Skip to main content

Golf Expo 2026

Page 1


7. - 8. mars

XPENG G6 og G9

Endurhlaðinn lúxus

6.090.000 kr. með rafbílastyrk* Verð á G6 frá:

*Fullt verð frá: 6.590.000 kr.

XPENG býður upp á ofursnjalla rafbíla með framúrskarandi þægindum og búnaði.

Báðir bílar eru með ofurhraða hleðslu frá 10-80% á 12 mínútum.

Komdu og reynsluaktu.

Við tökum vel á móti þér.

Verð á G9 frá:

10.690.000 kr. (Performance AWD)

6-8

Fram úr björtustu vonum

Björgvin Þór og Ómar Már, forsvarsmenn Golf Expo, vonast eftir því að á bilinu 15 til 20 þúsund gestir sæki sýninguna heim.

Enginn kaupir standard skó í skóbúð

Birgir „keisari“ Björnsson kylfusmiður segir enga sveiflu vera eins og þar af leiðandi eigi kylfur ekki að vera eins fyrir alla.

10-18

30-38

Varð betri manneskja á vellinum

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir segist hafa lært margt af því að alast upp í golfinu og æft íþróttina sem barn og unglingur.

40-44

Frá hörðum við yfir í hátækni

Kylfingurinn Þorsteinn Hallgrímsson, sem er lærður kylfusmiður, segir búnaðinn í golfinu hafa breyst mikið í gegnum árin.

20-28

Kraftur í hreyfingunni

Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ segir vöxt golfsins á Íslandi endurspegla hversu mikill kraftur sé í golfhreyfingunni.

46-48

Golfhringur án hliðstæðu

Fyrir átján árum tóku fjórir kylfingar sig til og söfnuðu fé fyrir MNDsamtökin í verkefninu Umhverfis Ísland á 80 höggum.

Tilbúin í golfið?

Polo bolurinn er gerður úr efni sem andar einstaklega vel og er tilvalinn í golfið. Fæst bæði í karla- og kvennasniði.

66north.is @66north 66°Norður Polo bolur | 16.500 kr

Þú finnur okkur á bás E-2 á Golf Expo 7. - 8. mars í Laugardalshöll.

Skráningin fór fram úr björtustu vonum

Björgvin Þór Rúnarsson og Ómar

Már Jónsson eru mennirnir

á bak við sýninguna Iceland

Golf Expo sem fram fer í Laugardalshöllinni helgina 7. og 8. mars. Nokkuð er um liðið síðan haldin hefur verið stór sýning fyrir golfhreyfinguna og iðnaðinn sem henni tengist hérlendis jafnvel þótt golfíþróttinni hafi vaxið fiskur um hrygg alla þessa öld. Björgvin fékk hugmyndina og fékk í framhaldinu Ómar

Má til liðs við sig.

„Ég er mikill golfáhugamaður þótt ég geti ekki neitt. Ég byrjaði að spila golf af einhverju viti fyrir tveimur árum. Tengdaforeldrar mínir eru hins vegar miklir golfarar og sportið hefur því verið mikið í fjölskyldunni. Ég taldi mig aldrei hafa tíma til að fara í golfið en er

Við vonumst eftir því að gestirnir á sýningunni geti orðið á milli 10 og 15 þúsund þessa helgi.

nú kominn á kaf í þetta,“ segir Björgvin og hagar sér nú eins og þeir sem hann hneykslaðist á áður en hann fékk sjálfur golfbakteríuna.

„Þegar ég var á fullu í handboltanum í gamla daga fussaði ég yfir því hvernig fólk gat verið heltekið af golfi. Fólk virtist nánast verið andsetið og gat varla talað um annað en einhverjar minningar af golfvellinum. Ég áttaði mig ekki á þessu en eftir að ég fór alveg inn í golfíþróttina síðasta árið er ég farinn að skilja þetta betur. Maður þarf ekki að slá nema eitt gott högg, þá gleymir maður öllu því veseni sem maður hefur verið í á golfvellinum. Það er heillandi en samvera með fjölskyldunni er einnig stór kostur

Björgvin Þór

Rúnarsson er kominn á kaf í golfið.

við þetta sport. Mér fannst vanta viðburð og sýningu fyrir golfhreyfinguna á Íslandi. Golfsýning af þessari stærðargráðu hefur ekki verið haldin lengi á Íslandi. Ég fékk þá hugmynd að þessari sýningu, Iceland Golf Expo, þar sem við myndum búa til sýningu og vörumerki sem við gætum verið stolt af. Ég fékk Ómar með mér í verkefnið, en hann verið hefur mjög lengi í þessum sýningabransa.“

Búa þarf til upplifun fyrir gesti Ómar segir augljóst að mikil tækifæri felist í golfáhuga Íslendinga. „Þegar Björgvin fór að ræða við mig um Golf Expo áttaði ég mig strax á því að hér væri um gríðarlegt tækifæri að ræða. Þótt ég sé ekki virkur í golfhreyfingunni í dag veit ég að golfáhugi á Íslandi hefur vaxið hratt um langt skeið. Þegar við Íslendingar fáum áhuga á einhverju förum við gjarnan alla leið,

Verum tryggð í golfi

Golfvernd Varðar er sérsniðin trygging fyrir alla kylfinga. Kynntu þér málið á vordur.is

Ómar Már Jónsson

ásamt afastráknum Arnóri Atla Bjarkasyni.

“segir Ómar og bætir við að honum kæmi ekki á óvart þótt hlutfall kylfinga á Íslandi væri með því hæsta í heiminum miðað við höfðatölu.

Hann rifjar jafnframt upp að hafa sjálfur spilað golf í tvö sumur fyrir mörgum árum og stefnir á að taka upp þráðinn að nýju næsta sumar. Ómar hefur mikla reynslu af því að halda sýningar af þessu tagi og segir slíkt vera ákveðið listform. Hann stendur einnig að sýningunni FIT&RUN, sem haldin er árlega í Laugardalshöll samhliða afhendingu skráningargagna fyrir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka.

„Þú ert í raun að skapa upplifun fyrir gesti sem mæta með ákveðnar væntingar. Markmiðið er auðvitað að fólk fari heim ánægt, helst í skýjunum. Vekja þarf áhuga gesta og hvetja þá til að kynna sér það nýjasta sem er í boði. Sýningar eru einn fullkomnasti vettvangurinn fyrir fyrirtæki til að komast í beint samband við viðskiptavini sína,“ segir Ómar.

Að hans mati eru sýningar á greinilegri uppleið. „Áhuginn er til staðar og það má sjá bæði á fjölda sýninga hér á landi og aukningu í fjölda gesta sem sækja slíka viðburði. Fyrirtæki eru í auknum mæli að átta sig á því hversu öflugur vettvangur þetta er til að byggja og styrkja vörumerki sín, skapa tengsl og hversu mikilvægt það er að vera sýnileg gagnvart sínum markhópi.“

Hugsa einnig til framtíðar Þeir félagar eru afar ánægðir með viðtökurnar. „Skráningin fór fram úr björtustu vonum. Tæplega 60 fyrirtæki taka þátt og hvert pláss er skipað. Ég held að það lýsi ágætlega áhuga Íslendinga á golfinu og um leið útivist og heilsu yfir höfuð. Við vonumst eftir því að gestirnir á sýningunni geti orðið á milli 10 og 15 þúsund þessa helgi,“ segir Björgvin og Ómar bætir við:

„Þetta er í fyrsta skipti sem við höldum

þessa sýningu en við teljum okkur um leið vera að selja næstu sýningu og stefnan er að Iceland Golf Expo verði á tveggja ára fresti. Þeir sem taka þátt í þessu með okkur núna geta þá fengið forgang að básnum á næstu sýningu.“

Björgvin bendir á að Golfsambandið hafi ákveðið að taka þátt í sýningunni, en GSÍ er jú regnhlífarsamband fyrir golfklúbba landsins. „Við lögðum upp með að fá sterka samstarfsaðila með okkur, sem eru

Brimborg, Golfskálinn og Viðskiptablaðið auk þess sem Golfsamband Íslands er samstarfsaðili. Mér fannst mikilvægt að GSÍ væri með í þessu og þá er sýningin sterkari. Þau styðja við þetta þótt þau beri enga ábyrgð á sýningunni eða neitt slíkt. Ég lít á þetta sem upplýsinga- og kynningarhelgi en einnig árshátíð þeirra sem eru í golfi. Þarna munu kylfingar hitta mann og annan sem þeir kannast við héðan og þaðan af landinu.“

Finnur fyrir kraftinum í hreyfingunni

Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, er bjartsýn á komandi ár fyrir hönd golfhreyfingarinnar á Íslandi. Staða íþróttarinnar á Íslandi sé góð og ýmsir möguleikar séu í stöðunni bæði fyrir kylfinga í íslenskum golfklúbbum en einnig erlenda ferðamenn.

Íslenskt golf er á mjög góðum stað. Það er kraftur í golfhreyfingunni og ég finn hann alls staðar, í klúbbunum, hjá sjálfboðaliðum, þjálfurum og ekki síst kylfingunum sjálfum. Hópurinn er orðinn fjölbreyttari og fleiri sjá golf sem hluta af daglegu lífi sínu. Fjölbreytt þjónusta með ólíkum útfærslum er líka af hinu góðu góða og þetta styður allt við hvert annað,“ segir Hulda, og sem gleðst yfir Golf Expo-sýningunni og segir hana geta orðið upphaf golfársins með þeim hætti að þar sé vettvangur fyrir kylfinga,

Fólk stundar golf á öllum aldri og sveitarfélög geta haldið íbúum sínum í góðri virkni fram eftir öllum aldri. Rannsóknir sýna að golf getur komið í veg fyrir eða seinkað allt að 40 lífsstílstengdum sjúkdómum. Varðandi félagslega þáttinn má segja að golfklúbbar séu í auknum mæli orðnir eins konar félagsmiðstöðvar. Það er hluti af töfrum íþróttarinnar.

Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands.

klúbba, fyrirtæki og áhugafólk um íþróttina til að koma saman og telja niður fyrir sumarið.

„Ráðgjafarfyrirtækið KPMG kynnti í vetur niðurstöður úttektar fyrirtækisins þar sem hagspor golfhreyfingarinnar var

meðal annars kannað. „Það er staðreynd að beint hagspor golfhreyfingarinnar á Íslandi var um 12 milljarðar króna á síðasta ári samkvæmt úttekt KPMG og það hefur vaxið hratt,“ segir Hulda. Hún bendir á að stærstur hluti tekna komi frá golfklúbbunum sjálfum, en þjónusta tengd íþróttinni hafi stækkað gríðarlega á skömmum tíma. „Golfhermar eru frábært dæmi um nýja þjónustu sem hefur sprungið út. Þar sjáum við áframhaldandi vöxt á næstu árum. Þar tengjum við íþróttina allan ársins hring.“

Sóknarfæri fyrir ferðaþjónustuna

Hulda segir mikil sóknarfæri vera til staðar ef hægt væri að ná betur til erlendra kylfinga. Það myndi ekki einungis gagnast golfklúbbunum heldur einnig sveitarfélögum og fyrirtækjum í  ferðaþjónustu.

„Erlendir kylfingar eru enn lítið nýttur markhópur þrátt fyrir að sá hópur fari sífellt stækkandi. Þar liggja mikil sóknarfæri fyrir klúbba, sveitarfélög og ferðaþjónustu. Ferðaþjónustan ætti að hafa í huga þau ótalmörgu ónýttu tækifæri sem hægt er að nýta tengt tengd golfi á Íslandi. Sem dæmi koma 3.000 manns í land á Ísafirði með skemmtiferðaskipum á hverjum degi yfir sumartímann. Svipað er uppi á teningnum fyrir austan

Um sex þúsund erlendir ferðamenn léku golf á Íslandi árið 2025 og er áætlað að um 15 þúsund gistinætur séu seldar beinlínis vegna golfsins. Vert er að nefna að samkvæmt könnunum í Evrópu eyða golfferðamenn um 60% meira en almennir ferðamenn.

á Seyðisfirði. Ef markaðsstofur og golfhreyfingin taka höndum saman þá efa ég ekki að við getum skapað mun meiri tekjur af komu ferðamanna. Golf er vinsæl íþrótt um allan heim og þessi markhópur sem er á siglingu í kringum Ísland er líklega ferðamaður ferðamenn með ágætar tekjur. Með markvissri kynningu til ferðamanna á skemmtiferðaskipum má sjálfsagt búa til enn meiri umferð um vellina okkar. Ég held að við séum enn skammt á veg komin að markaðssetja golf erlendis og flestir fæstir ferðamenn sem eru að koma til landsins hafa ekki hugmynd um hversu flotta golfvelli við

eigum og það um land allt,“” segir Hulda en er hægt að áætla hversu margir erlendir ferðamenn leika golf hér á sumrin?

„Um sex þúsund erlendir ferðamenn léku golf á Íslandi árið 2025 og er áætlað að um 15 þúsund gistinætur séu seldar beinlínis vegna golfsins. Vert er að nefna að samkvæmt könnunum í Evrópu eyða golfferðamenn um 60% meira en almennir ferðamenn.”.“

Golfið er ævilöng hreyfing

Að mati Huldu hefur golfhreyfingin jákvæð áhrif á fleiri sviðum en því sem hagfræðin undirstrikar. „Golfið hefur umtalsvert samfélagslegt gildi fyrir heilsu, forvarnir, félagslega virkni og jákvæða byggðaþróun. Þetta er íþrótt sem skilar sér margfalt til samfélagsins og rannsóknir sýna fram á heilsusamlega þætti sem golfið skilar. Þetta er svo mikil ganga, en kylfingar ganga almennt 5 til 10 kílómetra eftir því hvort farinn er 9 eða 18 holu hringur. Og þar sem sveitarfélög hafa verið tilbúin að lána land undir starfsemi golfklúbbanna þá höfum við getað boðið golf á viðráðanlegu verði. Golf er því orðin orðið almenningsíþrótt og góð fjárfesting bæjarfélags í heilsu íbúanna,“ segir Hulda og minnir á að sjálfboðaliðastarfið hafi vegið þungt í uppgangi íþróttarinnar hérlendis.

Gunnlaugur Árni Sveinsson er bjartasta vonin í afreksgolfinu um þessar mundir.
MYNDIR/GSIMYNDIR.IS

Vöxtur golfsins síðustu ár skýrist fyrst og fremst af öflugri innlendri þátttöku og stöðugri þróun í þjónustu og innviðum. Vöxturinn er samstarf margra þátta og ég myndi þakka sveitarfélögum afnot af landinu en um leið frumkvöðlum og sjálfboðaliðum alla þessa vinnu og ástríðu við að byggja upp þessi gæði.

Félagslegi þátturinn er einnig mikilvægur í golfinu.

„Vöxtur golfsins síðustu ár skýrist fyrst og fremst af öflugri innlendri þátttöku og stöðugri þróun í þjónustu og innviðum. Vöxturinn er samstarf margra þátta og ég myndi þakka sveitarfélögum afnot af landinu en um leið frumkvöðlum og sjálfboðaliðum alla þessa vinnu og ástríðu við að byggja upp þessi gæði.“

Hulda víkur aftur að lýðheilsuþættinum og minnir á að golfið sé einstök íþrótt þegar kemur að heilsu og virkni. „Fólk stundar golf á öllum aldri og sveitarfélög geta haldið íbúum sínum í góðri virkni fram eftir öllum aldri. Rannsóknir sýna að golf getur komið í veg fyrir eða seinkað allt að 40 lífsstílstengdum sjúkdómum.

