hms.is 2.tbl. 2020
Glugginn Fréttabréf HMS
hms.is
Opið fyrir umsóknir um stofnframlög Þann 6. mars 2020 var opnað fyrir umsóknir um stofnframlög ríkisins. Umsóknarfrestur verður til og með 15. apríl 2020. Hægt er að sækja um stofnframlög ríkisins inná heimasíðu HMS með útfyllingu á skjalinu „Umsókn um stofnframlög með viðskiptaáætlun 2020“. Sú nýjung er byggð inn í ferlið að einnig er hægt að sækja um HMSleiguíbúðalán í sömu umsókn. Vert er að minna á að boðið er upp á kynningar fyrir umsækjendur og sveitarfélög á breyttu umsóknarferli og helstu lagabreytingum sem hafa átt sér stað frá síðasta matsferli. Við hvetjum ykkur til að hafa samband við sérfræðinga HMS í síma 440-6400 eða senda ósk um kynningarfund á netfangið: stofnframlag@hms.is. Samkvæmt gildandi lögum og reglugerðum mun að minnsta kosti fjórðungur þess fjármagns sem kemur til úthlutunar renna til bygginga eða kaupa á húsnæði á vegum sveitarfélaga, en það er íbúðarhúsnæði sem sveitarfélög úthluta og er ætlað þeim aðilum sem sveitarfélögum ber sérstök lagaskylda til að veita úrlausn í húsnæðismálum. Önnur félög en þau sem eru í eigu sveitarfélags geta fallið innan þessarar forgangsreglu að því gefnu að þau séu með samning við viðkomandi sveitarfélag um að íbúðirnar verði nýttar sem íbúðarhúsnæði á vegum sveitarfélagsins og úthlutað í samræmi við
reglur þess. Þá munu verkefni til uppbyggingar húsnæðis fyrir tekju- og eignalága á vinnumarkaði hafa forgang til 2/3 hluta úthlutaðs fjármagns. Að öðru leyti fer úthlutun stofnframlaga eftir mati á þörf fyrir íbúðarhúsnæði á viðkomandi svæði og fyrir viðkomandi félagshópa. Mikilvægt er fyrir umsækjendur og sveitarfélög að hafa eftirfarandi þætti í huga við umsóknir um stofnframlög: •
Skila þarf inn staðfestingu veitingu stofnframlags frá sveitarfélagi þar sem almennar íbúðir verða staðsettar.
•
Með ofangreindri staðfestingu þarf að fylgja staðfesting á fjárhæð og formi stofnframlags sveitarfélags.
•
Til þess að flýta fyrir afgreiðslu umsókna þurfa sveitarfélög þar sem sótt er um stofnframlög að aðstoða við gagnaöflun t.d. með því að hafa gjaldskrár sínar um opinber gjöld vel aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins eða með því að fylla út form á heimasíðu HMS, aðlagað að gjaldskrá sveitarfélagsins.
hms.is
Húsnæðiáætlanir sveitarfélaga Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga eru lagðar til grundvallar við mat á umsóknum um stofnframlög og vill HMS því hvetja alla sem ekki hafa skilað húsnæðisáætlun eða uppfærðri áætlun að setja sig í samband við tengiliði HMS vegna húsnæðisáætlana. Hægt er að hafa samband við þau Einar Þorvald Eyjólfsson, netfang: einar.eyjolfsson@hms. is og/eða Sigrúnu Ástu Magnúsdóttur, netfang: sigrun.magnusdottir@hms.is.
Umsóknarform um stofnframlög og frekari upplýsingar um þau má finna á heimasíðu HMS: https://www.hms.is/husnaedismal/stofnframlog/
hms.is
Aðgerðir HMS vegna Covid-19 Greiðsluhlé á íbúðalánum Í ljósi þeirra aðstæðna sem nú eru uppi í þjóðfélaginu vegna útbreiðslu Covid-19 veirunnar er fyrirséð að einhverjir lántakendur munu standa frammi fyrir fjárhagslegum erfiðleikum á næstu mánuðum. Af þeim sökum hefur Húsnæðis- og mannvirkjastofnun ákveðið að bjóða viðskiptavinum sínum að gera hlé á greiðslum af íbúðalánum í allt að þrjá mánuði. Viðskiptavinir HMS og ÍL-sjóðs (áður Íbúðalánasjóðs) geta sótt um greiðsluhlé á heimasíðu HMS. Í boði verður að fresta greiðslum lána í allt að þrjá mánuði og eru afborganir og vextir lagðir við höfuðstól lánsins á meðan greiðsluhléi stendur. Lánstími verður óbreyttur nema óskað sé eftir öðru. Athygli er vakin á því að frestun greiðslna gerir það að verkum að greiðslur af lánum munu hækka lítillega að frestun lokinni. Greiðsluhlé er í boði fyrir viðskiptavini HMS og ÍL-sjóðs sem sjá fram á tímabundna erfiðleika vegna þeirra aðstæðna sem nú eru uppi vegna Covid-19. Sé um viðvarandi greiðsluerfiðleika að ræða má finna upplýsingar um önnur greiðsluerfiðleikaúrræði á heimasíðu HMS.
HMS skoðar nú einnig með hvaða hætti unnt sé að veita lögaðilum, sem eru með lán hjá stofnuninni og leigja út húsnæði til einstaklinga, greiðsluhlé þannig að þeir geti veitt leigjendum sínum sambærilegan sveigjanleika þegar þess er þörf. Mun niðurstaða liggja fyrir fljótlega og verður hún kynnt á vefsíðu HMS.
Afgreiðslu HMS lokað í ótilgreindan tíma Vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar hefur afgreiðslu HMS að Borgartúni 21 í Reykjavík og Ártorgi 1 á Sauðárkróki verið lokað í ótilgreindan tíma. Önnur starfsemi stofnunarinnar er óbreytt. Útsending greiðsluseðla vegna lána og útborgun húsnæðisbóta verða með hefðbundnum hætti. Hægt verður að hafa samband við HMS í gegnum stafrænar þjónustuleiðir á meðan lokun afgreiðslunnar stendur og hér má sjá yfirlit yfir helstu samskiptaleiðir: Mínar síður: Á heimasíðu HMS undir „Mínar síður“ er hægt að sækja um húsnæðisbætur með rafrænum hætti og fylgjast með stöðu umsókna. Einnig má þar finna lánayfirlit og sjá stöðu lána ásamt því að hægt er sækja um starfsleyfi og löggildingar. Til að komast inná Mínar síður þarf íslykil eða rafræn skilríki.
hms.is
Aðgerðir HMS vegna Covid-19 Netfang Hægt er að senda tölvupóst á netfangið: hms@hms.is og er öllum fyrirspurnum svarað eins fljótt og auðið er. Heimasíða hms.is: Á heimasíðu okkar má finna upplýsingar um starfsemi HMS ásamt mikilvægum tilkynningum er varða þjónustu við viðskiptavini. Við leggjum áherslu á að tryggja gott þjónustustig þrátt fyrir þessar aðstæður en biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem fyrirkomulagið kann að valda.
hms.is
Loftslagstefna ríkisstofnana og sveitarfélaga Í júní sl. voru samþykkt lög um breytingar á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012, þar sem stofnunum ríkisins og sveitarfélögum er gert skylt að setja sér loftslagsstefnu, sbr. 5. gr. c. laganna.
Vissir þú að... •
Umhverfisstofnun stefnir að því að gefa út leiðbeiningar á næstu misserum um Græn skref sveitarfélaga.
Samkvæmt ákvæðinu skal stefnan innihalda skilgreind markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisjöfnun starfseminnar ásamt aðgerðum svo að þeim markmiðum verði náð. Stofnanir geta framfylgt stefnunni til dæmis með innleiðingu Grænna skrefa í ríkisrekstri, sem er verkefni á vegum Umhverfisstofnunar (sjá graenskref.is).
•
Nýlega kom út skýrsla þar sem kolefnisspor Norðurlands vestra er reiknað og fjallað er um aðgerðir sem eru líklegastar til að skila mestum árangri í að minnka kolefnisspor landshlutans (sjá ssnv.is). Útgáfa á samskonar skýrslu fyrir Samtök sunnlenskra sveitarfélaga er væntanleg.
•
Í haust setti Garðabær sér innkaupa- og úrgangsstefnu sem kallast Garðabær gegn sóun og á að gilda fyrir alla starfsmenn og stofnanir Garðabæjar. Áhersla er lögð á að draga úr myndun úrgangs, bæta flokkun og minnka plastnotkun.
•
Verkefnið Græn skref í starfsemi Reykjavíkurborgar snýst um að efla vistvænan rekstur í starfsemi borgarinnar og minnka umhverfisáhrif sveitarfélagsins í fjórum skrefum. Allir vinnustaðir Reykjavíkurborgar eiga að vera þátttakendur í verkefninu. Sjá graenskref. reykjavik.is.
•
Hafnarfjarðarbær og Skútustaðahreppur kolefnisjöfnuðu rekstur sinn í fyrra með gróðursetningu trjáa og voru meðal fyrstu sveitarfélaga á Íslandi til fara í slíkar aðgerðir, að því er best er vitað.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur nú hafið vinnu við loftslagsstefnu stofnunarinnar og hóf nýverið innleiðingu Grænna skrefa í ríkisrekstri. HMS slóst þar með í hóp rúmlega áttatíu annarra ríkisstofnanna sem taka þátt í verkefninu. Á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga er starfandi Samstarfsvettvangur sveitarfélaga um loftslagsmál og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Á fimmta tug sveitarfélaga hafa skuldbundið sig til að taka þátt í samstarfinu (sjá nánar á samband.is). Samstarfsvettvanginum er meðal annars ætlað að aðstoða við gerð loftslagsáætlana sveitarfélaga en samkvæmt áðurnefndum lagabreytingum skulu sveitarstjórnir samþykkja loftslagsstefnu fyrir lok árs 2021.
hms.is
Landsbyggðarverkefni HMS Stöðnun á húsnæðismarkaði hefur ríkt í sveitarfélögum víðsvegar á landsbyggðinni. Íbúðalánasjóður, nú HMS fór af stað með verkefni í upphafi árs 2019 í þeim tilgangi að rýna aðstæður og leggja fram tillögur til þess að koma til móts við þær áskoranir sem fjölmörg sveitarfélög á landsbyggðinni standa frammi fyrir í húsnæðismálum þar sem óvirkur íbúða- og eða leigumarkaður hefur staðið í vegi fyrir framþróun þeirra á ýmsum sviðum. Lagðar fram tillögur að því með hvaða hætti mætti auka framboð á nýjum íbúðum á þeim svæðum þar sem mikil þörf er á íbúðarhúsnæði en ekkert hefur verið byggt í fjöldamörg ár. Stór hluti þeirra tillagna hefur nú þegar komið til framkvæmda. Nú þegar búið er að opna fyrir umsóknir um stofnframlög til almennra íbúða ber að nefna nýlega breytingu á lögum um almennar íbúðir nr. 52/2016 þar sem HMS er nú heimilt að veita sérstakt byggðaframlag frá ríkinu til viðbótar við grunnstofnframlag ríkisins. Byggðaframlaginu er ætlað að stuðla að auknu framboði á leiguíbúðum í almenna íbúðakerfinu á svæðum þar sem bygging íbúða hefur verið í lágmarki og misvægi á milli byggingarkostnaðar og markaðsvirðis íbúðanna verður til þess að rekstur íbúðanna stendur ekki undir sér að öllu óbreyttu. Sérstakt byggðaframlag getur verið mismunandi á milli landssvæða og er það veitt í samræmi við markaðsaðstæður á hverjum stað hverju sinni.
Heimildir sveitarfélaga til þess að leggja fram stofnframlög hafa einnig verið rýmkaðar. Sveitarfélögum er nú heimilt að leggja til húsnæði sem er í eigu sveitarfélagsins og er ætlað að breyta í almennar íbúðir. Dæmi um húsnæði í eigu sveitarfélaga getur verið atvinnuhúsnæði, heimavist eða félagsheimili. Þá hefur einnig litið dagsins ljós nýr lánaflokkur sem heimilar HMS að veita lánsfjármagn til nýbyggingaverkefna á landsbyggðinni. Lánaflokknum er ætlað að tryggja aðgengi að fjármagni á sambærilegum kjörum og fást á virkari markaðssvæðum, óháð því hvar íbúðunum er ætlað að rísa. Breyting þessi heimilar sveitarfélögum, einstaklingum og óhagnaðardrifnum félögum á landsbyggðinni að taka lán hjá HMS til húsnæðisuppbyggingar á stöðum þar sem skortur er á íbúðum, misvægi er á á milli byggingarkostnaðar og markaðsverðs íbúða og fjármögnun á almennum markaði er ekki fyrir hendi eða á óhagstæðari kjörum en á virkari markaðssvæðum. Nánari upplýsingar um landsbyggðarverkefni HMS er að finna á heimasíðu stofnunarinnar: https://hms.is/husnaedismal/landsbyggdarverkefni/timalina/
hms.is