Guðrún Kristín Magnúsdóttir
HREKKJUSVÍN
OG
LJÓSASTAURAR
HREKKJUSVÍN OG LJÓSASTAURAR
ISBN 978-9979-895-21-3 Hrekkjusvín og ljósastaurar sýnd í Sjónvarpinu, Stundinni okkar
Norræn menning
Tóti hefur ekkert að gera. Hann bara hjólar og hjólar allan daginn.
Og ég skal segja ykkur nokkuð: Hann Tóti er nú eiginlega hrekkjusvín! Það eina sem hann getur fundið sér til að gera, er að hrekkja og skemma.
En nú fer hann að spyrja eftir Gulla: -Máttu koma út að hjóla? -Ja, segir Gulli vandræðalega, -það er nú sprungið á hjólinu mínu. En getum við ekki farið að gera eitthvað annað? Ég er búinn að reyna að pumpa í það, segir Gulli, -en það er alveg tilgangslaust.
Kannski er það ventilgúmmíð. -Ventilgúmmí! segir Tóti, með fyrirlitningartón í röddinni. -Hvers konar forngripur er þetta? Hey!, segir Tóti þegar hann rekur augun í málnigardósir og pensla. -Eigum við ekki að mála bílskúrshurðina hjá þér, Gulli? Hún er svo ferlega ljót. Svo verður gaman að sjá framan í pabba þinn í kvöld, maður!
En Gulli vill ekki mála nema spyrja mömmu sína fyrst, hvort þeir megi það: -Nei, neinei! Það verður eintómt sull. Hann pabbi þinn ætlar að mála hurðina einhvern tíma þegar hann má vera að. Þið megið þá horfa á, ha? Fariðið nú út að leika ykkur.
-Hvað eigum við að koma að gera?, spyr Gulli. -Ég veit nú ekki, svarar Tóti.
Í sandkassanum eru smábörn að leika sér. Þau eru svo ánægð að byggja sandkastala og leggja vegi. En haldið þið að Tóti hafi ekki endilega þurft að hrekkja þau um leið og hann gekk framhjá? Tóti er alltaf með smásteina í vasanum.......
..... og hann skýtur steinum í allt hjá þeim. Allt splundrast. Annað barnið fær sand í augað. Þau hágráta.
Tvær stórar stelpur eru að passa litlu krakkana. Þær koma nú all vígalegar og gera sig líklegar til að hefna ófara litlu krakkanna.
Tóti er fljótur að taka til fótanna. Gulli hleypur auðvitað líka.
Tóti veit alltaf hvenær skynsamlegt er að forða sér.
Þeir fara nú hjá þar sem kona er að vökva garðinn sinn. Hún tekur ekki eftir þegar Tóti prílar yfir girðinguna ...........
....
og skrúfar fyrir vatnið !
Fyrst verður hún hissa. Síðan bálreið, -- þegar hún sér Tóta skjótast út úr garðinum: -Snautiðið burt, strákpjakkar! Þið eigið ekki að vera að þvælast í annarra manna görðum.
Tóti skellihlær: -Ferlega varð hún spæld, maður! Í rauninni finnst Gulla þetta ofsalega fyndið.
Það á greinilega ekki vel við Tóta að eigra um göturnar og hafa ekkert fyrir stafni. Hann er greinilega alveg í vandræðum með kraftana.
-Nú veit ég !!!, segir Tóti allt í einu:
-Komum að reyna að hitta ljósastaura! Það er allt í lagi því enginn á þá. Þá getur enginn skammað okkur.
Svo tínir hann steina upp úr vasa sínum og .....
... fer að henda í luktarstaur og mana Gulla til að reyna að hitta líka.
En þá er allt í einu kallað snöggt: -Tóti. Hvað ertu eiginlega að gera, drengur? Ætlarðu að stúta glerinu eða hvað? Þetta er Sjöfn, stóra systir hans, sem er að koma heim úr vinnunni.
-O, skiptu þér ekki af því, svarar Tóti.
En hann hættir nú samt við að henda fleiri steinum. -Þú átt ekkert í þessum staur, kallar hann á móti. -Ó jú, góði minn, svarar Sjöfn.
-Ég borga ljósastaurana og pabbi og mamma og allir í bænum. Við borgum útsvar og það er notað í götulýsingar, meðal annars.
Hvar er hjólið þitt eiginlega? Þeir segja henni að sprungið sé á Gulla hjóli, pabbi hans megi aldrei vera að að fara með það í viðgerð. -Þið ættuð nú að hafa tíma til að bæta eina slöngu. Þið hafið sko ekkert þarfara að gera.
Náið í Gulla hjól. Sjöfn kennir strákunum að ná hjólinu af og slöngunni úr.
-Og ég skal láta ykkur vita það, segir hún, -að það er miklu meira verk að gera við luktarstaura, sem svona óvitar eins og þið eru að eyðileggja. Haldiðið kannski að staurarnir vaxi upp úr jörðinni af sjálfu sér, eða hvað?
Til þess að finna gatið skulið þið svo pumpa í slönguna og sjá hvar loftbólurnar koma út.
Þurrka svo vel. Rispa örlítið í kringum gatið, svo límið grípi betur. Þrífið barðann vel að innan. Annars springur bara strax aftur. Er límið þornað? Þurfum við ekki aðeins að þynna kantana á bótinni?
Þá setjum við slönguna í.
Það er baks að koma barðanum á gjörðina aftur. Gulli, þú pumpar svo í.
Tóta sendir hún upp að leggja á borðið. -Þið verðið að fá ykkur eitthvað, áður en þið farið út, segir hún. -Þvoðu þér, Tóti!, kallar hún á eftir honum.
Tóti segir alltaf að Sjöfn systir hans sé frekja, og það getur nú svosem verið. En hún kann að bæta. Það liggur við að Gulli öfundi Tóta örlítið af að eiga svona systur.
-Svo skulið þið hjóla upp í nýja hverfið sem verið er að byggja, og þá getið þið séð, þegar verið er að setja upp ljósastaura. Þið skiljið þá kannski, að það kostar fé og fyrirhöfn að hafa götulýsingu, kálfarnir ykkar.
-E, heyrðu, spyr Gulli hikandi, -eigum við að fara upp í nýja hverfið, ha? Tóti svarar fýldur: -Við getum svosem gert það eins og hvað annað, en ekkert af því að Sjöbba systir sagði það. Maður gegnir henni nú ekkert.
Auðvitað hlaut einhver að eiga luktarstaurana. Allir vita nú vel, að þeir vaxa ekki upp úr jörðinni af sjálfu sér.
Bækurnar fást á Amazon freyjukettir@mmedia.is Norræn menning Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur - myndasögur og lestraræfingar:
Hannesar saga Grásteins (20 bækur) Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Litla flugan Hagbarður og Hvutti TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur
eftir Hjalta: TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og innbrotageimveran TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið TAK og draugurinn TAK og vinur fílsins TAK og fjarskagaman/fjarskalítill TAK og græna ræktin TAK og tilraunalímið TAK og jarðeplaupptökuvélin
TAK og lyftingageimveran mikla TAK og náttúruvæni einnotapokinn Glámur auli eftir Bjarna Þór
- langar barna- og unglingasögur:
Halla Japl, jaml og fuður - smásögur:
Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur (sakamál) 1000 stjörnur - Bónda minn hálfan Drottinn blessi heimilið Strætó í hringi -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? - verðlaunahandrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna efnisyfirlit) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD)
haldið þið kannski að ljósastaurar vaxi uppúr jörðinni af sjáfu sér?
ISBN 978-9979-895-21-3