Skip to main content

Sigga og hafragrauturinn

Page 1

Guðrún Kristín Magnúsdóttir

SIGGA OG HAFRAGRAUTURINN


SIGGA OG HAFRAGRAUTURINN


ISBN 978-9979-895-44-2 var í Stundinni okkar Göia freyjukettir@mmedia.is

Norræn menning


Sigga og hafragrauturinn

Sigga er í búinu sínu að drullumalla. Það er að vísu leiðinlegt að enginn skuli hafa lyst á drullukökum, en hún skreytir þær samt með sóleyjablöðum og hrafnaklukkum.

Fyrir rúsínur notar hún skorpin lambaspörð


Siggu þykir kökur ákaflega góðar. Þegar hún verður stór ætlar hún að læra að baka hjá mömmu sinni. En hún ætlar sko aldrei að búa til hafragraut.


Henni þykir hafragrautur svo vondur.

Þegar Sigga er niðursokkin í að leika sér, er hún oft töluvert viðutan.

Mamma hennar Siggu kallar í hana:


-Sigga mín, komdu aðeins heim!

En Sigga þykist ekki heyra. Hún er alveg niðursokkin í drullumallið.


-Sigga, kallar mamma hennar aftur. -Þú þarft að skreppa fyrir mig í sendiferð á næsta bæ,


til Rúnu á Hafravöllum.

-SIGGA ! kallar mamma hennar enn. -Heyrirðu ekki til mín? Komdu inn, segi ég.


-Ha? Jú, svarar Sigga, sem auðvitað hafði heyrt allan tímann,.......


.........en ég heyrði ekki fyrr en þú kallaðir í þriðja sinn. Ég er alveg að koma. Hún beislar í snatri, fer á bak hestinum sínum og þeysir heim á hlað til mömmu sinnar á valhoppi.


Þetta er mjög viljugur hestur. Hún er enga stund heim úr búinu sínu. Sigga leggur af stað með böggul til Rúnu.

Sigga er dugleg stelpa.


Hún er vön því að ganga langt,

því hún sækir kýrnar fyrir mömmu sína á hverjum degi kvölds og morgna og þær eru oft langt frá bænum.


Þegar hún kemur að Hafravöllum afhendir hún Rúnu pakkann.

Rúna býður Siggu auðvitað inn og spyr frétta. -Ertu ekki svöng, vinan, eftir að ganga svona langt? Svo kemur Rúna með fullan disk .......


...... af hafragraut.


Sigga þorir ekki að segja Rúnu að hún borði aldrei hafragraut því henni finnist hann ekki góður. Rúna þarf að bregða sér fram. Þá tekur Sigga snögga ákvörðun:

Hún hellir öllum hafragrautnum


Ă­ svuntuvasann sinn.


Þegar Rúna kemur inn aftur er diskurinn tómur. Óðamála segist Sigga þurfa að flýta sér heim, og ætlar að standa upp.


Auðvitað sér Rúna að ekki er allt með felldu.

Hún getur ekki annað en brosað þegar hún sér grautinn byrja að drjúpa úr vasanum á gólfið.


-Þú hefðir nú bara átt að segja mér, Sigga mín, að þig langaði ekkert í graut.

Rúna þvær úr svuntunni hennar Siggu, og hengir til þerris alveg við eldavélina þar sem hún þornar mjög fljótt.


En meðan Sigga bíður fær hún eins margar kleinur og hún getur í sig látið.


Hún fær meira að segja þrjár kleinur í svuntuvasann til að hafa í nesti á heimleiðinni.

Hún á að skila bestu kveðju til mömmu sinnar frá Rúnu á Hafravöllum.


Sigga ætlar svo sannarlega að læra að baka góðar kleinur þegar hún verður stór.


Bækurnar fást á Amazon freyjukettir@mmedia.is Norræn menning Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur - myndasögur og lestraræfingar: Hannesar saga Grásteins (20 bækur) Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Litla flugan Hagbarður og Hvutti -TAK-sögurnar eftir Hjalta Bjarnason (5-10 ára) TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir Glámur auli eftir Bjarna Þór Einarsson TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan


TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK

og og og og og og og og og og og og

páskaeggið innbrotageimveran fjölleikahúsið lyktarsjónvarpið draugurinn fjarskagaman fjarskalítill græna ræktin jarðeplaupptökuvélin tilraunalímið lyftingageimveran mikla vinur fílsins náttúruvæni einnotapokinn

- langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður - smásögur: Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur (sakamál) 1000 stjörnur - Bónda minn hálfan Drottinn blessi heimilið Strætó í hringi Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit)


-Þú hefðir nú bara átt að segja mér, Sigga mín, að þig langaði ekkert í graut.

-Ég heyrði ekki fyrr en þú kallaðir í þriðja sinn.

ISBN 978-9979-895-44-2


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook