Skip to main content

TAK og græna ræktin

Page 1

Hjalti Bjarnason

TAK

og

græna ræktin


TAK og græna ræktin Freyjukettir, Norræn menning 1.útgáfa 2010 ISBN 978-9979-895-45-9

Hjalti í stórframkvæmdum við lækinn 1982


Geimverurnar sem eru með kraftadelluna eru að koma sér upp vaxtarræktaræfingasal.

Tjakkgeimveran verður alltaf að halda sér í þjálfun. Hún þarf stundum að vinna erfiðisvinnu við að tjakka upp bíla og annað sem enginn annar ræður við. Það er auðvitað gott og blessað að krakkarnir fari í ræktina að pumpa,

enda sumir orðnir íturvaxnir á alla kanta.


En Taki þykir skrítið, að kraftadellugeimstrákarnir nenna ekki að fara fótgangandi heimanað frá sér í ræktina,heldur aka stórum bílum þangað.

Tak sér að sumir leggja bílunum uppi á gangstéttum, sumir troða bílunum þar sem bílastæði eru bönnuð, jafnvel þar sem stendur: varúð ! þú verður dreginn brott.

Þeir leggja bílunum sínum svona illa, bara til þess að þurfa ekki að ganga nokkra metra frá nægum bílastæðum rétt hjá.


Kraftadellugeimstrákarnir lyfta lóðum og pumpa.

Þeir keppast um að fá sem stærsta vöðva.

Kraftadellu eru líka með kraftæfingaskemmtitæki, sjá hver getur lamið fastast með stórri sleggju, og fá stig fyrir hvert högg.


Svo er keppni í að fleygja þungum bolta í mark.

Boxgeimveran kennir hnefaleika.


1. Þessi æfir hnefaleika fyrir framan spegil. Hann þorir ekki í hnefaleika við aðra krakka. 2. Hann fer í algjöra fýlu þegar spegilmyndin kýlir hann. (Þetta átti auðvitað ekki að geta gerst.) En Tak sér að flestir þeirra sem þarna æfa nenna svo ekki að vinna neina erfiðisvinnu.

Það er ýmislegt sem þarf að gera á stjörnunni hans Taks. Ekki eru til vélar og vélmenni til að inna alla erfiðisvinnuna af hendi.


Tak er sjálfur með tjakk sem þarf að knýja með handafli.

Þessi tjakkur er að vísu sjálfvirkur En hann þarf orku og orkan þarf að koma einhvers staðar frá, Tak er ekki viss um að geimkrakkarnir skilji það.


Það þarf oft mikið rafmagn til að knýja vinnutæki, -- ef þau eru þá til á annað borð !

Ef á að biðja kraftadellugeimstrákana um að vinna erfiðisvinnuna þykjast þeir allt í einu vera of þreyttir, eða bara latir, eða vera búnir að pumpa allt of mikið þann daginn til að fara að vinna erfiðisvinnu. Viðgerðaapinn og -gíraffinn, sem gera við rafmagnið hátt uppi í staurunum, eru duglegri að vinna er unglingageimverurnar!


Nú fær Tak snjalla hugmynd:

Kraftadellugeimstrákarnir nota mikla líkamsorku sem breytist svo í ónýtanleg afköst, því þeir eru aðeins að mæla hversu miklu þeir lyfta og mæla hversu stóra vöðva þeir eru með. -Það væri hægt að beisla öll þessi hestöfl af pumpi til að framleiða rafmagn, hugsar Tak. Tak ákveður í samráði við kraftadellugeimkrakkana að hafa alveg myrkur í salnum þangað til þeir fara að pumpa og hjóla og æfa, og þá framleiði þau öll rafmagn til ljósa.


Blinda geimveran er ekki í neinum vandræðum með að finna tækin í myrkrinu, og þegar hún byrjar að pumpa eða hjóla, kemur smátíra á ljósaperurnar. Þá geta allir byrjað.


Til þess að fá sér drykk úr sjálfsalanum, þurfa kraftadellukrakkarnir að hjóla á þartilgerðu dæluhjóli. Mjög fullkominn hugsananemi

velur þann drykk sem geimveran óskar sér. Þetta er ný uppfinning sem Tak er að þróa í samstarfi við hina geimunglingana í ræktinni. Og til að fara í sturtu þarf að stíga pedala í gólfinu.


Öllum þykir þetta bara skemmtilegt. Auðvitað er svo umframrafmagn með þessu fyrirkomulagi. Tak útbýr rafgeyma

sem svo er hægt að nota meðal annars í rafknúna bíla sem menga ekki andrúmsloftið. Tak beislar orkuna til að hlaða geyma. Tak sýnir hinum krökkunum teikningu af sprekahöggvivél sem er knúin rafmagni. Til vinstri er mynd af geimveru að höggva í eldinn með öxi.

Vélin er miklu miklu afkastameiri. Þetta þykir krökkunum spennandi verkefni.


Hér er teikning af fyrirhuguðu raforkuveri sem kraftadellugeimverukrakkarnir reisa í samráði við Tak sem hefur teiknað stöðvarhúsið og tengingar í tækin í ræktarsalnum. Þessi skissa útskýrir á einfaldan hátt hvernig þetta virkar:

Tak útskýrir hvert atriði. Svo er eftir að gera fullkomari verkfræðiteikningar.


Kringum vaxtarræktarstöðina gerir Tak fallegan garð.

Þetta eru geimtré, sem vaxa aðeins á stjörnunni hans Taks. Þau sá sér sérstaklega vel þarna. Þessi tré gefa frá sér svo sérstaklega góðan ilm að þau bera nafnið Ilmandi.


Alls konar fuglar sækja í garðinn svo hér verður brátt fjölskrúðugt fuglalíf.

Í trjánum eru fuglar sem syngja allan daginn og leika sér í loftinu.


Þessir geimfurðufuglar fara í gönguferðir. Þeir segja kvíkk kvíkk í hverju spori. Þegar margir eru í göngutúr saman, verður mikill kliður.

Geimfuglamamma hér með ungana sína. Er að kenna þeim að bjarga sér.


Geimflugurnar og Fillerí-fiðrildin sækja í blómin. Flugurnar suða mjög skemmtilega þegar þær finna hunang.

Hér er líka séð fyrir litlum spennandi gangstígum,


og hér eru lækir sem litlar trébýr eru yfir. Í lækjunum sprikla alls konar geimfiskar


og vaðfuglar synda á litlum tjörnum.

eða vappa um á bökkunum.

Þríhjólageimveran fer á ofsahraða eftir gangstígunum,

og hraðgeimverurnar

snerta varla jörðina --

þetta er svo gaman.


Hjólageimveran í essinu sínu, því gangstígarnir liggja í alls konar beygjum og þeir liggja upp og niður í litlum brekkum og hólum.

Gulrótaþjófurinn vill helst hvergi annars staðar vera en í þessum garði það sem nóg er af alls konar mat til að stela. Fyrst í stað nenna krakkarnir í ræktinni ekki að hjálpa Taki. Þeir kvarta yfir að bílastæðin séu nú of langt í burtu svo þeir þurfi að ganga frá bílastæðinu yfir í ræktina.


En að því kemur að kraftadellugeimverunum þykir þetta svo góð hugmynd að þær fara að hjálpa Taki að útbúa stærri svona garð allt í kringum ræktina.

Nú eru bílastæðin lengra frá, svo allir vaxtaræktardellukrakkarnir þurfa að ganga frá bílastæðinu gegnum skemmtilega garðinn og í ræktina og svo aftur til baka í bílana sína. Þetta er eitthvað það besta sem þau geta hugsað sér fyrir skrokkinn sinn og heilsuna.


Taki dettur í hug að gaman væri að hafa alls konar húsdýr í garðinum.


Það er mjög gott að hafa grasbíta til þess að ekki þurfi að slá. Hingað koma líka 6-fættir geimúlfar ofan úr fjöllunum.

svo grasbítarnir þurfa oft að hlaupa hratt til að forða sér undan úlfunum.


Geimhlaupadýrin taka oft sprett, stundum bara í gamni sínu.

Geimkötturinn er stundum að læðupokast þarna, og reyna að veiða fugla og geimhagamýs. Mýsnar eru fljótar að fela sig og skríða ofan í holurnar sínar. Þær eru með algjört ofnæmi fyrir köttum.


Tak útbýr gosbrunn sem gengur stundum fyrir sólarrafhlöðu, en er stundum tengdur við tækin í vaxtarræktinni. Hægt er að sjá á kraftinum á vatninu hvort krakkarnir eru duglegir að pumpa eða ekki! Á nóttunni er hann ekki í gangi, en er glæsilegur þegar vaxtarræktardellugeimverurnar eru að pumpa eða -- þegar hann er hinsegin tengdur -þegar sólin skín. Margir litlir ljóskastarar, alls konar litir, lýsa hann upp á veturna.


Rafgeymar, fullhlaðnir, fara á færibandi í geymslu. Þeir sem þurfa á raforku að halda til einhverra framkvæmda geta nú keypt geyma.

Ha? Keypt Geima !! ?? hugsar Geimi, og er ekki hress. Tak sér hvað hann er að hugsa og útskýrir fyrir honum að geymir (í fleirtölu: geymar) sé sko annað en Geimi.

Þá tekur Geimi gleði sína á ný.


Allir eru alsælir með þetta nýja fyrirkomulag.

Ekki hvað síst geimlæknirinn sem segir að þetta stuðli að heilbrigði geimæskunnar á stjörnunni hans Taks.


Hann segir: -Best að þessi vaxtarræktar- og heilsubótastaður verði kallaður „Sú græna væna“


30 TAK-sรถgur Barn semur handa bรถrnum

ISBN

978-9979-895-45-9


Hvar fást bækurnar Where to get the books www.geimveranTAK.wordpress.com and: as Kindle/Paperback on amazon

Norræn menning

Hjalti Bjarnason:


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og nornin TAK and the Witch

TAK og borรฐtuskan TAK and the Dish-Cloth


www.geimveranTAK.wordpress.com

Vinur fĂ­lsins TAK and Puny

TAK og freki TAK and the Brat


www.geimveranTAK.wordpress.com TAK og náttúruvæni einnotapokinn

TAK and the nature friendly recyclable disposable shopping bags

TAK og diskurinn TAK and the Flying Saucer


www.geimveranTAK.wordpress.com TAK og lyftingageimveran mikla

TAK and the Universe Famous Weight-lifting-alien

TAK og skemmtitĂŚkin TAK and the Amusement Park Tivoli


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og slökkvibíllinn TAK and the Fire Engine

TAK og fiskarnir TAK and the Fishes


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og bíllinn

TAK og brúin

TAK and the Car

TAK and the Bridge


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og páskaeggið TAK and the Easter Egg

TAK og Lalli Marsbúi TAK and Lalli the Mars-alien


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og landbúnaðurinn TAK and the Agriculture

TAK og lyktarsjónvarpið TAK and the Smell-TV


www.geimveranTAK.wordpress.com TAK og jarðeplaupptökuvélin

TAK and the Potato-Harvesting-Machine

TAK og fjölleikahúsið TAK and the Circus


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og martröðin TAK and the Nightmare

TAK og flugeldarnir TAK and the Fireworks


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og tilraunalímið TAK and the Experimental Glue

TAK og græna ræktin TAK and the Green Gym


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og allraveรฐrapeysan Tak and the Sweater-for-Any-Type-of-Weather TAK og erfiรฐi maturinn

TAK and the Difficult Food


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og flugvĂŠlin TAK and the Airplane

TAK og fjarskagaman TAK and Far-Away-Fun


www.geimveranTAK.wordpress.com

TAK og Auðtrúa TAK and the Credulous Alien

TAK og innbrotageimveran TAK and the Burglar


www.geimveranTAK.wordpress.com TAK og draugurinn

TAK and the Ghost


www.geimveranTAK.wordpress.com

Bjarni ร รณr Einarsson:

Glรกmur auli The Timid ghost


www.geimveranTAK.wordpress.com

Guðrún Kristín Magnúsdóttir: Hannesar saga Grásteins 20 bækur

The Saga of Hannes Grásteinn the Yellow Cat - 20 Books A True Story: (cont.)


www.geimveranTAK.wordpress.com

Hannes (cont.) 1 Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 1 Branda the Tail-less, the Grandmother of Hannes Grásteinn

Hannes (cont.) 2 Branda Bröndudóttir, og synir hennar Hafri og Elri Gúlli 2 Branda, Daughter of Branda and Her Sons: Hafri and Elri Gúlli

Hannes (cont.) 3 Hafri fer sér á voða, Elra Gúlla leiðist 3 Hafri Dies in an Accident, Elri Gúlli Misses Him


www.geimveranTAK.wordpress.com

Hannes (cont.) 4 Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 4 Hannes Grásteinn and Surtarbrandur

Hannes (cont.) 5 Kettlingunum stolið 5 Someone Stole the Kittens

Hannes (cont.) 6 Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar 6 What is More Joyful than a Joyful Kitten is: Two Joyful Kittens


www.geimveranTAK.wordpress.com

Hannes (cont.) 7 Hannes Grásteinn hverfur að heiman 7 Hannes Grásteinn Leaves Home

Hannes (cont.) 8 Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 8 Hannes Grásteinn, a Stray-Cat in an Office in West End of Town

Hannes (cont.) 9 Surtarbrandur fer sér á voða 9 Surtarbrandur Dies in an Accident


www.geimveranTAK.wordpress.com

Hannes (cont.) 10 Hannes veiðikló 10 Hannes the Hunter

Hannes (cont.) 11 Hefur kötturinn níu líf ? 11 Has a Cat Nine Lives ?

Hannes (cont.) 12 Hannes flytur í nýtt hverfi 12 Hannes moves to Another District in Town


www.geimveranTAK.wordpress.com

Hannes (cont.) 13 Fleiri viรฐburรฐir; bรถrn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 13 New Happenings; Kids Annoy Hannes; Hannes Annoys Starlings

Hannes (cont.) 14 Milli 14 Milli

Hannes (cont.) 15 Snjรณtittlingaveiรฐar 15 Hunting Snow Buntings


www.geimveranTAK.wordpress.com

Hannes (cont.) 16 Nýi kettlingurinn 16 The New Kitten

Hannes (cont.) 17 Vor í lofti 17 Spring is in the Air

Hannes (cont.) 18 Hannes fer í sveit 18 Hannes Moves to the Country Side


www.geimveranTAK.wordpress.com

Hannes (cont.) 19 Hvolparnir 19 The Puppies

Hannes (cont.) 20 Dรกnartilkynning 20 Death Notice

Hannesar saga Grรกsteins 20 bรฆkur The Saga of Hannes Grรกsteinn the Yellow Cat - 20 Books A True Story


www.geimveranTAK.wordpress.com Apakríli, algjör dúlla

The Rag-Monkey, so cute

Bína brúða My Bína Doll


www.geimveranTAK.wordpress.com

Búi skreytir jólatré Búi Decorates a Yule-tree

Hnallur og Spói Hnallur and Spói


www.geimveranTAK.wordpress.com Hrekkjusvín og ljósastaurar

Bullies and Light-Poles

Hrif – An Elf-Story


www.geimveranTAK.wordpress.com Hvar voru hrossin í hríðinni?

Where Were the Ponies During the Blizzard

Jónki fór í réttirnar..... Jónki goes to the Sheep-Gathering in Autumn


www.geimveranTAK.wordpress.com

Mummi Palli og englabjallan

Palli and the Angel-Bell


www.geimveranTAK.wordpress.com

Sigga og hafragrauturinn Sigga and the Porridge

Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Tóa the Bitch and Poor Little Puddle


www.geimveranTAK.wordpress.com

Tóta og þau Tóta and Her Friends

Hagbarður og Hvutti Hagbarður and Hvutti


www.geimveranTAK.wordpress.com

Draumahúsið The House of Dreams

Hver er hann þessi Jakob? Who is Jakob ?


www.geimveranTAK.wordpress.com

Fluga

The Fly

langar barna- og unglingasรถgur: long children and teenager stories

Halla


www.geimveranTAK.wordpress.com Japl, jaml og fuður

(sjónvarpssápa: fyndin alíslenzk vandamálasápa í sjónvarpsþætti ‚ af vinsælustu gerð; sitcom (situation comedy); þetta frábæra handrit komst á stutta listann úr hundruðum þúsunda innsendra handrita hjá MEDIA (evrópsk menning) TV-soap: Funny and truely Icelandic sitcom (situation comedy) This marvellous script became short listed on MEDIA (European Culture) This script was chosen from tens of thousands of compatible scripts.


www.geimveranTAK.wordpress.com short stories: Saga Svaรฐilfara

The Incredible Story of the Stallion Svaรฐilfari


www.geimveranTAK.wordpress.com IN MEMORIAM -- skóflan (verðlaunasaga)

IN MEMORIAM - the Shovel (Awarded story) Sál bróður, steinbítsbróður

(verðlaunasaga)

Soul of a Brother (Awarded story)


www.geimveranTAK.wordpress.com Trรถllabarn (verรฐlaunasaga)

Bairn of Trolls (Awarded story)

Hreggnรณtt The Blizzard on the Highway


www.geimveranTAK.wordpress.com Dagdraumar og sorgarband

Day-dreaming and the Sorrow

ร g, hiรฐ silfraรฐa sjal I, the Silvery Shawl


www.geimveranTAK.wordpress.com

Í mjúku myrkri búa draumarnir

Dívan skáldsins

The Coach on Which the Poet Slept – Good night said the Poet, and Died


www.geimveranTAK.wordpress.com

Þetta er mitt hús

Melana, drottning frumskógarins


www.geimveranTAK.wordpress.com

Au pair Vaknaรฐu, Lรณa! Vaknaรฐu!


www.geimveranTAK.wordpress.com

Leyniþræðir

Huginn Jöruson, hornungur (sakamál)


www.geimveranTAK.wordpress.com

1000 stjörnur - Bónda minn hálfan, Hljóðahver ljóðakver

Drottinn blessi heimilið


www.geimveranTAK.wordpress.com Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma?

Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit)


-Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti (verðlaunaleikrit) Awarded script on stage in The City Theatre in Reykjavík

www.odsmal.org

Óðsmál (1996)

´96


www.odsmal.org Óðsmál in fornu (2009)

Valhallar Óðsmál in gullnu (2010)


www.odsmal.org Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum)

Read the book and script on ISSUU https://issuu.com/odsmal.org/docs/skirnismal_ritual

Skírnismál Edda Poem – Script to Perform Youtube English version HERE Youtube Icelandic version HERE


30 TAK-sรถgur Barn semur handa bรถrnum

ISBN

978-9979-895-45-9


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook