Skip to main content

Bína brúða

Page 1

Guðrún Kristín Magnúsdóttir

Bína brúða


Bína brúða


ISBN 978 9979 895 80 0 Bína brúða var flutt í Stundinni okkar Freyjukettir Norræn menning


Á hverju kvöldi sofnar Bína brúða á koddanum hjá mér.

Að vísu lokar hún aldrei augunum, en hún hlýtur að sofna eins og ég.


Á daginn situr Bína brúða uppi á hillunni minni. Hún gætir sparibauksins míns þegar ég er í skólanum.

Bína er með appelsínugult hár úr lopa.


Einu sinni var mér gefin ný dúkka. Hún var með hrokkið akrýlhár, gat lokað augunum, og hún átti fullt af fötum, t.d. ballkjól og skíðagalla. Við Bína reyndum að máta eitthvað af þessum fínu fötum á Bínu..... .........en hún komst engan veginn í neitt.


Svo við pökkuðum þeirri nýju bara niður í kassann aftur.


Okkur er alveg sama þótt Bína geti ekki notað fínu fötin. Köflótti kjóllinn hennar er svo ágætur.


Einu sinni kom kona í heimsókn til mömmu. Hún var með lítinn krakka með sér. Hún setti krakkann inn í mitt herbergi,........


.........og hann fór strax að gramsa í dótinu mínu og reif allt og tætti. Ég varð að reyna að bjarga dótinu mínu frá þessu skemmdarskríni.


Þá öskraði hann hástöfum.... .....og konan kom hlaupandi til að hugga hann. Hún sagði að hann hefði svo gaman af dúkkum, sá litli......


.

.......tók Bínu brúðu ofan af hillu og lét krakkann fá hana. Svo fór hún aftur fram að tala við mömmu. Ég sá að Bína var ofsahrædd við strákinn.


Aldrei hefur Bína fengið aðrar eins flugferðir. Lopahárið var farið að losna, og ekki mátti meira mæða á saumsprettunni á tánni. Nú var mér nóg boðið. Ég tók Bínu brúðu af stráknum !


Hann öskraði, konan kom auðvitað hlaupandi: -Hvers lags er þetta eiginlega?, spurði hún. -Má barnið ekki einu sinni hafa þessa dúkkudruslu þína? Nóg áttu nú af dótinu, stelpa. Ég hélt ekki að þú værir svona nízk!


Ég varð dálítið skömmustulega þegar mamma kom.

Mamma spurði hvort ég gæti ekki lánað drengnum eitthvert dót sem hann gæti leikið sér að frammi í stofu hjá þeim.


Mér var að vísu skapi næst að lána þessum krakkabjána ekki neitt af dótinu mínu ----- en fyrst mamma bað mig.......


Ég hagræddi Bínu á púða svo hún gæti jafnað sig. Svo náði ég í kassann undan rúminu.


Strákpottormurinn varð allt að því hátíðlegur á svipinn þegar ég opnaði kassann.

Ég held bara að hann hafi orðið hálffeiminn.


. Undrunarsvipur kom á konuna og hún stamaði út úr sér: -Ætlarðu að lána honum þessa dúkku?


Mamma sagði að hann skyldi koma fram og skoða öll fötin í kassanum.

Við Bína urðum fegnar þegar pottormurinn fór fram Við þurftum að tala dálítið saman sem enginn mátti heyra.


Bækurnar fást á Amazon freyjukettir@mmedia.is Norræn menning Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur - myndasögur og lestraræfingar:

Hannesar saga Grásteins (20 bækur) Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Litla flugan Hagbarður og Hvutti flestar verið í Stundinni okkar - langar barna- og unglingasögur:

Halla Japl, jaml og fuður - smásögur: Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur (sakamál) 1000 stjörnur - Bónda minn hálfan Drottinn blessi heimilið Strætó í hringi -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma?


- verðlaunahandrit Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD) - TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur eftir Hjalta Bjarnason (þegar hann var 5-10 ára)

TAK og nornin freyjukettir@mmedia.is TAK og Freki (hvar fást TAK-sögurnar?) TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir Glámur auli eftir Bjarna Þór TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og innbrotageimveran TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið TAK og draugurinn TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og græna ræktin TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og tilraunalímið TAK og lyftingageimveran mikla TAK og vinur fílsins TAK og náttúruvæni einnotapokinn


ISBN 978 9979 895 80 0


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook