Skip to main content

Rakni og Þögn - KLUKK

Page 1

Guðrún Kristín Magnúsdóttir

Rakni og Þögn KLUKK

ævintýri

leikir barna 1900-2000 efnisyfirlit

þjóðtrú, ævintýri í alvöru, hin norrænu goðafræði í nýju ljósi

Seðlasafn með leikjunum: Freyjukettir, Norræn menning 1


2


Rakni og Þögn þjóðtrú, ævintýri, hin norrænu goðafræði á nýstálegan hátt -- kemur m.a. uppúr kafinu hver Grýla og Leppalúði eru í raun! Því vorum við búin að gleyma (/tókst að láta okkur gleyma(!!)).

+ KLUKK, leikir barna öldina 1900-2000, efnisyfirlit, 432 titlar

ISBN 978-9979-895-72-5 5.útg 2016

Freyjukettir Norræn menning

3


Vetrarmorgunn, í heimavistarskóla, enn er dimmt. Það er kveikt á flúorperum í skólastofunni, en enginn er mættur því klukkan er ekki orðin. Tveir strákar skjótast inn í skólastofuna langt á undan öðrum; þeir eru spottskir á svipinn og líta flóttalega í kringum sig. Þeir slökkva ljósin, taka upp vasaljós, setja stól uppá borð, teygja sig í eina peruna, ná henni úr, setja blautan pappír við annan endann og láta hana í aftur, og þannig koll af kolli. Allar perurnar. Fara svo út í snatri í skjóli myrkurs. Þeir líta hvor á annan, og stríðnisglott er í augum þeirra. Hringt er inn. Krakkarnir, syfjaðir og latir, tínast inn í skólastofuna. Þeirra á meðal eru Rakni og Þögn, systkin sem eru saman í bekk í þessum heimavistarskóla. Í dag er föstudagur, og flestir krakkanna fara heim um helgar. Sá fyrsti sem kemur inn í stofuna kveikir auðvitað ljósin. Strákarnir tveir, sem hrekkinn undirbjuggu, koma inn í stofuna einsog hinir, mjög sakleysislegir á svipinn. Kennarinn kemur og byrjar að kenna. Hann talar, en ekki er víst að allir séu að fylgjast með. Sumir krakkanna pískra saman, sumir glápa syfjulega útí loftið. Fyrsti tíminn er oft svona. Engin einbeiting. Kennarinn einsog grammófónsplata sem spilar aðeins vegna þess að hún vara sett á.

4


Ein peran í loftinu byrjar að blikka. Strákarnir tveir þykjast enga athygli veita því. Önnur pera byrjar að blikka. Einn krakkinn lítur aðeins upp. Það slokknar á einni perunni. Ekkert virðist óeðlilegt við að ein pera gefist upp, en að fleiri og fleiri fari að blikka, fleiri og fleiri bili alveg, er ekki eðlilegt. Já, vægast sagt ekki eðlilegt. Svona gengur þetta, koll af kolli, þar til almyrkt er í stofunni. Kennarinn reynir að slökkva og kveikja en það virkar ekki. Kennarinn fer fram, og er tortrygginn, sem á svip hans má dæma. Hann lætur skólastjórann vita. Kemur með kerti og setur á kennaraborðið til þess að geta haldið áfram að kenna. Ámundi skólaafi röltir inn í stofuna, hummar og lítur upp í loft á perurnar -- sem ekki kviknar á. -Getur þú lagað þetta fyrir okkur, Ámundi? spyr kennarinn. -Humm, jamm og já, tautar Ámundi skólaafi. -Það er nú eitthvað dularfullt við þetta. Strákarnir tveir líta hver á annan án þess að mikið beri á og berjast við hláturinn. Rakni hnerrar. -Guð hjálpi þér, góurinn, segir afi. Afi, Ámundi skólaafi, fer að gera við skápræfil í kennslustofunni. Kennarinn spyr hvor það megi ekki bíða, það þurfi að ganga fyrir að gera við perurnar. 5


Afi smíðar hljóðlega til að byrja með, dittar að skáphróinu, og muldrar áhugalaus: -Já. Það er eitthvað að gerast með þessar perur. Er ekki bara betra að hafa gamaldags glóperur. Þetta nýmóðins dótarí er ekkert endilega betra. Afi hummar og tautar, fer jafnvel að yfirgnæfa kennarnn með smíðum sínum. En reynir ekkert að gera við perurnar. Kennarinn er orðinn óþolinmóður: -Ámundi, geturðu gert við þennan skáp síðar? Það er annars best að fleyja þessum skápgarmi og kaupa almennilega hirzlu. Kennarinn fer fram og nær í skólastjórann: -Það þarf að setja nýjar perur í. Annars er ekki hægt að kenna. Rakni hnerrar og sýgur upp í nefið, orðinn rauður og bólginn í framan. Afi segir: -Guð hjálpi þér, góurinn. Rakni hnerrar Afi segir: -Guð hjálpi þér, góurinn. Kennarinn er að verða svolítið uppstökkur: -Rakni, geturðu ekki hætt þessum hnerrum! Rakni: -Ég er með ofnæmi fyrir köttum. Kennarinn: -Hér er enginn köttur, Rakni.

6


Afi muldrar: -Maður er nú orðinn svo gamall að það vill enginn hafa mann lengur. Ég verð víst bráðum að fara að hætta að vera skólaafi. Ég kann ekki að gera við svona nýmóðins perur. Það er öllu fleygt nú orðið og engin þörf fyrir skóla-afa. Ætli maður fari ekki að detta uppfyrir fyrir fullt og allt. Krakkarnir greinilega hlusta meira á tautið í afa en á kennarann: -Nei, afi! Ekki fara! Við viljum hafa þig -- alltaf. Rakni hnerrar. Kettlingur heyrist mjálma. -Guð hjálpi þér, góurinn, segir afi. Kennarinn: -Hættið þessu. Rakni hnerrar. Kettlingur heyrist mjálma. Afi segir: -Guð hjálpi þér, góurinn. Rakni hnerrar. Kennarinn strunsar til Rakna, Kennarinn tekur í handlegg Rakna, sem hnerrar enn einu sinni, lætur hann standa upp. En um leið rekur kennarinn augun í að stelpa er með eitthvað kvikt í laumi!!! Kettlingurinn mjálmar. Rakni hnerrar. Stelpan hvíslar: -Fyrirgefðu. Afi segin enn einu sinni: -Guð hjálpi þér, góurinn. Það vill víst enginn skítnýta gamlan smið lengur. Öllu fleygt nú til dags og keypt nýtt. Kennarinn bendir á að bannað sé að vera með dýr í skólastofunni. Svona lagað trufli kennsluna -- og þar fram eftir götunum, sem enginn raunar hlustar á. 7


Þetta er bara svo fyndið allt saman. Myrkur nema eitt kerti, og köttur. Það er enginn syfjaður lengur!!! Loksins er hringt út. Allir eru snöggir að spretta á fætur. Kennarinn fer með sitt dót og kertið. Skólaafi tínir saman verkfærin sín. Strákarnir tveir, sem sök eiga á uppistandinu, taka upp vasaljósið, setja stól uppá borð og ná pappírnum úr. KLUKK-leikur: Pappírinn leiddi meðan hann var blautur, þornaði í hitanum af perunni, og þá rofnaði. Það er ekkert að perunum. Krökkunum er skemmt. Uppátækið vel heppnað. Annar strákurinn segir hlæjandi: -Það kunna nú fleiri galdra en þú, afi. Afi hummar: -Ja, jamm og já. Það fer nú eftir því hvað maður kallar galdra, börnin góð. Rakni og Þögn verða ein eftir með afa í skólastofunni. Þögn segir biðjandi: -Ekki hætta að vera skólaafi, afi. -Ertu í alvöru göldróttur, afi? Rakni spyr: -Geturðu í alvöru smíðað allt, hvað sem er? -Við skulum nú prófa skápgarminn a tarna, segir afi. -Það á hvort eð er að fara að fleygja honum á haugana. Best að bambra honum út, bjarga honum, og sjá hvort hann er enn þeirrar náttúru að geta flogið. 8


Þið mynduð nú kannski vera svo væn að bera hann með mér út og í hvarf frá skólanum og heimavistinni. Ég vil nú síður að sjáist til mín þegar ég prófa hann. Ég yrði nú fluttur gripaflutningum á elliheimilið sem elliært gamalmenni! -Það er mús í skápnum, afi, segir Þögn. Músin virðist ekkert hrædd, og afi veit vel að það er mús í skápnum. Það hefur alltaf verið mús í þessum skáp. -Ég gef henni alltaf brauðskorpur og ost. Að vísu þrífur ræstingakonan það oftast, og skammar krakkana fyrir að missa úr nestisboxinu í skápinn. Þau bera skápinn út, fara með hann í hvarf. Skólastjórinn sér útum gluggann að afi er loksins að farga þessu hrói. Hann hringir í rafmagnsmann og smið, til að láta gera við perurnar og setja almennilega hirzlu í skólastofuna. -Hér er góð laut, segir afi. -Svona nú, varlega, leggið hann varlega niður. Hann er gamall, greygarmurinn. Þolir ekki mikið hnjask. Afi er greinilega genginn í barndóm, og hlakkar til að prófa skápinn. Hann fer inn í skápinn, og músin horfir á afa einsog ekkert sé sjálfsagðara en að prófa skápinn og gá hvort hann sé enn þeirrar náttúru sem var. -Komið nú, hróin mín. segir afi. Rakni og Þögn líta hvort á annað og stama útúr sér: -Inn í skápinn??? Þau hugsa með sér en segja ekki: -Erum við alveg dómgreindarlaus? -Gæti verið að hann hlýði enn, garmurinn, tautar afi og lítur á músina.

9


Rakni og Þögn brosa að þessu asnalega tiltæki, setjast nú samt inn -svona fyrir afa -- en þetta virkar nú samt á þau sem algjört sprell. Æfintýri um fljúgandi koffort eru ekki í alvöru. Rakni og Þögn eru, að auki, löngu vaxin uppúr þykjustuleikjum. Þau setjast nú samt inn í skápinn hjá afa. Afi lokar skápnum og þylur dularfullri röddu: -Fljúgðu, fljúgðu, fagursmíð, finndu, fyrir börnin blíð, völlinn víða, er enginn veit, þarsem tefla í túni, jólateit. Rakni og Þögn brosa vorkunnlega að afa, og gera sér vel grein fyrir að þetta muni ekki virka. Músin horfir á afa, spennt og full áhuga og eftirvæntingar. Skápurinn fer að hristast. Þögn spyr, og lítur á Rakna: -Er jarðskjálfti? Músin syngur: -Nei, nei. Við erum brátt í buskanum, í buskanum, í buskanum. Rakni og Þögn verða meira en hissa. Það er eiginlega ekki til orð yfir að svona mikið hissa. Steinhissa er allt of veikt orð. -Er þetta í alvöru fljúgandi skápur, afi, eða er jarðskjálfti?? Músin: -Lítið ekki út einsog himinninn sé að hrynja o’ná stélin á ykkur. 10


Afi gefur mér alltaf hnasl á veturna, svo ég bý í skólanum á veturna en á Iðavöllum á sumrin. Rakni og Þögn eru orðlaus. Hvað er eiginlega Iðavellir? Afi brosir góðlátlega. Músin segir: -Ertu nokkuð með ofnæmi fyrir músum, Rakni? Húsamúsum og hagamúsum? Það er ekki hægt að hoppa út núna. Við erum komin á ferð. Rakni stamar útúr sér: -Ha? Ég? Nei. Líklega ekki. -Gott, segir músin. -Hún feimna systir mín er nefnilega til í að syngja með mér. Alltaf gaman að syngja á ferðalögum: -Við erum litlar hagamýs, kúrum saman þegar úti frýs, á sumrin líður okkur betur langt þá þar til kemur vetur. Kónguló, hæ, kónguló, vísaðu mér á berjamó, ef ég finn krækiber að borða et ég það án nokkurra orða. Grútsyfjuð köngurváfa kemur í ljós í rykugum vef í einu horninu: -Æ, greyin mín farið að sofa. Öll ber löngu frosin. Auk þess: Mýs borða ekki, þær narta, eta, éta, stela mat, nenna ekki að vinna. Og farið ekki að þvæla um að gefa mér gullskó á alla mína fætur því ég vil ekki skó. Myndi spóla og detta á rassinn..... Allir horfa á kóngulóna sem er uppi í horni á skápnum. Hún er rosalega fúl. 11


Hún heldur áfram: -Ég nenni ekki að hlusta á heimskulegar vísur. Gullskó! Hvað haldið þið sossum að kónguló hafi við gullskó að gera? Greyin mín verið ekki að vekja mig þetta. Ég sef í allan vetur. Góða nótt og sofið rótt. Músin dæsir: -Afsakaðu, fröken köngurváfa. Fyrirgefðu, fröken fix. Mig langaði bara svona allt í einu í bláber. En hafa skal það sem hendi er næst og hugsa ekki um það sem ekki fæst. Bara vera í góðu skapi. Allt er svo yndislegt. Ég finn eitthvert góðgæti að eta í dag. Dagurinn í dag er í dag. Njótum hans. Dagurinn á morgun er ekki fyrr en á morgun. Hví gera sér rellu útaf honum? -Jæja, segir afi. -Þá er fara að lækka flugið. Ég vona, skápur minn, að þú sért ekki búinn að gleyma hvernig á að lenda mjúklega? Manstu: mjúklega? Þögn tekur um magann, því hana kitlar í magann. -Ekki of hratt niður, góði besti skápur, segir Rakni og hlær. Svolítill kvíði fyrir lendingunni gerir samt vart við sig. Afi að vísu sallarólegur. Lendingin verður allharkaleg. Hurðirnar opnast. Rakni og Þögn velta út. -Hvar í ósköpunum erum við, hugsa þau. -Geinilega úti í móa, segir rödd sem kemur úr jörðinni undir fótum þeim. Hver er að svara hugsunum þeirra? Þau sögðu ekkert upphátt. Hér er ekkert að sjá nema snjór, og svo himinninn. Rakni og Þögn líta í kringum sig. Þau eru ekki við skólann, heldur....? Þau hafa lent á ávölum hóli, og sjá vítt og breitt í allar áttir. 12


Afi stígur út og fer að athuga hvort skápurinn hafi nokkuð laskast. Þá fellur hann saman í spýtnahrúgu. Afi stynur: -Æ, æ. Þar fór nú hið mesta rarítet í spón. Skyldi ég geta komið þér saman aftur, skápur minn. Rakni og Þögn hugsa bæði það sama: -Hvernig komumst við til baka? Þau líta hvort á annað, uggandi yfir framhaldi þessa asnalega ævintýris. Hvað ef afa tekst ekki að pússla spýtnadraslinu saman í náttúru gæddan skápinn á ný. Afi fer að reyna að koma spýtnahrúgunni saman, og það tekur hug hans allan. Köngurváfan trampar útúr spýtnahrúgunni, úrill og nöldrandi, tautar mikið og arkar áfram í snjónum á öllum sínum fótum. -Það væri nún nær að gefa manni kuldastígvél en gullskó. Hún smokrar sér niður í snjóinn. Undir snjónum finnur hún lyng og mosa, hjúfrar sig niður þar og sofnar á ný. Mýsnar stynja: -Engin ber, ekkert ætilegt. Hér er ekkert að sjá. Hvert sem litið er: ekki neitt nema snjór, mjallhvítar sléttur, fjöll og himinn. Rakni og Þögn líta aftur hvort á annað. Þau hugsa bæði: -Ja hérna! Einhver svarar, einsog hann hafi heyrt hugsanir þeirra: -Ekkert „ja hérna” neitt, sko. Þið ættuð frekar að biðjast afsökunar á að vekja mann með svona ógurlegri lendingu. Hver er að tala. Þau sjá engan. 13


-Æ, fyrirgefðu, Óri minn, segir afi, og lætur þetta ekki trufla sig. -Þetta átti nú ekki að verða svona klaufalegt. Geturðu nokkuð rétt mér hjálparhönd? Syfjaðar hagamýs gægjast upp úr holum og fá glýgju í augun í snjóbirtunni. -Hvaðan ber ykkur að? Eruð þið húsamýs? Hvaða skrímsli eru þetta nú? -Ég heiti Rakni -Ég heiti Þögn. Ein hagamús spyr: Til hvers? -Til hvers hvað?, spyr Rakni. -Til hvers heitið þið Rakni og Þögn? Við heitum ekki neitt, við bara erum. Er ykkur ekki kalt svona sköllóttum um allan kroppinn, og er ekki maus að vera að pakka sér svona inn í pjönkur? Hagamýsnar syngja fyrir gestina, boðsflennurnar, þótt syfjaðar séu: -Við erum litlar hagamýs eigum enga matarflís reynum bar’ að nag’ og naga, hungrið það er mjög til baga. Afi tekur upp nesti og gefur músunum, þeim til mikillar ánægju. Þungt fótatak heyrist, jörðin hristist, fótatakið nálgast. Mýsnar hætta að smjatta, hlusta og segja: -Skessan er að koma. Heyrðu, afi, kanntu að láta litlu skrímslin, sem komu með þér, hverfa? 14


Það væri gaman fyrir þau að sjá fröken skessu. Hún verður ekki nema tvær mínútur að komast hingað. Hún er þarna í fjallinu. Skessan tautar fyrir munni sér: -Hér finn ég mannþef. Það eru þó ekki komnir krakkar á fjöll um þetta leyti árs? Þögn og Rakni hörfa tvö skref afturábak við tilhugsunina um að það sé til skessa í alvöru. Allavega hristist jörðin undan fótataki allþungu. Allt í einu lætur snjóhengja undan, og þau dúndra oní holu, lenda inni í hól Óra dvergs. Hann stendur þarna yfir þeim með hendur á mjöðmum. Hóllinn hossast við fótatak skessunnar. Afi kallar inn í hólinn til Óra: -Óri minn, áttu ekki huliðshjálma til að bregað yfir ponna og ponsu úr mannabyggð. Þau langar kannski til að sjá skessuna en eru smásmeyk. Óri: -Óþarfi. Þetta er bara móðir náttúra. Hún á þetta til. Það er ekki til nein skessa. Menn hafa bara verið að búa þetta til til að hræða krakka, svo þau séu ekki að þvælast upp í fjöllin. Afi gægist niður í hólinn ofanfrá, innum gatið sem kom þegar Rakni og Þögn duttu inn: -Óri minn, geturður ekki hjálpað mér að koma blessuðum skápgarminum saman aftur? Mýsnar fá hugmynd: -Komum í hellin hennar Grýlu! Líklega á hún grjúpán sem við getum nartað í. Grjúpán hangandi uppi í rjáfri, ha? Bjúgnakrækir bregður sér bæjarleið af og til og nær í svoleiðis góðgæti. Ég held að fólkið á bæjunum gefi jólasveinum matargjafir svona af og til. 15


-Eruð þið ekki til í, ponsi og ponta úr mannabyggð, að stinga okkur í vasana og ösla yfir snjóinn með okkur til Grýlu? Þið hafið svoddan býfur miðað við litlu fæturna okkar, ha? Rakni og Þögn eru ekki alveg að ná samhengi í atburðarásina. Mús syngur hástöfum: -Ef ég væri húsamús hefði ég allt sem þarf til bús... önnur mús bætir við: -..... kötturinn færi að bölva og ragna æti þig svo upp til agna. Svo hlæja þær. -Já, betra að vera hagamús. Enginn köttur. Mýsnar syngja í rímnastíl: -Þambara vambara þeysings sprettir því eru hér svo margir kettir? Agara gagara yndis grænum, illt er að hafa þá marga á bænum. -Grýla heitir draumlynd mær í dalakofa býr, --- og hrærir skyr í risastórri steypuhræirvél. Afi bendir eitthvað yfir snjóbreiðuna; -Röltið þá yfir í hellinn hennar. Það tekur tíma að koma skápgarminum saman á ný. Rakni og Þögn, með mýsnar í vösunum, ösla snjóinn á leið í hellinn hennar Grýlu. Þau líta í kringum sig á leiðinni, ekkert nema snjóbreiða að sjá svo langt sem augað eygir. 16


Mýsnar gægjast uppúr vösunum og vísa leiðina: -Þarna, sko. Sjáið þið ekki hellisopið þarna? Loks koma þau að opi í snjónum. -Eigum við.... eh.... eigum við að fara hér ofaní??? Mús: -Hér! Nú getum við gengið sjálfar. Við ætlum nú ekki að heimsækja húsmóðurina í Gymisgörðum heldur grjúpánin hennar. Og við erum með algjört ofnæmi fyrir jólakettinum!! Mýsnar stökkva inn í hellinn, syngjandi: -Kattarláfujafningur, hundsbelgjaglás, kattarláfujafningur, hundsbelgjaglás. Rakni og Þögn standa ein eftir einsog illa gerðir hlutir og eru nú ekki alveg viss um hlutverk sín í framvindu leiksins. Það er ekkert spaug að vera staddur í ævintýri, sem raunar á ekki að geta gerst, vita ekkert hvað maður er að gera hér, þora ekki inn í dimman helli, rata ekki til baka, og vera kalt á fótunum. Rétt fyrir aftan Rakna og Þögn er sagt: -Gúddag ! gúd dag ! gút tag ! Þeim krossbregður. -Ich ferða-langur. Ich ekki vilja borga. Ich leita gisting. Gisting hér? Ich ekki borga. Ich leita að staður sem heitir „Velkommin till.......” ekki muna hvað standa meira, eikkert langur orð sem ich muna ekki; standa á skiltir „Velkommin till........” únd so langur orð sem ich ekki muna: Hvar er „Velkomin til”?? Þið segja mér hvar Velkommin till staðurinn er? Rakni hnerrar. Þöll og Rakni stara á ferðalanginn. 17


Þöll stamar loks uppúr sér: -Hvernig komstu hingað, ferðalangur? -Ich ganga ganga, segir ferðalangur -Hvar er jarn-brátar-lesturinn hér? Þögn og Rakni skilja ekki. -tjú tjú tjú tjú segir ferðalangur, og gerir járnblautalest með fótunum. KLUKK, LEIKJASAFN járnbrautarlest Rakni hnerrar. Jólakötturinn er risastór, sefur í myrku skoti inni í hellinum, lengst inni í hellinum hennar Grýlu, vaknar við hávaðann í ferðalangi rétt fyrir utan munnann, opnar augun letilega, spíssar eyrun, þefar útí loftið. Rakni hnerrar. Jólakötturinn rís letilega á fætur, og gengur hljóðlaust í áttina að hellisopinu, þar sem ferðalangur, Rakni og Þögn standa einsog stílbrot í snjóbreiðunni. Jólakötturinn nálgast þau, þau verða vör við hann, sjá fyrst gular glyrnurnar í myrkrinu, og stara á hann þar sem hann kjagar letilega í áttina til þeirra, og sést betur þegar hann kemur í birtuna sem snævi þakin jörðin veitir á veturna. Rakni stamar upp úr sér: -Algjört finngálkn!! Þau hörfa skref afturábak, 18


rekast þar á Skyrgám sem kemur askvaðandi í snjónum og er á leið inn í hellinn með skyrdalla í fanginu. Nú vakna jólasveinar sem sofið hafa, og koma fram að hellisopinu. Þeir taka nú ekki eftir Rakna og Þögn, né heldur ferðalangi, en hrópa upp, kátir mjög: -Skyrgámur! -Hetja dagsins! -Hvar náðirðu í þetta? -Ber er hverr að baki nema sér bróður eigi. -Þú ert afbragð. -Gott bragð -Skyrbragð. -Gera bragð fyrir..... KLUKK, LEIKJASAFN að bregða fæti fyrir e-rn Einn jólasveinn bregður fæti fyrir Skyrgám, sem hendist fram fyrir sig, og hinir jólasveinarnir reyna að grípa skyrdallana, og ætla að rifna úr hlátri. Sem betur fer verður kötturinn nú upptekinn af að sleikja skyrsletturnar, og gleymir að abbast uppá gestina. Ferðalangur segir: -Gúddag. Ich fá skyr.is, en ich ekki borga. Ich rammvilltur og ískalt.. Kúldaboli úti. Jólasveinn: -Guddi hinn rammi í villtum leik með jóla-hvað og kuldabola. Ekki mjög gæfulegt, hmmmm? Þeir hlæja mikið. -Guddi hinn rammi í villtum jólahvaðleik með kuldabola.is. Boli boli bankar á dyr með bandinu sínum langa láttu ekki hann Hólsbola 19


heyra til þín, Manga. Hvað á að gera við strákaling lok’ann út’á landshyrning, og lát’ann hlaupa allt í kring. Boli boli bankar á dyr og spyr að Skjöldu sinni hvort hún er hér inni í skjöldóttu skinni. Ferðalangur skilur þetta nú alls ekki, en bendir á jólasveinana: -Nej nej, þið ekki júlasvein. Þið ekki með rauð húfa, ekki með stór bumba, ekki með hreindýrsleð, ekki segja HOHOHOHO. Jólasveinarnir svara fyrir sig: -O, víst erum við jólasveinar. Ferðalangur: -Ich leita að „Velkommin till”, „Velkommin till...” og svo langur orð með skrítna stafir. Hvar er Velkommin till? Jólasveinar: -Við erum með skrítna gyllta stafi í hendi, ha? Ferðalangur: -Ich finna gisting. Ich ekki borga. Ich klatre klettar; Jólasveinar: -Hann er að sníkja klatta. Ferðalangur: -Ich leita járn-brautar-lestur tjú tjú tjú tjú KLUKK, LEIKJASAFN járnbrautarlest Jólasveinar drífa ferðalang í dans: -Fyrst á réttunni svo á röngunni, tjú tjú trallala. 20


Fyrst á réttunni svo á röngunni, tjú tjú trallala. Skósmiðurinn hann er svín af því hann drekkur brennivín.... Ferðalangur: -Nej, næn, ich kaldur und blautur. Mig fá húsaskjól. -Við reddum þér um spjarir, furðulangur. Minnsta mál, segir einn jólasveinn, dregur ferðalang inn í helli, opnar stóra kistu, fulla af lörfum, nær í þæfðar síðar ullarnærbuxur. -Hana, Furðulangur furðufugl, segir hann og réttir ferðalangi. -Föðurlandið. Gult að framan, brúnt að aftan. Ferðalangur tautar: -Gult að framan, brúnt að aftan. Gult að framan, brúnt að aftan? -Já, líttu oní brókina, Furði. Þá sérðu hvernig hún á að snúa, maður. -Nú förum við í leiki, mannabörn, segja jólasveinar, hressir, og rífa í Rakna og Þögnu. -Leiki? spyr Þögn. -Eigið þið leiki, tölvuleiki? -Við kunnum hundruð gamalla leikja, og þurfum ekkert nema krakka!! Jólasveinarnir fara í leiki sem Rakni og Þögn hafa ekki séð fyrr. KLUKK, LEIKJASAFN assa gaf Adam átti syni sjö -- (með sínu lagi) að flétta saman tvær stelpur að gefa orð að komast í búr einhvers allir á móti öllum andaglas 21


andi í borðinu (og svindlið) aumingja ég árar á borð (angilja; fiskdálkur) að skipta ástum að hræra flautir að gefa orð að binda bagga að láta upp að láta einhvern prjóna að geta króks eða krings að gefa skip að horfast í augu (sjá: horfast í augu sem....) að liggja á sæng að jafnhatta að járna rimbu að róa á selabát -- með sínu lagi að flá kött að fara á kjöl að fara gegnum sjálfan sig að sækja á bita að reisa horgemling að reisa mann upp frá dauðum að rífa ræfil upp úr svelli að sækja smjer í strokk að sverja nálareið að fara í skinnbrók, ...skollabrók, ...brókina hans Skíða að kyssa kóngsdóttur að sverja lófaeið 22


að láta prest stíga í stól (+ kórinn að syngja) að setja Pílatus í dómstólinn að reisa skemmu allir dansa konga að láta nál fljóta á vatni að liggja á sæng Nú kemur að hellisopinu maður nokkur, virðulegur og rólegur. Hann er grannholda, klæddur hvítum kufli, allt of þunnum til brúks sem vetrarflík hér og nú í vetrarkuldanum á fjöllum á Íslandi. Stafurinn hans er hjarðhirðisstafur, skórnir frekar líkir sandölum. -Halló. Er nokkur hér? kallar hann kurteislega inn um hellisopið. Hann endurtekur jafnkurteislega og bankar í steininn: -Halló. Er nokkur hér? Enginn heyrir til hans nema kötturinn, sem tekur óblíðlega á móti manninum. Það breytir engu um ró mannsins og virðuleik þótt stór köttur urri og hvæsi. -Blessaður, litli köttur, segir hann. -Mikið ertu sætur og góður. Jólakötturinn verður svo hissa á að vera kallaður sætur og góður að hann gleymir að hann er að urra og hvæsa á manninn. Aðkomumaðurinn gengur prúðlega inn í hellinn og kallar: -Halló. Er nokkur hér? Einn jólasveinn kallar fram: -Kaupum ekki merki. Annar jólasveinn kallar fram: -Stattu úti og nagaðu þröskuldinn;

skildu samt naglana eftir. ( KLUKK )

23


Virðulegi maðurinn kemur hæversklega inn í hellinn. Jólasveinarnir, jólakötturinn, ferðalangur, Rakni og Þöll standa þarna og stara á hann og halla undir flatt. -Skyldi manninum ekki vera kalt svona illa búnum? Hann býður góðan dag, og kynnir sig af hógværð: -Ég er heilagur Nikulás, biskup af Myra. Það má eins kalla mig Santa Klaus eða Santa Claus, eða eingöngu Santa. Ferðalangur bendir á aðkomumannin: -Nej nej, þú ekki júlasvein. Þú ekki með rauð húfa, ekki með stór bumba, enginn hreindýrsleð, þú ekki segja HOHOHOHO í jólaskap, heldur daufur og dapur og deprímeraður. Þú ekki Santa Klás gefur glás!! Ekkert poki. Þú ekki í rauð fötum? Þú í eikkert helgra manna spjörum. Passar ekki. Þú of angiljulegur. Aðkomumaðurinn, biskupinn af Myra, Santa Klaus: -Ég gaf fátækum börnum mat og gjafir, og nú er búið að gera úr mér jólasvein. Ég er notaður í auglýsingar og er orðinn að allsherjar skrípi og einhverri HOHOHO-fígúru með velmegunarbumbu og kók. Jólasveinarnir sýna fyllstu samúð. Þeir hætta öllum ærslum og verða mjög hugsi. -Svo er verið að segja börnunum að ég láti hráa kartöflu í skóinn, heldur biskupinn a Myra áfram. -Ég myndi aldrei gera slíkt. Það eru þær mömmur sem ráða ekki við uppeldið sem láta hráa kartöflu í skóinn og kenna mér um. Verið að læða inn sektarkennd hjá börnum og niðurlægja þau. Ég er bara orðin Grýla. Jólasveinarnir reyna að hughreysta hann: -Við erum líka orðnir að allskonar skrípum í hugum fólks, Santa minn. 24


Meðan jólasveinarnir og heilagur Nikulás eru að ræða þessi jólasveinamál, læðist ferðalangur að fatakistunni, fer ofaní hana og lokar. Hann tautar: -Ich hundleið á þessum asnalegir leikir. Hér enginn friður fyrir leikir. Mig leita að frí gratís ókeypis gisting. Mig ekki borga. Mig spara peningur. Ferðalangur tautar sig inní svefninn: -Jeg ekki borga gisting, jeg fá ókeypis gisting. Jólasveinamamma Grýla kannski eiga heiti pottur til að ég fara í bað á morgun. Gott að fá bað í heiti pottur hjá jólasveinamammu. Ekki borga. Sníkja heitipotturbað hjá jólasveinamammu. Ich fá ókeypis ferð með hreindýrasleð á morgun til Velkommin till. Hann góður landkynning þessi í hreindýrasleð. Maður að mínu skapi. Ich ekki borga far í hreindýrasleð. Svo heyrast hrotur úr kistunni. En enginn tekur eftir þessu. Þau halda að ferðalangur sé farinn, og sakna hans ekki neitt. Santa Klaus er orðinn ennþá daprari: -Það er búið að búa til úr mér Grýlu. Hugsið ykkur hvernig hægt er að eyðileggja orðspor manns. Ég myndi aldrei láta hráa kartöflu handa barni sem hlakkar til jólanna.Það eru heimsku mömmurnar sem gera þannig grikk. Eyðileggja barnslegu gleðina. Jólasveinarnir vísa heilögum Nikulási á legubekk í hellinum. Hann leggst á bakið á bekknum og rekur raunir sínar. Jólasveinarnir, jólakötturinn og Rakni og Þögn hlusta áhyggjufull og samúðarfull á Santa Klaus sem er í áframhaldandi sálfræðiviðtali að létta á sér: -Ekki bara bumban og þetta HOHOHOHO og kókakóla auglýsingin, heldur er búið að búa til úr mér Grýlu. Börnin hlakka til að ég komi og svo eru þau niðulægð og svikin þegar þau hlakka til. Heimskir foreldrar láta kartöflu í skó hjá börnunum sínum og kenna mér um; Foreldrarnir nota mig sem grýlu!! Börnin fara að hata mig. Ég myndi aldrei gera svona lagað. Ég elska öll börn jafnt. Hlýðin sem óþekk. Öll börn eru góð börn og hlakka til jólanna. 25


-Já, þú varst búinn að segja það. -Litlu börnin hlakka til jólanna, vakna kát og spennt, en fá svona niðurlægingu í stað glaðnings, verða reið og fleygja kartöflunni út um gluggan og reyna að fleygja henni í mig......... -Já, þú varst búinn að segja þetta. Við vitum allt um þetta, Nikki Klaus Nissi minn. Júlenisse. -Þau eru auðvitað löngu hætt að trúa á Grýlu, foreldrar mega ekki lengur nota lögguna sem grýlu, svo ég lendi í þessu hlutverki og fæ ekki rönd við reist.... Rakni og Þögn heyra undarlegt væl lengra inni í hellinum. Þau fara lengra inn í myrkan hellinn, þarna er eitthvert fylgsn. Greinilega er eitthvað að gerast þar fyrir luktum dyrum. Þaðan heyrist undarlegur og ógnvænlegur hávaði. Þau ætla að fara að forvitnast. -Abb babb babb, segjir jólasveinn rétt fyrir aftan þau. -Mamma vill ekki láta trufla sig. Þetta heitir Gymisgarðar. Kamesið hennar mömmu. Alveg prívat og einka. Enginn má gægjast inn. Lok lok og læs og allt í stáli. Lokað fyrir Páli postula og öllum hinum. Einkaleikherbergið hennar. Við megum ekki einu sinni gægjast inn til að forvitnast. Rakni og Þögn líta, felmtri slegin, hvort á annað: Af óhljóðunum að dæma er engu líkara en Grýla sé að stinga óþekkum börnum í poka, eða í pottinn sinn. Þeim dettur báðum það sama í hug: -við verðum að komast inn og bjarga krökkunum. En hvernig? 26


Í fyrsta lagi munu jólasveinarnir varna þeim aðgangi, og svo er þetta greinilega harðlæst. Óhugnanlegu skerandi hljóðin ágerast. Rakna og Þögn rennur kalt vatn milli skinns og hörunds. Jólasveinarnir bjóðast nú til að syngja fyrir heilagan Nikulás. Hann þiggur það. Hann á von á jólalögunum fallegu, en þeir syngja fyrir hann: Grýla hét tröllkerling leið og ljót með ferlega hönd og haltan fót, í hömrunum bjó hú og horfði yfir sveit, var stundum mögur og stundum feit. Á börnunum valt það hvað grýla átti gott, og hvort hún fékk mat í sinn poka og pott. Ef góð voru börnin var Grýla svöng og raulaði ófagran sultarsöng. Ef slæm voru börnin varð Grýla glöð, og fálmaði í pokann sinn fingrahröð, og skálmaði úr hamrinum heldur gleið, og óð inn í bæina beina leið. Þar tók hún hin óþekku angaskinn og potaði þeim niðr’í pokann sinn. Og heim til sín aftur svo hélt hún fljótt, undir pottinum fuðraði fram á nótt. Um annað sem gerðist þar enginn veit, en Grýla varð samstundis södd og feit. Hún hló svo að nötraði hamarinn, og kyssti hann Leppalúða sinn. Svo var það eitt sinn um einhver jól, að börnin fengu buxur og kjól, og þau voru öll svo undurgóð að Grýla varð hrædd, og hissa stóð. En við þetta lengi lengi sat 27


í fjórtán daga hún fékk ei mat. Þá varð hún svo mikið veslins hró að loksins í bólið hún lagðist og dó. En Leppalúði við bólið beið, og síðan fór hann þá sömu leið. Nú íslenzku börnin þess eins ég bið, að þau láti ekki hjúin lifna við. Heilögum Nikulási er ekki skemmt. Hann þolir ekki svona heimsku. Rakni og Þögn eru með athyglina á lokaða kamesinu. Er raunverulega til Grýla? Er hún í alvöru að éta óþekk börn? Óhljóðin gefa eiginlega slíkt til kynna. Auðvitað vita allir að grýlusögur eru til að hræða börn svo þau gegni, og auðvitað vita allir að ævintýri eru ekki í alvöru, og auðvitað vita allir að skápar fljúga ekki, og Óri dvergur í hólnum er ekki til, skessa sem kemur trampandi er kannski móðir náttúra, mýs tala ekki, en þegar maður er búinn að sjá þetta allt, fer manni að detta í hug að Grýla sé til í alvöru. -Vertu nú ekki að vola þetta meira, heilagur Nikulás biskup i Mýrinni, segja jólasveinarnir. -Manstu ekki þegar litla telpan fékk hráa kartöflu í skóinn, fór með hana fram til mömmu sinnar, alsæl á svip, og sagði: -Mamma, sjáðu hvað hann gaf mér!! Viltu sjóða hana fyrir mig og gæta þess að hún ruglist ekki saman við venjulegu kartöfluna. Elsku besti. Óðinn lenti í heilmiklum hremmingum líka. Hann er Jólnir um jól. Það er líklega búið að rugla þér saman við Óðin, Nikulás minn. Einn grautur. 28


Óðinn þyrjar yfir himininn og rekur brott vættir kulda og myrkurs um vetrarsólhvörf, um jólaleytið. Börnin gefa hreindýrinu hans hafra og hey svo það hafi nógan kraft. Þetta er hin eiginlega jólagjöf, sko, að krakkarnir gefa. Krakkarnir hjálpa hækkandi sól, flýta fyrir vorinu. Ekki þetta óskalistabull og þetta að heimta og heimta gjafir. Skilurðu? Börnin gefa, hjálpa -- eða -- börnin heimta og fá og fá og fá. Nú skulum við koma í leiki. Hresstu þig nú upp, kæri Mýrarbiskup. Við kunnum 432 leiki. Krakkar hafa svo mikið gaman af leikjum, og þú vilt gera eitthvað fyrir krakka, ekki satt? En heilagur Nikulás, biskup af Myra, er ekki í stuði til að fara í leiki. Hann þarf enn lengra sálfræðiviðtal útaf þessu kartöflumáli sem hann er svo sár útaf. -Þá það. Förum bara í leiki og þú getur horft á. Það er það besta sem hægt er að gera þegar maður er á bömmer, bara fara í leiki. KLUKK bera á gullstól beygjuborg blómsveigur (að knýta blómsveig) bimm bamm bimm bamm bimbi rimbi rimm bamm --- (með sínu lagi) blikkleikur blikkmorðinginn boltaleikir, sóló, danskur, kýló ofl 29


brennó buxurnar hans afa búleikur bílaranda borgarleikur bófahasar blettur á peysunni þinni brandari búðarleikur búningaleikur blindingjaleikur, blindkrækluleikur (á fortófinu) baunabyssuslagur bilað útvarp burtreiðar (=riddaraslagur) brennivínsskál = steinbítstak = þrælatak Bolli heima? bjölluat (með heftiplástur) bóndabeygja búa til bát úr bréfi danskur

(boltaleikur með mörgum boltum, við vegg) dimmalimm (1, 2, 3, 4, 5, Dimmalimm) dolluloksskot / dollukeiluspil draugasaga drullumall (+ með lambaspörð sem rúsínur) dúfuleikur (ég skal gefa þér gull í skel ... silki í stél)

Hvinur mikill heyrist fyrir utan hellinn og bjölluhljóð. 30


-Óðinn kominn !! kalla jólasveinar. Þeir þjóta fram að hellisopinu, glápa upp í himininn, Rakni og Þögn á eftir og glápa líka upp til að vita hvað jólasveinarir halda að þeir sjái þar. Santa stendur nú rólega upp af bekknum í sínum hvítu heilagramannaklæðum, og gengur virðulega fram að hellisopinu og bætist í hópinn. Í fjarska uppi á himninum sér í hreindýrasleða sem þyrjar yfir himin í átt að hellinum með bjölluhljóm og stjörnujóreik, kemur nær, og lendir svo mjúklega við hellinn. -Ho ho ho! segir Óðinn. -Blessaðir allir, öll meina ég, því hér er fröken Þögn í heimsókn! Þú hér, blessaður Nikulás. Lang síðan við höfum hittst. Ferðalangur vaknar, opnar kistulokið, bröltir upp úr fatahrúgunni, og fer að forvitnast: -Aha, mig fá ókeypis gratís ferð með hreindýrsleðið. Jólasveinarnir stynja þegar þeir sjá ferðalanginn: -Þú hér enn Furðulangur! Allir orðnir hundleiðir á þér! Santa Klás minn, vertu nú góður og gerðu góðverk og gerðu okkur greiða: finndu Velkommin tillann fyrir furðumanninn. Hann er alveg óþolandi í þessari velkommen-tillaleit sinni. Nú sést í nokkurri fjarlægð að Óri og afi koma gangandi. Það sést á göngulaginu að þeir eru ekki kátir. Þegar þeir koma nær sést að þeir eru mjög mjög mjög óhressir á svipinn. -Hvað með skápinn, afi, spyr Þögn? 31


Afi hristir höfuðið, og svipurinn á afa segir meira en nokkurt orð. Óri heldur á stórum rauðum efnisstranga, og segir: -Ég fór víst með vitlausa galdraþulu yfir skápnum, og hann breyttist í rauðan efnisstranga. Ég er ekki alveg viss hvernig á að galdra rauðan efnisstranga til baka í fljúgandi skáp. Nú líta allir hver á annan. Enginn kann að galdra rauðan efnisstranga til baka í fljúgandi skáp. -Er Leppalúði nokkuð heima? spyr Óri. -Eða Skírnir. Mig vantar tamsvönd, sem ég held að þeir lumi á einhvers staðar. -Já, pabbi er heima, en hann er sofandi. Hann er svo ástfanginn af mömmu, alltaf að reyna að ná athygli hennar, en hún er upptekin af sínum leikjum og má ekkert vera að að sinna honum, svo hann er á algjörum bömmer. Skírnir er í reiðtúr. Hann er að gefast upp á að tjónka við mömmu. Hún er á kafi í sínum leikjum og nennir ekkert að hlusta á hann um eitthver guðlegt innsta eðli hvers og eins, og einhvern lognfara lund Barra, sem hún veit ekkert hvar er. Vill ekki annað gull en sitt, vill ekki epli aðeins það sem hún hefur að éta. -Þetta er nú heilmikið klúður, Óri. Ekki flýgur stranginn, er það? -Nigg, svarar Óri. -Búnir að prófa það. Settist klofvega á hann og fór með þuluna góðu, en ekki gekk rófan. Ætla að reyna að sauma flugföt á alla sem þurfa að komast leiðar sinnar. Náttúran getur ekki hafa glatast úr honum. Þeir bera rauða stóra efnisstrangann inn í hellinn, stumra yfir honum, og reyna að finna einhvern flöt á þessu máli. 32


-Við getum þá bara saumað flugfötin úr þessu, segir Óri. Nota skal það sem hendi er næst, og hugsa ekki um það sem ekki fæst. -Heldurðu að maður geti flogið ef maður fer í þau? Rakni og Þögn læðast frá þeim og að fylgsni Grýlu. Þegar þau koma nær finna þau út að þaðan heyrast ennþá ógnvænlegri hljóð en fyrr. Skerandi óhugnaðarhljóð. Þau læðast nær, hlusta, athuga hvort hurðin sé opin, Rakni hnerrar, þau líta við: Jólakötturinn stendur fyrir aftan þau og urrar: -Enginn má fara hér inn, asnarnir ykkar, hvæsir hann. -Júhúú!!, heyrist ofan af bita. Það eru mýsnar sem eru að láta athygli kisa beinast að sér. -Auðvitað! hugsa Rakni og Þögn bæði í einu. -Við biðjum mýsnar um að njósna um hvað hér er að gerast. En hvernig losnum við við köttinn? -Júhúu! En við erum búnar að stela svo miklu af grjúpánum að við getum ekki hreyft okkur. Gersamlega afvelta hér uppi á bita. Og þær flissa stríðnislega: -Kisi kemst ekki upp, kisi kemst ekki upp! Kisi fór í fýlu á laugardaginn var fór til hennar Grýlu, og skeit í buxurnar (með sínu lagi). -O, hvíslar Þögn að Rakna. -Ekki líkur til að þær nenni að hjálpa okkur.

33


Jólasveinarnir nenna nú ekki lengur þessu með rauða strangann, en Óri galdrar sér saumavél og saumar búninga í gríð og erg á alla, -- nema köttinn. Hann vill ekki húfu. Segist hafa sinn hlýja feld, og hana nú. -Áttu hana? Svona gaggalagó alvöru hana? spyr Þögn köttinn. En hann setur upp snúð og svara ekki.nema: -Þú skilur ekki baun í bala.

Skilur ekki neitt. Skilurðu það eða skilurðu það ekki? Ef þú skilur það ekki skilurðu ekki neitt -- skilurðu það? Óri er galdralega fljótur að sauma. Saumar föt og húfur úr rauða efnisstranganum, og puntar með ullarlögðum. Afi er svo mikið sætur og krúttaralegur í rauðu fötunum. Hann brosir útað eyrum. Svolítið jólasveinalegur, en þetta klæðir hann svo vel. Einkum dúskhúfan. -Vilt þú ekki líka betri föt, herra Nikulás? -Þú ert svo illa búinn, spyr Óri. Ertu ekki frá Tyrklandi? Þessi tyrknesku hvítu helgramannaföt henta einfaldlega ekki hér norður á Íslandi um hávetur. Jólasveinarnir fara í leiki á meðan Óri saumar úr þessum endalausa stranga, nema hvað einn og einn jólasveinn þarf að koma að máta. KLUKK ein bóla á tungu minni ein sit ég og sauma -- (með sínu lagi) eitur að stíga á strik eitt ber í kopp ég á sokk sem gat er á eitt strik og sto/staa/stå 34


ertu hræddur...

eldspýtnahrekkur eitt par fram fyrir ekkjumann ella mella kúadella kross Gullfoss enika menika (þrjár útgáfur) (..við svona stóran fisk; ...mömmu þína) ég líka englar í snjónum ein króna fyrir mig

fagur fiskur í sjó fallhlíf fallin spýtan fataleikur fatapóker fela hlutinn (heitur/kaldur; fugl/fiskur; humma hærra/lægra) feluleikur fimmaurahark fleyta kerlingar flétta saman tvær stelpur flækja (flækja saman krakka) flækja (flækja band um fingur og leysa með einu handtaki) flöskustútur fóstbræðralag fram fram fylking (+reipitog); -- (með sínu lagi) frels / frelsaður (stíga milli fóta) Frímann fór á engjar -- (með sínu lagi) frosinn (klukkaður frýs) frúin í Hamborg 35


fuglafit (fyrir einn) fuglafit (fyrir tvo) fuglaleikur, fuglasalinn fæddur, skírður,... föt barna fingragoggur (hvað viltu vita?) Gandhi gerið einsog ég (/einsog við), rétt, rangt gluggaparís gulur, rauður, gekk ég yfir sjó og land -- með sínu lagi gefa langt nef gefa tvíböku gettu hver er gettu hvaða staf ég skrifa á bakið á þér gabba (kríta á bakið) gullstóll góður skrifari? /vingsandi hönd greiparsvunta goggur göngum við í kringum -- með sínu lagi gjugg í borg Grýla píla appelsína

36


Óhugnanleg hljóð heyrast enn úr fylgsni Grýlu, og Rakni og Þögn eru staðráðin í að komast þangað inn og skakka leikinn. Þau spyrja saumandi Óra og afa í jólasveinabúningi hvort þeir hafi einhver ráð til að komast inn í þetta fylgsni sem jólasveinarnir kalla Gymisgarða? Afi hristir höfuðið vonleysislega: -Skírnir reyndi að gefa henni hring, sjálfan Draupni, en hún nennti ekkert að hætta sínum leik til að hlusta á hann. Óri svarar: -Það má reyna ópa og tópa, tjösul og óþola. -Hvað í ósköpunum er nú það!!? spyr Þögn. -Já, ósköp, svarar Óri, og hristir höfuðið eins og afi -- sem segir meira en mörg orð um vonleysi og úrræðaleysi. -Hættið þessu bara, segja jólasveinarnir. -Óskaplega vitlaust að vera að óskapast yfir þessum ósköpum og reyna Skírnis galdra. Komum frekar í fleiri leiki: hanaslagur handleggsbrot (að plata feiminn strák) henda hnykli hlaup fyrir horn hlaupa í skarðið hollinn skollinn skítt’ í hverju horni (/-sitt í hverju horni) hnefabardagi hollí hú horfumst í augu hryggspenna hvað erum við að gera? hve margar árar eru á borð? 37


hvar býr hún Nípa? hugsanalestur (að finna myndina á veggnum) húlahopp höfrungahlaup hæ, gosi hljóðlíkingaþýðingar (vitþjófur, svuntuþeysir...) hrossagauksspá hnífaparís hnapphelda háhestur (á háhest í sundi) halann á asnann halaleikur (sjá: húfuleik) hossa barni á ristinni -- vísur og lög við hringaðan orm eða sólbakaða köku? hreppstjórabeygja hryggbrot hún Þyrnirós var bezta barn -- (með sínu lagi) hvar viltu sitja (/sæti) í kirkjunni(/bíó)? hve hátt á sá sem grúfir að telja? (pota í bakið) henda á milli Helgi hvíti Hans í koti heilsa kónginum hlaupa fyrir horn hérahjónin (uppi á grænum ...; -- með sínu lagi) hefurðu alist upp við þennan? þá brúkarðu þennan hafnarleikur höfrungahlaup 38


hvísligabb (hvísla að einum tómu bulli) hvíslhrekkur (öskra í eyra) hvíslleikur (margir; verður óskiljanlegt) hvort viltu launa fund minn eða gefa? inn og út um gluggann -- (með sínu lagi) í grænni lautu -- (með sínu lagi) í skóginum var kofi einn -- (með sínu lagi) í sjómann / í sjómann með logandi kerti í krók indverskur galdramaður (að breyta samanhnýttu bandi í heilt í munni sér) járnbrautarlest japanskur leikur (steinn poki skæri) kalló / karlaparís / kerlingaparís / tröllaparís klapp hægri / svenska klukkleikur / síðasta komdu nú að kveðast á -- (með sínu lagi) / skanderast kross og hringur króa (króa á skautum á tjörninni) krókur kyssa kónginn / kyssa kóngsdóttur / lófaleikur kýló / kýlubolti / slagleikur köttur á mús (+ afbrigði) kattaleikur kemur maður gangandi (1.....lofa sér að vera...; 39


2. ...bankar á dyrnar..) kerlingarklof kvalaleikur klippikarla-stríð kollhnís og steypa krukku kleppari kleina (taka krakka í kleinu) kinnhestur kyssa bækur á gólfinu kyssa bók (strákur og stelpa) kýrin sem fór yfir á gulu kráka sat á kvisti (sjá: ugla sat á kvisti) kveðast á = skanderast landaparís

(þrjár útgáfur (inni, úti, með hnífum) lotulengdarkapp lyfta til skýja legg í lófa karls karls karl skal ekki sjá langt nef (svona heilsa ég kónginum...) lófaleikur lygaramerkið litlu andarungarnir -- (með sínu lagi) legg í lófa karls karls.. limbó lyfta bréfsnifsi með greiðu landhelgisleikur /Islands Falk /að rúlla gjörð/ troll troll fiskerí léttir handleggir launa fund minn eða gefa 40


ljón (allir að hugsa sér dýr) löggubófa (og kabboyleikur og stikkaná) látbragðsleikir ljót heilræðavísa Auðvitað er gaman í leikjum. Fullt af nýjum / gömlum leikjum sem hægt er að læra. Jafnvel andstyggilegir hrekkjaleikir. Nikulási biskupi hinum heilaga af Myra þykir ekki gaman að hrekkjaleikjunum. Hann vill að allir séu góðir. Óhljóðin úr fylgsni Grýlu láta Rakna og Þögn ekki í friði. Þau setjast á fatakistuna sem er þarna. Þá er bankað í lokið undir bossunum á þeim -- og þau hrökkva í kút. Hér er allt í göldrum og forneskju, svo það er auðvitað það fyrsta sem þeim dettur í hug: eitthvað óraunverulegt í kistunni! Þau spretta á fætur lokið opnast hægt það er einsog fatahrúgan sé lifandi! Þau hörfa afturábak. Hvað kemur uppúr þessari kistu??! Þarna hreyfast gömul föt, svo sem kot og klukka. Kotið er hneppt að aftan, klukkan er prjónuð ullarnærflík. Föt sem Rakni og Þögn hafa ekki fyrr séð. Brátt kemur eitthvert hrúgald upp úr kistunni, rétt einsog úfinn skítugur draugur, í stærra lagi, sé að reyna að brölta uppúr kistunni. Í ljós kemur loks að þetta er grútsyfjaður ferðalangurinn, hann Furðulangur, sem spyr syfjulega hvað klukkan sé: -Mig hræddur þegar þið setjast oná lok. Mig fá klástrófóbíu, innilokunarkennd. Mig sofa rótt í fatahrúgu. Ókeypis. Þið hræða mig með að hlamma ykkur oná lokið. Ég með klástróinnilokunarfóbíukennd. 41


Þarf að komast í bað. Er Grýla með heitapott?. Góður heitipottur alltaf á Íslandi. Það standa í ferðamannapésar. Pési aldrei skrökva að ferðamenn. Jólasveinn hlær: Klástró-fóbíu! Hélstu að þú værir kominn í klaustur? Klaustra-ótta-sleginn? Nú fá Rakni og Þögn hugmynd: þau segja Furðulangi að hægt sé að fá ókeypis bað í heita potti Grýlu með því að komast inní fylgsnið hvar undarleg hljóð heyrast, en enginn leið að finna dyr. -Ekki reyna, segir jólasveinninn. -Mamma kemur út til að komast í jólapartíin hjá krökkunum. Sérstaklega Gerðargleðina. Þar vill hún leika aðalhlutverkið. -Grýla í jólaboð?!! spyrja Rakni og Þögn furðu lostin. -Rosa fjör, svarar jóló. -Áfram í leikina: maddama kerling fröken frú (telja hnappana á manni) mamma, mamma má ég? mylla myndastyttuleikur meyjanna mesta yndi það er að eiga vin -- (með sínu lagi) mömmuleikur múnderingar (= fataleikur) má ég greiða þér?

--

njólaleikur / njólaslagur (mótekja í Vatnsmýri fyrir öld, svo njólaskógur fyrir hálfri öld, nú Kringlan) 42


nútíma draugasaga ná í sæti njósnaleikur nú skal segja -- (með sínu lagi) Nípa (hvar býr hún Nípa, fyrir sunnan garð, hvað gefur hún gestum. sem að garði ber..) nafnaleikur óskastund

(ef tveir segja óvart sama orð samtímis; krækja saman litluputtum) Óli prik (...og nú er hann klár) ólystarsögur (súpa á hrákadalli ofl) óskabein úr fugli

p-mál pantleikur (með þrautum) paradísarleikur (/parís: glugga-, landa-, trölla-, kalló) pilla pilla akur, kóngsins akur (/skessuleikur) pílaranda (sjá: bílaranda) presturinn í stólnum + kórinn að syngja púa (í hálsakot á smábörnum, og gegnum fötin) puðra poki í roki punktur punktur komma strik (Óli prik með tippi) píluslóð / rekja píluslóð rúlla (heimasmíðuð, með kerti, leikið sér á Skólavörðuholtinu) rúlla gjörð (Islands Falk uppúr 1900) /skoppa gjörð 43


refskák riddaraslagur (afbrigði: með spýtu undir hnésbæturnar) ríða ofan páfann (riddaraslagur) rífast um boltann róa á selabát ; selir valkóka -- (með sínu lagi) rúgbrauð eða fransbrauð? rekja píluslóð rófubolli rómverskur riddari reið inn í Rómarborg....... sumartunglsspá skinnpjötludýr 7 (íslenzkar) jurtir fyrir jónsmessunótt undir koddann sokkar undir koddann yfir nóttina: verður gleyminn segðu hemm segðu krít sippa / svippa eftir reglum snú snú (sippuband sem tveir snúa, aðrir hoppa í röð) S-mál stafagáta í vísu saltabrauð (salt og brauð) síðastaleikur síðastaleikur á stultum (uppúr 1900) sitja til borðs með kónginum (sóthrekkur) skoppa gjörð sjóorrusta spil klemmt á gaffalinn á hjólinu skjóta fugla 44


skollaleikur spinna með tölu stå / hlaupasto sjómannabarningur snúra (föndur) snúa snarkringlu Stebbi stóð á ströndu stikk seinn poki skæri snjósokkaleikur stífudans stígðu ekki á disk (bundið fyrir augun) stórfiskaleikur skipta ástum selbiti = sölbiti sippsippanipp og skratstratarat sígarettuhrekkur sígarettutöffarar sjómaður (+ m. logandi kerti) skandering / skanderast = kveðast á skessuleikur skipun frá kapteini (allir í bátana......) sæll vertu, faðir minn (látbragðsleikur) skrykkur sögugabb (sagan af henni Sönn..... sagan af honum Skugga...) smella á bossann (í fagur fiskur í sjó) skjóta fugla stríðnileikir 45


skírnarveizlan (presturinn dettur þegar hann sezt) spegilskrift steypa siflurhnappa stikkfrí sunnudagur mánudagur (á hvaða degi giftirðu þig; klípa í lærið) svenska (klapp hægri, klapp vinstri) stórfiskaleikur sviðaklof stígur hann við stokkinn -- (með sínu lagi) stikkfrí -- á silkikjól snúra skriðdreki úr tvinnakefli slagbolti = kýló steypa krukku og kúsa (sjá: kollhnís) sóló (= danskur; boltaleikur með mörgum boltum, eftir reglum) sparka á milli skraddaralús skjóttu Kobba sjóorrusta stífudans så væver vi vammen (vadmel), så slår vi det sammen -- (með sínu lagi) sprengja bréfpoka sætaslagur (= ná í sæti) smella pening á búðarborð (gabb)

46


Rakni og Þögn toga Furðulangan laumulega með sér í átt að Gymisgörðum, harðlæstu fylgsni Grýlu. Hann verður spenntur í óhljóðunum: -Flottur söngur! Eða er þetta tölvugert? Er heitipottur hér inni. Ég komast inn. Mig skítugur. En ekki borga. Vilja fá allt gratís og ókeypis. -Kostar ekkert, fullvissa Rakni og Þögn hann um. -Ekki neinar dyr? spyr Furðulangur. -Þarf að klatra og klifra uppá þak og stinga sér í heitipottur ofanfrá? Mig alveg til í það. Jólasveinn stendur nú fyrir aftan þau og segir: -Ekki trufla mömmu!! Jólakötturinn situr þarna og mænir á afvelta mýsnar sem átu yfir sig af grjúpánum: -Ertu of feitur og latur til að komast uppí rjáfur? spyrja mýsnar stríðnislega. -Eða ertu einsog Mikki refur: bíða eftir að við dettum niður? Við dettum ekkert niður!!! En við hefðum gott af því að trimma svolítið eftir matinn. Ekki endilega gott að sofna eftir ofát. Ertu til í smá eltingarleik? Rakni og Þögn spyrja mýsnar hvort þær komist inn í fylgsni Grýlu. Það sé mjög áríðandi að komast að því hvað hún sé að aðhafast. -Ekki glufa! Ekki glæta! svara mýsnar. -Okkur líst ekki á svona útburðarvæl. Jólakötturinn nennir nú ekki að bíða lengur eftir að mýsnar detti onaf bjálkanum. Hann byrjar, letilega þó, að klifra upp í átt að músunum. -Allir í leik á meðan kötturinn er að reyna þetta, segir jólasveinn. -Kötturinn er það latasta af öllu lötu, svo þetta tekur tíma. 47


taka af nefið (sjá: greiparsvuntu) taka af sér putta (galdrakerlingin) tefla með priki (uppúr 1900) teika (hanga aftaní bílum í snjó) teygjutvist tinge linge later, tinsoldater tíeyringur í hveitiskál Tígrisklóin 10 20 (hoppi-parís) 10 20 (smábarnaleikur) tombóla tólfkóngaleikur tröllaparís tveir teikna túttubyssa (pelatútta eða fingur af gúmmí hanzka) talnaþraut (hvað tölu hugsaði ég mér) tvíbaka bolla kringla krans, þetta gefur hún Imba Brands úbbala abbala mál ugla sat á kvisti úllen dúllen doff upp að hverju á sá sem grúfir að telja (putta í bakið) uppi á grænum grænum himinháum hól -- (með sínu lagi) uppnefni (Gulli pulli skíta rulli, Anna panna skíta ranna, Siggi piggi skíta riggi...) vega salt 48

(1 á spýtu á tunnu;


2 á bakinu hvor á öðrum) vefa vaðmál / så væver vi vammel -- (með sínu lagi) vefaradans = vindum vindum vefjum band verpa eggjum valhopp veiðimannahnútur við skulum ró’á selabát (með sínu lagi) vingsa hendi /= ertu góður skrifari? viðstöðulaus (1 og 2) völuspá yfir ýlustrá þekkirðu þennan?

= hefurðu alizt upp við þennan? þessi datt í sjóinn þrautakóngur þreyta Þyrnirós -- (með sínu lagi) þönglastríð

Öskupokar

(Höldupottur bróðir minn)

Furðulangur gengur hringinn í kringum fylgsni Grýlu til að leita að inngöngudyrum, sem ekki virðast vera til staðar hér. Aðeins vafurlogi allt um kring sem enginn kemst yfir -- nema það væri þá Skrínir á hesti Freys. Furðulangur fer þá að leita að stiga sem hann ætlar að reisa upp til að athuga hvort ekki sé þakgluggi sem hann getur smeygt sér innum. 49


Hvað gerir maður ekki til að komast í ókeypis bað í heitapotti á Íslandi? Kettinum hefur tekist að klifra nærri því upp á rafta, feitur og latur sem hann er nú. Músunum fer ekki að verða um sel, því þær eiga við tímabundið ofátsvandamál að etja. Þora ekki annað en forða sér, þótt þær nenni nú helst ekki að róta sér úr makindunum. Agara gagara, illt að hafa ketti. Hefst nú eltingaleikur mikill: Bumbumiklar ofsaddar mýs hlaupa sem mest þær mega, og latur klunnalegur kötturinn á eftir. Rakni og Þögn búast við að þetta endi með ósköpum, en raunar tekur sagan óvænta stefnu hér og nú: Kötturinn spólar á beygju við að reyna að hlaupa á eftir músunum, rennur á hliðina á mikilli ferð, -- skriðurinn er þungur á svona finngálknsflykki. Kötturinn á hliðinni rekst í fylgsnið Gymisgarða, sem hrynur einsog af tilviljun. Var ekki svo rammgert sem við höfðum áætlað. Það fellur í spón. Grýlu bregður þar sem hún situr við tölvuna sína. Lítur við, snöggt, og við sjáum hver hún er. Ennfremur kemur í ljós hvað Grýla var að gera sér til afþreyingar allan tímann: Gerður var í tölvuspili í kamesinu sínu: -Ég læsti, til þess að jólasveinarnir kæmust ekki inn til að trufla mig. Þá hefðu þeir líka endilega þurft að komast í tölvuna mína. 50


-- Sem raunin verður á þegar jólasveinarnir sjá tölvuna: Þeir flykkjast inn og rífast um hver fær að fara í tölvuleik. -Heyrið mig nú! segir Gerður við jólasveinana. -Nú er að koma Gerðargleði. Hegðið ykkur sæmilega, piltar mínir. Þið eruð virðulegir forfeður barnanna. Verðið að vera sæmandi fyrirmyndir. Börnin bíða eftir okkur. Rakni og Þögn stara á Gerði, fallega, unga og glaða. Það lýsir af örmum hennar, kamesið Gymisgarðar er fallegur salur ríkmannlega skreyttur. -Eru jólasveinarnir forfeður okkar, fröken Grýla? -Auðvitað, börnin góð. Matargjafir til forfeðra voru bannaðar, svo við sögðum bara að jólasveinarir stælu mat og kertum. Skammans sveinarnir! Sumir trúðu þessari snjöllu lygi. Og svo héldu allir áfram að setja út matargjafir til forfeðranna. -Ég er Gerður Gymisdóttir, segir þessi fagra meinta Grýla. -Ég hef lifað í dulargervi í nokkrar aldir. Þegar Gerðargleði var bönnuð, fór ég í dulargervi sem Grýla, og börnin eru alltaf spennt að vita af mér um jólin. -Farið nú að vekja Leppalúða, greyin mín, segir Gerður við jólasveinana. Hann má ekki missa af Gerðargleðinni. Hann hlakkar alltaf jafn mikið til að hitta mig í Barra, lognfara lundinum. Athugið hvort hann er ekki í Hliðskjálfi einmitt núna. Það kemur uppúr kafinu hver Leppalúði er í raun: Freyr stígur niður úr Hliðskjálfi. 51


Gerðargleði, Skírnismál (handrit handa börnum):

http://www.mmedia.is/odsmal/fornu27apr09/08FreyrSkirnirGerdur.pdf

einnig til á ensku: http://www.mmedia.is/odsmal/skirnismal.shtml einnig útprentun hjá Freyjuköttum (5528080 6941264) -Ég skal skutla ykkur til byggða, segir Óðinn. Óðinn heldur áfram -- segir upphátt það sem hann er að hugsa: -Heilagur Nikulás, biskup af Myra, þessi föt eru nú ekki hentugur búningur fyrir sleðaferð í háloftum hér norðurfrá, hmmm? Þótt þú sért kominn í Órasaumuðu fötin rauðu. Við´þurfum að bólstra þig svolítið með einangrunarlagi úr ull. Látum heilt ullarreifi um þig undir Órafötin. Hér eru ullarháleistar og fjósastígvél handa þér. Getum límt á þau ullarlagð til að gera þau flott. Svo nú lítur þú, heilagur Nikulás, út einsog Santa Klás á að líta út! Nú ertu sko flottur, vinur, hohoho, segir Óðinn. -Kominn með bumbuna! -Segðu nú bara hohohohoho! Það þykir hreindýrinu mínu svo skemmtilegt. Og heilagur Nikulás, biskup af Myra, segir hohoho, brosir, tekur gleði sína á ný -- og sezt uppí sleðann hjá hinum. Þau þeysa til byggða, til barnanna sem bíða Gerðargleðinnar. Börnin sem bíða eftir jólunum sjá Óðin þyrja um himininn til að reka brott vættir myrkurs og kulda. Það gerir hann á hverjum jólum. Það vita börnin á norðurhveli jarðar. Hann er Jólnir. Og loforð um vor er jólagjöfin með hækkandi sólu eftir vetrarsólhvörf. Börnin bera út hafra og hey handa hreindýrinu hans Óðins svo það hafi mikinn styrk. Þessi siður hefur lifað í gegnum aldirnar. 52


Allt lífsviðurværi á norðurslóðum veltur á því að við fáum brátt vor eftir hvern vetur. Hreindýrið svarar börnunum með klingjandi bjölluhljómi. Ekki er nóg rúm í sleða til að fara í leiki, svo jólasveinarnir þylja allt mögulegt sem þeir muna: Brandur Ari kynslóði er í KLUKK-deildinni, þekkið ið ekki hann BrandAra? allt í plati rassagati skílt og skófir og allt sem er í koppi kerlingar og karl ber út á reku sinni 20 eru á þér tær og fingur amma þín hvað ertu með tannpínu í tánni? hvort viltu hafa 7 göt á hausnum eða 1 á tánni? halló manni, allt í ganni blessaður unginn með blóðrauðan punginn það sem forvitinn má ekki vita allt í þessu fína frá Kína -Hvað ertu að borða? -Hangikjöt. -Hver gaf þér? -Frúin .-Gef mér bita að bíta í .-Nei ég er alveg búinn. styr til að stinga í rassinn á þeim sem spyr farðu í rass og róf og ríddu grárri tóu á hvað ertu að glápa einsog eldgömul sápa á gólfinu skulu góðu börnin sitja Siggi greyið skeit í heyið Valdi kaldi með kúk í haldi 53


sæll, skíthæll Jóna fór í fýlu á laugardaginn var, fór til hennar grýlu og skeit í buxurnar landið er fagurt og frítt en fólkið er asskoti skítt elskaðu friðinn og strjúktu á þér kviðinn iss piss hí á þig ég mana þig einsog morkinn hundaskít -það er ekki maður sem ekki þolir man haltu kjafti snúðu skafti híum á hann ullum á hann tíkó púkó halló lummó klappa saman lófunum, reka féð úr móunum, vinna sér inn bita, láta ekki hann pabba sinn neitt af þessu vita blettur á peysunni óknýttur skóþvengurinn hvað vilt þú uppá dekk sem ekki kannt að hífa sekk hí! opin búð -vill einhver kaupa pulsu og vogt djús? ekki rassgat í bala mikið var að beljan bar í buxurnar á honum Valdimar og uxu þar gríslingar maðurinn með hattinn stendur upp’ við staur borgar ekki skattinn því hann á engan aur hausinn on’í maga magann on´í skó reima svo fyrir og kasta útí sjó (með sínu lagi)

54


fyrir utan gluggann stóð hestur á beit hann hneggjaði til mín um leið og hann -- kúkaði

(með sínu lagi)

segðu hratt aftur og aftur : Hans í koti segðu hratt aftur og aftur: Helgi hvíti segðu krít - éttu bláan barnaskít seðgu hemm - skítt’á hlemm átti þetta að vera ástarkúla eða hvað ertu viss, í félaginu kúk og piss svara í símann : -skakkt númer góðan dag; ég er ekki heima góði, hvað ertu að rífa þig passaðu að ég hnerri ekki (við e-r lítinn (þú gætir fokið um koll)) ég ætla að innrétta eftir mínu höfði -verður það ekki voðalega tómlegt? iss, þetta grær áður en þú giftir þig ha? -ni á priki ertu með æðiber í rassinum bítt’ í bonnið á þér viltu vera memm frá frá Fúsa liggur á 1, 2 og nú enika menika súkkana dí ég mun koma enn á ný

55


eniga miniga súkkata mæ on donn dúnn dæ ís fas sfaniga ní stikkel stakkel sto frí (heimildarmaður Grímur Helgason handritafræðingur; /Austfirðir)

eniga meniga súkkana dí obel dobel domm og dí æns klæns ísla bisla topp stopp (heimildarmaður Lilja dóttir Eldeyjar-Hjalta, /Reykjavík)

úllen dúllen doff kikke lane koff koffe lane bikke bane úllen dúllen doff ég á sokk sem gat er á far þú frá æ, góði farð’í bað eitur að stíga á strik jedúdda mía í bíó: -er hlé, Barði? -já, fáum okkur ís, Björn eru verkir með þessu? fylgir þessu hiti hrekkjusvín! ekki baun í bala / ekki rassgat í bala -ertu með úr? -nei, það er of kalt núna 56


-hvað er klukkan -korter yfir handlegg -hvað er klukkan? -hana vantar -hvað er klukkan? -málmur og gler og mælitæki tímans sem tifar í rassinum á þér Tumi karl er þumalfingur bimmsala bimm stopp stopp stýrimanni er mál að kúka allt í læ kemur allt með kalda vatninu eftir því hvernig kaupin gerast á eyrinni tala ekki við seglskip ég get hoppað hærra en húsið (sýnir: hoppar smá) því húsið getur ekki hoppað segjum tvö (bæði í einu: tvö) einn tveir og sjö haltu kjafti snúðu skafti Dúddi feitabolla, Stebbi gleraugnaglámur, Mummi rauðhaus, Dóri slor með grænan hor og hatt grenjuskjóða kuldaskræfa fleiri hundruð og fimmtíu bjölluat: líma heftiplástur á bjölluna og hlaupa svo burt lasinn fárveikur steinauður (stigbreyting) ég skal finna þig í fjörugrjótinu

57


hollinn og skollinn (frb: hoddlinn skoddlinn) sittu í hverju horni (sitt í, eða skíttu í) ekki skaltu ná í mig fyrr en á laugardagsmorgni ( -- úti í horni) 10 fingur upp til Guðs uppá það ég skal ganga aftur á bak uppá það - gengur mömmu þína í gröfina stattu úti og nagaðu þröskuldinn, en skildu naglana eftir svei mér uppá alla mína æru og trú farðu niðr´’í fjöru og kysstu hana Söru Gaui fór að gá og ekkert sá rólega æsing, rólegan mysing hvort viltu launa fund minn eða gefa? -launa það ef það er launavert, gefa það ef það er einskis vert spillidolla innipúki frat rassagat halló hundur (sagði kaupstaðarbarnið) ég vil ekki kúamjólk, ég vil flöskumjólk sést uppí 90 hvað er um að ske? manni manni hjólin snúast skemmileggja kónguló kónguló vísaðu mér á berjamó þá skal ég gefa þér gullskó á alla þína fætur

58


ergelsi reykelsi skúffelsi bakkelsi pirrelsi svekkelsi hvað ertu að þeyta þig hvað heldurðu að þú ert hvað ertu að ybba gogg hvað vilt þú uppá dekk sem ekki kannt að hífa sekk Morgunblaðið datt í svaðið þá er lítið í það varið allir með strætó allir með strætó enginn með Steindóri, því hann er svoddan ógurlegur svindlari skikkaðu þér hegðanlega góðan daginn glaðan haginn góðan daginn mandals haginn góðan daginn gangið í bæinn, takið ofan hér er stofan kannski takk ég komi takk og skoði nýju baðstofuna yðar takk (nýbúin að læra mannasiði) aldrei má ég ekki neitt DDPA det danske petroleum aksieselskab, á íslenzku: danskur djöfull pínir alþýðuna því miður datt allt það fiður niður sem átti að vera hand yður saltkjöt og baunir túkall týndur og tröllum sýndur / - gefinn lyklar hafa tapast á bandi milli Hafnafjarðar og Reykjavíkur haltu þér saman aftan og framan ofan og neðan og þegiðu á meðan einn góðan veðurdag í vondu veðri hefurðu heyrt það nýjasta -nei -ekki ég heldur biskví a la batterí fransí - vúle vú velta tunnu? fransmenn nota rauðhærða stráka í beitu

59


farð’að sofa blessað barnið smáa (hætt’að vola blessað barnið smáa brúkaðu ekki minnsta fjandans þráa (sýndu ekki minnsta fjandans þráa) haltu kjafti hlýdd’ og vertu góður heiðra skaltu föður þinn og móður ekta pjúr sönlæt sólskinssápa hógítóg allt í keyi sí jú

(pure sunlight soap, stangasápa)

föt í kistu: föðurland, prjónaklukka, kot með sokkaböndum og ullarheilsokkar sangabragð af grautnum hávaði er þetta! ég heyri ekki til sjálfs mín - þú ferð einskis á mis dragðu mig að landi með matinn hvert þó í logandi skraddaralús, biðilsbrot, smjörkaup, flagga, skötufaldur ófrísk af trekk, enginn strompur fyrir storkinn, pantaður úr príslista skiptir engum togurum borgarstjornarfundir snúast um sjálfa sig, menn tala í austur og vestur, (því turninn sem fundirnir eru í snýst; var víst tillaga með Perluna) Þeir rappa dvergatal og Óðinsnöfn ofl. sér til dundurs á leið til byggða: Mótsognir Durinn Nýi Niði Norðri Suðri Austri Vestri Alþjófur Dvalinn Bivör Bávör Bömbur Nóri Án Ánarr Ái Mjöðvitnir 60


Veigurr Gandálfur Vindálfur Þráinn Þekkur Þorinn Þrár Vitur Litur Nár Nýráður Reginn Ráðsviður Fíli Kíli Fundinn Náli Hefti Víli Hannarr Svíurr Frár Hornbori Frægur Lóni Aurvangur Jari Eikinskjaldi Lofarr Draupnir Dólgþrasir Hárr Haugspori Hlévangur Glói Skirvir Virvir Skáfiður Ái Álfurr Yngvi Eikinskjaldi Fjalarr Frosti Finnur Ginnarr

stemmur:

eða

(Auðvitað má rappa þetta ef maður vill!! Færeyingar röppuðu kvæði Egils Skallagrímssonar, og mér skilst að dróttkveðið sé rosalega gott í rapp) Rakni, Hrami, Fornjótur, Húni, Hvati, Butraldi, 61


Húnn, Höður, Hækingur, Sörkvir, Þjazi, Höðbroddur, Hösvir, Höttur, Ölvaldur, Þrasir, Þrasar, Þórhaddur, Þrasi, Þengill, Þjóðrekur, Vöggur, Vígnir, Víghvatur, Víðarr, Váli, Valgautur, Ubbi, Tandri, Úlfhjeðinn, Svipur, Styr, Hæringur, Sváfnir, Snörtur, Nefjólfur, Skefill, Skopti, Ósvífur, Sigar, Refur, Níðuður, Narfi, Nagli, Leggjaldi, Leiknir, Kvígur, Grímúlfur, Kraki, Ísar, Gandálfur, Hávarr, Harri, Föstólfur, Gyrðir, Gellir, Böðmóður, Gamli, Frosti, Dörruður, (smá truflun:) !! einn, syngur hátt með allt öðru lagi: (hinir fipast, byrja á Fo..) Bjössi og Barði vor‟í bíó: „Bráðum verður hlje, Barði”. „Já”, sagði Barði, „förum fram og fáum okkur ís, Björn”. (kvæðamenn líta hver á annan, ekki mjög hressir yfir innskotinu; en koma sjer í gang að nýju) Forni, Fjörnir, Áslákur, Falur, Erpur, Ásröður, Darri, Bófi, Úlfhamur, Bósi, Bassi, Ásmóður, Balti, Bjólfur, Pottaskefill, Blængur, Bjáfli, Askasleikir, Álfarr, Auði, Höggvandill, Þögn, Þorvje, Böðvildur, 62


Böðveig, Ásvör, Gauthildur, Auðna, Vjelaug, Lofnheiður, Vjený, Úlfrún, Ellisif, Mardöll, Líneik, Gluggagægir, Lofn, Jóra, Stekkjastaur, Gefn, Sigun, Giljagaur, Dröfn, Dögg, Skyrjarmur, Dúfa, Álfvör, Hurðaskellir, Fífa, Stúfur, Þvörusleikir, Gáttaþefur, Ketkrókur, Loki, Poki, Faldafeykir, Leppur, Skreppur, Kertasníkir, Þrándur, Þröstur, Bjúgnakrækir, Bolli, Hnúta, Leiðindaskjóða, Koppur, Kuppa, Strokkur, Strympa, Dallur, Dáni, Sleggja, Sláni, -- einn bætir aftanvið: Djangi, Skotta, Sighvatur og Syrpa, (hinir fipast, og horfa með umvöndun á þann er slílbrotið framdi en koma sjer í gang að nýju) Þorri, Fönn, Drífa, Mjöll, börn eru Snæs konungs, egðir, assa, Singasteinn, Vindljóni faðir vetrar, Ránar dætur allar 9, Fenja, Menja, Tanngnjóstur, Byggvir, Beyla, Tanngrisnir, Fróði, Eldir, Fimafengur, Eyþvari, uxar Gefjunar, flýgur Gnáar Hófvarpnir?? Geri, Freki, glatunshundar, Huginn, Muninn, Auðumbla, Endill, Róði, Rifingafla, Rígur, Norri, Grottintanna, Nóri, Nör, Náttar faðir, Urður, Skuld, Verðandi, 63


Ánarr, Ónarr, Heiðdraupnir Gestill, Heimðir, Vindljóni, Hösvi, Snörtur, Hnikuður Vindhljer, Júlfr, Gestumblindi, Forni, Sveigðir, Sveðjandi, Hrami, Gizzur, Jörmunr, Rungnir, Bestla, Geirlöðnir, Sváfnir, Rögnir, Geirölnir, Ginnarr, Kinnarr, Jölfuður, Jólnir, Þundur, Vindófnir, Valtýr, Sigtýr, Gapþrosnir, Ófnir, Hangi, Eylúður, Hangr, Sigtýr, Eynæfir, Vilja bróðir, Váfuðr Svipall, Hrjótr, Unnur/Unnr. (allt í einu kemur önnur stemma) og nú koma nútímanöfn (þessi romsa er samin af íslenzkukennara): Ósk Ýr Dýradóttir gekk rösklega með Brand Ara í ammælið til Egils Daða þurft‘að sækja Loft Stein og Leif Arnar í leikskólann. Borgar Vörður á mót´ þeim tók, hann var pabbi Egils Daða, sem átti jú umrætt ammæli. Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf, Ævar Eiður, Hreinn Bolli, nafni hans Hreinn Sveinn, og sömuleiðis Ljótur Ketill. Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innanúr stofu, og Mist Eik 64


og Dís Ester á eftir. Innan úr herbergi Egils Daða ógurlegir skruðningar: Línus Gauti, Barði Vagn og Auður Blær voru mætt. En hvar voru Ríta Lín, Helga Nótt og Skuld Karla? Fyrir utan húsið var Sædís Líf í Fólksvagni. Hægt og hljótt kom Jökla Mey eftir stígnum, gangandi, Hún var orðin allt of sein í Egils Daða ammælið. Bruce Dickens segir (rún - latína - konungsheiti):

fje aurum fylkir úr umbre vísi þurs saturn þengill óss jupiter oddviti reið iter ræsir kaun flagella konungur hagall grando hildingur nauð opera niflungur íss glacies jöfurr ár annus allvaldur sól rota siklingur týr mars tiggi bjarkan abies buðlungur maður homo mildingur lögur lacus lofðungur ýr areus ynglingur og búið til meira úr 65


Endill Eimuni Róði Rígur Eyþvari Rifingafla Nör Grottintanna Ánarr Heiðdraupnir Hveðrungur Gestill Vindljóni Hörn Hörvir Singasteinn Heimðir Hörvir Hösvi Vindhljer Snörtur Jólfr Hnikarr Hnikuður Svipall Forni Svispdagur Gestumblindi Gestill Gestmóinn Sveðjandi Sveigðir Rögnir Gaupnir Unnr Hrjótr Hrami Gizzur Jörmunr Geirlöðnir Jölfuður Geirölnir Rögnir Sváfarr Ginnarr Jólnir Þundur Vindófnir Valtýr Gapþrosnir Sigtýr Hangi Váfuðr Eyleiður Eynæfir Vinnill Angeyja Glórnir Hængi Þriði Geiguður Svára Svárungur Sviðarr Svipul Svíarr Númi Snörtur skýðir hörvir egðir hangrvalur hettir tara þrös glatshundur glygg jölfuður jumala gulls glötuður Þetta er endalaus skemmtun, virkar glæsilega í rappi, er skírskotun til menningar okkar, og öll þýða nöfnin eitthvað. Svo ýmislegt úr heitum og kenningum: skýðir hörvir egðir hangrvalur hettir tara þrös glatshundur glygg jölfuður ketta jumala maðr er gulls glötuður Einnig má nota nöfnin úr guðaspjöllunum og kvæðunum: And- Eld- Sæ-hrímnar („eldhúsið í Valhöll”) Tanngrisnir og Tanngnjóstur, Röskva Þjálfi............ , og eflaust hægt að bæta við endalaust ef þið kembið menningararfinn. . Við vekjum guðin innra með okkur með því að nefna þau. Annars gerum við mikið af því dags daglega -- einsog fólk um víða veröld: þórsdagur freyjudagur lokadagur sunnudagur mánadagur týsdagur óðinsdagur. Endilega lesið samt yndislegu „Maddömuna með kýrhausinn“ eftir Helga Hálfdánarson áður en þið kembið Völuspá fyrir nafnarunurnar ykkar. Í „Maddömunni“ er mikið mannfall. 66


Fjell þar gervallur Vanaher, Fenris kindir, Eggþjer og harpan, Gollveig, Angantýr, og enn fleiri. Sleppið öllum þessum draugum sem ganga um í prímkristnuðu skáldaleyfisútgáfu Völuspár.

Hvað leikum við svo á Gerðargleði um jól? gæti verið: Skírnismál, handrit handa börnum http://www.mmedia.is/odsmal/Skirnis_isl.html Skírnismál, handrit, einnig til á ensku, látið vini erlenda vita af því http://www.mmedia.is/odsmal/skirnismal.shtml Óðsmál in fornu, 9.skræða, seiðskrati: í lokin skemmtan og handrit. http://www.mmedia.is/odsmal/fornu27apr09/09seidskrati.pdf Sjá og efnisyfirlit Óðsmála inna fornu til fróðleiks: http://www.mmedia.is/odsmal/fornu27apr09/efnisyfirlit.htm leikrit handa börnum: Dauði Baldurs Baldurs draumar Þrymskviða Skaði, Baldur, Njörður vetrarkomugleði Liljurós betri maður og 67


Hrafnagaldur Óðins, kvæðið er einnig nefnt forspjallsljóð stemma fylgir hér:

68


moll la la do tí la la do tí la la do tí la ,so ,sola lala la la la

önnur rödd kórs má syngja ferund ofar aach ddfe aach ddfe aach ddfe a g ga ad c cd d-

la do tí la do tí la do tí so sola la-

vísur (eða vísuhelmingar) merktar < einni heilnótu ofar h h h h h h h h

h d ces h d ces h d ces a ah hh d ces h d ces h d ces a ah h-

hin röddin ferund ofar því eegf eegf eegf e d de e-

vísur (eða vísuhelmingar) merktar < einni heilnótu ofar (hér H; ekki skrifað á nótunum hér að ofan) 69


vísur (eða vísuhelmingar) merktar << byrjar lítilli þríund ofar en sú in fyrsta vísan (hér á C, og athugið þá C C Es D (moll) -- ekki C C E D (dúr) vísur merktar * byrja sem sú in fyrsta (hér á A (moll)) *Alföður orkar álfar skilja vanir vitu vísa nornir elur íviðja aldir bera þreyja þursar þrá valkyrjur. * Ætlun æsir illa gátu veður villtu vættar rúnum; Óðhræris skyldi Urður geyma máttk at verja mestum þorra. < Hverfur því Hugur himna leitar, grunar guma grand ef dvelur; þótti er Þráins þunga draumur, Dáins dulu (dvergur) draumur þótti. * Dugur er með dvergum dvína, heimar niður að Ginnungs niði sökkva; 70


oft Alsviður ofan fellir, oft af föllnum aftur safnar. < Stendur æva strind né röðull, lofti með lævi linnir ei straumi mærum dylst í Mímis brunni vissa vera; vitið enn, eða hvað? * Dvelur í dölum dís forvitin, Yggdrasils frá aski hnigin; < álfa ættar Iðunni hétu, Ívalds eldri yngsta barna. << Eirði illa ofankomu, hárbaðms undir haldin meiði; > kunni síst að kundar Njörva, vön að værri vistum heima. * Sjá sigtívar syrgja Naumu viggjar að véum; vargsbelg seldu, < lét í færast, 71


lyndi breytti, lék að lævísi, litum skipti. * Valdi Viðrir vörð Bifrastar Gjallar sunnu gátt að frétta, heims hvívetna hvert er vissi; Bragi og Loftur báru kviðu. Galdur gólu, göndum riðu, Rögnir og Reginn að ranni heimis; << hlustar Óðinn Hliðskjálfu í; leit braut vera langa vegu. * Frá enn vitri veiga selju banda burður og brauta sinnar; hlýrnis, heljar, heims ef vissi ártíð, æfi, aldurtila. < Né mun mælti, né mál knátti Gefjun greiða, né glaum hjaldi; << tár af tíndust törgum hjarnar, 72


eljunfaldin endurrjóða. * Eins kemur austan úr Élivágum þorn af akri þurs hrímkalda, hveim drepur dróttir Dáinn allar mæran of Miðgarð með nátt hverri. * Dofna þá dáðir detta hendur, svífur of svimi sverð áss hvíta; < rennir örvit rýgjar glyggvi, sefa sveiflum sókn gjörvallri. * Jamt þótti Jórunn jólnum komin, sollin sútum, svars er ei gátu; sóttu því meir að syn var fyrir, mun þó miður mælgi dugði. Fór frumkvöðull fregnar brauta, hirðir að Herjans horni Gjallar; Nálar nefa nám til fylgis, 73


greppur Grímnis grund varðveitti. Vingólf tóku Viðars þegnar, Fornljóts sefum fluttir báðir; > iðar ganga, æsi kveðja Yggjar þegar við ölteiti. >> Heilan Hangatý heppnastan ása, virt öndvegis valda báðu; > sæla að sumbli sitja día, æ með Yggjungi yndi halda * Bekkjarsett að Bölverks ráði sjöt Sæhrímni saddist rakna; Skögul að skutlum skaptker Hnikars mat af miði Mímis hornum. Margs of frágu máltíð yfir Heimdall há goð, hörgar Loka, spár eða spakmál sprund ef kenndi, 74


undorn of fram, unz nam húma. < Illa létu orðið hafa erindleysu oflítilfræga; vant að væla verða myndi, svo af svanna svars of gæti. << Ansar Ómi allir hlýddu: ,,Nótt skal nema nýræða til; hugsi til myrgins hver sem orkar ráð til leggja rausnar ásum!" * Rann með röstum Rindar móður fóðurlarður fenris valla; < gengu frá gildi goðin, kvöddu Hropt og Frigg sem Hrímfaxa fór. << Dýrum settan Dellings mögur jó fram keyrði jarknasteinum: < mars of Manheim mön af glóar, 75


dró leik Dvalinns drösull í reið. * Jörmungrundar í jódyn nyrðra und rót yztu aðalþollar gengu til rekkju gýgjur og þursar, náir, dvergar og dökkálfar. Risu raknar, rann álfröðull, norður að Niflheim njóla sótti; upp nam Árgjöll Úlfrúnar niður, hornþytvaldur Himinbjarga.

*****************************************************

76


hvar fรกst bรฆkurnar -->

77


Bækurnar fást á Amazon freyjukettir@mmedia.is Norræn menning Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur - myndasögur og lestraræfingar: Hannesar saga Grásteins (20 bækur) Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti - langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður - smásögur: Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur (sakamál) 1000 stjörnur Bónda minn hálfan Hljóðahver ljóðakver Drottinn blessi heimilið Strætó í hringi -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? - verðlaunahandrit Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti 78


- fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD) barn semur handa börnum: - TAK-sögurnar -geimveran TAK- eftir Hjalta Bjarnason (5-10 ára) TAK og nornin TAK og lyftingageimveran mikla TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og fiskarnir TAK og slökkvibíllinn TAK og skemmtitækin TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og lyktarsjónvarpið TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið TAK og martröðin TAK og tilraunalímið TAK og Freki TAK og borðtuskan TAK og flugeldarnir TAK og græna ræktin TAK og allraveðrapeysan Glámur auli, -eftir Bjarna Þór Einarsson TAK og náttúruvæni einnotapokinn TAK og erfiði maturinn 79

frh -->


TAK TAK TAK TAK TAK TAK

og og og og og og

vinur fílsins flugvélin fjarskagaman fjarskalítill draugurinn innbrotageimveran Auðtrúa

80


81


Yndisleg fersk sýn á allt bullið í okkur Já! Við hugsuðum ekki útí þetta !! þjóðtrú, ævintýri í alvöru, hin norrænu goðafræði í nýju ljósi

og:

eru virkilega til svona margir leikir !!! KLUKK

(Kjetkrókur og einhver biskup) (forfaðir fær (sauðahirðir passar matargjafir)

lömbin sín)

Nota heimskar mömmur jóló fyrir grýlu? sálfræðiviðtal heilags Nikulásar af Myra: -Ég myndi aldrei skemma gleði barns með kartöflu

ISBN 978-9979-895-72-5 82


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Rakni og Þögn - KLUKK by Geimveran TAK - Issuu