Skip to main content

Ársskýrsla GOS 2023

Page 1

Ársskýrsla 2023


Ávarp formanns 2023 Kæru félagar. Nú er enn einu glæsilegu starfsári Golfklúbbs Selfoss að ljúka. Þegar horft er um öxl og starfið í Golfklúbbi Selfoss skoðað í samhengi tímans og þess sem hefur verið áorkað í klúbbnum síðustu ár finnst manni stundum eins og hljóð og mynd fari ekki saman. Magn framkvæmda og sá árangur sem hefur náðst á fáum árum er í litlu samhengi við það sem mætti kalla eðlilegt, framgangurinn hefur verið með þeim hætti, allt að því ævintýralegur. En hvernig stendur á því að svona góður árangur hefur náðst? Að mínu mati er svarið í nokkrum þáttum. Fyrir það fyrsta eru félagsmenn og sjálfboðaliðar við Golfklúbb Selfoss einhverjir duglegustu og metnaðarfyllstu félagsmenn sem fyrir finnast. Krafturinn, dugnaðurinn og eljan er til svo mikillar fyrirmyndar að eftir er tekið. Í öðru lagi er forysta í klúbbnum sterk. Hér hefur fólk valist til ábyrgðarstarfa í mörg ár sem hefur haft metnað og þor til að taka djarfar og framsýnar ákvarðanir fyrir klúbbinn. Einnig hefur framkvæmdastjórn klúbbsins verið gríðarlega öflug og sá mannauður sem hefur valist í störf hjá GOS verið frábær. Auk þessa hefur sveitarfélagið Árborg verið golfklúbbnum hliðholt og brugðist vel við óskum um samstarf. Við undirritun styrktarsamnings Árborgar við GOS undir lok marsmánaðar síðastliðinn lauk nokkurra ára ferli þar sem fjármunir til framtíðar uppbyggingar og stækkunar golfvallar og golfsvæðis GOS voru tryggðir. Rekstur klúbbsins blómstrar og við stígum á ári hverju stór skref í átt þess að gera okkur kleift að reka 18 holu golfvöll. Við erum stolt af því að sýna fram á rekstrarniðurstöðu ársins sem birt er í ársskýrslunni fyrir 2023 og er hún ekkert minna en glæsileg, rúmlega 40% aukning á rekstrartekjum milli ára. Þar á framkvæmdastjóri klúbbsins, Hlynur Geir Hjartarson heiður skilinn fyrir frábært starf. Við erum ekki eingöngu að vinna í stækkun vallar heldur erum við líka að endurskoða innra starfið. Á aðalfundinum verða lagðar fram tillögur að breytingum og reglum þar sem við leggjum til að mynda til að kvennanefnd verði innlimuð í félaganefnd. Núverandi stjórn GOS telur það samræmast nútímalegum starfháttum að okkar félagastarf verði ekki hugsað út frá kynjum heldur frekar samstarfi allra félagsmanna. Félagastarfið hefur blómstrað í GOS og er vert að taka þar út fyrir sviga gríðarlega öflugt starf eldri kylfinga. ELDGOSarar sjá til þess að það er líf í aðstöðuhúsi klúbbsins við Svarfhólsveg frá morgni til kvölds. Þeir taka þátt í verklegum framkvæmdum á sama tíma og þeir leika golf saman, fara í heimsóknir til Vestmannaeyja og upp í Borgarfjörð. Þetta starf er til mikillar fyrirmyndar og ber að hrósa stjórn ELDGOS fyrir vel unnið starf.

3


Golfskálinn fékk andlitslyftingu nú í haust. Eldhúsið var tekið í gegn og var gólf eldhússins rifið upp og nýtt lagt, þar gengu fremstir vallarstarfsmenn og framkvæmdastjóra. Skálinn var málaður hátt og lágt og fundaraðstaða búin til þar sem skrifstofa framkvæmdastjóra hefur verið. Skipt var um lýsingu í skálanum og geymsla útbúin við inngang skálans. Sannarlega miklar og góðar framkvæmdir sem lyfta ásýnd skálans og fegra. Meistaramótið var hápunktur starfsins okkar á árinu sem er að líða og fór mótið fram í blíðskapaveðri fyrstu vikuna í júlí. Það er óhjákvæmilegt að ræða afreksstarf klúbbsins þegar litið er um öxl því við GOSarar erum sannarlega stolt af þeim árangri sem náðist í keppnisgolfi á liðnu tímabili. Þar má helst nefna frábæran einstaklingsárangur Arons og Hlyns, árangri karla- og kvennasveita GOS auk þess sem við eigum ríkjandi íþróttamann Árborgar, íþróttakonu HSK og landsliðkonu. Þrátt fyrir að sumarið hafi farið hægt af stað og kuldi einkennt maí og júní mánuði varð ásókn í völlinn okkar mikil. Það fyllir mann eftirvæntingu að horfa til norðurs á þá uppbyggingu sem á sér þar stað og tilhlökkunin að leika þær nýju golfbrautir sem þar eru að verða til mikil. Nú er bara að vona að veturinn verði okkur hliðhollur og að völlur og nýframkvæmdir komi vel undan í vor. Þá opnast sá möguleiki að leika síðari hluta næsta sumars 14 holu golfvöll. Svo ef allt lukkast náum við að stöðva gegnumflæðið í tjörninni við núverandi 2. flöt og þar verði fallega tjörnin sem þar á að vera. Framundan er spennandi vetrarstarf, vetrarmótaraðir í golfhermum, púttmótaröð og margt fleira. Ég vil hvetja félagsmenn til að vera duglegir að nýta hermana og æfingaaðstöðuna innanhús auk útiæfingasvæðins þegar færi gefst. Einnig að halda áfram að vera virkir í félagastarfi og að leggja sitt á vogarskálarnar til að gera frábæran golfkúbb enn betri. Um leið og ég þakka öllum félagsmönnum samveruna á árinu sem er að líða óska ég gleðilegra jóla og farsæls golfárs á komandi ári. Páll Sveinsson, formaður Golfklúbbs Selfoss.

4


5


Skýrsla stjórnar GOS fyrir 2023 Stjórn Golfklúbbs Selfoss árið 2023 var skipuð þeim Páli Sveinssyni formanni, Bjarka Má Magnússyni varaformanni, Helenu Guðmundsdóttur gjaldkera, Hreini Þorkelssyni ritara og meðstjórnendunum Ástfríði Sigurðardóttur, Magnúsi J. Magnússyni og Leifi Viðarssyni. Stjórnin fundaði átta sinnum á árinu, hélt einn félagafund og aðalfund.

Árið 2023 hófst á björtu nótunum enda skein ennþá gleði úr andlitum félagsmanna eftir að Aron Emil Gunnarsson, afrekskylfingur í GOS, var valinn íþróttamaður Árborgar mill jóla og nýárs 2022. Sólin skein í heiði og upphafsdagarnir voru kaldir og bjartir enda jólasnjórinn búinn að pakka vellinum inn og verja fyrir hörðust vetrarmánuðina sem framundan voru. Brautir fyrir gönguskíði voru lagðar og við hæfi var að fyrsta fjárfesting ársins hjá GOS væri snjóblásari!

Fljótlega fóru að renna á menn tvær grímur þegar snjórinn og klakinn sem safnast hafði fyrir við og á Ölfusá fór að bráðna og vorum við farin að undirbúa möguleg flóð og hugsanlegar skemmdir á velli. Betur fór en á horfðist og allt fór vel að lokum.

Hlýtt og gott var í inniaðstöðunni okkar við Svarfhólsveg og kunnu félagsmenn sannarlega að meta það á köldum upphafsdögum ársins. Vetraræfingar fóru á fullt á nýju ári eins og síðastliðin ár, vetrarmótaraðir í golfhermum og barna- og unglinganefnd stóð fyrir sinni árlegu púttmótaröð. Aðstaðan verður okkur verðmætari með ári hverju en þar hefur einnig virkni í félagsstarfi orðið mjög mikil. Má þar helst nefna reglulega starfsemi eldri kylfinga sem sannarlega hafa glætt húsið lífi frá opnun til lokunar.

Þegar snjó tók að leysa undir lok febrúar glöddust félagsmenn því hægt var að opna útiæfingaskýlið og boltavélin var virkjuð. Þegar menn fjölmenntu í blíðviðri fyrstu helgina á æfingasvæðið og slógu þar æfingabolta léttklæddir fóru menn að gæla við hugmyndina um blítt og gott vor en fátt gleður kylfinga eins mikið og snemmbúið vor þar sem grundir gróa fyrr en í meðalári. Strax í marsmánuði er óhætt að segja að þar hafi allar slíkar vonir og þrár runnið út í sandinn því mikil norðan kuldatíð tók við og má segja að hún hafi í raun staðið yfir fram í seinni hluta júní, eitt lengsta vor í manna minnum!

Þrátt fyrir þau vonbrigði og kulda í veðurfari voru bjartir, hlýir og góðir hlutir að gerast í starfi klúbbsins. Heiðrún Anna Hlynsdóttir var valin íþróttakona HSK í lok mars og einnig var nýr og góður þjónustusamningur undirritaður við sveitarfélagið Árborg í lok mars. Félagafundur var haldinn í apríl en þar kynnti Edwin Roald uppbyggingu og stækkun vallar. Einnig tóku félagsmenn á því eins og alltaf á vordegi og hreinsuðu og undirbjuggu völlinn af kostgæfni undir stjórn vallstjórans Óla Dórs og hans manna. Nýliðastarfið heldur áfram að dafna og var það enn að vaxa og nýliðum að fjölga á milli ára.

Þrátt fyrir kuldatíð tókst okkur að opna inn á völlinn fyrir félagsmenn 22. apríl en óhætt er að segja að völlurinn hafi komið illa undan kuldatíðinni, sérstaklega flatirnar. Þrátt fyrir hetjulega baráttu vallarstarfsmanna við veðurguðina og erfiðar aðstæður vorum við lengi að ná vellinum í gott stand. 6


Veðuraðstæðurnar fóru einnig illa með nýsáningu á norðurhluta vallarins sem sáð var í undir lok síðasta sumars. Verulega mikil áskorun fylgdi þessuþví þegar sumarið loks gekk í garð varð svo mikil einmunatíð að ekki rigndi svo vikum skipti. Það var heldur ekki gott fyrir völlinn okkar þannig að það varð ekki fyrr en síðsumars sem vöxtur og sáningarvinna tók að glæðast.

Afreksstarfið var hins vegar í miklum blóma. Helst ber þar að nefna glæsilegan árangur Arons Emils Gunnarssonar sem náði 2. sæti á Íslandsmótinu í holukeppni og einnig árangur Hlyns Geirs Hjartarsonar sem náði 2. sætinu á Íslandsmótinu í höggleik. Heiðrún Anna Hlynsdóttir var valin í landslið Íslands, Máni Páll Eiríksson varð Holumeistari GOS og Katrín Embla Hlynsdóttir og Aron Emil Gunnarsson urðu klúbbmeistarar GOS á meistaramótinu sem haldið var fyrstu vikuna í júlí. Sveit karla náði 6. sæti í 1. deild karla á Íslandsmóti golfklúbba en sveit kvenna náði þeim glæsilega árangri að sigra 2. deildina og landa þar Íslandsmeistaratitli. Þær munu leika í 1. deildinni að ári.

Golftímabilinu lauk í október eftir gott tíðarfar síðari hluta sumars og náði völlurinn miklum framförum og fór inn í haustið í góðu ásigkomulagi. Einnig tókst nýsáningin síðsumars mjög vel og gefur góð fyrirheit um það sem koma skal. Nú er að bara að leggjast á bæn og vonast eftir hagstæðum vetri. Hlynur og vallarstarfsmenn tóku til hendinni í golfskálanum ásamt vaskri sveit sjálfboðaliða og hafa þeir unnið að miklum og góðum endurbótum á skálanum.

Stjórn golfklúbbs Selfoss þakkar öllum félagsmönnum gæfuríkt samstarf á golfárinu sem er liðið. Við hvetjum félagsmenn til að halda áfram að efla starfið og að vera virkir í vetrarstarfinu sem framundan er.

7


8


9


Sveit GOS karla

Sveit GOS kvenna

10


11


12


13


14


15


16


17


18


19


20


21


22


23


24


25


26


27


28


29


30


Skýrsla mótanefndar

kylfingar kvöddu sumarið í smá vætu eins og íslenska haustinu er von og vísa.

Mótanefnd GOS hóf störf snemma og hittist fyrst í janúar. Þar var byrjað að huga að mótaskrá komandi sumars og ýmsar breytingartillögur ræddar. Mótanefndin í ár var skipuð átta meðlimum sem ákváðu snemma að vinna saman að góðum mótum hjá GOS.

Nú styttist í að Svarfhólsvöllur hætti að vera 9 holu völlur. Það gæti byrjað síðla sumars 2024 eða þá 2025. Mikill spenningur er í félögum og tilhlökkun mikil að eignast 18 holu völl á Selfossi.

Leifur Viðarsson Footjoy mótaröðinni var breytt. Ákveðið var að fjölga mótum og spila mótaröðina allt sumarið. Bætt var við verðlaunum fyrir hvert og eitt mót og mótið var 9 holu mót en ekki 18 eins og það hafði verið árin áður. Allar þessar breytingar voru af hinu góða og var þátttakan gríðarlega góð í ár.

Formaður

Skýrsla barna- og unglinganefndar

Opin mót voru svipuð og þau höfðu verið árin á undan. Einhverjar smávægilegar breytingar varðandi styrktaraðila og tímasetningu voru gerðar en í algjöru lágmarki þó. Nefndin ákvað að hætta með formlegar verðlaunaafhendingar og auglýsir í staðinn við ræsingu að hægt væri að vitja verðlauna að móti loknu eða næstu daga á eftir. Einnig var ákveðið að vera sýnilegri á samfélagsmiðlum og reynt var að taka myndir í öllum mótum og smá umfjöllun skrifuð eftir hvert mót.

Í Barna- og unglinganefnd 2023 sátu Jónína Ósk Lárusdóttir, Auðunn Örn Gunnarsson og Ársæll Einar Ársælsson. Starfsárið byrjaði þann 2. janúar með inniæfingum. Iðkendahópar voru fimm á árinu. Þjálfarar vetrarins voru þau: Hlynur Geir Hjartarson yfirþjálfari, Arnór Ingi Hlíðdal, Heiðar Snær Bjarnason, Sverrir Ó. Bergsson, Jóhann Már Guðjónsson, Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Alexandra Eir Grétarsdóttir og Katrín Embla Hlynsdóttir.

Meistaramótið heppnaðist vel. 91 keppandi voru skráðir til leiks í ellefu flokkum. Veðrið var ágætt þó svo að það hafi blásið vel á keppendur. Mótið heppnaðist vel og almenn gleði var hjá félögum GOS eftir mótið.

Útiæfingarnar byrjuðu í maí og stóðu fram í miðjan september.

Síðasta mót sumarsins var að venju Bændaglíman þar sem vesturbær og austurbær mættust. Þátttakan var góð og

Barna-og unglinganefnd byrjaði með púttmótaröðina þann 28. janúar og ákveðið var að spila 31


golf átta laugardaga venju samkvæmt og var mætingin góð. Jónína Ósk Lárusdóttir Formaður barna- og

Tekinn var inn nýr sérmerktur fatnaður undir merkjum Cutter & Buck, fyrir börn og unglinga. Hægt var að velja derhúfu, peysu, pólóbol og vindjakka. Viðtökurnar við nýjum fatnaði voru góðar og seldist vel.

unglinganefndar.

Fyrsta mót ársins var Íslandsmót 14 ára og yngri, haldið á Flúðum dagana 22.-24. júní. GOS sendi í fyrsta sinn sveit á sínum vegum í það mót. Sveitin var blönduð og samanstóð af 5 strákum og 1 stelpu. Hópurinn stóð sig mjög vel, innan vallar sem utan. Uppskáru þau góða reynslu og minningar eftir mótið, enda sumir að spila í sínu fyrsta móti. Meistaramót GOS barna og unglinga var svo haldið 29.-30. júní. Spilaðir voru tveir 9 holu hringir. Þátttakan var góð eða 12 börn. Íslandsmót 12 ára og yngri fór fram 25.-29. September. GOS sendi blandaða sveit á ný, 4 stráka og 1 stelpu. Aðstæður voru krefjandi á öðrum keppnisdegi þar sem spilað var í blautu og köldu haustveðri. Spilað var á Mýrinni, Sveinskotsvelli og Korpúlfsstöðum. GOS sveitin spilaði í flokki Hvítu-deildarinnar sem var efsti styrkleikaflokkurinn og landaði þar 7. sæti. Alls voru 26 sveitir sem spiluðu á mótinu. Uppskerumót og lokahóf var haldið 21. september. Vegna veðurs voru aðeins spilaðar 6 holur. Mæting var góð, boðið var uppá teiggjafir frá Ölgerðinni, New Wave Iceland og netgolfvorur.is. Að hring loknum var boðið upp á grillaðar pulsur, snakk og drykki. Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin, en einnig veittu þjálfarar kylfingum verðlaun fyrir framfarir og ástundun á liðnu tímabili. Eftirfarandi fengu viðkenningu Brynja, Einar Ben, Emil Nói og Ævar.

32


Máni Páll holumeistari GOS 2023

Skýrsla vallarnefndar Nefndina skipuðu eftirtaldir : Halldór Ág Morthens formaður, Svanur Bjarnason, Bjarki Guðmundsson og Bárður Guðmundarson. Haldinn var vinnudagur laugardaginn 6. maí 2023. Það mættu 40 manns. Áframhald var við framkvæmdir á nýju æfingaskýli. Lagfæringar á stígum og meðal annars gróðursett tré. Dyttað að öðru sem til féll. Boðið var uppá súpu og brauð á eftir Vil ég þakka vallarstarfsmönnum og vallarnefndinni fyrir vel unnin störf í sumar.

Kveðja Halldór Morthens.

33


sambærilegt við aðra velli sem lentu í svipuðum aðstæðum. Á vellinum störfuðu auk vallarstjóranna þeir Símon Leví, Pétur Sigurdór, Sverrir Óli, Heiðar Snær, Jóhann Már og Arnar Björnsson, allir þessir menn stóðu sig með eindæmum vel og eiga þeir mikið hrós skilið. Veðurfarið í sumar gerði okkur erfitt fyrir, en vorið kom ekki fyrr en seint og þegar það kom var hiti ekki mikill fyrr en leið á júní mánuð. Þá tók við langur þurrka kafli sem erfitt var að eiga við, sýndi sig og sannaði þá vökvunarkerfið í nýju brautunum og ljóst að það er orðið nauðsynlegur hluti af viðhaldi vallarins. Framkvæmdir Miklar framkvæmdir einkenndu sumarið, en alls eru 5 nýjar brautir í bígerð. Alls voru plægðir tæpir tveir kílómetrar af vatnslögnum og fóru 83 vökvunarhausar á þær lagnir. Sáð var í og dúkað rúmlega 6000 m2 af flötum og teigum, heilt yfir komu sáningar mjög vel upp og lofa góðu. Þurrkurinn setti samt sitt mark á framkvæmdirnar og þar sem var ekki vökvun var svæðið heldur seinna til. Vélar Lungað úr vetrinum fór í viðhald á vélunum okkar, en þær voru í misgóðu ástandi og er okkur annt um að tryggja það að vélarnar geti gengið allt sumarið án mikilla bilanna. Það gekk eftir og engar stórar bilanir komu í ljós.

Skýrsla vallarstjóra

Í vetur voru keyptar nokkrar smávélar og tæki. Snjóblásari til að auðvelda við snjómokstur og til að hreinsa snjóinn af flötunum fyrir hlákutímabil. Handslátturvél fyrir flatir af gerðinni Toro Flex 2100, sem nýtist mjög mikið á framkvæmdasvæðinu í fyrstu slættina eftir sáningar, og í fyrstu slætti á flötunum á vorin.

Sumarið 2023 var vallarstarfsmönnum GOS erfitt, völlurinn kom vel undan mesta snjóþunganum í febrúar en þá tók við langur kafli sem einkenndist af vindi, miklum kulda og þurrki. Frostþol grassins á þessum tíma er þá orðið mjög lítið og er erfitt að eiga við það, þó reynt hafi verið að bjarga því sem unnt var með því að sanda yfir flatirnar til að reyna hlífa þeim. Völlurinn kom mjög skemmdur undan vetri, þá sérstaklega yngri flatirnar, og var það

Í sumar komu einnig brýningarbekkir frá Bernhard, sem nýtist til að brýna 34


slátturvélarnar okkar þegar þess þarf, þetta mun koma til að bylta algjörlega viðhaldi okkar á sláttukeflunum. Nú erum við ekki háðir öðrum aðilum þegar kemur að þeim málum. Paul Wilcox frá Bernhard gerði sér ferð til okkar að kenna okkur á bekkina,

eldri kylfingar látið til sín taka á ýmsum sviðum starfseminnar og ekki slegið af. ÞRIÐJUDAGAR OG FIMMTUDAGAR - SUMAR Teknir voru frá rástímar á þriðjudögum og fimmtudögum frá 09.30-10.10 fyrir eldri kylfinga. Þegar leið á sumarið dugði þetta ekki og voru rástímar færðir frá 09.00-10.00 og dugði varla. Þetta var vel nýtt og má segja að meðalfjöldinn hafi verið 25-30 í hvert sinn og spilað í 6-8 hollum. Haldið var Texas Scramblemót og tókst það afar vel. Alls voru þessir morgnar 40 og meðalnýting hvers morguns afar góð og fólk lét veðrið ekki hafa áhrif á sig. Þetta hefur vakið athygli hjá öðrum klúbbum og við fengið gesti á þessa morgna.

