Skip to main content

Hannesar saga Grásteins, 15. bók: Snjótittlingaveiðar

Page 1

Hannesar saga Grásteins 15. bók

SNJÓTITTLINGAVEIÐAR


4.útgáfa

Freyjukettir, Norræn menning freyjukettir@mmedia.is Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir


Frost er og snjór. Hannesi er kalt á klónum. Það er að vísu nokkuð kettlingalegt að þeytast á eftir snjóflygsum um allan garð -- en það er samt bara nokkuð gaman að leika sér til hita. Einnig góð æfing. Rándýr þurfa að þjálfa hremmihæfnina, en hún er mikið nákvæmniverk.

Snjór.


En annað nokkuð merkilegra er hægt að gera: Veiða snjótittlinga sem setjast út á hól til að kroppa smáfuglafóðrið. Gallinn við þá er að vísu sá, að þeir sitja aldrei kyrrir. Þeir fljúga upp þegar bíll fer framhjá, þeir fljúga upp þegar einhver gengur framhjá, þeir fljúga upp þegar hrafninn hnitar uppi yfir þeim.


Snjótittlingar.

Hannes má ekki svo mikið sem horfa í áttina til þeirra, þá fljúga þeir upp! Það er augljóst að ekki getur hver sem er veitt snjótittling.


Það reynir á kænskuna og hæfnina.

Þeir fljúga upp.


Hannes læðist niður fyrir húsið. Hann ætlar að læðast að snjótittlingunum þar sem þeir verða hans ekki varir. Hann fikrar sig nær og nær. Aðeins vantar nokkur hljóðlaus skref til að komast í stökkfæri við þá. Hannes iðar og býr sig undir að stökkva og hremma.

Hannes læðist.


Bíll fer framhjá. Snjótittlingarnir fljúga allir upp.

Þeir fljúga upp!


Hannes ætlar að bíða þar til þeir setjast á ný, --- en nú sjá fuglarnir hann úr lofti, og þora ekki að setjast aftur. Hannes fer þá bara inn, enda tærnar hans fegnar því.

Hannes inni. Það var svosem auðvitað: Fuglaskarinn sest um leið og Hannes er farinn.


Skottið gula gengur fram og aftur, all gremjulega. Hannes mjálmar veiðimjálmi: -- lágt og titrandi -mja-a-a-a-a-a-a. Hann langar nokkuð mikið til að reyna á nýjan leik. Hannes læðist sömu leið og áðan. Hann liggur í leyni á bak við steinahrúgu. Einn og einn fugl úr síhvikulum hópnum lítur upp, -- en enginn þeirra verður var við hættuna sem vofir yfir.

Hann læðist út.


Hannes er kænn. Einn fuglinn nálgast grjóthrúguna æ meir. Er hann í dauðafæri? Eða er þetta aðeins of langt? Hannes hreyfir afturhlutann eins og til að hita upp afturfæturna fyrir áhlaupið.

Nú ! Nú gerir Hannes leifturárás.


Fuglarnir fljúga upp -- allur skarinn -- um leið og Hannes stekkur. Sá sem Hannes sigtaði á, slapp einnig. Hann var snöggur. Svona er lífið.

Nær ekki í fugl.


Ef Hannes væri villt rándýr, yrði hann að veiða sér til matar, ella dæi hann úr hungri. -Erfið hlýtur lífsbaráttan að vera hjá villiköttunum -- er það ekki, Hannes minn? Þú veist allt um það. Stundum deyja þeir út hungri og kulda og einmanaleik. Engum þykir vænt um þá.

Hannes á fisk á diski inni í hlýjunni. Og okkur þykir vænt um hann.


Hannes étur fisk.

(þið vitið auðvitað að einhver maður hefur veitt fiskinn.)


Snjรณtittlingar.


Síkvikir snjótittlingarnir nota nú tækifærið og tína í sig kornið. Vetrardagurinn er stuttur. Svo hverfa þeir út í hrímfölt myrkrið. Enginn veit hvar þeir kúra um nætur. ********* Hér lýkur fimmtándu bók Hannesar sögu Grásteins 15. bók af 20:


Hve margar blaðsíður erum við búin að lesa? (bókaauglýsingar meðtaldar og saurblöð) (skammstöfun bls.: blaðsíður)

24 bls 1.bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 24 bls 2.bók:

Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli

24 bls 3. bók:Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist 28 bls 4. bók;Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 28 bls 5. bók:Kettlingunum stolið 24 bls 6. bók: Það eina, sem er kátara en kátur kettlingur, er: kátir kettlingar 26 bls 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 24 bls 8. bók: Hannes Grásteinn


villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 24 bls 9. bók:Surtarbrandur fer sér að voða 28 bls 10. bók; Hannes veiðikló 24 bls 11. bók: Hefur kötturinn níu líf? 26 bls 12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 26 bls 13.bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 24 bls 14. bók: Milli 24 bls 15. bók: Snjótittlingaveiðar 24 + 24 + 24 + 28 + 28 + 24 + 26 + 24 + 24 + 28 + 24 + 26 + 26 + 24 + 24 = 378 bls Samtals 378 bls


Hve margar blaðsíður eigum við eftir að lesa? erum við lestrarhestar og bókormar? 28 bls 16. bók: Nýi kettlingurinn 24 bls 17. bók: Vor í lofti 26 bls 18. bók: Hannes fer í sveit 24 bls 19. bók: Hvolparnir 24 bls 20. bók: Dánartilkynning 28 + 24 + 26 + 24 + 24 = 126 blaðsíður --

förum létt með það !!


Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon eða http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes

skemmtilegustu lestraræfingarnar

Hjalti Bjarnason: TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK

og og og og og og og og og og og og og

nornin lyftingageimveran mikla diskurinn brúin bíllinn fiskarnir slökkvibíllinn skemmtitækin jarðeplaupptökuvélin lyktarsjónvarpið landbúnaðurinn Lalli Marsbúi páskaeggið


TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK

og og og og og og og og og og og og og og og og

fjölleikahúsið martröðin tilraunalímið Freki borðtuskan flugeldarnir græna ræktin allraveðrapeysan náttúruvæni einnotapokinn erfiði maturinn vinur fílsins flugvélin fjarskagaman draugurinn innbrotageimveran Auðtrúa

TAK sögurnar voru í sjónvarpinu, Stundinni okkar, á árunum 1975-80 Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon

Glámur auli eftir -- birtist í Æskunni

Bjarna Þór Einarsson


smásögur

Guðrún Kristín Magnúsdóttir:

Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Dagdraumar og sorgarband Au pair Leyniþræðir Drottinn blessi heimilið Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Bónda minn hálfan 1000 stjörnur Huginn Jöruson, hornungur myndasögur: Hannesar saga Grásteins Mummi Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Hannesar saga Grásteins Apakríli, algjör dúlla!!


Hnallur og Spói Hvar voru hrossin í hríðinni? Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Hrif Sigga og hafragrauturinn Jónki fór í réttirnar, gangandi í skóm og sokkum Tóta og þau Bína brúða Búi skreytir jólatré Hagbarður og Hvutti Litla flugan Draumahúsið Hver er hann þessi Jakob? langar sögur Halla Japl, jaml og fuður leikrit og fræðsluefni: -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti Rakni og Þögn --- KLUKK (leikir barna 1900-2000) Óðsmál in fornu efnisyfirlit Óðsmál in fornu, 40 skræður, vefútgáfa Valhallar Óðsmál in gullnu Óðsmál (1996; uppseld, en fáanleg á bókasöfnum víða um heim) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD) Skírnismál, helgileikar, handrit handa börnum


Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org


Hannesar saga Grásteins, 20 skemmtilegar bækur, yndisleg, sönn, viðburðarík saga


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook