst. Það er afar mikilvægt fyrir ungar stelpur að hafa fyrirmyndir til að líta upp til í fótboltanum í sínu eigin félagi. Knattspyrnuáhugi og -iðkun stelpna á Seltjarnarnesi hefur aukist mikið undanfarin ár og ekki hægt að segja annað en að framtíðin sé björt í kvennaboltanum. GRÓTTUFÓLK

gegn Álftanesi og var staðan í hálfleik 1-2 Gróttu í vil. Á lokamínútum leiksins snerist lukkan Álftanesi í hag og heimakonur uppskáru að lokum 3-2 sigur. Engu að síður var gott að enda tímabilið á hörkuleik þar sem Gróttustelpur börðust kröftuglega þar til lokaflautið gall.

Fjörugt lokahóf var haldið þar sem Bjargey Ólafsdóttir var kosin leikmaður ársins, Diljá Mjöll Aronsdóttir var valin efnilegust, Heiða Helgudóttir mesti naglinn, Hildur Sif Hilmarsdóttir apaheili ársins og Ragnheiður Lóa Stefánsdóttir hrökkbrauð liðsins. Hópurinn

er orðinn mjög samheldinn og hlakkar til komandi tíma. Stelpurnar hafa þegar leikið tvo æfingaleiki síðan æfingar hófust á ný í október en í janúar hefst Faxaflóamótið. Síðan tekur við Lengjubikarinn, Borgunarbikarinn og loks Íslandsmótið í sumar. Í byrjun apríl munu stelpurnar svo halda til Króatíu í æfingaferð svo það er óhætt að segja að það séu spennandi tímar framundan!

GJÖFIN SEM ER ALLTAF EFST Á ÓSKALISTANUM

Gjafakort Íslandsbanka hittir alltaf í mark og er gjöf með endalausa möguleika. Kortið má nota eins og önnur greiðslukort, bæði í verslunum um allan heim og á netinu.

Þú færð gjafakortið í fallegum umbúðum í næsta útibúi Íslandsbanka. Gjafakort

Einfaldaðu ákvörðunina með gjafakorti Íslandsbanka

FÓTBOLTASUMARIÐ

8. flokkur kvenna, Björn Breiðfjörð Valdimarsson

Annað árið hjá 8. flokki kvenna fór vel af stað og mætti þéttur og skemmtilegur hópur af stelpum til leiks. Þær æfðu á fimmtudögum í íþróttahúsinu þar sem þær voru sóttar á leikskólann og á laugardögum á sameiginlegum æfingum með drengjunum.

Stelpurnar fóru á tvö mót eins og strákarnir og sýndu þær lipra takta og ósvikna leikgleði.

Stelpurnar voru frábærar og eiga framtíðina fyrir sér í boltanum!

8. flokkur karla,

mót sumarsins, Símamótið. Foreldrar, þjálfarar og þátttakendur hófu veisluna á sameiginlegu Gróttugrilli í brakandi blíðu á Vivaldivellinum þar sem 5. og 6. flokkur, sem einnig tóku þátt í mótinu, voru með. Leikið var frá föstudegi til sunnudags og stóðu stelpurnar sig með prýði. Eitt af okkar liðum fór meira að segja heim með bikar!

Við þjálfararnir viljum þakka foreldrahópnum fyrir gott samstarf á liðnu ári. Það er mikilvægt að hafa góðan hóp af foreldrum bakvið sig sem eru alltaf tilbúnir að hjálpa til við að þjappa hópnum saman og skipuleggja ýmislegt, hvort sem það eru keppnisferðir eða piparkökuskreytingar.

Víkings. Króksmótið og Símamótið voru án efa hápunktar sumarsins þar sem stelpurnar sýndu flotta takta og nutu samverunnar. Ég er afar stoltur af hópnum. Stelpurnar leggja sig alltaf 100% fram sama hvert verkefnið er, mæta á allar æfingar og hafa gaman af lífinu.

6. flokkur karla, Pétur Már Harðarson

Rúmlega 30 drengir hófu æfingar hjá 6. flokki karla haustið 2015. Strax á fyrstu vikunum mátti sjá að þarna voru samankomnir stórskemmtilegir og áhugasamir krakkar sem höfðu mikinn áhuga á knattspyrnu og langaði öll til að verða betri.

Björn Breiðfjörð Valdimarsson

Flokkurinn fór vel af stað og voru 35 drengir skráðir til leiks á fótboltaæfingar þegar best lét.

Strákarnir æfðu af miklum krafti á föstudögum í íþróttahúsinu þar sem þeir voru sóttir á leikskólann og á laugardögum á sameiginlegum æfingum með stúlkunum. Farið var á tvö mót yfir sumarið og var leikgleði og skemmtun í algjöru fyrrirúmi hjá þessum frábæru og efnilegu drengjum!

7. flokkur kvenna, Jórunn María

Þorsteinsdóttir og

Pétur Rögnvaldsson

Það var mjög skemmtilegt verkefni að fá að þjálfa 7. flokk kvenna á síðasta tímabili. Það er alltaf gaman að hjálpa börnum að stíga sín fyrstu skref í fótbolta og sjá áhugann vaxa. Síðasta sumar taldi 7. flokkur kvenna hátt í 30 stelpur sem gerði hann að fjölmennasta kvennaflokki Gróttu frá upphafi. Þegar leið á veturinn fór handahlaupum á æfingum að fækka og heimsóknum út á Lindó völl að fjölga. Stelpurnar voru duglegar að hittast þar og æfa sig saman utan æfingatíma, enda metnaðurinn og áhuginn mikill.

7. flokkur karla, Björn Valdimarsson og Kristján Daði Finnbjörnsson

Strákarnir í 7. flokki voru duglegir og metnaðarfullir á æfingunum allt árið og það skilaði sér í miklum framförum. Farið var á mörg mót en Króksmótið stóð upp úr þar sem hress og skemmtilegur 30 manna hópur hélt til Sauðárkróks og spilaði stórgóðan fótbolta. Fjölmargir foreldrar fylgdu drengjunum norður og hjálpuðu til við að skapa frábæra stemningu innan Gróttuhópsins. Tvö lið komu heim með bikara en leikgleðin, spilið og jákvæðnin stóð upp úr. Þarna var á ferðinni hópur af skemmtilegum og metnaðarfullum krökkum sem eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér í fótboltanum!

6. flokkur kvenna, Kristján Daði Finnbjörnsson Árið með 6.flokki kvenna var rosalega ánægjulegt og skemmtilegt enda voru stelpurnar í flokknum jákvæðar, lífsglaðar og skemmtilegar. Við Jórunn María áttum gott samstarf en Jórunn er ekki bara frábær stelpa heldur einnig góð fyrirmynd fyrir stelpurnar sem leikmaður í meistaraflokki kvenna. Æfingasókn var til fyrirmyndar hjá stærstum hluta hópsins allt árið og framfarirnar í samræmi við það.

Um veturinn var farið á nokkur mót og margir æfingaleikir spilaðir. Þá var loks komið að sumrinu sem beðið hafði verið eftir með eftirvæntingu. Um miðjan júni fór yngra árið á Set-mótið á Selfossi og má með sanni segja að drengirnir hafi staðið sig með miklum sóma en þeir spiluðu fallega knattspyrnu allt mótið og unnu marga glæsta sigra. Í lok júní hélt eldra árið svo á Orkumótið í Eyjum. Gróttukrakkarnir stóðu sig vel á móti en ásamt því að spila fótbolta var ýmislegt skemmtilegt brallað í Vestmannaeyjum. Á báðum mótunum voru leikmenn Gróttu sjálfum sér og félaginu til mikils sóma.

Hópurinn lauk árinu með því að halda frábært mót í ágúst á okkar heimavelli, Vivaldivellinum. Knattspyrnuárið 2015-2016 var frábært í alla staði og mátti sjá miklar framfarir hjá hópnum. Með eins öflugum leikmönnum og foreldrum sem mæta vel á leiki og hvöttu okkar leikmenn til dáða og góðu starfi félagsins er framtíðin björt hjá knattspyrnudeild Gróttu.

5. flokkur kvenna, Magnús Örn Helgason

Yfir veturinn var farið á nokkur mót en það eru þó yfirleitt stóru sumarmótin sem standa upp úr. Síðustu helgina í júní hélt hópurinn til Akureyrar á KA mót Íslandsbanka. Þar voru margar á sínu fyrsta gistimóti og spennustigið því skiljanlega hátt! Helgin gekk þó vel í alla staði og þegar heim var komið var strax farið að huga að næsta móti, enda aðeins tvær vikur í stærsta

Við tókum þátt í fullt af mótum og stóðu stelpurnar sig vel á þeim öllum. Til dæmis er skemmtilegt að segja frá því að á Hnátumóti KSÍ töpuðum við ósanngjarnt 2-1 fyrir tilvonandi Íslandsmeistaraliði

Forréttindi. Það er fyrsta orðið sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa um síðasta tímabil hjá 5. flokki kvenna. Það voru raunveruleg forréttindi að þjálfa þessar stelpur því dugnaðurinn og gleðin skinu í gegn frá fyrstu æfingu til hinnar síðustu.

Það voru 15 stelpur sem hófu leik í 5. flokki kvenna haustið 2015

2016

og 17 stelpur sem æfðu yfir sumartímann. Æfingasókn var til mikillar fyrirmyndar og tók hópurinn góðum framförum yfir allt tímabilið. Faxaflóamótið gekk ágætlega en á Íslandsmótinu endaði A-liðið í 4. sæti B-deildarinnar. Þó má segja að með smá heppni hefðu stelpurnar getað náð 2. sætinu, á eftir ÍBV sem bar höfuð og herðar yfir önnur lið. B-liðinu tókst ekki að vinna eins marga leiki og A-liðinu en spilaði þó marga leiki þar sem frammistaðan var til fyrirmyndar. Í fimm leikjum mættu þær A-liðum annarra félaga og gáfu þar ekkert eftir þrátt fyrir dálítinn stærðarmun.

Pæjumótið í Eyjum og Símamótið í Kópavogi voru líklega hápunktar sumarsins. Á Pæjumótinu fór A-liðið alla leið í 8-liða úrslit og endaði í 7. sæti þegar upp var staðið. B-liðið byrjaði af miklum krafti en eftir því sem leið á erfiða keppnisdagana fór þrekið minnkandi. Fyrst og fremst var ferðin til Eyja þó eintóm gleði og skemmtun frá upphafi til enda þar sem stelpurnar, undirritaður þjálfari og frábær foreldrahópur unnu vel saman og sköpuðu minningar sem við munum alltaf eiga. Símamótið gekk einnig vel. Aftur lenti A-liðið í 7. sæti og háði B-liðið margar eftirminnilegar rimmur, meðal annars við A-lið KR og grimmar Haukastelpur. Seinni leikur Gróttu og Hauka var einn sá rosalegasti í sögu mótsins en hvorugt lið gaf tommu eftir. Þegar litið er um öxl eru það ekki sigrar og töp sem standa upp úr heldur sá öflugi hópur sem skipaði 5. flokk kvenna í sumar. Stelpur sem eiga framtíðina fyrir sér í boltanum og í lífinu sjálfu.

5. flokkur karla, Hlynur Helgi Arngrímsson

prýði og bættu sig í hinum ýmsu þáttum, stórum sem smáum, og lærðu einnig mikið af öllum þessum leikjum.

Þegar líða tók á sumarið og við komumst á nýja gervigrasið, eftir langa bið, fóru góð úrslit að bætast við fína spilamennsku og drengirnir luku tímabilinu á flottum nótum. Hápunktarnir voru án vafa N1-mótið á Akureyri og Olísmótið á Selfossi. Árangurinn var góður á ýmsum vígstöðvum og þar má segja að framfarir hafi komið í ljós eftir langt og strangt undirbúningstímabil. Á N1-mótinu gerðu strákarnir í Gróttu1 sér lítið fyrir og unnu brasilísku deildina. Ekki nóg með það heldur var Ragnar Björn valinn varnarmaður mótsins og Orri Steinn besti sóknarmaður. Að skemmtilegu tímabili loknu viljum við þjálfararnir þakka fyrir góðan og lærdómsríkan tíma og óska drengjunum alls hins besta á komandi árum, inni á vellinum sem utan hans.

4. flokkur kvenna, Bojana Besic

Sumarið 2016 var heldur betur viðburðaríkt hjá 4. flokki Gróttu/KR. Flokkurinn var fjölmennur og það tók stelpurnar á yngra ári ekki langan tíma að falla inn í hópinn en eins og kunnugt er sameinast Grótta og KR eftir 5. flokk.

Tvö lið voru skráð til leiks í bæði Reykjvíkurmóti og Íslandsmóti. Eftir leikina í Reykjavíkurmótinu, sem voru spilaðir í öllum útgáfum af íslensku veðri, var komið að Íslandsmótinu. Liðin spiluðu í B-riðli Íslandsmótsins og voru háleit markmið sett fyrir sumarið. Stelpurnar í A-liðinu gerðu aragrúa af jafnteflum og luku keppni í 3. sæti sem þýddi umspil við KA

Það voru um 30 drengir sem að hófu æfingar hjá 5. flokki karla haustið 2015 undir stjórn Andrésar Þórs Björnssonar og síðar um veturinn bættist Hlynur Helgi Arngrímsson inn í þjálfarateymið. Strákarnir byrjuðu undirbúningstímabilið af krafti og æfðu vel allt til loka knattspyrnutímabilsins. Faxaflóamótið og Íslandsmótið eru ómissandi hluti af knattspyrnuári 5. flokks þar sem spilaðir eru leikir í það minnsta aðra hverja viku frá janúar og fram í september. Drengirnir stóðu sig með

á Blönduósi

í byrjun

steptember um laust sæti í úrslitakeppni Íslandsmótsins. B-liðið rétt missti af sæti í úrslitakeppninni en tvö stig til viðbótar hefðu nægt til að komast í umspil. A-liðið gerði góða ferð á Blönduós og tryggði sig inn í úrslitin þar sem keppt var við Breiðablik, Stjörnuna og Fylki. Sigurveginn úr þessum fjögurra liða riðli myndi leika til úrslita um Íslandsmeistaratitlinn! Liðin þrjú reyndust sterkir andstæðingar og spiluðu stelpurnar hörkuleiki á móti þeim öllum. Því miður hafði Grótta/KR ekki erindi sem erfiði þó að okkar stelpur hefðu verið betri aðilinn í bæði Stjörnuog Fylkisleiknum. Svekkjandi en stelpurnar gátu

sannarlega borið höfuðið hátt. Í lok júlí var förinni heitið til Danmerkur á Dana Cup þar sem Grótta/KR tefldi fram tveimur liðum. Ferðin var hrikalega vel heppnuð og geysilega skemmtileg. Nánar er sagt frá ævintýrum stelpnanna í ferðasögu síðar í þessu blaði. Meðal annars frá rimmu 14 ára liðsins við stórlið AIK og dramatískri vítaspyrnukeppni og bráðabana hjá 13 ára liðinu.

Lokakvöldið fór fram innbyrðis skemmtileikur þar sem „TEAM Bojana” spilaði á móti „TEAM Pétri”. Eftir mikið fjör og spennandi viðureign hafði lið Bojönu sigur en aðalmálið var auðvitað öll sú gleði og hamingja sem ríki í þessum frábæra hópi sem skipaði 4. flokk kvenna í sumar.

4. flokkur karla, Óskar Hrafn Þorvaldsson

20 manna hópur æfði af krafti allan veturinn undir stjórn Óskars Hrafns Þorvaldssonar, Hlyns Helga Arngrímsssonar og Kristjáns Daða Finnbjörnssonar. Drengirnir voru sérlega duglegir og áhugasamir.

Þeir lögðu sig alla fram en óhætt er að segja að markmannsleysi hafi haft áhrif á bæði æfingar og leiki flokksins.

Strákarnir tefldu fram tveimur liðum í Faxaflóamótinu. A-liðið spilaði í B-riðli mótsins og tapaði úrslitaleik gegn Breiðablik. B-liðið spilaði eftir nýju fyrirkomulagi þar sem átta leikmenn spila á stór mörk á hálfum velli. Óhætt er að segja að þeir leikir hafi verið kaflaskiptir en liðið vann helming leikja sinna með meira en fimm mörkum og tapaði hinum með meira en fimm mörkum!

Sumarið var stórskemmtilegt. A-liðið spilaði virkilega fallegan fótbolta svo eftir var tekið en úrslitin létu á sér standa. Sökum fámennis spilaði B-liðið á þremur 7-manna mótum. Það var virkileg stígandi í leik liðsins sem kristallaðist í sigri á síðasta mótinu á Leiknisvelli. Þjálfararnir vilja þakka drengjunum fyrir tímabilið sem var virkilega skemmtilegt í alla staði. Það var gaman að fylgjast með þeim bæta sig mánuð eftir mánuð. Margir strákar á yngra ári og þrír strákar úr fimmta flokki spiluðu með A-liðinu og því er óhætt að segja að framtíðin sé björt hjá þessum árgöngum í Gróttu.

3. flokkur kvenna, Magnús Örn Helgason

Það má segja að tímabilið hjá 3. flokki kvenna hjá Gróttu/ KR hafi farið rólega af stað. Um þriðjungur hópsins æfði frábærlega frá fyrstu æfingu á meðan aðrir leikmenn mættu ekki eins vel. Undirbúningsleikirnir gengu brösulega og unnust ekki margir sigrar á Reykjavíkurmótinu en eftir því sem leið á veturinn jókst metnaðurinn í hópnum. Kjarninn sem æfði vel stækkaði og stækkaði, æfingarnar urðu betri og hugarfarið í hópnum varð einbeittara. Farið var í skemmtilegar æfingaferðir sem hristu hópinn saman og þegar Íslandsmótið gekk í garð voru stelpurnar klárar í slaginn. A-liðið átti fínt Íslandsmót, vann 5 leiki, gerði tvö jafntefli og tapaði 5 leikjum. Í mörgum leikjanna sem ekki unnust spiluðu stelpurnar flottan fótbolta en smá grimmd, kraft og sjálfstraust vantaði upp á að klára dæmið. Það vantaði hins vegar ekkert upp á í bikarkepninninni þar sem liðið fór alla leið í undanúrslit. Dramatískur 2-1 sigur á ÍA var sérstaklega eftirminnilegur en þar gekk hreinlega allt upp hjá liðinu og ekki spillti sigurmark í uppbótartíma gleðinni. Því miður náði liðið ekki að sýna sínar bestu hliðar í undanúrslitaleiknum og mikil vonbrigði að fara ekki alla leið í úrslit.

FÓTBOLTASUMARIÐ 2015

fór að fjölga á æfingum. Á undirbúningstímabilinu var spilað í Faxaflóamótinu þar sem skiptust á skin og skúrir. Snemma á tímabilinu hófst undirbúningur fyrir keppnisferð til Spánar og mátti sjá að það hafði góð áhrif á drengina. Í það minnsta fóru nokkrir sem ekki höfðu æft í nokkurn tíma að láta sjá sig aftur!

Þrátt fyrir leiðinlegt veður í vetur og ekki síst í vor æfðu drengirnir vel og þegar keppnistímabilið nálgaðist mátti sjá miklar framfarir hjá liðinu. Íslandsmótið hófst um miðjan maí með heimaleik gegn ÍBV sem lauk með 2-2 jafntefli eftir að Gróttumenn höfðu lent 2-0 undir. Næst komu Sindramenn í heimsókn á Valhúsahæð en í þeim leik minntu Gróttustrákarnir á Neymar og félaga og lönduðu öruggum 6-2 sigri. Í kjölfarið fylgdu nokkrir leikir sem töpuðust en yfirleitt gat liðið tekið eitthvað jákvætt með sér inn í næstu verkefni.

B-liðið átti undir högg að sækja allt sumarið enda aðeins stærstu félögin sem ná að tefla fram B-liði. Þrátt fyrir nokkrar brattar brekkur lögðu stelpurnar aldrei árar í bát og er rigningarleikur í Kaplakrika á móti tilvonandi deildarmeisturum FH eftirminnilegur fyrir hetjulega baráttu og góðan fótbolta. Sigur vannst á Fylkisstelpum um mitt sumar en því miður drógu Árbæingar sig úr keppni áður en seinni leikurinn átti að fara fram!

Hápunktur sumarsins var þó án nokkurs vafa ferð á USA Cup í Minneapolis. Nánar er sagt frá ferðinni síðar í Gróttublaðinu.

Að tímabili loknu og þegar ég lít til baka er ég stoltur af stelpunum. Þær tóku framförum á svo mörgum sviðum og efldust sem hópur eftir því sem tíminn leið. Framtíðin er þeirra, jafnt innan vallar sem utan, og tækifærin eru svo sannarlega til staðar.

3. flokkur karla,

Pétur Már Harðarson

Undirbúningstímabilið hjá 3. flokki hófst í október. Fyrir áramót var hópurinn frekar þunnskipaður en strax upp úr áramótum

Í sumar reyndi töluvert á að vera fljót að aðlagast nýrri stöðu, nýjum liðsfélögum, nýjum þjálfara, nýjum velli og jafnvel búningum. 37 leikmenn félaganna tóku þátt í leikjum sumarsins sem endaði með því að þær urðu Íslandsmeistarar í B-riðli og unnu sér rétt til að keppa í A-riðli á næstu leiktíð.

Það sem einkenndi liðið í sumar var mikil leikgleði, samstaða, skipulag og aðlögunar- og knattspyrnuhæfileikar. Þó svo að stelpur séu að jafnaði yngri en strákar að taka þátt í verkefnum meistaraflokks þá þurfa þær einnig tíma til að þroskast og þróast sem leikmenn og persónur. Verkefni 2. flokks eru oft kjörinn vettvangur til að taka þessi skref og einnig góður vettvangur fyrir gjaldgenga leikmenn meistaraflokks sem vantar verkefni og spiltíma. Það sem stendur upp úr þegar tímabilið er tekið saman er leikgleðin, ekki tapa henni!

Þann 3. júlí var komið að stærstu stund sumarsins þegar rúmlega 20 galvaskir Gróttu strákar lögðu af stað til Spánar á Costa Blanca Cup. Grótta tefldi fram tveimur liðum á mótinu þar sem drengirnir spiluðu fantagóðan bolta á köflum og stóðu sig með mikilli prýði. Yngra árs liðið datt út í 16-liða úrslitum eftir dramatíska vítaspyrnukeppni þar sem þurfti 20 spyrnur til að ná fram úrslitum. Eldra árs liðið fór í 8-liða úrslit þar sem þeir mættu liði Grindavíkur og þurftu þar að sætta sig við súrt tap. Ferðin heppnaðist í alla staði frábærlega og var framkoma drengjanna til mikillar fyrirmyndar. Þá var stór hópur frábærra Gróttuforeldra á svæðinu og ber helst að nefna farastjóra ársins þá Pétur Má Halldórsson og Heiðar Guðjónsson sem voru með allt á tandurhreinu og eiga miklar þakkir skildar. Það var virkilega skemmtilegt og krefjandi að fá að þjálfa þessa drengi og eiga þeir bjarta framtíð fyrir sér. Takk fyrir frábært ár drengir.

2. flokkur kvenna, Guðjón Kristinsson

Leikgleði + samstaða/skipulag + hæfileikar = Íslandsmeistarar.

2.flokkur kvenna var nokkuð frábrugðinn öðrum flokkum þar sem engar æfingar voru hjá flokknum. Hann samanstóð af stelpum frá Gróttu, KR og Þrótti sem æfðu allar með sínum meistaraflokki en hittust svo reglulega og kepptu leiki saman.

Takk fyrir skemmtilegt sumar stelpur, ég lærði margt nýtt, Gaui

2. flokkur karla,

Björn Orri Hermannsson Það var flottur hópur sem æfði með 2. flokki karla á síðasta tímabili undir stjórn þeirra Björns Orra og Ásgeirs Arons. Snemma var ljóst að Agnar og Dagur myndu lítið sem ekkert spila með liðinu enda orðnir fastamenn í meistaraflokki. Því þurftu aðrir leikmenn að stíga upp og láta til sín taka. Faxaflóamótið gekk brösuglega en menn létu það ekki slá sig út af laginu og mættu einbeittir í fyrstu leiki Íslandsmótsins.

Góðir sigrar unnust á Leikni og Haukum og var Grótta með sex stig eftir fjóra leiki. Eftir það seig á ógæfuhliðina hjá strákunum og hver tapleikurinn rak annan. Undir lok Íslandsmótsins börðust Gróttumenn fyrir lífi sínu á botni deildarinnar og fall úr B-deild var á endanum raunin. Bikarkeppnin gekk hins vegar betur þar sem ÍR-ingar voru sigraðir örugglega sem og A-deildarlið Víkings eftir framlengingu og vító. Þrátt fyrir talsverð vonbrigði á tímabilinu er staðreynd að það býr mikið í strákunum. Fáir leikmenn gengu upp í haust og verður spennandi að fylgjast með þeim í bæði 2. og meistaraflokki næsta sumar.

Davíð mætti Golíat

á Valhúsahæð

Ný stjórn tekin við hjá Kríu

Í sumar var knattspyrnufélagið Kría á sínu þriðja starfsári en félagið, sem er nánast eingöngu skipað uppöldum Seltirningum, er í góðu samstarfi við knattspyrnudeild Gróttu. Ein stærsta stundin í sögu Kríu var í sumar þegar liðið fékk úrvalsdeildarlið Breiðabliks í heimsókn í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins.

Leikurinn fór fram þann 26. maí en þá var lagning nýs gervigrass hafin á Vivaldivellinum og því óvissa um hvar leikurinn yrði spilaður. Ákveðið var að leika á hinum sögufræga grasvelli á Valhúsahæð sem var í frábæru ásigkomulag í sumar. Hann var af mörgum talinn einn besti grasvöllur höfuðborgarsvæðisins. Aðstæður voru frumstæðar en varamannaskýli voru útbúin úr mörkum og plastdúk og vinir og vandamenn Kríumanna sáu um miðasölu, öryggisgæslu og kaffisölu. Boðið var upp á klassískt, íslenskt vorhret þar sem rigndi eldi og brennisteini og vel gustaði um Hæðina. Allt vatn á myllu Kríuliðsins gegn stjörnum prýddu Blikaliði sem þekkti ekkert annað en blíðviðrið í Kópavogi.

Dagskipunin var einföld: Þéttur varnarleikur og hraðar sóknir! Það má segja að 7 leikmenn ásamt Jóni Ivani í markinu hafi staðið varnarleikinn með prýði enda átti

Breiðablik í stökustu vandræðum með að brjóta Kríumúrinn á bak aftur. Raunar fengu heimamenn tvö ágætis tækifæri til að skora í fyrri hálfleik en staðan var markalaus í hálfleik. Var hér bikarævintýri í uppsiglingu? Ætlaði Krían að ná að halda út í 90 mínútur og framlengingu og sigra í vítaspyrnukeppni?

