Skip to main content

TAK og skemmtitækin

Page 1

Hjalti Bjarnason

TAK

og skemmtitækin

/ ...

Tívolí...


TAK og skemmtitækin

/ ...Tívolí...

Krossgátugeimveran Lausn: lóðrétt: mús; lárétt: lús Freyjukettir, Norræn menning 2.útgáfa 2010 ISBN 978-9979-895-19-0 Hjalti samdi Tak-sögurnar og teiknaði myndirnar á árunum 1975-´79, þá 5 - 10 ára. Flestar TAK-sagnanna voru í Stundinni okkar. Skemmtitækin 11.des.´78. Úr blaði, kynning á efni í Stundinni 11.12.´78, Tak og skemmtitækin:


Oft hafa geimverurnar á stjörnunni hans Taks ekkert að gera. Tak ætlar að útbúa eitthvað skemmtilegt sem allir geta leikið sér að, þegar þeir eiga frí. Geimverukrakkarnir verða að hafa eitthvað fyrir stafni.


Tak byrjar að hugsa: -Á ég að hafa dýragarð? O, nei. Betra að dýrin séu bara frjáls í náttúrunni. Og svo þyrfti að búa til búr. Kannski leiðist þeim í búrum. Og svo þarf að fóðra og þrífa.

Á ég að útbúa mynda- og málverkasafn? Eða náttúrugripasafn? Oh, nei, ekki nógu skemmtilegt.


Á ég að setja upp skemmtitæki?

Já, skemmtitæki. Það er ekkert svo ofsalega erfitt. Hvað á ég að hafa? Til dæmis Parísarhjól? Já. Svo ætla ég að hafa rafmagnsbíla, og hasarbraut, sem er líklega kölluð Rússabani á jörðinni.


Ég er hér með heilmikið efni. Parísarhjólið á að vera 50 geimmetrar á hæð. Hasarbrautin verður 350 geimmetrar þar sem hún er hæst. Svo hef ég þetta draugahús:

Séð úr fjarska sýnist manni draugahúsið vera með augu.


Í draugahúsinu verður, að sjálfsögðu, myrkur og draugagangur. Og ég þarf að búa til alls konar leiktæki líka. Ég er með hugmyndir af nokkrum svoleiðis:


Í þessum kassa eru fjarstýrðar klær. Geimverurnar stýra með handföngunum. Ef klóin nær í eitthvert dót, má geimveran eiga það.


Þarna er veiðistöng,sem á að nota til þess að veiða málmfiska upp úr kerinu. Ef það tekst, fær maður vinning. En vatnið er gruggugt, svo fiskarnir sjást alls ekki.


Þarna er blásari sem blæs blöðrum í hringi. Maður reynir að skjóta blöðru, og fær þá vinning.


Í þessu húsi er speglasalurinn. Þar er fullt af spéspeglum, sem gera mann asnalegan í laginu.


Svo ætla ég að hafa hringekju.


Svo verður hryllingshús. Þar er myrkur -- og stundum stígur maður á dýnu í staðinn fyrir gólf. Alls konar drasl er þar til að hræða mann.


Hraðgeimveran byrjar. Hún mætti fyrst á svæðið þegar opnað var, því hún hleypur svo hratt. Hraða hleypur gegnum draugahúsið. Hún notar ekki þartilgerða vagna til að skrönglast í í gegnum húsið. Hún er svo ofsahrædd að hún fer með hraði í gegn og út hinum megin.


Boxgeimveran er hér í draugahúsinu. Boxgeimveran fer í vagni í gegn. Vagnarnir eru á spori, Vagnarnir fara inn að framan og út að aftan. Þeir fara í margar beygjur á leiðinni, því sporið er hlykkjótt. En það sést ekki í myrkrinu, svo maður veit ekki hvenær vagninn beygir næst. Boxi hefur venjulega mjög mikið sjálfstraust, en nú líst honum ekki á blikuna. Hann er orðinn náfölur. En reynir að brosa.


Þegar Boxi kemur í síðustu beygjuna, er svo mikill slinkur á vagninum, að hann fer á hliðina. Upp hefst mikill drauga- og nornahlátur og hræfuglagarg:


-Kra haha kra haha (--hræfuglar, nornir og draugar hlæja svona ógurlega--) Boxi verður nú verulega hræddur í fyrsta skipti á ævinni.


Sprengigeimveran ætlar að fá vinning og skjóta blöðrurnar. Sprengi kann ekkert á byssur -- og snýr rifflinum öfugt. Miðar að vísu ofsavandlega -- hleypir af -hvellurinn kom, en


Sprengi skaut รก sjรกlfan sig meรฐ tappanum.


Sprengigeimveran ætlar sjálf að græða og setur upp banahasarbraut.

Vagnarnir þjóta upp og niður á ofsahraða. Enginn þorir að kaupa sig inn í brautina. Hún er svo glæfraleg. Geimverurnar treysta því ekki heldur að þetta sé nógu öruggt.


Svertingjageimveran og geimdraugurinn eru í speglasalnum. Svertingja sér drauginn í mörgum speglum og allir speglarnir stara á hana ógurlegum augum. Svertingja verður ofsalega hrædd og hleypur út.


Tak hefur búið til skrítlu- og sprelltækjahús með alls konar leikjum og skrípatækjum. Þarna eru: gusublýantur, gabbkveikjari, sprautublóm, hnerriduft, kláðaduft og fleira í þeim hrekkjadúr.

Vonda fær sér þarna sígarettu en þetta er gabbsígaretta með sprengju í. (ógurlegur hvellur heyrist)


Vonda geimveran gerir jarðgöng undir speglasalinn, og ætlar að gera geimverunum bilt við. Þríhjólageimveran er í speglasalnum og er að spegla sig í spéspeglunum. Hún hlær að spegilmyndunum af sjálfri sér í spéspeglunum. Hún veit ekki að Vonda er að læðast inní speglasalinn til að hrekkja. Vonda læðist óséð að Þríhjólu,.......


......og lætur Þríhjólu sjá sig í speglinum líka.

Þríhjóla sér í stað hjólanna á sér tvo anga og hálfan haus af Vondu. Þríhjólageimveran ákveður að hlaupa til Taks og segja honum að það sé draugagangur í speglasalnum.


Tak sér ekkert óeðlilegt, því Vonda faldi sig á bak við spegil, og faldi gatið í gólfinu með hlera. (Þau taka ekki eftir að það sést aðeins í fæturna á Vondu undir speglinum.)


Hraðgeimveran og Geimi, hundurinn hans Taks, eru í hasarbraut Sprengigeimverunnar. Hraða hefur svo gaman af hraða. En þetta er aðeins um of. Geimi geltir og geltir.

Hann er svo hræddur. Hraða og Geimi dauðsjá eftir að hafa prófað þetta hryllingstæki.


Parísarhjólið bilar. Í efstu kröfunni er Gormgeimveran. Parísarhjólið er alveg stopp. Gorma ákveður að stökkva bara niður. Það er allt í lagi því hún er á gormi.


Gorma lendir beint í vagni á Rússabanahasarbraut Sprengi. Sprengi verður ofsareiður, því Gorma borgaði ekkert, en komst samt í hasarbrautina. Þá græðir Sprengi ekki neitt á henni.


Sprengi setur stóran múrstein á brautina fyrir Gormu.


Vagninn á hasarbrautinni fer í klessu, og Gorma þeytist upp í loftið.....


.... og lendir svo beint á Sprengigeimverunni. Gorma er alltaf hlæjandi, því hún meiðir sig aldrei og er ekki hrædd við svona ókeypis og óumbeðnar flugferðir, heldur skemmtir sér vel.


Vonda setur músagildru í hryllingshúsið, og ætlar að láta einhvern stíga í hana í myrkrinu. En svo gleymdi hún sér, sá heldur ekki vel þarna í myrkrinu, og steig sjálf í gildruna.


Þá hlæja illfyglin rosalega, og segja illkvittnislega: -Féll á eigin bragði,

Féll á eigin bragði,


Sprengi hermir eftir Taki og býr til enn fleiri skemmtitæki. Sprengi býr til rafmagnsbíla. Sprengi selur geimverunum aðgang -- á uppsprengdu verði, auðvitað. Það er gaman að keyra þessa bíla þótt þeir fari hægt. Bílarnir eru á einangrandi gúmmíhjólum.

Bílarnir fá straum úr vírum í loftinu á bílasalnum. Stengurnar á bílunum ná upp í loftið og ná þar sambandi. Þegar straumi er hleypt á víraloftið er hægt að keyra bílana um bílasalinn.


En rafmagnsbíllinn sem stigageimveran er í hóstar og hóstar og kemst ekkert áfram. Hann missir nefnilega alltaf samband í hvert skipti sem hann hóstar. Stiga hendist til og frá í hóstaköstunum.


Stiga fer að kvarta og heimtar peningana sína til baka. En Sprengi neitar: -Þú varst búin að borga og það er ekkert að bílnum. Honum hefur orðið kalt. Hann er bara smávegis kvefaður. Þú ættir eiginlega að borga tvöfalt fyrir að fá hóstandi bíl. Þeir eru svo sjaldgæfir. Og eru alfriðaðir.


Þá kemur Tak: -Þú mátt fara ókeypis í rafmagnsbíl hjá mér. Tak ákveður að hafa allt ókeypis hjá sér, og þá geta geimverurnar leikið sér, alltaf þegar þær hafa tíma.


30 Tak-sรถgur Barn semur handa bรถrnum

ISBN

978-9979-895-19-0


Hvar fást bækurnar Where to get the books www.geimveranTAK.wordpress.com and: as Kindle/Paperback on amazon

Norræn menning

Hjalti Bjarnason:


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og nornin TAK and the Witch

TAK og borรฐtuskan TAK and the Dish-Cloth


www.geimveranTAK.wordpress.com

Vinur fĂ­lsins TAK and Puny

TAK og freki TAK and the Brat


www.geimveranTAK.wordpress.com TAK og náttúruvæni einnotapokinn

TAK and the nature friendly recyclable disposable shopping bags

TAK og diskurinn TAK and the Flying Saucer


www.geimveranTAK.wordpress.com TAK og lyftingageimveran mikla

TAK and the Universe Famous Weight-lifting-alien

TAK og skemmtitĂŚkin TAK and the Amusement Park Tivoli


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og slökkvibíllinn TAK and the Fire Engine

TAK og fiskarnir TAK and the Fishes


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og bíllinn

TAK og brúin

TAK and the Car

TAK and the Bridge


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og páskaeggið TAK and the Easter Egg

TAK og Lalli Marsbúi TAK and Lalli the Mars-alien


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og landbúnaðurinn TAK and the Agriculture

TAK og lyktarsjónvarpið TAK and the Smell-TV


www.geimveranTAK.wordpress.com TAK og jarðeplaupptökuvélin

TAK and the Potato-Harvesting-Machine

TAK og fjölleikahúsið TAK and the Circus


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og martröðin TAK and the Nightmare

TAK og flugeldarnir TAK and the Fireworks


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og tilraunalímið TAK and the Experimental Glue

TAK og græna ræktin TAK and the Green Gym


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og allraveรฐrapeysan Tak and the Sweater-for-Any-Type-of-Weather TAK og erfiรฐi maturinn

TAK and the Difficult Food


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og flugvĂŠlin TAK and the Airplane

TAK og fjarskagaman TAK and Far-Away-Fun


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og Auðtrúa TAK and the Credulous Alien

TAK og innbrotageimveran TAK and the Burglar


www.geimveranTAK.wordpress.com TAK og draugurinn

TAK and the Ghost


www.geimveranTAK.wordpress.com

Bjarni ร รณr Einarsson:

Glรกmur auli The Timid ghost


www.geimveranTAK.wordpress.com

Guðrún Kristín Magnúsdóttir: Hannesar saga Grásteins 20 bækur

The Saga of Hannes Grásteinn the Yellow Cat - 20 Books A True Story: (cont.)


www.geimveranTAK.wordpress.com

Hannes (cont.) 1 Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 1 Branda the Tail-less, the Grandmother of Hannes Grásteinn

Hannes (cont.) 2 Branda Bröndudóttir, og synir hennar Hafri og Elri Gúlli 2 Branda, Daughter of Branda and Her Sons: Hafri and Elri Gúlli

Hannes (cont.) 3 Hafri fer sér á voða, Elra Gúlla leiðist 3 Hafri Dies in an Accident, Elri Gúlli Misses Him


www.geimveranTAK.wordpress.com

Hannes (cont.) 4 Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 4 Hannes Grásteinn and Surtarbrandur

Hannes (cont.) 5 Kettlingunum stolið 5 Someone Stole the Kittens

Hannes (cont.) 6 Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar 6 What is More Joyful than a Joyful Kitten is: Two Joyful Kittens


www.geimveranTAK.wordpress.com

Hannes (cont.) 7 Hannes Grásteinn hverfur að heiman 7 Hannes Grásteinn Leaves Home

Hannes (cont.) 8 Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 8 Hannes Grásteinn, a Stray-Cat in an Office in West End of Town

Hannes (cont.) 9 Surtarbrandur fer sér á voða 9 Surtarbrandur Dies in an Accident


www.geimveranTAK.wordpress.com

Hannes (cont.) 10 Hannes veiðikló 10 Hannes the Hunter

Hannes (cont.) 11 Hefur kötturinn níu líf ? 11 Has a Cat Nine Lives ?

Hannes (cont.) 12 Hannes flytur í nýtt hverfi 12 Hannes moves to Another District in Town


www.geimveranTAK.wordpress.com

Hannes (cont.) 13 Fleiri viรฐburรฐir; bรถrn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 13 New Happenings; Kids Annoy Hannes; Hannes Annoys Starlings

Hannes (cont.) 14 Milli 14 Milli

Hannes (cont.) 15 Snjรณtittlingaveiรฐar 15 Hunting Snow Buntings


www.geimveranTAK.wordpress.com

Hannes (cont.) 16 Nýi kettlingurinn 16 The New Kitten

Hannes (cont.) 17 Vor í lofti 17 Spring is in the Air

Hannes (cont.) 18 Hannes fer í sveit 18 Hannes Moves to the Country Side


www.geimveranTAK.wordpress.com

Hannes (cont.) 19 Hvolparnir 19 The Puppies

Hannes (cont.) 20 Dรกnartilkynning 20 Death Notice

Hannesar saga Grรกsteins 20 bรฆkur The Saga of Hannes Grรกsteinn the Yellow Cat - 20 Books A True Story


www.geimveranTAK.wordpress.com Apakríli, algjör dúlla

The Rag-Monkey, so cute

Bína brúða My Bína Doll


www.geimveranTAK.wordpress.com

Búi skreytir jólatré Búi Decorates a Yule-tree

Hnallur og Spói Hnallur and Spói


www.geimveranTAK.wordpress.com Hrekkjusvín og ljósastaurar

Bullies and Light-Poles

Hrif – An Elf-Story


www.geimveranTAK.wordpress.com Hvar voru hrossin í hríðinni?

Where Were the Ponies During the Blizzard

Jónki fór í réttirnar..... Jónki goes to the Sheep-Gathering in Autumn


www.geimveranTAK.wordpress.com

Mummi Palli og englabjallan

Palli and the Angel-Bell


www.geimveranTAK.wordpress.com

Sigga og hafragrauturinn Sigga and the Porridge

Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Tóa the Bitch and Poor Little Puddle


www.geimveranTAK.wordpress.com

Tóta og þau Tóta and Her Friends

Hagbarður og Hvutti Hagbarður and Hvutti


www.geimveranTAK.wordpress.com

Draumahúsið The House of Dreams

Hver er hann þessi Jakob? Who is Jakob ?


www.geimveranTAK.wordpress.com

Fluga

The Fly

langar barna- og unglingasรถgur: long children and teenager stories

Halla


www.geimveranTAK.wordpress.com Japl, jaml og fuður

(sjónvarpssápa: fyndin alíslenzk vandamálasápa í sjónvarpsþætti ‚ af vinsælustu gerð; sitcom (situation comedy); þetta frábæra handrit komst á stutta listann úr hundruðum þúsunda innsendra handrita hjá MEDIA (evrópsk menning) TV-soap: Funny and truely Icelandic sitcom (situation comedy) This marvellous script became short listed on MEDIA (European Culture) This script was chosen from tens of thousands of compatible scripts.


www.geimveranTAK.wordpress.com short stories: Saga Svaรฐilfara

The Incredible Story of the Stallion Svaรฐilfari


www.geimveranTAK.wordpress.com IN MEMORIAM -- skóflan (verðlaunasaga)

IN MEMORIAM - the Shovel (Awarded story) Sál bróður, steinbítsbróður

(verðlaunasaga)

Soul of a Brother (Awarded story)


www.geimveranTAK.wordpress.com Trรถllabarn (verรฐlaunasaga)

Bairn of Trolls (Awarded story)

Hreggnรณtt The Blizzard on the Highway


www.geimveranTAK.wordpress.com Dagdraumar og sorgarband

Day-dreaming and the Sorrow

ร g, hiรฐ silfraรฐa sjal I, the Silvery Shawl


www.geimveranTAK.wordpress.com

Í mjúku myrkri búa draumarnir

Dívan skáldsins

The Coach on Which the Poet Slept – Good night said the Poet, and Died


www.geimveranTAK.wordpress.com

Þetta er mitt hús

Melana, drottning frumskógarins


www.geimveranTAK.wordpress.com

Au pair Vaknaรฐu, Lรณa! Vaknaรฐu!


www.geimveranTAK.wordpress.com

Leyniþræðir

Huginn Jöruson, hornungur (sakamál)


www.geimveranTAK.wordpress.com

1000 stjörnur - Bónda minn hálfan, Hljóðahver ljóðakver

Drottinn blessi heimilið


www.geimveranTAK.wordpress.com Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma?

Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit)


-Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti (verðlaunaleikrit) Awarded script on stage in The City Theatre in Reykjavík

www.odsmal.org

Óðsmál (1996)

´96


www.odsmal.org Óðsmál in fornu (2009)

Valhallar Óðsmál in gullnu (2010)


www.odsmal.org Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum)

Read the book and script on ISSUU https://issuu.com/odsmal.org/docs/skirnismal_ritual

Skírnismál Edda Poem – Script to Perform Youtube English version HERE Youtube Icelandic version HERE


30 Tak-sรถgur Barn semur handa bรถrnum

ISBN

978-9979-895-19-0


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
TAK og skemmtitækin by Geimveran TAK - Issuu