Varðandi félagslega þáttinn má segja að golfklúbbar séu í auknum mæli orðnir eins konar félagsmiðstöðvar. Það er hluti af töfrum íþróttarinnar.“

Golf á að vera fyrir alla Samkvæmt Huldu ætlar GSÍ að halda áfram þeirri vinnu að kortleggja hver

evropuferdir.is

S: 599-3001 info@evropuferdir.is

Golfferðir

Beint flug Hótel Morgunverður Golf

Tenerife

Verð frá 299.000 kr.

Gran Canaria

Verð frá 339.000 kr.

Las Madrigueras 5*

Beint flug með Icelandair, 4 golfhringir á Las Americas Golf m golfbíl og gisting í viku ásamt morgunverði

Ferðatímabil: Allt árið

Costa del Sol

Verð frá 269.000 kr.

Costa Meloneras 5*

Beint flug með Icelandair, 5 golfhringir á 3 golfvöllum og gisting í viku ásamt morgunverði

Ferðatímabil: október 2026 - apríl 2027

Lissabon

Verð frá 229.000 kr.

Lengri golfferðir

Palacio Estoril 5*

Beint flug með Icelandair, 5 golfhringir á Estoril Golf og gisting í viku ásamt morgunverði

Gran Canaria

Verð frá 299.000 kr.

SO/ Sotogrande Resort 5*

Beint flug með Icelandair, 5 golfhringir á Alto Golf m. golfbíl og gisting í viku ásamt morgunverði

Costa del Sol

Verð frá 299.000 kr.

Costa del Sol

Verð frá 369.000 kr. m.v. fjóra án flugs

Ferðatímabil: Allt árið

Beint flug með Icelandair, 5 golfhringir á 3 golfvöllum og gisting í viku ásamt hálfu fæði

Ferðatímabil: október 2026 - apríl 2027

Alicante

Verð frá 289.000 kr.

La Finca 5*

Beint flug með Icelandair, 5 golfhringir á La Finca Golf m. golfbíl og gisting í viku ásamt morgunverði

Ferðatímabil: Allt árið

Gran Canaria

Verð frá 339.000 kr.

Hlíðasmári 2, Kópavogi amerikuferdir.is S: 599-3000 info@amerikuferdir.is Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi

Villa Padierna Palace 5*

Beint flug með Icelandair, ótakmarkað golf á þremur golfvöllum og gisting í viku ásamt morgunverði

Ferðatímabil: Allt árið

Ferðatímabil: Allt árið VILLTA VESTRIÐ á 16 dögum

Baobab Resort

Algarve

La Cala Apartments 4*

28 nætur í tveggja svefnherbergja íbúð og 20 golfhringir á þremur golfvöllum

Ferðatímabil: Allt árið

Beint flug

Hótel Rúta Leiðsögn

Dagsetningar í boði: 13 - 28. maí og 23. sept - 8. okt

Verð 569.000 kr á mann m.v. tvo. Aukagjald fyrir einbýli 150.000 kr.

Beint flug með Icelandair, 5 golfhringir á 3 golfvöllum og gisting í viku ásamt morgunverði

Ferðatímabil: október 2026 - apríl 2027

Verð frá 319.000 kr.

Hyatt Regency 4*

Beint flug með Icelandair, 5 golfhringir á 3 golfvöllum og gisting í viku ásamt morgunverði

Ferðatímabil: mars - október 2026

Algarve

Verð frá 259.000 kr. m.v. fjóra án flugs

Bela Colina Village 5*

28 nætur í tveggja svefnherbergja raðhúsi og 14 golfhringir á Boavista Golf

Ferðatímabil: Allt árið

Alicante

Verð frá 399.000 kr. m.v. tvo án flugs

Las Colinas 5*

28 nætur í tveggja svefnherbergja íbúð og 16 golfhringir á Las Colinas Golf

Ferðatímabil: Allt árið

Hótel Morgunverður Golf
Kumara by Lopesan 4*

Við ætlum að einfalda hlutina og gera enn betur með enn betri kortlagningu á því hverju golfið er raunverulega að skila til samfélagsins og íþróttalífsins á Íslandi.

ávinningur er sé fyrir landann af því að starfið í golfklúbbunum hringinn í kringum landið sé blómlegt.

„Við ætlum að einfalda hlutina og gera enn betur með enn betri kortlagningu á því hverju golfið er raunverulega að skila til samfélagsins og íþróttalífsins á Íslandi. Það munum við gera með því að styðja klúbbana í áframhaldandi uppbyggingu, byggja upp gott barna- og unglingastarf saman, tryggja fagmennsku í þjálfun og mótahaldi ásamt því aðog hlúa að jákvæðri menningu á heildina litið. Jafnrétti og aðgengi skiptir mig miklu máli því golf á að vera fyrir alla. Sterkur grunnur og enn fleiri iðkendur skapa tækifæri fyrir golfið sem íþrótt. Ég hef alltaf trúað því að

Miðnætursólin á Arctic Open mótinu á Akureyri hefur heillað innlenda sem erlenda kylfinga.
Á íslenskan mælikvarða á golfiðkun sér langa sögu í Vestmannaeyjum.

RÁSTÍMI. ALLTAF.

Spilaðu yfir 43.000 golfvelli víðs vegar um heiminn

í Approach R50

Fyrsta færanlega golftækið með innbyggðum hermi

APPROACH S50 & S70

Tilvalið úr fyrir golfarann

þetta fari saman. Ef grunnurinn er sterkur, og krakkar fá jákvæða fyrstu reynslu, þá kemur afreksstarfið eðlilega í kjölfarið.  Kakan stækkar hlutfallslega fyrir alla. Við eigum að skapa tækifærin og umgjörðina.“

Hulda bætir við að hlutverk Golfsambands Íslands sé að halda utan um þennan grunn, styðja klúbbana í daglegu starfi og tryggja að umgjörðin sé fagleg, aðgengileg og stöðug eins og hún orðar það. „Við erum þjónustustofnun fyrir golfhreyfinguna og málsvari íþróttarinnar gagnvart ÍSÍ og opinberum aðilum. VOkkar verkefni okkar er að efla breiddina, tryggja gæði í þjálfun og mótahaldi og skapa farveg fyrir þá sem vilja taka næstu skref og stefna hátt.“

Golf er vel þekkt íþrótt víðast hvar í heiminum. Sigurvegarar á stærstu golfmótum heimsins hafa komið frá öllum heimsálfum (þar sem fólk hefur varanlega búsetu.). Hvernig er golfhreyfingin á Íslandi í samanburði við aðrar þjóðir? „Við erum lítið land en með ótrúlega öfluga hreyfingu. Klúbbarnir hafa byggt upp innviði, menningu og samfélag sem margir öfunda okkur af. Við erum fremst meðal jafningja er kemur að hlutfalli kvenna sem og barna- og unglinga. Það er þessi styrkur, þessi metnaður og samvinna margra

aðila sem gerir afrekin möguleg,“ segir

Hulda og er um leið minnug þess að ýmsir einkaaðilar hafa stutt vel við íþróttina.

„Það er þakkarvert að sjá hversu margir fyrirtækjaeigendur og frumkvöðlar hafa

Við erum lítið land en með ótrúlega öfluga hreyfingu. Klúbbarnir hafa byggt upp innviði, menningu og samfélag sem margir öfunda okkur af. Við erum fremst meðal jafningja er kemur að hlutfalli kvenna sem og barna- og unglinga.

nýtt sér tækifærin sem skapast hafa í kringum uppbyggingu golfklúbbanna og Golfsambandsins undanfarna áratugi. Þessi samvinna milli hins opinbera, félagasamtaka og einkaaðila hefur gert golfið að einni best reknu og hraðast vaxandi íþrótt landsins.“

Njótið sýningarinnar Forseti GSÍ tekur því fagnandi að kylfingum á Íslandi sé boðið upp á sýningu eins og Golf Expo meðan vetur konungur ríkir á Íslandi. „Njótið. Takið ykkur tíma til að spjalla, prófa nýtt, fá hugmyndir og finna gleðina sem golfið gefur. Golf Expo er áminning um hvað golfið er fjölbreytt og lifandi og hvað við erum heppin að eiga svona sterkt golfsamfélag. Ég vil koma á framfæri einlægu þakklæti. Þið eruð hluti af heildinni. Góðar vörur, góð þjónusta og nýjar hugmyndir gera golfið betra fyrir kylfinginn. Haldið áfram að hugsa til framtíðar og byggja upp tengsl sem endast lengur en eina leiktíð,“ segir Hulda, og hún segirsem telur að bjart sé fram undan í golfinu ef rétt sé haldið á spöðunum, eða kannski kylfunni öllu heldur í þessu samhengi.

„Ég er stolt af íslensku golfi og bjartsýn á framtíðina. Ef við vinnum saman, hlustum hvert á annað og pössum upp á menninguna okkar, þá eigum við mjög góð ár fram undan. Mitt markmið er einfalt: Að golf á Íslandi sé staður þar sem fólki líður vel og vill vera. Við viljum að framtíðarkynslóðir elski golfíþróttina og að því stefnum við.“

Útsýnið frá Silfurnesvelli á Hornafirði er einstakt.

SPILAÐU – SLAKAÐU – SOFÐU VEL

GJAFABRÉF

FUNDIR, VEISLUR & RÁÐSTEFNUR

ISLANDSHOTEL.IS

Birgir V. Björnsson við störf í á verkstæðinu
EDWIN ROALD

Enginn kaupir standard skó

í skóbúð

Birgir „keisari“ Björnsson er einn þeirra sem starfa sem kylfusmiðir hérlendis og bjóða upp á mælingar fyrir kylfinga sem hyggja á kaup á golfkylfum eða vilja vita hvort þeir séu með heppileg verkfæri í höndunum.

Er þá sveiflan mæld og fleira þess háttar með hjálp nýjustu tækni í golfhermi. Eins og gengur. „Hjá kylfingum er aukin vitund um að gott sé að fara í mælingu. Fólk er mismunandi og þar af leiðandi þurfa margir að láta sérsmíða kylfurnar fyrir sig,“ segir Birgir og spurður um hvers vegna kylfingar ættu að fara í mælingu svarar hann því skemmtilega. „Af því að það er ekki búið að klóna okkur. Við erum öll mismunandi. Þegar ég rölti út á æfingasvæði þá sé ég að engin engar tvær sveifla sveiflur eru alveg eins og enginn engir tveir hreyfir hreyfa sig eins. Þar af leiðandi eiga golfkylfurnar ekki að vera eins fyrir alla.“

Einhverjir kunna að sjá fyrir sér að mælingar séu bara fyrir þá sem hafa mikið vald á íþróttinni og séu farnir að spá í smáatriði í golfsveiflunni. Kylfingar sem eru að keppast við að leika hringinn á 72 höggum en ekki 73. Birgir segir það ekki

Við erum öll mismunandi. Þegar ég rölti út á æfingasvæði þá sé ég að engin sveifla er alveg eins og enginn hreyfir sig eins. Þar af leiðandi eiga golfkylfurnar ekki að vera eins fyrir alla.

síður gott fyrir nýliða en þá sem eru lengra komnir að fara í mælingu.

„Því lélegri sem þú ert eru meiri líkur á því að kylfan geti hjálpað þér. Ef besti golfari á Íslandi kemur til mín gæti ég nánast látið hann eða hana hafa hvaða kylfu sem er og viðkomandi myndi finna einhverja leið til að slá boltann með ágætum árangri. Ég segi byrjendum

gjarnan að kaupa kylfur sem passa fyrir þá. Ef fólk er að prófa, og veit ekki hvort það mun fá mikinn áhuga, er ágætt að kaupa fáar kylfur til að byrja með. Kannski bara eina, tvær eða þrjár. Tveggja metra hár maður getur ekki beitt sér með kylfum sem eru markaðssettar sem byrjendasett þegar þær taka ekkert mið af því hversu hávaxinn hann er,“ segir Birgir og bætir því við að þegar fólk fái golfbakteríuna, og stundi íþróttina mikið sé mikilvægt að grunnurinn sé góður.

„Ef nýliði kaupir byrjendasett án þess að fara í mælingu þarf hann kannski að byrja upp á nýtt eftir þrjú ár. Þá á ég við að viðkomandi er kominn á fullt og fer þá í mælingu. Þá þarf hann að venja sig á að nota kylfur sem eru kannski töluvert frábrugðnari þeim sem hann hefur notað. Grunnmæling er því mjög góð fyrir byrjendur. Þá er ég að tala um hversu hár kylfingurinn er, er hann með langa handleggi, stóra putta og þess háttar. Það er fín byrjun. Við getum líkt þessu við að kaupa skó. Það fer enginn í skóbúð og segist bara vilja kaupa standard skó. Líkurnar á því að þeir skór henti vel eru litlar.“

Birgir er með aðstöðu í Hraunkoti sem er staðsett á æfingasvæði Keilis.

Lítið fer fyrir sumarfríi

Miðað við reynslu Birgis í starfi kemur alloft fyrir að kylfingar telji sig þurfa að fjárfesta í nýjum kylfum þegar lausnin á vandamálinu á golfvellinum gæti verið önnur. „Þetta er algengur misskilningur. Fólk sem kemur í mælingu telur stundum að það þurfi að fara í mikil kaup og fá sér nýjar kylfur. Stundum mæli ég ekki með að fólk breyti neinu því það sé bara vel sett. Í einhverjum tilfellum þarf að breyta kylfum örlítið eða það gæti verið nóg að skipta um grip. En ef það kemur einhver til mín með antík kylfur sem henta

Flestir

viðkomandi engan veginn legg ég auðvitað til að fá sér nýjar kylfur. En það er alls ekki þannig í öllum tilfellum.“

Þegar kylfingar reyna að njóta útivistar á sumrin á golfvöllum landsins er háannatími hjá Birgi og kollegum hans. Þá er hann alla daga innandyra í gluggalausu rými að sinna viðskiptavinum. En hvernig er hefðbundinn vinnudagur í þessu fremur óvenjulega starfi? „Mælingar frá morgni til kvölds fyrir kylfinga á öllum getustigum, frá byrjendum og upp í landsliðskylfinga. En ég sinni einnig viðgerðum á kylfum og skipti um grip fyrir fólk. Þegar kylfingur

er mældur eru nokkuð margar breytur sem skipta máli. Lengd golfkylfunnar, lega hennar, stífleiki skaftsins en það fer einnig eftir getu kylfingsins hversu mörgum þáttum maður hugar að. Einfaldara er að mæla með kylfum fyrir byrjanda og pælingarnar geta verið ólíkar eftir því hversu langt viðskiptavinurinn er kominn í sportinu. Menntunin og reynslan hjálpar manni svo auðvitað við að finna út úr því hvað þarf til að kylfingurinn sjái jákvæðar breytingar hjá sér,“ segir Birgir, sem verður mjög var við þessa stöðugu fjölgun kylfinga á Íslandi sem er í umræðunni.

með viðurnefni í Hafnarfirði

Birgir skartar þessu virðulega viðurnefni „Keisarinn“ og það kannast margir við í golfheiminum á Íslandi en einnig er það þekkt meðal Hafnfirðinga. Hann fékk viðurnefnið í uppvextinum og skýringin er óneitanlega skondin.  „Mamma og pabbi voru með fyrirtæki sem hét Kayspöntunarlistinn. Augljóslega var ég því með keisaratign en segja má að pabbi hafi verið fyrsti keisarinn og ég hafi tekið við nafnbótinni.

Ekki þótti ónýtt að komast í Kays pöntunarlistann á níunda áratugnum.

Þetta er gott viðurnefni að hafa því flestir vinir mínir eru með

viðurnefni sem þeir myndu gjarnan vilja losna við. Ég hef því ekki reynt að leiðrétta þetta, enda er ég alveg sáttur við að vera kallaður Keisarinn. Líklega var ég oftast kallaður Biggi keisari þegar ég var yngri en í golfheiminum hefur þetta breyst yfir í að ég sé bara kallaður Keisarinn. Margir hafa líklega ekki hugmynd um hvað ég heiti. Þannig er þetta til komið og er líklega svolítið hafnfirskt því flestir voru með viðurnefni í Hafnarfirði.“

Fyrir örfáum árum sagði fólk þegar það leit við í Hraunkoti: „Vá, eru þið með tvo golfherma?“ Nú segir fólk þegar það lítur við: „Ha, eruð þið bara með tvo golfherma?“

„Já, íþróttin heldur áfram að stækka og það er meira að gera hjá mér í öllu, hvort sem það eru mælingar, viðgerðir eða sala á kylfum.“

„Bara“ tveir golfhermar

Birgir hefur ágætan samanburð, því hann var farinn að fikta við að gera við golfkylfur fyrir meira en tveimur áratugum.

„Árið 2007 fór ég á námskeið í Bretlandi þar sem ég lærði viðgerðir og fleira. Í framhaldinu fór ég að gera meira út á þetta, en áður hafði ég aðallega reddað vinum og kunningjum þegar á þurfti að halda. Það voru alla vega nokkrir Íslendingar sem höfðu lært þetta á undan mér en ég veit ekki hversu margir. Eftir þetta hef ég tekið ýmis ör námskeið hingað og þangað til að öðlast meiri

vitneskju tengda búnaðinum í golfinu. Til að bæta við mig þekkingu hef ég líka tekið golfkennaranám hjá PGA á Íslandi. Ég starfa ekki við kennslu en það er góður grunnur að hafa,“ segir Birgir, sem tekur á móti viðskiptavinum sínum á Hvaleyrinni í Hafnarfirði, eða í Hraunkoti eins og það heitir. Þar hanga skjöl uppi um alla veggi frá kylfuframleiðendum og öðrum sem sýna að Birgir hafi öðlast réttindi hér og réttindi þar. Hvernig stendur á því að Birgir starfar í gamla Sædýrasafninu? „Ég var áður starfsmaður hjá Keili. Þegar klúbburinn breytti hvalalauginni í innanhússaðstöðu fyrir Keilisfólk samdi ég við klúbbinn um að fá litla aðstöðu í húsinu þar sem ég gæti gert við kylfur og þjónustað þannig klúbbmeðlimi. Það vatt upp á sig. Mælingar bættust við og síðar golfhermavæðingin. Þá var ég

kominn með góða aðstöðu fyrir mína þjónustu. En ég og Keilir erum í sömu vandræðum og allir í golfbransanum á höfuðborgarsvæðinu, að það er allt sprungið vegna eftirspurnar. Hvort sem það eru vellirnir, æfingasvæðin, klúbbhúsin, bílastæðin, áhaldahúsin eða aðstaða fyrir mælingar. Fyrir örfáum árum sagði fólk þegar það leit við í Hraunkoti: „Vá, eru þið með tvo golfherma?“ Nú segir fólk þegar það lítur við: „Ha, eruð þið bara með tvo golfherma?““ útskýrir Birgir.

7-tré er fótanuddtækið í golfinu Birgir verður skiljanlega áþreifanlega var við viðhorfsbreytingar varðandi búnaðinn og stundum mætti tala um tískubylgjur í þeim efnum. Um þessar mundir segir hann að skyndilega sé í tísku að vera með trékylfu númer 7 [enn er talað um

Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir slær í golfherminum hjá Birgi í Hraunkoti. Rúnar Arnórsson og Axel Bóasson fylgjast með.

HREIN FORGJÖF

trékylfur í daglegu tali þótt kylfuhausarnir séu ekki lengur úr viði] í golfsettinu. „7tré er fótanuddtækið í golfinu um þessar mundir og manni heyrist að kylfingar geti ekki farið út á golfvöll án þess að vera með 7- tré í pokanum,“ segir Birgir en tekur fram að hann sé ekki að hæðast að þeirri þróun heldur sé hann þvert á móti sammála því að kylfan gagnist mörgum og færir fyrir því rök.

„Ég hef í mörg ár mælt með því að fólk nýti sér 7-tré. Margir góðir kylfingar móðguðust þegar maður nefndi þennan möguleika og litu á þetta sem verkfæri fyrir öldunga. En þegar margir frægustu kylfingar heims eru farnir að nota 7-tré breytist viðhorfið. Þessi kylfa kemur þá í staðinn fyrir hybrid númer 3 eða 4 en gæti einnig komið í staðinn fyrir 3- eða 4-járn. Margir slá ekki nógu hátt með 3-járni og boltinn ætti að fara hærra með 7-tré og stoppa fyrr. En hjá bestu kylfingunum þá nýtist þetta

Ég hef í mörg ár mælt með því að fólk nýti sér 7-tré. Margir góðir kylfingar móðguðust þegar maður nefndi þennan möguleika og litu á þetta sem verkfæri fyrir öldunga. En þegar margir frægustu kylfingar heims eru farnir að nota 7-tré breytist viðhorfið.

vel í karganum því hausinn fer vel í gegnum þykkt gras. En nú er staðan hins vegar sú að það er orðið vesen að útvega fólki þessa kylfu því hún er uppseld hjá öllum framleiðendum. 2025 var ár 7-trésins!“

Skiptir einhverju máli núorðið hvað kylfurnar heita, þ.e. um hvaða merki er um að ræða?. Eru ekki allir stóru framleiðendurnir með vöruna í lagi? „Nánast allar kylfurnar á markaðnum í dag eru vandaðar golfkylfur. Að mínu mati eru flestallir framleiðendur með góða vöru. Hvað hentar svo hverjum og einum best getur aftur á móti verið mismunandi. En ef þú ert að selja eitthvað og gæðin eru ekki í lagi ertu bara tekinn af lífi á netinu. Það er endalaust af myndskeiðum á YouTube eða samfélagsmiðlum þar sem kylfingar eru að prófa græjurnar. Aðhaldið er því mikið. Aðalatriðið er að kylfingar finni kylfur sem henta þeim. Það skiptir ekki máli að varan sé svakalega flott ef hún hentar þér ekki.“

Græjan biluð á versta tíma?  Birgir fær til sín kylfinga á öllum getustigum, eins og hann kemur inn á í spjallinu. Hann hefur fengið marga

Birgir Leifur hefur einstakt vald á golfkylfunni.

SÉRSAUMUR BÓKAÐU ÞINN TÍMA STRAX

af bestu kylfingum þjóðarinnar til sín í mælingu og kann skemmtilega sögu af því þegar atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson kom í mælingu fyrir nokkrum árum.

„Þegar maður fær afburðagolfara til sín verður þetta kannski svolítið leiðinlegt því höggin eru öll eins. Slátturinn hjá Bigga er ótrúlegur og þegar hann kom til mín fóru öll höggin á sama stað. Ég var svolítið stressaður fyrst því ég hélt að græjan væri frosin akkúrat þegar besti kylfingur Íslands væri í heimsókn. Græjan sýndi alltaf sömu töluna eftir fimm fyrstu höggin. En skýringin var bara að hann er svo góður að höggin voru bara nákvæmlega eins trekk í trekk. Ég man að ég ákvað að gera smá tilraun þegar Biggi var að slá með dræver. Mig langaði að sjá hvað myndi gerast ef boltinn væri nokkrum millimetrum ofar á höggfleti kylfunnar þegar hann væri að slá með dræver. Ég spurði hvort hann gæti gert það og Biggi svaraði að hann gæti alla vega reynt. Þá hitti hann boltann bara nokkrum millimetrum neðar og þetta virtist vera eins og maður væri að forrita

Ég hef auðvitað gaman af öllum kúnnum sem koma til mín en sumir eru þó eftirminnilegri en aðrir. Guðni Valur Guðnason kringlukastari er einn þeirra, enda slær hann 350 metra og þarf ekki að hafa fyrir því.

vélmenni,“ rifjar hann upp, en fyrir þá sem hafa gaman af högglengd og kylfuhraða telur Birgir keisari að högglengsti kylfingur á Íslandi um þessar mundir komi ekki úr röðum afrekskylfinga heldur úr annarri íþrótt. Þar er ólympíufari á ferðinni.

„Ég hef auðvitað gaman af öllum kúnnum sem koma til mín en sumir eru þó eftirminnilegri en aðrir. Guðni Valur Guðnason kringlukastari er einn þeirra, enda slær hann 350 metra og þarf ekki að hafa fyrir því. Hann lék golf á yngri árum en hann býr yfir sjaldgæfri blöndu því hann hefur liðleikann ásamt því að vera ofsalega sterkur. Sjaldan geta breiðir menn eins og Guðni Valur snúið upp á sig eins og hann gerir. Mig minnir að kylfuhraðinn hafi verið um 140 hjá honum og högglengdin meiri en ég hef séð hjá öðrum Íslendingum.“

Guðni Valur Guðnason er sá högglengsti á landinu samkvæmt Birgi. MYND/FRI.IS

Varð betri manneskja á golfvellinum

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lagði golfkylfurnar á hilluna fyrir nokkrum árum, sem afrekskylfingur að minnsta kosti, og beinir kröftunum nú í aðrar áttir. Hún hefur haft í nógu að snúast með tvo litla drengi, Maron og Alexander, en hún og eiginmaðurinn Thomas Bojanowski hafa komið sér fyrir í Garðabænum með fjölskylduna.

Ólafía var mjög áberandi um tíma þegar hún ruddi brautina fyrir íslenska kylfinga í Bandaríkjunum. Ekki væri alveg rétt að segja að Ólafía hefði dregið sig út úr sviðsljósinu eins og stundum er sagt heldur gerðist það bara sjálfkrafa þegar hún hætti í atvinnumennskunni.

„Ég sneri aftur í keppnisgolf eftir að Maron fæddist og keppti þá á Evrópumótaröðinni. Ég reyndi í smá tíma en þá fann ég að tími var kominn til að hætta þessum ferðalögum og vera ekki í þessu pressuástandi. Ég fann fyrir löngun til að vera á sama stað og skjóta niður rótum frekar en að halda áfram flökkulífsstíl. Það var

samt sem áður erfitt fyrir mig að taka þessa ákvörðun. Á Íslandsmótinu í Eyjum árið 2022 hugsaði ég með mér hvort það yrði síðasta mótið alla vega í bili og ég man hversu mikið mig langaði að vinna mótið í því ljósi. Síðasti dagurinn var felldur niður og það fór ekki alveg eins og ég vonaðist eftir þótt ég hafi verið í baráttunni um sigurinn. Vonbrigðin sátu í mér í nokkrar vikur því mig langaði að setja punkt fyrir aftan þetta ferli með Íslandsmeistaratitli en ég velti þessu ekkert fyrir mér í dag,“ segir Ólafía, sem sneri sér einfaldlega að öðrum verkefnum ásamt því að stækka fjölskylduna.

„Ég hef alltaf fengið margar hugmyndir og er listræn í eðli mínu. Mér finnst alla vega skemmtilegt að mála eða gera keramik. Golf er smá list. Þegar Birgir Leifur [Hafþórsson fyrrverandi atvinnukylfingur] var að hjálpa mér benti hann stundum á þetta: „Þú ert listamaður og þú mátt alveg hugsa eins og listamaður. Þetta er ekki bara tækni,““ rifjar Ólafía

Ólafía og Birgir

Leifur fagna sigri á Íslandsmótinu árið 2016.

MYND/GSIMYNDIR.IS

Mér fannst ég læra mikið af því að byggja upp fyrirtæki, enda eru þá svo margar ákvarðanir sem þarf að taka. Ég hafði mjög gaman af mörgu sem sneri að vinnunni en þá sérstaklega hugmyndavinnunni, þar sem ég gat verið skapandi. Eins og til dæmis að gera vefsíðuna, búa til efni og vinna í markaðssetningunni, en reksturinn var ekki eitthvað sem ég naut þess að gera. Ég er heldur ekki sölumanneskja í eðli mínu og lærði því ýmislegt um sjálfa mig í þessu ferli varðandi það hvað hentar mér og hvað hentar ekki,“ útskýrir Ólafía, en fyrirtækið bauð upp á töskuleigu.

Ég hef einu sinni farið holu í höggi á ævinni og það var á risamóti. Það var geggjað. Ég fékk í verðlaun flugmiða til og frá Japan á business class. Ég náði aldrei að nota þennan flugmiða. Á meðan sumir fá bíl eða úr fyrir að fara holu í höggi á atvinnumannamótum fékk ég flugfar sem ég gat ekki notað.

upp, en hún stofnaði fyrirtæki sem fór ágætlega af stað.

„Ég fór á keramik-námskeið, prófaði að stofna fyrirtæki og ýmislegt fleira.

„Ég hafði verið í Ameríku og kynnst lífinu á LPGA-mótaröðinni. Þar eru miklar skvísur með fínar töskur frá frægum framleiðendum. Þær hvöttu mig gjarnan til að kaupa dýrar töskur sem mér fannst ekki passa alveg fyrir mig þótt við þyrftum oft að mæta á alls kyns flotta viðburði í tengslum við golfmótin. Ég þurfti því oft að vera svolítið fín á þessum viðburðum sem tengdust mótaröðinni en ég komst að því að hægt var að leigja töskur frá þessum frægu merkjum. Það er skemmtilegt að vera með svona tösku við ákveðin tilefni þótt maður vilji ekki fjárfesta í henni. Ég fór þá að velta fyrir mér hvort svona töskuleiga væri eitthvað sem sniðugt væri að koma með til Íslands. Þessi hugmynd sótti á mig þegar ég hafði verið barnshafandi og tuskuleg í langan tíma. Tilhugsunin um að konur gætu gert sér dagamun og fundið fyrir tilbreytingu í einn dag fannst mér skemmtileg,“ segir Ólafía og hún byggði fyrirtækið upp með ungan son.

„Þegar ég var að ferðast á milli landa var þetta svolítið flóknara því þá var ekki alltaf hægt að afhenda töskur. Markaðssetningin gat þar af leiðandi ekki verið eins markviss. Auk þess þurfti ég að hugsa mig um þegar mér fannst allur tími sem ég eyddi ekki með fjölskyldunni fara í fyrirtækið. Mig langaði til að vera geggjuð mamma og vera til staðar fyrir Maron.“

Ólafía slær afslappað upp úr sandgryfju.

Miklir hagsmunir á LPGA Ólafía Þórunn er einn fárra Íslendinga sem verið hafa atvinnumenn í íþróttum í Bandaríkjunum en margir Íslendingar hafa gert það gott í háskólaíþróttunum sem er annars eðlis þótt vissulega séu miklir hagsmunir bundnir í því að fá skólagönguna greidda. Þegar Ólafía öðlaðist keppnisrétt á LPGA-mótaröðinni ritaði hún nýjan kafla í golfsöguna hérlendis en hefur hún jafnframt samanburðinn við Evrópumótaröðina.  „LPGA er miklu stærra batterí. Þar eru kannski tíu manns í markaðsdeildinni en einn á Evrópumótaröðinni þegar ég var þar. Fullt af fólki skrifar greinar og sjónvarpað er frá öllum mótum á LPGA. Upphæðirnar sem keppt er um eru miklu hærri. Maður finnur einnig vel fyrir því hvernig mótaröðin styður leikmennina varðandi margt sem kann að koma upp. Í Evrópu er andrúmsloftið samt sem áður vinalegra og samheldnin er meiri hjá leikmönnum. Í Bandaríkjunum finnur maður að hagsmunirnir skipta máli og þetta er iðnaður. Allir eru þarna til að ná árangri og ætla ekki að leyfa þér að trufla það, þótt maður eignist auðvitað einhverja vini á mótaröðinni. Andrúmsloftið í Bandaríkjunum var því aðeins frábrugðið því sem ég hafði áður kynnst.“

Ólafía var með fullan keppnisrétt og náði nægilega góðum árangri til að öðlast

Til Kóreu með engum fyrirvara

Líf atvinnumanns í íþróttum er gjarnan í ferðatösku, ekki síst í einstaklingsgreinum. Ólafía minnist þess að hafa komist inn á mót í Asíu með nánast engum fyrirvara.

MYND/KPMG

keppnisrétt á öllum risamótunum, sem eru fimm hjá konunum en hjá körlunum eru þau fjögur. Hún fór því ansi víða þegar hún þræddi mótin sem atvinnumaður.

„Skipulagið er afskaplega gott á LPGA. Þegar mót eru á vesturströndinni eru þrjú mót í röð sem eru nokkuð nálægt hverju öðru. Þegar mót voru í miðju landi var hægt að keyra á milli. Í samanburði gat maður lent í því á Evrópumótaröðinni að fara til Dubai og þaðan til Svíþjóðar. Ekki vegna þess að fólk kynni ekki að skipuleggja hjá Evrópumótaröðinni heldur þurfti það einfaldlega að nýta tækifærin þar sem þau buðust. LPGA þarf ekki að hafa áhyggjur af því, þar sem margir vilja halda mótin í sínum borgum.“

Ólafía negldi ekki niður ákveðinn ferðamáta, heldur var tekin afstaða til þess á hverjum tíma. „Það var bæði keyrt og flogið á milli móta. Það fór bara eftir því hvort var þægilegra. Maður reynir að hugsa um hvernig tíminn sé best nýttur og maður þarf að vera vel upplagður þegar maður mætir í mót. Ég hefði ekki viljað keyra í 20 tíma á leiðinni í mót á LPGA. Þá væri ég orðin svo stíf og stirð í líkamanum að það myndi hafa áhrif á frammistöðuna.“

Kom til greina í Evrópuliðið Ólafía fékk að upplifa margt á atvinnumannaferlinum og hún nefnir sem dæmi Asian Swing.

„Eitt sinn var ég komin til Íslands þegar ég frétti að ég væri orðin fyrst á biðlistanum inn í næsta mót, sem var í Suður-Kóreu. Ég hafði ekki búist við því að komast inn á mótið og fór því heim til Íslands. Ég hafði verið heima í einn dag þegar ég fékk skilaboð frá Moriyu Jutanugarn. Hún er frá Taílandi og hefur verið á topp tíu á heimslistanum en yngri systir hennar Ariya var held ég í efsta sæti heimslistans á þessum tíma. Moriya sendi mér skilaboð til að segja mér að hún hefði meiðst og þyrfti að draga sig út úr mótinu. Hún sá að ég var fyrst á biðlista og hún vildi láta mig vita til að ég gæti skipulagt ferðalag til Kóreu. Hún bauð mér einnig að nota kylfuberann hennar vegna þess að hann var hvort sem er kominn á staðinn. Ég fór þá að skipuleggja að fara frá Íslandi daginn eftir og þetta endaði með einhverjum svakalegum fluglegg frá Íslandi til Kóreu með viðkomu í Rússlandi. Ég var gersamlega búin á því þegar ég kom til Kóreu og ferðataskan skilaði sér ekki með mér. Þá átti ég að mæta á galakvöld eins og aðrir keppendur í mótinu og ég var ekki með nein föt. Ég reyndi að koma mér undan því að fara í boðið en fólkið í Kóreu fylgir öllum áætlunum nákvæmlega og mér var einfaldlega sagt að ég yrði að mæta. Auk þess kom ég svo seint á svæðið að ég þurfti að grátbiðja um að fá að spila æfingahring vegna þess að fresturinn til að spila æfingahring var yfirleitt til klukkan 14. Eftir einhver fundahöld og mörg símtöl hjá mótshöldurum fékk ég að spila æfingahringinn, sem er auðvitað nauðsynlegt til að kynnast vellinum. Galakvöldið reddaðist með því að vinkona mín á mótaröðinni lánaði mér föt.“

„Í lok keppnistímabilsins er bætt við mótum í Asíu, en þangað fara bara sextíu efstu kylfingarnir á keppnistímabilinu. Þessi mót eru kölluð Asian Swing. Mér fannst það vera stórt afrek að komast þar inn og ég náði því einu sinni. Á þessu sama keppnistímabili náði ég einnig að vera með í lokamótinu á mótaröðinni, sem er auðvitað mjög stór viðburður og maður þarf að eiga gott ár á mótaröðinni til að komast þangað,“ segir Ólafía og þessi hógværi kylfingur ljóstrar því upp í fyrsta skipti opinberlega að hún var á radarnum hjá fyrirliða evrópska liðsins í Solheimbikarnum um tíma. Í Solheim-bikarnum mætir úrvalslið Bandaríkjanna úrvalsliði Evrópu rétt eins og í Ryder-bikarnum hjá körlunum en einungis 12 eru í hvoru liði. Er því um geysilega mikinn heiður að ræða fyrir þær sem komast í liðin.  Liðsstjóri evrópska liðsins á þeim tíma var engin önnur en Annika Sörenstam frá Svíþjóð, en hún er einn sigursælasti kylfingur sögunnar. „Fyrirliðinn í Solheim Cup hafði eitt sinn samband við mig og tjáði mér að þau ætluðu að fylgjast með mér. Ég var beðin um að senda þeim upplýsingar eins og helstu tölur varðandi minn leik. Það var mjög kúl,“ segir Ólafía og glottir. „Ég komst inn á radarinn þótt ég hafi ekki komist í liðið. Það var sérstakt að fá tölvupóst frá Anniku. Ég átti eftir

að hitta hana seinna þegar hún heimsótti Ísland og hún var mjög almennileg. Hún gaf mér mörg góð ráð.“

Þvældist með þeirri bestu Fyrst talið berst að frægum kylfingum á annað borð er ekki annað hægt en að pumpa Ólafíu ögn meira hvað það varðar.  „Ég borðaði einu sinni hádegismat með Lexi Thompson [sigurvegara á 15 atvinnumannamótum]. Þegar ég spurði hvort ég mætti spyrja hana nokkurra spurninga var það ekkert mál, enda eru þessir leikmenn oft vingjarnlegir þegar maður kemst í návígi. Maður þarf bara að vera hugrakkur að spyrja. Mér fannst Lexi gefa svipuð ráð og Annika. Þær töluðu til dæmis báðar um að maður ætti að vera trúr sínum leik sem hefur komið manni þetta langt í stað þess að breyta miklu þegar komið er á stóra sviðið. Reyna allt sem hægt er til að öðlast stöðugleika á golfvellinum. Lexi hafði til dæmis ekki skipt um kylfur í tæp sjö ár. Hún hafði samt sem áður prófað allt það nýjasta en taldi einfaldlega að þessar kylfur skiluðu henni mestum árangri,“ rifjar Ólafía upp, en hún eyddi einnig tíma með efsta kylfingi heimslistans.

„Eftir mót í Suður-Kóreu kynntist ég Ariyu Jutanugarn frá Taílandi, sem var í efsta sæti heimslistans. Þá vorum við að

Stuðningur landsmanna áþreifanlegur

Ólafía Þórunn fór úr því að vera þekkt innan golfhreyfingarinnar og yfir í að verða landsþekkt. Ekki kannski á einni nóttu en á tiltölulega skömmum tíma og var enn ung að aldri. Hversu mikil viðbrigði voru það?

„Þetta steig mér alla vega ekki til höfuðs enda hef ég alltaf reynt að temja mér að vera hógvær. Þetta er vissulega skrítið að upplifa og ég þurfti til dæmis að læra að setja mörk. Fólk er alltaf að reyna að grípa í mann en maður er bara að reyna að einbeita sér að íþróttinni. Ég átti það til að hleypa fólki of mikið að mér til að byrja með vegna þess að ég átti erfitt með að segja nei. Auðvitað vilja allir að manni gangi vel en manni mun ekki ganga vel ef maður eyðir tímanum í alls kyns aukaverkefni. Fólk skilur það þegar maður útskýrir hlutina. Þess vegna er mikilvægt að afþakka kurteisislega. Bæði fyrir sjálfan sig en einnig af virðingu við þann sem er að biðja um eitthvað. Það er best að vera heiðarlegur í því og fólk kann að meta það,“ segir Ólafía sem fann greinilega fyrir stuðningi frá landanum.

„Það er svolítið skondið að vera þekktur á Íslandi. Allir eiga mann og vegna þess að Ísland er svo fámennt halda allir með manni. Um leið er það svo fallegt. Á Íslandi fékk ég meiri athygli en frönsk súperstjarna fær í Frakklandi, vegna þess að þar eru margar sem slá í gegn. Þessi athygli sem ég fékk opnaði ýmsar dyr og ég fékk tækifæri til að taka þátt í skemmtilegum verkefnum þar sem ég kynntist áhugaverðu fólki. Þetta var ævintýri.“

ferðast á næsta keppnisstað. Hún sagðist vera bara ein að ferðast þar sem systir hennar hafði forfallast og spurði hvort ég vildi ekki bara eyða tíma með henni. Þegar við vorum að ferðast á milli landa missti ég það út úr mér að ég ætti afmæli. Þá vildi efsta kona heimslistans fara að færa mér mat og ég mátti ekkert hafa fyrir hlutunum. Hún kom með sex mismunandi rétti og sagði að það sem mér þætti gott myndi hún ekki snerta. Í framhaldinu opnaði hún sig um ýmsa þætti sem snúa að lífi afreksíþróttamannsins þegar við vorum að borða saman í rólegheitunum. Ég man til dæmis að hún sagðist ekki snerta golfkylfu í tvær vikur eða svo þegar hún færi í frí eftir keppnistímabilið. Þá vildi hún bara ekkert hugsa um íþróttina eða neitt sem tengdist henni. Einfaldlega til þess að kúpla sig frá þessu. Hún sagðist í rauninni ekki gera neitt annað í þessar tvær vikur en að liggja í sólinni eða eitthvað álíka. Með þessu var hún að hugsa til lengri tíma og auka líkurnar á því að hún myndi endast í þessu. Eftir þessar tvær vikur fann hún fyrir hungri til að byrja aftur. Það var gott fyrir mig að heyra þetta frá þeirri sem var númer eitt í heiminum því ég vildi helst alltaf vera í harkinu. Það er mikilvægt að fólkið sem er í kringum afreksíþróttamanninn skilji þetta einnig. Ariya sagði til dæmis að hjá sér væri heilagt að taka frí á mánudegi því maður yrði að vera í fríi einn dag í viku,“ segir Ólafía, en hér má nefna til útskýringar að bestu kylfingar heims keppa gjarnan á mótum frá fimmtudegi til sunnudags og því er mánudagurinn heppilegur til hvíldar þótt sá dagur fari þá reyndar gjarnan í ferðalög.

sló draumahöggið á risamóti Spurð um eftirminnilegustu augnablikin í atvinnumennskunni þá nefnir Ólafía skiljanlega þegar hún fór holu í höggi árið 2018 á ANA Inspiration-mótinu, sem er eitt risamótanna fimm. Mótið fór fram á Mission Hills Country Club-vellinum í Rancho Mirage í Kaliforníu. Fyrir þá sem þekkja söguna má geta þess að mótið hét Kraft Nabisco þar til árið 2015. Hún valdi heldur betur rétta mótið til að fara holu í höggi því í langri sjónvarpsútsendingu sem náði til áhorfenda úti um allan heim voru pásur í útsendingunni nýttar til að sýna það sem hafði gerst fyrr um daginn. Þ.e.a.s. þegar Íslendingurinn, sem var hálfgerður nýliði á mótaröðinni, fór holu í höggi. „Ég hef einu sinni farið holu í höggi á ævinni og það var á risamóti. Það var

Ólafía fær sér sæti í hrauninu. Ísland er einn fárra staða í heiminum þar sem finna má golfvelli lagða innan um hraun.

geggjað. Ég fékk í verðlaun flugmiða til og frá Japan á business class. Ég náði aldrei að nota þennan flugmiða. Á meðan sumir fá bíl eða úr fyrir að fara holu í höggi á atvinnumannamótum fékk ég flugfar sem ég gat ekki notað,“ segir Ólafía og hlær að tilhugsuninni. „Ég hafði tvö ár til að nota flugmiðann. Við ferðuðumst svo mikið þegar ég var að keppa að þegar ég fékk frí gat ég ekki hugsað mér að fara í löng ferðalög. Í fríinu stóð valið milli þess að fara heim til Íslands eða fara til Japan. Ég valdi að fara heim í frí. En til að útskýra þetta aðeins betur var ekki hægt að leyfa öðrum að njóta þess að nota miðann og ekki var heldur hægt að framlengja.“

Þar sem risamótin eru til umræðu er forvitnilegt að spyrja Ólafíu hvert þeirra sé merkilegast í hugum bestu kylfinga heims?

„Leikmönnum finnst að í KPMGmótinu sé hugsað best um kylfingana og það mót er ávallt haldið á bestu völlunum sem eru í boði. Ég myndi segja að KPMGmótið sé í uppáhaldi hjá flestum en að vinna Opna bandaríska mótið sé best fyrir ferilskrána. Mikil virðing er borin fyrir Opna bandaríska enda er mikil saga þar. Engu að síður er það mót svolítið

LPGA. Þá var hún í sigurliði Íslands í blandaðri liðakeppni á meistaramóti Evrópu á Gleneagles ásamt Valdísi Þóru Jónsdóttur, Birgi Leifi og Axel Bóassyni. Fyrir utan þá staðreynd að hún er eini kylfingurinn sem hlotið hefur sæmdarheitið Íþróttamaður ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna.

Ólafía hefur lítið getað leikið golf undanfarin ár, þar sem fjölskyldan og barnauppeldið hefur forgang hjá henni. Spurð hvort hún gæti hugsað sér að taka fram kylfurnar í framtíðinni og taka þátt í Íslandsmótinu sér til ánægju útilokar hún það ekki en segist þó ekki mæta til leiks á Íslandsmótinu nema hún verði í þokkalegri leikæfingu.

MYND/JÓN GUÐMUNDSSON.

frábrugðið, vegna þess að þar eru einnig keppendur sem eru minna þekktir vegna þess að þeir ná inn í gegnum úrtökumót. Efnilegar kylfingar úr háskólagolfinu geta til dæmis náð inn í mótið með þeim hætti. Ég gerði það einu sinni sjálf að fara inn í Opna bandaríska í gegnum úrtökumót en það er meira en að segja það enda spilar maður 36 holur þann daginn og lítið má út af bregða. Á Opna breska kunni ég ágætlega við mig, enda þekkir maður sig í vindi og á hörðum völlum. Einnig fannst mér skemmtilegt að spila á Evian-mótinu í Frakklandi en einhverjum leikmönnum þótti völlurinn ósanngjarn.“

Óvíst hvort hún tekur upp þráðinn Ólafía Þórunn er mesti afrekskylfingur Íslandssögunnar út frá þeim mælikvörðum sem eðlilegt er að nota. Hún náði að leika á öllum risamótunum í íþróttinni og var fyrst Íslendinga til að leika á risamóti. Hún komst inn á sterkustu mótaröðina eftir úrtökumót þar sem samkeppnin er geysileg og lék nógu vel innan um þær bestu á LPGA til að endurnýja keppnisréttinn á mótaröðinni. Hún var til að mynda í 4.sæti í móti á

„Ég er enn að læra að vera mamma og á svolítið erfitt með að gera eitthvað fyrir sjálfa mig um þessar mundir. En ég er meðvituð um að ég þarf að gera það líka. Reyndar hef ég aðeins verið að hjálpa öðrum með golfið og hélt námskeið fyrir konur þegar ég var barnshafandi. Ég hef alltaf tekið þátt í Einvíginu á Nesinu þegar mér hefur verið boðið. Stundum hefur vantað einhvern í mótið og þá hringja þeir í gömlu Ólafíu. Ég verð að viðurkenna að mér finnst svolítið erfitt að spila golf þegar ég er ekki í æfingu. Þegar ég veit hversu góð ég gat verið eru kröfurnar sem ég geri óraunhæfar þegar ég er ekki í leikæfingu. Það er mjög erfitt. Ég mun því ekki mæta í Íslandsmótið ef ég hef ekkert spilað. Ef ég mæti einhvern til leiks verður það ekki bara til að vera með.“

Lærði margt í golfinu Ólafía segist hafa lært margt af því að alast upp í golfinu og hafa æft íþróttina sem barn og unglingur.

„Ég man að ég var alltaf spennt að mæta á æfingar út af félagslega þættinum. Þetta var skemmtilegur hópur sem ég var hluti af. Eitt af því sem maður lærir er að takast á við tilfinningar því spilamennskan er upp og niður. Þegar ég var lítil var ég oft mjög pirruð á vellinum og þurfti að hemja það. Maður lærir að temja sér aga og þolinmæði og augljóslega þarf að leggja hart að sér til að ná langt í þessu. Hvernig ætlar maður að takast á við það þegar blæs á móti? Það er margt sem hægt er að nefna og þegar maður er komin lengra í íþróttinni lærir maður ýmislegt í íþróttasálfræði. Á heildina litið finnst mér ég hafa lært mjög mikið í golfinu. Ég myndi segja að ég hafi bætt mig sem manneskja á golfvellinum,“ segir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.

Frá hörðum við yfir í hátækni

Eyjamaðurinn Þorsteinn Hallgrímsson hefur komið víða við í golfhreyfingunni á Íslandi. Á sínum tíma var hann landsliðskylfingur og varð Íslandsmeistari árið 1993. Hann hefur þjálfað afrekskylfinga, kennt kylfingum á ýmsum getustigum, starfað í golfverslun, verið fararstjóri í golfferðum erlendis og lýst golfmótum í sjónvarpi. En Þorsteinn lærði jafnframt kylfusmíði á sínum tíma og Viðskiptablaðið fékk hann til þess að fara yfir hvernig búnaðurinn í golfinu hefur breyst í gegnum tíðina.

Fyrstu heimildir um einhvers konar golfsett eða golfkylfur eru frá því í kringum 1500. Golf- og knattspyrnuiðkun hafði verið bönnuð áratugina á undan í Skotlandi vegna þess að konungurinn vildi að ungir karlmenn stunduðu bogfimi sem gæti nýst í hernaði gegn Englendingum. Þegar friður komst á milli Englendinga og Skota var golfiðkun leyfð á ný. Samkvæmt

rituðum heimildum voru fyrstu golfkylfurnar gerðar úr harðvið,“ segir Þorsteinn en í valdatíð James fimmta komst golfið á dagskrá.

„James fimmti Skotlandskonungur var orðinn golfsjúkur og hann fékk William Main bogagerðarmann til þess að hanna fyrir sig golfkylfur og eru það

Robert Forgan er líklega sá fyrsti til að starfa eingöngu við að búa til golfkylfur.

fyrstu heimildirnar um sérsmíðað golfsett ef þannig má að orði komast. Voru það fjórar kylfur og var kallað ýmsum nöfnum. Það sem við þekkjum sem dræver var stundum kallað „long nose“ til að byrja með og „spoon“ var eins konar brautartré. „Niblick“ var með meiri fláa og eiginilega fleygjárn og fyrir púttin var notað eitthvað sem kallaðist „cleek.“ Það fer ekki miklum sögum af því hvernig þessar kylfur reyndust.“

Ýmsar tilraunir voru gerðar þegar menn reyndu að þróa búnaðinn í golfinu með þeim möguleikum sem í boði voru fyrr á öldum.

„Um miðja 18. öld fóru í gang mikil þróun og pælingar en þá var prófað að setja leður á höggflötinn til þess að mýkja höggið þegar boltinn var sleginn því boltinn var einnig úr harðviði. Þá tóku menn fiskabein og ýmsar fleiri tilraunir voru gerðar til að mýkja höggflötinn á kylfuhausnum með misgóðum árangri. Í kringum 1750 voru fyrstu járnahausarnir smíðaðir og má kalla það viss tímamót. Fyrstu heimildir um járnakylfur eru á þann veg og þá stóð tréskaft upp úr járnhaus. Er það á svipuðum tíma og fjaðurboltinn verður til og mýktin verður miklu meiri,“ segir Þorsteinn og minnist á fyrsta kylfusmiðinn.

„Þegar golfið var komið á fullt í St. Andrews á 19. öldinni var The Royal&Ancient [frægasti golfklúbbur heimsins] kominn til sögunnar sem og fyrsti kylfusmiðurinn. Hann hét Robert Forgan og var trésmiður en hafði unnið við kylfuviðgerðir í verslun. Hann var því að gera við kylfur en tók við verkstæðinu þegar eigandinn féll frá í kringum 1860. Þá fór Forgan einnig að smíða golfkylfur og var væntanlega sá fyrsti til að starfa einungis við að búa til golfkylfur. Einhvern veginn áskotnaðist honum viður frá Bandaríkjunum sem varð undirstaðan að öllum sköftum fram á 20 öldina. Þá er ég að tala um hickory sem margir kylfingar hafa heyrt talað um. Hockory-viðurinn er sterkur en jafnframt sveigjanlegur og þá varð mjög mikil breyting. Þá voru kylfingar með kylfur sem eru með stálhausum og skaft með smá sveigju sem gaf aðeins eftir. Boltinn var auk þess orðinn mýkri og þarna fóru kylfingar að slá miklu lengra en áður. Mér

Hann hét Robert Forgan og var trésmiður en hafði unnið við kylfuviðgerðir í verslun. Hann var því að gera við kylfur en tók við verkstæðinu þegar eigandinn féll frá í kringum 1860. Þá fór Forgan einnig að smíða golfkylfur og var væntanlega sá fyrsti til að starfa einungis við að búa til golfkylfur.

dæmi. Stálsköftin voru því rosalega mikil breyting. Ég held að óhætt sé að segja að um það bil 100 ár séu síðan golfkylfa og golfbolti nútímans urðu til þótt auðvitað hafi það þróast alveg ótrúlega mikið síðan þá. Við þetta má bæta því að með stálsköftunum fóru kylfurnar að endast miklu lengur en áður. Um leið var hægt að fara í fjöldaframleiðslu.“

Þorsteinn bendir á að lengi var ekki haft taumhald á því hversu margar kylfur kylfingarnir voru með í pokanum. Í dag gildir sú regla að ekki séu fleiri en fjórtán kylfur í pokanum hverju sinni. Alla vega þegar keppt er í íþróttinni.

„Fram til 1930 var það merki um að þú værir vel stæður ef þú varst með margar golfkylfur í pokanum. Við gætum tekið sem dæmi að kylfingur sem var ekki efnaður var kannski með þrjár kylfur en sá sem var ríkur gat þess vegna verið með 30 kylfur. Það er áhugavert að ekki séu búnar til reglur um þetta fyrr en í kringum 1930 því þá hafði verið keppt á The Open í 70 ár. Eftir að settar voru reglur um þetta er viðmiðið að 14 kylfur séu í pokanum en nefna má til gamans að til umræðu hefur komið að fækka kylfunum niður í 11 til að reyna á færni bestu kylfinganna. Þeir sem mótmæla því kröftugast eru náttúrlega kylfuframleiðendur.“

Pútterar ekki hannaðir sérstaklega Þorsteinn nefnir einnig að miklar framfarir hafi orðið þegar harður persimmonviður var notaður í dræverana og trékylfurnar.

skilst að kylfingar hafi þá farið úr því að geta slegið 90 metra yfir í 150-170 metra á þessum tíma og hafði það auðvitað áhrif á hönnun golfvalla. Þetta var rosalegt stökk. Auk þess var nóg til af þessum við og hickory-kylfurnar voru því ódýrari en það sem hafði verið í boði.“

Stálsköft ryðja sér til rúms Þegar leið á millistríðsárin fóru hickorysköftin að víkja fyrir stálsköftum.

„Aftur varð mikil breyting í kringum 1930 þegar stálsköftin komu. Ein breytingin var sú að viðurinn var misjafnlega sveigjanlegur en stálsköftin voru öll eins. Með þessu kom því meiri stöðugleiki fyrir góða kylfinga. Þegar viðurinn blotnaði breyttist hann sem

„Hausinn á drævernum var skorinn heill út og hélt sér vel. Stóru framfarirnar voru þær að hausinn á trékylfunni bólgnaði ekki í bleytu. Þessir dræverar voru eðlilega dýrari. Viðurinn var harðari og kylfingar fóru að slá lengra en með dræverunum sem fyrir voru. En endingin á kylfunni skipti samt meira máli,“ segir Þorsteinn og nefnir í leiðinni að um svipað leyti hafi verið farið að hugsa á annan hátt varðandi pútterana. „Á sjöunda áratugnum urðu einnig miklar breytingar þegar farið var að nota sérhæfðari púttera. Þá kom Karsten Solheim með sérstaka púttera og það vakti athygli. Solheim er þekktur sem stofnandi PING og Solheim-keppnin milli úrvalsliða kvenna í Evrópu og Bandaríkjunum er nefnd eftir honum.“

Pútterarnir voru ekki hannaðir sérstaklega á þessum tíma og voru ekkert ósvipaðir járnakylfum með litlum fláa eins og 3-járni.

„Pútterarnir voru lengi vel bara eins og aðrar járnakylfur. Þær kylfur eru hugsaðar til að gefa högg og því var erfitt að ná stöðugleika í púttum. Solheim og einnig Wilson fyrirtækið fóru að hanna púttera en Solheim breytti þyngdinni í pútterunum. Þeir voru léttir og hann prófaði að steypa þungan haus en hann reyndist of þungur. Þá boraði hann í púttershausinn og létti þá þannig. Síðar var sett þyngd í hæl og tá og það gaf meiri stöðugleika í púttstrokunni og auðveldara var að endurtaka hana. Var þetta á sjöunda áratugnum og þarna kom vísir að pútterum eins og við þekkjum þá í dag þar sem pútterinn er kylfa sem sker sig frá hinum. Ping kom með fyrsta pútterinn þar sem hálsinn var öðruvísi en á öðrum kylfum eins og algengast er í dag.“

Hausarnir stækka verulega Talið berst aftur að drævernum eða þeirri kylfu sem mörgum kylfingum finnst jú mest spennandi.

„Nokkuð var liðið á 20. öldina þegar dræverar með málmhausum komu á markað. Þá voru menn enn með stálsköft og ásamt málmhausnum urðu kylfurnar þyngri. Enn og aftur slógu menn lengra en áður vegna þess að hausinn gaf meira högg en viðarhausarnir. Alla tíð hafa menn reynt að selja kylfingum þá hugmynd að hægt sé að slá lengra því við neytendurnir viljum jú slá lengra og gera betur en áður.“

Þorsteinn segir að tilkoma Big Berthalínunnar frá Callaway hafi gert það að verkum að framleiðendur hafi farið að velta meira fyrir sér stórum kylfuhausum en áður.

„Líklega kom Taylor Made með málmhausa í kringum 1979 en árið 1991 varð hálfgerð bylting þegar Big Bertha kylfurnar frá Callaway komu á markað. Hausinn á drævernum var hannaður þannig að þyngdin var aftarlega og neðarlega en það hjálpaði til við að lyfta boltanum. Ég man til dæmis að ég átti

Big Bertha dræver sem var ekki nema 7 gráður en hann hjálpaði mér svo mikið að lyfta boltanum að ég gat notað hann sem brautartré. Að slá með 7 gráðum á braut hefði áður þótt óhugsandi. Á sama tíma voru grafítsköftin að koma en þau voru léttari en stálsköftin. Fyrstu árin voru

Tvær stærðir af boltum

Árið 1990 var ákveðið að samræma stærð golfboltans en þá hafði verið sitt hvor stærðin í Evrópu og Bandaríkjunum.

„Líklega hefur það farið framhjá mörgum að til voru tvær stærðir af golfboltum. Í Evrópu notuðum við bolta sem var 1,62 tommur en stærð boltans í Bandaríkjunum var 1,68 tommur. Þetta var ekki samræmt fyrr en árið 1990. Boltinn sem notaður var í Bandaríkjunum fór styttra því minni boltinn klauf loftið betur. En afburðakylfingar gátu stjórnað stærri boltanum betur. Úr varð að menn töldu að ákveða þyrfti hvaða stærð yrði notuð í alþjóðlegum mótum,“ segir Þorsteinn Hallgrímsson.

þau hins vegar óstöðug og áttu eftir að þróast meira. Callaway tókst að framleiða sköft með Big Bertha sem voru stöðugri og meðal annars þess vegna urðu þessar kylfur svo vinsælar. Kylfurnar eru þó auðvitað frægastar fyrir stærð hausanna. Þeir voru um 190 rúmsentimetrar [cc] en áður höfðu hausarnir á dræverum verið 110 cc. Þetta þóttu mjög stórir hausar en þykja litlir í dag. Þeir stækkuðu hausinn frekar þegar Great Big Bertha kom á markað 1994.“

Gripið í taumana Þorsteinn bendir á að í dag sé búið að ákveða hámarksstærð kylfuhausa á dræverum.

„Nú er búið að setja reglur um hvað dræverar mega vera stórir og þeir mega vera 460 cc. Það er reglan í dag. Eftir því sem hausinn er stærri stækkar höggflöturinn. Það er reyndar ekki alltaf jákvætt því eftir því sem dræverinn er stærri því meiri vind tekur hann á sig. Mótstaðan verður meiri. Callaway fylgdi þessu eftir með því að koma með brautartré sem voru nánast allsráðandi á tímabili en síðar fylgdu fleiri framleiðendur á eftir. Golfið snýst mikið um að slá langt en með þessari þróun fóru dræverarnir að fyrirgefa meira og kylfingarnir hittu fleiri þokkaleg högg með þessum stóru hausum. Á svipuðum tíma varð golf-sprenging í heiminum enda varð íþróttin aðgengilegri þegar fleiri náðu að hitta boltann sæmilega. Frá 1995 til cirka 2008 var mikil þróun í dræverunum. Sköftin breyttust og málmhausarnir voru úr titaníum. Árið 2006 sagði Royal & Ancient hingað og ekki lengra og frá árinu 2008 voru dræverar bannaðir ef svokallaður „smash factor“ var of hár. Til að taka dæmi er í lagi ef boltinn fer á 150 kílómetra hraða af kylfuhausnum og kylfingurinn sveiflar á 100 km hraða. Boltinn má sem sagt fara 1,5 sinnum hraðar af kylfuhausnum í hinni fullkomnu sveiflu til að kylfan sé í lagi. Ef ekki hefði verið gripið inn í gæti Rory McIlroy slegið 400 metra. Það væri ekki gott ef par 5 holur þyrftu að vera 900 metrar fyrir þessa bestu enda landrými takmarkað til að breyta völlum eða byggja nýja.“

Þorsteinn kemur inn á fleygjárnin því þar hefur orðið mikil breyting ef farið er einhverja áratugi aftur í tímann. Nú eru mörg fleygjárn í boði með mismunandi gráðum sem býður upp á meiri nákvæmni. Áður fyrr voru gjarnan tvö fleygjárn í pokanum og annað þeirra kallað sandjárn. „Með aukinni þróun í golfboltunum myndaðist mismunandi spuni á boltanum eftir tegundum. Roger Cleveland fór að hanna fleygjárn með mismunandi fláa og mismunandi bakka á kylfuhausnum. Það þýðir að kylfurnar bregðast mismunandi við þegar þær snerta jörðina í högginu sem skiptir máli eftir því hversu hart undirlagið er. Ef þú ert á hörðum golfvelli er betra vera með minni bakka því þá liggur fleygjárnið við grasið og kemst að boltanum. Ef þú ert að spila á mjúkum velli með litlum bakka grefur kylfan sig ofan í jörðina og því væri betra að vera með hærri bakka. Fleygjárnin urðu því

Kylfusmiðurinn Þorsteinn Hallgrímsson.

Bætt hreinlæti í nýjum heimi

Við störfum í sátt við umhverfið.

Viðnotumumhverfisvænar ogsjálfbærarlausnir,ognotumaðeins umhverfisvottaðarvörur við okkarræstingar.

Við störfum eftir gæða- og umhverfisstjórnarkerfi sem uppfyllir kröfur Svansins, Norræna umhverfismerkisins sem við höfum borið frá árinu 2010. Sem eitt reynslumesta fyrirtækið á sviði ræstinga á Íslandi sýnum við öðrum fyrirtækjum gott fordæmi í umhverfismálum.

Hafðu samband og fáðu ráðgjöf.

hreint.iss: 589 5000hreint@hreint.is

smám saman sérhæfðari,“ segir Þorsteinn og nefnir einnig að rákirnar hafi breyst á fleygjárnunum.

7-járn orðið eins og 6-járn Varðandi járnakylfurnar nefnir Þorsteinn sérstaklega að kylfuframleiðendur hafi í rauninni breytt fláanum á kylfunum. Þá hélt til dæmis kylfingurinn að hann væri að slá lengra með 7-járni en áður og var þá líklegur til að þakka nýjum kylfum bætinguna.

„Framleiðendur eru alltaf að selja metra og selja kylfingum að þeir geti slegið lengra. Eitt af því sem gerðist var að þeir tóku 7-járnið og minnkuðu fláann um tvær gráður og lengdu um kvarttommu þannig að 7-járn var eiginlega líkara því sem 6-járn var áður. Þarna á milli voru fjórar gráður. Eðlilega sló kylfingur þá lengra með 7-járni en áður. Svona virkar bransinn og nú er sandjárnið 50 gráður en var 55 gráður. Fleygjárn sem var 46 gráður er nú 42 gráður. Þegar ég lærði kylfusmíðina var barátta hjá kylfusmiðum að gráðurnar stæðu á kylfunum en ekki tölustafurinn vegna þess að tölustafurinn segir ekki neitt lengur. Kylfuframleiðendur tóku það ekki mál því þetta er svo mikið markaðsmál fyrir þá.“

Boltinn var ekki alltaf hvítur

„Þegar farið hefur verið yfir þróunina í kylfunum þá er golfboltinn eftir og hann hefur nú ekki lítið breyst í aldanna rás. „Fyrstu golfboltarnir voru harðir tréboltar og þar að auki slegnir með harðvið. Maður getur rétt ímyndað sér hvort það hafi ekki verið frekar óþægilegt. Er þetta samkvæmt þeim heimildum sem til eru á austurströnd Skotlands. Þegar leið að 16. öldinni datt einhverjum í hug að taka kúaskinn, fylla með fjöðrum og sauma fyrir. Fyrir vikið var boltinn ekki eins harður,“ segir Þorsteinn og þessi nálgun var allsráðandi í langan tíma.

„Í kringum 1830 áttu sér stað miklar breytingar. Þá datt ungum Skota í hug að nota gúmmí sem flutt var með skipum frá Asíu til Skotlands. Þetta gúmmí lak af trjám í Malasíu, eða eins konar gúmmívökvi, en gúmmí var stundum notað eins og frauðplast. Þetta kom í miklu magni og hann prófaði að hita gúmmíið. Þegar hann notaði þetta í bolta þá gaf boltinn vel eftir og það mætti kannski segja að þetta séu um leið fyrstu skopparaboltarnir. Kylfingar slógu lengra með þessum bolta og höfðu

kallaður Haskellboltinn. Hann vafði teygju utan um kjarnann í boltanum áður en hann setti plasthúð utan um. Þá kom fyrsti hvíti boltinn og allar götur síðan hafa golfboltarnir verið unnir út frá þessari grunnhugmynd Haskells,“ útskýrir Þorsteinn og til að setja hlutina í samhengi má nefna að The Open Championship hafði verið haldið í fjóra áratugi áður en hvíti boltinn kom til sögunnar.

„Árið 1908 var í fyrsta skipt prófað að setja „dimples“ eða dældir í boltann. Á þessum tíma voru ekki rákir í kylfunum og boltinn flaug bara einhvern veginn fram að þessu. Menn þróuðu þetta smám saman og töldu best að hafa í kringum 450 dældir í hverjum bolta en í dag eru þær yfirleitt 320-350. Er það misjafnt eftir framleiðendum.“

Hugsunarhátturinn breyttist

Við förum hraðar yfir sögu varðandi golfboltann en kylfurnar. „Spaldingfyrirtækið keypti einkaleyfið af Haskell um tveimur áratugum síðar og hóf fjöldaframleiðslu. Var það fyrsta fjöldaframleiðslan á golfboltum en þegar einkaleyfið rann út á einhverjum tímapunkti fóru fleiri fyrirtæki að fjöldaframleiða bolta sem þessa. Næsta umtalsverða breyting átti sér stað árið 1972 þegar fyrsti boltinn kom á markað sem var tveggja laga. Keppnisboltar í dag eru fimm laga en þarna urðu boltarnir tveggja laga. Á bak við þetta eru ýmsar tæknilegar pælingar eins og varðandi snúning og fleira.“

Eins og Þorsteinn hefur áður nefnt hefur ávallt verið lögð áhersla á að finna leiðir til

að hjálpa kylfingum að slá lengra. „Eftir 1972 voru framleiðendur farnir að huga mjög að því að boltinn gæti hjálpað kylfingum að slá lengra ekki síður en kylfurnar. En rétt er þó að skjóta því inn í að seint á níunda áratugnum fóru menn einnig að velta fyrir sér hvernig hafa mætti betri stjórn á því hvernig boltinn lendir á flötunum og þá varð Balata-boltinn til sem margir muna sjálfsagt eftir. Hann var meðal annars gerður úr efni sem varð til þess að rákirnar í járnakylfunum rifu betur í og úr varð baksnúningur í boltafluginu. Menn slógu þá örlítið styttra en fengu meiri

Eftir aldamótin 2000 fleytti tækninni enn frekar fram og miklum tíma var eytt í hönnun og markaðssetningu á golfboltanum. Hefur það auðvitað haldist í hendur við miklar vinsældir íþróttarinnar sem tóku mikinn kipp víða um heim eftir að Tiger Woods kom fram á sjónarsviðið. „Stærsta breytingin eftir þetta má segja að hafi verið þegar framleiðendum tókst að finna lausn á þessu vandamáli sem þeir glímdu iðulega við; að bolti sem þeir bestu höfðu góða stjórn á flaug ekki eins langt og boltarnir sem voru harðari. Þá komu boltar á markað sem eru mjúkir en geta einnig flogið langt. Slíka bolta má finna hjá Titleist, Callaway, Taylor Made og fleiri framleiðendum í dag,“ segir Þorsteinn og gaukar að okkur enn einum fróðleiksmolanum sem hinn almenni áhugamaður þekkir ekki.

„Ef við tökum ProV1 boltann frá Titleist sem dæmi hafa kylfingar á PGAmótaröðinni úr tuttugu mismunandi útgáfum af ProV1 að velja. Þeir hafa aðgang að boltum sem eru eldri útgáfur af ProV1 en eru ekki lengur til sögu á almennum markaði. Kannski líkar einhverri stórstjörnunni alltaf best við ProV1-bolta sem framleiddur var árið 2018 og velur að nota hann í keppni. Ef seldar væru tuttugu týpur af ProV1 úti í búð væri það náttúrlega bara til að æra óstöðugan,“ segir Þorsteinn og hlær. Hann bætir því við að sérhæfingin sé svo mikil hjá bestu kylfingum heims að sá heimur sé allt annar en hjá hinum almenna kylfingi. Þeir bestu fari til dæmis í sérstaka mælingu til að finna út hvaða bolti henti þeim best ef þeir hafa skipt um kylfur. Þar af leiðandi hangi þetta svolítið saman í þeirra heimi, kylfur og bolti.

Ragnhildur og Logi Bergmann voru saman í liði.

Golfhringur sem á sér vart hliðstæðu

Fyrir átján árum tóku fjórir kylfingar sig til og söfnuðu fé fyrir MND-samtökin á Íslandi en gerðu það með afar óvenjulegum og áhugaverðum hætti. Verkefnið fékk heitið Umhverfis Ísland á 80 höggum.

Ís inni einföldustu mynd má segja að afrekskylfingarnir Ragnhildur Sigurðardóttir og Þorsteinn

Hallgrímsson, Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður og Eyjólfur Kristjánsson tónlistarmaður hafi leikið saman 18 holu golfhring. Þessi golfhringur var hins vegar ekkert venjulegur golfhringur. Ef til vill er hann einstakur á heimsvísu.

Þau léku 18 holur á 18 mismunandi golfvöllum hringinn í kringum Ísland. Ekki var nóg með það, heldur þurftu þau

að ljúka hringnum á einum sólarhring. Tökumaður frá Stöð 2 var með í för og var sýnt frá golfhringnum á Stöð 2 sumarið 2008.

Viðskiptablaðinu þótti skemmtilegt að rifja upp þetta óvenjulega uppátæki og fékk Ragnhildi til að taka út úr minningabankanum. Hana þarf ekki að kynna fyrir kylfingum, enda margfaldur Íslandsmeistari, golfkennari og fararstjóri svo eitthvað sé nefnt.

„Hugmyndin kviknaði hjá manni sem tengist Loga Bergmanni og Logi greip þetta á lofti því honum fannst hugmyndin

frábær. Logi hafði samband við okkur þrjú og við sögðum auðvitað öll já um leið. Hugmyndin var svo skemmtileg og þar að auki gert til styrktar MND- samtökunum,“ segir Ragnhildur en henni þykir einna eftirminnilegast með hversu fjölbreyttum hætti þeim var komið á milli staða.

„Við fórum um landið með alls kyns farartækjum og þetta var svo mikið ævintýri. Ég hafði til dæmis aldrei farið upp í þyrlu á ævinni. Þetta var stórkostleg upplifun,“ segir Ragnhildur, en ferðin hófst í beinni útsendingu á Stöð 2.

Í beinni útsendingu

„Innslag var gert í kvöldfréttum Stöðvar 2 þegar við fórum af stað miðvikudagskvöldið 2. júlí og ákveðið var að við myndum ljúka leik áður en kvöldfréttatíminn færi í loftið kvöldið

eftir. Þá áttum við sem sagt aftur að vera tilbúin í beina útsendingu og þá í Grafarholtinu. Það náðist en það mátti kannski ekki miklu muna. Við hlupum restina á 15. brautinni,“ segir Ragnhildur, en fyrsta holan í golfhringnum óvenjulega var leikin í Borgarnesi.

„Við byrjuðum í Borgarnesi. Keyrðum þangað og lékum eyjaholuna, sem er 8. holan. Við keyrðum yfir á Akranes og þar hittum við Guðjón Sigurðsson, formann MND-samtakanna. Við lékum 6. brautina á Skaganum og mig grunar að hún hafi verið valin vegna þess að þar fór ég eitt sinn holu í höggi og fékk albatross. Frá Akranesi fórum við með hraðbáti frá Rib Safarí og veðrið var stórkostlegt. Hlýtt í lofti og logn. Fuglarnir flugu í kringum okkur og hvalir létu sjá sig á leiðinni. Við fórum í land við golfvöllinn á Seltjarnarnesi og klöngruðust upp úr fjörunni til að komast þangað. Þar spiluðum við 8. brautina,“ útskýrir Ragnhildur og þá tók við allt annar fararskjóti.

„Þá vorum við sótt á skellinöðrum en mig minnir að Gunnar Hansson leikari [og mikill golfáhugamaður] hafi þekkt einhvern sem var með skellinöðruleigu. Þá var ekkert annað í stöðunni en að setja á sig hjálm og láta skutla sér á skellinöðru. Við vorum keyrð frá Nesinu og út á Reykjavíkurflugvöll.“

Flogið vestur á firði Eftir að hafa leikið á Nesvellinum var kominn tími til að fara í loftið. „Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson tók á móti okkur á Reykjavíkurflugvelli. Hann skaffaði flugvél og var með okkur í fluginu. Flogið var með okkur á Þingeyri og þar spiluðum við Stífluna eða 7. holuna. Þaðan fórum við yfir á Ísafjörð og lékum 9. brautina,“ segir Ragnhildur, en flugmennirnir biðu ávallt þolinmóðir meðan hópurinn lék eina holu á hverjum stað.

„Frá Ísafirði var flogið norður og við lékum 9. brautina á Sauðárkróki. Það gat sparað tíma að spila brautir sem lágu upp að golfskálunum á hverjum stað. Við gerðum það einnig á Akureyri, enda er skemmtilegt að fylgjast með fólki slá á 18. holunni á Jaðarsvelli frá pallinum við golfskálann. Við héldum þá yfir á Dalvík og spiluðum 9. Brautina, sem er par 5. Fyrir norðan spiluðum við einnig á Húsavík og lékum þar 4. Holuna, sem er einnig par 5 og er kölluð Rennan.“

Það var alls staðar tekið á móti okkur. Það var alveg sama þótt það væri um hánótt. Alls staðar var tekið mjög vel á móti okkur og formenn golfklúbbanna voru iðulega mættir.

Humarpizza á Hornafirði

Þegar hér er komið sögu er komið fram á morgun og flogið var þá frá Húsavík yfir í Neskaupstað.

„Þar spiluðum við 8. brautina og á Ekkjufellsvelli á Egilsstöðum spiluðum við 8. brautina. Þar eru klettar sem hægt er að slá yfir ef kylfingar vilja reyna við flötina í upphafshögginu. Frá Egilsstöðum var flogið á Höfn í Hornafirði. Þar spiluðum við fræga holu þar sem maður sér jökulinn í baksýn. Það var 3. brautin á vellinum. Ég man að á Hornafirði var kominn tími til að fá sér eitthvað að borða og við fengum humarpizzu. Það er ein besta pizza sem ég hef smakkað.“

Næst var farið á hinn stórbrotna golfvöll í Vestmannaeyjum og þar varð 8. brautin fyrir valinu. „Við fengum fylgd í Vestmannaeyjum því allir krakkarnir og

unglingarnir sem voru á golfnámskeiði hjá Karli Haraldssyni í Eyjum gengu með okkur. Það var dásamlegt. Því næst flugum við frá Eyjum til Keflavíkur. Við lentum sem sagt í Keflavík en spiluðum næst í Sandgerði áður en við fórum í Leiruna. Þar er stutt að keyra á milli. Þar spiluðum við Bergvíkina að sjálfsögðu.“

Upplifun að ferðast í þyrlu Veðrið hafði breyst á fimmtudeginum frá því sem var þegar hópurinn hóf hringferðina kvöldið áður. Nú var að sögn Ragnhildar orðið nokkuð hvasst.

