Guðrún Kristín Magnúsdóttir
DÍVAN SKÁLDSINS -Góða nótt, sagði skáldið, og dó
DÍVAN SKÁLDSINS
-Góða nótt, sagði skáldið og dó
ISBN 978-9979-895-24-4 4ða útgáfa 2016 Freyjukettir Norræn menning
Dívan skáldsins -Góða nótt, sagði skáldið, og dó
Það var barið. Ég drattaðist til dyra. Aldrei friður. Andskotans. Maður nýkominn heim. Ég bý í gömlu húsi á Grettisgötunni og ég kæri mig ekkert um heimsóknir. Fyrir utan stóð skáldið. Það var ekki gamalt þetta skáld. Nei, þetta var ungt skáld sem stóð þarna á pallinum. Bara stóð þarna. Það var rok. Laufin fuku um í rennisteininum gul og rauð og græn og brún. Sum voru límd föst í pollum, því einhver
hraglandi hafði verið fyrr um daginn. Októberveður. Skáldið tók kveðju minni. Ég varð víst að bjóða því inn.
Umkomulausara skáld hafði ég ekki séð. Yfirhöfnin sem einhvern tíma hafði víst verið græn, bar ekki lengur merki neins afgerandi litar. Hún hékk út af öxlum skáldsins, og fyrir neðan ermina tók við hönd, sinaber og gul. Hárið, sem hvorki var dökkt né ljóst, ýfðist í haustvindinum. Augun sem hvorki voru blá né brún horfðu eiginlega ekki á neitt. Sem framhald af hönd skáldsins tók við brúnleitur vaðsekkur, eldgamall, snjáður. Ungt horað skáld með gamlan vaðsekk stóð þarna fyrir utan. Ég varð víst að bjóða því inn. Ég hitaði kaffi.
Ég man þetta eins og það hefði gerst í gær. Umræðuefni reyndist örðugt að finna. Á endanum neyddist ég til að bjóða skáldinu að gista, sofa á dívaninum mínum. Annars værum við sennilega enn að drekka þetta kvöldkaffi, umræðulaust. Hún Branda mín varð móðguð þegar ég eftirlét skáldinu dívaninn, dinglaði skottinu og flutti sig yfir í stólinn með krosssaumspúðanum og sofnaði aftur.
Mér gekk ekki illa að sofna þrátt fyrir kaffið og gestinn. Þegar passaði fyrir mig að fara í vinnuna morguninn eftir var skáldið vaknað og búið að hita morgunkaffi.
Jæja þá. Mér var alveg sama. Skáldið mátti vel hita sér kaffi. Ég sá að það hafði verið að vinna. Blöð og kúlupenni lágu á litla borðinu við dívaninn.
Nú er mynd af þessum dívan mínum, -- dívan skáldsins -- og litla borðinu, í blöðunum. Og skáldið er horfið. Ég gæti eflaust selt dívangarminn og borðkrílið fyrir of fjár, af því að skáldið, sem nú er orðið frægt, hefur sofið á dívaninum og skrifað við borðið. En ég vil það ekki, ef skáldið skyldi koma aftur. -Það er víst kominn háttatími, voru síðustu orð skáldsins. -Góða nótt, sagði skáldið og dó. Nú er bara minningin eftir.
Branda sefur nú aftur á dívaninum.
Skyldi skáldið hafa átt fjölskyldu? Skyldu allir þeir, sem nú þykjast hafa þekkt það, nokkurn tíma hafa talað við það? Það er víst enginn vandi að eingast kunningja þegar maður er frægur, -- en lítið gagn í kunningjum þegar maður er dáinn.
Síminn minn er alltaf að hringja núna. -- Ja, ég var raunar að hugsa um að hætta að hafa síma, spara mér símann, því ég talaði aldrei í hann, hef hann bara af öryggisástæðum því það er gott fyrir fólk sem býr eitt að hafa síma. -- Nú eða af gömlum vana, eða kom því ekki í verk að segja honum upp.--
Síminn minn er alltaf að hringja núna. Blöðin eru að spyrja mig um skáldið. Eitthvert forlag gaf þeim upp mitt númer. Það er víst forlagið sem gefur út verkin skáldsins. Hvað get ég sagt þeim?: Þetta skáld var ekki fagurt? Það vissi að það skorti allan persónusjarma? Það hafði ekki kjark til að olnboga sig áfram? Það var lokað inni í skel? Þangað var engum boðið? Ég veit ekki hvort það hafði nokkurn tíma elskað eða verið elskað af nokkurri persónu? Skyldi þetta skáld nokkurn tíma hafa sofið hjá? Viðmót þess sýndi ekki tortryggni, ekki uppgjöf, en var svo óafgerandi að engum datt í hug að ávarpa þetta skáld eða brosa til þess. Gat ég sagt blaðamönnunum að skáldið, sem bjó hér allan þennan
tíma, hafi í rauninni aldrei sagt neitt gáfulegt, aldrei sagt neitt skemmtilegt -- ekki einu sinni spurt hvort það gæti búið hér? Gat ég sagt þeim að klaufalegri framkomu en hjá þessu skáldi hafi ég aldrei kynnst? Gat ég sagt þeim að þetta skáld átti ekki neitt -- kunni raunar ekkert með fé að fara þá sjaldan því áskotnaðist eitthvert smáræði fyrir skrif sín? Því síður gat ég sagt þeim að það taldi að allir væru að gera grín að sér. Það sem var hugsað sem viðurkenning, hrós, var skáldinu stríðni og illkvittnislegt háð. Og skáldið átti leyndarmál en gat ekki talað um það við neinn. Gat ég látið nokkurn mann vita að ég vissi það? Hann hefur eflaust muldrað það við mig í þeirri trú að ég segði engum. Enda varðar þessa snápa ekkert um viðkvæm mál.