Því miður tókst þeim grænklæddu að brjóta ísinn á 61. mínútu þegar Guðmundur Atli Steinþórsson skoraði með glæsilegu skoti upp í vinkilinn. Þá virtist þrek heimamanna úti og í kjölfarið fylgdu tvö mörk; lokatölur 3-0 fyrir Breiðablik. Frammistaða 4. deildarliðs Kríu var þó sannarlega hetjuleg.

Fjöldi fólks lagði leið sína á völlinn þrátt fyrir vosbúðina og fjallað var um viðureignina á Stöð2 Sport. Var góður rómur gerður að leik heimamanna sem þóttu sýna lipra takta og sterkan varnarleik.

Eftir tímabilið ákvað stjórn Kríu að láta af störfum eftir þrjú farsæl starfsár að baki. Á haustmánuðum ríkti nokkur óvissa um framtíð Kríu en í byrjun desember stigu öflugir Gróttu- og Kríumenn fram fyrir skjöldu og mynduðu nýja stjórn. Hana skipa þeir Pétur Már Harðarson sem er formaður, Jóhannes Hilmarsson varaformaður, Pétur Rögnvaldsson gjaldkeri og Arnar Þór Axelsson sem mun þjálfa liðið. Framtíðin er semsagt björt!

Fráfarandi formaður félagsins, Gunnar Þorbergur Gylfason, er hæstánægður með nýju stjórnina og fagnar því að Kríu muni ekki fatast flugið:„Mig langar bara að óska nýrri stjórn velfarnaðar í starfi. Ég tel mikilvægt fyrir fótboltastarfið á Seltjarnarnesi að það sé vettvangur fyrir þá sem ekki komast í meistaraflokk Gróttu til að spila fótbolta á heimavelli. Þá hefur samstarf Kríu og Gróttu einnig orðið til þess að strákar í 2. flokki hafa

fengið tækifæri til að spila með Kríu í 4. deildinni og mæta fyrir vikið undirbúnari til leiks þegar þeir eru kallaðir upp í meistaraflokk Gróttu. Ég nota hér með tækifærið og þakka Kobba vallarstjóra og Hauki Geirmundssyni fyrir gott samstarf sem og öllum innan Gróttu. Þetta hefur verið afar skemmtilegur tími hjá okkur Orra (Axelssyni) og Garðari (Guðnasyni) og nú þýðir ekkert annað en að æfa betur og koma sér í liðið!”

Ekki gefa bara eitthvað,

gefðu frekar hvað sem er.

Með gjafakorti Landsbankans er ekkert mál að velja réttu jólagjöfina.

Þú ákveður upphæðina og sá sem

þiggur velur gjöfina. Þú færð gjafakortið í næsta útibúi.

Vissi ekki að það væri svona gott veður á Nesinu

Þórhallur Dan Jóhannsson var nýverið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Gróttu. Hann tók við liðinu af Úlfi Blandon sem hætti á dögunum eftir að hafa stýrt Gróttu upp í Inkasso-deildina og fær Þórhallur nú það verðuga verkefni að halda Gróttu í deildinni. Þórhallur er 44 ára gamall og starfaði síðast sem aðstoðarþjálfari hjá Haukum í Hafnarfirði. Tóti, eins og hann er oftast kallaður, á glæsilegan knattspyrnuferil að baki en hann lék yfir 150 leiki í efstu deild og tvo leiki með A-landsliðinu. Gróttublaðið spjallaði við Tóta á mildu vetrarkvöldi í nóvember.

Það er glaðbeittur þjálfari sem gengur inn í vallarhúsið og heilsar blaðamanni. Þórhallur byrjar strax að tala um Gróttuliðið og það er greinilegt að mikill eldmóður býr í hinum nýja skipstjóra Gróttuskútunnar. Þórhallur Dan býr í Hafnarfirði ásamt eiginkonu sinni og börnum en hann er uppalinn Fylkismaður og lék yfir 200 leiki í meistaraflokki með Árbæingum. Þórhallur starfaði hjá Haukum í sjö ár, bæði sem yngri flokka þjálfari og aðstoðarþjálfari meistaraflokks, og vann þar töluvert með hinum þaulreynda Luka Kostic. Þá stýrði Þórhallur Álftanesi í 3. deildinni frá 20112012. Í vor útskrifaðist Þórhallur með UEFA-A þjálfaragráðu en þau réttindi eru nauðsynleg til að mega þjálfa í 1. deild.

Velkominn á Nesið. Nú er ungt

Gróttulið á leið í Inkasso-deildina. Hvernig leggst verkefnið í þig? Verkefnið leggst bara mjög vel í mig. Ég er vanur að vinna með ung lið, t.a.m. árin fjögur með Luka Kostic hjá Haukum þar sem byggt var upp á strákum sem fyrir voru hjá félaginu. Hjá Gróttu er svipað í vændum og mér finnst heillandi að byggja upp lið frekar en að fá aðkomumenn sem geta í sumum tilvikum verið að taka pláss þeirra sem unnið hafa fyrir því. Stefnan verður að spila á uppöldum Gróttumönnum en þó verðum við vitaskuld að fá einhverja reyndari til að hjálpa okkur með það markmið að breyta Gróttu úr 2. deildarliði í 1. deildarlið.

Leikreyndir menn sem þekkja þá deild vel geta hjálpað mikið til. Það býr mikið í leikmannahópnum svo það þarf líklega ekki mikið til.

Nú var gervigras Vivaldivallarins endurnýjað síðasta sumar. Hvernig líst þér á aðstöðuna og umgjörðina hjá Gróttu?

Þessi gerð af gervigrasi er frábær og ég sé ekki fyrir mér að við munum æfa neins staðar annars staðar í sumar. Svæðið allt er skemmtilegt og litli æfingavöllurinn býður upp á ýmsa möguleika. Það kom mér ögn á óvart hvað það er alltaf gott veður hérna! Einhverjir höfðu varað mig við veðrinu á Seltjarnarnesi en það hefur sýnt sínar bestu hliðar til þessa! Að öllu gamni slepptu er aðstæðan frábær og vel haldið utan um allt.

Heilræði til ungra leikmanna sem vilja ná langt?

Aukaæfingin er lykilatriði. Oft er talað um gullna hálftímann – að mæta korteri fyrir æfingu og fara korteri eftir að henni lýkur. Með því að gera þetta alltaf bætast við tvær og hálf klukkustund á viku og það munar um minna. Þá er líka lykilatriði að vinna í veikleikum sínum sem getur reyndar verið hundleiðinlegt! Til dæmis að æfa veikari fótinn, jafnvel í heilan mánuð. Lykillinn er að fara út á völl með slík markmið og gefa 100% í hlutina.

Eitthvað að lokum?

Markmiðið er að breyta liði sem hefur flakkað á milli 1. og 2. deildar í 1. deildarlið. Ég hef verið í svipaðri stöðu hjá Fylki sem flakkaði þá á milli efstu og næstefstu deildar og tel mig því vita hvað þarf til. Reynslan með hið unga lið Hauka í 1. deild ætti að sama skapi að gagnast mjög vel. Loks vona ég að Seltirningar fjölmenni á völlinn í sumar og styðji vel við bakið á okkur!

Bestu óskir um gleði og gæði á jólunum.

STARFSFÓLK TOYOTA

Toyota Kauptúni Kauptúni 6 Garðabæ Sími: 570-5070
Toyota Akureyri Baldursnesi 1
Akureyri Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbæ Sími: 420-6600
Toyota Selfossi Fossnesi 14 Selfossi Sími: 480-8000

Þjálfararnir Björn Valdimarsson og Eydís Lilja Eysteinsdóttir, spurð spjörunum úr

Nafn: Eydís Lilja

Aldur: 23 ára

Hvenær byrjaðirðu að þjálfa: Mitt fyrsta tímabil sem fótboltaþjálfari var sumarið 2012

Hvaða íþróttir aðrar en fótbolta hefurðu stundað: Ég var í fimleikum í 15 ár.

Hvað viltu fá í jólagjöf: Lægra íbúðaverð á Seltjarnarnesi

Uppáhalds sjónvarpsefni:

Grey´s Anatomy

Uppáhalds tónlist: Flow Flow

Hvaða 3 hluti myndirðu taka með þér á eyðieyju: Bestu vinkonu mína, síman minn og rúmið mitt.

Hvaða lag syngurðu í sturtunni:

Gróttulagið !!

Hvað eldaðir þú síðast: Hamborgarhrygg og með því :D Uppáhaldsstaður sem þú hefur komið til: Bristol, Tennessee

Lið í enska boltanum: Manchester United Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki?

Þá hvernig: Nei, hef ekki verið það í fótboltanum

Hver er þín helsta fyrirmynd: Pabbi minn og bræður mínir

Uppáhalds íþróttamaður:

Alex Morgan og Dak Prescott

Fallegasti knattspyrnumaður:

Sergio Ramos

Hver yrði fyrir valinu ef þú mættir ráða einn þjálfara til Gróttu: Sir Alex Ferguson

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Skotæfingar og spil

Hver er fyndnasti þjálfarinn hjá Gróttu: Kristján Daði

Hvað myndirðu gera ef þú værir yfirþjálfari í einn mánuð og fengir 10 milljónir til umráða:

Ég myndi sennilega leggja það fyrir og hefja söfnun fyrir yfirbyggingu á æfingasvæðinu.

Góð saga úr boltanum:

Ég var að spila minn fyrsta leik í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Fyrir leikinn hópuðust allir leikmenn og þjálfarar saman og tóku um hvert annað, eins og maður er vanur, en markmiðið var ekki að peppa sig fyrir leikinn og byggja upp stemningu heldur fóru næstu 5 mín í það að biðja til Guðs fyrir leiknum og öllum leikmönnum liðsins. Þetta var furðuleg upplifun en skemmtileg.

Fótboltaminning sem stendur upp úr: Það er mjög sterkt í minningunni þegar ég skoraði „gullmark” fyrir King University háskólaliðið mitt út í Bandaríkjunum.

Framtíðardraumur:

Klára námið mitt og lifa hamingjusömu lífi.

Það besta við að þjálfa hjá Gróttu:

Frábært þjálfarateymi og mikill metnaður sem ríkir meðal þjálfaranna. Samheldnin innan Gróttu er mikil og það er frábært að fá tækifæri til að vera partur af svona flottu félagi.

“ Að geta unnið að því sem ég elska og gera það vel”

Nafn: Björn Breiðfjörð Valdimarsson

Aldur: 21 árs

Gælunafn: Bjössi eða Bjö-5

Hvenær byrjaðirðu að þjálfa: 2011

Hvaða íþróttir aðrar en fótbolta hefurðu stundað: Var í handbolta til 12 ára aldurs. Er einnig frábær sundmaður

Hvað viltu fá í jólagjöf: Heimsfrið

Uppáhalds sjónvarpsefni: Game of Thrones

Uppáhalds tónlist: Nánast allt en fer aðallega í rappið eða góðan playlist hjá Jóa

Hilmars eða DJ Bebbi jay DJ...

Hvaða 3 hluti myndirðu taka með þér á eyðieyju: Mömmu, pabba og Pétur Rögg

Hvaða lag syngurðu í sturtunni: Take on Me

Uppáhaldsstaður sem þú hefur komið til: Stykkishólmur

Lið í enska boltanum: Manchester United Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki?

Þá hvernig: Þarf alltaf knús og koss frá

mömmu fyrir leiki, annars neita ég að spila

Hver er þín helsta fyrirmynd: Afi minn er efstur þar, mikill meistari

Uppáhalds íþróttamaður: Paul Scholes

Fallegasta knattspyrnukonan: Sara Björk Gunnarsdóttir

Hver yrði fyrir valinu ef þú mættir ráða einn þjálfara til Gróttu: Myndi fá Pep Guardiola i aðstoðarhlutverkið í 8. flokki

með mér

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á

æfingum: Reitur

Hver er fyndnasti þjálfarinn hjá Gróttu:

Auðvitað Kristján Daði

Hvað myndirðu gera ef þú værir yfirþjálfari í einn mánuð og fengir

10 milljónir til umráða: Byggja yfir

æfingavöllinn

Góð saga úr boltanum: Fékk einu sinni

rautt á móti Stjörnunni eftir þriggja mínútna leik fyrir rifrildi við dómarann. Hafði alls ekki rétt fyrir mér í því rifrildi.

Fótboltaminning sem stendur upp úr: Þegar við vorum í 7. flokki lofaði king Júlíús þjálfari okkur að við mættum skvetta vatni á hann ef við ynnum úrslitaleikinn á Lottómótinu. Staðan var 1-1 þegar ein mínúta var eftir og Sæmundur Ólafsson heldur boltanum þrisvar á lofti fyrir utan teig og smellir honum í samskeytinn fjær og við vinnum mótið. Þegar leikurinn er búinn hellum við öllu vatninu sem við vorum með yfir Júlla og var hann rennandi blautur eftir það. Yndisleg minning.

Framtíðardraumur: Að geta unnið við það sem ég elska og gera það vel. Lifa góðu og heilbrigðu lífi og hjálpa eins mörgum og ég get í framtíðinni!

Það besta við að þjálfa hjá Gróttu: Samheldnin í þjálfarateyminu og yndislegu börnin sem maður fær að vinna með á hverjum degi.

Þjálfarar knattspyrnudeildar

Arnar Þór Axelsson 2. flokkur karla
Björn Valdimarsson
Bojana Besic
Guðjón Kristinsson meistaraflokkur kvenna
Íunn Eir Gunnarsdóttir
flokkur kvenna

Gróttu 2016/2017

Jórunn María Þorsteinsdóttir

flokkur kvenna Kristján Daði Finnbjörnsson

Pétur Már Harðarson

kk og kvk og 7. fl. kvk Pétur Rögnvaldsson

Örn Helgason

Sigurður Brynjólfsson meistaraflokkur karla

Hrafn Þorvaldsson

Þórhallur Dan Jóhannsson meistaraflokkur karla

Viðtal við þjálfara A-landsliðs kvenna Frey Alexandersson og Ásmund Haraldsson

Bannað að hafa minnimáttarkennd

Merkið má aðeins nota í þeim litum sem hér eru tilgreindir, og á hvítum grunni. Sé merkið notað á lituðum grunni skulu hvítar línur sjást umhverfis merkið. Lögun merkisins eða litum má ekki breyta á nokkurn hátt.

Einhverju magnaðasta knattspyrnuári Íslandssögunnar er senn að ljúka. Árangur A-landsliða Íslands var með hreinum ólíkindum en EM ævintýri strákanna ætti að vera flestum í fersku minni. Fátt hefur náð að sameina þjóðina með sambærilegum hætti og vakti frammistaða liðsins og ekki síður íslenskra stuðningsmanna verðskuldaða athygli um allan heim.

Stelpurnar voru einnig í eldlínunni en þær tryggðu sér sæti á EM í Hollandi 2017 með svo afgerandi hætti að unun var að fylgjast með. Liðið skoraði 34 mörk í undankeppninni en fékk einungis á sig tvö og tryggðu stelpurnar sér þar með sæti á þriðja Evrópumótinu í röð. Gróttublaðið hitti þjálfara A-landsliðs kvenna, þá Frey Alexandersson og Ásmund Haraldsson, og ræddi málin yfir ilmandi kaffi.

Ísland á EM

„Í byrjun hefði maður ekki búist við svona afgerandi árangri en þegar við vorum farnar af stað jókst tiltrúin. Þegar upp var staðið var í raun svekkjandi að ná ekki að vinna alla leikina. Það er þessi týpíska geðveiki sem getur komið upp í Íslendingum,” segir Freyr aðspurður um hvort að yfirburðir íslensku stelpnanna í undankeppninni hafi komið honum á óvart. Freyr heldur áfram: „Við trúðum því alltaf að við gætum unnið riðilinn en bárum samt alltaf mikla virðingu fyrir andstæðingum okkar og undirbjuggum okkur mjög vel fyrir alla leiki.” Búið var að byggja upp mikla spennu fyrir síðustu tvo heimaleiki Íslands í forkeppninni og stóðu vonir til um að slá áhorfendametið, 6.647, þegar Slóvenar komu í heimsókn. Með sigri myndi Ísland gulltryggja farseðilinn til Hollands en þegar upp var staðið var sætið tryggt áður en liðið lagði af stað á völlinn: „Þetta var svolítið undarleg tilfinning, ég man að við sátum þrír í litlu herbergi á Hotel Natura, þremur klukkustundum fyrir Slóveníuleikinn þegar við fréttum að við værum komin áfram. Þetta var mjög sérstök stund en varð sennilega til þess að við náðum ekki að slá áhorfendametið,” segir Freyr.

Ekkert drama

Freyr Alexandersson var ráðinn þjálfari kvennaliðsins í ágúst árið 2013 en aðstoðarþjálfari hans er Seltirningurinn Ásmundur Haraldsson. Ási er Gróttufólki að góðu kunnur en hann tók við meistaraflokki karla árið 2004 og stýrði liðinu upp í 2. deild árið 2007 og upp í 1.

The logo may only be used as shown. When used on a coloured background a white line must be visible. The aspects of the logo and/or appearance may not be altared.

deild tveimur árum síðar. Einnig var Ási yfirþjálfari yngri flokka hjá Gróttu í fjögur ár. Þegar talið berst að því hvað það sé sem geri íslenska kvennalandsliðið svona gott er Ási fljótur til svars: „Þetta hefur ef til vill margoft komið fram, en innan liðsins er gríðarleg samheldni, samstaða og góður liðsandi. Það er ekkert drama eða stéttaskipting. Það eru sterkir karakterar í þessu liði en viðhorfið gagnvart hverjum leik er þannig að það er aldrei slakað á einbeitingu eða vinnusemi og gildir þá einu hvort mótherjinn er Malta eða Skotland.” Freyr bætir við: „Ég held að við séum með góða blöndu af klókum og margreyndum leikmönnum og yngri leikmönnum sem eru þó komnar með töluverða reynslu. Svo erum við eitt líkamlega sterkasta liðið í Evrópu. Það er eiginlega ekkert lið sem getur mætt út á völlinn og slegist við okkur.”

Freyr hefur verið viðloðandi A-landslið karla síðustu ár og því er ekki úr vegi að spyrja hvort að liðsandinn og stemningin sé svipuð hjá stelpunum og strákunum? „Í báðum hópum upplifði ég mikinn metnað og hungur til að sanna sig. Einnig mikið stolt af því að spila fyrir Íslands hönd. Sem betur fer, því mér skilst að slíkt sé ekki sjálfsagður hlutur hjá stóru þjóðunum. Þann hugsunarhátt þekkjum við ekki. Það er oft spurt hvort það sé ekki meira drama og vesen hjá stelpunum en menn eiga að venjast hjá strákunum. Það er bara svo langt, langt frá því að það sé tilfellið! Það er gömul mýta sem styðst ekki við neinar vitrænar forsendur og báðir hóparnir eru sterkir að þessu leyti. Auðvitað geta komið

upp einstaka vandamál en þau eru þá leyst og koma kyni viðkomandi leikmanns ekkert við.”

Hvar er næsta Margrét Lára? Í vor hélt Freyr erindi á ráðstefnu í Háskólanum í Reykjavík. Erindið hét Hvar eru topparnir? og lýsti Freyr þar áhyggjum sínum af því hve fáir ungir leikmenn hafi bankað á dyr landsliðsins síðustu ár. „Ástæðan fyrir því að ég hef áhyggjur af þessu er sú að síðan við Ási tókum við fyrir þremur árum hefur enginn ungur leikmaður bankað fast á dyr A-landsliðsins. Þá er ég að tala um u.þ.b. 16-17 ára gamlar stelpur. Við höfum spurt okkur: Er einhver krakki að fara að hanga fast á hurðarhúninum hjá okkur? Við höfum varla þurft að hugsa um það. Þær sem hafa verið valdar nýjar inn í liðið hafa verið í kringum tvítugt og rösklega það en í rauninni hafa mjög fáar ungar náð að brjóta sér leið inn í byrjunarliðið. Glódís (Perla Viggósdóttir) var nánast komin þangað hjá Sigga Ragga. Elín Metta (Jensen) hefur fengið sín tækifæri hjá okkur en hún og Glódís verða 22 ára á næsta ári, eru fæddar 1995. Svo erum við með eina fædda ‘96 sem hefur verið að banka á dyrnar í hóp en annars hefur lítið verið að frétta,” segir Freyr þegar hann er inntur eftir þessum áhyggjum sínum af framtíð íslenska landsliðsins.

En hvað er til ráða? Síðustu ár hafa efnilegustu stelpurnar hjá Gróttu æft í æ meira mæli með strákunum. Er það fyrirkomulag sem landsliðsþjálfararnir eru hrifnir af? „Mér finnst það mjög jákvætt. Það eru fjölmörg dæmi um stelpur sem

hafa spilað drengjamegin og náð árangri. Það er bara staðreynd,” segir Freyr en bætir svo við. „Ég held þó að aðalmálið sé að félögin og knattspyrnusambandið leggi metnað og áherslu á að stúlkur fái jafn færa og áhugasama þjálfara og drengir. Því er oft haldið fram að þessu sé jafnt skipt en það er bara rangt.”

Þrátt fyrir þessar áhyggjur er ljóst að vegsemd kvennaboltans hefur aukist mikið síðustu ár. Iðkendum fjölgar ár frá ári og áhuginn í samfélaginu á kvennafótbolta er alltaf að verða meiri. Ási hefur áhugaverða sögu að segja í þessu sambandi: „Fyrir sex árum var ég að þjálfa 3. flokk kvenna hjá Stjörnunni. Liðið var að ströggla í

A-deild en náði nú að halda sæti sínu að lokum. Um mitt sumar átti ég gott spjall við hópinn og þá kom á daginn að u.þ.b. 10 stelpur af 12 sem höfðu borið liðið uppi ætluðu sér að hætta eftir 3.

flokkinn. Þær skynjuðu sjálfar að þær væru ekki nægilega góðar til að halda áfram og sáu hreinlega ekki tilganginn með því. Í dag eru mun fleiri stelpur í 3. flokki Stjörnunnar og kominn starfhæfur 2. flokkur. Í báðum flokkum eru stelpur sem eru með nákvæmlega sama viðhorf og strákarnir til fótboltans.” Freyr bætir við: „Ég hitti nokkrar af þeim um daginn, þetta er geggjaður hópur. Þær ætla allar að verða atvinnumenn eða að komast í háskóla úti í heimi og spila fótbolta samhliða náminu.”

Átti ekki fyrir mat í lok mánaðar Er háskólanám í Bandaríkjunum góður kostur fyrir íslenskar fótboltastelpur? „Ég vil bara segja að þetta er frábær valkostur en þær sem eru í landsliðsklassa verða reyndar að vanda valið mjög vel. Þær sem eru skör neðar hafa þarna gjörsamlega frábært tækifæri til að viða að sér bæði reynslu og þekkingu. Ási þekkir þetta nú

vel,” segir Freyr og vísar á Ásmund sem var við nám í Gannon háskóla í Pennsylvaniu í 4 ár og var á sama tíma lykilleikmaður í skólaliðinu, eiginlega hálfgerð goðsögn. „Háskólafótboltinn er ekki allur hinn sami og gæðin eru breytileg, enda eru um það bil 2500 háskólar í USA! Það er rétt hjá Frey að fólk með mjög mikinn metnað fyrir knattspyrnu þarf að vera í topp prógrammi og með góðan þjálfara til að þetta geti talist gott skref fyrir þeirra feril. Námsdvöl með íþróttaívafi er hins vegar frábær kostur fyrir leikmenn sem eygja e.t.v. ekki séns á efsta leveli, þeir geta fengið frábæra menntun með tilheyrandi lífsreynslu og ævintýrum ókeypis,” segir Ási og heldur áfram: „Hafa verður í huga að þú getur verið í atvinnumennsku í Noregi eða Svíþjóð – svo einhver dæmi séu tekin - og varla lifað á því. Þá þarftu annað hvort að hafa sterkt bakland í fjölskyldu, maka eða vinahópi, eða hreinlega hæfileika til að lifa á loftinu!”

„Afreksíþróttamenn standa oft frammi fyrir svona ákvörðun. Ætla ég að lifa á yfirdrætti og hanga á hugsjóninni eða velja öruggari kostinn?” Eru stelpurnar í A-landsliðinu sem eru atvinnumenn ekkert á sérstökum launum? Freyr segir svo ekki vera: „Nokkrar í liðinu hafa það mjög gott og hafa líka aldeilis unnið og barist fyrir því. Svo veit ég líka um um leikmann hjá okkur sem átti ekki fyrir mat síðustu viku hvers mánaðar í langan tíma. Nýlega áttu leikmenn sem eru í atvinnumennsku að mæta í flug nokkuð langt frá heimili sínu til að ferðast í útileik með landsliðinu. Þær lentu í gríðarlegum vandræðum þar sem þær áttu ekki pening fyrir fargjaldi í leigubíl eða lest til að komast á flugvöllinn. Vitaskuld áttu þær rétt á endurgreiðslu en áttu samt ekki pening til að leggja út. Leikmenn í A-landsliði fá dagpeninga og ég get sagt þér það að

stelpurnar munar verulega um þetta á meðan dagpeningarnir geta verið eins og bland í poka fyrir strákana.”

Byltingin handan við hornið Svo virðist vera sem að enn sé langur vegur þar til konur í fótbolta muni njóta sömu fríðinda og karlarnir. Karlafótboltinn er vissulega vinsælli meðal áhorfenda og enginn virðist vera reiðubúinn að færa fórnir til að auka vinsældir kvennaboltans. Freyr grípur orðið: „Ég heimsótti Söru Björk (Gunnarsdóttur) til Wolfsburg um daginn. Þegar ég lagði á bílastæðinu við æfingavöllinn kom mér á óvart að sjá röð af glæsikerrum; Audi, Bentley og ég veit ekki hvað og hvað. Sara var nefnilega búin að segja mér að karlaliðið væri í fríi þennan dag og hélt ég þá kannski að stelpurnar hefðu það svo gott að þær gætu fjárfest í svona bílum. Þá kom í ljós að þessi floti tilheyrði strákunum í U-23 ára liðinu! Stelpurnar voru allar á Volkswagen Polo”. Þrátt fyrir þessa furðulegu frásögn og döpru staðreynd um aðstöðumun karla og kvenna í knattspyrnuheiminum, þá er Freyr bjartsýnn og telur að byltingin sé handan við hornið: „Það eru ýmis teikn á lofti. England er við það að stofna alvöru atvinnumannadeild og Þýskaland og Frakkland eru að stíga á bensíngjöfina. Fótbolti kvenna er sú íþrótt sem vex hraðast í Evrópu um þessar mundir og um leið og UEFA og FIFA veita almennilegum peningum í starfið og beita sér fyrir framgangi kvennaknattspyrnunnar mun íþróttin springa út. Þau komast ekki endalaust upp með að gera upp á milli kynjanna. Stóru klúbbarnir munu örugglega taka við sér og þá verður boltinn ekki stöðvaður. City, Arsenal, Chelsea og Barcelona eru dæmi um félög sem hafa þegar áttað sig á því að þetta sé í vændum á næstu fimm árum eða svo

og eru því að fjárfesta í starfsemi tengdri konum.” Ási tekur í sama streng: „Næsta kynslóð knattspyrnukvenna mun klárlega hafa það betra. Stelpur sem eru fæddar 2000-2008 ættu að geta lifað þægilegu lífi sem atvinnumenn í knattspyrnu.”

Talið berst aftur að íslenska liðinu og hvort að landsliðsþjálfararnir séu sáttir við þá umfjöllun sem liðið fær og þann áhuga sem fólk sýnir því? „Öll umfjöllun er mikilvæg og hafa beinar útsendingar RÚV frá landsleikjum verið til fyrirmyndar,” segir Freyr og Ási bætir við: „Við erum mjög

ánægðir með þann stuðning sem liðið fær og þá jákvæðni sem við finnum fyrir. Það var einmitt eitt af markmiðunum í upphafi að gera landsliðið þannig að allir vildu fylgjast með því og horfa á leiki af því að liðið er gott. Ekki út af kynjavinklum. – til að friða einhverja samvisku af því fólk mætti á leiki hjá strákunum.” Freyr segir þetta skipta miklu máli: „Við eiginlega bönnuðum þessa umræðu innan liðsins og í kringum liðið. Við látum verkin tala og vildum öðlast virðingu að verðleikum. Við erum með leikmenn sem eru geggjaðar fyrirmyndir”.

Lítil félög – stórt hjarta

Bæði Freyr og Ási hafa starfað hjá litlum sem stórum félögum á Íslandi. Freyr er uppalinn Leiknismaður sem síðar þjálfaði hjá Val en Ási hefur þjálfað hjá Gróttu, Stjörnunni, Þrótti, KR og um tíma í Bandaríkjunum. Hverjir skyldu kostirnir vera við að alast upp í litlu félagi, eins og til dæmis Gróttu? Ási tekur boltann á lofti: „Á sama tíma og lítil breidd getur verið neikvæð þá getur hún einnig haft sína kosti. Í 5. flokki karla hjá Gróttu eru kannski 30 strákar að æfa og fjögur lið og því nær þjálfarinn að sinna öllum vel. Svo ertu kannski með yfir 100 stráka í öðru félagi og þá verður þetta óhjákvæmilega meiri færibandavinna, aðeins ópersónulegra. Það eru fleiri tækifæri til að búa til karaktera hjá minni félögunum þar sem mótlætið er stundum talsvert og það eru jú oftast sterkir karakterar sem ná langt.”.

Freyr hefur einnig sína skoðun á málinu: „Ég held að það sé mjög mikilvægt að minni klúbbarnir séu alls ekki að hengja sig á að bera sig saman við stærri klúbbana út frá þessari A, B, C og D flokkun. Þetta snýst fyrst og fremst um að sjá tækifærin sem eru fólgin í því að vera í litlum klúbbi. Að koma úr Leikni er það besta sem gat komið fyrir mig. Ég væri aldrei hérna ef ég hefði ekki komið úr félagi eins og Leikni, ég get alveg sagt ykkur það. Að sama skapi var ég líka ótrúlega heppinn að detta inn í Val í kjölfarið því þar gekk ég inn í vinnuumhverfi með fullt af fagaðilum, m.a. úr öðrum íþróttum, sem hentaði mínum metnaði vel. En ég bjó alltaf að því að koma úr umhverfi þar sem samheldnin skiptir öllu máli, að allir standi saman. Þjálfarar, iðkendur, foreldrar, húsvörðurinn – hversu mikilvægur er hann í svona litlu félagi? Hann er ómetanlegur,” segir Freyr sem leggur mikla áherslu á orð sín. Landsliðsþjálfarinn heldur áfram: „Það sem

„Það eru töluvert meiri líkur á því að þú sért með alvöru félagsmann í þjálfuninni hjá þér í litlum klúbbi í samanburði við að vera kannski með tugi þjálfara sem eru ekkert endilega með anda og markmið félagsins í huga. Þess vegna fannst mér ótrúlega gaman að fá að koma heim í Gróttu og fá að taka þátt í uppbyggingunni, þekkjandi sögu félagsins.”

Ásmundur Haraldsson um árin sín hjá Gróttu

gerist líka í minni félögunum er að þegar þú verður kannski ekki atvinnmaður eða landsliðsmaður eða jafnvel ekki leikmaður meistaraflokks, þá verðurðu mögulega þjálfari eða dómari eða stjórnarmaður. Þetta er félagið þitt og tengslin svo náin. Slíkt verður ekki metið til fjár. Það eru svo mörg tækifæri, ekki bara þjálffræðilega eins og Ási kom inn á, heldur bara samfélagslega í þessum litlu félögum og það er mér mjög mikilvægt. Besti vinur minn er t.d. besti dómari landsins og hann kemur úr Leikni. Lykilorðið er að það er bannað að hafa minnimáttarkennd. Hugsið stórt og sjáið tækifærin!”

Ási rifjar upp árin í þjálfun hjá Gróttu: „Það eru töluvert meiri líkur á því að þú sért með alvöru félagsmann í þjálfuninni hjá þér í litlum klúbbi í samanburði við að vera kannski með tugi þjálfara sem eru ekkert endilega með anda og markmið félagsins í huga. Þess vegna fannst mér ótrúlega gaman að fá að koma heim í Gróttu og fá að taka þátt í uppbyggingunni, þekkjandi sögu félagsins.” Blaðamaður skýtur því að þeim Frey og Ása að nú séu átta af 11 yngri flokka þjálfurum hjá Gróttu aldir upp hjá

félaginu. „Þetta er bara frábært!,” segir Freyr. „Það er einmitt mikilvægt að gefa ungum leikmönnum, sem verða kannski ekki meistaraflokksmenn, tækifæri til að þjálfa. Leggjum vinnu í að kenna þeim þjálfun og uppskerum þannig þjálfara sem elska félagið. Það er ekki hægt að meta slíkt til fjár, þetta er ómetanlegt.”

Holland kallar

Að lokum berst talið aftur að ævintýrum næsta sumars þegar þeir Freyr og Ási halda til Hollands á Evrópumótið. Gróttublaðið spyr hvort að þeir félagar séu bjartsýnir á að Íslendingar muni flykkjast til Hollands í álíka mæli og þeir gerðu til Frakklands í sumar? „Persónulega þætti mér vænt um að sjá svipað hlutfall Íslendinga á leikjunum og í Frakklandi. Þar vorum við oft um 1015% af vellinum og sambærilegt hlutfall ætti að mynda mjög góða stemmningu á þeim völlum sem við leikum á næsta sumar. Þegar ég fór utan til að fylgjast með drættinum upplifði ég mikinn áhuga á því hvernig stuðningsmenn Íslands myndu koma inn í þetta mót og það verða klárlega væntingar um að okkur fylgi öflugir stuðningsmenn.”

Unga kynslóðin

Hrannar Hólm Elíasson, 5. flokki karla

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: 4 ára

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Deildakeppni

En leiðinlegast: Hlaupa fram og til baka á vellinum

Eftirminnilegast síðasta sumar:

Olís-mótið á Selfossi. Mér gekk vel að skora þar, annað en á N1-mótinu

Hvaða stöðu spilar þú: Framherji

Með hvaða liðum heldurðu: Manchester United, Barcelona og Gróttu

Uppáhaldsfótboltamaður/kona:

Birkir Bjarnason og Messi

Markmið fyrir næsta sumar: Ekkert sérstakt

Uppáhalds jólamatur: Önd eða nautakjöt

Rut Heiðarsdóttir, 5. flokki kvenna

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: Í 1. bekk með Val Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Fara í „killer” og spila

En leiðinlegast:

Sendingaæfingar og hlaup

Eftirminnilegast síðasta sumar:

Króksmótið og Símamótið voru frábær

Hvaða stöðu spilar þú: Miðju og vörn

Með hvaða liðum heldurðu: Arsenal, Real Madrid og Gróttu

Uppáhaldsfótboltamaður/kona: Zlatan og Margrét Lára

Markmið fyrir næsta sumar: Bæta mig í fótbolta

Uppáhalds jólamatur: Fondue

GRÓTTUFÓLK

Viggó Alexander Ashworth, 4. flokki karla

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: 9 ára

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Spila

En leiðinlegast: Að hita upp

Eftirminnilegast síðasta sumar: Stórsigur á Breiðablik í 8 manna boltanum

Hvaða stöðu spilar þú: Vinstri bakvörð

Með hvaða liðum heldurðu: Liverpool, Barcelona og Gróttu

Uppáhaldsfótboltamaður/kona: Luis Suárez

Markmið fyrir næsta sumar: Bæta skotkraftinn

Uppáhalds jólamatur: Kalkúnn

Tinna Rán Kristjánsdóttir, 4. flokki kvenna

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: í 1. bekk hjá Gróttu en tók smá pásu og byrjaði aftur í 5. flokki

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Allt með bolta

En leiðinlegast: Sprettæfingar

Eftirminnilegast síðasta sumar:

TM-mótið í Eyjum var frábært

Hvaða stöðu spilar þú: Oftast hægri bakvörð eða kant

Með hvaða liðum heldurðu: Gróttu, Manchester United og Liverpool

Uppáhaldsfótboltamaður/kona: Hólmfríður Magnúsdóttir

Markmið fyrir næsta sumar: Reyna að leggja mig fram á æfingum og bæta mig

Uppáhalds jólamatur: Rjúpa

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR

Enter PIN

FYRIRFRAM GREITT ER FLJÓTLEGRA

Það er orðið enn þægilegra að panta hjá Domino’s, því nú er hægt að greiða fyrirfram um leið og pantað er á netinu eða með appinu. Þannig getur þú t.d. gengið frá heilli máltíð fyrir fjölskylduna án þess að vera á staðnum sem getur komið sér vel. Semsagt: Pikka, panta og borga. Verði þér að góðu!

GREIÐA
-og málið er dautt

Gróttuleiðin

Hver erum við? Hvernig viljum við haga okkur? Hvað finnst okkur mikilvægt? Hvert langar okkur að fara í framtíðinni? Hvernig komumst við á leiðarenda?

Margt Gróttufólk hefur um langt skeið velt þessum spurningum fyrir sér og rætt þær yfir kaffibolla í stúkunni eða heita potti sundlaugarinnar. Starf heillar knattspyrnudeildar eru jú margslungið þar sem að taka þarf margar ákvarðanir og mikilvægt í að allir aðilar rói í sömu átt.

Þeir Bjarki Már Ólafsson og Magnús Örn Helgason, þjálfarar hjá Gróttu, ákváðu að nú þyrfti láta verkin tala fremur en spjalla um hlutina út í eitt. Mörgum kvöldstundum eyddu þeir Bjarki og Magnús í að ná utan um allt starf knattspyrnudeildar Gróttu og vinna drög að nokkurs konar leiðarvísi fyrir alla sem koma að starfinu. Þá unnu þeir félagar námsskrá fyrir alla yngri flokka félagsins ásamt ýmsu fræðsluefni. Eftir um 6 mánaða vinnu voru fyrstu drög tilbúin og hittust þá þjálfarar og stjórnarmenn á löngum fundum og héldu áfram að marka stefnuna. Niðurstaðan varð Gróttuleiðin, handbók upp á 88 blaðsíður þar sem viðfangsefninu er skipt upp í eftirfarandi hluta; í fyrsta lagi markmið og gildi, í öðru lagi hugmyndafræði, í þriðja lagi skipulag og í fjórða og síðasta lagi námsskrá.

Ákveðið var að prenta handbókina fremur en að hafa hana eingöngu aðgengilega á netinu. Talið var að það myndi skapa betri tengingu við lesandann og þetta væri rit sem þyrfti að vera til á hverju heimili! Þriðjudaginn 7. júní var haldin kynning á Gróttuleiðinni í hátíðarsal íþróttahússins. Mætingin var mjög góð en á kynningunni fór Magnús Örn yfir efni Gróttuleiðarinnar, aðdragandann og næstu skref. Góður rómur var gerður að málflutningi Magnúsar og fengu allir gestir eintak með sér heim.

Gróttublaðið hafði samband við Bjarka Má Ólafsson, þjálfara hjá Gróttu og annan af höfundum Gróttuleiðarinnar og spurði hann hvernig gengi að innleiða þá fjölmörgu þætti sem tekið er á í handbókinni:

„Það gengur hægt en örugglega. Þegar gerðar eru breytingar er mikilvægt að vanda sig og varast að taka ekki of stór skref í einu. Við erum ekki að tjalda til einnar nætur og viljum að það sem stendur í Gróttuleiðinni festi sig í sessi. Á næstu árum munum við vonandi sjá

afrakstur þessarar vinnu á ýmsum sviðum, svo sem í frekari fjölgun iðkenda og fleiri Gróttukrökkum á landsliðsæfingum. En það er ljóst að það er mikill áhugi og metnaður innan deildarinnar og góður andi á æfingasvæðinu. Þá er ég ekki bara að tala um okkur þjálfarana heldur líka iðkendur og foreldra þeirra”.

En hvað er það sem gerir starfið hjá knattspyrnudeild Gróttu frábruðgðið því sem viðgengst hjá öðrum liðum á Íslandi?

„Hér á Nesinu höfum við lítið og samheldið samfélag með aðeins eitt íþróttafélag sem fólk sameinast um. Hjá okkur í knattspyrnudeildinni eru svo nánast allir yngri flokka þjálfararnir uppaldir í Gróttu eða hafa sterka tengingu við félagið. Með auknum metnaði hefur þetta orðið til þess að öll okkar nálgun er mjög einlæg og persónuleg. Fólk virkilega brennur fyrir verkefninu og er alltaf að leita leiða til að gera betur. Einstaklingarnir fá að njóta sín þar sem hóparnir eru ekki risastórir og foreldrar eru duglegir að taka þátt í starfinu. Við erum stórhuga og í senn með stórt hjarta. Það gerir okkur sérstök”.

