Skip to main content

Tóta og þau

Page 1

Guðrún Kristín Magnúsdóttir

Tóta og þau Tóta og þau


T贸ta og 镁au


ISBN 978-9979-895-62-6 Feyjukettir. Norræn menning

„Tóta og þau“ var sýnd í Sjónvarpinu (rúv), Stundinni okkar og þá auðvitað með lesnum texta, lesnum af höfundi; hefur einnig birtst sem handrit að leikriti í safnriti útgefnu af Máli og menningu.


Tóta og þau Tóta, Óli og Siggjonni

SPELLVIRKI Í SKJÓLI NÆTUR


Tóta og þau eru hér með hamar, sög og saum

Hvað stendur til?


Að smíða kofa. Það sem til þarf er: áhugi, spýtur og verkfæri því hér er nóg pláss.


Best er líklega að byrja á hornspýtunum.

Svo má negla veggina utaná þær.


Kofinn er ekki fullbúinn þegar mamma kallar í Tótu og þau.

Mamma kallar út um gluggann: --Það er kominn kvöldmatur.

Þau gegna strax og fara inn.


Mamma gefur Tótu, Óla og Siggjonna mottu sem þau geta notað i kofann sem þau eru að smíða

Það sem þau ekki sjá, er, að strákar eru úti þegar góðu börnin eru komin inn.


Þeir eru nálægt kofanum sem Tóta og þau eru með í smíðum.

Þeim dettur í hug að gera eitthvað ljótt.


Þeir safna saman spýtum og pappír,

--

setja það inn í kofann.


Þeir eru með eldspýtur.

Þeir kveikja í. Bæta svo á eldinn.


Tóta og þau eru inni að leika sér.

Þau heyra allt í einu í slökkviliðsbílnum og fara útí glugga.


Þau sjá að kveikt hefur verið í kofanum þeirra. Þau sjá einnig að tveir strákar hlaupa brott.

Krakkar koma hlaupandi til að sjá hvað um er að vera, -- og fólk kemur út í glugga.


Tóta og þau eru mjög æst. Svolítið reið:

-Það er búið að kveikja í kofanum sem við erum að smíða !!!


Slökkvilíðsmennirnir eru að slökkva eldinn.

Slökkviliðsmennirnir segja: -Það þyrfti að tala við þessa óvita sem gera sér leik að að kveikja í. Þeir gera sér ekki grein fyrir hvað þetta er hættulegt. Skilja ekki að þetta getur valdið tjóni á verðmætum ef eldurinn breiðist út.


Pabbi segir: -Æ, þið skulið nú ekki vera svona æst. Þetta var nú aðeins spýtnadrasl.

Tóta og þau verða enn æstari og reiðari: - SPÝTNADRASL !


ÞETTA VAR HÚS !

Mamma segir: -Við skulum nú ekki taka þessu svona illa. Hugsið ykkur ef húsið sem við búum í væri að brenna. Við verðum að læra að taka smá andstreymi.


Siggjonni spyr: -Hvað er andstreymi? Mamma svarar: -Það er smá mótlæti. Bara góð æfing fyrir lífið að gera ekki of mikið úr áföllum. Nú sljákkar heldur í Tótu, Óla og Siggjonna. Pabbi segir:


-Nóg til af spýtnabraki. Hægt að hefjast handa á ný í fyrramálið. Mamma segir: -Er ekki best að fara að drífa sig í háttinn? Pabbi bætir við: ..... -Til þess að hafa nóga krafta á morgun.

Þórunn, Ólafur og Sigurjón


Ósvinnur (óvitur) maður vakir um allar nætur og hyggur at hvívetna (hugsar um allt); þá er móður (þreyttur), er að morgni kemur, allt er víl sem var. (andvökunæturnar hafa ekki bætt ástandið, áhyggjur gera ekkert gagn.) úr Hávamálum, 23.vísu


Áhyggjurnar þrífast ekki nema þú hugsir vel um þær, ræktir þær af kostgæfni, vökvir þær, talir við þær. Annars kemur kyrkingur í áhyggjurnar. Þær veslast upp og deyja. Og þyrnarnir á þeim verða ekki að almennilegum broddum nema þú hugsir vel um þær, kvölds og morgna, finnir nærveru þeirra á daginn, vaknir upp á nóttunni og gefir þeim brjóst (úr leikritinu: Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti, verðlaunaleikriti eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur; einnig í Óðsmálum 1996 ISBN 9979 60 165 5)


freyjukettir@mmedia.is Sögurnar fást á Amazon

Norræn menning

Hjalti Bjarnason:

TAK og nornin TAK og borðtuskan

Vinur fílsins

TAK og freki TAK og náttúruvæni einnotapokinn


TAK og diskurinn

TAK og lyftingageimveran mikla

TAK og skemmtitækin TAK og slökkvibíllinn

TAK og fiskarnir TAK og bíllinn TAK og brúin

TAK og páskaeggið

TAK og Lalli Marsbúi


TAK og landbúnaðurinn TAK og lyktarsjónvarpið TAK og jarðeplaupptökuvélin

TAK og fjölleikahúsið

TAK og martröðin

TAK og flugeldarnir

TAK og tilraunalímið

TAK og græna ræktin TAK og allraveðrapeysan TAK og erfiði maturinn


TAK og flugvélin TAK og fjarskagaman TAK og Auðtrúa TAK og innbrotageimveran Innbrota og draugurinn bangsabækur Fjölva 1983

TAK og draugurinn

Bjarni Þór Einarsson:

Glámur auli


Guðrún Kristín Magnúsdóttir fleiri myndasögur.

Apakríli, algjör dúlla

Bína brúða

Búi skreytir jólatré

Hannesar saga Grásteins

Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar

Hrif

20 bækur


Hvar voru hrossin í hríðinni?

Jónki fór í réttirnar.....

Mummi

Palli og englabjallan

Sigga og hafragrauturinn

Tíkin Tóa og grey litli Krúsi

Tóta og þau

Hagbarður og Hvutti


Draumahúsið

Hver er hann þessi Jakob?

Flugan

4 síðasttöldu Bangsabækur 1983;

langar barna- og unglingasögur:

Halla

Japl, jaml og fuður (sjónvarpssápa: fyndin alíslenzk vandamálasápa í sjónvarpsþætti af vinsælustu gerð; sitcom (situation comedy); þetta frábæra handrit komst á stutta listann úr hundruðum þúsunda innsendra handrita hjá MEDIA (evrópsk menning)


smásögur:

Saga Svaðilfara

IN MEMORIAM (verðlaunasaga) Sál bróður, steinbítsbróður

(verðlaunasaga)

Tröllabarn (verðlaunasaga)

Hreggnótt

Í mjúku myrkri búa draumarnir

Dívan skáldsins

Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu!


Ég, hið silfraða sjal

Þetta er mitt hús Strætó í hringi

Melana, drottning frumskógarins

Au pair

Dagdraumar og sorgarband

Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur (sakamál)

1000 stjörnur - Bónda minn hálfan, Hljóðahver ljóðakver Drottinn blessi heimilið


-Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti (verðlaunaleikrit)

Norræn menning odsmal@mmedia.is ; freyjukettir@mmedia.is

fræðsluefni:

Óðsmál (1996)

´96

Óðsmál in fornu (2009) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD; 2000)


Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Skírnismál helgileikar

(handrit handa börnum)

Rakni og Þögn - KLUKK efnisyfirlit)

(leikir barna,


Tóta og þau

SPELLVIRKI Í SKJÓLI NÆTUR ISBN 978-9979-895-62-6


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook