Guðrún Kristín Magnúsdóttir
? Vaknaðu, Lóa ! Vaknaðu ! .
.
Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! -útaf kvuru þarf maður alltaf.....
4.útgáfa ISBN 978-9979-895-34-3 Guðrún Kristín Magnúsdóttir
. . . Ímyndaðu þér óbótóna, . . . lagið: . . . lóan er komin . . . að kveða burt snjóinn . . . kveða burt leiðindin . . . það getur hún . . . ímyndaðu þér ungbarnsgrát með ekka
Þetta er Lóa litla að gráta. Þú getur nærri að mamma hennar getur ekki sofið þegar ungabarnið grætur svona.
Pabbi Lóu fær heldur engan svefnfrið. . . . ímyndaðu þér syfjulega ráma rödd hans: -Geturðu ekki þaggað niður í barninu, elskan? Það er hánótt. Mamma Lóu reynir að hugga hana, en það er eins og ungabörn skilji ekki að foreldrar þurfa að sofa. -Þetta lagast vonandi þegar hún stækkar (segir syfjulega rám rödd unga föðurins).
. . . ímyndaðu þér óbóið spila hratt og hressilega: . . . lóan er komin . . . að kveða burt snjóinn...... . . . svo heyrist búmm búmm búmm . . . og meira búmm búmm
Auðvitað stækkar Lóa litla. Það er alveg ótrúlegt hve hratt ungabörn stækka: Lóa er orðin ársgömul og búin að finna upp æðislega skemmtilegan leik (það er þetta búmm búmm):
Eldsnemma á morgnana þegar alls staðar er þögn, hoppar Lóa upp og niður í rimlarúminu sínu. Þá hristist allt, brakar í öllu og fæturnir á rúminu stappa í gólfið (búmm búmm).
. . . óbó: . . . hún hefur sagt mér . . . að vaka og vinna...... -Mamma!
æpir Lóa. -Mamma!!!
Mamma vaknar: -Æ, Lóa mín, hafðu ekki svona hátt. En þetta dugar ekki til að vekja
pabba. Bara mömmu. Svo betur má ef duga skal ..
. óbóið áfram: . . . .....hún hefur sagt mér . . . að vaka og vinna...... Lóa nær í eitt hornið á svæflinum sínum og koddinn fær flugferð. En hún dregur ekki nógu langt. Koddinn fer í gólfið. Hún pillar af sér pissubleiuna og skutlar henni í mömmurúm. . . . .....hún hefur sagt mér . . . að vaka og vinna...... Svo er hægt að berja pelanum sínum í rúmið. . . . bamm bamm bamm bamm
Það er miklu auðveldara að
draga langt með pela en með kodda, sérstaklega ef maður nær góðu taki á túttunni. ---Mark---!!! Pelinn fer í pabba. -Elsku Lóa mín ! segir mamma Lóu. -Vektu ekki pabba ! (Ég ætla ekki að hafa eftir það sem pabbinn sagði.)
Lóa hlær og puðrar ánægjulega. Mamma Lóu geispar, tekur barnið og fer með það fram. . . . (ánægjuhljóð í Lóu, svona blaða blaða blaða og burr) Lóa er yndislegt barn þegar hún er viss um að vera búin að vekja fólk. Hún gefur sópran-sóló (á tæpitungu): pabbi daumur (á að vera draumur) mamma daumur þau eru bæi daumakús (bæði draumaknús) Endurtekið eftir þörfum og eins hátt og hægt er.
Morgun eftir morgun klukkan sex, ár eftir ár, meðan Lóa er eins árs, tveggja ára, þriggja ára, fjögurra ára, reynist þrautalendingin vera: Fara bara á fætur þegar Lóa er vöknuð. Hún er morgunhani, -- þetta barn.
