Skip to main content

1000 stjörnur og fleira ljúft

Page 1

Guðrún Kristín Magnúsdóttir

1000 stjörnur og fleira ljúft


1000 stjörnur og fleira ljúft -- (+

smá leitt)

ISBN 978-9979-895-64-0 efnisyfirlit: : Lágnættið lyftir upp bjartri vornóttinni Guð kyssir hann á nefbroddinn Áhyggjurnar þrífast ekki nema.... Í meinum Bláklædda álfkonan Koli (ekki ljúft) Drullumall - sjálfsögð kurteisi Aldan skolar glitrandi geislum að landi Hrímþokan byrgir mér sýn Máninn lætur sér hvergi bregða Á dúnmjúkum kodda úr gullskýi Korktappi í stórsjó Svörðurinn klæðist gulum laufum Vindurinn gnauðaði við gluggann minn Verðmæti gaukað að mér Grámi regnskýjanna Afmælisviðtal; pínupils Aumingja kellingin Örðugleikar bráðna einsog snjóskaflar Þúsund pínulítil kóngulóarbörn (ekki ljúft) Strákarnir í útivinnunni 1. apríl trítlaði vorið Kýrþula Kátínan Bónda minn hálfan, árans bjálfann sumt úr ljóðabókinni

Hljóðahver, ljóðakver, 39 tilfinningar (ISBN 9979 895 89 6) og annað úr ýmsum sögum og kvæðasafni. freyjukettir@mmedia.is 5528080 6941264


Guðrún Kristín Magnúsdóttir Freyjukettir, Norræn menning 3.útgáfa 2016 ISBN 978-9979-895-64-0


1000 stjörnur,

eftir Bjarna Þór Einarsson og ömmu Barnið sem átti að fara að sofa, horfði útum gluggann og sagði: -Amma sjáðu stjörnurnar! Amma leit útum gluggann, útí haustnóttina, sá regnið og skýin sem voru bleik yfir borginni. Það var svo lágskýjað. -Ég sé engar stjörnur, vinur Það er rigning og alskýjað. Farðu nú að sofa, elsku barn. -Jú, amma. Þarna í trénu. Lauflausar svartar greinar trjánna voru votar, og í þeim öllum hengu regndropar. Þeir glitruðu einsog kristall,


því birtan frá ljósastaurunum á bak við þá gerði úr þeim þúsund stjörnur handa barninu sem var að fara að sofa. Barnið horfði á dropana falla, einn og einn -- eins og silfurtár í kyrrðinni, tár, sem urðu svo stór, að þau urðu að detta tindrandi ofan í frerasvörð. -Amma. Tréð grætur stjörnum. Barnið brosti. Barnið horfði á stjörnurnar sínar þar til svefninn sigraði augnalokin - og regndropar héldu áfram að vera regndropar. **


Lágnættið lyftir upp bjartri vornóttinni. Göngum laust á grasinu, því blómin heyra svo vel á óttunni. Ég verða að hvísla þér ljóðið svo ég veki þau ekki, vinur. Þau eiga nóttina eins og barnið á móðurina. 26.5.1965, nóttin sem sonur minn Helgi fæddist

** (stóri bróðir býr til bæn 1965 handa litla bróður sofandi):

Litli bróðir, englar vaki hjá, guð kyssir hann á nefbroddinn. **


Áhyggjurnar þrífast ekki nema þú hugsir vel um þær, ræktir þær af kostgæfni, vökvir þær, talir við þær. Annars kemur kyrkingur í áhyggjurnar. Þær veslast upp og deyja. Og þyrnarnir á þeim verða ekki að almennilegum broddum nema þú hugsir vel um þær, kvölds og morgna, finnir nærveru þeirra á daginn, vaknir upp á nóttunni og gefir þeim brjóst (úr leikritinu: „Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti“, verðlaunaleikriti eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur; einnig í „Óðsmálum“ (1996; ISBN 9979 60 165 5))


Í meinum Fingur mínir ortu ljóð við hörund hans, ljóð sem aðeins tilfinning hans mátti nema. Þau voru óður til fegurðar hans. Orð voru of gróf til að tjá, eyru of mannleg til að nema ósagðar hugsanir spilaðar af fingrum fram. Fingur mínir yrkja ljóð við hörund hans, lokuð augu mín gæla við bros hans, en aðeins í huganum. -- Sumir gera allt í felum. -Á hverjum nýjum degi leikur hugur minn við vanga hans og strýkur gegnum hár hans. -- Gott á húsfreyjan á Melum. -Orð eru of gróf til að tjá, jafnvel hugsun of höndlanleg. Svo tær, svo næm, svo sár, svo fíngeð er þrá sem hoppar af kæti. Í eldinum brenni ég brúðarskóna. -Sumir gera allt í felum.-**


Ekkert var eðlilegra..... Þegar ég var 2ja ára sá ég huldukonu eða álfkonu. Við vorum á fjölskylduferðalagi á Kvoslæk í fögru sumarveðri. Brakandi heyþurrki. Fólkið var að rabba við bóndann. Allt í einu spurði ég: -Af hverju er konan í bláa kjólinum að sópa grasið? Fólkið leit í áttina að klettinum sem ég benti á, en sá aðeins klettinn og grasbalann fyrir framan hann. Bóndinn útskýrði fyrir mér að hún ætti heima í klettinum og væri að rifja heyið sitt: -Þessi bali er aldrei sleginn því hún á hann. Fólkinu fannst gaman að ég skyldi sjá konuna í bláa kjólnum, og engum þótti neitt athugavert við útskýringar bóndans. Ekkert var sjálfsagðara en að konan í bláa kjólnum væri að heyja við klettinn sinn, og ekkert eðlilegra en að barnið sæi hana.


KOLI

Þangið bærist þegar fellur að með öldunni sem rís og hnígur, rís og hnígur. Er það ný og ný alda eða er það alltaf sama aldan? Ég spyr hafið, en það ansar aðeins með bláma sínum. Steinarnir undir þanginu stækka og minnka er aldan fellur að og frá eins og brjóst á konu í baði, konu sem andar ekki með maganum því hún er orðin gjafvaxta fyrir löngu. Þangið sem vex á höfði hennar fellur vott í baðvatnið og blandast sjampúinu er aldan fellur að og kaldir votir steinarnir minna á brjóst konu í baði. Fjórir litlir strákpollar hlaupa niður á hálan bryggjusporð með niðurbrytjaðan síldarlíkama og þrjár fíberglasveiðistengur. Nokkur ung kolalok eru í eltingaleik kringum bryggjustólpa í sjónum.


Strákarnir kætast er kolinn bítur á, en ég heyri neyðaróp hans er hann neytir allra sinna krafta til að finna aftur frelsið sem guð gaf greyinu í vöggugjöf. Vagga hans votir kaldir steinar. -Þið buðum mér, æpir hann, -gómsætan bita. Þorparar, svikarar. Sumir deyja á öngli, sumir á krossi. Sumir svíkja. Strákarnir kætast enn meir er þunnur fiskur hangir í lausu lofti með beittan krók gegnum munn sinn, of lítinn til að tala -- og of matarlítill sjálfur til að sjóðast í köttinn sem malar sig í svefn til fóta í hjónarúminu. Augu kolans gráta: -Hví svikuð þið mig? Þið buðuð mér gómsætan bita, en í honum ......... Blaðaljósmyndari á gangi við höfnina raðar upp montnum smástrákunum með einn magran kola sem engist í dauðateygjum kvalafulls köfnunardauða, og með þrjár fíberglassveiðistengur og niðurbrytjaðan síldarlíkama. Mamma verður kát að sjá mynd af Palla sínum og Sigga sínum í blaðinu á morgun. Hún mamma sagði honum að vera góður við dýrin og hún sagði honum líka að fiskur væri góður. Formaður dýraverndunarfélagsins skoðar blaðið á morgun og sér æskuna að leik. Og kolinn sem er of matarlítill fyrir köttinn (-- þar að að auki veiddur í höfninni og fær því ekki að komast í neinn


sómakæran pott --) fer í öskutunnuna með blaðinu í gær. Svangur svartbakur, sem hefur enga greind til að plata kola á öngul, svífur yfir þanginu. Öldurnar, eða er það alltaf sama aldan, gera þangivaxna steinana stóra og litla, stóra og litla, en hafið brosir með bláma sínum og færir steinana í kaf. Hrúðurkarlarnir eru eins og margar margar geirvörtur og sjampúið freyðir yfir brjóstin. Mér er orðið kalt á nefinu. Ég sýg upp í nefið og geng framhjá klóakinu upp í bæinn þar sem húsin stara hvert á annað, en ekki lengur á bláma hafsins.

**


Drullumall, skapandi leikur

Sjálfsögð kurteisi Þegar ég var lítil kunnu börn að leika sér án þess að fyrir þau væri allt skipulagt, leiktæki og íþróttir alls staðar eins og nú. Við vorum ekki mötuð, og lærðum að skapa leiki sjálf úti í náttúrunni. Lækur og mold voru okkar tækifæri til endalausrar frjórrar starfsemi. Ég átti bú í sveitinni og drullumallaði mikið handa stráknum á bænum, jafnaldra mínum, því hann var bóndinn og eltist við rollur um brekkuna fyrir ofan búið. Ég átti sossum líka reiðskjóta,


frúargæðing, sem var lærleggur úr stórgrip með löngu bandi fyrir beizli. Þegar ég fann hrúgu af lambaspörðum gat ég notað þau fyrir rúsínur. Drullukökurnar, skreyttar brennisóleyjablöðum og snarrótarpunti, þornuðu í sólinni, á dósalokum og flötum steinum. Þegar „bóndinn“ svo kom heim í búið, þreyttur og svangur eftir smalamennsku, bar ég á borð nýbakaðar kökurnar. Hann var mjög kurteis og át þær í alvöru!!! Ég starði á hann orðlaus: -Borðarðu þær í alvöru!!??? Hann saup á kaffinu úr skörðóttum hankalausum bollanum, kaffinu sem var dökk mómold hrærð út í vatni úr læknum. Maður á að kunna að meta það sem gert er fyrir mann, ekki satt?

ca1946


Aldan skolar glitrandi geislum að landi. Fölur vetrardagur er aðeins morgunn og kvöld á fjallatoppum í suðri. Regnblaut þök húsanna eru úr silfri í vetrarsólskininu. -Dansa ekki álfarnir á nýjársnótt, mamma? Yfir hugarvelli þeysa bláir villtir hestar, jóreykur þyrlast yfir fölgrænan vetrarhimin, og svartbakurinn hlær eins og maður. -Það dansa ekki álfar í blokkum, litli vinur. Bláir klettar hlæja. Kvöldið hellir myrkri yfir hafið. Vindurinn er þreyttur og hvílist. Syfjað hafsaugað er að lokast. Eirð hinna ófæddu ríkir, þar til vindurinn hefur endurnærst af svefninum. Húmið er eins og smyrsl á huga minn. Dögg blómanna höfugt tár. Svalur haustvindur segir mér sögur af dánum sumarblómum. júlí 1968


** órímuð þula júlí 1968

Hrímþokan byrgir mér sýn. Ég sé ekki fjöllin og fer vill vega. Hrímþokan er eins og draumsjór og ég sé í henni kynjamyndir er ég geng og geng. -- Þarna er hrímfoli bleikur „Ó berðu mig áfram svo ég sjái meira og meira!” -- Þarna leikur huldudrengur sér að kristalskornum; þegar þau hrynja úr greipum hans eru þau eins og hverful von sem fýkur með blænum yfir blómin. Ég sé skip hlaðið óskum sem rætast og þúsund augu sem bíða; ég sé bláa kletta sem hlæja að vindinum, og fræregn sem þyrlast yfir kalda steina. Nú rofar til og ljósið seitlar niður einsog titrandi hörpustrengir; Ég sé djúpa gjána fyrir fótum mér og held mér í mjúka lokka ljóssins er ég fell -- niður, niður í ljúfu lokkandi táli. **


Vetur 1968-‘69 Máninn lætur sér hvergi bregða þótt fölgrænn morgunn fæðist handan fjalla. Vetrardjásn jarðar tindrar rétt einsog stjörnuhiminn endurspeglist. Lífið bíður - eins og fóstur und tindrandi vetrardjásni í móður jörð. ** Svartur malbikaður gangstígurinn er hrímaður, ég treð hann í austurátt mót morgunhimninum, hann breytist í þúsundstjörnuhimin, því geislar sólarinnar skella á hríminu svo það tindrar og merlar, þiðnar í dropa sem endurkasta geislunum í hvítu og þúsund litum í augu mér en sólin er eiginlega of löt til að rísa þar sem hún hvílir einsog syfjað skólabarn sem nennir ekki að róta sér á dúnmjúkum kodda úr gullskýi. Æ, hve vel ég skil hana að nenna ekki að vekja daginn þegar hún getur haft það svona gott. **


Ég er húsfreyjan á Staðleysuströnd í Krummavíkurhreppi. Raunar hreppstjóri þar í frístundum. Hér er útræði gott. Ég geri út á hugsanir. Einsemdin góð í beitu. Þögnin og kyrrðin eru góðir bátar. Mikill afli í Staðleysustrandardjúpi þegar illa viðrar. Það er gott að vera korktappi í stórsjó. Þótt æsist veður, magnist undiralda, eigi sekkur korktappi. Gott að vera korktappi. Gaman í stórsjó.

**** Svörðurinn klæðist gulum laufum sem rigndi yfir mig í skóginum. Svartar greinar trjánna eru naktar. Ræturnar geyma lífið til vors en þá gægjast sprotar útí lífið á ný til að minna okkur á að ekkert getur dáið því ekkert fæddist í raun annað en hugsun okkar.


** Sumardraumur 1968 Vindurinn gnauðaði við gluggann minn allan veturinn. Höndin var loppin er ég bræddi frostrós og sá úti snæljós. En inni átti ég góða glóð sem sýndist svo stór í myrkrinu. Það var sumardraumurinn minn. Eigum við ekki í sumar, vinur minn, að gang’uppá hamarinn? Þá verða, sem forðum, mosaþúfur mjúkar og háir hnúkar aleigan okkar; og ljúfa sælu finnum við saman. Þú verður aftur glaður. Vindurinn gnauðaði við gluggann minn allan veturinn. Glóðin mín var svo hlý og björt á vetrarnóttum, á dimmum vetrarnóttum. Í sumar skal hún verða að stóru báli sem við eigum ein er við hlaupum á þúfunum! Sumarósk, ég bið að þú rætist. Sá sem þráir grætist. Snjóa leysir brátt og sér í fölan völlinn. Þá hlaupum við upp í fjöllin.


Og sólin hækkaði, grá tún horfð’uppí ljósið. En glóðin mín varð í birtunni hvítgrá aska. Bíddu, vinur minn, farð’ekki á undan mér, ég vil með þér. Við sem hlupum um hæðir svo létt á frjálsum sprett, þú mátt ekki ganga einn og angraður um blómlautir bláar. Við eigum þær bæði saman. Allt er nú grænt, sól skín í heiði. Hví sækir mig leiði? Hví er dögg á ungra blóma barmi mér sem tár á hvarmi? Því sumardraumurinn var orðinn aska, rödd þín höst og fjallaþeyrinn fjarri. Á ég að þora að skara í öskunni minni? Bara einu sinni? Ef til vill gæti ég vakað við óskina mína enn um sinn því húmið er eins og smyrsl á huga minn. Vindurinn segir mér sögur af dánum sumarblómum. **


Þungbúið dimmblátt kvöld um haust. Aleinn svartbakur talar á mannamáli. Aldan er frjáls og hvíslar leyndarmáli að þanginu sem vex fast á grjóti. Hún segir það sama aftur og aftur, ár eftir ár, öld eftir öld, þar sem aleinn svartbakur talar á mannamáli. ** Fljúgðu, Hófvarpnir, fljúgðu, renn loft og lög. Ef þeir ná þér gera þeir úr þér hrossabjúgu. ** Verðmæti gaukað að mér. Kandísmolar í krumpuðum pappír undir kodda gamallar konu. Það skrjáfar í bréfi. Ég bíð. Hún rær í gráðið meðan sætur molinn rennur í munni mér, litlum dreng sem var sendur í sveit. Við sögðum aldrei neitt en ég settist oft hjá henni á rúmið. Og tveim áratugum síðar kem ég á þennan bæ. Ég veit ekki einu sinni hvort fólkið þekkir mig lengur eða hvort við eigum nokkuð vantalað.


En ég kem samt. Hún situr enn á rúminu sínu gamla konan. Hún hefur minnkarð, ég hef stækkað. -O, blessaður drengurinn. Ég sezt hjá henni á rúmið en ég segi ekki neitt. Hörð kleina í krumpuðum pappír undir kodda. Það skrjáfar í bréfi. Stungið í lófa mér. Verðmæti sem hún átti. -O, blessaður drengurinn. (úr Óðsmálum 1996 (ISBN 9979 60 165 5))

** Grámi regnskýjanna verður hlý hula yfir þreyttan huga lát sál þína breiða oná sig um stund því nú er óveðurskvöld regnið kælir steikjandi reiði mina svo hún segir : psssst - og gufar upp regnið kyrrir huga hins langþreytta manns svo jafnvel grámi regnskýja er hlýja handa hrjáðum mönnum ef þeir bara vilja þiggja hana lát huga þinn hlaupa mót rokinu þá fýkur angistin burt lát huga þinn lensa undan rokinu og treystu treystu


** Afmælisviðtal -- pínupils -Og hvað var það nú, Guðmundur, þegar þú lítur yfir farinn veg í heila öld, lítur um öxl yfir langa ævi, sem þér finnst, svona þegar þú horfir til baka, sem þú manst, svona eitthvað sérstakt, sem þú hafðir hvað mest gaman af að sjá á langri ævi, svona eitthvað sem þér dettur í hug nú? -Tja, svarar hið hruma afmælisbarn blaðakonu, -tja, þegar loks var hætt að spara og allir höfðu nóg, þá var knepað við efni í pilsin. En þegar ekkert var til að borða og enginn átti neitt voru fætur stúlknanna huldir í vaðmáli á vaðmál ofan svo aðeins sá í grannan ökla í dökkum sokk. En þegar allsnægtirnar loks hvolfdust yfir var gaman að sjá ungar keikar stúlkur


skálma frammúr manni, stafkarlinum á rölti, í skærrauðum þunnum sokkum og í Mínupilsum í öllum regnsbogans litum. (úr Óðsmálum 1996 (ISBN 9979 60 165 5))

** 1000 pínulítil kóngulóarbörn Ég var alltaf í sveit á sumrin. Þegar ég var 7 ára fann ég blágresisbrekku hjá stórum steinum, undir litlum kletti. Þar var að finna marga marga fjögurrablaðasmára. Ég var eins og lítill engill í litlu himnaríki og átti ótal fallegar óskir. Einn morguninn sá ég að stór og bústin kónguló hafði búið til stóran glitrandi vef milli stóru steinanna, og hún átti 1000 pínulítil kóngulóarbörn sem léku sér í vefnum hennar. Mamman var í miðjum vefnum, stolt og full ábyrgðartilfinningar. Hve náttúran er fögur! Ég var hugfangin og tíminn stóð kyrr. Í hrifningum minni hljóp ég og sagði stráknum á bænum, jafnaldra mínum, frá þessum dýrmæta fundi og sjaldséða undri, og fór með hann á staðinn þar sem gaf að líta 1000 lítil kóngulóarbörn að leika sér í glitrandi vef mömmu sinnar.


Strákurinn tætti niður allan vefinn og traðkaði á köngulóarbörnunum og mömmunni. Ég æpti: Nei!!! Ekki!!! Ekki!!! Ég þreif í strákinn og reyndi að bjarga kóngulóarbörnunum. Það eru 60 ár síðan og ég er enn sár, reið og sakbitin. Hví sýndi ég honum!?? Ég veit að grey svínin kunna ekki að meta perlur því þau eru bara dýr, en hví eru sumir sem fæðast menn blindar skepnur? *** Sumar. Strákarnir í útivinnunni eru svo fallegir í sólinni brúnir, óhreinir, berir að ofan. Strákurinn á valtaranum er ber að ofan með ljósan lubba ekki loðinn á bringunni og er að hugsa um það sem hann er að gera. En þegar rigningin kemur og rokið fara þeir í appelsínugula vatnsgalla og verða bara kallirnir í bæjarvinnunni. September. Skyldi strákurinn á valtaranum vera farinn í skóla? (úr Óðsmálum 1996 (ISBN 9979 60 165 5))


***

feb 1990 Þessir örðugleikar eru einsog snjóskaflar á útmánuðum, þeir tálma. Fætur manns vaða. Orka til spillis. Örðugleikar gera manni erfitt um gang. Manni miðar skammt. Ég veit ekki hvort undir er gil eða gjá full af harðfenni, eða aðeins áfreri undir skafrenningi, enda gæti maður í einhverju sporinu sokkið upp í klof. Jafnvel í gegnum hem. En þegar vorið kemur bráðna allir þessi erfiðleikar. Þá man ég ekki einu sinni hvar snjórinn lá í vetur. Við gengum að vísu hægar í sköflunum, en þeir urðu okkur ekki hættulegir. Við vissum allan tímann að í vor yrðu þeir gleymdir. Við munum aðeins að birtan ef fögur í ljósaskiptum hrímaðs morguns. Við skulum ekki eyða of mikilli orku í snjóstorminn, vinur minn. Hann er ekki raunverulegur. Aðeins ímyndaður. Við fundum æðruleysið, sem er þarna inni frá náttúrunnar hendi, en við vorum búin að gleyma í öllum hávaðanum. Sorgarklúbbar, einstæðingaklúbbar, geðlæknaviðtöl, skemmtanir og meiri og meiri vinna til að drekkja í áhyggjunum, veldur því að við dekrum við áhyggjurnar og örðugleikana og týnum æðruleysinu sem bræðir skaflana í vor. Náttúran sjálf að verki.


Ort til motorhjóls sem snjóað hefur á í nótt:

Fyrsta apríl trítlaði vorið inn um opinn suðurglugga. En það var fyrsti apríl. (úr Óðsmálum 1996 (ISBN 9979 60 165 5))

** (úr Óðsmálum 1996 (ISBN 9979 60 165 5)):

Aumingja kellingin fór með blómið sitt til blómalæknisins. Hann leit á blöðin sem voru að gulna. Hann klippti allt þetta gula af. Aumingja kellingin sá að allt þetta gula var horfið. Hún borgaði blómalækninum. Og kötturinn hennar dinglaði skottinu og hún hélt að hann væri í vondu skapi. Hún fór með hann til skottalæknisins því hann er með fínt próf úr háskólanum. Hann skoðaði skottið og sá að það dinglaði. Hann klippti það af og kötturinn dinglaði ekki skottinu. Og kellingarauminginn borgaði lækninum.


Ekki eru aðeins horfnir góðhestar einnar stöku verðir, heldur fékk hún Skjalda gamla, sem nú er öll, heila þulu þar sem tregaðar eru gömlu handmjaltirnar, þegar mjaltakonur fóru margar í fjósið og sungu við mjaltirnar:

Kýrþula Langelst á landinu skal vera hún Skjalda allra kúa sem í fjósi búa. Svo gömul er greyið skal ég þér segja að enginn lengur man hennar burð. Kát var hún kálfur kvik sem kvíga en bágræk er blessuð beljan núna, fætur vilja fúna. Oft bar hún blessuð skepnan hún Skjalda mjólkaði aldrei mikið en dugði þó dropinn hollur sopinn.


Þakka þér þjórsdóttir þótt þú sparkir hlýjan kvið við vanga minn er ég tutlaði spenann þinn. Mig dreymir enn um mjaltaskemil á skítugum bási mjólkurbunur í fötubotni froðu og spenvolga mjólk; alvöru fjósalykt jórturhljóðið másið og moðið kisu að lepja lögg úr beyglaðri dollu og kýraugun falleg. Kýraugun eru svo falleg.


Kátínan Þegar ég var barn var allta svo bjart, og kátínana sagði við mig: -og fallegt á litinn! Snjórinn haustlaufið sjórinn og þök húsanna! Og ég hlakkaði til alls Svo komu dagar, komu svo dimmir dagar. Ég sá ekki fyrir drunga þeirra. Ég breyttist í blint myrkur. Brita sólarinnar var myrk einsog þrúgandi nótt -- nótt sem ekki veitir þreyttum ró. Dimmir tilgangslausir dagar. Þar til allt í einu núna að haustlaufið er úr gulli og kopar, í kátínu opna ég augu mín á ný mót sólu. Blaut þök húsanna eru úr silfri, mennirnir eru góðir, nýfallinn snjórinn í fjallshlíðinni er bjartari en nokkur hugsun, léttari en blái himinninn, svo hann gæti vel svifið aftur upp til skýja þótt hann hafi sest á fjallið í nótt. Og sjórinn er aftur orðinn að milljón milljón perlum. Yndislegt er lífið, þegar hugurinn er tær.


Bónda minn hálfan, árans bjálfann!! þula þjóðleg og skemmtileg

„Veistu eigi”, mælir sú þrýstna,

„að eg á sök á

að á gengust eiðar?”

Söguljóð þetta,

Bónda minn hálfan, árans bjálfann!, er byggt á sannindum frá grúskara á hjeraðsskjalasafni við sunnlenzka jökulá; höfundur kvæðis og stemmu er Guðrún Kristín Magnúsdóttir


Góður kvæðamaður gæti lengt áherzlutóna stemmunnar; t.d. (--sjá fyrstu vísuna--) 1.vo (vísuorð)): búið höf-ðu bú-úi sí-ín....... og 5.vo: leng‘i blí-ðu.... smeygt inn þögn á undan 7.vo.: -- (smáþögn, svo) ...langa ævi og lengt ómstríða endanótuna mjök; 8.vo.: við vinnu og vá-á-á-á-n


Bónda minn hálfan Búið höf-ðu búi sín bóndi og hans dyggva kván, leng‘í blíð-u og í stríðu ---- langa æfi við vinnu og ván----. Búið stendur bökkum á ár, breiða fljótsins Ísa-ár. Ógurlig sú´r á að líta -- þeg‘r hún jökum ryður grá. Börn og buru bæði saman gátu hjónakornin gör; vaxin váru úr grasi öll saman; -- voru hjú þar þó mörg og snör. Ógurlig er áin ísa er hún ryður jökum stór´m,


flaumur frýsar, stynur þungan, -- ferlegt fljót í jötunmóð. Bóndi, ei ungur, og hans kona bæði enn í sínum rann´ saman búa svo sem von er -- um kvenskörung og hennar mann. Beljar fljótið barmafullt af jökum ljótum, ísilagt, hættuligt er grænkólgandi, -- hamförum fer, viðsjálvert. Bóndinn samt á ísinn leggur, fótfrár er ´ann sem gemlingur, því fagurt fljóð er handan faumsins: -- Guðrún griðka, hringaná. Ein sitr eptir bóndans kván


