Hannesar saga Grásteins 18. bók af 20 HANNES FER Í SVEIT
4.útgáfa
Freyjukettir, Norræn menning freyjukettir@mmedia.is Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir
Hannes gætir þess vandlega að gleymast ekki í bænum, þegar við flytjum í sveitina til sumardvalar. En ofsalega sem hann kvíðir fyrir bílferðinni. Hann byrjar að vorkenna sér löngu áður en við leggjum af stað. Kannski ekki er að furða þótt hann hafi illan bifur á þessum hávaðaófreskjum.
Hannes fer í sveit.
Strax og hann sér að við erum að pakka fer hann að hafa góðar gætur á okkur En Surtur er með algjöra bíladellu. Hann stekkur inn í bílinn, út aftur, upp á bílinn, undir bílinn, og situr að lokum á framöxlinum þar sem ómögulegt er að ná honum. Það er engin leið að hemja fjörið í þessum ærslabelg.
-Surtur minn, komdu nú
Loks er allt tilbúið. Loks hægt að leggja af stað. Hannes læsir í mig klónum þegar ég ber hann út í bíl.
-Hannes minn, komdu. Hann vill ekki láta skilja sig eftir,
og hann vill heldur ekki fara í bíl. Surtur er orðinn svo þreyttur eftir allan hamaganginn í sjálfum sér, að hann malar sig í svefn í kjöltu Kristínar. Steinsefur alla leiðina austur í sveitir. En Hannesi finnst þetta hræðileg ferð. Hann mjálmar, vælir angistarveini --- eða skulum við segja „breimar“ í sífellu alla leiðina austur.
Í bílnum.
Og Hannes, -- sem aldrei pissar nema á afviknum stað -sprænir í fatahrúgu af einskærri angist.
Loks komumst við á leiðarenda. Hannes þefar út í loftið. Hann er varkár á nýjum stað. Hann finnur fljótt að hér er gaman að vera. Surtur litli er settur beina leið inn í hús. Lokaður inni í herbergi. Hann er vís til að byrja á að týnast -- og jafnvel leggjast alveg út.
Í sveit
Kettlingurinn er ekki í neinum vandræðum með að hafa ofan af fyrir sér inni. Hann hendist rúm úr rúmi, upp á stóla,
upp á borð
-- og skápa svo allt er sem í hers höndum.
Hasar og læti. Surts er vandlega gætt, þegar hann fær að skreppa út. Surti dettur aldrei í hug að gegna nafninu sínu þegar kallað er á hann, og oftast er Kristín í stökustu vandræðum með að ná honum.
Hannes hefur góðar gætur á ferðum okkar. Hann ætlar svo sannarlega að gæta þess að við stingum hann ekki af hér á þessum nýja stað.
Hannes mjálmar
Hann eltir okkur niður í fjöru, þegar við förum að vitja um.
Hýrnar nú heldur en ekki yfir honum þegar við komum að með fiskinn. Slorlykt er all-spennandi fyrir svanga kisu. Hannes fær líka vænan bita.
.
Hann fær fisk Eftir þetta fer hann daglega með okkur niður að báti og bíður rólegur í fjörunni, meðan við vitjum um. Það borgar sig vel.
Hér er fleira skemmtilegt en nýr fiskur: Fuglatíst á hverri þúfu.
Hannes sér fugla.
Ekki líður heldur á löngu þar til Hannes færir mér fugl. Hann leggur fuglinn bráðlifandi á hlaðið að fótum mér. Þetta var gjöf til mín! Veiðistoltið leynir sér ekki. Ekki get ég annað en hrósað honum.
Ég snerti ekki fuglinn, sem virðist algjörlega óskaddaður. Svo laust hefur Hannes haldið honum milli tannanna, að ekkert sér á honum. Til þess að Hannes endurtaki þetta ekki -- veiðiklóin sú -- fer ég með hann inn í bæ. Hann er malandi af ánægju og stolti. Hann veit ekki að ég er svo fölsk að ég ætla að loka hann inni, þar til ungarnir verða betur fleygir.
Ég læt Hannes inn.
Unginn á hlaðinu er fljótur að jafna sig. Hann hefur aðeins verið stjarfur af hræðslu eða eðlislægum viðbrögðum, til þess að rándýrinu finnist hann vera dauður. Unginn skýst brott strax og hættan er liðin hjá. Það er ekki skemmtilegt fyrir Hannes að þurfa nú að húka inni í góða veðrinu í margar vikur, meðan ungarnir veltast hálffleygir milli þúfna.
Lokaður inni.
Hann horfir á hraðfleygan smyrilinn steypa sér ofan kletta með ljótu gargi og elta smáfuglana, sem flýja eins og þrek þeirra og snerpa leyfir. Það er upp á líf og dauða. Allir eiga þeir svanga unga. Þá mjálmar Hannes veiðimjálmi: -mja-a-a-a-a-a-a -- sem er ofurlágt og þrungið sársaukafullri óuppfylltri þrá til að lifa sitt náttúrulega eðli: að drepa sér til matar.
Hrafn á veiðum.
Hrafninn kemur af og til í ránsferðir. Hann þarf að fæða sína gráðugu unga í laup sínum í klettagjá. Honum gengur oft illa að hefja sig til flugs með þrastarunga í gogginum -- og árás ævareiðra og sorgbitinna foreldranna yfir höfði sér. Hannes horfir út um gluggann á veiðiglaða krakkana koma stolta heim með smáfisk veiddan á stöng.
Krakkar veiða. Fullorðna fólkið tínir fiskinn úr netunum. Og: hvernig stendur á því að mannfólkið tekur gæs upp úr frystikistu?
