

Gróttublaðið 2015
Jólarit knattspyrnudeildar
Tómstundastyrkir
Árlega er gerð rannsókn á högum og líðan íslenskra ungmenna. Nemendur svara ítarlegum spurningum sem unnar eru af fyrirtækinu Rannsókn og greining en fyrirtækið sérhæfir sig í rannsóknum á málefnum ungs fólks.
Fram kemur m.a. í niðurstöðum rannsóknarinnar:
Öflugt íþrótta- og tómstundastarf
Súluritið sýnir hversu hátt hlutfall nemenda á Seltjarnarnesi eru virkir í íþróttastarfi.
Kemur meðal annars fram að 85% stráka í 10. bekk og 68% stúlkna í 9. bekk eru virk í íþróttastarfi, en það er talsvert hærra hlutfall en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu og ef miðað er við meðaltal á landsvísu.
frá 1. janúar 2016
verða kr. 50.000.-
Tómstundastyrkirnir eru fyrir börn og unglinga
á aldrinum 6-18 ára.
Nánari upplýsingar um styrkinn eru á heimasíðu bæjarins www.seltjarnarnes.is

Hlutfall nemenda í 8., 9. og 10. bekk sem segjast stunda íþróttir (æfa eða keppa) með íþróttafélagi fjórum sinnum í viku eða oftar, árið 2014
Seltjarnarnes Höfuðborgarsvæðið Landsmeðaltal
Áfram Grótta!
Foreldrar barna á aldrinum 6 til 18 ára eru minntir á að skila inn umsóknum um tómstundastyrki fyrir börn sín sem stunda skipulagt tómstundastarf.
Bent er á að árlega þarf að sækja um tómstundastyrki.
Styrkurinn fyrnist um áramót. Ekki er hægt að sækja um ónýttan styrk frá fyrra ári.
Fyrir þau börn sem stunda íþróttir hjá Gróttu eða tónlistarnám hjá Tónlistarskóla
Seltjarnarness þarf ekki að skila inn staðfestingu á greiðslu/kvittun.



Kæra Gróttufólk
Jólablað knattspyrnudeildar er að koma út fimmta árið í röð og er stjórnin mjög stolt af blaðinu í ár. Í blaðinu er fjallað um starf deildarinnar í máli og myndum allt, frá yngstu krökkunum í 8. flokki og upp í meistaraflokk.
Stelpurnar í Gróttu halda áfram frumkvöðlastarfi sínu í boltanum og iðkendum heldur áfram að fjölga í öllum kvennaflokkum. Farsælt samstarf við KR í 11-manna boltanum hefur nú gengið í rúmlega tvö ár og ríkir mikil ánægja með það hjá báðum félögum. Þessi uppbygging í yngri flokkum gerir okkur kleift að hefja undirbúning að stofnun meistaraflokks kvenna hjá Gróttu en nýlega var skipað sérstakt kvennaráð til þess að halda utan um verkefnið.
Það eru spennandi tímar framundan við að byggja upp meistaraflokk karla á ungum og efnilegum leikmönnum sem eru uppaldir í Gróttu. Úlfur Blandon hefur verið ráðin þjálfari meistaraflokks karla og honum til aðstoðar verður Ásgeir Aron Ásgeirsson sem á að baki farsælan ferill sem leikmaður með Fjölni og ÍBV. Nýlega var skrifað undir tveggja ára samninga við nokkra unga og efnilega Gróttumenn. Flestir þeirra hafa gegnt lykilhlutverki í öflugum 2. flokki karla síðustu tvö tímabil en við hópinn bættist svo Pétur Steinn Þorsteinnsson sem er komin aftur heim eftir rúmlega



árs dvöl hjá AIK í Svíþjóð. Stemningin í meistaraflokknum er góð og vonandi munu bæjarbúar flykkjast á völlinn næsta sumar og styðja við bakið á þessum lofandi leikmönnum.
Yngri flokkar Gróttu blómstra áfram undir styrkri stjórn Magnúsar Arnar Helgasonar yfirþjálfara og er mikil stemning hjá 280 iðkendum í öllum flokkum. Þjálfarateymið hefur sjaldan verið öflugra og það er mikill metnaður og kraftur í starfi yngri flokkanna. Yngstu iðkendurnir eru sóttir á leikskólann á æfingar en það fyrirkomulag hefur slegið í gegn og þátttaka í 8. flokki aldrei verið meiri. Bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi hafa verið gríðarlega öflug í að styðja við íþróttastarf ungs fólks með styrkjum og fjárfestingum til betri aðstöðu til íþróttaiðkunnar. Nýjustu tölur um þátttöku íslenskra barna og unglinga í íþróttum eru langhæstar hér á Seltjarnarnesinu eða allt að 85% þátttaka sem gæti verið heimsmet. Núna er í farvatninu að skipta um gervigras á Vivaldivellinum og ætlar bærinn að vanda til verksins og notast við bestu efni og undirlag sem völ er á.
GRÓTTUFÓLK



Stjórnin þakkar þjálfurum og foreldrum fyrir ómetanlegt starf í þágu deildarinnar á þessu ári. Einnig þakkar stjórnin Seltjarnarnesbæ og ÍTS fyrir samstarf og stuðning við starf deildarinnar á árinu og ekki síst okkar farsæla bæjarstjóra, Ásgerði Halldórsdóttur, sem mætir á nánast alla leiki og á stóran þátt í velgengni Gróttu í öllum deildum. Að lokum vill stjórnin þakka þeim fyrirtækjum sem auglýsa í jólablaði knattspyrnudeildar og við hvetjum alla Seltirninga til að beina viðskiptum sínum fyrir jólin til þessara glæsilegu fyrirtækja. Stjórnin óskar öllum Seltirningum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Með Gróttu jólakveðju, Stjórn knattspyrnudeildar




Útgefandi: Knattspyrnudeild Gróttu. Ritstjórn og myndir: Eyjólfur Garðarsson o.fl. Prófarkalestur: Magnús Örn Helgason. Útlit, umbrot og forsíða: Kristján Þór Árnason / dagsverk.is Prentun: Prenttækni.












FÓTBOLTASUMARIÐ
8. flokkur karla
Björn Breiðfjörð Valdimarsson Fyrstu skrefin
Áttundi flokkur karla byrjaði af krafti seinasta vetur, um það bil 28 strákar voru skráðir frá byrjun og bættist í þann fjölda eftir því sem leið á árið. Flokkurinn æfði einu sinni í viku yfir veturinn í Íþróttahúsinu og var vel mætt á allar æfingar sem voru haldnar á laugardagsmorgnum.
Þegar sumarið nálgaðist færðust æfingarnar út og voru strákarnir þá sóttir á leikskólann á miðvikudögum og æfðu á gervigrasinu á Vivaldivellinum. Hópurinn fór á þrjú mót og stóðu strákarnir sig eins og hetjur en þrátt fyrir ungan aldur tókst þeim að spila boltanum frábærlega á milli sín og skemmtu sér konunglega á meðan!
8. flokkur kvenna
Björn Breiðfjörð Valdimarsson Árangursríkt
7. flokkur karla
Bjarki Már Ólafsson
Lestur og skrift fótboltans
Það var verkefni þeirra Bjarka Más Ólafssonar og Björns Breiðfjörð Valdimarssonar að byggja ofan eigin vinnu úr 8. flokki árið á undan. Í 7. flokki æfði flottur hópur sem skemmtilegt var að vinna með. Mikil áhersla var lögð á að vinna í grunntækni strákanna en henni má að vissu leyti líkja við lestur og skrift. Árangur næst ekki án þess að ná valdi á slíkum undirstöðuatriðum!

samstarf
Áttundi flokkur kvenna var stofnaður á síðasta tímabili en áður höfðu strákar og stelpur á þessum aldri æft saman. Við þessa skiptingu fjölgaði stelpum á leikskólaaldri mjög og æfðu um 20 stelpur reglulega á tímabilinu. Tilraunaverkefni Gróttu og leikskólans fór af stað þar sem stelpurnar voru sóttar á leikskólann einu sinni í viku til að fara á æfingu í íþróttahúsinu. Þetta fyrirkomulag mældist svo vel fyrir að samstarfið hefur færst í aukana eins og fjallað er nánar um í blaðinu.
Farið var á tvö mót í sumar og var ótrúlegt var að sjá hversu færar stelpurnar voru orðnar þrátt fyrir að flestar hafi ekki verið mikið í fótbolta áður en æfingar hófust. Mikil gleði og hressleiki fylgdi hópnum en flestar eru nú komnar á fullt í á yngra ári í 7. flokki

Strákarnir voru um 35 og sýndu mikla elju og dugnað. Markmið þjálfaranna náðust að verulegu leyti en merkja mátti miklar framfarir í grunntækni og áhuginn óx stöðugt. Til merkis um það voru strákarnir mikið á Vivaldivellinum utan æfingatíma að æfa „trix“ vikunnar.
Flokkurinn fór á sjö mót og hafði það góð áhrif á áhugahvöt strákanna. Hápunktur tímabilsins var vafalítið „gistiæfingin“ fyrir Norðurálsmótið en margir drengjanna voru þá að gista að heiman í fyrsta skipti. Var sá þáttur því æfður sérstaklega áður en haldið var á Skagann. Hópurinn var flottur og þjálfararnir bera honum vel söguna. Þá voru foreldrar sérlega áhugasamir og duglegir að leggja hönd á plóg en það ætti að gefa strákunum byr undir báða vængi í framtíðinni.
a.m.k. til að byrja með. Hópurinn stækkaði sem leið á tímabilið og taldi í lok sumars um 20 stelpur. Áhuginn jókst stöðugt og sýndu stelpurnar miklar framfarir. Foreldrahópurinn var ekki síðri en stelpurnar en þau hjálpuðu þjálfurum mikið við að halda uppi góðum liðsanda, t.d. með því að halda náttfatapartý og bjóða upp á piparkökuskreytingar.
Á heildina litið var sumarið mjög skemmtilegt en nokkrir hlutir stóðu upp úr. Í lok maí gistu stelpurnar með þjálfurum sínum og tveimur mömmum í íþróttahúsinu og sló það rækilega í gegn. Gistingin var fyrst og fremst hugsuð sem æfing fyrir fyrsta gistimót stelpnanna en þær héldu ásamt stöllum sínum í 6. flokki á Króksmótið í lok júní.
Um miðjan júlí hélt flokkurinn á hið fræga Símamót og var það stelpunum mikið tilhlökkunarefni. Foreldrar, þjálfarar og þátttakendur hófu veisluna á sameiginlegu Gróttugrilli í brakandi blíðu á Vivaldivellinum þar sem 5. og 6. flokkur, sem einnig tóku þátt í mótinu, voru með. Keppni stóð frá föstudegi til sunnudags og skemmtu allir sér vel. Mikil fjölgun hefur verið í yngstu flokkum stelpna hjá félaginu og greinilegt að framtíðin er björt í kvennafótboltanum hjá Gróttu.

6. flokkur karla
Pétur Már Harðarson
Bikar í Eyjum
7. flokkur kvenna
Jórunn María Þorsteinsdóttir og Pétur Rögnvaldsson Fjölgun og framfarir

Stelpurnar hófu æfingar í september undir stjórn Magnúsar Arnar Helgasonar yfirþjálfara en þegar leið á veturinn tóku þau Jórunn María Þorsteinsdóttir og Pétur Rögnvaldsson við keflinu. Meirihluti hópsins hafði aldrei æft fótbolta áður og mættu stelpurnar því oftar í kjólum en íþróttaklæðnaði á æfingar,
Rúmlega 30 drengir hófu æfingar hjá 6. flokki karla haustið 2014 og mátti sjá strax að hér var saman kominn hópur af áhugasömum og skemmtilegum knattspyrnumönnum. Eftir langan vetur þar sem farið var á nokkur
æfingamót og nokkrir æfingaleikir
spilaðir kom sumarið loksins. Í lok júní var komið að stóru stundinni

2015
þegar lagt var af stað til Eyja með fjögur lið á Orkumótið (já, Shellmótið hefur skipt um nafn!). Drengirnir stóðu sig með mikilli prýði þar sem öll lið unnu einhverja leiki en töpuðu vitaskuld einnig. Drengirnir voru sjálfum sér og Gróttu til sóma á mótinu þar sem hápunkturinn var viðurkenning fyrir háttvísi innan vallar. Þá gerði lið 3 sér lítið fyrir og hampaði Eldfellsbikarnum eftir æsispennandi úrslitaleik.
Einnig tók flokkurinn þátt í Íslandsmótinu í fimm manna bolta þar sem öll lið spiluðu vel og komst lið 3 áfram í úrslitakeppnina þar sem það endaði í 3 sæti. Knattspyrnuárið 20142015 var virkilega skemmtilegt og mátti sjá miklar framfarir hjá hópnum yfir árið og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni. Framtíðin er björt í knattspyrnunni hjá Gróttu með öflugum iðkendum, frábærum foreldrum og góðu innra starfi féagsins.
6. flokkur kvenna
Bjarki Már Ólafsson
Rómuð
mikillar fyrirmyndar. Ekki vantar efniviðinn og ljóst er að þarna leynast gríðarlega efnilegar fótboltastelpur.
5. flokkur karla
Magnús Örn Helgason
Bronsverðlaun og úrslitakeppni
Það voru 35 strákar sem hófu leik í 5. flokki haustið 2014 og 38 sem skipuðu flokkinn við lok tímabilsins. Magnús Örn Helgason var þjálfari flokksins en honum til aðstoðar voru þeir Pétur Már Harðarson og Kristján Daði Finnbjörnsson. Drengirnir voru til mikillar fyrirmyndar allt árið.

spilamennska
Tímablið í 6. flokki kvenna var frábært en þar æfðu rúmlega 20 stelpur undir stjórn Bjarka Más og Jórunnar Maríu. Helstu áherslur og markmið voru að skerpa á grunntækni leikmanna og að auka leikskilning og segja má að þau hafi náðst með glæsibrag. Hópurinn samanstóð af stelpum fæddum 2005 og 2006 og var töluverður munur á getu leikmanna svo hann vóg þungt í skiptingu liða. Með því móti fengu stelpurnar allar áskoranir við hæfi þar sem margar voru að stíga sín fyrstu skref í fótbolta meðan aðrar voru mun lengra komnar.
Flokkurinn tók þátt í sjö mótum og var upplifunin af þeim nokkuð misjöfn. Þær sem skemmra voru á veg komnar áttu oft við ramman reip að draga á meðan þær lengra komnu áttu, skiljanlega, auðveldara uppdráttar. Minningarnar af Króksmótinu og Símamótinu standa upp úr og foreldrarnir létu sannarlega ekki sitt eftir liggja en stuðningur þeirra og aðstoð var ómetanleg.
A-lið flokksins gerði sér lítið fyrir og lék til úrslita á Símamótinu, fyrst allra Gróttuliða á stóru sumarmótunum. Spilamennska Gróttustelpnanna var rómuð af öllum þeim sem fylgdust með enda var skipulag og samspil til
Lögðu hart að sér við æfingar, tileinkuðu sér gott hugarfar innan sem utan vallar og tóku miklum framförum sem knattspyrnumenn.
N1-mótið var haldið á Akureyri venju samkvæmt í júlí en þar gerðu lið Gróttu 2 og Gróttu 3 sér lítið fyrir og unnu til bronsverðlauna eftir frábæra frammistöðu. Davíð Ingi Másson var valinn markvörður mótsins í keppni E-liða en margir aðrir Gróttumenn áttu frábært mót. Gróttuhópurinn fór einnig á skemmtilegt
Olísmót á Selfossi í ágúst og svo var spilað á Íslandsmóti reglulega yfir sumarið. Þar komst A-lið Gróttu alla leið í úrslitakeppni Íslandsmótins þar sem strákarnir öttu kappi við nokkur af bestu liðum landsins. Þrátt fyrir að hafa ekki komist í undanúrslit voru þjálfarar og aðstandendur stoltir af drengjunum sem sýndu á köflun frábæra takta og sönnuðu fyrir sér og öðrum hve góðir þeir geta verið. Frábært tímabil í alla staði hjá góðum hópi drengja.
5. flokkur kvenna
Bjarki Már Ólafsson
Bullandi stemning
Stemmningin í flokknum var í einu orði sagt frábær. Stelpurnar sýndu mikla leikgleði og áttu greinilega ekki langt að sækja hana því foreldrarnir gáfu þeim lítið eftir. Bjarki vill koma á framfæri sérstökum þökkum til Siggu Sigmars fyrir ósérhlífið framlag og ýmiss konar hjálp og stúss á tímabilinu. Takk Sigga!
Tímabilið var mjög lærdómsríkt fyrir leikmannahópinn og þjálfara. Gerðar voru umtalsverðar kröfur til stelpnanna sem þær
stóðust með glæsibrag. Fyrstu vikurnar og mánuði mættu stelpurnar helst til afslappaðar til leiks en eftir tæknilega yfirhalningu og áherslu á aga og festu var allt annað sjá til þeirra. Keppnin og krafturinn jókst með hverri vikunni og sömuleiðis tileiknuðu stelpurnar sér leikfræðilegar áherslur eins og liðspressu, völdun og sóknarfærslur.
Íslandsmótið hefði mátt fara betur hvað úrslit varðar en sem leið á tímabilið náðu stelpurnar meiri stjórn á þeim áherslum sem unnið var með. Góð ástundun stelpnanna á ekki sístan þátt í þeim miklu framförum sem þær sýndu og stuðningurinn heima spilaði sömuleiðis stórt hlutverk. Mæting foreldra á leiki og samheldnin í foreldrahópnum var einstök og til mikillar fyrirmyndar.
4. flokkur karla
Valdimar Stefánsson Frábær seinni hluti
Um 17 manna kjarni æfði með 4. flokki karla á árinu undir stjórn Valdimars Stefánssonar og Árna Guðmundssonar. Æfingar gengu vel á undirbúningstímabilinu þó að markmannsleysi setti oft á tíðum strik í reikninginn. Íslandsmótið hófst með látum í maí og þrátt fyrir að spila fínan fótbolta létu sigrarnir bíða eftir sér. Gróttuliðið var oft á tíðum skipað 8-9 strákum af yngra ári og eins og gefur að skilja var líkamlegur munur stundum mikill. Reynslan þó frábær fyrir drengina sem koma öflugri fyrir vikið á eldra árið.

Eftir að hafa tapað fyrstu fjórum leikjum sumarsins fóru hlutirnir að smella betur saman hjá Gróttumönnum. Tveir sigrar, þrjú jafntefli og eitt tap niðurstaðan í júlí og ágúst og frábærar framfarir hjá liðinu. Þó að Gróttumenn hafi ekki endað ofarlega í deildinni var spilamennska liðsins oft á tíðum til fyrirmyndar og mun það koma strákunum til góða í framtíðinni.
FÓTBOLTASUMARIÐ 2015
4. flokkur kvenna
Magnús Örn Helgason
Markasúpur og sóknarbolti
Farsælt samstarf Gróttu og KR í kvennaboltanum heldur áfram en glæsilegur 30 manna hópur æfði í 4. flokki á árinu. Magnús Örn Helgason þjálfaði flokkinn, fyrst með Margréti Þórisdóttur sem þurfti frá að hverfa í apríl en í hennar stað kom Spánverjinn Alexandre Massot sem nú er orðinn fastráðinn hjá Gróttu/KR og KR.

Æft var af kappi yfir veturinn og viðburðaríkt fótboltasumar undirbúið. B-liðið bar höfuð og herðar yfir önnur lið í sínum riðli á Íslandsmótinu og komst alla leið í úrslitakeppni B-liða. Þar voru FH og Víkingur sterkari á svellinu en engu að síður flott frammistaða hjá stelpunum. A-liðið var án nokkurs vafa með öflugri liðum í sínum riðli en því miður fóru stelpurnar illa að ráði sínu í nokkrum leikjum og misstu því af sæti í úrslitakeppnini.
Hins vegar spiluðu Gróttu/KR stelpurnar nokkra stórkostlega leiki þar sem blússandi sóknarleikur réði för og ljóst að ofan á það er hægt að byggja. Efst í minningunni lifir magnaður 8-5 sigur á Fram/Aftureldingu þar sem nánast allt gekk upp í sóknarleiknum og stemningin á áhorfendapöllunum var rafmögnuð. Eldra árið fór í góða ferð á Dana Cup sem nánar er fjallað um á síðum þessa Gróttublaðs. Yngra árið fór í júlí í skemmtilega æfinga- og keppnisferð á Flúðir þar sem margt skemmtilegt ver gert ásamt því að spila fótbolta.
3. flokkur karla
Valdimar Stefánsson
Skin og skúrir
Þéttur hópur æfði undir stjórn Valdimars Stefánssonar og Árna Guðmundssonar á árinu. Hópurinn var ekki stór en drengirnir sýndu mikla elju á tímabilinu og lögðu hart að sér þrátt fyrir að stundum hafi verið fámennt á æfingum. Undirbúningstímabilið gekk vel og þróaðist leikur liðsins jafnt og þétt eftir því sem leið á veturinn og vorið.
Íslandsmótið hófst á góðum heimasigri á móti Grindavík en þá tók við 5 leikja taphrina þar sem fátt gekk upp hjá Gróttumönnum. Taflið snerist svo sannarlega við í Breiðholtinu þann 17. júlí þegar Grótta sótti firnasterkt lið ÍR/Leiknis heim. Jóhann Hrafn kom Gróttu yfir snemma leiks og átti liðið glæsilegan fyrri hálfleik. Í þeim síðari sóttu Breiðhyltingar í sig veðrið en Grótta náði með miklum dugnaði og góðu skipulagi að sigla heim sterkum 1-0 sigri. Eftir þennan flotta leik lék Gróttuliðið á als oddi og vann næstu þrjá leiki með markatölunni 25-1, ótrúlegar tölur! Þegar upp var staðið endaði Grótta í 3. sæti riðilsins og þar með einu sæti frá umspili. Flottur seinni hluti sýndi strákunum hvað í þeim býr og gefur gott veganesti inn í næstu skref í boltanum.
2. flokkur karla
Jens Sævarsson Í fullorðinna manna tölu
Annar flokkur karla hóf undirbúningstímabilið í nóvember 2014 eftir gott frí og marga stóra sigra sumarið 2014. Gríðarlegur fjöldi drengja æfði af krafti en hópurinn taldi um 35 leikmenn. Strax á fyrstu mánuðum sáum við þjálfararnir gífurlega hugarfarsbreytingu og það var augljóst að drengirnir ætluðu að selja sig dýrt til þess að bæta sig sem leikmenn og þroskast sem einstaklingar. Allir eiga þeir heiður skilinn.

3. flokkur kvenna
Bojana Besic
Lið með stórt hjarta
Átján stelpur æfðu með 3. flokki kvenna hjá sameiginlegu liði Gróttu/KR á árinu. Stelpurnar æfðu vel um veturinn og tefldu fram tveimur liðum í Reykjavíkurmótinu. Íslandsmótið byrjaði erfiðlega og fyrsti sigurinn lét bíða eftir sér. Þrátt fyrir að brekkan hafi verið brött í mörgum leikjum stóð hópurinn þétt saman og lét aldrei deigan síga. Stelpurnar mættu vel á æfingar, tóku vel og því og voru alltaf tilbúnar að bæta sig og læra.
Hápunktur sumarsins var vafalaust Rey Cup í Laugardal sem fór fram í lok júlí. Gróttu/ KR liðið tók þar þátt í B-liða keppni og nældi í bronsverðlaun eftir nokkra glæsilega leiki og góða spilamennsku. Á Rey Cup er margt skemmtilegt gert utan fótboltans en stelpurnar tóku þátt í stuðinu á Rey Cup ballinu og gistu saman fyrir annan keppnisdag. Um morguninn mættu nokkrir foreldrar á svæðið og útbjuggu frábæran morgunmat fyrir liðið en kvöldið áður hafði kvennaráð KR boðið í mat.

Margar stelpur fengu tækifæri til að spila með 2. flokki á tímabilinu og tveir leikmenn spiluðu í Pepsi-deildinni. Annar þeirra, Ásdís Karen Halldórsdóttir, komst svo í lokahóp U-17 ára landsliðsins og spilaði með liðinu á Norðurlandamótinu og í undankeppni EM.
Spilaðir voru fjölmargir æfingaleikir, þá aðallega gegn liðum sem þóttu á pappír sterkari en við, þar á meðal gegn meistaraflokksliðum í neðri deildum. Fjöldi leikmanna tók þátt í verkefnum með meistaraflokki Gróttu og þorir undirritaður að fullyrða að hvergi annars staðar á Íslandi hafi jafnmargir drengir á 2. flokks aldri æft og tekið þátt í verkefnum meistaraflokks eins og raun bar vitni hjá Gróttu síðasta vetur.
Hápunktur undirbúningstímabilsins var svo æfingaferð til London en lesa má nánar um hana annars staðar í blaðinu.
Íslandsmótið hófst með látum og voru úrslitin upp og ofan en allt er gott sem endar vel. Drengirnir stóðu sig með prýði og enduðu mótið um miðja deild.
Allt í þessu lífi tekur enda og að sumri loknu skildu leiðir og undirritaður sagði skilið við Gróttu. Árin tvö með þessum flottu strákum voru einstaklega skemmtileg og lærdómsrík, bæði fyrir mig og leikmennina.
Við lærðum að kalla okkur sigurvegara.
Við lærðum að vinna okkur út úr mótlæti. Við lærðum að með samstöðu, dugnaði, elju, aga og skipulagi eru okkur allir vegir færir.
Ég, undirritaður, kveð drengina með söknuði og stolti. Ég er stoltur af mínum leikmönnum, ég er stoltur og þakklátur mínum aðstoðarþjálfurum, þeim Magnúsi Erni Helgasyni og Bjarka Má Ólafssyni, því án þeirra hefði enginn árangur náðst. Ég er stoltur af mér og minni vinnu með ungu drengina í Gróttu þessi þrjú ár sem ég þjálfaði hjá félaginu. Samkvæmt minni talningu stigu rúmlega tuttugu leikmenn á 2. flokks aldri sín fyrstu skref með meistaraflokki á þessum tíma – geri aðrir betur!
En ég gerði ekkert einn, án allra þeirra sem ég vann með í félaginu hefði ekkert af þessu orðið að veruleika. Þið vitið hver þið eruð og gefið ykkur eitt „high five“, því þið eigið það skilið!
Takk Magnús Helgason.
Takk Bjarki Már.
Takk Gaui Kristins.
Takk Árni liðsstjóri.
Takk Kobbi húsvörður.
Takk Hilmar formaður.
Aðrir vonandi virða mig fyrir að nafngreina þá ekki en ég virði ykkur ekki minna.
2. flokkur kvenna Ásgeir Aron Ásgeirsson
Fámennt en góðmennt

Ég kveð Gróttu stoltur en þrátt fyrir það er það ekkert leyndarmál að ég er gríðarlega sár að hafa ekki fengið að halda áfram því starfi sem ég tel að ég hafi unnið frábærlega, ásamt mínum aðstoðarmönnum.
Takk fyrir mig og árin þrjú. Kær Gróttukveðja, Jens Elvar Sævarsson
Tímabilið hjá 2. flokki kvenna hjá Gróttu/KR sumarið 2015 var mjög lærdómsríkt, bæði fyrir mig og leikmenn liðsins. Veturinn var oft á tíðum erfiður þar sem veður bauð ekki alltaf uppá bestu aðstæður til knattspyrnuiðkunar. Stelpurnar eiga mikið hrós skilið fyrir vinnuna sem þær lögðu í æfingar yfir veturinn og oft þegar aðrir flokkar flúðu inn í skjól, sýndu stelpurnar mikinn metnað og héldu áfram við verstu veðurskilyrði. Þegar sumarið fór að nálgast urðum við fyrir því óláni að missa nokkra leikmenn, en við létum það ekki á okkur fá og fórum með þunnskipaðan hóp inn í Íslandsmótið. Með aðstoð 3. flokks kvenna hjá Gróttu/KR og meistaraflokks KR náðum við að púsla saman í hóp fyrir leiki sem var stundum þrautin þyngri. Samheldnin og mórallinn í liðinu var gríðarlega sterkur og var farið inn í hvern leik með jákvæðu hugarfari þrátt fyrir að vera oft á tíðum með lítinn hóp og jafnvel engan varamann.

Úrslitin á íslandsmótinu féllu oft á tíðum ekki með okkur þrátt fyrir góða frammistöðu í leikjunum en leikmenn liðsins misstu aldrei trúna á verkefninu. Við spiluðum okkar leik og gáfumst aldrei upp. Mikill stígandi var í leik liðsins sem skilaði sér í úrslitum leikja þegar líða tók á sumarið. Í hópnum ríkti mikil gleði og góður mórall. Ég lærði gríðarlega mikið af þessu tímabili og vil þakka stelpunum í flokknum fyrir virkilega skemmtilega og lærdómsríka tíma. Einnig vil ég nota tækifærið og þakka meistaraflokki KR og 3. flokknum fyrir allan þann stuðning sem þau veittu okkur því án þeirra hefði þetta ekki verið mögulegt. Einnig vil ég þakka yfirþjálfurum Gróttu og KR fyrir þeirra stuðning og góða samvinnu.
Takk fyrir, Ásgeir Aron Ásgeirsson

Jólagjöf sem allir geta notað
Gjafakort Arion banka er hægt að nota hvar sem er.
Þú velur fjárhæðina, þiggjandinn velur gjöfina.

Gjafakortið fæst í öllum útibúum okkar og á arionbanki.is/gjafakort


Framtíðar vegur

Það er óhætt að segja að sumarið hafi verið strembið hjá meistaraflokki Gróttu. Liðið var komið í 1. deild á nýjan leik og undir stjórn hins reynda þjálfara Gunnars Guðmundssonar var stefnan sett á að halda sæti í deildinni. Það reyndist þrautin þyngri og þegar upp var staðið endaði Grótta í 11. og næst neðsta sæti. Selfyssingar urðu sæti ofar en Grótta en þeir reyndust sterkari á svellinu í hálfgerðum úrslitaleik á Selfossi hinn 5. september þar sem Gróttumenn urðu að sækja til sigurs. Sóknarleikurinn varð Gróttu að falli á tímabilinu en liðinu tókst aðeins að skora 10 mörk í 22 leikjum.
Fáir ungir Gróttumenn komu við sögu hjá Gróttu í sumar. Mikilla breytinga er að vænta því í haust hafa hvorki fleiri né færri en átta ungir leikmenn skrifað undir sinn fyrsta samning við knattspyrnudeild. Í umfjöllun Fótbolta.net hinn 24. nóvember 2015 sagði Hilmar Sigurðsson formaður knattspyrnudeildar eftirfarandi: „Það er stefna knattspyrnudeildarinnar að byggja á ungum og uppöldum Gróttuleikmönnum sem munu fá tækifæri til þess að sanna sig með meistaraflokki.” Jafnframt sagði Hilmar samninga við leikmennina vera mikilvægan áfanga í uppbyggingu deildarinnar og að máli skipti að ungir leikmenn félagsins hafi trú á starfinu.
Sjö af leikmönnunum átta sem um ræðir voru lykilmenn í 2. flokki sem gerði það gott síðustu tvö tímabil undir stjórn Jens Sævarssonar. Árið 2014 vann flokkurinn sig upp í B-deild í fyrsta sinn í áraraðir og

í sumar endaði liðið um miðja deild. Þá er Pétur Steinn Þorsteinsson kominn heim eftir rúmlega ársdvöl hjá sænska stórliðinu AIK. Pétur hefur verið óheppinn með meiðsli eftir að hann flutti til Svíþjóðar og mun vonandi ná sér góðum og blómstra í bláu treyjunni á nýjan leik.
Bræðurnir Agnar og Dagur Guðjónssynir eru fæddir árið 1997, líkt og Pétur Steinn, en þeir hafa samanlagt spilað 11 leiki fyrir meistaraflokk. Agnar leikur sem sóknarmaður og Dagur sem hægri bakvörður en hann getur einnig leyst stöður framar á vellinum. Kristófer Orri Pétursson er yngstur áttmenninganna en hann er fæddur árið 1998. Kristófer, sem leikur sem miðjumaður, fór í haust til æfinga hjá sænska liðinu IF Brommapojkarna eins og greint er frá í Gróttublaðinu. Fjórir leikmenn úr hinum öfluga 1996 árgangi hafa svo samið við knattspyrnudeildina. Það eru markvörðurinn Jón Ivan Rivine, bakvörðurinn Davíð Fannar Ragnarsson og miðjumennirnir Arnar Þór Helgason og Bjarni Rögnvaldsson. Fleiri leikmenn úr 1996 árganginum munu vonandi koma sterkir inn í meistaraflokkinn á

næstu mánuðum en alls voru 12 strákar úr árganginum að ganga upp úr 2. flokki í haust.
Það verður sannarlega spennandi að fylgjast með lærisveinum Úlfs Blandon á Vivaldivellinum næsta sumar. Þessir frambærilegu ungu leikmenn munu eiga sviðið í bland við reyndari kappa á borð við Guðmund Martein Hannesson, Jóhannes Hilmarsson og Ásgeir Aron
Ásgeirsson og hver veit nema eftirlæti allra Gróttustuðningsmanna, Hrafn Jónsson, snúi aftur í Gróttuliðið. Stuðningur áhorfenda skiptir sköpum og hvetur Gróttublaðið alla Seltirninga til að leggja leið sína á völlinn næsta sumar. Við tökum nefnilega undir með skáldinu góða Þorsteini Erlingssyni sem benti á að „ef æskan vill rétta þér örvandi hönd, þá ertu á framtíðar vegi.“

Bjarki Már í Kólumbíu
Bjarki Már Ólafsson er Gróttufólki að góðu kunnur en hann hefur um árabil verið virkur í starfi knattspyrnudeildarinnar, bæði sem leikmaður og þjálfari. Á liðnu tímabili þjálfaði hinn 21 árs Seltirningur 5. og 6. flokk kvenna og 7. flokk karla við góðan orðstír. Nú er hann hins vegar staddur í fátækrahverfi í Bogatá, höfuðborg Kólumbíu, þar sem hann fæst við knattspyrnuþjálfun fyrir milligöngu AUS, skrifstofu alþjóðlegra ungmennaskipta.
Með aðstoð nýjustu tækni náði Gróttublaðið tali af Bjarka einn sólríkan dag í Suður-Ameríkulandinu.
Hvernig kom það til að þú ert nú staddur í gríðarstóru fátækrahverfi í höfuðborg Kólumbíu?
„Fyrir tveimur árum settist ég niður með sjálfum mér, setti mér markmið og þrepaskipti þeim. Eitt af þrepunum var að fá víðari sýn á lífið til þess að ná þessum markmiðum mínum sem ég hef í þjálfuninni. Ég hef verið alinn upp í nokkuð „þægilegu“ umhverfi og mér fannst bráðnauðsynlegt að sjá allar hliðar lífsins til þess að þroskast sem einstaklingur. Fátækrahverfi í Bogotá var kjörinn vettvangur þar sem að fótboltamenningin hér er mjög rík og mig langaði sömuleiðis að ná betri tökum á spænsku eftir nokkurra ára nám í skólanum. Einnig heillaði saga landsins mig og ég var viss um að ég hefði eitthvað fram að færa í daglegu lífi barnanna hérna.“
Því skal ekki andmælt að Seltjarnarnes á 21. öldinni sé þægilegt umhverfi! Aðstaðan, áskorarnirnar og væntingarnar hljóta að vera harla ólíkar. En fótboltinn þekkir þó engin landamæri eða hvað? „Það er fegurðin í þessu að það er alveg sama hvar þú ert í heiminum, hver bakgrunnur þinn er og hver vandamálin eru heima fyrir þá er leikurinn alltaf spilaður á sama hátt. Ég sé það hér, eftir að hafa rætt við börnin, að það að komast út á fótboltavöll er hjá mörgum nokkurs konar flótti frá ofbeldinu og vandamálunum heima fyrir. Þetta er eitthvað sem krakkarnir elska og alla dreymir um að geta fetað í fótspor stórstjarnanna í kólumbíska landsliðinu sem margar hafa einmitt svipaðan bakgrunn.“
Forvarnargildi íþrótta er óumdeilt og góðar fyrirmyndir eru sannarlega mikilvægar. Segðu okkur aðeins nánar frá aðstæðum þeirra sem þú ert að þjálfa. „Krakkarnir sem eru í prógramminu hjá okkur búa flest í hverfinu Ciudad Bolívar, þar sem verkefnið er staðsett. Hverfið er stórt og þar ríkir gífurleg fátækt. Börnin eiga það sameiginlegt að koma frá fátækum fjölskyldum og er ofbeldi heima fyrir partur af daglegri upplifun margra þeirra. Í hverfinu eru fjöldamörg gengi starfrækt og einnig

hefur örlað á virkni hryðjuverkasamtakanna FARC svo börnin sem eru hjá okkur eru vön hlutum sem við sem búum á Íslandi getum vart gert okkur í hugarlund. Aðstæður til þjálfunar eru kannski ekki upp á marga fiska, það eru að jafnaði 50 krakkar á æfingu, fjórir boltar, nokkur vesti og tveir vellir - eitt moldarsvað og annar malbikaður. Krakkarnir kippa sér ekkert upp við það þó það sé ekki einn bolti á mann, þau elska að hittast á vellinum og fá að spila saman.“
Þá að heimahögunum. Hvað stóð upp úr á knattspyrnuárinu með Gróttu?
„Tímabilið var í alla staði frábært og dýrmæt reynsla fyrir mig. Markmið ársins var að starfa í fyrsta skipti sem þjálfari í fullu starfi og ég er gífurlega þakklátur fyrir tækifærið og traustið sem Grótta sýndi mér. Auk þess að þjálfa 5. og 6. flokk kvenna og 7. flokk karla, var ég aðstoðarþjálfari í 2. flokki karla og stýrði
afreksstarfi deilarinnar. Hápunktur sumarsins var að leiða 6. flokk kvenna út á Kópavogsvöll í úrslitaleik A-liða á Símamótinu. Þetta var ótrúlega viðburðaríkt sumar og dýrmætt í reynslubankann.“
Hvað er svo framundan hjá þér?
„Planið hjá mér er nokkuð einfalt. Ég fer að ferðast um Suður-Ameríku í janúar og tek mér tvo mánuði í það ásamt kærustunni minni. Að því loknu kem ég heim og fer í tímabæra hjartaaðgerð, hjartalokuskipti nánar tiltekið. Þá tekur við u.þ.b. mánaðar bataferli. Þegar ég hef náð mér að fullu flyt ég til Stokkhólms þar sem ég mun halda áfram að vinna að markmiðum mínum sem þjálfari en þar mun ég setjast á skólabekk og læra íþrótta- og þjálffræði.“
Gróttublaðið þakkar Bjarka fyrir spjallið og sendir honum bestu kveðjur af Nesinu!
Gróttuvöllur verður Vivaldivöllurinn
Viðtal við Jón von Tetzchner frumkvöðul
Margir ráku upp stór augu þann 23. janúar þegar tilkynnt var að Gróttuvöllur hefði skipt um nafn. Völlurinn skyldi framvegis heita Vivaldivöllurinn í framhaldi af samstarfssamningi sem knattspyrnudeild Gróttu og hugbúnaðarfyrirtækið Vivaldi
Technologies gerðu með sér. En hvað var þetta Vivaldi, annað en ítalskt tónskáld frá 18. öld? Hver er maðurinn á bak við nafnið?
Frumkvöðullinn Jón Stephensen von Tetzchner er uppalinn Seltirningur sem æfði fótbolta með Gróttu, gekk í Menntaskólann í Reykjavík og flutti að loknu stúdentsprófi til Noregs á vit ævintýranna. Jón er þekktastur fyrir að hafa stofnað hugbúnaðarfyrirtækið Opera en á tímabili var Opera-netvafrinn einn sá vinsælasti í heimi. Jón sagði skilið við Opera árið 2013 en hefur nú komið öðru hugbúnaðarfyrirtæki á laggirnar, einmitt Vivaldi sem er nú að ryðja sér til rúms í tækniheimum.
Gróttublaðið heyrði hljóðið í Jóni sjálfum og spurði hann út í samstarfið við Gróttu og hvernig það hafi komið til: „Það kom fyrirspurn frá Gróttu um hvort að við hefðum áhuga á að kaupa nafnið á Gróttuvelli. Það tók okkur ekki langan tíma að svara þessu játandi enda mjög gaman að geta stutt sitt gamla félag á svona skemmtilegan hátt” segir Jón sem þykir greinilega vænt um sitt gamla bæjarfélag en þess ber að geta að fyrir tveimur árum opnaði hann frumkvöðlasetrið Innovation House á Eiðistorgi þar sem 18 sprotafyrirtæki hafa vinnuaðstöðu.
Vefvafrinn Vivaldi var settur á laggirnar aðeins nokkrum dögum eftir að Vivaldivöllurinn varð að veruleika. Það er því ekki úr vegi að spyrja Jón hvernig gangi hjá fyrirtækinu, nú þegar

vafrinn hefur verið virkur í nokkra mánuði?
„Viðtökurnar sem við höfum fengið hafa verið frábærar! Við höfum fengið yfir 2 milljónir niðurhala (e. downloads) og það án þess að vera með formlega útgáfu af vafranum tilbúna. Við gáfum út „Technical preview” í byrjun árs og fyrir nokkrum vikum sendum við beta útgáfu frá okkur. Notendur hafa lýst yfir ánægju með vafrann og þá hafa einnig verið skrifaðar margar jákvæðar greinar um hann.”
Eins og komið hefur fram æfði Jón fótbolta með Gróttu á sínum yngri árum án þess þó, að eigin sögn í það minnsta, að skara fram úr. Það gerði hann síðar á sviði hugbúnaðarþróunar og viðskipta en Jón stofnaði fyrirtækið Opera Software sem naut mikillar velgengni. Við spyrjum Jón hvað þurfi
til að komast á toppinn í því sem maður tekur sér fyrir hendur? „Þetta er auðvitað spurning um liðið. Ég vann með frábæru fólki í Óperu og geri það aftur í Vivaldi. Við höfum trú á því sem við erum að gera og erum þrjósk. Það eru mjög miklir hæfileikar í teyminu –starfsorka og þrjóska, það er lykillinn.” Gaman er að segja frá því að í sumar gaf Vivaldi starfsmönnum sínum Gróttutreyjur með merki Vivaldi framan á og endum við þetta spjall á að spyrja Jón hvernig starfsfólkið hafi tekið í þessar skemmtilegu gjafir? „Þau voru mjög ánægð með þetta. Gróttubúningurinn er flottur og fólk er ánægt með að Grótta sé okkar lið”. Gróttublaðið þakkar Jóni kærlega fyrir spjallið og óskar honum og hans fyrirtækjum áframhaldandi velgengni.
Byggjum liðið á Gróttumönnum
Úlfur Blandon var nýlega ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Gróttu. Hann er 36 ára Kópavogsbúi sem býr þar ásamt sambýliskonu sinni, Karen Sturludóttur, og syni þeirra Benjamín. Úlfur er uppalinn í Vesturbænum en flutti til Norgers og bjó þar um hríð en hann spilaði upp allra yngri flokka með KR og síðar með Holmlia í Osló. Hann hefur fengist við knattspyrnuþjálfun frá árinu 2004 og er með UEFA-A þjálfararéttindi. Árið 2009 útskrifaðist Úlfur sem viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík en samhliða þjálfuninni starfar hann sem viðskiptastjóri hjá Fóðurblöndunni.
Gróttublaðið spjallaði við Úlf fyrir æfingu í ósviknu íslensku vetrarveðri.
Hvað geturðu sagt okkur um þjálfaraferil þinn? Eftir að hafa lokið KSÍ-I þjálfaranámskeiði byrjaði ég sem yngri flokka þjálfari hjá Fylki árið 2004 fyrir tilstilli Þorláks Árnasonar, þáverandi þjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu. Að svo búnu fór ég til Stjörnunnar og byrjaði þar að þjálfa yngri flokka og stýrði svo afreksstarfi knattspyrnudeildar félagsins. Þar var ég í fimm ár og stýrði hinum ýmsu flokkum. Næsta skref var þjálfun hér á Seltjarnarnesi en ég var yfirþjálfari yngri flokka Gróttu frá 2011-2013 ásamt því að þjálfa 4. og 6. flokk karla og síðar einnig 5. og 3. flokk karla. Í framhaldi af því fór ég með Bjarna Guðjónssyni til Fram og var aðstoðarþjálfari hans í eitt ár.
Næsta verkefni var þjálfun 2. flokks karla hjá Víkingi og 2. flokks kvenna hjá sameiginlegu liði HK og Víkings. Allt var þetta virkilega lærdómsríkt og þroskandi fyrir mig sem þjálfara og ómetanleg reynsla að fá að kynnast yngri flokka starfi frá öllum hliðum, bæði sem þjálfari og sem yfirþjálfari með yfirsýn yfir allt yngri flokka starf félags, eins og raunin var hjá Gróttu. Eftir að hafa fengist svo lengi við við þjálfun yngri flokka er virkilega gaman og gefandi að sjá unga leikmenn sem hafa þroskast og náð

þeim árangri að spila með meistaraflokki síns félags, í efstu deildunum á Íslandi eða jafnvel komist út í atvinnumennsku. Í ár fáum við að sjá unga Gróttumenn taka eitt skref enn nær sínum markmiðum og spila leiki með meistaraflokki félagsins.
Tímabilið með meistaraflokki Fram var virkilega skemmtilegt, þótt árangurinn hefði mátt vera betri. Líkindin með því að þjálfa yngri flokka og meistaraflokk eru meiri en í fyrstu kann að virðast. Allt utanumhald er með líku sniði, hvort sem það er fótboltinn sjálfur, samstarf við foreldra, stjórnarmeðlimi og aðra sem leggja hönd á plóg. Allt snýst þetta um að gera liðið og einstaklingana betri. Hjá Gróttu eru þessar grunnskoðir í mjög góðum farvegi. Félagið er ungt og á framtíðina fyrir sér og hér er sannarlega ekki skortur á góðum efnivið.
Hvernig leggst tímabilið og komandi knattspyrnusumar í þig?
Ég hef auðvitað fylgst vel með starfi Gróttu úr fjarlægð síðustu tvö ár og þekki því vel til mála hjá félaginu ásamt því að hafa með einhverjum hætti komið að þjálfun flestra þeirra ungu leikmanna sem nú eru að stíga sín
fyrstu skref með meistaraflokki. Næsta sumar er viss prófsteinn fyrir Gróttu því byggja á upp liðið með markvissari hætti með ungum Gróttumönnum. Þegar ég var síðast hjá félaginu var unnið eftir ákveðinni hugmyndafræði sem rímar vel við mínar áherslur í dag. Ég vil að meistaraflokkur karla hjá Gróttu sé staður þar sem ungir Gróttumenn fá tækifæri til að þroskast og eigi sannarlega möguleika á að spila fyrir eigið félag þegar yngri flokka starfi sleppir. Menn þurfa að fá að spreyta sig á svellinu, gera sín mistök til að þroskast sem knattspyrnumenn og spila með sér eldri og reyndari leikmönnum. Mestu skiptir að allir séu reiðubúnir að leggja sig fram fyrir félagið og liðið.
Undirbúningstímabilið er vitaskuld hafið en það hefur byrjað af miklum krafti. Hópurinn er farinn að taka á sig mynd en gaman er að segja frá því að þeir leikmenn sem ég hefði helst viljað halda innan raða félagsins hafa allir skrifað undir samning. Áherslur tímabilsins eru margþættar en mikilvægast af öllu er að leikmenn, stuðningsmenn og aðrir sem að félaginu standa skemmti sér vel og njóti þess að taka þátt í þessu uppbyggingarferli.

Nú stendur til að endurnýja gervigrasið á Vivaldivellinum næsta vor. Hvernig líst þér á aðstöðuna og umgjörðina hjá Gróttu? Aðstaðan er algjörlega til fyrirmyndar og virkilega vel að öllu staðið. Það eru ótrúlegir vinnuþjarkar sem standa á bak við félagið og eiga sannarlega hrós skilið fyrir ótrúlega óeigingjarnt starf. Hilmar Sigurðsson, Árni Pétursson, Jón Sigurðsson, Sigurður Hilmarsson og margir fleiri hafa staðið vaktina í þessu ansi lengi og hafa unnið þau verk sem þörf hefur verið á. Þá hefur Halldór Eyjólfsson unnið ómetanlegt starf fyrir yngri flokka félagsins. Nýtt gervigras er auðvitað frábærar fréttir fyrir félagið og Grótta stendur framar mörgum öðrum félögum sem enn spila á grasi en langar til að skipta. Það var kominn tími til að endurnýja gervigrasið sem er búið að þjóna sínum tilgangi ákaflega vel fyrir unga sem aldna Gróttumenn og -konur.

Hvað myndirðu ráðleggja ungum leikmönnum sem vilja ná langt í fótbolta?
Þeir sem vilja ná langt í fótbolta þurfa að leggja á sig heilmikla vinnu. Það er ekki nóg að æfa bara fótbolta heldur þarf að setja sér skýr markmið, æfa aukalega með skipulögðum hætti og vera tilbúinn að fórna fyrir það eitt að bæta sig í fótbolta. Ungir leikmenn sem ætla sér að ná langt þurfa að tileinka sér lífsstíl og hugarfar afreksíþróttamanns og þar spilar allt inn í; mataræði, andleg og líkamleg þjálfun, stuðningur að heiman, bæði frá foreldrum og nánstu fjölskyldu. Það er alveg klárt mál að það er ekkert auðvelt að komast alla leið í fótbolta en mikilvægast er að sinna þessu almennilega, engar afsakanir og að sjálfsögðu gera sitt besta alls staðar, alltaf.
GRÓTTUFÓLK
BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR


Eitthvað að lokum?
Fyrir mig er þetta ótrúlega spennandi og skemmtileg áskorun að fá að þjálfa meistaraflokk Gróttu. Þetta er auðvitað að vissu leyti sama gamla klisjan en ég væri virkilega ánægður ef ég myndi sjá sem flesta foreldra á vellinum í sumar. Ég þekki auðvitað stóran hluta af þeim, þar sem ég hef þjálfað ansi marga unga krakka í Gróttu. Fyrir liðið og félagið í heild skiptir stuðningurinn miklu máli, bæði innan vallar sem og utan. Samhent átak og stuðningur kemur okkur nær þeim stað þar sem við viljum vera sem félag.
Áfram Grótta.





Úlfur með
flokki Gróttu sumarið 2013

Hildur Sif Hilmarsdóttir og Kristján Guðjónsson
spurð spjörunum úr
Auðvitað brutum við þessa einu reglu”
Nafn: Hildur Sif Hilmarsdóttir
Aldur: Ég er 16 ára
Gælunafn: hidda 121
Nám/vinna: Ég stunda nám við MR Hvenær byrjaðirðu í fótbolta: Ég byrjaði í 4.bekk, eða þegar Grótta var að byrja með kvennaboltann. Annars var það nú Kolfinna Ólafsdóttir sem hvatti mig til að byrja.
Treyjunúmer: 14
Hvaða íþróttir aðrar en fótbolta hefurðu stundað: Ég hef stundað ballett, samkvæmisdans, CrossFit og handbolta. Með hvaða liði myndirðu aldrei spila: Ef ég hefði fengið þessa spurningu fyrir tveimur árum þá hefði ég sagt KR, en nú æfi ég með Gróttu/KR. Núna verð ég víst að segja Valur.
Hvað viltu fá í jólagjöf: SingStar og nýjan síma. Uppáhalds sjónvarpsefni: Friends klárlega. Uppáhalds tónlist: Mín eigin rödd í sturtunni
Hvaða 3 hluti myndirðu taka með þér á eyðieyju: Perlu (köttinn minn), vatnsbrúsa og fótbolta.
Hvaða lag synguru í sturtunni: Allt með Whitney Houston og Céline Dion
Hvað eldaðir þú síðast: Eggjabrauð með sýrópi Uppáhaldsstaður sem þú hefur komið til: Vindáshlíð
Lið í enska boltanum: Liverpool
Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki? Þá hvernig: Nei, ég lifi bara í núinu.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn:Toga í treyjuna og ýta oft í hann, svo þegar hann fær boltann þá negla hann niður. Rífa í hár og ýta með höndum er mínir helstu styrkleikar.
Hver er þín helsta fyrirmynd: Jóhannes
Hilmarsson, bróðir minn. Hann hefur kennt mér svo margt í gegnum tíðina.
Uppáhalds íþróttamaður: Chicharito (Javier Hernandez)
Fallegasti knattspyrnumaður: Klárlega Érik Lamela í Tottenham og Rúrik Gíslasson.
Hver yrði fyrir valinu ef þú mættir velja hvaða leikmann sem er í liðið þitt: Ronaldinho Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Skotæfingar og fyrirgjafir.
En leiðinlegast: Reitur
Erfiðasti mótherji á æfingum: Erfitt að segja, allar svo góðar!
En auðveldasti: Ásdís Karen, sóla hana alltaf upp úr skónum
Steiktasti samherjinn: Klárlega Kolfinna Ó.
Góð saga úr boltanum: Sumarið 2014 fórum við í keppnisferð til Barcelona. Reglan í þessari ferð var að strákar mættu ekki stíga fæti inn í herbergin okkar og við heldur ekki inn í þeirra.
“ Held áfram að hafa gaman af lífinu”
Nafn: Kristján Guðjónsson
Aldur: 17 ára
Gælunafn: Stjáni
Nám/vinna: Stunda nám við Verzlunarskóla Íslands.
Hvenær byrjaðirðu í fótbolta: Ég byrjaði þegar ég var 5 ára, þá var enginn 8. flokkur svo að maður mætti á æfingar hjá 7. flokki sem Júlli þjálfari var með.
Treyjunúmer: 6
Hvaða íþróttir aðrar en fótbolta hefurðu stundað: Ég æfði handbolta frekar lengi samhliða fótbolta og þótti mjög svo frambærilegur (skulum bara orða það þannig að ég skoraði 9 mörk í úrslitaleik íslandsmótsins gegn HK, leikurinn er á Youtube).
Með hvaða liði myndirðu aldrei spila: ÍBV (oj bara)
Hvað viltu fá í jólagjöf: Eitthvað sem kemur mér á óvart.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Game of Thrones og Fargo.
Uppáhalds tónlist: Ég hlusta á nánast alla tónlist.
Hvaða 3 hluti myndirðu taka með þér á eyðieyju: Gervihnattasíma, fótboltamark og fótbolta, þá gæti ég æft mig á meðan það væri verið að bjarga mér ;)
Hvaða lag syngurðu í sturtunni: Öll lögin
hennar Ariönu Grande.
Hvað eldaðir þú síðast: Eggjahræru Uppáhaldsstaður sem þú hefur komið til: Bárðardalur í Suður-Þingeyjasýslu.
Lið í enska boltanum: Manchester United Bestu fótboltaskórnir: Fyrir 2 árum átti ég mjög góða Adidas F50 skó (appelsínugulir), skórnir mínir undanfarið hafa ekki verið að gera gott mót. Hvernig er best að pirra andstæðinginn: Nart í hælana, stíga á tærnar á þeim, létt peysutog og harðar tæklingar virka oft vel en svo er klassískt að klobba andstæðinginn.
Hver er þín helsta fyrirmynd: Hvernig ég sé mig sjálfan eftir 10 ár.
Uppáhalds íþróttamaður: Bastian
Schweinsteiger
Fallegasti knattspyrnumaður: Sara Björk Gunnarsdóttir
Hver yrði fyrir valinu ef þú mættir velja hvaða leikmann sem er í liðið þitt: Leo Messi
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum: Það jafnast fátt við það að spila á æfingum, sérstaklega þegar það er kominn hiti í mannskapinn.
En leiðinlegast: Upphitun og allar teygjuæfingar.
Erfiðasti mótherji á æfingum: Vindurinn á Seltjarnarnesi verður að teljast erfiðasti mótherjinn og jafnframt sá leiðinlegasti.
Eitt kvöldið (þegar við áttum að vera farnar að sofa) sátum við úti á svölum og kölluðum á milli herbergja. Ég meina við vorum á fótboltamóti þar sem voru fullt af sætum fótboltastrákum og auðvitað brutum við þessa einu reglu og buðum strákum inn í herbergið okkar. Sátum við þar sirka 10 saman og áttum gott spjall en það tók nú ekki langan tíma fyrir hana Bojönu okkar að komast að þessu öllu. Eftir þetta var haldinn krísufundur og höguðum við okkur vel það sem eftir var. Ég gæti líka sagt skemmtilega Danmerkur-sögu af Möglu en ætla að sleppa því. Fótboltaminning sem stendur upp úr: Við vorum í 5. flokki að keppa á móti Stjörnunni í úrslitaleik á Pæjumótinu. Leikurinn endaði með jafntefli en það var ekki farið í vítakeppni því á þeim tíma var sagt að stelpur gætu ekki þolað pressuna að taka víti. Reglurnar voru því þannig að það lið sem skoraði á undann vann leikinn. Það var Stjarnan og við urðum því að sætta okkur við 2. sætið.
Framtíðardraumur: Útskrifast úr MR, klára læknisfræði og fara svo til Svíþjóðar að sérhæfa mig í heilaskurðlækningum. Meðal annars verða ríkari en bróðir minn.
En auðveldasti: Þór og Jón Friðrik Guðjónssynir verða að fá að deila þessum titli. Steiktasti samherjinn: Björgvin Koustav á alltaf sín moment, mörg hver alveg gríðarlega steikt. Góð saga úr boltanum: Þegar ég var á eldra ári í 3. flokki þá fór flokkurinn á Costa Blanca cup sem var haldið á Benidorm. Það voru að sjálfsögðu settar nokkrar reglur sem við áttum að fylgja eftir. Á þriðja degi var búið að brjóta allar reglurnar (oftar en einu sinni) og við vorum komnir á seinasta séns hjá hótelstjóranum. Það sem fyllti mælinn var það þegar nokkrir ónefndir einstaklingar ákváðu að henda vatnsblöðrum niður af 16 hæð hótelsins. Hótelstjórinn gjörsamlega trompaðist og ætlaði að handataka þjálfarana okkar og farastjóra og henda okkur strákunum út af hótelinu. Sem betur fer bjargaðist þetta.
Fótboltaminning sem stendur upp úr: Ég mun líklegast alltaf muna eftir því þegar ég skoraði 5 mörk gegn Leikni Reykjavík þegar ég var á yngra ári í 3. flokki.
Markmið fyrir næsta sumar: Hafa gaman af lífinu, spila flottan fótbolta og reyna að vinna sér inn einhverja sénsa með meistaraflokki. Framtíðardraumur: Klára skóla og halda áfram að hafa gaman af lífinu sem er nú það mikilvægasta af öllu.
Þjálfarar knattspyrnudeildar








Æfingatöflur yngri flokka knattspyrnudeildar
Alexandre Massot
2. fl kvenna
Ingi Tynes
fl. karla og
fl. kvk.
Gróttu 2015/2016

Bjarni Rögnvaldsson
8. fl. karla

Pétur Már Harðarson
6. og 3. fl karla

Björn Orri Hermannsson 2. fl. karla

Pétur Rögnvaldsson
4. og 7. fl kvenna


Br. Valdimarsson 7. og 8. fl kk. og kvenna


Úlfur Blandon Meistaraflokkur karla


Veislan veitingaeldhús óskar Gróttu til hamingju með glæsilegt jólablað
Veislan tekur að sér veitingaþjónustu í afmælum, brúðkaupum, er drykkjum og hvers konar mannamótum. Erum með glæsilegan veislusal í Félagsheimili
Seltjarnarness til útleigu. Getum einnig komið í heimahús eða fyrirtæki.


Björn
Bojana Besic 4. fl kvenna
Þórhildur Briem 7. fl. kvenna
Lykilmaðurinn á bak við tjöldin
Fáir geta státað af sterkari tengslum við Seltjarnarnes en Árni Pétursson. Árni er fæddur á Nesinu árið 1961 og á hér óslitnar fjölskyldurætur sem spanna um hálfa aðra öld. Fjölskylda Árna er frá bænum Knútsborg sem stóð á Nestúni á milli Gróttu og núverandi golfvallar en afi Árna fæddist þar árið 1881.
Á yngri árum lék Árni knattspyrnu og handknattleik með Gróttu auk þess sem hann æfði borðtennis í nokkur ár og körfuknattleik í þann skamma tíma sem félagið bauð upp á hann. Árni hefur á fullorðinsárum verið máttarstólpi í rekstri knattspyrnudeildar Gróttu, fyrst í foreldrastarfi með Guðmundi Maríussyni og fleiri góðum og loks sem stjórnarmaður frá árinu 2007. Árni steig nýverið til hliðar í stjórn knattspyrnudeildarinnar og er því ekki úr vegi að renna yfir farinn veg með honum. Gróttukempurnar Axel Þórir Friðriksson og
Bjarni Torfi Álfþórsson gerðu eldri tímum góð skil í síðasta jólablaði svo við forvitnumst nú meira um foreldrastarfið og stjórnarsetuna.
Mikið vatn hefur til sjávar runnið síðan fyrstu kynslóðir Gróttufólks æfðu og spiluðu undir merkjum félagsins. Árni æfði m.a. knattspyrnu á Borgó, sem var við enda Melabrautar, næst Hofgörðum, og á grasvelli þar sem leikskólinn stendur nú. Þá tók malarvöllurinn hjá Mýrarhúsaskóla við og loks hinn langlífi malarvöllur sem var á núverandi vallarstæði Vivaldivallarins við Suðurströnd allar götur til vormánaða 2006 þegar gervigrasið var tekið í notkun. Malarvöllurinn var lagður árið 1981 úr jarðvegi sem til féll við byggingu blokkanna við Austurströnd. Þegar Árni var 13 ára lenti hann í hjólreiðaslysi sem lék hnéð á honum grátt. Knattspyrnutímabilið eftir það náði Árni
varla að spila nema fyrri hálfleik því hnéð bólgnaði svo mjög: „Þetta var 11 manna bolti og við vorum akkúrat 11 sem æfðum svo það mátti illa við þessu. Þjálfarinn gantaðist með að það væri gott að hafa a.m.k. varamann, svo stundvís var bólgan!“ segir Árni.


Fjörugt foreldrastarf Foreldrastarfið hófst af alvöru þegar Pétur Theodór, sonur Árna, var í 7. flokki. „Fyrsta stóra mótið var á Skaganum og ég fylgdi honum einnig tvisvar á Shellmótið í Eyjum. Minningarnar frá þessum tíma eru frábærar, en mótin skipta tugum.“ Þetta ættu flestir foreldrar sem eiga börn í fótbolta að kannast við. Árni rifjar upp tvö skemmtileg atvik sem áttu sér stað í keppnisferð til Svíþjóðar árið 2008: „Strákarnir voru þarna 12-13 ára og við Guðmundur Maríusson sinntum fararstjórn en okkur telst til að við höfum saman gist saman í meira en 50 nætur í ferðalögum með yngri flokka félagsins.
Einn daginn í þessari ferð vorum við á borgarrölti þegar einn guttinn spurði okkur Guðmund hvort við værum fáanlegir til að kaupa handa honum klámblað. Hann sýndi okkur blaðið og var það ekki af penni gerðinni! Það fylgdi bóninni að við mættum fá að skoða blaðið á undan honum,“ segir Árni og hlær dátt. Ekki varð af þessum viðskiptum.
Í sömu ferð var farið í stutta útsýnissiglingu. Þar spurði einn Gróttukeppandinn Árna hvort hann gæti fengið símann hans lánaðan til að biðja mömmu sína um að

millifæra pening til sín. „Að sjálfsögðu var það ekkert mál og hann sendi skilaboðin. Ég hugsaði ekki nánar út í þetta fyrr en síminn hjá mér tísti nokkru síðar og hafði mér þá borist eftirfarandi svar frá mömmunni: „Hver ert þú?“ Þarna varð mér fyrst litið á skeytið sem strákurinn hafði sent. Orðrétt var það „geturðu lagt inn á mig?“ Allar þessar ferðir, bæði með meistaraflokki og yngri flokkum, í fótbolta og handbolta, skilja eftir góðar minningar. Krakkarnir voru alltaf til fyrirmyndar og Gróttu og bæjarfélaginu til sóma.“
Úr gámi í höll
Setan í stjórn knattspyrnudeildar er Árna minnisstæð enda spannaði hún hátt í áratug. Talið berst að tilurð hins endurreista meistaraflokks karla. „Í upphafi gekk vægast sagt illa að fá fólk til að mæta á völlinn, þrátt fyrir freistingar á borð við ókeypis vöfflur sem móðir Hilmars formanns bakaði og að frítt væri á leikina. Hópurinn var þó þéttur og stjórnin sem tók til starfa áður en þátttaka mín hófst hafði lagt góðan grunn að framhaldinu. Í upphafi var enginn kvennabolti hjá félaginu, ekki einu sinni í yngri flokkum og sumarið 2007 náðist varla í lið í 2. flokki karla. Það er gleðiefni að sjá hve mikið þetta hefur breyst á jafnskömmum tíma og vonandi gengur vel að stofna meistaraflokk kvenna. Þá hafa strákarnir í 2. flokki staðið sig frábærlega síðustu ár.“
„Mér er minnisstætt þegar meistaraflokkur karla lék útileik á Selfossi sumarið 2011. Þá hittust allir við vallarhúsið og farið var með rútu austur fyrir fjall. Þegar heim var komið rákum við augun í að ljósin á bíl Einars Óla Þorvarðarsonar, sjúkraþjálfara
Gróttu og fyrrverandi leikmanns liðsins, loguðu sem skærast. Hann hafði þá ekki einungis gleymt ljósunum á, heldur hafði bíllinn verið í gangi allan tímann! Ferðin tók hátt í sex klukkustundir. Verðskuldaður apaheili ársins,“ en þau verðlaun eru veitt á lokahófi meistaraflokks og falla þeim í skaut sem þykir hafa gert mesta skandalinn á tímabilinu.
Árni heldur áfram: „Meistaraflokkurinn breyttist töluvert með komu Ásmundar Haraldssonar og þeirra leikreyndu manna sem hann fékk með sér til félagsins. Úr varð góð blanda af ungum og reyndari leikmönnum en það má segja að hlutirnir hafi þarna orðið meira „alvöru“. Á tiltölulega stuttu tímabili er eins og margt smelli saman – grunnvinnan sem stjórnin hafið unnið frá upphafi, þjálfarinn, liðið og að sjálfsögðu stórbætt aðstaða á nýja gervigrasvellinum. Þetta skilaði sér í Íslandsmeistaratitli í 2. deild sumarið 2009 sem tryggði Gróttu sæti í 1. deild í fyrsta skipti. Þessi tveggja ára dvöl í næstefstu deild var fjörug og var mikið líf í kringum fótboltann. Vel var mætt á heimaleiki liðsins og stuðningsmannahópurinn virkur. Í samanburði voru laugardagsleikirnir of margir síðasta sumar en það er vart hægt að búast við góðri mætingu þegar stór hluti bæjarbúa er á faraldsfæti.“
Það varð sannarlega gjörbylting á aðstæðum til knattspyrnuiðkunar með tilkomu gervigrassins. Það gerði iðkendum hjá Gróttu kleift að æfa og spila allan ársins hring við góðar aðstæður auk þess sem flóðljósin bættu enn notagildið í skammdeginu.
Árni telur að hið stórglæsilega vallarhús hafi einnig breytt miklu.

Árni Pétursson að setja upp jólaseríu 9. desember.
knattspyrnudeildar tóku virkan þátt í að gera húsið að því sem það er, í góðri samvinnu við bæinn. Það þurfti stórhug og framsýni til að ráðast í aðra eins framkvæmd í eins litlu bæjarfélagi. Fyrir byggingu vallarhússins mætti Magnús Örn Helgason, núverandi yfirþjálfari knattspyrnudeildar, með kók og prins í kæliboxi til að selja áhorfendum á leikjum meistaraflokks. Einhvern tíma gleymdi ég veskinu reyndar heima og þá sá Magnús aumur á mér og samþykkti að fá greitt á næsta leik!“
Framtíðin
„Árangur knattspyrnuliðs snýst um svo margt annað og meira en að sparka í bolta.”
„Með tilkomu vallarhússins öðlaðist knattspyrnudeildin eiginlegt heimili og félagsaðstöðu. Þar hef ég átt margar góðar stundir og ánægjulegt er að sjá til hve margra hluta húsið nýtist. Algengt er að leikmenn yngri flokka hittist þar og horfi á knattspyrnuleiki með þjálfurum sínum og er staða mála í Gróttuleikjum vitaskuld skeggrædd þar í hálfleik. Auk þess hentar húsið sérlega vel fyrir foreldrafundi og ýmiss konar minni samkomur, bæði fyrir félagið og
Seltjarnarnesbæ. Fram að þessu hafði aðstaðan við völlinn einskorðast við gám svo það má segja að við höfum farið úr gámi í höll. Stjórnarmenn
Aðspurður um hvað taki við að stjórnarsetu lokinni segist Árni litlar áhyggjur hafa af framtíðinni hjá félaginu, það sé í góðum höndum. „Stjórnin er vel mönnuð og ýmsir sjálfboðaliðar vinna mikilvægt starf. Hér má þó alltaf gera betur og það vantar alltaf sjálfboðaliða til að aðstoða við eitt og annað. Allir eru velkomnir og verður tekið vel á móti þeim sem eru til í að leggja hönd á plóg. Margar hendur vinna jú létt verk. Hvað mig varðar mun ég þó að sjálfsögðu ekki hverfa á braut en verð þó e.t.v. eitthvað minna sýnilegur en áður, þá að meira leyti maðurinn á bakvið tjöldin. Áfram mun ég t.d. sjá um búningamál meistaraflokks karla. Stjórn knattspyrnudeildarinnar hefur alltaf verið virk í daglegu starfi, hvort sem verið er að manna sjoppuna á meistaraflokksleikjum eða sinna snjómokstri og öðrum tilfallandi verkefnum. Svo verður án efa áfram.“ Þetta kemur engum á óvart sem komið hefur nálægt skipulögðu íþróttastarfi hérlendis. Sjálfboðaliðar eru ómissandi og án framlags þeirra myndu hjól íþróttahreyfingarinnar allt að því hætta
að snúast. Í lokin er ekki úr vegi að spyrja Árna hvort hann hafi einhver heilræði eða hugleiðingar sem hann vill koma á framfæri.
„Árangur knattspyrnuliðs snýst um svo margt annað og meira en að sparka í bolta. „Tólfti maðurinn“ getur til að mynda verið einhver sem heldur uppi fjörinu og gerir allt skemmtilegra fyrir aðra í kringum sig og gerir liðsfélögum sínum kleift að hlæja á erfiðri æfingu þar sem kuldinn nístir inn að beini. Sá þarf ekki endilega að vera bestur í fótbolta en ég tel viðkomandi engu að síður ómissandi hlekk í keðjunni. Einnig vil ég benda þeim sem spila fótbolta á gervigrasi á að nota réttan skóbúnað, þá gervigrasskó. Mér virðist sem þetta sé að ryðja sér til rúms í meistaraflokki enda dregur réttur skóbúnaður úr meiðslahættu.“
„Ég vil þakka handknattleiksdeild Gróttu fyrir gott samstarf í tengslum við Gróttuvitann en hann hefur myndað góða tengingu á milli deildanna. Gróttuvitinn heldur utan um árskortin og skipuleggur sameiginlega viðburði á borð við þorrablót, herra- og kvennakvöld auk aðkomu að bæjarhátið Seltjarnarness. Loks vil ég hvetja Seltirninga og aðra stuðningsmenn félagsins til að vera duglega að mæta á leiki. Næsta sumar verður meistaraflokkur karla að verulegu leyti skipaður uppöldum leikmönnum sem mun vafalaust auka áhuga Nesbúa á liðinu. Ef allir bæjarbúar mættu á þó ekki væri nema einn heimaleik á tímabilinu, er öruggt að stúkan verði þétt setin. Mætum á völlinn! Kannski munu margir sem aldrei mæta á fótboltaleiki skemmta sér vel!“ segir Árni að lokum. Gróttublaðið þakkar Árna fyrir spjallið og ekki síður fyrir ósérhlífið starf í þágu félagsins!


















Nýtt gervigras í vor

Bjarni Jakob Gunnarsson í baráttunni á gervigrasinu sumarið 2007
Gervigrasið á Vivaldivellinum við Suðurströnd er farið að láta á sjá eins og kom fram í pistli í
Gróttublaðinu 2014. Það var lagt vorið 2006 og gjörbylti þá allri aðstöðu til knattspyrnuiðkunar hjá Gróttu. Leiða má líkum að því að þetta hafi á sínum tíma lagt grunninn að bættum árangri félagsins, hjá meistaraflokki og ekki síður í yngri flokkum.
Nú hillir undir byltingu í þessum efnum því endurnýjun gervigrassins er á fjárhagsáætlun næsta árs og kemur til framkvæmda í vor. Ljóst er að nýtt gervigras með betra undirlagi mun stórbæta heimavöllinn okkar, auk þess að draga úr álagi á stoðkerfi þeirra sem nota hann. Tímasetningin hentar líka einkar vel, því útlit er fyrir að fljótlega þurfi að skipta um gúmmíkurlið á flestum gervigrasvöllum hérlendis og hlýst því nokkur hagkvæmni af að þurfa ekki að ráðast sérstaklega í þá framkvæmd. „Vinna við endurnýjun
á núverandi gervigrasvelli er í fullum gangi en gamla grasið er komið til ára sinna og með nýju grasi verður mikil breyting fyrir iðkendur. Farið verður í útboð strax í janúar og vinna hefst síðan við völlinn næsta vor með það fyrir augum að æfingar og keppni geti hafist sem allra fyrst á nýjum velli. Veðrið spilar þar einnig stórt hlutverk og vonandi verður vorið með mildara móti svo iðkendur komist sem fyrst inn á nýja völlinn,“ segir Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri. VSÓ ráðgjöf mun hanna nýtt yfirborð vallarins
en undanfarin ár hefur mikil þróun átt sér stað í þeim efnum. Völlurinn verður hannaður ofan á púða sem tryggja meiri mýkt og þægindi.

„Haukur Geirmundsson íþróttafulltrúi mun vinna að þessari framkvæmd með knattspyrnudeild Gróttu og standa vonir til að verkið gangi vel og að deildin verði fyrir sem minnstri röskun næsta sumar.“ Segir Ásgerður ennfremur.
Sannkölluð gleðitíðindi fyrir Gróttufólk!
Brautryðjandinn Guðfinna Kristín
Guðfinna Kristín Björnsdóttir, eða Guffa eins og hún er jafnan kölluð, varð í haust fyrsta stelpan til að hljóta Ísbjarnarbikarinn en hann er árlega veittur þeim yngri flokka leikmanni Gróttu sem þykir hafa skarað fram úr. Guffa hefur leikið með Gróttu upp yngri flokkana en í sumar var hún fyrirliði Gróttu/ KR í 2. flokki. Með dugnaði og góðri frammistöðu vann hún sér sæti í æfingahópi meistaraflokks KR og í haust skrifaði hún undir meistaraflokkssamning hjá liðinu.
Ekki er ýkja langt síðan knattspyrnuæfingar stúlkna hófust hjá Gróttu en þó hillir strax undir að öflugir leikmenn séu að koma upp úr yngri flokka starfinu. Guðfinna og Sofia Guðmundsdóttir sömdu í haust við meistaraflokk KR en það er deginum ljósara að samstarf Gróttu og KR í 2., 3. og 4. flokki kvenna er að skila árangri. Á næstu misserum gæti svo meistaraflokkur kvenna hjá Gróttu tekið til starfa en það mun gefa ungum leikmönnum Gróttu og KR tækifæri á að spila með meistaraflokki í 1. deild áður en stökkið yrði tekið upp í Pepsi-deildina með KR.
„Það er gríðarlega mikilvægt fyrir ungar stelpur, eins og stráka, að eiga fyrirmyndir í


boltanum, hvort sem er á skjánum eða úti á velli. Með lítilli umfjöllun um kvennabolta í fjölmiðlum er þeim mun mikilvægara fyrir stelpurnar að finna sínar fyrirmyndir á vellinum. Þegar ég var lítil að æfa fótbolta með Gróttu var enginn leikmaður sem maður gat horft upp til. Þetta er búið að breytast ótrúlega mikið með samstarfinu við KR og er Grótta/KR núna með flott lið í 11-manna boltanum. Svo erum við nokkrar Gróttustelpur að æfa með meistaraflokki KR sem spilar í úrvalsdeild og einnig
GRÓTTUFÓLK
BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR
yrði stofnun meistaraflokks kvenna hjá Gróttu frábært skref fyrir félagið. Nú hefur kvennaboltinn aldrei verið jafn sterkur í Gróttu og ég vona innilega að stelpurnar haldi áfram að mæta á æfingar, bæta sig og hafa gaman. Þá stefnir allt í að meistaraflokkur kvenna hjá Gróttu verði stórhættulegt lið eftir nokkur ár.“ segir Guffa.


Unga kynslóðin

Arnþór Páll Hafsteinsson 4. flokki karla
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta? 6 ára
Hvaða stöðu spilar þú?
Ég spila miðju
Með hvaða liðum heldurðu?
Liverpool og svo að sjálfsögðu Gróttu
Hver er þinn uppáhalds fótboltamaður/kona og af hverju?
Suárez því hann er bestur
Hvað er skemmtilegast við að æfa fótbolta hjá Gróttu? Skemmtilegir strákar og góðir þjálfarar
Hver er uppáhaldslandsliðsmaðurinn/konan þín?
Kolbeinn Sigþórsson
Lýstu flottasta marki sem þú hefur skorað? Á einu
Vestmannaeyjamótinu var ég settur í vörn og ég fékk boltann og skaut langt fyrir aftan miðju og skoraði.
Edda Steingrímsdóttir
4. flokki kvenna
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta? 7 ára
Hvaða stöðu spilar þú?
Ég spila oftast á kantinum
Með hvaða liðum heldurðu?
Manchester United og Gróttu
Hver er þinn uppáhalds fótboltamaður/kona og af hverju?

Messi, því hann er frábær í fótbolta Hvað er skemmtilegast við að æfa fótbolta hjá Gróttu? Skemmtilegir þjálfarar og gaman á æfingum Hver er uppáhaldslandsliðsmaðurinn/konan þín?
Sara Björk Gunnarsdóttir
Lýstu flottasta marki sem þú hefur skorað?
Einu sinni skoraði ég skeytin inn, það var nú ekki leiðinlegt!

GRÓTTUFÓLK
Rakel Lóa Brynjarsdóttir 5. flokki kvenna
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta? 5 ára í Englandi
Hvaða stöðu spilar þú?
Sóknarmaður, stundum kant
Með hvaða liðum heldurðu?
Manchester Untited
Hver er þinn uppáhalds fótboltamaður/kona og af hverju?

Brynjar Björn, því hann er góð fyrirmynd.
Hvað er skemmtilegast við að æfa fótbolta hjá Gróttu?
Allir vinir mínir eru þar og geggjaður þjálfari.
Hver er uppáhaldslandsliðsmaðurinn/konan þín?
Gylfi Sigurðsson, hann var líka í Reading með pabba.
Lýstu flottasta marki sem þú hefur skorað?
Skoraði beint úr horni einu sinni, það var flott.
Halldór Orri Jónsson
5. flokki karla
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta? Þegar ég var 7 ára
Hvaða stöðu spilar þú?
Ég spila framherja
Með hvaða liðum heldurðu?
Arsenal, Barcelona, PSG, KR og Gróttu

Hver er þinn uppáhalds fótboltamaður/kona og af hverju?
Aubamayang, Messi, Suarez og Neymar af því að þeir eru skemmtilegir leikmenn
Hvað er skemmtilegast við að æfa fótbolta hjá Gróttu?
Skemmtilegir þjálfarar og liðsfélagar og svo er Grótta frábær klúbbur
Hver er uppáhaldslandsliðsmaðurinn/konan þín?
Kolbeinn, Alfreð, Jói Berg og Margrét Lára
Lýstu flottasta marki sem þú hefur skorað?
Hef skorað svo mörg.
BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR


Fyrsti meistaraflokkur kvenna í sögu knattspyrnudeildar Gróttu

Þrjár ungar Gróttustelpur hafa undanfarnar vikur unnið hörðum höndum að stofnun fyrsta meistaraflokks kvenna í sögu knattspyrnudeildar Gróttu. Síðastliðið sumar útskrifaðist árgangur ‘96 stelpna úr 2. flokki Gróttu/KR og fóru þær því að vinna að stofnun meistaraflokks svo þær geti áfram spilað fótbolta undir merkjum félagsins. Stelpurnar í 1996-árganginum byrjuðu að æfa fótbolta árið 2008 og myndaðist strax góður liðsandi hjá stelpunum sem hefur haldist allar götur síðan.
Kvennafótboltinn á Seltjarnarnesi er á mikilli uppleið og sem dæmi má nefna að 27 stelpur eru skráðar í 7. flokk kvenna en fyrir tveimur árum voru aðeins örfáar stelpur á þessum aldri að æfa. Fótboltaáhugi stelpna fer ört vaxandi á Nesinu og er stofnun meistaraflokks er því stór liður í áframhaldandi uppbyggingu kvennafótbolta á Seltjarnarnesi. Gróttublaðið heyrði hljóðið í Jórunni Maríu, Karen Sif og Tinnu Bjarkar, forsprökkum nýs meistaraflokks.
Hvað varð til þess að þið fóruð í það að stofna meistaraflokk?
Það hefur lengi verið draumur okkar stelpnanna að stofna fyrsta meistaraflokk kvenna í Gróttu. Nú þegar við, sem erum fæddar árið 1996, gengum upp úr 2. flokki í haust ákváðum við að gera drauminn að veruleika. Okkur langaði að halda áfram að æfa fótbolta en gátum ekki hugsað okkur að fara í annað félag, völlurinn enda orðinn okkur sem annað heimili og Gróttuhjartað stækkað mikið í gegnum árin. Við vorum þrjár sem tókum málið í okkar hendur,
fórum á fund bæjarstjórans, stjórnar knattspyrnudeildarinnar og aðalstjórnar Gróttu en allir tóku mjög vel í hugmyndina. Í kjölfarið var kvennaráði meistaraflokks komið á laggirnar. Kvennaráð meistaraflokks samanstendur af sex einstaklingum, þeim Guðmundi Ara Sigurjónssyni, Guðbjörgu Erlendsdóttur, Hafdísi Guðmundsdóttur Nielsen, Jórunni Maríu Þorsteinsdóttur, Karen Sif Magnúsdóttur og Tinnu Bjarkar Jónsdóttur.
Hvenær mun meistaraflokkurinn byrja að æfa?
Fyrsta æfing flokksins fór fram á Vivaldivellinum þriðjudaginn 17. nóvember og var hörkumæting. Alex, þjálfari 2. flokks kvenna, bauð okkur að vera með á æfingu 2. flokks og þáðum við það með þökkum enda mjög spenntar fyrir að reima á okkur takkaskóna og byrja að æfa saman. Það mætti flottur hópur sem væntir þess að æfa fram eftir vetri og hefur stefnan verið sett á þátttöku í Íslandsmótinu næsta sumar, þá í 1. deild kvenna.
Hvernig verður meistaraflokkur kvenna fjármagnaður?
Gaman er að segja frá því að við erum búnar að næla okkur í fyrsta styrktaraðilann, Björnsbakarí í Vesturbæ. Lógó bakarísins verður á stuttbuxum keppnisbúninga okkar og þökkum við þeim kærlega fyrir þann stuðning. Við erum svo búnar að senda inn erindi til ÍTS og vonumst eftir að fá styrk frá bænum eins og aðrir meistaraflokkar Gróttu. Það kostar sitt að kaupa bolta, búninga og borga þjálfara laun en við erum á fullu að leita að fleiri styrktaraðilum sem eru tilbúnir að vera með okkur í þessu verkefni!
Eitthvað að lokum?
Hafir þú áhuga á aðstoða okkur við fjármögnun flokksins eða að ganga til liðs við hann geturðu haft samband við Jórunni Maríu (jormtor@verslo.is) til að nálgast æfingartíma, allir eru meira en velkomnir! Það eru spennandi tímar framundan og við vonumst eftir góðum undirtektum og stuðningi næsta sumar.

Kría á flugi
Knattspyrnufélagið Kría var stofnað í ársbyrjun 2014 og í sumar tók liðið í annað sinn þátt í 4. deild Íslandsmótsins. Sem fyrr var Kríuliðið einungis skipað uppöldum Gróttumönnum en 30 leikmenn komu við sögu í sumar. Samstarf Gróttu og Kríu var áfram til fyrirmyndar en liðsmenn Kríu höfðu veg og vanda að dómgæslu hjá 2. flokki karla og kvenna. Þá var einnig gott samstarf með 2. flokki karla sem í sumar hét Grótta/Kría til að leikmenn 2. flokksins gætu fengið tækifæri til að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki með Kríu.
Annað árið í röð endaði Kría í 3. sæti í sínum riðli og var því einu sæti frá því að komast í úrslitakeppni 4. deildar. Kríumenn lögðu 3. deildarlið Víðis í fyrstu umferð bikarkeppninnar og voru svo hársbreidd frá því að sigra Álftanes í framlengdum leik á Vivaldivellinum. Eiríkur Ársælsson var sigursæll á lokahófi Kríu en hann var kjörinn leikmaður ársins ásamt því að fá gullskóinn sem markóngur. Eiríkur gerði sér lítið fyrir og skoraði 11 mörk í 12 leikjum í 4. deildinni og var markahæstur í D-riðli. Pétur Már Harðarson tók við þjálfun Kríu fyrir síðasta tímabil en Pétur á að baki yfir
100 meistaraflokksleiki fyrir Gróttu og starfar sem yngri flokka þjálfari hjá félaginu. Blaðamaður Gróttublaðsins heyrði hljóðið í Pétri Má sem kvaðst ánægður með tímabilið: „Ég er að mestu leyti sáttur en það hefði vissulega verið gaman að komast í úrslitakeppnina. Þetta er góður hópur sem tók alltaf vel í þær æfingar sem voru settar upp. Ég held að framtíðin sé björt hjá Kríu. Sérstaklega ef þetta góða samstarf við Gróttu heldur áfram svo að efnilegir leikmenn úr 2. flokki fái að spila meistaraflokksleiki með Kríu áður en þeir taka skrefið upp í Gróttuliðið. Ég tel að það gagnist báðum félögum.“ Segir Pétur aðspurður um samstarf Gróttu og Kríu og framtíðarhorfur 4. deildarliðsins. Að lokum spyrjum við Pétur hvort hann telji að einhverjir þeirra leikmanna sem léku með Kríu í sumar eigi erindi í Gróttuliðið í 2. deildinni á þessu tímabili? „Í liðinu frá því í sumar eru klárlega strákar sem gætu gert góða hluti með Gróttu. Það er bara undir þeim komið hvort þeir séu tilbúnir til að eyða meiri tíma í æfingar og koma sér í betra form. Aðalmálið er að mæta og fá að prófa í nokkrar vikur.“
Halarófur af leikskólabörnum

Glöggir Nesbúar hafa vafalítið rekið augun í knattspyrnuþjálfara félagsins með halarófu af leikskólakrökkum í eftirdragi áleiðis inn í íþróttahús. Knattspyrnudeild Gróttu hefur á árinu bryddað upp á þeirri nýjung að halda æfingar 8. flokks, sem er skipaður börnum á leikskólaaldri, á leikskólatíma.
Mikil ánægja ríkir með þetta fyrirkomulag hjá foreldrum enda gott fyrir börnin að þurfa ekki að bíða með að fara á æfingu þar til að leikskóla er lokið. Soffía Guðmundsdóttir leikskólastjóri hefur sýnt verkefninu dyggan stuðning ásamt leikskólakennurum á Sólbrekku sem sækja börnin í íþróttahúsið að líflegri æfingu lokinni. Starfsfólk íþróttahússins, ekki síst Ingi húsvörður, hefur einnig tekið
hópunum fagnandi og verið þeim innan handar. Björn Breiðfjörð Valdimarsson er þjálfari 8. flokks sem hefur um nokkurt skeið verið starfræktur hjá Gróttu.
Aðspurður segir Björn að iðkendum hafi fjölgað mikið eftir að samstarfið við leikskólana hófst, þá sér í lagi stelpum sem æfa á fimmtudögum en strákarnir æfa á föstudögum. Á laugardagsmorgnum er svo boðið upp á sameiginlega æfingu hjá
strákum og stelpum. Markmið 8. flokksins er að kynna börnin fyrir fótbolta og kenna undirstöðuatriði leiksins. Á æfingum fá þau tækifæri til að tengjast og vinna saman á nýjum vettvangi og fá jafnframt forsmekk að skipulögðu íþróttastarfi. Engin áhersla er á keppni eða úrslit, heldur öðru fremur skemmtun, holla hreyfingu og góðan félagsskap.
Grótta – Þar sem hjarta bæjarins slær

Í huga íbúa
á Nesinu er Seltjarnarnesbær
þekktur fyrir
öflugt íþróttastarf.
Seltjarnarnesbær hefur um langan
tíma fjárfest mikið í íþróttastarfi
og er það vel. Þessar fjárfestingar eru hagkvæmar og hafa skilað sér ríkulega í
öflugu samfélagi og einstaklingum innan raða Gróttu sem skilað hafa sér á pall þeirra bestu. Íþróttastarf Gróttu er hornsteinn félagslegra samskipta í bæjarfélaginu, þar er vettvangur leiks og lífs, því er ekki skrítið þegar talað er um hjartað í bænum að íþróttamiðstöðin komi upp í huga manns. Seltjarnarnesbær er stoltur af góðu og öflugu starfi Gróttu. Með öflugu foreldraog sjálfboðaliðastarfi tekst félaginu að byggja upp öflugt íþróttafélag. Við eigum
öll að þakka og lofa starf sjálfboðaliðanna en félagið stendur og fellur með þeirra starfi.Ég vil því hvetja alla íbúa
Seltjarnarness til að leggja sitt af mörkum og styðja við íþróttafélag bæjarins. Ég óska öllu íþróttafólki, fjölskyldum þeirra og þjálfurum, sem og velunnurum, góðs gengis og gleðilegra jóla.
Áfram Grótta.
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri
Grótta á ferð og flugi
Gróttukrakkar lögðu Evrópu að fótum sér á árinu. Ritstjórn Gróttublaðsins fékk sendar ævintýralegar ferðasögur frá æfinga- og keppnisferðum.

Dramatík á Dana Cup
Annað árið í röð hélt eldra ár 3. flokks kvenna í Gróttu/KR á stórmótið Dana Cup í Hjørring. Í fyrra fóru 13 stelpur úr 2000-árganginum en í þetta skiptið taldi hópurinn 24 leikmenn og voru tvö lið send til leiks. Það er óhætt að segja að stelpurnar í 2001 árganginum hafi náð vel saman eftir að Grótta og KR sameinuðust fyrir tveimur árum en mikil og góð liðsheild hefur myndast í hópnum. Við skulum gefa tveimur leikmönnum orðið.
Spennan var mikil þegar við mættum kl. 04:30 í rútuna sem keyrði okkur á Keflavíkurflugvöll. Allir í glæsilegum, snjóhvítum ferðapeysum og til í slaginn. Foreldrarnir stóðu snöktandi á planinu og kvöddu hópinn sem keyrði sem leið lá út á Keflavíkurflugvöll og þaðan var flogið til Billund á Jótlandi. Með í för voru 24 stelpur, þjálfararnir Maggi og Alex og hinir frábæru fararstjóra Birgir og Vilborg. Eftir þriggja
klukkutíma akstur komum við loksins á áfangastað og komum okkur fyrir í fínum skóla stutt frá mótssvæðinu. Það var lítið um að vera í bænum enda enn tveir dagar í mót. Stemningin átti sannarlega eftir að breytast en á Dana Cup keppa rúmlega 15.000 stelpur og strákar frá öllum heimshornum. Daginn eftir tókum við morgunæfingu áður en við fórum í Farup Sommerland skemmtigarðinn. Það
var mjög skemmtilegt þó að þjálfarar og fararstjórar hafi reyndar þurft að taka hópinn í gegn vegna lélegrar stundvísi.
Mótið var sett daginn eftir með mikilli opnunarhátíð sem byrjaði á skrúðgöngu keppenda. Strákarnir í 4. flokki Breiðabliks voru mættir á svæðið og löbbuðum við samferða þeim inn á aðalvöll Hjørring þar sem okkar biðu rosalegir tónleikar.

Morguninn eftir var loksins komið að fyrsta leik. Það var hellidemba þennan dag sem gerði leikina bara eftirminnilegri. A-liðið vann glæsilegan 3-0 sigur en B-liðið tapaði á lokasprettinum eftir að hafa verið yfir í hálfleik. Eftir leikina var farið upp í skóla þar sem tók við hraðþurrkun á keppnisbúningunum enda aðrir leikir um kvöldið. Eftir riðlakeppni var ljóst að A-liðið myndi leika í A-úrslitum og B-liðið í B-úrslitum. B-liðið vann fyrsta leik sinn í útsláttarkeppninni á dramatískan

hátt með því að skora tvö mörk á lokasekúndum leiksins. A-liðið tapaði hins vegar í vítaspyrnukeppni með þreföldum bráðabana sem var hrikalega svekkjandi og ósanngjarnt. B-liðið var svo slegið af gegn öflugum sænskum stelpum og mótið því búið fyrr en áætlað var hjá okkur stelpunum! Við létum okkur þó ekki leiðast það sem eftir lifði ferðar.
Við kíktum í miðbæinn þar sem H&M var vinsælasti áfangastaðurinn, héldum
GRÓTTUFÓLK
BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR
DAG SVERK
HÖNNUN OG RÁÐGJÖF

upp á afmæli Rutar og fórum á Dana Cup ballið þar sem langflestir höguðu sér sómasamlega. Ekki má heldur gleyma heimsókn á McDonalds sem vakti sérstaklega mikla lukku hjá Völu og Sóleyju sem eru gríðarlegir aðdáendur veitingastaðarins. Heimferðin gekk vel og komu allir heim með frábærar minningar og góða reynslu í farteskinu.
Kamilla og Sóley

Grótta á ferð og flugi


(Street)
Um páskana fór 2. flokkur karla í æfingaferð til London. Framundan var hörð keppni í B-riðli Íslandsmótsins en Gróttumenn höfðu unnið sig upp úr C-deild árið áður. Það var því kærkomið að geta æft við bestu aðstæður í nokkra daga í páskafríinu en ýmislegt skemmtilegt dreif á daga hópsins utan fótboltans. Guðjón Kristinsson, fararstjóri, segir hér frá eftirminnilegri ferð.
Það var glæsilegur 32 manna hópur sem lagði í hann að morgni hins 27. mars.
Með í för voru 28 strákar, þjálfararnir Jenni, Bjarki og Maggi og svo undirritaður fararstjóri. Gist var á flottu íbúðahóteli í vestur London þar sem reyndi á strákana við heimilisstörfin, eitthvað sem þeir eru greinilega vanir – eða þannig! Strákarnir keyptu sjálfir inn í morgunmat og hádegismat og komu matreiðsluhæfileikar sumra reyndar á óvart.
Æfingarnar fóru fram á glæsilegu
æfingasvæði Queens Park Rangers, þess fornfræga Lundúnafélags, þar sem Heiðar Helguson gerði t.a.m. garðinn frægan. Fyrir fyrstu æfingu hópsins var gengið yfir bílaplanið þar sem leikmenn QPR höfðu lagt hverri glæsikerrunni af annarri. Það tók strákana dágóðan tíma að giska á hvaða stjarna ætti hvaða bíl. Æfingarnar voru stífar en aðstæður á grasvöllum félagsins voru frábærar. Aðallið QPR æfði ekki langt frá okkar mönnum en stelpulið frá Viking Stavanger var einnig á svæðinu um tíma. Þær norsku þekktu vel til Gróttumannsins
Indriða Sigurðssonar enda var hann fyrirliði karlaliðs þeirra. Svona er heimurinn lítill!
Í ferðinni hélt hópurinn til St Albans í norðurhluta borgarinnar þar sem spilaðir voru tveir leikir við unglingalið St Albans City á Clarence Park leikvanginum. Leik
A-liðsins lauk með sannfærandi sigri Gróttu á meðan félögin sættust á skiptan hlut í
B-liðsleiknum. Það var sérlega skemmtileg og góð reynsla fyrir alla að spila á móti ensku liði og skilar það vafalítið nokkrum reynsluprikum í ferðatöskuna. Fyrir utan æfingarnar sjálfar og leikina var hápunktur ferðarinnar þegar strákarnir mættu á hinn stórglæsilega þjóðarleikvang Englands, Wembley, þar sem þeir sáu England sigra Litháen 4 - 0. Flestir gátu fagnað marki þegar „þeirra“ maður skoraði fyrir England en mörkin skiptust á milli leikmanna Manchester United, Arsenal, Liverpool og Tottenham.
Strákarnir voru tíðir gestir í miðborg Lundúna og náðu flestir að tæma
innkaupalistann sinn og gott betur en það. Hinn víðförli Magnús Örn Helgason tók hópinn í skoðunarferð um borgina þar sem helstu kennileiti voru skoðuð og auðvitað fylgdi góð saga með hverjum stað. Engin stórslys urðu í ferðinni og heppnaðist hún í alla staði vel. Hópurinn var til fyrirmyndar, eins og alltaf, og nutu drengirnir þess að æfa og spila á góðu grasi á þessum árstíma. Ferðir sem þessar eru ómetanlegar fyrir strákana og hjálpa þeim að kynnast hver öðrum betur og leggja þannig mikilvæg lóð á vogarskálar liðsheildarinnar.
Það hefur verið afskaplega gaman að fylgjast með þessum flotta hópi frá því á Skagamótinu 2003. Keppnisferðirnar eru óteljandi og hver annarri eftirminnilegri. Þessir drengir hafa þroskast mikið innan vallar sem utan og mynda saman sterka liðsheild. Það er óhætt að segja að framtíðin sé björt hjá Gróttu.
Gaui Kristins
Er foreldrastarf nauðsynlegt?
Margir velta því fyrir sér hvort að foreldrastarf vegna tómstunda barna sé nauðsynlegt.
Sumir halda því jafnvel fram að þetta sé óþarfa tímaeyðsla og álag sem lagt er á foreldra. Í kjölfar slíkra fullyrðinga kemur gjarnan athugasemd eins og „ég man ekki eftir að foreldrar mínir hafi nokkurn tímann horft á mig spila“ og „glætan að mamma og pabbi hefðu tekið sér frí til að fara með allan hópinn á mót“.
Á móti gæti einhver spurt sig hvort allt hafi verið svona gott í þá gömlu, góðu daga?
Upp í hugann koma afskipt börn, unglingadrykkja, reykingar og óregla. Okkur langar ekki þangað. Rannsóknir sýna að skipulagt tómstundastarf og íþróttir barna og unglinga er besta forvörnin gegn ýmsum vandamálum. Það er okkar hlutverk sem foreldra að standa með börnunum okkar og styðja þau með öllum mögulegum ráðum og dáðum.
Nú stefnir þessi pistill í átt að biblíulestri hinna heilögu foreldra sem ekkert bjátar að hjá. En það er ekki raunin. Við erum öll að ströggla við sama tímaleysið og samviskubitið ætlar alla að naga inn að beini. Þess vegna er foreldrastarf mikilvægt. Til að við öll getum hjálpast að og létt undir með hvort öðru.
Við vinkonurnar urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að vera liðstjórar með 5. flokki kvenna í knattspyrnu á TM-mótinu í Vestmanneyjum síðasta sumar. Við, ásamt Bjarka þjálfara, fylgdum glæsilegum Gróttuhópi til Eyja þar sem 16 stúlkur voru sjálfum sér og Gróttu til mikils sóma.
TM mótið er heimsmeistaramót stúlkna á þessum aldri þar sem þær uppskera eftir erfiði vetrarins, kynnast hvor annarri á nýjan hátt sem og stúlkum úr öðrum liðum. Þá fá þær einnig smjörþefinn af sjálfstæði þar sem hver og ein þarf að hugsa um sig og sitt dót.
Undirbúningur ferðarinnar gekk vel enda allir foreldrar tilbúnir til að leggja hönd á plóg við fjáröflun og skipulag. Margir fylgdu hópnum til Eyja en Landeyjahöfn gerir það að verkum að hægt er að koma innan dagsins og fylgjast með ef fólk hefur ekki tök á að gista.
Við erum mjög heppnar að „okkar“ foreldrahópur er samheldinn og mjög skemmtilegur. Það er mikill húmor í öllum og fólk af vilja gert til að hjálpa til á allan hátt. Hvort sem það var að fara með stelpurnar í diskósund, gefa liðstjórum og þjálfara frí eitt kvöld til að nærast á öðru en spagettí, lauma til okkar kaffibolla frá girnilegu kaffihúsi, fylla hjólhýsið af farangri stúlknanna og jafnvel hlaupa í þjálfarastarfið þegar leikir sköruðust. Allt skiptir þetta máli. Við þrjú skemmtum okkur líka konunglega.
Bjarki stóð sig eins og hetja allan tímann. Hann stóð vaktina á öllum leikjum og þurfti oft að hlaupa á milli valla. Okkar hlutverk var auðvitað að koma öllum út á völl en það tekur á að koma sextán 11-12 ára stelpum út úr húsi á réttum tíma. Bara að koma öðru liðinu út úr húsi á réttum tíma kallaði á tvær mömmur!


Þá er nú gott að vera góði og vondi liðsstjórinn. Önnur var hinn góði liðstjóri. Sú sem leyfði að kúra örlítið lengur, gaf fótanudd, mundi ekki alveg tímaplanið og kom með alvöru kaffi handa „alvöru” liðsstjóranum. Hin var vondi liðstjórinn. Þessi sem rak á fætur, lét stelpurnar ganga frá dótinu sínu, breytti svefnstæðum svo að þessi með heimþrá gæti sofið hönd í hönd við hana og mundi tímaplanið. En þetta vinnur allt saman. Við lærðum líka heilmikið í ferðinni. Við kynntumst stelpum sem við héldum að við þekktum svo vel á annan hátt og fengum jafnvel að vita eitt eða tvö leyndarmál.
Þetta er foreldrastarf. Að skipta hlutunum á milli sín þar sem margar hendur vinna létt verk. Þeir sem geta smurt samlokur, verið liðstjórar, skipulagt fjáraflanir, verið stuðningsmenn á hliðarlínunni, skutlað á leiki, keypt djúsinn, talið í dósasöfnuninni.
Allt þetta skiptir máli. Allt þetta léttir á. Allt þetta léttir á samviskubitinu sem ég og þú höfum yfir því að geta ekki gert allt. Samanlagt er þetta það sem gerir foreldrastarfið skemmtilegt og gerir alla umgjörðina mögulega.
Tökum höndum saman og hjálpumst að. Það er víst sagt að það taki heilt þorp til að ala upp barn.
Liðsstjórarnir, Helga Sverris og Sigga Sigmars

GRÓTTUFÓLK
BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR
Alla, Jenni, Ísfold og Guðný
Anna, Elva og Egill Flóki
Arna og Helgi
Arnfríður, Auður og fjölskylda
Árni og Brynja
Ásgeir og Christian
Ásgerður Halldórsdóttir
Berglind, Kristján, Ágúst
Kári og Jón Tómas
Birgir Tjörvi, Erla Kristín og fjölskylda
Ceca og Ingimar Sigurðsson
Egill Þór og Sigrún Edda
Einar Óli Þorvarðarson
Eiríkur Elís og Edda
Fjölskyldan á Bakkavör 18
Fjölskyldan á Bakkavör 28

Fjölskyldan á Barðaströnd 8
Fjölskyldan á Barðaströnd 19
Fjölskyldan á Barðaströnd 37
Fjölskyldan á Barðaströnd 41
Fjölskyldan á Bollagörðum 20
Fjölskyldan á Bollagörðum 55
Fjölskyldan á Bollagörðum 65
Fjölskyldan á Bollagörðum 85
Fjölskyldan á Bollagörðum 93
Fjölskyldan á Bollagörðum 109
Fjölskyldan á Bollagörðum 121
Fjölskyldan á Fornuströnd 4
Fjölskyldan á Fornuströnd 17
Fjölskyldan á Hofgörðum 4
Fjölskyldan á Lindarbraut 19
Fjölskyldan á Miðbraut 22

Fjölskyldan á Nesbala 30
Fjölskyldan á Nesbala 108
Fjölskyldan á Nesbala 120
Fjölskyldan á Selbraut 5
Fjölskyldan á Selbraut 70
Fjölskyldan á Skerjabraut 5
Fjölskyldan á Sævargörðum 8
Fjölskyldan á Vesturströnd 1
Fjölskyldan á Vesturströnd 3
Fjölskyldan á Vesturströnd 16
Franz Ploder
Guðrún, Sigríður og Jódís Rúrý
HárSaga
Hildur, Þórhallur, Halldór, Eyrún og Sólveig
Inga Huld, Siggi og Gunnella
Lárus, Sjöfn, Aron Freyr, Elín Helga og Sófía
Lovísa, Halldór, Steinn, Sara og Eva
Magnús, Jana, Kristófer, Karen og Tómas
Mangi, Elín, Elín Eir og Jón Agnar
Margrét Lind og Jóhann Pétur
Nesvinir - vinir Nessins. Ávallt.
Ómar Ingi, Arnaldur, Sella og Dóri á Barðaströnd 49
Óskar, Lilja, Arnór og Alexander
Pétur og Bjarni Rögnvaldssynir
Ragnar Jónsson, Dóra Guðmundsdóttir, Davíð Fannar og Selma Katrín
Rögnvaldur Dofri og Sigríður Björk
Sigurður Tryggvi og Sigurgeir Andri
Sigurgeir Sigurðsson
Sólveig og Haraldur á Miðbraut 25
Sverrir Arnar, Hjalti, Sandra og Ísabella
Yrsa og Óli
Þór, María og börn
Kristófer og Kristófer æfðu með Brommapojkarna

Tveir ungir og efnilegir Gróttumenn, þeir Kristófer Orri Pétursson (17 ára) og Kristófer Scheving (16 ára), fóru í lok september til æfinga hjá sænska liðinu Brommapojkarna. Með í för voru Magnús Örn Helgason yfirþjálfari knattspyrnudeildar og þjálfarinn Bjarki Már Ólafsson en þeir félagar kynntu sér þjálfunaraðferðir og hugmyndafræði sænska liðsins og funduðu með forsvarsmönnum félagsins. Unglingastarf Brommapojkarna er rómað en félagið er þekkt fyrir að búa til framúrskarandi knattspyrnumenn.
Sem dæmi hefur Brommapojkarna á þessu ári selt leikmenn til Chelsea, Bayern München, Sunderland og Udinese. Gróttublaðið tók púlsinn
á leikmönnunum ungu sem sögðu ferðina hafa veriðfrábæra reynslu: „Þetta var frábær ferðí alla staði. Tempóiðáæfingum var mikið enda leikmennirnir í Bromma frábærir og svo var öll aðstaða þarna hrikalega góð. Þetta var góð reynsla sem hefur hjálpað mér mikið,“ sagði Kristófer Scheving aðspurður um ferðina til Svíþjóðar. Nafni hans Kristófer Orri tók í sama streng: „Mér fannst ótrúlega gaman að fá tækifæri til að sjá hvar maður stendur miðað við leikmenn í einu besta unglingaliði á Norðurlöndunum. Þetta var allt mjög „professional“ og skemmtilegt að fá að vera hluti af þannig umhverfi í heila viku.“ Magnús Örn Helgason, yfirþjálfari knattspyrnudeildar, var
sömuleiðis sáttur með ferðina: „Þetta var frábær vika í alla staði.“ „Það var mjög lærdómsríkt fyrir okkur Bjarka að funda með forsvarsmönnum og þjálfurum Brommapojkarna og heyra hvernig þeir haga sinni þjálfun. Að byggja upp framúrskarandi leikmenn er helsta markmið félagsins og er aðalliðið nánast eingöngu skipað heimamönnum. Ekki einu sinni þeim bestu eða næstbestu því það er búið að selja þá allra til stærri félaga! Það sem stóð þó upp úr var að fylgjast með okkar mönnum og sjá hve vel þeir stóðu sig á æfingum með mörgum af efnilegustu leikmönnum Svíþjóðar,” sagði Magnús sem var greinilega hreykinn af lærisveinum sínum.
Rauða ljónið


Það dylst fáum Seltirningum að framboð af vörum og þjónustu hefur ekki alltaf verið með besta móti í bæjarfélaginu. Við búum þó svo vel að hafa stórgóðan veitingastað í hjarta bæjarins í kjallara verslunarmiðstöðvarinnar á Eiðistorgi. Rauða ljónið var stofnað vorið 1989 og núverandi staðarhaldari er framreiðslumaðurinn Hafsteinn Egilsson. Hafsteinn hefur verið duglegur að styðja við bakið á Gróttu en Rauða ljónið hefur verið styrktaraðili félagins um árabil.
Á Rauða ljóninu má fá heitan mat af dýrindis hlaðborði í hádeginu auk þess sem hægt er að panta eftir matseðli á kvöldin (hann má sjá á vefsíðunni www.ljonid.is).
Upplagt er að horfa á íþróttaleiki á staðnum. Þar eru fjölmargir risaskjáir og myndast jafnan góð stemmning yfir boltaleikjum í beinni meðan gestir gæða sér á dýrindis pizzu eða hamborgara. Einnig er hægt grípa með sér glóðvolga pizzu í kvöldmatinn en veittur er 30% afsláttur
af sóttum pizzum. Betri stofu staðarins má leigja undir ýmiss konar veislur og viðburði en hún hentar fyrir ýmsar stærðir hópa. Aðspurður segir Hafsteinn að pizzurnar hafi vakið mikla athygli og að algengt sé að fjölskyldur komi saman í kvöldmat um helgar. Í ljósi þess ætlar Hafsteinn að hefja nýtt ár með pizzuhlaðborði alla föstudaga, laugardaga og sunnudaga frá kl. 18-20.

Ekki gefa bara eitthvað, gefðu frekar hvað sem er.
Með gjafakorti Landsbankans er ekkert mál að velja réttu jólagjöfina.
Þú ákveður upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina. Þú færð gjafakortið í næsta útibúi.


Einstakt (bæjar)félag
Undanfarinn áratug hefur sannkölluð bylting orðið í aðstöðu til knattpyrnuiðkunar hjá Gróttu. Vorið 2006 var gervigras lagt á gamla malarvöllinn við Suðurströnd og næsta vor mun nýtt og betra gervigras
leysa það gamla af hólmi. Enginn skortur er á efniviði í yngri flokkum félagsins og stelpurnar hafa ekki síst verið að sækja í sig veðrið. Framtíðin er því björt.
Seltjarnarnes er einstakt bæjarfélag. Hér höfum við allt til alls. Má þar nefna nálægð við náttúruna, frábæra skóla og mikið öryggi. Hvað eftir annað sýna rannsóknir að þátttaka barna og unglinga í bæjarfélaginu í skipulögðu íþróttastarfi sé með því mesta á landinu – og skeri sig jafnvel úr – auk þess sem áfengis- og vímuefnaneysla ungmenna á
Seltjarnarnesi er með allra minnsta móti. Þetta er ekki tilviljun. Forvarnargildi íþrótta er vel þekkt og starf íþróttafélagsins Gróttu á sinn þátt í þeim einstaka árangri sem náðst hefur á Nesinu.
Rekstur íþróttafélags er margslunginn og kostnaðarsamur og nýtur Grótta myndarlegs stuðnings frá Seltjarnarnesbæ en þar með er ekki öll sagan sögð. Íþróttafélög hér á landi væru ekki svipur

hjá sjón án dyggrar aðstoðar þeirra fjölmörgu aðila sem leggja hönd á plóg; foreldrar, sjálfboðaliðar og aðrir stuðningsmenn eru ómissandi hluti af starfinu. Það útheimtir mikla vinnu og aðkomu fjölda fólks að sinna yngri flokka starfi vel og byggja upp fullmótað íþróttafólk en hjá Gróttu eru að mínu mati kjöraðstæður til þess. Nú hefur knattspyrnudeild nýlega samið við marga unga Gróttumenn þar sem byggt er ofan á þann góða grunn sem lagður hefur verið í yngri flokka starfi deildarinnar undanfarin ár.
Vinna við stofnun meistaraflokks kvenna er einnig hafin en meistaraflokksráð tók til starfa í haust. Þar eru m.a. á ferð öflugar stelpur sem luku ferð sinni í gegnum yngri flokka félagsins á liðnu tímabili. Ljóst er að
GRÓTTUFÓLK
BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR


mikið er um að vera hjá félaginu og mun stuðningur Seltirninga skipta sköpum. Mætum á völlinn næsta sumar! Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka Magnúsi Erni Helgasyni fyrir ómetanlega aðstoð við vinnslu blaðsins og hvet jafnframt foreldra iðkenda og stuðningsmenn Gróttu til að láta til sín taka í starfinu. Loks óska ég öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!
Ritstjóri Gróttublaðsins 2015 Eyjólfur Garðarsson




Miklaborg óskar
kaupendum eigna
í nýbyggingunum á
Skerjabraut 1-3 og
Hrólfsskálamel
til hamingju með kaupin

og um leið þökkum
við Stólpum ehf
og Skerjabraut ehf fyrir samstarfið.

Miklaborg hlakkar til nýrra
verkefna á Nesinu á næsta ári

Ólafur Finnbogason lögg. fasteignasali
olafur@miklaborg.is sími: 822 2307
Styrktu Gróttu með hverju lítra!
Gróttu-lykillinn veitir þér aukinn afslátt
hjá Orkunni og Shell auk þess sem 1 kr. af hverjum keyptum lítra rennur til Gróttu
Sæktu um lykil á Orkan.is/grotta og við sendum þér sérmerktan Gróttu-lykil heim að dyrum. Þú getur einnig hringt í 578 8800 og látið breyta núverandi Orkulykli í Gróttu-lykil.

2 kr. viðbótarafsláttur á Þinni stöð
Veldu Þína Shell- eða Orkustöð á www.orkan.is og fáðu 2 krónu viðbótarafslátt á þeirri stöð, ofan á þann afslátt sem þú hefur í dag.
Það er ein Orkustöð á Seltjarnarnesi, á Suðurströnd.