Hannesar saga Grásteins 9. bók af 20 SURTARBRANDUR FER SÉR AÐ VOÐA 4.útgáfa
Freyjukettir, Norræn menning freyjukettir@mmedia.is Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir
lesum myndir, lesum stuttan texta, lesum langa sögu
Surtarbrandur fer sér að voða 9. bók
Nú eru kátir kattabræður saman á ný. Þeir eru rúmlega fimm mánaða.
Við pöntum tíma hjá dýralækninum. Við ætlum að láta vana þá. Surtarbrandur, fjörkálfur, stekkur garð úr garði á eftir fuglunum, og Hannes eltir.
Kátir saman.
Surtarbrandur geysist upp í trén til að reyna að klófesta fugl, en Hannes nennir ekki að leggja alveg svona mikið á sig. Þeir fljúga hvort eð er alltaf.
Að veiða.
Surtarbrandur hefur aldrei verið varkár. Hann hættir sér út á grannar greinar. Þótt fuglarnir geti léttilega setið á þeim, bera þær ekki köttinn.
Greinin svignar undan honum.
Og nú vill slysið til:
Greinin svignar æ meir.
ร ! รณ !
Kötturinn getur ekki fótað sig og fellur niður. Framfæturnir tóku við mesta fallinu, en þetta var það hátt, að hann lenti einnig á höfðinu. Dó samstundis. Hefur steinrotast eða hálsbrotnað.
Dáinn
Surtarbrandur liggur hér dáinn. Það blæðir úr munninum og nösunum. Aðeins í tvo daga fengu þeir að leika sér saman, bræðurnir, eftir að Hannes kom heim aftur. Hannes getur ekki skilið, hvers vegna Surtarbrandur vill ekki leika sér meira.
Við dysjum Surtarbrand í garðinum okkar við hlið Hafra, bróður hans, sem varð fyrir bíl og slasaðist til ólífis. Við létum Hannes ekki sjá, þegar bróðir hans var settur í kassa niður í djúpa holu og mold mokað yfir.
.
Dys
Dag eftir dag fer Hannes út í garðinn þar sem ærslaleikurinn hættulegi fór fram. Hannes leitar hér Surtarbrands. Dýrin geta líka saknað, er þau hafa misst vini sína.
Hannes leitar.
Við létum vana Hannes. Hann þurfti að jafna sig vel eftir aðgerðina.
Hannes vanaður
Við erum viss um að nú tekur hann ekki upp á því að fara á flakk. Hannes Grásteinn verður rólegur og heimakær heimilisköttur.
Hannes er blíður köttur. Hann talar við okkur - auðvitað á kattamáli: Korrandi mrjárr, þegar hann langar til að láta gæla við sig; langt máááááá, þegar hann er svangur; stutt máh þýðir að hann þurfi að bregða sér útfyrir. Hann þekkir alltaf nafnið sitt og svarar: -mjá.
Hann er blíður. Ef einhver er lasinn og þarf að liggja í rúminu, skal Hannes jafnan kúra þar. Ekki er heldur til betri lækning við hálsbólgu en hlýr mjúkur kattarfeldurinn. Ekki bregst að Hannes veit hvar við erum veik, -- hvernig sem hann fer nú að því að vita það: Ég meiddi mig í bakinu, og hann lá uppvið bakið á mér dag og nótt í heila viku.
Helgi meiddi sig í fæti, var í gipsi í mánuð, og alltaf sætti Hannes lagi við að leggjast ofan á fótinn --- sem var nú raunar allt of þungur fyrir.
Of góður.
Hannes er ógurlegt matargat, enda í góðum holdum. Litlum krökkum hættir til að leifa örlitlu af fiskinum sínum. Þá er gott að geta sagt að maður sé bara að geyma þetta, til þess að kisa fái eitthvað. -Hannes. Hannes köttur. Tis-tis. Hannes. Fiskruður, auðvitað með bræddu smjöri og tómatsósu. Hannes! Við köllum og leitum úti og inni. Hannes svarar ekki. Hvað hefur nú komið fyrir?
Hvar er Hannes nú? Nokkrum klukkustundum síðar kemur strákur á hjóli. Hann er með Hannes Grástein undir handleggnum: -Eigið þið þennan kött? Voruð þið ekki að leita um allt að gulum ketti í vetur? spyr strákur. -Jú. Og nú týndist hann aftur. Hvar var hann núna? Hvar fannstu hann? -Ég sá nokkra stráka bera hann upp á Vitastíg.
Þeir ráku hann út á götuna og reyndu að hjóla á hann. Þeir sögðust vera að búa til slys.
Hann fann Hannes. Þeir sögðu að enginn ætti þennan kött, -- þeir hefðu fundið hann. Ég hef sjálfur átt kött, sem strákar hjóluðu á. Hann meiddist svo mikið að það þurfti að lóga honum. -Þakka þér fyrir að bjarga Hannesi! Hvernig gastu hjólað með hann í fanginu? Komdu inn. Við viljum borga þér eitthvað fyrir, sagði ég.
-Gerði það bara fyrir köttinn, svaraði strákurinn á hjólinu. Ég er dýravinur, sagði strákurinn. -Ég má ekki vera að því að staldra við. Ég er að fara að selja blöð.
Hvort sem einhver á dýrið eða ekki, er þetta viðbjóðslegur leikur heimskra krakka. Vond börn. Hannes er ógurlega hræddur eftir allt sem hann lenti í þennan dag:
Fyrst ofsahræðslan þegar vondu strákarnir reyndu að hjóla á hann. Síðan ferðin heim á hjólinu með góða stráknum, sem hélt honum þéttingsfast til að missa hann ekki. Það er leiðinlegt að þurfa að trúa því að til séu börn sem velja sér svo ljótan leik sem þennan. Hvernig hefði getað farið fyrir Hannesi ef þessi góði hrausti dýravinur hefði ekki komið Hannesi til hjálpar?
Hannes er hvekktur. ****************
Hér endar níunda bók Hannesar sögu Grásteins 9. bók af 20: Surtarbrandur fer sér að voða (--þið munið að þessi saga er um sanna viðburði--)
1. 2. 3. 4. 5. 6.
bók: bók: bók: bók; bók: bók:
Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist Hannes Grásteinn og Surtarbrandur Kettlingunum stolið Það eina, sem er kátara en kátur kettlingur, er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða 10. bók; Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf?
12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli 15. bók: Snjótittlingaveiðar 16. bók: Nýi kettlingurinn 17. bók: Vor í lofti 18. bók: Hannes fer í sveit 19. bók: Hvolparnir 20. bók: Dánartilkynning Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon eða http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes - myndasögur og lestraræfingar: TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur, eftir Hjalta TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir Glámur auli eftir Bjarna Þór TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkvibíllinn
TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK
og og og og og og og og og og og og og og og og
erfiði maturinn flugeldarnir skemmtitækin martröðin landbúnaðurinn Lalli Marsbúi allraveðrapeysan páskaeggið fjölleikahúsið lyktarsjónvarpið græna ræktin jarðeplaupptökuvélin tilraunalímið lyftingageimveran mikla vinur fílsins náttúruvænu einnotapokarnir
Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon - fleiri myndasögur og lestraræfingar Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob?
eftir Guðrúnu Kristínu
Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti - langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður
- smásögur, unglingasögur Guðrúnar,
Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au-pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Drottinn blessi heimilið 1000 stjörnur / Bónda minn hálfan -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma?
Strætó í hringi Blisters and boiled ice, no, boiled eyes! - verðlaunaleikrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD) Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org
Hannesar saga Grásteins, 20 skemmtilegar bækur, yndisleg, sönn, viðburðarík saga