Það er svosem ágætt að fá nýjan fisk, en leiðinlegt að fá ekki að veiða sjálfur. Gómsætt slógið lendir svo í minkagildrunni. Fólkið ætlar svosem að veiða mink. Stundum er slógið notað sem agn fyrir svartbak. Fólkið ætlar svosem að drepa veiðibjölluna, til þess að hún leggist ekki í egg og unga. En Hannes fær ekki að veiða.
Surtur hefur ofan af fyrir sér með flugnaveiðum: Það eru fiskiflugur í gluggunum og húsflugur á eldhússborðinu.
Surtur þeytist um allt. Hannes er löngu vaxinn upp úr flugnaveiðum. Hannes leggst í mýksta stólinn í stofunni og ætlar að fá sér lúr.
Hannes sefur. Honum leiðist að fá ekki að vera úti. Það er líka hollt og gott að láta belgfylli af hráum fiski sjatna í sér í ró og næði. -- Þetta gera ljónin. --
En Surtur finnur nú ekki fleiri flugur til að veiða, en hefur ofgnótt fjörs. Það er ekkert spaug að vera ungt rándýr -- lokað inni -og heyra fuglakvakið og ungatístið útifyrir. Surtur gengur berserksgang.
Surtur tekur rispu.
Auðvitað fær Hannes engan frið, því hann er hluti af leiktækjunum hans Surts.
Surtur vekur Hannes. Hannes á ekki annarra kosta völ en leika örlítið við ófögnuðinn, enda veitir ekki af að kenna honum almennilega kattatilburði.
Það er hræðileg niðurlæging fyrir Hannes að vera bent á pissudall eins og hafður er fyrir kettlinga: gamalt vaskafat með sagi og sandi í.
Hannes fær ekki að fara út.
Enginn opnar fyrir honum þegar hann mjálmar við dyrnar og þarf nauðsynlega að komast út. Hannes kom að vísu fram hefndum með því að spræna duglega í hundabælið. Ekki er um annað að ræða en hoppa upp í stól.
Hannes þvær sér
Gestaspjót. Þegar kisa þvær sér svona, er sagt að hún setji upp gestaspjót. Það spáir gestakomu. Auðvitað bregst hjátrúin aldrei, því staðreyndum er alltaf hægt að hagræða. Að þessu sinni kom gestur tveim dögum síðar.
Hannes er óttalega móðgaður þegar hann er rekinn upp úr uppáhaldsstólnum sínum og einhver gestur fær sæti þar. Þegar loks stóllinn er endurheimtur, þarf Hannes að rannsaka gaumgæfilega hina framandi lykt sem gesturinn hefur skilið eftir. Það er oft einhvers konar fjósalykt eða önnur dýralykt. Framandi lykt -- í Hannesar einkastóli !!
Hannes snýr sér oftast í þrjá hringi áður en hann er ánægður með bælið sitt.
Það er dýrmætur eiginleiki að geta fundið eirð og vera sjálfum sér nógur þótt ævintýrin séu útilokuð.
Svo er gott að kúra hjá krökkunum um bjartar sumarnætur.
Í ró.
***************
Hér lauk 18. sögu:
Hannes fer í sveit
1.bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 2.bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli 3. bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist 4. bók; Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 5. bók: Kettlingunum stolið 6. bók: Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða 10. bók: Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf? 12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli 15. bók: Snjótittlingaveiðar 16. bók: Nýi kettlingurinn 17. bók: Vor í lofti 18. bók: Hannes fer í sveit 19. bók: Hvolparnir 20. bók: Dánartilkynning (þið munið að Hannesar saga er um sanna viðburði á kattarævi)
eða
Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes
TAK-sögurnar-geimveran TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK Glámur auli eftir Bjarna Þór TAK og flugvélin TAK TAK og slökkvibíllinn TAK TAK og flugeldarnir TAK TAK og martröðin TAK TAK og Lalli Marsbúi TAK TAK og páskaeggið TAK TAK og fjölleikahúsið TAK TAK og draugurinn TAK
TAK- 30 bækur, eftir Hjalta
og fiskarnir og og og og og og og og
Auðtrúa erfiði maturinn skemmtitækin landbúnaðurinn allraveðrapeysan innbrotageimveran lyktarsjónvarpið fjarskagaman fjarskalítill
Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon
- fleiri myndasögur og lestraræfingar: eftir Guðrúnu Kristínu: Apakríli, algjör dúlla!! Hnallur og Spói Palli og englabjallan
Hvar voru hrossin í hríðinni? Hrekkjusvín og ljósastaurar Tíkin Tóa og grey litli Krúsi
Sigga og hafragrauturinn Hver er hann þessi Jakob? Tóta og þau Jónki fór í réttirnar.... Búi skreytir jólatré Hagbarður og Hvutti
Mummi Draumahúsið Hrif Bína brúða Fluga
- langar barna- og unglingasögur
Halla Japl, jaml og fuður
- smásögur, unglingasögur Saga Svaðilfara Sál bróður, steinbítsbróður Hreggnótt Dívan skáldsins Ég, hið silfraða sjal
Guðrúnar, IN MEMORIAM Tröllabarn Í mjúku myrkri búa draumarnir Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Þetta er mitt hús
Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur (sakamál) 1000 stjörnur -- Bónda minn hálfan Drottinn blessi heimilið Strætó í hringi -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma?
- verðlaunaleikrit
-Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns)
Guðrún Kristín Magnúsdóttir, verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org
Hannesar saga Grásteins, 20 skemmtilegar bækur, yndisleg, sönn, viðburðarík saga