Skip to main content

Glugginn 3.tlb. 2019

Page 1

Húsnæðisþing 2019, HMS, Stofnframlög, Nýr lánaflokkur, Húsnæðisbætur, Húsnæðisáætlanir og Bríet

Glugginn Fréttabréf Íbúðalánasjóðs

3. tbl. 2019


Glugginn

Sjáumst á Húsnæðisþingi 2019! Félags- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason hefur nú boðað til húsnæðisþings þriðja árið í röð miðvikudaginn 27. nóvember næstkomandi á Hilton Reykjavík Nordica. Húsnæðisþingið er vettvangur fyrir alla þá fjölmörgu aðila sem koma að húsnæðismálum til að hittast og ráða ráðum sínum. Yfirskrift þingsins í ár er „Þjóð undir þaki – jafnvægi og jafnrétti á húsnæðismarkaði“. Boðið verður uppá fjölbreytta dagskrá og er aðgangur að húsnæðisþinginu ókeypis en þó er nauðsynlegt að ganga frá skráningu á þingið. Skráningarform og frekari upplýsingar um þingið má finna á heimasíðu viðburðarins www.husnaedisthing.is. Sveitarstjórnarmenn eru sérstaklega hvattir til þátttöku á Húsnæðisþinginu þar sem birt verður í fyrsta skipti heildstætt mat á húsnæðisþörf eftir landshlutum sem byggt er á niðurstöðum húsnæðisáætlana sveitarfélaga.


09:30

Morgunmatur

10:00

Húsnæðismarkaðurinn 2020

•

•

•

•

•

11:00 •

•

•

•

12:00

Staða og þróun á húsnæðismarkaði Ólafur Sindri Helgason, Íbúðalánasjóður o Álitsgjafar bregðast við Leigumarkaðurinn Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, Íbúðalánasjóður o Álitsgjafar bregðast við Að vera á erfiðum húsnæðismarkaði Nanna Hermannsdóttir, Hagfræðinemi o Álitsgjafar bregðast við Að byggja á Bjargi Björn Traustason, Bjarg íbúðafélag o Álitsgjafar bregðast við SJÓNARHORN – notendavinkill

Nýjar lausnir Jöfn tækifæri Elmar Erlendsson, Íbúðalánasjóður o Álitsgjafar bregðast við Lærdómar síðustu ára Vignir Steinþór Halldórsson, o Álitsgjafar bregðast við Húsnæðisþörf á landsbyggðinni Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri sveitarfélagsins Hornafjarðar o Álitsgjafar bregðast við SJÓNARHORN – notendavinkill

Hádegishlé

13:00 •

•

•

•

•

14:20 •

•

Jafnfrétti og jafnvægi Áherslur stjórnvalda Ásmundur Einar Daðason, Félags- og barnamálaráðherra o Álitsgjafar bregðast við Hlutdeildarlán – Ný húsnæðisaðstoð Kenneth Cameron „Help to buy – did it help?“ o Spurt og svarað með Kenneth Cameron Hvernig virka hlutdeildarlánin? Rún Knútsdóttir, Íbúðalánasjóður o Álitsgjafar bregðast við Staða og þróun á lánamarkaði Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbanka Íslands o Álitsgjafar bregðast við SJÓNARHORN - hagfræðivinkill

Jafnvægi á húsnæðismarkaði Erum við á áætlun? Sigrún Ásta Magnúsdóttir, Íbúðalánasjóður o Álitsgjafar bregðast við SJÓNARHORN – Sérfræðingavinkill

14:40

Kaffihlé

15:00

Vel skal vanda

• •

Samgöngumál eru húsnæðismál Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Formaður borgarráðs o Álitsgjafar bregðast við Stefnumótun, rannsóknir og stjórnsýsla Sigurður Hannesson, Framkvæmdarstjóri SI SJÓNARHORN – umhverfis- og stefnuvinkill Pallborðsumræður

•

Hvað svo? Fundarmenn forgangsraða

•

•

16:15 •

16:30

Samantekt og fundarlok Fundarstjóri dregur saman helstu niðurstöður þingsins

Húsnæðisþingi slitið


Glugginn

Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun

Nýlega voru lögð fram tvö frumvörp á Alþingi sem snúa að húsnæðismálum. Í fyrra frumvarpinu er kveðið á um sameiningu Íbúðalánasjóðs og Mannvirkjastofnunar í nýja öfluga Húsnæðis- og mannvirkjastofnum sem skuli m.a. starfrækja húsnæðisgrunn og byggingargáttina. Með hagnýtingu sveitarfélaga á Byggingargáttinni verða til áður ófáanlegar upplýsingar um stöðu byggingarframkvæmda um allt land og með Húsnæðisgrunni Íbúðalánasjóðs verða upplýsingar um húsnæðismál gerð sveitarfélögum aðgengileg með einföldum hætti. Seinna frumvarpið snýr að breytingum á lögum um almennar íbúðir þar sem m.a. er kveðið á um hækkun tekju- og eignamarka almenna íbúðakerfisins, heimildir til að veita sérstök byggðarframlög þar sem misvægi er í byggingarkostnaði og markaðsverði íbúðarhúsnæðis auk breytinga sem miða að því að lækka fjármagnskostnað stofnframlagshafa, þar með talin heimild til að greiða út 75% stofnframlags við samþykkt umsóknar til þeirra sem áður hafa fengið úthlutað stofnframlögum. Eitt af meginmarkmiðum nýrrar stofnunar er að efla enn frekar samvinnu og samskipti við sveitarfélög landsins í húsnæðismálum.


Glugginn

Úthlutun stofnframlaga 2019 Í lok október fór fram úthlutun stofnframlaga ríkisins fyrir árið 2019. Aldrei hafa fleiri umsóknir borist, en alls bárust 49 umsóknir. Sótt var um stofnframlög til ríkisins fyrir rúmlega 6,3 milljarða króna til bygginga eða kaupa á alls 915 íbúðum. • 26 umsóknir voru samþykktar og var 3,2 milljörðum úthlutað til bygginga eða kaupa á 531 íbúð um land allt. • Samþykkt voru stofnframlög til bygginga á 410 nýjum íbúðum og til kaupa á 121 íbúð.

• Um 64% af samþykktum íbúðum (341 íbúð) eru ætlaðar fjölskyldum og einstaklingum undir tekju- og eignamörkum. Rúmlega þriðjungur íbúða eða 190 íbúðir eru vegna húsnæðis á vegum sveitarfélaga. • Fjórðungi stofnframlaga ríkisins var úthlutað til sveitarfélaga á grundvelli forgangs en alls fengu 15 sveitarfélög úthlutað stofnframlagi að þessu sinni.

• Mestur fjöldi samþykktra íbúða er á höfuðborgarsvæðinu eða samtals 452 íbúðir. Þá var stofnframlagi úthlutað til 18 íbúða á Norðurlandi eystra og 15 íbúða á Vestfjörðum. Nánari útlistun á fjölda samþykktra íbúða eftir landshlutum má sjá á Íslandskorti.


Glugginn

Lán til uppbyggingar á landsbyggðinni Íbúðalánasjóður afgreiddi nú í nóvember fyrstu lánveitingu í nýjum lánaflokki samkvæmt breytingu á reglugerð sem Félags- og barnamálaráðherra undirritaði nú í ágúst. Breyting þessi heimilar að sveitarfélög, einstaklingar og óhagnaðardrifin félög á landsbyggðinni geta tekið lán hjá Íbúðalánasjóði til húsnæðisuppbyggingar á stöðum þar sem opinber húsnæðisáætlun, staðfest af Íbúðalánasjóði, sýnir að skortur sé á húsnæði af því tagi sem byggja á, misvægi sé til staðar milli byggingarkostnaðar og markaðsverðs og fjármögnun á almennum markaði er ekki fyrir hendi. Lánveitingin var til uppbyggingar á 5 íbúðum í raðhúsi við Smárabraut á Blönduósi. Íbúðirnar eru þrjár þriggja herbergja 77,2 m² og tvær fjögurra herbergja 89,8m² og falla vel að þeirri skilgreindri húsnæðisþörf sem kom fram í húsnæðisáætlun sveitarfélagsins. Áætlaður framkvæmdartími verkefnisins er 6 mánuðir og eru verklok áætluð í apríl 2020.

