Skip to main content

Sál bróðurins, steinbítsbróðurins

Page 1

Guðrún Kristín Magnúsdóttir :

Sál bróðurins, steinbítsbróðurins Hlýri. Steinbítsbróðir. Bróðir verðlaunasaga


útgefin af Námsgagnastofnun 1994 í bókinni: Sál bróðurins, steinbítsbróðurins fjórar smásögur; útgáfu verðlaunasagna Guðrúnar Kristínar Magnúsdóttur myndir: höf. enska þýðingin gefin út í safnriti/bókinni: Nordic Children's Libraries, IFLA '97,


Sál bróður, steinbítsbróður Drengurinn sat í flæðarmálinu með hundinn. Drengurinn var dapur því hann átti engan bróður. Þess vegna var hundurinn líka dapur. Drengurinn teygði ögn úr hálsinum, þar sem hann sat í flæðarmálinu. Honum sýndist einn af bátunum vera að koma lengst úti á firði. Hundurinn teygði líka ögn úr sér og horfði á bátinn í fjarska sem steig og hneig á öldunum. Það var heldur ekkert annað að sjá. Bara hafið, himinninn, sólin, skýin, grjótið í fjörunni, þangið í fjörunni; höfði sem trónaði úti í firði eins og hann hafði alltaf gert; -- fuglinn sem sveif í endalausri leit að æti.


Drengurinn átti engan bróður. Inni í þorpinu voru börn, strákar, sem áttu bróður. Drengurinn vissi að mamma hans var hjá guði og þess vegna átti hann ekki bróður. Drengurinn velti því oft fyrir sér hvers vegna mamma hans vildi frekar vera hjá guði. En hann spurði einskis. Hann spurði aldrei neins. Drengurinn átti að vísu þennan hund, þ.e.a.s. hann átti alls ekki þennan hund. Einhverra hluta vegna hafði hann orðið viðskila við ferðamenn á hestum. Enginn kom að sækja hann. Hundurinn elti drenginn hvert fótmál frá morgni til kvölds. Þessi hundur átti ekki einu sinni nafn, því í rauninni átti enginn hann.


Drengnum fannst gott að grafa fingrunum inn í mjúkan lurg hundsins. Þetta var ungur hundur, varla fullvaxinn, og hundurinn skildi ekki þessa þrá drengsins að vilja eiga bróður. En samt var eins og hann skildi það. Hundurinn vildi ekkert endilega eiga bróður, -- það er kannski annað með dreng. Báturinn hvarf eins og undiraldan hefði gleypt hann, reis svo upp á ölduna alveg upp að himninum, skartaði silfruðu pusi í hverri dýfu. Nú yrði nógur fiskur. Piltarnir voru svo röskir, og þeir höfðu eflaust sótt á djúpið í dag í svona veðri. Drengurinn og hundurinn vöppuðu áleiðis að naustinu. Það var alltaf gaman að sjá bátana koma að. Kannski var pabbi í þessum báti.


Piltarnir voru háværir, en þó sögðu þeir fátt. Faðir drengsins kyssti hann á ennið er hann var kominn í land með aflahlutinn sinn. -Sjáðu þennan skrýtna, sagði hann. -Hlýri. Steinbítsbróðir, bætti hann við. -Hann veiðist nú ekki uppi við landsteina þessi. Fallegur? Faðir drengsins hélt uppi stórum fiski með ugga frá haus aftur á sporð, doppóttum um allan kroppinn. -Bróðir? hugsaði drengurinn og tók við fiskinum, tók fiskinn í fangið. -Þú verður allur slorugur, krakki, sagði faðir hans og hló.


Fiskurinn var mjúkur, sleipur, þungur og ákaflega fallegur, doppóttur um allan kroppinn. Ekki fallegur í framan, nei, hausinn á honum var nú frekar ljótur, en drengurinn hafði aldrei séð fallegri fisk. -Bróðir, hugsaði drengurinn. -Hann heitir Hlýri.

Drengurinn sagði ekki neitt þegar hlýirnn var flakaður. Þessi drengur sagði eiginlega aldrei neitt. Hann vissi að þetta yrði kvöldmaturinn í kvöld, því ýsan, lýsan og þyrsklingarnir fóru í salt eða voru spyrt.

Dálknum af hlýranum var fleygt; hausnum, uggunum, sporðinum, roðinu.


Þegar enginn sá til, tók drengurinn þessar gersemar. Hann bar þær upp fyrir hól. Þar hengdi hann þessar fallegu leifar bróðurins til þerris; dálkinn, með haus og sporði og uggum, og roðið sem hann þurfti að slétta út. Hann hengdi þetta milli stórra steina þar sem hrafninn fyndi það ekki. Enginn nema drengurinn og hundurinn vissi um þetta.

Drengurinn gat ekki borðað. Hann sat við kvöldverðarborðið og starði á hvítt holdið á fatinu -- steinbítsbróðurinn. Amma hans hélt að hann væri lasinn. Hann gat ekki einu sinni smakkað kartöfluna. -Ætlarðu ekki að éta neitt, vinurinn? spurði hún.


Leifar hlýrans þornuðu og hörðnuðu milli stóru steinanna fyrir ofan hól. Drengurinn og hundurinn fóru á hverjum degi að skoða þessar gersemar. Drengurinn gróf fingrunum í mjúkan lubba hundsins og starði á haus hlýrans. Hann nærri því gleymdi að fara heim á kvöldin. -- Bróðir.

Drengurinn fór út á hlað en hundurinn var ekki þar eins og venjulega á morgnana. Hundurinn svaf alltaf úti í hlöðu en var alltaf kominn á bæjarhelluna þegar drengurinn kom út á morgnana. Drengurinn hafði aldrei kallað á hundinn, enda átti hundurinn ekkert nafn. Það kom hik á drenginn. Hann var orðinn vanur að hafa hundinn alltaf með sér.


Hann gekk út að hlöðuopinu og gægðist inn. Þar var enginn hundur. Drengurinn gekk frá bænum og stefndi á hólinn.

Bak við hólinn var hundurinn að ljúka við að éta hlýrahaus, hlýraugga, hlýrasporð og hlýraroð sem hafði hangið til þerris milli steina þar sem hrafninn fann það ekki. Hundurinn lá fram á lappir sínar með leifar dálksins. Hann dinglaði skottinu þegar drengurinn kom. Drengurinn stóð kyrr. Það er sárt að missa. Sumir kunna ekki að gráta. Sumir kunna ekki að reiðast. Drengurinn stóð kyrr. Hundurinn dinglaði skottinu.


Drengurinn gróf holu, djúpa holu, fyrir ofan hól. Hann hafði óljósa vitneskju um, að allir þyrftu að fara ofan í djúpa holu, þegar þeir færu upp til guðs. Í þessa holu lét hann leifar dálksins. Hann velti fyrir sér hvort ekki yrði að jarða líka það sem hundurinn hafði étið. Sálin fer upp til guðs, sagði amma. Skrítið að þurfa fyrst að fara oní jörðina. Til vonar og vara setti hann allan skit, sem hundurinn skildi eftir sig næstu daga, í holuna líka. Mokaði svo yfir. Kannski hittir mamma sál bróðurins, steinbítsbróðurins, þarna uppi hjá guði -- og kannski kemur hún þá aftur. -- oo 0 oo –


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Sál bróðurins, steinbítsbróðurins by Geimveran TAK - Issuu