Grótta – Þar sem hjarta bæjarins slær

Í huga íbúa á Nesinu er Seltjarnarnesbær þekktur fyrir öflugt íþróttastarf. Íþróttastarf Gróttu er hornsteinn félagslegra samskipta í bæjarfélaginu, þar er vettvangur leiks og lífs, því er ekki skrítið þegar talað er um hjartað í bænum að íþróttamiðstöðin komi upp í huga manns.

Seltjarnarnesbær hefur um langt skeið fjárfest mikið í íþróttastarfi og er það vel. Þessar fjárfestingar eru hagkvæmar og hafa skilað sér ríkulega í öflugu samfélagi og einstaklingum innan raða Gróttu sem skilað hafa sér á pall þeirra bestu.

Seltjarnarnesbær er stoltur af góðu og

GRÓTTUFÓLK

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT

öflugu starfi Gróttu. Með öflugu foreldraog sjálfboðaliðastarfi hefur tekist að byggja upp öflugt íþróttafélag. Við eigum öll að þakka og lofa starf sjálfboðaliðanna en félagið stendur og fellur með þeirra starfi.

Ég vil því hvetja alla íbúa Seltjarnarness til að leggja sitt af mörkum og styðja við íþróttafélag bæjarins. Ég óska öllu íþróttafólki, fjölskyldum þeirra og þjálfurum, sem og velunnurum, góðs gengis og gleðilegra jóla.

Áfram Grótta.

Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri

Veislan veitingaeldhús óskar Gróttu til hamingju með glæsilegt jólablað

Veislan tekur að sér veitingaþjónustu í afmælum, brúðkaupum, er drykkjum og hvers konar mannamótum. Erum með glæsilegan veislusal í Félagsheimili

Seltjarnarness til útleigu. Getum einnig komið í heimahús eða fyrirtæki.

Grótta í Inkasso!

Strákarnir í meistaraflokki áttu frábært tímabil í sumar en þeir enduðu í 2. sæti 2. deildar og munu því leika í Inkasso-deildinni árið 2017. Margir ungir Gróttumenn stigu sín fyrstu skref í meistaraflokki í sumar og stóðu sig með stakri prýði. Í meistaraflokknum er nú að myndast þéttur kjarni ungra Gróttumanna sem eru rétt að byrja.

Hið unga og efnilega lið hljóp kröftuglega úr startholunum en strákarnir luku undirbúningstímabilinu með glæsilegum sigri í B-deild Lengjubikarsins. Úrslitaleikurinn fór fram í Boganum á Akureyri í lok apríl og þar lögðu strákarnir Magna frá Grenivík í fjörugum leik. Nokkrum vikum áður höfðu Gróttumenn orðið fyrir áfalli þegar hinn spilandi aðstoðarþjálfari Ásgeir Aron Ásgeirsson sleit krossband og var því útséð um þátttöku hans á Íslandsmótinu. En það kemur jú alltaf maður í manns stað og Ásgeir tók sér stöðu við hlið Úlfs á hliðarlínunni.

Snemma í maí heimsóttu okkar menn ÍR-inga í fyrsta leik Íslandsmótsins og unnu þar 2-0 sigur sem setti tóninn fyrir sumarið. Agnar Guðjónsson kom Gróttu yfir með glæsilegu langskoti og Viktor Segatta skoraði úr víti eftir að heimamenn brutu á Agnari og verðskuldaður 2-0 sigur staðreynd. Í kjölfarið fylgdi svo 3-0 tap gegn KV í síðasta heimaleiknum á gamla gervigrasinu og þegar upp var staðið reyndist það aðeins einn af þremur tapleikjum sumarsins í deildinni.

Þegar framkvæmdir hófust á Vivaldivellinum í lok maí færðu Gróttumenn heimavöll sinn á gervigrasið í Safamýri. Það virtist ekki trufla strákana mikið en tveir leikir unnust sannfærandi og einum lauk með jafntefli.

Í júlí hefndu menn ófaranna gegn KV með góðum 2-1 sigri í brakandi blíðu á aðalvellinum í Frostaskjóli og sigldu menn því glaðir inn í verslunarmannahelgina.

Í ágúst tóku línur í deildinni að skýrast en ljóst varð að ÍR-ingar væru öruggir í fyrsta sæti og stóð baráttan um 2. sætið þá á milli Gróttu, Magna og Aftureldingar. Um miðbik ágústmánaðar lögðu Gróttumenn Magna að velli með þremur mörkum gegn engu í blíðviðri (eins og alltaf) á Vivaldivellinum en Agnar Guðjónsson og Bessi Jóhannsson fundu netmöskvana. Gaman er að segja frá því að 9 uppaldir Gróttumenn komu við sögu í leiknum, þar af allir nema einn 21 árs eða yngri!

Þessi sigur þýddi að Magnamenn voru úr leik í baráttunni og var því leiks Gróttu og Aftureldingar beðið með mikilli eftirvæntingu. Gróttu dugaði jafntefli til að halda öðru sætinu fyrir lokasprettinn á meðan Mosfellingar urðu að sækja til sigurs. Og það gerðu þeir sannarlega og komust í 2-0 en Gróttumenn neituðu að gefast upp og jöfnuðu metin 2-2 undir lok leiksins sem var æsispennandi.

Fyrir lokaumferðina þann 24. september áttu Gróttumenn tvö stig á Aftureldingu og sæti í

Inkasso-deildinni var undir. Okkar menn lutu í lægra haldi gegn Hetti á Egilsstöðum meðan ÍR vann Aftureldingu svo ljóst varð að Grótta hélt öðru sætinu og hafði þar með tryggt sér sæti í Inkasso-deildinni að ári. Frábær árangur hjá lærisveinum Úlfs Blandon sem var á sínu fyrsta ári með liðið.

Markvarsla og vörn voru til fyrirmyndar í sumar en þeir Stefán Ari markvörður og Gummi og Brynjar miðverðir áttu hvern stórleikinn á fætur öðrum. Liðið fékk einungis á sig 16 mörk í 22 leikjum og geri aðrir betur! Viktor Segatta var iðinn við kolann í markaskorun en hann gerði 12 mörk og varð þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar. Þeir Gummi og Viktor voru valdir í lið ársins í 2. deild en á lokahófi Gróttu var Gummi kjörinn leikmaður ársins og Dagur Guðjónsson var valinn sá efnilegasti.

Fjölmargir ungir Gróttumenn komu við sögu í sumar og léku margir þeirra stórt hlutverk í liðinu. Samstaðan og leikgleðin var allsráðandi í Gróttuliðinu en nokkrum sinnum skoruðu strákarnir mikilvæg mörk á lokaandartökum leikjanna. Það verður sannarlega spennandi að fylgjast með hinu unga og efnilega Gróttuliði etja kappi við stórlið á borð við Fylki, Keflavík og Fram í Inkasso-deildinni næsta sumar!

Grótta á ferð og flugi

Gróttukrakkar lögðu heiminn að fótum sér á árinu. Ritstjórn Gróttublaðsins fékk sendar ævintýralegar ferðasögur frá æfinga- og keppnisferðum.

Ógleymanleg Spánarferð

Lagt var af stað að morgni 3. júlí með Primera Air til Alicante. Hópurinn samanstóð af 21 strák á aldrinum 15-16 ára, tveimur fararstjórum á miðjum aldri og þjálfaranum frábæra Pétri Má Harðarsyni. Ferðalagið gekk eins og í sögu, þó smávegis seinkun hafi orðið á fluginu, sem gaf okkur öllum ferðaávísun til að versla fyrir á Joe and the Juice í Leifsstöð, enda hollustan höfð í fyrirrúmi.

Við gistum á Magic Aqua hótelinu við Finestrat ströndina, í öruggri fjarlægð frá Bretunum og strandljónunum á Levante ströndinni. Þetta er fjölskylduhótel með miklum sundlaugargarði en lélegum lyftum. Við gistum á 15.-17. hæð og hluti af upphitun á hverjum degi var að ganga tæplega 300 tröppur í og úr mat. Eftir 21 skammt af hlaðborði hótelsins var mótið að klárast og þá fyrst var farið í pizzur, hamborgara og franskar.

Í júlí er hitinn vel yfir 30 gráðum um miðjan dag og því voru leikir annað hvort að morgni, frá 8.30-11.00 eða eftir hádegi frá 16.30-19. Okkar menn voru borubrattir enda fannst þeim 25 mínútna hálfleikir ekki mikið eftir stífar æfingar undanfarinna ára. Annað átti eftir að koma á daginn en álagið mátti ekki vera meira. Allur aðbúnaður, rútur sem fóru með okkur af hóteli og á vellina 12 sem leikið var á, gras og gervigras, dómgæsla og skipulagning var til mikillar fyrirmyndar.

Gæði liðinna sem kepptu voru mismunandi, en öll áttu þau erindi á mótið. Á Costa Blanca Cup voru fimm lið frá Íslandi en í heildina voru liðin 250 frá öllum heimshornum. Þarna voru stórlið á borð við Guadalajara frá Mexíkó, Zenit frá Rússlandi og Nottingham Forest. Gróttuliðin komust annars vegar í 8 liða úrslit og hins vegar í undanúrslit sem verður að teljast góður árangur, en á fullkomnum degi hefðu liðin þess vegna geta farið alla leið í úrslitaleikina.Dagarnir að móti loknu voru gjörnýttir. Farið var í skemmtigarðana Terra Mítica og Aqualandia ásamt ágætri verslunarmiðstöð.

Ekki minnkaði það stemninguna að á meðan mótinu stóð var Evrópukeppnin í gangi. Við sáum leik Íslands og Frakklands í Fan Zone, þar sem risaskjár var á ráðhústorgi Benidorm. Eins var Ísland orðið vel þekkt í fótboltaheiminum sem jók á athyglina og víkingaklappið var tekið oftar en ég kæri mig um að muna.

Strákarnir úr Gróttu voru til mikillar fyrirmyndar í alla staði, innan vallar sem utan. Það var allt gefið í leikina og stemningin í hópnum var frábær. Þess utan voru einfaldar reglur í heiðri hafðar og engin agabrot áttu sér stað. Strákarnir gætu þannig verið fyrirmynd atvinnumanna í knattspyrnu hvað aga varðar. Það hefði þótt merkilegt fyrir nokkrum áratugum síðan að geta haldið mót ungmenna á Benidorm, þar sem 4.000 unglingar af báðum kynjum væru saman komnir og ekkert kæmi uppá. En ungdómurinn er greinilega af meiri gæðum í dag en áður.

Þó að það hafi kostað mikla vinnu í fjáröflun og undirbúningi að senda lið á mótið þá var það svo sannarlega þess virði. Minningarnar af mótinu gleymast seint. Það voru forréttindi að fá að vera með jafn samstilltum og skemmtilegum hópi og Grótta sendi til leiks á Costa Blanca Cup. Heiðar Guðjónsson

3. flokkur karla á Costa Blanca Cup

Stelpur á stórmóti

Það var samstilltur hópur 26 stúlkna auk Bojönu og Péturs Rögnvalds þjálfara og liðstjóranna Hörpu og Lilju sem lagði af stað snemma morguns frá Keflavíkurflugvelli þann 25. júlí í sumar. Förinni var heitið til Hjörring í Danmörku á stórmótið Dana Cup þar sem yfir ellefu hundruð lið mæta til leiks og keppa í tæpa viku.

Opnunarhátíðin gleymist seint, þar sem stelpurnar ásamt öllum hinum liðum mótsins gengu hring um bæinn og inn á aðalleikvanginn. Þar sem Ísland var nýbúið að keppa á EM voru íslensku stelpurnar vinsælar og allir vildu heyra víkingaklappið og “HUH” sem þær gerðu með glæsibrag.

Við tefldum fram tveimur liðum sem hvort um sig spilaði 5-8 leiki. U13 ára liðið datt út í æsispennandi vítaspyrnukeppni sem var í senn erfitt og lærdómsríkt fyrir stelpurnar. U14 ára liðið fór alla leið í 8-liða úrslit mótsins sem er magnaður árangur enda yfir 70 lið sem tóku þátt í þeim aldursflokki. Grótta/KR mætti stórliði AIK í 8-liða úrslitunum, akademíuliði frá Stokkhólmi þar sem aðeins útvaldar stelpur fá að æfa. Okkar konur báru þó enga virðingu fyrir þeim sænsku og var staðan jöfn í hálfleik, 1-1. AIK hafði 3-1 sigur að lokum og endaði

á því að vinna til bronsverðlauna en árangur Gróttu/KR stelpna engu að síður frábær.

Leikgleði, einbeiting, sigurvilji og frábær liðsandi var það sem stóð upp úr hjá stelpunum sem höfðu tekið stórstígum framförum frá því í byrjun tímabils. Einnig var afar gaman að sjá hve vel hóparnar tveir frá Gróttu og KR höfðu blandast og stelpurnar orðnar góðar vinkonur og traustir liðsfélagar.

Hópurinn gisti í skóla rétt fyrir utan keppnissvæðið. Allt var samt í göngufæri og oft skapaðist skemmtileg stemning þegar haldið var í leikina, búið að “tjúnna” græjurnar í botn og lögin Djammæli og fleiri rapplög með Emmsjé Gauta glumdu á götum Hjörring.

Ýmislegt var til gamans gert þegar frí var frá boltanum. Farið var með lest til Álaborgar þar sem hópurinn skoðaði sig um og snæddi saman á veitingastað. Farup-skemmtigarðurinn sló sannarlega í gegn hjá stelpunum þar sem farið var í hin ýmsu tæki og síðan slappað af í sundlaugargarðinum. H&M búðin fékk góða heimsókn frá hópnum enda var skólinn að byrja og flestar vantaði eitthvað nýtt og fínt.

Ég get með sanni sagt að það hafi verið forréttindi að fá að vera fararstjóri í þessari mögnuðu ferð og upplifa með stelpunum að vera lið sem var komið á stórmót á erlendri grundu til þess að gera sitt besta. Stelpurnar úr Gróttu/KR til voru til mikillar fyrirmyndar og eiga framtíðina fyrir sér í fótbolta. Kveðja, Harpa.

3. flokkur Gróttu/KR á USA Cup

Grótta á ferð og flugi Kom heim með gullið

America, here we come!

Spennan var rafmögnuð laugardaginn 16. júlí þegar hvítklæddur hópur leikmanna, þjálfara og fararstjóra 3. flokks kvenna í Gróttu/KR steig upp í vél í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Förinni var heitið vestur um haf, nánar tiltekið til Minneapolis á USA Cup – stærsta fótboltamót í Ameríku.

Klassísk, gul skólarúta kom og sótti hópinn á flugvöllinn og keyrði með syngjandi liðið inn í borgina. Dvalið var á skemmtilegu hosteli fyrstu tvær næturnar. Raunar er húsið gamalt „mansion” sem hafði verið innréttað sem gististaður. Eftir að allir höfðu komið sér fyrir var haldið í stutta kvöldgöngu sem endaði á því að þrumur og eldingar hrelltu hópinn og hröktu hann heim á ný; lífsreynsla sem margir þekktu ekki frá landinu kalda.

Þegar hér var komið við sögu var laugardagskvöld en mótið sjálft hófst á þriðjudagsmorgni. Næstu dagar voru því notaðir í að venjast gífurlegum hitanum og að sjálfsögðu var hið margfræga Mall of America heimsótt, svona rétt til að kæla hópinn. Þar ráfuðu stelpurnar á milli þeirra 520 búða sem eru í verslunarmiðstöðinni og gerðu flestar góð kaup. Um kvöldið var hópnum svo boðið í grillveislu hjá vinafólki Evu Bjarkar og fjölskyldu. Móðir Evu, Elizabeth Nunberg, er einmitt frá Minneapolis og pabbi hennar, Kristján Schram var þar við nám á sínum yngri árum. Þau Elizabeth og Kristján skipulögðu ferðina að miklu leyti og voru hópnum til halds og trausts allan tímann. Óhætt er að segja að

aðstoð þeirra hafi verið ómetanleg og gert ferðina mun áhugaverðari en ella hefði verið.

Fram til sigurs Á mánudeginum færði hópurinn sig um set og kom sér fyrir á heimavistinni í University of Minnesota. Skólann sækja um 50 þúsund nemendur yfir vetrartímann og því var ekki mikið vandamál að hýsa þátttakendur USA cup á meðan á mótinu stóð. Spennan var farin að magnast, allir fóru snemma í háttinn enda fyrstu leikir daginn eftir.

Grótta/KR tefldi fram tveimur liðum á mótinu, einu í keppni U15 ára og öðru í keppni U16 ára. Bæði lið fóru afar vel af stað og eftir fyrstu tvo keppnisdagana voru lið Gróttu/KR búin að vinna alla sína leiki og það án þess að fá á sig mark! U16 ára liðið endaði svo riðlakeppnina með 9 stig en U15 ára liðið með 7 stig og því ljóst að bæði lið myndu leika í 8-liða úrslitum að morgni föstudags. Gaman er að segja frá því að fyrsti leikur U16 ára liðsins var sýndur í beinni útsendingu á vef mótsins. Fjölmargir foreldrar og aðrir vandamenn fylgdust með og hlustuðu á þulina gera heiðarlegar tilraunir til að bera fram föðurnöfn íslensku

stelpnanna þegar þeir lýstu leiknum.

Á föstudagsmorgni léku bæði lið í 8-liða úrslitum. Hitinn var óbærilegur, líklega um 35° C, og átti 15 ára liðið í vandræðum með að koma boltanum í netið gegn baráttuglöðum heimastúlkum í NSAA Fahrmann. Þrátt fyrir mikinn sóknarþunga Gróttu/KR stelpna tapaðist leikurinn 2-1 og gríðarleg vonbrigði að falla út eftir góða byrjun á mótinu. 16 ára liðinu tókst hins vegar að tryggja sér sæti í undanúrslitunum sem voru leikin eldsnemma á laugardagsmorgni.

Ævintýralegur lokadagur

Flautað var til undanúrslitaleiksins kl. 7 að morgni; já sérstakur leiktími, sem virtist leggjast eitthvað illa í okkar stelpur í fyrstu. Andstæðingarnir í LUFC Eagles tóku forystuna snemma leiks en Berta jafnaði leikinn rétt fyrir leikhlé með góðu marki. Í seinni hálfleik setti Grótta/KR þunga pressu á Ernina sem bar loks árangur þegar Sigga skoraði með sínum fræga vinstri fæti og braust út gífurlegur fögnuður þegar sæti í sjálfum úrslitaleiknum var í höfn. Haldið var á heimavistina til að hvíla sig fyrir úrslitin og

pakka ofan í tösku enda átti liðið að fljúga heim til Íslands að kvöldi úrslitadagsins.

Í hádeginu byrjaði svo ballið. Úrhelli, þrumur og eldingar og þegar stelpurnar mættu aftur upp á mótssvæðið var búið að draga svartan fána að húni. Það þýðir að ekki má spila fótbolta vegna hættu á eldingum sem eru náttúrulega banvænar ef ekki er farið með gát. Við tók löng og ströng bið. Gat það verið að stelpurnar yrðu að fara heim án þess að spila úrslitaleikinn? Myndi hópurinn kannski missa af flugvélinni?

Loks komu góðar fréttir og hægt var að hefja leikinn. Enn rigndi og áttu leikmenn erfitt með að fóta sig á blautum vellinum. Gróttu/KR stelpur voru sterkari aðilinn en lið St. Paul Blackhawks var ekki auðvelt viðureignar. Þegar skammt var liðið á seinni hálfleikinn flautaði dómarinn leikinn af. Aftur eldingahætta og allir hlupu í skjól.

Nú voru góð ráð dýr. Klukkan var orðin 15:00 og farið að styttast ískyggilega í flugið heim til Íslands. Til að auka möguleika stelpnanna á að klára leikinn fóru fararstjórar og leikmenn 15 ára liðsins upp í skóla til í að pakka ofan í töskur fyrir alla á meðan að 16 ára liðið beið ásamt þjálfurunum Magga og Alex. Um 16:00 kom símtal frá Margréti yfirfararstjóra þar

sem hún sagði Magga þjálfara að drífa sig með hópinn til baka, það var of stutt í flugið til að bíða lengur. Vonsvikinn Magnús hafði rétt lagt símann á þegar Alex kom aðvífandi, greinilega mikið niðri fyrir og sagði:. „Magnus we are going to penalties, we are going to penalties!!”. Eldingahættan var semsagt úr sögunni í bili og útkljá átti úrslitaleikinn með vítaspyrnukeppni.

Eftir smá geðshræringu yfir fréttunum tóku stelpurnar sér taki og fimm vítaskyttur gerðu sig klárar. Eftir að hvort lið hafði tekið fjórar spyrnur var staðan 2-1 fyrir Gróttu/KR og gat Guðrún fyrirliði því tryggt sigurinn með fimmtu spyrnunni. Þögn sló á mótssvæðið og leikmenn og áhorfendur biðu átekta. Guðrún stillti boltanum upp, dró djúpt andann og þrumaði upp í

markvinkilinn eins og sönnum fyrirliða sæmir. Leiknum var lokið og 3. flokkur Gróttu/KR hafði sigrað USA Cup! Gleðin sem braust út var mögnuð og svo mikil var stemningin að liðið fleygði sér í risastóran poll og hreinlega dansaði í rigningunni, eins og segir í laginu. Ævintýralegur endir á ævintýralegri ferð sem stelpurnar í 3. flokki munu aldrei gleyma. Það var jú eftir allt saman samstaðan í hópnum sem skilaði titlinum í hús því Grótta/KR hefði verið löngu búið að gefa úrslitaleikinn ef fararstjórar og aðrir leikmenn hefðu ekki tekið sig til og undirbúið heimför hópsins. Sælar og glaðar stukku stelpurnar upp í rútu og út á flugvöll komst hópurinn í tæka tíð. Það voru sigurvegarar sem sátu í mörgum sætum Flugleiðavélarinna frá Minnesota til Íslands þennan sumardag árið 2016.

Hágæða gervigras lagt á Vivaldivöllinn

Vivaldivöllurinn fékk heldur betur andlitslyftingu í sumar en skipt var um allt gervigras og undirlag á bæði á keppnis- og æfingavellinum. Gamla gervigrasið var komið nokkuð til ára sinna en það var lagt vorið 2006 og markaði þá þáttaskil í knattspyrnumálum Gróttu. Það var Seltjarnarnesbær sem stóð að framkvæmdinni og var sannarlega vandað til verka.

Framkvæmdir hófust í lok maí og tóku um hálfan annan mánuð. Þetta olli vitaskuld nokkurri truflun á starfsemi knattspyrnudeildar en heimavöllur meistaraflokks karla færðist t.a.m. tímabundið á gervigrasvöll Fram við Safamýri. Æfingar

færðust flestar á Valhúsavöll á Valhúsahæð, hinn stórgóða grasvöll Gróttu, auk þess sem sparkvellirnir við Lindarbraut og Mýrarhúsaskóla nýttust yngri flokkunum vel. Knattspyrnuskólinn flutti bækistöðvar sínar í íþróttahúsið en starfsmenn skólans

eiga heiður skilinn fyrir gott skipulag á framkvæmdatímanum.

Allt gekk þetta vel fyrir sig og veður setti ekki strik í reikninginn frekar en fyrri daginn á Seltjarnarnesi! Nýja gervigrasið situr á mýkra og betra undirlagi og er auk þess laust við dekkjakurl sem litar iðkendur og búnað, svo ekki sé minnst á möguleg heilsuspillandi áhrif þess. Ennfremur er grasið sjálft í hæsta gæðaflokki. Meiðslahætta er minni en á gamla grasinu og boltinn rúllar svipað og á náttúrulegu grasi.

Vígsla nýja gervigrassins fór fram að kvöldi hins 5. júlí þegar Njarðvíkingar komu í heimsókn í 2. deild karla og kom að sjálfsöðgu ekkert annað en sigur til greina í fyrsta leiknum sem lauk með 2-1 Gróttusigri.

Kobbi kveður eftir sjö ára starf

Í haust lét Bjarni Jakob Stefánsson af störfum sem vallarstjóri Gróttuvallar eftir að hafa gegnt því starfi frá opnun vallarhússins árið 2009. Kobbi vann gott starf fyrir knattspyrnudeildina en hann hafði afburða þekkingu á hitaveitukerfi gervigrasvallarins, svo eitthvað sé nefnt. Á uppskeruhátíð knattspyrnudeildar í haust var Bjarna Jakobi færð lítil gjöf og

Soffa í Pepsi-deildinni

Samstarf Gróttu og KR í kvennaboltanum er með miklum ágætum en frá haustinu 2013 hafa félögin tvö teflt fram sameiginlegum liðum í 2., 3. og 4. flokki kvenna. Þá hafa efnilegar Gróttustelpur fengið tækifæri til að æfa og spila með úrvalsdeildarliði KR en í sumar lék Sofia Elsie Guðmundsdóttir, eða Soffa eins og hún er oftast kölluð, 14 leiki með KR í Pepsi-deildinni. KR bjargaði sér með ævintýralegum hætti frá falli með því að vinna ÍA 3-2 í lokaumferðinni og mun því leika áfram í deild hinna bestu. Þessa dagana æfa bæði Soffa

og önnur Gróttustelpa, Guðfinna Kristín Björnsdóttir, með KR liðinu undir stjórn gömlu landsliðshetjunnar Eddu Garðarsdóttur. Í sumar kom upp annar vinkill á samstarfi félaganna tveggja þegar meistaraflokkur Gróttu fékk þær Petru Ósk Hafsteinsdóttur, Bjargeyju Ólafsdóttur og Eydísi Lilju Eysteinsdóttur að láni frá KR. Þremenningarnir fengu ekki mikinn spiltíma í Vesturbænum en komust allar í stórt hlutverk hjá Gróttuliðinu. Þær Bjargey og Eydís ákváðu að tímabili loknu að halda áfram í Gróttu á meðan Petra snýr til baka í KR reynslunni ríkari.

GRÓTTUFÓLK

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR

loks risu allir gestir úr sætum og hylltu fráfarandi vallarstjóra. Valdimar Ólafsson tók við vallarstjórastöðunni af Kobba en eftir aðeins nokkrar vikur í starfi varð Valdi fyrir því óláni að renna í hálku og mjaðmar- og handleggsbrotna. Gróttublaðið óskar Valda skjóts bata og vonar að hann muni snúa aftur til starfa sem fyrst.

Nýtt kaffihús á Eiðistorgi

Jón von Tetzchner, frumkvöðull og velunnari Gróttu, opnaði á haustmánuðum kaffihús á Eiðistorgi. Jón heldur því áfram að láta til sín taka í sínum gamla heimabæ en árið 2013 opnaði hann frumkvöðlasetrið Innovation House á Eiðistorgi og í fyrra keypti hann nafnið á Gróttuvelli sem heitir nú Vivaldivöllurinn, eftir hugbúnaðarfyrirtæki Jóns. Gróttublaðið hafði samband við Jón og spurði hann út í nýja kaffihúsið.

„Mig langar nú bara að byrja á að óska Gróttu til hamingju með árið sem er að líða. Mjög sterkt í alla staði og það er gaman að fylgjast með,” segir Jón áður en talið berst að nýja kaffihúsinu. „Mér fannst vanta þessa þjónustu á Seltjarnarnes. Þegar ég var barn, þá voru fleiri verslanir og sjoppur í bænum, sem nú eru farnar. Þannig vantaði ísbúð og kaffihús í okkar ágæta bæjarfélag. Mér finnst þetta passa vel við það sem við erum að gera á Eiðistorgi líka. Við höfum auðvitað Innovation House og nú höfum við fengið inn Hringbraut líka. Þannig vonast ég til að styrkja það sem má kalla miðbæ Seltjarnarness”.

Hvernig hafa viðtökurnar við kaffihúsinu verið? Nú hefur oft verið talað um Nesið sem „svefnbæ” þar sem lítið er um að vera, er það ekkert sem hræðir ykkur? „Viðtökurnar hafa verið mjög góðar.

Augljóslega hefur vantað þessa þjónustu og ég held að þetta komi til með að verða náttúrulegur staður fyrir Seltirninga að hittast. Held líka að það komi fleiri frá Reykjavík til að njóta þess sem við njótum á Nesinu. Frábært að fara í göngutúr eða sund og fá sér ís og kaffi á eftir! Svo má segja það sama um leikina. Gott að fá sér ís og kaffibolla eftir góðan leik á Vivaldivellinum”.

Innovation House Cafe hefur þá sérstöðu að allar vörur eru laktósafríar, þar með talið ísinn sem má fá í mörgum bragðtegundum. Við spyrjum hvort Jón og félagar hafi fundið fyrir mikilli eftirspurn fyrir laktósafríum veitingum?

„Það eru um 5% landsmanna sem finna fyrir óþoli. Oft er það þannig að einn í fjölskyldunni finnur fyrir þessu, en ekki aðrir, sem skapar vandamál þegar

fjölskyldumeðlimir koma saman. Nú geta allir notið þess að fá ís og kökur með kaffinu. Það er líka augljóst að allir geta notið þessarar vöru, ekki bara þeir með óþol,” segir Jón og heldur áfram að fræða blaðamann um laktósafríar vörur: „Margir hafa beðið eftir því að fá þennan möguleika á markaðinn, það má greina af viðbrögðum fólks á netinu. Það er mikill áhugi fyrir vörum frá Örnu yfirhöfuð. Margir hafa einnig fengið nóg af MS og vilja heldur vörur frá Örnu.”

Fyrst frumkvöðlasetur, svo Vivaldivöllurinn og nú kaffihús. Hvað næst. Jón – tökum við ekki bara yfir Reykjavík? „Við munum halda áfram að styðja bæjarfélagið eins vel og hægt er. Hringbraut er komin út á Nes og fleiri munu fylgja eftir.”

Það er óhætt að segja að kaffihúsið og ísbúðin sé skemmtileg viðbót við bæjarlífið á Nesinu og vonandi er Innovation House Cafe komið til að vera.

Gjafakort Bónus

VINSÆLASTA JÓLAGJÖFINÍBÓNUS

Gjafakortið fæst til afgreiðslu í öllum verslunum Bónus

GRÓTTUFÓLK

BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR

Agnes, Jóhann og fjölskylda á Eiðismýri 15

Alda sjóðir hf

Andrés, Eva, Bjöggi, Benni og Andrea

Ari, Stína, Katrín, Ísól og Katla í Kolbeinsmýri

Arna og Helgi

Arnar Freyr Gunnsteinsson

Atli Hrafn og Pétur Kári

Áfram Grótta! Helga Erlendsdóttir

Árni, Sigríður, Auður og Sólveig Katla

Bernhard Petersen

Bernódus, Kristín, Arnar, Þóra Birgit og Rut

Binni Bjarna

Birgir Tjörvi, Erla Kristín og fjölskylda

Bjarni og Jórunn María

Borghildur, Viðar og börnin í Grænumýri 3

Byggingameistarinn

Distica hf

Elín og Hjalti

Elín, Mangi, Elín Eir og Jón Agnar

Fjölskyldan á Bakkavör 5

Fjölskyldan á Barðaströnd 6

Fjölskyldan á Barðaströnd 9

Fjölskyldan á Barðaströnd 37

Fjölskyldan á Barðaströnd 41

Fjölskyldan á Barðaströnd 49

Fjölskyldan á Bollagörðum 15

Fjölskyldan á Bollagörðum 55

Fjölskyldan á Bollagörðum 87

Fjölskyldan á Bollagörðum 121

Fjölskyldan á Eiðismýri 14

Fjölskyldan á Grænumýri 24

Fjölskyldan á Látraströnd 15

Fjölskyldan á Látraströnd 22

Fjölskyldan á Melabraut 6

Fjölskyldan á Melabraut 7

Fjölskyldan á Miðbraut 25a

Fjölskyldan á Nesbala 17

Fjölskyldan á Nesbala 30

Fjölskyldan á Nesbala 72

Fjölskyldan á Nesbala 108

Fjölskyldan á Nesbala 110

Fjölskyldan á Nesbala 114

Fjölskyldan á Nesvegi 109

Fjölskyldan á Selbraut 8

Fjölskyldan á Selbraut 34

Fjölskyldan á Selbraut 70

Fjölskyldan á Selbraut 74

Fjölskyldan á Skerjabraut 3a

Fjölskyldan á Sólbraut 15

Fjölskyldan á Suðurmýri 22

Fjölskyldan á Sævargörðum 8

Fjölskyldan á Tjarnarmýri 18

Fjölskyldan á Tjarnarmýri 21

Fjölskyldan á Valhúsabraut 17

Fjölskyldan á Vesturströnd 5

Fjölskyldan á Vesturströnd 16

Fjölskyldan á Vesturströnd 23

Franz Ploder

Gróttu-Gaggi og fjölskylda

Gummi, Kaja og börn

HárSaga

Helgi Þórðarson og Auður Atladóttir

Jólakveðja frá Nesbala 24

Jónmundur og Sveinn

Kári Garðarsson

Kristín Sif, Viktor Orri og Aþena Mist

Kristján Þór og Jón Friðrik

Kristján, Elín, Tinna og Egill

Kveðja frá Bakkavör 32

Lögvörn

Margrét Lind og Jóhann Pétur Nesbón

Nesvinir - í 90 ár

Ólafur Garðarsson og fjölskylda á Nesbala 94

Ólafur Johnson

Ólöf Línberg Kristjánsdóttir

Óskar, Lilja, Arnór og Alexander Aron

Pétur Árnason, Jósef Ari Pétursson, Daníel Lei Pétursson og Xiaoqing Lei

Pétur og Eydís Lilja

Rögnvaldur Dofri og Sigríður Björk

Saga, Matti, Halli, Daníel, Tómas og Eva

Salka, Embla og Mirra

Sigrún Edda, Egill, Sigurður, Ragnheiður og Jón Lárus

Steini Steina ehf, parketþjónusta o.fl

Stelpurnar á Nesbala 76

Sölvi Snær og fjölskylda

Vesturport

Framtíðin er björt

Frábært knattspyrnuár er senn að baki. Landsliðunum okkar hefur vegnað frábærlega og hafa þau skrifað nýjan kafla í knattspyrnusögu Íslendinga. Sama er uppi á teningnum á Seltjarnarnesi með stofnun meistaraflokks kvenna hjá Gróttu og góðum árangri strákanna sem tryggðu sér sæti í Inkasso-deildinni að ári. Þá varð góð aðstaða knattspyrnudeildar enn betri með endurnýjun á gervigrasi Vivaldivallarins. Gróttufólk getur verið stolt og hlakkað til framtíðarinnar.

Rjómablíða og fótbolti er það sem stendur upp úr á liðnu sumri hjá undirrituðum. Ég sá og myndaði tugi Gróttuleikja, allt frá meistaraflokki og niður í yngstu flokka á stóru sumarmótunum. Ég lagði oft land undir fót og myndaði t.a.m. á TMmótinu og Orkumótinu í Eyjum og tveimur mótum á Selfossi. Ekki má gleyma stóru mótunum sem fara fram á höfuðborgarsvæðinu en þar standa Símamótið, Rey Cup og fleiri upp úr í minningunni. Ég er svo heppinn að hafa séð mörg þessara móta nokkur ár í röð og þróunin er jafnan á sama veg – umgjörð og gæði batna ár frá ári og eru mótshöldurum og þátttakendum til mikils sóma.

Landsliðin okkar voru heldur betur í eldlínunni og skilja eftir ljúfar minningar. Árangur strákanna í Frakklandi fór fram úr björtustu vonum og frábær stuðningur tugþúsunda íslenskra stuðningsmanna vakti athygli um allan heim og var mjög til að auka hróður íslenskrar knattspyrnu. Stelpurnar náðu

óviðjafnanlegum árangri í forkeppni fyrir Evrópumótið í Hollandi næsta sumar og er farið yfir það í ítarlegu viðtali við þjálfara liðsins, þá Frey Alexandersson og Gróttugoðsögnina Ásmund Haraldsson.

Fyrri hluta sumars varð nokkur röskun á starfi knattspyrnudeildar þegar hafist var handa við að endurnýja gervigrasið á Vivaldivellinum við Suðurströnd. Meistaraflokkur karla fékk tímabundið heimili á gervigrasvelli Fram við Safamýri og æfingar færðust á Valhúsahæð og sparkvelli bæjarins. Gróttufólk miklaði ekki fyrir sér að mæta í Safamýrina auk þess sem stjórnarmenn knattspyrnudeildar breyttu bílum sínum í forláta sjoppur með kaffi og tilheyrandi. Algjörlega til fyrirmyndar því stóru tannhjólin í gangverki íþróttastarfs á Íslandi eru fólgin í framlagi sem þessu. Annar flokkur kvenna hjá Gróttu/ KR/Þrótti gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari í B-deild auk þess sem hinn nýstofnaði meistaraflokkur kvenna steig sín fyrstu skref í 1. deild

Íslandsmótsins. Meistaraflokkur karla varð Lengjubikarmeistari í vor og gerði sér svo lítið fyrir og vann sig upp um deild eftir spennandi keppnistímabil í 2. deildinni. Fjórði flokkur kvenna hjá Gróttu/KR komst í 8 liða úrslit á Dana Cup og stelpurnar í 3. flokki unnu USA Cup eftir mikinn hasar. Loks má ekki gleyma flottum sigri 5. flokks karla í B-liðakeppni N1-mótsins á Akureyri. Stelpum heldur áfram að fjölga í yngri flokkum og er engin ástæða til annars en áframhaldandi bjartsýni í þeim efnum.

Eins og í fyrra vil ég þakka Magnúsi Erni Helgasyni ómetanlega aðstoð við vinnslu blaðsins. Jafnframt hvet ég foreldra iðkenda og stuðningsmenn

Gróttu til að leggja hönd á plóg í starfi knattspyrnudeildar því margar hendur vinna létt verk. Gleðileg jól og farsælt komandi ár!

Ritstjóri Gróttublaðsins 2016 Eyjólfur Garðarsson

Útgefandi: Knattspyrnudeild Gróttu. Ritstjórn og myndir: Eyjólfur Garðarsson o.fl.

Prófarkalestur: Magnús Örn Helgason. Útlit, umbrot og forsíða: Kristján Þór Árnason / dagsverk.is Prentun: Prenttækni.

Tómstundastyrkir

Árlega er gerð rannsókn á högum og líðan íslenskra ungmenna. Nemendur svara ítarlegum spurningum sem unnar eru af fyrirtækinu Rannsókn og greining en fyrirtækið sérhæfir sig í rannsóknum á málefnum ungs fólks.

Fram kemur m.a. í niðurstöðum rannsóknarinnar:

Öflugt íþrótta- og tómstundastarf

Súluritið sýnir hversu hátt hlutfall nemenda

á Seltjarnarnesi eru virkir í íþróttastarfi.

Kemur meðal annars fram að 85% stráka í 10. bekk og 68% stúlkna í 9. bekk eru virk í íþróttastarfi, en það er talsvert hærra hlutfall en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu og ef miðað er við meðaltal á landsvísu.

frá 1. janúar 2017

verða kr. 50.000.-

Tómstundastyrkirnir eru fyrir börn og unglinga

á aldrinum 6-18 ára.

Nánari upplýsingar um styrkinn eru á heimasíðu bæjarins www.seltjarnarnes.is

Hlutfall nemenda í 8., 9. og 10. bekk sem segjast stunda íþróttir (æfa eða keppa) með íþróttafélagi fjórum sinnum í viku eða oftar, árið 2014

Seltjarnarnes Höfuðborgarsvæðið Landsmeðaltal

Áfram Grótta!

Foreldrar barna á aldrinum 6 til 18 ára eru minntir á að skila inn umsóknum um tómstundastyrki fyrir börn sín sem stunda skipulagt tómstundastarf. Bent er á að árlega þarf að sækja um tómstundastyrki.

Styrkurinn fyrnist um áramót. Ekki er hægt að sækja um ónýttan styrk frá fyrra ári.

Fyrir þau börn sem stunda íþróttir hjá Gróttu eða tónlistarnám hjá Tónlistarskóla

Seltjarnarness þarf ekki að skila inn staðfestingu á greiðslu/kvittun.

Áfram Grótta!

Orkan óskar iðkendum og stuðningsmönnum

Gróttu gleðilegra jóla og þakkar fyrir samstarfið

á árinu sem er að líða.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.