Hannesar saga Grรกsteins 17. bรณk
VOR ร LOFTI
4.útgáfa
Freyjukettir, Norræn menning freyjukettir@mmedia.is Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir
17. bók: Vor í lofti
Þessi stóri guli Hannes, sem lent hefur í svo mörgum hættulegum ævintýrum um ævina, er gæddur miklu sjálfstrausti. Hannes er nú búinn að sætta sig við aðskotadýrið Surt, þótt Surtur sé alveg dæmalaust lítið gefinn og aldrei til friðs.
En Hannes lætur Surt líka vita hver það er sem ræður í þessu húsi.
Ólíkir kettir.
Nú er tekið að vora. Þá er eins og allt vakni og teygi sig.
Jafnvel himinninn opnar augun eftir syfjulega daga og dimmbláa stjörnudrauma vetrarins. Fuglar, blóm og dýr teygja, forvitin, nefbroddinn út í loftið. Loftið svarar með vorgolukossi. Það er nú sem ósýnilegir fjötrar bráðna af öllu og öllum á Íslandi. Vor --- og frelsi.
Vor.
Einhver óskýranleg þörf fyrir að hlaupa, hlaupa, hlaupa, hlaupa grípur lítinn kettling. Hlaupa út í vorið, og auðvitað beint í Hannes!
Kæti.
Stóri guli kötturinn er líka hlaðinn vorfrelsi. Hann stekkur um garðinn --- með þetta stóra gula skott sitt, sem Surtur fær ekki staðist. Hannes hleypur alveg mátulega hægt fyrir Surt litla, --- og gætir þess að fara ekki út á götu. Hannes veit hve hættulegir bílar geta verið.
Þeir leika sér.
Allt í einu, -- þegar leikurinn stendur sem hæst -birtist stór fressköttur í garðinum.
Hannes veit hvað þetta táknar og hættir leiknum samstundis. Surtur, aftur á móti, hefur aldrei kynnst öðru en að sofa, eta og leika sér, -- og heldur að þessi ókunni köttur sé jafn skemmtilegur og Hannes.
Hann ákveður að stökkva á þennan og leika svolítið við hann.
Nei, Surtur !
Ekki !
Auðvitað kallar Surtur yfir sig sína fyrstu alvarlegu lífsreynslu:
Aðkomukötturinn tekur þetta óstinnt upp fyrir Surti.
(Honum yrði víst ekki skotaskuld úr að jafna um þennan litla bjálfa í eitt skipti fyrir öll.) Kárnar nú brátt vorleikjagamanið.
Fressið slær Surt.
En nú er Hannesi Grásteini að mæta. Hann líður ekki boðsflennur á sínu yfirráðasvæði.
Hannes kemur.
Eftir snörp áflog hörfar kötturinn úr garðinum. Hannes stendur eftir og dinglar rófunni, stoltur og reiður í senn. En hvað hefur orðið af Surti? Í ofboði stökk hann burt. En hvert?
En hvar er Surtur?
-Surtur! Surtur! Surt-surt! Kis-kis!
Við leitum og köllum fram á kvöld. Við spyrjum alla krakkana í kring hvort þau hafi séð Surt. -- Hvert hefur hann stokkið? Næsta morgun höldum við áfram að leita að litla kjánanum.
Á hádegi er bankað. Fyrir utan stendur maður sem býr í næstu götu við okkur:
Fundinn.
-Þegar ég lyfti upp vélarhlífinni á bílnum mínum áðan, af einskærri tilviljun, sagði hann, -lá þessi þar undir, steinsofandi. Krakkarnir sögðu mér að þið hefðuð verið að leita að einhverju slíku. Við verðum heldur en ekki kát að vita að ekkert hefur komið fyrir Surt. Surti hefði nú brugðið illa, ef maðurinn hefði gangsett bílinn án þess að verða var við kattarkjánann. Surtur er hinn kátasti, vel útsofinn, en soltinn.
Hann er alveg búinn að gleyma stóra kettinum og rífur í sig brauð, ost, aldinmauk, kókómalt og einhverjar fleiri matarruður.
Surtur er alæta.
Brauðafgangur með aldinmauki er nú hlutur sem Hannes Grásteinn leggur sér ekki til munns. -Þú, Surtur, ert nú öllum sönnum rándýrum til skammar. Vonandi þroskastu, grey vandræðagripurinn þinn. Og Hannes hefur ekki frekari áhyggjur af því, hve mikill endemis kjáni Surtur getur verið.
-Brauรฐ!
Oj bara!
*************
Hér endar sautjánda bók Hannesar sögu Grásteins 17. bók af 20:
Vor í lofti
1. bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 2. bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli 3. bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist 4. bók; Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 5. bók: Kettlingunum stolið 6. bók: Það eina, sem er kátara en kátur kettlingur, er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða
10. bók; Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf? 12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli 15. bók: Snjótittlingaveiðar 16. bók: Nýi kettlingurinn 17. bók: Vor í lofti 18. bók: Hannes fer í sveit 19. bók: Hvolparnir 20. bók: Dánartilkynning Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon eða http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes
fleiri myndasögur og lestraræfingar: TAK og nornin, eftir Hjalta TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir
TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið TAK og græna ræktin TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og tilraunalímið TAK og lyftingageimveran mikla TAK og vinur fílsins TAK og náttúruvænu einnotapokarnir Glámur auli eftir Bjarna Þór Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon
fleiri myndasögur og lestraræfingar: eftir Guðrúnu Kristínu: Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar....
Bína brúða Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti - langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður - smásögur, unglingasögur Guðrúnar, Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins
Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au-pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Drottinn blessi heimilið 1000 stjörnur / Bónda minn hálfan -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? Strætó í hringi Blisters and boiled ice, no! boiled eyes!
- verðlaunaleikrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti!
- fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD)
Guðrún Kristín Magnúsdóttir, verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org
Hannesar saga Grásteins, 20 skemmtilegar bækur, yndisleg, sönn, viðburðarík saga