Guðrún Kristín Magnúsdóttir
Búi skreytir jólatré
i
BÚI SKREYTIR JÓLATRÉ
Freyjukettir, Norræn menning ISBN 978-9979-895-92-3 (var flutt í Sjónvarpinu, Stundinni okkar)
Búi er að taka upp jólaskrautið sitt.
Hann á fullan kassa af skrauti en veit bara ekkert hvar hann getur hengt það allt saman.
-Við verðum líklega að fá okkur jólatré, Seppi minn, til þess að geta hengt allt skrautið okkar á, segir Búi
Afi hefur plantað mörgum grenitrjám sem nú þarf að grisja til þess að þau hafi nóg rúm til að vaxa. Búi og Seppi fá leyfi hjá afa til að saga handa þeim jólatré.
Þeir fara út í afaskóg að velja tré.
-Svo ætla ég að fylla alla jólapokana á trénu með súkkulaði og rúsínum.
Við fáum margt gott í svanginn á jólunum, Seppi minn.
Seppi hlakkar til Á Þorláksmessu byrjar Búi að skreyta tréð.
Búi tekur upp meira og meira og hengir allt á tréð. Seppi er alveg hissa á hve mikið kemur upp úr í þessum kassa.
-Fyrst ég á jólaskraut, ætla ég að nota það allt á jólunum, segir Búi.
Þegar loks kassinn er tómur, sést varla í tréð fyrir skrauti, og greinarnar kikna undir öllu saman.
En Búi er svo ánægður með þetta.
Klukkan sex á aðfangadag opna þeir pakkana sína. Þeir hafa gjafirnar sínar hjá sér meðan þeir borða jólagrautinn. Búi fékk kerti.
Seppi fékk bein.
Aðfangadagskvöld er yndislegt kvöld og þeir ákveða að vaka lengi. Þeir ganga ekki til náða fyrr en á miðnætti.
Búi er fljótur að sofna vært. En á sjálfa jólanótt vaknar Seppi við einhverja skruðninga frammi þar sem tréð stendur.
Seppi ákveður að sjálfsögðu að fara fram
og athuga hvað sé á seyði.
Þetta hefur þá verið allt jólaskrautið hans Búa að hrynja af trénu. Það liggur nú í hrúgu á gólfinu. En tréð réttir aftur úr fallegu greinunum sínum.
Og Seppi sér að allar rúsínurnar og súkkulaðið
er dottið úr jólapokunum á gólfið. Seppi tekur til við að háma í sig. Búi var búinn að segja að á jólunum skyldu þeir hafa mikið af sælgæti.
Og nú eru einmitt jól.
En á jóladagsmorgun þegar Búi kemur fram verður hann ekki sérlega kátur.
Ef ekki væru jól yrði hann sennilega öskureiður. En enginn er reiður á jólunum, svo hann verður að stilla sig.
Búi er ekki einn af þeim sem gefast upp. Ó nei.
Hann nær í sterkasta lím sem hann finnur.
Skrautið skal á aftur.
Fyrst hann á jólaskraut, ætlar hann að hengja það á tréð.
Þetta er nú meira en tréð þolir.
Á annan í jólum er barrið farið að hrynja af því.
Seppi er sannfærður um að það endist ekki fram á þrettándann.
Á gamlársdag koma Álfur og Erna.
Álfur og Erna eru vinir Búa og Seppa. -Við skulum halda brennu í kvöld, segja þau, -gamlárskvöldsbrennu. Eigið þið ekki eitthvað til að láta á köstinn? -Jú, við verðum víst að brenna jólatréð þótt jólin séu ekki búin, segir Búi. -Það er alveg ónýtt. Við skulum þá taka skrautið snöggvast af.
Það reynist gersamlega ómögulegt. Skrautið er alveg límt við tréð. Það eina sem dettur af er barrnálar.
Augljóst er að skrautið verður að fara á bálið með trénu. Það er þrautalendingin.
Búa þykir ekki sérlega skemmtilegt að horfa á jólatréð sitt og allt skrautið sitt brenna. En bálið er fallegt.
Gamla árið er að kveðja. Nýtt ár að byrja.
Á nýjársdag er nýfallinn jólasnjór og komið mikið frost. Búi og Seppi fara í gönguferð í afaskóg. Öll barrtrén hafa fengið snjóskraut á grænar greinarnar.
-Ég held við ættum að fá nýtt jóltré hjá afa, Seppi, segir Búi. -Þetta frosna snjóskraut er miklu fallegra en skrautið sem við brenndum í gærkvöldi.
Búi flytur nýtt jólatré -- með frosnu snjóskrauti á -- inn til sín.
-Þetta er fallegt, Seppi minn. Nú höfum við fallegt tré alveg fram á þrettándann.
En auðvitað líður ekki löng stund þar til snjóskrautið fer að bráðna. Stórir pollar, sem stækka og stækka, myndast á gólfinu.
Snjóskrautið minnkar og minnkar.
Seppi er góður hundur og lepur alla pollana upp fyrir Búa. Á þrettándanum koma Erna og Álfur í heimsókn.
-Ofsalega er þetta fallegt jólatré, segja þau bæði.
-Eru tré svona falleg þótt ekkert skraut sé á þeim? Þau ákveða að skemmta sér saman allt þrettándakvöld.
Þau dansa kringum jólatréð, ..........
..........hring eftir hring eftir
hring.
Bækurnar fást á Amazon freyjukettir@mmedia.is Norræn menning Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur - myndasögur og lestraræfingar: (flestar voru í Stundinni okkar)
Hannesar saga Grásteins (20 bækur) Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti - langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður - smásögur: Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur (sakamál) 1000 stjörnur - Bónda minn hálfan Drottinn blessi heimilið Strætó í hringi -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? - verðlaunahandrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna efnisyfirlit) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD)
TAK-sögurnar geimveran TAK- eftir Hjalta Bjarnason (þegar hann var 5-10 ára) TAK og nornin TAK og lyftingageimveran mikla TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og fiskarnir TAK og slökkvibíllinn TAK og skemmtitækin TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og lyktarsjónvarpið TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið TAK og martröðin TAK og tilraunalímið TAK og Freki TAK og borðtuskan TAK og flugeldarnir TAK og græna ræktin TAK og allraveðrapeysan Glámur auli eftir Bjarna Þór Einarsson TAK og náttúruvæni einnotapokinn TAK og erfiði maturinn TAK og vinur fílsins TAK og flugvélin TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran
eru tré svona falleg án skrauts?
ISBN 978-9979-895-92-3