Skip to main content

Hannesar saga Grásteins, 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara

Page 1

Hannesar saga Grásteins 13. bók FLEIRI VIÐBURÐIR: BÖRN HVEKKJA HANNES; HANNES HVEKKIR STARA

4.útgáfa

Freyjukettir, Norræn menning freyjukettir@mmedia.is Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir


lesum myndir, lesum stuttan texta, lesum langa sögu 13. bók (af 20) Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara

Hannes fer stöku sinnum í langar könnunarferðir um hverfið sem hann er nýfluttur í.

Að skoða sig um.


Hann kannar ekki eingöngu götur og húsagarða,....

Hoppar inn. ........heldur á hann það til að birtast í eldhússgluggum á neðstu hæð. Sumum bregður að vonum ofsalega við svo óvænta heimsókn.


En Hannes telur yfirleitt ekki eftir sér að aðstoða við (sum) húsverk, eins og að þrífa upp rjóma t.d. Þess vegna taka flestir svona heimsóknum bara vel.

Hannes lepur. (Hann hellti niður!!!)

Krakkar klappa honum og gefa honum harðfisk.


Víða í húsunum í hverfinu eru til ágætis sófar og hægindastólar. Og ágætis rúm með mjúkum sængum.

Þarna sefur Hannes


Þótt flestir séu góðir við Hannes, skulið þið nú heyra hvað kom fyrir hann eitt sinn er hann var á heimleið úr einhverjum leiðangrinum: Krakkaskríll reynir að ná Hannesi. Honum tekst ekki að sleppa burt.

.

Hrekkjusvín


Krakkarnir ná honum, og troða honum ofan í poka. Síðan hefja krakkarnir þann ljóta leik að fleygja pokanum með kettinum í á milli sín og upp í loftið.

.

Hannes er í poka

Þetta er hræðileg lífsreynsla fyrir Hannes. Hræðilegri en orð fá lýst.


Í kolniða myrkri finnur hann sig þeytast upp í loftið; veit ekkert hvar og hvenær hann kemur niður. Ég veit ekki hve lengi þau kvöldu dýrið þannig, þessi skrýtnu börn. Hvernig geta börn verið svo heimsk að vera vond við dýr?


Loks sleppur Hannes.

Þegar Hannes loks sleppur frá hrekkjusvínunum, er hann ofsalega hvekktur.

Hann hleypur sem fætur toga burt frá þeim. Hannes fer ekki langt frá húsinu næstu daga á eftir.


Hann situr lengst af og horfir út um gluggann Enda er dálítið spennandi að sjá í garðinum hennar Fíu:

Hannes er inni.

Tvenn starahjón eiga í bardaga um fuglahús, sem rúmar aðeins eina fjölskyldu.


Raunar hafa þrastarhjón verpt hér árum saman. En þrestirnir flýðu gargið og lætin í störunum. Þrestirnir eru frekir, --- en stararnir eru ennþá frekari.

Fuglar úti. Fuglahús á húsvegg


Loks tekst öðru staraparinu að bola hinu burt. Þau gera hreiður úr alls konar drasli: snærisspottum, bréfsnifsum, plastpokarifrildi o.fl. Svo verpa þau. En Hannes situr nú dag eftir dag..... -- þeim til sárrar gremju -.....í trénu fyrir framan fuglahúsið og bíður -- með hinni einstöku ró kattarins.

Egg.


Hannes bíður þess, að komast í færi við þau. Veiðar krefjast þolinmæði. Fránum augum fylgir rólegt dýrið hverri hreyfingu fuglanna. Í hverjum slökum vöðva býr ógnarkraftur. Í mjúkum loppum felast hvassar klær.

Loksins, loksins fara ungar að tísta í fuglahúsinu. Hannes fer að lengja eftir að þeir komi út. Hann fikrar sig upp eftir trénu. Greinarnar eru æ grennri og sveigjanlegri eftir því sem ofar dregur. Ungatístið og lyktin eru svo eggjandi, að nú halda honum engin bönd.


Ungar.

Foreldrarnir gera loftárás í sífellu, til þess að reyna að bjarga lífi unganna sinna. Óvætturin í kattarlíki, Hannes Grásteinn, lætur það ekki á sig fá.


Veiðistoltið leynir sér ekki, er hann hefir stolið einum unganum úr hreiðrinu og drepið hann. Hann ætlar að fara með hann heim og sýna okkur.

Hannes með unga.


Nokkrir krakkar koma auga á Hannes, þar sem hann gengur yfir grasflötina. Þau öskra: -Köttur búinn að drepa fugl! -Köttur búinn að drepa fugl! -Við skulum henda grjóti í hann fyrir að drepa litla fuglinn. Mig ber að er þau eru í óða önn að grýta Hannes, sem reynir að felast milli runna.

Hann er vondur.


Sem betur fer eru engir stórir steinar nærtækir. -Hann er vondur þessi köttur, segja þau. -Hann drap fugl. -Krakkar, segi ég, -kötturinn er rándýr. Eðli hans er að drepa sér til matar. Hafið þið ekki oft etið fugl sem búið er að drepa? T.d.kjúkling? Eða rjúpu á jólunum? Hafið þið ekki smakkað ýsu eða þorsk? Einhver maður er búinn að veiða fiskana og drepa þá? Etið þið lambasteik? Þið vitið að einhver slátrar lömbunum, og við mennirnir etum þau svo.


Þessi guli köttur, sem er nokkuð mikil veiðikló, heitir Hannes.

Eðli rándýra.

Hann er nýfluttur í hverfið. Ef þið sjáið einhverja ljóta krakka hrekkja hann, viljið þið þá hjálpa honum hingað heim? Þau lofa því. Þetta síðasta hefði ég ekki átt að segja!


Dagana næstu á eftir er Hannes vart kominn út, að ekki banki eitthvert barnið með Hannes í fanginu: -Hannes ætlaði að fara út á götu.

-Ég passa Hannes. Og þegar Hannes er inni er líka bankað:

-Má Hannes koma út?


Hannes er fljótur að fela sig, þegar hann heyrir til þeirra. Ég segi krökkunum að Hannes vilji vera inni núna. Þau megi klappa honum þegar hann fari út á eftir, en svo verði þau að leyfa honum að hlaupa.

Hannes er búinn að finna sér innileynistað: Hátt uppi á skáp er stór dýrmæt leirskál.


Gult skott.

Einhvern tíma sást stórt gult skott koma upp úr skálinni. Þá komst upp um nýja felustaðinn. *********


Hér endar þrettánda bók Hannesar sögu Grásteins 13. bók (af 20): Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara

1. bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 2. bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli 3. bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist 4. bók; Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 5. bók: Kettlingunum stolið 6. bók: Það eina, sem er kátara en kátur kettlingur, er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða 10. bók; Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf? 12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli 15. bók: Snjótittlingaveiðar


16. 17. 18. 19. 20.

bók: bók: bók: bók: bók:

Nýi kettlingurinn Vor í lofti Hannes fer í sveit Hvolparnir Dánartilkynning

Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon eða http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes - myndasögur og lestraræfingar: TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur, eftir Hjalta

TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir Glámur auli (eftir Bjarna Þór) TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin


TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK

og og og og og og og og og og og og og

martröðin landbúnaðurinn Lalli Marsbúi allraveðrapeysan páskaeggið fjölleikahúsið lyktarsjónvarpið græna ræktin jarðeplaupptökuvélin tilraunalímið lyftingageimveran mikla vinur fílsins náttúruvænu einnotapokarnir

Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon - fleiri myndasögur og lestraræfingar:

eftir Guðrúnu Kristínu

Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau


Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti - langar barna- og unglingasögur:

Halla Japl, jaml og fuður - smásögur, unglingasögur Guðrúnar, Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au-pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Drottinn blessi heimilið 1000 stjörnur / Bónda minn hálfan -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma?


Strætó í hringi Blisters and boiled ice, no, boiled eyes! - verðlaunaleikrit

-Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning

Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD)

Guðrún Kristín Magnúsdóttir, verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org


Hannesar saga Grásteins, 20 skemmtilegar bækur, yndisleg, sönn, viðburðarík saga


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook