Skip to main content

Hannesar saga Grásteins, 14. bók: Milli

Page 1

Hannesar saga Grásteins 14. bók MILLI

Hannesar saga Grásteins er sönn saga lesum myndir, lesum stuttan texta, lesum langa sögu

4.útgáfa

Freyjukettir, Norræn menning freyjukettir@mmedia.is Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir


14.bók

Milli

Nú fær Hannes nokkuð nýtt að hugsa um.


Hann gefur sér naumast tíma til að fara út: Helgi er búinn að fá sér gullhamstur. Hann hlaut nafnið Milli. Helgi smíðaði rammgert búr fyrir hamsturinn. Þið megið reyna að geta hvers vegna!

Milli er hamstur.


Eins og við mátti búast: Þessu meindýri ætlar Hannes að útrýma sem bráðast. Það var jú einmitt til að drepa mýs, sem kötturinn var gerður að húsdýri. Hannes læðist allt í kring um búrið, neytir allra bragða. Hvergi reynist smuga á búrinu. Lyktin af Milla leynir sér ekki, þótt hann sofi á kafi í bómullar- og pappírshrúgu.

Hannes vill ná í Milla.


Sennilega er ekki rétt að hafa mýs, hamstra og fugla á heimili sem köttur er á. Ég held að stöðugur ótti þjaki þessi litlu dýr, jafnvel þótt við vitum að kötturinn muni aldrei ná þeim.

Á hverju kvöldi, þegar konungsríkið hans Milla er opnað, er Hannes settur út úr herberginu og lokað.

Hannes látinn fram.


-Góða nótt, Milli minn, og velkominn á fætur, segir Magnús stóri bróðir, þegar Helgi opnar búrið.

Milli, grútsyfjaður, gægist upp úr hrúgunni sinni.

Milli.


Verið að ónáða hann svona snemma; klukkan er ekki nema tíu að kvöldi. Meiri ófriðurinn. Milli fær ferskt vatn, kál, arfa, brauð, epli og sólblómafræ. Og þjónarnir hans þrífa klósettið hans, en það er í endanum á löngum pappakassagöngum í höllinni hans. Gott að vera Milli (milli?).

Hús Milla (höll Milla).


Sjálfur nagar hann dyr á höllina þar sem honum þóknast að hafa þær. Hann hefur einkalaug og gengur oft út í hallargarðinn og snyrtir sig. (Þykist vera að þvo sér.)

Milli að éta.


Þegar fóðrið kemur, athugar hann það: -Jú. Sæmilegt.

Svo treður hann öllu saman upp í sig.

Gott að vera hamstur.


Þegar Hannesi er hleypt inn aftur er lokið komið á sinn stað, og þungur dallur með sólblómafræjum á lokinu. Þetta bregst ekki. Þarna standa þeir hvor sínum megin við vírnetið, grafkyrrir, finna greinilega lyktina hvor af örðum.

Lokað.


Tíminn stendur kyrr.

En eitt kvöldið sér Hannes við okkur: Hann felur sig vandlega á bak við gullakassa undir Helga rúmi. Við finnum hann hvergi í íbúðinni. Köllum: -Hannes! Tis-tis. Hannes köttur! Hann lætur ekki á sér kræla. Við höldum að hann sé úti.


Millabúrið er opnað: -Góða nótt, Milli minn, og velkominn á fætur. Milli gægist upp úr hrúgunni sinni, svefnherbergi kóngsins í þessu ferkantaða vírnetsríki.

Hannes er undir rúmi.

Hannes læðist óséður úr felustað sínum, ....


.....skref fyrir skref, hægt, hljóðlaust, hnitmiðað. Hann hefur augastað á feitari bita en sólblómafræi og eplakjarna.

Hannes læðist.


Allt í einu gerir hann leifturárás:

Árás !

Magnúsi og Helga bregður. Hannes læsir tönnunum í vesalings Milla, sem bjóst við öllu öðru en þessu. Magnúsi og Helga bergður svo ofsalega, að eitt andartak geta þeir ekkert aðhafst.


Í samanburði við lipurð og viðbragðsflýti kattarins, verða viðbrögð okkar hlægilega klaufskt fálm. Við, sem erum svo ánægð með okkar stóru mannaheila og vandlega hugsuðu varúðarráðstafanir, verðum nú að neyta aflsmunar: opna kjaft rándýrsins með handafli, þar til feiti bitinn Milli nagdýr losnar. Milla sakaði sem betur fer ekki. Slapp með skrekkinn. Sá var nú fljótur að skjótast inn, þegar loksins okkur tókst að losa hann. Hannesi hafði nærri því tekist það sem hann ætlaði sér: að ná Milla og koma honum fyrir kattarnef.


Við horfum með aðdáun á þetta mjúka sterka dýr, sem sýnt hefur slíka veiðikænsku að: * fela sig. * gegna ekki þegar við kölluðum á hann, * bíða rétta augnabliksins; --- sýnt hefur slíka áræðni að hremma Milla beint fyrir framan nefið á okkur.

-Við dáumst að þér! Hannes vingsar skottinu -- stóra gula skottinu sínu.


Þegar mannfólkinu mislíkar, fer það ýmist í fýlu og er móðgað í marga daga, eða öskrar á annað fólk. Er ekki betra að dingla bara skottinu? Næst þegar okkur mislíkar skulum við prófa að dingla skottinu eins og kisa gerir, jafna okkur án þess að láta nokkurn mann sleikja úr okkur, vera sjálfum okkur nóg, taka því að ekki tekst allt sem við ætlum að gera. Lærum að tapa.

**********


Hér lýkur fjórtándu bók Hannesar sögu Grásteins 14. bók af 20:

Milli

1. bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 2. bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli 3. bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist 4. bók; Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 5. bók: Kettlingunum stolið 6. bók: Það eina, sem er kátara en kátur kettlingur, er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman


8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða 10. bók; Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf? 12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli 15. bók: Snjótittlingaveiðar 16. bók: Nýi kettlingurinn


17. bók: Vor í lofti 18. bók: Hannes fer í sveit 19. bók: Hvolparnir 20. bók: Dánartilkynning Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon eða http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes

- myndasögur og lestraræfingar: TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur, eftir Hjalta TAK TAK TAK TAK TAK TAK

og og og og og og

nornin Freki diskurinn brúin bíllinn borðtuskan


TAK og fiskarnir Glámur auli eftir Bjarna Þór TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið TAK og græna ræktin TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og tilraunalímið TAK og lyftingageimveran mikla TAK og vinur fílsins TAK og náttúruvænu einnotapokarnir


Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon

- fleiri myndasögur og lestraræfingar: eftir Guðrúnu Kristínu Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti


- langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður - smásögur, unglingasögur Guðrúnar, Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au-pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Drottinn blessi heimilið 1000 stjörnur / Bónda minn hálfan -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? Strætó í hringi Blisters and boiled ice, no, boiled eyes!


- verðlaunaleikrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD)

Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com

Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org


Hannesar saga Grásteins, 20 skemmtilegar bækur, yndisleg, sönn, viðburðarík saga


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook