Guðrún Kristín Magnúsdóttir
Veljum okkar „
PALLI OG
ENGLABJALLAN
ISBN 978-9979-895-26-8 Freyjukettir, NorrĂŚn menning
PALLI OG ENGLABJALLAN Palli hlýtur að fara að koma niður í geymslu að ná í jólaskrautið, því nú nálgast jólin óðum. Englabjallan er orðin óþolinmóð
.
-Æ, hve það er leiðinlegt að vera geymdur hér í draslageymslunni nærri því allt árið, segir hún. -Mér finnst ég ekki gera nóg gagn. Það heyrist í mér „gling gló“, þegar Palli setur mig upp á hillu fyrir jólin, og aftur „gling gló“, þegar Palli tekur mig niður eftir jólin. Þar með upp talið. Tilgangslaust.
Ég vil vera einhverjum til góðs, Kertasníkir. Ég vil vera hjá Palla allt árið, en ekki aðeins á jólunum. -Iss, svarar Kertasníkir. -Mér finnst þetta svo ágætt. Ekkert að gera allt árið -- nema á jólunum: sníkja og hrekkja ! -- segja sögurnar. En ég skal segja þér leyndó, engla mín. Jólasveinarnir eru forfeður barnanna, og þeir koma til byggða á þessum helgasta tíma, vetrarsólhvörfum. Fólkið á bæjunum bar út matargjafir handa okkur í gamla gamla gamla gamla daga. Svo var forfeðradýðrkun víst bönnuð, og bannað að dýrðka vættirnar í náttúrunni, bannað að gefa þeim mat um jólin. Bannað að bera út matarfórn til blíðkunar. En menn héldu þessu auðvitað áfram!!
Svo sagði (/skrökvaði) fólkið: -Ó,!! þeir komu og stálu matnum; -- við gáfum þeim ekkert.
Svona varð sagan til. Auðvitað hélt fólkið áfram að dýrðka sína forfeður um jólin -- með matargjöfum. Svo förum við á fjöll eftir jólin. Raunar er þessi draslageymsla „fjöll“ handa svona spýtukertastjaka einsog mér!! Kertasníkir hlær. -Það væri líka asnalegt að sjá mig standa uppi á hillu um hásumar og sníkja kerti, bætir Kertasníkir við, hlæjandi. -Veistu hvað sagt er að Bjúgnakrækir bróðir minn geri á jólunum? Steli bjúgunum frá fólkinu,
og þegar það ætli að fara í búrið að sækja mat, séu eitt og eitt bjúga greinilega horfin! -Ha? Stela? spyr englabjallan. -Það má ekki stela.
-Og Kjötkrókur bróðir er sagður stela jólahangiketinu, maður. Og Skyrgámur bróðir er sagður hafa einu sinni étið allt skyrið sem hann fann, svo krakkarnir á bænum fengu ekkert skyr. Það var nú talið mjög snjallt hjá honum.
-Hvað sagði hún mamma ykkar, Kertasníkir!!? Hvers konar uppeldi hafið þið eiginlega fengið!!? Jólabjallan er gáttuð. -Ertu að meina, engla mín, að þú þekkir ekki hana mömmu mína? spyr Kertasníkir og hlær. -Ertu algjör engill?!!
-Þegar Gluggagægir bróðir gægðist einu sinni á gluggann í stofunni um jólin, og hræddi alla svo að þeir misstu jólamatinn sinn í gólfið, og ...
... Askasleikir bróðir náði í alla askana og sleikti allan jólamatinn úr þeim, þá hló mamma svo mikið að hún missti pokann með öllum óþekku krökkunum -- svo þau sluppu öll út! -Kertasníkir þó! Poka með börnum í!!? Um hvað ertu að tala!!? -Hefurðu ekki heyrt grýlusögur, engla mín? Þær eru búnar til til þess að hræða krakka til hlýðni. Þetta er viss uppeldisaðferð.
Englabjallan er orðlaus. Hún hefur aldrei heyrt þvílíkt og annað eins.
En nú eru grýlusögurnar dauðar, segir Kertasníkir. -Vesluðust upp, því börnin vita að svona asnalegar hótanir eru aðeins grýlur. Þá var farið að nota okkur fyrir grýlur. Nú er englabjallan aftur orðlaus.
-Hvernig þá?, spyr hún loks. Þegar mömmurnar ráða ekkert við að láta krakkana hlýða, búa þær til grýlur. Þær blanda saman heilögum Nikulási og okkur. Hann var Tyrki, og mjög barngóður maður. Hann er því gjafajólasveinninn. Ho ho ho. Stundum kallaður Coca-Cola-jólasveinninn. En nú er það svo að Tyrkir eru réttdræpir á Íslandi alveg síðan Tyrkjaránið var.
Englabjallan starir á Kertasníki. Hún stamar loks upp: -Kertasníkir!! Hvað ertu að bulla!!?
-Það gleymdist að fella lögin úr gildi, engla mín.
Og menn vilja vera þjóðlegir, svo við erum notaðir, heimsfyrirbærið margir jólasveinar, -- notaðir sem gjafajólasveinar núna. En !!! -- einmitt við erum notaðir í desember sem grýla!!! Ef -- og aðeins ef -- börnin hlýða einsog hundar, fá þau gjöf eða gotterí, ef þau hlýða ekki, fá þau hráa kartöflu. Þetta er nútímagrýlan. Hundauppeldi á börnum!! Hundar fá klapp þegar þeir gegna, er heldur verra ef þeir hlýða ekki.
Geymsludyrnar opnast. Það er Palli. Hann ætlar að fara að ná í jólaskrautið sitt og skreyta fyrir jólin. Palli er kominn í jólafríið. Hann er einn heima. Litli bróðir er í leikskólanum, pabbi og mamma eru í vinnunni. Þau þurfa að vinna fyrir peningunum.
Þau kaupa áreiðanlega dýra jólagjöf handa Palla. Vitiðið hvað er á jólagjafaóskalistanum hans Palla: 10-gíra hjól -- og ekkert annað. En hvað á Palli að gefa pabba og mömmu? Eitthvað rosalega dýrt og flott.
Nú segir Kertasníkir englabjöllunni fleiri sögur um jólasveinana, og hvernig forfeðrunum var breytt í hrekkjalóma:
-Bræður mínir stela nú bara því sem þá vantar, segir þjóðsagan -- uppspunna sagan.
Palli grípur þetta auðvitað útúr samhengi, því hann veit ekki hvernig forfeðurnir voru gerðir að hrekkjajólasveinum.
-Einu sinni stal Pottasleikir bróðir öllum jólagrautnum úr pottinum. og
Þegar vinnukonan kom fram í eldhús, hélt hún að strákurinn á bænum hefði borðað grautinn. Hún tók í strákinn og sagði: -Hvað á að gera við strákaling? Sting'onum ofna í kolabing, lok'ann út'og lemj'ann lát'ann bola bít'ann.
Svo lamdi hún strákinn og lokaði hann úti. Grýla og Pottasleikir hlógu ferlega, og svo (segir heimskulega sagan) setti Grýla strákinn í pokann sinn.
Englabjallan heftur aldrei fyrr heyrt grýlusögur, og getur ekki orða bundist:
-Kertasníkir þó! Dettur ykkur ekkert í hug nema eitthvað ljótt? Hrekkja, - hræða, -- stela? Ekki bjó ég til grýlusögurnar, segir Kertasníkir. -Heimsku mömmurnar gerðu það.
Algjör lágkúra, að mínu mati!! Þær þóttust vera að kenna börnunum muninn á góðu og illu, réttu og röngu. -Mun á góðu og illu, réttu og röngu!!? spyr englabjallan. -Svona!?? Hvers konar þvæla er þetta í þér! Kertasníkir segir: -Svona þvælumömmur eru alveg vonlaus fyrirbæri. Ráða ekki við rökhugsun. Þær eru aðeins að kúga krógana sína til hlýðni. Búa til grýlur, sko.
-Palli! PALLI ! Hvert ertu að fara?
-Hvað ætlar hann að fara að gera?, hugsar englabjallan. -Ég fer með honum. Ég elti hann. Jólabjallan er áhyggjufull. -Hann var að hugsa um að gefa mömmu sinni eitthvað dýrt og flott, hugsar hún,
-- en hann hefur enga peninga fyrir því.
Það eru til miklu skemmtilegri gjafir -- og verðmætari -en þetta dót sem hægt er að kaupa í búðunum fyrir peninga.
Palli tekur strætómiða og fer út. Engillinn eltir hann.
-Palli. Hvað ertu að gera í þessari búð? Þú ert ekki með neina peninga til að borga með. -Hvað var það fyrir þig?, spyr afgreiðslustúlkan. Palli stamar: -É, .... ég er bara að sko-skoða ... kökudiska.
-Þessi kostar 2000 krónur, góði, segir stúlkan.
Palli fer út úr búðinni í ógurlega vondu skapi.
-Palli, segir englabjallan, -ég veit hvað þú skalt gefa mömmu þinni, sem hún hefur miklu meira gaman af en öllu þessu dóti í búðunum. Komdu nú heim aftur.
Í strætó á heimleiðinni hvíslar englabjallan öllum hugmyndunum sínum að Palla.
Nú glaðnar heldur en ekki yfir honum.
Þegar heim kemur hefst Palli handa með blöð, pappa og liti. -Kertasníkir, segir englabjallan, -þú átt að lýsa Palla með jólakertum, meðan hann útbýr jólagjafirnar.
-Á ég að fara að hjálpa?, svarar Kertasníkir. -Á ég að fara að gera gagn? Á ég ekki aðeins að sníkja kerti.
-Gerðu það jólasveinn minn -- fyrir mig. -Jæja þá. Þá er ég aftur orðinn dýrkaður forfaðir!!
Palli klippir út pappajólatré handa pabba. Það getur staðið sjálft þegar tveir hlutar eru settir saman. Sjáiðið raufarnar sem klipptar eru upp í á báðum hlutunum? Önnur að ofan, hin að neðan. Hlutunum svo smeygt hvorum inn í annan og mynda þá eitt standandi tré.
Hvað skyldi svo standa í bréfinu til pabba? (Alveg leyndó!) -Iss, segir Kertasníkir -- og er aftur kominn í uppspunaþjóðsöguhlutverkið: -Litli bróðir getur nú alveg farið í jólaköttinn. Hann er svoddan skemmdarskrín. (-- En það var raunar þetta sem Palli var að hugsa --)
-Skammastu þín, Kertasníkir, segir englabjallan. -Litli bró er bara óviti. Við erum alveg búin að ákveða hvað litli bróðir á að fá. Það fer í þennan pakka.
Inni í hólkinum er jólagjöfin til litla bróður. Á jólunum eru allir vinir -- líka Palli og litli bróðir, segir jólabjallan ákveðin. -Nú? Eiga ekki allir alltaf að vera vinir?, spyr Kertasníkir stríðnislega. -KERTASNÍKIR !! Kertasníkir þó ! Þú hellir vaxi yfir bréfið til mömmu !! Gastu ekki verið góður pínulítið lengur?
Eins og Palli var búinn að vanda sig!
Þurfa uppspunasagnajólasveinarnir alltaf að vera að krekkja og stríða? -ÆÆ! -- hlær Kertasníkir, skömmin. -Missti ég nú vaxið beint oná bréfið! -Ég veit ráð, Palli, segir englabjallan. -Þú þrýstir gömlum pening með skjaldarmerkinu á í blautt vaxið.
Gjöfin til mömmu skal vera fallegust af öllum.
Palli skrifar líka bréf til afa og ömmu og lætur í stóran pappakassa. Svolítið fyndið: eitt blað í stórum kassa!! Þetta tekur allt langan, langan tíma, því það er ofsalega erfitt að skrifa svona mikið.
Loksins, loksins, loksins kemur svo aðfangadagur. Gjöfunum er raðað kringum jólatréð. Palli hlakkar svo mikið til að sjá pabba og mömmu og afa og ömmu opna pakkana frá honum, -- að hann tekur ekki strax eftir, að það er enginn pakki til hans frá þeim. Hvernig stendur á því? Kertasníkir ætlar að rifna úr hlátri: -Palli fer í jólaköttinn! Palli fer í jólaköttinn! Palli fer í jólaköttinn! Palli fer í jólaköttinn! (En það er einmitt þetta sem Palli er að hugsa: Gleymdu þau jólagjöf handa honum?)
En allt í einu fer rafmagnið. Alls staðar verður kolniða myrkur. Englabjallan, sem er fljót að átta sig, segir: -Palli, kveiktu á kertunum hans Kertasníkis og farðu með hann fram í eldhús til mömmu, og láttu Kertasníki lýsa henni þangað til rafmagnið kemur. Mamma er að sjóða jólagrautinn. Farðu niður í geymslukompu og náðu í ferðalagagastækið, svo mamma geti látið grautinn malla áfram.
-Á ég aftur að fara að gera gagn? Á ég aftur að fara að hjálpa? Hvað þá með uppdiktuðu þjóðsöguna? -Já, Kertasníkir. Nú lýsir þú mömmu þangað til rafmagnið kemur aftur. Vertu nú góður forfaðir kominn af fjöllum til byggða um vetrarsólhvörf, ha? Mikið verður mamma kát, þegar Palli kemur með kertaljós handa henni. -- Og ferðagastækið!
Eftir kvöldmat á aðfangadagskvöld fara allir að taka upp pakkana. Afi og amma eru alveg hissa: stór kassi frá Palla -- en laufléttur! Skyldi hann vera tómur?
Þau opna. Í kassanum er stór miði, heilt stílabókarblað, og á því stendur:
Gleðileg jól elsku afi og amma Jólagjöfin til ykkar frá mér er að sendast alltaf fyrir ykkur út í búð á föstudögum hvernig sem viðrar. Afi er lengi að lesa þetta. Þetta voru líka svo erfið orð. Palli var ógurlega lengi að skrifa þetta.
Þessa jólagjöf eru afi og amma nú ánægð með, og þakka Palla sínum innilega fyrir.
Í pakkanum til litla bróður er gamli brunabíllinn hans Palla.
Litli bróðir er svo hrifinn af brunabílum. Pabbi opnar sína gjöf.
Þetta stendur á blaðinu: Gleðileg jól elsku pabbi minn. Ég ætla alltaf að moka snjóinn af stéttinni. Frá Palla Pabbi kyssir Palla innilega. Þetta var nú góð jólagjöf.
Mamma tímir varla að opna fallega bréfið með vaxinnsiglinu. Hún ákveður að klippa á bandið til þess að skemma ekki innsiglið.
Og hvað stendur í bréfinu til mömmu?:
Gleðileg jól elsku mamma mín Ég ætla alltaf að hjálpa þér að leggja á borðið og þvo upp. Frá Palla
Mamma knúsar Palla sinn. Betri jólagjafir er vart hægt að hugsa sér.
En nú fer pabbi út í bílskúr. Hvað haldið þið að hann sé að sækja?
jólagjöfina handa Palla!
Palli trúir varla sínum eigin augum þegar pabbi kemur með splunkunýtt 10-gíra hjól inn í stofu.
Til elsku Palla frá pabba og mömmu, afa og ömmu og Gumma litla bróður.
Á þrettándakvöld segir Palli mömmu sinni að englabjallan eigi ekki að vera eingöngu jólaskraut. Hún eigi alltaf að vera á hillunni við rúmið hans. Englabjallan ætlar að hjálpa Palla þegar hann efnir jólaloforðin sín.
En Kertasníkir geispar ógurlega og segir: -Úff! Ég er nú alveg dauðuppgefinn eftir þessi jól.
Ég er búinn að vera allt allt of góður. Ég verð feginn að hvíla mig og liggja í leti fram á næstu jól. Góða nótt. -Nei, heyrðu, Kertasníkir!, ekki fara!, segir englabjallan. Geymslukompan er alls ekki „fjöll“ handa góðum jólasveinum einsog þér!
Þetta eru allt eintómar bullsögur um bræður þína og Grýlu. Og jól eru eiginlega allt árið, náttúruhátíð -- allan ársins hring. Sólhvörf aðeins enn meiri hátið en annað. Þú ert líka fínn og sætur á sumrin í miðnætursólinni. Sumarsólstöður eru einnig hátíð. Vertu hjá mér uppi á hillu allan ársins hring. Gerðu það. Fyrir mig. Kannski ertu guþ í dulargervi, og þá máttu ekki vera stunginn svefnþorni. Þótt einhverjir karlar hafi sagt að ég væri góð og þú vondur, þurfum við ekki að trúa því í blindni. Málið er að vera góður. Við skulum ekki lifa okkur inn í „hlutverk“ sem troðið er uppá okkur, Kertasníkir.
Gjörðirnar okkar, hugsanirnar okkar, er það sem máli skiptir.
-- o O o --
Bækurnar fást á Amazon freyjukettir@mmedia.is Norræn menning Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur - myndasögur og lestraræfingar: Hannesar saga Grásteins (20 bækur) Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Flugan Hagbarður og Hvutti - langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður - smásögur: Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur (sakamál) 1000 stjörnur - Bónda minn hálfan Drottinn blessi heimilið Strætó í hringi
-Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? - verðlaunahandrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna efnisyfirlit) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD)
TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur eftir Hjalta Bjarnason (þegar hann var 5-10 ára) Glámur auli eftir Bjarna Þór Einarsson (9 ára) TAK og nornin TAK og lyftingageimveran mikla TAK og Freki TAK og tilraunalímið TAK og diskurinn TAK og vinur fílsins TAK og brúin TAK og náttúruvæni einnotapokinn TAK og bíllinn TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og borðtuskan TAK og græna ræktin TAK og fiskarnir TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og innbrotageimveran TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið TAK og draugurinn
Málið er að vera góður, ekki leika eitthvert hlutverk sem troðið hefur verið uppá mann..
ISBN 978-9979-895-26-8