Skip to main content

Glugginn Fréttabréf HMS

Page 1

hms.is 1.tbl. 2020

Glugginn Fréttabréf HMS


hms.is

Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun - HMS Þann 1. janúar 2020 tók til starfa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun eftir sameiningu Íbúðalánasjóðs og Mannvirkjastofnunnar. Sameiningunni er ætlað að stuðla að heildstæðri yfirsýn yfir húsnæðis- og mannvirkjamál á einum stað ásamt því að efla stefnumótun og framkvæmd húsnæðisog mannvirkjamála til hagsmuna fyrir almenning.

Breytingar á lögum um almennar íbúðir Í upphafi árs tóku gildi breytingar á lögum um almennar íbúðir. Helstu breytingar snúa að almennum skilyrðum fyrir stofnframlögum ríkis og sveitarfélaga og eru eftirfarandi: •

Hækkun tekju- og eignamarka leigjenda.

Ný stofnun verður til húsa að Borgartúni 21 og er nýtt símanúmer stofnunarinnar 440-6400. Starfsstöð verður einnig áfram að Ártorgi 1, Sauðárkróki. Finna má allar upplýsingar um starfsemi nýrrar sameinaðar stofnunnar á nýrri heimasíðu www.hms.is

•

Heimilt verður að sækja um stofnframlög vegna húsnæðis sem þegar hefur verið hafist handa við að byggja.

• •

Takmörk eru sett á lánstíma fjármögnunar almennra íbúða ef lán er undir 30% af stofnvirði íbúðar.

Eitt af meginmarkmiðum nýrrar stofnunar er að efla enn frekar samvinnu og samskipti við sveitarfélög landsins og vonast HMS til þess að eiga í góðu samstarfi við sveitarfélögin í framtíðinni.

•

Sérstakt byggðarframlag. Breyting er gerð á viðbótarframlögum ríkis vegna misvægis á byggingarkostnaði og markaðsverði íbúðarhúsnæðis. Við breytingarnar verður HMS heimilt að veita sérstakt byggðarframlag á slíkum svæðum og getur það verið mismunandi milli landssvæða í stað 6% eins og áður var.

•

•

•

Heimilt verður að greiða út allt að 75% stofnframlags við samþykkt umsóknar, í stað 50%, hafi umsækjandi áður fengið úthlutað stofnframlagi. Síðari hluti útgreiðslu stofnframlaga verður verðbættur miðað við breytingu á vísitölu byggingarkostnaður.


hms.is

Breytingar á lögum um almennar íbúðir •

Heimilt verður að gera samninga við stofnframlagshafa um úthlutun til þriggja ára, með fyrirvara um heimild á fjárlögum.

•

Sveitarfélög hafa heimild til að leggja fram sem sitt stofnframlag, húsnæði í eigu sveitarfélagsins sem ætlunin er að breyta í almennar íbúðir. Dæmi um þetta getur verið atvinnuhúsnæði eða heimavist við skóla.

•

Sveitarfélög fá samsvarandi heimildir og HMS til þess að greiða út meirihluta stofnframlags við samþykkt umsóknar, verðbæta seinni útgreiðslu og gera samninga við stofnframlagshafa til þriggja ára.

•

Breytingar verða á ákvæðum sem snúa að endurgreiðslu stofnframlaga, veðum og kvöðum, annars vegar til þess að heimila stofnframlagshöfum að gefa út skuldabréf með veði í tilteknu safni eigna og hins vegar sett ákvæði um endurgreiðslu stofnframlaga þegar lítil eða engin lán hafa verið tekin vegna fjármögnunar almennra íbúða. Meginreglan verður þá sú að endurgreiðsla hefst þegar íbúð er leigð út og nemur 50% leigu að frádregnum rekstrar- og viðhaldskostnaði.