„Þyrla frá Norðurflugi kom og sótti okkur til Keflavíkur. Mér fannst það vera svo brjálæðisleg upplifun að fara með þyrlunni að ég er enn að hugsa um það. Það var mögnuð upplifun. Þyrlan flaug með okkur á Voga og við spiluðum á Kálfatjarnarvelli á Vatnsleysuströnd. Þaðan var stutt að fara yfir á Hvaleyrina og við spiluðum 2. brautina hjá Keili. Við fórum einnig 7. brautina í Oddinum í Garðabæ áður en þyrlan fór með okkur í Grafarholtið. Þar lauk þessum hring á 15. holunni í Grafarholti og var tekið á móti okkur á 15. flötinni. Þar var Guðjón formaður MND-samtakanna aftur mættur til að fagna okkur. Þá var auðvitað fullur völlur af kylfingum enda vorum við á ferðinni í kvöldmatnum um hásumar.“ Myndatökumaðurinn Friðrik Þór Halldórsson tók golfhringinn upp, en hann hefur heldur betur gert það

Ragnhildur, Logi Bergmann og Þorsteinn í tökum í hringerðinni.

gott á ferli sínum. Friðrik er orðinn eftirsóttur myndatökumaður á erlendum vettvangi og hefur síðustu árin unnið við sjónvarpsútsendingar á mörgum stærstu golfmótum heimsins.

Friðrik tjáði greinarhöfundi í óformlegu spjalli að hann hefði af og til sagt erlendum kollegum sínum frá þessum ævintýralega golfhring, þar sem farið var hringinn í kringum landið til að spila 18 holur á sólarhring, og að hann hafi tekið upp fyrir sjónvarpsþátt. Friðrik segir að útlendingarnir eigi vart orð yfir því að þetta skuli hafa verið framkvæmanlegt.

Fjörugt í fluginu

Ragnhildi leiðist ekki að rifja upp hringferðina og þessi upplifun mun seint líða henni úr minni.

„Ferðalagið var bara hlátrasköll frá upphafi til enda. Þetta eru svo miklir sprelligosar sem ég var að þvælast með. Ekki bara Logi, Steini og Eyvi heldur einnig Frikki myndatökumaður. Þegar við vorum í háloftunum stundaði Eyvi að gefa skýjunum nöfn. Það var viskí, Spasskí, Monica Lewinsky og allt eftir þessu. En þeir voru svo fyndnir þessir strákar að maður fann ekki fyrir þreytu eða syfju,“ rifjar Ragnhildur upp, en þrátt fyrir milt sumarveður aðfaranótt fimmtudagsins var flugferðin þó ekki eintóm hlátursköst.

„Þegar við flugum inn til Akureyrar

lenti flugvélin í einhverjum veðuraðstæðum sem urðu til þess að vélin pompaði niður í smástund. Það voru töluverð læti en flugmaðurinn opnaði inn til okkar og róaði okkur. Reyndar hefði þetta getað orðið meira mál því hann rakst utan í og meiddi sig eitthvað. En það slapp til. Þótt við munum eftir þessu atviki í flugvélinni breytir það engu í stóra samhenginu því þessi golfhringur er með því skemmtilegasta sem ég hef gert.“ Á þessum einstaka 18 holu golfhring fór fram liðakeppni þótt aðalatriðið væri að safna fé fyrir MND-samtökin sem raunar heppnaðist prýðilega. Ragnhildur þurfti að vera með Loga Bergmanni í liði og Þorsteinn þurfti að vera með Eyjólfi í liði. Hér er þetta orðalag notað til að stríða þeim Loga og Eyjólfi aðeins en einnig til að undirstrika að getumunurinn á almennum kylfingum og fólki sem orðið hefur Íslandsmeistarar, eins og Ragnhildur og Þorsteinn, er býsna mikill. Svo fór að Þorsteinn og Eyjólfur höfðu betur í keppninni. Logi og Þorsteinn lögðu undir en þó ekki fjármuni, heldur þurfti sá sem tapaði að láta krúnuraka sig. Þorsteinn var ekki lengi að innheimta skuldina og var Logi settur í stól á Grafarholtsvelli þar sem hárið fauk af að mestu. Rétt er þó að taka fram að sjónvarpsmaðurinn var í höndum fagmanneskju og Þorsteinn hafði ekki sjálfur hendur í hári Loga. Þetta atriði

gefur góða mynd af því hversu létt var yfir mannskapnum.

„Við þekktumst öll nokkuð vel og þess vegna var þetta aldrei vandræðalegt á nokkurn hátt. Frikki þekkti okkur einnig vel og við hann. Þetta gekk því mjög vel. Það var enginn tími til að vera með margar tökur og þetta flæddi því bara,“ segir Ragnhildur.

Frábærar móttökur Ferðin hófst í kvöldmatnum miðvikudagskvöldið 2. júlí eins og áður segir. Hópurinn var sitt hvoru megin við miðnætti á norðanverðum Vestfjörðum og um hánótt á Norðurlandi. Leikið var á fimmtudagsmorgninum á Austurlandi og undir hádegi á Hornafirði. Síðdegis var hópurinn á Suðurnesjum og um klukkan 18 í Oddinum.

Ragnhildur leggur á það áherslu að hvar sem komið var hafi heimamenn tekið afar vel á móti hópnum. „Það var alls staðar tekið á móti okkur. Það var alveg sama þótt það væri um hánótt. Alls staðar var tekið mjög vel á móti okkur og formenn golfklúbbanna voru iðulega mættir. Þar sem við erum að tala um hringferðina tek ég líka ofan fyrir öllum sem halda utan um golfvellina úti um allt land. Oft eru þetta fáir einstaklingar sem ná þó að halda völlunum góðum og halda úti góðu starfi á litla kalda landinu okkar,“ segir Ragnhildur Sigurðardóttir.

Þyrlan býr sig undir lendingu á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi.

Viljum bjóða upp á nýjan vinkil í golfferðum

Evrópuferðir býður upp á sérhæfðar golfferðir með áherslu á gæði, góð verð og sveigjanleika. Stofnandi og eigandi ferðaskrifstofunnar er Þráinn Vigfússon en hann hefur yfir 30 ára reynslu í ferðaþjónustu og hefur áður gegnt stjórnendastöðum hjá m.a. Kynnisferðum, Iceland Travel, Vita og Icelandair.

„Við byggjum á mikilli reynslu og viljum að viðskiptavinir finni fyrir öryggi,“ segir Þráinn. „Þetta snýst mikið um traust og fagmennsku.“

Fyrirtækið hefur sérhæft sig í golfferðum til Suður-Evrópu og vinnur allar ferðir í samstarfi við Icelandair. Meðal vinsælustu áfangastaða eru Kanaríeyjar, þar á meðal Gran Canaria og Tenerife, auk svæða á borð við Costa del Sol, Algarve, Lissabon og Alicante.

Þráinn segir að á Tenerife sé Las Madrigueras-hótelið sérstaklega vinsælt sem staðsett er við hinn glæsilega golfvöll Las Americas. Á Gran Canaria bjóða Evrópuferðir upp á dvöl á fimm hótelum Lopesansamstæðunnar, með aðgang að þremur framúrskarandi golfvöllum: Anfi Tauro Golf, Meloneras Golf og Maspalomas Golf. „Þar fær fólk í raun það besta úr tveimur heimum, spilar á frábærum völlum en dvelur jafnframt við ströndina með fjölbreytt úrval veitingastaða og afþreyingar.“

Þráinn Vigfússon, stofnandi og eigandi ferðaskrifstofunnar Evrópuferðir.

Sveigjanlegir pakkar án fararstjóra Ferðirnar eru skipulagðar án fararstjóra, sem gerir Evrópuferðum kleift að halda kostnaði niðri. Allir rástímar eru bókaðir fyrir fram og viðskiptavinir velja sjálfir fjölda hringja. Algengast er að fólk fari í eina til tvær vikur og spili fimm hringi á viku, en margir kjósa lengri dvöl.

Las Madrigueras-hótelið á Tenerife er sérstaklega vinsælt.

„Við aðlögum pakkana að þörfum hvers og eins. Þetta hentar jafnt einstaklingum og hópum, allt frá fjórum upp í fjörutíu manns. Mjög algengt eru 8–12 manna golfhópar sem fara árlega saman,” segir Þráinn.

Nýjung hjá fyrirtækinu eru lengri golfferðir og hafa þær verið að koma sterkt inn. „Þá getur fólk verið í fjórar vikur og fengið fasta tuttugu rástíma sem við bókum fyrir fram, ásamt golfbíl. Við mælum með að fólk taki bílaleigubíl, þannig að það geti nýtt sér aðstöðuna bæði í klúbbhúsinu og á hótelinu sem er á svæðinu. Gistingin er með fullbúnu eldhúsi og svölum eða verönd,” segir Þráinn og bætir við að þá geti fólk nýtt bílaleigubílinn til að fara í búð og skoða nærliggjandi svæði, allt niður til Gíbraltar og upp til Malaga.

„Þetta er eins og að fá nasaþefinn af því að eiga sjálfur íbúð á golfstað. Fólk hefur þá tíma til að njóta svæðisins.”

Á Costa del Sol hefur La Cala-svæðið reynst sérstaklega vinsælt í þessum ferðum og einnig eru í boði valkostir í Portúgal og á Alicante-svæðinu, meðal annars á hinum þekkta Las Colinas Golf & Country Club.

Vaxandi áhugi á vetrargolfi

Að sögn Þráins hefur áhugi á vetrargolfi aukist verulega síðustu ár. „Margir kjósa að fara til Kanaríeyja yfir vetrarmánuðina og dvelja jafnvel í þrjár vikur, spila annan hvern dag og njóta góðs veðurs og fimm stjörnu hótela.”

Evrópuferðir leggja áherslu á að vera samkeppnishæft í verði og bera sig saman við stóra erlenda aðila á borð við Golfbreaks. Með lítilli yfirbyggingu og tæknivæddum lausnum tekst að halda verði hagstæðu án þess að fórna gæðum.

Þráinn bindur vonir við að Golfsýningin styrki tengsl við núverandi og verðandi viðskiptavini. „Markmiðið er að kynna okkur og sýna andlitin á bak við vörumerkið. Tímasetningin er góð, rétt áður en golftímabilið hefst á Íslandi. Við finnum fyrir miklum áhuga og viðtökurnar hafa verið afar góðar,” segir hann að lokum.

Aukinn styrkur og jafnvægi

Ég var í fínu formi með 3 í forgjöf í golfinu og bjóst því ekki við miklum breytingum á mér við ástundun hjá OsteoStrong. Ég starfaði hjá

OsteoStrong sem styrktarþjálfari um tíma og vandaði mig að gera æfingar vikulega eins og mælt er með. Það kom mér því skemmtilega á óvart þegar ég fór að slá í úr fötu að ég fann ekkert fyrir bakinu þrátt fyrir að vera stöðugt að slá í þrjá tíma.

Nú er ég golfkennari og styrktarþjálfari í Danmörku hjá Den Danske Golf Akademi.“

Baldvin Mattes, íþróttafræðingur

OsteoStrong er nýstárleg aðferð til þess að auka styrk, minnka verki og bæta jafnvægi. Með því að gera æfingar einu sinni í viku sem taka innan við 10 mínútur, geta notendur aukið styrk sinn um 73% á einu ári. Aðeins er tekið einu sinni á í fjórum tækjum. Fólk mætir í venjulegum fötum og svitnar ekki. Vöðvarnir eru langir og léttir. Innri vöðvar örvast sérstaklega vel.

Golf og OsteoStrong

Niðurstöður könnunar sem gerð var á reyndum iðkendum í golfi leiddu í ljós verulega bætingu í golfi með ástundun OsteoStrong eftir aðeins mánaðar ástundun. Í henni tóku þátt sex atvinnumenn í golfi og sex áhugamenn. Gerðar voru mælingar fyrir og eftir OsteoStrong æfingarnar og ljós kom að meðaltals bæting á snúningsgetu axla var um 13 gráður, hröðun kylfuhauss um 8,05 km á klukkustund og hraði golfbolta jókst um 14,5 km á klst. Allir bættu hjá sér jafnvægið en í upphafi hafði stór hluti golfara endað sveifluna á aftari fæti en í lok athugunarinnar enduðu allir með þungann á fremri fæti eins og eftirsóknarvert er.

Jafnvægið er eitt af því fyrsta sem meðlimir taka eftir að aukist. Meðal bæting er 77% á fimm skiptum. Jafnvægi er lykilatriði fyrir þá sem vilja ná árangri í golfi.

Svíinn Sophia Gustafson, sem er fimmfaldur meistari á LPGA-mótaröðinni, þeirri sterkustu í heimi, lífstíðarmeðlimur á Evrópumótaröðinni, þeirri

sterkustu í Evrópu, og vann 23 alþjóðlega titla á sínum keppnisferli, var svo ánægð með OsteoStrong að hún gerðist einn af eigendum OsteoStrong í Svíþjóð og Danmörku.

Eftir aðeins mánuð í ástundun höfðu þátttakendur fundið fyrir að:

• Hreyfanleiki í öxl jókst um 13 gráður

• Hraði kylfuhauss jókst um að meðaltali 8 km/klst

• Hraði golfkúlunnar jókst að meðaltali um 14,5 km/ klst

• Jafnvægi í sveifluferli: Í upphafði hafði stór hluti golfara endað sveifluna á aftari fæti en í lok athugunarinnar enduðu allir með þungann á fremri fæti.

„Ég hef alltaf verið dugleg að hreyfa mig og eftir að ég hætti að vinna hef ég haldið því áfram til dæmis með Zumba. Eftir að stunda OsteoStrong finnst mér ég enn sterkari og kraftmeiri og mér líður á allan hátt mun betur. Ég hef tekið eftir því að jafnvægið hefur bæst. Ég fékk helstu staðfestinguna á golfvellinum, því fljótlega eftir að ég fór að finna fyrir auknum krafti lækkaði ég forgjöfina um tvo!” Jóhanna Elínborg Sveinsdóttir

Virkni OsteoStrong

OsteoStrong býður upp á æfingar í mjög sérhæfðum æfingatækjum sem taka aðeins 10 mínútur, einu sinni í viku en í heild tekur heimsóknin rúmar 20 mínútur. Með þessum tækjum fær fólk tækifæri til þess að setja meira álag á líkamann heldur en það nær að gera við aðrar aðstæður. Þannig fá beinin meira áreiti og styrkjast en á sama tíma eykst styrkur að meðaltali um 73% á ári, jafnvægi eykst um 77% eftir fimm skipti og mjög margir minnka eða losna við verki í stoðkerfi.

Frír prufutími

OsteoStrong býður upp á frían prufutíma þar sem fólk getur kynnst æfingunum og prófað tækin. Prufutímar eru í Hátúni 12, Reykjavík og í Ögurhvarfi 2, Kópavogi. Bóka má tíma á OsteoStrong.is og í síma 419 9200.

Rafbíladrægnin kemur þér á hvaða golfvöll sem er á landinu

Brimborg verður með rúmlega 200 fermetra bás á Golf EXPO 2026

sýningunni og þar verða til sýnis sex rafbílar. „Við höfum ákveðið að vera með sex bíla, einn frá hverju merki, og þeir eru allir rafbílar,“ segir Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar. Bílarnir eru Volvo EX90, Mazda 6e, Opel Grandland, Ford Puma, Peugeot E-5008 og Polestar 4.

