3.tbl. 2020
Fréttabréf HMS
Glugginn Hlutdeildarlán lækka þröskuld ungs fólk og tekjulágra að eignast íbúð
hms.is
Úthlutun stofnframlaga 2020 Þann 30. júní fór fram úthlutun á stofnframlögum ríkisins. Alls bárust 35 umsóknir og nam heildarfjárhæð umsókna um 5,6 milljörðum króna til byggingar og kaupa á alls 774 íbúðum.
• 31 umsókn voru samþykktar og var
rúmum 3,6 milljörðum úthlutað til bygginga eða kaupa á 600 íbúðum um land allt.
• Samþykkt voru stofnframlög til
bygginga á 440 íbúðum, til kaupa á 141 íbúð í nýbyggingum og til kaupa á 19 íbúðum á almennum markaði.
• Fjórðungi stofnframlaga ríkisins var
úthlutað til sveitarfélaga á grundvelli forgangs en alls fengu 15 sveitarfélög úthlutað stofnframlagi að þessu sinni.
• Útlistun á fjölda samþykktra íbúða eftir landshlutum má sjá á meðfylgjandi Íslandskorti:
Vestfirðir
Norðurland-eystra
8 íbúðir 1%
14 íbúðir 2%
Norðurland-vestra 13 íbúðir 2%
Vesturland
Höfuðb. Suðurnes 12 íbúðir 2%
472 íbúðir 79%
Austurland 8 íbúðir 1%
63 íbúðir 11%
Suðurland 10 íbúðir 2%
Á síðasta ári voru samþykktar breytingar á lögum um almennar íbúðir þar sem veitt var heimild til að veita sérstök byggðarframlög þar sem misvægi er á milli byggingarkostnaðar og markaðsverðs. Sérstaka byggðaframlagið er ætlað á svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði og bygging íbúða hefur verið í lágmarki vegna áðurnefnds misvægis. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun metur þörf fyrir og ákvarðar fjárhæð sérstaks byggðaframlags sem tekur m.a. mið af markaðsaðstæðum á viðkomandi svæði. Í þessari úthlutun var í fyrsta sinn veitt sérstakt byggðaframlag til átta verkefna á landsbyggðinni að fjárhæð 138 milljónir króna. Um er að ræða verkefni í Norðurþingi, Reykhólahreppi, Snæfellsbæ, Skagafirði, Strandabyggð, Vesturbyggð og á Seyðisfirði. Verkefnin snúa meðal annars að uppbyggingu leiguhúsnæðis fyrir einstaklinga undir tekju- og eignarmörkum og sértæks húsnæðisúrræðis.
hms.is
Hlutdeildarlán
Félags- og barnamálaráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um hlutdeildarlán að breskri fyrirmynd. Frumvarpið er liður í stuðningi stjórnvalda við lífskjarasamninga sem aðgerð til að lækka þröskuld ungra og tekjulágra til að eignast íbúð. Tillaga frumvarpsins um hlutdeildarlán byggir á því að um sé að ræða nýjan lánaflokk HMS og að heimildir til útlána afmarkast annars vegar af skilyrðum sem tengjast hinni veðsettu eign og hins vegar af lántaka. Í grunninn gerir tillagan ráð fyrir að kaupandi leggi úr a.m.k. 5% eigið fé, fái 75% húsnæðislán á 1. veðrétt frá lánastofnun og 20% hlutdeildarlán fer síðan á 2. veðrétt. Í undantekningartilvikum geti hlutdeildarlán
farið upp í allt að 30% og húsnæðislán lækkar þá á móti niður í allt að 65% af kaupverði. Áður en umsækjandi sækir um hlutdeildarlán þarf viðkomandi að vera búinn að festa kaup á íbúð sem hefur þegar verið samþykkt af HMS sem hagkvæm íbúð á grundvelli samnings byggingaraðilans við HMS.
hms.is
Efling brunavarna – Brunaeftirlit til Sauðárkróks Í lok maí var birt skýrsla starfshóps sem falið var að greina núverandi stöðu brunamála og koma með tillögur að úrbótum er varða málaflokkinn á Íslandi. Í skýrslunni kemur m.a. fram að staða brunamála hér á landi er almennt nokkuð góð í samanburði við nágrannalöndin. Tjón af völdum eldsvoða sé minna hér á landi, hvort sem litið sé til mannslífa eða eigna. Í skýrslunni kemur þó fram að síðustu ár hefur tjón vegna bruna verið að aukast og brýnt sé að finna leiðir til að stöðva þá þróun. Í niðurstöðum starfshópsins kemur fram að nauðsynlegt sé að stórefla brunaeftirlit og gerð brunavarnaráætlana, auk þess að bæta viðbúnað minni slökkviliða og stækka slökkvilið á landsbyggðinni. Til þess að bregðast við þessum niðurstöðum hefur Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra ákveðið að ráðast í margþættar aðgerðir til þess að efla umgjörð brunamála og brunavarna á Íslandi. Ein aðgerðanna felur m.a. í sér að fjölga starfsmönnum sem sinna brunavörnum hjá HMS.
Þá mun sú starfseining sem sér um skipulagningu brunaeftirlits færast til innan stofnunnarinnar og verður hún staðsett á Sauðarkróki. Aðrar aðgerðir sem stefnt er að er uppfærsla á regluverki brunamála og útgáfa leiðbeininga um eftirfylgd reglugerða. Þá hyggst ráðherra beita sér fyrir því að sett verði aukið fjármagn til brunamála til að stuðla að fræðslu slökkviliðsmanna og efla starf slökkviliða á landsbyggðinni.
hms.is
Fundur um stöðu eftirlits og brunavarna vegna brunans á Bræðraborgarstíg Í kjölfar brunans á Bræðraborgastíg í júní funduðu HMS, slökkviliðsstjórinn á höfuðborgarsvæðinu og byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar um stöðu brunaeftirlits og brunavarna. Samhljómur var á fundinum um mikilvægi brunavarna og að fullt tilefni sé til að vinna saman að frekari úrbótum á regluverki og verklagi. Þá var rætt að fyrirhuguð skráning leigusamninga væri mikilvægt skref og samkeyrsla leiguskrár við lögheimilisskráningar. Einnig voru ræddar auknar heimildir til slökkviliða og byggingafulltrúa við eftirlit og aukið samstarf við tryggingafélög. Þá kom fram að nýta mætti árangur í öðrum málaflokkum líkt og umferðaröryggi þar sem gengið hefur vel að draga úr alvarlegum slysum með samstilltu átaki. Einnig var rætt að leggja þyrfti áherslu á að byggingaröryggisgjaldið sem innheimt er af ríkinu skili sér til brunavarna. Rannsókn HMS á brunanum á Bræðraborgarstíg er í fullum gangi og er leidd af Davíð Snorrasyni, yfirmanni brunaeftirlits hjá stofnuninni. Markmið rannsóknarinnar er að leiða í ljós hvaða lærdóm megi draga og hvort nauðsynlegt sé að breyta regluverki en niðurstöður rannsóknarinnar gætu legið fyrir síðar á árinu. Samhliða hefur HMS til skoðunar aðrar aðgerðir, meðal annars hvort hindra megi að svo margir hafi skráð lögheimili á einum stað, til dæmis með bættri skráningu leiguhúsnæðis. Með tilkomu leiguskrár HMS,
sem ákvæði er um í frumvarpi að breytingu á húsaleigulögum sem lagt hefur verið fram á Alþingi, verður til ný leið til að safna upplýsingum og koma auga á frávik. Eins og staðan er í dag eru stjórnvöld eingöngu með yfirsýn yfir þann hluta leigumarkaðarins sem er á höndum sveitarfélaga eða þegar til staðar eru þinglýstir leigusamningar, sem er því miður yfirleitt ekki raunin í tilfelli herbergjaleigu til erlends verkafólks. Á fundinum kom fram að næsta skref sé að hefja vinnuna og fá fleiri aðila að borðinu til að ræða úrbætur. Sérstaklega er horft til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og félagsmálaráðuneytisins.
