Skip to main content

Dreams Abide In Soft Darkness - Icelandic and English

Page 1

Guðrún Kristín Magnúsdóttir

Í MJÚKU MYRKRI BÚA DRAUMARNIR Dreams Abide In Soft Darkness Kolgríma Kolgríma svo góð so sweet svo saklaus so innocent

hún sér aðeins fegurð svo grimmd veraldar snertir hana ekki


ISBN 978-9979-895-10-7 Leikrit, byggt á þessari sögu var flutt í Ríkisútvarpinu í desember 1987 og endurflutt í janúar 1988; leikgerð og frumflutt frumsamin tónlist höfundar, Guðrúnar Kristínar Magnúsdóttur; leikstjóri Karl Ágúst Úlfsson. Á Hljóðbókasafni Blindravinafélagsins er þessi leikgerð til.

þessi saga er fylfull þunguð hún gengur með ófullburða smásögur smásagnafóstur: DISKURINN RYKSUGAN Á FULLU JEDÚDDAMÍA STEINN Í MJÚKU MYRKRI BLINDI DRENGURINN


Kolgríma only sees the beauty, therefore the evil of the world cannot touch her. We can listen to this story as a play in Hljóðbókasafn Blindravinafélagsins (Audio library for the Blind)

This story carries within itself, some not yet born little stories: The Plate Wacuum Cleaner Eats Everything OMG Steinn (stone; also a boy´s name) In Soft Darkness The Blind Boy


1. Líf Kolgrímu, draumur, sem býr í mjúku myrkri. - Og Kolgríma, sem er svo góð, svo hrekklaus, svo barnaleg. Kolgríma er enginn fábjáni, eins og margir vilja halda fram. Alls ekki. Þvert á móti; hún er nokkuð greind á sviðum. Hún er bara, ja, bara pínulítið skrýtin stundum. Allt var þetta út af þessu asnalega veðmáli þeirra Gulla og Steins, unglingsstráka, þar sem þeir sátu og djúsuðu niðri í lúkar á báti við bryggjuna í litlu sjávarþorpi, þar sem allir þekkja alla. Steinn greinilega slompaður. Það heyrðist á mæli hans: -Já, Gulli kallinn. Við höfum nú kannski brasað of mikið, ha?


1st Chapter: Kolgríma´s life is like a dream that abides in soft darkness. Kolgríma is so sweet and so good, she whould never hurt anyone. Even naïve. She is not stupid as some like to claim her to be. No, not at all. Just the contrary. She is very clever in some special fields. It is just so, that sometimes she looks a bit out of place. We might say weird. The whole story began when the teenage boys Gulli and Steinn, agreed on a stupid bet. They were drinking together, the two good friends, inside a boat that was in the harbor in a little sea-side village. In little villages everyone knows everyone else. Steinn obviously getting a bit drunk. His talking had become a bit blurry: -Oh, well, Gulli, my old friend. Perhaps we have been doing too much of stupid things together?


Við hefðum kannski ekki átt að læsa sýslumanninn inni á klósetti á sínum tíma, ha? Gulli skellihló: -Grunurinn féll á Palla greyið þá, maður. Gulla var mikið skemmt þegar honum varð hugsað til þessa prakkarastriks. -Það var nú meira uppistandið. Djös .... maður. Steinn: -Meira? Gulli var til í að drekka meira, og Steinn horfði hýrum augum á flöskuna. Gulli: -Hvar fékkstu þetta? Steinn. Hvar náðirðu í þetta? Steinn: -Hvað? Brennivínið? Gulli: -Ekki þó ......... Gulli skellti aftur uppúr. Steinn: -Hva, bragðast það ekki vel? Þú heldur kjafti, gamli. -Auðvitað held ég kjafti, sagði Gulli, og hvolfdi í sig. Við erum vinir, Steinn minn, ha? Sko - erum við góðir vinir? Við erum stundum sol’dið vondir, en samt erum við vinir, Ha? Erum við þá ekki vondir vinir? En samt erum við góðir vinir,


Perhaps we should not have locked the notary up in the loo, the pissoir, remember, when we did that long ago. Gulli laughed: Poor little Palli was thought to be the culprit. Oh, boy! Gulli, on recalling this prank, was greatly amused. -It became quite an issue. Damn. Oh, boy! Steinn: -Like to have some more? Gulli wanted some more. Steinn looked at the bottle, admiringly. Gulli: -Where did you get that, Steinn? Steinn: -What? The liqour? Gulli: -Not that you have…. Gulli starts laughing again. Steinn: -What. Does it not taste good? You shut up, old friend. -Of course I shut up, Gulli said, and drank a lot more. -We are friends, Steinn. We know that, whatever comes our way. Are we good friends? Look: We are sometimes bad, yet we are friends, so then we might be said to be bad friends. Yet we are good friends.


ekki satt, ha? Við erum sko góðir vinir og vondir vinir, ekki satt? -Það varð eitthvert djöfuls vesen út af þessari talstöð, hvíslaði Steinn, grafalvarlegur. -Seldirðu hana? spurði Gulli -Nei ég þorði það ekki, svaraði Steinn. -Ætli ég verði ekki að setja hana í sjóinn svo lítið beri á. -Töluðu þeir við múttu kellinguna? -Mamma vissi ekkert, sagði Steinn. -Ég ætla að fara héðan, Gulli, -- fara svo enginn viti. Stinga af, Gulli. Þú segir engum fyrr en ég er farinn. Kem mér á stóran dall og fer út í heim. Ég ætla ekki að mygla hér í þessu djöls krummaskuði allt mitt líf. Gulli: -Eru að meina þetta? Án þess að mútta viti? Þú hlýtur að segja henni það. Annars setur hún í útvarpið að þú sért týndur; lætur hjálparsveit leita að þér.


Right? We are, look, good friends, yet we are bad friends. Right? -You remember the transceiver radio, Steinn whispered, now very serious and concerned. -Could you sell it? Gulli asked. -No. Too dangerous. I dared not, Steinn replied. -I suppose I´ll have to drop it into the sea, in peace and quiet, when nobody is watching. -Did they ask your good old mom? -Mom knew nothing, Steinn replied. Steinn continued: -I am going to move away from this place, Gulli. Sneak away without anyone knowing. Slope off. Get lost. You do not tell anyone until afterwards, Gulli, when I am gone. I get a job on a huge ship, go into the big world out there. I am not going to rot here in this hellish asshole all my life. Gulli: -Are you serious? Without your mom even knowing? I suppose you´ll tell her at least. Otherwise she will have an anouncement on the radio: Steinn lost! And sends the rescue party out to search for you.


Allir halda að þú hafir orðið geggjaður og hoppað í sjóinn. Nei djók. Við erum vinir, Steinn. Er þér fúlasta ...? Hvað heldurðu að gellurnar í pleisinu segi, maður?!! Aðaltöffarasjarmörinn stunginn af, ha? Gulli vissi eiginlega ekki hvort hann átti að hlæja eða gráta, en sagði í uppgerðarlegum hálfkæringi, til að láta ekki á því bera að hann á erfitt með að hugsa sér lífið án Steins: -Ég fer þá kannski að hafa sjens, ha? Lét tóninn ín röddinni virka einsog: gott að vera laus við þig, gott að fá ekki lengur óhagstæðan samanburð við þig, en hann talaði þvert um geð. Í raun var þetta áfall, -- og svo var hann fullur að auki, og áföll eru sko áföll þegar maður er í’ðí. Enginn hemill á tilfinningalífinu. Steinn: -Stelpurnar. Það er alls staðar hægt að ná sér í belg.


Everybody will assume you went mad, jumped into the sea. No, joke. We are friends, Steinn. Are you serious ?? What will the dolls in the village say, man!! The most charming tough guy just gone. Fled. Gulli, actually, did not know whether he should laugh or cry. He made a mood of indifference, to hide the fact that he could not see any future for himself without his friend Steinn. -So, Gulli said, pretending to be indifferent, -Then I will take over as the most charming one in the village!!! He tried to sound like “good to get rid of you” or “then I stop being in the shadow of you”. But the raw truth was that Gulli was schocked. - On top of the schock, Gulli was drunk. A drunken boy cannot cope with schocks. No way to control the intense feelings. Steinn: -The girls ! There is no place in the whole world where we cannot find a sexy little girl.


-Þær falla allar kylliflatar fyrir þér, Steinn sagði Gulli. -Ef við værum ekki svona góðir vinir -- eða erum við vondir vinir? -- væri ég sko afbrýðisamur út í þig, drengdjöfull ! -Ha Ha Ha. Segir hver? svaraði Steinn með uppgerðarhlátri. -Engillinn, ha? Það er víst ekki þér að þakka að þú átt ekki krakka í hverju horni. -Gellur passa sig, svaraði Gulli. -Skál. Heyrðu, Steinn. Af hverju þarftu aldrei að hafa neitt fyrir þessu? Af hverju .... -- heyrðu -- heldurðu að þú getir ekki bara lagt hverja sem er? Steinn: -Jújújújú. Þetta er ekkert mál, Gulli minn. Þetta er bara spurningin um að kunna á þeim lagið. Gulli: -Viltu veðja? Steinn: -Veðja? Gulli: -Heldurðu að þú getir fengið hverja sem er? Steinn: -Jájájájá. Ekkert mál. Gulli: -Viltu veðja? Steinn: -Jájájájá. Ekkert mál.


They all fall for you - just flat, Steinn, Gulli said. -If we were not good friends --or rather should I say: bad friends? -then I would be terribly jealous, you bastard ! -Ha ha ha (some hollow laughter), Steinn replies. -Who is talking? Gulli the angel-innocent boy!!? You are lucky not to have your babies in every corner of the village! -These kinds of girls see to that, Gulli says. -They are careful. -Cheers! - But why, Steinn, are girls so easy for you. Why? How do you do it? Just how? Hey, do you think you can just get any girl? Steinn: -Oh, yes. No problem, my Gulli friend. It is just knowing how to handle them. Just some little skill, you see. Gulli: -Bet? Steinn: -Bet what? Gulli: -That you can have which ever girl? Steinn: -No problem. Of course. Gulli: -Bet? Steinn: -Yes. No problem.


Gulli: -Ókei. Hverju viltu veðja? Steinn: -Við veðjum bara - - - einni viskí. Það verður kveðjuskálin okkar, Gulli töff. Stútum einni áður en ég fer -- sting af. Helvítis hallærispleis. Gulli: -Ég má velja hana. Steinn: -Ja, sko ekki prestfrúna og svoleiðis neitt, sko. Gulli: -Neineineinei. Bara pæju. Þú færð viskí. Ekkert mál, sagðirðu. Steinn: -Eina viskí. Gulli: -Látum okkur nú sjá. Gefmér meira svo ég geti hugsað skýrt. Steinn: -Ertu eitthvað lengi að hugsa, maður. Úrvalið er nú ekki svo ofboðslega mikið. Gulli að hugsa, maður !! Það kemur nú ekki oft fyrir. Gaman að sjá þig hugsa! Gulli: -Kolgrímu. --Stríðnislegt glott færðist yfir andlitið á Gulla. Steinn reyndi að hlæja líka. En brosið varð að grettu.


Gulli: -OK. What will be the bet? Steinn: -We just have it….. one bottle of whisky. And that will be our fare-well boozing, Gulli tough. We finish that bottle before I go, get lost away from this blasted stupid place. Gulli: -I chose the girl. Steinni: -Well, not the priest’s wife or anything like that, you know. Gulli: -No no. Just a girl. And you get the whisky. No problem, you said. Steinn: -OK. Bottle of whisky. Gulli: -Well well. Let us think a bit. Give me some more so that I can think clearly. Steinn: -Does it take any time to think, man. There are not that many girls in this place, man. Fun to see you trying to think. That is something that does not happen too often. Gulli: -Kolgríma. -- A nasty smile spreads all over Gulli’s face. Steinn tried to laugh along with him, but his smile became just some horrible frown.


-Nei, Gulli. Kolgrímu! Ekki Kolgrímu, hálfvitinn þinn. Þú sagðir pæju! Ertu vitlaus? -- Kolgrímu ! Hún er holgóma! - Hreyfihömluð, svona: vöv vöv vöv.... Steinn blakaði til höndum, hermdi eftir göngulagi Kolgrímu. -Nei, Gulli. Nú ertu að djóka. Ekkert svona sko. Gulli: -Ég mátti velja. Við erum vinir. Veðmál. Ég redda flösku. Steinn: -Já, en sko -- þú lofaðir pæju. Ertu svona vondur vinur, helvítið þitt. Gulli: -Stór brjóst, ha? Títa pínu lítið, pínu títu lítið? Afmeyja einu sinni, ha? - annað er flöskur. Steinn: -Nei, ekki Kolgrímu, drengdjöfull. Gulli: -Þú veðjaðir. Við svíkjum ekki hvor annan, þótt við svíkjum allt og alla, vinur.


Steinn: -No, Gulli ! Anyone but Kolgríma, you moron. You said a girl. Are you crazy or something! Kolgríma ! She has a cleft palate, we hear that when she speaks. And she is handicapped, woe woe woe. Steinn flaps his arms and mimics Kolgríma´s way of walking. -No, Gulli. You are joking. Not any such stupidity. Gulli: -I was allowed to choose. We are frinds. It was a bet. I somehow get that bottle of whisky. Steinn: -Yes, but -- you promished a girl. You are just that bad friend, you damn boy. Gulli: -Big bosom, eh? Just have a little fucking fucking. And she is a virgin. You only know how to open bottles of liqueur, Steinn. You very seldom get to have a virgin, man. Steinn: -No! Not Kolgríma, nasty boy. Gulli: -We made a deal. It was a bet. We never betray one another, Steinn, even if we betray everyone else, and break our promishes, my friend.


Súptu á. Hún er mjúk. Stóra viskí, ha? -Gulli varð allt í einu alvarlegur: -Heyrðu, Steinn. Þú ætlar ekki að stinga af í alvöru, er það? Steinn: -Þú ert ómögulegur, Gulli. Ég kála þér. Auðvitað fer ég, ekki til andskotans heldur frá andskotanum. Þeir stimpuðust hlæjandi, þótt ekki sé mikið pláss fyrir bægslagang í lúkar á báti. Þeir hafa verið vinir -- vondir vinir -- frá því að þeir muna eftir sér. Gulli æpti, þegar hann var hálfpartinn orðinn afvelta og undir: -Hei !!! Það er Kolgríma en ekki ég sem þú átt að taka ....


Just have antother drink. She is soft. A big bottle of whisky. Right? All of a sudden, Gulli became serious: -You are not really going to go away, Steinn? Are you? Steinn: -You are just unbearable, Gulli. I am going to kill you. Of course I am not going to Hell, but the contrary: I am leaving this Hell of a place. They had a little friendly fight, laughing. Og course there is not much space for a friends’ fight inside a little boat. They two had been friends, - well bad friends - since they were little boys. Gulli started to scream when he was half-stuck on the floor, as Steinn was stronger. Gulli yelled: -Hey, man! You were supposted to take Kolgríma, not me!!!


2. Það var rok þegar Steinn og Gulli sáu Kolgrímu niðri við bryggju nokkru seinna. Hún var á leið onúr Þorgrímshúsi inn í þorp með egg fyrir mömmu sína. -Svaka bobbingar, maður, sagði Gulli, og skaust bak við næsta vegg og hvarf -- kvikindislega hlæjandi. Steinn plataði Kolgrímu út í bát, bátinn sem hann var á um sumarið. Sagðist þurfa að tala aðeins við hana. -Ég má ekki slæpast, sagði Kolgríma. Ég þarf að fara með eggin. Bátarnir rugguðu við bryggjur. Landgangurinn var brattur því það var fjara. -Við verðum enga stund, Kolgríma! Ég skal halda á pokanum með eggjunum.


2nd Chapter It was a windy day when Steinn and Gulli saw Kolgríma on the harbor a few days later. She was heading from Þorgríms house down to the village. She was delivering eggs for her mother. Gulli said to Steinn: -Look at these bosoms, man. Then he sneaked away around a corner - laughing ironically. Steinn tricked Kolgríma to come with him to a boat, the boat he worked on during summer. He told her that he needed to talk to her for a brief moment. -I cannot waste any time, Kolgríma said. -I have to deliver the eggs. The boats were wagging to and fro, where they lay tied to the dock. The tide was low, so that the gangway down to the boat was steep. -It won’t take long, Kolgríma. I shall hold the eggs for you.


-Það þarf að fara varlega með egg. Þau eru brothætt, sagði Kolgríma. Steinn hélt á eggjunum niður brattan landganginn, og leiddi -- eða hálftogaði - Kolgrímu með sér. -Það er fjara, sagði Kolgríma. -Landgangurinn er brattur þegar er fjara. -Já, svaraði Steinn. -Það er fjara, landgangurinn er brattur, og egg eru brothætt. Komdu inn í hlýjuna. Þetta er nú meira rokið, maður! Fallegar á þér flétturnar, Kolgríma, sagði Steinn þegar þau komu niður í lúkar. En Kolgríma vildi ekki láta rugla fléttunum. Kringlóttur geisli kom inn um kýraugað og skoppaði til og frá á gólfinu eftir því sem báturinn ruggaði. Kolgríma horfði hlæjandi á geislann: -Sjáðu, Steinn, hvernig sólargeislinn sem kemur inn um gluggann, hreyfist til og frá á gólfinu þegar báturinn veltur.


-One needs to be very careful when handling eggs, Kolgríma said. Steinn held the eggs when they walked down the steep gangway - held the hand of Kolgríma too, or rather pulled her along onto the boat. -The tide is low, Kolgríma said. -The gangway is steep then the tide is low. -Yes, Steinn replied. -The tide is low, gangway steep, and eggs fragile. Come into the warmth. Terribly windy today, man! -Your hair, your plaits are beautiful, Kolgríma, Steinn said, when they came into the boat. But Kolgríma did not like that Steinn touched them, disarranged them. A round beam of light entered through the round window on the boat, and it danced to and fro on the floor as the boat wagged. Kolgríma looked at the beam and laughed: -Look, Steinn, how the lightbeam moves to and fro on the floor when the boat wags, rocks, to and fro!


Geislinn er kringlóttur. Einsog glugginn, kringlóttur einsog kýraugað. -Sniðugt, sagði Steinn, áhugalaus um geisla á gólfi. -Hann dansar fram og aftur á gólfinu, sjáðu Steinn, hann skoppar...... Ekki, Steinn. Þú ruglar fléttunum. Ekki. Ekki! Mamma segir að maður megi ekki láta stráka kyssa sig og gera svona fyrr en maður er giftur, sagði Kolgríma. Steinn var í svolitlum vandræðum. Veðmál er veðmál; viskíflaska. Hann spurði Kolgrímu hvort henni fyndist þetta ekki dálítið gamaldags sjónarmið. Hvað hún héldi að gerðist eiginlega þótt hún......... -Þegar ég er trúlofuð, kyssi ég kannski, sagði Kolgríma. -Má það ekki alveg? Og Steinn hélt það nú: -Þá má sko alveg gera það, sagði hann. Og Steinn fékk góða hugmynd: -Ertu nokkuð trúlofuð, Kolgríma? -Nei, svaraði hún. -Ertu viss?


The beam of light is round. Just like the window through which it enters. -Amusing, Steinn said, not so interested in a beam on a floor. -It dances to and fro on the floor, look Steinn. As if it is jumping…… No, Steinn, you make my plaits untidy. No. Do not do this. And Kolgríma continues: -My mother says that I should not allow boys to kiss me and do things like this until one is married. Steinn was in trouble. A bet is a bet; a bottle of whisky. He asked Kolgríma if that were not a bit old-fashioned a rule. What she would think would happen if she would just…. -When I am engaged, then I perhaps will kiss, Kolgríma said. -Will that not be all right then? And Steinn thoroughtly agreed: -Then it will be allowed to do that, he said. And he got an idea: -Are you engaged, Kolgríma? -No, she said. -Are you sure?


-Já. Alveg viss. -Ég ætla nefnilega að biðja þig að trúlofast mér, Kolgríma, ha? Þú og ég leynilega trúlofuð? Þú segir engum, ha? Þetta verður alveg leyndarmál. Við þekkjumst nú svo vel. Við vorum alltaf í sama bekk í skólanum. Ætlarðu kannski bara að pipra, ha? -Já, en, ef þú gefur mér hring, þá sjá allir, sagði Kolgríma. -Hring? -Já, svona trúlofunarhring. -Já. Þá gef ég þér bara eitthvað annað. Þá fattar enginn. Finndu hvað þetta er gott. Við erum trúlofuð, Kolgríma. Nú má alveg. Vertu bara róleg. Finndu hvað þetta er gott. Kolgríma var pínulítið hrædd. Kolgríma æpti pínulítið. Þetta var ekkert gott. Þetta var vont. Steinn hélt fyrir munninn á henni og hvíslaði í eyrað á henni:


-Yes. Sure. -Because I am going to ask you to be my fiancée, to be engaged. What do you say? You and I secretly engaged. You do not tell anyone. Right? It will be our secret. We know each other so well, you know. We were in the same class in school when we were kids. Are you perhaps never going to get married, or what? -Yes, but if you give me a ring, then everybody can see, Kolgríma said. -A ring? -Yes, you know, an engagement ring. -Then I just give you something else. Then nobdody finds out. Just feel how good this is. We are engaged now, Kolgríma. Now it is OK, you know. Just relax. Feels so good. Kolgríma was a littlebit afraid. She screamed a little bit. No, it did not feel good. I hurt. Steinn put his hand on her mouth and whispered into her ear:


-Róleg, bara róleg. Þetta er allt í lagi, Kolgríma. Við erum trúlofuð.

3. Kolgríma varðveitti leyndarmálið vel. Leynilega trúlofuð. Hún var heitbundin. Fallegt orð: Heit-bundin. Mánuðir liðu. Gulli sá Kolgrímu tilsýndar þegar hún fór með eggin fyrir mömmu sína. -Andskoti er hún komin með flotta kúlu, hugsaði hann og brosti. -Ef Steinn kemur nokkurn tíma aftur hingað skal ég sko stríða honum. Kolgríma skildi vel að nú var hún að verða mamma. Hún vissi vel hvernig börn verða til. Hún fann barnið sparka. Kolgríma eignaðist son.


-Just relax. This is all right now, Kolgríma. We are engaged, you know.

3rd Chapter Kolgríma kept the secret. Secretly engaged. She had given a wow to her fiancée. Beautiful word: engaged. Months passed by. Gulli saw Kolgríma from afar where she was delivering the eggs for her mother. -Damn smart big belly she has gotten, Gulli thought and smiled. -If Steinn will ever come back, then I will, for sure, tease him. Kolgríma understood that now she was to become a mother. She knew only too well how babies come to be. She felt the baby kicking. Kolgríma gave birth to a son.


Hún varð að segja hver var faðir barnsins. Hún vissi ekki alveg hvort það var leyndarmál líka. Hún gat engan spurt. Steinn var farinn burt. Hvert, vissi enginn. Dúa, móðir Steins, var Kolgrímu góð. Hún þekkti þennan son sinn og efaðist ekki um að Kolgríma segði satt. En Þorgrímur, faðir Kolgrímu, varð æfur af reiði, því Jóhann, pabbi Steins, var hans svæsnasti, svæsnasti óvinur, og „undan honum gat ekkert gott komið". Kolgríma bað föður sinn að leyfa að barnið yrði látið heita Þorgrímur. -Aldrei!, öskraði Þorgrímur. Lausaleikskrói. Auk þess verður afkomandi Jóhanns svarta ekki heitinn í höfuðið á mér. Aldrei, að mér heilum og lifandi.


She had to tell who the father of her baby was. She was not sure if that would be a part of the secret too. She could not ask anyone about that. Steinn was not here. Nobody knew where he would have gone. Dúa, mother of Steinn, was very kind to Kolgríma. She only knew too well how her son behaved. She never doubted that Kolgríma told the truth. But Þorgrímur, Kolgríma´s father, was furious. Jóhann, father of Steinn, was his worst, hated, and sworn enemy. He said: -Nothing worthy could come from that bastard, referring to Steinn. Kolgríma asked her father to permit that her child would bear his name, Þorgrímur. -Never, Þorgrímur yelled back. -An illegimate child. Besides, that grandson of Jóhann the Black will never ever bear my name. That is my final answer.


Móðir Kolgrímu reyndi að stilla Þorgrím: -Svona nú, Grímur. Deilur ykkar Jóhanns heyra fortíðinni til. Þær koma þessu máli ekki við. -Það getur verið, sagði Kolgríma, -að Steinn vilji að hann heiti Jóhann eins og pabbi hans, í höfuðið á hinum afa sínum. -Þá getur þú haft þennan krakkaorm annars staðar en í mínum húsum, svaraði Þorgrímur. -Það Jóhannsnafn kemur ekki í mitt hús. Þú ætlast kannski til að ég sjái fyrir þessum króa þínum, Kolgríma? Þú hefur aldrei orðið okkur til annars en........... -Svona, svona, Grímur, greip móðir Kolgrímu fram í, byrst. -Grímur !!.... -Betur að þú hefðir aldrei fæðst, hvæsti hann.... Þau tala bæði í einu. Móðir Kolgrímu: -Þorgrímur. Stilltu þig, maður.... Þorgrímur: -Þú hefur saurgað nafn móður minnar, Kolgríma. Lausaleikskrói! Sveiattan.


Kolgríma´s mother tried to calm Þorgrímur down: -Now enough, Grímur. The dispute and enmity between you and Jóhann were long long ago. That issue has nothing to do with this now. -Perhaps, Kolgríma said, -Steinn would like him to have his father’s name, Jóhann, as he is his grangfather too. -Then you can have that worthless child somewhere else. That Jóhanns-name will never ever be allowed in my house. You perhaps assume that I will feed that child of yours, Kolgríma? You have never been to us other than…….. -Calm down, Grímur, Kolgríma’s mother interrupted sharply: -Grímur ! -Better that you had never been born, he spit out. They speak, both two of them, at the same time. Kolgríma´s mother: -Þorgrímur! Now you calm down, man. Þorgrímur: -You have defamed my mother’s name, Kolgríma. An illegimate bastard. Disgusting.


Móðir Kolgrímu var orðin hvöss: -Þorgrímur ! -Ég get kannski fengið vinnu í bankaútibúinu, sagði Kolgríma. -Ég er svo dugleg í reikningi. -Þú færð enga vinnu. Ég sé fyrir mínu heimili, hreytti Þorgrímur út úr sér. -Þá...., sagði Kolgríma, -....þá ætla ég að láta hann heita eftir kettinum mínum sem strákarnir drápu. Hann var svo góður. Hann var alltaf svo góður. -Kolgríma mín, sagði móðir hennar, -maður skírir ekki barn eftir löngu dauðum ketti. Hét hann ekki Kausi? -Hann hét Brandur Kausi, mamma. Brandur þýðir líka beittasti hluti sverðs. Brandur Kausi Steinsson, sagði Kolgríma dreymin. -Já, sagði hún stolt: -Brandur Kausi Steinsson. -Bara Brandur, Kolgríma mín. -Brandur Steinsson, sagði Kolgríma.


Kolgríma´s mother was getting brusque: -Þorgrímur ! -Perhaps I can get a job in the bank´s branch office, Kolgríma said. -I am clever at maths. -You will get no job. I provide for my household, Þorgrímur spat out. -Then…., Kolgríma said, ...-then I am going to name him after my cat, the one that the boys killed. He was so good a cat. He was always so good. -My dear Kolgríma, her mother said. You cannot give a child the name of a dead cat. Was his name not Kausi? -His name was Brandur Kausi, mom. Brandur also means the sharpest part of a sword. Brandur Kausi Steinsson, she said, and her expression was that of joy. -Yes, she said, proudly: -Brandur Kausi Steinsson. -Only Brandur, my beloved Kolgríma. -Yes. Brandur Seinsson, Kolgríma repeated.


-Já. Ég er viss um að Steini líkar það vel þegar hann kemur heim. Hamingja skein úr brosi augna hennar. -Hvað ætli hann komi, hnussaði í Þorgrími. -Það er líka þessu plássi fyrir bestu að vera laust við þann vesaling fyrir fullt og allt. Hann sést hér vonandi aldrei aftur. Þessir djöfuls amlóðar, skilja eftir sig lausaleikskróa og stinga svo af. Það var vart von að hann yrði föðurbetrungur; -- sami skíturinn og helvítis kallinn... -Þorgrímur!, sagði móðir Kolgrímu. -Nú er nóg komið ! Kolgríma fór með barnið og gaf því að sjúga. Það er fátt sem getur komið henni úr jafnvægi. Kolgríma átti nefnilega leyndarmál: -Brandur. Brandur litli sonur okkar. Brandur Steinsson.


-I am sure Steinn vill like that when he returns. Happiness was shinging from the smile in her eyes. -Come back!? Þorgrímur spat out. -It is also best for this place to have completely gotten rid of that wretch for good. I just hope he will never ever be seen here again. These blasted good-for-nothing blokes leave illegimate children behind when they run away. Sneak away. We could not expect, anyway, that he would be any better than his father - the same shit as that damn father of his…… -Þorgrímur! Kolgríma’s mother said. Now enough.! Kolgríma left the room, taking her baby with her. She breast-fed her son. Actually, her equanimety cannot easily been disturbed. Kolgríma owned a secret, as we know: -Brandur, Brandur, our little son. Brandur Steinsson.


Ég veit að pabba þínum líkar það vel þegar hann kemur heim, - þegar Steinn kemur að sjá strákinn sinn. Þá get ég sagt þér leyndarmálið okkar Steins. Þú ert ekki lausaleikskrói. Þau mega bara ekki vita leyndarmálið fyrr en Steinn kemur. Sjúgðu nú brjóst svo þú verðir stór og fallegur strákur þegar pabbi þinn kemur heim. Þá verður hann kátur að sjá strákinn sinn. Nú er hann kannski að vakna á stóra skipinu. Mamma hans Steins, hún amma Dúa, sagði mér að hann væri líklega á stóru skipi einhvers staðar langt úti á hafinu stóra. Kringlóttur geisli skoppar kannski inn um kýraugað og hoppar á káetugólfið. Hann hreyfist fram og til baka. Og geisladans af smáum öldum merlar á káetuloftinu.


I am sure that your father will be happy with that when he returnes home when Steinn comes to see his son. Then I can tell you our secret, the secret that I and Steinn keep. You are not any illegimate child. Only they are not allowed to know until Steinn returns. Now suckle your mother’s milk, so that you will have become a big and beautiful boy when your daddy comes home. Then he will be happy to see his son. Perhaps, now, he is waking up on the big ship. Steinn´s mother, your granny Dúa, told me that he would, most likely, be working on a big ship, far away somewhere on the huge ocean. A round beam of light perhaps comes in through the round window, and jumps on the floor. It moves to and fro. And the dance of rays that come in, reflections from the little waves, can be seen shimmering on the roof in his room.


Hvað skyldi klukkan vera þar? Nei, á sjó er ekki klukka, ekki dagar, bara vaktir. Ræs, ræs, ræs. Í vélarrúminu bíða þín smurkoppar, olíustútar, smurkoppar. Enginn kringlóttur geisli hoppar á gólfið niðri í vélarrúmi. Geðvondur vélstjóri á vakt. Úti mun hnöttótt sólin skoppa á hafinu - kannski haustrauð sól? Hafflöturinn verður svo sléttur að skipið veit ekki hvort það siglir á hafinu eða himninum, og sólinni er alveg sama um alla smurkoppa. Pabbi þinn og ég eigum leyndarmál. Brandur litli, sonur minn. Sonur okkar. Þú ert svo lítill að þú skilur ekki. Ég má engum segja. Ekki fyrr en seinna, þegar Steinn kemur heim til okkar.


What would the time be there? No. On ships there is no clock, no days, only shifts: Rise ! Rise ! Rise ! In the room where the big engine is, there are only wating for you some lubrication system and oil-pipes. There is no round sunbeam dancing down there in the dark engine-room. A bad-tempered engineer is having that shift. But outside, on the surface of the sea, the round sun will dance and jump. Perhaps it is a red sun of autumn. The ocean surface is to calm that the ship does not exactly know if it is sailing on the sea or in the sky. And the sun does not care the least for any oil filters or grease cups of engines. Your father and I have a secret, Brandur, my little son. Our son. You are too young to understand. I cannot tell anyone. Not until later, when Steinn returns home. Home to us.


Þú verður að vera duglegur að sjúga, svo þú verðir stór og fallegur eins og hann. Hann er svo fallegur, --- Steinn er svo fallegur. Heitbundin. Heitbundin. Leyndarmál.

4. Kolgríma talaði mikið við barnið sitt. Það var betra að tala við barnið en fólk. Það var gott að tala við barnið. Hún gat sagt það sem hún hugsaði. Það var þægilegra en að tala við fólk. Árin liðu. Brandur þroskaðist mjög vel. Hann var skýr eftir aldri. En hann lék sér ekki við aðra krakka, því það voru ekki börn þarna í kring. Ekki nema inni í þorpi.


You have to drink a lot in order to grow, become a big boy. Big and beautiful as he is. He is so beautiful. Steinn is so beautiful. Engaged. Engaged. A secret.

4th Chapter Kolgríma always spoke a lot to her child. It was a kind of better to talk to the child than to talk to grown-ups. It felt good to talk to the child. She could say anything that came to her mind. A lot better a feeling than to speak to people. Years passed by. Brandur grew up to become a thrifty boy. He was intelligent ahead of his age. Here he could not play with other kids, as there were none. There were kids only down there in the village.


Kolgríma sagði Brandi litla sögur. Hún bjó til margar sögur handa honum þegar hann fór að stækka. Brandur: -Þú ætlaðir að segja mér sögu, mamma, ef ég yrði fljótur að hátta. Af hverju drápu ljótu strákarnir köttinn þinn sem hét Brandur Kausi, þegar þú varst lítil, mamma? Kolgríma svarar lágt: -Þeir héldu að hann hefði drepið dúfu sem þeir áttu. Það var ekki satt! Brandur Kausi var inni alla nóttina. Hann var orðinn gamall. Hann svaf á koddanum mínum alla nóttina. Það var einhver annar köttur sem drap dúfuna. Þeir rotuðu köttinn minn með grjóti. Kolgríma verður döpur við þessar hugsanir. Hann lá dáinn úti í kálgarði, blóðugur um munninn.


Kolgríma told stories to her little son Brandur. She made stories for him. Told him when he became a bit older. Brandur: -Mamma, you were going to tell me a story when I had taken on my pyjamas. Why did the bad boys kill your cat, whose name was Brandur Kausi, mamma, when you were a little girl? Softly, Kolgríma replied: -They thought that he had killed a pigeon they had. It was not the truth. Brandur Kausi was inside all night. He was old. He slept on my pillow the whole night. Some other cat must have killed their dove. They killed my cat by hitting it in the head with a stone. Kolgríma becomes sorrowful on recalling this incident. He lay there in the garden, dead. His mouth was bleeding.


Ég jarðaði hann. Hann var alltaf svo góður. Kolgríma varð þögul. Brandur ítrekar, óþolinmóður: -Mamma. Mamma. Þú ætlaðir að segja mér sögu. Mamma. Kolgríma: -Ha? Já. Ég er að fara að búa hana til. Hún er um -- ryksugu. Já. Ryksugu, sem er svo hryllilega orðljót: Ryksugan fer inn í stofu, fínustofu, stássstofu, þar sem fínu húsgögnin eru og fína stofuteppið. -Góðan dag, segir ryksugan með hávaða og syngur á fullu: Ryksugan á fullu étur alla drullu lalalala rallalala ralla la la. Postulínsplattinn sem hangir uppi á vegg er alveg hneykslaður.


I made a grave for him. He was always so sweet. There is silence. Kolgríma is silent. Brandur, getting impatient, says: -Mamma. Mamma, you were going to tell me a story. Mamma. Kolgríma: -What? Yes. I am just about making it: It is all about - a vacuum cleaner. Yes. A vacuum cleaner that never uses a polite language: The vaccum cleaner goes into the living room, the fine living room where all the finest sofa and armchairs are, and the finest finest living room carpet. -Good morning, the vaccum cleaner says, and sings with a loud voice: -The vaccum cleaner on full blast consumes all the dirt lalalala rallalala ralla la la. The porcelain plate, that hangs on the wall, is disgusted.


-Jæja, segir ryksugan. -Alltaf sama lognmollan hér. Hvað hefur til dæmis gerst hér hjá ykkur síðan á laugardaginn var? Fínu húsgögnin settu upp ofsalega virðulegan svip, og silkipúðarnir þóttust ekki heyra. -Já, vissi ég ekki, sagði ryksugan: ekkert. Ákkúrat ekkert. Jú, einn maður kom í heimsókn, fór úr skónum svo fína teppið skítnaði ekki einu sinni út, þáði vindil, en kveikti ekki í honum, svo fínu öskubakkarnir skítnuðu heldur ekki út. Það var þá viðburður. Nei. Þetta kalla ég fjandans tilbreytingarleysi. Fínu húsgögnin urðu pínulítið móðguð, en postulínsplattinn fylltist fyrirlitningu: Ryksuga -- vinnur eintóm skítverk --


-Well oh well, the vaccum cleaner says: -Always that same nothing-happening here. Can someone tell me if something has been happening here since last Saturday? The fine furniture made a sophisticated face, and the silk pillows pretended not to hear. -Well - as I knew, the vaccum cleaner said. -Nothing. Absolutely nothing. Well, I admit: One man came on a visit. He took off his shoes, so that the the finery carpet would not get soiled. He accepted a cigar but did not light it. So, the finery ashtrays did not either get dirty. What a happening! No. This is what I call utter repetitiousness. The fine furniture became a little bit affronted. The porcelain plate on the wall, on the other hand, became rather disdainful: -A vaccum cleaner, --who only has some cleaning work to do --


talar auk þess ósiðsamlegt mál, þykist vera að setja ofan í við þau, fínasta fíneríið, raunar of fínt til að vera notað. Hún heldur þó ekki að nokkur maður vaði inn á svona teppi á skónum. En postulínsplattinn var of vel upp alinn til að segja það sem hann hugsaði. -Það er fína veðrið, sagði borðið tilgerðarlega. -Það er dálítill hávaði í þér, fröken ryksuga, bætti það við. Gættu þess, ef þú vildir gera svo vel, að rekast ekki í fætur mér, þótt þú hafir mikið að gera. Segirðu nokkuð í fréttum? -Það brotnaði glas í eldhúsinu í morgun, sagði ryksugan. -Það var eldhúsglas. Eldhúsglös hafa sko mikið að gera, skal ég segja ykkur. Alltaf í notkun. Þau eru ekki bara uppstilling til augnayndis, heldur eru þau alltaf að vinna. Palli litli var að drekka sjálfur í morgun, eða réttara sagt ætlaði að fara að fá sér sjálfur, prílaði upp á stól, náði í glas, en litlu puttarnir voru of litlir og púmm


and on top of the uses some not so decent language, really thinks she can critizise them, the finest finery. Actually, too fine to be used. Could she imagine that anyone would ever tread on a carpet like this with his shoes on! But the porcelain plate was too well behaved to say aloud what he was thinking. -Fine weather today, said the table, in a rather affected and finery-mannered way. And added: -Miss vacuum cleaner, you are rather noisy. Please be careful not to bump into my table legs, even if you are a very busy worker. Are there any news you can share? -A glass was broken in the kitchen this morning, the vacuum cleaner replied. -It was a kitchen glass. Kitchen glasses are always in use. Busy glasses. They are not just a mere decoration, for the eye. No, they are constantly working. Little Palli intended to help himself this morning, so he climbed up on a chair, got hold on a glass, but his little fingers were too small, - and poom !


-- glasið í gólfið. Allt í mél, maður. Svo heyrðist dingaling í rörinu á mér og dongalong í barkanum á mér þegar jarðneskar leifar þessa dygga glass hringluðust í pokann í mér. Svo heyrðist aftur dingaling og dongalong, þegar pokinn minn var tæmdur í öskutunnuna. Ryksugan hlær: -Ja, ef þið vissuð hvað gerðist þegar ég fór út í öskutunnu! Svaka fjör, maður.... Fínu húsgögnin sýndu engin svipbrigði. Gátu þau verið þekkt fyrir að vera spennt í öskutunnusögum? Nei. Þau þóttust ekki hafa áhuga fyrir öskutunnusögum. Ryksugan syngur á fullu: -Ryksugan á fullu, étur alla drullu, trallalala trallalala tralla la la. Þið hefðuð bara átt að sjá það, maður, bætir hún við. Nú var teppið orðið svolítið forvitið, en það vildi ekki láta fínu húsgögnin sjá að það hefði áhuga á að heyra


--The glass ended up on the floor.-Went into thousand pieces, oh boy !! Then dingaling was to be heard from my metal cylinder, and dongalong from my soft cylinder, when the debris of that loyal glass was whirling into my bag. Then again dingaling and dongalong was to be heard when my bag was emptied into the dustbin. The vaccum cleaner bursts into laughter: -If you just knew what happened when I went out to the dustbin. Oh, boy……. The finery-furniture showed no expression of wanting to hear more. Could they let anyone know that they took any interest in dustbin-stories? The vaccum cleaner now starts again singing, loudly: -The vaccum cleaner on full blast consumes all the dirt lalalala rallalala ralla la la. I wish you could have seen it, oh boy oh boy, she added. Now the carpet was getting a little bit curious, but did not want the finery furniture see, that is was interested in


ryksugu segja öskutunnusögur. -Hah ha hæ ! segir ryksugan. Það var nú meira bíóið, maður. Ég hélt ég yrði ekki eldri! Og ryksugan hamaðist á teppinu í gríð og erg. Það kitlaði og þótti bara gaman að láta ryksuga sig, en lét ekkert á því bera. (Annars var þetta notalegt eins og að láta þvo sér bakið í baði.) Það gerist ekki svo margt í fínum stássstofum. Það eina sem raunverulega gerist er að þessi hressa ryksuga kemur að þrífa rykið, sem gæti hafa safnast -- en það er venjulega þrifið áður en það kemur. -Jæja, segir ryksugan. -Fyrst þið hafið engan áhuga á skemmtisögum, er ég farin. Ég hef nóg að gera. Bless bless og veriðið hress. Sí jú leider, alegeitor! Svo brunaði hún fram og það var lokað inn í fínu stofu.


listening to a vacuum cleaner tell dustbin stories. -Hah he hi! says the vacuum cleaner. -That was the funniest thing for a long time. Oh, boy. I thought I would never in my life experience such jokes. And the vacuum cleaner rubbed the carped vigourously. The carpet felt the tickling, and quite liked being cleaned this way. But pretended to have no interest. (Actually it felt like having someone wash your back in the bath-tub.) Nothing much happens, we know, in finery living rooms. The only thing ever happening, really, was that this vacuum cleaner came to sweep up the dust that might have accumulated - usually swept up before it ever comes. -Ok, the vaccum cleaner says. -As you show no interest in amusing stories, then I just go. Work awaits me. Bye bye and be merry. See you later, alegator. Then she rushed out of the room. The door to the finery living room was shut.


Þögnin og virðuleikinn réðu þar ríkjum á ný. Fínu húsgögnin störðu fram fyrir sig með virðulega svipinn - á ekki neitt. Brandur: -Hvað ætlaði hún að segja þeim? Kolgríma: -Mér datt ekkert í hug. Brandur hlær: -Gastu þá ekkert búið til söguna? Kolgríma: -Dettur þér eitthvað í hug? Brandur hugsar: -Nei. Jú, til dæmis, að það hafi verið mús að éta epli í öskutunnunni svo hafi músin stokkið í burtu. Kolgríma: -En hvað er fyndið við það? Brandur: -Fyndið? Brandur hugsar. -Nee, líklega er þetta ekkert fyndið. Kolgríma: -Jæja, fyrst okkur dettur ekkert sniðugt í hug til að láta ryksuguna segja, þá er þetta bara leyndarmál. Fínu húsgögnin fá aldrei að vita það........ Brandur botnar setninguna: ..... vegna þess að okkur datt ekkert


Silence and dignity reigned again. The finery furniture, keeping their dignity, stared vacantly -- at nothing. Brandur: -What was she going to tell them? Kolgríma: -Nothing came to my mind. Brandur laughs: -Then you could not tell the story? Kolgríma: -Do you get an idea? Brandur thinks for a while: -No. Well yes, there was a mouse eating an apple in the dust bin, and then the mouse ran away. Kolgríma: -But what is funny about that? Brandur: -Funny? Brandur contemplates: Well, no. Perhaps this is not funny at all. Kolgríma: -Then, as we do not hit upon anything funny to have the vacuum cleaner tell them, then that is just a secret. The finery furniture will never get to know……. Brandur finishes the sentence: - ……… Because we did not hit upon anything


fyndið í hug! Brandur hlær. -Farðu nú að sofa. Nú lesum við bænirnar. Brandur: -Hvað erum við að gera þegar við sofum og svo erum við að dreyma.... Kolgríma: - er _okkur_ að dreyma. Brandur: -.... já, og þá förum við eitthvert og gerum eitthvað en samt liggjum við kyrr í rúminu? Kolgríma: -Svefninn -- hún hugsar sig aðeins um -- svefninn er djúpt myrkur. Þar búa draumarnir. Þeir vaka á nóttunni, þegar aðrir sofa. Þeir eru góðir eða vondir eins og mennirnir. Brandur: -En svona dagdraumar og svoleiðis, sem maður hugsar og maður langar.... Kolgríma: -..._mann_ langar, Brandur: -...búa þeir líka í svona djúpu myrkri? -- þá er maður með opin augun, mamma.


amusing or funny !! Brandur laughs. -Now go to sleep. Let us say our prayers. Brandur: -What are we doing when we sleep, and then us are dreaming… Kolgríma: -_We_ are dreaming. Brandur: -Yes. And we go somewhere, and we do something, but yet we lie still in bed? Kolgríma: -Sleep -- she thinks for a while -- Sleep is a deep deep darkness. There dreams abide. They are awake during night, while others are asleep. They are either good or bad just like people. Brandur: -But daydreams, you know, and such, that we think and us wants…. Kolgríma: …..-_We_ want. Brandur: -Do they also live in that kind of deep darkness? -- Then our eyes are open, mamma.


Kolgríma: -Nei, sólin skín á dagdrauma. Já. sólin skín á dagdrauma. Þá brosa þeir. Kolgríma hlær þegar hún sér fyrir sér brosandi dagdrauma. Þetta er svo fallegt. Brandur: -Kunna draumar að brosa? Kolgríma: -Kannski verða þeir dálítið feimnir. Brandur: -Er pabbi sofandi núna? Kolgríma: -Skipið hans siglir á sjónum, sem er svo sléttur, að skýin og tunglið speglast í honum. Maður veit ekki lengur hvað er haf og hvað er himinn. Brandur: -Það er aldrei svona sléttur sjór langt úti á sjó. Afi segir það. Það er alltaf bræla. Það segir afi. Er pabbi sofandi núna? Kolgríma: -Eigum við að lesa bænirnar? Brandur: -Getum við talað við hann guð þótt við sjáum hann ekki?


Kolgríma: -No. The sun shines on daydreams. Yes. The sun shines on daydreams. Then they smile. Kolgríma laughs when she imagines smiling daydreams. This is so beautiful. Brandur: -Do dreams know how to smile? Kolgríma: -Perhaps they become a little bit shy. Brandur: -Is dad asleep now? Kolgríma: -His ship is sailing on the sea that is so smooth without any waves, that the clouds and the moon get reflected on the surface. We no longer know what is an ocean and what is sky. Brandur: -The is never any waveless sea there out on the ocean. Granddad says so. There are always heavy seas. That is what granddad tells me. Is my dad asleep now? Kolgríma: -Shall we say our prayers? Brandur: -Can we talk to God ever if we do not see him?


Kolgríma: -Við tölum við guð -- eða kannski tölum við bara við sjálf okkur...... Brandur geispar. Kolgríma heldur áfram: ....það skiptir kannski ekki máli ef við bara tölum í einlægni. Brandur segir syfjulega: -Hann hlýtur að hafa ofsalega mikið að gera þegar allir eru að fara að sofa.

5. Þorgrímur afi talar líka mikið við Brand. Þorgrímur: -Jæja, Brandur kallinn, afastrákurinn. Brandur: -Heyrðu, afi, .... Þorgrímur: -Þú hefðir eiginlega átt að heita Þorgrímur eins og afi. Brandur: -....afi, fórst þú aldrei í skólann?


Kolgríma: -We talk to God - or perhaps we are just talking to ourselves. Brandur yawns. Kolgríma continues: -That, perhaps, makes no difference if we simply are sincere and earnest. Sleepily, Brandur adds: -He must be very busy when everybody is going to bed.

5th Chapter Þorgrímur, Brandur´s grandpa, also talks a lot to Brandur. Þorgrímur: -Oh, well, my Brandur boy, grandpa´s boy. Brandur: -Tell me, grandpa,….. Þorgrímur: -Your name should have been Þorgrímur. Just like grandpa. Brandur: -Did you ever go to school?


Þorgrímur: -Grímsnafnið hefur alltaf verið í minni ætt. Brandur: -Fórst þú aldrei í skólann þegar þú varst lítill, afi? Þorgrímur: -Þorgrímur yngri ...Litli Grímur... Brandur: -Afi !. Þorgrímur: -Skóla? Ég? Til hvers eiginlega? Djöfuls amlóðafúsk. Ég hef komist bærilega af án einhverrar helvítis skólagöngu. Komdu hingað afastrákur. Þú ert sko minn karl. Þú hefðir eiginlega átt að heita Þorgrímur eins og afi. Eins og afi. Brandur: -Verður maður að fara í skólann? Þorgrímur: -Verður og verður. Skólar eru óþarfi. Atvinnubótavinna fyrir letingja sem nenna ekki að vinna ærlegt handtak. Brandur: -Fór pabbi í skólann? Þorgrímur svarar hranalega: -Þú átt engan pabba.


Þorgrímur: -The Grímur-name has always been running in my family. Brandur: -Did you never go to school when you were a little boy, grandpa? Þorgrímur: -Þorgrímur junior. Little Grímur. Brandur: -Grandpa ! Þorgrímur: -School? I? What for, really. Damn waste of time for nogoodies. I have made a good life without some blasted school-education. Now, come here, grandpa’s boy. You are my buddy. Your name should have been Þorgrímur. Þorgrímur like grandpa. Like your granddad. Brandur: -Must everyone go to school? Þorgrímur: -Must and must. Shcools are not any necessity at all. Just some unemployment-pass-time job for lazy blokes who do not want to do any decent work. Brandur: -Did my father go to school? Þorgrímur replies, harshly: -You do not have any father.


Þú þarft heldur engan pabba. Þú ert afastrákur. Brandur: -Víst á ég pabba. Mamma segir það. Þorgrímur: -Hvaða pabbi heldurðu að það sé, sem veit ekki einu sinni að þú ert til? Andskotans ómenni, þessi drengdjöfull. Sver sig í ættina. Hvernig gat líka annað komið undan Jóhanni svarta? Nei, þú þarft sko ekkert að fara í skóla, drengur. Brandur: -Ég fer þá bara á sjóinn...... Þorgrímur: -Já, nú líkar mér við minn karl. Brandur: -.... eins og pabbi. Þorgrímur: -Þú átt engan pabba, drengur. Þetta er drabbari. Þú ferð á sjóinn eins og afi, eins og ég gerði þegar ég var ungur; ferð á sjóinn eins og afi Grímur. Þá hafði maður nú krafta í kögglum, drengur minn.


Besides, that you do not need a father. You are grandpa´s boy. Brandur: -I have a father, for sure. My mother says so. Þorgrímur: -What kind of a father is that, to your mind, who does not even know that you exist? Damn scoundrel, that lousy bloke. Just like the rest of his family. How could anything worthy be the progeny of Black-Jóhann? No, you simply do not need to go to school, my boy. Brandur: -Then I just become a seaman. Þorgrímur: -That is my boy. That is my boy. Brandur: -Like my father. Þorgrímur: -You do not have any father, boy. He is a scoundrel. He is a reveler. You go to sea like grandpa, like I did when I was a young lad. Go to sea like grandpa Grímur. Then I was strong, my boy. Very very strong.


Jahá. Takast á við þann gula, drengur minn. Það er nú karlmönnum sæmandi -- ekki eitthvert djöfuls bókadrasl, fussogsvei. Um kvöldið segir Brandur mömmu sinni, varfærnislega, að afi hafi ekkert farið í skólann, bara á sjóin. -Auðvitað verður maður að fara í skólann, Brandur minn, að læra að lesa og skrifa og reikna. Það er svo gaman í skólanum. Nú skulum við búa til sögu, Brandur minn, og svo förum við að sofa. Mér datt í hug sniðug saga. Brandi er ekki hlátur í huga, því hann er að hugsa um þetta með skólann. Afi fór aldrei í skólann. Hann fór bara á sjóinn. Kolgríma byrjar því á sögunni.


Yes, oh yes. Coping with the big cods, my boy. That is something fit for real men - not some book-stuff. Oh no, not that rubbish. That night, cautiously Brandur tells his mother that grandpa never went to school. He became a fisherman. -Of course we have to go to school, my little Brandur boy. We have to learn how to read and write, and learn basic maths. School is always great fun. Now we make a story, Brandur. And then we go to sleep. I got an idea that can become a good story. But Brandur is not in the mood for any amusing stories. He is thinking about school. Grandpa never went to school. Instead, he became a fisherman. So Kolgríma begins telling her new story.


Brandur hefur alltaf gaman af að koma með hugmyndir í sögurnar þeirra, en nú er hann að hugsa um annað en sögur. Getur þú ekki bætt einhverju í söguna, Brandur, eða haldið áfram? En Brandur spurði aðeins hvort allir yrðu að fara í skólann.

6. Það er þetta með skólann. Brandur á auðvitað að fara í skólann eins og lög gera ráð fyrir. Hann verður fyrir aðkasti í skólanum. Það hefði verið kallað einelti ef orðið hefði verið notað þá. Krakkarnir stríða honum með því, að hann eigi engan pabba; þau stríða honum með því, að mamma hans sé skrýtin, sé aumingi, og þau herma eftir göngulagi hennar.


Brandur usually has fun bringing his ideas into their stories. Now he is occupied with other issues than bedtime stories. Kolgríma: -Can you add to the story. What is going to happen next? Brandur only asks if everybody had to go to school.

6th Chapter The school. That is the problem. Of course, Brandur is supposed to show up in school. That is simply a law. But: He is teased in school. He is being picked on. Kids tease him saying that he has no father; tease him by his mother being a weakling; and they mimic her funny way of walking.


En verst af öllu er, að heima hjá Brandi er ekkert sjónvarp. Allir sjá sjónvarpið, nema Brandur. Allir fá að horfa á einhverja þætti, einnig svona fullorðinsþætti, nema Brandur. Hvernig getur hann verið samræðuhæfur í hópi stráka sem sjá þætti? Á hverjum degi fer Brandur að heiman með skólatöskuna sína -- fer af stað nógu snemma til að komast í skólann á réttum tíma. Það er drjúgur gangur niður í þorp ofan úr Þorgrímshúsi. En Brandur fer ekki í skólann. Hann fer til ömmu Dúu og les gömlu Tarzanblöðin sem Steinn átti þegar hann var lítill. Amma Dúa er stundum að hugsa hvort skóladagurinn sé svona stuttur, því hún heldur að Brandur sé að koma úr skólanum þegar hann kemur til hennar. Hann segir hiklaus, ef hún spyr: -Það var sko frí. AmmaDúa gefur honum eitthvað gott í svanginn. Hann les hasarblöðin gömlu þar til


But worst of all is that in his home there is no TV. Everyone watches TV - except Brandur. Every kid is allowed to see some TVseries. Also those meant for grown-ups. Except Brandur. How can he fit into conversations with other boys when they discuss TV-stuff? Every day Brandur leaves home, carrying his school-bag - leaves early enough to get to school in time. It takes time to walk all the way from Þorgrímshouse to the village. But Brandur does not go to school. He goes to his grandmother Dúa to read the old Tarzan comic books that Steinn had when he was a boy. Grandma Dúa occationally wonders if the school-day is so short, as she thinks Brandur has finished school when he comes to her house. If she asks him, he does not hesitate to say: There was some time off today. Grandma Dúa gives Brandur something good to eat. He reads the old comics, until there is


passar að fara heim í Þorgrímshús, á þeim tíma sem skólinn er raunverulega búinn. Guðrún á Félagsmálastofnun fær þetta mál til meðferðar: Móðir drengsins, Kolgríma Þorgrímsdóttir, einstæð móðir, holgóma, hreyfihömluð, sumir álíta hana óhæfan uppalanda; býr hjá foreldrum sínum. Faðir hennar öryrki, slasaðist á sjó. Guðrún á Félagsmálastofnun reynir að fá sem mestar upplýsingar um þetta heimili. Hún talar meira að segja við fröken Guðríði, kennslukonu, sem kenndi Kolgrímu þegar hún var lítil. Hún er hætt að kenna. Þekkir því ekki Brand. Komnir sprenglærðir kennarar að sunnan, og gömlu kennurunum boðið að vera leiðbeinendur á lægra kaupi en þessir ungu með prófin.


time to go home. That is the time when, actually, school-day is finished. Guðrún, working at the institution for social affairs, gets this case onto her desk. Kolgríma Þorgrímsdóttir, mother of Brandur, a single mother, has a cleft palate, handicapped. Some claim she would not be able to bring up a child. She lives with her parents. Her father an invalid due to an accident at sea. Guðrún tries to get as much information on this particular home as she possibly can gather. She even talks to Miss Guðríður, who was Kolgríma´s teacher when she was a little girl in school. Miss Guðríður is retired now as a teacher, so she does not know Brandur. Nowadays, teachers holding a university degree from the capital-university have taken over. The old teachers can get a job as supportive mentors. They now get paid less than the young degreeholding teachers.


Það er kosturinn og gallinn við þessi litlu pláss að allir þekkja alla. En svosem auðvelt að fá upplýsingar: -Þau voru tvö systkinin. Bróðir hennar var á báti sem fór niður. Þorgrímur tók sonarmissinn mjög nærri sér. Enda var hann yndælispiltur. Ekki mikið fyrir bókina, en þeim mun efnilegri á allan anna hátt. Mikil sorg og mikill missir fyrir plássið þegar þeir fórust. Allt ungir menn. Móðir Kolgrímu er mjög vel gerð kona. Hún hefur ætíð staðið sig vel í mótlæti. Hann er nú ekkert lamb að leika við, Þorgrímur, en hún lætur ekki vaða ofaní sig, frúin. Fer sér hægt, en er ákveðin kona. Hún er ekki illa gefin, hún Kolgríma litla, segir Guðríður. Hún var eiginlega það sem maður kallar sérsviðagreind. Það var líka kallað ofviti í gamla daga. Henni var strítt, en ég veit ekki hvort hún tók það nærri sér.


It is both benefits and a hank about these small villages that everyone knows everyone. The benefits that it is easy to get information: -They were two of them, the siblings. Kolgríma´s brother was on a boat that sank. Þorgrímur never really recovered after his son died. That boy was a good boy. Perhaps not really enjoying learning in school, but promising and efficient in all other areas. This was a horrible accident when these young men were lost at sea. The whole village mourned. Kolgríma´s mother is a great person. She has always shown strength and equanimity when misfortune strikes. Þorgrímur is a very persistent man, but she, his wife, can cope with him. She is calm, but takes a stand. Little Kolgríma is not at all unintelligent. We might say that in some areas she is brilliant. In these times we might have termed this as prodigy. The kids teased her, but I do no know if she was much affected by that.


Hún virtist ekki vera neitt feimin þrátt fyrir þessa fötlun sína. Ég held að hún hafi ekki tekið neitt sem stríðni. Hún var í sínum hugarheimi, og hranalegt umhverfið setti ekki sitt mark á hana. Krakkarnir hlógu oft að því sem datt upp úr henni: Einu sinni var ég að tala við þau um eiginleika íslenzku ullarinnar. --- Ég verð að taka það fram að Kolgríma var með þykkar fléttur; hún var eina telpan sem ekki fékk að klippa sig. Allar stelpur voru komnar með stutt hár, nýjasta tíska, en pabbi Kolgrímu bannaði henni að klippa sig. -- Stúlkur eiga að hafa sítt hár -- sagði hann víst. Já. Ég var að tala við krakkana um eiginleika íslensku ullarinnar. Ég sagði þeim að ullin hlypi í heitu vatni og þófnaði við núning.


In spite of her being handicapped, I do not see that she was shy or ashamed. I think she did not see what the kids did to her as any teasing. She lived in her own world. The hostile surroundings did not touch her, nor put a mark on her. The kids often laughed when she got an idea and spoke out about it: Once I was teaching them about the properties of the Icelandic sheep-wool. -- I have to clarify here that Kolgríma had long thick hair, always plaited; she was the only girl who was not allowed to cut her hair. All the other girls had short hair. Newest fashion. Kolgríma´s father did not allow her to cut her hair. He is said to have said: -Girls should let their hair grow. Yes, where was I? I was teaching the kids about the qualities of the Icelandic sheep-wool. I told them that the wool shrinks in hot water, and if rubbed, it would shrink a lot.


Kolgríma rétti þá upp höndina: -Fröken Guðríður, sagði hún, -getur lifandi hár líka hlaupið? Krakkarnir fóru auðvitað að hlæja. Strákarnir spurðu hana í marga daga á eftir hvort hún þvæði sér nokkurn tíma um hausinn (eins og þeir orðuðu það), hárið gæti þófnað og hlaupið. Æ, hún rak sig alls staðar á vegg, hún Kolgríma litla. Það var eins og hún væri hætt að ætlast til nokkurs af umheiminum annars en kaldhæðni. Bjó í allt örðum heimi sem var miklu mildari en raunveruleikinn. En hún var dugleg að læra, sílesandi allt mögulegt, síspyrjandi um furðulegustu hluti. En það var eins og enginn kynni að meta það sem skyldi, bara af því að það var hún sem sagði það.


Then Kolgríma made a question: Miss Guðríður, she said, -can living hair also shrink? The kids, of course, laughed. The boys would ask her, for a long time afterwards, if she ever washed her hair as it might shrink. Oh, she often met some tribulation or adversity, that sweet little girl. It was if she did not expect anything other than irony to come her way. She lived in another world, which was much more loveable than the real one. But she was a good student. She read everything she could find. She asked amazing questions of diverse topics. But, somehow, just because it was she who asked, then nobody valued her imagination and insight for anything special.


Þar sannaðist víst hið fornkveðna: það skart er á einum sem skömm er á öðrum. Ég held að Þorgrímur hafi fyrirvarið sig fyrir hana. Hann bókstaflega reyndi að fela hana. Furðulegt að svona skuli geta gerst nú á tímum. En svona var það nú samt. Þorgrímur, faðir hennar, ætlaði ekki að senda hana í skóla. -- Hann er mjög skapstirður og orðhvatur maður, Kolgrímu langaði mikið til að halda áfram í skóla, fara á heimavistina, læra meira en hér í barnaskólanum og gagnfræðaskólanum. En Þorgrímur þvertók fyrir það. Það var synd, því hún gat vel lært. Já, og svo var annað, bætti kennslukonan við eftir nokkra umhugsun:


It is sometimes so, that it is not the real deed itself that counts, but rather who does it or says it. Some people are always the one up, whatever they do. I had the feeling that Þorgrímur, her father, never took pride in her. Rather he tried to hide her away, somehow. We hardly believe that such can happen nowadays. But the bitter truth is that it can. Her father was, actually not going to allow her to go to school! -- He was prone to being bad-tempered and could also be coarse. Kolgríma really wanted to learn more than we had here in the elementary school. But Þorgrímur was against that. A pity, because she was a good student. Yes, on a second thought: there was another thing I should mention, the teacher Miss Guðríður added


-Hún orti ljóð. Og hún samdi litlar sögur, sérkennilegar sögur. Það var eitthvað við þær. Eitthvert dýpi, sem var þarna falið undir barnalegri framsetningunni. Fröken Guðríður mundi allt í einu eftir að einhvers staðar átti hún litla sögu sem Kolgríma hafði gefið henni, þegar hún var í bekknum hennar:


-She made poems. And she made short stories. Interesting stories. There was something so charming about them. Some depth was there, hidden under the naïve ways of telling them. Miss Guðríður now recalled that she actually had a little story that Kolgríma had given to her when she was her pupil:

The Blind Boy The boy had pale skin. Very pale.

His eyes were dark - blue or brown, I do not know. They were simply dark.


I am trying to imagine what it is like to look at oneself in a mirror, the blind boy was thinking. Look at oneself move. The mirror is hard, has a smooth surface. I touch the mirror. Then my hand is reflected in the mirror against it and they touch one another. That hand is not a warm hand. No it is a cold hand, the blind boy was thinking. Then he stretched his hand upwards. Then the hand symbolized a flower that sees the sun opens up its petals and gains warmth from the sunrays. The sun is warm.


The blind boy searched for his flute. He recalled that he had made a tune about a flower and a sunray. He thought about the pony that he had touched long ago. Then the pony became frightened, he became hard, or stiffened, and ran off. The boy heard the pony run away. A pony is big, it is hard, but yet it is soft, warm, and has a mane. A pony has eyes, and he breathes. We can smell him. That is the scent of a pony.


Fröken Guðríður var mjög hugsi, allt að því meyr. -Já, sagði hún svo, og hressti sig upp: -Kolgríma var ekki ánægð með kvæðið um Ólaf liljurós, skal ég segja þér.


And the blind boy wanted to run, run like a pony. Little flowers die when the winter-frost comes, but the pony can run when there is frost - a warm, soft pony in the cold soft snow. The blind boy played his flute. He made a tune about the flower that died. But he could not make a tune about a pony. Miss Guðríður became quiet. She was almost emotional. Then she pulled herself together: -Do you remember the folklore poem about Ólafur liljurós. Kolgríma did not like that poem. She claimed it to be a


Hún sagði að það hefði verið sniðugra hjá honum að fara inn með álfameyjunum. Daginn eftir kom hún með kvæðið svona, sagði Guðríður og brosti. Kolgríma litla var snillingur á sinn hátt, já -- svona gera ekki nema snillingar. Hún sagði að það væri svo leiðinlegt fyrir mömmu hans og systur hans að hann væri að deyja. Svo ættu álfarnir fjársjóði í klettunum sínum:


better ending of it that Ólafur would have entered the cave, accepted the elvmaidens´ offer to visit their abode. The next day she handed over to me that poem in her own version. Guðríður smiled. Little Kolgríma was a genius - in her own way. Yes. Only a genius does something like this: She explained that for Ólafur´s mother and his sisters it were too sad to let him die. Besides the fact that elves own treasures in their cliffs. Ólafur liljurós Ólafur rode alongside the cliffs gets confused, calms down He came to an elves’ abode There red flames were burning gentle breeze lingered alongside the cliffs


Out of the cliff came an elf-maiden She was not favored by Christ.

Out of the cliff came another.

She held a golden jug.

Out came the third


She wore a golden belt aroud her waist.

“Come into the cliffs and live with us Accept, young lad this kiss”

“I do not want to live with elves

rather I want to believe in my Christ”


The beautiful elf-maiden offered her hand to Ólafur

Singing and beautiful poems could be heard

Liljurós dismounted his horse

He recited gentle praise to the maiden


To the pale and neat hands of the girl he gets connected, he is mesmerized they connect with strong bonds

Now there opens up halls decoratated with gold all the elves wear refined jewelery


“Walk into the hall, and live with us

that will be the most precious luck of thy life”

A maiden the brings a present to him

we see that it is a very precious gemstone.


Liljurós, mesmerized, gets tempted

to make bonds with the beautiful elf-maiden

A life among elves brings bounty

and brings happiness to the blonde girl.


Guðrún á Félagsmálastofnun var eiginlega jafn dolfallin og Guðríður.

Guðrún ákveður að senda tilsjónarmann til Brands litla. Fyrir valinu verður Sófus, hress piltur sem ætlar í félagsfræði, ekur um á mótorhjóli, og er líklegur til að láta afann Þorgrím ekki kveða sig í kútinn í fyrstu lotu.


All men, you should ride alongside the cliffs find elves’ abodes where red flames burns gentle breeze lingers alongside the cliffs Guðrún, who listens to all this because she works at the institution of social affairs, is actually as much taken in as is Guðríður, the retired teacher, who shows her these poems. Guðrún decides to send one of her workers to aid Brandur - who does not show up i school. She decides to send Sófus. He is an agile young man. He has decied to study sociology. He has a motorbike, and he, for sure, is clever enough as not to let Þorgrímur have the upper hand in their conversations.


7. Sófus finnur húsið eftir lýsingunni: lítið, hvítt með rauðu þaki, afskekkt, aðeins ofan við þorpið, eina húsið sem ekkert sjónvarpsloftnet er á. Kolgríma kemur til dyra. Hún er gædd furðanlegri ró. Kannski er það bara skel, til að verjast köldum hlátri lífsins? -Taktu af þér. Ég vissi að þú ætlaðir að koma, af því að Brandur skrópar. Sófus á dálítið erfitt með að skilja Kolgrímu til að byrja með; þá talar hún bara hægar. -Það er skrýtið, heldur Kolgríma áfram, að hann skuli skrópa í skólanum. Það er svo gaman í skólanum. Sófus lætur hjálminn sinn á gólfið í forstofunni, lykilinn af hjólinu inn í hjálminn.


7th Chapter Sófus can easily find the house as it was described: Small, white, red roof, a bit away from the village, the only house that does not have a TV antenna on it. Kolgríma opens the door. She is so calm and stoic. Perhaps that is only an outer shell to wear as a protection agains life´s sarcastic laughter. -Come inside. Take off your coat. I knew that you would come, because Brandur does not show up in school. Sófus tries hard to understand what Kolgríma says. So she speaks slowly. -I do not understand, Kolgríma continues, -why Brandur does not show up in school. School is such a delightful place to be in. Sófus puts his helmet on the floor in the corridor, and the keys in it.


-Er ekki í lagi að láta hjálminn hérna? spyr hann. -Jú, jú, allt í lagi, segir hún. -Best að láta símann hér líka svo hann gleymist ekki. Ekki gleymi ég hjálminum, og kemst ekkert án lykilsins af hjólinu. Kolgríma brosir. Sófus er svo innilegur og sætur. Henni líður vel í návist hans.

-Hefur Brandur sagt þér eitthvað úr skólanum? spyr Sófus, þegar þau eru sezt inn í kamesið hennar Kolgrímu. -Nei, hann sagði bara, -- ég spurði hann hvort það væri ekki gaman í skólanum -hann sagði bara að það kæmi eitthvað stórt upp úr skólanum þegar hann kæmi labbandi -- og það færi inn í höfuðið á sér og í hálsinn -- hann sæi það ekki samt -og í brjóstið á sér og væri þar, allt svona þungt og skrýtið og ljótt, -


-OK to put the helmet here, he asks. -Yes, yes. All right, she says. -I better put the phone here too, Sófus adds, -so that I don´t forget it. For sure I won´t forget my helmet, and without the keys I will not be able to drive my bike. Kolgríma smiles. Sófus is whole-hearted. So sweet. She feels so good in his presence.

Has Brandur told you something about school? Sófus asks, when they are taking a seat in Kolgríma´s little room. -No. He only said, --I asked him if didn´t find school all fun-he said, that something big came up from the school when he approached the school - and then it went into his head and his throat - yet he could not see it -and it were in his chest, heavy, queer, and ugly.


og þegar krakkarnir í skólanum töluðu við hann þá hoppaði það inni í sér og það væri vont, sagði hann. Svo, segir hann, að það hoppi út þegar hann fer úr skólanum, og þá líði honum betur. Kolgríma þagnar aðeins. -Má bjóða þér kaffi? -Nei, takk. Var að fá mér kók. Það verður aðeins þögn. Sófus er að velta því fyrir sér, hvort Kolgríma ætli að segja eitthvað meira. -Kannski...., segir hún og hikar aðeins, ...-kannski búum við til of mikið af sögum. -Sögum? Hver býr til sögur? Þið mæðginin? -Já. Við búum stundum til sögur á kvöldin. -Hvernig sögur? Svona um eitthvað stórt og þungt sem kemur upp úr skólum? segir Sófus og brosir. -Nei. Ekki bullusögur. Bara litlar sögur -- hún hikar --


And when the kids in school spoke to him, then it would jump up and down inside him, and he claimed that to hurt. Then it jumps out, he says. When he leaves school it jumps out. Then he feels better again. Kolgríma is silent for a moment. -Would you like to have some coffee? -No, thanks. Just had a coke. A brief silence again. Sófus waits to see if Kolgríma is going to say something else. -Perhaps….., she says, but hesitates a bit… -perhaps we make too many stories. -Stories? Who makes stories? You two, you and your son? -Yes. We sometimes make stories in the evening before bedtime. -What kind of stories? Something about something big and heavy that comes up from schools, Sófus smilingly asks. -No. Not any nonsense stories. Just little stories - Kolgríma hesitates --


svona um eitthvað sem mér dettur í hug. Kolgríma hikar á ný. Sófus bíður. -Svo skrifa ég þær. -Skrifarðu þær? -Það er bara svo skrýtið, að þær eru allt öðru vísi, þegar ég er búin að skrifa þær á blöð. -Já, þessu trúi ég. Eh, má ég, Kolgríma -- má ég sjá þær? -Kannski ætla ég að sýna einhverjum þær seinna. Kannski þegar ég gifti mig. Sófus bíður. Horfir blíðlega á Kolgrímu. Kannski er það þessi fölskvalausa hlýja sem hún finnur hjá Sófusi sem gerir það að verkum að hún treystir honum. Hún finnur að hann mun ekki hlæja að henni. Hún stendur upp. Í gömlum kistli eru litlar sögur skrifaðar í stílabók. -Þessi heitir Jedúdda mía


-about something that comes to my mind. Kolgríma hesitates again. Sófus just waits. -Then I write them down. -Do you write them down? -Just so weird that they look so different once written down on paper. -I can just imagine they do ! Eh, can I, Kolgríma -- may I see them? -Perhaps I am going to show them to someone later on. Perhaps when I get married. Sófus just waits. He watches Kolgríma tenderly. Perhaps this innocent caring she feels in his attitude makes her trust him. She can feel that he is not going to mock her. She stands up. In an old coffer little stories are to be found, neatly written down in a notebook. -The name of this one is Oh My God


Kolgríma verður örlítið feimin við sögurnar sínar. Hún veit að sumir hlæja að sumu, sem henni finnst ekki hlægilegt. -Það er geðvond kartafla, útsæðiskartafla, sem er að segja frá; hún er alltaf að nöldra. Æ, Brandi finnst þetta fyndið, segir hún afsakandi. Hún er í þann veginn að hætta við að lesa fyrir Sófus, hætta við að sýna honum sögurnar, en svipur hans er svo innilegur og biðjandi að hún hefur sig í að byrja:


Kolgríma becomes a bit shy when she sees her stories. She knows that some people laugh at things that she does not see as funny in any way. -It is all about a grumpy potato. a seed potato. She is the one who tells the story. She is always complaining and nagging. Oh, Brandur enjoys this, finds it amusing, she says, as if making an excuse. Kolgríma seems to be changing her mind. Not going to show her stories to Sófus, nor read them for him. But she can see on his face that he is really asking for that. She pulls herself together and starts the reading: Oh My God Are we supposed to dry up in here? Can the old lady not get to work, get the seed potatoes into the garden, into the soil?


Kolgríma hættir við lesturinn og segir, svona svolítið kæruleysislega: -Hún er alltaf í fýlu, sko. Sagðist frekar vilja vera kartöflustappa en útsæði. Kolgríma þagnar. -Leyfðu mér að heyra meira, Kolgríma. Mér þykir þetta skemmtilegt. Kolgríma brosir, og lætur til leiðast.


I assume that the sun is shining as now spring is coming. At least the flies have woken up.

Kolgríma stops the reading. Then she says, in a rather nonchalant way: -She is always in a bad mood, you see. She said she would rather prefer to be mashed potatoes than a seed potato. Kolgríma then says no more. -Please let me hear more, Kolgríma. I quite like it. Kolgríma smiles. Reluctlanty agrees on that. The only thing that reminds of spring is a fly in a terribly dirty window of a storage room in the cellar.


-- Æ, Brandi finnst þetta fyndið, bætir Kolgríma inn í. -Þessi fýlupúkakartafla er líka í fýlu þegar hún er komin í kalda, raka moldina, svo þegar sólin skín og þurrkar moldina.


Oh my god ! One has to be awfully patient when one is a seed potato. The old lady opens the door. A ray of sunshine floods onto the floor Oh my god. No consideration. Too sharp a light right into my eyes. People should know that potatoes cannot close their eyes when such a sharp light comes right into their eyes. -Well. Brandur sees this as funny, Kolgríma declares. -This grumpy potato is also grumpy when she has been put into the cold, humid soil. Then also when the sun shines and dries up the soil.


Ég var ekki búin að skrifa það allt. Svo kvartar hún yfir að eiga svona marga kartöfluunga sem hún þarf að næra. -Þetta er sniðug saga, Kolgríma. Gaman að þú skulir skrifa þær niður. Þú hefur fallega hönd. -Ég hef allt of stórar hendur. -Ég meina rithönd. Skrifar vel. Kolgríma brosir. -Ég vanda mig alltaf þegar ég skrifa. Ég skrifa með blýanti. Þá get ég strokað út það sem er illa skrifað. -Hér er ein, segir Sófus, -sem heitir Diskurinn. Má ég?


-I have not yet written all of it down. Then she complains about having too many baby-potatoes whom she has to nourish and nurture. -This is brilliant, Kolgríma. It is a good thing that you write them down. Beautiful handwriting. -My hands are far too big. -I and talking about the writing. So fine. Kolgríma smiles: -I write carefully all the time. I am always so meticulous. I use a lead pencil. Then I can erase anything that I write badly. -Here we have one, Sófus says. Its name is The Plate. May I? The Plate It belonged to the guest-finery plates. It was, actually, always on a shelf in a cupboard in the living room. Not in the kitchen.


Then it happened that all the finery plates, except the one, got broken. All its brothers went into pieces. It only got some bruised or jagged edges. It, therefore, was used for the cat to eat from. It liked being a plate for the cat. The name of this cat was Branda Baugalín. She was white, and soft, and clean. She always licked the plate thouroghly. The plate liked that.

Then, once, bad boys came. They threw stones at her. They hurt her very much. She was terribly frightened.


Það verður þögn. Nokkuð löng þögn. -Svo, segir Kolgríma, -svo búum við líka til svona ljóð, stundum. -Hvernig ljóð? -Það er kannski svolítið asnalegt. Hún hikar. Sófus bíður, brosandi, og horfir hlýlega á Kolgrímu.

(hún byrjar feimnislega)


And she died. Then the plate did not have anyone to talk to. It was, simply, thrown into the dust bin.

There is silence. A rather long one. -Then, Kolgríma says, -we also make a kind of poems sometimes. -What kind of poems? -They might be a bit silly. She hesitates. Sófus waits, he smiles, looks at Kolgríma cordially. Sleep is deep darkness. …… (she is rather shy when she begins the poem)


-Þetta er fallegt, Kolgríma.


That is where dreams abide. They are awake during night when others sleep. They are good or bad. That is also the way people are.

Does daydreaming also abide in deep darkness where the sun never shines? If the sun gets to shine on it does it then smile? Or does it become shy?

-This is beautiful, Kolgríma.


-Kannski breyti ég þessu í „mjúkt myrkur”. -Átt þú dagdrauma? -Nei, ég á leyndarmál, svarar Kolgríma ákveðin. -Er það fallegt leyndarmál? -Jáh. Sófus hefði nú búist við allt annars konar óhæfum uppalanda -- eins og það heitir í skýrslunni. Kolgríma, sem þekkir heiminn af ýmsu öðru en umburðarlyndi, er ekki lengur inni í skelinni sinni. Hún sýnir Sófusi sögurnar sínar:


-Perhaps I will change this to “soft darkness” -Do you have your daydreaming? -No. I have a secret, Kolgríma says, and she is determined. -Is it a beautiful secret? -Oh yes. Sófus would have expected another kind of a person “not able to bring up a child” (as says in the report). Kolgríma, who knows the world by other things than compassion, is not any longer in her shell of protection. She shows her stories to Sófus: Stone* Once upon a time there was a stone that listened to the sound of running water. __________ *Note: also the proper name of Brandur´s father


This was not a terribly big stone, not a cliff, just an usual big stone. It might have been the rattling sound of the water that rendered it so beautiful. By the side of the stone, a little girl was playing. There was her play-home. There she had an old washing bowl, a cup of which the handle was broken and other such things. She baked cakes made of soil and such. She decorated the cakes with buttercup petals, and she used lambs’ droppings for raisins. Actually, there was no one there to eat these cakes, but yet they were baked


The sun did the baking. In this stone, this big stone, there was a hole, or a shelf, a tiny secret compartment, of which nobody knew apart from the little girl who owned this place for playing. In there she kept something that no-one knew about - apart from the elves. The elves sometimes forgot to put on their helmets that made them invisible to people or perhaps they did not care if the little girl could see them? The little girl, later, moved to the village. Her parents moved to the village.


In the village she could not bake any mud cakes, because she did not find any buttercup flowers. When the little girl had grown up then she got married. When it was her birthday, her husband asked her what she would most of all like to get as a birthday present. Her husband built a house, a really beautiful house, and around it there was a garden. She contemplated for a long time. Then she came to a conclusion. She told him that she was sure that she would like to own a big, beautiful stone, that is situated by a little brook in the countryside.


It would be beautiful to put it in the garden - there, where the buttercups grow. -That we shall do, my beloved, he said. I shall hire a mobile crane, and a lorry and we shall go to fetch this stone. They spoke to the farmer. -Yes, of course, he said. We have far to many stones here ! You can take them, all of them. It is expensive to move a big stone. But she was looking forward to get her birthday present. She stood there for a long time watching her stone.


It was if it had changed in some way. As if something were missing. Perhaps the rattle of water from the brook? She did not know. She thanked her husband for the present. Everybody admired the garden as it was decorated witht this extraordinary stone. There are so many things that change when we think about them for a long time. With her hand she touched the little shelf, or compartment, where her secret had been long long ago.


Þorgrímur kemur inn. Hann hvessir skröpp augun á Sófus: -Hvur ert þú? spyr hann höstuglega. -Þetta er Sófus, pabbi, sem átti að koma, segir Kolgríma.


It was, of course, not there any longer. Either the raven, or the snow and the frost had taken it away long ago. It could not have been the elves, as they probably do not exist. What was it that had made the stone so beautiful to her mind? Was it the brook, the water, or was it the time? The time and the water that had changed everything?

Þorgrímur enters the room. He fixes his gaze upon Sófus: -Who are you? he spits out. -This is Sófus, dad. Who we expected, Kolgríma says.


Þorgrímur rymur: -Hvað eruð þið að kássast í einkamál manna? Ha? Djöfulinn kemur ykkur við hvernig við höfum það? Hvað vilt þú uppá dekk sem ekki kannt að hífa sekk! -Nú? Það var verið að bjóða mér inn. -Og bara með kjaft, ha? segir Þorgrímur. Það væri nær að láta ykkur vinna, þessa andskota, frussar Þorgrímur út úr sér, -gera ærlegt handtak, þessar heybrækur, landkrabbableyður. Sófus hafði verið varaður við að Þorgrímur yrði ekkert lamb að leika við. Sófus var svo heppinn að hafa verið á sjó, svo smá orðbragð af þessu tagi kom honum ekkert á óvart. -Hvern andskotann þykist þú til dæmis vinna? Ha?, bætti Þorgrímur við. -Ég hef verið háseti, svarar Sófus.


Þorgrímur grunts: -What are you there meddling up with other peoples’ private matters? Hmm? Why would our affairs be any of your concern? Get out of here at once, you wretched weakling. You have no errand here, you no-goody. -Oh, Sófus answers, -I was invited to come in. -And answering back rudely, Þorgrímur says. -It would be a better idea to have these lazy-bones do some work, he spits out. These sloths and idlers. Never been to sea, never worked. They had warned Sófus that Þorgrímur would not be easy to cope with. Sófus was lucky enough to have been to sea, so some dirty language like this was no surprise to him. -What the devil do you pretend to do for work? Hmm? Þorgrímur added. -A deckhand on a ship, Sófus answered.


-Núh. Háseti? (Nú var dálítið erfitt fyrir Þorgrím að finna eitthvað til að gera lítið úr Sófusi með.) -Á farskipi, náttúrulega? -Á togara, svarar Sófus, og hann flýtir sér að halda áfram: -en þetta hefur nú sennilega verið erfiðara þegar þú stóðst í þessu, Þorgrímur. Þú og þínir líkar sem tókust á við hætturnar. Þorgrímur rymur: -Þið þurfið ekkert að gera annan en éta og sofa á sjónum nú orðið. Og allir á kauptryggingu, allar siglingagræjur. -Það hafa víst ekki verið vatnsgallarnir í pusinu í gamla daga? segir Sófus. Sófus gerir sér grein fyrir að tilsjónarmaður verður að hafa lag á fólki. Þar kemur að þeir setjast inn í stofu og Sófus fær Þorgrím til að segja sér gamlar sögur af sjónum:


-Hmm. A deckhand? (Þorgrímur was now trying to find something to belittle Sófus.) -On a frighter, of course? -Trawler, Sófus says, and quickly continues: -but that has most likely been more of a tough work when you were in that, Þorgrímur. You, and the likes, who confronted the dangers without failing. Þorgrímur grunts: -All you need to do at sea nowadays is to eat and sleep. Everyone on presecure wages. All sailing equipment at hand. -You did, for sure, not have waterproof vinyl-suits in the heavy seas and splashing? Sófus says. Sófus really knows that in his job it is necessary to know how to handle people. In the end they sit down in the living room, and Sófus has Þorgrímur tell him old stories from his life at sea.


-..... Það var helvítis bræla, - það hljóp alltaf í skapið á formanninum okkar þegar við lentum í brælu ... .... Brandur skellir upp útidyrahurðinni og kallar inn: -Mamma ! Mamma, hver á þetta mótorhjól fyrir utan hjá okkur? Vá, en flottur hjálmur! Hver á þetta, maður? -Hann heitir Sófus, Brandur minn. Hann er að heimsækja þig. -Mig? Hrossahlátur Þorgríms heyrist innan úr stofu: - ...... drekka spírann af kompásnum og sigla svo áttavitalausir í land í hríðinni. Sófus hlær líka: -Stórkostleg saga, hvort sem hún er sönn eða login. -Login auðvitað, segir Þorgrímur, og hlær ógurlega.


-……. There were heavy seas and terrible weather - our skipper always got terribly bad-tempered when we got weather like that …….. Brandur comes home, opens the door hastely, and shouts: -Mom ! Mom, who owns the motorbike that is here in front of our house? Wouw ! What a magnificient helmet! Who owns this, oh boy o boy? -His name is Sófus, my little Brandur. He is here to see you. -Me? The robust laugher of Þorgrímur is to be heard from the living room: -…… drink the spiritus from the compass, and then sail without the compass working, to shore, in the blind gale and blizzard. Sófus laughs too: -A great story, whether it is true or just a lie. -A lie, of course, Þorgrímur says, laughing even louder and more robust.


Brandur æðir inn í stofu: -Átt þú mótorhjólið? -Já, svarar Sófus, -sástu það? 750 kúbik. -Vá. -Ég er eiginlega að heimsækja þig. Veistu það? Hefurðu komið á mótorhjól? -Nei. -Værirðu til í smátúr á morgun, þegar þú ert búinn í skólanum? Aftan á hjá mér? Eða ég keyri þig bara í skólann? Þetta er svo langt að fara inn í þorp. Brandur svarar ekki. Sófus heldur áfram: -Það held ég að verði nú upplit á lýðnum, drengur, ef þú mætir á svæðið á mótorhjóli. Ég kom með aukahjálm handa þér. Hvað segirðu? ..... .... Iss við getum ákveðið þetta í fyrramálið. Nógur tími. Afi þinn var að segja mér eina rosalega sögu af sjónum. Það var venjan að


Brandur rushes into the living-room: -Is this your bike? -Yes, Sófus answers. -Did you see it? 750 cc. -Wauw. -Actually, I am visiting you. Did you know that? Have you ever taken a ride on a bike? -No. -Would you like to take a little round with me tomorrow. After school, perhaps. Or, even better, I take you to school. It is such a long walk from here into the village. Brandur does not answer. Sófus goes on: -I can just imagine the faces on your classmates, man, when you show up in the school-yard on a motorbike. I brought a helmet for you too. What do you say? …… Well well, we can decite tomorrow morning. Ample time. Your grandfather was telling me a dreadful story about sailors. Usually,


skamma kokkinn, ef illa gekk. Ef menn voru í fýlu, sjómennirnir, þá var rifist yfir hve maturinn væri vondur - jafnvel þótt maturinn væri góður. Það er enn verið að hnýta í kokkinn. Þorgrímur. Þetta ætlar að loða við. Að vísu ekki svona mergjað eins og þú varst að segja mér. Veistu, Brandur, að það er oft verið að gera at í strákum þegar þeir byrja á sjónum. Þeir eru sendir upp í brú með vatn í könnu til að vökva kompásrósina. Veistu hvað kompásrós er? Það er munstrið á áttavitanum, gráðuog mínútu-strikaskiptingin, á áttavitanum sem siglt er eftir svo skipstjórinn viti í hvaða átt hann er að sigla, norður eða suður, austur eða vestur. Svo eru þeir sendir aftur á dekk til að draga inn sjólínuna, og ofan í lest til að fóðra kjölsvínið.


everyone was picking on the cook on the ship, when something was not going smoothly. If men were bad-tempered, they complained about the bad food. They are still at it, Þorgrímur, to pick on the ship’s cook. Not easily uprooted, as we see. Well, not as drastically, though, as you just told me. Do you know, Brandur, that boys are being teased and mocked when they begin at sea. They are sent up to the wheelhouse where the skipper is, to water the compass-rose. Have you seen a compass? It has what is called a rose to indicate the degrees, and the course. So that the skipper knows where he is heading, North South East West. You see? Then, to mock the newbees, they are asked to draw in the sea-line, and sent down to the keel-inside to feed the keel-swine. No line, no pig.


Þú lætur nú ekki plata þig þegar þú byrjar á bátunum? Já, þú athugar málið, -- þetta með smátúr á hjólinu á morgun.

8. Daginn eftir er amma Dúa að undrast hve lengi Brandur er í skólanum. Hún er að tala svona við sjálfa sig, eða hugsa upphátt, eins og það heitir: -Nú, hvað er þetta? Klukkan bara að ganga fjögur og Brandur litli ekki kominn úr skólanum. Ætli hann komi ekki við hjá ömmu Dúu í dag eins og hann er vanur, blessaður karlinn. Hann er vanur að koma miklu fyrr en þetta. Útidyrahurðinni hjá Dúu er skellt upp með miklum gauragangi.


You will not let them trick you with such stupid things, Brandur, when you become a seaman. Think about that having a ride on my bike tomorrow.

Chapter 8 The next day, granny Dúa is wondering why Brandur comes so late from school today. She is, as it were, talking to herself, thinking aloud, as we call it: -Well oh well. Three o’clock or even more already, and little Brandur not home from school yet. Perhaps he is not coming to visit his granny Dúa today, as he though usually does, my beloved little grandson. Usually he comes much earlier. The door of Dúa’s house is being flung up, making awful noise.


-Ekki getur þetta verið blessað barnið, segir hún. Steinn kemur inn. Hann er slompaður: -Hæ, momm! segir hann hátt. Dúa verður orðlaus eitt andartak. -Steinn? Ert þú kominn? -Já. Hæ. -Jæja drengur minn, segir hún hljómlausri röddu. -Svo þú ert kominn. -Já. Ég er bara öskufullur. -Æ, elsku besti ..... -Ég er ekki elsku besti neitt. Ég er bara fullur. Hvar er kallinn? -Hann Jóhann, pabbi þinn er dáinn, Steinn. Ég gat ekki látið þig vita, segir Dúa ásakandi. -Ég vissi ekki hvar þig var að finna. Hann dó í hittiðfyrra. Hann féll niður stiga. -O, var hann á'þí? Ekkert svar.


-This is definitely not the blessed little child, she says. Steinn enters. He is drunk: -Hi, mom! he says, noisily. For one brief moment Dúa is speechless. -Steinn? Are you back? -Yes. Hi. -Well, my boy, she says, her voice showing indifference. -So you are back. -Yes, only terribly drunk. -Oh, please….. -I do not please. I am only drunk. Where is the old man? Your father Jóhann is not alive, Steinn. I could not let you know, Dúa says, her voice having the tone of accusation: -I did not know where to find you. He died two years ago. Fell down the stairs. -Was he drunk? Silence is Dúa’s only reply.


-Það hlaut að koma að því, heldur Steinn áfram, -að hann dræpi sig í fylliríi. Dúa dæsir. -Komdu og fáðu þér í svanginn, góði, segir hún. -Þú hlýtur að vera þreyttur og svangur. Hvenær komstu? Komstu með skipi til Reykjavíkur? Hvernig hefurðu haft það? Segðu mér fréttir, Steinn. Hvað ætlastu nú fyrir? -Dallurinn fer annað kvöld, svarar Steinn. -Og þú með? -Já, ég er að fara aftur. Fer á puttanum suður í kvöld. Brandur opnar útidyrnar, kallar framan úr forstofu og er mikið niðri fyrir: -Amma Dúa! Amma Dúa! Ég fór á mótorhjóli í skólann! -Hvað ertu að segja? segir Dúa. -Á mótorhjóli? Þú kemur seint í dag, Brandur minn. Varstu svona lengi í skólanum í dag?


-As expected, he would end up killing himself due to over-drunkenness. Dúa sighs. -Come inside. Have something to eat, boy, she says. -For sure, you are tired and hungry. When did you arrive? Did you come by ship to Reykjavík? How have things been? Tell me some news, Steinn. What are your plans? -The cargo ship departs tomorrow night. Steinn replies. -And you go? -Yes. I am leaving again. Will try to get some car to pick me up on the road. Go to Reykjavík to night. Brandur enters the house of his granny Dúa. He shouts, standing in the corridor, and is really excited: Granny Dúa! Granny Dúa! I got a ride on an motor bike to school ! -What are you telling me? granny Dúa says. -On a motor-bycycle? You are late today, Brandur. Did you stay very long in school today?


Hún ávarpar Stein: -Steinn, þetta er Brandur, sonur hennar Kolgrímu. Brandur starir á manninn sem situr þarna heima hjá ömmu Dúu. Steinn. -Amma sagði Steinn. -Ert þú...., segir Brandur, -ert þú Steinn? Ert þú pabbi minn? Ertu með svona skegg? Mamma sagði mér það ekki. Það verður þögn. Dúa horfir ásakandi á son sinn. Steinn áttar sig ekki. Brandur heldur áfram: -Mamma á leyndarmál sem hún segir engum. Er það að þú ert með svona skegg? Pabbi, varstu á stóru skipi? Ha? Varstu á stóru skipi? Steinn fær málið og stamar: -Ha? Ég? Stóru?


Dúa says to Steinn: -Steinn, this is Brandur, Kolgríma’s son. Brandur gazes at the man who sits here, in granny Dúa’s house. Steinn ? Granny said Steinn. -Are you….., Brandur says, -are you Steinn? Are you my dad? You have a beard. Mom did not tell me that. There is silence. Dúa looks at her son, a kind of accusingly. Steinn does not quite grasp the situation. Brandur goes on: -Mom has a secret that she never tells anyone. It that that you have a beard like this? Dad, were you a sailor on a big ship? Dad? Were you working on a big ship? Steinn gets his voice back, and stammers: What? I? A big ship?


Já, ég er á stóru skipi. -Mamma sagði að þú kæmir þegar þú værir búinn að vera á sjónum. Nú sé ég þig. Þú ert ekki með skegg á myndinni sem amma Dúa á. -Steinn, segir Dúa, -drengurinn er alveg eins og þú varst á þessum aldri. Við höfum aldrei getað vitað hvar þú varst, Steinn, aldrei getað skrifað þér. Steinn hálfhlær: -Æ, mamma, mamma. Pabbi kallinn dauður, og ég vissi ekki .... Ég var búinn að gleyma þessu með hana Kolgrímu. Þetta var sko í bríaríi. --- Veðmál! Ég var sko alveg búinn að gleyma þessu. Hún var nú svo .... -Steinn, segir Dúa, hvasst. -Mamma sagði, segir Brandur, -að þú myndir kyssa mig á kinnina þegar þú kæmir af sjónum.


-Yes. I am sailing on a big ship. -Mom told me that you would come when you came ashore. Now I see you. You do not have any beard on the photo that granny Dúa has. -Steinn, Dúa says. -The boy looks exactly like you did when you were his age. We could never know where you were, Steinn. We could never drop you a line. Steinn says, a kind of laughingly: -Oh, mom, mom. My dad dead, and I did not know. I had completely forgotten that about Kolgríma. This was just a silly joke. --- A bet ! I had completely forgotten. She was always so …. -Steinn, Dúa says, harshly. Brandur says: -Mom said that you would kiss me when you would come back from sea.


-Þú skalt bara kyssa pabba þinn á kinnina, Brandur minn, segir Dúa loks. -Afa skegg kitlar, þitt stingur, segir Brandur. -Hver teiknaði svona konu á handlegginn á þér? -Sjáðu, segir Steinn, -hún dansar magadans þegar ég hnykla vöðvana í handleggnum. Sjáðu. Brandur hlær. Þegar Dúa er farin fram að hita kaffi, hvíslar Brandur, alvarlegur á svip: -Pabbi. Fórst þú alltaf í skólann þegar þú varst lítill? Ég meina sko alltaf? -Í skólann? Ja, segir Steinn, -kannski ekki sko alltaf, ha? -Mamma fór alltaf í skólann, en afi Grímur fór aldrei í skólann. Hann segir að það sé allt of mikið af skólum. Afi Grímur segir að menn eigi að vinna --- fara á sjóinn og svoleiðis. Fór Tarzan í skólann?


At last, granny Dúa says: -You just kiss your dad, my little Brandur. -My grandfather’s beard tickles, Brandur says. -Yours picks. Who was drawing this picture of a woman on your upper arm? -Look, Steinn says: -She dances some belly-dancing when I harden my muscles, look. Brandur laughs. When Dúa is in the kitchen making coffee, Brandur whispers, his face very serious: -Dad. Did you always go to school when you were a little boy? I mean, well, always? -To school? Well, Steinn says. -Perhaps not every day, or what? -My mom always showed up in school, but my grandpa Grímur never did. He says that there are far too many schools. Grandpa Grímur says that men should work - go to sea, and such things. Did Tarzan go to school?


-Ferð þú ekki í skólann, spyr Steinn. -Juuuuuú, svarar Brandur dræmt. -Það eiga sko allir í skólanum sjónvörp ... -Ha? Sjónvörp í skólanum? -.... með alls konar þáttum og svoleiðis, segir Brandur dapur. -Strákarnir spyrja hver annan: horfðir þú á þáttinn í gær? -Horfir þú oft á sjónvarpið? -Stundum hér hjá ömmu Dúu. Hún á ekki lit. -Hva, af hverju ekki heima hjá þér? -Við, - við, sko, eigum ekki. Afi á ekkert sjónvarp. -Nú? Af hverju ekki? -Bara. -En langar þig ekki til þess að eiga sjónvarp? -Juuuú. Afi, hann, sko ..... -Það er sko alveg ómögulegt að þú eigir ekki sjónvarp. Eigum við ekki bara að kaupa sjónvarp? Ha? Það er sko minnsta mál. Bara strax í dag.


-Do you not go to school, Steinn asks. -Well, yea, Brandur answers, hesitatingly. -All kids in school have a television….. -What? TVs in schools? -……TVs with all kinds of TV-series and such things, Brandur says. He is very sad. -The boys ask one another: did you watch the episode yesterday -Do you often watch TV? -Sometimes, here, in granny Dúa’s home. She does not have a color TV. -Why do you not watch in your own home? -We, you see, we do not have a TV. -Oh? Why not? -Just because. -But wouldn’t you like to have a TV? -Ye, yes, but, grandpa, you see … -You simply have to own a TV. No way not to have a television, boy. Shall we not just go and buy one? What do you say. No problem Just right now today.


-Ætlarðu í alvöru að kaupa sjónvarp? -Jájájájá, bara á stundinni. Hvað viltu stórt? 22ja- tommu? -Það er alveg sama ef þættirnir eru í því. Dúa kemur inn í stofu. -Jæja, segir hún, -hér kemur þá kaffið. -Amma Dúa. Pabbi ætlar að kaupa sjónvarp handa mér! -Minnsta mál, segir Steinn. -Það góða við sjóinn: Fullt af pening. -Ertu ríkur? spyr Brandur. -Langar þig í eitthvað fleira? -Svona töffaraúlpu eins og strákarnir í skólanum eru í. -Hvenær eru þær opnar þessar búðarholur í þessu Krummavíkurpleisi, ha?, spyr Steinn. -Komdu strákur. -Það er naumast ..., stamar Dúa. -Hvað stendur eiginlega til? -Bless, ammamínDúa. Pabbi ætlar að kaupa sjónvarp! -Bless mútta. Dallurinn fer annað kvöld.


-Are you really going to buy a TV? -Yes yes. Right now. How big do you want? 22” ? -I do not mind as long as the series are there. Dúa enters the living room: -Coffee coming up, she says. -Granny Dúa ! Dad is going to buy a television for me. -No problem, Steinn says. -What is good about job at see is: plenty of money. -Are you rich? Brandur asks. -Something else you would like to have? -Yes, a tough guys’ overcoat as the boys in school have. -When are these lousy shops in the lousy place open? Steinn asks. Come on, boy. -What what what, granny Dúa stammers out. -What are you up to ! -Bye bye, granny Dúa. Dad is going to buy me a television. -Bye, mom, Steinn says. -The ship leaves tomorrow night.


-Steinn, hvað ætlastu svo fyrir? Ætlarðu ekki að kveðja mig áður en þú ferð? -Ég er að því. Bless mútta. -Blessaður, góði minn. Gangi þér vel í lífinu. -Sömuleiðis mamma. Bless. -Bless bless, amma Dúa, segir Brandur um leið og þeir fara.

9. Sófus ræðir við Kolgrímu. Sendiferðabíll nálgast Þorgrímshús og stoppar fyrir utan. -Það eru að koma gestir, segir Kolgríma --hingað. Brandur er með þeim. Út úr bílnum stíga tveir menn sem snarast upp á þak með sjónvarpsloftnet.


-Then which plans do you have, Steinn? Are you not going to say good-bye to me before you go? -That is jus what I am doing: Bye, mom. -Be blessed, my boy. May you have luck in life. -Same to you, mom. Bye-bye. -Bye-bye, granny Dúa, Brandur says as they leave.

Chapter 9 Sófus talks to Kolgríma. A van drives up to Þorgríms-house, and stops right in front of the house. -Some guests are arriving, Kolgríma says. -To our house. Brandur is there too, together with them. Two men get out of the van. Without a delay take out of the van an antenna, go right away up to the roof.


Augu Kolgrímu leiftra eitt andartak, er hún stendur við gluggann: Brandur heldur bílhurðinni opinni, Steinn bambrar sjónvarpi út úr bílnum. -Hver er þetta með Brandi, Kolgríma?, spyr Sófus. -Steinn, hvíslar Kolgríma, -þetta er Steinn. Kominn. Steinn er kominn. Brandur æðir inn með fyrirgangi: -Mamma! Mamma ! Pabbi kaufti sjónvarp, mamma, -- og töffaraúlpu. -Hvar er skólataskan þín, Brandur minn? spyr Kolgríma. -Mamma, pabbi kaufti sjónvarp! -Keypti. Þú mátt ekki týna skólatöskunni þinni, vinur. -Karlarnir eru að fara upp á þak með loftnetið, mamma. Frammi í forstofu stendur Steinn með sjónvarpið í fanginu.


Kolgríma’s eyes shine and sparkle for a brief moment, as she stands by the window: Brandur holds open the door of the van, Steinn tries go get a big TV-set out of it. Sófus asks: -Who is this there together with Brandur, Kolgríma? -Steinn, Kolgríma whispers. It is Steinn. Has come back. Steinn coming back. Brandur rushes into the house, noisily: -Mom ! Mom! Dad has buyed a TV, and a tough guys’ overcoat. -Whe is your schoolbag, little Brandur? Kolgríma asks. -Mom, dad has buyed a television! -Has bought. You must not lose you school bag, my little friend. -The men are going onto the roof to put up the antenna, mom. Steinn is now standing in the corridor, holding a big TV in his arms.


-Sæll Steinn, segir Kolgríma. -Ertu kominn? Nú gat ekki hjá því farið að Þorgrímur heyrði undirganginn á þakinu, enda tveir menn að láta upp loftnet. Þorgrímur sér Sófus: -Þú hér enn. Farðu þarna út, drengdjöfull og rektu strákaormana ofan. -Ég held bara, Þorgrímur, byrjar Sófus, ..... -Afi, sjáðu! Sjónvarp!, kallar Brandur. 22ja-tommu, lit! Það sýður á Þorgrími. Í forstofunni stendur grannur maður með dálítið skegg og sjónvarp og er að þynnast upp. -Steinn er kominn, segir Kolgríma. -Hvaða andskotans Steinn? öskrar Þorgrímur. -Ég læt ekkert koma með neitt svona djöfuls drasl inn til mín! Ég er ekkert á sveitinni. Út með þetta.


-Hi, Steinn, Kolgríma says. -Are you back? Of course, now Þorgrímur hears that someone is tramping on his roof. Actually two of them, putting up the antenna. Þorgrímur spots Sófus: -You still here! Go out, you rascal, and tell these boys to get off my roof immediately. -I assume, Þorgrímur…. Sófus starts …. -Grandpa, look ! A television, Brandur exclaims. 22”, color. Þorgrímur is on fire. In the corridor there stands a thin man, has some beard, holds a TV, and is badly in need of some more alcohol. -Steinn is back, Kolgríma says. -Who the hell is Steinn, Þorgrímur shouts. -I do not allow any such rubbish stuff into my house! I do not need any alms. Throw this out at once!


Sófus reynir að segja Þorgrími að Brandur litli eigi víst þetta sjónvarp -hann hafi nú kannski gaman af því -- og það geti nú verið einn og einn góður þáttur .... -Það getur verið í mínu kamesi, segir Kolgríma. Móðir Kolgrímu tekur nú á sig rögg -einsog venjulega þegar Þorgrímur er að missa stjórn á sér. Það gerir hún alltaf áður en allt fer í hönk. Hún lætur bera sjónvarpið inn í stofu og segir Þorgrími að nú sé nóg komið. Þorgrímur titrar af bræði og þrumar: -Ég ræð því hvað hér kemur inn. Ég ræð í mínum húsum! Kona Þorgríms hefur fyrr þurft á sínum myndugleik að halda. Þorgrímur rymur af vonsku. Steinn gerir sig líklegan til að fara, enda verður hann feginn að sleppa út. -Ertu að fara, Steinn? spyr Kolgríma. -Já, svarar hann. -Ég rata út.


Sófus tries to tell Þorgrímur that most likely it is Brandur who owns this television. -- He might enjoy that. -And perhaps there also is some good stuff to watch….. -It can just as well be in my little room, Kolgríma says. Now, Kolgríma’s mother pulls herself together - as she always does when Þorgrímur is about to lose control. She always does that when she foresees that things are going to turn out very badly. She has Steinn carry the television into the living room. And she tells Þorgrímur to stop now and calm down. Þorgrímur is trembling from rage, and shouts: -I decide what comes into my house. It is my decision that counts here. His wife has many times had to show her strength. Þorgrímur grunts, terribly bad tempered. Steinn is on his way out. Not the least wanting to get out of the situation. -Are you going, Steinn, Kolgríma asks. -Yes, he says. -I know my way out.


-Ég fylgi þér til dyra, Steinn. Brandur minn, ertu búinn bað þakka pabba þínum fyrir? Steinn, ég hef engum sagt leyndarmálið. Steinn skilur ekki það sem Kolgríma segir. Segir já útí hött. Steinn fer. Kolgríma ljómar af hamingju. Horfir á eftir honum. Mennirnir eru enn að koma loftnetinu fyrir, og eiga eftir að tengja sjónvarpið. Inni í stofu er Sófus að reyna að sannfæra Þorgrím um að einn og einn þáttur um sjávarútveg geti verið þess virði að líta á -- og svo fréttir og veðurkort. Fyrir utan er mótorhjól sett í gang. Sófus hættir í miðri setningu. -- Lykillinn var í hjálminum á forstofugólfinu.


-Steinn, I will walk you out. Brandur, have you said thank you to your dad? -Steinn, Kolgríma says, -I have not told anyone about the secret. Steinn does not know what Kolgríma is talking about. He just says: -Yes. OK. Steinn leaves. Kolgríma shines from inside, due to her sincere happiness. She watches as he leaves the house and walks away. The men on the roof have fixed the antenna, yet have to connect to the TVset. Inside, in the living toom, Sófus tries to convince Þorgrímur, tell him that there is good TV-stuff about the fishing industry and such things, quite worth watching. And news, and the weather forecast. Outside, a motor bike is running. Sófus abruptly stops his talking. -- The key was in the helmet in the corridor, on the floor.


Sófus hleypur fram. Mótorhjólinu er ekið brott. -Hvar er síminn? spyr Sófus í ofboði. -Get ég fengið að hringja? -Það er enginn sími hér, segir móðir Kolgrímu. -Þú getur fengið að hringja í Tungu, stóra húsinu þarna uppfrá. Þorgrímur hlær hrossahlátri: -Ég hef alltaf sagt að Jóhann svarti átti aldrei að notast til undaneldis; Sami skíturinn og helvítis kallinn þessi drengdjöfull. Og lítur út alveg eins og hann í þokkabót. Brandur lítur á Sófus: -Fékk pabbi lánað mótorhjólið þitt?

****


Sófus runs out of the living room. The bike is on its way from the house. -Where is the telephone, Sófus asks, very upset. -Can I make a call? -We do not have any telephone here, Kolgríma´s mother says. -In the big house there up the road, named Tunga, you can make a call. Þorgrímur bursts into a horrible laughter: -As I have always said: Jóhann the Black should never have been used for breeding. That boy is the same damn shit as Jóhann was. And looks exactly the same, on top of that. Brandur looks at Sófus: -Did my dad borrow your bike?

****


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Dreams Abide In Soft Darkness - Icelandic and English by Geimveran TAK - Issuu