Hannesar saga Grásteins 11. bók HEFUR KÖTTURINN NÍU LÍF?
við lesum myndir, við lesum stuttan texta, og við lesum langa sögu
4.útgáfa
Freyjukettir, Norræn menning freyjukettir@mmedia.is Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á
http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir
11. bók Hefur kötturinn 9 líf ?
Nú getið þið ímyndað ykkur hve kát við erum, því Hannes Grásteinn er orðinn ársgamall og hefur komist klakklaust úr hverri hættunni af annarri. Hann er kominn yfir mesta kettlingafjörið, orðinn varkár og ráðsettur fyrirmyndar heimilisköttur, heimakær og blíður. Auðvitað erum við svo vitlaus að halda að hann lendi ekki í fleiri lífshættulegum ævintýrum.
Hannes eins árs.
Þegar komið er með fiskpakkann heim úr fiskbúðinni, er lyktin ofsalega spennandi. --- Raunar ómótstæðileg.
Það er enginn hætta á að Hannes taki ekki eftir að verið var að kaupa fisk. Kettir eru óskaplega lyktnæmir. Það er nú auðvelt að eiga við smápappírsumbúðir, þegar búið er að draga fiskinn úr sjó og bera hann alla leið heim á eldhússborð.
Skamm! En Hannes fær ekkert nema skammir fyrir dugnaðinn.
Sjálfsbjargarviðleitni er annað en eignarréttur. En auðvitað fær Hannes hráan sporð, þegar verið er að verka fiskinn. Hann þarf aðeins að læra að köttur á ekki að ná sér í bestu bitana sjálfur, heldur bíða.
Hrár sporður.
Við höfum ekki áhyggjur af Hannesi þótt hann sé oft úti. En morgun nokkurn verður mér litið út um gluggann. Greinilega hefur orðið slys. Tveir bílar standa kyrrir á Snorrabrautinni. Margt fólk hefur drifið að. Lögreglan er komin á staðinn, en enginn sjúkrabíll.
Ó! - Slys!
Þá er hringt til okkar út næsta húsi: -Við sáum að guli kötturinn ykkar varð fyrir bíl hérna úti. Okkur sýndist hann stökkva fyrir einn bíl og hendast svo, greyið litla, á annan bíl. Lögreglan er þarna. Kattargreyið hlýtur að hafa farið mjög illa.
Ég stekk berfætt út á götu. Gef mér ekki tíma til að fara í skó. Sem mér tekst að troðast í gegnum mannþröngina, er lögregluþjónninn að bera Hannes veinandi inn í lögreglubílinn.
Einhverjir strákar segja: -Vá! Ég sá þetta, maður! Það keyrðu tveir á hann. Sástu? -Já! Hann hentist alveg upp í loftið! Ég hleyp til löggunnar.
-Nei! Ekki!
-Ég skal taka köttinn, segi ég. -Krakkarnir mínir eiga hann. Átakanlegt mjálmið í Hannesi syngur í eyrum allra nærstaddra. -Eigum við ekki bara að sjá um þetta fyrir þig? spyr lögregluþjónninn. -Við gerum það strax og við
komum niður á stöð með hann. Það verður minnst kvalafullt fyrir kattargreyið.
Ég tek Hannes. -Nei, þakka þér fyrir, svara ég. -Ég vil ekki láta skjóta hann strax. Ég vil sjá til hvort hann jafnar sig ekki. Ef hann kvelst mikið, svæfum við hann sjálf. Við höfum þurft að gera þess háttar fyrr. Hannes virðist ekki vera beinbrotinn.
Hvergi blæðir. Honum líður hræðilega illa. Mjálmið líkist angistarveini. Hann er stífur og hreyfingarlaus, en þó er eins og mér finnist hann muni stökkva úr höndum mér þá og þegar. Löggan hefur nóg að gera við að leysa umferðarhnútinn sem Hannes olli.
-Ó, Hannes minn.
Ég kvíði fyrir að segja litlu eigendunum að enn eitt dýrið þeirra sé nú sennilega að deyja. Margir klukkutímar líða. Hannes liggur sem í leiðslu, alveg stífur og mjálmar í sífellu. Augun eru hálflukt, og hann starir á ekki neitt. Við búum um hann á hlýjum stað á mjúkum ábreiðum. Þegar líður á kvöldið sofnar hann. Við höldum að nú sé hann að deyja. Hann andar þó reglulega. Hvað mun næsti dagur bera í skauti sér?
-Ekki deyja!
Morguninn eftir trúum við varla okkar eigin augum: Hannes Grásteinn, -- sem í gær hljóp út á götuna, beint fyrir bílana--, kemur nú gangandi á móti okkur eins og ekkert hafi í skorist, --- stálsleginn eftir næturlangan svefninn.
Hannes heill.
Við förum með Hannes til „dýra“ (þ.e. til dýralæknisins): -Það er allt í lagi með þennan myndarkött.
Hann hefur fengið taugaáfall og örlítinn heilahristing. Þið skulið ekki klappa honum á kollinn á næstunni.
-Fínn köttur. ******************
Hér lýkur elleftu bók Hannesar sögu Grásteins;
11. bók af 20:
Hefur kötturinn níu líf?
1. bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 2. bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli 3. bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist 4. bók; Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 5. bók: Kettlingunum stolið 6. bók: Það eina, sem er kátara en kátur kettlingur, er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum
9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða 10. bók; Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf? 12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli 15. bók: Snjótittlingaveiðar 16. bók: Nýi kettlingurinn 17. bók: Vor í lofti 18. bók: Hannes fer í sveit 19. bók: Hvolparnir 20. bók: Dánartilkynning
Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon eða http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes
- myndasögur og lestraræfingar: TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur, eftir Hjalta TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir Glámur auli eftir Bjarna Þór TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa
TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið
TAK og græna ræktin TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og tilraunalímið TAK og lyftingageimveran mikla TAK og vinur fílsins TAK og náttúruvænu einnotapokarnir Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon - fleiri myndasögur og lestraræfingar: eftir Guðrúnu Kristínu Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar
Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti
- langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður - smásögur, unglingasögur Guðrúnar, Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu!
Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au-pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Drottinn blessi heimilið 1000 stjörnur / Bónda minn hálfan -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? Strætó í hringi Blisters and boiled ice, no, boiled eyes!
- verðlaunaleikrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD)
Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com
Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org
Hannesar saga Grásteins, 20 skemmtilegar bækur, yndisleg, sönn, viðburðarík saga