hms.is
Umhverfismál - fróðleikmolar Vissir þú að…. …á Ruv.is og á podtail.com má nálgast sérlega áhugaverða og fræðandi útvarpsþætti um skipulagsmál, hönnun bygginga og húsnæðismál sem kallast Óborg og eru í umsjón Sunnefu Gunnarsdóttur. Þættirnir eru fimm talsins og fjalla um Reykjavík framtíðarinnar, meðal annars í ljós sjálfbærra byggðarkjarna, vistvænna samgangna og snjallvæðingar heimila. Þó fókusinn í umfjölluninni sé vissulega á Reykjavík, þá koma þarna fram fjöldi hugmynda og upplýsinga sem hægt er að yfirfara á önnur sveitarfélög. Gestir þáttanna eru kunnir skipulagsfræðingar, arkitektar og sérfræðingar, sem allir hafa komið að mótun borgarlandslagsins á einn eða annan hátt. Hlustun er sögu ríkari!
…innan félagasamtakanna Grænni byggð (áður Vistbyggðaráð) eru 46 aðildarfélög úr allri virðiskeðju byggingariðnaðarins. Grænni byggð eru rekin án hagnaðarmarkmiða og er hluti af alþjóðlega tengslanetinu World Green Building Council, sem hefur þátttakendur frá 70 löndum. Hlutverk Grænni byggðar er að breyta hinu byggða umhverfi til vistvænni hátta þannig að Ísland standi við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum. Það gera samtökin m.a. með útgáfu fræðsluefnis, þátttöku í rannsóknar- og þróunarverkefnum, viðburðum og öflugu samstarfi við ólíka hagaðila í mannvirkjagerð. Nánari upplýsingar og fjölbreytt fræðsluefni um vistvænni byggingar má finna á www.graennibyggd.is
hms.is
Húsnæðisbætur – Lokauppgjör vegna 2019 Vinnu við endurreikning húsnæðisbóta vegna ársins 2019 er lokið og hefur því bótaréttur allra umsækjenda, sem hafa skilað skattframtali, verið endurreiknaður samkvæmt álagningu skattyfirvalda fyrir síðasta ár. Niðurstaða lokauppgjörsins hefur verið birt umsækjendum en alls er um að ræða lokauppgjör fyrir rúmlega 20.000 umsækjendur. Enn hafa um 500 einstaklingar ekki skilað skattframtali og því er þeirra niðurstaða ekki enn aðgengileg. Innheimta ofgreiðslna er hafin og inneignir verða greiddar út í júlí. Niðurstöður lokauppgjörs þeirra umsækjanda sem til þess hafa veitt heimild birtast vefviðmóti sveitarfélaganna. Þau sveitarfélög sem ekki hafa aðgang að vefviðmótinu geta óskað eftir aðgangi að því eða upplýsingum frá HMS um niðurstöðu lokauppgjörs skjólstæðinga sinna.
Lykiltölur húsnæðisbóta
maí. 2020
júní. 2020
Heildarfjárhæð greiðslna
509.736.382 kr.
538.700.979 kr.
Fjöldi umsókna að baki greiðslum
15.692
16.261
Meðaltal tekna sem voru notaðar í útreikningi
357.497 kr.
359.147 kr.
Meðaltal eigna sem voru notaðar í útreikningi
738.596 kr.
737.071 kr.
Meðalfjárhæð húsnæðisbóta
32.505 kr.
33.157 kr.
Meðalleigufjárhæð
138.287 kr.
138.159 kr.
hms.is