Guðrún Kristín Magnúsdóttir
HNALLUR OG SPÓI
HNALLUR OG SPÓI /Hallur og Jói
Hallur var uppnefndur Hallur hnallur Jói uppnefndur Jói spóaleggur svo breyttist það í Hnallur og Spói og þessum nöfnum gegna þeir
ISBN 978-9979-895-09-1 3ja útg 2010 var í Stundinni okkar
Norræn menning http://www.geimveranTAK.wordpress.com freyjukettir@mmedia.is odsmal@mmedia.is
Sagan er um vináttu, um hyskni og samviskusemi, og um það að ekki er nóg að vera klár ef engin ábyrgð fylgir gjörðum manns.
Hnallur og Spói eru góðir vinir og kemur alltaf vel saman, en þeir eru svo ólíkir að með endemum þykir. Annar er stór, feitur, ljóshærður með blágrá augu. Honum gengur svosem ekkert allt of vel í skólanum, en hann gerir allt samviskusamlega sem hann þarf að gera. Hann heitir nú eiginlega Hallur, en einhverra hluta vegna er hann alltaf kallaður Hnallur. Hinn er lítill og mjór, dökkhærður og hvasseygur spóaleggur. Hann er alltaf kallaður Spói, þótt hann heiti raunar Jói. Spóa gengur mjög vel í skólanum og þarf eiginlega aldrei að hafa neitt fyrir neinu sem hann tekur sér fyrir hendur. En vel eiga þeir saman, vinirnir.
Þið ættuð nú að sjá þá þegar riddaraslagur er í skólanum: Þegar Hnallur er hesturinn en Spói riddarinn eru þeir ósigrandi. Hnallur er svo sterkur og Spói svo snöggur. Svo versnar nú í því þegar skipta á um hlutverk; riddarar eiga að vera hestar og hestar riddarar.
Þá komast þeir nú eiginlega aldrei af stað.
Þeir eiga sér sameiginlegt áhugamál, vinirnir. Þið megið geta hvað það er.
Já, hestar! Þegar Hnalli og Spóa áskotnast peningar -- í afmælisgjöf eða vinna sér inn með blaðasölu -eyða þeir því nær samstundis í reiðnámskeið.
Þeir eru orðnir öruggir með að tolla á baki, og þaulæfðir í að beisla, leggja á og hirða hestana.
Spói er spengilegur á hestbaki. Hann ríður jafnan fremst í hópi, þar eð hann er svo fljótur að skilja hvaða leið á að fara.
Hnallur er að vísu ekki sérlega reffilegur á baki. (Satt best að segja minnir hann helst á taðpoka.) Hann rekur jafnan lestina, en hann fékk fljótt það hlutverk að hjálpa þeim krökkum sem ekki ráða vel við hestinn sinn.
Alltaf þegar færi gefst fylgjast þeir með Jóni tamningamanni við vinnu sína.
Nú er Jón að bandvenja ungan fola. Þeir fylgjast vel með hvernig Jón lætur hestinn hlaupa hring eftir hring í löngu bandi. Hnallur og Spói vita ekki að Jón vantar einmitt krakka í vinnu fyrir sumarið til að hirða hesta. Hann hefur enn ekki fundið neinn sem hann vill ráða til sín.
Þeir horfa á þegar Jón fer á bak tömdum hesti og teymir folann í gerðinu.
En folinn er fremur þungur í taumi. Jón veit að vinirnir tveir hafa mikinn áhuga á hestum og kallar því til þeirra. -Strákar, vill ekki annar ykkar ríða á eftir folanum fyrir mig? Þið beislið og leggið á jarpa klárinn.
Þið getið ímyndað ykkur að drengirnir verða kátir. Þeir mega aðstoða við tamningu. Spói er auðvitað viðbraðgsfljótari og stekkur af stað, en tekur ekki eftir því að múll dettur um leið og hann stekkur nið‘raf grindverkinu.
Hnallur tekur múlinn og hengir hann aftur upp.
Þeir leggja í sameiningu á Jarp, og Spói fer á bak. Hnallur lokar vandlega neðri hurðinni. Sú efri stóð opin til að lofta út úr húsinu. Jón fylgist með öllu sem þeir gera.
Spói ríður út í gerðið til Jóns.
Ekki líður á löngu þar til Jarpur er kominn upp að hliðinni á folanum. Þá segir Jón ákveðinn: -Ég sagði á eftir folanum. Þú þarft að fylgja fast eftir alla króka og hringi sem ég fer.
En nú skulið þið skipta, segir Jón.
Hnallur fer á bak Jarpi. Jón kallar: -En langar þig ekki, Spói, til að brynna hryssunni í ysta húsinu fyrir mig? Byttan hennar er stífluð. Skjólan hangir í hjallinum við lækinn. Spói er fljótur að skilja og langar auðvitað til að vatna merinni.
Hnallur hefur alltaf þurft að taka verkefni sín föstum tökum og beita sér við það sem honum er falið. Hann er ekki einn af þessum lánsömu mönnum sem allt virðast geta fyrirhafnarlaust. Hann hefur því stöðugt í huga: -Ríða á eftir, fylgja fast eftir. Baldni folinn heyrir stöðugt í Jarpi á hælunum á sér og skokkar því léttilega í taumi hjá Jóni.
-Já, segir Jón að lokum . -Haltu nú í hann fyrir mig. Við skulum hvíla hann aðeins.
Þegar verið er að temja, þarf maður alltaf að vera mjög skapstilltur, en temja sér samt röggsama og ákveðna framkomu. Hnallur horfir beint framan í folann og prentar af öllum kröftum inn í heila-
búið: skapstilling, röggsöm og ákveðin framkoma.
Spói vatnar hryssunni. Bísn sem hross getur drukkið í einu. Hann er búinn að bera eins mikið vatn og hann getur rogað en það virðist varla nægja.
Spói virðir fyrir sér folaldið meðan hryssan drekkur. Þegar Jón gengur hjá, er merin þó búin að drekka nægju sína. -Hún fer nú ekki sjálf á sinn stað, skjólan, segir Jón. -Nei. Auðvitað ekki, svarar Spói.
-Ég skal hengja hana út í hjall.
-Langar ykkur til að hjálpa mér meira, strákar? spyr Jón. Og hvort þeir vilja! -Viltu þá, Spói, taka við taumunum hjá Hnalli. Haltu í folann alveg rólegur en ákveðinn. Hann er dálítið frekur þessi, fer það sem hann kemst. Láttu hann ekki vaða ofan í þig.
En nú skulið þið heyra hvað kom fyrir:
Folaldsmerin finnur vorið í loftinu. Spói hefur lokað neðri hurðinni, eins og þið sjáið, og fingurnir hans hafa sett hespuna á kenginn, en sjáið þið hverju hann hefur gleymt? Já, að skjóta lokunni í.
Þetta er því að kenna að Spói hefur í raun aldrei tekið neitt verkefni alvarlega. Allt hefur eiginlega komið af sjálfu sér. Hryssan þarf ekki annað en ganga þétt að hurðinni. Auðvitað lætur hurðin undan og opnast. Hross eru nú einu sinni hross.
Vorloftið er svo tælandi eftir langan vetur á húsi.
Hún ákveður að viðra sig og folaldið sitt.
Jón og strákarnir koma auga á þetta óheppilega atvik, sem ekki hefði átt að eiga sér stað.
Spóa bregður heldur illa.
Hann getur ekki munað betur en hann hafi lokað. Svona er að nota ekki heilann, hugsa aðeins með puttunum.
Spói bindur ótamda folann í snatri við staur, og fer að hjálpa Jóni og Hnalli að komast fyrir hryssuna og folaldið og reka þau aftur í húsið.
En folinn ungi fælist. Hann hefur aldrei fyrr verið bundinn við staur.............
...........og er búinn að flækja annan framfótinn í taumnum. Spói rekur sig á það nú í fyrsta sinn á ævinni að ekki er alltaf hægt að treysta því að allt komi af sjálfu sér.
Í þessu starfi þarf að hugsa og hafa athyglina vakandi. Hér eru verkefni, alvöruverkefni, sem Spóa langar til að takast á við. Jóni tekst brátt að róa folann á ný.
Síðan segir hann við strákana: -Ég hef verið að leita að krakka til snúninga við hrossin í sumar. Mig vantar traustan verkmann og samviskusaman. Hefur þú ráðið þig nokkuð í sumar, Hnallur?
Launin verða að vísu ekki mjög há, en þú munt læra mikið í sambandi við hesta, ef þú vilt taka þetta að þér.
-Þetta væri það skemmtilegasta sem ég gæti hugsað mér, svarar Hnallur, -en heldurðu að ég ráði við þetta starf? Og svo --- svo þætti okkur ofsalega gaman að fá að vera báðir saman. Við gætum skipt kaupinu á milli okkar. Og þetta verður úr. Jón ræður þá báða til sín.
Spói segist sko ætla að hafa hugann við allt sem hann þarf að gera. Aðalatriðið er að læra að temja sjálfan sig.
Þetta mun verða yndislegt sumar. Þeir læra að vekja traust hestanna á sér með hiklausri en rólegri framkomu.
Hnallur verður reffilegri á baki með hverjum deginum sem líður, því þeim er oft falið að hreyfa tamda hesta, sem þarf að halda í þjálfun.
Það er að vísu ekki sérlega skemmtilegt að moka út taði og heyrudda. En hvaða starf hefur ekki bæði skemmtilegar og leiðinlegar hliðar, sem þó verður að rækja jafn samviskusamlega? Nauðsyn er að vera í skemmtilegri vinnu.
hvar fást bækurnar? freyjukettir@mmedia.is Norræn menning Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur - myndasögur og lestraræfingar: Hannesar saga Grásteins (20 bækur) Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Litla flugan Hagbarður og Hvutti - langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður - smásögur: Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur (sakamál) 1000 stjörnur - Bónda minn hálfan Drottinn blessi heimilið Strætó í hringi -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? - verðlaunahandrit -Eg er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti!
- fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna efnisyfirlit) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD) - TAK-sögurnar -geimveran TAK30 bækur
eftir Hjalta: TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og innbrotageimveran TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið TAK og draugurinn TAK og græna ræktin TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og tilraunalímið TAK og vinur fílsins TAK og lyftingageimveran mikla TAK og náttúruvæni einnotapokinn Glámur auli eftir Bjarna Þór
fyrst þarf að læra að temja sjálfan sig
ISBN 978-9979-895-09-1
!