
2 minute read
05 Hvernig sýna skal merkingar
05
Hvernig sýna skal merkingar
Þessi hluti leiðarvísisins lýsir því hvar orkumerkingar eiga að vera staðsettar á öllum vöruflokkum til að fylgja viðkomandi reglugerð og hverju litið er eftir þegar skoðað er hvort vara standist kröfur við markaðseftirlit.
Algengustu mistök seljenda eru að sýna ekki merkimiða sem framleiðandi lætur í té. Ef framleiðandinn hefur ekki gert það skal biðja hann samstundis. Framleiðanda ber að afhenda hann innan fimm virkra daga.
Hvort sem það er gert í gegnum þjálfun, sérstaka verkferla eða „vana“ ætti að vera mögulegt að ná góðum árangri í að hafa réttar og rétt staðsettar orkumerkingar í öllum vöruflokkum.
Þegar vara er komin í verslun, hvort sem hún er í umbúðum eða ekki, þar sem neytandi getur keypt vöruna er litið svo á að hún sé komin á sölustað og ætti þá að vera merkt.
Merkimiða vantar
Röng framsetning merkimiðans
50
Merkimiði er óskýr Handskrifaður merkimiði
Rifinn eða skemmdur merkimiði Röng staðsetning merkimiða
45000000890
Rangt útlit merkimiða
Nýi og gamli merkimiði báðir á tækinu
Undantekningar frá reglunni
Vörur notaðar til sýnis
Ef tiltekin gerð vöru er eingöngu notuð til útstillingar þarf hún ekki að vera orkumerkt. Sé þessi gerð hins vegar til sölu á viðkomandi sölustað þarf hún að vera orkumerkt.
Vörur í umbúðum
Seljendur sýna oft vörur í umbúðum eins og „Black Friday“. Þegar vara í umbúðum er sýnd án greinilegrar orkumerkingar verður seljandi að sjá til þess að umbúðalaust eintak af sömu vöru með orkumerkingu sé einnig til sýnis.
Hvað skal gera ef merki miði er ekki útvegaður
Í þeim tilfellum þar sem framleiðandinn útvegar ekki viðeigandi orkumerkimiða innan fimm virkra daga er hægt að búa til orkumerkimiða með því að nota European Commission´s EU Energy Label Generator. Þar geta allir búið til viðeigandi orkumerkimiða vöru í samræmi við reglugerðir um orkumerkingar. Til að búa til réttar orkumerkingar þarf viðeigandi upplýsingar frá vöruupplýsingablaði birgis eða frá heimasíðu hans.
Fyrir bakarofns til heimilisnota þarf til dæmis:
• Nafn eða vörumerki birgis • Tegundarauðkenni birgis • Orkunýtniflokk • Nýtanlegt rúmmál hólfs í lítrum • Orkunotkun á hverja lotu gefin upp í kWh/lotu (hefðbundin) • Orkunotkun á hverja lotu gefin upp í kWh/lotu (blásturshitun) • Hér má nálgast European Commission´s EU Energy
Label Generator: https://ec.europa.eu/energy/eepf-la-
bels_en?redir=1
https://ec.europa.eu/energy/en/eepf-labels https://ec.europa.eu/energy/eepf-labels_en?redir=1
Athugið: Nýju orkumerkimiðarnir eru búnir til í EPREL-vörugagnagrunninum, þar á meðal QR-kóðar.
440 6400