Hannesar saga Grásteins 12. bók HANNES FLYTUR Í NÝTT HVERFI
4.útgáfa
Freyjukettir, Norræn menning freyjukettir@mmedia.is Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á
http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir
lesum myndir, lesum stuttan texta, lesum langa sögu
12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi
Hannes er nú tveggja vetra. Það fer ekki fram hjá honum að eitthvað stendur til. Allt er komið í pappakassa og ferðatöskur; rúmin eru í sprekum; krakkarnir ofsaspenntir; allir á þönum. Við erum að flytja úr kjallaranum í hálfbyggt hús í Fossvogi.
Hannes hefur góðar gætur á öllu. Hann ætlar að vera viss um að hann gleymist ekki.
Hannes nú tveggja ára. Loks kom að síðustu ferðinni. Þá fer Hannes með.
Það er ekki gaman í bíl Ferðin virðist ekki ætla enda að taka. Hannes vorkennir sér ein ósköp.
Hannes er í bíl. Það þykir honum ekki gaman.
Hannes er feginn frelsinu, þegar á nýja staðinn kemur.
Hér er margt að skoða. Ný framandi lykt.
Við höldum að við þurfum að gæta Hannesar. Hann geti farið of langt, og ekki ratað heim. En það er nú Hannes sem hefur gætur á okkur. Hann ætlar ekki að láta stinga sig af á þessum nýja ókunna stað. Hann eltir okkur hvert fótmál.
Flutt.
Hannesi þykir vissara að sofna nálægt einhverjum um kvöldið, og velur Magnús.
Þeir sofa báðir vært í nýja húsinu.
Magnús og Hannes sofa.
En eldsnemma morgunsins þarf Hannes að fara út. Hann mjálmar, --- því hér er enginn opinn kjallaragluggi eins og hann er vanur að hafa. Magnús steinsefur.
Hannes mjálmar aftur.
Enginn þykist heyra. Allir eru þreyttir eftir flutningana.
.
Hannes vill út Hannes er staðráðinn í að komast út, þótt enginn nenni að róta sér. Hannes tekur því til sinna ráða:
Hann stekkur upp í pabbarúm, undir sængina,...... .......og gerir árás með klóm og kjafti á loðinn fótlegg sofandi pabba.
Hann klórar.
Þetta ber tilætlaðan árangur: Ógurlegt öskur heyrist. Grútsyfjaði pabbinn sprettur framúr með sprikli, og svo ljótu orðbragði, að ekki er eftir hafandi. Þetta var semsagt snjallræði sem Hannes á eftir að notfæra sér aftur og aftur. Nú veit hann hvernig best er að vekja fólk sem þykist ekki heyra.
Út.
Þetta er rosalega spennandi hverfi. Hér virðast vera margir kettir á róli. Í næsta húsi býr Fía. Í götunni fyrir neðan býr önnur læða: Marí. Það, að hér búa tvær læður, er einmitt skýringin á öllum þessum köttum. Hér eru stórir kettir, litlir kettir, svartir kettir, hvítir, bláir, bröndóttir. Þeir eru allir hingað komnir til að setja lyktina sína á dyrakarmana hjá Fíu og hjá Marí.
Spennó.
-Hannes minn, Hannes minn! Þú ert ekki svona áflogaköttur! Láttu breimafressana um áflogin.
En Hannes hefur ekki hugsað sér að hafa aðra ketti inni á sínu yfirráðasvæði -- og hann telur garðinn hennar Fíu með í því. Hinir kettirnir halda að þessi stóri guli sé líka skotinn í Fíu, og gæti orðið hlutskarpastur um hylli hennar, svona stór, sterkur og glæsilegur. Urrið og hvæsið berst út í morgunkyrrðina.
Urrað og hvæst.
Hannes hefur í rauninni mikinn áhuga á Fíu: Hún á nefnilega nýsoðinn fisk. Matarást? Hannes gengur þarna út og inn, rétt eins og fiskurinn hennar Fíu sé soðinn sérstaklega handa honum.
Fía á fisk.
Fía er ekki sérlega hrifin af þessum heimsóknum. Hannes hefur ekki sett lyktina sína, tákn karldýrsins, á dyrakarminn hennar, eins og hinir högnarnir. Hvers vegna ekki? (Sjá bók 9, og bók 7.)
Reiðin sýður í Fíu. Hárin rísa, hún hvæsir. Ætlar hann aldrei að hætta að éta?
Fía er reið.
Það eru aldeilis býsn sem svona búkur getur hesthúsað. Þegar allt er upp urið, ekki ögn eftir, sleikir Hannes út um og teygir sig. Hann hefur ekki neinn áhuga á Fíu. Er nokkur furða þótt Fía sé ekki fyrir sig hrifin?
En nokkrum vikum síðar -- þegar Hannes kemur rétt einu sinni óboðinn í heimsókn til Fíu .........
.
Hannes fer til Fíu
........ hefur heldur en ekki fjölgað í því húsi: Fía er búin að gjóta. Nú á hún fjóra kettlinga. Hún hvæsir á Hannes. (Það er nú svosem ekkert nýtt.)
Þessir litlu kjánar veltast um gólfið. Þetta líst Hannesi ekki á. Þetta er hálfblint, illa lyktandi, tístandi. Ljóti ófögnuðurinn. Fía hvæsandi að venju. Hannes hættir alveg við að stela fiskinum hennar Fíu, og forðar sér sem bráðast.
Fjórir kettlingar.
Hannes sest upp á smíðapallinn utan á nýja húsinu. (Þaðan er stutt inn um næsta glugga, ef honum skyldi verða kalt á klónum.)
.
Stór, gulur
Hannes er glæsilegur í vetrarsólinni. Snögglega stöðvast bíll úti á götu.
Fólkið í bílnum bendir á Hannes og ræðir saman. Það stígur út úr bílnum og gengur að húsinu. Ég fer út í dyr. -Hvaða dýr er þetta? spyr konan. -Köttur, svara ég. -Ha? segja aðkomumenn. -Svona stór og svona gulur ! Okkur sýndist þetta vera fjallaljón. Megum við taka mynd af honum?
Ljón ? **************
Hannesar saga Grásteins er sönn saga. Hér lýkur 12. bók:
Hannes flytur í nýtt hverfi
1. bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 2. bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli 3. bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist
4. bók; Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 5. bók: Kettlingunum stolið 6. bók: Það eina, sem er kátara en kátur kettlingur, er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða 10. bók; Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf? 12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli 15. bók: Snjótittlingaveiðar 16. bók: Nýi kettlingurinn 17. bók: Vor í lofti 18. bók: Hannes fer í sveit 19. bók: Hvolparnir 20. bók: Dánartilkynning Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon eða http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes
- myndasögur og lestraræfingar: TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur, eftir Hjalta TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir Glámur auli eftir Bjarna Þór TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið TAK og græna ræktin
TAK TAK TAK TAK TAK
og og og og og
jarðeplaupptökuvélin tilraunalímið lyftingageimveran mikla vinur fílsins náttúruvænu einnotapokarnir
Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon - fleiri myndasögur og lestraræfingar: eftir Guðrúnu Kristínu Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða
Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti - langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður
- smásögur, unglingasögur Guðrúnar, þeirra á meðal
verðlaunasögur
Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au-pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Drottinn blessi heimilið 1000 stjörnur / Bónda minn hálfan -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? Strætó í hringi Blisters and boiled ice, no, boiled eyes!
- verðlaunaleikrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD)
Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com
Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org
Hannesar saga Grásteins, 20 skemmtilegar bækur, yndisleg, sönn, viðburðarík saga