Glugginn Fréttabréf Íbúðalánasjóðs
2. tbl. 2019
Glugginn
Ný stofnun Húsnæðis- og mannvirkjamála
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun stofnuð um áramót Um miðjan júlí var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp til laga um stofnun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Áætlað er að ný stofnun húsnæðis- og mannvirkjamála taki til starfa þann 1.janúar 2020 og felur hún í sér sameiningu Íbúðalánasjóðs og Mannvirkjastofnunar. Með sameiningunni verður unnt að efla enn frekar stjórnsýslu, stefnumótun og framkvæmd húsnæðis- og mannvirkjamála með tillögur átakshóps um húsnæðismál að leiðarljósi, og auka samstarf við sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila. Íbúðalánasjóður hefur það hlutverk að annast stefnumótun og framkvæmd húsnæðismála. Íbúðalánasjóði er m.a. ætlað að stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði og auknu aðgengi almennings að viðunandi húsnæði á viðráðanlegu verði. Mannvirkjastofnun hefur yfirumsjón með stjórnsýslu mannvirkjamála og er ætlað að stuðla að því að húsnæði sé öruggt og heilsusamlegt og að við hönnun þess sé horft til verndunar umhverfis og aðgengi fyrir alla. Með sameiningu stofnananna tveggja verður til ný stofnun með heildaryfirsýn yfir málaflokk húsnæðismála sem er til þess fallið að auka skilvirkni og hagkvæmni í allri stjórnsýslu húsnæðis- og mannvirkjamála. Nýrri stofnun verður falið að framfylgja stefnu stjórnvalda í húsnæðismálum og mannvirkjagerð m.a. með rannsóknum, upplýsingagjöf og áætlanagerð. Þá er stofnununum ætlað að tryggja að almenningur hafi aðgengi að viðunandi og öruggu húsnæði á viðráðanlegu verði í samræmi við þarfir hvers og eins, óháð efnahag og búsetu. Stofnuninni er einnig ætlað það hlutverk að tryggja fyrirsjáanleika, skilvirkni og gæði mannvirkjagerðar og hafa eftirfylgni með húsnæðisáætlunum sveitarfélaga, auk þess að vinna að einföldun regluverks og stjórnsýslu byggingaframkvæmda.
Gert er ráð fyrir að hin nýja stofnun fari áfram með lánveitingar og annan húsnæðisstuðning líkt og Íbúðalánasjóður gerir nú í samræmi við það hlutverk að veita þjónustu í almannaþágu á sviði húsnæðismála. Frumvarpið byggir á niðurstöðu starfshóps sem var skipaður af félags- og barnamálaráðherra og var falið að kanna fýsileika sameiningar Íbúðalánasjóðs og Mannvirkjastofnunar til þess að efla stjórnsýslu á sviði húsnæðismála í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Í skýrslu starfshópsins komu m.a. fram eftirfarandi ávinningar með sameiningu: • Til verður öflugri stuðnings- og samstarfsaðili við sveitarfélögin á sviði húsnæðismála. • Hraða má innleiðingu aukinnar rafrænnar stjórnsýslu. • Tækifæri skapist til að bæta og auka þjónustu við almenning og byggingariðnaðinn þar sem stærri stofnun getur brugðist hratt við erindum og innleitt breytingar á skömmum tíma. • Nýsköpun í byggingariðnaði eflist og samskipti stjórnvalda við hönnunar- og byggingaraðila verða bætt. • Greiningargeta hagdeildar bætist enn frekar og upplýsingagjöf til almennings um húsnæðis-, lána- og byggingamarkað verður markvissari. Meginstarfsemi HMS eftir sameininguna verður: • Húsnæðismál; veiting félagslegra lána og stofnframlaga til byggingar á leiguíbúðum. • Mannvirkjamál; eftirlit með byggingum og framfylgd byggingareglugerðar. • Rafræn þjónusta og áætlanir; húsnæðisgrunnur, byggingagátt og húsnæðisáætlanir sveitarfélaga. • Húsnæðisstuðningur; húsnæðisbætur, upplýsingagjöf og sérstakar bætur.
Glugginn
Tillögur til þess að styrkja húsnæðismarkað á landsbyggðinni
Landsbyggðarverkefni - Tólf tillögur til þess að styrkja húsnæðismarkað á landsbyggðinni Á dögunum kynnti Ásmundur Einar Daðason, félagsog barnamálaráðherra áform sín um að breyta lögum og reglugerðum í þeim tilgangi að styrkja húsnæðismarkaðinn á landsbyggðinni og koma til móts við þær áskoranir sem fjölmörg sveitarfélög standa frammi fyrir í húsnæðismálum. Birti hann stöðuskýrslu þess efnis í samráðsgátt stjórnvalda. Síðastliðið haust fór Íbúðalánasjóður af stað með tilraunaverkefni að frumkvæði ráðherra í því skyni að leita leiða til þess að bregðast við langvarandi stöðnun á húsnæðismarkaði á landsbyggðinni. Í samvinnu við Byggðastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga voru valin sjö sveitarfélög sem eru að glíma við ólíkar áskoranir í húsnæðismálum en eiga það þó sameiginlegt að óvirkur íbúða- og eða leigumarkaður hefur staðið framþróun á ýmsum sviðum í sveitarfélaginu fyrir þrifum.
Ráðherra boðar að unnið sé að reglugerð um nýjan lánaflokk hjá Íbúðalánasjóði sem auðveldar sjóðnum að veita fjármögnun til nýbyggingaverkefna á landsbyggðinni. Hann leggur áherslu á að tryggja þurfi íbúum landsbyggðarinnar aðgengi að fjármagni á sambærilegum kjörum og fást á virkari markaðssvæðum.
Undanfarna mánuði hefur Íbúðalánasjóður unnið náið með þeim sveitarfélögum sem valin voru til þátttöku í tilraunaverkefninu að því að greina þær áskoranir sem þau standa frammi fyrir í húsnæðismálum og finna mögulegar lausnir til þess að takast á við þær. Áform þau er ráðherra hefur nú kynnt byggja meðal annars á niðurstöðum þeirrar vinnu.
Þá vill ráðherra bregðast við skorti á hagkvæmu leiguhúsnæði með því að gera sveitarfélögum á landsbyggðinni kleift að byggja íbúðir í almenna íbúðakerfinu með stofnframlagi ríkisins. Enn fremur leggur hann til að heimilt verði að veita sérstakt byggðaframlag vegna leiguíbúða á svæðum þar sem misvægi ríkir á milli byggingarkostnaðar og markaðsverðs og þá verði heimildir sveitarfélaga til þess að leggja fram stofnframlög rýmkaðar.
Tillögur ráðherra eru settar fram í þremur liðum og snúa þær að stofnkostnaði íbúðabygginga, fjármögnun þeirra og leiðum til þess að efla leigumarkað með auknu framboði á hagkvæmu leiguhúsnæði.
Það er von Íbúðalánasjóðs að tillögur þessar mælist vel fyrir og vill sjóðurinn þakka sveitarfélögunum þann mikla áhuga sem verkefninu hefur verið sýndur og fyrir góða samvinnu í þessu verkefni sem og öðrum.
Glugginn
Tvö ný stjórntæki hins opinbera í húsnæðismálum kynnt
Tvö ný stjórntæki hins opinbera kynnt - Fundaröð Á vormánuðum tóku Íbúðalánasjóður og Mannvirkjastofnun höndum saman og funduðu með sveitarfélögum víðs vegar um landið í þeim tilgangi að kynna tvö ný stjórntæki hins opinbera í húsnæðismálum. Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga og Byggingargátt Mannvirkjastofnunar eru ný stjórntæki hins opinbera, ríkis og sveitarfélaga, í húsnæðismálum sem munu nýtast við að greina þörf fyrir húsnæði, bæta áætlanagerð við mat á húsnæðisþörf og bæta eftirfylgni með því hvort verið sé að byggja húsnæði í samræmi við þörf á hverjum tíma. Megintilgangur með fundarröðinni er að fara yfir stöðu húsnæðisáætlana, kynna möguleika húsnæðisgrunns Íbúðalánasjóðs og notkun rafrænnar byggingagáttar Mannvirkjastofnunar. Nú þegar hafa fulltrúar stofnananna hitt forsvarsmenn og fulltrúa skipulags- og byggingarmála hjá 36 sveitarfélögum. Hafa fulltrúar stofnananna fengið góðar móttökur og hafa skapast mjög áhugaverðar og skemmtilegar umræður á öllum fundunum. Þá hefur einnig skinið vel í gegn hversu mikil samstaða ríkir um mikilvægi þess að koma þessum tveimur stjórntækjum í notkun. Haldið verður áfram með fundaröðina frá og með miðjum ágúst og er stefnan að hitta sem flest sveitarfélög landsins áður en langt líður á haustið.
Glugginn
Staða húsnæðismála hjá sveitarfélögum, umsóknir húsnæðisbóta og stofnframlög
Staða húsnæðismála hjá sveitarfélögum
Úthlutun stofnframlaga 2019 – staða úthlutunar
Íbúðalánasjóður hefur verið falið að taka yfir árlega könnun um stöðu húsnæðismála hjá sveitarfélögunum sem áður var á hendi Varasjóðs húsnæðismála. Í fyrra var könnunin gerð með rafrænum hætti og verður hún framkvæmd með sambærilegum hætti í ár.
Eins og fram kom í síðasta tölublaði Gluggans barst metfjöldi umsókna um stofnframlög ríkisins fyrir árið 2019. Alls bárust 45 umsóknir og nam heildar umsóknarfjárhæð rúmlega 6 milljörðum króna. Mat á umsóknum hefur tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir en matsferli er nú langt komið og er lagt allt kapp á það innan sjóðsins að úthlutun liggi fyrir eins fljótt og auðið er.
Tengill á könnunina var sendur til allra sveitarfélaga í byrjun júnímánaðar og var óskað eftir því að svör myndu berast eigi síðar en 28. júní 2019. Tilgangur könnunarinnar er að fylgjast með framvindu og breytingum á stöðu leiguíbúða í eigu sveitarfélaga á landinu. Upplýsingarnar úr könnuninni koma m.a. að notum við stefnumótun stjórnvalda í húsnæðismálum og því er mikilvægt að svörun sé góð. Alls tóku 55 sveitarfélög þátt í könnuninni (76% af sveitarfélögum landsins) og er nú unnið að greiningu á þeim gögnum sem bárust. Umsóknir húsnæðisbóta Í sumar hefur staðið yfir vinna við að endurreikna húsnæðisbætur vegna ársins 2018 sem byggir á álagningu skattyfirvalda. Sú vinna er langt komin og hefur niðurstaða lokauppjörsins verið birt rúmlega 15 þúsund umsækjendum eða um 82% þiggjenda húsnæðisbóta á árinu 2018. Þegar vinnu við lokauppgjör lýkur munu niðurstöður, þeirra sem hafa veitt til þess heimild, verða birtar í vefviðmóti sveitarfélaganna.