Þeir verða að láta sér nægja að blása upp hæfileika misskilins skálds sem dó fyrir aldur fram.
Nú er mynd af dívaninum mínum, --dívan skáldsins-- og borðkrílinu mínu, í blaðinu. Þeir komu með ljósmyndara og reyndu að spyrja mig spjörunum úr um skáldið. -Nei, ekki veit ég til þess að hann hafi skilið neitt eftir sig. -Handrit? -Ekki svo ég viti. Útgefendurnir komu einnig og spurðu hvort ég hefði örugglega ekki fundið neitt eftir skáldið. Þeir vissu, sögðu þeir, að hann var hæfileikaríkur, og þeir ætluðu að gefa út meira en þessar tvær sögur sem hann hafði látið þá fá fyrir löngu. -Nei, ég hef ekki fundið nein handrit sem hann gæti hafa skilið eftir hér.
Og það var satt, þar til Branda fór að klóra í eitthvað undir dívaninum. Ég hélt hún hefði gert eitthvað af sér, og bograði þunglamalega niður á fjóra fætur til þess að gá undir dívaninn. Branda hafði ekkert gert annað en segja mér að þarna var þessi snjáði vaðsekkur. Ég dró hann fram á gólf. Það var farið að kvölda. Ég kveikti ljós, en raunar var ég á leið í bólið. Ég er kvöldsvæfur maður og þarf að vakna til vinnu.
Hér sit ég með gamlan, snjáðan vað-
sekk sem á er límdur miði með nafninu mínu á. Þar stendur einnig: MEÐ BEZTU ÞÖKK Ég opnaði auðvitað töskuræfilinn. Efst lá miði sem á stendur: Mig langar til að gefa þér þessar sögur, en þú mátt engum sýna þær.
Ég blaða í innihaldinu. Raunar ekki neitt sérlega spenntur. Ég veit sossum ekkert um það sem fram fer í kollinum á svona svokölluðum skáldum og rithöfundum. Skyldi þetta skáld hafa haft ástríður eins og annað fólk? Ég les nokkrar fyrstu línurnar á nokkrum blöðum. Finnst þetta ekki tilkomumikið. Skyldu þessar barnalegu sögur úr hversdagslífinu raunverulega hafa komið fyrir.
Eru þessi ljóð aðeins barnaleg hugsun kjarklauss skálds? Þarna liggur úrklippa úr blaði. Ritdómur um nokkur ljóð eftir þetta skáld. Mynd af skáldinu í þessum snjáða frakka sínum, með hárið allt út í loftið. Engu líkara en ritdómar hafi fært ljóðin upp á æðra svið, blásið þau upp sem „nýja stefnu“ (hvað sem það nú er), og upphafið skáldið sem „málsvara lítilmagnans gagnvart óréttlætinu“ -- og alls konar bla bla í þessum dúr til viðbótar.
Branda sefur á dívaninum. Það minnir mig á að ég var á leið í rúmið. Orðinn framlágur og þreyttur. Hér finn ég umslag í vaðsekknum, fullt af missispunktum skáldsins: -það er svo sárt að elska.
-stefnulaus eins og fiðrildi í logni. -tár, sem aldrei hefur verið grátið. (spámaðurinn) -lifa fyrir vonina, deyja fyrir draum sinn (Q4U) og fleira og fleira. Undir umslaginu eru handrit af sögum.
Hér sit ég búinn að sitja hér alla nóttina við lestur. Ég er dolfallin. Ég get ekki hætt. Hver sagan annarri dýpri, og leiðir mann undir látlaust yfirborðið oní eitthvert hyldýpi.
Ég veit að þeir koma aftur og spyrja hvort ég sé viss um að ekki finnist neitt eftir skáldið. Kannski koma þeir í fyrramálið, og raunar er þetta fyrramál komið. Ég ætti að vera að leggja af stað í vinnuna.
Hér sit ég með gamlan, snjáðan vaðsekk sem á var límdur miði með nafninu mínu á. Á miðanum sem ég fann efstan í vaðsekknum stendur einnig: MEÐ BEZTU ÞÖKK Ég les aftur á miðann: Mig langar til að gefa þér þessar sögur, en þú mátt engum sýna þær.
Hvað á ég að gera?
***************************************
Bækurnar fást á Amazon freyjukettir@mmedia.is Norræn menning Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur - myndasögur og lestraræfingar: Hannesar saga Grásteins (20 bækur) Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar. Bína brúða Búi skreytir jólatré Litla flugan Hagbarður og Hvutti TAK-sögurnar -geimveran TAK30 bækur eftir Hjalta Bjarnason (þegar hann var5-10ára): TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn
TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir Glámur auli eftir Bjarna Þór Einarsson TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkivíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið TAK og græna ræktin TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og tilraunalímið TAK og lyftingageimveran mikla TAK og vinur fílsins TAK og náttúruvæni einnotapokinn - langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður
-verðlaunahandrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - smásögur: Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Bónda minn hálfan, árans bjálfann!! 1000 stjörnur Drottinn blessi heimilið -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? Strætó í hringi Blisters and boiled ice, no, boiled eyes!
- fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD)
Hvað á ég að gera?
.
Hvað á ég að gera ?
ISBN 978-9979-895-24-4