Íþróttavellir Árborgar Eins og síðustu ár hefur klúbburinn séð um viðhald á íþróttavöllunum í Árborg, sláttur, sáning, götun, söndun og áburðargjafir. Keppnisvöllurinn kom vel undan vetri og var með bestu grasvöllum landsins í allt sumar. Óli Dór vallarstjóri

MIÐVIKUDAGAR OG FÖSTUDAGAR - VETUR

Skýrsla eldri kylfinganefndar (ELDGOS) Stjórnarfundir

Púttaðstaða var opin ELDGOSURUM og öðrum á miðvikudögum frá áramótum og fram á vor. Það gekk vel og margir mættu. Í vetur hafa tímarnir verið á föstudögum og gengið vel.

Stjórn eldri kylfinganefndar skipuðu:

Holukeppni ELDGOS

Magnús J. Magnússon, formaður, Bárður Guðmundarson, Samúel Smári Hreggviðson, Auður Róseyjardóttir, Ásta Jósefsdóttir, Jóhanna Þorsteinsdóttir og Páll Böðvar Valgeirsson.

Holukeppnin var á sínum stað og voru margir sem skráðu sig í keppnina. Til úrslita spiluðu Grímur Arnarson og Ársæll Ársælsson. Grímur sigraði og varð þar með holumeistari eldri kylfinga GOS árið 2023.

Stjórnin hélt 10 stjórnarfundi á árinu þar sem farið var í gegnum starfið og hlutir skipulagðir og ræddir.

Sveitakeppnir ársins Karlasveitin Ögmundur Kristjánsson var liðsstjóri hópsins. Keppt var á Selfossi og í Hveragerði dagana 24.-26. ágúst. Riðillinn sem GOS keppti í var á Selfossi, en keppnin um 1.-4. sæti var í Hveragerði. Leikir fóru þannig að GOS tapaði fyrir Hvergerðingum í keppni um 3. sætið og endaði í 4. sæti af 8 liðum.

Starfið 2023 Almennt Starfið gekk í heild afar vel. Svikavorið setti þó smá strik í reikninginn. Eldri kylfingar spiluðu af krafti og skipulagðar voru 3 ferðir á aðra golfvelli. Þeir voru: Öndverðarnes, Kiðjaberg, og Vestmannaeyjar. Góð þátttaka var í þeim öllum. Rúmlega 30 í Öndverðarnes og Kiðjaberg og 40 til Vestmannaeyja. Einnig hafa

Sveitina skipuðu: Ögmundur Kristjánsson, Svanur Geir Bjarnason, Grímur Arnarson,

35


Róbert Karel Guðnason, Ársæll Ársælsson og Gylfi B. Sigurjónsson.

Öndverðarnes Í Öndverðarnesið mættu 32 kylfingar. Til að byrja með var þungbúið og smá regn á fyrstu tveim holum en síðan stytti upp og allir enduð 18 holur sælir og kátir. Allir saman í mat á eftir og gífurlega góður dagur í Öndverðarnesinu.

Kvennasveitin Keppni kvennasveitanna var skipulögð á Höfn í Hornafirði. Þar sem nánast var ómögulegt að útvega gistingu á viðráðanlegu verði og einnig að engir golfbílar voru til staðar þá var ákveðið að senda ekki lið til keppni þetta árið.

Vestmannaeyjar Það voru 40 Eldgosarar sem lögðu af stað til Vestmannaeyja þriðjudaginn 5. september. Alls fóru 33 í langferðabíl og 7 á einkabílum. Þegar til Eyja var komið ræstum við á 1. og 10. teig í sól og logni. Þannig var veðrið allan daginn og menn spiluðu frábært golf. Að loknum golfhringnum var farið á veitingastaðinn Eins Kalda og snæddur þar frábær kvöldverður. Það var ánægður en þreyttur hópur sem steig út úr langferðabílnum um miðnætti eftir 16 tíma ferð.

Sveitakeppni LEK 65+ Sveitakeppni LEK 65+ í 2. deild fór fram á golfvelli Hvergerðinga 9.-10. ágúst. Lið GOS keppti við Golfklúbb Hveragerðis, Golfklúbb Vestmannaeyja og Golfklúbbinn Leyni. Eftir góða keppni endaði GOS í 2. sæti. Sveitina skipuðu: Sigurður Reynir Óttarsson, Samúel Smári Hreggviðsson, Jón Lúðvíksson, Jón Gíslason og Bárður Guðmundarson sem einnig var liðsstjóri.

FELAGSFUNDUR

Keppni við Flúðamenn

Öflugur félagsfundur var haldinn í golfskálanum í lok maí þar sem mættu um 33 eldri kylfingar. Einnig var haldinn góður fundur 28. september. Margt var rætt og er alveg ljóst að tryggja þarf að slíkir félagsfundir séu haldnir að vori og hausti til að fara í gegnum starfið framundan og heyra í okkar félagsmönnum. Einnig var haldinn sérfundur um Eldgosaferðirnar.

Hin árlega keppni GOS karla við Golfklúbbinn á Flúðum fór fram á Selsvelli sunnudaginn 20. águst í frábæru veðri. Keppnin fór þannig að GF vann með 7,5 vinningum gegn 4,5 vinnigum GOSara. Að loknu móti snæddu menn kvöldverð á Kaffi Sel og var keppnin gerð upp á viðeigandi hátt. Sveitina skipuðu: Bárður Guðmundarson, Ársæll Ársælsson, Gustav Stolzenwald, Sigurður R. Óttarsson , Jón Lúðvíksson, Jón Gíslason, Sigurður Kolbeinsson og Valtýr Pálsson.

Almennar hugleiðingar Starfið á árinu gekk ótrúlega vel. Það er ljóst að fjöldi eldri kylfinga í klúbbnum er á uppleið og starfið eflist í takt við það. Starfið er vaxandi á allan hátt. Hingað eru að koma eldri kylfingar úr öðrum klúbbum þar sem þeir hafa heyrt af starfinu. Ýmsar hugmyndir sem komið hafa upp á nefndarfundum og félagsfundi hafa farið til stjórnar golfklúbbsins og vel hefur verið tekið í þær og sumar framkvæmdar og er það vel. Efla þarf færni félagsmanna í

ELDGOSAFERÐIR Á AÐRA VELLI Kiðjaberg Það voru um 30 Eldgosarar sem mættu í Kiðjaberg í frábæru veðri. Spilaðar voru 18 holur og var stuð á vellinum. Síðan borðuðu allir saman á eftir og nutu samvistanna. Frábær dagur. 36


golfhermum og hafa námskeið fyrir okkar eldri félagsmenn. Nú þegar komnir eru 3 golfhermar þá er nauðsynlegt að sem flestir hafi færni í því að nota þá. Stefnt er að því að efla starf eldri kylfinga yfir vetrarmánuðina. Að öðru leyti gekk þetta vel og gekk upp. Ég vil þakka meðstjórnendum mínum fyrir góða samvinnu og uppbyggjandi stuðning. Vil einnig þakka Hlyni fyrir þolinmæðina. Magnús J. Magnússon, formaður

37


38


golfklúbbsins, almennar golfreglur og staðarreglur. Þá er rétt að ítreka að ef félagsmenn telja að ekki sé leikið samkvæmt reglum þá er mikilvægt að ræða það strax og slík mál koma upp og kalla til dómara ef tilefni er til. Þá er mikilvægt að rétt sé staðið að skorskráningu og yfirferð hennar að móti loknu.

Skýrsla aganefndar Aganefnd var skipuð þeim Jóni Gíslasyni formanni, Bárði Guðmundarsyni og Sigurði Grétarssyni. Nefndin kom saman á árinu til að fjalla um kæru stjórnar Golfklúbbs Selfoss (GOS) vegna meintra brota félagsmanns á golfmóti sem haldið var 3. júní 2023 á Svarfhólsvelli. Gerð var krafa um að hlutaðeigandi yrði úrskurðaður í tveggja ára bann frá öllum mótum sem haldin eru á vegum GOS.

Jón Gíslason, formaður.

Skýrsla afreksnefndar Megin hlutverk nefndarinnar er að hafa umsjón með vali á liðstjóra kk og kvk liða félagsins sem keppa á Íslandsmóti golfklúbba. Einnig kemur nefndin að skipulagi firmakeppni GOS sem er hugsað til að standa straum af kostnaði vegna liða GOS á Íslandsmótum golfklúbba.

Vegna tengsla við einn stjórnarmanna GOS og í samræmi við reglugerð um störf aganefndar var samstaða um það af hálfu nefndarinnar að formaður hennar væri óhæfur til að koma að umfjöllun um málið og úrskurði nefndarinnar. Af þeim ástæðum og í samræmi við nefnda reglugerð skipaði stjórn GOS Guðmund Bergsson í hans stað til að fjalla um kærumál þetta.

Íslandsmót Golfklúbba Karlalið GOS spilaði í 1. deild sem haldin var dagana 27.-29. júlí á Akureyri. Liðsstjóri GOS var Jón Ingi Grímsson. Í sveit GOS voru eftirtaldir: Hlynur Geir Hjartarson, Aron Emil Gunnarsson, Andri Már Óskarsson, Pétur Sigurdór Pálsson, Arnór Ingi Gíslason, Kristinn Sölvi Sigurgeirsson, Heiðar Snær Bjarnason og Símon Leví Héðinsson.

Aganefnd fundaði fjórum sinnum með formlegum hætti vegna málsins, auk þess sem vitni voru kölluð til vitnisburðar. Þá var fundað með mótsstjóra þar sem farið var yfir framkvæmd mótsins og staðarreglur sem í gildi voru. Eftir ítarlega umfjöllun um kæru, vitnisburði og framkvæmd mótsins var niðurstaða aganefndar sú að nefndin teldi sér ekki fært, með hliðsjón af framkomnum gögnum og vitnisburðum, að dæma kærða í keppnisbann. Byggðist sú niðurstaða á að vitnum bar ekki saman, orð stóð gegn orði og að formgallar voru á skorskráningu, sem ekki var hægt að byggja á. Í samræmi við þessa niðurstöðu var kærunni vísað frá.

Lið GOS endaði í 6. sæti þar sem sigur á GS og GV í lokaleik tryggði þeim áframhaldandi veru í 1. deild. Kvennalið GOS spilaði í 2. deild sem haldin var dagana 18.-20. ágúst í Borgarnesi. Liðstjóri var Alexandra Eir Grétarsdóttir og henni til aðstoðar var Ragnheiður Ingibjörg Jónsdóttir. Sveit GOS skipuðu eftirtaldar: Jóhanna Bettý Durhuus, Alexandra Eir Grétarsdóttir, Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Auður Róseyjardóttir, Bára Valdís Ármannsdóttir og Erla Rún Kaaber.

Þegar niðurstaða var fengin fundaði ganefnd með fulltrúum í stjórn GOS til að fara yfir niðurstöður málsins. Einnig vill aganefnd beina því til félagsmanna GOS að virða siðareglur

Lið GOS gerði sér lítið fyrir og sigraði GA í úrslitaleik mótsins. Íslandsmeistaratitill í 2. 39


deild kvenna staðreynd og þær spila því í 1. deild að ári. Til hamingju.

Skýrsla félaganefndar

Firmakeppni GOS

Fyrir sumarið 2023 var kvennanefnd sameinuð félaganefnd. Bára Jónsdóttir kom inn í nefndina og hafði trausta yfirumsjón með kvennagolfi á þriðjudögum sem og öðrum viðburðum sem áður heyrðu undir kvennanefnd.

Firmakeppnin var haldin 15 september. Leikið var með Texas Scramble fyrirkomulagi. Fjölmörg lið skráðu sig til leiks og leikið var í blíðskaparverði. Úrslit urðu eftirfarandi:

Stærsti viðburður félaganefndar var að vanda Jónsmessumótið sem tókst með ágætum en spilað var skemmtilegt þrískipt form af Texas Scramble, Greensome og Foursome. Guð má vita hver vann enda hefur það aldrei verið aðalatriði á Jónsmessumóti. Þátttaka í mótinu var svo góð að það er mikið ljómandi gott að næsta sumar verðum við með fleiri brautir á Svarfhólsvelli.

1. Anna Hárstofa. Leikmenn voru Hlynur og Gunnhildur. 2. Lagsarnir. Leikmenn voru Kalli og Otri. 3. Máttur. Leikmenn voru Sigurður og Baldur. Eftir mótið bauð GOS leikmönnum upp á veitingar. GOS þakkar þeim fyrirtækjum og leikmönnum sem tóku þátt í þessu frábæra móti.

Ekki var mikið um viðburði aukalega á þessu ári en verður í skoðun eins og áður fyrir næsta tímabil. Forsenda fyrir því að halda fleiri viðburði er auðvitað þáttaka félagsmanna. Endilega gauka að félaganefnd hugmyndum ef það vantar eitthvað í félagastarfið sem hægt væri að innleiða hjá okkur.

Golfkveðja Gylfi B. Sigurjónsson

Í heildina ljómandi gott sumar, völlurinn er í mjög spennandi uppbyggingarfasa, góður andi í klúbbnum og meðlimum heldur áfram að fjölga. Félaganefnd GOS

40


41


42


43


44


45


Tölfræði 2023

46


47


48


49


Golfkarl ársins 2023 Aron Emil Gunnarsson

Golfkona ársins 2023 Heiðrún Anna Hlynsdóttir

50


Efnilegasti unglingurinn 2023 Katrín Embla Hlynsdóttir

Háttvísisbikar GSÍ Magnús J. Magnússon

51


Holumeistari GOS 2023 Máni Páll Eiríksson

Holumeistari eldri kylfinga Grímur Arnarson

52


Klúbbmeistarar GOS 2023 Aron Emil og Katrín Embla

53


Bárður gaf GOS myndarlega gjöf

Arnar Björnsson alltaf í góðu skapi

54


55


56


57


Samþykktir Golfklúbbur Selfoss

1.

HEITI FÉLAGSINS, HEIMILI, TILGANGUR OG VARNARÞING .............................. 58

2.

STJÓRNSKIPULAG ...................................................................................... 58

3.

AÐALFUNDIR / FÉLAGAFUNDIR .................................................................... 59

4.

STJÓRN FÉLAGSINS ................................................................................... 59

5.

STJÓRNARFUNDIR OG VERKSKIPTING STJÓRNAR .......................................... 60

6.

NEFNDIR ................................................................................................... 60

7.

FRAMKVÆMDASTJÓRI ................................................................................ 61

8.

REIKNINGSÁR ........................................................................................... 61

9.

LEIKREGLUR .............................................................................................. 61

10.

HEIÐURSFÉLAGAR...................................................................................... 61

11.

SLIT Á FÉLAGINU ....................................................................................... 61

12.

BREYTINGAR Á LÖGUM ............................................................................... 61

Útgefið 23. nóvember 2019 Samþykktir Golfklúbbur Selfoss

1.

HEITI FÉLAGSINS, HEIMILI, TILGANGUR OG VARNARÞING

1.1 1.2 1.3 1.4 1.5

Heiti félagsins er Golfklúbbur Selfoss. Félagið er almennt félag. Heimilisfang félagsins Svarfhólsvöllur, 801 Selfoss. Félagið er aðili að Golfsambandi Íslands (GSÍ). Tilgangur félagsins er rekstur golfvallar, sala á golfvörum, veitingum og tengdur rekstur ásamt því að glæða áhuga á golfíþróttinni og skapa áhugamönnum aðstöðu til að iðka hana. Varnarþing þess er á Selfossi, Árnessýslu. Sé mál höfðað gegn félaginu skal það höfðað fyrir Héraðsdómi Suðurlands.

1.6

2.

STJÓRNSKIPULAG

2.1

Með stjórnun félagsins fara: a) Félagafundir. b) Stjórn félagsins. c) Framkvæmdastjóri. 58


3.

AÐALFUNDIR / FÉLAGAFUNDIR

3.1

Æðsta vald í öllum málefnum félagsins, innan þeirra takmarka sem samþykktir þess og landslög setja, er í höndum lögmæltra aðal-/félagafunda. Á þeim ræður afl atkvæða nema öðruvísi sé mælt í samþykktum þessum.

3.2

Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins má ekki taka til meðferðar á aðal-/félagafundi nema þess hafi verið getið í fundarboði og þá þarf 2/3 atkvæða til að tillagan nái fram að ganga.

3.3.

Félagafundi skal halda eftir ákvörðun stjórnar eða að kröfu 1/20 félagsmanna. Skal krafan þá vera skriflega gerð og fundarefni tilgreint. Fundur skal þá boðaður af stjórn innan þriggja vikna.

3.4.

Aðalfund og aukafund skal boða með minnst viku fyrirvara í tölvupósti til félagsmanna og á heimasíðu klúbbsins.

3.5.

Fundir eru löglegir, sé löglega til þeirra boðað. Aðalfundur

3.6.

Aðalfund skal halda eigi síðar en 15. desember ár hvert. Á aðalfundi skulu eftirfarandi mál tekin fyrir. 1. Kosning fundarstjóra og ritara. 2. Skýrsla stjórnar. 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar. 4. Skýrslur nefnda. 5. Lagabreytingar. 6. Kosningar samkvæmt 4. og 5. kafla. 7. Fjárhagsáætlun næsta árs afgreidd. 8. Önnur mál.

3.7.

Aðalfundur ákveður félagsgjöld næsta árs. Heimilt er að leggja á sérstakt framkvæmdagjald þegar um viðamiklar framkvæmdir er að ræða.

3.8.

Atkvæðisrétt hafa allir skuldlausir félagar við klúbbinn 16 ára og eldri.

3.9.

Félagsmenn sem vilja gera tillögur til lagabreytinga eða starfstilhögunar skulu senda stjórninni þær eigi síðar en 1. nóvember.

4.

STJÓRN FÉLAGSINS

4.1.

Stjórn félagsins skal skipuð 7 (sjö) mönnum. Kjósa skal fyrst formann til tveggja ára, síðan varaformann, ritara og gjaldkera til tveggja ára. Þá skulu kosnir þrír meðstjórnendur til tveggja ára.

4.2.

Framboð til stjórnar skal vera skriflegt og skilað inn síðasta lagi viku fyrir aðalfund.

4.3.

Stjórnarkjör fer fram sem meirihlutakosning milli einstaklinga.

59


4.4.

Stjórnarkjör skal vera skriflegt, ef tillögur koma fram um fleiri menn en kjósa skal.

5.

STJÓRNARFUNDIR OG VERKSKIPTING STJÓRNAR

5.1.

Formaður kveður stjórnina til funda og stýrir þeim. Stjórnarfundi skal halda hvenær sem hann telur þess þörf. Fund skal halda ef einhver stjórnarmanna eða framkvæmdastjóri krefst þess.

5.2.

Stjórnarfundur er ákvörðunarbær þegar meirihluti stjórnarmanna tekur þátt í fundarstörfum. Mikilvæga ákvörðun má þó ekki taka nema allir stjórnarmenn hafi haft tök á því að fjalla um málið, sé þess kostur. Segi stjórnarmaður sig úr stjórn heldur stjórn þó enn ákvörðunarbærni að því gefnu að meirihluti stjórnarmanna (4/7) taki þátt í fundarstörfum.

5.3.

Einfaldur meirihluti stjórnarmanna ræður kjöri á stjórnarfundi. Falli atkvæði jöfn þá fellur tillagan.

5.4.

Í fjarveru formanns tekur varaformaður við skyldum hans.

5.5.

Stjórnendur skulu halda fundargerðarbók um það sem gerist á stjórnarfundum og staðfesta hana með undirskrift sinni. Fundargerðir skulu birtar opinberlega og vera aðgengilegar félagsmönnum.

5.6.

Stjórn hefur heimild til þess að skipa sérstakar nefndir til þess að fjalla um ákveðið verkefni. Niðurstöður þeirra skulu þó aðeins vera leiðbeinandi fyrir stjórnina en hún ekki bundin af þeim við afgreiðslu einstakra mála.

5.7.

Stjórnin hefur æðsta vald í málefnum félagsins milli aðal-/félagafunda og setur félaginu markmið í rekstri með hagsmuni þess og félagsmanna að leiðarljósi í samræmi við tilgang félagsins. Stjórnin ræður félagsmálum milli aðal-/félagafunda og skuldbindur félagið með ályktunum sínum og samningum. Stjórnin ræður framkvæmdastjóra, ákveður ráðningakjör og gerir við hann ráðningasamning.

5.8.

Samþykki félagafundar þarf til stórra ákvarðana svo sem verulegra eignabreytinga og annars sem getur haft mikil fjárútlát í för með sér.

5.9.

Stjórninni er heimilt að greiða mönnum beinan kostnað sem leiðir af störfum þeirra fyrir félagið.

5.10.

Stjórnin veitir prókúruumboð.

5.11.

Undirskrift meirihluta stjórnarmanna þarf til þess að skuldbinda félagið.

6.

NEFNDIR

6.1.

Fastar starfsnefndir, kosnar til eins árs eru; Mótanefnd, aganefnd, forgjafarnefnd, barna- og unglinganefnd, kvennanefnd, félaganefnd, eldri kylfinganefnd, afreksnefnd og vallarnefnd.

6.2.

Formaður hverrar nefndar skal kosinn á aðalfundi en nefndir skipta að öðru leyti með sér verkum.

60


7.

FRAMKVÆMDASTJÓRI

7.1.

Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur félagsins í samræmi við þær reglur sem honum eru eða verða settar af stjórn félagsins og gildandi lögum. Hinn daglegi rekstur tekur ekki til ráðstafana sem eru óvenjulegar eða mikils háttar.

7.2.

Framkvæmdastjóri skal sjá um að bókhald félagsins sé fært í samræmi við lög og venjur og meðferð eigna félagsins sé með tryggilegum hætti.

7.3.

Framkvæmdarstjóra er skylt að hlíta öllum fyrirmælum stjórnar. Honum ber að veita endurskoðanda eða skoðunarmanni allar þær upplýsingar sem hann óskar.

8.

REIKNINGSÁR

8.1.

Reikningsár er frá 1. nóvember til og með 31. október.

9.

LEIKREGLUR

9.1.

Við leik skal fara eftir St. Andrews golfreglum eins og þær eru á hverjum tíma, en sérreglur setur stjórn eftir því sem henni þurfa þykir. Sérhver félagi er skyldur til að fara eftir settum reglum um leik, umferð og umgengi á golfvellinum og í klúbbhúsi. Stjórn getur látið brot gegn reglum þessum varða áminningu, réttindamissi eftir atvikum eða brottrekstri ef um ítrekaðar eða miklar sakir er að ræða. Heimilt er félagsmanni sem fyrir slíku verður, að skjóta máli sínu til næsta aðalfundar, sem tekur lokaákvörðun um málið.

10.

HEIÐURSFÉLAGAR

10.1

Fyrir einstök og verðskulduð störf í þágu félagsins getur stjórnin gert að tillögu sinni að aðalfundur ákveði að tiltekinn félagsmaður, einn eða fleiri, verði gerður að heiðursfélaga. Heiðursfélagar greiða ekki árgjald en njóta allra félagsréttinda. Tilnefningunni skal fylgja sérstakt skjal til staðfestingar.

10.2.

Á sérstökum tímamótum getur stjórnin veitt félagsmönnum og/eða velunnurum félagsins heiðursmerki og/eða afreksmerki félagsins í samræmi við reglur sem um slíkt gilda.

11.

SLIT Á FÉLAGINU

11.1.

Hætti klúbburinn störfum, tekur sérstakur félagafundur ákvörðun um það. Til lögmætis þeirrar ákvörðunar þarf helmingur félaga að vera á fundi og 2/3 hlutar þeirra að gera því atkvæði. Mæti ekki helmingur félagsmanna á fund, skal boða til nýs fundar innan 3ja vikna og er sá fundur ályktunarhæfur um þetta mál, hversu fáir sem koma, sé löglega til hans boðað.

12.

BREYTINGAR Á LÖGUM

12.1

Ofanskráð eru lög félagsins eins og þau voru samþykkt á aðalfundi þann 12.12.19.

61


Glæsileg 18. braut

62


Kylfingur ársins:

Efnilegasti unglingurinn:

1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015

1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023

Kjartan Gunnarsson Kjartan Gunnarsson Gunnar Marel Einarsson Bergur Sverrisson Hjörtur Levi Pétursson Ólafur Magni Sverrisson Ólafur Magni Sverrisson Hlynur Geir Hjartarson Hjörtur Levi Pétursson Hlynur Geir Hjartarson Hlynur Geir Hjartarson Hlynur Geir Hjartarson Hlynur Geir Hjartarson Hlynur Geir Hjartarson Hlynur Geir Hjartarson Hjörtur Levi Pétursson Guðmundur Bergsson Jón Ingi Grímsson Bergur Sverrisson Hlynur Geir Hjartarson Hlynur Geir Hjartarson Andri Páll Ásgeirsson Alexandra Eir Grétarsdóttir Alexandra Eir Grétarsdóttir

Golfkarl ársins: 2016 2017 2018 2019 2020

Aron Emil Gunnarsson Aron Emil Gunnarsson Pétur Sigurdór Pálsson Aron Emil Gunnarsson Andri Már Óskarsson

2021 2022 2023

Aron Emil Gunnarsson Aron Emil Gunnarsson Aron Emil Gunnarson

63

Jósep Geir Guðmundsson Bergur Sverrisson Ólafur Magni Sverrisson Gunnar Ingi Guðmundsson Ívar Grétarsson Ívar Grétarsson Andri Már Kristjánsson Kjartan Ásbjörnsson Andri Már Kristjánsson Davíð Örn Jónsson Atli Fannar Guðjónsson Kristinn Svansson Símon Leví Héðinsson Jón Ingi Grímsson Jón Ingi Grímsson Árni Evert Leósson Símon Leví Héðinsson Andri Páll Ásgeirsson Alexandra Eir Grétarsdóttir Máni Páll Eiríksson Aron Emil Gunnarsson Heiðrún Anna Hlynsdóttir Pétur Sigurdór Pálsson Heiðar Snær Bjarnson Sverrir Óli Bergsson Heiðar Snær Bjarnason Katrín Embla Hlynsdóttir Jóhann Már Guðjónsson Katrín Embla Hlynsdóttir Katrín Embla Hlynsdóttir


Golfkona ársins:

Háttvísibikar GSÍ:

2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023

2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023

Heiðrún Anna Hlynsdóttir Heiðrún Anna Hlynsdóttir Heiðrún Anna Hlynsdóttir Heiðrún Anna Hlynsdóttir Heiðrún Anna Hlynsdóttir Heiðrún Anna Hlynsdóttir Heiðrún Anna Hlynsdóttir Heiðrún Anna Hlynsdóttir

Mesta lækkun forgjafar: 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019

Óli Rúnar Eyjólfsson Kristján Már Gunnarsson Ester Ýr Jónsdóttir Guðjón Öfjörð Einarsson Ester Ýr Jónsdóttir Hlynur Geir Hjartarson Ívar Grétarsson Guðmundur Bergsson Pétur Viðar Kristjánsson Baldur Óskarsson Sigurður Fannar Guðmundsson & Þorsteinn Ómarsson. Davíð Örn Jónsson Stefán Ragnar Guðlaugsson Albert Ísleifsson Alda Sigurðardóttir Jón Ingi Grímsson Árni Evert Leósson Ómar Ingi Magnússon Anton Ingi Arnarsson Axel Óli Ægisson Alexandra Eir Grétarsdóttir Máni Páll Eiríksson Heiðrún Anna Hlynsdóttir Ólafur Unnarsson Heiðar Snær Bjarnason Sverrir Óli Bergsson Aron Emil Gunnarsson Arnór Ingi Gíslason

Símon Leví Héðinsson Símon Leví Héðinsson Alexandra Eir Grétarsdóttir Alexandra Eir Grétarsdóttir Bárður Guðmundarson Halldór Ágústsson Morthens Gylfi B Sigurjónsson Guðmundur Bergsson Samúel Smári Hreggviðsson Svanur Geir Bjarnason Ástfríður M. Sigurðardóttir Leifur Viðarsson Magnús J. Magnússon

Heiðursfélagar GOS Kolbeinn I Kristinsson Þorbjörg Sigurðardóttir Ingólfur Bárðarson Sveinn J. Sveinsson Sigurfinnur Sigurðsson Árni Guðmundsson Vilhjálmur Þór Pálsson Ágúst Magnússon

64


Stjórnir Golfklúbbs Selfoss 1985 -2023 1985 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Samúel Smári Hreggviðss Gunnar Kjartansson Guðmundur Helgi Eiríkss Guðlaugur Ægir Magnúss Ingólfur Bárðarson

1986 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Samúel Smári Hreggviðss Jón Bjarni Stefánsson Pálmi Guðmundsson Guðlaugur Ægir Magnúss Ingólfur Bárðarson

1987 Formaður Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Samúel Smári Hreggviðss Valey Guðmundsdóttir Jón Bjarni Stefánsson Ingólfur Bárðarson Kristín Péturdóttir

1988 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Samúel Smári Hreggviðss Valey Guðmundsdóttir Jón Bjarni Stefánsson Ingólfur Bárðarson Kristín Pétursdóttir

1989 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Varaform. Meðstj.:

Samúel Smári Hreggviðss Kjartan Jónsson Jón Bjarni Stefánsson Guðmundur Helgi Eiríks Gunnar Kjartansson Jón Ágúst Jónsson Kolbeinn Ingi Kristinsson

1990 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Varaform. Meðstj.:

Guðmundur Helgi Eiríkss Kjartan Jónsson Haukur Arnar Gíslason Sigurjón Bergsson Gunnar Kjartansson Jón Ágúst Jónsson Svavar Valdimarsson

1991 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Varaform. Meðstj.:

1992

Guðmundur Helgi Eiríkss Kjartan Jónsson Haukur Arnar Gíslason Sigurjón Bergsson Gunnar Kjartansson Jón Ágúst Jónsson Svavar Valdimarsson

65

Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Varaform. Meðstj.:

Guðmundur Helgi Eiríks Kjartan Jónsson Haukur Arnar Gíslason Sigurjón Bergsson Gunnar Kjartansson Jón Ágúst Jónsson Svavar Valdimarsson

1993 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Varaform. Meðstj.:

Jón Ágúst Jónsson Kristín Stefánsdóttir Haukur Arnar Gíslason Sigurjón Bergsson Þór Stefánsson Viðar Bjarnason Svavar Valdimarsson

1994 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Varaform. Meðstj.:

Jón Ágúst Jónsson Kristín Stefánsdóttir Haukur Arnar Gíslason Sigurjón Bergsson Þór Stefánsson Viðar Bjarnason Svavar Valdimarsson

1995 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Varaform. Meðstj.:

Jón Ágúst Jónsson Kristín Stefánsdóttir Haukur Arnar Gíslason Sigurjón Bergsson Þór Stefánsson Bárður Guðmundsson Svavar Valdimarsson

1996 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Jón Ágúst Jónsson Bárður Guðmundarson Ágúst Magnússon Þór Stefánsson Guðjón Öfjörð Einarsson

1997 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Jón Ágúst Jónsson Bárður Guðmundarson Ágúst Magnússon Gunnar Kjartansson Guðjón Öfjörð Einarsson

1998 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Jón Ágúst Jónsson Bárður Guðmundarson Ágúst Magnússon Gunnar Kjartansson Guðmundur Búason


1999

Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Guðmundur Búason Bárður Guðmundarson Ágúst Magnússon Páll Böðvar Valgeirsson Arnheiður Jónsdóttir

2000 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

2008

Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Bárður Guðmundarson Jónbjörg Kjartansdóttir Pétur Ármann Hjaltason Páll Leó Jónsson Ástfríður M. Sigurðard.

Guðmundur Búason Bárður Guðmundarson Ásbjörn Sigurðsson Páll Böðvar Valgeirsson Arnheiður Jónsdóttir

2009 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Bárður Guðmundarson Jónbjörg Kjartansdóttir Pétur Á. Hjaltason Ástfríður M. Sigurðard. Páll Leó Jónsson

2001 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Grímur Arnarson Bárður Guðmundarson Ásbjörn Sigurðsson Páll Böðvar Valgeirsson Skúli Már Gunnarsson

2010 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Bárður Guðmundarson Jónbjörg Kjartansdóttir Pétur Á. Hjaltason Halldór Morthens Jens Uwe Friðriksson

2002 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Grímur Arnarson Sigurður Grétarsson Ásbjörn Sigurðsson Páll Böðvar Valgeirsson Skúli Már Gunnarsson

2011 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Bárður Guðmundarson Jónbjörg Kjartansdóttir Pétur Á. Hjaltason Halldór Morthens Jens Uwe Friðriksson

2003 Formaður. Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Grímur Arnarson Sigurður Grétarsson Pétur Ármann Hjaltason Bárður Guðmundarson Jens Uwe Friðriksson

2012 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Bárður Guðmundarson Jónbjörg Kjartansdóttir Jens Uwe Friðriksson Halldór Morthens Benedikt Magnússon

2004 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Grímur Arnarson Sigurður Grétarsson Pétur Ármann Hjaltason Bárður Guðmundarson Jens Uwe Friðriksson

2013 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj:

Bárður Guðmundarson Jónbjörg Kjartansdóttir Jens Uwe Friðriksson Halldór Morthens Axel Óli Ægisson

2005 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Grímur Arnarson Sigurður Grétarsson Pétur Ármann Hjaltason Bárður Guðmundarson Jens Uwe Friðriksson

2014 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj:

Ástfríður Sigurðardóttir Svanur Geir Bjarnason Helena Guðmundsdóttir Axel Óli Ægisson Halldór Morthens

2006 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Bárður Guðmundarson Jónbjörg Kjartansdóttir Pétur Ármann Hjaltason Guðjón Öfjörð Einarsson Jens Uwe Friðriksson

2015 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj:

Ástfríður Sigurðardóttir Svanur Geir Bjarnason Helena Guðmundsdóttir Axel Óli Ægisson Halldór Morthens

2007 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj.:

Bárður Guðmundarson Jónbjörg Kjartansdóttir Pétur Ármann Hjaltason Guðjón Öfjörð Einarsson Róbert Sverrisson

2016 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj:

Ástfríður Sigurðardóttir Svanur Geir Bjarnason Helena Guðmundsdóttir Axel Óli Ægisson Halldór Morthens

66


2017 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj:

Ástfríður Sigurðardóttir Svanur Geir Bjarnason Helena Guðmundsdóttir Páll Sveinsson Halldór Morthens

2018 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj:

Ástfríður Sigurðardóttir Svanur Geir Bjarnason Helena Guðmundsdóttir Páll Sveinsson Halldór Morthens Bjarki Már Magnússon Vignir Egill Vigfússon

2019 Formaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj:

Ástfríður Sigurðardóttir Svanur Geir Bjarnason Helena Guðmundsdóttir Páll Sveinsson Halldór Morthens Bjarki Már Magnússon Vignir Egill Vigfússon

2020 Formaður: Varaformaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj:

Páll Sveinsson Bjarki Már Magnússon Svanur Geir Bjarnason Helena Guðmundsdóttir Ástfríður Sigurðardóttir Halldór Morthens Vignir Egill Vigfússon

2021 Formaður: Varaformaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj:

Páll Sveinsson Bjarki Már Magnússon Hreinn Þorkelsson Helena Guðmundsdóttir Ástfríður Sigurðardóttir Halldór Morthens Arnór Ingi Gíslason

2022 Formaður: Varaformaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj:

Páll Sveinsson Bjarki Már Magnússon Hreinn Þorkelsson Helena Guðmundsdóttir Ástfríður Sigurðardóttir Magnús J Magnússon Arnór Ingi Gíslason

2023 Formaður: Varaformaður: Ritari: Gjaldkeri: Meðstj:

67

Páll Sveinsson Bjarki Már Magnússon Hreinn Þorkelsson Helena Guðmundsdóttir Ástfríður Sigurðardóttir Magnús J Magnússon Leifur Viðarsson


68


69


70


71


72


73


74


75


76


77


78


79


80


81


82


83


84


85


86


87


88


89


90


91


92


93


94


95


96


97


98


99


100


101


102


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Ársskýrsla GOS 2023 by gosgolf - Issuu