Samhliða voru gerðar tvær breytingar á öðrum lögum, annars vegar á lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, þar sem nú er kveðið á um að reglur sveitarfélaga um sérstakan húsnæðisstuðning skuli taka mið af leiðbeiningum ráðherra og að ráðherra skuli gefa út leiðbeiningar um úthlutun félagslegs íbúðarhúsnæðis og um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings ásamt viðmiðunarfjárhæðum. Hins vegar er gerð breyting á lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál þannig að tekju- og eignamörk vegna leiguíbúða sem fengu félagsleg lán hjá Íbúðalánasjóði á sínum tíma verða nú ákvörðuð sjálfstætt í stað þess að fylgja eftir tekju- og eignamörkum laga um almennar íbúðir. Lögin má finna hér: https://www.althingi.is/altext/150/s/0812.html


hms.is

Lagaskylda um notkun byggingargáttar Með gildistöku laga nr. 137/2019 um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þann 1. janúar 2020 varð sú breyting að sveitarfélög skulu framvegis nota rafræna byggingargátt sem starfrækt er af HMS við útgáfu byggingarleyfa og framkvæmd stjórnsýslu byggingarmála.

Með innleiðingu byggingargáttar verða aðgengilegar mun ítarlegri upplýsingar um þær íbúðir sem eru í byggingu á hverjum tíma en áður hefur verið en sem dæmi verður hægt að nálgast upplýsingar um stærð og gerð þess húsnæðis sem er í byggingu. HMS mun á næstu vikum leitast eftir auknu samstarfi við sveitarfélög varðandi notkun og innleiðingu byggingargáttar.


hms.is

Starfshópur um stöðu brunamála Í aðdraganda sameiningar MVS og ÍLS í HMS lýstu margir hagaðilar áhyggjum af því hvernig staða brunamála yrði innan nýrrar stofnunar. Í því ljósi var ákveðið að stofna sérstakan starfshóp um úttekt á stöðu brunamála undir leiðsögn ráðgjafa. Starfshópnum er falið að greina núverandi stöðu brunamála, kanna skipulega viðhorf og úrbótatillögur helstu sérfræðinga og hagsmunaaðila málaflokksins og gera tillögur að úrbótum er varða brunamál. Stuðst verður við viðurkenndar aðferðir við greiningu og stefnumótun málaflokka. Hér má sjá yfirlit yfir helstu verkþætti: •

Greina núverandi stöðu málaflokksins og bera saman við það sem best gerist.

•

Rýna í hvernig ytri aðstæður muni breytast í nánustu framtíð, ásamt því að meta áhrif þeirra á starfsemi málaflokkinn.

•

Skerpa á framtíðarsýn og stefnu fyrir málaflokkinn.

•

Greina innviði HMS með tilliti til að kanna ástand og hversu vel stofnunin eru undir það búin að tryggja vöxt og viðgang málaflokksins til framtíðar.

•

Lýsa framtíðarsýn, skilgreina markmið fyrir málaflokkinn og velja viðmið.

•

Skoða kosti og galla á valkostum í rekstri, skipulag, verkaskiptingu milli hagsmunaaðila og möguleika á útvistun.

•

Rökstyðja besta kostinn.

•

Leggja á ráðin um breytingar sem þarf að gera svo málaflokkurinn standi undir væntingum, markmið náist og framtíðarsýn rætist. Skipuleggja hvernig best væri að standa að undirbúningi og framkvæmd breytinga.

•

Taka skipulega saman helstu álitamál.

Starfshópurinn tók til starfa 9. janúar sl. og hefur hafið greiningarvinnu, stefnumótun og viðtöl við hagsmunaaðila. Stefnt er að því hópurinn skili fyrstu niðurstöðum í byrjun febrúar.


hms.is

Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga Í samræmi við reglugerð 1248/2018 um húsnæðisáætlanir sveitarfélaga kemur fram að öll sveitarfélög skuli hafa lokið við gerð uppfærðrar húsnæðisáætlunar eigi síðar en 1. mars ár hvert. HMS hefur nú sent hverju sveitarfélagi ábendingar um hvaða upplýsingar þurfi að uppfæra eða bæta við inn í núverandi húsnæðisáætlanir fyrir næstu skil þann 1. mars 2020. HMS vill leggja sérstaka áherslu að eftirfarandi grundvallarupplýsingar komi fram í öllum húsnæðisáætlununum eftir næstu útgáfu: •

•

Fjöldi leiguíbúða í eigu sveitarfélaga (Greina niður á fjölda félagslegra leiguíbúða, leiguíbúðir aldraðra, leiguíbúðir fyrir fatlað fólk, aðrar leiguíbúðir). Biðlistar eftir leiguhúsnæði í eigu sveitarfélaga (Greint niður á biðlista eftir félagslegu húsnæði, sértæku húsnæði fyrir fatlað fólk, húsnæði fyrir aldraða, öðru leiguhúsnæði).

•

Stutt umfjöllun um helstu áskoranir í húsnæðismálum í sveitarfélaginu í nútíð og nánustu framtíð. Til dæmis; Kemur hár byggingakostnaður í veg fyrir byggingu nýrra íbúða?, Er fyrirsjáanleg þörf á auknu framboði íbúða fyrir aldraða vegna fjölgunar eldri íbúa? Hefur skortur á íbúðarhúsnæði hamlandi áhrif á uppbyggingu atvinnulífs í sveitarfélaginu? o.s.frv.

HMS hefur nú í samræmi við reglugerð nr. 1248/2018, útbúið og gefið út fyrirmynd af húsnæðisáætlun sem sveitarfélög geta haft til hliðsjónar við vinnslu og uppfærslu húsnæðisáætlana. Finna má fyrirmyndina á heimasíðu HMS; https://www.hms.is/media/6550/husnaedisaaetlun_utgafa1.pdf HMS hvetur sveitarfélögin eindregið til þess að setja sig í samband vanti þeim upplýsingar eða aðstoð við vinnslu húsnæðisáætlana í gegnum netfangið aaetlun@hms.is.


hms.is

Vistvæn uppbygging í sveitarfélögum Vistvænar mannvirkjaframkvæmdir fela í sér fjárhagslegan, umhverfislegan og heilsufarslegan ávinning. Kallað er eftir skýrari stefnu af hálfu opinberra aðila í þessum efnum en dæmum um byggingu umhverfisvottaðra mannvirkja á vegum ríkis, sveitarfélaga og einkaaðila fer fjölgandi. Samspil byggingariðnaðarins og hamfarahlýnunar eru umtalsverð, enda er fyrirséð að loftslagsbreytingar hafa áhrif á mannvirkjagerð og öfugt. Erlendis glímir byggingariðnaðurinn við losun gróðurhúsalofttegunda vegna orkunotkunar í rekstri bygginga en á Íslandi má segja að áskoranir iðnaðarins varðandi loftslagsvána sé einkum tengd efnisvali, minni sóun, betri flokkun og skipulagi byggða. Vistvæn uppbygging mannvirkja felur í sér fjárhagslegan, umhverfislegan og heilsufarslegan ávinning en þó hefur verið kallað eftir skýrari stefnu opinberra aðila hvað þetta varðar og að skilgreindir verði sérstakir hvatar til þess að hraða umhverfisvænni uppbyggingu enn frekar. Af hálfu íslenskra stjórnvalda hefur Framkvæmdasýsla ríkisins tekið ákveðið frumkvæði en stofnunin gengur út frá því að allar opinberar nýbyggingarframkvæmdir sem fara umfram 500 milljónir króna verði með BREEAM umhverfisvottun (ofanflóðaverkefni eru ekki talin með þar).

Þá er jafnframt leitast við að setja umhverfisviðmið fyrir þau verkefni sem ekki fá fulla vottun auk þess sem sjónum hefur verið beint að BREEAM vottun við endurgerð húsnæðis. Alls hafa sautján byggingar á vegum stofnunarinnar ýmist verið BREEAM vottaðar eða eru í slíku ferli. Þeirra á meðal eru til dæmis hönnun og bygging fangelsisins á Hólmsheiði, sjúkrahótelsins við Hringbraut, Veraldar - húss Vigdísar og Framhaldsskólans í Mosfellsbæ. Nokkur sveitarfélög hafa vakið athygli fyrir ákvarðanir sem hvetja til vistvænni framkvæmda og uppbyggingar í samfélögum þeirra.


hms.is

Vistvæn uppbygging í sveitarfélögum Þannig samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar síðastliðið vor aðgerðir sem eiga að stuðla að aukinni sjálfbærni í skipulags- og byggingarmálum í sveitarfélaginu og gera það að aðlaðandi stað fyrir vistvænar byggingar. Til dæmis er veittur 20-30% afsláttur af lóðarverði vegna nýbyggingar sem hlýtur umhverfisvottun á borð við Svansvottun eða BREEAM vottun. Þá er gerð almenn krafa um að 20% byggingarefna í nýframkvæmdum hafi umhverfisvottun auk þess sem Hafnarfjarðarbær hyggst móta sér stefnu um vottun allra nýbygginga á vegum sveitarfélagsins. Að sama skapi má líta til Urriðaholts í Garðabæ. Þar er verið að reisa fyrsta hverfið hér á landi sem byggist á skipulagi sem hlotið hefur umhverfisvottunarkerfi BREEAM Communities. Í því hverfi eru bæði fyrsta íslenska íbúðahúsið og fyrsta íslenska fjölbýlishúsið sem hlotið hafa Svansvottun. Og talandi um Svaninn; í september síðastliðnum undirrituðu Sigtún þróunarfélag ehf. og Umhverfisstofnun samning um Svansvottun á byggingum í nýjum miðbæjarkjarna á Selfossi. Er það er fyrsta samkomulag hérlendis um Svansvottun á þyrpingu húsa. Ennfremur má finna fjölmörg verkefni í

Reykjavík af sama meiði en borgin ráðgerir að árunum 2019-2023 verði grænar fjárfestingar að lágmarki 25% af heildarfjárfestingum borgarinnar (eða um 18,8 milljarðar króna). Er þeim ætlað draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með vistvænum byggingum, orkuskiptum í samgöngum og grænum vexti í samræmi við umhverfis- og auðlindastefnu Reykjavíkurborgar. Þannig vinnur borgin nú að nýju hverfisskipulagi Reykjavíkur en markmiðið er meðal annars að gera rótgróin hverfi borgarinnar vistvænni og sjálfbærari. Þá er lögð áhersla á vistvæna byggingartækni við uppbyggingu Vogabyggðar í Reykjavík. Að lokum má nefna að Þorpið vistfélag ehf. vinnu að þróun nýs smáíbúðahverfis í Gufunesi með vönduðum, umhverfisvænum og ódýrum íbúðum en hverfið á að vera vistvænt samfélag þar sem áhersla er lögð á endurvinnslu og umhverfismál.

Hvetur þitt sveitarfélag til vistvænnar uppbyggingar með skipulagi sveitarfélagsins eða öðrum stefnumótandi hætti? Segðu okkur frá með því senda póst á netfangið thora.thorgeirsdottir@hms.is Nánari upplýsingar: urridaholt.is visthus.is smaibudir.is hverfisskipulag.is thorpidvistfelag.is graennibyggd.is svanurinn.is


hms.is

Greiðsla húsnæðisbóta Heildarfjárhæð greiddra húsnæðisbóta í nóvember 2019 var tæplega 519 milljónir kr. Fjöldi umsókna að baki greiddum húsnæðisbótum í nóvember voru 15.949 talsins sem eru 152 fleiri en í október 2019. Meðalfjárhæð greiddra húsnæðisbóta var 32.527 kr. sem er mjög áþekk meðalfjárhæðinni mánuðinum á undan. Meðalleigufjárhæðin sem bótaþegar húsnæðisbóta greiddu í nóvember var 138.899 kr. Lykiltölur húsnæðisbóta

okt.19

nov. 19

Heildarfjárhæð greiðslna

511.403.150 kr.

518.775.643 kr.

Fjöldi umsókna að baki greiðslum

15.797

15.949

Meðaltal tekna sem voru notaðar í útreikningi

408.025 kr.

403.994 kr.

Meðaltal eigna sem voru notaðar í útreikningi

900.161 kr.

898.061 kr.

Meðalfjárhæð húsnæðisbóta

32.373 kr.

32.527 kr.

Meðalleigufjárhæð

138.348 kr.

138.899 kr.


hms.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Glugginn Fréttabréf HMS by Húsnæðis- og mannvirkjastofnun - Issuu