1
Guðrún Kristín Magnúsdóttir
Leyniþræðir
2
3
Leyniþræðir
- saga -
handa unglingum hentar vel til að setja upp sem leikrit á sviði og drög að handriti fyrir stuttmynd eru hér á eftir sögunni; höfundur hefur diploma í handrita- og kvikmyndagerð, hefur unnið við leikhús, útvarp, sjónvarp og kvikmyndir.
nótur fyrir lögin í kvikmyndinni/leikritinu eru í lokin og auðvitað bætið þið við - ef þið eruð hæfileikarík ******* Væntingar annarra til hæfileikamanna eru ekki alltaf þær sömu og það svið sem þeir sjálfir hneigjast til. Silfá er greind og hæfileikarík, en rís hún undir þeim kröfum sem gerðar eru til hennar af öðrum? Hvað vill hún sjálf? Sagan er sögð af besta vini hennar, Gullþráðabróður hennar, einsog hann segir sjálfur. Hann sér leyniþræði, hefur innsæi í sálarlíf, tilfinningar og hugsanir.
4
Leyniþræðir 5. útgáfa Freyjukettir, Norræn menning 2016 Bókin fæst á Amazon ISBN 978-9979-895-82-4 (áður m.a. útg. af Máli og menningu í safnriti)
5
LEYNIÞRÆÐIR „Milli manns og hunds og hests liggur leyniþráður“, heyrði ég einhvers staðar þegar ég var lítill, og hugsaði mikið, mikið um það. Stundum sá maður karlana í sveitinni berja fótastokkinn, skammast út í blessaða hestana sína og kalla þá hrjóskar helvítis truntur, en hvorki gekk né rak. Þeir kölluðu á hundinn, sem klemmdi skottið á milli lappanna og hélt sig í vel afmarkaðri fjarlægð frá stígvélafótum húsbóndans. Og maður sá unga menn með písk og hroka. Augu hestanna voru myrk þótt þeir hlypu. Þeir hlupu af ótta, ekki ánægju. Stundum sá maður svo aftur á móti lítinn brosandi snáða fara berbakt að leita að kúnum. Hesturinn brokkaði ánægður og vissi vel hvar þær héldu sig, og hundurinn elti, dinglandi skottinu, því nú var verk að vinna sem hann skildi og gat.
6
Ég hef aldrei þorað að nefna þessa áráttu mína --að horfa í augu fólks í leit að leyniþráðum-- við neinn af ótta við að vera talinn viðkvæmur eða skrýtinn. Ég viðurkenndi fyrir sjálfum mér, að þetta var veikleiki sem ég var að reyna að fela, en ég skal útskýra þetta aðeins núna: Til var fólk sem sagði: -Rétt mátulegt á þig að meiða þig á þessu. Ég var marg búinn að banna þér að vera með þetta. Ég hugsaði með sjálfum mér: Þessi er með gaddavírsþræði. Til var fólk sem sagði: -Æ, meiddirðu þig nú? Fáðu plástur á þetta til þess að ekki komi skítur í sárið. Og vertu ekki með þennan hníf, elsku barn. Hann er hættulegur. Svona fólk kallaði ég silkiþráðafólk. Til var fólk sem sagði: -Æ, elsku barn, ég hefði ekki átt að láta þig skera svona hart brauð. Ég skal gera þetta. Þetta var líka silkiþráðafólk. Til voru menn sem sögðu: -Andskotans klaufi geturðu verið, krakkaskratti. Getur ekki einu sinni farið með hníf. Þú verður aldrei að manni þegar ekki er hægt að treysta þér fyrir neinu. Þessa kallaði ég sleggjuhausa. Ég var bara að leika mér að kíkja inn í fólk. Sagði engum, því stundum fannst mér þetta asnalegt sjálfum. Ég var allt of upptekinn af þessu. Þetta var orðið að áráttu, og árátta verður brátt rembihnútur á hugsanaþráðunum. Ég hefði getað sagt pabba þetta. Hann hefði bara hlegið. Honum finnst alltaf gaman þegar ég tala við hann um hitt og þetta sem ég tek eftir.
7
Þótt undarlegt megi virðast talaði ég samt aldrei við hann um leyniþræði. En milli mín og hans og mömmu hafa þeir alltaf verið mjög, mjög góðir. Algjörir gullþræðir. Silfá vinkona mín bjó í næsta húsi við mig þegar við vorum lítil. Ég fór í sveit á sumrin, hún ekki. Hún var í bænum og var smávegis í sendiferðum fyrir pabba sinn. En á veturna lékum við okkur saman, stundum í bílaleik. Við vorum eiginlega alltaf samferða í skólann. Agnar, pabbi hennar er verkfræðingur. Pabbi minn er vörubílstjóri. Ég ætlaði að verða vörubílstjóri og fékk oft að sitja í hjá pabba heilu dagana. Við röbbuðum mikið, pabbi og ég. Hann hefur alltaf tíma til að hlusta. Mamma Silfáar vinnur á lögmannsskrifstofu. Hún var byrjuð í lögfræði einhvern tíma en hætti þegar hún átti Silfá. Mamma mín vinnur í gróðrarstöð. Hún er einn af þessum snillingum með græna fingur. Kannski eru leyniþræðir í káli og rósum líka. Að minnsta kosti vex allt hjá sumum. Að vísu hættum við Silfá að láta sjá okkur saman á leið í skólann þegar við vorum komin í 7. bekk, og við hættum líka í bílaleik. En hún lánaði mér diska og ég lánaði henni spólur.
8
Hún er góð stúlka hún Silfá. Hún er vinur vina sinna, en ber ekki tilfinningarnar utan á sér. Silfá er afburðanemandi í skóla. Og fjölskyldan spurði: -Ætlarðu ekki að verða verkfræðingur eins og pabbi þinn? Ætli þú farir ekki í verkfræði? Þau voru og eru góðir nágrannar, Agnar og þau. Litlu bræður hennar Silfáar líka. Þeir eru að vísu hrifnari af fótbolta en kennslubókum, en það rætist oftast úr kraftmiklum pollum. Allt var og er í sómanum, utan húss sem innan. Börnin kurteis og vel upp alin. Semsagt: fyrirmyndarnágrannar. Þegar verið var að ganga frá lóðunum, en þær liggja saman, teiknaði Agnar, en pabbi keyrði í. Mamma sá um að gróðursetja, og María, mamma Silfáar, aðstoðaði hana. Þá sá ég einn leyniþráð: Mamma sagði við pabba eitt kvöldið: -Verkfræðingar hugsa í strikum og hornum og burðarþoli! Og svo hló hún blíðlega. Mamma mín talar aldrei illa um fólk. Hugsar aldrei neitt illt.
Nú erum við Silfá 16 ára. Ég er hættur að skammast mín fyrir að vera viðkvæmur. Ég er líka hættur við að verða vörubílstjóri og ætla frekar að fara í leyniþráðafræði.
9
Það rennur upp fyrir mér nú, að Silfá svaraði aldrei spurningunni: -Ætlarðu ekki að verða verkfræðingur eins og pabbi þinn? Ég sé núna að Agnar klikkaði á þessu með burðarþolið þegar mannssálir eiga í hlut. Kannski skilur hann ekki leyniþræði. Í hitteðfyrra kom ferskur stormsveipur inn í okkar of slétta og fellda líf í einbýlishúsahverfi með útreiknuðum strikum og hornum og steinsteypu og vandlega plöntuðum röðum af skrautjurtum. Það var Djonný diskó. Hann var ekki teiknaður á teikniborði, hann Djonný diskó. Hann var frjáls eins og vindurinn. Hann var getinn á sama hátt og njólinn og baldursbráin sem vaxa og blómstra í hrjóstrinu áður en jarðýtan kemur og aðflutta moldin úr húsgrunnum og danska grasfræið. Ég hef aldrei hitt eins óklúðraðan ungling. Hann er tveim árum eldri en við en var samt að koma í grunnskóla. Það var vegna þess að mamma hans fór með hann til Bandaríkjanna, því það stóð til að hún gifti sig. Það klikkaði víst eitthvað. Djonný er dökkur á húð og hár. Hann getur djókað með að hann heitir John Trec. Ég - svona til samanburðar - get ekki einu sinni sagt frá því að mamma mín var ófrísk eftir annan þegar hún hitti pabba. Pabbi og hún eiga ekkert barn saman. Ég þekki alvörupabba minn ekki.
10
En Djonný !!! Hann segir yfir alla krakkana á skemmtun: -Næsta lag heitir: Ófrísk af trekk, og er tileinkað mömmu. Kannski ætti ég að vera Kárason? Hún hefði getað látið mig heita Jón Hermannsson, því pabbi minn var hermaður, hún hefði getað látið mig heita Jón Erlendsson, því hann var erlendur maður. Hún hefði getað látið mig heita Jón Hansson -- það er sonur einhvers hans, því það hlýtur að hafa verið karlmaður. En hún lét mig heita John Trec. Þess vegna samdi ég lag handa henni fallegt lag. Krakkarnir veltust um af hlátri. Hvernig gat þessi drengur, sem kom nýr inn í hópinn og tilheyrði engri klíku, sagt svona brandara á eigin kostnað? Og um sína eigin móður! Ekkert er viðkvæmara en fjölskyldan. Djonný diskó þurfti ekki einu sinni klíku. Hann bara var og er hann sjálfur. Það eina sem ég man úr textanum er: ...trekk í trekk í trekk .... Og það var alveg drepfyndið.
Silfá verður fallegri og fallegri með hverju árinu sem líður. Fegurð hennar liggur ekki síst í því að hún talar ekki mikið, hlær ekki hátt, bara brosir, og reynir aldrei að ná athygli. Í 9. bekk er maður ekki lengur feiminn við að verða samferða stelpunni í næsta húsi úr og í skólann. Vinátta okkar er -- og hefur alltaf verið -- okkur báðum til góðs.
11
Það er notalegt að eiga stelpu fyrir vin. Ég sé það best í samanburði við stráka sem aðeins hafa umgengist stráka. Strákar innanum stráka keppa oftast um hver er klárastur og sterkastur og tilfinningalausastur. Þegar stelpa birtist, eru þeir að reyna að vera blíðir eins og mömmur og ákveðnir eins og pabbar. Úr verður eintómt öryggisleysi því þeir geta hvorugt uppfyllt. (Innskot til skýringar: þetta er eins konar leyniþráðafræði. Ég varaði ykkur við: ég er með þráðaáráttu!!) Pabbi hennar Silfáar, Agnar Harrason verkfræðingur, veit vel að hún hefur alltaf verið með yfir 9 í stærðfræði og yfir 9 í eðlisfræði. Ég næ 6, og þykist góður. En -- Agnar Harrason, verkfræðingur, vissi ekki að fyrsti kossinn hennar Silfáar var 10,6 metra frá 90° horninu á tvöfalda bílskúrnum hans þegar Djonný fylgdi Silfá heim af skólaballi. Hún sagði mér það. Hún getur alltaf treyst því að ég segi ekkert. Silfá fór að syngja með Krókódílunum. Þau æfðu oft eftir skóla, uppi í skóla. Þá fór ég inn á sal að hlusta. Og ég, æskuvinur Silfáar, og eins konar þráðatengslabróðir hennar, sem bara sat þarna úti í sal, var settur í ryþmiskan hljóðfæraleik til uppfyllingar.
12
Ryþmiskur uppfyllingarkrókódíll, eins og Djonny orðar það. Silfá hefur yndislega rödd. Það hafði aldrei hvarflað að mér að hún gæti sungið. Það hafði aldrei hvarflað að mér að hún gæti komið dægurlagatexta til skila af sannri innlifun og tilfinningu. Ég heyrði hana að vísu oft raula með þegar við hlustuðum á popp, en það geta nú svo margir. Eitthvað gerðist þegar Krókódílarnir slógu fyrsta tóninn. Eitthvað losnaði úr læðingi. Eitthvert afl úr iðrum hugans losnaði úr fjötrum og fyllti heiminn. Silfá varð fegurri en nokkru sinni. Djonný horfði á hana þegar hún söng ballöður og tregablúsa, og hann varð þá eins og lítill drengur á svipinn -- ekki eins og töffarinn Djonný diskó í fjörinu -og leyniþræðirnir ...... (- ég veit að ég er væminn núna, en mér er alveg sama -)
..... leyniþræðir titruðu eins og þandir gítarstrengir. Það þurfti ekkert ljósasjó. Krókódílar ferðuðust um á mótorhjólum og skellinöðrum. Það hlaut að koma að því að pabbi Silfáar heyrði hávaðann í mótorhjóli Djonnýs fyrir utan einbýlishúsið. Það hlaut að koma að því að hann færi að velta fyrir sér hvers vegna einkunnir Silfáar urðu lægri á vorprófi en á jólaprófi.
13
Hann hefur eflaust verið að vona að hún yrði á teiknistofunni hans yfir sumarið. En svo varð ekki. Hún fékk vinnu í sjoppu. Og hún var farin að ganga í leðurgalla. Skyldi Agnar Harrason hafa hugsað, þar sem hann stóð við stóra stofugluggann sinn á kvöldin og horfði út yfir vel klippt limgerðið: -Hver er þessi dökki mótorhjólagaur, sem ekki sést framaní fyrir hjálmi. Hvað er Silfá, dóttir mín, að gera á kvöldin? Eru popparar í dópi? Agnar Harrason hefur kannski aldrei talað við dóttur sína, eins og við pabbi tölum saman. Það er erfitt að byrja á slíku þegar dóttir manns er 14 eða 15 eða 16 ára. Þá er hún eins og ókunnug kona sem býr inni á heimilinu. Skyldi Agnar Harrason hafa dottið í þann pytt að hugsa: -Dóttir mín hefur lent í slæmum félagsskap. Ég verð að stía henni frá þessum pilti. Hún er allt of góð fyrir hann. Hún ætti frekar að fara í háskólann en lenda í einhverjum lágkúrulegum skemmtanabransa? Hann hefur aldrei heyrt Silfá syngja. Hann er líklega upptekinn af fjölskylduspurningunni: -Ætlarðu ekki að verða verkfræðingur eins og pabbi? Silfá setti á sig hjálminn, þegar sjoppan lokaði klukkan hálftólf. Settist klofvega aftaná hjá Djonný. Smellti plastinu á hjálminum fyrir andlitið. Hún vafði báðum
14
handleggjunum utan um Djonny, lagðist uppað svörtu leðurbaki hans, og hélt sér fast. Rauð miðnætursól kveikti í skýjabakka á vesturloftinu. Silfá fann framtíðina kitla sig í magann.
Ég vildi að sagan endaði hér. En þá hefði ég varla talið hana í frásögur færandi. Hamingja Silfáar er mér svo mikils virði. Sagan er að byrja hér:
Silfá var flutt á gjörgæslu beint af slysadeild. Djonný brotnaði illa. Hann fékk að fara heim til mömmu sinnar (sem býr í Sandgerði) tveim dögum eftir slysið. Silfá skaddaðist á mænu. Við heimsóttum hana öll. Fyrst var hún rænulaus. Það var allt gert sem hægt var. Mánuður leið. Henni var hjálpað í hjólastól. Hún vildi ekki fara heim. Hún vildi vera á Grensási. Augu hennar voru myrk. Myrk eins og augun í hestunum sem ekki hlupu af ánægju heldur af ótta. Ég heimsótti hana á hverjum degi. Strákarnir úr hljómsveitinni komu og sögðu henni að Djonný væri að skríða saman.
15
Krakkarnir úr bekknum komu. Þeir gátu lítið sagt. Það er stundum erfitt að tala. Þeir komu með blóm. Hún leit varla upp. Ég gat lítið sagt, bara sat þarna hjá henni. Fór til hennar á hverjum degi. Ég vildi ekki tala um söng. Ég vildi ekki tala um popp. Ég þorði varla að tala um Djonný, en ég sagði henni að ég hefði hringt í hann og honum væri að batna. Hann væri að vísu með hækjur en byrjaður að skakklappast um allur blár og marinn ennþá og í gifsi. Hún vissi það. Hvít rúm, hvítar hjúkkur, hvítir sjúklingar sem gengu um eins og vofur, eina hljóðið var frá hækjum sem duttu með vissu millibili í gólfið. Ömurlegt. Silfá vinkona mín, gullþráðasystir mín, hér!
Eldheitur endir blossar upp á þessari ísköldu sögu, þegar Agnar og ég erum í heimsókn hjá Silfá. Ég keyri Silfá fram á sal. Agnar telur kjark í bugaða dóttur sína. Hann segir henni að hún geti aflað sér menntunar, hún geti orðið sjálfri sér nóg um alla hluti. Kannski nái hún sér alveg. Hann er ekki bugaður. Ég horfi á hann, og þori ekki að hugsa það sem ég er að hugsa: -Hvers vegna er hann ekki eins bugaður og ég? Sér hann fyrir sér .....
16
(ég reyni að ýta þessari hugsun frá mér)
... að nú verði hún aftur dóttir hans, heima í einbýlishúsinu hans, og hann láti taka alla þröskulda og kaupi handa henni fallegan bíl, fái leyfi til að gera innangengt úr bílskúrnum fyrir hjólastólinn, og hún geti farið í háskólann -- í verkfræði? Hver fruma í líkama mínum grætur af angist. Ég finn bylgjur af sársauka fossa eins og hafsjó og brim um mig allan. En undir niðri er ég kátur, því ég veit hvernig þessi saga endar -- ekki þið. Það hlakkar í mér. Ég lofaði að kjafta ekki frá. Hlustið nú: Faðir situr þarna og tíundar fyrir dóttur sinni alla þá möguleika sem hún hefur. Möguleika sem falla honum vel í geð. Hann horfir bjartsýnn fram á veginn, veg dótturinnar sem situr hér á Grensási í hjólastól, þegar Krókódílarnir bægslast upp stigann á Grensási með Djonný í fanginu. Og þeir blikka mig. Þeir bera hann, hlæjandi, að hjólastólnum hennar Silfáar og hann gerir sig spaugilega virðulegan með hækjurnar tvær. Þeir koma eins og eldgos undir jökli, ferskir og fullir af krafti: -Hæ, sól, í hjólastól.
17
Djonný réttir Agnari Harrasyni höndina -- og missir auðvitað aðra hækuna. Hækjur eru alltaf að detta: John Trec. Hæ. Og Djonný heldur áfram án þess að fatast: -Silfá ! Spilum á balli í Búðardal á laugardag. Náðu í dótið þitt. Er söngkonan okkar ekki í toppformi? Við seldum allt helvítis hjóladjönkið, - og keyptum sendiferðabíl!! - Krókódílar á fjórum hjólum ! Náðu í einhvern í hvítum sloppi til að útskrifa þig. Græjurnar okkar og hjólastóllinn iða af æsingi yfir að komast í fjörið. Skælbrosandi Krókódílar fá augu Silfáar til að tindra. Augu hennar verða eins og augun í hesti sem ber lítinn snáða ríðandi berbakt, snáða sem er sendur að leita að kúnum. Ég sprett á fætur til að leita að vakthafandi lækni. (--Gef mér ekki einu sinni tíma til að hlæja að svipnum á Agnari(!!) þegar væntingaþræðirnir í honum fóru í steik-). Ég er eins og kátur hundur sem dinglar skottinu. Gullþráðasystir mín Silfá horfir tindrandi augum inní bjarta framtið -- og ég veit að hún mun fá styrk í kroppinn sinn úr þeim lífskrafti sem hún var að finna innan sín. --oo0oo--
18
**********
handrit: LEYNIÞRÆÐIR handrit að stuttmynd Leyniþræðir handrit: (ISBN 9979-895-71-3) og hér í lokin finnast nótur laga Krókódílanna Skýringar á þessu enskuskotna handritamáli: V.O. þýðir voice over, og sögumaður segir frá, hugsar, án þess að hann sé á staðnum, þ.e. við höfum ekki á tilfinningunni að hann sé utan myndar og sjáist ekki þess vegna, heldur er hann annars staðar eða aðeins að hugsa. O.S. off screen, táknar hins vegar að sá sem talar er á staðnum þótt hann sé ekki í mynd í augnablikinu. P.O.V. er point of view, og er það sem sá sem horfir sér; séð frá honum (þessum ákveðna) eins og hann sér það; horfandi þarf, sá sem horfir, fyrst að vera í mynd (horfandi á eitthvað ákveðið sem við sjáum ekki fyrr en píóví-ið sést), og svo beint á eftir hans P.O.V. Maður getur aldrei verið í sínu eigin P.O.V., en maður getur gengið inn í sitt P.O.V. frá þeim stað sem hann (þessi horfari) er hugsaður á. Röðin er: sá sem horfir lítur, svo kemur hans P.O.V.
19
(sjónarhorn) úr þeirri fjarlægð (athugið vel: fjarlægð) sem á að virka sem sé milli horfandans og þess sem hann horfir á, en hægt er að ZOOM-a að aðalatriðinu sem horfarinn veitir mesta athygli; svo sést í lokin annað hvort aftur sá sem horfir og viðbrögð hans, eða hann gengur inní sitt P.O.V. til að framkvæma (action). Tilta þýðir að hreyfa kameru upp eða niður; pana þýðir að hreyfa kameru til hliða(r); zoom (súmma) inn/út er að þrengja eða víkka sjónarsvið kameru; dolly er kamera á trakki (track, á teinum); og meira er af svona fyndnum íðyrðum) -- b.g. í bakgrunn, f.g. í forgrunn. Skýring á uppsetningu: með hástöfum kemur, INT eða EXT. (inni- eða útitaka) í upphafi hvers nýs skots, og persónur sem eru í mynd í upphafi skotsins, eru taldar þar upp; replíkur (línurnar, texti leikarans) eru með öðru letri og annarri uppsetningu en skýringar og leiðbeiningar um atvikið og settið/ umhverfið. Í fyrsta sinn sem persóna birtist í mynd er nafn hennar letrað með hástöfum. Hljóðskipanir eru háletraðar í senu-línu. Einnig er til víð mynd, meðalvíð, close-up og extra closeup, en það gefur innsýn i tilfinningar persónunnar, leyniþræðina, hugsanir og innri viðbrögð við atburðarásinni.
20
Athugið að minningar um atvik, sem eru í upphafi sögunnar hér á undan, koma nú sumar hverjar sem hugsaðar minningar, FLASH-BACK, í löngum tíma tómleika á spítalanum. Í sviðsuppsetningu má nota myndband með minningum (flash-back) frá bernskuárum. Leikarar kyrrir (/frjósa) á meðan. Þægilegt að vita: Í handriti kemur hver ný sena á nýrri síðu; prentist út á A4 (--semsagt ekki í belg og biðueinsog í þessari A5 bók--)
aðeins á recto (hægri síður opnu), en verso (vinstri síða hverrar opnu) er auð. Sena sem fer yfir á aðra síðu fær „cont.“ (continued) í hornið neðst til hægri, og „cont.“ efst t.v. á næstu síðu. Mínútulengd myndarinnar er nokkurn veginn síðufjöldi handrits (þ.e. að meðaltali ein mínúta hver síða), svona gott að vita.
LEYNIÞRÆÐIR drög að handriti fyrir stuttmynd INT/INNI - Í MÍNU HERBERGI - „ÉG“, SÖGUMAÐUR, (FIMMTÁN ÁRA, LJÓSHÆRÐUR STRÁKUR,)
21
ÉG sit við gluggann og hlusta á POPPTÓNSIST á spólu í græjunum mínum. Ég horfi út, hugsi. POV mitt, EXT. - GARÐURINN SAMLIGGJANDI GARÐINUM MÍNUM (SÉÐUR úr fjarlægðinni frá glugga mínum) ríkmannlegt, snyrtilegt og kuldalegt - í b.g., garðmegin séð TVEIR SMÁPOLLAR á skólaaldri eru í fótbolta á snyrtilega afmörkuðu fótboltasvæði, eitt lítið mark. ÉG (V.O.): Við eigum fyrirmyndarnágranna. Bræður hennar Silfáar í fótbolta, eins og alltaf. Þeir eru hrifnari af fótbolta en kennslubókum. En pabbi þeirra og mamma hafa ekki áhyggjur af því. Það rætist oftast úr kraftmiklum pollum. INT. - BACK TO SCENE - AFTUR ÉG VIÐ GLUGGANN MINN Ég horfi út um gluggann yfir í garðana okkar og yfir að húsi verkfræðingsins. . . . . ÉG (ÁFRAM; V.O.): Það er allt í sómanum í þessu húsi, utan húss sem innan. Börnin kurteis og vel upp alin. Fyrirmyndarfólk.
22
Svipur minn verður blíður: ÉG (ÁFRAM; V.O.): Silfá. POV (úr réttri fjarlægð), EXT - HÚS VERKFRÆÐINGSINS (einsog áðan) SILFÁ kemur út úr húsi verkfræðingsins, gengur út í garðinn. Stendur þar og horfir á eitthvað, en hugur hennar er ekki við það. Hún gengur um. Hugur hennar er annars staðar. (Ath: Nokkuð langur texti við þessa senu. Silfá hreyfir sig, gengur um. Þetta er kynning á aðalpersónu.) ÉG (ÁFRAM; V.O.): Silfá, vinkona mín. Hún verður fallegri og fallegri með hverju árinu sem líður. Fegurð hennar liggur ekki síst í því, að hún talar ekki mikið, hlær ekki hátt. Hún brosir aðeins. Hún reynir ekki að ná athygli.
23
Við vorum alltaf samferða í skólann þegar við vorum lítil. Að vísu hættum við svolítið í sjötta bekk að láta sjá okkur vera samferða í skólann, en nú erum við vaxin upp úr svoleiðis barnaskap. Við erum líka hætt að vera í bílaleik, svo maður þroskast og breytist eðlilega. („ég“ hlær) Það er notalegt að eiga stelpu fyrir vin. Ég sé það best í samanburði við stráka sem aðeins hafa umgengist stráka. ... ... Strákar innanum stráka er ekkert nema keppni um hver er klárastur og sterkastur og tilfinningalausastur. Þegar stelpa birtist, eru þeir að reyna að vera blíðir eins og mömmur, og ákveðnir eins og pabbar. Úr veður eintómt öryggisleysi, því þeir geta hvorugt uppfyllt. AGNAR, verkfræðingur, og KONAN hans, mamma Silfáar og fótboltastrákanna, koma út úr húsinu út í garðinn. ÉG (ÁFRAM; V.O.): Nú, það er barasta öll familían! María var víst byrjuð í lögfræði einhvern tíma, en hætti þegar hún átti Silfá, og vinnur núna á lögmannaskrifstofu. INT (einsog áðan/BACK TO SCENE) - ÉG VIÐ GLUGGANN
24
Ég teygi mig til að sjá niður í okkar garð, og horfi yfir í matjurtagarðinn hennar mömmu. POV EXT, OKKAR GARÐUR --MAMMA MÍN (SÉÐ OFAN FRÁ ÚR MÍNUM GLUGGA) Mamma liggur á hnjánum/eða bograr í matjurtagarðinum. ÉG (ÁFRAM; V.O.): Mamma mín er einn af þessum snillingum með græna fingur. Alltaf ferskt og fallegt grænmeti hjá okkur. Hún vinnur líka í gróðrastöð, svo það eru líka alltaf falleg blóm alls staðar hjá okkur! Kannski eru leyniþræðir í káli og rósum líka? („ég“ hlær) Að minnsta kosti vex allt hjá sumum. INT - ÉG VIÐ GLUGGANN MINN, HUGSI, (SÉÐ í closeup, zoom í extra close up) AUGU MÍN ÉG (ÁFRAM; V.O. lágt): Ég hætti að horfa á eitthvað sérstakt, horfi út í buskann - eða raunar inn í sjálfan mig. Leyniþræðir. Það eru svo fáir sem sjá þá.
25
Agnar teiknaði lóðirnar okkar, pabbi keyrði í, mamma sá um að gróðursetja, og mamma Silfáar hjálpaði henni. MATCH DISSOLVE TO - Flash back: (notað til að tengja senur úr ólíkum tíma) (FADE IN:) INT - AUGU MÍN, ANNAR STAÐUR OG TÍMI zoom out to med, wide - VIÐ ERUM AÐ BORÐA: MAMMA, PABBI OG ÉG MAMMA MÍN (hlæjandi, mild): Þetta gekk nú vel. Veistu: verkfræðingar hugsa í strikum og hornum og burðarþoli ! MATCH DISSOLVE TO: (FADE IN:) INT - ÉG VIÐ GLUGGANN (back to scene); -- AFTUR POPPMÚSÍKIN -Ég stend upp og fer frá glugganum. . . . ÉG (V.O.): Mamma mín talar aldrei illa um fólk. Lagið endar. Ég sný kasettunni við og kveiki aftur á græjunum mínum. Stend, er hugsi.
26
ÉG (ÁFRAM; V.O.): -Ætlarðu ekki að verða verkfræðingur ein og hann pabbi þinn? Þetta er setningin sem Silfá fær að heyra í hverju einasta fjölskylduboði. Hún er afburðanemandi, hún Silfá. -Ætlarðu ekki að verða verkfræðingur ein og hann pabbi þinn? -Ætlarðu ekki að verða verkfræðingur ein og hann pabbi þinn? -Ætlarðu ekki að verða verkfræðingur ein og hann pabbi þinn? Nýtt lag sem við HEYRUM er að byrja. ÉG (ÁFRAM; V.O.): Hún er með níu í öllu, meðan ég geri mig ánægðan með sex. Og litlu bræður hennar Silfáar? Þeir eru bara meðalskussar, og enginn gerir sér rellu út af því. INT./ INNI, SKÓLI, GANGUR, - NÁNAR TILTEKIÐ FRÍMÍNÚTUR Í ELDRI BEKKJUM GRUNNSKÓLA - SILFÁ OG ÉG ÁSAMT FLEIRI KRÖKKUM AÐ RABBA SAMAN AD LIB (Ath. Silfá talar ekki, en hlustar, er kyrrlát, brosir ef til vill, en hlær ekki eins og hinir.) Tal unglinganna breytist yfir í LÆKKAÐ skvaldur. ÉG (ÁFRAM,(V.O.):
27
Ferskur stormsveipur kom allt í einu inn í okkar slétta og fellda, hrukkulausa líf í venjulegum skóla, þar sem allir reyna að vera í klíkum -- og allir búa í góðum einbýlishúsum eða parhúsum með útreiknuðum strikum, hornum og burðarþoli og vandlega plöntuðum skrautjurtum -- í ferköntuðu görðunum. Einn krakkanna lítur upp, fram eftir ganginum. Skvaldrið ÞAGNAR, Við hin lítum upp, og fram eftir ganginum. POV (allra krakkanna) -- INT/INNI, SKÓLI, SAMI GANGUR, - DJONNÝ TRECK - FLEIRI KRAKKAR (STANDANI Í GANGINUM) Djonný gengur í átt að hópnum geislandi af sjálfsöryggi DJONNÝ: Hæ. (Ath. stelpunum líst vel á Djonný) DJONNÝ (ÁFRAM): Hvað syngur í liðinu? Samræður hefjast að nýju, og ekki leynir sér að Djonný er miðpunkturinn. Samræðurnar verða að LÁGU skvaldri. ÉG (V.O.):
28
Hann var ekki teiknaður á teikniborði, hann Djonný Diskó. Hann er frjáls eins og vindurinn. Hann var getinn á sama hátt og njólinn og baldursbráin sem vaxa og blómstra í hrjóstrinu áður en jarðýtan kemur og aðkeyrða moldin úr húsgrunnunum og danska grasfræið. Ég hef aldrei hitt eins óklúðraðan ungling. Hann er að vísu tveim árum eldri en við, en er samt að koma í grunnskóla. Hann missti úr, vegna þess að mamma hans fór með hann til Bandaríkjanna -- því það stóð til að hún gifti sig. Klikkaði víst eitthvað þarna ytra. INT./INNI - Á SAL Í SKÓLANUM, UPPHÆKKAÐ SVIÐ DJONNÝ OG NOKKRIR STRÁKAR MEÐ HLJÓÐFÆRI, POPPHLJÓMSVEIT Þeir eru að byrja æfingu. Djonný spilar nokkur stef á gítar, aðrir spila einhver stef á önnur hljóðfæri. ÉG (ÁFRAM, V.O.): Það ferskasta af öllu fersku er, að hann stofnaði skólahljómsveit og það er æft uppi á sal á kvöldin. Þeir kalla sig "Krókódílana". INT - SAMI SALUR
29
KRÓKUDÍLA-ÆFING heyrist áfram O.S. Silfá, ég og fáeinir aðrir krakkar sjáumst sitjandi frammi í sal. (Við erum þarna til að hlusta á þá æfa.) DJONNÝ (kallar af sviði): Silfá. Ertu ekki til í að syngja? ÉG (V.O.): Ég veit vel að Silfá getur sungið. Hún syngur oft með þegar við spilum plötur og spólur hjá mér. Hún á geislaspilara. En ég hef aldrei ímyndað mér hana uppi á sviði með mæk við munninn. Við Silfá loðir alltaf spurningin: Ætlarðu ekki að verða verkfræðingur eins og pabbi þinn? Ég horfi á Silfá. Allir horfa á Silfá. Silfá stendur upp, gengur upp á svið. Hún snýr sér ekki fram heldur uppsviðs. Djonný segir eitthvað lágt við Silfá. Djonný tekur um axlirnar á henni og snýr henni, þannig að hún horfir út í sal. Hann brosir út að eyrum. Það er dauðaþögn. Hljómsveitin BYRJAR AÐ SPILA rólegt lag. Silfá syngur lágt en fallega. (sjá nótur í lok þessa handrits)
30
Við úti í sal klöppum, þegar laginu lýkur. Djonný hneigir sig, hlæjandi. Silfá brosir. Djonný talar lágt við strákana og Silfá. Næsta LAG, Silfá syngur.
INT - SAMI SALUR - ÉG, SITJANDI ÚTI Í SAL (closeup) ÉG (V.O.): Það hefur aldrei runnið upp fyrir mér að Silfá getur komið dægurlagatexta til skila af sannri innlifun og tilfinningu. Ég hef oft heyrt hana syngja, en hef ég nokkurn tíma hlustað í raun og veru? Eitthvað gerðist þegar Krókódílarnir slógu fyrsta tóninn. Eitthvert afl úr iðrum hugans losnaði úr læðingi. Silfá hefur yndislega rödd. Hún er fegurri en nokkru sinni. Þegar Djonný horfir á hana er hann eins og lítill drengur á svipinn (Ath: ekki örlar á afbrýðisemi í rödd minni né svip, aðeins innri gleði yfir að Silfá líður vel)
31
Ég er að horfa á Silfá, vinkonu mína, gullþráðasystur mína, gera það sem gerir hana hamingjusama. Þegar henni líður vel líður mér vel. Ballöður og tregablúsar eru henni svo eiginlegir. Djonný lítur ekki út núna eins og Djonný Diskó töffarinn í fjörinu.
INT. SAMI SALUR - ÉG OG KRAKKAR SEM HLUSTA Á ÆFINGUNA -- ÆFINGIN HEYRIST ÉG (ÁFRAM; V.O.): Ég veit að ég er væminn núna, en mér er alveg sama: Leyniþræðirnir milli þeirra titra eins og þandir gítarstrengir. INT -- SAMI SALUR, SVIÐIÐ, (sömu umhverfishljóð samfelld) KRÓKUDÍLARNIR OG SILFÁ ÉG (ÁFRAM; V.O.): Ég hef aldrei þorað að nefna þetta við neinn, þessa áráttu mína að horfa í augu fólks í leit að leyniþráðum, af ótta við að vera talinn við-
32
kvæmur eða skrýtinn. Ég viðurkenni fyrir sjálfum mér að þetta er veikleiki sem ég er að reyna að fela. Ég er hættur við að verða vörubílstjóri eins og pabbi og ætla frekar í leyniþráðafræði. (rödd „mín“ V.O. er hálfhlæjandi) Ekki hlæja. Ég veit að þetta hljómar kjánalega. Ég fékk oft að sitja í hjá pabba heilu dagana þegar ég var lítill. Auðvitað ætlaði ég að verða vörubílstjóri þegar ég yrði stór. Við röbbuðum mikið, pabbi og ég. Hann hefur alltaf tíma til að hlusta. Ég skammast mín ekkert lengur fyrir að vera viðkvæmur. Ég talaði aldrei um leyniþræðina við pabba. En milli mömmu, pabba og mín eru þeir mjög, mjög góðir. Það rennur upp fyrir mér núna, að Silfá hefur aldrei svarað spurningunni: Ætlarðu ekki að verða verkfræðingur eins og pabbi þinn? Ég sé núna - allt í einu - að Agnar klikkar eitthvað á þessu með burðarþolið, þegar mannssálir eiga í hlut.
EXT/ÚTI - SKÓLAPORTIÐ OKKAR, VETRARKVÖLD -
33
Djonný diskó sest á mótorhjólið, smellir á sig hjálminum, veifar til okkar og setur í gang. Silfá og ég veifum, leggjum af stað gangandi heim á leið. Aðrir krakkar fara úr skólaportinu, ýmist á skellinöðrum eða gangandi (hver á leið til síns heima) rabbandi saman og AD LIB kveðjur.
EXT/ÚTI - SAMA VETRARKVÖLD, GATA Í EINBÝLISHÚSAHVERFINU SEM VIÐ BÚUM Í - SILFÁ OG ÉG Gangandi heim á leið. Fyrst göngum við þögul. SILFÁ: -Veistu, Palli? Mig langar til að læra að syngja. Ekki til að syngja svona óperur og svoleiðis, -- heldur langar mig til að syngja popp. Heldurðu að það sé ekki gott að læra að syngja, þótt maður sé aðeins í poppi? ÉG: -Silfá! Þú ert svo góð söngkona. Þetta liggur svo vel fyrir þér. Sláðu til. Ekki hika, þegar þú finnur hvað þig langar. Silfá brosir. Við göngum áfram.
34
INT/INNI - Á SAL Í SKÓLANUM - KRÓKÓDÍLARNIR OG SILFÁ AÐ ÆFA - ÉG SEST ÚT Í SAL Hljómsveitin hitar upp. Silfá gengur um á sviðinu. Hún er orðin áræðnari í klæðaburði, virðist sjálfstæðari og opnari en hún var, þótt hógværðin sé henni eiginleg. DJONNÝ (kallar af sviðinu) Hey, þú! Palli! Snögglega sér nærmynd af mér (ZOOM TO CLOSE-UP); Ég hrekk upp úr hugsunum mínum. DJONNÝ (ÁFRAM; kallar O.S.): Ertu ekki svolítið rythmiskur? ÉG: -Ha? Ég? Ertu að tala við mig? Ég lít í kringum mig, svo á Djonný uppi á sviðinu. DJONNÝ (O.S.): Yes, sir. Komdu, ef þú nennir. Ég stend upp, vandræðalegur.
35
UPPI Á SVIÐI - KRÓKÓDÍLAR OG SILFÁ Ég kem gangandi inn í mynd. Djonný réttir mér bambushólka. DJONNÝ (ÁFRAM): Ímyndaðu þér að þú sért negri í svörtustu Afríku. ,Úm-ba úm-ba úm-ba úm-ba‘. Innlifun, skilurðu. Gleymdu fólkinu þarna úti í myrkrinu, fólkinu með eyrun og augun. Er nokkur þarna, annars? Djonny horfir út í sal, ber hönd að enni sem skyggni, pírir augun, og þykist ekki sjá þar eina einustu hræðu. Silfá brosir til mín. Ég lít á hana, spottskur. ÉG (V.O.): Hann er óútreiknanlegur þessi Djonný. Djonný bendir mér á stað, sem hann vill að ég standi á. DJONNÝ: Þú ert svona uppfyllingarefni. Ég hlæ að þessari merkilegu stöðu minni í listsköpuninni. ÉG: Aldrei hélt ég að ég yrði krókódíll!
36
DJONNÝ: Sjaldgæf tegund: íslenskur rythmiskur Afríkukrókódíll. Allir til? tveir þrír fjór Djonný nær í eitthvað svipað tambórínu og réttir Silfá. Djonný sets við afró-trumbur Djonný byrjar. Hinir taka undir, smátt og smátt. - AFRÓ.
Lagi LÝKUR; (eða frekar) CUT TO: EXT/ÚTI, - HÚS AGNARS VERKFRÆÐINGS GÖTUMEGIN SÉÐ - VÍÐ MYND FYRST (Ath. hugsanir mínar flæða óhindrað undir þessari og næstu götusenum.) ÉG (V.O.): Hvað er dóttir Agnars Harrasonar að gera á kvöldin?
37
Það hlaut að koma að því að hann færi að hugsa um það? Nú SÉST NÆR og NÆR húsinu; ZOOM hægt á húsið. ÉG (ÁFRAM; V.O.); Hann hlýtur að heyra í mótorhjóli fyrir utan hús sitt, alltaf rétt áður en Silfá kemur heim á kvöldin. Það er svo lítil umferð hér. Það hlaut að koma að því að hann biði úti í glugga á kvöldin. Nú SÉST NÆR og NÆR stofuglugganum; ZOOM að stofuglugganum sem snýr útað götunni. LOKS SÉST inn um gluggann: Agnar standandi innan við gluggann, horfandi út. ÉG (ÁFRAM; V.O.): Hann hlýtur líka að hafa velt fyrir sér, hvers vegna kennaraeinkunnir Silfáar urðu lægri en í fyrra. Hvað verður með prófin? Þetta er mikilvægt próf fyrir þá sem ætla í framhald. Það HEYRIST O.S. í mótorhjóli, sem nálgast húsið. Agnar, sem sést inn um gluggann (séð utanfrá), beinir athyglinni að því sem hann sér. Mótorhjólið HEYRIST í lausagangi O.S. stutta stund. Svo HEYRIST O.S. að mótorhjólinu er ekið brott.
38
ÉG (ÁFRAM; V.O. (ímyndaðar hugsanir Agnars sem er í mynd, þögull innan við gluggann)): Hver er þessi dökki mótorhjólagaur, sem ekki sést framan í fyrir hjálmi? Fótatak Silfáar á stéttinni HEYRIST O.S. ÉG (ÁFRAM; V.O. nú um Agnar): Maðurinn getur ímyndað sér að gaurinn er ekki fimmtán ára --- á svona farartæki. FÁ Í MYND (auk gluggans): útihurðina og stéttina. Á stéttinni, gangandi léttum skrefum ástfanginnar stúlku, og við útihurðina á húsi verkfræðingsins, er Silfá í svörtum leðurgalla; Hún opnar með lykli. (Ath: Silfá hefur breyttst úr kyrrlátri telpu í frjálslega stúlku) ÉG (ÁFRAM;V.O.): Það er kalt aftan á mótorhjóli. Silfá fer inn og lokar á eftir sér. ÉG (ÁFRAM, V.O.): Þeir sem eru mikið á mótorhjóli kaupa sér leðurgalla -þeir sem kaupa sér leðurgalla eru mikið á mótorhjóli. Það getur hver einasti meðalgreindur verkfræðingur ímyndað sér.
39
EXT/ÚTI, - GATAN OKKAR - ÉG GANGANDI HEIM Á LEIÐ Það HEYRIST í mótorhjóli Djonnýs O.S., kemur á móti mér og nálgast mig. (Ath: Djonný heyrist aka frá húsum okkar Silfáar í gagnstæða átt við mig sem er gangandi heim á leið) ÉG (ÁFRAM): (V.O.) Þeir eru ekki neitt heimskir, verkfræðingar. Ég lít upp, brosandi, og rétti upp handlegginn sem kveðju. (Ath. Hugsanir mínar VOICE OVER flæða óhindrað áfram undir þessum götusenum.) POV („mitt“) EXT, SAMA GATA, SÖMU UMHVERFISHLJÓÐ (MOTORHJÓL) -- DJONNY KEMUR KEYRANDI NÆR MÉR (/móti mér í gagnstæða átt) Djonný veifar til mín á móti. (Ath: Hann er að láta mig vita að Silfá er örugglega komin heim.) ÉG (ÁFRAM, V.O.):
40
Skyldi Agnar Harrason hafa dottið í þann pytt, að hugsa: Dóttir mín hefur lent í slæmum félagsskap? Hún kemur seint heim á kvöldin. Skyldi Agnar láta sér detta í hug: Ég verð að stía henni frá þessum pilti. Hún er allt of ung? Eða jafnvel: Hún er allt of góð fyrir hann?
INT/INNI, SALURINN Í SKÓLANUM - SKÓLABALL VIÐ: SKÓLAHLJÓMSVEITIN KRÓKÓDÍLARNIR, ÁSAMT SÖNGKONUNNI SILFÁ Við erum að fara að spila fyrir dansi. Silfá er í dressi í skærum litum. Það er SKVALDUR í krökkunum. Við hefjum popptónlistarflutninginn. Krakkar dansa - fjör.
dansandi krakkarnir klappa þegar lagi lýkur Djonný gengur, móður og kátur, að hljóðnemanum - við hin í hljómsveitinni stöndum upp.
41
Krakkarnir klappa enn. Við hin göngum af sviðinu (niður fyrir sviðið, fremst í salinn). Djonný bíður brosandi eftir að KLAPPINU LINNI. DJONNÝ: Jæja, „guys - an' dolls“! Næsta lag heitir: Ófrísk af trekk. Það er tileinkað mömmu minni. Ég heiti sko, eins og þið vitið: John Treck. Mamma hefði vel getað látið mig heita Jón Hermannsson, því pabbi minn var hermaður. Hún hefði getað látið mig heita Jón Erlendsson því hann var erlendur maður. Hún hefði getað látið mig heita Jón Hansson - son einhvers hans - því það hlýtur að hafa verið karlmaður. En hún lét mig heita John Treck. Þess vegna samdi ég lag handa henni. Krakkarnir hlæja innilega. Djonný syngur sóló og spilar á gítar undurfallegt lag, sem er mest hummm, - stöku sinnum: mamma, mamma mín, og - í lok hverrar vísu (DJONNÝ syngur yndislega, einsog honum einum er lagið án þess að verða væminn):
42
... 'hve ég finn það, trekk í trekk í trekk, mamma, að þú ert prímadonnan mín'. Í MYND: Krakkarnir í salnum - sem hlusta og rugga saman í takt við lagið sem DJONNÝ SYNGUR ÁFRAM O.S. ÉG (V.O): Hvernig getur þessi drengur, sem kemur nýr inn í hópinn, sagt svona drepfyndna hluti á sjálfs sín kostnað? (Ath: Þessar hugsanir koma á þeim köflum lags Djonnýs, sem eru lágt humm og gítarspil - „ég“ hugsa ekki í orðum, meðan texti Djonnýs er, til þess að textinn heyrist.) ÉG (ÁFRAM; V.O.): Hann Djonný þarf ekki einu sinni að tilheyra klíku. Hann er bara hann sjálfur. Og hvernig getur hann djókað með sjálfan sig og sína eigin móður? Ekkert er viðkvæmara en fjölskyldan. Ég --svona til samanburðar-- ég get ekki einu sinni sagt frá því að mamma mín var ófrísk eftir annan þegar hún hitti pabba. Pabbi og hún eiga ekkert barn saman. Ég þekki alvörupabba minn ekki.
43
Og Djonný semur handa mömmu sinni svona fallegt lag og afhjúpar innstu þræði sálarinnar á einlægan og óklúðraðan hátt!! Djonný enn einn á sviðinu. Hann lýkur laginu. Mikið klapp. Við hin í hljómsveitinni komum aftur upp á svið. Næsta lag, fjörugt. Dansað.
INNI, SKÓLASTOFA, KRAKKAR Í PRÓFI, NÍUNDI BEKKUR GRUNNSKÓLA, SAMRÆMDU PRÓFIN - SÓL ÚTI DJONNÝ ER HÉR, SILFÁ ER HÉR, ÉG ER HÉR, OG FLEIRI Það er dauðaþögn. Allir rembast við að leysa af hendi prófið. Kennari gengur um stofuna eða situr við kennaraborðið. Ég lít upp og horfi annars hugar út í loftið.
44
ÉG (V.O.): O, það verður gott þegar þetta er búið. Sumarið að koma. Hryllingur að sitja hér inni í svona veðri. Það ætti alltaf að vera vont veður þegar maður er í prófum. Ég hef alltaf farið í sveit á sumrin - - - þar til nú. Ég hlakka til að vera í bænum; fá mér vinnu. Ég renni augunum yfir að Djonný, (etv POV, etv vítt) Djonný klórar sér í hausnum, grettir sig og hugsar. ÉG (V.O. ÁFRAM): Við ætlum að reyna æfa í sumar. Kannski að reyna að spila á böllum í sumar. Kannski úti á landi. Silfá kemur Í ÞRENGRI MYND. Hún skrifar, afslöppuð. ÉG (V.O.): Silfá er búin að fá vinnu í sjoppu. Ég veit það. En ég efast um að hún sé búin að segja pabba sínum og mömmu það. Við erum trúnaðarvinir, Silfá og ég. Hún hefur alltaf unnið á verkfræðiskrifstofunni hjá Agnari. Verið í sendiferðum og svoleiðis. Hvað skyldi hann segja? ----
45
--- Nei, þetta dugar ekki. Ég verð að reyna að kreista eitthvað út úr hausnum á mér. Ég einbeiti mér að prófinu.
EXT/ÚTI, SJOPPA, SUMARKVÖLD NÁLÆGT MIÐNÆTTI Mótorhjól Djonnýs kemur að. Hann drepur á hjólinu og gengur inn í sjoppuna. Fólk fer út úr sjoppunni (eða einhver hreyfing). Stuttu seinna koma Djonný og Silfá út. Silfá lokar/læsir hurðinni að sjoppunni, tekur í húninn til að fullvissa sig um að það sé læst. Þau eru bæði í svörtum leðurgöllum. SJÁST NÆR og NÆR (zoomað að) Silfá setur á sig hjálm. Djonný sest á hjólið, ræsir. Silfá sest klofvega fyrir aftan hann. Djonný brosir, smellir niður glerinu á hjálminum. Ræsir hjólið. SJÁST NÆR og NÆR (ZOOM HÆGT AÐ)
46
Silfá leggur báða handleggina utan um Djonný. Hún hallar höfðinu upp að baki hans. Bros leikur um varir hennar. (Ath. Þetta sé róleg, falleg mynd af svörtu leðurbaki Djonnýs og brosi Silfáar með hjálmvarið höfuðið þétt uppivið bak hans.) Djonný keyrir af stað - ekki glannalega. Keyrir frá sjoppunni út á umferðagötuna, varlega. Þau SJÁST fjarlægjast. ÉG (V.O.): Framtíðin kitlar mann í magann, þegar maður er ástfanginn. -- Silfá vinkona mín er ástfangin, -og ég er glaður, vegna þess að hún er glöð. MYND VÍKKAR Í VÍTT Rauður miðnætursólarhiminn umlykur borgina. Allt verður rautt, svo rautt og undarlegt. (Ath: Fögur, löng, heit sena.) Við HEYRUM motorhjólið fjarlægjast.