„Þetta eru mismunandi stærðir af bílum og endurspegla ágætlega rafbílaúrvalið hjá okkur,“ segir Egill. „Við erum auðvitað með miklu fleiri gerðir, í raun hundruð útfærslna, en þessir sex gefa góða mynd af breiddinni, allt frá nettum og liprum bíl upp í stóran og rúmgóðan fjölskyldubíl.“

Aðspurður hvers vegna golfið varð fyrir valinu segir hann tenginguna augljósa. „Það eru mjög margir golfáhugamenn hjá Brimborg og golfíþróttin er orðin ein sú vinsælasta á landinu. Við sáum því ákveðið tækifæri til að ná sambandi við fólk á þessum vettvangi, bæði fjölskyldur og starfsmenn fyrirtækja.“

Egill segir áhersluna vera á hagnýta þætti sem skipta golfara máli. „Við erum að tengja þetta við rými og möguleika. Skottpláss og nýting skipta kylfinga miklu máli. Þú þarft að koma fyrir golfsettum og jafnvel kerru. Til dæmis er Ford Puma minnsti bíllinn á básnum, en samt er hægt að koma tveimur golfsettum fyrir í skottinu. Það segir sitt.“

Egill bendir einnig á að rafbílarnir séu vel í stakk búnir fyrir íslenskar aðstæður. „Það góða við rafbílana frá okkur er að þeir eru allir með ágætis dráttargetu. Það er ekkert mál að setja krók á þá og draga kerru, til dæmis með golfbíl. Og drægnin er orðin það góð að þú kemst á hvaða golfvöll sem er á landinu.“

Innviðirnir verða að vera í lagi

Rafbílavæðingin kallar þó á öfluga innviði og það verður einnig í forgrunni á sýningunni. „Ef við erum að kynna rafbíla þá þurfa innviðirnir að vera í lagi,“ segir hann. „Við bjóðum hleðslulausnir fyrir heimili, fyrirtæki og stærri flota.“

Dótturfyrirtækið Bílorka verður á staðnum og kynnir þjónustu sína.

„Bílorka býður heimahleðslustöðvar og getur séð um uppsetningu þeirra, boðið hraðhleðslustöðvar fyrir fyrirtæki og jafnvel tekið að sér að eiga og reka stöðvarnar.

Golfklúbbur þarf í raun bara að útvega staðsetningu eða vegg og við sjáum um hitt. Þetta er þjónusta sem gæti nýst mörgum klúbbum sem vilja bæta aðstöðuna fyrir félagsmenn,“ segir Egill.

Á básnum verður líka kynning á dekkjum sem henta sérstaklega rafbílum í samstarfi við MAX1. „Við verðum með Nokian-dekk sem eru hönnuð með minna viðnámi. Það minnkar orkunotkun og eykur drægni, sem skiptir miklu máli í rafbíl,“ segir Egill.

En það eru ekki bara bílar og búnaður sem draga að sér athygli. „Við verðum auðvitað með okkar starfsfólk sem þekkir bílana vel, en hjá okkur verður líka Sigurjón Árni Ólafsson, starfsmaður Brimborgar til áratuga, á básnum,“ segir Egill. „Hann er mikill golfari og

frábær kennari. Fólk getur spjallað við hann um bæði bíla og golf, og jafnvel fengið smá púttkennslu.“

Sigurjón hefur á undanförnum árum einnig tekið að sér fararstjórn og golfkennslu erlendis. „Hann býr yfir mikilli reynslu og það verður mikill fengur að hafa hann með okkur. Sýningar snúast ekki síður um að ná tengslum og eiga gott samtal við fólk.“

Brimborg býður bæði upp á hefðbundin kaup og langtímaleigu á rafbílum. „Við getum tekið gamla bílinn upp í, jafnvel þótt viðskiptavinur fari í langtímaleigu. Þá fær hann greitt fyrir gamla bílinn og borgar svo mánaðarlegt leiguverð. Þetta eru sveigjanlegar lausnir sem henta mörgum,“ segir Egill að lokum.

Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar.
Volvo EX90 frá Brimborg.
Peugeot E-5008.

Umvefjum þig þar til þú ert kominn heim aftur

Við viljum að fólk mæti einfaldlega í Keflavík, slökkvi á hausnum og njóti, svo sjáum við um rest,“ segir Rögnvaldur Magnússon, PGA-menntaður golfkennari og umsjónarmaður golfferða Golfskálans. Rögnvaldur hefur starfað við golfkennslu frá árinu 2012 og verið fararstjóri í nær áratug. Hann þekkir bæði leikinn og upplifunina sem þarf til að gera góða golfferð frábæra.

Aðaláfangastaður Golfskálans undanfarin ár hefur verið Almerimar á Spáni. „Þetta er okkar stærsti og vinsælasti staður. Endurkomuhlutfallið er hátt og fólki líður einfaldlega mjög vel þar,“ segir Rögnvaldur. Flogið er beint frá Keflavík til Almería og þaðan er haldið á fjóra mismunandi staði á svæðinu: Almerimar, Los Moriscos, La Envía og Alborán. Á hverjum stað er boðið upp á vandaða aðstöðu, hótel við golfvelli, íslenska fararstjórn og skipulagða dagskrá.

Golfskólinn sjálfur hefur jafnan verið haldinn á Alborán að vori, en vegna mikillar eftirspurnar var bætt við námskeiðum á Almerimar. „Golfskólinn fyllist nánast um leið og hann fer í sölu,“ segir Rögnvaldur. „Það er eins og annar hver Íslendingur sé annaðhvort byrjaður í golfi eða að hugsa um það.“ Hann leggur áherslu á að námskeiðin séu ekki eingöngu fyrir byrjendur. „Þetta er fyrir öll getustig. Fólk kemur til að bæta sig, fá faglega leiðsögn og njóta þess að vera í góðum

félagsskap.“

Allir kennarar

Golfskólans eru íslenskir og með alþjóðleg PGAréttindi. „Við leggjum metnað í að vera með fagfólk,“ segir Rögnvaldur sem mun sjálfur kenna í vor ásamt tveimur öðrum reyndum kennurum. Fararstjórar á hverjum stað eru jafnframt þaulreyndir og þekkja svæðin vel.

Heildstæð upplifun

Ferðirnar eru settar upp sem heildstæðir pakkar þar sem allt er innifalið: flug, akstur til og frá flugvelli, hótelgisting, fyrirfram bókaðir rástímar og íslensk fararstjórn. Á flestum stöðum er morgun- og kvöldverður innifalinn. „Hugmyndin er sú að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur af neinu. Þú mætir með golfsettið og við umvefjum þig þar til þú ert kominn heim aftur,“ segir Rögnvaldur. Fyrir þá sem ekki vilja ferðast með eigið sett er hægt að leigja búnað á staðnum.

Ferðirnar eru mismunandi langar, allt frá einni viku upp í ellefu eða tólf nætur. Dagskipulagið mótast oft af golfi á morgnana þegar hitinn er þægilegastur. „Fólk vaknar

snemma, fær sér morgunmat og fer út á völl. Þegar golfið klárast um hádegisbil tekur við afslöppun, við sundlaugina, á ströndinni eða á veitingastöðum í nágrenninu,“ segir Rögnvaldur. Á þremur af fjórum stöðum á Almería-svæðinu er stutt í strönd og víða í göngufæri.

Auk Almería býður Golfskálinn upp á ferðir á Alicante-svæðið, meðal annars til Villaitana og La Finca. „Villaitana er að okkar mati einn glæsilegasti kosturinn á Alicante-svæðinu,“ segir Rögnvaldur og nefnir fjölbreytta vallaraðstöðu og hótel sem henti bæði kylfingum og þeim sem vilja einfaldlega njóta sólar og slökunar. La Finca kallar hann „goðsögn“ í golfheiminum. „Þetta er völlur sem margir hafa heyrt um lengi áður en þeir spila hann, og hann stendur undir væntingum.“

Þrátt fyrir að margir spyrji um forgjafarmörk á spænskum völlum segir Rögnvaldur stemninguna almennt afslappaða. „Það sem skiptir máli er leikhraðinn. Hvort þú ert með lága eða háa forgjöf skiptir minna máli en að halda flæði á vellinum.“

Aðsókn í ferðirnar hefur verið góð og eftirspurn sérstaklega mikil í golfskólana. Rögnvaldur segir þó alltaf reynt að finna lausnir ef fólk hefur áhuga. „Við viljum vera sveigjanleg og þjónustulunduð. Markmiðið er einfalt, að bjóða upp á fagmennsku, góða skipulagningu og upplifun sem fólk vill endurtaka,“ segir hann að lokum.

Aðaláfangastaður Golfskálans undanfarin ár hefur verið Almerimar á Spáni.
Rögnvaldur Magnússon,

Garmin býður upp á alhliða golftækni fyrir alla kylfinga

Garmin býður í dag upp á afar fjölbreytt úrval af golfvörum og hefur þróunin á síðustu árum verið gríðarleg að sögn Steinars Magnússonar, sölumanns hjá Garminbúðinni. Lausnirnar ná frá einföldum GPS-úrum yfir í fullbúna herma og æfingakerfi, allt eftir því hversu djúpt kylfingar vilja fara í greiningu og tölfræði.

Steinar segir að á heimsvísu séu yfir 43.000 golfvellir í gagnagrunni Garmin og á Íslandi eru um 95% valla skráðir í kerfið, þar á meðal allir vellir innan GSÍ.

„Í grunninn snýst þetta um að geta nálgast upplýsingar um vegalengdir og aðstæður á vellinum á þann hátt sem hentar hverjum og einum. Garmin er með golfúr, golfkíki og sérstakt GPS-tæki sem hægt er að festa á kerru eða poka,” segir Steinar.

„Golfúrin eru hefðbundnasta lausnin og fyrir marga sú þægilegasta. Úrið er alltaf á úlnliðnum og veitir GPS-upplýsingar um völlinn; vegalengd á flötina, glompur og aðrar hindranir. Í fullkomnari gerðum birtist kort af brautinni þar sem sjá má legu hennar og uppbyggingu.”

Garmin Approach S70.

„Sérstaklega má nefna toppgerðina, Garmin Approach S70, sem sýnir vel þá þróun sem átt hefur sér stað. Fyrri kynslóðir buðu upp á einfaldari kort og grunnupplýsingar en nýjustu gerðir eru með mun bjartari og skarpari skjá, betri rafhlöðuendingu og samþættum snjall- og heilsueiginleikum. Úrin mæla þannig ekki aðeins vegalengdir heldur einnig göngu, púls og brennslu,” segir Steinar.

Steinar bendir á að flest úr frá Garmin bjóði upp á einhvers konar golfvirkni, þó mismikla eftir gerðum. „Það fer því eftir þörfum hvers og eins hversu ítarlega golflausn menn kjósa.”

Auk þess er Garmin með sérstakt golfúr fyrir börn sem veitir sambærilegar upplýsingar en með einfaldara og aðgengilegra viðmóti. Kerfið getur jafnvel útbúið sjálfvirka teiga miðað við högglengd barnsins til að gera leikinn skemmtilegri og aðgengilegri.

Rafrænn kylfusveinn og skynjarar Fullkomnustu úrin eru búin svokölluðum „caddie“-eiginleika. „Kerfið les inn upplýsingar um völlinn, staðsetningu hindrana, fyrri högg notandans og almenn gögn frá öðrum kylfingum. Úrið getur síðan lagt til hvaða kylfu eigi að velja og hvert sé skynsamlegt að miða, til dæmis með hliðsjón af því hvort notandi á það til að slá til hægri eða vinstri,” segir Steinar. Og til að fá enn nákvæmari gögn er hægt að bæta við skynjurum á kylfurnar. Þeir eru festir aftan á gripið og hafa ekki áhrif á sveifluna að sögn Steinars. Með skynjurum skráist sjálfkrafa hvaða kylfa er notuð og hversu langt er slegið, án þess að notandinn þurfi að slá upplýsingar inn handvirkt. „Garmin býður einnig upp á tvær gerðir golfkíkja. Önnur gerðin sameinar hefðbundinn kíki og GPS-upplýsingar með korti af brautinni. Hin er hefðbundinn fjarlægðarmælir sem getur tengst við úr og uppfært pinnastaðsetningu,” segir Steinar.

Þá er í boði sérstakt GPS-tæki fyrir golf, svokallaða lófatölvu, sem hægt er að festa á kerru eða poka. Steinar segir að það sameini notkun á velli og æfingasvæði, þar sem það mælir meðal annars kylfuhraða, boltahraða og flughorn.

Hermir fyrir heimilið

Og fyrir þá sem vilja æfa sig innandyra býður Garmin upp á hermi sem nefnist Garmin Approach R50. „Hann notar háhraðamyndavélar í stað radars, sem þýðir að minni rými þarf til uppsetningar. Innbyggð tölva með snertiskjá er í tækinu sjálfu, þannig að ekki þarf að tengja sérstaka tölvu með öflugu skjákorti.

Hermirinn hentar bæði til notkunar heima og úti á grasflöt þar sem slegið er í net, en veitir samt ítarlega hermingu og tölfræði, og til að fullkomna heimaaðstöðuna þá tengist myndvarpi beint í R50-herminn,” segir Steinar að lokum.

Steinar Magnússon, sölumaður hjá Garminbúðinni.

Framleiðum allar helstu gerðir af öskjum, bókum, límmiðum og almennu prentverki.

Núna bjóðum við einnig upp á bylgjukassa, bréfpoka og margar aðrar umbúðalausnir.

Umhverfisvænn kostur fyrir þig!

Einstakt kerfi til að auka styrk og minnka verki

Einstakt kerfi til að auka styrk og minnka verki

„Ég var í fínu formi með 3 í forgjöf í golfinu og bjóst því ekki við miklum breytingum á mér við ástundun hjá OsteoStrong. Ég starfaði hjá

OsteoStrong sem styrktarþjálfari um tíma og vandaði mig að gera æfingar vikulega eins og mælt er með.

„Ég var í fínu formi með 3 í forg og bjóst því ekki við miklum breytingum á mér við ástundun hjá OsteoStrong. Ég starfaði hjá OsteoStrong sem styrktarþjálfari um tíma og vanda gera æfingar vikulega eins og mælt er með.

Það kom mér því skemmtilega á óvart þegar ég fór að slá í úr fötu og fann ekkert fyrir bakinu þrátt fyrir að vera stöðugt að slá í þrjá tíma.

Það kom mér því skemmtile þegar ég fór að slá í úr fötu og fyrir bakinu þrátt t fyrir að vera slá í þrjá tííma.

Nú er ég golfkennari og styrktarþjálfari

í Danmörku hjá Den Danske

Nú er ég golfkennari og styrktar

Golf Akademi.“ Baldvin Mattes, íþróttafræðingur

Danmörku hjá Den Danske Golf Akademi

Baldvin Mattes, íþróttafræðingur

Með ástundun hjá OsteoStrong

hafa margir náð að lækka forgjöfina. Örstutt athugun á áhrifum

OsteoStrong á frammistöðu golfara yfir einn mánuð gaf til kynna mjög spennandi niðurstöður:

Með ástundun hjá OsteoStrong hafa margir ná

Örstutt athugun á áhrifum OsteoStrong á frammistö

mánuð gaf til kynna mjög spennandi ni

Aukinn hreyfanleiki í öxl

hraði kylfu

Aukinn

hreyfanleiki í öxl

hraði kúlu og bætt jafnvægi

hraði k

hraði kúlu

og bætt jafnvægi

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Golf Expo 2026 by Golfsamband Íslands - Issuu