Umsóknir húsnæðisbóta – Lokauppgjör vegna 2018 Vinnu við endurútreikning húsnæðisbóta vegna ársins 2018 er lokið og hefur því bótaréttur allra umsækjenda, sem hafa skilað skattframtali, verið endurreiknaður samkvæmt álagningu skattyfirvalda fyrir síðasta ár. Niðurstaða lokauppgjörsins hefur verið birt umsækjendum en alls er um að ræða lokauppgjör fyrir rúmlega 19.000 umsækjendur. Enn hafa tæplega 500 einstaklingar ekki skilað skattframtali og því er þeirra niðurstaða ekki enn aðgengileg. Niðurstöður lokauppgjörs þeirra umsækjanda sem til þess hafa veitt heimild verða birtar í vefviðmóti sveitarfélaganna innan skamms. Þau sveitarfélög sem ekki hafa aðgang að vefviðmótinu geta óskað eftir upplýsingum frá Íbúðalánasjóði um niðurstöðu lokauppgjörs skjólstæðinga sinna.


Glugginn

Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga Íbúðalánasjóður hefur nú í samræmi við reglugerð nr. 1248/2018, útbúið og gefið út fyrirmynd af húsnæðisáætlun sem sveitarfélög geta haft til hliðsjónar við vinnslu og uppfærslu húsnæðisáætlana. Finna má húsnæðisáætlunina á heimasíðu Íbúðalánasjóðs https://www.ils.is/hagdeild/husnaedisaaetlanir/

Bríet Fyrstu skref Bríet hefur nú verið starfandi í rétt um níu mánuði og hefur tímabilið einkennst bæði af áskorunum og tækifærum. Hlutverk Bríetar er að eiga, reka og leigja út íbúðarhúsnæði til langs tíma. Stuðla að uppbyggingu leigumarkaðs á landsbyggðinni með því m.a. að kaupa, selja og koma að uppbyggingu á hagkvæmu íbúðarhúsnæði. Eignasafn Bríetar samanstendur af 244 eignum og eru af þeim rétt um 200 í útleigu. Eignirnar eru í öllum landshlutum og samanstendur safnið af öllum tegundum og stærðum húsnæðis, í bæði sérbýli og eða fjölbýli. Helstu áskoranir Bríetar á þeim tíma sem hún hefur verið starfandi hefur verið að ná utan um ástand og viðhaldsþörf eignasafnsins og er því verkefni ekki enn að fullu lokið. Fyrstu starfsmánuði Bríetar hefur verið lögð mikil áhersla á innleiðingu rafrænna og skilvirkra kerfa ásamt því að byggja upp og styrkja innviði félagsins. Bríet mun leggja áherslu á það í framtíðinni að finna leiðir til að byggja upp styrkja eignasafn sitt þannig það styðji við og efli leigumarkaðinn á landsbyggðinni. Næstu skref Bríetar eru meðal annars að stofna til samstarfs við sveitarfélög landsins ásamt því að kynna starfsemi félagsins með markvissum hætti fyrir sveitarfélögunum. Markmið þessa samstarfs er að greina þörf á uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni og útfæra með hvaða hætti Bríet geti átt aðkomu að slíkri uppbyggingu.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Glugginn 3.tlb. 2019 by Húsnæðis- og mannvirkjastofnun - Issuu