CUT TO /EÐA FADE TO (CONTRAST): ÚTI, ÍSKALDUR GRÁR SPÍTALAVEGGUR
47
- Nístandi væl í sjúkrabílum HEYRIST INNI, GJÖRGÆSLA - SILFÁ OG MARÍA (MAMMA SILFÁAR) allt hvítt og grátt og þögult. Silfá liggur hreyfingarlaus með lokuð augu í sjúkrarúmi. Sjúkratæki tengd við hana. María, mamma hennar, situr við rúmið, starir, sviplaus, hreyfingarlaus, á dóttur sína. SJÓNARHORN hreyfist HÆGT.
FADE TO: FADE IN INNI, GJÖRGÆSLA - SILFÁ - AGNAR (PABBI SILFÁAR) (ÁFRAM SAMA) Silfá liggur hreyfingarlaus með lokuð augu í sjúkrarúmi. Sjúkratæki tengd við hana. Agnar pabbi hennar situr við rúmið, starir á hvíta sængina fyrir framan sig. Það eru kippir í andliti hans, augnaráðið hvasst. Hjúkrunarfræðingur kemur, skiptir um glúkósaflösku, fer.
48
FADE TO: FADE IN INNI, GJÖRGÆSLA, - SILFÁ OG ÉG (önnur umhverfishljóð en í fyrri senunni til að gefa til kynna tíma milli atriða) Silfá liggur hreyfingarlaus með lokuð augu í sjúkrarúmi. Sjúkraæki tengd við hana. Ég sit við rúmið. SJÓARHORN hreyfist HÆGT í hring og ofar eins og séð meira ofanfrá.
Ég reisi höfuðið með lokuð augu. Ég berst við grát. Nasavængirnir titra, varirnar titra. ÉG (VO): Ég er viðkvæmur. Löngu hættur að skammast mín fyrir það.
FADE TO: FADE IN INNI, GJÖRGÆSLA - SILFÁ
49
OG MARÍA (MAMMA SILFÁAR) Silfá liggur hreyfingarlaus með lokuð augu í sjúkrarúmi. Sjúkratæki tengd við hana. María, mamma hennar, situr við rúmið. María starir, sviplaus, á dóttur sína. Nú sést aðeins glúkósaflaska sem drýpur úr, dropi eftir dropa eftir dropa. (ZOOM hægt to CLOSE UP) YFIRÞYRMANDI HÁTT HLJÓÐ ÚR FLÖSKUNNI (EYKST/HÆKKAR ÓÞOLANDI ÁREITIÐ)
INNI, GRENSÁSSDEILD, SJÚKRASTOFA - SILFÁ OG ÉG Baksvipur Silfáar sitjandi í hjólastól við glugga, hún snýr að glugganum, ég sit við gluggann hjá Silfá. Ég horfi á ekki neitt. Hægt HREYFIST SJÓNARHORN í hálfhring og NÆR. Tómur svipur Silfáar kemur í ljós. Föl dagsbirtan frá glugganum gerir hörund hennar hvítt. Við sitjum þögul nokkra stund.
50
ÉG: Djonný fékk að fara heim í morgun. Hann var fluttur í Sandgerði til mömmu sinnar. Silfá nikkar. ÉG (áfram): Hann má ekki hreyfa sig mikið. Ég lít upp, horfi fram að dyrum. Silfá hreyfir sig ekki. Reynir ekki að finna út UMGANG FÓLKS að baki sér. POV (séð frá mér) SJÚKRASTOFAN - KRAKKAR ÚR SKÓLANUM Þau standa vandræðaleg í dyrunum. Eitt þeirra heldur á blómum. SJÚKRASTOFAN - SILFÁ OG ÉG (POV; Séð frá krökkunum:) baksvipur Silfáar í hjólastólnum. Ég stend upp. ÉG: Silfá. Það eru vinir okkar að koma í heimsókn. Ég sný hjólastólnum hægt við, svo hann snýr fram að dyrum. Silfá lítur hægt upp.
51
Dagsbirtan, sem nú kemur aftanfrá, gerir hana að skuggamynd, grafkyrri sviplausri skuggamynd. POV okkar (Silfáar og mitt fram að dyrum); SJÚKRASTOFAN - KRAKKARNIR Þau standa vandræðaleg í dyrunum - haldandi á blómunum. Þau ganga inn í átt að okkur. Sá sem heldur á blómunum réttir Silfá þau: rósabúnt í sellófan. POV krakkanna - SJÚKRASTOFAN - SILFÁ (Séð niður á við frá krökkunum.) Blómin sjást í hendi þess sem afhendir þau. Birta gluggans í bakgrunn; Silfá, hreyfingalaus, sem dökk silúetta. Hönd mín (kemur inn í mynd) sést taka við blómunum og leggja þau í kjöltu Silfáar. Silfá nikkar örlítið til krakkanna án þess að líta upp. Við sjáum nú aðeins rósir í sellófan liggjadi í kjöltu Silfáar. (ZOOM hægt í CLOSE-UP á blómin og ískaldan glitrandi cellófan)
FADE TO WHITE (þannig að blómin í sellófani í kjöltu Silfáar fölni yfir í hvítt og hverfi svo í al-
52
hvítt)
INNI, SETUSTOFA Á GRENSÁSDEILD - SILFÁ OG ÉG, FÁIR EÐA ENGIR HÉR AÐRIR Við segjum ekkert. . . . STRÁKUR ÚR HLJÓMSVEITINNI (O.S.) Hæ! Ég lít upp, brosi. Silfá lítur hægt upp. Inn í mynd koma nokkrir strákar úr Krókódílunum. (Ath: Þeir eru í litríkum fötum og glaðklakkalegir og hlæja hátt, -- sem stingur algjörlega í stúf við leiðinlegt litlaust umhverfið.) STRÁKUR ÚR HLJÓMSVEITINNI: Jæja, Silfá mín. Hvernig líður? SILFÁ: Takk. STRÁKUR ÚR HLJÓMSVEITINNI: Ég var að tala við Djonný í síma. Hann er allur krambúlerður ennþá.
53
Má ekkert reyna á sig, en er að skakklappast á tveim hækjum til að komast á klóið. Mér skilst á honum að það sé mjög erfitt að vera skotinn í honum eins og hann lítur út þessa stundina(!!). Mjög óaðlaðandi, segir hann, og ó-sexí! STRÁKUR ÚR HLJÓMSVEITINNI: Viltu að við keyrum þig aðeins út í sólina, Silfá? ÉG: Ertu til í það? Silfá er hreyfingarlaus. Sólin skín inn um gluggann á vanga hennar. Hin hlið andlitsins í skugga, miklir kontrastar, grafiskt film noir. Hún svarar engu. Hún er líkari líkneski en ungri lifandi stúlku. Í svip okkar sést, að við vitum ekki hvað við eigum að gera. Við rembumst við að vera hressir og fá hana með út. Hún mótmælir með tómlæti sínu, mótmælir án þess að segja orð. ÉG (VO): Silfá talar alltaf með þögninni, því þögnin hennar er ekki tóm heldur þrúgandi djúp.
54
SAMA ÁFRAM Silfá, strákarnir úr Królódílunum og ég erum hreyfingarlaus, eins og óraunverulegar dökkar styttur, silhúettur, sem ber í ofurskæra sólarbirtuna sem kemur inn um gluggann á móti kameru. Öll setustofan SÉST SMÁTT OG SMÁTT (VÍKKA SJÓNARHORN, ZOOM HÆGT ÚT Í VÍTT), með fólki í hjólastólum, fólki í rúmum sem keyrð hafa verið fram eða er verið að keyra fram, hægt (allar hreyfingar hægar og líðandi), í mynd kemur dökkklætt fólk sem er að koma í heimsókn; hægar, óhugnanlegar hreyfingar, þögn eða dimmur mónotón effekta-BAKTÓNN, einstaka ÍSKUR (úr rúmhjólum eða öðru). (Ath: Ekki ljót sena, en óhugnanleg, köld og fráhrindandi, óraunveruleg; tíminn er ekki til hér, lífið og allt er stopp í hrímkaldri ofurbirtu; ath: Ekki sér framan í neinn sérstakan. Á fólki f.g. (í forgrunni) er baksvipur eða það er óþekkjanlegar skuggamyndir/silúettur. Þetta er eins og kirkjugarður á hreyfingu.) Hjúkrunarkona f.g. (í forgrunni) sveiflar hvítu laki, sýnt í SLOW MOTION. Hún breiðir yfir fölan sjúkling. Hvít þunn gluggatjöld mega blakta í andvara, og sólin lýsir þau upp utanfrá.
55
Andrúmsloftið virkar einsog spurning: Er Silfá að grafa sig lifandi? Í lok eins og HORFT í gegnum hvíta, blaktandi slæðu, kannski eins og blaktandi storís í fellingum, sem er e.t.v. lakið í f.g. (forgrunni) eða gluggatjaldið í b.g. (bakgrunni).
FADE OUT
INNI, GANGUR Á GRENSÁSDEILD - AGNAR (PABBI SILFÁAR) Agnar er að keyra á undan sér .... (--einbeittur og áhugasamur á svip, og ekki sorgmæddur--) ..... hjólastól Silfáar fram ganginn. Ég geng á eftir. Silfá horfir áhugalaust fram fyrir sig. Svipur hennar er tómur. Agnar er fullur áhuga á framtíðinni. Agnar keyrir rösklega fram í setustofuna; ég á eftir þeim. Í setustofunni eru sjúklingar (-- í rúmum, í hjólastólum, eða með hækjur --) að horfa á sjónvarpið. Agnar stoppar hjólastólinn í einu horninu.
56
Silfá horfir áhugalaust fram fyrir sig. (Svipur hennar er tómur.) Allt virkar ópersónulegt og vélrænt. Agnar sest á stól. Ég næ mér í stól og sest. Við erum hluti af vonlausri sítúasjón. (Ath.: Hjólastóll Silfáar snýr þannig, að hún sér fram yfir setustofuna og fram að stiganum sem liggur hingað upp, stigaskörin sést en ekki stiginn sjálfur. Þetta er POV Silfáar, sem hún er þó ekki að horfa á (frekar en annað) þessa stundina.
INNI (SAMA) GRENSÁS ÁFRAM SETUSTOFAN - AGNAR, SILFÁ, ÉG AGNAR, PABBI SILFÁAR: Ég hef fréttir að færa þér, Silfá mín: Ég er að festa kaup á bíl. Bíl, sem þú getur svo keyrt, þegar þú færð bílpróf. Ég er að kynna mér hvernig og hve mikið Tryggingarnar taka þátt í þessu. Mikill frumskógur þessi almannatryggingamál. Svo er ég búinn að gera heilmikið í húsinu. Það verður innangengt úr bílskúrnum inn. Ég er búinn að láta taka alla þröskulda burt, og læt setja litla lyftu milli hæða. Ég er búinn að teikna hana.
57
Þú mátt ekki láta bugast. Þú verður að fara að koma heim. Læknarnir vilja að þú farir heim. Þeir vilja ekki að þú sért hér of lengi. Silfá mín. Agnar reynir að fá viðbrögð hjá Silfá. AGNAR, PABBI SILFÁAR (ÁFRAM): Heyrirðu til mín? Þú, með þínar góðu gáfur, hefur svo mikla möguleika. Þú getur farið í Háskólann eftir stúdentspróf. Ótal möguleikar eru fyrir hendi. Þú aflar þér menntunar. Þú getur orðið sjálfri þér nóg um alla hluti. Kannski nærðu þér alveg. Ég horfi á Agnar. Ég verð hugsi. (Tal Agnars verður óskýrara, ekki greinast nema nokkrar fyrstu setningarnar af framhaldinu. Agnar er áhugasamur og hress) AGNAR, PABBI SILFÁAR (ÁFRAM): Þú getur rétt ímyndað þér að við hjálpumst öll að. Þetta verða aðeins byrjunarörðugleikar, alls ekki óyfirstíganlegir. .... (....texti Agnars heldur áfram en við greinum ekki orðin) Hann heldur áfram að tala í sama dúr, að stappa stálinu í Silfá og reyna að hressa hana upp og fá hana til að koma heim.
58
Ég horfi nokkra stund á Agnar, með yfirvegaðri tortryggni og einhvers konar undrun í svipnum. Ég hætti að heyra orð hans því hugsun mín grípur mig allan og heldur mér heljartökum. ÉG (V.O.): (Ath.: Tal mitt er samfellt og tónninn er spyrjandi; en ég berst við hugsanir mínar, angist heltekur mig) Hvers vegna er Agnar Harrason svona hress? Hvers vegna er hann ekki sleginn og bugaður og með kökk í hálsinum eins og við hin? Ég þori ekki að hugsa þá hugsun sem er að brjótast fram. Ég má ekki -- en ég get ekki hrint þessari hugsun frá mér : ----- Nú verður hún aftur einkadóttir hans! ----- Heima í einbýlishúsinu hans! ----- Hann kaupir fallegan fatlaðrabíl, ----- og hún getur farið í Háskólann, - í verkfræði ! Hugsanir hans les ég og heyri einsog þær væru sagðar upphátt. Hver fruma í líkama mínum grætur í angist. Ég er örvilnaður af því sem hugur minn segir mér til um að gæti gerst: (mynd fer í CLOSE-UP af mér og inn í huga mér)
59
FADE IN - Í MÓÐU, HUGSANIR: EXT/ÚTI - VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS - SILFÁ, AGNAR (hugarburður minn, og eitthvert ANGISTARHLJÓÐ heyrist, og er ærandi þótt það sé lágt) Silfá, umkomulaus í hjólastól. Silfá heldur sér dauðahaldi í hjólastólinn. Agnar ekur henni hratt og ákveðið að dyrunum og inn í anddyri Háskólans. (BACK TO SCENE) INT/INNI - GRENSÁS SETUSTOFA - ÉG (aftur eins of fyrir hugarburðinn). Ég kem til sjálfs mín á ný eftir angistina. Agnar situr hress við hlið Silfáar, dóttur sinnar. Silfá er kyrr og dauf. Ég er miður mín. ÉG (ÁFRAM; V.O.): Ég sá margt í sveitinni þegar ég var lítill: (mynd fer í CLOSE-UP af mér og inn í huga mér) FADE TO FLACH-BACK FADE IN / Í MÓÐU, HUGSANIR
60
INNI, SMIÐJA Í SVEIT - ÉG SEM UNGUR DRENGUR Lifandi eldur og glóð - allt rautt og svart - (eins og eini ljósgjafi sé eldurinn, og allt hér inni sé sótugt.) Ég, sem ungur drengur, stend nálægt eldinum Taktföst högg HEYRAST O.S. Ég fikta við glóðheita töng Ég brenni mig allt í einu í fingurna á tönginni. Hrekk við. Lít flóttalega upp til hliðar. (POV mitt, uppávið á fullorðinn manninn; sömu umhverfishljóð, högg skeifnasmiðsins, nú í mynd) INNI, SMIÐJA Í SVEIT - ÓHREINN SKEIFNASMIÐUR Hann hamrar skeifu á steðja, lítur illilega á mig (niður á móti því sem ég horfði upp að), horfir eitt andartak á mig, heldur áfram, taktfast, að berja sína skeifu. SKEIFNASMIÐURINN: (spýtir út orðum milli hagga) Rétt mátulegt á þig. Ég var búinn að banna þér að vera að fikta þetta. AFTUR ÉG (SEM UNGUR DRENGUR) Lúpulegur baksvipur minn sést, við eldsins flöktandi bjarma í smiðjunni. Höggin HEYRAST áfram O.S., þung og taktföst. HEYRIST SEM einhvers konar bergmál:
61
Rétt mátulegt á þig. Rétt mátulegt á þig. Rétt mátulegt á þig. Ég var búinn að banna þér að vera að fikta þetta. ÉG (V.O.): Ég hugsaði með sjálfum mér: Þessi er með gaddavírsþræði. FADE TO: FLASH-BACK FADE IN ÚTI, GÖMUL, STEINSTEYPT TRAPPA VIÐ ÚTIDYR Á SVEITABÆ - ÉG, SEM UNGUR DRENGUR, SIT HÉR Ég tálga spýtu með vasahníf. Ég (ungur) rek hnífinn í fingurinn og kippist við. SAMA FLASH-BACK (contium) INNI, ELDHÚS Í SVEIT, - HÚSFREYJAN HÚSFREYJAN Blóðgaðirðu þig nú, greyið mitt. Hún tekur plástur upp úr gömlum blikk-kassa, sem er sjúkrakassi heimilisins, og lætur á sárið. HÚSFREYJAN (ÁFRAM): Við skulum nú ekki láta koma skít í þetta, þótt lítið sé, hróið mitt.
62
Farðu svo varlega með þennan sjálfskeiðung, elsku barn. Hnífur og skæri eru ekki barna meðfæri. SAMA STAÐ OG TÍMA, HÚSFREYJAN BROSANDI Húsfreyjan horfir alúðlega á mig. ÉG (V.O.): Svona fólk kallaði ég silkiþráðafólk.
BACK TO SCENE INNI, GRENSÁS, SETUSTOFAN - ÉG (15 ÁRA) Augu mín eru fjarræn, en ekki leynir sér hve hlýtt mér er til þessarar minningar um silkiþráðahúsmóðurina, og að ég tími eiginlega ekki að slíta mig frá þeim. HÚSFREYJAN (V.O.): Æ, elsku barn, meiddirðu þig? Ég hefði ekki átt að láta þig skera svona hart brauð. Ég skal gera þetta. Það má ekki ætlast til of mikils af börnum þótt þau séu dugleg. Einhvers konar bergmál af rödd húsfreyjunnar: Það má ekki ætlast til of mikils af börnum þótt þau séu dugleg. Það má ekki ætlast til of mikils af börnum þótt þau séu dugleg.
63
Svipur minn enn blíðlegur. Svipur minn verður nú harður og reiður. KARLMANNSRÖDD (ÓÞEKKT; V.O.): Andskotans klaufi geturðu verið, krakkaskratti. Þú verður aldrei að manni þegar ekki er hægt að treysta þér fyrir neinu. ÉG (V.O.): Svona fólk kallaði ég sleggjuhausa. (mynd fer í CLOSE-UP af mér og inn í huga mér) FADE TO: FLASH-BACK FADE IN (hugsanir mínar): ÚTI, SVEIT - REIÐUR KARLMAÐUR Á HESTBAKI Karlinn ber fótastokkinn, hesturinn lætur illa að stjórn eða er latur. ÉG ( V.O.): Sumir börðu fótastokkin, kölluðu blessaðar skepnurnar hrjóskar, helvítis truntur. Þeir kölluðu í hundinn, sem klemmdi skottið á milli lappanna, og hélt sig í vel afmarkaðri fjar-
64
lægt frá stígvélafótum húsbóndans. FLASH-BACK (hugsanir mínar) ÚTI, SVEIT - MONTINN KARLMAÐUR Á HESTBAKI, GLÆSILEGUR HESTUR ÉG (V.O.): Og maður sá unga menn með písk og hroka, og augu hestanna voru myrk, þótt þeir hlypu. FLASH-BACK (hugsanir) ÚTI, SVEIT - LÍTILL KRAKKI BERBAKT Á GÖMLUM HESTI, ÁNÆGÐUR HUNDUR ELTIR Krakkinn ríður niður traðirnar frá sveitabæ, helst á brokki (ef litli leikarinn tollir á baki hnakklaus á brokki). ÉG (V.O.): Milli manns og hunds og hests, liggja leyniþræðir. Síðan ég heyrði þessa hendingu, hef ég verið að horfa í augu manna, hesta og hunda í leit að leyniþráðum. - Árátta. Ég er svo upptekinn af þessum leyniþráðum ennþá, að ég tek ekki eftir, að vinir mínir eru í nýjum stælgallabuxum, eða hafa látið klippa sig og lita. ÚTI, SVEIT, SAMI STAÐUR,
65
Örlítið síðar - litli krakkinn kemur ríðandi berbakt (fer fetið) á gamla hestinum, ánægður hundur eltir; á undan þeim lalla KÝRNAR. (Ath. vel: nú ríður krakkinn í gagnstæða átt við þá sem hann reið í áðan frá bænum, það er: nú ríður hann heim að bænum. Gefa þessari senu dálítinn tíma; kýr eru svo róandi skepnur.) ÉG (V.O.) Ég hefði átt að segja pabba þetta með leyniþræðina. Hann hefði bara hlegið og þótt þetta sniðugt. FADE TO: FADE IN: BACK TO SCENE AFTUR INNI, SETUSTOFAN GRENSÁSI - ÉG (15 ÁRA) CLOSE-UP af mér sem frá var horfið. Smátt og smátt sést yfir alla setustofuna, séð frá stigaskörinni, ZOOM OUT. Þar er fólkið sem þar var áðan (sjúklingar), og fólk í heimsókn. (þekkist ekki). Hugsanir mínar flæða fram daprar, korrandi. ÉG (V.O.)
66
Hefur Silfá nokkurn tíma getað talað við Agnar eins og ég get talað við pabba? Skyldi hún nú vera orðin eins og ókunnug kona inni á heimilinu sínu? Ég meina: - ekki lengur litla, góða, þæga dóttir verkfræðingsins? Kona, sem ætlaði að læra að syngja, og saumaði sér dress til þess að vera í á böllum? Hún saumaði dressið sjálf. Henni er allt til lista lagt. Agnar Harrason hefur líklega ekki séð dóttur sína í því. Hann veit kannski ekki heldur að hún var að syngja uppi á sviði? Það er of seint að byrja að tala við börnin sín þegar þau eru orðin táningar. Ég meina ekki beint „tala við“ heldur skilja og hafa tilfinningu. Það er þetta með leyniþræðina. Þeir þurfa að vera innilegir frá fæðingu - frá getnaði. Silfá var aldrei skömmuð. Hún fékk allt sem hún vildi. En -- var það vegna þess að hún var ekki heimtufrek? Það var alltaf allt í takt við fjölskylduímyndina. Hún átti góðan pabba, af því að hún uppfyllti allt, sem einn pabbi gat óskað. Það var aðeins eitt sem ekki kom fram: Hvað, ef hún gerði eitthvað sem ekki passaði í kramið? Var allt svona slétt og fellt, þangað til hún vildi eitthvað sem stríddi gegn ímynd hans? Er honum ástin sama og vald? Hans hugmyndir, hans hamingja. Er þetta ekki hin sanna tæra föðurást?
67
Agnar Harrason hefur auðvitað þræði. Eru þræðirnir hans rimlar? Er hans löngun honum svo mikils virði, að hann kemur ekki auga á hennar hamingju? Hefur Agnar Harrason hlustað á hve fallega Silfá syngur? _Ég_ veit, að fyrsti kossinn hennar Silfáar var tíu komma sex metra frá tvöfalda bílskúrnum hans 90°horninu. Silfá sagði mér það. Hún veit að ég segi ekkert. Hægt hefur sjónarhorn kameru víkkað, svo allur salurinn sést eins og frá stiganum sem liggur hingað upp. Silfá, Agnar og ég erum fjæst í b.g., eins og við komum ekki málinu við lengur. En við sjáum að Agnar er að tala mikið við Silfá. Allir aðrir hér eru eins og vofur.
SAMA INNI, SETUSTOFAN GRENSÁSI - SILFÁ Í HJÓLASTÓLNUM - NÚ SÉÐ FRÁ OKKUR AÐ STIGASKÖRINNI (SKÆR DAGSBIRTA FRÁ GLUGGANUM) Silfá starir áhugalaus fram fyrir sig. Silfá lítur upp, hægt; horfir fram í átt að stiganum, en ekki á neitt sérstakt. Þetta er eina hreyfingin í salnum;
68
Silfá ber í bjartan glugga og er eins og miðdepill stórrar myndar sem ekkert er á sem skiptir máli. Augu hennar vakna allt í einu og svipur hennar allur; (ZOOM á Silfá) hún réttir ögn úr bakinu og hálsinum. Hallar sér til hliðar til að reyna að sjá framhjá fólki sem er í sjónlínu hennar. Hún jafnvel flytur hjólastólinn aðeins, til að sjá betur. Við tökum greinilega eftir að þetta er í fyrsta sinn eftir slysið sem hún sýnir einhver viðbrögð. POV Silfáar: INNI, SETUSTOFAN GRENSÁSI - STIGASKÖRIN (SÉÐ úr fjarlægðinni frá okkur, frá glugga að stigaskörinni). Strákarnir í Krókódílunum eru að koma upp stigann upp í setustofuna. Fyrst sést í höfuð þeirra. Svo meir og meir eftir því sem þeir koma ofar í tröppurnar. Þeir bera Djonný, sem er í gifsi, upp stigann, hækjurnar hans dingla fram og til baka í hverju spori strákanna. Strákarnir setja Djonný frá sér, þegar upp er komið á stigaskörina. Þeir líta í kringum sig, leitandi. INNI, SETUSTOFAN GRENSÁSI - ÉG Ég sprett á fætur, rétti upp höndina, horfandi fram til strákanna. INNI, SETUSTOFAN GRENSÁSI - STRÁKARNIR OG DJONNÝ Á STIGASKÖRINNI (Eins og SÉÐ frá Silfá og mér.)
69
Þeir koma auga á okkur. Einn strákanna bendir í átt til okkar. Djonný skakklappast á hækjunum í átt til okkar. Strákarnir koma líka. INNI, SETUSTOFAN GRENSÁSI - SILFÁ, AGNAR, ÉG OG FLEIRA FÓLK (Eins og HORFT frá strákunum (POV úr þeirri fjarlægð); Silfá, Agnar og ég SJÁUMST úti í horni. Þeir eins og FÆRAST NÆR og NÆR okkur; (sjónarhorn þrengist hægt (ZOOM IN) að okkur sem þeir nálgast); það birtir yfir svip Silfáar. ÉG (V.O.) Eldheitur endir blossar upp á þessari ísköldu stund. Eldgos undan jökli. Agnar og ég hverfum loks ÚR MYND eins og allt annað, en Silfá séð NÆR OG NÆR, aðeins ofan frá, (eins og SÉÐ frá Djonný - fer í CLOSE-UP af Silfá) Silfá horfir í augu hans (upp á við). POV Silfáar: DJONNY (CLOSE-UP) Kíminn og brosandi horfir hann niður á móti henni. POV Djonnys: SILFÁ Silfá horfir upp á móti Djonny.
70
ÉG (V.O.) Svona tindra augu hests, sem hnakklaus ber lítinn snáða að leita að kúnum. Ég er eins og lítill, kátur hundur, sem dinglar skottinu, því Silfá, vinkona mín, á allt hið besta skilið. INNI, SETUSTOFAN GRENSÁSI - DJONNÝ, SILFÁ, HINIR STRÁKARNIR, AGNAR, ÉG (MEDIUM) Djonný og Silfá horfast í augu. INNI, SETUSTOFAN GRENSÁSI - EINN STRÁKANNA Hann lítur á mig og blikkar mig.
INNI, SETUSTOFAN GRENSÁSI - ÉG Ég brosi kankvíslega, og lyfti augnabrúnunum aðeins.
INNI, SETUSTOFAN GRENSÁSI - SILFÁ OG DJONNÝ Djonný beygir sig niður og kyssir Silfá á ennið eða kollinn. Hann brosir. Hún brosir. Djonný reisir sig upp aftur, Silfá sést ein í mynd. Hún horfir á Djonný.
71
INNI, SETUSTOFAN GRENSÁSI - AGNAR Agnar horfir til hliðar á Silfá. Horfir upp á Djonný. INNI, SETUSTOFAN GRENSÁSI - VIÐ ÖLL Djonný réttir Agnari höndina. Missir aðra hækjuna um leið. DJONNÝ John Treck. Hæ. Agnar réttir hikandi fram höndina. Einn af okkur strákunum tekur upp hækjuna. SILFÁ (við Djonný) Pabbi minn. Agnar. DJONNÝ (við Silfá) Silfá. Náðu í einhvern í hvítum slopp til að útskrifa þig. Við spilum á balli í Búðardal um helgina. INNI, SETUSTOFAN GRENSÁSI - SILFÁ DJONNÝ (ÁFRAM; O.S.) Er söngkonan okkar ekki í toppformi? Náðu í dótið þitt, elskan.
72
INNI, SETUSTOFAN GRENSÁSI - VIÐ ÖLL DJONNÝ (ÁFRAM) Við seldum allt hjóladjönkið, og keyptum sendiferðabíl ! Ég keyri hjólastól Silfáar af stað - lít á viðbrögð hennar. (Hún er greinilega til í að láta útskrifa sig af Grensásdeild.) Öll hersingin kemur á eftir okkur. (Ath: Ég nenni ekki einu sinni að líta á Agnar. Mér er alveg sama hvað hann er að hugsa.)
MÚSÍK Krókódílanna HEYRIST, LÁGT í fyrstu - eins og þetta séu hugsanir okkar Króku-dílanna, -- komnir á ballið í huganum -- á undan okkur. Fólk í setustofunni (þekkist ekki) lítur upp þegar við troðumst fram. Svona asi stingur í stúf við þunglamalegt tempóið í þessum sal. ÉG: Hvar er þetta fólk í hvítu sloppunum? Músíkin HÆKKAR síðan smátt og smátt, og heldur áfram meðan ég keyri Silfá eftir gangi að vakt -- hinir elta. Við leitum að vakthafandi hjúkrunarliði. Músíkin verður AÐALATRIÐI,
73
Hreyfingar okkar verða rythmiskar. (Kannski ekki Agnars(!!!), því hann nær þessu ekki alveg; þetta er líklega eitthvert tapað tafl í hans huga) MYND VERÐUR ALBJÖRT TÓNLIST KRÓKÓDÍLANNA Vakthafandi læknir finnst, við ruslum fötum Silfáar út úr skápnum í herberginu, hjólastóll fer inní sendiferðabíl -- á fögrum sólskinsdegi, --- því það er sumar á Íslandi.......... FADE OUT ENDIR
74
75
76
-- - o o 0 o o - --
77
Bækurnar fást á Amazon freyjukettir@mmedia.is Norræn menning Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur - myndasögur og lestraræfingar: Hannesar saga Grásteins (20 bækur) Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Litla flugan Hagbarður og Hvutti - TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur eftir Hjalta Bjarnason (þegar hann var 5-10 ára) - langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður - smásögur: Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús
78
Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur (sakamál) 1000 stjörnur - Bónda minn hálfan Drottinn blessi heimilið Strætó í hringi -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? - verðlaunahandrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna efnisyfirlit) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD) (www.mmedia.is/odsmal)
79
80
Silfá
Leyniþræðir? Er ég væminn? Silfá er gullþráðasystir mín