Skip to main content

Hannesar saga Grásteins, 19. bók: Hvolparnir

Page 1

Hannesar saga Grásteins 19. bók

HVOLPARNIR

4.útgáfa

Freyjukettir, Norræn menning freyjukettir@mmedia.is Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir


19. bók Hvolparnir

-ja, hérna ! ekki er nú öll vitleysan eins !! Margt hefur Hannes Grásteinn reynt og í mörgu lent í lífinu. Í sveitinni gengur gersamlega fram af honum: Tveir hvolpar eru komnir á heimilið!


Þetta eru þau klossuðustu og fyrirferðarmestu dýr sem Hannes hefur nokkru sinni augum litið. Dynkirnir þegar þetta hlussast niður! Fyrirferðin, geltið, urrið, bröltið! Svo þykist þetta vera að hoppa, en kemst ekki einu sinni upp á stól.

Hvolpar! Það er að auki ólykt af þeim.


Hannes hefur hugsað sér að láta þessa klossuðu hlunka strax vita hverjum á að bera virðingu fyrir á þessum bæ. Hann hvæsir, og slær hvolpana fast með klónum á forvitin nefin, -- sem þeir reka ofan í alla hluti -og halda að þeir geti rekið í Hannes líka.

Klossuð dýr.

Hannes ræður.


Hvolparnir eru fljótir að skilja, að ekki borgar sig að atast í Hannesi Grásteini. Hans persónumörk eru á hreinu. Öðru máli gegnir með hinn leikóða Surt. Meðan hvolparnir eru aðeins mánaðargamlir, getur Surtur hlaupið miklu hraðar en þeir. Enda spóla þeir á sleipu kjallaragólfinu. Surtur liggur í leyni,..... .....stekkur á skottin á þeim,

Smár er hér knár.


Hannes var skynsamur að kenna hvolpunum strax í upphafi, hver er konungur dýranna hér. Hann étur alltaf fyrstur -- og alla bestu bitana. Ef einhver dirfist að ætla að næla sér í bita áður en Hannes hefur mettast, hvæsir hann og urrar. Allir verða að læra hvað það þýðir. Hannes tyggur vel, fer sér að engu óðslega, verkar snyrtilega utan af beinunum.

.

Hannes étur fyrstur.


Síðan sleikir hann út um og teygir sig vandlega. Þá geta Surtur og hvolparnir fengið afganginn.

Á eftir éta hin þrjú.

Hannesi líst ekki á að hafa þessa sóða til trogs með sér. Hvolpar slafra í sig matinn nær ótugginn;


sá sem er fljótastur fær mest; þeir sulla út á gólf; þeir bryðja beinin. Allt hverfur. --- Mikið að þeir éta ekki trogið með.

Hvolpar stækka hratt.

Þeir stækka ört.


Það hlaut eitthvað að verða úr öllum þessum býsnum sem þeir éta. Surtur heldur áfram að atast í hvolpunum, en nú á hann stundum í vök að verjast, og oft vill kárna gamanið.

Hannes er feginn að geta nú brugðið sér út þegar hann langar til. Allir ungar eru orðnir fleygir.


Veiðar eru ekki auðveld list.

Hannes er úti.

Það þarf þolinmæði og kænsku. Hannes læðist hljóðlaust að bráðinni. Verst er þegar hvolpaskammirnar koma æðandi með gelti og gjammi og fæla alla fugla upp. Hannes er mikil veiðikló. Við þessu mátti búast: Hann færði mér dauðan fugl.


Þótt undarlegt megi virðast, vantar mig einmitt nýveiddan fugl. Skýringin á því er sú, að ég ætla að kenna hvolpunum að þeir mega ekki veiða fugla, -- en þeir eru af dýrtæku kyni.

Hannes drap fugl -- og færði mér hann að gjöf. Ekki á að hóta hundi því að maður muni slá hann ef hann gerir eitthvað af sér. Það er alrangt. Hundurinn á ekki að óttast húsbóndann neitt.


Það þarf að telja hundinum trú um að sumt beri að forðast. Ekki er nóg að skamma hvolpana eftir að þeir hafa veitt. Best er að koma í veg fyrir að þeir nokkru sinni veiði. Sumir hundar drepa fugla sér til skemmtunar, og það er ekki gott. Þá vantar gott uppeldi.

Að ala upp hund


Ég fel mig og hreyfi nýdeyddan fuglinn svo annar hvolpurinn sér. (El upp annan hvolpinn í einu.) Ég reyni að herma eftir tísti og kvaki fugla. Hvolpurinn verður spenntur í þessu, og stekkur á fuglinn. (Þið vitið að hundar eru rándýr.)

-Nei !! -Ekki snerta! Um leið og hann finnur lyktina af fuglinum og ætlar að glefsa í hann, slæ ég hvolpinn snöggt á síðuna með ól og segi skipandi:


-Nei !! -Ekki snerta! Hvolpurinn hrekkur undan. Um leið og hann lítur á mig, alveg hlessa, er ég ósköp góð og klappa honum. Hvolpurinn hefur ekki hugmynd um að það var ég sem sló hann. Það er kúnstin!! Það er ekki ég sem hann hærðist, heldur þessi „stórhættulegi“ fugl!! Hann yfirfærir sársaukann á fuglinn og orðin „ekki snerta“: „Nei ! Ekki snerta !“ Aftur og aftur þegar ég hreyfi fuglinn ögrandi og tísti, ætlar hvolpurinn að glefsa í fuglinn. Í hvert skipti slæ ég hann og segi: -Nei!! Ekki snerta.


Að lokum tekst mér að telja báðum hvolpunum trú um að þetta litla tístandi fjaðradýr sé stórhættulegur hlutur sem ekki borgar sig að snerta. Þetta tók u.þ.b. tuttugu mínútur.

Þeir drepa ekki fugla. Fuglar eru „stórhættulegir“ í þeirra huga !!! Hundarnir snerta aldrei fugla upp frá þessu; -- þeir taka á sig krók þegar þeir sjá fugl;


-- og eru að auki hræddir við allt sem heitir ,,ekki snerta". Einfalt? Hundauppeldi er einfalt ef maður veit og skilur hvað maður er að gera Hannes horfir á aðfarirnar. -Meiri fíflin hundar. Hræddir við dauðan smáfugl.

Engum dettur víst í hug að reyna að kenna ketti að ekki megi snerta fugla. Skyldi það vera hægt?


-Bjánar.

-Hugsið ykkur hvað hægt er að fá þessa hunda til að gera fyrir kex !!! Þeir hoppa, setjast, leggjast, sækja spýtnadrasl -- bara allt sem þeim er sagt að gera --- fyrir kex !!!


Skelfilega ósjálfstæð og þýlunduð dýr, greyin. Aldrei færi Hannes að gera einhverjar hundakúnstir fyrir kex.

Hannes heldur ætíð sinni reisn og ró í lífinu. Það er erfitt að bæla kött. Eðli hans er að stjórna sér sjálfur.

Ró

.


Fyrir Hannesi mega hundar hlaupa á heimsenda með gelti og gjammi -- á eftir krumma eða hverju sem er; þeir mega láta siga sér á fé, þeir mega telja það til kosta að vera hlýðinn. Það er víst svona að vera hópdýr.

En fyrir ketti er toppurinn af tilverunni og tilgangur lífsins ekki að láta aðra stjórna sér.

Köttur er ekki hundur.


***********


Nítjándu bók lýkur hér. 19. bók: Hvolparnir 1.bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 2.bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli 3. bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist 4. bók; Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 5. bók: Kettlingunum stolið 6. bók: Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða 10. bók: Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf? 12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli 15. bók: Snjótittlingaveiðar 16. bók: Nýi kettlingurinn 17. bók: Vor í lofti 18. bók: Hannes fer í sveit 19. bók: Hvolparnir 20. bók: Dánartilkynning (þið munið að Hannesar saga er um sanna viðburði á kattarævi)


Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon eða http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes

- fleiri myndasögur TAK-sögurnar Hjalta TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK

og og og og og og og og og og og og og og og

nornin Freki diskurinn brúin bíllinn borðtuskan fiskarnir flugvélin slökkvibíllinn flugeldarnir martröðin Lalli Marsbúi páskaeggið fjölleikahúsið draugurinn

og lestraræfingar: geimveran TAK- 30 bækur, eftir

TAK og Auðtrúa TAK og erfiði maturinn TAK og skemmtitækin TAK og landbúnaðurinn TAK og allraveðrapeysan TAK og innbrotageimveran TAK og lyktarsjónvarpið TAK og fjarskagaman fjarskalítill


TAK og græna ræktin TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og tilraunalímið TAK og lyftingageimveran mikla TAK og vinur fílsins TAK og náttúruvæni einnotapokinn Glámur auli eftir Bjarna Þór

Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon

eftir Guðrúnu Kristínu: Apakríli, algjör dúlla!! Hnallur og Spói Palli og englabjallan Sigga og hafragrauturinn Hver er hann þessi Jakob? Tóta og þau Jónki fór í réttirnar.... Búi skreytir jólatré Hagbarður og Hvutti

Hvar voru hrossin í hríðinni? Hrekkjusvín og ljósastaurar Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Mummi Draumahúsið Hrif Bína brúða Fluga

- langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður


- smásögur, unglingasögur, Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur (sakamál) 1000 stjörnur -- Bónda minn hálfan Drottinn blessi heimilið Strætó í hringi -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? - verðlaunaleikrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD)


Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org


Hannesar saga Grásteins, 20 skemmtilegar bækur, yndisleg, sönn, viðburðarík saga


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook