
ársrit 2025

![]()

ársrit 2025

RX 45 0 h+ Pl ug-i n H ybri d
Þessi einstaki lúxussportjeppi hrífur þig strax við fyrstu kynni, enda hannaður til að skera sig úr og taka forystu.
Komdu í Kauptúnið - þín bíður óviðjafnanleg akstursupplifun!

Ágætu GKG-félagar !
Síðast liðið starfsár hefur verið frábært hjá okkur í klúbbnum. Vellirnir voru opnaðir með allra fyrsta móti í lok apríl. Enda voru leiknir mun fleiri hringir á golfvöllunum en síðustu árin, alls 65.465 hringir á völlunum tveimur, og þá eru ekki inni í þeirri tölu hringir þeirra sem leika fyrir og eftir rástímagluggann sem er frá 7 að morgni til 22 á kvöldin.
Tekið var upp nýtt fyrirkomulag við rástímaskráningu á völlunum þar sem félagsmenn gátu skráð allt að 4 rástíma fram í tímann.
Ánægja var almenn hjá félagsmönnum sem lærðu fljótt, að nú þurfti ekki að sitja við tölvuna kl. 9 á kvöldin til að tryggja sér rástíma að fjórum dögum liðnum. Meistaramót fór fram í upphafi júlímánaðar. Alls tóku 502 keppendur þátt, sem er má segja hámarksfjöldi keppenda miðað við dagafjölda mótsins.
Vellirnir voru í frábæru standi og urðu bara betri er leið á sumarið.
„Aldrei verið betri“ að margra mati. Þökk sé vallarstjórateyminu og þeirra fólki.

Jón Júlíusson formaður GKG
Frá vinstri:
Sigurður Kristinn Egilsson, Sigurjón Sigurjónsson, Ragnheiður Stephensen, Berglind Stefanía Jónasdóttir, Jón Júlíusson, Sigmundur Einar Másson, Einar Þorsteinsson og Birgir Leifur Hafþórsson. Á myndina vantar Sigríði Olgeirsdóttur.
EFNISYFIRLIT
4. Skýrsla stjórnar
8. Stjórn og nefndir
9. Skipting félagsmanna
11. Íþróttasvið
17. Háttvísibikarinn
19. GEO vottun
21. Kvennanefnd
Agnar Már Jónsson framkvæmdastjóri GKG agnar@gkg.is

23. Af hverju skipta íþróttir máli?
25. Gunnlaugur Árni
27. Hulda Clara atvinnukona
29. Mótanefnd
32. Úrslit Meistaramóts 2025
39. Öldungar 65+
40. Nýting valla
41. Vallarstjóri
42. Sjálfbærniverðlaun GSÍ

44. Vetrarnámskeið Hlöðvers
45. Vallarnefnd
47. Viðburðarnefnd
48. Áritun stjórnar
49. Áritun óháðs endurskoðanda
52 - 53. Rekstraryfirlit og Efnahagsreikningur
54. Sjóðstreymi
56. Líflegur golfklúbbur (myndir)
58. - 59. Klúbb- og Íslandsmeistarar 2025
Ársrit GKG 2025 Útgefandi: Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar. Ábyrgðarmaður: Agnar Már Jónsson. Umbrot/uppsetning: Sigurður Hlöðversson. Forsíðumynd: Bransen Phillips LSU photos Ljósmyndir: Agnar Már Jónsson, Guðmundur Árni Gunnarsson, Marinó Már Magnússon, Magnús Már Harðarson ræsir, Ingó og myndir frá félagsmönnum. Prentun: Svansprent.


Stjórnarstörf
Stjórnin hélt 12 stjórnarfundi á árinu, og skipti með sér verkum á fyrsta fundi nýrrar stjórnar.
• Ragnheiður Stephensen var kosin varaformaður og formaður mótanefndar og fulltrúi í vallarnefnd.
• Sigurjón Sigurjónsson ritari og formaður vottunarnefndar (GEO), og fulltrúi í mótanefnd.
• Einar Þorsteinsson gjaldkeri og formaður vallar- og trjáræktarnefndar.
• Sigmundur Einar Másson meðstjórnandi og formaður íþróttanefndar
• Berglind Stefanía Jónsdóttir meðstjórnandi og formaður kvennanefndar
• Sigurður Kristinn Egilsson meðstjórnandi og fulltrúi í vallarnefnd
• Sigríður Olgeirsdóttir meðstjórnandi og fulltrúi í vottunarnefnd (GEO) og mullingannefnd
• Birgir Leifur Hafþórsson meðstjórnandi og fulltrúi í íþróttaog vallarnefnd.
Og vil ég fyrir hönd GKG þakka þeim fyrir þeirra störf á árinu. Eins og undanfarin ár setti stjórnin sér starfsáætlun, sem miðaði að því að auk fastra dagskrárliða, yrðu ákveðin þemaefni á hverjum stjórnarfundi þar sem rætt væri nánar um það sem helst væri á baugi í þeim málaflokkum.
Félagar í GKG - mikilvægi lýðheilsustarfs
Í ár voru 2934 kylfingar skráðir í GKG. Fullborgandi kylfingum var fækkað um 30 en töluverð fjölgun var í barna- og unglingastarfinu sem og kylfingum 70 ára og eldri.
Aldurshópar GKG skiptast með eftirfarandi hætti; börn og unglingar eru 876, að leikjanámskeiðum meðtöldum. Á aldursbilinu 19 til 25 eru 187, hinn almenni kylfingur á aldursbilinu 26 til 69 ára telur 1454 meðlimi og ellismellirnir eru 417 talsins. GKG er því sannarlega lýðheilsustofnun allrar fjölskyldunnar og eftir að Íþróttamiðstöðin reis nýta þessir kylfingar þjónustu okkar allan ársins hring.
Mikilvægi GKG í nær-samfélaginu er gríðarlega mikilvægt. Við erum uppeldisstofnun barna- og unglinga. Hinn almenni félagsmaður sækir sér hreyfingu til okkar og síðast en ekki síst er stór hópur eldri borgara sem sinnir ekki bara hreyfingu heldur sækir félagskap sín á milli, margir hverjir á hverjum einasta degi allt árið umkring. Í starfinu blandast þessir aldurshópar saman, afar, ömmur, foreldrar, börn og barnabörn spila saman íþróttina sumar vetur vor og haust.
Rannsóknir hafa sýnt fram á, að golfíþróttin er ein allra mikilvægasta íþróttin þegar kemur að bættri lýðheilsu íbúa. Þeir sem stunda golfíþróttina að staðaldri lifa að „meðaltali 5 árum lengur“ en þeir sem ekki stunda golf.
Sundlaugarnar á Álftanesi og
í Ásgarði eru opnar til kl. 22:00 á virkum dögum og til kl. 18:00
um helgar. Sjáumst í sundi!

Íþróttastarfið
GKG hefur þá sérstöðu umfram aðra golfklúbba að höfuðáherslan er lögð á íþróttastarfið. Sú áhersla hefur haldið frá stofnun klúbbsins má segja að nýliðið keppnistímabil hafi verið einstaklega gjöfult hvað varðar árangur okkar afrekskylfinga, en alls komu 7 Íslandsmeistaratitlar á land!
Gunnlaugur Árni Sveinsson og Hulda Clara Gestsdóttir stóðu sig frábærlega á árinu og er Gulli kominn í 8. sæti heimslista áhugamanna. Hulda Clara gerðist atvinnumaður í haust og keppir á úrtökumóti núna í nóvember til að komast á LET evrópsku mótaröðina. Í ársritinu getið þið séð yfirlit um þeirra frábæra árangur á árinu.
Óskum við þessum aðilum sem og GKG-ingum öllum innilega til hamingju með árangurinn. Listi yfir Íslandsmeistarana má finna í kaflanum um íþróttamálin.
Vellir og mannvirki
Eins og síðustu árin eru stóru verkefnin framundan á félagssvæði GKG, uppbygging á 9 holu golfvelli í stað Mýrarinnar og bygging á nýrri þjónustumiðstöð fyrir golfvellina. Vinna við deiliskipulag Hnoðraholtsins sem og nánasta umhverfis Golfvallarsvæðisins hefur verið samþykkt og biður nú staðfestingar skipulagsstofnunar.
Haldnir hafa verið nokkrir fundir með fulltrúum sveitarfélaganna, um skipulagsmál á árinu, og vonir standa til að á allra næstu vikum náist samningar um frekari uppbyggingu hjá GKG.
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
- GEO-vottað íþróttafélag
GKG fékk GEO-vottun í júlí og gildir hún í þrjú ár í senn. Það er mikil vinna að baki þessari vottun, en þessi vinna á eftir að nýtast félaginu til framtíðar og mun leiða til sparnaðar til lengri tíma litið. Við getum með stolti sagt að sjálfbærni sé hluti af daglegri starfsemi félagsins.
GKG hlaut síðan sjálfbærniverðlaun Golfsambands Íslands á golfþingi GSÍ þann 15. nóvember síðastliðinn.
Til hamingju GKG-ingar.
Nýr rekstraraðili í Mulligan
Nýir vertar taka við veitingaþjónustunni hjá GKG., Um síðustu mánaðarmót , okt – nóv., hættu þau Tommi og Jana með veitingaþjónustuna í Mulligan eftir 6 ára samstarf við GKG. Vil ég fyrir hönd GKG þakka þeim fyrir þeirra samstarf og framlag til GKG menningarinnar og óska þeim alls velfarnaðar í nýjum verkefnum sem bíða þeirra.
Þann 1. nóvember sl. tóku þau Ólafur, Sólveig og Íris við veitingaþjónustu Mulligan, en Ólafur og Sólveig hafa rekið Brasserie Kársnes undan farin ár við góðan orðstír. Bjóðum við þau velkomin til starfa.
Fjármálin
Það er mikilvægt að rekstur GKG gangi vel og skili hagnaði sem nýttur er til fjárfestinga í völlum, tækjum og aðstöðu. Árið í ár var gott rekstrarlega séð. Rekstrartekjur voru 570 milljónir og jukust um rúmar 43 milljónir á milli ára. Rekstrargjöldin voru tæpar 514 milljónir og rekstrarhagnaður að teknu tilliti til fjármunatekna voru tæpar 57 milljónir.
Ég vil nota tækifærið nú í lokin að þakka öllum starfsmönnum GKG fyrir þeirra störf sem og þeim sjálfboðaliðum sem komið hafa að starfi GKG á árinu.
Við GKG-ingar getum horft björtum augum til næstu ára með tilhlökkun um bætta aðstöðu og bros á vör.
Áfram GKG!!!!
Jón Júlíusson, formaður
Stjórn, starfsfólk og nefndir 2025
Stjórn
Formaður
Jón Júlíusson
Varaformaður
Ragnheiður Stephensen
Ritari
Sigurjón Sigurjónsson
Gjaldkeri
Einar Þorsteinsson
Meðstjórnendur
Berglind Stefanía Jónasdóttir
Birgir Leifur Hafþórsson
Sigmundur Einar Másson
Sigríður Olgeirsdóttir
Sigurður Kristinn Egilsson
Framkvæmdastjóri
Agnar Már Jónsson
Þjónustustjóri
Úlfar Jónsson
Vallarstjóri
Kate Stillwell
Aðstoðarvallarstjóri
Viktor Freyr Sigurðsson
Sviðsstjóri vallarsviðs
Guðmundur Árni Gunnarsson
Þúsundþjalasmiður
Andrés I. Guðmundsson
Íþróttastjóri/PGA kennari
Guðmundur Daníelsson
Fagstjóri íþróttasviðs/PGA kennari
Haukur Már Ólafsson
PGA kennari
Andrés Davíðsson
Arnar Már Ólafsson
Aron Snær Júlíusson
Unglingaþjálfari/PGA kennari
Aron Snær Júlíusson
Golfverslun GKG
Sigfinnur Helgi Gunnarsson
Öldunganefnd
Kristján Snædal formaður
Atli Ágústsson
Gunnar Árnason
Einar B. Tómasson
Elísabet Þórdís Harðardóttir
Soffía Ákadóttir
Árni Gunnarsson
Friðbjörn Steinsson
Lilja Ólafsdóttir
Íþróttanefnd:
Sigmundur Einar Másson, formaður
Birgir Leifur Hafþórsson
Etna Sigurðardóttir
Sveinn Kristinn Ögmundsson
Thelma Harðardóttir
Foreldraráð
Helena Gunnarsdóttir
Hrafnhildur Björnsdóttir
Lena Heimisdóttir
Margrét Björg Guðmundsdóttir
Thelma Harðardóttir
Kvennanefnd
Berglind S. Jónasdóttir, formaður
Hulda Ólafsdóttir Klein, varaformaður
Hanna María Hjálmtýsdóttir, gjaldkeri
Ingibjörg Hinriksdóttir, ritari
Meðstjórnendur
Ásta Huld Henrýsdóttir
Elín María Sigurðardóttir
Sigrún Hallsdóttir
Sigríður Bergþórsdóttir
Mótanefnd
Ragnheiður Stephensen, formaður Alls störfuðu 47 virkir sjálfboðaliðar, þar af 12 dómarar klúbbsins með mótanefndinni.
Vallarnefnd
Einar Þorsteinsson, formaður Bergsveinn Þórarinsson
Birgir Leifur Hafþórsson
Ingibjörg Hinriksdóttir
Ragnar Már Garðarsson
Ragnheiður Stephensen
Sigurður Kristinn Egilsson
Viðburðarnefnd
Markús Einarsson, formaður
Ingibjörg Hinriksdóttir
Heiða Hauksdóttir
Aganefnd
Bergþóra Sigmundsdóttir, formaður
Ragnheiður Stephensen
Bergsveinn Þórarinsson
Forgjafarnefnd
Kjartan Bjarnason, formaður
Sæmundur Melsted
Bergveinn Þórarinsson
Kynningarnefnd
Sigurður Hlöðversson
Trjáræktarnefnd
Einar Þorsteinsson, formaður Jens Sigurðsson
Jón Ingvar Jónasson
Dómarar sem störfuðu fyrir GKG á árinu
Ásta Kristín Valgarðsdóttir
Bergsveinn Þórarinsson
Bergþóra Sigmundsdóttir
Eggert Ólafsson
Heimir Jón Guðjónsson
Helgi Már Halldórsson
Jón K. Baldursson
Kjartan Bjarnason
Leifur Geir Hafsteinsson
Magnús Bjargarson
Sæmundur Melstað Þorgrímur Toggi Björnsson Þorsteinn Guðmundsson
Verkstæðisformenn
Árni Ingi Steinsson
Davíð Guðmundsson
(lést í júlí)
Vallarstarfsmaður
Anatolii Kolesnyk
Skrúðgarðyrkja
Georg Rúnar Elfarsson
Búseta félagsmanna í lok starfsárs 2025
Aldursskipting félaga í lok starfsárs 2025
Kynjaskipting félagsmanna í lok starfsárs 2025 Allir félagsmenn

nnur allt í jólapakkann hjá Nova!


Græjaðu iPhone 17 í jólapakkann og pakkaðu til jólanna!


Horfðu inn í framtíðina. Þessi þýða y r 140 tungumál í rauntíma!



Nú mega hljóðin koma!



Fyrir litla sem stóra pakkara



Gefur þú PS5 Pro í hörðum pakka í ár?





Tilvalinn í jólapakkann!




Jólamyndin í ár!

Þessi koma sér vel e ir jólasukkið!


Jólin verða leikur einn með réttu gjö nni!









PGA kennarar, þjálfun og kennsla:
Andrés Jón Davíðsson, afreksþjálfun
Arnar Már Ólafsson, afreksþjálfun
Aron Snær Júlíusson, afreks/barna/unglingaþjálfun
Guðmundur Daníelsson, íþróttastjóri
Haukur Már Ólafsson, fagstóri
Skólastjóri leikjanámskeiða:
Guðmundur Daníelsson, íþróttastjóri




Hlutverk íþróttanefndar GKG
• Leitast við að skapa kylfingum í GKG aðbúnað og atlæti sem stenst samjöfnuð við það sem best gerist á Íslandi.
• Mótar afreksstefnu GKG í samráði við íþróttastjóra.
• Mótar stefnu GKG sem fjölskylduvæns íþróttafélags í samráði við íþróttastjóra.
• Stendur fyrir fræðslufundum fyrir félaga í GKG í samvinnu við íþróttastjóra og dómara GKG.
• Skipar foreldraráð GKG, sem hefur umsjón með öðru barnaog unglingastarfi GKG en telst beint íþróttastarf.
Barna- og
unglingastarf GKG
Hjá GKG stunda börn og unglingar æfingar nánast allt árið um kring. Sveigjanleiki hvað ástundun varðar er mikill og er boðið upp á að æfa 1-3 sinnum í viku eða í afrekshópum þar sem æft er allt að 5 sinnum í viku.
Nauðsynlegt er að vera félagi í GKG til að sækja æfingarnar.
Heildarfjöldi 18 ára og yngri í GKG
Súluritið sýnir heildarfjölda 18 ára og yngri 20222025. Einnig til viðmiðunar fjöldann árið 2006 þegar kominn var ákveðinn þroski í barna- og unglingastarf klúbbsins.
námskeið fyrir og eftir hádegi og voru því 14 námskeið voru í boði.
Heildarskráning þátttakenda sumarið 2025 var 574. Alls tók 526 einstaklingur þátt í námskeiðum GKG, margir tóku því fleiri en eitt námskeið.
Námskeið fyrir þennan fjölda ungra einstaklinga krefst mikillar skipulagningu og mannauðs svo vel fari, svo ekki sé minnst á aðstöðu sem höndlar þennan mikla fjölda. Tæplega 600 einstaklingar er í raun fyrir ofan þolmörk eins og námskeiðin eru útfærð núna. Við viljum líka hækka gæðin á námskeiðunum og veita þátttakendum betri þjónustu. Útfærsla er í farvatninu hvernig við getum náð þeim markmiðum að hafa námskeiðin örugg og veita þau gæði að ungir iðkendur smitist af golfbakteríunni og læri í leiðinni grunnatriði leiksins.

Keppnir barna og unglinga
Sérstakt átak þarf að eiga sér stað til að laða að fleiri stúlkur en svo virðist sem þær séu að horfa til annara íþrótta en golfsins, en þetta virðist vera þróunin í öðrum klúbbum og á norðurlöndum.
Skipting iðkenda árið 2025
Golfleikjanámskeið: 526
Almennar æfingar og aðild: 350
Golfleikjanámskeið 6-12 ára
Sumarið 2025 voru námskeiðsvikurnar 7 og voru haldin
Líkt og undanfarin ár þá stóðum við fyrir tveim mótaröðum fyrir yngri kylfingana okkar. Flóridana mótaröðin var spiluð á Mýrinni. Sú mótaröð er ætluð þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á golfvellinum. Kristalsmótaröðin er spiluð á Leirdalsvelli og er ætluð þeim kylfingum sem að eru komnir lengra í íþróttinni.
Þetta er 18 árið sem að þessar mótaraðir eru spilaðar.
Alls tóku 37 kylfingar þátt í Flóridana mótaröðinni og 71 kylfingur tók þátt í Kristalsmótaröðinni.

Árangur afreksfólks GKG
Árangur kylfingana okkar var mjög góður sumarið 2025. Titlarnir þetta árið voru 7 og getum við verið mjög stolt af öllum okkar Íslandsmeisturum.
Klúbbmeistarar GKG
Una Karen Guðmundsdóttir og Aron Snær Júlíusson
Íslandsmeistaratitlar 2025
Íslandsmeistarar golfklúbba í drengjaflokki 14 ára og yngri
Sveinbjörn Viktor Steingrímsson, Jón Reykdal Snorrason, Bjartur
Ægisson, Eiríkur Bogi Karlsson, Emil Máni Lúðvíksson, Matthías Jörvi Jensson.
Íslandsmeistarar golfklúbba í drengjaflokki 12 ára og yngri
Jón Reykdal Snorrason, Þorleifur Ingi Birgisson, Eiríkur Bogi
Karlsson, Leon Mikael Elfarsson, Gabríel Þór Sigurðarson.
Íslandsmeistari í holukeppni drengja 12 ára og yngri
Jón Reykdal Snorrason
Íslandsmeistari í höggleik drengja 12 ára og yngri
Jón Reykdal Snorrason
Íslandsmeistari í höggleik drengja 14 ára og yngri
Matthías Jörvi Jensson
Íslandsmeistari í höggleik pilta 15-16 ára
Arnar Daði Svavarsson
Íslandsmeistari í holukeppni pilta 17-18 ára
Gunnar Þór Heimisson
Landsmeistarar golfklúbba í flokki 65 ára og eldri kvenna
Elísabet Böðvarsdóttir, María Málfríður Guðnadóttir, Jóhanna
Ríkey Sigurðardóttir, Hanna Bára Guðjónsdóttir, Steinunn
Helgadóttir, Sigríður Olgeirsdóttir.
Landsmeistarar golfklúbba í flokki 65 ára og eldri karla
Hlöðver Sigurgeir Guðnason, Andrés I Guðmundsson, Gunnar Árnason, Eyþór Einarsson, Helgi Svanberg Ingason, Jóhann Unnsteinsson, Þorsteinn Reynir Þórsson.
Stigameistarar
Arnar Daði Svavarsson – 15-16 ára piltar
Gunnar Þór Heimisson – 17-18 ára piltar
Landsliðssæti
EM stúlknalandslið – Eva Fanney Matthíasdóttir, Embla Hrönn Hallsdóttir, Elísabet Sunna Scheving
EM piltalandslið – Guðjón Frans Halldórsson, Gunnar Þór
Heimisson og Arnar Daði Svavarsson
EM karlalandslið – Gunnlaugur Árni Sveinsson
EM kvennalandslið – Hulda Clara Gestsdóttir, Perla Sól
Sigurbrandsdóttir
EM einstaklinga - Hulda Clara Gestsdóttir, Perla Sól
Sigurbrandsdóttir
Öldungalandslið
EM landslið kvenna 50+ - Ragnheiður Sigurðardóttir
Viðurkenningar
Mestu framfarir:
Hanna Karen Ríkharðsdóttir og Matthías Jörvi Jensson
Efnilegust :
Embla Dröfn Hákonardóttir og Jón Reykdal Snorrason

Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur (kylfingur ársins):
Embla Hrönn Hallsdóttir
Endaði í 2. sæti á stigalista GSÍ 15-16 ára.
Vann Nettó mótið okkar á GSÍ mótaröðinni
Var í öðru sæti í Íslandsmóti í höggleik 15-16 ára
Var í þriðja sæti í ísl móti í holukeppni 15-16 ára
Keppti með stúlknalandsliðinu á EM stúlkna í Englandi
Var í landsliðshóp 18 ára og yngri
Gunnar Þór Heimisson
Stigameistari GSÍ 15-18 ára
Íslandsmeistari í holukeppni
Vann 4 mót á unglingamótaröðin 15-18 ára
Var í landsliðshóp 18 ára og yngri og keppti á EM pilta í
Ungverjalandi
Keppti á British Boys mótinu í Írlandi, sem er gríðarlega sterkt unglingamót.
Lokaorð
Golftímabilið hjá barna og unglingastarfi og afreksstarfi
GKG á þessu ári hefur verið frábært í alla staði. Það var mótað af metnaðarfullu skipulagi, fagmennsku og sterkum liðsheildaranda sem skilaði sér í árangri bæði innan vallar og utan. Æfingarnar voru fjölbreyttar, markvissar og krefjandi, og stuðluðu að stöðugum framförum hjá hverjum og einum iðkanda. Þjálfarateymið stóð þar í lykilhlutverki, með frábæru starfi, skýrri sýn og ómetanlegri leiðsögn.
Afrekskylfingar GKG sýndu að með ástríðu, aga og réttum stuðningi verður hver áskorun að tækifæri og það má með sanni segja að þau nýttu hvern dag til að verða betri. Tímabilið hefur styrkt okkur sem heild, hvatt okkur áfram og lagt grunn að enn stærri skrefum til framtíðar.
Við erum afar stolt af því sem hefur áorkast og hlökkum til að halda áfram þessari vegferð með sama krafti og gleði.
Haukur Már Ólafsson, Fagstjóri íþróttasviðs


Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 20 ára afmælis GKG. Bikarinn var afhentur GKG á þessum tímamótum klúbbsins í mars 2014.
Bikarinn er veittur þeim unga kylfingi sem þykir hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar árangur og framfarir, ástundun, metnað til að ná langt, félagsanda og ekki síst fyrirmynd annara félagsmanna hvað varðar háttvísi innan vallar sem utan.
Helstu afrek Gunnars á árinu 2025
• Lækkaði forgjöfina úr 0 niður í +2,5 samkvæmt Golfbox
• Íslandsmeistari í holukeppni 17-18 ára
• Stigameistari GSÍ í flokki 15-18 ára
• Var í landsliðshóp 18 ára og yngri og keppti á EM pilta í Ungverjalandi
• Var í A-sveit GKG sem hafnaði í 2. sæti í Íslandsmóti golfklúbba í 1. deild
• Var valinn í landsliðshóp
Gunnar Þór er góð fyrirmynd sem sýnir hvað markvissar og miklar æfingar ásamt metnaði og góðu hugarfari geta skilað góðum árangri. Hann er drífandi og hvetjandi liðsmaður sem eflir hópinn á æfingum og í keppni.
Hann sýndi miklar framfarir á seinasta tímabili og ber árangurinn það með sér.
Fyrrum bikarhafar
2024 - Karen Lind Stefánsdóttir
2023 – Gunnlaugur Árni Sveinsson
2022 - Katrín Hörn Daníelsdóttir
2021 - Jón Þór Jóhannsson
2020 - Róbert Leó Arnórsson
2019 - Anna Júlía Ólafsdóttir
2018 - Jón Gunnarsson
2017 - Hulda Clara Gestsdóttir
2016 - Hlynur Bergsson
2015 - Elísabet Ágústsdóttir
2014 - Aron Snær Júlíusson



Árið 2025 var haldið áfram vinnu með það að markmiði að félagið fengi GEO vottun. Undirbúningur þess hófst árið 2024. Upplýsingar um rekstur og starfsemi GKG voru settar inn í On Course hugbúnað GEO Foundation.
Vottunin tekur til allrar starfsemi félagsins:
• Rekstur og umhirða vallanna.
Sem dæmi má nefna að fylgst er með eldsneytisnotkun, vatnsnotkun, heilbrigði grass og jarðvegs og dýralífi.
• Aðstaða félagsins – golfvellir, vélamiðstöð og íþróttamiðstöð
• Samfélag – margvísleg starfsemi félagsins sem styrkir samfélagið með þátttöku barna og fólks á öllum aldri, sjálfboðaliðastörf

Þau sem helst komu að þessari vinnu voru Kate Stilwell, Guðmundur Árni Gunnarsson, Úlfar Jónsson og Guðmundur Daníelsson.
Í júlí fékkst vottunin og gildir hún í þrjú ár. Það er mikil vinna að baki þessari vottun, en við höfum séð að þessi vinna á eftir að nýtast félaginu til framtíðar og mun leiða til sparnaðar til lengri tíma litið. Við getum með stolti sagt að sjálfbærni sé hluti af daglegri starfsemi félagsins. Með markvissum aðgerðum stuðlum við að umhverfisvernd, samfélagslegri ábyrgð og góðum stjórnarháttum.
Í GEO nefnd GKG eru Sigurjón Sigurjónsson formaður og Sigríður Olgeirsdóttir.
Nóvember 2025
Sigurjón Sigurjónsson formaður GEO nefndar

GrasTec ehf hefur þjónustað golfvelli í 15 ár Áburður – Grasfræ – Bætiefni




Núverandi stjórn tók til starfa á aðalfundi nefndarinnar 12. febrúar. Mæting var afar góð, um 60 konur, og hófst fundurinn á púttmóti. Á meðan konur fengu sér að borða var farið yfir starf liðins árs og sumarstarfið kynnt. Að lokum hélt Pálmar Ragnarsson áhugaverðan fyrirlestur um jákvæð samskipti.
Stjórn kvennanefndar 2025 skipa:
• Berglind S. Jónasdóttir, formaður
• Hulda Ólafsdóttir Klein, varaformaður
• Hanna María Hjálmtýsdóttir, gjaldkeri
• Ingibjörg Hinriksdóttir, ritari
Meðstjórnendur: Ásta Huld Henrýsdóttir, Elín María Sigurðardóttir, Sigrún Hallsdóttir og Sigríður Bergþórsdóttir.
Ásta Huld, Hanna María, Ingibjörg og Sigrún komu nýjar inn í stjórn. Fimm konur luku stjórnarstörfum í ár: Helga Gunnarsdóttir, Kristín Stefánsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Svala Vignisdóttir og Valgerður Friðriksdóttir. Við þökkum þeim kærlega fyrir vel unnin störf á undanförnum árum.
Hlutverk kvennanefndar
• Að stuðla að samstöðu, samvinnu og öflugum félagsanda meðal kvenna í GKG
• Að skipuleggja æfingar, mót og aðra viðburði fyrir konur í samráði við þjónustustjóra.
• Að taka vel á móti nýjum félögum og hlúa sérstaklega að þeim.
• Að stuðla að því að reynslumeiri konur spili reglulega með reynsluminni konum.
• Að eiga gott samstarf við aðra golfklúbba.
• Markmið kvennanefndar
• Að hlutfall kvenna í GKG verði hærra en í nokkrum öðrum golfklúbbi á landinu.
Starf nefndarinnar
Starf nefndarinnar er unnið í sjálfboðavinnu en er bæði gefandi og skemmtilegt sérstaklega í ljósi þeirra góðu viðtaka sem starf kvennanefndar hefur hlotið hjá konum í GKG. Nefndin hélt áfram góðu samstarfi við styrktaraðila sem hafa styrkt starfið síðustu árin: Taramar, Balmain og Víntríó (Freixenet). Við þökkum þeim sem og öðrum fjölmörgum fyrirtækjum sem gáfu vinninga á árinu. Einnig viljum við þakka konum í GKG fyrir þeirra framlag við öflun vinninga – án þessa stuðnings væri ekki hægt að halda uppi jafn fjölbreyttum og glæsilegum viðburðum. Í vetur stóð nefndin fyrir fimm golfhermamótum, reglukvöldi, fyrirlestri og púttmótum.
Yfirlit yfir sumarstarfið
Maí:
Taramarmót í Sandgerði með heimakonum. Stellu opnunarmótið á Mýrinni – 100 konur tóku þátt.
Júní:
Spilað á Kiðjabergi með kiðjabergskonum. Ferð til Vestmannaeyja og spil með heimakonum.
Hell Ice Coffee mót á Mýrinni.
Júlí:
Spilað á Hlíðarvelli með heimakonum.
Freixenet mót á Mýrinni.
Ágúst: Lavazza mót í
Öndverðarnesi. Minningarmót um Sóleyju á Mýrinni –124 konur tóku þátt og komust færri að en vildu en mótið var glæsilegt og stútfullt af vinningum frá My Letra og fleirum.
Í mótinu

safnaðist kr. 400.000 sem var ánafnað stúlknastarfi GKG.
Balmain mót
á Leirdalnum með gestum frá GM.
Cutter & Buck Texas mót á Mýrinni.


September: Lokamótið á Leirdalsvelli. Boðið var upp á morgunmat, allar 115 konurnar fengu verðlaun og kvöldið endaði á glæsilegu lokahófi með mat og skemmtiatriðum. Auk þess voru reglulegir spilatímar á Mýrinni þar sem margar konur áttu ánægjulegar stundir saman og snæddu saman á Mulligan eftir leik.
Þakkir
Ég vil færa öllum konum GKG og styrktaraðilum okkar innilegar þakkir fyrir frábært ár. Án ykkar væri ekki hægt að halda úti jafn öflugu og skemmtilegu kvennastarfi.
Áfram GKG!
Berglind Stefanía Jónasdóttir




Hafrún Kristjánsdóttir, prófessor og deildarforseti við íþróttafræðideild HR, hélt erindi á nýliðnu golfþingi þar sem mikilvægi íþrótta í forvarnarstarfi var tíundað.
Nokkur atriði sem gaman er að nefna voru t.a.m. úr rannsókn
Viðars Halldórssonar sem sýndi að þegar landsliðin okkar eru að keppa þá er mjög greinanlegur munur á hversu landsmenn verða hjálpsamari, vingjarnlegri, umburðarlyndari og almennt hamingjusamari. Auk þess minnkar streyta og fólk finnur fyrir auknu sjálfstrausti, gleymir daglegu amstri og samskipti við aðra verða betri. Vellíðan eykst og fólki finnst það tilheyra samfélaginu og finnur áberandi meira fyrir auknu þjóðarstolti.
Forvarnargildið
Forvarnargildi íþrótta- og æskulýðsstarfs er óumdeilanlegt samkvæmt mælingum nemenda í 8.-10. bekk en berlega sést að þau sem æfa með íþróttafélögum neyta mun síður áfengis, kannabisefna, tóbaks eða nikotínpúða heldur en ungmenni sem æfa ekki.
Sömuleiðis er verulegur jákvæður munur á líðan og svefni nemenda sem stunda íþróttir.
Ef vel tekst til geta íþróttir kennt ungmennum m.a.:
• Sjálfsaga og sjálfsstjórn
• Þrautseigja og seiglu
• Samvinnu
• Að taka tillit til annarra
• Leiðtogahæfni
• Lausn vandamála
• Félagsfærni
En þetta er hinsvegar ekki sjálfsagt
Til þess að íþróttir verði til góðs þá þarf að:
• Halda krökkum í íþróttum sem lengst
• Búa til umhverfi sem öllum líður vel í og:
• Skapar einhverja afreksmenn
• Fullt af sjálfboðaliðum
Ef við höldum ekki vel á spöðunum þá:
• Geta íþróttir verið vettvangur til að ala upp aula
• Geta íþróttir ýtt undir alls konar vandamál
• Við verðum að gera hlutina rétt!
Gerum hlutina rétt
Mæld var sálfræðileg færni og “mótivering” hjá öllum sem æfðu fótbolta á Íslandi 2020 og 2021 og voru á 16 ári. Þátttaka var um 65%
Skoðað var hvort þau eru að spila í dag 5 árum síðar.
Skýrar niðurstöður:
Þeir krakkar sem hafa þjálfara sem leggur áherslu á framfarir, færniþróun, frammistöðu og vinnusemi eru ólíklegri til að hætta og eru líklegri til að ná lengra, samanborið við þau sem æfa í umhverfi þar sem sigur og samanburður við aðra er í forgrunni.
Leggjum mikið upp úr að þjálfarar búi til frammistöðumiðað umhverfi fyrir börn og unglinga.
• Áhersla á færniþróun, frammistöðu og vinnusemi
• Lítil áhersla á keppni, sigra og samanburð við aðra.
• Vinnum með andlegan styrk og keppniskvíða
Ef þetta er gert aukum við líkunar á:
• Að efnilegir krakkar (og allir krakkar) haldi lengur áfram iðkun
• Að fleiri efnilegir nái að spila á hærra leveli
• Að iðkendum líði betur
Hægt er að skoða allar glærur í heild með því að skanna QR kóðann.


Bjarki „Jón“ Sigurðsson, starfsmaður Jóna Transport
Það er enginn fljótari að koma sendingu til landsins en Jón. Það skiptir ekki máli
hvað þarf að flytja, hvert eða hvaðan.
Jón sér um þetta, frá A til Ö.
jonar.is
Gunnlaugur Árni 8. besti áhugakylfingur heims!

Gunnlaugur Árni Sveinsson, Gulli, hefur skipað sér í hóp fremstu áhugamanna heims með frábærum árangri undanfarin tvö ár. Um þessar mundir er Gulli í 8. sæti heimslista áhugamanna (WAGR.com) en enginn íslenskur kylfingur hefur náð jafn ofarlega.
Reyndar hefur aðeins einn annar kylfingur náð að vera með 100 efstu í heiminum (Gísli Sveinbergsson 99. sæti).
Af evrópskum kylfingum er Gulli í öðru sæti stigalistans.
Gulli hefur alfarið einbeitt sér að þátttöku í sterkustu áhugamannamótum erlendis, bæði sem einstaklingur og sem liðsmaður Louisiana State háskólans, þar sem hann er á öðru ári. Í því sterka liði hefur hann þegar tekið stöðu sem fremsti kylfingur liðsins.
Sem dæmi um frábæran árangur Gulla á árinu þá hlotnaðist honum sá mikli heiður að vera valinn í úrvalslið Evrópu í eftirfarandi mótum:
St Andrews Trophy – liðakeppni Stóra Bretlands gegn meginlandi Evrópu, sem Ísland tilheyrir í þessu tilviki. Tólf leikmenn í hvoru liði.
Arnold Palmer Cup - liðakeppni 12 bandarískra háskólakylfinga gegn öðrum 12 háskólakylfingum utan Bandaríkjanna. Tólf karlar og tólf konur í hvoru liði. Bonallack Trophy – liðakeppni 12 Evrópukylfinga gegn 12 kylfingum frá Asíu og Kyrrahafslöndum. Tólf leikmenn í hvoru liði.
Eftirfarandi er listi yfir árangur hans á árinu:
Sigur á Fallen Oak háskólamótinu, hans annar sigur í háskólagolfinu.
2. sæti á Jackson T. Stephens Cup
3. sæti á Pauma Valley Invitational
3. sæti á Puerto Rico Classic
4. sæti á NCAA Amherst Regional
6. sæti á Louisiana Classics Einnig er Gunnlaugur Árni tilnefndur til Fred Haskins verðlaunanna af þjálfurum NCAA háskólaliða og fjölmiðlafulltrúum sem fjalla um golf. Fyrri verðlaunahafar Haskins verðlaunanna hafa unnið 33 risamót og yfir 400 atvinnumót um allan heim.
Magnaður árangur og verður spennandi að fylgjast áfram með framhaldinu.
þegar þú ert með
Heimahleðslu ON
Heimahleðsla í áskrift fyrir fjölbýli og sérbýli



Hulda Clara orðin atvinnukona!
Hulda Clara Gestsdóttir hefur verið fremsti kylfingur GKG og landsins undanfarin ár, landsliðskylfingur og Íslandsmeistari í höggleik kvenna 2021 og 2024.
Hulda var hársbreidd frá því að tryggja sér þriðja Íslandsmeistaratitilinn í sumar en hafnaði í öðru sæti eftir bráðabana um titilinn.
Hulda lauk háskólaferlinum í vor þegar hún útskrifaðist með B.S. gráðu í viðskiptagreiningu og fjármálum frá University of Denver. Tímabilið með háskólanum var mjög gott og sigraði á Summit League Women's Golf Championship í apríl og varð í öðru sæti á Boilermaker Classic mótinu í mars, en bæði mótin eru í efstu deild NCAA háskólamótaraðarinnar. Sigurinn á Summit League mótinu var hennar annar sigur í háskólagolfinu.
Hulda lék með kvennalandsliði Íslands á Evrópumóti landsliða í Frakklandi og lék best íslenskra kylfinga liðsins í höggleik og sigraði síðan alla sína andstæðinga (3) í holukeppninni. Íslenska landsliðið hafnaði í 13. sæti af 20. þjóðum.
Lék á Evrópumóti einstaklinga í kvennaflokki sem haldið var í Þýskalandi og hafnaði í 37. sæti af 144 keppendum.
Hulda Clara náði hæst í 163. sæti á heimslista áhugamanna kvenna í golfi (wagr.com) en gerðist atvinnumaður í byrjun ágúst og fellur því út af þeim lista.
Hulda hefur gerst atvinnumaður og mun freista þess að komast inn á Evrópumótaröð kvenna í gegnum úrtökumót sem verður haldið í nóvember og desember.
Hulda er einstaklega skipulögð og vinnur jafnt og þétt í átt að settu marki sem er að ná í efstu röð atvinnumanna. Það verður spennandi að fylgjast með Huldu í þessari vegferð og óskum við henni alls hins besta í baráttunni.
Helstu afrek 2025
Kylfingur ársins í Summit League (NCAA efsta deild)
Mótameistari & MVP – Summit League Championship
Sigur með lokahring 67 (-4), fimm högga forskot
Fjórum sinnum topp 10 sæti
Liðið hennar endaði í efsta sæti
WAGR: Í hópi 170 bestu í heimi
Gerist atvinnumaður í haust – LPGA mótaröðin

Inneignarkort
í Trackman hermi
10x30 mín kr. 25.000
5 x 30 mín kr. 12.500
Inneignarkort kr. 7.500 og kr. 15.000 sem hægt er að ráðstafa að eigin vali.

Gjafabréfin fást í Golfverslun GKG





Í GKG er starfrækt mótanefnd sem kom að sex mótum hjá klúbbnum í sumar sem stóðu í samtals 16 daga. Í nefndinni þetta árið voru 47 virkir sjálfboðaliðar þar af 12 dómarar ásamt starfsfólki klúbbsins. Nefndin mannar þær stöður sem þarf fyrir hvert mót eins og t.d. dómgæslu, móttöku skorkorta og/eða aðstoð við rafræna skráningu, eftirlit á völlum, ræsingu og veitingavakt. Það er alltaf pláss fyrir fleiri í nefndinni fyrir áhugasama þarna úti.
Meistaraflokkur karla
Meistaraflokkur kvenna
1. flokkur karla
1. flokkur kvenna
2. flokkur karla
2. flokkur kvenna
3.
3.
4.
4.
1
1
5. flokkur karla Hringur 1
50+ karlar höggl. án fgj. Hringur 1
50+ karlar höggl. með fgj. Hringur 1 Hringur 2
50+ konur höggl. án fgj.
50+ konur höggl. með fgj. Hringur 1
65+ karlar höggl. án fgj. Hringur 1
2
65+ karlar höggl.
65+
Telpur 13 til 14 ára höggl. án fgj. Hringur 1
Telpur 13 til 14 ára höggl. með fgj. Hringur 1 Hringur 2 Hringur 3
Drengir 13 til 14 ára höggl. án fgj. Hringur 1 Hringur 2
Drengir 13 til 14 ára höggl. m/fgj. Hringur
Strákar 12 ára og yngri höggl. án fgj.Hringur 1
Strákar 12 ára og yngri höggl. m/fgj.Hringur 1
Stelpur 12 ára og yngri höggl. án fgj.Hringur
Stelpur 12 ára og yngri höggl. m/fgj.Hringur

Titleist er vinsælasti golfboltinn, langflestir kylfingar á öllum stóru atvinnumannamótaröðum heims treysta Titleist fyrir sínum leik.
Source: Darrell Survey, Sports Marketing Surveys Inc. Counts taken through June 29,
Hlutverk mótanefndar:
• Fjallar um árlega áætlun um öll mót á golfvöllum klúbbsins sem þjónustustjóri leggur fram. Þetta gildir um innanfélagsmót, opin mót á vegum klúbbsins, mót á vegum fyrirtækja og mót á vegum GSÍ.
• Undirbýr og fylgist með framkvæmd móta í samvinnu við þjónustustjóra og annað starfsfólk klúbbsins.
Markmið mótanefndar:
• Klúbburinn sé ávallt í fremstu röð mótshaldara innan GSÍ.
• Árlega séu haldin mót við allra hæfi á vegum klúbbsins.
• Styrkja félagsandann í klúbbnum með öflugum innanfélagsmótum.
• Mótshald fyrir fyrirtæki til að efla rekstur klúbbsins.
Framkvæmda- og þjónustustjóri starfa með mótanefnd og formaður mótanefndar er Ragnheiður Stephensen.
Fastir liðir í mótadagatali GKG eru VITA mánudagsmótaröðin, Liðakeppni GKG, Holukeppni GKG, Meistaramótið, Opnunarmótið, Hjóna- og parakeppni, Sumarsólstöðumótið, Niðjamótið, Minningarmótið (sem féll því miður niður í ár) og Bændaglíman.
Einnig standa Öldunganefndin, Kvennanefndin og Íþróttanefnd fyrir mótum og viðburðum á hverju sumri.
Golfarar flykktust út að spila um leið og vellirnir opnuðu og voru þeir vel nýttir í sumar.
Samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var í haust þá sést að meðlimir GKG eru duglegir að taka þátt í mótum en 57% þeirra sem svöruðu könnuninni tóku þátt í að minnsta kosti einu móti í sumar.
Samtals voru spilaðir 5.173 golfhringir í mótum hjá GKG þetta árið, 3.958 á Leirdalsvelli og 1.215 á Mýrinni. Fráteknir rástímar vegna móta, með öllum lokunum meðtöldum voru alls 410 klst. á árinu samanborið við 446 klst. árið 2024, eða 8% minnkun.
Miðað við að rástímaframboð beggja valla GKG er u.þ.b. 5.000 klst. frá byrjun maí til lok september, þá er frátekt vegna móta einungis rétt um 8% af heildarframboði rástíma.
Sumarið hófst með Egils Kristals Opnunarmóti GKG 10. maí í ágætis vorveðri.
Alls tóku 131 þátt í mótinu, 37 konur og 94 karlar. Keppt var bæði í karla og kvennaflokki og veitt voru glæsileg verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni og efsta sætið í höggleik í hvorum flokki. Mikil tilhlökkun var í þátttakendum enda markar þetta mót alltaf upphafið af golfvertíðinni.
Icewear Hjóna og parakeppnin var haldin 31. maí og var frábær þátttaka en 68 pör eða 136 keppendur mættu til leiks og komust færri að en vildu. Allir þátttakendur fengu glæsilega teiggjöf frá Icewear. Að vanda var svo vegleg veisla að móti loknu þar sem keppendur skemmtu sér vel saman.
!"##$%&'&()*$+,&-.(/
F2-(2#/&%?/(H-2%&I#/(B
0)1%,2#$%&1++2+34#2*/-.( 5%)6(1+* 7879 787: !"#$%FGF()%#* +H- .H .I 0Í234+4(5678F9$()%FG:*4;K; +==- LL?H @A @HB =- C= CL?H KG#$%FM$4769M#69F LL- 12 9 NFM7G"HH6#4;K; +=- CC?H CI J7(FG$)M$%:*7()%#* A- .?H .?H OH676FG()%4;K; +CL- . L NM)6F+4F94HFGF4;K; @ .NH O#*MF()%#* A- @ @ PQ68F9MR(F6 A- H H ;K;4GF67G +LH- =?I .?H SFGF()%4K"HH6#$TFM8$4;K; A- = = SM)$FUFM%F()%#* = A 0)1%,2#$%&1++2+34#2*/-.(&/2-(2#/ ';8< ;=8 7;7
L++$%&-.(&?&0)1%,2#+$VWG#G%QGMF()% +CL- H= @@ X$M?()%49FMYGMRUUF4C?48"#M84GFGMF I. O"%%)4[69M#69F()%#* I- I= IL?H S\K4()%FG:*#6 CH- .?H @?H OH6F4]"96UF9F()%4;K; LL- = L OH6F4!#66#69FG()%#* A . X$MF68$()%4HA4F94@H45GF4F94"M8G# A IA L++$%&-.(&?&0)1%,2#+$-&/2-(2#/ '@< ;;AB9 ;7A
CM%1+&1++2+34#2*/-.( ;K;4GF67G +I=- LA LI !"#$%FGF()%4.AB4F94T5Y9M? IA- II CH !"#$%FGF()%4UFG6F+4F94769M#69F A- IC IC VMFG#8F6F4UFG6F +LL- L CI @HB +CC- = =?H J7(FG$)M$%:*7()%#* A C CM%1+&1++2+34#2*/-.(&/2-(2#/ ';< =; =7
L++$%&-.(&?&CM%1++1 X$MF68$()%49FMYGMRUUF4[CI A- @ @ O"%%)4;FMYC=4+4!SG#6 +LL- = @?H VWG#G%QGMF()% +II- I?H L?H L++$%&-.(&?&CM%1++1&/2-(2#/ '77< ;E ;A F2-(2#/&-.(&?&0)1%,2#&G*&CM%1++1 '@< :;8 ::A
Sumarsólstöðumót Stellu og GKG var haldið 21. júní og er það búið að festa sig í sessi sem innanfélagsmót. Mikil þátttaka var í mótinu og komust færri að en vildu en 30 lið kepptu og hafa aldrei verið fleiri ráshópar í þessu móti á vellinum. Mótið var eins og fyrri ár fjögurra manna texas scramble með shotgun ræsingu og tókst afar vel þrátt fyrir troðinn völl.
Hápunktur sumarsins er alltaf Meistaramótið okkar en í sumar var keppt í 32. sinn. Mikil aðsókn var í mótið og komust færri að en vildu. Það var fyrirséð að það yrði met aðsókn að mótinu og var búið að gera breytingar frá fyrra ári til að reyna að nýta Mýrina betur en fyrri ár þannig að sem flestir kæmust í mótið. Eins var farið í meiri niðurskurð en áður á lokadegi hjá þeim sem

spiluðu í 4ra daga flokkum. Löngu fyrir mót var orðið fullt í alla flokka sem spila á Leirdalnum en flokkar á Mýrinni voru opnir fyrir skráningu fram að síðasta degi. Hér í töflu má sjá hvernig skráningin var í mótið.
Keppnin um klúbbmeistara í kvennaflokki var geysi hörð og vannst titillinn á einu höggi að þessu sinni.
Klúbbmeistari kvenna 2025 var Una Karen Guðmundsdóttir og hampaði hún titlinum í fyrsta sinn. Klúbbmeistari karla með miklum yfirburðum var að þessu sinni Aron Snær Júlíusson en hann sigraði með 11 högga mun. Þetta var hans fjórði klúbbmeistaratitill.
Auk fastra liða tók klúbburinn að sér að halda þrjú GSÍ mót, þ.e. Nettó unglingamótið, Íslandsmót golfklúbba í karlaflokki 1. deild og einn dag af þremur á Íslandsmóti golfklúbba 12 ára og yngri á Mýrinni. Að auki fór eitt mót á LEK mótaröðinni fram hjá okkur í ágúst.
Innanfélagsmótaraðir GKG árið 2025 Í ár voru þrjár mótaraðir í gangi hjá GKG, fyrir utan Kristalsog Floridana mótaraðirnar sem ætlaðar eru barna- og unglingastarfinu. Þetta voru VITAgolf Mánudagsmótaröðin, Holukeppni GKG og Liðakeppni GKG. Úlfar og Sigfinnur voru mótstjórar Mánudagsmótaraðarinnar, Sigurjón Sigurjónsson sá um Holukeppnina og Hilmar Halldórsson hafði umsjón með Liðakeppninni. Við viljum þakka þeim kærlega fyrir þeirra frábæru vinnu.
VITAgolf mánudagsmótaröðin var á sínum stað alla mánudaga í sumar og fóru alls 12 mót fram frá 19. maí til 11. ágúst. Fjórir bestu hringirnir töldu til sigurs og var til mikils að vinna því VITA gefur sigurvegurum í báðum flokkum ferðavinning og þökkum við þeim kærlega fyrir góðan stuðning í gegnum árin. Þátttakan dróst verulega saman í mánudagsmótaröðinni frá því í fyrra og má ætla að breytt rástímaskráningarform hafi verið orsökin fyrir því. Alls tóku 145 einstaklingar þátt í mótaröðinni yfir sumarið, 81 karl og 64 konur.
Sigurvegari GKG á mánudagsmótaröðinni 2025 voru, Heiðrún Ragnarsdóttir í kvennaflokki og Jón Einarsson í karlaflokki Í Holukeppni GKG er keppt um holumeistaratitil karla og kvenna. Þetta er frábært tækifæri til að prófa að spila keppnisfyrirkomulagið holukeppni sem er að margra mati skemmtilegasta keppnisfyrirkomulagið í golfi. Keppt er í holukeppni með fullri forgjöf (þó með hámarksforgjöf 36) og er keppt bæði í karla- og kvennaflokki. Sigurvegarar í hvorum flokki fyrir sig keppa svo um holumeistaratitil GKG. Í ár tóku 49 karlar og 23 konur í holukeppninni. Í lok sumars voru það Sæmundur Melstað holumeistari karla og Ingibjörg Hinriksdóttir holumeistari kvenna sem kepptu um titilinn holumeistari GKG og lauk þeirri viðureign með sigri Sæmundar, sem er þar með holumeistari GKG árið 2025.
Í Liðakeppni GKG ár voru 24 lið sem kepptu og komust færri að en vildu. Sérstök forkeppni var notuð til að leika um síðustu sætin í keppninni. Liðakeppnin er afskaplega skemmtilegt leikfyrirkomulag þar sem kylfingar mynda 8 manna lið sem leika (4 í einu) í riðlaskiptri keppni um að komast í útsláttarkeppni og að lokum stendur eitt lið uppi sem sigurvegari. Leikið var jafnt og þétt yfir sumarið og fór úrslitaumferðin fram 6. september á Lokamóti keppnishalds GKG
Sigurvegarar í liðakeppni GKG árið 2025, annað árið í röð, er liðið Jimenez Group International eftir sigur á Ólsenbandinu.
Niðjamót GKG er einnig fastur viðburður hjá okkur í GKG og sér Gunnar Jónsson um það mót með miklum myndarskap. Spiluð er punktakeppni með Greensome fyrirkomulagi þar sem báðir liðsmenn leika af teig og skiptast svo á að leika boltanum sem valinn er í holu. Í ár tóku 108 þátttakendur, eða 54 pör, og rann allur ágóði í barna og unglingastarf klúbbsins.
Með okkar frábæru hermaaðstöðu er okkur kleift að halda mót allt árið um kring fyrir félagsmenn og eru haldin t.a.m. Ping helgarmót fyrir áramót og FootJoy helgarmót eftir

áramót. Þessi skemmtilega viðbót við mótaflóruna er eitthvað sem enginn annar golfklúbbur getur boðið upp á hér á höfuðborgarsvæðinu og er frábær viðbót fyrir félagsmenn.
Auk þess hefur GKG séð um skipulagningu og framkvæmd Landsmóts í golfhermum allt frá upphafi 2022 og fer lokamótið jafnan fram í hermunum hjá okkur í apríl og er sýnt í beinni útsendingu í sjónvarpi.
Að lokum má ekki gleyma að nefna það frábæra starf sem kvennanefnd klúbbsins heldur utan um en þar er Berglind Stefanía Jónasdóttir formaður. Einnig er öflugt öldungastarf í klúbbnum sem Kristján Snædal leiðir ásamt öldunganefnd klúbbsins. Loks eru frábær barna- og unglingamót, þ.e. Floridana og Kristalsmótaraðirnar, sem íþróttasviðið heldur utan um.
Við óskum öllum vinningshöfum ársins í mótunum okkar til hamingju með árangurinn. Einnig viljum við þakka öllum meðlimum sem tóku þátt í mótunum okkar því fyrst og fremst eru þessi mót gerð til þess að hafa gaman saman sem við svo sannarlega gerðum í ár. Eins þakkar undirrituð þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum, stuðningsaðilum og starfsfólki klúbbsins fyrir samstarfið og þeirra frábæra starf í þágu klúbbsins, því án ykkar er þetta ekki hægt.
Ragnheiður Stephensen, formaður mótanefndar


Öldunganefnd skipa:
Kristján Snædal formaður.
Atli Ágústsson, Gunnar Árnason, Einar B. Tómasson, Elísabet Þórdís Harðardóttir, Soffía Ákadóttir, Árni Gunnarsson, Friðbjörn Steinsson og Lilja Ólafsdóttir.
Hlutverk öldunganefndar:
• Halda árlegt mót öldunga GKG
• Standa fyrir öðrum viðburðum sem eflir félagslíf öldunga GKG
• Standa að viðburðum yfir veturinn sem hentar öldungum
Markmið öldunganefndar:
• Efla virkni öldunga í mótum og félagslífi GKG
• Að GKG verði áhugaverður golfklúbbur fyrir öldunga
Vetrardagskrá 2024-2025
Hermamót 65+ voru haldin fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði, frá október til maí. Púttmót voru alla aðra miðvikudaga sem hermamót voru ekki, frá október til maí. Hermamótin eru sérstaklega vinsæl og eru yfirleitt fullbókuð með biðlista, 10 hermar. Púttmótin sækja um 15-20 manns. Það væri gaman að sjá fleiri mæta í púttmótin sem eru einstaklega góð samverustund að morgni.
Sumardagskrá 2025
Haldin voru alls 8 mót í sumar, 4 á Leirdalnum og 2 á Mýrinni.
Tvisvar heimsóttum við vinaklúbba okkar GM og GK. Samanlögð þátttaka í mótum sumarsins var 335 skráningar og er það 17% aukning milli ára, sem er virkilega ánægjulegt. Einnig hélt öldunganefndin sérstaklega utan um árangur 65 ára og eldri í VITAgolf mánudagsmótaröðinni þar sem Ragna Stefanía náði bestum árangri kvenna og Jón Einarsson
bestum árangri karla. Jón sigraði reyndar í keppninni allri og fékk fyrir það inneign í golfferð hjá VITAgolf.
Í þeim 7 mótum þar sem allir léku á sömu teigum skaraði Þorsteinn Þórsson framúr og sigraði í höggleikskeppninni með 235 stig.
Í vinaklúbbskeppnunum okkar hafði GM betur og fær því að halda bikarnum fram á næsta sumar. Hinsvegar, í keppni okkar við GK vannst sigur og verður því bikarinn okkar í góðri vörslu í Íþróttamiðstöðinni.
Við þökkum Peter Salmon hjá VITAgolf sérstaklega fyrir að hafa veitt tvo ferðavinninga í nándarverðlaun að upphæð kr. 50.000 í vinamótinu þegar GM heimsótti okkur.
Vetrardagskrá 2025-2026 Hermamót 65+ verða haldin fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði. Mótin hejast kl. 9:15 og standa til 12.30 frá október 2025 til og með maí 2026. Alla aðra miðvikudaga eru púttmót 65+ frá kl. 9:15 til 11.00. Í gegnum árin hafa þátttökugjöld öldungamótanna runnið til styrktar unglingastarf GKG. Í ár söfnuðust 314.000 krónur.
Við þökkum GKG sem styrkti okkur með hluta verðlauna og mjög svo gott tilboð á golfbílum á mótaröðinni fyrir farsælt samstarf. Einnig þökkum við öllu starfsfólki GKG fyrir virkilega gott samstarf svo og starfsfólki Mulligan fyrir frábæra þjónustu.
Fyrir hönd öldunganefndar GKG, Kristján Snædal


Kate Stillwell

Golftímabilið 2025 var óvenju langt miðað við fyrri ár. Hagstætt vor skilaði skjótri opnun valla að vori og lengra tímabil gaf dýrmæta möguleika fyrir völlinn að jafna sig eftir álag vetrarins. Annað árið í röð var veður hagstætt og hjálpaði það ýmsum ræktunar- og viðhaldsverkefnum að ná framförum. Við höfum haldið áfram að prófa nýjar aðferðir við viðhald vallarins og hafa þær skilað mjög góðum árangri. Í október 2024 var vetraráburður borinn á frosna jörð á nýju flatirnar sunnan bílastæðis og æfingaflötina. Niðurstöðurnar voru mjög jákvæðar og skiluðu hraðari vexti að vori. Ætlunin er að endurtaka þessa aðferð á fleiri flötum í vetur að því gefnu að veðurskilyrði leyfi.
Loftun og snyrting brauta
Aðferðum við loftun og snyrtingu brauta, sem ég hef lýst í pistlum mínum til meðlima, var beitt á stærra svæði en árið á undan. Alls var þetta gert fjórum sinnum á tímabilinu, sem gerðu ljósi og lofti kleift að komast inn í jarðvegslagið og skiluðu heilbrigðara grasyfirborði á stórum köflum brautanna. Með tilkomu nýs brautarvaltara gátum við einnig boðið upp á sléttara yfirborð fyrr á tímabilinu, sem minnkaði óþarfa álag með jákvæðum áhrifum á bæði gæði og heilsu grassins. Hagstætt veður gerði okkur einnig kleift að sá í flatir í samræmi við áætlun og stuðlaði að framúrskarandi spírun á mörgum svæðum.
Miklar framfarir á 18. flötinni Flötunum á 18. holu á Leirdalsvelli og 8. holu á Mýrinni var viðhaldið eftir sérsniðinni áætlun í ár sem byggði á lærdómi okkar frá fyrra ári. Með hverjum slætti var lífrænu efni dreift um flatirnar með því að safna grasinu ekki í boxin á sláttuvélunum. Regluleg sáning í hverjum mánuði jók þéttleika og hjálpaði til við að jafna út skemmdir á varpasveifgrasinu eftir veturinn auk þess að nýta veikleika ágengra tegunda. Sérsniðin áburðarblanda var notuð til að styðja við rætur grassins og spírun en með þessu bætist smátt og smátt lífrænt efni í flatirnar. Niðurstöður þessara breytinga eru mjög hvetjandi og flatirnar báðar halda áfram að þróast í rétta átt.
GEO vottunin
GEO sjálfbærnivottunarferlið var lærdómsríkt fyrir hópinn. Við fórum ítarlega í gegnum þau atriði sem snúa að vellinum og skoðuðum hvaða áhrif þessi atriði hafa á GKG bæði til skemmri og lengri tíma. Þetta hefur reynst afar dýrmætt ferli sem hefur víkkað sjónarhorn okkar, ögrað rótgrónum hefðum og hvatt til framsækinnar nálgunar í vallarumsjón og rekstri
klúbbsins í heild. GEO er meira en vottun – þetta er hugarfar og skuldbinding sem mun móta vinnu okkar langt fram í framtíðina. Fjárfesting okkar í róbotasláttuvélum styður beint við GEO sjálfbærnimarkmið GKG. Að auki hefur sláttugeta okkar aukist og eftir því sem teymið lærir betur á notagildi þeirra og vinnslugetu munu þær stuðla að jafnara leikyfirborði, minni eldsneytisnotkun og minnkandi álagi á grassvæði okkar. Á nýliðnu golfþingi GSÍ hlaut GKG sjálfbærniverðlaunin og er það mikil viðurkenning á þeirri vinnu sem teymið hefur skilað.
Nýir reynsluboltar í hópinn Í ár buðum við velkomna nokkra verðmæta liðsmenn. Í nýju framtaki okkar, að frumkvæði Guðmundar, bættust heldriliðsmenn í hóp okkar vallarstarfsmanna. Klúbbfélagar okkar, þeir Randver, Atli, Ragnar, Sigurður og Skúli, bættust í hópinn. Leiðtogahæfni þeirra, ró og vilji til að styðja yngri starfsmenn hafa verið afar vel þegin og skilað áþreifanlegum jákvæðum áhrifum á öll svið vallaviðhalds. Verkefnið heppnaðist einstaklega vel og verður því haldið áfram á næsta tímabili.
Ég vil þakka öllu teyminu mínu fyrir árangursríkt ár. Þakkir mínar fara einnig til Guðmundar fyrir hans ómetanlega stuðning við alla í teyminu. Hans einlæga hollusta við völlinn og þolinmæði eru okkur ómetanleg og deildin nýtur mikið góðs af hans leiðtogahæfni.
Þetta hefur verið enn eitt árið þar sem við höfum aukið getu okkar í vallarekstri og ég er virkilega spennt að halda áfram á þessari braut inn í golftímabilið 2026. Mörg þeirra verkefna sem farið var af stað með í ár opna dyr að langtímaumbótum og jákvæðar niðurstöður ársins munu móta áform okkar til næstu ára.
Ég vil að lokum þakka ykkur félagsmönnum fyrir þann stuðning sem þið veitið okkur vallarstarfsmönnum. Þolinmæði ykkar gagnvart þeim verkefnum sem við sinnum: sáningu, endurbótum, daglegum verkefnum og öðru tilfallandi, ásamt hlýlegri framkomu til starfsfólksins, skiptir okkur miklu máli og hjálpar til við að skapa jákvætt starfsumhverfi fyrir okkur öll á vellinum.
Takk fyrir gott golfár 2025.
Kate Stillwell, vallarstjóri GKG

við að sjálfbæru samfélagi
COWI er alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki á sviði verkfræði, hönnunar og arkitektúrs. Við erum með sex starfsstöðvar víðsvegar um landið, auk starfsemi í yfir 35 löndum og telur samstarfsfólk okkar um 7.500 sérfræðinga.
Markmið okkar eru skýr: Við, ásamt viðskiptavinum okkar, stuðlum að sjálfbærum heimi og sköpum lausnir í sameiningu sem bæta lífsgæði fólks og komandi kynslóða.
Nánar á www.cowi.is


Sigurjón Sigurjónsson og Hansína Þorkelsdóttir
GKG hlaut sjálfbærniverðlaun Golfsambands Íslands á golfþingi GSÍ þann 15. nóvember síðastliðinn.
Klúbburinn okkar hefur í gegnum árin verið leiðandi í sjálfbærni innan íslensks golfíþróttalífs. Klúbburinn hefur sýnt fram á að sjálfbærni er ekki aðeins stefna heldur hluti af daglegri starfsemi, með markvissum aðgerðum sem stuðla að umhverfisvernd, samfélagslegri ábyrgð og góðum stjórnarháttum.
Sigurjón Sigurjónsson, stjórnarmaður í GKG, tók á móti verðlaununum fyrir hönd klúbbsins.
GEO-vottun 2025
GKG lauk alþjóðlegri GEO Certified™ vottun sem staðfestir sjálfbærni í rekstri golfklúbba. Vottunin felur í sér ströng viðmið um:
• Umhverfisvernd og vistvæna umhirðu golfvallar.
• Ábyrga nýtingu vatns og orku.
• Samfélagslega ábyrgð og góða stjórnarhætti.
• Þessi vottun staðfestir að GKG uppfyllir alþjóðlegar kröfur um sjálfbærni og er fyrirmynd annarra klúbba.
Sjálfbærni að leiðarljósi
Klúbburinn hefur í mörg ár unnið markvisst að vistvænum lausnum:
• Lágmörkun efnavinnslu
• Rafmagnsvélar og orkusparandi aðgerðir
• Endurnýting og úrgangsstýring
• Verndun og efling líffræðilegrar fjölbreytni, m.a. með, fjölbreyttu gróðurvali og stuðningi við búsvæði fugla og smádýra
• Samfélagsleg ábyrgð
• Fræðsla til félagsmanna um umhverfisvernd og sjálfbærni.
• Stuðningur við heilsueflingu og aðgengi að íþróttinni fyrir breiðan hóp.
• Samstarf við GSÍ og önnur félög um þróun sjálfbærra lausna.
Fyrirmyndarhlutverk
GKG er leiðandi í sjálfbærni innan íslensks golfíþróttalífs og hvetur aðra klúbba til umbóta.
Við óskum Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar til hamingju með viðurkenninguna, og sitt góða starf í þágu umhverfisins.
Nú er kominn sá tími að flestir golfvellir hér eru lokaðir. Margir eru reyndar opnir til vetrariðkunar og þá er völlum stillt upp með vetrargrín og teiga. Það hentar mörgum að taka göngutúrinn og slá nokkra bolta úti og nærast í súrefninu og félagskap.
Flestir kylfingar færa sig til og stunda sitt vetrargolf golf innandyra þar sem eru hermar og æfingaraðstöður. Það er alltaf gott að halda sveiflunni þokkalegri þótt að ákafinn sé ekki eins mikil og yfir sumartímann. Einnig þarf að huga að því að hreyfa sig og halda líkamanum við. Ekki dugar bara að standa á mottunni og slá.

Það er mjög gott að huga að vetraræfingum og golfi sem fyrst. Margt þarf að hafa í huga, æfa og spila skipulega með golfvinum og síðan þarf að skoða og greina hvort eitthvað þurfi að bæta frá síðasta sumri. Hækkaði /lækkaði forgjöfin, var driverinn í lagi, púttin og vippin eða innáhöggin og stutta spilið. Brautarhöggin? Hvernig var líkamsþolið og orkan, andlega hliðin, sjálfstraustið og keppnisgleðin?
Fyrir kylfinginn er veturinn oft tími breytinga á golfsveiflu og greininga ásamt líkamsræktaráformum.
Hér eru nokkur atriði sem væri gott að huga að ef það á að viðhalda og bæta golfleikinn fyrir næsta sumar.
Sveiflubreytingar
Það væri sterkur leikur að láta greina sveifluna og skoða hvað væri hægt að laga þar. Sveiflubreytingar og lagfæringar geta oft tekið smá tíma og þá er veturinn tilvalinn í þær breytingar með réttum æfingum og eftirliti golfkennarans. Sveiflugreiningar er hægt að framkvæma undir eftirliti golfkennara með vídeógreiningu, í TrackMan og okkar flottu ELVU og síðan er hægt að setja upp æfingaáætlun fyrir veturinn og markmið fyrir næsta vor.
Kylfumælingar
Það er alltaf gott að láta skoða hvort kylfurnar eru í lagi og láta mæla sig. Sveiflan gæti verið að breytast og aldurinn færist yfir. Kannski ertu hraðari en í fyrra eða aðeins farinn að hægja á sveiflunni. Líkaminn er ekki alltaf eins, þú ert að vaxa og styrkjast, eldast og það hægist á. Kylfurnar eldast og þær þarf að skipta um með reglulegu millibili eftir því hvað þær eru mikið
notaðar. Einnig er alltaf verið að þróa kylfurnar og sköftin og mikill munur á kylfum frá því fyrir 10 árum. Réttar kylfur geta skipt sköpum og létt kylfingum lífið töluvert. Rétt lega kylfunnar, réttur kylfuhaus, rétt skaft, sveiflu hraði, þyngd kylfu o.s.fr skiptir miklu máli. Þegar réttu kylfurnar eru komnar þarf að æfa þær og venjast.
Vetrarnámskeið Ég hef undanfarin ár verið með skipulögð námskeið í Kórnum fyrir einstaklinga pör og hópa. Núna síðastliðin 6 ár hef ég verið að þróa mjög skemmtileg vetrarnámskeið sem eru 8 vikur í stöðvaþjálfun þar sem farið er markvisst í golfleikinn og að viðkomandi læri vel inn á eigin getu og hvað þarf að bæta. Settar eru upp 12 stöðvar sem mæla getu viðkomandi í púttum, vippum, járnahöggum stuttum og löngum, brautarhöggum og svo teighöggum og driver. Við lærum að sveifla hratt og skoðum ýmiss tæki og tól sem hjálpa og kenna okkur það. Einnig skoðum við kylfuhraða og ýmsar mælingar í TrackMan og hvernig TrackMan nýtist sem æfingartæki. Farið í leikskipulag og að læra að þekkja eigin getu og ákvarðanatöku. Mjög góð námskeið til forgjafarlækkunar og til að þekkja kylfinginn sem býr innra með þér.
Golfstyrktaræfingar
Undanfarin misseri hef ég verið í samstarfi með Bjarna Má í Golfstöðinni í Glæsibæ. Þar erum við með styrktaræfingar og létta golfkennslu í bland á morgnanna. Þar er flott aðstaða til æfinga og 2 TrackMan golfhermar. Það er ekki spurning að réttar golfstyrktaræfingar hjálpa kylfingum mikið. Það eru miklar framfarir í golfstyrktaræfingum og skilningur meðal almennra kylfinga að aukast hvað það skiptir miklu máli að hafa líkamann rétt stilltan og vel þjálfaðan. Byrjandi í golfi ætti sérstaklega að huga að því að styrkja líkamann, auka snúningsgetu og liðka sig fyrir komandi átök sem golfsveiflan er og á að duga út sumarið án meiðsla. Það skiptir ekki máli hvar kylfingur er staddur getulega séð, það er bara nauðsynlegt að stunda styrktaræfingar þegar það á að ná árangri í golfiðkun. Það verður til æfingarplan sem veitir viðkomandi, styrk – þol – liðleika –jafnvægi – snerpu – sprengikraft og margt fleira. Úthaldið eykst og auðveldara /léttara er að spila 18 holur og meiðsli hverfandi. Betra bak og lengri högg og meiri hraði og stöðuleiki í sveiflunni og á golfvellinum. Þessi sérstöku námskeið hefjast aftur eftir áramót en núna er hægt að sækja áskrift í Golfstyrkinn Glæsibæ alla daga allt árið.
Vallarnefnd GKG 2025
Vallarnefnd GKG hefur mjög fjölbreytt verksvið. Eitt meginhlutverk nefndarinnar er að veita vallarsviði stuðning í verkefnum ársins, tryggja faglega og sjálfbæra umhirðu valla og stuðla að bættum vallargæðum. Þá hefur nefndin eftirlit með langtímaáætlunum félagsins, bæði varðandi nýframkvæmdir og fjárfestingu í tækjabúnaði.
Árið 2025 skipuðu eftirtaldir aðilar vallarnefnd: Einar Þorsteinsson, formaður, Bergsveinn Þórarinsson, Birgir Leifur Hafþórsson, Ingibjörg Hinriksdóttir, Ragnar Már Garðarsson, Ragnheiður Stephensen og Sigurður Kristinn Egilsson ásamt því sem Kate Stilwell, vallarstjóri og Guðmundur Árni Gunnarsson, sviðsstjóri vallarsviðs starfa með nefndinni.
Golftímabilið 2025 var eitt það lengsta sem meðlimir GKG hafa notið í mörg ár. Vellirnir opnuðu 30. apríl eftir hagstæðar veðuraðstæður og mjög milt vor og lokuðu 20. október. Nefndin fundaði sex sinnum á starfsárinu og náði að fjalla um öll helstu atriði sem gert er ráð fyrir að nefndin fjalli um.
Til viðbótar við reglulegt samtal við vallarstjóra og sviðsstjóra vallarsviðs um ástand valla, áskoranir og umbótatækifæri hafa ýmis önnur mál ratað inn á borð nefndarinnar. Leikhraði, neyðaráætlun viðbragðsaðila, gagnasöfnun á veðurgögnum, sjálfbærnimál, staða á byggingum klúbbsins, vökvunarkerfi, rafvæðing golfvallarins, yfirferð yfir jarðvegssýni, rauðir og hvítir hælar svo eitthvað sé nefnt.
Í stefnumótun stjórnar eru helstu viðfangsefni nefndarinnar nokkuð skýr: Áframhaldandi umbætur í gæðum valla, aðstöðusköpun fyrir meðlimi klúbbsins og áhersla á umhverfismál.
Umbætur á gæðum valla Frá lokun valla árið 2024 og til opnunar var venju samkvæmt unnið að markvissum umbótum af ýmsu tagi. Síðustu ár hafa margar glompur verið endurgerðar og þetta árið voru brautarglompur á sjöundu og áttundu braut á Leirdalsvelli endurgerðar ásamt glompum á framtíðarvelli klúbbsins. Áttunda brautin fékk andlitslyftingu með nýjum hólum sem ramma brautina betur inn. Hallirnar tvær við 10. og 13. teiga voru fullgerðar og teknar í notkun.
Síðasta vetur virðast vatnsmál efri hluta Leirdals eitthvað hafa riðlast. Við opnun valla og langt fram eftir sumri flæddi vatn ekki eins og venjulega frá 10. braut niður í tjörn við 11. flöt og þaðan áfram niður á 5. braut. Ef vel viðrar í vetur verður reynt að komast til botns í þessum málum.
Síðustu ár hefur GKG fengið styrk úr Vorviði, styrktarsjóði í umsjón Lands og skóga, til gróðursetningar á athafnasvæði félagsins. Alls voru um 1.500 tré gróðursett í fyrra og hafa þá yfir 6.000 tré verið gróðursett á síðustu árum, birki, fura, greni og lerki. Með þátttöku í verkefninu er GKG að styðja við samfélagslega skógrækt og heldur jafnframt áfram að fegra vallarsvæðið, líkt og gert hefur verið í áraraðir.
Tækjabúnaður
Á árinu bættust þrír sláttuþjarkar í vélaflota klúbbsins til viðbótar

við þá þrjá sem teknir voru í notkun árið áður. Reynslan af þessum duglegu og nákvæmu „starfsmönnum“ hefur verið mjög góð og hefur þegar verið lögð inn pöntun fyrir fjölgun þeirra næsta ár. Fyrsta starfsár þjarkanna sýndu bætta grasþéttni, jafnari sláttuhæð og minna magn grasafklippna. Ör þróun er í róbótamálum golfvalla þessi misserin en með aukinni notkun á þessu skilvirka vinnuafli vinnst mikilvægur tími til annarra verka ásamt því að minnka álag á vélar og starfsfólk.
Stóran hluta sumar voru ítrekaðar bilanir í flatarsláttuvélum okkar sem gerðu það að verkum að breyta þurfti umhirðuáætlunum en útlit er fyrir að þessi vandmál séu að baki. Þá fjárfesti klúbburinn í sérstakri sláttuvél til þess að slá og hirða hærra gras á vallarsvæðinu.
Umhverfismál
Á árinu hlaut klúbburinn GEO vottun fyrir sjálfbæra golfvelli, einungis annar tveggja klúbba á Íslandi. Vottunin nær til alls starfs klúbbsins, allt frá vallarumsjón, klúbbhúsa, umhverfisverndar, samfélagsþátttöku, auðlindanýtingar svo eitthvað sé nefnt.
Eitt af viðfangsefnum GEO sem snýr að vellinum felst í því að gefa náttúrunni heimili á vellinum okkar, skapa búsvæði á vellinum fyrir innlendar tegundir trjáa, fugla og gróðurs. Í þeirri viðleitni var farið í prófun í sumar á endurvæðingu grófra svæða til að stuðla að heilbrigðum vexti og hvetja innlendar tegundir en á sama tíma letja illgresi eða óæskilegan vöxt.
Eins og framangreind umfjöllun sýnir þá er í ýmis horn að líta á vettvangi vallarnefndar og langar mig fyrir hönd félaga klúbbsins að þakka vallarstjórum og vallarstarfsmönnum klúbbsins fyrir dugnað, elju og fagmennsku. Leirdalsvöllur og Mýrin voru í sumar í besta standi sem sést hefur í lengri tíma og fyrir það ber að þakka.
Einar Þorsteinsson, formaður vallarnefndar 2025

Wise er alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem býður sérsniðnar lausnir og þjónustu sem hjálpar þér að ná markmiðum þínum
Með víðtækri þekkingu, reynslu og fagmennsku, tryggjum við lausnir sem skapa raunverulegt virði Spjöllum saman

Samkvæmt samþykktum GKG er hlutverk viðburðarnefndar að “auka gildi þessað vera GKG-ingur og efla GKG andann”. Þessu hlutverki sinnir nefndin m.a.með skemmtanahaldi, fyrirlestrum, spilakvöldum o.fl.
Nefndin tók til starfa eftir aðalfund 2024 og hefur hún verið þannig skipuð.
- Markús Einarsson, formaður
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Heiða Hauksdóttir
Með nefndinni starfaði Úlfar Jónsson, þjónustustjóri GKG.
Nefndin hefur haldið 2 formlega fundi, en samskiptin hafa mest verið í formi tölvupósta og samtala.
Á tímabilinu hefur nefndin staðið fyrir eftirfarandi viðburðum.
5. desember: Félagsvist
23. janúar: Félagsvist
26. febrúar: Fyrirlestur um þjálfun afrekskylfinga. Andrés Davíðsson.
23. apríl: Kynning á nýjum bókunarreglum GKG. Agnar Jónsson og Úlfar Jónsson.
1. maí: Fyrirlestur um leikreglur og hegðun golfara á golfvellinum. Þorgrímur Toggi Björnsson
6. maí: Fyrirlestur um leikreglur og hegðun golfara á golfvellinum. Þorgrímur Toggi Björnsson
23. október: Félagsvist.
27. nóvember: Liðleika- og styrktarþjálfun golfara. Bjarni Már Ólafsson hjá Golfstöðinni í Glæsibæ
Þátttaka í viðburðunum var mjög góð og oftar en ekki hefur verið húsfyllir.


Til stjórnar Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar.
Áritun um endurskoðun ársreikningsins
Álit
Við höfum endurskoðað ársreikning Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar rekstrarárið 1. nóvember 2024 til 31. október 2025. Ársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu félagsins 31. október 2025 og afkomu þess og breytingu á handbæru fé á rekstrarárinu sem lauk 31. október 2025, í samræmi við lög um ársreikninga.
Grundvöllur álits
Við endurskoðuðum í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er lýst frekar í kaflanum Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun ársreikningsins í árituninni. Við erum óháð félaginu í samræmi við gildandi siðareglur fyrir endurskoðendur. Við teljum að við höfum aflað nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna til að byggja álit okkar á.
Aðrar upplýsingar í ársskýrslu
Stjórn og framkvæmdastjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru ársskýrsla að undanskildum ársreikningi og áritun okkar á hann. Álit okkar á ársreikningnum nær ekki til annarra upplýsinga og við staðfestum þær ekki á neinn hátt.
Í tengslum við endurskoðun okkar á ársreikningnum ber okkur að lesa aðrar upplýsingar í ársskýrslu þegar þær liggja fyrir og meta hvort þær séu í verulegu ósamræmi við ársreikninginn eða aðra þekkingu sem við höfum aflað okkur við endurskoðunina eða virðast verulega rangar. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Við höfum ekkert að upplýsa hvað þetta varðar.
Ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra á ársreikningnum
Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrir gerð og glöggri framsetningu ársreikningsins í samræmi við lög um ársreikninga og fyrir því innra eftirliti sem þau telja nauðsynlegt til að gera þeim kleift að setja fram ársreikning sem er án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Við gerð ársreikningsins ber stjórn og framkvæmdastjóra að leggja mat á rekstrarhæfi félagsins og upplýsa, eftir því sem við á, um þætti er varða rekstrarhæfi og miða grundvöll reikningsskilanna við áframhaldandi rekstrarhæfi, nema þau ætli annað hvort að leysa félagið upp eða hætta starfsemi þess, eða hafa engan annan raunhæfan kost en að gera
Stjórn og framkvæmdastjóri skulu hafa eftirlit með gerð og framsetningu ársreikningsins.
Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun ársreikningsins
Markmið okkar eru að öðlast hæfilega vissu um hvort ársreikningurinn í heild sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, og að gefa út áritun endurskoðanda sem inniheldur álit okkar. Í hæfilegri vissu felst áreiðanleiki en ekki trygging fyrir því að endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni alltaf leiða í ljós verulega annmarka ef þeir eru fyrir hendi. Annmarkar geta komið fram vegna sviksemi eða mistaka og eru taldir verulegir ef þeir einir og sér eða samanlagt gætu haft áhrif á efnahagslegar ákvarðanir sem notendur ársreikningsins taka á grundvelli hans.
Við endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla beitum við ávallt faglegri dómgreind og viðhöfum
•
Greinum við og metum hættu á verulegri skekkju í ársreikningnum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, skipuleggjum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeirri hættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, fölsun, að einhverju sé viljandi sleppt, villandi framsetningu eða að farið sé framhjá innra eftirliti.
óháðs endurskoðanda, frh.:
Öflumviðskilningsáinnraeftirliti,semvarðarendurskoðunina,tilaðskipuleggjaviðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki til að veita álit á virkni innra eftirlits félagsins.
Öflum við skilnings á innra eftirliti, sem varðar endurskoðunina, til að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki til að veita álit á virkni innra eftirlits félagsins.
• • Metumviðhvortreikningsskilaaðferðirogreikningshaldslegtmatstjórnendaogtengdar skýringarséu viðeigandi.
• • Metum við hvort reikningsskilaaðferðir og reikningshaldslegt mat stjórnenda og tengdar skýringar séu viðeigandi.
Ályktumviðumhvortnotkunstjórnarogframkvæmdastjóraáforsendureikningsskilannaumrekstrarhæfisé viðeigandiogmetum,ágrundvelliendurskoðunarinnar,hvortaðstæðurséutilstaðarsemvaldiðgætu verulegumvafaumrekstrarhæfifélagsins.Efviðteljumaðverulegurvafileikiárekstrarhæfiberokkur,í áritunokkar,aðvekjasérstakaathygliáviðeigandiskýringumársreikningsinseða,efslíkar skýringareru ófullnægjandi,aðvíkjafráfyrirvaralausriáritun.Niðurstaðaokkarbyggirá endurskoðunargögnumsemaflað erframaðdagsetninguáritunarokkar.Samtsemáðurgetaatburðireðaaðstæðuríframtíðinnigertfélagið órekstrarhæft.
Ályktum við um hvort notkun stjórnar og framkvæmdastjóra á forsendu reikningsskilanna um rekstrarhæfi sé viðeigandi og metum, á grundvelli endurskoðunarinnar, hvort aðstæður séu til staðar sem valdið gætu verulegum vafa um rekstrarhæfi félagsins. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur, í áritun okkar, að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum ársreikningsins eða, ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi, að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Samt sem áður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni gert félagið órekstrarhæft.
Metumviðframsetningu,uppbygginguoginnihaldársreikningsinsíheild,aðmeðtöldum skýringum,og hvort ársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum.
Metum við framsetningu, uppbyggingu og innihald ársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum, og hvort ársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum.
Viðupplýsumstjórnmeðalannarsumáætlaðumfangogtímasetningarendurskoðunarinnarogverulegatriðisemupp kunna að koma í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti.
Við upplýsum stjórn meðal annars um áætlað umfang og tímasetningar endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp kunna að koma í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti.
Staðfesting vegna annarra ákvæða laga
Staðfesting vegna annarra ákvæða laga
Ísamræmiviðákvæði2.mgr.104gr.laganr.3/2006umársreikningastaðfestumviðsamkvæmtokkarbestuvitundað ískýrslustjórnarsemfylgirþessumársreikningieruveittarþær upplýsingarsemþarberaðveitaísamræmiviðlögum ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.
Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir þessum ársreikningi eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.
• • KPMG ehf.
Garðabær, 30. nóvember 2023
Garðabær, 4. desember 2025
• • KPMG ehf.


Léttar og meðfærilegar kerrur til léttra utninga, garðvinnu eða fyrir ýmsar tómstundir. Kerrurnar eru vandaðar, sterkbyggðar og byggðar ofan á vandaðan Knott öxul með exitora öðrun.

Öflugir snjóblásari með stillanlegum kastara. Fer leikandi í gegn um mikinn og þungan snjó og kastar allt að 12 metra. Bæði 60v rafmagns og bensínknúnar

Þægilegar í notkun og umgengi. Samanbrjótanlegar og fyrirferðalitlar í geymsluna eða bílskúrinn. Bæði 60v rafmagns og bensínknúnar



1. nóvember 2024 til 31. október 2025
Félagsgjöld ...............................................................................................
Vallargjöld .................................................................................................
Leigutekjur ................................................................................................
Tekjur af golfmótum .................................................................................
Rekstrarframlög og fyrirtækjasamningar ...................................................
Sértekjur íþróttasviðs ................................................................................
Vörusala ....................................................................................................
Aðrar rekstrartekjur ...................................................................................
Laun og launatengd gjöld ......................................................................... Íþróttamiðstöð og áhaldahús ....................................................................
Golfvöllur og æfingasvæði ........................................................................
Keppnisgolf, mótahald og kennsla ............................................................
Gjöld til GSÍ ...............................................................................................
Kostnaðarverð seldra vara .........................................................................
Annar rekstrarkostnaður ........................................................................... Afskriftir rekstrarfjármuna .........................................................................
Rekstrartekjur umfram rekstrargjöld
og (fjármagnsgjöld)
Vaxtatekjur og verðbætur .........................................................................
Vaxtagjöld og verðbætur ..........................................................................
Tekjur umfram gjöld
Golfvöllur ..................................................................................................
Íþróttamiðstöð og áhaldahús ....................................................................
Bifreiðastæði og umhverfi ........................................................................
Vélar, tæki og áhöld ..................................................................................
Vörubirgðir ................................................................................................
Viðskiptakröfur .........................................................................................
Aðrar skammtímakröfur ............................................................................
Handbært fé .............................................................................................
Veltufjármunir samtals
Eigið fé .....................................................................................................
Skuldir við lánastofnanir ............................................................................
Langtímaskuldir samtals
Skuldir við lánastofnanir ............................................................................
Viðskiptaskuldir .........................................................................................
Næsta árs afborgun langtímaskulda .........................................................
Aðrar skammtímaskuldir ...........................................................................
Ársreikningur Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar 31.10.2025
Tekjur umfram gjöld .................................................................................
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Söluhagnaður rekstrarfjármuna ............................................................
Afskriftir rekstrarfjármuna .....................................................................
rekstrartengdra eigna og skulda:
Vörubirgðir, lækkun (hækkun) ...............................................................
Skammtímakröfur, lækkun (hækkun) ....................................................
Skammtímaskuldir, hækkun (lækkun) ...................................................
Fjárfesting í rekstrarfjármunum ................................................................
Söluverð rekstrarfjármuna ........................................................................
Afborgun langtímalána ..............................................................................
Hækkun á handbæru fé
Handbært fé í byrjun rekstrarársins
Handbært fé í lok rekstrarársins

Færsluhirðing Landsbankans









KEPPNISFERÐIR
ÍÞRÓTTAFERÐIR
ÆFINGAFERÐIR
ENDURMENNTUNARFERÐIR
VIÐSKIPTAFERÐIR
Hamraborg 20 200 Kópavogur Sími 578 9888 visitor.is

Landsmeistarar golfklúbba - flokkur 65 ára og eldri karla 2025
Hlöðver Sigurgeir Guðnason, Andrés I Guðmundsson, Gunnar Árnason, Eyþór Einarsson, Helgi Svanberg Ingason, Jóhann Unnsteinsson, Þorsteinn Reynir Þórsson.

Íslandsmeistarar golfklúbba 12 ára og yngri í drengjaflokki - 2025

Landsmeistarar golfklúbba í flokki 65 ára og eldri kvenna 2025

Íslandsmeistarar golfklúbba í drengjaflokki 14 ára og yngri 2025

Jón Reykdal Snorrason
Íslandsmeistari í höggleik drengja 12 ára og yngri 2025

Jón Reykdal Snorrason Íslandsmeistari í holukeppni drengja 12 ára og yngri 2025

Matthías Jörvi Jensson Íslandsmeistari í höggleik drengja 14 ára og yngri 2025

Arnar Daði Svavarsson Íslandsmeistari í höggleik pilta 15-16 ára 2025

Gunnar Þór Heimisson Íslandsmeistari í holukeppni í piltaflokki 17-18 ára - 2025
JÚLÍUSSON
GUÐMUNDSDÓTTIR



