Skip to main content

Hannesar saga Grásteins, 20. bók: Dánartilkynning

Page 1

Hannesar saga Grásteins 20.bók

DÁNARTILKYNNING

þið munið að þessi saga er sönn -- um viðburðaríka kattarævi

4.útgáfa

Freyjukettir, Norræn menning freyjukettir@mmedia.is Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir


tuttugasta (og síðasta) bók: Dánartilkynning


Það var ekið yfir gulan kött á Bústaðaveginum. Tveir krakkar voru svo hugulsamir að ætla að láta okkur vita. Helga við hliðina á sagði þeim að Hannes væri í sveitinni með okkur.

Gulur köttur dó. (Fía saknar Hannesar ekkert! Sjá bók 12)


Helga hringir í okkur: -Hannes er hér í sveitinni með okkur. Þetta hefur verið einhver annar köttur. En þakkaðu krökkunum fyrir að ætla að láta okkur vita.

-Jú, jú. -Hannes er hér.


Hannes veiðir mýs. (einsog þið sjáið á myndinni ef vel er að gáð). Þegar Hannes er pakksaddur af fiski, nennir hann ekki að standa í þessum veiðum. Hannes liggur í leti. Hann sefur þá oft úti á milli þúfna í sólskininu. Friðurinn er meiri úti en inni. Hann nennir varla að hlusta á fuglasönginn, sem þó veitir honum oft mikla ánægju -- að vísu á annan hátt en okkur.


Það er ýmsum vandkvæðum bundið að vera konungur dýranna innan húss: Þessi endalausu ærsl í Surti eru hreinasta plága. Hann ætlar greinilega ekki að þroskast. Þessir sóðalegu hundhvolpar tveir vilja helst ekki virða lágmarks umgengnireglur: BÍÐA, meðan Hannes etur.

Hannes vill éta fyrstur.


Hannes þarf sýknt og heilagt að halda hundunum í skefjum. Hann er orðinn hundleiður á þessu. Brúni hvolpurinn æðir á Hannes sjálfan og bókstaflega glefsar hálfan bita af hvalkjöti frá honum.

Hvolpur rífur bita Hannes bregst ókvæða við og slær hvolpinn leiftursnöggt á trýnið, og sparar ekki klærnar.


Og hvað haldið þið að hvolpurinn leyfi sér að gera? Hann geltir! -- Bara geltir á sjálfan Hannes Grástein! Eftir þetta ríkir gagnkvæm fyrirlitning milli Hannesar og hundanna.

Surtur nennir ekkert að bíða eftir þessu karpi um matarleifar. Hann finnur gat á kjallaranum, treður sér þar út,....


Surtur fer út um gat. ....stekkur svo sem fætur toga eitthvað út í buskann.

Kristínu finnst nú vissara að leita hans strax. Hann er ekki líklegur til að skila sér aftur af sjálfsdáðum.


Þegar hann finnst er hann að ljúka við að éta hrossagauk.

Að éta fugl. Ekkert er eftir nema bein, fjaðrir og ristillinn. Þegar Surtur verður var við Kristínu, ætlar hann að stökkva burt og fá sér meira af slíku góðgæti. Hrossagaukar sofa milli þúfna í sólinni. Auðveld bráð. Eftir mikið bras og kapplaup, tekst Kristínu að ná Surti. Hún lokar Surt inni.


Hann langar í meira fuglakjöt. Hann reynir svo að komast aftur út um gatið sem hann fann. En því hefur verið lokað. Þá tekur hann til við veggfóðrið. Það er það eina sem hann á eftir að eyðileggja. Undir veggfóðrinu er trétex. Það fer sömu leið. Hann brýnir klærnar á spýtunum sem undir því eru.

Að rífa og tæta.


Þegar Surtur fær leiða á þessu, kemur hann auga á flugu við ljósakrónuna. Styttsta leiðin þangað er upp á stól, skáp, hillu og með tilhlaupi sigtað á ljósakrónuna. Þetta hefur að sjálfsögðu hinar óskaplegustu afleiðingar.

Að veiða flugu.


Kristín fær Surt ekki til að sofna hjá sér á kvöldin. Hann sefur á daginn, klórar og ærslast á nóttunni. Við prófum að loka hann niðri í kjallara á nóttunni,


en ámátlegt mjálmið hans heldur vöku fyrir okkur. -- Skruðningar og brothljóð þegar dót hrynur úr hillum, -- krafshljóðið þegar veggfóðrið lætur í minni pokann fyrir klónum, -- rispur á handleggjum og fótleggjum þegar Surtur er í vígahug og gerir árás úr launsátri á sofandi börn, -- skammirnar, sem Kristín fær fyrir að hafa enga stjórn á kettinum, eru daglegt brauð. Allir eru orðnir úrillir. Það er hvorki hægt að loka dýrið inni né hleypa því út. Við tökum ákvörðun í samráði við Kristínu.


.

-Æ, Surtur minn. Við verðum að horfast í augu við að svona getur þetta ekki gengið lengur. Surtur er kominn á annað ár. Hann virðist ekki ætla að þroskast til að verða húsum hæfur.


Börnin í sveitinni vita ofurvel að oft þarf að skjóta dýr, en það er svolítið erfitt að þurfa að sætta sig við það.

-Ég get ekki haft Surt.

Í hvarfi frá bænum er byssan hlaðin einu skoti. Surti var lógað.


Við létum súta skinnið af Surti. Það er hið fallegasta þing. Hannes gengur styggðarlega um húsið. Tortryggnin skín úr svip hans. Enginn má strjúka honum. Getur verið að hann finni á sér hvert óþrifaverk hefur verið unnið? Getur verið að kötturinn sé svo næmur að hann gruni hvað við höfum gert? Treystir hann okkur ekki lengur? Úr því að við svikum Surt, gætum við eins svikið hann.

Veit Hannes?


Þegar frá líður jafnar Hannes sig. Hann hefur lent í mörgum ævintýrum á sinni löngu ævi.

Nú er hann orðinn gamall. Stöku sinnum kemur fyrir að hann veiðir sér fugl eða mús til að éta. Það er þá aðeins ef gleymst hefur að gefa honum bita.

Hannes stundar nú aðallega harðfiskveiðar uppi í skáp. Harðfiskur hefur þann kost að fljúga aðeins ofan á gólf, en ekki lengra.


Að veiða harðfisk.

Hannes á svo sannarlega skilið að fá að sofa í besta stólnum og hlýjasta bólinu.

Betri, gáfaðri og blíðari kött er vart að finna.


Hannes náði sautján ára aldri, en nú er hann allur. Blessuð sé minning hans

********


Hannesar saga Grรกsteins sรถgulok


skemmtilegustu lestraræfingarnar Hannesar saga Grásteins 1.bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 2.bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli 3. bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist 4. bók; Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 5. bók: Kettlingunum stolið 6. bók: Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða 10. bók: Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf? 12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli 15. bók: Snjótittlingaveiðar 16. bók: Nýi kettlingurinn 17. bók: Vor í lofti 18. bók: Hannes fer í sveit 19. bók: Hvolparnir 20. bók: Dánartilkynning

Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon eða http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes


TAK-sögurnar TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir Glámur auli TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið TAK og græna ræktin TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og tilraunalímið TAK og lyftingageimveran mikla TAK og vinur fílsins TAK og náttúruvænu einnotapokarnir

Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon


fleiri myndabækur Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti smásögur Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur (sakamál) 1000 stjörnur -- Bónda minn hálfan Drottinn blessi heimilið Strætó í hringi -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma?


langar sögur

Halla Japl, jaml og fuður

fræðsluefni, Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD)

Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org


Hannesar saga Grásteins, 20 skemmtilegar bækur, yndisleg, sönn, viðburðarík saga


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook