. .
Guðrún Kristín Magnúsdóttir . .
MUMMI
. og fjörkálfurinn sem hleypur út í fjóshauginn og hvernig Mumma tekst að ná honum á þurrt
. .
MUMMI og kálfurinn sem hljóp út í fjóshauginn
Hvers vegna er Mummi alltaf svona rólegur og yfirvegaður hvað sem á gengur?
ISBN 978-9979-895-56-5 freyjukettir@mmedia.is
NorrĂŚn menning
MUMMI og fjörkálfurinn Hvers vegna er Mummi alltaf svona rólegur og yfirvegaður hvað sem á gengur?
Ekki er hægt að segja það sama um skapið í honum pabba hans.
Karlinn hefur enga sjálfstjórn. Ef Mummi hlýðir ekki, lemur pabbi hans hann.
Einu sinni vill það óhapp til að kálfur losnar úr stíunni sinni. Kálfurinn stekkur beint út um opnar fjósdyrnar. Fátt er fjörugra en kálfur sem sleppur úr fjósi eftir langa inniveru
Í vímu nýfengins frelsis hugar kálfgreyið ekki að sér, stekkur út um víðan völl, skvettir í kæti sinni og stefnir beint á fjóshauginn.
Karlinn verður nú alveg æfur af reiði. Hann öskrar og lemur út í loftið.
Sem betur fer nær hann ekki til kálfgreysins -- sem situr nú gersamlega fast í haugnum -Farðu út í fjóshauginn, strákur, öskrar karlinn til Mumma, -- og lemdu kálfskrattann með þessari spýtu þangað til hann fer uppúr.
Hann segir ýmislegt fleira sem ekki er eftir hafandi.
Mummi veit vel að hann gæti sjálfur fengið að kenna á spýtunni ef hann fer ekki strax. Hann sér að eitthvað verður að gera til bjargar skepnunni. Mummi, fer úr sokkum og skóm, brettir upp skálmarnar og
veður út í fjóshauginn að skjálfandi skepnunni.
Mummi talar róandi til kálfsa.
-Lemdu, kálfskrattann, segi ég!, öskrar karlinn.
-O, ætli þetta gangi ekki bara svona, pabbi, svarar Mummi ofur rólega.
En í rauninni er nú hægara sagt en gert að fá hræddan kálf til að bakka út úr fjóshaug.
Mummi bregður nú á það ráð að lyfta einum og einum fæti kálfsins í einu.
Hægt og hægt tekst Mumma að fá kálfinn til að mjakast út úr haugnum. En það tekur langan tíma. Það er einsog blessuð litla skepnan skilji að Mummi er að reyna að hjálpa henni.
Við komum kálfinum að lokum inn í fjós aftur.
Hann kemst í stíuna sína.
Mummi fer í fótabað í bæjarlæknum.
Mummi heldur svo áfram vinnu sinni eins og ekkert hafi í skorist.
Heimalningurinn þarf að fá pelann sinn.
Pabba hans er eitthvað runnin reiðin.
Löngu seinna spyr ég Mumma hvers vegna hann sé alltaf svona rólegur og ákveðinn hvað sem á gengur. Hann svarar: -Hún amma mín sagði alltaf: Gjörðu ætíð það sem samviska þín segir þér að sé rétt. Þá muntu öðlast ró í lífinu.
Bækurnar fást á Amazon freyjukettir@mmedia.is Norræn menning Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur - myndasögur og lestraræfingar: Hannesar saga Grásteins (20 bækur) Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Flugan Hagbarður og Hvutti - TAK-sögurnar -geimveran TAKeftir Hjalta Bjarnason (þegar hann var 5-10 ára) TAK og nornin TAK og lyftingageimveran mikla TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og fiskarnir TAK og slökkvibíllinn TAK og skemmtitækin TAK og jarðeplaupptökuvélin
TAK og lyktarsjónvarpið TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið TAK og martröðin TAK og tilraunalímið TAK og Freki TAK og borðtuskan TAK og flugeldarnir TAK og græna ræktin TAK og allraveðrapeysan TAK og náttúruvæni einnotapokinn TAK og erfiði maturinn TAK og vinur fílsins TAK og flugvélin TAK og fjarskagaman TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran Glámur auli, eftir Bjarna Þór Einarsson - langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður - smásögur: Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt
Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur (sakamál) 1000 stjörnur - Bónda minn hálfan Drottinn blessi heimilið Strætó í hringi -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? - verðlaunahandrit: -Ég er hættur! Fainn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna efnisyfirlit)
.
gamlar myndir úr sveitinni .
. . .
. Hvers vegna er Mummi alltaf svona yfirvegaður hvað sem á gengur? -. ISBN 978-9979-895-56-5
.