Ársskýrsla GOS 2024

Page 1


Ársskýrsla 2024

Ávarp formanns

Kæru félagar.

Senn er á enda enn eitt glæsilegt og viðburðaríkt starfsár Golfklúbbs Selfoss. Golfárið 2024 var sannarlega í anda þess krafts og framsýni sem hefur ríkt hefur hjá GOS síðustu ár. Enn eitt skrefið var tekið í átt þess að hér verði innan fárra ára einn glæsilegasti 18 holu golfvöllur landsins og einhverjar bestu aðstæður til golfiðkunar og æfinga sem finna má. Þrátt fyrir þessar miklu áherslur á uppbyggingu hefur innra starfið blómstrað og er virkur iðkendafjöldi meðlima Golfklúbbs Selfoss til vitnis um það.

Enn á ný var nýliðanámskeið Golfklúbbs Selfoss vel sótt og var virkilega gaman að sjá mörg ný andlit á æfingasvæði, í klúbbhúsinu og á golfvellinum. Það hefur sýnt sig og sannað hversu vel við hlúum að nýliðum í okkar starfi og er mjög mikilvægt að við höldum því áfram ásamt því að fylgja nýliðum eftir inn í starfið. Það er ekki nóg að fá fólk á námskeið í tvö ár og treysta svo á að fólk bjargi sér áfram til að verða virkir iðkendur og félagsmenn. Við verðum að hafa það í huga og leggja okkar af mörkum til að styðja nýja kylfinga inn með hvatningu okkar. Við hlökkum einnig til þess að taka par þrjú völlinn okkar í gagnið - Gosann - og kemur hann til með að styrkja og styðja nýliðastarfið verulega.

Félagsstarfið okkar í GOS hefur blómstrað á árinu. Til marks um það er skráning og þátttaka okkar félagsmanna í vorhreinsunardeginum, mótaröðum, Meistaramótinu, Jónsmessumótinu og Bændaglímunni. En einnig er virkilega gaman að sjá hvernig starf eldri kylfinga í GOS - EldGos - hefur sprungið út á árinu og er virkilega gaman að fylgjast með þeirra metnaðarfulla og virka starfi.

Rekstur klúbbsins er sannarlega góður og sérstaklega í ljósi þess árferðis sem við kylfingar bjuggum við í liðnu golftímabili. Þrátt fyrir að varla sæi til sólar á golfvellinum þetta golfsumarið var veltan rúmlega 172 milljónir króna og hagnaður af rekstri tæpar 16 milljónir. Slíkt verður að teljast frábær niðurstaða og eiga allir sem að rekstrinum koma hrós skilið. Meðlimafjöldi GOS er 729 einstaklingar og er hlutfall kvenna þar af tæplega 40%. Þetta eru glæsilegar tölur og bera starfinu gott vitni.

Á tímum mikillar hagsældar, dugnaðar og framtakssemi stendur Golfklúbbur Selfoss og hans meðlimir frammi fyrir ýmsum áskorunum. Fyrst má nefna framkvæmd stækkunar vallar og vinna við að gera umhverfi vallarins eins vel úr garði og unnt er. Þrátt fyrir mikinn dugnað okkar starfsmanna komum við til með að þurfa að leita til félagsmanna varðandi ýmsa verkþætti þar að lútandi. Einnig eru uppi hugmyndir um stækkun golfskálans og ef af slíku verður þarf samhent átak félagsmanna til að gera þær hugmyndir að veruleika. Einnig er vert að geta þess að hin glæsilega inni aðstaða okkar við Svarfhólsveg er nú þegar orðin of lítil, bæði æfingaaðstaða sem og aðstaða fyrir vélar og aðra starfsemi. Við þurfum að ávarpa lausnir í því tilliti fyrr en síðar.

Þrátt fyrir metfjölda félagsmanna þurfum við eða veita fjöreggjum klúbbsins meiri og betri athygli, við verðum að gæta þess að að það verði stöðug fjölgun yngri iðkenda í klúbbnum. Það er mikið ánægjuefni

að sjá aukningu í fjölda iðkenda á aldursbilinu 1 - 30 ára en áhyggjur vakna þegar iðkendafjöldi barna er skoðaður. Nýjustu upplýsingar sýna fram á að fjöldi barna og ungmenna í golfklúbbum á Íslandi er ekki jafn mikill og hjá hinum Norðurlandaþjóðunum og verðum við einnig vör við það hjá Golfklúbbi Selfoss. Það er mikilvægt að við sameinumst um að kynna golfíþróttina fyrir yngri kynslóðum og sá um leið til þess að eðlileg endurnýjun og vöxtur einkenni okkar starf.

Bygging nýrrar Ölfusárbrúar var staðfest með undirritun hér í golfskálanum á dögunum og er það mikið fagnaðarefni fyrir okkur íbúa Suðurlands að framkvæmdir skulu vera að hefjast. Einnig er þetta mikið ánægjuefni fyrir okkur í Golfklúbbi Selfoss, aðgengi og sýnileiki golfvallar kemur til með að stórbatna. Áskorunin verður fólgin í þolinmæði og tillitssemi á meðan framkvæmdum stendur. Ég þykist þess fullviss að af nægu verður þar að taka, svo mikið er í húfi.

Um leið og ég þakka öllum félagsmönnum samveruna og golfhringina á árinu sem er að líða óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls golfárs á komandi ári.

Páll Sveinsson, formaður Golfklúbbs Selfoss.

Skýrsla stjórnar GOS fyrir golfárið 2024

Stjórn Golfklúbbs Selfoss árið 2024 var skipuð þeim Páli Sveinssyni formanni, Bjarka Má Magnússyni varaformanni, Helenu Guðmundsdóttur gjaldkera, Hreini Þorkelssyni ritara og meðstjórnendunum Ástfríði Sigurðardóttur, Magnúsi J. Magnússyni og Leifi Viðarssyni. Stjórnin fundaði níu sinnum á árinu og hélt aðalfund í desember.

Eins og tíðkast hefur síðustu ár fór vetrarmótaröð í golfhermum af stað í upphafi árs í okkar frábæru inniaðstöðu sem og púttmótaröðin sem Barna- og unglinganefnd hafði veg og vanda af. Aðsóknin í mótaraðirnar var gríðarlega góð en einnig var aðsóknin í inniaðstöðuna með besta móti, mikil og góða aðsókn í púttæfingasvæði og golfherma. Ekki skemmdi fyrir að fjárfest var í nýjum skjávörpum sem juku enn frekar á jákvæða upplifun kylfinga. Einnig fóru inniæfingar barna og unglinga sem og afrekskylfinga af stað á fullum krafti í upphafi árs.

Rysjótt tíð íslenska vetursins býður upp á mikla fjölbreytni en ekki mikinn fyrirsjáanleika. Í því samhengi er gaman að segja frá því að æfingaskýlið var opnað í blíðviðri 12. janúar en í byrjun febrúar lögðu vallarstarfsmenn gönguskíðabraut á vellinum. Starfsmenn GOS nýttu tækifærið í vetur og tóku golfskálann í gegn, glæsilega að verki staðið og skálinn eins og nýr að sjá. Flatir voru sandaðar í byrjun apríl en þá varð ljóst að völlurinn kæmi nokkuð vel undan vetri, ólíkt fyrra ári.

Félagsstarfið í ár var í blóma. Í lok apríl fóru GOSarar í félaga- og æfingaferð til Novo Sancti Petri í Andalúsíu á Spáni. Sú ferð ver gríðarlega vel sótt og vel lukkuð. Ein birtingamynd þess hversu öfluga og virka félagsmenn GOS hefur var vinnu- og vorhreinsunardagurinn sem fram fór laugardaginn 4. maí. Þar mættu nálægt 100 félagsmenn og létu sannarleg til sín taka og gátum við opnað völlinn fyrir félagsmenn daginn eftir eða þann 5. maí. Völlurinn var opnaður viku síðar fyrir hinn almenna kylfing og á sama tíma opnuðum við veitingasöluna í golfskálanum. Hin fjölsóttu nýliðanámskeið hófust í maí, innanfélagsmótaröðin fór af stað í maí, kvennakvöld var haldið 23. maí, fjölsótt Jónsmessumót fór fram í júní, meistaramótið í byrjun júlí, Lindex kvennamótið fór fram í ágúst og bændaglíman var lokamót golfársins í miðjum september. Eldri kylfingar golfklúbbsins - ELDGOS - römmuðu svo glæsileg félagsstarf inn með fjölmennri haustferð á Novo Sancti Petri í lok september.

Afreksstarfið hélt áfram að blómstra og náðu kylfingar á vegum GOS glæsilegum árangri á árinu. Heiðrún Anna Hlynsdóttir var valin íþróttakona HSK í mars en Heiðrún var valin í landslið GSÍ í sumar sem og Aron Emil Gunnarsson. Þau kepptu í júlí á Evrópumóti landsliða í Póllandi og Spáni. Lið GOS sigraði á Íslandsmóti golfklúbba 19-23 ára í hávaða roki á Kiðjabergsvelli í byrjun júní - Íslandsmeistarar og sannarlega glæsilegur árangur. Aron Emil og Katrín Embla Hlynsdóttir sigruðu á heimslistamóti GSÍ sem fram fór í júní á Kiðjabergi. Holukeppni GOS fór fram í ár eins og áður og sigraði Halldór Rafn Halldórsson Ragnar Sigurðsson í úrslitaleik oger því Holukeppnismeistari GOS 2024. Meistaramótið hófst 1. júlí og var þátttaka og framkvæmd mótsins til algjörrar fyrirmyndar. Hlynur Geir Hjartarson og Katrín Embla Hlynsdóttir urðu klúbbmeistarar Golfklúbbs Selfoss 2024. Íslandsmótið fór fram í Leirunni hjá Golfklúbbi Suðurnesja þriðju vikuna í júlí. Annað árið í röð gerðum við GOSarar atlögu að Íslandsmeistaratitlinum og eins og í fyrra var það kylfingur úr GOS sem barðist um titilinn fram á lokaholur mótsins. Aron Emil Gunnarsson sýndi glæsilegt golf mótsvikuna og landaði að lokum silfrinu, hafnaði í 2. sæti. GOS átti lið í 1. deildum Íslandsmóta liða golfklúbba og enduðu þau bæði í 5. sæti sem tryggði áframhaldandi veru í deildum þeirra bestu.

Tímamót urðu svo í lok ágúst þegar opnað var inn á fimm nýjar holur og völlurinn stækkaður í 14 holur þann 24. ágúst. Óhætt er að fullyrða að við kylfingar í Golfklúbbi Selfoss séum eigendur eins glæsilegasta golfvallar á landinu, svo vel hefur tekist til í nýframkvæmdum. Framkvæmdastjóri var fenginn til að segja og sýna frá “golfævintýrinu á Selfossi” ,eins og okkar öflugu framkvæmdir eru stundum kallaðar, á fundi formanna og framkvæmdastjóra golfklúbba í byrjun nóvember. Framkvæmdirnar hafa sannarlega fengið verðskuldaða athygli og lof frá golfhreyfingunni hérlendis.

Stjórn Golfklúbbs Selfoss golfárið 2024 þakkar öllum félagsmönnum gleði- og gæfuríkt samstarf á golfárinu sem er að líða. Við hvetjum félagsmenn til að halda áfram að leggja sitt af mörkum í öflugu félagsstarfi og að vera virkir í vetrarstarfinu sem framundan er.

f.h stjórnar Golfklúbbs Selfoss

Páll Sveinsson, formaður GOS

Aron Emil endaði í 2.sæti í Íslandsmótinu
1. deildar lið GOS karla
1.deildar lið GOS kvenna
Vestur sigraði Bændaglímuna 2024
Samstarf GOS og Larsen Hönnun og Ráðgjöf
Samstarf GOS og Landsbankans

Skýrsla mótanefndar

Mótanefndin kom saman í janúar og hóf störf við að raða upp mótum sumarsins. Örfáar breytingar voru gerðar á niðurröðun móta en þó ekki stórvægilegar. Þær tengdust helst árekstrum við aðra viðburði. Mótanefndin var skipuð sömu átta aðilum og árið á undan.

Footjoy mótaröðin hafði gengið vel árið áður og þátttaka aukist til muna. Því var ákveðið að halda áfram að vera með níu holu mót og veita verðlaun fyrir hvert mót að auki við verðlaun fyrir mótaröðina sjálfa. Mótaröðin tók þó smá breytingum þar sem völlurinn stækkaði í ágúst. Síðustu þrjú mótin voru því 14 holu mót og þátttakan allt sumarið var gríðarlega góð. Á næsta ári veða mótin eðlilega öll 14 holur.

Opnu mótunum fjölgaði um eitt á milli ára og mikil gróska í framboðum móta og styrktaraðila. Þátttaka var mjög góð í öllum mótum, fullt í flest þeirra en veðrið hafði eflaust áhrif á fulla skráningu í einhver mót. Veðrið var nefnilega aldrei þessu vant ekki með okkur kylfingum í liði þetta árið. En það er gaman að sjá hvernig opnu mótin okkar stækka og verðlaunin eru með þeim bestu sem við sjáum. Í samstarfi við félaganefndina reyndum við að vera sýnileg á samfélagsmiðlum og birtum umfjöllun um öll mót sumarsins.

122 manna Meistaramót á níu holu velli en það tókst þó að lokum að raða því niður á sex daga. Sem betur fer verður þetta ekki vandamál á næsta ári þar sem völlurinn er nú orðinn 14 holur og Meistaramótið verður því að öllum líkindum 56 holur í stað 72. Fjöldi kylfinga kom síðan saman á laugardagskvöldinu þar sem vegleg verðlaunaafhending fór fram og veisla var haldin.

Meistaramótið heppnaðist gríðarlega vel og enn og aftur var metþátttaka. Í ár skráðu 122 kylfingar sig til leiks. Erfiðlega gekk að halda

Lokamótið var að sjálfsögðu Bændaglíman. Þátttakan var góð þó svo að ekki var öruggt að mótið yrði haldið vegna veðurs. Eftir að allir leikir höfðu klárast var staðan jöfn og því þurfti að leita í viðureign bændanna sjálfra til að úrskurða um sigurvegara. Bóndi vesturbæjar hafði betur í þeirra leik og því fagnaði vestrið sigri.

Það er mikil spenna fyrir næsta sumri. 14 holu völlur bíður okkar með mörgum af fallegustu holum landsins sem verða svo bara betri og betri þegar árin líða.

Leifur Viðarsson

Skýrsla barna- og unglinganefndar

Í Barna- og unglinganefnd 2024 sátu Jónína Ósk Lárusdóttir, Auðunn Örn

Gunnarsson, Ársæll Einar Ársælsson, Eva Gunnarsdóttir, Eyrún Björg Magnúsdóttir og Ragnheiður Ingibjörg Jónsdóttir.

Starfsárið byrjaði þann 2. janúar með inniæfingum.

Iðkendahópar voru fimm á árinu. Þjálfarar vetrarins voru þau:

Hlynur Geir Hjartarson yfirþjálfari, Arnór Ingi Hlíðdal, Heiðar Snær Bjarnason, Sverrir Ó. Bergsson, Jóhann Már Guðjónsson, Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Alexandra Eir Grétarsdóttir og Katrín Embla Hlynsdóttir.

Útiæfingarnar byrjuðu í maí og voru fram í miðjan september.

Barna-og unglinganefnd byrjaði með púttmótaröðina þann 20. janúar og ákveðið var að spila í ár

tíu laugardaga í stað átta. Mæting var góð og er þetta orðinn fastur liður hjá mörgum að mæta.

Í júní var farið í fyrsta sinn í vorferð og voru spilaðar 9 holur á Golfvellinum á Hellu. Boðið var upp á veitingar að hring loknum. Mikil ánægja var með ferðina og verður svipað fyrirkomulag endurtekið

Fyrsta mót ársins var Íslandsmót 14 ára og yngri, haldið á Hellu dagana 26.-28. júní. GOS sendi sveitir á sínum vegum í það mót. Hópurinn stóð sig mjög vel, innan vallar sem utan. Uppskáru þau góða reynslu og minningar eftir mótið, enda sumir að spila í sínu fyrsta móti.

Meistaramót GOS barna og unglinga var svo haldið 9.-10. júlí. Spilaðir voru tveir 9 holu hringir. Þátttakan var góð.

Uppskerumót og lokahóf var haldið 25.september. Vegna veðurs voru aðeins spilaðar 5 holur. Mæting var góð, að hring loknum var boðið upp á grillaðar pylsur, snakk og drykki. Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin, en einnig veittu þjálfarar kylfingum verðlaun fyrir framfarir og ástundun á liðnu tímabili.

Jónína Ósk Lárusdóttir Formaður Barna- og unglinganefndar.

Skýrsla vallarnefndar

Nefndina skipuðu eftirtaldir : Halldór Ág Morthens formaður, Svanur Bjarnason, Bjarki Guðmundsson og Bárður Guðmundarson.

Haldinn var vinnudagur laugardaginn 4. maí 2024. Mæting var gríðarlega góð. Vinnudagurinn var hefðbundinn með lagfæringum á stígum, vindskeiðum á klúbbhúsi, unnið var í glompum og tekið til á golfvallarsvæðinu. Golfklúbbnum var gefin rausnarleg gjöf af trjám sem Bárður Guðmundarson gaf. Þökkum við honum kærlega fyrir þessa rausnarlegu gjöf. Tréin voru gróðursett á vinnudeginum.

Boðið var uppá súpu og brauð á eftir.

Vil ég þakka vallarstarfsmönnum og vallarnefndinni fyrir vel unnin störf í sumar.

Kveðja Halldór Morthens.

Skýrsla vallarstjóra

Veturinn 2024

Veturinn fór að stórum hluta í almennt viðhald á vélum og undirbúning fyrir sumarið. Auk þess var mikið mikið álag á nýju brýningarbekkjunum, bæði að brýna okkar sláttuvélar og svo fyrir nágrannaklúbba og er reiknað með að það verði svipað þennan veturinn. Auk vélarvinnu og undirbúnings, var skálinn tekinn í gegn og þarft verk unnið þar.

Sumarið 2024

Sumarið gekk mjög vel þó svo að veðrið var ekki með besta móti. Völlurinn kom frekar vel undan vetri, fyrir utan eitthvað af frostlyftingum og sandurinn fauk úr nokkrum glompum. Almennur sláttur og umhirða á vellinum gekk mjög vel, þá sérstaklega flatirnar sem voru mjög góðar þetta sumarið.

Allar vélar voru brýndar 1-2 yfir sumarið og hjálpar það mikið með gæði grassins, auk sáningar, söndunar og reglulegri áburðargjöf.

Sáð var í nýja æfinga púttflöt, og verður hún vonandi komin í notkun sem fyrst.

Stóra verkefnið þetta sumar var opnun 5 nýrra brauta og fór mikil vinna í það að gera þær tilbúnar í það og gekk það mjög vel, þó svo að mörg verkefni séu eftir til að gera þær fullkomnar.

Vélar

Þetta árið eignuðumst við Weideman sem sér um fullt af verkefnum svo sem allan mokstur á tæki og snjómokstur á veturna.

Spreyjarar- áburðardreifari. ProCore – gatari. Svo erum við komin með 4 Husquarna EPOS sláttur róbota sem sjá um slátt á karganum á nokkrum brautum og hefur það gengið mjög vel.

Íþróttavellir Árborgar

Eins og síðustu ár sáum við um allan slátt, söndun, áburð, götun og viðhald á íþróttavöllum Árborgar. Og gekk það mjög vel þetta árið, og aðalvöllurinn heldur áfram að vera með bestu grasvöllum á landinu.

Vallarstjórn GOS

Bjarki Þór Guðmundsson

Hlynur Geir Hjartarson

Pétur S Pálsson

Símon Leví Héðinsson

Fh. Vallarstjórnar GOS 2024

Bjarki Þór Guðmundsson

Skýrsla eldri

kylfinganefndar (ELDGOS)

Stjórnarfundir

Stjórn Eldri kylfinganefndar skipuðu:

Magnús J. Magnússon, formaður, Bárður

Guðmundarson, Samúel Smári Hreggviðsson, Auður Róseyjardóttir, Ásta Jósefsdóttir, Jóhanna Þorsteinsdóttir, Páll Böðvar Valgeirsson

Stjórnin hélt 9 stjórnarfundi á árinu þar sem farið var í gegnum starfið og hlutir skipulagðir og ræddir.

Starfið 2024

Almennt

Það má segja um starfið 2024 hafi gengið afar vel. Eldri kylfingar spiluðu af krafti og skipulagðar voru ferðir á þrjá aðra golfvelli. Þeir voru: Strandarvöllur, Öndverðarnes,

Kiðjaberg. Ferð á Akranes féll niður vegna veðurs. Góð þátttaka var í öllum þessum ferðum. Rúmlega 30 í Öndverðarnes og

Kiðjaberg. Einnig hafa eldri kylfingar látið til sín taka á ýmsum sviðum starfseminnar og ekki slegið af.

ÞRIÐJUDAGAR OG FIMMTUDAGAR - SUMAR

Teknir voru frá rástímar á þriðjudögum og á fimmtudögum frá 09.00 – 10.00 fyrir eldri kylfinga og dugði varla. Þetta var vel nýtt og má segja að meðalfjöldinn hafi verið 25 – 30 í hvert sinn og spilað í 6 – 8 hollum. Haldið var Texax Scrable mót og tókst það afar vel. Alls voru þessir morgnar 40 og meðalnýting hvern morgun afar góð og létu menn veðrið ekki hafa áhrif á sig. Þetta hefur vakið athygli hjá öðrum klúbbum og við fengið gesti á þessa morgna.

MIÐVIKUDAGAR OG FÖSTUDAGAR

- VETUR

Púttaðstaða var opin ELDGOSURUM og öðrum á föstudögum. Mæting var ekki mikil og hefur ekki verið í boði í vetur. Við hvetjum eldri kylfinga til að nota hermana!

Holukeppni ELDGOS

Holukeppni var á sínum stað og voru margir sem skráðu sig í keppnina. Til úrslita spiluðu Samúel Smári hreggviðsson og Jón Lúðvíksson. Því lauk með sigri Samúels Smára og var hann því meistari þetta árið!

Sveitakeppnir ársins

Karlasveitin

Ögmundur Kristjánsson stjórnaði þessum hópi. Keppt var á Hellishólum dagana 22. – 24. ágúst. Leikir fóru þannig að GOS endaði í 5. sæti af 8 liðum.

Sveitina skipuðu: Ögmundur Kristjánsson liðsstjóri , Svanur Geir Bjarnason, Grímur Arnarson, Páll Sveinsson, Ársæll Ársælsson, og Gylfi B. Sigurjónsson.

Kvennasveitin

Keppni kvennasveitanna var skipulögð á Húsavík 22. – 24. ágúst. Gist var í einkahúsi. Níu lið voru skráð og var því höggleikur og átti síðan að vera holukeppni fyrir 8 efstu liðin. En lítið fór fyrir því vegna veðurs. Einungis var spiluð ein umferð á fimmtudeginum og var ákveðið að þau úrslit myndu ráða. Þar enduðum við í 7. Sæti og erum öruggar í 2. deildinni að ári.

Sveitina skipuðu: Alda Sigurðardóttir, Auður Róseyjardóttir, sem var liðsstjóri, Gerða Hammer, Jóhanna Þorsteinsdóttir, Petrína Sigurðardóttir, Svava Skúladóttir.

Sveitakeppni LEK 65+

Sveitakeppni LEK 65+ fór fram á golfvelli Hvergerðinga 13. og 14. ágúst 2024. Lið GOS keppti við Hveragerði, Kiðjaberg, Leyni, Odd og Flúðir. Keppnin var góð og myndaði góð tengsl!

Liðið skipuðu Gestur Sæmundsson, Samúel

Smári Hreggviðsson, Guðmundur Þór

Hafsteinsson, Jón Gíslason, Ragnar Bogason og Bárður Guðmundarson sem einnig var liðsstjóri.

Keppni við Flúðamenn

Hin árlega keppni við Golfklúbbinn á Flúðum fór fram á Selsvelli sunnudaginn 18. ágúst í góðu veðri. Keppnin fór þannig að GOS vann með 6,5 vinningi gegn 4,5 vinningi GF. Að loknu móti snæddu menn kvöldverð á MAR og var keppnin gerð upp á viðeigandi hátt.

Sveitina skipuðu:

Bárður Guðmundsson, Ársæll Ársælsson, Hallur Kristjánsson, Kjartan Ólafsson , Jón

Lúðvíksson, Jón Gíslason, Páll Valgeirsson og

Samúel Smári Hreggviðsson.

ELDGOSAFERÐIR Á AÐRA VELLI

Strandarvöllur í maí

Það voru um 33 Eldgosarar sem mættu í

Kiðjaberg í frábæru veðri. Spilaðar voru 18 holur og var stuð á vellinum. Síðan borðuðu allir saman á eftir og nutu samvistanna.

Frábær dagur

Kiðjaberg í júní

Það voru um 34 Eldgosarar sem mættu í

Kiðjaberg í frábæru veðri. Spilaðar voru 18 holur og var stuð á vellinum. Allir borðuðu saman á eftir og nutu samvistanna. Frábær dagur.

Öndverðarnes í ágúst

Í Öndverðarnesið mættu 32 kylfingar. Til að byrja með var þungbúið og smá regn á fyrstu tveimur hollunum en síðan stytti upp og allir kátir eftir 18 holur Borðað saman á eftir og mikil ánægja með gífurlega góðan dag í Öndverðarnesinu.

Akranes í september

Búið var að skipuleggja ferð með yfir 30 kylfinga á Akranes 5.sSept. Veður var leiðinlegt og ferð frestað til 12. sept. En síðan varð að fresta Akranesferðinni.

Nova Sancti Petri í september

Það var 29 manna hópur sem lagði af stað til Spánar 20. september. Framundan var 10 daga ferð á Novo Sancti Petri. Ferðin var frábær, spilaðir níu 18 holu hringir við frábærar aðstæður. Tvö mót og lokapartý. Ferðin gekk frábærlega í alla staði og öruggt að svona ferð verður endurtekin!

FELAGSFUNDUR

Öflugur félagsfundur var haldinn í golfskálanum í lok maí og voru mættir um 33 eldri kylfingar á fundinn. Margt var rætt og er alveg ljóst að tryggja þarf að slíkir félagsfundir séu haldnir að vori og hausti til að fara í gegnum starfið framundan og heyra í okkar félagsmönnum. Einnig var haldinn sér fundur um Eldgosaferðirnar.

SUMARSLÚTT ELDGOS

Sumarslútt ELDGOS var haldið í sal Krabbameinsfélagsins föstudaginn 25.10. Um 30 mættu og nutu góðra veitinga og myndasýningar frá sumrinu. Góð stemning í alla staði og kjarninn öflugur.

Almennar hugleiðingar

Starfið á árinu gekk ótrúlega vel. Það er ljóst að fjöldi eldri kylfinga í klúbbnum er á uppleið og starfið eflist í takt við það. Starfið er vaxandi á allan hátt. Hingað eru að koma eldri kylfingar úr öðrum klúbbum þar sem þeir hafa heyrt af starfinu. Ýmsar hugmyndir sem komið hafa upp á nefndarfundum og félagsfundi hafa farið til stjórnar Golfklúbbsins og vel hefur verið tekið í þær og sumar framkvæmdar og er það vel. Efla þarf færni félagsmanna í golfhermum og hafa námskeið fyrir okkar eldri félagsmenn. Nú þegar eru komnir 3 golfhermar þá er nauðsynlegt að sem flestir hafi færni í því að nota þá. Stefnt er að því að efla starf eldri kylfinga yfir vetrarmánuðina. Sú nýlunda að bjóða upp á golfferð mæltist frábærlega fyrir og verður endurtekin, það er ljóst.

Að öðru leyti gekk þetta vel og gekk upp. Ég vil þakka meðstjórnendum mínum fyrir góða vinnu og uppbyggjandi stuðning. Vil einnig þakka Hlyni fyrir þolinmæðina.

Magnús J. Magnússon, formaður

50+ kvk

Sveit 50+ kk

Sveit

Skýrsla aganefndar

Nefndina skipuðu Bjarki Már Magnússon formaður, Leifur Viðarson og Sigurður Grétarsson.

Ekkert mál kom inn á borð aganefndar á árinu 2024. Aganefnd hvetur kylfinga til að virða golfreglur og tilkynna strax dómara eða eftir atvikum framkvæmdastjóra ef ekki er leikið samkvæmt gildandi reglum.

Bjarki Már Magnússon, formaður.

Skýrsla afreksnefndar

Gylfi Birgir Sigurjónsson, formaður, Ástmundur Sigmarsson, Arndís Mogensen, Heiðrún Anna Hlynsdóttir.

Megin hlutverk nefndarinnar var að hafa umsjón með vali á liðstjóra kk og kvk sveita félagsins og vera þeim innan handar sem og að sjá um Firmakeppni GOS sem er styrktarmót fyrir lið GOS sem keppa á Íslandsmóti golfklúbba.

Íslandsmót golfklúbba

Karlalið GOS spilaði í 1. deild á Íslandsmóti golfklúbba sem haldið var á Jaðarsvelli, Akureyri dagana 25.–27. júlí. Jósef Geir Guðmundsson var liðstjóri og honum til aðstoðar var Grímur Arnarsson. Tveir efstu á Meistaramótinu spiluðu sig inn í sveitina en aðrir voru valdir af liðsstjóra. Lið GOS var skipað eftirtöldum leikmönnum. Aron Emil Gunnarsson, Hlynur Geir Hjartarson, Andri Már Óskarsson, Pétur Sigurdór Pálsson, Arnór Ingi Gíslason, Kristinn Sölvi Sigurgeirsson, Heiðar Snær Bjarnason og Máni Páll Eiríksson.

Lið GOS stóð sig mjög vel með þrjá sigra, eitt jafntefli og eitt tap og enduðu í 5. sæti.

Kvennasveit GOS spilaði í 1. deild á Íslandsmótinu. Tvær efstu spiluðu sig inn í sveitina í Meistaramótinu og aðrar voru valdar af liðstjóra. Sveitin spilaði helgina 25.-27. júlí og fór mótið fram á Strandavelli, Hellu. Sveitina skipuðu Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Katrín Embla Hlynsdóttir, Jóhanna Bettý Durhuus, Alexandra Eir Grétarsdóttir, Bára Valdís Ármannsdóttir, Erla Rún Kaaber, Gerða Hammer og Vala Guðlaug.

Lið GOS endaði í 5. sæti sem er besti árangur sveitarinnar hingað til og spilar því áfram í efstu deild.

Firmakeppni GOS

Mótið fór fram 7. september. Keppt var með Texas scramble leikformi. Frábær þátttaka var í mótinu. Úrslit urðu þannig að í 1. sæti var Hársnyrtistofa Österby. Fyrir Österby spiluðu Pétur Sigdór og Aron Emil. Anna Hárstofa tók 2. sætið á og voru það Gunnhildur og Hlynur Geir sem spiluð fyrir Hárstofuna. Eftir hringinn bauð GOS keppendum upp á veitingar. Mótið var mjög vel heppnað og 34 fyrirtæki tóku þátt þetta árið. Við þökkum fyrirtækjunum kærlega fyrir ómetanlegan stuðning.

Golfkveðja,

Gylfi B. Sigurjónsson

Skýrsla félaganefndar

Starfsemi sumarið 2024 var með hefðbundnum hætti og hápunkturinn klárlega fjölmennasta Jónsmessumót í sögu GOS þar sem við fengum forsmekkinn af því að spila fleiri holur á Svarfhólsvelli. Þó ekki nýju holurnar sem opnuðu seinna um sumarið heldur frumlega útfærslu vallarstjóra sem fjölgaði holum fyrir þetta mót. Það er alveg ljóst að það var kominn þörf á að stækka völlinn.

Öflug starfsemi var í kvennagolfi GOS, þriðjudagsgolfið var á sínum stað auk þess sem GOS konur héldu golfmót þar sem þær buðu GHG konum að koma og var þar metþátttaka. Eins var haldið vel heppnað kvennakvöld GOS þar sem rúmlega 70 konur mættu og skemmtu sér saman. Mikil ánægja var með kvöldið.

Stækkun á vellinum býður upp á fleiri möguleika í félagastarfi og mótum á léttu nótunum og nauðsynlegt m.v. stemmingu fyrir Jónsmessumótinu undanfarin ár. Almennt mjög góður andi í klúbbnum og mikil ánægja og stemning fyrir breytingum á vellinum.

Takk fyrir sumarið og sjáumst hress á næsta tímabili

Félaganefnd GOS

Íslandsmeistarar golfklúbba 19-23 ára

Tölfræði 2024

Golfkarl ársins 2024

Golfkona ársins 2024

Heiðrún Anna Hlynsdóttir

Aron Emil Gunnarsson

Efnilegasti unglingurinn 2024

Háttvísisbikar GSÍ

Svanhvít Ásta Jósefsdóttir

Holumeistari GOS 2024

Halldór Rafn Halldórsson

Holumeistari eldri kylfinga

Samúel Smári Hreggviðsson

Klúbbmeistarar GOS 2024

Hlynur Geir og Katrín Embla

Æfingaferð GOS
Arnar Björnsson okkar aðalmaður á æfingasvæði GOS
Glæsileg 18 braut

Kylfingur ársins

1992 Kjartan Gunnarsson

1993 Kjartan Gunnarsson

1994 Gunnar Marel Einarsson

1995 Bergur Sverrisson

1996 Hjörtur Levi Pétursson

1997 Ólafur Magni Sverrisson

1998 Ólafur Magni Sverrisson

1999 Hlynur Geir Hjartarson

2000 Hjörtur Levi Pétursson

2001 Hlynur Geir Hjartarson

2002 Hlynur Geir Hjartarson

2003 Hlynur Geir Hjartarson

2004 Hlynur Geir Hjartarson

2005 Hlynur Geir Hjartarson

2006 Hlynur Geir Hjartarson

2007 Hjörtur Levi Pétursson

2008 Guðmundur Bergsson

2009 Jón Ingi Grímsson

2010 Bergur Sverrisson

2011 Hlynur Geir Hjartarson

2012 Hlynur Geir Hjartarson

2013 Andri Páll Ásgeirsson

2014 Alexandra Eir Grétarsdóttir

2015 Alexandra Eir Grétarsdóttir

Golfkarl ársins

2016 Aron Emil Gunnarsson

2017 Aron Emil Gunnarsson

2018 Pétur Sigurdór Pálsson

2019 Aron Emil Gunnarsson

2020 Andri Már Óskarsson

2021 Aron Emil Gunnarsson

2022 Aron Emil Gunnarsson

2023 Aron Emil Gunnarson

2024 Aron Emil Gunnarson

Efnilegasti unglingurinn

1993 Jósep Geir Guðmundsson

1994 Bergur Sverrisson

1995 Ólafur Magni Sverrisson

1996 Gunnar Ingi Guðmundsson

1997 Ívar Grétarsson

1998 Ívar Grétarsson

1999 Andri Már Kristjánsson

2000 Kjartan Ásbjörnsson

2001 Andri Már Kristjánsson

2002

2003 Davíð Örn Jónsson

2004 Atli Fannar Guðjónsson

2005 Kristinn Svansson

2006 Símon Leví Héðinsson

2007 Jón Ingi Grímsson

2008 Jón Ingi Grímsson

2009 Árni Evert Leósson

2010 Símon Leví Héðinsson

2011 Andri Páll Ásgeirsson

2012 Alexandra Eir Grétarsdóttir

2013 Máni Páll Eiríksson

2014 Aron Emil Gunnarsson

2015 Heiðrún Anna Hlynsdóttir

2016 Pétur Sigurdór Pálsson

2017 Heiðar Snær Bjarnson

2018 Sverrir Óli Bergsson

2019 Heiðar Snær Bjarnason

2020 Katrín Embla Hlynsdóttir

2021 Jóhann Már Guðjónsson

2022 Katrín Embla Hlynsdóttir

2023 Katrín Embla Hlynsdóttir

2024 Aron Leo Guðmundsson

Golfkona ársins

2016 Heiðrún Anna Hlynsdóttir

2017 Heiðrún Anna Hlynsdóttir

2018 Heiðrún Anna Hlynsdóttir

2019 Heiðrún Anna Hlynsdóttir

2020 Heiðrún Anna Hlynsdóttir

2021 Heiðrún Anna Hlynsdóttir

2022 Heiðrún Anna Hlynsdóttir

2023 Heiðrún Anna Hlynsdóttir

2024 Heiðrún Anna Hlynsdóttir

Mesta lækkun forgjafar

1992 Óli Rúnar Eyjólfsson

1993 Kristján Már Gunnarsson

1994 Ester Ýr Jónsdóttir

1995 Guðjón Öfjörð Einarsson

1996 Ester Ýr Jónsdóttir

1997 Hlynur Geir Hjartarson

1998 Ívar Grétarsson

1999 Guðmundur Bergsson

2000 Pétur Viðar Kristjánsson

2001 Baldur Óskarsson

2002 Sigurður Fannar Guðmundsson & Þorsteinn Ómarsson.

2003 Davíð Örn Jónsson

2004 Stefán Ragnar Guðlaugsson

2005 Albert Ísleifsson

2006 Alda Sigurðardóttir

2007 Jón Ingi Grímsson

2008 Árni Evert Leósson

2009 Ómar Ingi Magnússon

2010 Anton Ingi Arnarsson

2011 Axel Óli Ægisson

2012 Alexandra Eir Grétarsdóttir

2013 Máni Páll Eiríksson

2014 Heiðrún Anna Hlynsdóttir

2015 Ólafur Unnarsson

2016 Heiðar Snær Bjarnason

2017 Sverrir Óli Bergsson

2018 Aron Emil Gunnarsson

2019 Arnór Ingi Gíslason

Háttvísibikar GSÍ

2011 Símon Leví Héðinsson

2012 Símon Leví Héðinsson

2013 Alexandra Eir Grétarsdóttir

2014 Alexandra Eir Grétarsdóttir

2015 Bárður Guðmundarson

2016 Halldór Ágústsson Morthens

2017 Gylfi B Sigurjónsson

2018 Guðmundur Bergsson

2019 Samúel Smári Hreggviðsson

2020 Svanur Geir Bjarnason

2021 Ástfríður M. Sigurðardóttir

2022 Leifur Viðarsson

2023 Magnús J. Magnússon

2024 Svanhvít Ásta Jósefsdóttir

Heiðursfélagar GOS

Kolbeinn I Kristinsson

Þorbjörg Sigurðardóttir

Ingólfur Bárðarson

Sveinn J. Sveinsson

Sigurfinnur Sigurðsson

Árni Guðmundsson

Vilhjálmur Þór Pálsson

Ágúst Magnússon

Samþykktir

Golfklúbbur Selfoss

Útgefið 12. desember 2019

Samþykktir

Golfklúbbur Selfoss

1. HEITI FÉLAGSINS, HEIMILI, TILGANGUR OG VARNARÞING

1.1 Heiti félagsins er Golfklúbbur Selfoss.

1.2 Félagið er almennt félag.

1.3 Heimilisfang félagsins er Svarfhólsvöllur, 801 Selfoss.

1.4 Félagið er aðili að Golfsambandi Íslands (GSÍ).

1.5 Tilgangur félagsins er rekstur golfvallar, sala á golfvörum, veitingum og tengdur rekstur ásamt því að glæða áhuga á golfíþróttinni og skapa áhugamönnum aðstöðu til að iðka hana.

1.6 Varnarþing þess er á Selfossi, Árnessýslu. Sé mál höfðað gegn félaginu skal það höfðað fyrir Héraðsdómi Suðurlands.

2. STJÓRNSKIPULAG

2.1 Með stjórnun félagsins fara: a) Félagafundir.

b) Stjórn félagsins.

c) Framkvæmdastjóri.

3. AÐALFUNDIR / FÉLAGAFUNDIR

3.1

Æðsta vald í öllum málefnum félagsins, innan þeirra takmarka sem samþykktir þess og landslög setja, er í höndum lögmætra aðalfunda. Á þeim ræður afl atkvæða nema öðruvísi sé mælt í samþykktum þessum.

3.2 Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins má ekki taka til meðferðar á aðalfundi nema þess hafi verið getið í fundarboði og þá þarf 2/3 atkvæða til að tillagan nái fram að ganga.

3.3 Félagafundi skal halda eftir ákvörðun stjórnar eða að kröfu 1/20 félagsmanna. Skal krafan þá vera skriflega gerð og fundarefni tilgreint. Fundur skal þá boðaður af stjórn innan þriggja vikna.

3.4 Aðalfund og aukafund skal boða með minnst viku fyrirvara í tölvupósti til félagsmanna og á heimasíðu klúbbsins.

3.5 Fundir eru löglegir, sé löglega til þeirra boðað.

3.6 Aðalfund skal halda eigi síðar en 15. desember ár hvert. Á aðalfundi skulu eftirfarandi mál tekin fyrir.

1. Kosning fundarstjóra og ritara.

2. Skýrsla stjórnar.

3. Reikningar lagðir fram til samþykktar.

4. Skýrslur nefnda.

5. Lagabreytingar.

6. Kosningar samkvæmt 4. og 6 kafla.

7. Félagsgjöld

8. Fjárhagsáætlun næsta árs afgreidd.

9. Önnur mál.

3.7 Aðalfundur ákveður félagsgjöld næsta árs. Heimilt er að leggja á sérstakt framkvæmdagjald þegar um viðamiklar framkvæmdir er að ræða.

3.8 Atkvæðisrétt hafa allir skuldlausir félagar við klúbbinn 16 ára og eldri.

3.9 Félagsmenn sem vilja gera tillögur til lagabreytinga eða starfstilhögunar skulu senda stjórn félagsins þær eigi síðar en 1. nóvember.

4. STJÓRN FÉLAGSINS

4.1 Stjórn félagsins skal skipuð sjö mönnum sem kosnir eru á aðalfundi. Formann stjórnar skal kjósa sérstaklega til tveggja ára í senn. Meðstjórnendur skulu kosnir til tveggja ára, þrír hvert ár. Á fyrsta stjórnarfundi skipta stjórnarmenn með sér störfum þannig að einn skal vera varaformaður, einn ritari, einn gjaldkeri og þrír meðstjórnendur.

4.2 Framboð til stjórnar skal vera skriflegt og skilað inn síðasta lagi viku fyrir aðalfund.

4.3 Stjórnarkjör fer fram sem meirihlutakosning milli einstaklinga.

4.4 Stjórnarkjör skal vera skriflegt, ef tillögur koma fram um fleiri menn en kjósa skal.

5.

5.1

5.2

STJÓRNARFUNDIR OG VERKASKIPTING STJÓRNAR

Formaður kveður stjórnina til funda og stýrir þeim. Stjórnarfundi skal halda hvenær sem hann telur þess þörf. Fund skal halda ef einhver stjórnarmanna eða framkvæmdastjóri krefst þess.

Stjórnarfundur er ákvörðunarbær þegar meirihluti stjórnarmanna tekur þátt í fundarstörfum. Mikilvæga ákvörðun má þó ekki taka nema allir stjórnarmenn hafi haft tök á því að fjalla um málið, sé þess kostur. Segi stjórnarmaður sig úr stjórn heldur stjórn þó enn ákvörðunarbærni að því gefnu að meirihluti stjórnarmanna (4/7) taki þátt í fundarstörfum.

5.3 Einfaldur meirihluti stjórnarmanna ræður kjöri á stjórnarfundi. Falli atkvæði jöfn þá fellur tillagan.

5.4 Í fjarveru formanns tekur varaformaður við skyldum hans.

5.5 Stjórnendur skulu halda fundargerðir um það sem gerist á stjórnarfundum og staðfesta þær með undirskrift sinni. Fundargerðir skulu birtar opinberlega og vera aðgengilegar félagsmönnum.

5.6 Stjórn hefur heimild til þess að skipa sérstakar nefndir til þess að fjalla um ákveðið verkefni. Niðurstöður þeirra skulu þó aðeins vera leiðbeinandi fyrir stjórnina, en hún ekki bundin af þeim við afgreiðslu einstakra mála.

5.7 Stjórnin hefur æðsta vald í málefnum félagsins milli aðal-/félagafunda og setur félaginu markmið í rekstri með hagsmuni þess og félagsmanna að leiðarljósi í samræmi við tilgang félagsins. Stjórnin ræður félagsmálum milli aðal-/félagafunda og skuldbindur félagið með ályktunum sínum og samningum. Stjórnin ræður framkvæmdastjóra, ákveður ráðningakjör og gerir við hann ráðningarsamning.

5.8 Samþykki félagafundar þarf til stórra ákvarðana svo sem verulegra eignabreytinga og annars sem getur haft mikil fjárútlát í för með sér. Í þessu sambandi telst það vera veruleg eignabreyting ef andvirði hennar nemur hærra hlutfalli en 50% af heildareignum félagsins samkvæmt síðasta ársreikningi. Þá teljast það vera mikil fjárútlát ef fjárútlátin nema hærri fjárhæð en 50% af rekstrartekjum félagsins samkvæmt síðasta ársreikningi.

5.9 Stjórninni er heimilt að greiða mönnum beinan kostnað sem leiðir af störfum þeirra fyrir félagið.

5.10 Stjórnin veitir prókúruumboð.

5.11 Undirskrift meirihluta stjórnarmanna þarf til þess að skuldbinda félagið.

5.12 Stjórn er heimilt að setja reglur um starfsemi golfklúbbsins í formi reglugerða.

6. NEFNDIR

6.1 Fastar starfsnefndir, kosnar til eins árs eru; mótanefnd, aganefnd, barna- og unglinganefnd, félaganefnd, eldri kylfinganefnd, afreksnefnd og vallarnefnd.

6.2

Formaður hverrar nefndar skal kosinn á aðalfundi, en nefndir skipta að öðru leyti með sér verkum.

7. FRAMKVÆMDASTJÓRI

7.1

Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur félagsins í samræmi við þær reglur sem honum eru eða verða settar af stjórn félagsins og gildandi lögum. Hinn daglegi rekstur tekur ekki til ráðstafana sem eru óvenjulegar eða mikils háttar.

7.2 Framkvæmdastjóri skal sjá um að bókhald félagsins sé fært í samræmi við lög og venjur og meðferð eigna félagsins sé með tryggilegum hætti.

7.3 Framkvæmdarstjóri er skyldugur að hlíta öllum fyrirmælum stjórnar. Honum ber að veita endurskoðanda eða skoðunarmanni allar þær upplýsingar sem hann óskar.

8.

REIKNINGSÁR

8.1 Reikningsár er frá 1. nóvember til og með 31. október.

9. LEIKREGLUR

9.1 Við leik skal fara eftir R&A Rules Limited golfreglum eins og þær eru á hverjum tíma, en sérreglur setur stjórn eftir því sem henni þurfa þykir. Sérhver félagi er skyldugur til að fara eftir settum reglum um leik, umferð og umgengi á golfvellinum og í klúbbhúsi. Stjórn getur látið brot gegn reglum þessum varða áminningu, réttindamissi eftir atvikum eða brottrekstri ef um ítrekaðar eða miklar sakir er að ræða. Heimilt er félagsmanni sem fyrir slíku verður, að skjóta máli sínu til næsta aðalfundar, sem tekur lokaákvörðun um málið.

10. HEIÐURSFÉLAGAR

10.1 Fyrir einstök og verðskulduð störf í þágu félagsins getur stjórnin ákveðið að tiltekinn félagsmaður, einn eða fleiri, verði gerður að heiðursfélaga. Heiðursfélagar greiða ekki árgjald en njóta allra félagsréttinda. Tilnefningunni skal fylgja sérstakt skjal til staðfestingar.

10.2 Á sérstökum tímamótum getur stjórnin veitt félagsmönnum og/eða velunnurum félagsins heiðursmerki og/eða afreksmerki félagsins í samræmi við reglur sem um slíkt gilda.

11. SLIT Á FÉLAGINU

11.1 Hætti klúbburinn störfum, tekur sérstakur félagafundur ákvörðun um það. Til lögmætis þeirrar ákvörðunar þarf helmingur félaga að vera á fundi og 2/3 hlutar þeirra að gera því atkvæði. Mæti ekki helmingur félagsmanna á fund, skal boða til nýs fundar innan 3ja vikna og er sá fundur ályktunarhæfur um þetta mál, hversu fáir sem koma, sé löglega til hans boðað.

12. BREYTINGAR Á LÖGUM

12.1 Þannig samþykkt á aðalfundi 12. desember 2019.

Þannig samþykkt á aðalfundi 9. desember 2021.

Samþykkt breyting á 1., 3. og 4. gr. og ákvæði um stundarsakir bætt við á aðalfundi 9. desember 2021.

Þannig samþykkt á aðalfundi 6. desember 2023.

Stjórnir Golfklúbbs Selfoss

1985 -2024

1985 Formaður: Samúel Smári Hreggviðss

Ritari: Gunnar Kjartansson

Gjaldkeri: Guðmundur Helgi Eiríkss

Meðstj.: Guðlaugur Ægir Magnúss

Ingólfur Bárðarson

1986 Formaður: Samúel Smári Hreggviðss

Ritari: Jón Bjarni Stefánsson

Gjaldkeri: Pálmi Guðmundsson

Meðstj.: Guðlaugur Ægir Magnúss

Ingólfur Bárðarson

1987 Formaður Samúel Smári Hreggviðss

Ritari: Valey Guðmundsdóttir

Gjaldkeri: Jón Bjarni Stefánsson

Meðstj.: Ingólfur Bárðarson

Kristín Péturdóttir

1988 Formaður: Samúel Smári Hreggviðss

Ritari: Valey Guðmundsdóttir

Gjaldkeri: Jón Bjarni Stefánsson

Meðstj.: Ingólfur Bárðarson

Kristín Pétursdóttir

1989 Formaður: Samúel Smári Hreggviðss

Ritari: Kjartan Jónsson

Gjaldkeri: Jón Bjarni Stefánsson

Varaform. Guðmundur Helgi Eiríks

Meðstj.: Gunnar Kjartansson

Jón Ágúst Jónsson

Kolbeinn Ingi Kristinsson

1990 Formaður: Guðmundur Helgi Eiríkss

Ritari: Kjartan Jónsson

Gjaldkeri: Haukur Arnar Gíslason

Varaform. Sigurjón Bergsson

Meðstj.: Gunnar Kjartansson

Jón Ágúst Jónsson

Svavar Valdimarsson

1991 Formaður: Guðmundur Helgi Eiríkss

Ritari: Kjartan Jónsson

Gjaldkeri: Haukur Arnar Gíslason

Varaform. Sigurjón Bergsson

Meðstj.: Gunnar Kjartansson

Jón Ágúst Jónsson

Svavar Valdimarsson

1992

Formaður: Guðmundur Helgi Eiríks

Ritari: Kjartan Jónsson

Gjaldkeri: Haukur Arnar Gíslason

Varaform. Sigurjón Bergsson

Meðstj.: Gunnar Kjartansson

Jón Ágúst Jónsson

Svavar Valdimarsson

1993 Formaður: Jón Ágúst Jónsson

Ritari: Kristín Stefánsdóttir

Gjaldkeri: Haukur Arnar Gíslason

Varaform. Sigurjón Bergsson

Meðstj.: Þór Stefánsson

Viðar Bjarnason

Svavar Valdimarsson

1994 Formaður: Jón Ágúst Jónsson

Ritari: Kristín Stefánsdóttir

Gjaldkeri: Haukur Arnar Gíslason

Varaform. Sigurjón Bergsson

Meðstj.: Þór Stefánsson

Viðar Bjarnason

Svavar Valdimarsson

1995 Formaður: Jón Ágúst Jónsson

Ritari: Kristín Stefánsdóttir

Gjaldkeri: Haukur Arnar Gíslason

Varaform. Sigurjón Bergsson

Meðstj.: Þór Stefánsson

Bárður Guðmundsson

Svavar Valdimarsson

1996 Formaður: Jón Ágúst Jónsson

Ritari: Bárður Guðmundarson

Gjaldkeri: Ágúst Magnússon

Meðstj.: Þór Stefánsson

Guðjón Öfjörð Einarsson

1997 Formaður: Jón Ágúst Jónsson

Ritari: Bárður Guðmundarson

Gjaldkeri: Ágúst Magnússon

Meðstj.: Gunnar Kjartansson

Guðjón Öfjörð Einarsson

1998 Formaður: Jón Ágúst Jónsson

Ritari: Bárður Guðmundarson

Gjaldkeri: Ágúst Magnússon

Meðstj.: Gunnar Kjartansson

Guðmundur Búason

1999 Formaður: Guðmundur Búason

Ritari: Bárður Guðmundarson

Gjaldkeri: Ágúst Magnússon

Meðstj.: Páll Böðvar Valgeirsson Arnheiður Jónsdóttir

2000 Formaður: Guðmundur Búason

Ritari: Bárður Guðmundarson

Gjaldkeri: Ásbjörn Sigurðsson

Meðstj.: Páll Böðvar Valgeirsson Arnheiður Jónsdóttir

2001 Formaður: Grímur Arnarson

Ritari: Bárður Guðmundarson

Gjaldkeri: Ásbjörn Sigurðsson

Meðstj.: Páll Böðvar Valgeirsson

Skúli Már Gunnarsson

2002 Formaður: Grímur Arnarson

Ritari: Sigurður Grétarsson

Gjaldkeri: Ásbjörn Sigurðsson

Meðstj.: Páll Böðvar Valgeirsson

Skúli Már Gunnarsson

2003 Formaður. Grímur Arnarson

Ritari: Sigurður Grétarsson

Gjaldkeri: Pétur Ármann Hjaltason

Meðstj.: Bárður Guðmundarson

Jens Uwe Friðriksson

2004 Formaður: Grímur Arnarson

Ritari: Sigurður Grétarsson

Gjaldkeri: Pétur Ármann Hjaltason

Meðstj.: Bárður Guðmundarson

Jens Uwe Friðriksson

2005 Formaður: Grímur Arnarson

Ritari: Sigurður Grétarsson

Gjaldkeri: Pétur Ármann Hjaltason

Meðstj.: Bárður Guðmundarson

Jens Uwe Friðriksson

2006 Formaður: Bárður Guðmundarson

Ritari: Jónbjörg Kjartansdóttir

Gjaldkeri: Pétur Ármann Hjaltason

Meðstj.: Guðjón Öfjörð Einarsson

Jens Uwe Friðriksson

2007 Formaður: Bárður Guðmundarson

Ritari: Jónbjörg Kjartansdóttir

Gjaldkeri: Pétur Ármann Hjaltason

Meðstj.: Guðjón Öfjörð Einarsson

Róbert Sverrisson

2008

Formaður: Bárður Guðmundarson

Ritari: Jónbjörg Kjartansdóttir

Gjaldkeri: Pétur Ármann Hjaltason

Meðstj.: Páll Leó Jónsson

Ástfríður M. Sigurðard.

2009 Formaður: Bárður Guðmundarson

Ritari: Jónbjörg Kjartansdóttir

Gjaldkeri: Pétur Á. Hjaltason

Meðstj.: Ástfríður M. Sigurðard. Páll Leó Jónsson

2010 Formaður: Bárður Guðmundarson

Ritari: Jónbjörg Kjartansdóttir

Gjaldkeri: Pétur Á. Hjaltason

Meðstj.: Halldór Morthens

Jens Uwe Friðriksson

2011 Formaður: Bárður Guðmundarson

Ritari: Jónbjörg Kjartansdóttir

Gjaldkeri: Pétur Á. Hjaltason

Meðstj.: Halldór Morthens

Jens Uwe Friðriksson

2012 Formaður: Bárður Guðmundarson

Ritari: Jónbjörg Kjartansdóttir

Gjaldkeri: Jens Uwe Friðriksson

Meðstj.: Halldór Morthens

Benedikt Magnússon

2013 Formaður: Bárður Guðmundarson

Ritari: Jónbjörg Kjartansdóttir

Gjaldkeri: Jens Uwe Friðriksson

Meðstj: Halldór Morthens

Axel Óli Ægisson

2014 Formaður: Ástfríður Sigurðardóttir

Ritari: Svanur Geir Bjarnason

Gjaldkeri: Helena Guðmundsdóttir

Meðstj: Axel Óli Ægisson

Halldór Morthens

2015 Formaður: Ástfríður Sigurðardóttir

Ritari: Svanur Geir Bjarnason

Gjaldkeri: Helena Guðmundsdóttir

Meðstj: Axel Óli Ægisson

Halldór Morthens

2016 Formaður: Ástfríður Sigurðardóttir

Ritari: Svanur Geir Bjarnason

Gjaldkeri: Helena Guðmundsdóttir

Meðstj: Axel Óli Ægisson

Halldór Morthens

2017 Formaður: Ástfríður Sigurðardóttir

Ritari: Svanur Geir Bjarnason

Gjaldkeri: Helena Guðmundsdóttir

Meðstj: Páll Sveinsson

Halldór Morthens

2018 Formaður: Ástfríður Sigurðardóttir

Ritari: Svanur Geir Bjarnason

Gjaldkeri: Helena Guðmundsdóttir

Meðstj: Páll Sveinsson

Halldór Morthens

Bjarki Már Magnússon

Vignir Egill Vigfússon

2019 Formaður: Ástfríður Sigurðardóttir

Ritari: Svanur Geir Bjarnason

Gjaldkeri: Helena Guðmundsdóttir

Meðstj: Páll Sveinsson

Halldór Morthens

Bjarki Már Magnússon

Vignir Egill Vigfússon

2020 Formaður: Páll Sveinsson

Varaformaður: Bjarki Már Magnússon

Ritari: Svanur Geir Bjarnason

Gjaldkeri: Helena Guðmundsdóttir

Meðstj: Ástfríður Sigurðardóttir

Halldór Morthens

Vignir Egill Vigfússon

2021 Formaður: Páll Sveinsson

Varaformaður: Bjarki Már Magnússon

Ritari: Hreinn Þorkelsson

Gjaldkeri: Helena Guðmundsdóttir

Meðstj: Ástfríður Sigurðardóttir

Halldór Morthens

Arnór Ingi Gíslason

2022 Formaður: Páll Sveinsson

Varaformaður: Bjarki Már Magnússon

Ritari: Hreinn Þorkelsson

Gjaldkeri: Helena Guðmundsdóttir

Meðstj: Ástfríður Sigurðardóttir

Magnús J Magnússon

Arnór Ingi Gíslason

2023 Formaður: Páll Sveinsson

Varaformaður: Bjarki Már Magnússon

Ritari: Hreinn Þorkelsson

Gjaldkeri: Helena Guðmundsdóttir

Meðstj: Ástfríður Sigurðardóttir

Magnús J Magnússon

Leifur Viðarsson

2024 Formaður: Páll Sveinsson

Varaformaður: Bjarki Már Magnússon

Ritari: Hreinn Þorkelsson

Gjaldkeri: Helena Guðmundsdóttir

Meðstj: Ástfríður Sigurðardóttir

Magnús J Magnússon

Leifur Viðarsson

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.