
1 minute read
Úthlutun ársins 2022
Til úthlutunar á árinu 2022 voru 95 milljónir í fimm flokkum.
Sextíu og tveir sóttu um tæplega 472 milljón króna styrki í Askmannvirkjarannssóknarsjóð, í öðru umsóknarferli sjóðsins. Umsóknarfrestur rann út 31. október s.l.
Eingöngu var hægt að verða við 20% af umbeðnum styrkjum og því er ljóst að eftirspurn er mun meiri en framboð og væri æskilegt að þessi sjóður yrði efldur umtalsvert í næstu úthlutun. Umsóknirnar sýna að tækifærin eru til staðar til enn öflugri sóknar í öllum áhersluflokkum úthlutunar.
Samþykktir styrkir eru allir rýrðir umtalsvert miðað við umbeðnar upphæðir. Hagrænir þættir fasteignamarkaðarins og efnahagur íbúa og þjóðarinnar er málaflokkur sem myndar grundvöll að byggðaþróun og þarf því að ávarpa þann málaflokk í þessum sjóði samhliða auknu fjármagni.