En
þegar Lóa litla stækkar, þ.e.a.s. þegar hún kemst á skólaaldurinn, fer hún loks að geta sofið ögn fastar á morgnana: . . . óbó (svolítið stríðnislega): . . . sofnar lóa . . . löng og mjó-ó-ó-ó.... -Lóa mín. -Lóa! (mamma er að reyna að vekja Lóu). -Lóa mín, vaknaðu vinan. (Lóa umlar syfjulega,) -Lóa mín, er ekki leikfimi í fyrsta tíma, elskan?. -- Lóa mín
Lóa er fremur syfjuleg þegar hún maular árbítinn sinn. Hún er að velta því fyrir sér hvers vegna maður þurfi alltaf að vakna svona snemma -- á undan sólinni: -Útaf kvuru, mamma, útaf kvuru þarf maður alltaf að fara í skólann? -Segðu frekar: hvers vegna, elskan mín, segir mamma. -Það er fallegra en: útaf hverju. Auðvitað verðurðu að fara í skóla, elskan mín. Svona drífðu þig nú. Klukkan er alveg að verða. . . . . ímyndaðu þér enn óbóið spila . . . hratt: . . . . lóan er komin . . . . að kveða burt snjóinn . . . . snjóinn . . . . snjóinn . . . . snjóinn . . . . og ímyndaðu þér Lóu litlu ösla
snjóinn, með skólatösku, í úlpu, með húfu, trefil og vettlinga, í myrkri vetrarmorgunsins Lóa hugsar til sumarsins. Þá kemur sumarfríið. Þá þarf maður ekki alltaf að vakna til að fara í skólann, sko. Auðvitað kemur vor. Það kemur alltaf vor. . . . . Lóan er komin . . . . að kveða burt snjóinn . . . . kveða burt leiðindin . . . . það getur hún...... -Ég ætla sko upp í sveit þegar sumarfríið kemur, hugsar Lóa. -Það verður gaman. Þá þarf maður ekki alltaf að vakna til að mæta í skólann. . . . .óbóið spilar hratt:
. . . . snemma lóa litla í . . . . snemma lóa litla í . . . . snemma lóa litla í Lóa vaknar eldsnemma einn fagran júnímorgun -- til þess að ná rútunni. Það er sannarlega fjör í sveitinni. Krakkarnir fá að vaka langt frameftir á kvöldin --
-- og kvöldin eru björt og næturnar eru bjartar --
. . . . ímyndaðu þér hanagal: goggalagó -- en ég veit að Lóa sefur ekki til hádegis á þessum bæ. Það er alltaf nóg að gera í sveitinni. . . . .hún hefur sagt mér . . . .að vaka og vinna . . . .vonglaður taka nú..... .... . . . . það heyrist aftur hanagal
Sumrin taka enda eins og allt annað í þessari veröld.
Heyið kemst í hlöðu, féð er rekið heim af fjalli.
. . . . lóan í flokkum flýgur . . . . fjarlægist sumarból . . . .(o.s.frv. spilað angurvært og tregablandið á óbóið) . . . . ímyndaðu þér nú tikk í klukku (t.d. stórri gamalli vekjaraklukku) Auðvitað kemur alltaf aftur vetur.
. . . . tikk takk tikk takk . . . . tikk takk tikk takk Lóa heldur áfram að stálpast. Þegar hún er orðin táningur veltir hún því oft fyrir sér hvers vegna skólinn byrji alltaf áður en maður er almennilega vaknaður. . . . . nú skulum við ímynda okkur bíb í tölvuvekjaraklukku (mjög uppáþrengjandi; . . . . og bíbið heldur áfram undir texta;)
Undarlegt með þessar vekjaraklukkur hve snar þáttur þær eru í lífi manns. Í raun er nútímamaðurinn orðinn þræll allrar þessarar visku sinnar: Á hverjum morgni þarf maður að rífa sig upp. Hvað græðist á öllum framförunum? Hvernig væri að njóta þægindanna, njóta lífsins, í stað þess að æða svona gegnum lífið? Maður fær ekki einu sinni nægan svefn! . . . . lóan er komin . . . . að kveða burt snjóinn . . . . kveða burt leiðindin . . . . það getur hún.......
Lóa er orðin ástfangin !
Það kemur nú fyrir marga, en Lóa er orðin svo stór að hún er ástfangin í alvöru: Hún ætlar að fara að gifta sig ! . . . . nú ímyndum við okkur nokkra fyrstu tónana úr brúðarmarsinum: . . . . bamm bammbaramm . . . . bamm bammbaramm Gott að geta keypt persónulegar íslenskar brúðkaupsservéttur
frá Heklu.
Húsmóðir, já. Húsmæður geta sjálfar stjórnað sínum vinnutíma. Þær geta jafnvel skriðið aðeins uppí aftur og kúrt sig ögn á morgnana. . . . . vonglaður taka nú sumrinu mót Lóa og maðurinn hennar eru ákaflega hamingjusöm. Það er alveg ólýsanleg sæla -eitthvað svo yndisleg lífsreynsla -- að mega sofa saman án þess að hafa samviskubit yfir að fara ekki heim þótt klukka sýni að langt sé liðið á nótt. Maður er nefnilega heima hjá sér. Klukkan getur ekki rofið þá eirð og öryggi sem ríkir milli nýgiftra hjóna. -- Og þó -. . . . bíb í vekjaraklukku (nokkuð
lengi áður en nokkur viðbrögð klukkueigendanna sjást) Lóa geyspar: -Heyrðu elskan, -elskan -- -- -- klukkan var að hringja, vinur. . . . . hrotur og uml í eiginmanninum sem snýr sér á hina hliðina -- án þess að opna augun. . . . . Maðurinn hennar Lóu er svoddan nátthrafn. Lóa spyr: -Á ég að setja kaffið yfir, elskan? (Maðurinn lítur á klukkuna, drífur sig á fætur fær kaffi hjá Lóu, kyssir hana bless drífur sig í vinnuna.)
Lóa fer uppí aftur, en hún er búin að drekka svo mikið kaffi að hún er ekkert syfjuð.
. . . .Vaaa vaaaa vaaaa (ungbarnsgrátur) Þeim hjónum fæðist fríður sonur í fyllingu tímans.
Lóa gengur oft um gólf með soninn unga um nætur þegar aðrir sofa: -Sussu suss lilli minn. Reyndu nú að sofna. Sussu sussu lilli minn. Við skulum ekki vekja pabba. . . . . Lóa syngur: . . . . sofðu unga ástin mín.... . . . ......við skulum ekki vak'um
dimmar nætur. Hann Lilli hennar Lóu stækkar. Hann vekur mömmu sína alltaf eldsnemma á morgnana. Hann er morgunhani. Hann á það til að vakna klukkan sex og finnst þá vera kominn hábjartur dagur: -Mamma komd'í kubbaleik. Mamma, kubbó. Mamma. Mamma lesa bók. Mamma segja mér sögu. Það er ekki fyrr en Lilli er orðinn sjö ára að hann fer að geta sofið fast og lengi á morgnana. . . . . bíb í vekjaraklukku Hann er líka alltaf á seinustu stundu í skólann. . . . . bíb í vekjaraklukku
Lóa vekur manninn sinn (til þess að hann komist í vinnuna) og Lilla (til þess að hann komist í skólann). . . . . bíb í vekjaraklukku
Þeir eru nú meiri svefnpurkurnar á morgnana, þessir feðgar. Svo ákveður Lóa að fá sér vinnu. Hún flýtir sér á fætur á hverjum morgni. Klukkan er sko enga stund að verða hálf, og Lóa þarf að ná strætó. Ósköp sem er eitthvað dimmt úti á morgnana á veturna. . . . .hún hefur sagt mér . . . . . að vaka og vinna . . . . . að vaka og vinna . . . . (óbóið er nú eins og biluð grammófónsplata sem hjakkar í sama hringnum)
. . . . að vaka og vinna . . . . að vaka og vinna Svo fóru þau hjónin til Spánar að hvíla sig, og komu Lilla til ömmu.
. . . . vonglaður taka nú . . . . sumrinu mót Þar var ómögulegt að sofa fyrir hita, flugnabiti og syngjandi Íslendingum. Mikið skelfing sem fullir Íslendingar geta verið háværir á nóttunni. . . . . fullir Íslendingar syngja ættjarðarlög, og ölvaðar konur hlæja hátt og skrækt
Jæja.
Það verður þó altjent tími til að sofa í ellinni.
Einu sinni var ég svkísa ég ætla ekki að reyna að lýsa hve gaman var þá. Núna er ég orðin kerling, bý til afbragðs góðan velling: Æ, jamm og já. (Lóa veit að þetta er lélegur skáldskapur og segir engum vísuna; brosir bara að henni í einrúmi.)
Í ellinni, já: . . . . tif heyrist í prjónum Þeir sem ekki deyja áður, verða gamlir.
Í ellinni hafa menn nægan tíma. Tíminn hættir að hlaupa út úr höndunum á manni. . . . . sofi og mikið . . . . og vinni ekki hót . . . . sagt mér til syndanna minna Vekjaraklukkur þjóna nú þeim tilgangi einum að segja til um hvað tímanum líður. Það er litið á þær jafnt á nóttu sem degi. Tölustafirnir þurfa að vera stórir og skýrir. Maður er löngu hættur að sjá á úrið. . . . . óbó: . . . . sofnar lóa . . . löng og mjo-ó-ó . . . (Lóa tekur undir og hummar lagið með óbóinu) Lóa er orðin andstutt. Hún er orðin gömul. Hún rær fram og aftur á
rúmstokknum: -Æ, jamm og já: Það er ekki von til að maður geti sofið um nætur þegar maður hefur litla fótaferð og dottar af og til á daginn. O, sei sei nei. . . . (Lóa hummar áfram: Sofnar lóa löng og mjó.......) -Það verður víst nóg um hvíldina þegar þar að kemur, og já já. Það held ég nú. Hann verður víst nógu langur, svefninn langi. . . . (andstutt raular Lóa:) . . . . ég fel í forsjá þína . . . guð faðir sálu mína . . . . því nú er komin nótt; . . . . um ljósið lát mig dreyma . . . og ljúfa engla geyma . . . . öll börnin þín . . . svo blundi rótt
--- - Og þó? Því ég er farin að velta því fyrir mér hvar og hvenær ég fæðist næst, hvort ég velji mér í næsta lífi aftur svona algjöran skort á þægilegri leti. Jæja. Þá það. Enginn er verri þótt hann vakni, sagði þulurinn í morgunútvarpinu víst.
Bækukrnar fást á Amazon freyjukettir@mmedia.is Norræn menning - myndasögur og lestraræfingar: TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur Hannesar saga Grásteins (20 bækur) Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar. Bína brúða Búi skreytir jólatré Litla flugan Hagbarður og Hvutti - langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður - smásögur: Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins
Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au-pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Bónda minn hálfan, árans bjálfann!! Strætó í hringi Drottinn blessi heimilið -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? - verðlaunahandrit: Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikiti! - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD) mmedia.is/odsmal mmedia.is/odsmal/sogur,html
Norræn menning Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur
„útaf kvuru þarf maður alltaf að vakna?“
ISBN
978-9979-895-34-3