Guðrún Kristín Magnúsdóttir
TÍKIN TÓA OG GREY LITLI KRÚSI
TÍKIN TÓA OG GREY LITLI KRÚSI
saga um hundauppeldi
ISBN 984 9979 895 33 6
Norræn menning
Athugið: Reginmunur er á hundauppeldi og barnauppeldi. Hundar þurfa að læra goggunarröðina, og það veitir þeim öryggi að vita hvað þeir mega og hvað ekki er við hæfi. Þar nægir já eða nei. Má, má ekki.
Ég (lærir hundurinn) græði alltaf á að gera rétt, tapa alltaf á að gera rangt, og ég (lærir hundurinn) veit hvað er rétt og hvað er rangt. En börn þurfa að hafa sjálfstæðan heilbrigðan vilja og læra ábyrgð. Í því samhengi er ekki til nein „af-því-bara regla“. Ekki er svar við spurningunni: „hvers vegna má ekki...“, að segja: „af því að ég segi það“. Slíkt dugar á hund því hann getur ekki beitt rökhugsun, -- en það er ömurlegt svar þegar hugsandi barn spyr. Barnið þarf rök, heilbrigð rök.
TÍKIN TÓA OG GREY LITLI KRÚSI Gamla rauða húsið er fyrir, samkvæmt skipulaginu. Þetta veit Vigfús gamli sem býr þar einn, og þetta vita krakkarnir sem búa í nýju raðhúsunum í kring.
Krökkunum þykir karlinn skrýtinn. Sumir eru jafnvel hálfhræddir við hann. Vigfús smíðar úr járni, glóandi járni, úti í smiðjunni sinni. Hann hlýtur að vera ofsalega sterkur.
Vigfús smíðar furðulegustu hluti.
En Vigfús er nýbúinn að fá sér hvolp, tík, sem hann kallar Tóu.
Hann vill frekar tík en hund, því þær eru heimakærari; -- fara ekki á flakk og lóðarí langar leiðir eins og hundar vilja gjarnan gera. Vigfús byrjar fljótt að aga Tóu.
Þegar hún er í rólegu skapi kennir hann henni að gegna: „komdu“, og „sestu“. Hún fær harðfiskroð að launum í hvert skipti sem hún gerir rétt. En Vigfús verður hastur við hana ef hún gegnir ekki. Tóa græðir alltaf á að gegna
en lærir fljótt að ekki borgar sig að óhlýðnast.
Þegar Tóa er í leikskapi kennir Vigfús henni að sækja hluti. Hann notar þá leikgleði hvolpsins.
Vandinn er að gera greinamun á hvolpakátínu og óhlýðni. Það má alls ekki skemma gleðina, en strax koma í veg fyrir að hundurinn sé að leika sér að húsbóndanum!!
Auðvitað fara krakkar að atast í Tóu. Krakkar hafa svo gaman af dýrum.
Þau reyna að lokka hana til sín með nammi og gömlu tyggjói.
Hún fer að gelta og ólmast.
Þá kemur Vigfús út og öskrar: -Tóa, nei !! Þegiðu, Tóa.
Hún hlýðir Vigfúsi.
-Sjáiði hvað kallinn er vondur, segja krakkarnir. -Hann ætlar að lemja litla hundinn sinn. Hundurinn er hræddur við hann. Innskot til skýringar: Þessum krökkum hefur ekki verið kennt að maður á ekki að atast í annarra manna dýrum. Börnin vita ekki að þau eru að gera dýrinu mikinn óleik með því að atast í því. Þau rugla Tóu. Hún er aðeins hvolpur enn, og auðvelt er að vekja athygli hennar með blístri og látum og nammi. En Vigfús lætur Tóu skilja að hún á ekki að láta þau æsa sig upp. Tóa lærir að láta ekki krakka atast í sér. Betra hefði verið að krakkarnir vissu að maður á að láta annarra manna dýr í friði, því dýrin eru að læra hjá
sínum húsbónda og maður á ekki að trufla það. Því einfaldara og klárara sem uppeldið er, -- skýrara og sjálfu sér samkvæmara, án truflana og án ruglings -þeim mun auðveldara er fyrir dýrið að skilja hvers til er ætlast af því.
Nú fara Sigga og Gunni að surga í pabba sínum og mömmu um að fá hund. Þau ætla sko að vera góð við hann og ekki hóta að lemja hann eins og vondi kallinn í rauða húsinu gerir. Og að því kemur að þau fá pakka: kassa með rauðri slaufu utanum.
Úr kassanum staulast dasaður ráðvilltur pínulítill hvolpur, sem pabbi þeirra hefir keypt.
Þau kippa honum upp. Honum bregður hræðilega, því þau koma aftan að honum. Hann klemmir skottið milli fótanna. Þau vita ekki að það má aldrei hremma hund svona.
Þau rífast um að fá að hafa hann fyrst. Mamma bannar þeim að rífast svona. -Grey dýrið verður hrætt. Sigga vill að hann heiti Krúsídúlli, en Gunna finnst það ljótt. Eftir nokkurt þóf sættast þau á nafnið Krúsi. Sigga ætlar nú samt að kalla hann Krúsí.
Auðvitað gengur allt út á Krúsa fyrstu dagana, en því miður veit fólkið ekkert um uppeldi á hundum.
Það er sorgarsaga.
Þau ætluðu nú ekki að venja Krúsa á að sníkja mat þegar fólkið er að borða, -- en hann horfir svo biðjandi að honum er stundum gefinn biti, -- svona aðeins pínulítið. Mamma segir nei, en samt fær hann bita. Krökkunum þykir svo gaman að gefa honum bita þegar hann hoppar upp á þau við matarborðið.
Það er verst að Ollu frænku bregður svo þegar Krúsi hoppar upp á hana við kaffiborðið að hún skvettir úr kaffibollanum sínum. Það er búið að venja Krúsa á slæman ósið. Og Krúsi venst á að gelta því hann fær alltaf óverðskuldaða athygli ef hann lætur illa.
Er það skynsamlegt?
Krúsi er alltaf að stela sokkum. Þessi stríðni er mjög skemmtilegur leikur í hans augum, því hann græðir alltaf einhvern í eltingaleik útúr þessu, með vindhöggum og bægslagangi. Krúsi er að leika sér að fólkinu. Og fólkið öskrar eitthvert SKAMM
SKAMM
Mamma vill nú að Krúsi sé látinn gegna þessu „skamm“, og hún vill að Krúsi hætti að taka alla sokka, en krakkarnir segja svo oft skamm, án þess að meina nokkuð með því -- og láta Krúsa ekki gegna sér. Þau segja svo bara: -Ég leyfði honum það alveg. Krúsi tapar aldrei á því að óhlýðnast. Hann getur vel lært, en hann á heimska eigendur, sem kunna ekki að kenna honum -- kunna ekki að ala upp hund. Hann ætti að fá það sem hann má leika sér að, -- en ekki ná sokk.
Þegar Gunni og Sigga eru í skólanum og pabbi og mamma í vinnunni, er Krúsi greyið einn heima. Honum leiðist. Hundur er hópdýr.
Þá nagar hann inniskóna hans pabba og er líka byrjaður á einu horninu á stofuteppinu og einum fætinum á stóra stólnum. Mamma segir skamm, og dæsir: -Af hverju vill hann frekar inniskó en gervibeinið sem ég keypti? Þetta eldist vonandi af honum.
Krúsi er gjarn á að hoppa upp á fólk og gelta. Olla frænka er svo agalega hrædd. Það þykir Krúsa gaman, því hún baðar út öllum öngum og allir fara að skipta sér af honum. Þeim er kennt mjög einfalt ráð til að venja hundinn af þessu: stíga alltaf ofaná tærnar á afturfótunum á honum þegar hann hoppar upp á einhvern. En þau tíma ekki að meiða hann. Illa gengur að kenna Krúsa að gegna orðinu „komdu“, því það er alltaf kallað „komdu“ þegar Krúsi hleypur burt. (Það á alls ekki að kalla „komdu“ þegar hvolpur hleypur burt. Fyrst þarf að kenna hundi „komdu“.
Ekki með því að kalla „komdu“ þegar hann er að hlaupa burt, heldur í ró og næði heima -- t.d. þegar hann á að fá að éta.)
Krúsi hefur ekki hugmynd um hvað orðið komdu þýðir. Hvernig á lítill hundur að vita það? Honum hefur ekki verið kennt það! Og stundum er nafnið hans notað sem skammaryrði. Krúsi (sem Krúsi minn) Krúsi (sem Krúsi þó). Þetta stundum og stundum ekki ruglar hann.
Sigga og Gunni hafa gaman af að sýna sig úti með Krúsa svona fyrst í stað.
Það er að vísu vafamál hvort Sigga fer með Krúsa í gönguferð eða Krúsi með Siggu, því Krúsi ræður hvert er farið og Sigga eltir hann. Krúsi er alveg ruglaður þegar margir krakkar eru að atast í honum í einu, og Sigga og Gunni kalla líka: -Krúsi, Krúsi, komdu til mín. En Krúsi finnur fljótt út að hann þarf ekkert að gegna nema þegar honum passar.
Og raunar veit hann ekkert hvað þessi orð þýða. Fólkið kallar og talar hvort eð er svo mikið, og ekki veit hann hvort verið er að tala við hann eða ekki. Allir krakkar fá að skoða Krúsa og leika sér að honum. Krúsi er bara leikfang fyrir alla. Þau kalla: Krúsi !, Krúsi ! Krúsi !
úr öllum áttum, og hlæja og atast.
Krakkarnir hafa gaman af að æsa hann upp og þau hlæja þegar hann bítur í vettlinga og trefla. Það á eftir að verða afdrifaríkt að leyfa honum að leika sér að vettlingum.
En tíkin Tóa er jafnan í garðinum við rauða húsið.
Tóa stækkar ört og er orðin ákaflega falleg. Vigfús er búinn að kenna henni margt og hún hlýðir honum skilyrðislaust. Hún veit að nei þýðir raunverulega nei, því Vigfús er alltaf sjálfum sér samkvæmur við uppeldið á hundinum sínum. Tóa er örugg.
Hún veit nákvæmlega hvað hún á ekki að gera og hvað hún má gera. Tóa græðir alltaf á að gegna, fær klapp og hrós þegar hún gerir það sem Vigfús segir henni. ********* Hér kemur enn innskot í söguna um hundauppeldi, sem er nauðsyn fyrir okkur að athuga og skilja: * Hundi líður vel þegar hann veit hvað hann á að gera. * Hundi þykir gott að eiga öruggan húsbónda sem er sjálfum sér samkvæmur. * Hundar fara eins langt og þeir komast, því þeir eru hjarðdýr sem nota goggunarröðina til þess að verða foringinn í úlfahjörðinni.
Hundurinn fikrar sig upp valdastigann; börnin eru honum auðveld. * Það er visst öryggi fyrir hundinn að hafa „sitt pláss“ (ef svo má að orði komast) í goggunarröðinni. Allir úlfarnir hlýða úlfaforingjanum. Það er hægt að læra að sjá hvað hundur er að hugsa!! Svipur og atferli eru táknmál auðlært hverjum manni. *
En: Alls ekki ætti að ala börn upp með hundauppeldi. Barn á ekki að hlýða skilyrðislaust, ekki að græða á að hlýða blint, ekki að tapa á að óhlýðnast, heldur er barn sjálfstæður einstaklingur, sem verður að læra að vera sinn eigin húsbóndi. Barn sem er alið upp einsog hundur, gæti leitað sér að „nýjum húsbónda“ síðar meir, -- eða farið að reyna að stjórna öðrum síðar í lífinu. Goggunarröð á ekki heima meðal manna.
Barn þarf að skilja hvaða afleiðingar gjörðir manns hafa, en frjálsan vilja og valkosti þarf barn að hafa. Við skulum gera skýran greinamun á því að ala upp hund, heimilishund eða fjárhund t.d., og því að að ala upp manneskju sem þarf að * vara sig á að verða ekki hundur neins, * vara sig á að velja sér ekki foringja til að hlýða, * vara sig á að reyna aldrei að pota sér fram fyrir aðra með því að láta aðra hlýða sér (gera aðra sér undirgefna, hóta, launa, kúga, plata), * vara sig á að verða ekki húsbóndi yfir öðrum mönnum eða börnum. * Aðeins að vera sinn eiginn húsbóndi. Athugið gaumgæfilega þetta innskot hér, og gerið ætíð skýran greinamun á hundauppeldi annars vegar og hins vegar uppeldi á barni. Þetta eru alóskyldir hlutir. Hlýðnikrafan á ekki við við barnauppeldi.
Aðeins frjáls vilji, rökrétt samhengi og útskýringar á ábyrgð hvers einstaklings.)
********* Krakkar reyna oft að kalla í Tóu, en þá heyrir Vigfús alltaf til þeirra og segir ákveðið: -Nei, Tóa. Þá læst Tóa hvorki sjá krakkana né heyra.
Aldrei vill hann leyfa þeim að fara með Tóu í göngutúr. -Við megum ekki einu sinni vera góð við hana, segja þau. Þeim finnst karlinn vera vondur.
Brúnu augun hennar Tóu fylgjast vökul með öllu sem fram fer. Þegar einhver ókunnugur kemur að húsinu krafsar Tóa í smiðjuhurðina hjá Vigfúsi
og Vigfús launar henni með hrósyrðum.
Það ber öllum saman um að Tóa sé til sóma.
Öðru máli gegnir með grey litla Krúsa. Hann er algjörlega óagaður. Og þar af leiðandi óöruggur.
Krúsi kom einu sinni beint utan úr garði og hoppaði upp í sófa. Moldin á litlu fótum hans klesstist í allt áklæðið. Þá var Krúsi skammaður -- en hann vissi ekkert hvers vegna. Stundum má hann fara upp í sófa, en stundum ekki. Hvernig á lítill hundur að skilja það?
Krúsi fer út í garð nágrannans og rótar upp öllum nýju fínu blómunum hans.
Nágranninn kvartar. Hann er öskureiður. Annar nágranni segir að hundurinn sé geltandi á nóttunni og segist skulu hringja á lögregluna. Pósturinn klagar Krúsa og segir að hundkvikindið (eins og hann
orðar það) hafi glefsað í fótinn á
sér. Krúsi er nefnilega svo óttalega leiðinlegur við ókunnuga, og geltir allt of mikið að fólki. Í hans huga er þetta leikur -- og það að verja húsið!! Nú er reynt að halda Krúsa inni, en hann pissar þá í forstofuteppið -- við útihurðina, því hann kemst ekki út. Í teppið er kominn stór blettur sem ekki næst úr. Pabbi verður að kaupa nýtt teppi í forstofuna.
Bólið hans Krúsa er stundum notað sem skammakrókur.
Þess vegna líður Krúsa ekki vel þegar hann er látinn í bælið sitt. Hann veit ekki hvort hann hefur gert eitthvað af sér.
Nú ætla þau að reyna að hafa Krúsa tjóðraðan í garðinum.
Hann ýlfrar ámátlega þegar hann fær ekki lengur að hlaupa um að vild eins og hann var vanur.
Þetta er reynt í nokkra daga en svo gefast þau upp á því. Verst er að Sigga og Gunni nenna nú orðið aldrei út að ganga með Krúsa. Bara að fólkið hefði haft skyn-
semi til að gefa börnunum kettlinga en ekki hvolp! Innikettir drepa ekki fugla, -- besta mál! Gott að hafa tvo kettlinga. Þeir hafa hvor annan, og það er ekkert meira verk að hugsa um tvo heldur en einn. Krúsi heldur áfram að sleppa út úr garðinum og týnast. Sífellt berast kvartanir vegna hans. Að lokum kemur alvarlegasta atvikið fyrir: Krúsi sér flaksandi vettling í barnakerru. Krúsa hefur ekki verið bannað að bíta í vettlinga. Raunar var honum kennt að það væri leikur góður að bíta í vettlinga hjá krökkum.
Hann stekkur upp í kerruna. Litli krakkinn grípur allómjúklega í rófuna á Krúsa, og þá glefsar Krúsi í barnið.
Nú verður ógurlegt uppistand. Krúsi er álitinn hættulegur; hefur bitið barn.
(Við vitum raunar að þetta var eiginlega óvitanum í kerrunni að kenna: Krakkinn, í óvitaskap sínum, togaði í rófuna á Krúsa.)
Eftir þetta atvik tala pabbi og mamma þeirra Gunna og Siggu alvarlega saman um Krúsa. Þau eru að gefast upp á hundahaldinu. Þau ákveða að losa sig við grey litla Krúsa. Hann geldur þess nú, litla krílið, að honum var aldrei kennt hvað má og hvað má ekki. Hann lærði aldri að hlýða reglum. Nú er öllum í nöp við hann einfaldlega vegna þess að hann er óuppalinn. Hann hefði þurft góðan aga frá upphafi, góðan ákveðinn húsbónda.
Hundar hafa svo gaman af að gera húsbónda sínum til hæfis. Þeir vilja skilja til hvers er ætlast af þeim. Krúsi er ekki illa gefinn. Það eru eigendurnir sem eru heimskir. Dýr er ekki leikfang. Dýr eru lifandi verur með tilfinningar og þrár og þarfir, og áskapaða náttúru sína. Það er ekki Krúsa að kenna hvernig fór. Það er hægt að henda golfkylfum og snjóþotum, hjólaskautum og skíðum, reiðhjólum og fótboltum út í bílskúr þegar maður er leiður á því, en með hund gegnir öðru máli. Hann er lifandi vera.
Siggu og Gunna er sagt að nú verði að láta Krúsa fara upp í sveit. En í rauninni var farið með grey litla Krúsa til dýralæknisins. Það er sorglegt að svæfa dýr. Í þau er sprautað deyfilyfjum og svo banvænum efnum. Dýrin þjást af kvíða, af hræðslu. Þau finna að þau hafa verið svikin. Og þau þjást af kvölum í dauðastríðinu sem getur tekið langan tíma í fjötrum hjá lækninum. Yfirgefin. Vinalaus. Svikin. Kvalin til dauða af eitri. Ég vil að þið skiljið þá ábyrgð sem því fylgir að vera maður, og að maðurinn hefur það framyfir dýrin að geta hugsað rökrétt.
Dýr geta lært, þau geta elskað, en þau geta ekki farið út fyrir áskapaða náttúru sína. Þess vegna berum við, vitibornir menn, ábyrgð á öllu sem lifir, og öllu í heimi hér.
Höggin úr smiðju Vigfúsar, jöfn og þung, benda til að einhver furðuhlutur úr járni sé að verða til þar inni. Tóa er kyrr í garðinum fyrir utan gamla húsið, sem brátt mun hverfa, því það er fyrir samkvæmt skipulaginu. Tóu líður vel. Hún er róleg og örugg. Hún veit hvað hún má og má ekki.
Hún var svo heppin að fá ákveðið uppeldi.
Bækurnar fást á Amazon freyjukettir@mmedia.is Norræn menning - myndasögur og lestraræfingar: Hannesar saga Grásteins (20 bækur) Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Flugan Hagbarður og Hvutti TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK
og og og og og og og og og og og
nornin eftir Hjalta Bjarnason Freki diskurinn brúin bíllinn borðtuskan fiskarnir flugvélin Auðtrúa slökkvibíllinn erfiði maturinn
TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og innbrotageimveran TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið TAK og draugurinn TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og græna ræktin TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og tilraunalímið TAK og lyftingageimveran mikla TAK og vinur fílsins TAK og náttúruvæni einnotapokinn Glámur auli eftir Bjarna Þór Einarsson - langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður - smásögur: Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús
Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? Huginn Jöruson, hornungur (sakamál) 1000 stjörnur - Bónda minn hálfan Hljóðahver ljóðakver Drottinn blessi heimilið Strætó í hringi - verðlaunahandrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna efnisyfirlit) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD)
Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur
Endilega lærið dýrasálfræði !! .
saga um hundauppeldi
. .
ISBN 984 9979 895 33 6