þeygi glýjuð, þungur sefi, ótti grípur, hnuggin og hnípin, -- „ó, bóndi minn”, og nagandi efi. Morgin næsta aptur snýr bóndi heim í föðurrann; ekki leyndu augu því að -- sprund á tálar dregið hafði hann. Beljar fljótið ógurlega, ólgar blóð í bónda mjök, næstu nótt á á ísinn flýgur; -- á því frygð ber alla sök. Bóndans kon´er situr ein brott sjer skund´á ísinn hann; angri nöguð, áhyggjumeini, -- sinn ektamak´og eiginmann.


Bíður Guðrún, ung og kát á, bökkum Ís´ár, friðils síns; faðmast þau og gera margt er -- eyrarúnu einni er ætlað. Kaldan vermir bónda skauti drósin, hón er hlý og mjúk. Hverfur þó bóndi enn á brautu, -- eftir að hann ásta naut. Kemur heim um morgin enn bóndi glýjaður, hughrifinn. Bóndans kon´ í gaupnir sjer lítur, -- ráð að finna bíræfin: Um nótt hon fer seiðskrat´ að finna biðr´um mátt tilað láta linna; „hugarangur, því


bóndi minn mæti -- í fljótið horfið ógnliga gæti.” Sendir nú seiðskrati á sjálfan djáknann sem forðum ísa á Myrká reið; sendir nú seiðskrati sjálfan djáknann -- yfir Ísaá erinda mikilla. Ríð´r nú djákninn draugs í líki, Grani vanur ísum og dýki; skeiðar gradd´ á jökum þunnum -- ber yfir flauminn knapann dauða. Bíður Guðrún fljóts á bökkum, telr þar þyrja sinn friðil fríðan. Stígr á bak að baki djákna, -- glýjuð og frökk; og hefst nú förin. Ógurlig er Ísaáin, þekkir Garún ei


framgenginn náinn, Grani skeiðar á jökum, áfjáður, -- hefur hann slíkt gert opt opt áður. Bíður húsfreyja vökul við glugga, sjer hon ríðandi koma skugga, tvennt er á baki mars ins stinna; -- nú stíg´r af baki in unga kvinna. Gengur á hlað út bóndans kona, laun færir djákna maklig, að vonum; tek´r hon á móti fljóði fríðu -- er fláræði olli og hug´rvíli stríðu: „Velkomin sjertu, in vonda mærin, sem tælir í hættu ástmög minn kær´n. Gakk nú í bæ og bú með oss, -- þá mun svaðilför´m bægt á brott.”


„Veistu eigi”, mælir sú þrýstna, „að eg á sök á að á gengust eiðar?” „Veit ek vel”, svarar húsfreyjan fróma, -- „og von´eg að ríði ei Ísaá optar, karl minn görr; og heldur vil eg deila með þjer, eiga hann hálfan, en taki´ann frá mjer, frá mjer allan, -- áin stríð Ísa,

--- árans bjálfann!


Bækurnar fást á Amazon freyjukettir@mmedia.is Norræn menning 558080 6941264 Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur - myndasögur og lestraræfingar: TAK-sögurnar -geimveran TAK- (30 sögur) Hannesar saga Grásteins (20 bækur) Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Litla flugan Hagbarður og Hvutti - barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður - smásögur: Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal


Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Bónda minn hálfan Hljóðahver ljóðakver Drottinn blessi heimilið -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? 1000 stjörnur -verðlaunaleikrit: Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning: Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna 1900-2000 efnisyfirlit) Óðsmál in fáðu (2000 streymi VHS DVD)


meðal annars: „

Bónda minn hálfan

-

árans bjálfann!“ og Hljóðahver ljóðakver

ISBN

978-9979-895-64-0


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
1000 stjörnur og fleira ljúft by Geimveran TAK - Issuu