Skip to main content

Jón Magnússon

Page 1

Óþarfa sálumessa Jón Magnússon frá Miðseli var formaður á bátum, og síðar skipstjóri á kútterunum frægu. Jón Magnússon var mikið hörkutól, rammur að afli, dugandi, fiskinn, góður sjómaður, sókndjarfur, og hafði ekkert á móti mygluðu rúgbrauði, man ég, þegar ekki var annað í boði. Og hann tók drjúgt í nefið.

Jón Magnússon var fallegur og stæðilegur maður, þéttvaxinn, íturvaxinn, dökkur yfirlitum og mikið kvennagull. Átti nokkur börn fyrir þær sakir. Jón var nú ekki mikið fyrir börn.

pabbi ungur Eitt sinn læddist lítill sonur hans, Magnús Jónsson, að landganginum, og ætlaði um borð að hitta karlinn hann Jón Magnússon. Jón varð hins vegar var við stráksa og kallaði, með sínum mikla hrjúfa digurbarkarómi: „Djöfulinn eruð þið að þvælast þarna helvítis pottormarnir ykkar!? Snautiðið burt.“


Mynd: Sjómannadagsblaðið Jón lét ekkert buga sig. Hann gerðist seglasaumari eftir að hann þurfti að hætta á sjónum vegna hræðilegs slyss. Hrikalega harður af sér var hann. Jón Magnússon hætti ekki að vera aftaka hryssingslegur. Á miðju gólfi í skemmunni við höfnina var stór stór saumavél. Ég hafði aldrei séð svona stóra saumavél. Hún var boltuð niður á stórt þungt bretti á hjörum sem hægt var að fella niður í þartilgerða gryfju til að fá meira gólfpláss fyrir stóru stóru seglin. Það var niðadimm djúp hola oní jörðina undir gólfinu þegar stóra stóra saumavélin var uppi.

ég Ég gægðist varlega af brúninni oní myrkrið, og spurði, allsmeyk, hvað væri þarna niðri í kolaniðamyrkrinu. Svar Jóns Magnússonar var (með hans ógurlegu rymjandi röddu): „Á ég að stinga þér ofnaní og loka?“ Ég var nú bara pínulítil og var ógurlega hrædd, en ég sá á svipnum á pabba að þetta var bara í gríni, ekki í alvöru. Ég vissi, að eitt sinn, þegar Jón Magnússon var skipstjóri, gerði mannskaðaveður. Bátar fóru niður, margra var saknað. Og ekki skilaði sér til hafnar kútter Jóns Magnússonar. Það var sungin sálumessa í Dómkirkjunni fyrir alla þá sem fórust og taldir voru af.

kútter


En sálumessan var ótímabær óþarfi er varðar Jón Magnússon og mannskapinn hans, sem hann hafði skálkað niðri í lúkar - þar sem menn þuldu faðirvorið í sífellu sér til sáluhjálpar. Jón Magnússon batt sig traustlega við stýrið til að skolast ekki fyrir borð í verstu sædrífunum, og hélt kútternum á floti í gegnum brim og boða í sólarhring. Bauð náttúröflunum byrginn. Ef ég þekki hann rétt var slíkt hans faðirvor. Þó nokkru eftir að veðrinu hafði slotað, sást til kútters Jóns Magnússonar, með alla áhöfn heila á húfi innanborðs, á leið til lands. * Guðrún Kristín Magnúsdóttir


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Jón Magnússon by Geimveran TAK - Issuu