Skip to main content

Hvar voru hrossin í hríðinni?

Page 1

Guðrún Kristín Magnúsdóttir :

Hvar voru hrossin í hríðinni?


Saga um litlar hetjur hversdagsleikans (hvers-dags+leiki)


amazon kilja ISBN 978-9979-895-20-6 og Kindle handa spjaldi NorrĂŚn menning

(nor-rĂŚn menn+ing; freyju-kettir)


Hvar voru hrossin í hríðinni? Það er óveðursnótt um hávetur. Hríðin gnauðar á glugganum heima í Kvos. Hve lengi getur eiginlega svona óveður staðið? Gummi bróðir minn, sem er ári yngri en ég, sefur vært. (ó-veðurs-nótt ; há-vetur;l eigin+lega; ó-veður


Hann gerist nokkuð frekur á sængina, því kalt er í bænum í svona roki.

En það er ekki þess vegna sem ég get ekki sofið. Ég er að hugsa um hestana okkar frammi á dal.


Hvernig hefur þeim reitt af í þessu aftakaveðri? Góðu veðurguð, látið veðrið fara að ganga niður. Ég verð að reyna að sofna. Ég veit að ekkert er hægt að gera fyrr en birtir og degi og veðrinu slotar. (af-taka-veður; veður-guð; ekk-ert = ekki neitt)


Ég verð að sofna til að geta verið dugleg í fyrramálið. En ég held áfram að hugsa um hestana okkar.

.

(dug+legur; fyrra-mál; á-fram)


Ég hugsa um trippið mitt sem amma gaf mér af því að ég var svo dugleg að verða læs.


Einhvern tíma verður hann reiðhesturinn minn.

Ég ætla að nefna hann Snerri af því að hann er svo snar og óstýrilátur. (ein-hvern reið-hestur; ó-stýri+látur)


Vonandi hafa hestarnir getað hamað sig í óveðrinu. En hvar skyldu þeir vera? (ó-veður)


Pabbi er farinn út þegar ég svo vakna aftur.

Sigga litla sefur enn. Hún sefur á milli mömmu og pabba í stóra rúminu. Alltaf sefur hún best í roki, hún Sigga.


Fjárhúsin hefur nær fennt í kaf í nótt. Aðeins sér á stórgrýti og klappir þar sem ekki festir snjó. Svo stóran skafl hefur dregið fyrir hlöðugaflinn að hægt væri að ganga upp á þakið og renna sér svo ofan, beint á kaf í skaflinn.

(fjár-hús (fé); að-eins; stór-grýti; hlöðu-gafl)


Snerrir. Já. Hann á að heita Snerrir. Bræður mínir segja að það gefi ekkert af sér að eiga hest.


Þeir vilja frekar eiga kindur. En mér er alveg sama. Ég á líka að fá kálf undan Skjöldu. Ég get alveg mjólkað Skjöldu gömlu alein. (ekk-ert = ekki neitt; al-veg; al-ein)


Amma og Þórður bróðir sofa uppi á lofti. Mamma er búin að vekja Þórð. Hann þarf að hjálpa pabba við gegningarnar.

Þórður bróðir er 13 ára. Hann sefur einn í rúmi. Amma gaf honum rúmið sem afi Þórður átti þegar hann var lifandi. (gegn+ingar)


Mamma kemur meรฐ graut og slรกtur.

Viรฐ rรฆรฐum um hrossin.


Sigga litla er hálfgröm yfir að fá ekki að fara með, en pabbi segir henni að einhver verði að hjálpa mömmu og ömmu heima.

-- Og svo geti hún leikið sér í snjónum.


Þegar fýlusvipurinn minnkar lítið við þetta, ..........

...........spyr pabbi hvort hún geti svo hjálpað sér að gefa hestunum heyið sitt, ef þeir finnast. (fýlu-svipur)


Það er að vísu ekki löng leið fram á dal en seingengið er í snjónum upp gilið frá bænum. Vetrardagurinn er stuttur.

Við vitum að hætta er á að hestana hafi hrakið í fljótið í nótt. (sein-gengið; vetrar-dagur)


Að vísu er ekki mikið í því á veturna miðað við flauminn þegar það ryður sig á vorin, en ísilagðir bakkar þaktir snjó geta villt um, sérstaklega í myrkri, þegar stórhríð geisar ofan flatirnar. En hestar hafa nú einhvern veginn tilfinningu fyrir hvar hættur leynast, jafnvel í glórulausri hríð. Það er eins og þeir sjái meira en við mennirnir, og oft hefur hestur bjargað manni með þessu innsæi sínu. (ísi-lagt; sér-stak+lega; stór-hríð; ein-hver; til-fnn+ing; leyna+st; jafn-vel; glóru-laust; inn-sæi) .


Við ætlum að ganga upp á Lynghól. Ef til vill sést til hrossanna þaðan. Óvissan um hvort við munum koma auga á hestana fyrir myrkur og beygurinn -- því eitthvað gæti hafa komið fyrir hestana í óveðrinu -drepur alla löngun til samræðna. (lyng-hóll; ó-vissa; eitt-hvað; ó-veður; sam-ræður)


Allt bendir til þess að rokið hafi verið mikið þarna á melnum. Allir steinar hafa langa hvíta skuplu sem snýr undan norðaustri. Dúnmjúkar snjóskuplur sem allar benda niður að fljóti. Allt er svo undurfagurt og hljótt, engu líkara en allt sé þreytt eftir óveðrið. (norð-austur; dún-mjúk; snjó-skupla; undur-fagurt)


Allt nema skýin. Þau eru enn óútreiknanleg og ólgandi. Þau hafa greinilega ekki fengið nóg af óveðri.

(ó-út-reiknan+leg (greini+lega; ó-veður)


Gýgjarhamrar virðast dekkri nú en nokkru sinni er þá ber við hvíta mjöllina. Þeir virðast stara ofan í Gýgjargjá. En við vitum að leiti hross hlés uppi við Gýgjarhamra, er mikil hætta á að þau fjúki fyrir björg, svo hvasst getur orðið þar. (gýgjar-hamrar;

gígjar-gjá)


Ekkert líf er að sjá utan einn soltinn hrafn sem svífur í stórum sveig ofan frá Hömrum og horfir fránum augum yfir snjó og kletta. -Ef þú gætir nú, krummi, sagt okkur hvar hestarnir eru. Hrafninn hvarf yfir í Gýgjargjá, án þess að segja svo mikið sem krunk.


fránum augum er tækisfall (tækis-fall)


Á sumrin er Snati alltaf fyrstur til að finna hestana, en nú er allt hulið snjó, hvergi slóð að finna. Sólin gægist sem snöggvast yfir skýjabakkann og minnir okkur á að ekki dugar að slóra. Senn mun húma á ný.

Nú hallar undan fæti. Það er eins og Lynghóll hafi allur stækkað síðan í haust þegar við vorum hér á berjamó.


Engu er líkara en allan snjóinn hafir dregið í skafl í berjalautinni okkar. Við erum orðin kófsveitt af að bægslast í gegnum skaflana. (skýja-bakki; berja-mór, berja-laut; kóf-sveitt)


Allt í einu stekkur Snati af stað á undan okkur. Hvað skyldi hann sjá? Við vonum öll að hestarnir séu nú þarna á Flötunum fyrir neðan.


Of metnaðargjörn erum við til að snúa heim án þess að hafa fundið hrossin. Það vitum við. Þá þyrfti pabbi að fara sjálfur að leita þeirra. (metn+aðar-gjarn)


Nei. Það er af og frá að gefast upp. Við munum láta líta svo út sem ekkert sé sjálfsagðara en að fela okkur slíkt verkefni.

Snati hefur greinilega orðið einhvers vís. Skyldi nokkuð hafa komið fyrir þá? Ó, vonandi hefur trippið mitt ekki hrakið í fljótið. (sjálf-sagt; verk-efni; greini+lega; eitt-hvað)


Ungir hestar eru hvatvísari en þeir gömlu. Þeir gömlu eru varkárari. (; hvat-vís; var-kár)


Ég veit að einu sinni þurfti að lóga folaldi sem vöknaði illa í stórhríð og kól svo að ekki var hægt að bjarga því. (stór-hríð)


Ég reyni að hrinda þeirri hugsun frá mér.


Þeirri sælutilfinningu sem grípur okkur er við horfum fram á Flatir verður ekki með orðum lýst.

Þarna eru þau þá öll heil á húfi, -- og trippið mitt stygga stendur þar og krafsar. (sælu-til-finn+ing; snævi er tækisfall; klaka-bönd; mein-leysis+legt)


Jarpur gamli er lengst frá fljótinu. Hann veit að ekki er að treysta snævi þöktum bökkum þess í klakaböndum. Fljótið virðist þó svo meinleysislegt og lítið núna. Það er eins og mjó dökk rák í snjónum - og sendir frá sér bældar stunur.


Okkur veitist ekki örðugt að komast nið‘reftir, þótt þarna sé sínu snjóþyngra og skaflarnir samfelldari en áður. Ég á að ríða Jarpi á undan.

(örð+ugur; niður eftir; snjó-þungt; sam-felldur)


Strákarnir ætla að reka hina hestana og jafnvel tvímenna á Brúnku, þegar við komumst upp af Flötunum. Við erum viss um að hrossin verða heimfús.

En þetta ætlar ekki að reynast svona auðvelt: Brúnka er svo dofin af kulda og kyrrstöðu að hún á erfitt með að hreyfa sig. En þótt hún sé lerkuð veit hún greinilega hvert ferðinni er heitið. (jafn-vel; tví-menna; heim-fús; auð-velt; kyrr-staða; greini+lega)


Öll eru hrossin illa haldin og svöng.

Yngri hestarnir tveir eru heldur ekkert á því að láta reka sig upp á móti kulinu. Trippið mitt ætlar að taka á rás í öfuga átt.


Já. Hann á að heita Snerrir. Það er einmitt nafnið á hann. Hvernig skyldi svo ganga að koma honum í hús þegar heim kemur? (öf+ugt; ein-mitt)


Snati geltir, strákarnir hóa, baða út örmum og klappa á lendar sér.


Ég reyni að koma Jarpi af stað heimleiðis: -Jarpur minn, þú hefur oft sigrað þyngri þraut en þessa skafla. Þú veist að heima bíða þín heyin grænu þegar jarðbann er. (heim-leiðis; jarð-bann)


Hægt miðar okkur áfram. Mér finnst Gýgjarhamrar ekki jafn ógnvekjandi núna á bakaleiðinni. (á-fram)


Nú veit ég að skessan í Hamrinum hefur ekki tekið trippið mitt í nótt. Kannski hefur hún bara gætt hestanna fyrir okkur. Hver veit?


Það er bjart af tungli og farið að frysta. Ef ekki væri snævi þakin jörð væri nú illa rokkið. (snævi er tækisfall)


Það marrar í snjónum og glitrar á steinana sem feykt hefur af. Norðurljós bragandi um allan himin. Ég vona að ekki hvessi. Brátt gæti þá komið hér skarabylur, og ekki væri vænlegt að lenda í slíku hér á háöxlinni, Strengur er hér undir Hömrum í landnyrðingi. (norður-ljós; skara-bylur; væn+legt; há-öxl; land-nyrð+ingur)


Ég finn ekki lengur fyrir tánum vegna kulda og reyni þó að hreyfa þær við og við. Það slær að mér.


Ég var heit af göngunni meðan allt var ábrekkis og við teymdum. Eftir að ég er sest á bak fer kulið að bíta, enda í fangið. (á-brekkis)


Þórður vill ekki þreyta hrossin og gengur því sjálfur þótt hann hafi sagt okkur Gumma að setjast á bak.

Ég spyr Þórð hvort hann vilji ekki skipta við mig nokkra stund. Hann svarar nokkuð mannalega að það sé nú svo stutt eftir, -- taki því ekki. (manna+lega)


Hann vill áreiðanlega ekki láta annað um sig spyrjast en að hann hafi gert erfiðasta hluta verksins. Hann er rjóður og másandi og andardrátturinn breytist í gufustrók, sem stendur út frá andlitinu á honum. (á-reiðan+lega; andar-dráttur; gufu-strókur; and-lit;


Ég er viss um að oft hefur verið litið upp í gil í dag frá bænum. Pabbi er áreiðanlega glaður að sjá að ekkert hefur hent hrossin okkar í nótt. (á-reiðan+lega; ekk-ert (/ekki neitt))


Það rýkur á bænum, og ég veit að nú er hlýtt í eldhúsinu. Skyldi amma vera að baka lummur? (eld-hús)


Pabbi og Sigga litla eru úti við lambhús og eru fljót að koma auga á okkur þegar við komum niður gilið. Hvernig skyldi ganga að koma Snerri í hús? (lamb-hús)


Stoltið yfir að við höfum komið hrossunum alla leið heim feykir burt allri þreytu. Og hve ég hlakka til að fá að fóðra trippið ) og spekja það og gera það mannvant í vetur. (mann-vanur; vetrar-veður)


Systkinin í Kvos gengu snemma til náða þetta kvöld. Vetrarveðrin héldu ekki vöku fyrir neinum núna.

SÖGULOK HVAR VORU HROSSIN IN HRÍÐINNI ?


************************************ hvar fást bækurnar? Freyjukettir - Norræn menning Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur - myndasögur og lestraræfingar: Hannesar saga Grásteins (20 bækur) Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Litla flugan Hagbarður og Hvutti -

langar barna- og unglingasögur:

Halla Japl, jaml og fuður - smásögur: Saga Svaðilfara


IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur (sakamál) 1000 stjörnur - Bónda minn hálfan Drottinn blessi heimilið Strætó í hringi -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? - verðlaunahandrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum)


Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD) TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur eftir Hjalta Bjarnason (þegar hann var 5-10 ára) TAK og nornin TAK og lyftingageimveran mikla TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og fiskarnir TAK og slökkvibíllinn TAK og skemmtitækin TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og lyktarsjónvarpið TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið TAK og martröðin TAK og tilraunalímið TAK og Freki TAK og borðtuskan TAK og flugeldarnir TAK og græna ræktin TAK og allraveðrapeysan Glámur auli, eftir Bjarna Þór Einarsson TAK og náttúruvæni einnotapokinn TAK og erfiði maturinn


TAK TAK TAK TAK TAK

og og og og og

vinur fílsins flugvélin fjarskagaman fjarskalítill draugurinn innbrotageimveran

Guðrún Kristín Magnúsdóttir :


saga um litlar hetjur hversdagsleikans


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook